10. tbl. 21. árg. 2023 október Fréttablað íbúa í Árbæjarhverfi
Haustið er komið og vetur konungur handan við hornið. Víða má nú sjá fallega haustlitina og það skemmir ekki fyrir þegar fallegar fyrirsætur stilla sér upp fyrir ljósmyndarann. Katrín J. Björgvinsdóttir ljósmyndari Árbæjarblaðsins fór á kreik með myndavélina á dögunum og rakst á Sir Alex sem er eins árs um þessar mundir.
KÍKTU Í KEILU, PÍLU, KAREOKE, PIZZU, DRYKK, BOLTA OG FJÖR.
GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00
Árbæjarblaðið Árbæjarblaðið
Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is
Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.
Ritstjórn: Leiðhamrar 39 - símar 698–2844 og 699-1322.
Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is
Útlit og hönnun: Skrautás ehf.
Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánssonabl@skrautas.is
Prentun: Landsprent ehf.
Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir.
Dreifing: Póstdreifing.
Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Norðlingaholti og Úlfarsárdal.
Banna símana á morgun
Það er af mörgu að taka þessa dagana fyrir pistlahöfunda og erfitt að velja eitt málefni umfram annað þegar framundan eru óumflýjanleg pistlaskrif.
Það eru tvö stríð í gangi í heiminum og þarf ekki mikið að gerast til að rugga bátum það mikið að þriðja heimsstyrjöldin komi upp í hugann sem möguleiki. Ógnvænleg staða í Úkraníu og blóðbað virðist yfirvofandi meðal Hamas samtakanna og Ísrel.
Hér heima er mikið um að vera þessa dagana á mörgum vígstöðvum og margt eftirtektarvert í gangi.
Þorgrímur Þráinsson dúkkaði upp í Bítinu á Bylgjunni og þar voru orð í tíma töluð. Samfélagsmiðlar og símar fengu þar ekki háa einkunn. Eðlilega. Þorgrímur var skír í máli sínu að venju og skellti mikilli skuld á foreldra. Sagði berum orðum að foreldrar nenntu ekki að vera foreldrar. Þetta eru stór orð en eru þau ekki sönn? Auðvitað ekki að öllu leyti en að einhverju leyti sönn. Börnin og unglingarnir læra það sem fyrir þeim er haft. Langt er síðan ég varð einmanna í fjölskylduboðum og á meðal fólks yfirleitt enda læt ég ekki gemsann minn stjórna mínu lífi. Hann er góður til síns brúks en lengra nær það ekki. Fólk er lon og don í símanum og það má ekki hundur reka við, þá þarf að opinber það á facebook eða instagram. Samræður fólks heyra brátt sögunni til. Þótt ótrúlegt megi virðast eru enn til skólar sem banna ekki krökkum og unglingum að hafa síma meðferðis í skólann. Víðast hvar erlendis er þetta alfarið og eðlilega bannað. Ég hélt að allt fullorðið fólk skildi það að ekki gengur að fanga einbeitingu og athygli barna og unglinga í kennslustundum sem eru að horfa á myndbönd eða annan óþverra í símanum.
Agaleysi er annað stórt vandamál þegar börn okkar og unglingar eru annars vegar. Kennurum og foreldrum er vorkunn. Það er erfitt að ala upp börn og unglinga svo vel sé. Talandi um kennara. Ég vorkenni þeirri stétt sem aldrei fyr. Þrátt fyrir mjög erfið vinnuskilyrði standa þeir sig yfirleitt mjög vel og vinna gott starf. Þar eru auðvitað svartir sauðir innan um en heildin er sterk og skilar góðum verkum fyrir börnin okkar. Við þurfum að banna síma í skólum á morgun. Stemma stigu við samfélagsmiðlum eins og hægt er og foreldrar þurfa að taka sig á. Stefán Kristjánsson
Galið segir Dagur borgarstjóri
Borgarstjóri segir galið að breyta skipulagi Keldnalands fyrir aldraða og hreyfihamlaða
Á dagskrá síðasta borgarstjórnarfundar var umræða um vinningstillöguna að skipulagi við Keldnalandið, en við hana lagði ég til að sú breyting yrði gerð að lóðarhöfum yrði heimilt að reisa bílakjallara undir fjölbýlishúsum þar sem því verði viðkomið. Það yrði gert í þeirri viðleitni að koma til móts við m.a. aldraða og hreyfihamlaða, enda gerir vinningstillagan ráð fyrir því að íbúar leggi ökutækjum sínum í stórum miðlægum safnstæðahúsum í allt að hálfs kílómetra fjarlægð frá heimilum þeirra sem lengst þurfa að fara. Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, sagði við þetta tilefni galið að koma inn í umræður um vinningstillögu um Keldur og leggja til að vinningstillögunni yrði breytt fyrir aldraða og hreyfihamlaða, þrátt fyrir að íbúar þurfi að ganga allt að hálfan kílómetra til að komast til og frá heimilum sínum. Það þykir okkur sjálfstæðismönnum dapurt sjónarmið hjá borgarstjóra. Hann sagði jafnframt ekki þekkt að skipulagi að vinningstillögum væri breytt, en raunin er sú að það er alþekkt að vinningstillögum sé breytt við deiluskipulagsgerð í þeirri viðleitni að bæta skipulagið, en nærtækt er að nefna Hlíðarenda og Gamla garð í því
samhengi. Við þetta svar borgarstjóra verður ekki unað Eins og áður segir mun þetta þýða að íbúar þurfa að ganga í mishæðóttu landslagi, upp og niður brekkur, í öllum veðrum, til að komast til og frá heimilum sínum. Hafa ber í huga að á þessu svæði getur orðið ansi snjóþungt yfir hávetrartímann. Það hamlar þá enn frekar öldruðum og hreyfihömluðum að
komast leiðar sinnar. Auk þess má reikna með að þetta skapi erfiðleika fyrir barnafjölskyldur, sem koma til með að búa á svæðinu.
Við þetta svar borgarstjóra verður ekki unað enda er það skylda okkar borgarfulltrúa að koma til móts við þarfir allra og því er nauðsynlegt að gera breytingar á skipulaginu sem auðveldar íbúum aðgengi að heimilum sínum. Við borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munum vinna áfram að þessum breytingum. Enda vandséð annað en eldra fólk eða fólk sem á erfitt með gang geti eignast íbúð á þessu svæði verði skipulaginu ekki breytt. Þá er ekki viðunandi að íbúasamtök Grafarvogs og nærliggjandi hverfa hafi ekki verið boðið að segja álit sitt á vinningstillögunni áður en hún var kynnt, en einhverrar óánægju hefur gætt meðal íbúa Grafarvogi vegna samráðsleysis borgaryfirvalda í málinu. Málinu er því ekki lokið en nú fer málið í hið formlega skipulagsferli. Þar ætlast ég til þess að haft verði samráð við íbúasamtök Grafarvogs og aðra hagaðila um málið.
Björn Gíslason borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
L HÓPE ALLTTÁ FLI
T Á
Vanreifuð verðlaunatillaga um Keldnaland
- eftir Kjartan Magnússon
Við skipulag Keldnalands þarf að leggja mikla áherslu á samráð við íbúa Grafarvogs og taka fullt tillit til hagsmuna þeirra. Mikilvægt er að í Keldnalandi verði byggt fallegt og mannvænlegt hverfi en áhersla verði ekki lögð ofurþéttingu og hámarksgróða af lóðasölu eins og vinstri meirihlutinn í borgarstjórn stefnir að.
Aðkomu Grafarvogsbúa hafnað Niðurstöður skipulagssamkeppni um Keldnaland hafa nú verið kynntar. Við upphaf samkeppninnar óskuðu Íbúaráð Grafarvogs og Íbúasamtök Grafarvogs eftir því að fá fulltrúa í dómnefnd hennar. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins studdu þessar óskir Grafarvogsbúa en meirihluti Framsóknar, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar virti þær að vettugi. Aðkomu Grafarvogsbúa var þannig hafnað.
Fram hefur komið að meirihluti borgarstjórnar hyggist viðhalda ríkjandi lóðaskorti í borginni með því að takmarka lóðaframboð og halda þannig almennu íbúðaverði sem hæstu. Hámarksafrakstur hins opinbera verður þannig tryggður með okurverði til íbúðarkaupenda í Keldnalandi.
Kostnaður við samkeppnina nam um 100 milljónir króna. Í ljósi mikils kostnaðar við samkeppnina vekur furðu að í verðlaunatillögunni er skautað framhjá mörgum atriðum, sem varða margvíslega hagsmuni
núverandi íbúa Grafarvogs. Skulu nú nokkur atriði nefnd.
Ofurþétting Fyrirætlanir eru nú um að íbúabyggð rísi í Keldnalandi fyrir allt að 15 þúsund íbúa en áður voru mun lægri tölur nefndar eða 7-8 þúsund. Ef önnur áform um uppbyggingu í
Grafarvogi ganga eftir gæti raunin orðið sú að íbúafjöldi hverfisins tvöfaldist: fari úr 18 þúsundum í allt að 36 þúsund manns. Svo mikil fjölgun myndi hafa mikil áhrif á þá íbúabyggð, sem fyrir er í Grafarvogi, og lífsgæði íbúa.
Umferðarmálin óleyst Samkvæmt verðlaunatillögunni
verða umferðartengingar Keldnalands veigalitlar og þær munu því standa og falla með borgarlínunni. Íbúar Keldnalands munu að miklu leyti sækja þjónustu í norðurhluta hverfisins: í Spöngina, Egilshöll og Borgarholtsskóla. Því er líklegt að umferð muni stóraukast um Víkurveg, Borgaveg og fleiri götur. Að óbreyttu geta þessar götur illa tekið við svo mikilli umferðarauk ningu eins og Grafarvogsbúar vita.
Of fá bílastæði Bílastæðaskipulag tillögunnar tekur ekki mið af aðstæðum og veðurfari í nyrstu höfuðborg heims. Of fá bílastæði verða í Keldnalandi og íbúum hverfisins er ætlað að ganga langar leiðir frá heimilum sínum að bílastæðahúsum.
Íþróttir og útivist Verði áðurnefnd íbúafjölgun í
Grafarvogi að veruleika er ljóst að hverfisíþróttafélagið Fjölnir þyrfti á stóraukinni aðstöðu að halda í þágu barna- og unglingastarfs í hverfinu. Samkvæmt verðlaunatillögunni virðist hins vegar eiga að þrengja mjög að núverandi útivistarsvæðum og ekki er gert ráð fyrir íþróttasvæði fyrir hið nýja og fjölmenna hverfi.
Friðlýsing Grafarvogs Undirbúningur að friðlýsingu Grafarvogs stendur nú yfir á vegum umhverfisráðuneytisins og Reykjavíkurborgar. Lagt hefur verið til að grunnsævi, leirur og fjörur innan Grafarvogs, verði friðlýst, auk menningarminja og skilgreinds útivistarsvæðis hverfisins.
Verðlaunatillagan tekur ekki mið af þessari vinnu og e.t.v. er höfundunum ekki kunnugt um hana.
Tillagan kynnt í Grafarvogi
Vonandi tekst að ráða bót á vanköntum verðlaunatillögunnar, í þeirri skipulagsvinnu sem framundan er. Mikilvægt er að tillagan verði kynnt ýtarlega fyrir Grafarvogsbúum og þeim gefinn kostur á að koma athugasemdum á framfæri vegna hennar. Ánægjulegt er að í síðustu viku samþykkti skipulagsráð Reykjavíkur tillögu Sjálfstæðisflokksins um að sýning á áðurnefndri verðlaunatillögu yrði sett upp í Grafarvogi svo Grafarvogsbúar gætu kynnt sér hana í sínu heimahverfi. Slík kynning verður vonandi til þess að sem flestir íbúar Grafarvogs kynni sér tillöguna og segi álit sitt á henni.
Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í íbúaráði Grafarvogs.
FRÍSTUNDAMIÐSTÖÐIN BRÚIN TÚNSHOLTI OG NORÐLINGAHOL
Ártúnsholti og Norðlingaholti?
Fáðu vinnu í þínu hverfi
Það sparar tíma og pening að vinna nálægt heimilinu. Ef þú getur
nýtt umhverfisvæna samgöngumáta áttu rétt á samgöngustyrk.
Starfinu fylgja einnig möguleikar á að fá sund- og menningarkort hjá
g ásamt ýmsum styrkjum á vegum stéttarfélagsins. rg
starfsmannahóp á frístundaheimilum í Árbæ, samheldnum og skemmtilegum af partur vera Viltu Reykjavíkurbor
Á efri myndinni fagna Fylkismenn áframhaldandi veru í Bestu deildinni eftir 5-1 sigur gegn Fram. Fjölmargir áhorfendur mættu á lokaleikinn í deildinni og fögnuðurinn var mikill í Árbænum þegar sætið á meðal þeirra bestu var tryggt á næstu leiktíð. Á neðri myndinni fagnar Rúnar Sigmundsson þjálfari ásamt samstarfsmönnum sínum. ÁB myndir Hafliði Breiðfjörð
Fylkir
á réttum stað - áfram í Bestu deild
Fylkir leikur áfram í deild þeirra bestu í knattspyrnu karla. Þetta varð ljóst eftir stórsigur Fylkis á Fram, 5-1, á dögunum.
Fylkir var í harðri fallbaráttu undir lokin en með mikilli elju og samheldni hélt Fylkir sér örugglega uppi í deild þeirra bestu þannig að okkar menn verða á réttum stað á næstu leiktíð. Áhorfendur fjölmenntu á Fylkisvöllinn á lokaleikinn gegn Fram þar sem allt var undir.
Fylkisstúlkur tryggðu sér keppnisrétt í Bestu deild kvenna á dögunum og því verða bæði meistaraflokkslið Fylkis á réttum stað í knattspuyrnunni næsta
sumar. Leikmenn í meistaraflokki karla og kvenna hafa fundið vel fyrir góðum stuðningi áhorfenda í sumar en slíkur stuðningur gerir oft gæfumuninn.
Leikmenn flokkana sendu út sameiginlega yfirlýsingu að Íslandsmótinu loknum og við birtum hana hér:
,,Kæra Fylkisfólk, okkur leikmönnum meistaraflokks karla og kvenna langar að þakka ykkur Árbæingum og stuðningsmönnum Fylkis kærlega fyrir frábæran stuðning á nýafstöðnu tímabili.
Það var með hjálp ykkar sem við tryggðum sætin okkar í Bestu deildinni 2024 bæði hjá stelpunum og strákunum.
Það er frábært að fótboltinn hjá Fylki sé kominn á þann stað sem hann á að vera, með bæði liðin í Bestu deildinni og voruð þið þessi auka drifkraftur sem kom okkur á þennan stað.
Okkur hlakkar til að spila fyrir ykkur í deild þeirra bestu á komandi tímabili! Takk fyrir frábæran stuðning í dag og yfir tímabilið í heild!”
Þorskhnakkar með myntu og pistasíu pestó
- frábær réttur sem vert er að prófa
Enn og aftur bjóðum við lesendum upp á mjög góða uppskrift og að þessu sinni eru dásamlegir þorskhnakkar frá Hafinu á dagskránni hjá okkur. Þorskhnakkar með myntu, pistasíu og pestó.
Og eins og venjulega skorum við á lesendur að prófa þessa girnilegu uppskrift.
1/2 bolli nýrifinn parmesan 40 gr. 1/2 bolli pistasíuhnetur 50 gr. 1 hvítlauks rif.
Þorskhnakkarnir frá Hafinu eru ótrúlega girnilegir og sannkallaður sælkeramatur.
1/2 tsk. sjávarsalt.
1/2 tsk. nýmalaður svartur pipar. Safi frá 1/2 lime.
1/2 bolli góð ólífuolía.
- Gæðin skipta máli -
Uppskeruhátíðin 2023
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Fylkis fór fram um nýliðna helgi og voru þar leikmenn heiðraðir fyrir m.a árangur sumarsins.
Fyrir spilaða leiki fengu eftirtaldir leikmenn verðlaun:
Leikir fyrir alla flokka Fylkis: Elísa Björk Hjaltadóttir, Birta Margrét Gestsdóttir, Kolfinna Baldursdóttir, Nína Zinovieva, Rebekka Rut Harðardóttir, Katla Sigrún Elvarsdóttir, Þóroddur Víkingsson, Stefán Gísli Stefánsson og Aron Snær Guðbjörnsson
50 leikir fyrir m.fl Fylkis
Marija Radojicic, Sara Dögg Ásþórsdóttir, Sunneva Helgadóttir, Benedikt Daríus Garðarsson, Arnór Breki Ásþórsson og Óskar Borgþórsson.
100 leikir fyrir m.fl Fylkis Þórður Gunnar Hafþórsson og Nikulás Val Gunnarsson.
200 leikir fyrir m.fl Fylkis Orri Sveinn Stefánsson.
Markahæstu leikmenn Fylkis Guðrún Karítas Sigurðardóttir og Benedikt Daríus Garðarsson.
Efnilegustu leikmenn Fylkis
Rebekka Rut Harðardóttir og Ólafur Kristófer Helgason.
Leikmenn ársins
Orri Sveinn Stefánsson og Eva Rut
Ásþórsdóttir.
Sumarið endaði vel fyrir okkur
Fylkisfólk og munu liðin okkar bæði spila í Bestu deildinni á næsta tímabili !
Hitið ofninn í 200 gráður. Setjið þorskhnakkana í eldfast mót, saltið og piprið og gerið pestóið.Takið 2 msk.
af pistasíum til hliðar og setjið allt nema þær, parmesan ost og olífuolíu í blandara / matvinnsluvél, blandið vel saman hellið olíunni hægt út í og svo restinni af pistasíu og parmesan ostinum og púslið nokkrum sinnum. Dreifið pestói nú jafnt á þorskinn
og setjið inn í heitan ofninn í 17-19 mínótur( fer eftir þykkt bitanna) Dásemdar fiskréttur sem að allir munu elska.
Borinn fram með kaldri hvítlauksog agúrkusósu, fersku salati og sætum kartöflum. Verði ykkur að góðu
Leikmenn allra flokka 2023.
Efnilegustu leikmenn meistaraflokks 2023.
Bestu leikmenn 2023. Orri Sveinn fékk líka verðlaun fyrir 200 leiki.
Verðlaun fyrir 100 leiki.Markahæstu leikmenn 2023.
Verðlaun fyrir 50 leiki með meistaraflokki Fylkis.
Bingó í Hraunbæ
Nýverið fór fram bingó í félagsheimili eldri borgara í Hraunbæ 105 í Árbæjarhverfi. Eins og venjulega þegar bingó eru á dagskránni er mikið um að fólk mæti og skemmti sér vel í góðra vina hópi.
Bingóið á dögunum var engin undantekning og mættu um 80 manns á skemmtunina sem þótti takast afar vel að venju.
Verðlaun voru vegleg að vanda en þau eru þó ekki aðalatriðið á skemmtun sem þessari heldur að fólk geri sér dagamun og sjái aðra.
Ljósmyndir
Katrín J. Björgvinsdóttir
Katrín Jónína Björgvinsdóttir
ljósmyndari Árbæjarblaðsins mætti að sjálfsögðu á svæðið og myndir hennar frá bingóinu segja eins og alltaf mun meira en mörg orð.
og Sigurlaug Þorsteinsdóttir. Guðrún Hjaltadóttir og Sigríður Einarsdóttir.
Alda Úlfarsdóttir starfsmaður, Kiddý hársnyrtimeistari, Helga Ingólfsdóttir snyrtifræðingur og heilsunuddari og Heiða
Hrönn Harðardóttir forstöðumaður.
Unnur Ásgeirsdóttir
Hjónin Ellert Jensson og Fríða Friðriksdóttir. Hjónin Guðmundur Finnbogason og Erla Olgeirsdóttir.
Fríða Friðriksdóttir og Karen Kristjánsdóttir. Hjónin Guðmundur Karlsson og Guðrún (Rúna) Halldórsdóttir.
Margrét Ólafsdóttir og Hildur Bæringsdóttir.
Móeiður Jónsdóttir og Anna Konráðsdóttir.
Þórey Sævar Sigurbjörnsdóttir og Kolbrún Gunnarsdóttir.
Hjónin Einar Magnússon og Þorbjörg Grímsdóttir.
Hólmfríður Gísladóttir og Dóra Haraldsdóttir.
Bjarney Björgvinsdóttir og Sigríður Einarsdóttir.
Árbæjarblaðið
Kristín Sigríður Höbby Högnadóttir og Bryndís Snorradóttir.
Jónína Valdimarsdóttir og Guðrún Tryggvadóttir.
Kiddý hársnyrtimeistari í Hraunbæ 105 fór blíðum höndum um hárið á Gullu í Skalla.
Systkinin Hulda Jónsdóttir og Egill Jónsson ásamt Birnu Friðriksdóttur.
Matthildur Helgadóttir sá um að stjórna bingóinu.
Móeiður Jónsdóttir og Sigrún Eymundsdóttir sem átti afmæli þennan sólríka dag.
Sigurrós Ósk Karlsdóttir og Jónína Vilborg Jóhannesdóttir.
Ása Ásgrímsdóttir og Berta Guðný Kjartansdóttir.
Guðrún (Rúna) Halldórsdóttir og Ása Elísabet Sæmundsdóttir.
– Andlegt ferðalag
Tólf sporin – Andlegt ferðalag í Mosfellsbæ í vetur. Undirbúningsfundur fyrir starfið í vetur verður í Safnaðarheimili Lágafellssóknar að Þverholti 3, 18. október kl. 19.30.
Miðvikudagskvöldið 25. okt verður framhalds undirbúningsfundurr til frekari kynningar.
Opnu fundirnir eru ætlaðir svo fólk geti prófað og fundið út hvort sporavinna henti þeim. Eftir það hefst vinnan í 12. sporunum á lokuðum fundum.
Allir eru velkomnir og ekki þarf að skrá sig.
Endurvinnslum eropinallad móttakan agahjá
Við tökum vel á mót
Grænir skátar styðja við ungmenna
Frábært
Móttaka Endurvinnslunnar er opin 20kr. er opin alla d p káíH skátunum í Hr dreru
Munið eftir nýja endurvinn
alla daga vikunnar. agagjhjá b raunbæ in fyrir eininguna 20 k eidda Greiddarining eru
þjóðaleikum
nsluappinu astarf í samfélaginu. i þér.
Opnunartíminn okkar er:
Vikrir dagar kl. 9-18 Helgar kl. 12-16:30
Endurvinnslumóttakan Hraunbæ 123 . 110 Reykjavík
Karatefólk Fylkis stóð sig vægast sagt frábærlega á Smáþjóðaleikunum sem haldnir voru um liðna helgi. Þar sótti Fylkisfólk mörg verðlaun og var okkar fólk sér og félaginu svo sannarlega til mikils sóma.
Keppendur frá Fylki að þessu sinni voru þau: Karen Thuy Duong Vu, Filip Leon Kristófersson, Ísold Klara Felixdóttir, Hannes Hermann Mahong Magnússon, Samuel Josh M. Ramos, og Guðmundur Týr Haraldsson.
Guðmundur fékk brons í sínum flokki og Filip silfur í sínum flokki en þeir eru ungir og mjög efnilegir Karatemenn og kepptu að þessu sinni í yngra holli. Hjá þeim eldri var árangurinn síst lakari en þar gerði Samuel sér lítið fyrir og tók silfur og gull í sínum flokki en
hann keppti í U-21 og eldri flokki þar sem hann varð Smáþjóðarmeistari. Ísold sótti brons í sínum flokki en Karen gerði sér lítið fyrir og sigraði sinn flokk og er því einnig Smáþjóðarmeistari!
Ísland átti ekki að eiga nein lið í liðakeppni á sunnudeginum en fengu að skella í nokkur á síðustu stundu. Sammi og Hannes skelltu í lið ásamt Þórði frá Aftureldingu, þeir stóðu sig ansi vel og fengu brons í kumite liðakeppni senior karla.
Karen skellti í lið með Unu frá KFR (karatefélag Reykjavíkur) og þær spiluðu leikinn vel og fengu einnig brons í kumite liðakeppni Junior kvenna.
Við fögnum þessum frábæra árangri hjá okkar frábæra íþróttafólki og hlökkum til að halda áfram að fylgjast með þeim!
Keppendur frá Fylki að þessu sinni á Smáþjóðaleikunum voru Karen Thuy
Duong Vu, Filip Leon Kristófersson, Ísold Klara Felixdóttir, Hannes Hermann Mahong Magnússon, Samuel Josh M. Ramos, og Guðmundur Týr Haraldsson.
14 leikir, 14 sigrar og meistaratitill
Strákarnir okkar í 3. flokki
karla í Fylki gerðu sér lítið fyrir og urðu um liðna helgi Íslandsmeistarar C-liða í knattspyrnu eftir frábæran 2-1 sigur á Þór á Wurth vellinum fyrir framan fjölmarga áhorfendur.
Stákarnir áttu vægast sagt frábært sumar en þeir sigurðu alla sína leiki á Íslandsmótinu sem er algjörlega stórkoslegur
andstæðinga sína í 14 leikjum og voru strákarnir með fullt hús eftir sumarið. Sannarlega stórglæsilegur árangur. - einstakur árangur Fylkisstráka sem allir Árbæingar geta verið stoltir af
árangur, 14 leikir - 14 sigrar og Íslandsmeistaratiltill.
Þjálfarar flokksins eru þeir Steinar Leó Gunnarsson, Kristján Gylfi Guðmundsson og Hrannar Leifsson.
Við óskum þessum flotta hópi til hamingju með titilinn og hlökkum til að fylgjast með þeim ná enn meiri árangri á vellinum næstu árin!
í
í
ÞÚ
Íslandsmeistarar
knattspyrnu
3. flokki c-liða 2023. Þetta glæsilega lið Fylkisstráka náði einstökum árangri í sumar og sigraði
Undanfarin ár hafa Lionsklúbbarnir Fold og Fjörgyn boðið gestum og gangandi upp á ókeypis blóðsykursmælingar seinni hluta nóvember, sem hluta af sykursýkisvarnarverkefni Lions. Í ár verða mælingarnar laugardaginn 18. nóvember í Húsgagnahöllinni Bíldshöfða 20. Fyrir hönd félaga í Fold og Fjörgyn Þór Steinarsson og Margrét Jónsdóttir
Félagar í LionsFjörgyn og Fold mæta í Húsgagnahöllina 18. nóvember og mæla blóðsykur hjá þeim sem það vilja.
Fréttamolar frá kirkjustarfinu
Helgihald í október og nóvember 2023
Sunnudaginn 22. október
Guðsþjónusta kl. 11. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Stefáns Helga Kristinssonar organista. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Andreu Önnu Arnardóttur, Thelmu Rósar Arnardóttur og Sigurðar Óla Karlssonar. Kaffi og spjall eftir stundina.
Sunnudaginn 29. október
Guðsþjónusta kl. 11. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Stefáns Helga Kristinssonar organista. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Andreu Önnu Arnardóttur, Thelmu Rósar Arnardóttur og Sigurðar Óla Karlssonar. Kaffi og spjall eftir stundina.
Sunnudaginn 5. nóvember
Allra heilagra messa - Látinna minnst
Guðsþjónusta kl. 11. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Stefáns Helga Kristinssonar organista. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Andreu Önnu Arnardóttur, Thelmu Rósar Arnardóttur og Sigurðar Óla Karlssonar. Kaffi og spjall eftir stundina.
Sunnudaginn 12. nóvember
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11
Biblíusaga, brúðuleikhús og mikill söngur. Sr. Þór Hauksson og Ingunn Björk Jónsdóttir dákni þjóna. Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur á flygilinn. Kaffi og spjall eftir stundina.
Skriplað á skötu
Vart er til sú manneskja sem ekki hefur ,,skriplað á skötu.” Sagt eitthvað óviðurkvæmilegt í viðurvist annarra eða gert eitthvað sem mistekst eða fer úrskeiðis. Til er orðfæri um þennan mannlega breyskleika sem kallast að ,,verða á í messunni” sem hefur ekkert endilega með presta að gera þótt fleiri en ein bók og þrjár hafi verið gefnar út um ýmislegt sem snýr að þeirri ágætu stétt kvenna og karla. Lærðum sem leikum getur orðið á í messunni.
Fyrir fáeinum árum var undirritaður að skíra barn, í sjálfu sér ekki í frásögu færandi. Prúðbúnir kirkjugestir voru mættir að ógleymdum skírnarþeganum sem fannst við hæfi rétt fyrir skírn að láta í ljós óánægju sína að vera ekki búin að fá ,,áfyllingu.” Við því varð móðir barnsins að bregðast ekki seinna en strax í skrúðhúsinu. Börn eru nefnilega óafvitandi ,,harðstjórar”og vilja fá sitt og engar refjar. Eftir nægju sína af móðurmjólk var barnið sátt og sofnaði værum svefni komið í faðm föður þess.
Þá var ekkert annað en að stilla sér upp ásamt foreldum, skírnarþega og guðforeldrum barnsins við skírnarfontinn.
Eftir smá formála að skírninni hvatti ég viðstadda að hefja upp raust sína og syngja annan af tveimur sálmum athafnarinnar. Einhverstaðar djúpt í huga mér fannst mér eitthvað vanta. Hristi þá hugsun af mér og hóf upp raust mína og einhverjir af kirkjugestum tóku undir. Allt var eins og það átti að vera, söngur og gleði og barnið svaf vært. Barnið kippti sér ekkert upp við margróma sönginn sem fyllti hvern krók og kima kirkjunnar og eflaust fundið sér leið út fyrir hana og náð eyrum þeirra sem áttu leið um fyrir utan kirkjuna.
Þarna, sem ég stend við skírnarfontinn syngjandi glaður sé ég mér til mikillar skelfingar að ég hafði gleymt að setja vatn í skírnarsáinn. Um huga minn flugu ótal hugsanir á pari við að örlítill neisti hafi komist í flugeldafjölskyldupakka Hjálparsveitanna sem ég hafði fest kaup á deginum áður, nokkrum dögum fyrir gamlársdag. Hugsunaróreiðan var algjör í öllum regnbogans litum sem sprungu með hávaða inni í höfði mínu. Ekki laust við að mig hreinlega sundlaði. Undir og yfir slóst hugur minn bæði við að halda andliti og halda lagi í skírnarsálminum ,,Ó, blíði Jesú blessa þú....” Án þess að hugsa næsta skref til hlýtar í lok sálmsins tók ég upp skírnarsáinn sem er úr kopar. Lyfti honum yfir höfuð mér og gekk virðurlega áleiðis að vaskinum inni í hliðarherbergi/eldhúsaðstöðu starfsfólks kirkjunnar. Væntanlega frá sjónarhóli kirkjugesta var skírnarsáinn yfir höfði mér eins og geislabaugur á að líta. Þegar ég var komin í skjól úr sjónmáli 60 skírnargesta þaut ég að vaskinum og skellti vatninu í skírarnsáin. Þessu næst gekk hægt og virðulega að skírnarfontinum og lagði skírnarsáinn ofan í þar til gerða graupina á skírnarfontinum. Það var þögn, að mér fannst ærandi þögn. Mér fannst ég yrði að rjúfa þögnina með einhverjum tilhlýðilegum bænarorðum. Það fyrsta sem mér datt í hug að skella fram var bæn samin á staðnum,
sem hljóðaði einhvern veginn svona: ,,Góði Guð, þökk sé þér fyrir senn blessað vatnið sem fengið er úr brunni
sr. Þór Hauksson.
hjálræðis þíns.” Þessu næst þuldi ég upp skírnartextann sem finna má í Handbók Þjóðkirkjunnar fyrir skírnarathöfn og blessaði vatnið. Að því loknu var sofandi barnið ausið vatni bjargræðisins.
Eftir skírnina komu fleiri en einn og fleiri en tveir sem tjáðu sig um við mig að þeir hafi aldrei verið við svona hátíðega athöfn og fallega. Einn kirkjugesta tjáði sig um að honum léki
forvitni á að vita hvort heilagt/ blessað vatn væri í lítravís í flöskum á bak við og hnykkti höfði í átt að eldhúsinu. Blessunarlega man ég ekki hverju ég svaraði.
Fyrir öllu var að barnið var skírt í nafni Guðs föður sonar og heilags anda af presti sem auðveldlega getur orðið á í messunni sem mest um vert heldur ró sinni og þykist hafa allt á hreinu þótt svo sé alls ekki, svona á pari við ákveðna stétt fólks sem dveldur löngum stundum við Austurvöll. Er ekki sagt að eftir höfðinu dansa limirnir?