Skip to main content

Grafarholtsblaðið 5. tbl. 2023

Page 1

GHB 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 5/8/2023 10:55 PM Page 1

Grafarholtsblaðið 5. tbl. 12. árg. 2023 maí

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477

www.bilavidgerdir.is

Þjónustuaðili

Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal

Einn sá besti úr Val í Fram - Tryggvi Garðar Jónsson skrifaði undir hjá Fram

Tryggvi Garðar Jónsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fram. Tryggvi Garðar er tvítugur að aldri og með efnilegri leikmönnum á Íslandi um þessar mundir. Á nýliðnum vetri lék hann gott hlutverk í liði Vals. Þar náði hann sér m.a. í dýrmæta reynslu í Evrópukeppni félagsliða og átti frábæran leik gegn Göppingen úti í Þýskalandi þegar hann skoraði 11 mörk. Þá spilaði hann 18 leiki með Val í vetur og skoraði í þeim 31 mark. Tryggvi hefur einnig gegnt veigamiklu hlutverki í unglingalandsliðum landsins. Hann passar vel inn í ungt og ferskt liðs Fram. Félagið bindur miklar vonir við að hann blómstri ásamt liðinu á komandi tímabilum. ,,Það er mjög gott fyrir okkur að fá leikmann eins og Tryggva til liðs við okkur. Ég hlakka til að vinna með honum enda hefur hann lengi vel verið einn efnilegasti handknattleiksmaður landsins. Að auki mun hann henta vel inn í afreksmannaumhverfið hjá okkur í Fram þar sem hann mun fá að vaxa og dafna sem persóna og leikmaður,”sagði Einar Jónsson þjálfari Fram eftir að Tryggvi hafði skrifað undir samninginn. Velkominn í Fram Tryggvi og gangi þér vel! (Frétt frá Fram)

VISSIR ÞÚ?

AÐ JEFFREY „THE DUDE“ LEBOWSKI ÞOLDI EKKI EAGLES. Tryggvi Garðar Jónsson er genginn til liðs við Fram.

KÍKTU Í KEILU, PÍLU, KAREOKE, PIZZU, DRYKK, BOLTA OG FJÖR.

ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Grafarholtsblaðið 5. tbl. 2023 by Skrautás Ehf. - Issuu