ÁB 2020_Árbæ 1. tbl. Janúar.qxd 30/03/20 16:06 Page 7
Grafarholtsblaðið 4. tbl. 9. árg. 2020 apríl - Fréttablað íbúa í Grafarholti og Úlfarsárdal
Sebastian ráðinn þjálfari hjá Fram
Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur
Handknattleiksdeild Fram tilkynnti á dögunum um ráðningu Sebastians Alexandersonar í starf þjálfara meistarflokks karla. Sebastian skrifaði undir 3ja ára samning við félagið.
Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Uppl. á www.Krafla.is (698-2844)
Sebastian var leikmaður Fram hér á árum áður. Hann gekk til liðs við félagið árið 1998 frá Aftureldingu og lék með félaginu til ársins 2004 og var meðal annars í liðinu sem tryggði sér bikarmeistaratitilinn árið 2000. Sebastian gekk aftur til liðs við Fram árið 2011 og lék með liðinu leiktíðina 2011-2012 þá 42 ára að aldri. Sebastian starfaði lengi sem þjálfari á Selfossi og á stóran þátt í þeirri miklu uppbyggingu sem þar hefur verið í gangi síðastliðin ár. Sebastian hefur þjálfað kvennalið Stjörnunnar síðastliðin 2 ár með eftirtektarverðum árangri. Liðið er nú í 3. sæti deildarinnar þegar hlé hefur verið gert á deildarkeppninni. Við bjóðum Sebastian velkominn í Fram.
Sebastian Alexanderson hefur tekið við Framliðinu í handknattleik karla.
VERIÐ VELKOMIN Okkar metnaður er að veita ávallt faglega og góða þjónustu
Hlökkum til að sjá þig! Opið virka daga kl. 09.00-18.30 og laugardaga kl. 12.00-16.00
Vínlandsleið 16 Grafarholti urdarapotek.is Sími 577 1770