Árbæjarblaðið 7. tbl. 2023

Page 1


Árbæjarblaðið Árbæjarblaðið

7. tbl. 21. árg. 2023 júlí

Bifreiðaverkstæði

íbúa í Árbæjarhverfi

VISSIR ÞÚ?

Það er jafnan mikið um að vera á þjóðhátíðardaginn 17. júní í Árbænum. Það var engin undantekning þetta árið og þrátt fyrir skítaveður í byrjun sumars þá var veðrið þolanlegt á 17. júní og mikill fjöldi Árbæinga sem valdi að leggja leið sína á Árbæjarsafnið.

Þar var mikið og margt í boði og allir gestir gátu þar fundið eitthvað við sitt hæfi. Til að mynda mættu eigendur margra glæsilegra fornbíla á svæðið og glöddu gamlar glæsikerrur þeirra augu margra gesta á 17. júní á öllum aldri. Við birtum fleiri myndir Katrínar J. Björgvinsdóttur, ljósmyndara Árbæjarblaðsins á bls. 4, 6 og 10.

KÍKTU Í KEILU, PÍLU, KAREOKE, PIZZU, DRYKK, BOLTA OG FJÖR.

ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00

Árbæjarblaðið Árbæjarblaðið

Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is

Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.

Ritstjórn: Leiðhamrar 39 - símar 698–2844 og 699-1322.

Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is

Útlit og hönnun: Skrautás ehf.

Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánssonabl@skrautas.is

Prentun: Landsprent ehf.

Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir og Einar Ásgeirsson. Dreifing: Póstdreifing.

Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Norðlingaholti og Úlfarsárdal.

Velferð dýra í forgangi

Það hefur verið erfitt að vera Íslendingur og búa á suðvesturlandi. Sérstaklega hefur það verið mörgum erfitt í sumar enda veðrið verið ömurlegt í alla staði. Ekki sést til sólar vikum saman og rigning alveg linnulaus langtímum saman.

Það er ekki aðeins mannfólkið sem hefur fengið að finna fyrir leiðinlegu veðri. Gróðurinn, til dæmis hér á höfuðborgarsvæðinu, hefur heldur betur fengið að finna fyrir því. Sérstaklega þar sem vestan og suðvestan áttir hafa staðið af hafi. Seltan hefur drepið gróður í stórum stíl og það mun taka trjágróður sem lifir þessar hörmungar af mörg ár að ná sér.

Og svo loksins þegar fer að birta til í veðráttunni síðustu dagana hell-ast yfir okkur fréttir af refsiverðu hátterni yfirmanna í bankageiranum.

Bankastjóri hefur nú sagt af sér og fleiri yfirmenn eins bankans. Framkoma þessa fólks í garð eigenda bankans hefur verið hrikaleg og þetta fólk hefur stjórnað bankanum sem sínum eigin banka. Enn á eftir að birta starfslokasamninga þessa fólks og þá mun enn meira hneyksli koma í ljós. Er ekki kominn tími til að stjórnvöld vakni af værum blundi og setji á myndarlegan bankaskatt? Það er fyrir löngu tímabært að láta bankana greiða meira til samfélagsins enda gróði þeirra hrikalegur ár eftir ár.

Að öðru. Á dögunum frestaði matvælaráðherra hvalveiðum fram í ágúst og blés þar með vertíðina af korteri fyrir upphaf hennar. Þessi vinnubrögð eru ámælisverð og ekki hægt að koma svona fram við 150 starfsmenn Hvals sem reiknað höfðu með miklum tekjum og gert alls konar ráðstfanir. Ríkið verður að koma þessu fólki til aðstoðar. Hitt er að aldrei má líða að ekki sé farið eftir reglum um velferð dýra. Það er ekki með nokkru móti hægt að líða að margar klukkustundir taki að murka lífið úr Langreyðum og þeir aðilar sem treysta sér ekki til að drepa hvali nánast á svipstundu eiga ekki að fá leyfi til slíkra veiða. Að pína dýr er algjörlega óásættanlegt. Þetta hvalamál er mjög erfitt en alltaf skal hafa velfeð dýranna í fyrsta sæti. Þau eiga sér engan talsmann nema þann sem sér um að settum reglum um velferð þeirra sé fylgt. Stefán Kristjánsson

Samuel og Ísold með svart belti í Sportkarate

Þau Samuel Josh Ramos og Ísold Klara Felixdóttir, karatefólk í Fylki héldu til Danmerkur í síðustu viku og tóku þar gráðun fyrir svarta beltið í Sportkarate.

Þann 17. júni luku þau svo þrekprófi og gráðun, vel var tekið á þeim og þraukuðu þau bæði þrátt fyrir erfiði á köflum og kláruðu beltið með glæsibrag og óskum við þeim til hamingju með þennan frábæra árangur!

Það eru því fimm aðilar frá Fylki sem hafa hlotið svarta beltið í Sportkarate og erum við gríðarlega stolt af þeim.

Ásamt Samuel og Ísold eru þau Andri Sveinsson, fyrsti Íslendingurinn til að fá svarta beltið í Sportkarate en hann æfði og þjálfaði Sportkarate í Fylki í mörg ár, Iveta Ivanova og Ólafur Engilbert Árnason en bæði hafa þau verið valin Íþróttakona og íþróttakarl Fylkis oftar en einu sinni.

Það er ljóst að karatedeild okkar er gríðarlega framarlega á Íslandi og sannast það með árangri sem iðkendur okkar hafa náð undanfarin ár.

Við hlökkum til að fylgjast með þessu efnilega fólki halda áfram og ná lengra!

Það er ástæða til að óska þessum iðkendum sérstaklega til hamingju með glæsilegan árangur. (Frétt frá Karatedeild Fylkis)

Samuel Josh Ramos og Ísold Klara Felixdóttir.

Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur

Gröfum nöfn veiðimanna á boxin

Uppl. á www.Krafla.is (698-2844)

Tinna Brá Magnúsdóttir er mjög efnileg í knattspyrnunni og er komin í landsliðshóp Íslands þar sem leikmenn eru 19 ára og yngri.

Tinna Brá fer á EM

Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U19 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu, hefur valið Tinnu Brá Magnúsdóttur leikmann Fylkis í U-19 ára landsliðkvenna sem tekur þátt í

lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Belgíu dagana 18. til 30. júlí.

Ísland er í riðli með Spáni, Tékklandi og Frakklandi en aðeins átta bestu lið Evrópu leika til úrslita um Evrópumeistaratitilinn í þessum aldursflokki.

Það er mikill heiður að eiga fulltrúa í hópnum en Tinna hefur verið lykilmaður í Fylkisliðinu undanfarin ár ásamt því að vera fastamaður í landsliðshópnum.

Við óskum Tinnu til hamingju með valið og hlökkum til að fylgjast með henni á stórmótinu!

Fornbílar stálu senunni

Miðpunktur hátíðarhaldanna á 17. júní var á Árbæjarsafni og mætti þangað mikill fjöldi fólks. Margir viðburðir voru í boði en það sem vakti einna mesta athygli gesta voru glæsilegir fornbílar sem mættu á svæðið ásamt eigendum sínum.

Fjölmargir meðlimir eru í Fornbílaklúbbi Íslands og greinilegt er að mikill áhugi er hér á landi fyrir gömlum bílum. Hér sjáum við myndir frá hátíðinni í Árbæjarsafni en í næsta blaði birtum við fleiri myndir af glæsilegum fornbílum.

Vinirnir Kjartan Friðgeirsson og Jón Jakobsson við dælubíl frá Esso árgerð 1942, sem var notaður áður fyrr til að dæla bensíni á flugvélar.

Fornbílarnir vöktu mikla athygli.

Það var margt um manninn þegar haldið var upp á þjóðhátíðardaginn í Árbænum þann 17. júní.

Veður var með besta móti miðað við veðráttuna hér það sem af er ,,sumri”. Hátíðahöldin fóru fram í Árbæjarsafni og var margt um manninn að venju.

Gestum var boðið upp á margt skemmtilegt og að venju fundu allir eitthvað við sitt hæfi enda annað erfitt á dýrðarstað eins og Árbæjarsafni.

Ljósmyndir

Katrín J. Björgvinsdóttir

Boðið var upp á skemmtiatriði og glæsilegir fornbílar vöktu mikla athygli enda margir af elstu og glæsilegustu bílum landsins saman komnir á þjóðhátíðinni.

Kata ljósmyndari okkar mætti að sjálfsögðu á hátíðina. Við birtum fleiri myndir frá hátíðinni í næsta blaði.

Clement Uster, Dagný Lára Guðmundsdóttir, Jenny Barrett, Alfreð Óðinn Magnússon Barrett, Magnús Björgvin Guðmundsson og Fríða Salvör Magnúsdóttir Barrett.
Bettena Wunch á fagurskreytta hestavagninum ásamt Muna og Kóngi.
Eva María Sigurbjörnsdóttir aðstoðar félagsforingi Árbúa og Daði Már Gunnarsson félagsforingi Árbúa.
Gestir nutu þess að sitja í garðinum framan við Dillonshúsið að fá sér kaffi og góðar veitingar.
Frændsystkinin Natan Hrafn Freysson og Monja Ríkey.
sínum, Hallgerði Ástu Arnórsdóttur og Guðbjörgu Lilju Helgadóttur.
Elínbet Þórólfsdóttir og Þórunn Valdís Þórsdóttir að baka lummur í Árbænum.

SU MAR & RGRIL MEÐ L L ÐLÆT I T

RÍPTU GÓMS

G IÐ FY VAL TIL

YRIR VERSLU M L SÆTT GRIL

KÍKTU Á DU ÞÉ

UNARMANNA Ð Í F TI ME ME É LGINA! HE AGIÐ. RÐAL E

ÚRVALIÐ & NÆL R Í

Girnileg og bragðgóð Sítrus Langa

- frábær réttur sem vert er að prófa

Uppskriftin frá Hafinu að þessu sinni er í senn spennandi og girnileg. Gaman er að breyta til og Langa er afar bragðgóður fiskur sem gaman er að matreiða.

Við skorum að venju á lesendur að setja sig í stellingar og prófa.

1 kg Langa. 1 1/2 sítróna. 1 1/2 appelsína. 3 hvítlauksrif skorin í þunnar sneiðar. 1 rauðlaukur skorinn í báta.

Svartur pipar (eftir smekk). Vorlaukur, 4 stilkar skornir í litla bita.

Gæðin skipta máli -

1/2 rauður chili skorinn í þunna hringi. ca 1 dl / 1/2 bolli ólífuolía. Sjávarsalt (eftir smekk).

LEIÐBEININGAR

Skerið löngu í hæfilega bita og setjið í eldfast mót og marinerið með safa úr hálfri appelsínu, safa úr hálfri sítrónu,

rauðlauk, pipar, salti, vorlauk, hvítlauk, chili og afganginum af sítrónu og appelsínu skornum í báta.

Marinerið í um 30 mínútur. Hitið ofninn í 180ºC

Hellið ólífuolíunni yfir fiskinn og bakið í um 30 mínútur.

Takið fiskinn út úr ofninum og berið fram með jógúrtsósu, grænu salati. Uppskriftin er frá Kristjönu Steingrímsdóttur. Verði ykkur að góðu.

Íslensk

Hönnun Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur

Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Nánari upplýsingar á www.Krafla.is (698-2844)

Sítrus Langan er frábær í fiskrétti og þessi er afar girnilegur.
Vinkonurnar Sólveig Gísladóttir og Guðný Steina Pétursdóttir.
Laufey Pétursdóttir, Stefnir Sveinsson og Helena

Fréttamolar frá kirkjustarfinu

Helgihald í júlí og ágúst 2023

Sunnudaginn 9. júlí

Sumarguðsþjónusta kl. 11.00 sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Kristína Kalló Szklenár organisti. Léttar veitingar.

Sunnudaginn 16. júlí

Sameiginleg guðsþjónusta Árbæjar, Grafarvogs og Grafarholtssafnaða á Nónhæð rétt austan SÁÁ kl. 11. 00

(Nánar auglýst þegar nær dregur)

Sunnudaginn 23.júlí

Sumarguðsþjónusta kl. 11.00 sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Kristína Kalló Szklenár organisti. Léttar veitingar.

Sunnudaginn 30. júlí

Sumarguðsþjónusta kl. 11.00 sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Kristína Kalló Szklenár organisti. Léttar veitingar.

Sunnudaginn 6. ágúst

Sumarguðsþjónusta kl. 11.00 sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Kristína Kalló Szklenár organisti. Léttar veitingar.

Sunnudaginn 13. ágúst

Sumarguðsþjónusta kl. 11.00 sr. Bryndís Malla prófastur þjónar fyrir altari. Kristína Kalló Szklenár organisti. Léttar veitingar.

Skoðið nánar á heimasíðu kirkjunnar www.arbaejarkirkja.is

Með lykil um hálsinn

Í æsku minni hélt ég að sá eða sú sem framkvæmdi kraftaverk þyrfti að vera rosalega sterk/ur eins og kraftlyftingamaður. Einhvern veginn lá það í orðinu. Þetta kom upp í hugann þegar ég rýndi í orðið – krafta-verkþegar horft er á veðurfar síðustu vikna hér á suðvestur horni landsins. Orðið sem slíkt löðrar af krafti og styrk. Mörgum er það meðfætt að vera líkamlega sterkir og öðrum ekki. Það er eitt að vera líkamlega sterk/ur og hitt að vera sterk/ur andlega. Það er hægt að öðlast krafta og kenna til verka. Það ætti að taka það inn í grunnskólann frá fyrsta bekk eins og að lesa, reikna og draga til stafs. Stundaskráin gæti hljóðað þannig - Á morgun þriðjudag fara tveir tímar í krafta-verk. Þegar við heyrum orðið ,,kraftaverk” búumst við við því að eitthvað annað detti af hinnum ofan en rigning eða að við hnjótum um það á göngu okkar td. um dalinn okkar.

Fjöldinn allur lokar öllum skilningarvitum þegar orðið kraftaverk ber á góma. Úthrópa sig dreyrrauða sem hverja aðra bábilju sem á sitt heimilisfang ,,sautjánhundruð og blómkál” eða Einstefnugötu númer 56 einhverstaðar í svörtum miðöldum öllum gleymdur staður sem finnst ekki á Google map nútímans. Ekki á upplýstum tíma þar sem rafljósið teygir sig fleiri kílómetra upp í himinhvolfið og þar fyrir ofan og við jaðar þess hýrist væntanlega myrkrið í fávisku sinni. Nútíminn fær glýju í augun af birtu þeirri sem stafar frá upplýstum hugum og hugsunin endalaus unir sér ekki hvíldar að nema ný lönd innra með sér í þeirri hjartans sannfæringu að verið sé að feta sig öruggum skrefum í átt til enn meiri upplýsingar, sem vissulega má alveg til sannsvegar færa lengra frá því sem var.

Þessi upplýsing hvaða merkingu sem við hengjum aftan við það orð er eitthvað sem kemur að utan - ekki að innan (sem hún gerir vissulega). Við sem tökum við, lítum á tilveruna frá hinu ytra í stað þess að leyfa okkar eigin innsæi að fá meira rými til að verka. Þess vegna er sagt að tími kraftaverkanna sé liðinn og hnýtt aftan viðef sá tími hafi einhverntíma átt sinn stað.

Höfum við glatað þeim eiginleika að skapa innra með okkur ævintýri og eða látið öðrum það eftir að tala þau inn í huga okkar? Öðrum sem hafa engan áhuga á því hvort við lifum ævintýrið eða ekki. Höfum við glatað þeim hæfileika að nema lönd og strandir þar sem fullhlaðnir hugar fermast og affermast á degi hverjum og það er unnið á vöktum, svo mikill er atgangurinn-mettaður hugur sem leggst á kodda að kveldi og sprettur upp að morgni til nýrra verka ,ævintýra og kraftaverka. Já – ég segi það blákalt að krafta-verkin tilheyrðu ekki aðeins gömlu dögunum heldur eru þau að gerast í dag en við höfum glatað þeim eiginleika að nema þau og lifa. Finna fyrir þeim með öllum skynfærum. Kraftaverkin stór og smá eru við hvert fótmál okkar og eru alltaf að gerast.

til að halda áfram göngu okkar. Helstu trúar og sálmaskáld okkar Íslendinga, sr. Hallgrímur Pétursson og sr. Matthías Jochumsson áttu sínar stundir í trúarefa. Efinn er aflvaki nýrra tíma og verka og stórkostlegra verka sem lifa okkur.

Nútíminn í öllum sínum veraldlega krafti vill segja að skynsemin bendi aðeins á það sem er. Það er einfaldlega ekki pláss eða tími fyrir eitthvað sem er ,,ekki” í dag, en samt er þetta óútskýranlega alltaf að eiga sér stað fyrir augum okkar.

börnin ná til en við fullorðnu nennum ekki að beygja okkur eftir því sem þar er. Sú var tíðin að ævintýrið og kraftaverkið hafði lykil um hálsin og er reyndar enn þegar betur er skoðað. Lykillinn passar bara ekki lengur í skráargat hugsunar nútímans því það er búið að skipta um cylender. Allt skal vera raungert og digital og helst af öllu járnbent þannig að molni ekki raunsýnin og hrynji. Það passar ekki inni í ,,skynsemi” nútímans sem er reiknaður og formúleraður út í hið óendanlega til þess að ekkert geti komið á óvart, en gerir það samt. Næring nútímans er steingeld og skraufþurrrjúfur sandpappír sem slípar af allt það sem kallast misfellur því lífið og tilveran á og hún skal vera slétt og felld á yfirborðinu.

Það er hægt að tala um andlegt svelti. Ætla skyldi með veraldlegri velmegun nútímans fylgdi andleg velmegun, sem hin hliðin á veruleikanum. Þá komum við aftur að þessu með það sem stendur uppúr og er sýnilegt. Hin veraldlega velmegun er sýnileg og þarf sem slík á umönnun að halda til að viðhalda henni ekki aðeins fyrir okkur heldur og fyrir umhverfinu sem horfir forvitið á. Það er mannlegt að bregðast þannig við. Það er að sama skapi mannlegt að ætla að krafta-verk geti ekki átt sér stað og til þess að gera hafi aldrei átt sér stað.

Það er hugarfarið sem skapar kraftaverkið. Þess vegna eru kraftaverkin stór og smá alltaf að gerast í lífi okkar hvers og eins, bara að við leyfum okkur með lykil um hálsinn að taka beygju í lífi okkar inná Einstefnugötu 56.

Við eigum að efast um þennan raunveruleika sem við teljum okkur upplifa. Ég segi líka, efumst um allt með opnum huga og ótal möguleikum

Um nútímann má segja að hann er mettaður af raunhyggju þar sem ævintýrið og kraftaverkið hefur verið komið fyrir í neðstu hillu þar sem

Æ FM A A S Æ GÆ G E ST / R ANI LI A J G G

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.