Árbæjarblaðið 10.tbl 2022

Page 1

Árbæjarblaðið Árbæjarblaðið 10. tbl. 20. árg. 2022 október Fréttablað íbúa í Árbæ og Norðlingaholti TAAVVINUJUM VIÐSKIPÝJA FA F GNA NÝ TA la.is UM Löggiltur fasteignasali Sími: 893 3276 | holmar@helgafellfasteignasa Hólmar Björn Sigþórsson gg ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGRA s. 5 11 53 00keiluhollin.is Birkir Björn Árnason var að leika sér að fleyta kerlingar með ömmu sinni og litla bróður við Rauðavatn í góða veðrinu á dögunum. Hann var að leita að steinum til að henda í vatnið. Ljósmyndarinn spurði hvort hann væri klifurmús? Nei, svaraði Birkir Björn, ég er klifurköttur! ÁB mynd Katrín J. Björgvinsdóttir bffoo.is bf BGSVOTTUÐÞJÓNUSTA A) · 2T ATGSMIÐJUVEGI 22 (RÆN GA BGSVOTTUÞJÓNUSTA VOGI · SÍMI: 567 7360A00 KÓP ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 15.10.2022 15:59 Page 1

Árbæjarblaðið Árbæjarblaðið

Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.

Ritstjórn: Leiðhamrar 39 - símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánssonabl@skrautas.is

Prentun: Landsprent ehf.

Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir og Einar Ásgeirsson.

Dreifing: Póstdreifing. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Norðlingaholti og Úlfarsárdal.

Merkileg fyrirbæri

Til er merkilegt fyrirbæri sem nefnist Matvælastofnun. Hlutverk þessarar stofnunar er meðal annars að hafa eftirlit með dýrahaldi í landinu og grípa til aðgerða ef upp kemst um eigendur dýra sem ekki fara eftir settum reglum og gerast sekir um dýraníð. Nú hefur nánast reglulega síðustu misseri verið greint frá dýraníði í fréttum. Allir muna eftir uppþotinu varðandi blóðmerarnar og viðbjóðslegum myndum sem birtust í fjöl-miðlum. Endalok þess máls voru að heimila blóðmerahald eins og ekkert hefði í skorist og flestir ef ekki allir furðu lostnir á þeirri niðurstöðu.

Fyrir nokkrum vikum var greint frá því í fréttum að eigandi hrossa í Borgarfirði sinnti þeim alls ekki sem skildi. Voru hrossin grindhoruð og mörg þeirra höfðu ekki farið úr húsi svo árum skipti. Það er dapurlegt til þess að hugsa að til sé fólk sem sinnir skepnum sínum með þessum hætti og um mjög alvarlegt mál að ræða.

Fyrir nokkrum dögum kom svo fram í fréttum að eftir allan þennan tíma væri ekkert búið að gera í málinu. Matvælastofnun virðist ver handónýtt apparat sem hreifist ekki í jafn alvarlegu máli og þessu. Í allar þessar vikur frá því að málið komst í fréttir hafa hrossin búið við ömurlegan aðbúnað. Ráðherrann sem ber ábyrgð á málinu verður að grípa í taumana. Það er greinilegt að mikið er að hjá Matvælastofnun og virðist þurfa að skipta út yfirmönnum og stjórnendum.

Annað merkilegt fyrirbæri eru Sjúkratryggingar Íslands. Tveir Íslendingar hafa nýverið ratað í ógöngur og veikst á Spáni. Aðstandendur komust að því að Sjúkratryggingar Íslands taka engan þátt í því að aðstoða í svona málum. Því hefur verið haldið fram að lagaramminn sem stofnunin starfar eftir leyfi ekki inngrip. Er þá ekki ljóst að það þarf að breyta lögunum? Það er margt að í okkar litla þjóðfélagi. Enn eru til stjórnmálamenn sem eru mótfallnir því að ríkið taki þátt í aðgerðum hér heima á einkareknum stofum sem myndi útrýma bið hjá sárþjáðu fólki.

Stefán Kristjánsson

Greið leið eða stein í götu

Umferðarþunginn í Reykjavík hefur aukist dag frá degi frá 2010, eða á síðastliðnum þremur kjörtímabilum og nálgast nú óðum neyðarástand. Afleiðingar þessa mikla umferðarþunga eru ýmsar og allar alvarlegar. Þó mjög margir séu komnir á rafmagnsbíla hefur síaukinn umferðarþungi aukið umferðarmengun í borginni m.a. í formi svifryks. Umferðarþunginn lengir stöðugt ferðatíma borgaranna, svo sem til og frá vinnu, og hefur nú þegar haft af þeim frítíma sem nemur meiru að meðaltali en tveggja vikna sumar- eða vetrarfríi.

Umferðarþunginn eykur kostnað atvinnulífsins með lengri ferðatíma og sá kostnaður hækkar stöðugt verð á vöru og þjónustu. Hann dregur úr umferðaröryggi á margvíslegan hátt, lengir stöðugt viðbragðstíma sjúkrabifreiða og annarra viðbragðsaðila og gæti haft í för með sér manntjón ef rýma þyrfti hverfi eða heila borgarhluta á skömmum tíma.

Þessi óheillaþróun vegur því með sífellt meiri þunga að náttúrunni, heilsu okkar, efnahag okkar, öryggi okkar og lífi okkar og limum.

Engar umbætur í sjónmáli Það er mikill ábyrgðarhluti af borgaryfirvöldum að horfa upp á þessa óheillaþróun og leggjast jafnvel á sveif með henni í ýmsum efnum í rúm þrjú kjörtimabil. Sú hefur verið raunin og nú, eftir borgarstjórnarkosningar síðastliðið vor, er ekki að sjá að nein breyting hafi orðið á afstöðu meirihlutans. Enn á að horfa uppá bílalestir lengjast dag frá degi eftir Hringbraut og Miklubraut, úr Vesturbænum og upp fyrir Ártúnsbrekku, og eftir Sæbraut, frá miðbænum og upp í Breiðbolt. Enn á að halda áfram að skrafa við skýin um glórulausa Borgarlínu, fjölga ljósastýrðum gatnamótum, þrengja stofnbrautir, fækka bílastæðum og beina umferðarþunganum í síauknum mæli inn í íbúðarhverfi.

Röng kenning um umferðarþunga Þegar reynt hefur verið að benda meirihluta borgarstjórnar á alvarleika þessa máls, hefur viðkvæðið ætíð verið það sama: „Þetta er fólkinu

sjálfu um að kenna. Það ekur um á allt of mörgum bílum“. Þessi kenning er alröng og hefur aldrei átt við í

ekki skýjaborgir sem aldrei verða að veruleika.

Skýjaborgir eða skynsemi Staðreyndin er sú að síaukinn umferðarþunga á stofnbrautum Reykjavíkur ber ekki að rekja fyrst og fremst til fjölgunar ökutækja. Heldur til þess að framkvæmdir við stofnbrautir borgarinnar voru frystar frá 2010 með sérstökum samningi við þáverandi samgönguráðherra, Ögmund Jónasson og í staðinn veitti hann einum milljarði króna árlega til almenningssamgangna í Reykjavík í tíu ár.

lokuðu umferðarkerfi.

Fjölskyldubílum hefur að vísu fjölgað í Reykjavík á síðastliðnum tólf árum. En þeim fjölgar stöðugt hægar, eftir að fjöldi bifreiða varð jafnmikill og fjöldi ökuskírteina, því enginn ekur tveimur ökutækjum í einu. Það eru engin geimvísindi fyrir 136 þúsund borgarbúa að komast klakklaust og hindrunarlaust leiðar sinnar með þeim ferðamáta sem þeir sjálfir kjósa. Það eina sem þarf er vilji, raunsæi og skynsemi, það er að segja skynsamleg samgöngustefna,

Þær framkvæmdir sem borgaryfirvöld hafa ráðist í við gatnakerfið felast ekki í því að greiða götu vegfarenda, heldur fyrst og fremst í því að leggja stein í götu þeirra. Það er fyrst og síðast þessi viðleitni borgaryfirvalda sem hefur verið að lengja bílaraðirnar í Reykjavík frá degi til dags og auka þanning umferðarþungann. Þessi viðleitni hefur verið að lengja ferðatímann, auka hröðunarakstur (það er að segja, stöðva bifreiðar oftar) auka þar með mengun og vega á margvíslegan hátt að hagsmunum og öryggisþáttum samfélagsins.

Það er löngu kominn tími til að við Reykvíkingar gerum okkur grein fyrir því að umferðarþunginn í Reykjavík er fyrst og síðast heimatilbúinn vandi óábyrgra skýjaglópa.

ÁrbæjarblaðiðFréttir 2
abl@skrautas.is
Björn Gíslason borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGRA s. 5 11 53 00keiluhollin.is
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 16.10.2022 12:03 Page 2
JÁH& HÐME PÖBB ARIÁLM GAHEL QUIZ Hörður o Bandmönnu stuði og s sinn eins ÐAILFAHSRJÖRVAH QUIZOLTABTÓFÖ Ö TGEMMTILKESÓÓRTS og Pétur úr um halda uppi stemningu á staka hátt. LVANÚ ÆHNEI AGLNVILLI QPÖBB A ÚLÍA A Í ÓR Ú DJ. VEG TUT URTLB UIZ Í –ALT ALL L I –ÐNUÁM MJUERVR Í HÐIÐBURII VNDASPENN AFGOTTVEÐ AFGAMANTA UR OG A IR ÞRIYR FKUKÁ ORÐ FOILBU TÐFÁ AFMÆLI TAARMSM KARAOKE ST KEILUHOLLIN@KEILUHOLLINP ÁÓN HN KEILA PÍLUKAST ANNADJAMM N.IS T M UDÖGUMTÖSFÁ 011:3.LKOPNUM KR. O R EILDI– GIZZUNAU PDÝRUSTR ÓYRII FKR EKORGA– B SÆKIRÞÚEFPIZZA RÍG FR OÆ VÆ, TEIN SHAK EINN,V EIMTÖKUTIL ÖH ZUIZI PRARÝIR DRYR FORGA– B .000Ð Á 1II VNNARRR ABÆÆTI ATTSEÐLF MU AIZZR PKAUPI A B UMAKEM SHFENGUF ÁI AKK SÆKIRÞÚEFE R RÍRG FR OVEI, T 0 K.00R Á 1ÖNNU G SVA OIZZN PEIÍ AKE&PIZZASHÐLBO Ð MBOILTRANNINGYK PFA AZZPI AUN R.0 K GI OL 00:3G 10 O31:I 1LMIL ÐLIEF SA AZZPI
shakepizzais
K RK9902 SI + GOÐLSE #shakean R0 K493 ANARR Á KDULA I +ÐL ndpizza ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 13.10.2022 21:13 Page 3
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 14.10.2022 10:09 Page 4
A a Afm afgó mælis ólfe safs efnu slátt m ur af gó 20 %-50 AFS 2 LÁTTU 5 UR Gegn AF 20% nheilar g gæðaflís AF 20% sar og harðpark AF 50% ket AF 40% AF 20% AF 20% .murbwwwww. LANDA LAN SENDUM budin LTT! din.is M UM M LL G yrir allafyrðGott verð f 2002 – 2022 a í 0ár20á ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 13.10.2022 21:29 Page 5

Lengjudeildarmeistarar

Meistaraflokkur karla tryggði sér sigur í Lengjudeildinni árið 2022 með frábærri spillamennsku á liðnu sumri. Strákarnir spiluðu frábærlega í mest allt sumar og sigruðu m.a 12 leiki í röð ásamt því að skora lang flest mörkin og fá á sig fæstu mörkin.

Þá áttum við tvo af þrem markahæstu leikmönnum deildarinnar en Mathias Laursen var næst markahæstur með 15 mörk og Benedikt Daríus Garðarsson var þriðji markahæstur með 14 mörk.

Strákarnir tóku á móti bikarnum þann 10. september eftir glæsilegan 4-0 sigur á

Þrótti Vogum fyrir framan um 1.000 Fylkismenn sem mynduðu frábæra stemmningu á vellinum. Þetta gefur góð fyrirheit fyrir spennandi tímabil í Bestu deildinni á næsta ári ! Til hamingju Árbæingar og Fylkismenn!

Meistaraflokkur karla í körfubolta endurvakinn

Fylkir teflir í ár fram meistaraflokki

karla í körfubolta í fyrsta sinn í 24 ár. Liðið mun leika í 2.deild á þessu tímabili og leika heimaleiki sína í Fylkishöll.

Þjálfari liðsins er Adam Þorsteinsson en hann er einnig leikmaður liðsins.

Tímabilið er nú þegar hafið og hefur verið frábær stemmning á leikjum hjá þeim og hvetjum við alla til að mæta og styðja við bakið á strákunum!

ÁrbæjarblaðiðFréttir 6 í yfi Útf 70 árfir tfararþjónusta VIÐÞJÓNUMALLANSÓLARHRINGIN utf|utfor@utfor.is|551 1266s.|Fossvogi|esturhlíð 2V NN for.is Tólf sporin – Andlegt ferðalag í Mosfellsbæ í vetur. Kynningarfundur verður í Safnaðarheimili Lágafellssóknar að Þverholti 3, 5. Október kl. 19.30. Þrjú næstu miðvikudagskvöld verða opnir fundir til frekari kynningar. Allir eru velkomnir og ekki þarf að skrá sig. Tólf spor – Andlegt ferðalag y eyHlakk veerkeefnog vinn Hafðu þá endilega um v k ERTU Í HÚSNÆÐISHUG a til að he a í þér!r nið saman. GLEIÐINGUM? a samband @husasalan.is eignasali ALDURSDÓTTIR hrafnhildur@862-1110 etasltur fgiLög AJÖRK BHRAFNHILDUR B A FATU SELJVIL AFASTEIGN? Löggiltur faste Hólmar Björn S eignasali Sigþórsson @Sími: 893 3276 | holmar gg helgafellfasteignasala.is g gg
Fylkir
- Lengjudeildarmeistarar 2022. - frábær stemning þegar þúsund Árbæingar fögnuðu titlinum ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 16.10.2022 14:04 Page 6
P WITHOUT CONTROLPOWER IS NOTHING eitt s V stærsta elkomin e og n á B ða 13Breiðhöf Bre dekkja ful iðhöfða landsin averkstæ lkomnas 13 s á ði sta m veit bestu Rét tursskmisjöfn aks ga hámarks öry a bílsiu eiginleik agattu dekkin dr kilyrði. ggi við ns og ama fr lok Grjót Nesd kar! thálsi dekk við v áðáðu rF éttum dekal á rv agmðleggingar f kkjum. manna ða 13.fðá Brtir ekki máliðin skipStær eiðhöf nesdekk.is alið ájáðu úrvS kuun 59902080 eyykjavík Brreeiðhöfði13 110 Re 5 alið á nesdoðaðu dekkjaúrvog sk aðu tíma fyrir bílinn þinnBók Tímabók 1 420 dekk.is 56 00 / nesdekk.is ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 13.10.2022 21:42 Page 11

Árbæjarblaðið

Skemmtileg ferð

Veðurenglarnir voru í skínandi góðu skapi miðvikudaginn 14. september síðastliðinn þegar Opna Húsið starf fullorðinna í Árbæjarkirkju fór í sitt árlega haustferðalag sem reyndar hafði ekki verið á dagskrá haustin tvö á undan.

Áðurnefndir englar og bræður þeirra og systur, veraldleg, tóku höndum saman þann daginn og tóku sér far með langferðabifreið. Stefnan var tekin suður á Reykjanesið með sína árþúsunda jarðsögu sem gerði okkur öll sem í ferðinni býsna ung í samanburði. Brandarar

flugu á milli þess að sungið var af hjartans lyst alla leið að Strandarkirkju. Á leiðinni þangað voru rifjaðar upp þrjár helgisögur tilheyrandi þeirri ágætu kirkju. Eftir stutt stopp í kirkjunni og tæplega tveggja tíma

Ljósmyndir Katrín J. Björgvinsdóttir

ferðalag hafði svengdin tekið sér bólfestu meðal ferðalanga. Blessunarlega var búið að gera ráðstafanir ef það gerðist. Tóku húsráðendur veitingastaðarins Rauða

Hússins á Eyrabakka á móti hópnum og reiddi fram humarsúpu að hætti heimamanna sem óhætt er að mæla með.

Eftir þakkir fyrir góðan viðurgjörning var farið sem leið liggur að nýja miðbænum á Selfossi. Einhverjir skoðuðu búðir og húsakynni staðarins á meðan aðrir settust niður á næsta veitingastað í brakandi sólarglennu.

Það voru þreyttir en ánægðir ferðalangar sem komu síðdegis að kirkjunni sinni eftir stórskemmilegt ferðalag með stórskemmtilegu fólki.

Stelpurnar í Árbæjarkirkju, þær Sigrún Jónsdóttir, Krisztina Kalló, Alda María Magnúsdóttir og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir kunnu að halda stuðinu í haustferð fullorðinna í Árbæjarkirkju.
Fréttir 8
Kristín Rúnarsdóttir og Jóna Lárusdóttir. Collin frá Canada skrifaði að sjálfsögðu í gestabókina. Pétur Karlsson og Lydía Kristóbertsdóttir. Krisztina Kalló spilaði á orgelið í Strandarkirkju. Vilhjálmur Haraldsson og Eggert Ólafsson. Hjónin Kristjana Þorkelsdóttir og Kristján Ingólfsson tilbúinn í ferðalagið. Sigurlína Guðmundsdóttir og Hildur Hermansdóttir. Krisztina Kalló organisti og Ósk Guðrún Aradóttir kirkjuvörður í Árbæjarkirkju. Hjónin Guðmundur Helgi Guðjónsson og Inga Dóra Þorsteinsdóttir. Gullý Bára Kristbjörnsdóttir og þórey Sveinsdóttir. Sr. Þór Hauksson naut útsýnisins. Sr. Þór Hauksson leiddi sönginn í Strandarkirkju.
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 15.10.2022 21:08 Page 8
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 15.10.2022 14:47 Page 9

Mataruppskriftir frá Hafinu

Suðrænt fiski taco með léttu hrásalati

Hér förum við í gang með uppskriftir að glæsilegum og girnilegum fiskréttum frá Hafinu. Við skorum á ykkur að prófa þessa rétti eða aðra girnilega hjá Hafinu í Spönginni. Verði ykkur að góðu. Uppskrift fyrir 4 Innihald 600 gr. Þorskhnakkar. 2 tsk. paprikuduft. 0,5 tsk. malað brodd kúmen. 0,5 tsk. salt. 0,5 tsk. malaður pipar. 0,25 tsk. cayenne pipar.

Guacamole 2 stk. avókadó.

Safinn af 1/2 lime. 0,5 tsk. salt.

2 matskeiðar saxaður ferskt kóríander.

Salat 300 gr. rauðkál.

1 stk. rauðlaukur. 0,5 stk. sítróna.

0,5 tsk. salt.

0,5 tsk. malaður pipar.

Berið fram með

8 stk. stórar tortillur.

1 stk. avókadó.

1 stk. grænt chili.

1 búnt af ferskum kóríander.

1 stk. sítróna.

Skerið fiskinn í helming, u.þ.b. 5 cm langar ræmur. Setjið fiskinn í skálina með kryddblöndunni, þannig að allir fiskbitarnir séu þaktir kryddi.

Skerið avókadóið í tvennt, fjarlægið steininn og maukið avókadóið í skál með gaffli. Kryddið með limesafa, salti og fersku kóríander.

Skerið rauðkálið í þunnar ræmur.

Skerið rauðlaukinn í fína litla bita og blandið saman með rauðkálinu í skál. Bætið sítrónusafanum við og smakkið til með salti og pipar.

Steikið fiskinn á pönnu eða grillið í 23 mínútur á hvorri hlið. Hitið tortillurnar í ofni eða á pönnu.

Leggið rauðkálsalatið á tortillukökurnar og setjið fiskinn ofan á. Berið fram með fersku lime, chili sneiðum og ferskum kóríander.

Verði ykkur að góðu!

- Gæðin skipta máli -

Borgarlínan og veggjöld

- eftir Helga Áss Grétarsson starfandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks

Kjósendur í Reykjavík hafa í mörg ár heyrt af borgarlínuverkefninu. Markmiðið með verkefninu er að bæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og draga úr notkun einkaökutækja. Til einföldunar má segja að verkefnið feli í sér að allstórir strætisvagnar munu hafa sérakgreinar á miðju akreina sem þýðir jafnan að breyta þarf þversniði

núverandi götumyndar. Þessi miðjusetning vagnanna hækkar framkvæmdakostnað verkefnisins en á að auka gæði strætósamgangnanna.

Þeir sem hafa trú á borgarlínuverkefninu kalla það „hágæða almenningssamgöngukerfi“. Fleiri álíka orð hafa verið notuð um verkefnið en hvar stendur það í dag, hvað mun það kosta og hver mun greiða fyrir það? Þessar spurningar eru ekki síst mikilvægar fyrir hagsmuni íbúa í úthverfum Reykjavíkur, svo sem eins og Árbæjar, Breiðholts, Grafarvogs, Grafarholts og Úlfarsárdals.

Hvar stendur borgarlínuverkefnið?

Sögulegar rætur borgarlínuverkefnisins má sumpart rekja til skýrslu sem kom út í ársbyrjun 2014 og bar heitið Höfuðborgarsvæðið 2040. Síðan þá hefur verið ritað undir ófár viljayfirlýsingar, skýrslur samdar og samningar á milli opinberra aðila verið gerðir. Eitt veigamesta plaggið er samgöngusáttmálinn frá 26. september 2019 þar sem aðilar voru annars vegar íslenska ríkið og hins vegar sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Með stoð í samkomulaginu var opinbera hlutafélagið Betri samgöngur ohf. sett á fót, sbr. lög nr. 81/2020.

Uppbygging borgarlínuverkefnisins verður í áföngum, sá fyrsti verður frá Hamraborg í Kópavogi um miðborg Reykjavíkur að Ártúnshöfða. Í þessum áfanga á m.a. að byggja Fossvogsbrú en skömmu eftir borgarstjórnarkosningarnar í maí á þessu ári var upplýst að þessi fyrsti áfangi myndi frestast um allt að tvö ár. Kostnaðaráætlun við að koma áfanganum í framkvæmd hefur ekki verið uppfærð.

Nánar um fjárhagslega hlið verkefnisins

Borgarlínuverkefnið krefst afar mikils fjármagns, rætt er um tæpa 50 milljarða króna í áðurnefndu samkomulagi frá september 2019. Kostnaður af hönnun, skýrslugerð og annarri undirbúningsvinnu fyrir borgarlínuna hefur verið borinn af ýmsum aðilum fram til þessa, t.d. greiddi Betri samgöngur ohf 1,3 milljarða króna til Vegagerðarinnar árið 2021. Sé litið á allan kostnað af verkefninu síðan 2014 er það varlega áætlað að hann hafi numið mörgum milljörðum króna. Betri samgöngur ohf. er ekki heldur ódýr stofnun að reka, kostnaður af starfsemi þess árið 2021 var 127 milljónir króna.

Forsvarsmenn Betri samgangna ohf. hafa tekið fram að fyrirtækið beri ekki ábyrgð á rekstri borgarlínunnar. Strætó bs. mun miðað við fyrirliggjandi heimildir bera þá byrði en Reykjavíkurborg á yfir 60% hlut í félaginu.

Þessa dagana standa yfir viðræður milli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og

ríkisins um hvernig fjármagna eigi reksturinn, a.m.k. fyrstu árin enda talið að rekstur borgarlínu verði afar þungur þá. Rekstraráætlanir fyrir borgarlínuna til lengri tíma hafa hingað til ekki verið settar fram með trúverðugum hætti.

Veggjöld á höfuðborgarsvæðinu Það leiðir af samgöngusáttmálanum að veggjöld (flýti- og umferðargjöld) verða lögð

á en nákvæmar tillögur um veggjöldin liggja ekki fyrir, svo sem gert var grein fyrir í frétt RÚV hinn 2. október síðastliðinn. Rætt hefur verið um sjálfvirk gjaldhlið við stofnbrautir til og frá höfuðborgarsvæðinu og einnig innan borgarmarka. Jafnframt kemur til álita að hafa hærri gjöld á álagstímum í því skyni að dreifa umferð. Fram hefur komið í máli framkvæmdastjóra Betri samgangna ohf. að miðað væri við að gjöldin skiluðu 5-6 milljörðum á ári og stæðu undir 50% heildarkostnaðar vegna „þeirra samgöngubóta sem eru fyrirhugaðar“.

Lokaorð Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga er ástæða til að endurskoða borgarlínuverkefnið þar eð það er afar kostnaðarsamt að byggja upp og mikil óvissa um hvernig eigi að reka það til lengri tíma litið. Eins og margir sérfræðingar hafa bent á, svo sem af hálfu samtakanna Samgöngur fyrir alla, hefur Reykjavíkurborg ekki viljað fjárfesta í samgöngumannvirkjum, t.d. mislægjum gatnamótum, til að létta undir umferð á háannatímum. Úthverfi Reykjavíkur eru hins vegar um margt háð opinberri þjónustu sem veitt er í vestari hluta borgarinnar. Það er því fyllsta ástæða til að leita annarra lausna en þeirra sem unnið hefur verið með hingað til.

Helgi Áss Grétarsson er starfandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Aðferð Blandið öllu þurrkryddinu saman í skál.
Árbæjarblaðið
10
Suðrænt fiski taco með léttu hrásalati. Helgi Áss Grétarsson starfandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 14.10.2022 11:28 Page 10
Beesta k he M eilsur kí20 ækt 22 in samk væmt asnu ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 13.10.2022 21:35 Page 7

Mörg húsnæðis- og samgönguverkefni eru framundan í efri byggðum borgarinnar. Verkefni sem lengi hafa verið á teikniborðinu. Nú er hins vegar svo komið að nokkur af þessum verkefnum eru á lokastigum í undirbúningi og önnur eru komin til framkvæmda.

Frá hugmynd að stórum skipulagsverkefnum að framkvæmd getur tekið dágóðan tíma og fyrir manneskju eins og mig, sem kem úr atvinnulífinu, getur ferlið reynt á þolinmæðina. Eitt sinn sagði við mig einn reynsluboltinn: ,,Lóa mín, þetta er eins og að mála íbúðina þína. Fyrst þarf að fjármagna verkið, finna litatóna og koma öllum húsgögnum frá. Svo þarf að sparsla, skera öll horn og kanta og gera klárt. Þegar allt er klárt þá er lítið eftir annað en að mála sem tekur enga stund”.

Ég skellihló við þessa samlíkingu því auðvitað er hún sönn og sést til

dæmis á þeim framkvæmdum sem nú rjúka upp í Árbænum við Rofabæ 79. Við sem búum í nágrenni við þá framkvæmd vitum vel hvað málið hefur tekið langan tíma og frábært að sjá nú þessa langþráðu viðbót bætast við Árbæinn.

En hvaða verkefni eru þá framundan í eftri byggðum borgarinnar?

Borgargata í Árbæ Borgargata er í burðarliðnum við Rofabæ. Borgargata er nýtt hugtak fyrir marga en þar er átt við gatnaumhverfi sem sameinar fólk, umferð og fjölbreytta ferðamáta ásamt gróðri og góðri lýsingu. Forhönnun á borgargötu við Rofabæ og Bæjarbraut var rædd í Umhverfisog skipulagsráði þann 7. september sl, þar sem fyrirhugað útboð á fyrsta áfanga verkefnsins var kynnt. Við Árbæingar munum fá gjörbreytt

umhverfi á okkar aðalgötu. Ártúnshöfðinn verður að veruleika Ártúnshöfði og Elliðaárvogur er stærsta þróunar- og uppbyggingarsvæði Reykjavíkur. Þetta er risa þróunarverkefni sem verður að veruleika á næstu 5-10 árum. Áætlanir gera ráð fyrir að í þessum nýja borgarhluta rísi allt að 8.000 íbúðir með allt að 20.000 borgarbúum.

Uppbyggingu á þessum nýja borgarhluta verður skipt í áfanga og er verið að auglýsa og kynna svæði 1 og 2. Deiliskipulag fyrir svæði 4 hefur þegar verið samþykkt. Það er því ljóst að gríðarlegar breytingar verða á Ártúnshöfða á komandi árum.

Grafarvogur stækkar og dafnar Í Grafarvogi verður unnið hverfaskipulag þar sem íbúar, ungir sem aldnir, fá tækifæri til að taka þátt í verkefninu frá fyrstu stundu. Eitt af þeim verkefnum er að endurskipuleggja Spöngina og viljum við í Viðreisn líta þar til miðbæjar Garðabæjar. Svo ekki sé talað um Gufunes sem nú rís á leifturhraða og nýlega eru komnar á sölu nýjar íbúðir í Gufunesi. Þar er að myndast fjölbreytt og skapandi samfélag þar sem verður blönduð byggð fyrir íbúðir, skapandi iðnað, atvinnurekstur og menningu. Framtíðarmöguleikar Gufuness og aðliggjandi útivistarsvæði hafa verið til umræðu frá árinu 2013. Nú er svo

komið að þar rís eitt mest spennandi hverfi borgarinnar fyrir þá sem vilja borgarbrag, nálægð við náttúru og umgjörð skapandi greina.

Sundabraut á fullri ferð Sundabraut er verkefni sem ég hef mikinn áhuga á. Gerð hefur verið félags-hagfræðileg greining sem segir okkur hversu hagkvæm Sundabraut verður. Ég myndi kjósa Sundabraut sem styður alla samgöngumáta, og sé fyrir mér veglega brú sem gæti orðið eitt af helstu kennileitum Reykjavíkur til framtíðar. Til að svo verði þarf að fara í hönnunarsamkeppni og velja brú sem virkilega segir okkur hvað slík mannvirki geta verið falleg. Við skipulagingu þarf Reykjavíkurborg að tryggja að Sundabraut trufli ekki óhóflega umhverfi þeirra sem þegar búa í nágrenninu. Þar þarf að huga að Vogunum, Grafarvogi og ekki síst upp á Kjalarnesi, svo að brú hafi ekki neikvæð áhrif á uppbyggingarmöguleika þar.

Nýtt hverfi í Keldnaholti Komið er að því að hefja skipulag á Keldnaholti. Keldnaholtið er afar fallegur staður, það vita þau sem búa þar í nágrenninu. Mikill gróður og dýralíf einkenna svæðið ásamt miklum halla sem mun gera hverfið afar skemmtilegt fyrir íbúðarbyggð og atvinnustarfsemi. Við viljum efna til samkeppni um skipulag Keldnalands og Keldnaholts og fly ́ ta þannig uppbyggingu svæðanna með tilkomu Borgarlinu.

Esjumelar færast nær Á Ártúnshöfðanum eru fyrir fyrirtæki sem við viljum halda í Reykjavík. Þess vegna reisum við nýtt atvinnuhverfi á Esjumelum og upp á Hólmsheiði. Með Sundabraut færum við, ekki bara Kjalarnesið, heldur líka Esjumelana nær borginni og gerum þau svæði mun meira aðlaðandi í samkeppni við önnur sveitarfélög.

Það verður nóg að gerast í efri byggðum borgarinnar á komandi árum og afar spennandi tímar framundan þar sem austurhluti borgarinnar mun þéttast og aukin tækifæri til betri samgangna skapast.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík og forseti borgarstjórnar

ÁrbæjarblaðiðFréttir 12 Árbæjarblaðið Ritstjórn og auglýsingar Sími 698-2844 / 699-1322 Spennandi tímar framundan í efri byggðum - Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík og forseti borgarstjórnar
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík og forseti borgarstjórnar.
Íslensk Hönnun Frábær jólagjöf fyrir veiðimenn og konur Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Nánari upplýsingar á www.Krafla.is (698-2844) ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 16.10.2022 14:16 Page 12

Uppsetning og umsýsla rafhleðslukerfa í fjölbýli er á ábyrgð húsfélags

Daníel Árnason skrifar: Hröð þróun hefur verið í þjónustu tengdri rafbílum á síðustu misserum. Sú þróun mun halda áfram hvað sem líður afnámi tolla og upptöku kíló- m tragjalds og vegtolla. Þjónusta tengd hleðslustöðvum í fjölbýlishúsum snýst annars vegar um útfærslu hleðslukerfa og kaup á leðslustöðvum og hins vegar um rekstur rafhleðslukerfa, þ.e. umsjón með kerfunum og innheimtu raforkunotkunar.

Tilboð frá seljendum rafhleðslustöðva eru oftar en ekki ósamræmd og byggja á forsendum og útfærslum tilboðsgjafa. Fyrir leikmenn getur verið snúið að bera þau saman og átta sig á hvaða útfærsla er skynsamleg og hvaða tilboð er hagstæðast. Í

nýlegum ákvæðum í lögum um fjöleignarhús um uppbyggingu rafhleðslukerfa eru skýr ákvæði um að hússtjórnir skuli láta fara fram úttekt og greiningu á aðstæðum og leggja fram tillögur um útfærslu kerfa. Algengt er að hússtjórnir líti fram hjá þessari lagaskyldu og kalli þess í stað strax eftir tilboðum söluaðila, sem er miður því slík úttekt auðveldar öflun samræmdra útboðsgagna og sparar húsfélögum fjármuni þegar upp er staðið.

Þetta getum við fullyrt eftir greiningu á fjölda úttekta sem við höfum unnið fyrir stjórnir húsfélaga á hleðslukerfum fjöleignarhúsa, sem og þeim útboðum og verðkönnunum sem við höfum gert að beiðni

húsfélagastjórna hjá þjónustuaðilum rafhleðslukerfa. Við könnum einnig verð hjá seljendum hleðslustöðva og gerum verðsamanburð, sjáum um umsóknir fyrir húsfélög ef hleðslukerfi eru styrkhæf, sækjum um VSKendurgreiðslur og skilum stjórn viðkomandi húsfélags minnisblaði með mati og ráðleggingum sérfræðings.

Óháð ráðgjöf mikils virði Greiningar okkar sýna að full ástæða er fyrir stjórnir húsfélaga að afla sambærilegra tilboða í rafhleðslukerfi húsfélaga. Niðurstöðurnar sýna líka að meðalkostnaður við gott kerfi, fyrir bæði bílastæði í séreign og sameign, hefur verið um 100 þúsund krónur á hverja eign og fer heldur lækkandi. Þá vekur það athygli að munur á hæstu og lægstu tilboðum í sambærilegar útfærslur hleðslukerfa var mjög mikill í fyrstu en hefur farið minnkandi, sem gefur vísbendingu um að þessi markaður sé að ná meira jafnvægi. Við horfum einnig til kostnaðar við uppsetningu stöðva, eftir að grunnkerfið hefur verið sett upp, en umtalsverður munur getur verið á gjaldskrá þjónustufyrirtækja vegna uppsetningar viðbótarstöðva.

Það er ótvírætt að ofangreint verklag skilar húsfélögum bæði betri kjörum og markvissari verkáætlunum um uppsetningu rafhleðslukerfa. Það er líka umhugsunarefni að lausnir fyrirtækja sem farið hafa mikinn undanfarið á auglýsingamarkaði hafa í fæstum tilfellum verið metnar

hagstæðastar fyrir húsfélögin.

Umsjón rafhleðslukerfa í fjölbýli Samhliða því að stjórn húsfélags tekur ákvörðun um kaup á rafhleðslukerfi og búnaði á hún að okkar mati að taka líka ákvörðun um umsýslu kerfisins. Í grunninn felst hún í að tryggja virkni kerfisins í heild,

bæði uppitíma, álagsstýringu, aðgangsréttindi og mælingu á raforkunotkun hleðslustöðva notenda.

Í dag er umsýsla hleðslukerfa rafbíla mjög mismunandi. Víða hafa hússtjórnarmenn tekið að sér að sjá um kerfið og innheimtu vegna notkunar, einnig bjóða þjónustufyrirtæki upp á umsjón með sínum kerfum gegn gjaldi.

Dæmi eru um að þjónustuaðilar innheimti bæði mánaðargjald og síðan viðbótargjald miðað við notkun. Einnig hafa sum húsfélög lagt umtalsvert álag á kostnaðarverð raforku sem brýtur í bága við lög um fjöleignarhús. Samkvæmt lögunum er húsfélögum einungis ætlað að innheimta beinan útlagðan kostnað og umsýslukostnað vegna reksturs rafhleðslukerfa.

Rafrænn aflestur og gjaldfærsla með húsgjöldum Það er skoðun okkar hjá Eignaumsjón að til framtíðar færi best á því fyrir húsfélög að hleðslukerfi rafbíla uppfylltu kröfur um fjartengingu og vefþjónustu, þ.e. séu að fullu snjallvædd og uppfylli staðla um samhæfingu. Þá er hægt að koma aflestri og reikningsgerð yfir í sjálfvirkt fyrirkomulag og gjaldfæra kostnað rafrænt á húsfélagsreikning viðkomandi notanda/rafbílaeiganda með öðrum húsgjöldum, eins og kveðið er á um í fjöleignarhúsalögunum.

Að lokum skal áréttað að æskilegt er að okkar mati að umsýslusamningar með hleðslukerfum fjöleignarhúsa feli í sér vöktun vegna bilana, eftirlit með gæðum og afköstum kerfisins ásamt vöktun á orkuverði hjá smásölum, til að tryggja besta orkuverð á hverjum tíma.

Höfundur er framkvæmdastjóri Eignumsjónar hf. sem hefur yfir 20 ára reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fasteigna.

Árbæjarblaðið Fréttir 13 áö a lAll i leið dekk uá ör Pantaðu tíma ídekkjaskipti k jum argg í dekkjaskipti á n1.is Coo Hanna Mjúk g við lág Afbur awovoper Discovveerer Snow Cl að fyrir krefjandi vetraraðstæður gúmmíblanda fyrir hámarksafköst gt hitastig ðagottgrip,neglanlegt o ir jep kiðs flu oop gt o tt de u Sper W Weeather-Master W g gott grip við erfiðar aðstæð skorið og stefnuvirkt mynstur pa og jepplinga kk fyrir íslenskt veðurfar úk í aks ml b kr oope ósko urða v unar ovr Discovveerer Winter rin óneglanleg vetrardekk veggrip og stutt vegalengd stri með góða tiðor aðu N1 k ot Hjólbarðaþjónusta Bíldshöfða440-1318La N SWR o yrif skrog Skoðað Veefve a N1 ngatangaMosfellsbæ440-1378 ðagott grip, neglanlegt og 3PMS merking V tækir u þittáð valiðu úr slun Opið r nslosu LLA LEIÐA g n Bíldshöfða 440-1318 Fellsmúla 440-1322 Réttarhálsi 440-1326 Ægisíðu 440-1320 Klettagörðum 440-1365 La Re Gr Da Ré ngatanga Mosfellsbæ440-1378 eykjavíkurvegi Hafnarfirði440-1374 rænásbraut Reykjanesbæ440-1372 albraut Akranesi440-1394 éttarhvammi Akureyri 440-1433 mán–fös kl.08-18 laugardaga kl.09-13 www.n1.is
Daníel Árnason framkvæmdastjóri Eignumsjónar hf.
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 13.10.2022 21:48 Page 13

Félagsmiðstöðin Hraunbæ 105

Komdu og skemmtu þér með okkur í

Dansleikfimi hjá Auði Hörpu

Dansleikfimin er alla þriðjudaga kl. 10:30 í félagsmiðstöðinni Hraunbæ 105 og kostar ekkert að vera með.

Létt dansspor við fjöruga tónlist sem hressir og kætir. Engin skráning, bara að mæta. Endilega fylgist með okkur á facebooksíðunni Félagsmiðstöðin Hraunbæ 105

Skipuleggjum Geldinganes samhliða Sundabraut!

- Lóðabrask má ekki ráða skipulagi Keldnahverfis - eftir Kjartan Magnússon borgarfulltrúa

Neyðarástand ríkir á húsnæðismarkaði í Reykjavík. Húsnæðisskortur er viðvarandi þar sem íbúðauppbygging í borginni hefur undanfarin ár að mestu takmarkast við dýr og þröng þéttingarsvæði. Íbúðir á þéttingarsvæðum eru dýrar og varla á færi fólks með meðaltekjur, hvað þá þeirra, sem lítið hafa handa á milli.

Síðustu tvo áratugi hefur húsnæðisstefna Samfylkingarinnar verið ráðandi í borgarstjórn Reykjavíkur. Meginmarkmið þessarar stefnu virðist vera að hækka húsnæðisverð og halda því háu. Til þess hafa mörg ráð verið notuð: lóðaskortstefna, lóðauppboð, aukin flækjustig í stjórnsýslu, hækkun margvíslegra gjalda og álagning nýrra, t.d. innviðagjalda. Allar slíkar pólitískar aðgerðir stuðla að hækkun húsnæðisverðs. Afleiðingin er sú að æ fleira ungt fólk hefur ekki efni á þokkalegri íbúð og er fast í foreldrahúsum.

Skipulagður lóðaskortur í Reykjavík

Auk þess að stórhækka íbúðaverð, hefur þessi stefna gefið fjársterkum aðilum kost á að sanka að sér byggingarlóðum og selja þar íbúðir til almennings á uppsprengdu verði. Þessi stefna felur því í sér þjónkun við fjársterka verktaka og stórfyrirtæki, sem hagnast um tugi ef ekki hundruð milljarða króna á húsnæðisstefnu vinstri flokkanna.

Besta leiðin til að bregðast við þessu neyðarástandi er að leggja áherslu á úthlutun lóða víðar en á þéttingarreitum þar sem uppbygging er seinleg og kostnaðarsöm. Nefna má Úlfarsárdal, Keldnaland, og Kjalarnes sem dæmi um svæði, þar sem hægt væri að úthluta þúsundum lóða með skömmum fyrirvara. Á borgarstjórnarfundi 4. október sl. lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins til að

hafist verði handa við skipulagningu framtíðar-íbúðasvæðis í Geldinganesi með hliðsjón af skipulagsvinnu Sundabrautar. Vegna mikillar uppsafnaðrar byggingarþarfar í Reykjavík er rétt að hefja það verk nú þegar þótt ljóst sé að úthluta megi mörgum lóðum fyrst á áðurnefndum byggingarsvæðum.

Geldinganes hentar vel fyrir íbúabyggð Undirbúningur að Sundabraut er loks hafinn í alvöru ef marka má ráðamenn.

framtíðar-íbúabyggð mæti afgangi. Æskilegt er því að þetta stóra umferðarmannvirki verði hannað samhliða skipulagningu íbúabyggðar í Geldinganesi.

Meirihluti Samfylkingar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar kaus að fella umrædda tillögu. Með því sýna þessir flokkar af sér skort á forsjá og framtíðarsýn í skipulagsmálum. Á fundinum kom fram að meirihlutinn lítur ekki svo á að það sé ekki hlutverk Reykjavíkurborgar að svara hinni miklu spurn, sem nú er eftir lóðum í borginni. Í máli formanns skipulagsráðs kom skýrt fram að meirihlutinn vill miðstýra lóðaframboði og ekki bjóða of margar lóðir í einu í því skyni að halda uppi háu lóðaverði í borginni.

Þegar það er beinlínis pólitísk stefna borgarinnar að takmarka lóðaframboð og halda uppi lóðaskorti, kemur það ekki á óvart að húsnæðismál séu í ógöngum í Reykjavík.

Fallegt og mannvænlegt Keldnahverfi

Rétt er að sýna metnað og fyrirhyggju með því að skipuleggja íbúðabyggð í Geldinganesi samhliða þeirri vinnu. Ef ekki liggur fyrir skýr yfirlýsing borgarstjórnar um að ætlunin sé að taka Geldinganes til íbúabyggðar er hætt við að unnið verði að skipulagi og hönnun Sundabrautar með sjálft umferðarmannvirkið í forgangi en

Fyrir dyrum stendur að skipulegga íbúabyggð í Keldnalandi. Gott tækifæri er til að hanna fallegt og eftirsóknarvert íbúðahverfi á þessu fallega svæði. Æskilegt er að það verði skipulagt með svipuðum hætti og gert var með góðum árangri í næsta nágrenni, þ.e. í Foldahverfi og Húsahverfi. Stefna nýs meirihluta í skipulagsmálum vekur hins vegar ugg um að við skipulag Keldnahverfis verði áhersla lögð á mikla uppbyggingu og hámarksafrakstur af lóðasölu, frekar en að skapa þar fallegt og mannvænlegt hverfi. Höfundur er borgarfulltrúi og situr í umhverfis- og skipulagsráði og íbúaráði Grafarvogs.

Enn betri þjónusta

Hraunbænum

höfum aukið afköstin í

Hraunbæ 123 með fleiri talningavélum, rúmbetri móttöku og lengri opnunartíma.

Greiddar eru 18 kr. fyrir eininguna

Lítið notuð - aðeins 478 klst. Framleiðir 90% súrefni.

Taska, tvær stórar auka rafhlöður fylgja og hleðslutæki fyrir bíl. Ný yfirfarin af Donna ehf.

Upplýsingar í síma 699-7734 eða 699-1322

Opnunartíminn okkar er: Virkir dagar 9-18 Helgar 12-16.30

Árbæjarblaðið Ritstjórn og auglýsingar sími 698-2844 Fréttir 14 Til sölu notuð Inogen One G4 súrefnisvél
– gefðu okkur tækifæri!
í
Við
Endurvinnslumóttökunni
Endurvinnslumóttakan Hraunbæ
123 . 110
Reykjavík Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Félagsmiðstöðin Hraunbæ 105 Sími 411-2730 ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 17.10.2022 12:53 Page 14

Fréttamolar frá kirkjustarfinu

23. október Guðsþjónusta og sunnudagagaskóli

Guðþjónusta kl. 11.00

sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Krisztina Kalló Szklenár organisti. Kór eldri borgara úr Mosfellsbær syngur.

Sunnudagaskólinn á sama tíma í umsjón Andreu, Thelmu og Sigurðar Óla.

30. október Guðsþjónusta og sunnudagagaskóli

Guðþjónusta kl. 11.00 sr. Petrina Mjöll Jóhannsdóttur þjónar fyrir altari og prédikar.

Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Krisztina Kalló Szklenár organisti.

Sunnudagaskólinn á sama tíma í umsjón Andreu, Thelmu og Sigurðar Óla.

6. nóvember (Allra heilagra messa) Guðsþjónusta og sunnudagagaskóli

Guðþjónusta kl. 11.00 sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Látina sérstaklega minnst. Tendrað á ljósi til minningar um látna ástvini. Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Krisztina Kalló Szklenár organisti.

Sunnudagaskólinn á sama tíma í umsjón Andreu, Thelmu og Sigurðar Óla

13. nóvember - Fjölskyldumessa

Ingunn Björk og sr. Petrina Mjöll og Guðný píanóleikari sjá um stundina Nánari upplýsingar um helgihald kirkjunnar má finna á heimasíðu kirkjunnar www.arbaejarkirkja.is

Stormur í sófa

- eftir sr. Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarsókn

Sagt er að fátt þykir okkur Íslendingum meira gaman en að tala um veðrið í öllum sínum mætti og birtingamyndum. Það mátti heyra um daginn að veðurfræðingar hafi farið fram úr sjálfum sér í vindbelgingsspám sínum. Ástæðan? Á kyrrlátum skjá viðtækja okkar var ekkert að frétta af tjóni sem þýðir að veðrið hafi ekki verið eins slæmt og spáð hafði verið fyrir um. Reyndin var sú að veðurspáin stóð af sér veðurblaður okkar sem í skjóli sitjum í sófa því þeir sem á hlýddu og mögulega yrðu á vegi veðurhamsins höfðu gert ráðstafanir þannig að fréttir af veðrinu fuku hjá eða svona næstum því, fyrir utan grunlausa ferðamenn á bílaleigubílum uppi á lág og hálendinu.

Grunlausir ferðamenn hafa ekki hugmynd um að sagan hefur sagt okkur og kennt sem eldri erum en tvævetra að oftar en ekki höfum við sem einstaklingar og þjóð haft vindinn í fangið og þurft að leita vars, hvort heldur á landi og eða er lífsviðurværið var sótt í greipar Ægis sem gat verið morgunfúll. Skilgetnar dætur hans Alda og Bára ekki látið sitt eftir liggja að smella kossi á kinnar sæfarenda og á stundum verið frekar til fjörsins. Skilið eftir sig sorg í landi hjá þeim sem biðu milli vonar og ótta eftir sínum. Þessa staðreynd blæs saga þjóðar fast í vitund okkar sem í dag lifum svo kröftulega að víðsfjarri er í huga. Nútímamaðurinn í sófasettinu með snjalltækið við hönd heima hefur nennu til að leggja hug að þeirri baráttu sem átti sér stað um dag hvern þar sem lífið var í trausti lagt í hendur Drottins að hann myndi vel fyrir sjá hvort heldur væri til sjávar eða sveita.

Aldrei var ýtt úr vör í eigin mætti heldur mætti þess sem gaf og þess sem tók. Það var gefið og það var tekið og alltaf skildi farið með sjóferðarbæn áður en Ægisdætur kysstu boðung og

kinn. Ólgandi sjór, ólgandi vindur, ólgandi hjarta tókust á um hver hefði betur, mátti vart sjá og skynja hver óttaðist hvern og hvernig sagan skrifaði sig í vitund okkar.

Það er ekki hægt að tala um að megin þorri fólks í dag sem fer til vinnu eða skóla sé að tefla í neina tvísýnu eins og raunin var hér fyrrum þegar systurnar sem áður voru nefndar og sú þriðja, Bylgja, höfðu allt að segja um hver afkoman yrði við sjávarsíðuna

ótta og öryggisleysi hjá þeim sem í lendir.

Lygna lífsins í dag eru sveipuð angist, ótta, freistingum, ákvörðunum um að eitt sé öðru fremur til að komast að því að það var svikalogn. Með öðrum orðum, það er ekkert öruggt í heimi þessum. Í þeim átökum er margur sem finnur sig einmana - já og ráðvilltur. Velkist um á opinni bátkænu hugans, ekki í stakk búinn að taka á móti beljandi síbylju orða nútímans um að maðurinn sé einn. Einn og trúlítill. Allt tal um annað tilheyrir gærdeginum sem kemur ekki aftur nema afturgengin orð sem ekki er mark á takandi og hjartað innra með hrópar, óttaslegið –Kyrrð hjartans aðeins augnablik frá vissunni um að vel verði fyrir séð því við erum ekki ein. Það er mannlegt að efast. Við eigum að efast. Hvar værum við í dag ef við efuðumst ekki? Það þarf ekki að hafa mörg orð um að á ákveðnum augnablikum er nauðsynlegt að efast. Efinn gefur okkur tækifæri til, eina stund, að íhuga á hvaða leið við erum. Það hefði verið betra um árið þegar þjóðin var að ,,sökkva” eftir að efanum um eigið ágæti var kastað fyrir róða ofan í hyldýpi hégómans. Eigin máttur og framtíðarsýn vék fyrir sannfæringunni sem stæðist eitt og óstutt öll veðrabrigði mannlífsins utan frá séð, en innra barðist efinn um í stormi bjartsýninnar og við vissum það. Við kusum að vera ein á báti. Sá eða sú sem kýs að vera ein á báti horfir á tilveruna vonlausum augum.

sr. Þór Hauksson.

og þess sem til landsins gagn og nauðsynjar heyrði til í grösugum sveitum og örfoka heiðum. Í dag er miklu frekar hægt að tala um storm innra með hverjum og einum. Eitthvað sem ekki er að finna á veðurkortum fræðinga dagana fyrir heldur skellur á þegar síst skyldi sem getur leitt af sér

Hlustuðum ekki þar til að eigin máttur dvínaði í gjörningarveðri, því áratog eins má sín lítils, en alls þegar við viðurkennum okkar eigin vanmátt. Það vissu forfeður okkar og mæður sem ýttu úr vör frá grýttri og eða sendinni strönd lífs síns þar sem lítið skjól var að hafa nema hugan einan. Hvers vegna ættum við ekki að gera það líka umvafin skjóli alls?

Árbæjarblaðið Fréttir 15
Skoðið nánar á heimasíðu kirkjunnar www.arbaejarkirkja.is
Sólarhringsvakt: 581 Komum til aðstandenda og ræ ÚTFFA A RAR S TO www.utforin.is Auðb 13300 & 565 5892 æðum skipulag sé þess óskað OFFA A Í SLANDS brekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson S: 896 8242 Jóhanna Ei OFÚTFFA A RAR S T FA A H www.utfararstofa.is Dof Jón G. Bjarnason S: 793 4455ríksdóttir HAFNARFJARÐAR frahellu 9b, Hafnarfirði ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 16.10.2022 14:23 Page 15
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 17.9.2022 13:41 Page 16

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.