Árbæjarblaðið 9. tbl. 7. árg. 2009 september
Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti
Opið virka daga frá kl. 9-18.30 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 115 – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 Netfang: arbapotek@internet.is
Þessar kátu knattspyrnustúlkur úr Fylki voru á meðal þátttakenda á stelpumóti í knattspyrnu sem fram fór á Sauðárkróki í sumar. 4. og 5. flokkur Fylkis náði þar góðum árangri. Við segjum nánar frá mótinu í miðopnu blaðsins á bls. 8 og 9.
Glæsileg flugubox fyrir veiðimenn 15 til 26 flugur í hverju boxi Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Sjá nánar á Krafla.is - Sími 698-2844
Tjónaskoðun . hringdu og við mætum
Löggiltur rafverktaki Sími - 699-7756
Pantið tíma í síma 511–1551
Bíldshöfða 14 - Sími: 699-7756
Hársnyrting Villa Þórs Lynghálsi 3
Bæjarflöt 10 - Sími: 567-8686 ą × Ą Ą × Ǧ À §Ą Ą
æfi! Árbæjarþrek • Fylkishöll Fylkisvegur 6 • Sími: 567-6471 www.threk.is / threk@threk.is
Bílamálun & Réttingar
www.kar.is
......ég
2
Fréttir
Árbæjarblaðið
Árbæjarblaðið Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: skrautas@simnet.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Bíldshöfða 14 - símar 587– 9500 og 698–2844. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingastjóri: Þorvarður Kristjánsson. Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson. Dreifing: Íslandspóstur. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti, Bryggjuhverfi, Norðlingaholti og einnig er blaðinu dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110 (660 fyrirtæki).
Að halda sönsum Í kjölfar kreppunnar sem nánast er ársgömul, hefur hver einasti fréttatími ljósvakamiðla ásamt blöðunum verið uppfullir af afar neikvæðum fréttum. Svo hefur þetta gengið fram af rólegasta fólki að það hefur ákveðið að sniðganga fréttatíma og dagblöðin. Eingöngu til að halda sönsum. Kreppan mun kenna mörgum margt. Það þó helst vonandi að meta betur það sem stendur fólki næst. Margir hafa orðið illa úti eftir að hafa þegið slæm ráð frá fagfólki í fjármálaheiminum. Stjórnmálamenn hljóta margir að hafa lært mikið á kreppunni. Það hefur þó framkallað vonbrigði að sjá hve margir þeirra eru tregir til að iðrast og viðurkenna mistök sín. Verst hefur mér þótt að horfa upp á stjórnmálamenn sem ekki hafa haft bein í nefinu til að verja hagsmuni þjóðar sinnar. Sumir þeirra höfðu ekki einu sinni bein í nefinu til að svara fyrir sig og berjast fyrir hönd þjóðar sinnar þegar Bretar settu á okkur hryðjuverkalög. Ber þar hæst Geir Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu og vonandi koma þau ekki aftur í íslensk stjórnmál. Man maður ekki eftir að stjórnmálamenn hafi áður brugðist þjóð sinni með jafn afgerandi og aumkunarverðum hætti. Og vonandi á maður aldrei eftir að upplifa annað eins. Það stefnir þó óðfluga í að hlutir endurtaki sig. Svo virðist sem núverandi forystufólk í ríkisstjórn hafi ekki burði til að verja íslenska hagsmuni varðandi icesave-skandalinn. Það má ekki undir neinum kringumstæðum gerast að Bretar og Hollendingar vaði yfir okkur í þessu máli. Því miður er mikil hætta á að það sé að gerast. Eini stjórnmálaforinginn sem virðist vera með hjartað á réttum stað þegar kemur að Icesave er formaður Framsóknarflokksins. Hvað sem annars má segja um þann ágæta flokk. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson virðist hafa burði til að berjast fyrir hag Íslendinga á meðan aðrir þora ekki að hreifa legg né lið þegar breskur forsætisráðherra gerir lítið úr Íslandi og Íslendingum í heimsfréttunum. Það er algjörlega óþolandi að forystumenn íslenskra stjórnmála hafi ekki til að bera meiri þjóðerniskennd en raun ber vitni. Því þarf að skipta þessu fólki út sem fyrst. Stefán Kristjánsson, ritstjóri Árbæjarblaðsins
abl@skrautas.is
Björn Gíslason.
Brennuhóll sunnan við Gervigrasvöll Fylkis
Stoltur af uppbyggingu íþrótta- og tómstundamála undanfarin ár - segir Björn Gíslason, fulltrúi sjálfstæðismanna í Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur
,,Uppbygging íþróttamála hefur verið hröð undanfarin misseri. Það hefur veitt mér mikla ánægju að vera þátttakandi í þessu mikla starfi. Listinn er langur svo sem lesa má af þessari upptalningu; framkvæmdir og endurbætur í Bláfjöllum; skíðaskáli ÍR og Víkings; Leiknishúsið; hönnun ÍR húss; Gervigrasvöllur ÍR; rennibraut í Laugardalslaug; nýtt gervigras í Laugardal; gervigrasvöllur Víkings; battavellir við Hólabrekkuskóla, Breiðholtsskóla, Langholtsskóla, Árbæjarskóla og Hlíðaskóla; uppbyggingu lokið á Hlíðarenda; mannvirki í Úlfarsárdal í hönnun; vellir við Starhaga og í Árbæ í hönnun; samningur við Fjölni og Egilshöll; útikörfuboltavöllur við Rimaskóla og samkonar völlur brátt tekinn í notkun við Hagaskóla; frístundaheimili við Kleifarsel opnað. Þetta er nokkuð til þess að vera stoltur af og til marks um öflugt starf núverandi meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur,’’ sagði Björn Gíslason, fulltrúi sjálfstæðismanna í Íþróttaog tómstundaráði í samtali við Árbæjarblaðið.
Mest-húsið í Norðlingaholti. Þar verður vonandi framtíðaraðstaða fimleikadeildar og karatedeildar Fylkis.
- Frístundakortið var innleitt í Reykjavík í byrjun þessa kjörtímabils til notkunar fyrir börn á aldrinum 6 til 18 ára í fyrstu fékk hvert barn 18 þús. krónur á ári til ráðstöfunar en er nú kr. 25 þús. á ári. - Meginmarkmið Frístundakortsins er að öll börn og unglingar í Reykjavík geti tekið þátt í uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. - Með Frístundakortinu má greiða að hluta fyrir íþrótta-, lista- og tómstundastarfsemi á vegum félaga og samtaka sem starfa í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum. - Frístundakortið eykur jöfnuð í samfélaginu og fjölbreytileika í iðkun íþrótta-, lista- og tómstundastarfsemi. Nýtt æfingasvæði í Árbæ og Mest-húsið? ,,Þetta hefur aukið þátttöku barna og unglinga í æskulýðsstarfi í Reykjavík. En ef við horfum sérstaklega til Árbæjar þá langar mig að nefna að verið er að ljúka gerð battavallar við
Árbæjarskóla. Á 40 ára afmæli skólans í fyrra var battavelli lofað og við það var að sjálfsögðu staðið. Verið er að hanna æfingasvæði fyrir knattspyrnu hjá Fyllki og er stefnt að því að svæðið verði tilbúið til notkunar næsta sumar. Svokallað Mest-hús í Norðlingaholti er til skoðunar hjá Reykjavíkurborg, að leigja það fyrir fimleika og karate hjá Fylki. Jafnframt yrði þar félagsmiðstöð fyrir börn og unglinga í Norðlingaholti,’’ segir Björn. Fram í Úlfársdal ,,Samningur var gerður við Fram um uppbyggingu félagsins í Úlfarsárdal. Hönnunarvinna er í gangi en vegna efnahagsástandsins og jafnframt að fjölgun íbúa á svæðinu mun ekki verða í bráð seinkar framkvæmdum óhjákvæmilega. Fram sinnir íþróttastarfi í Grafarholti fyrir börn og unglinga og eins í Safamýri þar sem félagið hefur verið í áratugi. Þegar uppbyggingu félagsins lýkur í Úlfarsárdal flytur Fram alla sína starfsemi úr Safamýri í Úlfarsárdal,’’ sagði Björn Gíslason.
ÁRBÆ fyrst og fremst...
ódýr!
R I R Y F T L L A
! A N Í Þ G O ÞIG torg is t e m n æ r g g o a t Ávax ferskleiki og hollusta!
Bakað á staðnum!
Kjtvöintnoslagáfsistakðnuurm!
ntgtoúgrvhal!ollt Lífróæ trúle
kjö
Opið alla daga til 21:00! Opið 11-21 alla virka daga, 10-21 um helgar
4
Matur
Árbæjarblaðið
Lárpera, svínakótelettur og skyrterta - að hætti Ragnhildar og Hauks Hjónin Ragnhildur Guðmundsdóttir og Haukur Garðarsson, Reyðarkvísl 15, eru matgæðingar okkar að þessu sinni. Við birtum hér á eftir girnilegar uppskriftir þeirra og skorum á alla að prófa.
Forréttur Lárpera með myntu, mangó og hunangi fyrir 2
Matgæðingarnir Ragnhildur Guðmundsdóttir og Haukur Garðarsson.
ÁB-mynd PS
1 lárpera (avokado). 4 sneiðar hráskinka. 1/ 2 mangó. 2 tsk. hunang. 1/2 sítróna. 1 tsk. söxuð mynta.
1 peli rjómi ( má vera matreiðslurjómi) ca 2 tsk. karrý salt og pipar Svínakjötskrydd. Kryddið kjötið og lokið því á báðum hliðum á heitri pönnu. Setjið í eldfast mót, smyrjið þunnu lagi af sinnepi á og setjið einn ananshring á hverja sneið. Smörsteiktum sveppunum dreift yfir. Helmingnum af rjómanum er nú hellt yfir og 1 tsk. af karrý og hálfum > tening af svínakjötskrafti bætt í. Restinni af rjómanum er síðan hellt yfir þegar kjötið hefur verið inni í ofni í 30 mín. Sett í ofn á ca 180° og látið malla í ca 45 mín. Þetta er svona gamall og góður réttur, sem er eiginlega aldrei eins, maður getur bætt við rjóma, karrýi og kryddi
Skora á Mörtu og Andrés Ragnhildur Guðmundsdóttir og Haukur Garðarsson í Reyðarkvísl 15 skora á Mörtu Sigurgeirsdóttur og Andrés Magnússon, Reyðarkvísl 10, að koma með uppskriftir í næsta matarþátt Árbæjarblaðsins. Við birtum gómsætar uppskriftir þeirra í næsta blaði sem kemur út í október. Skerið lárperurnar í tvennt, fjarlægið steininn, skrælið þær og kreistið sítrónusafann yfir. Skerið mangóið í teninga og setjið ofan í lárperuhelmingana ásamt saxaðri myntunni. Vefjið hráskinkusneiðum utan um og dreypið hunanginu yfir. Skreytt með einu myntublaði. Við setjum ekki allan sítrónusafann, betra að hafa minna og geta þá bætt við eftir smekk. Eins má minnka mangóið aðeins, svo það yfirgnæfi ekki alveg lárperuna.
Hárgreiðslustofa Helenu-Stubbalubbar Barðastöðum 1-3 Hægt er að panta tíma á netinu. Kíkið á tilboðin okkar á Stubbalubbar.is Panta tíma í síma 586-1717 frá kl. 8-18 alla virka daga. Verið velkomin. Ungir sem aldnir. Við dekrum við þig.
Aðalréttur: Svínakótelettur í eldföstu móti 4 -6 svínakótelettur. E-ð gott sinnep sterkt. 4-6 ananashringir (mega alveg vera úr dós). 1-2 öskjur sveppir. Smjör til steikingar.
Skiptum um bremsuklossa og diska
eftir smekk.
Eftirréttur: Skyrterta al la Berit: 1 pk. Haust kex (mulið). 8o gr. smjör. Smörið er brætt og blandað vel saman við kexmulninginn. Sett í botninn á fallegu formi. 500 ml.vanilluskyr 500ml rjómi (þeyttur) Hrært varlega saman og sett ofan á kexblönduna. Góð berjasulta t.d. bláberjasulta smurð ofan á og slatti af góðum berjum t.d. bláberjum og/eða jarðaberjum. Sleppa má sultunni og setja bara fullt af berjum. Verði ykkur að góðu. Ragna og Haukur.
6
Stór íbúð eða hús
Fréttir
Árbæjarblaðið
Sæmundarskóli og Norðlingaskóli auglýsa eftir stórri íbúð eða húsi til leigu fyrir norska kennaranema í 5 vikur. Leigutíminn er 19. okt.-23. nóv. Æskilegt er að húsnæðið sé í Grafarholti eða Norðlingaholti. Önnur hverfi koma einnig til greina. Upplýsingar gefur skólastjóri Sæmundarskóla Eygló Friðriksdóttir í síma 4117848
Skemmtilegur hópur sundkrakka úr Ármanni í skemmtilegum æfingabúðum í Borgarnesi.
Skemmtilegar æfingabúðir í Borgarnesi 20% afsláttur Mánudagar - heilnudd Þriðjudagar - fótsnyrting Miðvikudagar - handsnyrting Fimmtudagar - andlitsbað/húðhreinsun Föstudagar - vaxmeðferð/förðun 15% af litun og plokkun alla virka daga Nánari uppl. hjá Cirilu Rós
Greifynjan HRAUNBÆ 102 - SÍMI: 587-9310 - greifynjan.is
VETUR
'%%."'%&%
JEEA H>C<6K:;JG ;NG>G ÏÃGÓII6" D< IÓBHIJC96HI6G; Ï G:N@?6KÏ@
Laufey Guðnadóttir (næstum 13 ára) skrifaði eftirfarandi pistil um æfingabúðir Sunddeildar Ármanns í Borgarnesi í lok ágúst í sumar. Föstudaginn 28. ágúst fór Sunddeild Ármanns í æfingabúðir í Borgarnes. Þegar við mættum á föstudeginum var ein stutt æfing (3,7 km) því að öllum var svo kalt. Eftir það fórum við upp í skóla þar sem við gistum og fengum kvöldmat sem var rosa góður grjónagrautur. Næsta dag vakti Þurý okkur kl 8 og við fórum í morgunmat og svo á æfingu sem var soldið erfið þegar maður var svona ný vaknaður (5,7 km). Svo aftur í skólann og fengum hvíld og að borða. Eftir það fórum við út á frjálsíþróttavöllinn að leika okkur að keppa í frjálsum. Við kepptum í 100 m hlaupi (ég var í fyrsta sæti fyrir utan pabba sem var fararstjóri). Svo kepptum við í 4x100 m hlaupi (boðhlaupi) og liðið sem ég var í varð í öðru sæti. Svo fórum við í kúluvarp og það var mjög gaman. Eftir það fórum við í skólann fengum
okkur kaffi og fórum svo á aðra æfingu. Hún var líka erfið en skemmtileg. Eftir æfinguna var hvíld. Síðan fengum við kvöldmat og eftir hann var kvöldvaka. Á kvöldvökunni var rosa gaman og allir hópar með leiki og hróp. Eftir kvöldvökuna fórum við eldri krakkarnir í stofuna þar sem við sváfum og tengdum i-Poda í hátalara sem voru í stofunni og sumar stelpurnar voru að dansa en fóru síðan fljótlega að sofa. Næsta dag fengum við að sofa til 9 því yngri stelpurnar byrjuðu á undan, þá var önnur 5,7 km æfing sem var líka erfið. Eftir æfinguna pökkuðum við dótinu okkar og fórum svo út í félagsmiðstöðvina að horfa á landsleikinn í fótbolta. Eftir leikinn lögðum við af stað heim. Þegar við komum heim um hálf fimm leytið voru allir þreyttir eftir skemmtilegar og erfiðar æfingabúðir og mér fannst rosa gaman.
Hægt er að velja um fimm mismunandi útfærslur hvað innihald boxanna varðar. 15-26 flugur.
Gjöfin handa veiðimanninum á Krafla.is færð þú sterkustu og bestu flugurnar og glæsileg og vönduð íslensk flugubox Við gröfum nöfn veiðimanna, lógó fyrirtækja eða myndir á boxin.
Sími: 587-9500 og 698-2844
8
9
Landsbankamót 4. og 5. flokks kvenna á Sauðárkróki
Árbæjarblaðið
Landsbankamót 4. og 5. flokks kvenna á Sauðárkróki
Árbæjarblaðið
Öllum brögðum beitt. Flottar fótboltastelpur; Eik, Sara Lind, Ylfa Rún og Heiða.
Björn Ólafur, Ragnheiður Lóa, Helga Þórey, Gunnar Ólafur og Helga skemmtu sér vel.
Pumpað í boltana.
4. fl. B. Andri þjálfari, Elísa Sif, Maríanna, Rannveig Sif, Anna Lísa, Ásmundur fararstjóri og Arnar þjálfari. Neðri röð f.v. Eva Ír og Sunna.
Kátt á Króknum
Hópurinn samankominn eftir góða og árangusríka helgi að baki.
Landsbankamót 4. og 5. flokks kvenna í knattspyrnu fór fram á Sauðárkróki í sumar. Fylkisstelpur úr 4. og 5. flokki tóku þátt í Landsbankamótinu sem haldið var á Sauðárkróki á liðnu sumri.
Þjálfararnir; Andri Ottesen, Arnar Páll Eyjólfsson og Þóra Ingimundardóttir.
Stelpurnar stóðu sig mjög vel og voru félagi sínu til mikils sóma, bæði innan vallar sem utan. Samtals var Fylkir með 6 lið á mótinu og kom heim með 5 bikara. A-lið 4. flokks lentu í 2. sæti. B1-lið 4. flokks sigruðu sinn riðil og fengu
gullið og B2-lið 4. flokks lentu í 3. sæti. A-lið 5. flokks lentu í 3. sæti. B1-lið 5. flokks lentu í 5. sæti og B2-lið 5. flokks
sigruðu sinn riðil og fögnuðu því gulli. Frábær árangur hjá stelpunum okkar í Fylki og við óskum þeim öllum innilega til hamingju með árangurinn.
Margrét í hörku leik við Tindastól.
Myndir: Katrín J. Björgvinsdóttir
4. fl. B2. Andri þjálfari, Halldóra, Þórhildur, Eva Ósk, Guðrún, Diljá, Elísabet, Irma fararstjóri og Arnar þjálfari. Neðri röð f.v. Katrín Lára, Gríma, Ólöf María og Alma Kristín.
4. fl. A. Andri þjálfari, Laufey Þóra, Margrét, Arna Ösp, Erla Hrönn, Guðrún Margrét, Arnar þjálfari og Vigfús fararstjóri. Neðri röð f.v. Guðrún, Ólöf og Sylvía Ósk.
Boltinn svífur á Króknum.
5. fl. A. Þóra þjálfari, Drífa Guðrún, Hulda, Diljá, Margrét, Sara, Arnar þjálfari og Helga Birna fararstjóri. Neðri röð f.v. Rakel, Thelma og Sólveig. 5. fl. B2. Þóra þjálfari, Sara Lind, Sirrý fararstjóri, Hildur Inga, Ylfa Rún, Birta, Dagný og Arnar þjálfari. Neðri röð f.v. Edda Marín, Nína Björk og Arna.
Að sjálfsögðu mættu strákarnir að hvetja sínar stelpur.
Sjáðu pabbi þær skoruðu. Jón Ingi, Dagný Rún og Ragna hress að vanda.
Rebekka Sól, Edda Björk og Nína Björk.
5. fl. B1. Þóra þjálfari, Helga Þórey, Harpa Eir, Eik, Rebekka Sól, Thelma Lovísa og fararstjórarnir; Erla Hulda og Hólmfríður. Neðri röð f.v. Krista, Edda Björk, Theódóra, Heiða Rún og Arnar þjálfari.
Andri þjálfari alltaf jafn vinsæll hjá stelpunum.
Flottir taktar hjá Guðrúni Eiríks.
Rakel Leifs brunar upp völlinn.
Fegurðardísirnar; Diljá og Stefanía.
8
9
Landsbankamót 4. og 5. flokks kvenna á Sauðárkróki
Árbæjarblaðið
Landsbankamót 4. og 5. flokks kvenna á Sauðárkróki
Árbæjarblaðið
Öllum brögðum beitt. Flottar fótboltastelpur; Eik, Sara Lind, Ylfa Rún og Heiða.
Björn Ólafur, Ragnheiður Lóa, Helga Þórey, Gunnar Ólafur og Helga skemmtu sér vel.
Pumpað í boltana.
4. fl. B. Andri þjálfari, Elísa Sif, Maríanna, Rannveig Sif, Anna Lísa, Ásmundur fararstjóri og Arnar þjálfari. Neðri röð f.v. Eva Ír og Sunna.
Kátt á Króknum
Hópurinn samankominn eftir góða og árangusríka helgi að baki.
Landsbankamót 4. og 5. flokks kvenna í knattspyrnu fór fram á Sauðárkróki í sumar. Fylkisstelpur úr 4. og 5. flokki tóku þátt í Landsbankamótinu sem haldið var á Sauðárkróki á liðnu sumri.
Þjálfararnir; Andri Ottesen, Arnar Páll Eyjólfsson og Þóra Ingimundardóttir.
Stelpurnar stóðu sig mjög vel og voru félagi sínu til mikils sóma, bæði innan vallar sem utan. Samtals var Fylkir með 6 lið á mótinu og kom heim með 5 bikara. A-lið 4. flokks lentu í 2. sæti. B1-lið 4. flokks sigruðu sinn riðil og fengu
gullið og B2-lið 4. flokks lentu í 3. sæti. A-lið 5. flokks lentu í 3. sæti. B1-lið 5. flokks lentu í 5. sæti og B2-lið 5. flokks
sigruðu sinn riðil og fögnuðu því gulli. Frábær árangur hjá stelpunum okkar í Fylki og við óskum þeim öllum innilega til hamingju með árangurinn.
Margrét í hörku leik við Tindastól.
Myndir: Katrín J. Björgvinsdóttir
4. fl. B2. Andri þjálfari, Halldóra, Þórhildur, Eva Ósk, Guðrún, Diljá, Elísabet, Irma fararstjóri og Arnar þjálfari. Neðri röð f.v. Katrín Lára, Gríma, Ólöf María og Alma Kristín.
4. fl. A. Andri þjálfari, Laufey Þóra, Margrét, Arna Ösp, Erla Hrönn, Guðrún Margrét, Arnar þjálfari og Vigfús fararstjóri. Neðri röð f.v. Guðrún, Ólöf og Sylvía Ósk.
Boltinn svífur á Króknum.
5. fl. A. Þóra þjálfari, Drífa Guðrún, Hulda, Diljá, Margrét, Sara, Arnar þjálfari og Helga Birna fararstjóri. Neðri röð f.v. Rakel, Thelma og Sólveig. 5. fl. B2. Þóra þjálfari, Sara Lind, Sirrý fararstjóri, Hildur Inga, Ylfa Rún, Birta, Dagný og Arnar þjálfari. Neðri röð f.v. Edda Marín, Nína Björk og Arna.
Að sjálfsögðu mættu strákarnir að hvetja sínar stelpur.
Sjáðu pabbi þær skoruðu. Jón Ingi, Dagný Rún og Ragna hress að vanda.
Rebekka Sól, Edda Björk og Nína Björk.
5. fl. B1. Þóra þjálfari, Helga Þórey, Harpa Eir, Eik, Rebekka Sól, Thelma Lovísa og fararstjórarnir; Erla Hulda og Hólmfríður. Neðri röð f.v. Krista, Edda Björk, Theódóra, Heiða Rún og Arnar þjálfari.
Andri þjálfari alltaf jafn vinsæll hjá stelpunum.
Flottir taktar hjá Guðrúni Eiríks.
Rakel Leifs brunar upp völlinn.
Fegurðardísirnar; Diljá og Stefanía.
10
Fréttir
Lengd: 25m
•
Árbæjarblaðið
Breidd: 12m
Krakkar úr 4. GG og 5. GM í Sæmundarskóla við eldstæðið.
Fjöldi gufu- og eimbaða: 1
Fjöldi heitra potta: 5
Verkefnið Útivist og hreyfing við Reynisvatn Verkefnið Útivst og hreyfing er samstarfsverkefni Íbúasamtaka Grafarholts og Úlfarsárdals, þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts, grunn- og leikskólanna í hverfinu. Verkefnið er styrkt af Forvarnar- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar og hefur það að meginmarkmiði að skipuleggja og byggja upp útivistarsvæði við Reynisvatn og á gönguleiðunum þar um kring. Lagt var upp með þá hugmynd að skapa aðstæður sem hvetja til aukinnar útiveru, samveru og hreyfingar með því að skipuleggja lundi eða rjóður umhverfis vatnið með þessi atriði í huga. Rjóðrin eða lundirnir eiga mæta þörfum íbúa til útivistar, hreyfingar eða samveru og geta einnig verið ákjósanleg fyrir huggu-
Byggingarár: 1994
ÁRBÆJARLAUG
I ER LAUGIN Í ÞÍNU HVERF
AFGREIÐSLUTÍMI A FGREIÐSLUTÍMI L LAUGAR AUGAR 30 – 22:30 Virka daga frá kl. 6 6:30 Helgar kl. 8:00 – 20:30
www.itr.is
ı
sími 411 5000 Eins og sjá má á þessum myndum þá hefur verið hlaðinn bekkur úr klömbru og streng, hlaðið eldstæði og hellulagt úr náttúrustein umhverfis.
lega stund með fjölskyldunni. Íbúasamtökin í hverfinu og þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts hafa haldið utanum skipulag verkefnisins auk þess sem fulltrúar Umhverfissviðs hafa komið að verkefninu. Verkefnastjóri verkefnisins er Guðmundur Hrafn Arngrímsson. Nú síðustu vikurnar hefur verið mikill gangur í verkefninu og hefur lundurinn rétt sunnan Sæmundarskóla verið að taka á sig endanlega mynd. Krakkar úr Sæmundaskóla og Ingunnarskóla koma að framkvæmdinni og er það þáttur í þeirra útinámi. Eins og sjá má á þessum myndum þá hefur verið hlaðinn bekkur úr klömbru og streng, hlaðið eldstæði
og hellulagt úr náttúrustein umhverfis. Síðastliðinn laugardag kom hleðslumeistarinn Guðjón Kristinsson á staðinn og sýndi réttu handtökin við hleðsluna. Alþjóðlegur sjálfboðaliðahópur frá SEEDs hefur unnið að verkefninu jafnframt því að fara í skólana og kynna sína þjóð og menningu. Krakkarnir á myndunum eru nemendur úr 4. GG og 5. GM í Sæmundarskóla. Þeir sem hafa áhuga á því að taka þátt í verkefninu eða leggja verkefninu lið eru boðnir velkomnir og geta nálgast nánari upplýsingar hjá þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts.
11
Fréttir
Árbæjarblaðið
Veldu þér stað í Úlfarsárdal eða við Reynisvatnsás Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um lóðir fyrir íbúðarhúsnæði í Úlfarsárdal og við Reynisvatnsás. Umsóknarfrestur er til 25. september nk. kl. 16:15. Skila skal umsóknum til Þjónustuvers Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12 – 14. Lóðaupplýsingar aðgengilegar á vef Í boði eru lóðir fyrir einbýlishús, parhús, raðhús og fjölbýlishús. Vakin er athygli á nýjum lóðavef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/lodir, en þar er að finna ítarlegar upplýsingar um lóðirnar, úthlutunar- og skipulagsskilmála, verð byggingarréttarins og margt fleira. Hagstæðari greiðslukjör Verð á byggingarrétti er óbreytt frá því sem var haustið 2007. Nú bjóðast einnig mun hagstæðari greiðslukjör en áður, en kaupendur byggingarréttar, þ.e. lóðarhafar, geta greitt 85% af verði byggingarréttarins með 8 ára verðtryggðu veðskuldabréfi, sem ber 4,0% fasta vexti.
Lengri framkvæmdafrestir Framkvæmdafrestir hafa verið lengdir og er nú t.d. gerð krafa um að hús sé orðið fokhelt innan fjögurra ára í stað tveggja ára áður. Húsbyggjendur hafa því rýmri möguleika en áður á að haga framkvæmdum eftir sínum þörfum. Ekki hægt að skila lóðum Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í júní sl. nokkrar breytingar á reglum um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar fyrir íbúðarhús. Samkvæmt þeim verður ekki heimilt að skila lóðum sem úthlutað er eftir að reglunum var breytt. Þeir sem hafa skilað lóðun á undanförnum misserum eiga þess ekki kost á fá úthlutað lóð á ný fyrr en a.m.k. þremur árum eftir að lóð var skilað. Atvinnuhúsalóðir einnig á lóðavef Auk íbúðarhúsalóða eru í boði lóðir fyrir atvinnuhúsnæði og vísast um nánari upplýsingar um þær á lóðavef Reykjavíkurborgar.
Lóðin við Hraunbæ 62-100 sem hlaut verðlaun á afmælisdegi Reykjavíkur.
ÁB-mynd PS
Lóðin við Hraunbæ 62-100 verðlaunuð gott viðhald á lóðinni og einnig að skipulag lóðarinnar hefur haldist óbreytt frá 1971, auk þess sem um er að ræða lóðaskipulag sem gerir ráð fyrir öllum aldursflokkum, börnum,
Lóðin við Hraunbæ 62-100 fékk viðkenningu á afmælisdag Reykjavíkur þann 18 ágúst. Viðurkenningin var veitt fyrir
unglinum og fullorðnum. Við á Árbæjarblaðinu óskum lóðarhöfum innilega til hamingju með verðlaunin og viðurkenninguna.
Alvöru jeppadekk í næsta nágrenni Mikið og gott úrval af jeppa- og vetrardekkjum frá TOYO.
A NJ
RÐ
BÆ
F
K
Ð 3 - REYKJ AV SLÓ KI Í IS
AR
JA BR A UT 9 - REYK
NE
S
Nesdekk - Fiskislóð - sími 561 4110 / Nesdekk - Reykjanesbæ - sími 420 3333
12
Fréttir
Árbæjarblaðið
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Sverrir Einarsson
Hermann Jónasson
Jón G. Bjarnason
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Dýrin og risaeðlurnar eru alltaf vinsælar
Frístundaheimilið Víðisel Nú er allt komið á fullt í frístundaheimilinu Víðiseli við Selásskóla. Börnin komu til okkar í haust, brún og sælleg eftir æðislegt veður í sumar.
vegum hafður. Tíminn er oft fljótur að líða þegar gaman er í leik og skemmtilegu starfi á frístundaheimili. Hér má sjá nokkrar myndir frá
okkur. Eins og sjá má á myndunum eru allir glaðir og áhugasamir um það sem þeir eru að gera. Kær kveðja frá öllum í Víðiseli.
Allir una sér vel í Víðiseli í leik og starfi og hinn frjálsi leikur er í há-
Efalex eflir einbeitingu og sjón og stuðlar þannig að betri námsárangri.
Vönduð blanda fiski- og kvöldvorrósarolíu sem eflir og styrkir:
20% afsláttur í Árbæjarapóteki í september
• Hugsun • Einbeitingu • Sjón • Hormónajafnvægi
Allir eru káttir og brosa mikið í Víðsieli.
Einstakt gegn lesblindu og ofvirkni. Hentar fólki á öllum aldri. Fæst í fljótandi formi og hylkjum í lyfja- og heilsuverslunum.
Efalex er einstök samsetning úr hreinni kvöldvorrósarolíu og fiskiolíu sem innihalda þrjár mikilvægar fitusýrur, DHA, AA og GLA ásamt tveimur öflugum andoxunarefnum, E-vítamíni og tímían olíu sem vinna saman að viðhaldi lífsnauðsynlegra fitusýra í líkamanum. Nægt magn þessarra olía í líkamanum stuðla að skarpari hugsun og betri einbeitingu sem eykur færni okkar til þess að læra. Tvær blómarósir í barbí.
13
Árbæjarblaðið
Er barnið þitt á leið til skóla? Nú eru skólarnir að byrja og á hverju ári eru rúmlega fjögur þúsund börn sem stíga sín fyrstu skref sem virkir þátttakendur í umferðinni. Af þessu geta skapast margar hættur sem brýnt er að fyrirbyggja.Hér eru nokkur atriði sem Umferðarstofa leggur áherslu á varðandi öryggi skólabarna. Getur skapað hættu að aka barninu Hafa skal í huga að öll umferð ökutækja við skóla skapar hættu. Af þeim sökum er mikilvægt að foreldrar séu ekki að aka börnum sínum að óþörfu til skóla og skapa með því hættu fyrir aðra gangandi vegfarendur - ekki síst börn. Víða geta aðstæður verið þannig að það sé hættulegt að láta barnið ganga eitt til skóla. T.d. þar sem fara þarf yfir götur þar sem mikil umferð er. Í slíkum tilfellum er vitanlega réttlætanlegt að keyra barnið en einnig er sá möguleiki að einhver fullorðin gangi með barninu til og frá skólanum. Nota skal sérstök stæði Þegar nauðsyn krefur að börn séu keyrð í skóla er mjög mikilvægt að þau fari út úr bílnum þar sem þau eru örugg. Ekki stofna lífi barnsins og annarra í hættu með því að sleppa þeim út við gangstéttarbrún. Nota skal sérstök stæði eða útskot sem eiga að vera við flesta skóla. Það er líka mikilvægt að muna að barn sem er að hefja skólagöngu er ekki orðið nógu hávaxið til að sitja eingöngu með bílbelti og því er nauðsynlegt að nota hefðbundin bílpúða eða bílpúða með baki. Er stysta leiðin örugg? Ef mögulegt er að láta barnið ganga eitt til skólans skal finna og ganga leiðina með barninu nokkrum sinnum áður en skólaganga hefst. Velja skal þá leið sem sjaldnast þarf að ganga yfir götu. Styðsta leiðin er ekki alltaf sú öruggasta. Það er mikilvægt að brýna fyrir barninu að þó það sjái bíl þá sé ekki öruggt að bílstjórinn sjái það. Ekki ganga út á milli kyrrstæðra bíla Þar sem fara þarf yfir götu á að stoppa, líta vel til beggja hliða og hlusta. Ganga síðan yfir ef það er óhætt. Aldrei má ganga út á götu á milli kyrrstæðra bíla. Alltaf skal nota gangbrautir þar sem þær eru. Kenna skal barninu að nota handstýrð umferðarljós rétt. Hvað rauði og græni liturinn táknar. Ef barnið er komið út á gangbrautina þegar græna ljósið fer að blikka og það rauða birtist þá á það að halda áfram yfir götuna - ekki fara til baka. Allir eiga að nota endurskin Ef engin gangstétt er á að ganga á móti umferðinni, eins fjarri henni og unnt er. Ef fleiri eru saman á að ganga í einfaldri röð. Allir eiga að nota endurskinsmerki eða vera í yfirhöfnum með endurskini. Börn sem eru að hefja skólagöngu eiga alls ekki að ferðast ein um á reiðhjóli. Samkvæmt lögum mega börn yngri en 7 ára ekki hjóla ein á akbraut og börnum sem eru yngri en 15 ára ber skylda til að nota hjálm. Er foreldrið góð fyrirmynd? Hafa skal í huga að foreldrar eru fyrirmynd barnsins. Hvernig hegða þeir sér í umferðinni? Barnið lærir meira af því sem foreldrarnir gera en því sem þeir segja. Munum því að ganga aldrei á móti rauðu ljósi og nota alltaf viðeigandi öryggisbúnað, t.d. öryggisbelti, hjólreiðahjálma og endurskinsmerki. Góða ferð Einar Magnús Magnússon Upplýsingafulltrúi Umferðarstofu
Verslun
Námskeið
Plötulopi - einband - léttlopi Prjón, hekl, þjóðbúningasaumur kambgarn -og prjónauppskriftir margt fleira Vönduðoghandverksnámskeið –- verslun upplýsingar
Verið velkomin
HEIMILISIÐNAÐARFÉLAG ÍSLANDS Nethyl 2E, 110 Reykjavík s. 551 7800 - 551 5500 - 895 0780
hfi@ heimilisidnadur.is • www. heimilisidnadur.is
SKVASSFÉLAG REYKJAVÍKUR Krakka- og unglingaskvass Skvassæfingar fyrir krakka og unglinga eru á mánu-, miðvikuog föstudögum frá kl. 16:00 til 17:00. Þjálfarar Hilmar H Gunnarsson og Rósa Jónsdóttir Allir velkomnir. Nánari upplýsingar í afgreiðslu Veggsports, sími 577 5555.
Skvassfélag Reykjavíkur | Stórhöfða 17 | 110 Reykjavík | Sími 577 5555
14
Fréttir
Árbæjarblaðið
Hörku heilsuátak með Nadju
Á hverjum morgni mætir hress hópur í Veggsport til að taka vel á því með aðstoð Nadju. Nadja er íþróttaþjálfari og hefur verið búsett á Íslandi síðastliðin 9 ár.
Bæjarflöt 10 - 112 Reykjavík Sími 567 8686 info@kar.is www.kar.is
Hún hefur sett saman hörku átaksnámskeið sem er byggt á stöðvarþjálfun, æfingum í tækjasal og spinning. Tímarnir eru alla virka daga kl. 6.30 og 7.45 og er mikil áhersla lögð á þol, styrk og liðleika. Allir þátttakendur fá mælingu og persónulega ráðgjöf varðandi mataræði. Námskeiðin standa yfir í allan vetur og skráir hver þátttakandi sig í 5 vikur í senn. Þeir sem hafa áhuga á að vera með geta byrjað hvenær sem þeir vilja. Hægt er að skrá sig og fá nánari upplýsingar í afgreiðslu Veggsports í síma 577-5555.
Nadja stjórnar átaksnámskeiði hjá Veggsporti þar sem hennar fólk tekur vel á því.
Kæru viðskiptavinir! Mætum vetrinum með vellíðan og hugsum um hárið! Við á Höfuðlausnum ætlum að veita 30% afslátt af Hársnyrtivörum frá KÉRASTASE þegar keyptir eru þrír liðir í KÉRASTASE fjöldskyldunni frá 24. september til fyrsta vetrardags 24. október 2009
Hársnyrtistofan Höfuðlausnir Foldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is Opið: Mánudaga til föstudaga 09-18 - laugardaga 10-14
Pöntunarsími: 567-6330
Árbæjarblaðið 12. tbl. 6. árg. 2008 desember
Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti
Árbæjarblaðið er lesið á hverju heimili Mest lesni fjölmiðillinn í Árbæ og Grafarholti Auglýsingarnar skila árangri í Árbæjarblaðinu
587-9500
BÓNUS HEILL KJÚKLINGUR
MERKT VERÐ: 698 KR.KG. 30% AFSLÁTTUR
489
145
14 5 k r. 2 l t r.
BÓNUS FERSKUR HEILL KJÚKLINGUR
merkt verð 698 kr./kg. 30% afsláttur
489 kr./kg.
1198
40%
129
AFSLÁTTUR
10 STK. FROSNIR NAUTAHAMBORGARAR
merkt verð 1498 kr./kg. 20% afsláttur
120g 1198 kr. 4 STK BÓNUS MJÖG STÓR HAMBORGARABRAUÐ 129 kr.
UN N Ý S LTÁ2T0R09 HAUS
HOLTA FERSKAR KJÚKLINGABRINGUR
merkt verð 2798 kr./kg. 40% afsláttur
2998
FERSKT LAMBAFILLET 2998 kr./kg.
1679 kr./kg.
UN N Ý S LTÁ2T0R09 HAUS
1998
119
BRAZZI SAFI APPELSÍNU & EPLA 1 LTR.
119 kr.
FERSKT LAMBAPRIME 1998 kr./kg.