Árbæjarblaðið 5.tbl.2023

Page 1


Árbæjarblaðið Árbæjarblaðið

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir

Gylfaflöt 24 - 30 • 112 Reykjavík Sími 577 4477 www.bilavidgerdir.is

Þjónustuaðili

Það var mikið fjör og mikið gaman þegar Árbæjarkirkja bauð til frumbyggjamessu í kirkjunni á dögunum. Um 100 Árbæingar mættu á hátíðina og voru miklir fagnaðarfundir í kirkjunni þegar frumbyggjar í Árbæjarhverfi hittust. Nánar á bls 12 og 13.

Systurnar Fanney, Laufey og Eygló Stefánsdætur. ÁB-mynd Katrín J. Björgvinsdóttir

Árbæjarblaðið Árbæjarblaðið

Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is

Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.

Ritstjórn: Leiðhamrar 39 - símar 698–2844 og 699-1322.

Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf.

Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánssonabl@skrautas.is

Prentun: Landsprent ehf.

Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir og Einar Ásgeirsson.

Dreifing: Póstdreifing.

Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Norðlingaholti og Úlfarsárdal.

Forréttindi að búa í úthverfum

Stór hluti þjóðarinnar hefur kosið og kýs að búa í úthverfum höfuðborg-arinnar.

Þrátt fyrir það hafa úthverfin oftar en ekki verið útundan þegar framkvæmdir eru annars vegar og setið oftar en ekki eftir í almennri uppbyggingu.

Íbúar í Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti og Úlfarsárdal þekkja vel þá þrautagöngu sem búið er að ganga í gegnum varðandi uppbyggingu hverfanna.

Það eru mikil forréttindi að búa fjarri miðborginni og öllum þrengslunum og skarkalanum þar og mikill fjöldi fólks hefur valið þann kostinn að búa í rólegum úthverfunum.

Í úthverfunum er í boði að njóta náttúrunnar og þess sem hún hefur upp á að bjóða. Grafarvogsbúar geta gengið og hjólað eftir mjög góðu stíga-hverfi og notið um leið fjölbreytts fuglalífs í Grafarvoginum. Það fuglalíf er fjölbreyttara en margan grunar.

Árbæingar sitja að frábærri náttúrulífsperlu sem er Elliðaárdalurinn. Einn fallegasti blettur höfuðborgarsvæðisins. Framkoma og tilraun Orkuveitu Reykjavíkur til að eyðileggja þessa náttúruperlu mun vonandi mistakast. Íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal eru síst á flæðiskeri staddir þegar kemur að náttúruskoðun og útivist. Þar eru stórbrotin útivistarsvæði og rakið fyrir göngufólk að reyna sig við Úlfarsfellið. Í öllum úthverfunum er mikið íþróttastarf í gangi og aðstaðan öll orðin viðunandi þó alltaf megi gera betur. Fjöldi barna og unglinga sem stundar íþróttir er gríðarlegur og fjöldi fólks í úthverfunum sinnir mjög mikilvægu sjálfboðaliðastarfi innan félaganna. Allt mun þetta mikla starf skila sér þegar fram líða stundir enda löngu vitað að íþróttir og almennt félagslíf er besta forvörnin varðandi þær mörgu hættur sem í boði eru í dag fyrir börn og unglinga.

Það eru blikur á lofti varðandi framtíðina hér á landi. Fólk veit varla í hvorn fótinn það á að stíga. Margir hafa það ótrúlega gott á meðan fjöldi fólks á í miklum vandræðum. Illa gengur í slagnum við verðbólguna. Þrettánda vaxtahækkun Seðlabankans er yfirvofandi og vextir komnir fast að 8 prósentum. Verið er að ýta fólki út í verðtryggð lán. Ráðist er að einkabílnum úr öllum áttum og fokdýr borgarlína yfirvofandi sem enginn hefur efni á og enginn veit hvernig á að reka. Helfrosinn húsnæðismarkaður. Svona mætti lengi telja. Það jákvæða er að sumarið er komið og við óskum lesendum okkar gleðilegs sumars. Stefán Kristjánsson

Borgarstjórn samþykkir samning í blindni

- eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Það er með hreinum ólíkindum að kjörnir fulltrúar borgarmeirihlutans hafi samþykkt hlutafjáraukningu í Ljósleiðaranum, í liðinni viku, án þess að sjá hvað stóð í samningnum sem er á milli Sýnar og Ljósleiðarans. Skattgreiðendur ættu að geta gert þá kröfu til okkar kjörinna fulltrúa að þeir samþykki ekki samninga í blindni.

Hér er um milljarða hagsmuni skattgreiðanda í Reykjavík að ræða, enda stendur til að fara í lagningu nets ljósleiðara um allt land, sem er raunar hluti af þessum pakka. Verja þarf tugum milljarða króna í fjárfestingar svo hægt sé að framkvæma þær áætlanir, en nú þegar hefur borgin samþykkt að breyta lánaskilmálum Orkuveitu Reykjavíkur til að svo megi verða.

Sú staðreynd að Reykjavíkurborg, sem er skuldum vafinn, ætli sér að heimila lagningu nets ljósleiðara um allt land, utan starfssvæðis Reykjavíkurborgar, er ekki síður með hreinum ólíkindum, enda mikil áhætta og kostnaður sem fylgir slíkri lagningu. Í því sambandi nægir að nefna að tækninni fleygir fram og margir byrjaðir að nota svokallaða 5G netbeina og fyrirséð að sú notkun muni aukast.

Borgarstjórn ber ábyrgð gagnvart skattgreiðendum Borgarfulltrúar mega ekki missa sjónar af því að fyrirtækið Ljósleiðarinn er í eigu skattgreiðenda í borginni. Og við sem eigum sæti í borgarstjórn berum ábyrgð gagnvart skattgreiðendum. Það er hreinlega skylda okkar að kynna okkur hvað stendur í samningum sem gerðir eru við borgina eða fyrirtækja í hennar eigu þegar um meiriháttar hagsmuni er að ræða, sem gætu haft áhrif á fjárhagslega hagsmuni Reykjavíkurborg. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að Ljósleiðarinn er fyrirtæki á samkeppnismarkaði og því ekkert nema eðlilegt að ekki sé hægt að hafa allt fyrir

opnum tjöldum til að skaða ekki samkeppnisstöðu fyrirtækisins.

Komi upp slík tilfelli er yfirleitt farin sú leið að sýna þeim sem bera ábyrgð og taka ákvarðanir samningana svo þeir geti metið fýsileika þeirra, enda ber borgarstjórn endanlega ábyrgð á þessum fjármálagerningi. Það hefði þannig verið mun heppilegra hefðu borgarfulltrúar fengið að rýna samninginn, sem fulltrúar skattgreiðenda, áður en hlutafjáraukningin var samþykkt.

Kalla eftir skoðun umboðsmanns Alþingis

Að mínu mati kallar þessi gjörningur á frumkvæðisathugun umboðsmanns Alþingis, en ekki er ábyrgt að skapa fordæmi fyrir því að kjörnir fulltrúar hafi ekki tök á að kynna sér efni meiriháttar hagsmunamála áður en farið er í samþykkt þeirra. Undir öllum eðlilegum kringumstæðum, ættu kjörnir fulltrúar að geta metið

fjárfestinguna, þ.e. hvort það sé fýsilegt fyrir skattgreiðendur að borgin fari þessa leiðina eða aðra. Við kjörnir fulltrúar gátum því miður ekki svarað þeirri spurningu á borgarstjórnarfundinum í liðinni viku enda engin þeirra, nema e.t.v. borgarstjóri, sem búinn var að sjá þennan samning.

Í gagnaherbergið vantaði lykilgagnið Ekki er hægt að láta hjá líða að nefna að borgaryfirvöld komu upp svokölluðu gagnaherbergi í tengslum við þetta mál, með tilheyrandi leynd. Sú staðreynd væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að í gagnaherbergið vantaði lykilgagnið, samninginn.

Það skal áréttað hér að undirritaður hefur ekkert á móti því að fyrirtækið Ljósleiðarinn verði sett í söluferli, enda mögulega hægt að grynnka á skuldavanda borgarinnar yrði fyrirtækið selt í heild sinni. Staðreyndin er hins vegar sú að með þessari hlutafjáraukningu munu skattgreiðendur þurfa að leggja fyrirtækinu Ljósleiðaranum til enn meira fé, enda fyrirhugað að fara í uppbyggingu ljósleiðara út um allt land eins og nefnt var hér að ofan.

Óðs manns æði að samþykkja óséðan samning Málið er því einfalt og ekki þarf neinn sérfræðing í fjármálum til að átta sig á því að það var hreinlega óðs manns æði að samþykkja samning sem við höfðum ekki fengið að sjá. Ég gat því ekki annað en greitt atkvæði gegn hlutafjáraukningunni á þeirri forsendu, enda annað óábyrgt gagnvart skattgreiðendum borgarinnar. Það að borgarfulltrúar hafi ekki fengið að sjá samninginn gengur raunar í berhögg við eigendastefnu borgarinnar, en ég þori að fullyrða að ekkert okkar myndum skrifa undir kaupsamning á nýrri íbúð án þess að fá að sjá hvað stæði í kaupsamningnum.

Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Skoppandi skemmtilegt sumar í Skopp á Dalvegi

- nýr fótboltavöllur, klifurveggur og barnasvæði

Skopp er stærsti trampólín- og afþreyingargarður á Íslandi og hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Undanfarið hafa staðið yfir endurbætur í garðinum og spennandi nýjungar hafa litið dagsins ljós. ,,Þrír nýir afþreyingarmöguleikar eru orðnir að veruleika í Skopp. Gagnvirkur fótboltavöllur sem hefur slegið í gegn, nýr og spennandi klifurveggur sem var hannaður í samstarfi við Benjamin Mokry hjá Klifurhússinu og nýtt barnasvæði fyrir yngstu börnin,“ segir Þórey Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Skopp.

Sumarnámskeiðin alltaf vinsæl Byrjað er að taka við bókunum á sumarnámskeiðin vinsælu. Sumarnámskeiðin eru undir stjórn öflugra leiðbeinenda og samanstanda af frjálsum leik á trampólíni, skotbolta, fótbolta, koddaslag og klifurkeppni. Mesta áherslan er þó lögð á hópefli, gleði og heilbrigða samveru. Allir þátttakendur fá bol, sokka og bakpoka og veittur er 10% systkinafsláttur. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 7 – 12 ára og hægt er að fá nánari upplýsingar og skrá sig á nýrri vefsíðu Skopp –www.skoppisland.is.

Frjálst hopp fyrir 4 ára og eldri í stað 6 ára og eldri Á síðasta ári vakti athygli þegar Skopp breytti aldurstakmarkinu í garðinn þannig að 6 ára aldurstakmark var í frjálst hopp. Markmiðið var að hámarka öryggi

„Reynslan okkar sýndi að ákveðin hætta á óhöppum skapaðist þegar yngri börn hoppuðu innan um eldri börn.

Óhöppin voru þó nær alveg bundin yngstu börnin, þ.e. 3 ára og yngri. Við ákváðum þeim tímapunkti að ganga mjög langt til að geta metið árangurinn og mögulega endurskoðað aldurstakmarkið aftur síðar í litlum skrefum,“ segir Þórey.

Þó að þessar breytingar hafi mætt almennum skilningi þá urðu líka vonbrigði hjá fjölskyldum sem gátu ekki lengur nýtt Skopp sem áfangastað fyrir alla fjölskylduna.

„Við höfum átt ótal samtöl við foreldra og viðskiptavini á síðustu vikum og mánuðum og útskýrt okkar markmið, að öryggið sé í forgangi, en á sama tíma vakið athygli á því að við erum að læra á leiðinni. Þess vegna höfum við ákveðið að taka eitt skref til baka hvað aldurstakmark varðar og miða lágmarksaldur í frjálsu hoppi við 4 ára (afmælisdagur barns gildir).

Þess má geta að sambærilegir garðar í löndunum í kringum okkur miða flestir lágmarskaldurinn við 3 ára. En við stígum varlega til jarðar og ítrekum að um lifandi lærdómskúrfu er að ræða. Ef við verðum vör við að aukna tíðni óhappa þá einfaldlega tökum við skref til baka aftur,“ bætir Þórey við að lokum.

Skopp afgreiðsla.
Þórey framkvæmdastjóri Skopp og Jói talsmaður Gleðipinna.
Nýr fótboltavöllur.

Lavor

háþrýstidæla

Mótor: 2500W

Ásgeir og Daði

- í landslið drengja í fimleikum

Tveir fimleikastrákar í Fylki voru á dögunum valdir í landslið drengja í fimleikum.

Ásgeir Smári Ásgeirsson og Davíð Þór Bjarnason voru nýlega valdir í landslið drengja í áhaldafimleikum fyrir Norðurlandamót ungmenna sem haldið verður í Finnlandi núna í maí.

Báðir hafa þeir æft fimleika í langan tíma og eru meðal efnilegustu iðkenda deildarinnar. Það er gleðiefni fyrir iðkendur sem og deildina þegar okkar fólk er valið í landslið. Það verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni og við óskum þeim til hamingju með áfangann.

Lúkas Oliver og Tindur

voru valdir í Reykjavíkurúrvalið í knattspyrnu

Elmar Hjaltalín hefur valið þá Lúkas Leó Tómasson, Tind Elí Birkisson og Olivier Napiórkowski í Reykjavíkurúrvalið sem mun taka þátt á grunnskólamóti Norðurlandanna í Helsinki í maí. Fylkir á flesta fulltrúa í liðinu sem er

mikil viðurkenning fyrir það frábæra starf sem unnið er hjá okkur. Allir eru þeir fæddir árið 2009 og eru lykilmenn í 4.flokki félagsins. Lúkas Leó Tómasson er áræðinn miðjumaður með gott auga fyrir spili. Tindur Elí Birkisson er fjölhæfur

sóknarmaður sem tekur mikið til sín og er sérstaklega góður í stöðunni 1v1. Olivier Napiórkowski er eldsnöggur varnarmaður sem leyst getur bæði stöðu miðvarðar og bakvarðar

Lúkas Oliver og Tindur voru valdir í Reykjavíkurúrvalið.
Tinna María

Suðrænt fiski taco með léttu

hrásalati

- frábær réttur sem vert er að prófa

Hér birtum við uppskrift að frábærum rétti frá Hafinu. Við skorum á áhugasma lesendur að prófa því það er svo sannarlega þess virði.

Uppskrift fyrir 4. Innihald

600 gr. Þorskhnakkar. 2 tsk. paprikuduft.

0,5 tsk. malað brodd kúmen. 0,5 tsk. salt. 0,5 tsk. malaður pipar. 0,25 tsk. cayenne pipar. Guacamole. 2 stk. avókadó. Safinn af 1/2 lime. 0,5 tsk salt. 2 matskeiðar saxaður ferskt kóríander.

Salat

300 gr. rauðkál.

1 stk. rauðlauk.

0,5 stk. sítróna.

0,5 tsk. salt.

0,5 tsk. malaður pipar.

Berið fram með.

8 stk. stórar tortillur.

1 stk. avókadó.

1 stk. grænt chili.

1 búnt af ferskum kóríander.

1 stykki sítróna.

Aðferð

Blandið öllu þurrkryddinu saman í skál.

Skerið fiskinn í helming, u.þ.b. 5 cm langar ræmur. Setjið fiskinn í skálina með kryddblöndunni, þannig að allir fiskbitarnir séu þaktir kryddi.

Skerið avókadóið í tvennt, fjarlægið steininn og maukið avókadóið í skál með gaffli. Kryddið með limesafa, salti og fersku kóríander.

Skerið rauðkálið í þunnar ræmur. Skerið rauðlaukinn í fína

litla bita og blandið saman með rauðkálinu í skál. Bætið sítrónusafanum við og smakkið til með salti og pipar.

Steikið fiskinn á pönnu eða grillið í 23 mínútur á hvorri hlið. Hitið tortillurnar í ofni eða á pönnu.

Leggið rauðkálsalatið á tortillu kökurnar og setjið fiskinn ofan á. Berið fram með fersku lime, chili sneiðum og ferskum kóríander.

Verði ykkur að góðu!

Glæsilegur réttur og hreint lostæti. Fiski taco með léttu hrásalati.

Endurvinnslum

eropinallad móttakan agahjá

Móttaka Endurvinnslunnar er opin

Grænir skátar styðja við ungmenna Við tökum vel á mót

alla daga vikunnar.

nsluappinu astarf í samfélaginu. i þér.

Munið eftir nýja endurvinn

20kr. er opin alla d p káíH skátunum í Hr dreru

20 k eidda Greiddarining eru

in fyrir eininguna

Opnunartíminn okkar er:

Vikrir dagar kl. 9-18

Helgar kl. 12-16:30

Endurvinnslumóttakan Hraunbæ 123 . 110 Reykjavík

Reynir á samstöðuna í sumar

Byrjunin hjá karlaliði Fylkis í Bestu deildinni í knattspyrnu hefur verið mjög erfið og eftir fyrstu sex umferðirnar er Fylkir í neðsta sæti deildarinnar með aðeins 3 stig. Í síðasta leik skoraði Breiðablik sigurmarkið í 1-2 sigri þegar aðeins 5 mínútur voru til leiksloka. Áður hafði Ólafur K. Finsen jafnað fyrir Fylki í fyrri hálfleik, 1-1.

Íslandsmótið er varla byrjað og hefur aldrei verið lengra. Það á eftir að leika marga leiki og Fylkismenn og Árbæingar allir mega ekki gefast upp. Árbæingar verða að halda áfram að styðja sitt lið og standa með því í blíðu og stríðu.

Kvennalið Fylkis leikur í Lengjudeildinni í sumar, næst bestu deildinni í kvennaboltanum. Þar hefur

liðið lokið einum leik og niðurstaðan varð jafntefli, 2-2, gegn Aftureldingu. Stelpurnar gerðu þetta ágæta jafntefli við Aftureldingu í fyrsta leiknum í Lengjudeildinni þar sem Sunneva Helga og Guðrún Karitas skoruðu mörkin fyrir Fylki. Stelpurnar í Fylki þakka kærlega fyrir stuðninginn á síðasta leik þar sem rúmlega 430 manns mættu á völlinn til að styðja þær. Vel gert Árbæingar.

Eins og áður sagði skiptir samstaðan öllu máli fyrir knattspyrnufólkið í Fylki. Í liðum Fylkis eru snjallir leikmenn sem verðskulda mikinn stuðning og árangurinn mun skila sér í hús með tímanum. Við hvetjum Árbæinga til að fjölmenna á leiki Fylkis í sumar.

Það er alltaf þörf fyrir sjálfboaliða í öflugu starfi innan Fylkis.

ÁRA -9 FYRIR 6

2013-2016) (FÆDD

Ísum

ar verður starfsemi

ng æ í E Brosb

gjaskóla

i frístundaheimila fyrir börn úr 1. - 4. bekk í: að sæf Simb faara í Hamraskóla

æ við S Fjósinu

mundarskóla

Stjörnulandivið Ingunnarskóla

í Hvergilandi

Borgaskóla saskóla

Hús Kastalaí

byggir iðSumarstarf Regnboga H ygg eyt f fjjölbr tt t dagskrá þemadögum, f feerðum lögð á að virkja bö á á

Tígrisbæ við Rimaskóla Töfraselivið Árbæjarskóla

alandi í Foldaskóla áralangrireynslu og all ver f fyyrirh rjja vikusemby r nt mog ýmsumævi týýruumínæ rnintilákvarðanaattökuumh börnin úr3. og 4. b f fiinna á https://frist ekkt.d. f tilþessað faara íle und.is/ og skráningfer fr

Víðiselií Selásskóla unda f f f f lirstarfssmenn hafa a starfaað með börnumí frríst ahheimilum.Gerð er ð f r eyf fr yggirá frrjjálsumleik,hr fiingu,útiveruu, skapandistarfii,smiðjjum, bor f ærruumhverfiinu og um rginasemmiðastvið aldurshópinn.Áhersla er h f t ina ýmsu þæ tistarfssins.Saammstarfer f milli frrístundaheimila varðandi f ngri feerðir f ðf ef f og fá á meira kr fjjandivi faangsefnni .Náánnariupplýsingarerað am á sumar.fristund.is

Allir staðir opnir:

8.júní-9. júní

12 júní - 16 júní

12. júní16. 19. júní 23. júní 26. júní-30. júní 3. júlí 7. júlí

Lokað

8 1 10. júlí 7. ágúst

Allir staðir opnir: 8. ágúst -11. ágúst 4. ágúst -18. ágúst

Arason,

Kalló, Einar Clausen og Ingi Guðmar Ingimundarson.

Frumbyggjamessan

Lengi hafði verið á döfinni hjá Öldu Maríu Magnúsdóttir og kirkjuverði Árbæinga allt frá sjötta áratug síðustu aldar og sóknarpresti Þór Haukssyni að kalla saman fólkið sem telst til ,,frumbyggja” Árbæjar og Selás. Þau sem byggðu og þau sem ólust upp í Árbænum

fyrstu árin þegar hverfið var að byggjast upp seint á sjöunda áratugnum og árunum þar á eftir. Sunnudaginn 23. apríl var boðið til guðsþjónustunar. Árbæingarnir

ÁB myndir Katrín J. Björgvinsdóttir

Bjarni Ara og Einar Clausen sungu við almenna ánægju kirkjugesta við undirleik organista kirkjunnar Kristínu K. Szklenár. sr. Þór Hauksson þjónaði fyrir altari. Boðið var upp á léttar veitingar á eftir þar sem margar sögur voru rifjaðar upp og mikið hlegið.

Um eða yfir 100 frumbyggjar í Árbæjarhverfi mættu á frumbyggjamessuna.

Sólrún Ólafsd og Jóhanna Þórhallsdóttir.

Valgerður Tómasdóttir og Ósk Aradóttir kirkjuvörður.

Systkinin Lilja Guðmundsdóttir, og Gísli Guðmundsson sem bjuggu í Selás 6.

Gamlir skólafélagar úr Árbæjarskóla, Katrín J. Björgvinsdóttir og Pétur Þorgrímsson.

Það var áhugavert að skoða gömlu bekkjarmyndirnar úr Árbæjarskóla. En margir byrjuðu þó í Rofaborg áður en Árbæjarskólinn varð tilbúinn.

Hjónin Ingibjörg Geirmundsdóttur og Sigurpáll Grímsson.

Kristín Björnsdóttir, Steingrímur Steingrímsson og Guðrún Björnsdóttir.

Systurnar Sigríður Helga Sigurðardóttir og Þórey Sigurðardóttir, Marteinn Stefánsson og Ásgerður Helgadóttir.

Inga Bjarnadóttir, Björg Jóhannesdóttir og Þorgeir Hafsteinsson að skoða gamlar myndir.

Guðmundsdóttir,

Bjarni
Krisztina
Guðbjörg
Magnhildur Friðriksdóttir og Sigurður Haraldsson.

Árbæjarblaðið

Borðin svignuðu undan kræsingunum.

Þorgrímur Guðmundsson, systurnar Auður og Steinunn Sigurðardætur, fæddar og uppaldar á Árbletti 47 sem er Fagribær 5 í dag og Árni Steingrímsson.

Systurnar Margrét Bogadóttir og Guðbjörg Ágústsdóttir.

Hermannsdóttir ásamt dætrum sínum Hönnu og Sólveigu Antonsdætrum.

Guðmundur Már Ingimarsson og Alda María Magnúsdóttir.

Jóhanna Oddgeirsdóttir, systurnar Ásta María og Kristrún Marinósdætur og Guðrún Helga Theodórsdóttir.

Systkinin Sveinbjörg, Guðlaug, Elísa og Steingrímur Steingrímsbörn.

Hjónin Skúli Möller og Kristín Sjöfn Helgadóttir og Þóra Filippusdóttir.

Systurnar Guðrún, Kristín og Katrín Marísdætur, bjuggu á Árbæjarbletti 66 þar sem Hlaðbær 14 er staðsett í dag.

Sólrún Ólafsdóttir, Magnhildur Sigurbjörnsdóttir og Guðbjörg Guðmundsdóttir.

Bragi Finnbogason, Númi Geirmundsson og Haukur Ólafsson, gamlir bekkjarbræður úr Árbæjarskóla.

Marta
Sr. Þór Hauksson og Alda María Magnúsdóttir.

F í Félagsmiðs

Hra ni stöðinni

Lauga verðaþáttta

rdaginn 20. m akendurífélag

Ýmsar handunna

akendur í félagsstarfinu handverkssýningu

æ105 æ 105 aunb g aí gsstarfinu verða þáttta með h frá k

Han ýninndverkss sa g og ala

Kaffi og góðar veitingar verða seldar á vægu ve Verið hjartanlegavelkkomin

Starfsfólk

kl.13:00 17:00. r vörur verða til sýnis og söluu.

Sigri fagnað árið 2008

Myndin er tekin eftir sigur Fylkismanna gegn Þrótti R. í vítaspyrnukeppni í bikarnum á Valbjarnarvelli árið 2008. Það er ekki á hverjum degi sem sigrar vinnast í vítakeppni en þær reyna á taugar allra, jafnvel þeirra allra rólegustu.

Mynd: Einar Ásgeirsson KGG

Árbæjarkirkju lagði land undir fót:

Lærdómsrík ferð til Köben

Prestar, djákni, æskulýðsleiðtogar, organisti og annað starfsfólk Árbæjarkirkju fóru dagana 10.-13. apríl 2023 í starfsþróunarferð (e: professional Development Activities) til Kaupmannahafnar til að skoða nýjungar í æskulýðsmálum í Danmörku. Starfsþrjóunarferðin var styrkt af Landsskrifstofu Erasmus+ á Íslandi. Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn var heimsótt þar sem sr. Sigfús Kristjánsson tók á móti hópnum. Halla

Benediktsdóttir umsjónarmaður Jónshúss, Vera Guðmundsdóttir sóknarnefndar formaður íslenska safnaðarins og sr. Sigfús Kristjánsson fræddu fólk um starf íslenska safnaðarins í Danmörku. Bryndís Eva Erlingsdóttir sagði frá krakkakirkjunni sem rekin er í Jónshúsi.

Skoðaðar voru nýjungar í æskulýðsmálum í Danmörku og heimsóttar tvær mjög fallegar danskar æskulýðskirkjur.

Í æskulýðskirkjunni Borsons kirke tóku gestir þátt í kirkjujóga sem er flaggskip Borsons kirkjunnar og er mjög vinsælt. Starfsfólk Árbæjarkirkju heimsótti U-kirkje/Gethsemane sem er óhefðbundin æskulýðskirkja þar sem ungmennaráð kirkjunnar stjórnar öllu starfi.

Mjög lærdómsrík ferð og skilur eftir margar hugmyndir sem eiga eftir að skila sér í æskulýðsstarfi Árbæjarkirkju.

Fallegt tré með fallegum skilaboðum.Tvær æskulýðskirkjur voru heimsóttar.
Málin skoðuð í rigningunni í kóngsins Köben.

Fréttamolar frá kirkjustarfinu

Helgihald í maí og júní 2023

Fimmtudagurinn 18. - maí uppstigningardagur

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00

Guðsþjónusta kl. 11.00. sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju leiðir sönginn undir stjórn Krisztinu Kalló Sklenár organista. Kór aldraðra syngja. Hátíðarkaffi í safnaðarheimili kirkjunnar í boði Soroptimistaklúbbs Árbæjar.

Sunnudaginn 21. maí kl. 11.00

Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Kór Árbæjarkirkju leiðir sönginn undir stjórn Krisztinu

Kalló Sklenár organista. Kaffi og spjall eftir guðsþjónustuna.

Sunnudaginn 28. maí kl. 11.00 - hvítasunnudagur

Guðsþjónusta kl. 11. dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur þjónar fyrir altari og prédikar. Kór Árbæjarkirkju leiðir sönginn. Kaffi og spjall eftir guðsþjónustuna.

Frá júni og fram í miðjan ágúst er helgihald hvern sunnudag kl. 11.00 með sumarlegu ívafi Sjá má nánari upplýsingar um þær þegar nær dregur sumri á heimasíðu kirkjunnar www.arbaejarkirkja.is og fésbókarsíðu kirkjunnar.

Skoðið nánar á heimasíðu kirkjunnar www.arbaejarkirkja.is

Sá þig einhver?

eftir sr. Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarsókn

,,Ertu Íslendingur?” Ég kinkaði kolli. ,,Er þetta alltaf svona?” Fyrirspyrjandinn benti út um gluggann, við okkur blasti hvít jörð. Af framburði manneskjunnar að dæma var hún ensk að uppruna. Hún stóð fyrir framan mig í einum fjölmargra veitingastaða flugstöðvarbyggingar Leifs Eiríkssonar undir lok aprílmánaðar, það var snjór yfir öllu. Áður en ég, Íslendingurinn gat svarað, spurði hún. ,,Voruð þið ekki að halda upp á sumardaginn fyrsta um daginn?” Hljómfall raddarinnar var eins og við Íslendingar gengum ekki á öllum. Ég var ekki að undirstrika eða sannfæra hana um að svo væri með því að segja henni að sumdardagurinn fyrsti væri líka kallaður Yngismeyjardagur, fyrsti dagur Hörpu sem er fyrsti af sex sumarmánuðunum í gamla norræna tímatalinu. Ég var heldur ekki að segja henni að í þjóðtrúnni ef sumar og vetur frysu saman boðaði gott sumar. Hvarflaði ekki að mér að segja henni að með góðu sumri í þjóðtrúnni er hugsanlega eða var hugsanlega einkum átt við að nyt búpenings verði góð (í boði Wilikipedia).

Ég hafði nokkrum dögum áður átt í orðaskaki við kunningja minn um að hvað gott sumar þýddi þannig að ég fletti því upp í Wilkipedia. Að moka út úr hausnum og huga að þessum upplýsingum hefði verið til þess eins að æra óstöðuga konuna sem pantaði sér tvöfaldan Cappuccino svona til að ná kuldahrollnum úr sér. Eftir á að hyggja hefði verið gaman að klára samtalið með ofangreindum upplýsingum og með þeim orðum kveðja konuna.

Annars lét hún vel af dvöl sinni á ,,landinu þínu” eins og hún sagði við mig orðrétt í þann mund að hún hvarf í mannfjöldann með sinn kaffibolla.

,,Landinu þínu” - það var ekki laust við að ég hafi komist við þegar flugvélin

nokkru seinna tók sig á loft af landinu mínu. Landið var að mestu skýjum hulið en einstaka sinnum glitti í hvíta ábreiðuna á fjöllum og dölum eins og mjúk værðarvoð yfir hvítvoðungi. Ég hafði ekki fyrr en þarna í vélinni með silfraða vængina hugsað út í hversu mikill ,,forréttindaperri” ég væri að fá að líta landið augum fuglsins. Hugur minn hvarflaði að forfeðrum sem aldrei sáu landið með augum fiðraða vina okkar, nema jú að klifra hæstu tinda fjalla. Heldur kúldruðust dögum saman á úfnu atlantshafinu til þess að komast á áfangastað. Áfangastaðurinn var oftar en ekki við Íslandsbryggju í Kaupmannahöfn eða Leith í Skotlandi. Einhver hvíslaði að mér að það hlyti að hafa verið rómatískt að sigla á skipi svo dögum skipti. Ég get alveg tekið undir það svo langt sem það nær og þá helst að hugsa um meira fótapláss en boðið er uppá á í flugvélum.

Í það heila viljum við Íslendingar vera gestrisinir. Við finnum til með ferðamönnunum sem koma til landsins og fá í fangið hryssings norðan nepju, suðvestan golu með skúraleiðingum, lágréttri rigningu og austan útsinningi og hvað þetta allt kallast. Reyndar segir mér svo hugur og reyndar var þeim huga svarað í vetur í fréttatíma fyrir utan Hallgrímskirkju af ferðmanni í gúrrkutíð fjölmiðla. Þegar ekkert er að frétta þykir fjölmiðlafólki ekkert betra en að ota hljóðnema að kuldalegum ferðamönnum íklæddum norrænum kuldafatnaði og útlendingurinn forviða svarar fréttamanni að ef hann/hún hefði verið að leita eftir sendinni gullinni strönd og sól hefði hann/hún farið þangað sem það væri í boði. Þurfti að segja eitthvað meira?

Mér finnst ég þurfa að segja eitthvað meira við fiðruðu vorboðana okkar ljúfu sem koma örþreyttir sunnar úr álfunni til að boða komu vorsins en í kjölfar

komu þeirra snjóaði. Mér finnst ekki skyldan mín að biðja útlendinga afsökunar sem koma hingað í flugvélaförmum íklæddir dúnfatnaði og húfum og kuldskóm. Það er allt annað með vorboðana okkar ljúfu, svo viðkvæmir að mig langar helst að taka

þá í fóstur og vefja þá klæðnaði 66° norður.

Allt á sinn tíma. ,,Yngismeyjardagur” er eitthvað sem var og engum dettur í hug að tengja við sumardaginn yrsta eða vorkomu. Höfuðskáldin okkar ortu um lóuna sem kveður burt snjóinn. Ungskáld framtíðarinnar yrkja um vorkomuna með tilkomu rafskúta á götur borgarinnar og nærliggjandi sveitarfélaga. ,,Rafskútan er komin að kveða burt snjóinn...” munu leikskólabörn framtíðarinnar syngja og spyrja sig í forundran - þessi lóa - hvaða klisja er það eins og MC Gauti syngur í einu laga sinna.

Ekki veit ég hvort það hafi verið vor

eða sumarfögnuður þegar ég miðaldra maðurinn afréð að henda mér um daginn á rafskútu sem stóð yfirgefin nærri heimkynnum mínum. Leið mín lá frá Árbænum alla leið niður í Hlíðar. Allt gekk að óskum. Sunnan þeyrinn strauk mér um vanga þar sem ég sveif um á hjólastígum Elliðarárdals, Fossvogs og fætur Öskjuhlíðar. Mér leið eins og englar og menn hefðu ekki augun af mér. Þvílík sjón að sjá! Ég hugsaði - þvílík snilld þetta væri um leið og ég baksaði við að finna bestu pósuna á rafskútunni. Ég hafði heyrt því fleygt að það skipti máli. Átti ég að halla vanganum eilítið til vinstri eða...? Ég leyfði þeirri mikilvægu hugsun að nema staðar þar sem börn urðu á vegi mínum að ég væri ekki góð fyrirmynd, ekki með hjálm á höfði. Sú hugsun varð eftir á hjólastígnum, hélt ekki lengi í við mig þar sem ég fór um á 25 km hraða á ,,prikinu.”

Önnur hugsun og meiri hefur haldið fast í mig og ég næ ekki að hrista af mér hversu hratt sem ég fer og reyndar í hvert sinn sem ég geng fram á rafskútu á förnum vegi.

Þegar ég kom kom á áfangastað, búin að leggja að baki 5-6 km lagði ég rafskútunni þannig að hún hindraði ekki aðgengi gangandi vegfarenda um gangstéttina fyrir framan áfangastaðinn. Hróðugur sagði ég húsráðanda Hlíðarhverfis og eiginkonu minni sem þar var stödd að ég hafi komið alla leið úr Árbænum á rafskútu.

Ef ég átti von á fagnaðarorðum um hversu duglegur ég hafi verið, var það alls ekki svo. Húsráðandi horfði á neongræna rafskútuna, sagði ekkert en eiginkonan spurði. ,,Sá þig einhver.?” Þór Hauksson

Æ FM A A S Æ GÆ G E ST / R ANI LI A J G G

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.