ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 4.7.2022 22:47 Page 1
Árbæjarblaðið 7. tbl. 20. árg. 2022 júlí
Fréttablað íbúa í Árbæ og Norðlingaholti
FAGNA NÝ FA ÝJJUM VIÐSKIP TA AV VINU UM
Hólmar Björn Sigþórsson Löggiltur fasteignasali
Dagur aldraðra var haldinn hátíðlegur á uppstigningardag í Árbæjrkirkju. Fjölmenni mætti í kirkjuna og við birtum myndir frá hátíðinni á bls. 8, 9 og 10. ÁB-mynd Katrín J. Björgvinsdóttir
Sími: 893 3276 | holmar@helgafellfasteignasala.is
ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGRA keiluhollin.is
s. 5 11 53 00
Gjafir fyrir veiðimenn og fyrirtæki Gröfum nöfn á boxin Persónuleg og falleg gjöf Íslenskt birki
Sjá nánar á Krafla.is og í síma 698-2844
,,Mahoný’’
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 5.7.2022 11:09 Page 2
2
Fréttir
Árbæjarblaðið
Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Leiðhamrar 39 - símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson abl@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir og Einar Ásgeirsson. Dreifing: Póstdreifing. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Norðlingaholti og Úlfarsárdal.
Blankir dómarar Það vakti gríðarlega athygli á dögunum þegar sagt var frá því í fréttum að Fjársýsla ríkisins hafi gert umtalsverð mistök við launaútreikinga margra af æðstu embættismönnum ríkisins. Í ljós kom að laun þessara hálaunahópa höfðu verið ofreiknuð um á annað hundrað milljónir króna yfir tveggja eða þriggja ára tímabil og röng vísitala hafði verið lögð til grundvallar útreikninganna. Upp í huga undirritaðs kom atvik sem henti mig í byrjun starfsferils míns í einum af bönkunum. Á einum af fyrstu dögum mínum í bankanum fékk ég það verkefni frá deildarstjóra verðbréfadeildar bankans að reikna út áralöng vanskil þekkts manns í atvinnulífinu. Hér var um verðtryggt lán að ræða og mér var skipað að vanda mig sérstaklega vel við útreikninginn og gæta vel að breytingum á vanskiltímanum á vísitölu og dráttarvöxtum. Mistök Fjársýslu ríkisins eru auvitað mjög alvarleg en ljóst er að þess verður ekki krafist að einhver embættismðurinn þar axli ábyrgð á mistökunum sem gerð voru. Talið er að um sé að ræða mistök við útreikninga á launum 2-300 af æðstu embættismönnum þjóðarinnar. Alþingismenn eru þar engin undantekning, ráðherrar ekki heldur og lengi mætti áfram telja upp fleiri hópa. Margir þessara embættismanna hafa komið fram og sagt það sjálfsagt mál og siðferðilega rétt að endurgreiða ofgreidd laun. Ég leyfi mér að fullyrða að lang stærstur hluti almennings hefur reiknað með því að endurgreiðslur gengu vel og hratt fyrir sig. Kemur þá ekki fram formaður Dómarafélags Íslands og vælir eins og stungin grís í fjölmiðlum. Segir það ekki koma til greina að endurgreiða ofgreidd laun og farið verði í mál við ríkið standi það við breytta útreikninga launanna. Ég stóð í þeirri trú að dómarar væru ekki láglaunahópur og væru ekki það blankir að þeir gætu greitt til baka ofreiknuð laun. Styðji dómarar almennt yfirlýsingar formanns síns eru þeir Stefán Kristjánsson allavega staurblankir siðferðilega.
abl@skrautas.is
Marco Pizzolato, Kamila Walijewska og Einar Þorsteinsson.
Ungir aðgerðasinnar - gegn matarsóun fengu titilinn Reykvíkingar ársins 2022
Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs kynnti í morgun hverjir hefðu orðið fyrir valinu sem Reykvíkingar ársins 2022. Tilkynnt var um valið við opnun Elliðaánna á dögunum. Í ár urðu vinirnir Kamila Walijewska og Marco Pizzolato fyrir valinu en þau settu upp frískáp fyrir matvæli á Bergþórugötu 20 í fyrrasumar undir hatti alþjóðlegu hreyfingarinnar Freedge.org. Skápurinn var settur upp fyrir utan húsnæði Andrýmis 29. júní í fyrra og hafa viðtökurnar verið framar vonum. Hjá Andrými hittist fólk reglulega og eldar saman úr afgöngum til að draga úr matarsóun og fannst Marco og Kamilu því tilvalið koma skápnum fyrir þar. Síðan skápurinn á Bergþórugötu var settur upp hafa að minnsta kosti tveir frískápar verið teknir í notkun á höfuðborgarsvæðinu; annar í Breiðholti og hinn í Kópavogi og eru þeir allir mikið notaðir. Markmið Freedge.org er að draga úr matarsóun og byggja upp samfélag í kringum það að deila mat í gegnum frískápa. Þau Kamila og Marco stofnuðu facebook síðu um skápinn og nú eru meðlimir orðnir 2.400 talsins og er skápurinn í stöðugri notkun bæði hjá þeim sem setja í hann matvæli og þeim sem njóta matar úr honum. Marco hefur einnig verið ötull talsmaður „Couch-surfing“ eða Beddaflakks á Íslandi en það snýst um að fólk leyfir gestum að gista hjá sér endurgjaldslaust. Í frétt sem birtist um Marco og Kamilu á vef Reykjavíkurborgar í desember sl. höfðu vinirnir þetta að segja um framtak sitt. „Okkur finnst frábært að sjá verkefnið
Marco Pizzolato og Kamila Walijewska með fyrsta lax sumarsins úr Elliðaánum þetta sumarið. öðlast eigið líf. Fólk lætur orðið berast, kemur færandi hendi með mat og stundum heyrum við af fólki sem hittist við kælinn og kynnist þannig. Við sjáum mikla möguleika á að tengja fólk saman og efla um leið meðvitund um matarsóun og þar með um jörðina okkar.“ Þau Kamila og Marco hafa bæði búið á Íslandi í tvö ár. Kamila kemur frá Póllandi og hefur stundað alþjóðaviðskipti en Marco er verkfræðingur frá Sviss. Þau segjast bæði elska íslenska náttúru og hafa bæði ferðast víða um heiminn. Í morgun fengu hinir nývöldu Reykvíkingar ársins að opna Elliðaárnar í boði borgarstjórans í Reykjavík og
Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem hefur haft umsjón með ánum í 82 ár. Þau voru fljót að læra að kasta flugu fyrir laxinn og settu bæði í væna laxa á Breiðunni neðst í ánum og lönduðu sitt hvorum laxinum. Aðspurð sögðust þau ekki búast við að veiða lax aftur þar sem þeim er báðum annt um náttúruna og umhverfið og borða sjálf hvorki kjöt né fisk. Þeim fannst samt báðum forvitnileg lífsreynsla að hafa fengið að prófa að kasta flugu og taka þátt í þeirri hefð að opna laxveiðiá inni í höfuðborginni miðri. Þetta er í tólfta sinn sem Reykvíkingur ársins er valinn.
GV 2020.qxp_GV- 1. tbl. Janúar.qxd 30.6.2022 23:26 Page 3
– SPENNANDI VIÐBURÐIR Í HVERJUM MÁNUÐI –
ALLT LTAF A GAM A AN OG ALLTAF A GOTT VEÐUR Fylgstu með dagskránni á Facebooksíðu Keiluuhallarinnar. facebook.com/keiluho h llin Bókaðu borð tíman m lega á kei e luhollin@keiluhollin.is
500
%
AFSLÁTTUR A
Í KEILU MILLI 23-01
FÖSTUDAGA & LA F AUGARDAGA
PÖBB QUIZ MEÐ HELGA & HJÁL Á MARI
Hörður oog Pétur úr Bandmönnuum halda uppi stuði og sstemningu á sinn einsstaka hátt.
STÓR ÓRSKEMMTILEGT FÓTBOLTA-QUIZ HJÖRVARS HAFLIÐA
DDJ. J. ÓÓRA ÓRRA ÚÚLÍÍAA
PÖBB QUIZ
NEI. HÆTTU NÚ ALVVEG VILLI NAGLB L ÍTUR
HEIMTÖÖKUTILBOÐ SHAKE&PIZZA
EIN, TVVÆ ÆR OG FRÍ PIZZA EF ÞÚ SÆKIR
EINN, TVEIR OG FRÍÍRR SHAKE EF ÞÚ SÆKIR
EIN PIZZA OG SVO ÖNNUR Á 1.000 KR.
– BORGAR EKKI FYRIR ÓDDÝÝRUSTU PIZZUNA
– GILDIR EKKI AF ÁFEN E GUM SHAKE-UM
KAUPIR PIZZU AF MAT ATSEÐLI OG BBÆ ÆTIR ANNARRI VIÐ Á 1.000 KR. – BORGAR F YRIR DÝRARI PIZZUNA
s ha k e p i z z a . is
# sh ak ean ndpizza
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 4.7.2022 22:17 Page 4
4
Fréttir
Árbæjarblaðið
Steikurnar eru hrikalega girnilegar hjá Kötkompaníinu.
Verslun Kjötkompanísins í Bíldshöfða 13 er sérlega vönduð og glæsileg.
Kjötkompaníið opnaði í Bíldshöfðanum:
Móttökur verið frábærar - segir eigandinn Jón Örn Stefánsson ,,Við opnuðum okkar fyrstu verslun í Hafnarfirði í september 2009, svona rétt eftir frægu setninguna „Guð blessi Ísland.“ Við vorum búin að vera með svona verslun í gerjun í mjög langan tíma þannig að þegar við loksins fórum af stað þá vissum við mjög vel hvert við vildum stefna með verslunina varðandi vöruframboð og þjónustu,” segir Jón Örn Stefánsson eigandi í Kjötkompaníinu sem nýlega opnaði glæsilega verslun í Bíldshöfðanum. ,,Við leggjum mikið upp úr því að okkar viðskipavinir geti fengið heildar pakkann hjá okkur þegar verið er að undirbúa veisluna, eins og forréttinn, aðalréttinn, meðlætið og svo desertinn. Við erum einnig með veisluþjónustu þar sem við bjóðum okkar viðskiptavinum
upp á úrval af smáréttum og einnig úrval af tilbúnum fullelduðum veislum ásamt ýmsum grillpökkum. Í dag rekum við 3 verslanir í Hafnarfiði, Granda og svo opnuðum við í maí á Bíldshöfða 13 sem er okkar stærsta verslun til þessa. Við erum mjög ánægð með staðsetninguna og gaman að vera komin í þennan hluta borgarinnar með okkar þjónustu.” - Úrval hjá ykkur í Bíldshöfðanum er mjög mikið. Á hvað leggið þið mesta áherslu? ,,Úrvalið hjá okkur hefur verið að aukast mikið með árunum, við leggjum mikið uppúr réttri meðhöndlun og gæðum á því kjöti sem við erum með. Við látum t.d allt okkar nautakjöt hanga í minnst 25 daga áður en það fer í kjötborðið okkar, það sama á við um lambið sem fær að hanga í minnst 2
vikur áður en það fer í kjötborðið okkar.” - Hverjar eru vinsælustu steikurnar í dag? ,,Okkar vinsælasta steik í lambi er Lambakonfektið okkar þetta eina sanna ásamt því að við erum með mikið úrval af fylltum lambalærum og fl. Í nautakjöti er okkar vinsælasta steik Nautalund De Luxe í trufflusveppa kryddleginum, við seljum einnig mjög mikið af nauta ribeye ásamt flottu ribeye á beini og T-bone úr dry age kælinum okkar og við leggjum mikið upp úr vel fitusprengdu nautakjöti sem er algert lykil atriði.” - Þið bjóðið upp á mikið úrval af góðu meðlæti. Hvað er þar helst? ,,Við erum með úrval af meðlæti í boði í okkar verslunum eins og fylltar kartöflur, hasselback kartöflur, saltbakaðar kartöflur og nokkarar tegundir af kartöflusalötum. Einnig erum við með mikið úrval af köldum sósum ásamt sósum til að hita eins og t.d villisveppasósu, rauðvínssósu og fleira.” - Hvernig hafa móttökur í nálægum hverfum verið? ,,Við þökkum okkar viðskiptavinum kærlega fyrir frábærar móttökur í nýju búðinni okkar á Bíldshöfðanum og okkur hlakkar til að þjónusta hverfin sem best á næstu árum.” - Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér í Bíldshöfðanum? ,,Það er mikil uppbygging í gangi í þessum borgarhluta og hverfin eru að stækka mikið sem er mjög ánægjulegt. Við horfum björtum augum til framtíðarinnar,” segir Jón Örn Stefánsson.
Mjög mikið úrval er af mðlæti hjá Kjötkompaniinu.
Kjötkompaníið er í Bíldshöfða 13
D``Vg ea cijg [{ [{ `¨gaZ^`hg ` `i jeeZaY^ k^ haZch`Vg VÂhi¨ÂÂjg
<g ÂgVghi Â^c
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 1.7.2022 11:20 Page 5
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 2.7.2022 13:50 Page 6
6
Fréttir
Árbæjarblaðið
Krúttlegar kanínur leita sér að heimilum – 62 kanínur voru veiddar í Elliðaárdalnum
62 kanínur hafa eignast tímabundið skjól vegna tilraunaverkefnis á vegum Dýrahjálpar Íslands, Villikanína og Dýraþjónustu Reykjavíkur. Kanínurnar voru veiddar í Elliðaárdalnum þar sem lífsbarátta þeirra er afar hörð og er markmiðið að finna góð heimili fyrir öll dýrin. Gréta Sóley Sigurðardóttir, verkefnastjóri og sjálfboðaliði hjá Dýrahjálp Íslands og Villikanínum segir verkefnið fyrst og fremst snúast um að hjálpa kanínunum og veita þeim betra líf. „Ég stakk upp á að við hjá Dýrahjálp Íslands færum í samstarf við Villikanínur og Dýraþjónustu Reykjavíkurborgar og vel var tekið í það. Það hafði verið kvartað mikið undan kanínum í borgarlandinu enda skemma þær gróður; grafa holur og naga tré og rætur. Svo flækjast þær inn í íbúðahverfi og fólk er misánægt með að fá kanínur í garðinn sinn.“ Framhald verkefnisins fer eftir því hvort tekst að finna kanínunum heimili. Gréta segir alltaf meira um að fólk sleppi kanínunum sínum út á vorin. „Það er leiðinlegur vorboði í okkar starfi að sjá þeim hent út,“ segir hún. Um 25 sjálfboðaliðar eru virkir í verkefninu og er það unnið í samráði við MAST. „Það er bannað að veiða villt dýr nema í undantekningartilfellum og við erum með leyfi, það á ekki hver sem er að fara niður í dal og taka sér kanínu. Þá er betra að gerast sjálfboðaliði eða taka að sér kanínu í gegnum okkur því þær sem við látum frá okkur er allar búið að gelda, bólusetja, ormahreinsa og örmerkja.“ Lilja Björk Vilhelmsdóttir, starfsmaður í Dýraþjónustu Reykjavíkur, tekur undir og segir betra að fá sér kanínur sem búið sé að nostra við og spekja. ,,Við biðlum líka til fólks að
Gréta Sóley Sigurðardóttir, verkefnastjóri og sjálfboðaliði hjá Dýrahjálp Íslands og Villikanínum.
Lilja Björk Vilhelmsdóttir er starfsmaður í Dýraþjónustu Reykjavíkurborgar.
sleppa kanínum ekki lausum; það er alltaf hægt að leita sér aðstoðar og fara aðra leið en að hleypa dýrinu sínu út í náttúruna. Það eru komnar góðar dýramiðlanir sem aðstoða fólk sem er í
vanda með dýrin sín og þarf að losa sig við þau og við getum líka haft milligöngu. Við reynum að hjálpa til í slíkum aðstæðum.“
62 kanínur hafa verið veiddar í Elliðaárdalnum.
Vel er hugsað um kanínurnar á vegum Dýrahjálpar Íslands, Villikanína og Dýraþjónustu Reykjavíkur.
Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár
ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGR A
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t ffor.is .
VIÐ ÞJÓNUM ALL AN SÓL AR HR INGIN N
keiluhollin.is
s. 5 11 53 00
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 1.7.2022 11:21 Page 7
Gott verrð ð ffyyrir alla a í
2002 – 2022
Afmæ ælistilboð boð ð á Lavo or háþrý ý ti ýs tidælum!
20
%
20
%
20
%
AFMÆLISAFSLÁTTUR
AFMÆLISAFSLÁTTUR
AFMÆLISAFSLÁTTUR
Lavor STM 160 WPS háþrýstidæla með RISA-stóru m um aukahlutapakka
Lavor Predator 18 80 Digital háþrýstidæla með ð aukahlutapakka
Lavor LV VR4 Plus 160 WPS W háþrýstidæla með aukahlutapakka a
Mótor: 2500W M Þrý rýstingur: 160 bör Vattnsflæði: 510 l/klsst.
Mótor 2500W Þrýstingur Max: 180 böör Vansflæði: 510 l/klst.
Mótor: 2500W Þrýstingur Max:160 bör Vatnsflæði Max: 510l/klst.
31.19 31 1.19 96
35.992 2
31.992
Áður 38.995 kr.
Áður 44.990 kr.
Áður 39.990 kr.
20 0
%
20
20
%
%
AFMÆLISAFSLÁTTUR
20
%
AFMÆLISAFSLÁTTUR
AFMÆLISAFSLÁTTUR
AFMÆLISAFSLÁTTUR
Lavor Cruiser
æla
Mótor: 2300W kolallaus induction Þrýstingur Max: 2000 bör Vatnsflæði Max: 3000 l/klst. Hose Reel-In-Pressuure kerfi
47.99 92 Áður 59.990 kr.
SENDU SEND UM M UM LAND ALLT! LAN
www. ww.murbudin din.is
Lav vor Galaxy 150 háþ þrýstidæla
Lavor HPC Wa ave up 125 háþrýstidæla
Lavor HPC Fast 120 háþrýstidæ æla
Móttor: 2100W Þrýsstingur Max:150 bör Vatnnsflæði Max: 450l/klst.
Mótor: 1800W Þrýstingur Max:125 bör Vatnsflæði Max: 400l/klst.
Mótor: 1700W W Þrýstingur Maxx:120 bör Vatnsflæði Maax: 330l/klst.
2 23.992
19.192
11.9 992
Áðuur 29.990 kr.
Áður 23.990 kr.
Áður 14.990 kr.
Gottt verrð ffyyrir alla í
20ár
2002 – 2022
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 1.7.2022 21:19 Page 8
8
Fréttir
Árbæjarblaðið
Sr. Bára Friðriksdóttir predikaði.
Kristín Halla Þórisdóttir, Jóna Theodóra Viðarsdóttir, Guðfinna Jóhannsdóttir, Halldóra Ingjaldsdóttir, Guðný Hinriksdóttir, Unnur Óladóttir, Kristjana Jónsdóttir, Elín Aðalsteinsdóttir, Margrét Elísabet Hjartardóttir og Arna Hrönn Aradóttir frá Soroptimistaklúbbi Árbæjar buðu upp á glæsilegt hátíðarkaffihlaðborð.
Dagur aldraðra
Systurnar Sólveig og Hanna Antonsdætur.
- á uppstigningardag í Árbæjarkirkju Á uppstigningardag (degi aldraðra) var mikið um að vera í Árbæjarkirkju. Hátíðarguðsþjónusta var í Árbæjarkirkju og stórsöngvarinn Gissur Páll Gissurarson söng einsöng eins og honum einum er lagið. Séra Bára Friðriksdóttir prédikaði og prestar kirkjunnar þjónuðu fyrir altari.
Kirkjukórinn leiddi almennan safnaðarsöng og organisti var hinn snjalli Hrafnkell Karlsson.
Ljósmyndir Katrín J. Björgvinsdóttir Soroptimistaklúbbur Árbæjar bauð
til hátíðarkaffis í safnaðarheimili kirkjunnar að lokinni athöfn í kirkjunni. Dagurinn var afar vel heppnaður í alla staði og fjölmenni skemmti sér vel í Árbæjarkirkju þennan dag sem aðra. Katrín ljósmyndari Árbæjarblaðsins var á staðnum og að venju segja myndir meira en mörg orð. Jóna Lárusdóttir og Marta Hermannsdóttir.
Mæðgurnar Unnur Magnúsdóttir og Hólmfríður Benediktsdóttir.
Guðbjörg Guðmundsdóttir, Magnhildur Friðriksdóttir og Ellen Emilsdóttir.
Lilja Ingólfsdóttir og Viggó Pálsson.
Gissur Páll Gissurarson söngvari og Jónína Valdimarsdóttir spjölluðu saman.
Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir.
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 1.7.2022 21:20 Page 9
9
Fréttir
Árbæjarblaðið
Björgvin Halldórsson og Margrét Guðrúnardóttir.
Edda Magnúsdóttir, Díana Ágústsdóttir og Einar Einarsson.
Sigrún Jónsdóttir tók vel á móti Guðrúni Kristinsdóttur á degi aldraðra.
Hjónin Kristján Ingólfsson og Kristjana Þorkelsdóttir. Ólafía Hansdóttir, Jensína Waage og Hildur Waltersdóttir.
Karítas Fjóla Ólafsdóttir og Ida Hildur Fenger.
Sigurlína Guðmundsdóttir, Steinunn Bjarnadóttir og Lilja Ingólfsdóttir.
Elmar Árni Ólafsson og Skafti Jóhannsson.
Guðrún Elíasdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Edda Magnúsdóttir, Magnhildur Sigurbjörnsdóttir, Ellen Emilsdóttir og Magnhildur Friðriksdóttir.
Systurnar Kristrún Marinósdóttir og Ásta María Marinósdóttir.
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 1.7.2022 21:21 Page 10
10
Fréttir
Árbæjarblaðið
Erla Frederiksen og Ólafur G. Karlsson.
Sigríður Steinþórsdóttir, Helga Ottórsdóttir og Jastrid Pétursdóttir.
Hjónin Steinunn Þorbergsdóttir og Þórir Dan Viðarson.
Systurnar Sigríður Bjarnadóttir og Margrét Jónsdóttir.
Hrafnkell Karlsson organisti, Margrét Guðmundsdóttir, Erla Frederiksen og mæðgurnar Guðfinna Jóhannsdóttir og Björg Ísaksdóttir.
Gróa Sigríður Einarsdóttir og Jóna Þorgeirsdóttir.
Presthjónin sr. Þór Hauksson sóknarprestur og Magnhildur Sigurbjörnsdóttir.
Halldóra Gróa Guðmundsdóttir og Vilhjálmur Haraldsson.
Guðmundur Teitsson og Jóhanna Guðmundsdóttir.
Guðríður Pálmadóttir og Svanfríður Magnúsdóttir.
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 5.7.2022 15:36 Page 11
$#! +! ) ! .-,.- )! +)+!/.-,.+*)(-,'( .+ + + ! ) ! +! ! ',! ! ! + + ) ! .-,.- .*! ! + . ! ! .+! +)(! ( ! 2100/./+*))(/.0'/&%0(/$� "'!)$ !& 0/ %0 0' 0/)*" )' / 0 0&% ' / 0 *)' 0 #/% / 0 0 % $'/) "*' ! 0 /*' /( '0/ ' ( /.-,.+*)(-,'( / '!)$ !' /*0 *' / (00 /)*"/*0(/)$ 0 0# $ 0/ *1 && /* / ( /+*))/0* (0 &* *0! 0)&'!/0 0# /"'!)$ ! /
0*1 &' ')
/"'!)$ !&( ("/ *$(0/+ / . )$ 0*1$$ /&* *0! 0+ ()$( ( )' 0 /0.! /% /)$(! ' &*0'!/& 0/)$ 0 )*"'/) /% 0 )$( )&'!)/% /&* *0! 0)&'!) ) "*' (!/ /"'!)$ !&( ("/% /&'! + !/& 0/ ($&*0 /+*'00 / $& ! *' ("/$' / !/ #$ /+ ()$(/&'! 0 /% / ) 1 (0/+*'00 /
* /+ 0/ *0/ /*' ' / 0 "/) % / 0 )$( + ()$ ' /*0/ $ 1 '/./+& / !/ *)$ 0 (") '0/("/&* *0! 0+ ()$( *0(/ /0 0# 0 / #0/"./ . )$ ./&* / *1 & (0 %0 0 *) ! ! .-,.+*) -, + ) )-
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 2.7.2022 14:31 Page 12
12
VILTU SELJA FA FASTEIGN? A
Fréttir
Árbæjarblaðið
Hólmar Björn Sigþórsson S Löggiltur gg faste eignasali g
Sími: 893 3276 | holmar@helgafellfasteignasala.is g g
Guðjón Eiríksson hlaut Fylkiskrossinn fyrir áralngt starf fyrir Fylki. Hér er hann ásamt þeim Tinnu Harðardóttur og Ragnheiði Jónsdóttur.
ÞAR SEM VENJULEGA FÓLKIÐ KEMUR TIL AÐ SIGRA keiluhollin.is
s. 5 11 53 00
Við úðum garðinn þinn - Hagstætt verð og vönduð vinna - Ný og viðurkennd efni - Eyðum líka meindýrum
meindyraeidir@simnet.is - www.meindyraeydir.is
Allir skemmtu sér konunglega á afmælishátíðinni.
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 2.7.2022 14:33 Page 13
13
Fréttir
Árbæjarblaðið
55 ára afmæli Fylkis:
Fimm fengu Fylkiskrossinn Í tilefni af 55 ára afmæli Fylkis 28. maí sl. var haldið Fylkishlaup fyrir yngri iðkendur og fengu allir sem hlupu verðlaunapening, köku og drykk eftir hlaup. Frábær þátttaka var í hlaupinu og mikið fjör enda veðrið frábært. Félagsmönnum var svo boðið í afmæliskaffi þar sem m.a. voru veitt heiðursmerki félagsins til þeirra sem hafa unnið frábært og óeigingjarnt starf fyrir félagið á síðustu árum og áratugum. Það var Björn Gíslason formaður félagsins sem afhenti heiðursmerkin. Fylkiskrossinn Krossinn er æðsta heiðurmerki félagins og samkvæmt reglum þess mega bara 20 aðilar bera hann á hverjum tíma. Guðrún Hupfeldt (nr. 15) fyrir áratuga farsælt starf fyrir félagið sem starfsmaður og sjálfboðaliði. Hildur Mósesdóttir (nr. 16) fyrir áratuga langt sjálfboðaliðastarf fyrir félagið. Hildur er meðal annars einn af stofnendum blakdeildar félagsins. Guðjón Eiríksson (nr. 17) fyrir áratuga langt sjálfboðaliðastarf fyrir félagið. Sigurður Haraldsson (nr. 18) fyrir áratuga langt sjálfboðaliðastarf fyrir félagið og þar á með í sögunefnd félagsins í síðustu ár. Kristján Þórðarson (nr. 19) fyrir áratuga langt sjálfboðaliðastarf fyrir félagið og þar á með í sögunefnd
félagsins í síðustu ár. Gullmerki Fylkis Rún Rafnsdóttir fyrir áratuga langt farsælt starf fyrir félagið sem starfsmaður og sjálfboðaliði. Svanfríður Hjaltadóttir fyrir áratuga langt farsælt starf fyrir félagið sem starfsmaður og sjálfboðaliði. Kjartan Gylfason fyrir áratuga langt farsælt starf fyrir félagið sem sjálfboðaliði. Eggert Marinóson fyrir ómetanlegt starf fyrir blakdeild félagsins á síðustu árum. Steinunn Oddný Garðarsdóttir fyrir ómetanlegt starf fyrir blakdeild félagsins á síðustu árum. Rebekka Ósk Heiðarsdóttir fyrir frábært starf fyrir fimleikadeild félagsins á síðustu árum sem þjálfari, starfsmaður og sjálfboðaliði. Jónína Karlsdóttir fyrir áratuga langt sjálfboðaliðastarf fyrir fimleikadeildina og félagið okkar. Silfurmerki Fylkis Zoltán Kiss fyrir áralangt starf fyrir félagið sem fimleikaþjálfari og sjálfboðaliði. Diðrik Örn Gunnarsson fyrir áralangt sjálfboðaliðastarf og þar á meðal umsjón með getraunastarfinu. Bjarki Már Sigurðsson yfirþjálfari rafíþróttadeildar fyrir ómetanlegt starf við uppbyggingu á rafíþróttadeild félagsins.
Fylkiskrosshafar ásamt Birni formanni og Herði framkvæmdastjóra Fylkis.
Þessi hlutu gullmerki Fylkis fyrir áratuga langt sjálfboðaliðastarf fyrir Fylki.
Þessir þrír fengu silfurmerki Fylkis.
Fjölmenni mætti á afmælishátíð Fylkis og margt skemmtilegt og girnilegt var í boði.
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 1.7.2022 11:24 Page 14
14
Gamla myndin
Til sölu notuð Inogen One G4 súrefnisvél Lítið notuð - aðeins 478 klst. Framleiðir 90% súrefni. Taska, tvær stórar auka rafhlöður fylgja og hleðslutæki fyrir bíl. Ný yfirfarin af Donna ehf. Upplýsingar í síma 699-7734 eða 699-1322
Íslandsmeistarar í 3. flokki Fylkis árið 1999 Hér sjáum við gamla íslandsmeistara Fylkis úr 3.flokki karla árið 1999, en þetta eru piltar fæddir árin 1983 og 1984.
varnarjaxlinn Kristján Valdimarsson. Þjálfarinn er svo enginn annar en Hörður Guðjónsson núverandi framkvæmdastjóri Fylkis.
Einhver þekkt nöfn eru þar á meðal, sá þekktasti er líklega Ólafur Ingi Skúlason fyrrverandi landsliðsmaður sem og markvörðurinn Bjarni Þórður Halldórsson og
-KGG
Frábær
Plötur til sölu á ,,slikk”
gjöf fyrir
Ert þú að stofna fyrirtæki eða opna verslun?
veiðimenn
Hér er tækifæri til að spara mikla peninga. Til sölu 10 plötur sem
og konur
eru lítið sem ekkert notaðar. Einnig mikið magn af járnum (pinnum) af ýmsum lengdum og gerðum. Uppl. í síma 698-2844
Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Uppl. á www.Krafla.is (698-2844)
ÁB NÝ 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 1.7.2022 11:25 Page 15
15
Fréttir
Árbæjarblaðið
Fréttamolar frá kirkjustarfinu Helgihald í Árbæjarkirkju í sumar Sunnudaginn 10. Júlí kl.11.00 Sameiginleg sumarguðsþjónusta Árbæjar, Grafarvogs og Grafarholtssafnaða 11:00 (Sjá nánari upplýsingar á heimasíðum safnaðanna.) Sunnudaginn 17. júlí kl.11.00 Sumarhelgistund Kór Árbæjarkirkju syngur. Oranisti Krizstina K. Szklenár. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir flytur hugleiðingu og þjónar fyrir altari. Kaffisopi og spjall eftir stundina. Sunnudaginn 24. júlí kl.11.00 Sumarhelgistund Kór Árbæjarkirkju syngur. Oranisti Krizstina K. Szklenár. Sr. Sigrún Óskarsdóttir fangaprestur flytur hugleiðingu og þjónar fyrir altari. Kaffisopi og spjall eftir stundina. Sunnudaginn 31 júlí (Helgistund fellur niður vegna leyfis) Sunnudaginn 7. ágúst kl.11.00 Sumarhelgistund Kór Árbæjarkirkju syngur. Oranisti Krizstina K. Szklenár. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir flytur hugleiðingu og þjónar fyrir altari. Kaffisopi og spjall eftir stundina.
Skoðið nánar á heimasíðu kirkjunnar www.arbaejarkirkja.is
Keyrum yfir Ísland - eftir sr. Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarsókn Fyrir mörgum árum síðan ók ég sem leið lá frá Lúxemburg niður til Ítalíu. Það var á þeim árum sem landamæri Evrópuríkja voru harðlæst. Það þurfti að framvísa vegabréfum þegar farið var yfir landamæri hvers lands með tilheyrandi töfum. Fljótlega komumst við ferðalangar að því að það var gott að vera með íslenskt vegabréf. Landamæraverðir rétt litu á það og sáu Iceland og veifuðu okkur í gegn á meðan annara þjóða kvikindi voru tekin til hliðar til nánari skoðunar. Þannig var það þangað til að við ferðalangar komum að landamærum Auststurríkis og Ítalíu. Við vorum á ferð rétt eftir miðnætti og ekki mikið að gerast á landamærastöðinni sem getur hafa valdið því að við ferðalangarnir með okkar íslenska vegabréf vorum stöðvuð á ferð okkar. Eitthvað sem við áttum ekki að venjast. Þessu tengt var mér hugsað um orð erlends ferðalangs sem ég fyrir fáeinum misserum leiðsagði á förnum vegi miðborgar Reykjavíkur. Við tókum tal saman. Þar kom að í samtali okkar að hann sagðist öfunda mig að því að eiga heima á Íslandi og geta kallast Íslendingur og vera með íslensk vegabréf. ,,Það hljóta allar dyr heimsins að standa þér opnar með íslenskt vegabréf,” sagði hann. Já og allar heimisins lægðir hugsaði ég með mér þegar ég kvaddi ferðalanginn sem vildi fá sér að borða á Hard Rock. ,,I´m sure there is no shark and Black Death on table,” sagði hann er hann arkaði út eftir Lækjargötunni í rigningarsuddanum sem aftur leiðir hugann að því hvað það er að vera Íslendingur. Kannski koma strákarnir í hljómsveitinni Sprengju-höllinni sálugu ágætlega að orði í einu laga sinna - Keyrum yfir Ísland, læt ég
fylgja hér brotabrot af þeim texta. Förum út í sveit. Tökum bensín inn á stöð. Kaupum þykkmjólk, bjór og snúða. Þú mátt koma með. Það er pláss í bílnum fyrir einn. En við viljum enga lúða. Við ætlum að keyra yfir Ísland. Sjá alla firði, fjöll og tanga....”
sr. Þór Hauksson. Í samanburði þjóða erum við ung. Einkenni ungdómsins er að allt er spennandi og nýtt. Við erum svolítið þannig að við erum upptekin við að horfa og spegla okkur í viðhorfi annarra á okkur. Heimsfrægir einstaklingar mega ekki stíga á land hér en vera umsvifalaust kallaðir
Íslandsvinir. Þetta eða hitt frægðarmennið birtir myndir af sér á samfélagsmiðlum og við ætlum að fara á límingunum ef einhver frægur segir frá ferð sinni um landið í amerískum spjallþætti eins hjá Jimmy Kimmel og lofar land og þjóð í hástert. Eins verðum við rasandi hissa og ef ekki móðguð þegar við á ferðum okkar erlendis hittum fyrir einstaklinga sem aldrei hafa heyrt minnst á Ísland og hvað þá hvar landið er staðsett á jarðarkringlunni. Ekki skal ég segja að landamæravörðurinn sem var á vaktinni rétt eftir miðnætti á landamærastöð Austurríkis og Ítalíu um árið virti ekki viðlits að veifað var framan í hann íslensku vegbréfi með íslenska skjaldarmerkinu, að honum hafi hreinlega leiðst. Ábúðafullur leit hann á vegabréfin og í framhaldinu bað hann okkur ferðalanga að keyra inn á stæði nærri landamæra-stöðinni og fara úr bílnum. Hann lagði áherslu á orð sín með því að setja hendur á byssubeltið sem lá á mjöðm hans. Eins og hann ætti von á að við myndum reikspóla inn til Ítalíu. Við Íslendingarnir áttum því ekki að venjast að vera stöðvuð á landamærum ríkja Evrópu en hlýddum tilskipuninni. Þegar við komum inn í stöðvarhúsið voru tveir ábúðafullir landamæraverðir sem tóku á móti okkur. Á bjagaðri ensku spurði annar þeirra hvert okkar væri í forsvari fyrir hópnum. Þegar það var ljóst var farið inn í ,,yfirheyrslu” herbergi inn af húsinu. Margur hefur svitnað þar hugsaði ég með mér þegar ég samkvæmt skipun var beðinn um að setjast á stól fyrir framan frekar pasturslegt skrifborð. Loftið var mettað af reykjarsvælu svona í bland við allra þjóða svitafýlu. Brúnaþungur
landa-mæravörðurinn rýndi í vegabréfin sem lágu fyrir framan hann á borðinu. Hann benti á skjaldamerkið sem ég skildi sem svo að hann vildi vita fyrir hvað það stæði. Mér vafðist tunga um höfuð og bölvaði innra með mér að ég hafi ekki verið duglegri hér fyrrum að fylgjast betur með í skólanum þegar Bjarni kennari af andagift sagði frá tilurð skjaldamerkis Íslands. Það hefði verið mun auðveldara að segja frá því fyrir framan kennarann en einhvern Ítala með yfirvararskegg og byssu í beltiststað, já og púandi sígarettu. Einhvern veginn tókst mér að segja frá skjaldamerkinu, samt með það bak við eyrun að ég væri ekki í prófi og gæti þess vegna bullað bara aðeins eða í mesta lagi fyllt í eyðurnar, svona efir á að hyggja. Svo vel tókst mér til að eftir dágóða stund dró landamæravörðurinn út skúffu og handfjattlaði veglegan stimpil og stimplaði vegabréfin með þeim orðum að við værum velkomin til Ítalíu. Svona næstum á pari við fermingarbarn sem fær stimpil um að viðkomandi hafi mætt í messu.
Þegar við vorum að leggja í hann frá stöðinni kemur annar þeirra félaga sem pössuðu upp á landmærin að Ítalíu þessa júnínótt, baðandi út öllum öngum þannig að við stöðvuðum hið snarasta. Af lestri líkamstjáningu mannsins vildi hann að bilstjórinn renndi niður rúðunni. Háfvegis hallaði hann sér inn í bílinn og spurði: ,,Hvað tekur langan tíma að keyra frá Íslandi til Ítalíu?” Þögnin í bílnum var ærandi. Bara til að segja eitthvað og alls ekki fara að hlægja upp í opið geðið á landamæraverðinum, heyrðist sagt úr aftursætinu. ,,Það tekur nokkra daga.” Þegar keyrt var fyrstu metrana inn á ítalska grund hefði hljómað í eyrum mér áðurnefnt lag Sprengjuhallarinnar en það var fáeinum áratugum seinna sem þeir blöstuðu laginu. ,,Það er júnínótt. Enginn sefur rótt. Því það er alltof gaman - alltof mikið grín.” ,,Er ekki bara best” að keyra yfir Ísland. Það hefur sýnt sig að það virkar allavega... fyrir suma. Þór Hauksson
ÚTFFARARSTO OFFA ÍSLANDS www.utforin.is Auðbbrekku 1, Kópavogi Sólarhringsvakt: 5811 3300 & 565 5892 Komum til aðstandenda og ræ æðum skipulag sé þess óskað
Sverrir Einarsson S: 896 8242
Jóhanna Eiríksdóttir
Jón G. Bjarnason S: 793 4455
ÚTFFARARSTOFFA AH HAFNARFJARÐAR www.utfararstofa.is Doffrahellu 9b, Hafnarfirði
GHB 2022.qxp_Árbær Aðsent efni - .qxd 7.6.2022 09:36 Page 8