ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/14/2026 3:18 PM Page 1
Árbæjarblaðið 8. tbl. 24. árg. 2026 ágúst
Fréttablað íbúa í Árbæjarhverfi
Bifreiðaverkstæði Grafarvogs
Allar almennar bílaviðgerðir
Sigurdís Egilsdóttir og Sigrún Eymundsdóttir skemmtu sér vel á skemmtun Árvina. ÁB mynd Katrín J. Björgvinsdóttir
Fjölsótt skemmtun Árvina - sjá nánar á bls. 8 og 10
Gjafir fyrir veiðimenn og fyrirtæki Gröfum nöfn á boxin Persónuleg og falleg gjöf Íslenskt birki
Sjá nánar á Krafla.is og í síma 698-2844
,,Mahoný’’
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/19/2026 11:36 AM Page 2
2
Fréttir
Árbæjarblaðið
Árbæjarblaðið tÚtgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson - abl@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti og Norðlingaholti.
Kjósum eftir níu daga Íslendingar ganga til kosninga eftir níu daga varðandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Margir eru búnir að fá sig fullsadda af karpinu á milli já og nei hreyfinganna og hafa miklar yfirlýsingar verið gefnar út og innistæðan oft lítil. Mikla athygli hefur framganga Kristrúnar Frostadóttur vakið. Fyrir síðustu kosningar var hún með miklar yfirlýsingar varðandi Ísland og ESB og sagði þá meðal annars að Evrópuaðild væri ekki á dagskrá. Kristrún vakti mikla athygli þegar hún kom fram á svið stjórnmálanna. Framganga hennar í tengslum við Evrópumálin og atkvæðagreiðsluna hefur gert það að verkum að ekki er hægt að treysta hennar orðum. Hún hefur eins og margir aðrir réðherrar í núverandi stjórn gengið á bak orða sinna og það er með því versta sem komið getur fyrir stjórnmálamenn. Í vikunni hækkaði peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands stýrivextina enn einu sinni. Í dag eru vextirnir 8% og fólk í verðbólgan 5,3%. Ásgeir Jónsson og hans Seðlabankanum hefur algjörlega brugðist hlutverki sínu við stjórn efnahagsmála og með réttu ætti seðlabankastjóri að segja af sér. Hann er ekki rétti maðurinn til að koma málum aftur í lag á Íslandi. Hann hefur fengið mörg tækifæri til þess en með hverri ákvarðanatöku seðlabankans versnar ástandið. Valkyrjurnar þrjár hafa ekki staðið undir nafni. Inga Sæland má þó eiga það að hún hefur barist fyrir því að fá einkunnagjöf skólanna í tölustafi í stað bókstafa. Það var löngu kominn tími til að taka upp tölustafina á ný. Það hefur vakið mikla furðu að kennarastéttin með formann sambands þeirra í fararbroddi hefur gert lítið úr þessari ákvörðun og mótmælt breytingunum harðlega. Alveg er það kostuleg framkoma en nemendur og foreldrar þeirra fagna eðlilega Stefán Kristjánsson breytingunum.
abl@skrautas.is
Nýr taktur í borginni
- eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Það hefur verið nóg að gera í Ráðhúsinu í sumar. Nýr meirihluti tók við stjórn Reykjavíkurborgar í júní og strax var hafist handa við að breyta vinnubrögðum og forgangsröðun borgarinnar. Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með Hildi Björnsdóttur stíga inn í hlutverk borgarstjóra. Hún hefur frá fyrsta degi sýnt skýra forystu, ákveðni og kjark til að takast á við verkefni sem hafa setið á hakanum. Það skiptir máli að borgarstjóri hafi skýra sýn á hvert eigi að stefna en sé jafnframt tilbúinn að hlusta og bregðast við þegar þess er þörf. Fyrir mér snýst þetta þó ekki fyrst og fremst um það sem gerist inni í Ráðhúsinu. Mælikvarðinn á árangur borgarstjórnar á að vera það sem borgarbúar finna fyrir úti í hverfunum. Þar er grunnþjónustan í fyrsta sæti. Börnin okkar eiga að fá góða þjónustu í leik- og grunnskólum, götur og gangstéttir eiga að vera í lagi, íþróttaog tómstundastarf þarf að hafa góða aðstöðu og borgarbúar eiga að geta treyst því að brugðist sé við þegar eitthvað þarfnast úrbóta. Við fengum ágætt dæmi um þetta strax í upphafi kjörtímabilsins. Í júní slasaðist 93 ára kona illa á illa farinni gangstétt við Langarima í Grafarvogi. Íbúar höfðu áður bent á ástand stéttarinnar án þess að úrbætur hefðu verið gerðar. Hildur brást hratt við og lét flýta framkvæmdum. Skömmu síðar hafði langur kafli gangstéttarinnar verið
Eins höfum við í sumar byrjað að taka til í rekstri borgarinnar og einfalda stjórnsýsluna. Það er nauðsynlegt. Reykjavíkurborg veltir gríðarlegum fjármunum og okkur ber skylda til að fara vel með hverja krónu. Markmiðið er ekki að spara sparnaðarins vegna heldur að tryggja að stærsti hluti fjármuna borgarinnar fari þangað sem þeir eiga heima: í þjónustu við borgarbúa. Við höfum jafnframt sett skýrari áherslu þegar kemur að grunnskólunum. Frá þessu hausti verður símafrí í grunnskólum borgarinnar. Það er einföld en mikilvæg breyting sem ég tel að geti haft jákvæð áhrif á skólastarfið, samskipti barnanna og líðan þeirra. Björn Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. endurnýjaður. Þetta kann að virðast lítið mál í stóra samhenginu en fyrir mér segir það heilmikið. Borgarbúar eiga ekki að þurfa að berjast árum saman við kerfið til að fá sjálfsagða hluti lagfærða. Borgin á að hlusta, bregðast við og leysa málin. Þannig vinnubrögð viljum við sjá í öllum hverfum borgarinnar. Það eru ekki alltaf málin sem skapa stærstu fyrirsagnirnar, en þetta eru verkefnin sem fólk finnur fyrir á hverjum einasta degi.
VISSIR ÞÚ?
En þetta er aðeins byrjunin. Reykjavík er fyrst og fremst borg hverfanna. Þau eru ólík og hafa ólíkar þarfir, en alls staðar á fólk að geta treyst því að borgin sinni grunnþjónustunni vel og hlusti á íbúana þegar ákvarðanir eru teknar um nærumhverfi þeirra. Ég er ákaflega stoltur af fyrstu mánuðum nýs meirihluta enda snýst stefnan nú um fólkið sem býr í borginni, hverfin og grunnþjónustuna. Það er sú Reykjavík sem við ætlum að byggja og rækta. Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks
AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/18/2026 1:28 PM Page 3
Alvöru útsala
20-50% afsláttur
nún
Verð áður: 24.759 Ve
8 0 18.570
% 25ttu r afslá
Samanfellanlegur stigi 2,9m, 10 þrep. Samanbrotinn aðeins 77cm0,8mm
Verð áð
Verð áður: 42.995
% 21.498 50ttu 21 498 ur afslá
% 5.1 25ttu r afslá
LuT uT To ool Borðsög 1.800W W,, 255mm blað
9
0 % 1.980 34ttu r
Vinnubo Ber 100kg. 640x605x820mm
á
garð ðinum!
Bílaþvottakústur anlegt 1,15-1,8m stækka skaft. Hraðtengi
Verð áður: 14.999 9
% 11.250 25ttu 0 r
% 7.9 20ttu 999 r afslá
Colorex SKÖLD 9L. Endingargóð þakmálning
Birt með
afslá
Verð áð Ve ður: 9.998
Verð áður: 4.849
Colorex x BETOPAINT Útimáln ning 9L Fyrir krefjand di aðstæður
2 % 2.910 40ttu r afslá
75
% 9.923 30ttu t r afslá
LED Vinnuljós L 6 600Lm USB hleðsla
Skrúfstykki 15cm 14kg.
Verð áð Ve ður: 9.115
% 5.4 40ttu 469 r
Verð áður: 11.9
% 9.596 20ttu ur afslá
Colorex PROJE Málarahvítt 10L Þekur betur
afslá
Verð áður: 9.895
% 7.916 20ttu r slá afs
Verð áður: 17.895 Ve
Tro Tr oT Te T ec hitablásari með snúning 2kW TFC19E
% 13.4 25ttu 422 13.422 r afslá
Verð áður: 15.995
11 197
Verð á áður: 45.990
% 34 25ttu 4.493 r afslá
Tro Tr oT Te T ec B Bónvél PPOS 10-120W W mótor 245mm bónpúði. 3.600 rpm Verð áður: 78.579
% 62.864 20ttu 62 864 ur
Bláar Hjólbörrur m/ósprengjan nlegu dekki max 156 lítrarr
afslá
Verð áður: 29.995
Mr.Clever WC sett. Innbyggður kassi, skál án skolbrúnar & hæglokandi seta.
% 22.497 25ttu r
STM 16 60 WPS háþrýsstidæla 2500W 160bör. Stór pallabur og margt fleira fylgir y .
afslá
Gíraffi Slípivél 720W. Stiglaus snúningur 0-1050 RPM, M1 14 4 tengi
Verð áður: 19 Ve
% 11.9 40ttu r afslá
Verð áður: 19.995 Ve
% 15.996 20ttu ur
Lu uT To T ool Mini hj 600W Sagar s
afslá
Verð áður: 99.995
% 74.997 25ttu r afslá
Hrærivél ffy yrir múrefni og málningu. 1600W Snúningshraði 0-660 rpm.
fi
mótor. Verð áður: 27.999
% 19.880 29ttu 0 r afslá
Verð áður: 64.995
% 38.997 40ttu r afslá
Kaliber Silverr,, 3 brennarar gasgrill m/hliðarhellu. 11,5kW. Ryðfríar hurðir og frontur
Kletthálsi 7 110 Reykjavík Virkir dagar opið 08-18 Laugardagar opið 10-16 Sími: 412 2500
Verð áður: 13.090
% 25ttu r afslá
Selhella 6 221 Hafnarfjörðu ur Virkir dagar opið 08-18 0 Laugardagar opið ð 10-16 Sími: 412 2500
9.818
Ceravid handlaug ar45x36 cm blönduna tæki & vatnslás fylgiir
Verð áður: 42 Ve 2.390
% 31.793 25ttu r afslá
Sturtuhorn rú únað 80x80 6mm hert gler og sturtubotn
BoLoco einfaldur gri. stálvaskur. Borð til hæg Stærð 66x43x18,5cm 5cm Stál 0,8mm
Fuglavík 18 230 Reykjanesbæ ær Virkir dagar opið 08-18 0 Laugardagar opið 10-14 Sími: 421 1090
Gott verð rð ffy yrir allla, alltaf!
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/18/2026 8:34 PM Page 4
4
Fréttir
Árbæjarblaðið Þroskaþjálfinn flytur í Reyrengi 30:
Aukinn stuðningur fyrir einstaklinga með sérþarfir Þroskaþjálfinn ehf var stofnaður árið 2020 og var fyrst til húsa í Gylfaflöt 5 en hefur fært starfsemi sína að Reyengi 30. 112 í Grafarvogi. Eigendur eru Friðþór Vestmann Ingason og Ragnheiður Jónsdóttir Þroskaþjálfar. Áhersla er lögð á að hjálpa foreldrum að greina þarfir barns, efla og nýta sín eigin bjargráð með því að styðja þau að sjálfstæði og að lokum að fræða foreldra um þau þjónustuúrræði sem gætu gagnast þeim. Þroskaþjálfinn ehf. er óháð þjónustu og einstaklingsmiðuð stuðningur, sem vinnur að því að styrkja og efla einstakar fjölskyldur. Starfsmenn Þroskaþjálfans ehf. eru liðsmenn fjölskyldna og veita aðgengilega lausnamiðaða aðstoð eftir bestu getu og kunnáttu. Einnig er í boði almenn ráðgjöf til foreldra og hægt að panta sér tíma fyrir slíka fundi. ,,Megintilgangurinn með þjónustunni er að börn og fjölskyldur þeirra geti nýtt sér almenna lögbundna þjónustu, stuðning við nám barna og komist í samband við önnur úrræði sem gætu gagnast þeim,” segja þau Ragnheiður og Friðþór. Þjónusta Þroskaþjálfans ehf. er einstaklingsmiðuð og hefur hver einstaklingur sinn þroskaþjálfa þegar hann er komin í þjónustu okkar. ,,Þjónusta Þroskaþjálfans er afar víðtæk og tekur á þeim þáttum er einstaklingurinn þarf á að halda hverju sinni. Allt er breytilegt segjum við og allt er hægt með góðri þjálfun og einstaklingsmiðari nálgun. Starfsemi okkar er hugsuð sem aukinn stuðningur fyrir einstaklinga með sérþarfir og einnig fyrir þá sem þurfa stuðning í félagsfærni og/eða öðrum þáttum er tengist lífi og námi einstaklings.”
Ragnar Bragi Sveinsson.
Friðþór Westmann Ingason og Ragnheiður Jónsdóttir.
Höldum haus í þjóðaratkvæðagreiðslunni - eftir Ragnar Braga Sveinsson
Starfsmenn Þroskaþjálfans ehf. eru liðsmenn fjölskyldna og veita aðgengilega lausnamiðaða aðstoð eftir bestu getu og kunnáttu.
Þann 29. ágúst göngum við Íslendingar að kjörkössunum og sem Árbæingur hef ég velt þessari spurningu fyrir mér þar sem hún mun marka ákveðin kaflaskil fyrir Ísland. Ég ólst upp við mikið frelsi og fékk góðan stuðning frá öllum þeim frábæru innviðum í mínu nærsamfélagi og þá nýtti ég til að sækja fram og ná árangri bæði í mínu persónulega lífi og sem knattspyrnumaður og fyrirliði Fylkis. Fyrir mér snýst spurningin í lok ágúst fyrst og fremst um það hversu mikið svigrúm við viljum hafa til að ráða eigin örlögum sjálf til framtíðar. Ég tel að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins og mun því kjósa nei og fyrir því liggja nokkrar rökstuddar ástæður. Ég er sjálfur mikið í sveit og tengist henni sterkum böndum. Í samtölum mínum við fólk utan höfuðborgarinnar lýsir það yfir þungum áhyggjum og margir efast hreinlega um framtíð sína og lífsviðurværi íslensks landbúnaðar. Aðild að ESB myndi færa íslenskan sameiginlega undir landbúnað landbúnaðarstefnu sambandsins. Það myndi opna á að stórtæk býli á meginlandi Evrópu sem starfa á mun meiri skala og borga fólki mun lægri laun sendi vörur sínar til landsins í stórum stíl sem undirbýður innlenda framleiðslu. Ég tel mikilvægt að við höldum áfram að styðja við íslenska bændur, annars munu blómlegar sveitir landsins verða settar í erfiða stöðu. Sjávegurinn vegur einnig þungt í minni afstöðu. Hann hefur um
áratugaskeið verið ein mikilvægasta efnahagslífs, íslensks undirstaða skapað mikil útflutningsverðmæti og skilað verulegum tekjum til ríkissjóðs. Mörg sveitarfélög á landsbyggðinni reiða sig á bein og óbein störf sem geta horfið ef erlend stórfyrirtæki sölsa undir sig kvótann og kjósa að landa honum í öðru Evrópulandi. Í dag ráðum við sjálf yfir fiskveiðiauðlindinni og mótum okkar eigin sjávarútvegsstefnu. Með aðild að ESB yrði Ísland hins sameiginlegri af hluti vegar sjávarútvegsstefnu sambandsins. Ég hef einnig fylgst með þróun regluverks innan ESB sem leggst nú eins og teppi yfir atvinnulíf sambandsins. Fyrirtæki þurfa að takast á við sífellt umfangsmeiri og flóknari reglur í ýmsum málaflokkum. Íslensk fyrirtæki teljast almennt lítil á evrópskan mælikvarða og í besta falli meðalstór og því fylgir mikill kostnaður og umsýsla sem mun vega hlutfallslega þungt hér á landi. Ísland er frábært land í einstakri stöðu og hafandi notið þeirra gæða sjálfur ber mér skylda að standa vörð um þau fyrir komandi kynslóðir. Við búum yfir ríkulegum auðlindum og landgæðum og stöndum í feiknarlega sterkri stöðu á nánast alla mælda mælikvarða alþjóðastofnana. Við eigum síðasta orðið um okkar eigin mál.Í þessa stöðu vil ég halda, og þess vegna segi ég nei 29. ágúst. Framkvæmdastjóra og fyrirliða Fylkis
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/18/2026 5:14 PM Page 5
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/17/2026 10:00 PM Page 6
6
Fréttir
Árbæjarblaðið
Dansinn dunar hjá Birnu Dansskóli Birnu Björns skrifaði nýjan kafla í sögu skólans með stórkostlegum árangri á Dance World Cup, einni stærstu og virtustu alþjóðlegu danskeppni heims fyrir born og ungmenni, keppnin var gríðarlega hörð á öllum sviðum. Nemendur skólans náðu glæsilegum árangri og fögnuðu meðal annars heimsmeistaratitli auk þess að vinna inn nokkur silfur og brons og hafna í 4. 5. og 6. sæti. Þessi frábæri árangur er afrakstur mikillar vinnu, aga og ástríðu bæði nemenda og danshöfundar. Þetta er stór og mikill sigur fyrir okkur öll. Skólinn leggur mikla áherslu á ,,muscial theathre” og nemendur hans keppa mikið í ,,song and dance” flokkum en einnig er keppt í ,,comercial - showstopper - jazz” ofl. Dansskólinn setur upp stórar og metnaðarfullar sýningar á hverju ári í Borgarleikhúsinu. Söngleikjadeildin setur upp söngleiki í desember og leiðir sýningarnar í Borgarleikhúsinu. Þess má geta að dansskólinn á 30 ára afmæli um þessar mundir og margt spennandi að gerast í haust. Inntökupróf fyrir næsta heimsmeistaramót verður strax í haust. Danskennslan er á Bíldshöfða í glæsilegu húsnæði hjá Dansskóla Köru og einnig í Garðabæ, Kópavogi og Vesturbæ Reykjavíkur.
Snilldartilþrif.
Og miklir hæfileikar hér.
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/14/2026 3:21 PM Page 7
Nei takk VIÐ AÐILDARVIÐRÆÐUM Nokkrir punktar Aukin óvissa
Kostnaður telst í milljörðum
Aðildarferli væri skref í átt að gjörbreyttu umhverfi undirstöðuatvinnuvega landsins. Það gæti dregið úr fjárfestingu í landbúnaði, matvælaframleiðslu, fiskvinnslu og fleiri greinum.
Ríkisstjórnin áætlar að beinn kostnaður við aðildarviðræður muni nema tveimur milljörðum króna sem er líklega vanmat. Kostnaður sveitarfélaga, samtaka og fyrirtækja sem þurfa að leggja fram vinnu í aðildarferlinu hefur ekki verið metinn.
Biðstaða í utanríkismálum
Þjóðin klofin næstu ár
Gerð fríverslunarsamninga er á forræði ESB og taki Ísland stefnuna inn fyrir tollmúra ESB er ólíklegt að erlend ríki vilji ræða fríverslun við Ísland.
Nei takk í ágúst leggur málið til hliðar, en já þýðir að tekist verður á um framtíð Íslands af vaxandi þunga næstu misseri. Aðildarviðræður við ESB ættu ekki að vera á dagskrá nema aukinn meirihluti landsmanna hafi áhuga á aðild og meirihluti sé fyrir aðild á Alþingi.
Röng forgangsröð Aðildarviðræður kalla á mikla vinnu hjá ráðuneytum, ríkisstofnunum, sveitarfélögum, aðilum vinnumarkaðar og hagsmunasamtökum. Þetta mun óhjákvæmilega bitna á brýnni verkefnum.
Óljós ávinningur Ísland hefur nú þegar aðgang að innri markaði ESB og yrði fyrsta landið í áratugi sem sækist eftir aðild án þess að hafa fjárhagslegan hag af því. Aðildargjöld myndu nema tugum milljarða árlega og ESB áformar verulegar hækkanir á þeim.
Meirihluti vill ekki ESB
Óljóst samningsumboð Í aðildarviðræðunum sem hófust 2009 samþykkti Alþingi skýr markmið og línur sem ríkisstjórnin mátti ekki víkja frá í aðildarviðræðum. Ríkisstjórninni var einnig skylt að upplýsa Alþingi reglulega um gang viðræðna. Segi þjóðin já í ágúst er óljóst hvort þessir fyrirvarar halda.
Samningur breytir ekki ESB Aðildarsamningur breytir því ekki að stór og vaxandi hluti ríkisvalds flyst til ESB, áhrif Íslands í ESB yrðu hverfandi lítil, tollar ESB koma á 70% allra vörunúmera í stað aðeins 10% í dag. Ísland mun greiða með sér tugi milljarða árlega til ESB. Aðildarsamningur breytir því ekki að ESB hefur dregist aftur úr öðrum hagkerfum og að efnahagshorfur þar eru slæmar. Auk þess er ESB í stöðugri þróun í átt að aukinni miðstýringu og hervæðingu.
Meirihluti landsmanna vill ekki ganga í ESB. Minnihluti þingmanna styður aðild og einn af ríkisstjórnarflokkunum er andvígur aðild. Engin sátt er um að hefja aðildarferlið.
Aðild hentar ekki Íslandi Nokkrir punktar Ólíkar aðstæður
Efnahagsleg stöðnun
Hagkerfi Íslands byggir á auðlindum og landið er fjarri meginlandi Evrópu. Aðstæður okkarr,, tækifæri og áskoranir krefjast öðruvísi löggjafar og skjótari viðbragða en hægt er að búast við af embættismönnum í Brussel. Við þurfum að stýra okkar eigin málum. Regluverk og stjórnsýsla ESB er hvort tveggja of dýrt og viðamikið fyrir Ísland.
Hagvöxtur í ESB hefur verið helmingi hægari en í Bandaríkjunum og á Íslandi. Ástæðurnar eru margar, svo sem íþyngjandi regluverk, hátt orkuverð, skortur á nýsköpun og fyrirtækjaflótti.
Tollar hækka To ESB er tollabandalag sem leggur tolla á um 70% af öllum innfluttum vörutegundum en Ísland á aðeins um 10% vörutegunda. Við aðild myndi tollur á kínverska rafbíla hækka úr 0% í allt að 45%. To Tollur á föt úr 0% í 12% á skó í allt að 17%. Rafhjól úr 0% í 10-70%, o.fl. mætti nefna. Kolefnistollar ESB falla á áburð, sement o.fl. Verðlag innan ESB verður því almennt hærra en utan þess. Tekjur af tollum renna að 3/4 til ESB. Te
Ólíkir hagsmunir
Áhrifaleysi Íslands er áhyggjuefni því hagsmunir okkar og ESB eru ólíkir. Ísland ræður yfir auðugum fiskimiðum, stórri efnahagslögsögu og hreinni orku. Allt er þetta af skornum skammti í ESB. Þjóðartekjur Íslands á íbúa eru tvöfalt hærri en meðaltalið í ESB. Reikna verður með að ESB taki hag heildarinnar fram yfir hagsmuni Íslands. Evran er vandamál
Hervæðing Bæði ummæli leiðtoga og viðhorfskannanir sýna vilja til að stofna sameiginlegan her í ESB. Stór og dýr átaksverkefni til að efla vígbúnað aðildarríkja og samstarf þeirra á þessu sviði eru í gangi.
Hagkerfi Íslands er kraftmikið og sveiflukennt. Með krónu hefur hagkerfið jafnað sig hraðar eftir áföll. Með evru leiða áföll frekar til atvinnuleysis, gjaldþrota og búferlaflutninga í stað verðbólgu. Peningastefna sem tekur ekkert mið af aðstæðum okkar getur valdið miklu tjóni.
Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum heimssyn@heimssyn.is Kennitala: 680602-5810 Banki: 101 -26-5810 Frjáls framlög vel þegin
Tugmilljarða framlög til ESB Árlega myndi Ísland greiða ESB 0,7% af þjóðarframleiðslu, 0,3% af VSK-tekjum og 75% af innheimtum tollum. Samtals um 50 milljarða króna árlega. Við fengjum aðeins brot af því til baka því við stöndum mun betur en hin aðildarríkin. ESB hefur kynnt áform um að hækka þessi gjöld um meira en helming. Við þetta bætast framlög til átaksverkefna ESB, oft tugir milljarða árlega.
Útganga bæði erfið og dýr Útganga Breta úr ESB var bæði erfið og dýr sem staðfestir að innganga í ESB er verður ekki auðveldlega aftur tekin. Auk þess eru engin ákvæði í reglum ESB um hvernig tryggja eigi örugga útgöngu fyrir þau ríki sem hafa tekið upp evru.
Áhrifaleysi Ísland yrði fámennasta ríki ESB og hefði minnst áhrif. Við ættum eitt sæti af 28 í leiðtogaráðinu, eitt af 28 sætum í ráðherraráðinu en aðeins 1/1000 af atkvæðavæginu. Ísland fengi sex þingmenn af 720 og mætti tilnefna fulltrúa í framkvæmdastjórn ESB en hann mætti ekki ganga erind da Íslands.
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/19/2026 1:02 PM Page 8
8
Fréttir
Árbæjarblaðið
Margrét Ríkharðsdóttir og Kristín Brynjarsdóttir.
Theódór Óskarsson, Birna Róbertsdóttir verkefnastjóri og Valbjörn Guðjónsson.
Farsæl og betri efri ár
Í félagsmiðstöðinni Hraunbæ 105 er líf og fjör og allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Fjölbreytt verkefni eru í boði og aðsókn sífellt að aukast bæði í hádegisverð sem er alla virka daga kl. 11:30 til 12:30, á kaffihúsið okkar sem er opið frá kl. 14:30 til 15:30 alla virka daga nema föstudaga og virkni í félagsstarfið eykst stöðugt. Hvetjum alla til að kynna sér starfsskrána okkar sem liggur frammi í Hraunbæ 105 og er einnig til kynningar á facebook síðunni Félagsmiðstöðin Hraunbæ 105. Sumardagskráin var nýlega auglýst þar og gaman væri að fá sem flesta í heimsókn í sumar. Því mannleg tengsl eru þræðir sem skipta sköpum í heilbrigðu lífi, að gefa af okkur, gera eitthvað fallegt og byggja upp góð tengsl. Þá verða til félagslegir töfrar, samfélag fólks með sameiginleg markmið um að láta drauma rætast. Stjórn Árvina sem er félag eldri borgara í Hraunbæ 105, hefur staðið
fyrir margvíslegum áhugaverðum uppákomum á árinu. Það nýjasta var vorhátíðin 28. maí þar sem þessar skemmtilegu myndir voru teknar af Katrínu J. Björgvinsdóttur fyrir Árbæjarblaðið. Grillvagninn bauð upp á rjúkandi hamborgara og meðlæti og hljómsveitin Hoppandi kát hélt upp stuðinu fram á kvöld. Boðið var upp á kaffi og konfekt. Happadrættið var á sínum stað með góðum vinningum og að sjálfsögðu var stiginn dans að lokum á velheppnaðri vorhátíð Árvina.
Ljósmyndir Katrín J. Björgvinsdóttir Þá var farin vel heppnuð dagsferð á Reykjanesið 11. maí og sölu og handverksýning 15. maí. Margar góðar hugmyndir eru í farvatninu og í stöðugri þróun. Stefnt er að meira samstarfi við þjónustuaðila í hverfinu og að bæta aðstöðu fyrir tréútskurð í Hraunbæ 105 sem boðið er upp á tvisvar í viku yfir veturinn. Einnig er áhugi á að efla
skapandi starf og heilsueflingu, en það hefur verið boðið upp á hreyfingu í dansleikfimi, boccia, gönguferðir, danskvöld, línudans og jóga.
Helga Ingvarsdóttir og Sigurður Pétursson.
Eldri borgarar eru ekkert síður en þeir yngri með mismunandi reynslu, lífssýn, væntingar og þarfir. Því er mikilvægt að hlusta eftir þeirra áhuga og að allir fái möguleika á að rækta sína hæfileika, halda áfram að læra og finna tilgang í lífi sínu. Þegar hinni hefðbundnu vinnu lýkur höfum við meiri tíma til að prófa okkur áfram og leika okkur. Í Hraunbæ 105 leggjum við áherslu á að umhverfið sé heimilislegt og styðjandi, því öllu máli skiptir að öllum líði vel, finni að það sé velkomið og allir séu jafn mikilvægir. Og þar gerast ævintýri alla daga. Hjartanlega velkomin í Hraunbæ 105. Birna Róbertsdóttir verkefnastjóri.
Snjólaug Guðmundsdóttir og Fríða Friðriksdóttir.
Jónína Valdimarsdóttir og Guðni Örvar Þór Guðnason.
Örn Stefánsson, Elsa Þorbjörg Árnadóttir formaður Árvina, Heiða Hrönn og Matthías Ægisson.
Alfa Þorsteinsdóttir og Sigurður Benediktsson.
Ingunn Kristjánsdóttir og Bryndís Jóhannsdóttir.
Elínborg Sigurgeirsdóttir og Þórarinn Hrólfsson.
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/14/2026 3:23 PM Page 9
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/14/2026 3:24 PM Page 10
10
Fréttir
Árbæjarblaðið
Böddi og Gunna Stína.
Guðríður Pálmadóttir og Kristín Jósefína Þorvaldsdóttir. Vinirnir Theódór Óskarsson og Ólafur Loftsson.
Elínborg Angantýrsdóttir og Hrólfur Gunnlaugsson.
Lilja Hannibalsdóttir og Elín Björk Albertsdóttir.
Sigrún Eymundsdóttir og Dóra Haraldsdóttir.
Stefanía Védís Stefánsdóttir og Birna Róbertsdóttir.
Sveinn Óli Eggertsson og Magnús Helgi Hjálmarsson.
Theódór Óskarsson og Dagný Austan Vernharðsdóttir.
Þorsteinn Sigmundsson og Petrína Eyjólfsdóttir.
Konráð Sveinsson og Magnhildur Friðriksdóttir.
Frænkurnar Gréta Sigurðardóttir og Ása Sæmundsdóttir.
Magnhildur og gestirnir á vorhátíðinni voru mjög ánægðir með hamborgarana hjá grillmeistaranum.
Kristbjörg Agnarsdóttir og Anna Lára Magnúsdóttir.
Elsa Þorbjörg Árnadóttir og Jón Ragnar Björnsson.
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/14/2026 3:24 PM Page 11
Ö l garðverk Öl kfæri kf
Sláttu uorf, Sláttuvélar og slá átturóbotar
Frábært úrval
! f a t l l a i erð
ærum af garðverkfæ
v u ð ó g á i ð æ G
Lavor háþrý ýstidælur
Colorex r málning og v viðarvörn Úrrva val af flísum
Vín ínyl- og ha arðparket
G Gott verð fyrir alla a, alltaf!
Sérfræðinga ar í múrefnum
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/17/2026 9:07 PM Page 12
12
Fréttir
Árbæjarblaðið
Ballettinn er góður grunnur fyrir framtíðina - vetrarstarfið hefst 10. september Ballettskóli Eddu Scheving er nú á þremur stöðum. Í Grafarvogi, Kópavogi og Skipholti. Ballettskóli Eddu Scheving var stofnaður árið 1961 og í rúm 20 ár hefur skólinn haft útibú fyrir forskólaaldur í Grafarvogi en það er fyrir aldurinn 2-6 ára. Kennsla fer fram í íþróttahúsi Hamrakóla á föstudögum en alla aðra daga vikunnar fer kennsla fram í húsnæði skólans í Skipholti 50c. Skólinn er einnig með starfsemi í Kópavogi.
Skólinn sérhæfir sig í kennslu í klassískum ballett en býður einnig upp á jazzballett og söngleikjadans fyrir forskóla og jazz/modern fyrir eldri nemendur. Hörku þjálfum fyrir ballerínur sem geta ekki hætt að dansa á aldrinum 20-30 ára. Pilates tímar verða í boði. Ballettfitness fyrir fullorðna og svo eru Silfursvanir sem er prógramm fyrir 65 ára og eldri. Vetrarstarfið hefst 10. September, skoða má allar upplýsingar á síðu skólans https://bsch.is/
,,Ballettinn er góður grunnur fyrir svo margt og hvort sem börnin halda áfram að æfa ballett síðar eða ekki þá er víst að grunnurinn sem þau fá er mjög góður. Í forskólanum læra börnin grunnstöður og æfingar í klassískum ballett sem hæfa þeirra aldri og þroska en skipt er í hópa eftir aldri. Þau gera æfingar sem liðka og styrkja, læra að standa í röð og fylgja settum reglum. Litlum sporum og æfingum er svo fléttað inn í litla látbragðsdansa og leiki eins og blóm, fiðrildi, mýs og kisur sem dæmi.
Veturinn skiptist í tvær 12 vikna annir og endar haustönnin með foreldrasýningu í kennslusal en á vorin er skólinn með glæsilegar nemendasýningar í Borgarleikhúsinu.
Brynja Scheving er skólastjóri Ballettskólans. Hún hefur kennt öll árin sem skólinn hefur verið í Grafarvogi og ásamt henni er alltaf einn til tveir aðstoðarkennarar.
Þetta er mjög þroskandi og skemmtilegt prógramm, sérhannað fyrir þennan aldur. Svo eftir því sem þau eldast og þroskast tekur meiri alvara við,” segir Brynja.
Ballerínur framtíðarinnar. Myndin sýnir nemendur skólans á glæsilegri nemendasýningu skólans í Borgarleikhúsinu. En á nemendasýn-
Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:
ingunum sem eru án efa hápunktur vetrarins koma allir nemendur fram frá 3ja ára aldri.
Dýrin og haustið: þegar húsið tæmist á ný Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur
Nú þegar ágúst líður og septembermánuður er á næsta leiti er sumarfríinu formlega lokið. Fólk snýr aftur til vinnu, skólarnir opna á ný og hversdagsrútínan tekur völdin. Fyrir okkur mörg þýðir þetta fyllri dagatöl og fyrr á fætur en fyrir loðnu fjölskyldumeðlimina okkar getur þessi breyting verið ruglingsleg. Eftir vikur eða jafnvel mánuði þar sem einhver var nánast alltaf heima standa hundar og kettir skyndilega frammi fyrir tómu húsi klukkustundum saman. Þessi umskipti geta valdið dýrum raunverulegu álagi. Hundar sem eru óvanir einveru sýna það stundum með gelti eða spangóli, óróleika, að naga húsgögn eða skó, eða jafnvel að gera þarfir sínar innandyra þótt þau séu vön að vera þrifin. Kettir bregðast oft öðruvísi við, verða fráhverfari, sofa meira eða minna sníkja athygli þegar loksins er komið heim. Þetta er ekki þrjóska eða óhlýðni, heldur einfaldlega merki um að dýrið er að aðlagast breyttum aðstæðum. Nokkur einföld ráð geta gert umskiptin léttbærari fyrir bæði dýr og eigendur:
Uppl. í síma 698-2844 og á Krafla.is
Byrjið smátt og smátt. Ef hægt er, æfið stuttar fjarvistir fyrstu dagana frekar en að fara beint í heilan vinnudag. Þannig fær dýrið tækifæri til að venjast einverunni í skrefum. Haldið í föstu punktana. Sömu tímar fyrir göngutúra, fóðrun og háttatíma
gefa dýrinu öryggistilfinningu, jafnvel þótt allt annað breytist í kringum það. Þreytið þau aðeins áður en lagt er af stað. Góður morgungöngutúr eða leikur fyrir hunda og virkur leikur með veiðistöng eða leysir fyrir ketti, gerir það líklegra að dýrið hvíli sig meðan enginn er heima. Gefið heilanum eitthvað að gera. Nammibollar, feluleikföng, tyggjuleikföng eða einfaldlega að fela nokkur nammistykki um íbúðina getur haldið huga dýrsins uppteknum drjúga stund. Hugsið um umhverfið. Útvarp eða róleg tónlist í bakgrunni, aðgangur að glugga með útsýni og þægilegur hvíldarstaður geta gert gæfumuninn, sérstaklega fyrir ketti sem njóta þess að fylgjast með fuglum og mannlífi. Ef hegðunin breytist verulega eða er viðvarandi. Til dæmis mikið gelt eða eyðilegging á húsgögnum getur verið merki um vanlíðan, þá er alltaf skynsamlegt að leita ráða hjá dýralækni eða atferlissérfræðingi. Stundum getur líka verið gagnlegt að athuga með nágranna eða aðra hundaeigendur í hverfinu um að skiptast á að kíkja við eða fara saman í hádegisgöngutúr. Með smá umhyggju og fyrirhyggju getur haustið orðið ljúf breyting fyrir alla fjölskylduna, líka þá loðnu.
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/19/2026 1:08 PM Page 13
13
Fréttir
Árbæjarblaðið
Skálinn Gufunesi:
Heiðarlegur hádegismatur - ,,Við kappkostum að vinna sem mest af matnum frá grunni” Í Gufunesinu rís nú upp blómleg íbúðabygg í takt við skapandi greinar því kvikmyndaiðnaðurinn íslenski hefur
komið sér upp aðstöðu á heimsmælikvarða á svæðinu Í glæsilegu húsi sem áður hýsti
Skálinn í Gufunesi nýtur mikilla vinsælda í hádeginu en opið frá 11.30 til 13.30 á virkum dögum.
Benedikt Jónsson matreiðslumeistari stýrir eldhúsinu í Skálanum Gufunesi.
skrifstofur Áburðaverksmiðju ríkisins hefur nú verið opnaður glæsilegur veitinga- og veislusalur sem kallast SKÁLINN GUFUNESI Þar eru margreyndir fagmenn búnir að koma sér fyrir og bjóða m.a. upp á hefðbundinn íslenskan heimilismat í hádeginu alla virka daga – frá 11:30 – 13:30. „Við tókum við húsnæðinu í lok síðasta árs og opnuðum dyrnar í mars – ætluðum að prófa og sjá hvort það væri markaður fyrir strangheiðar-legan góðan íslenskan heimilismat“ segir Benedikt Jónsson matreiðslumeistari sem stýrir eldhúsinu í Skálanum en hann var yfirkokkur Orkukveitu Reykjavíkur um áratuga-skeið og er öllum hnútur kunnugur í matreiðslu. „Við erum ekki að flækja hlutina – viljum bara gera góðan íslenskan heimilismat sem við kappkostum að vinna frá grunni svo gæðin skili sér alla leið í maga ánægðra viðskipta-vina. Við bjóðum upp á veglegt hlaðborð; góðar súpur, heimabakað brauð, ferskan
salatbar, kjöt- og fiskrétti á hverjum degi ásamt meðlæti. Við rúllum matseðlinum alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi en þó þannig að á föstudögum er alltaf sami seðillinn - hægeldað nauta ribeye, djúpsteiktur fiskur í orly deigi, viðeigandi meðlæti og îs í eftirrétt. Svo má ekki gleyma kaffinu og sæta bitanum en við bökum nýja köku á hverjum degi til að bjóða upp á með kaffinu – sem verður að vera gott því engin máltíð er fullkomnuð án þess að fá gott kaffi og sætan bita með“ segir Benedikt „Við vissum ekkert hvernig viðtökurnar yrðu og opnuðum í hádeginu – frá 11:30 til 13:30 til að sjá hvernig það myndi ganga. Við höfum ekki auglýst okkur að neinu ráði en það er óhætt að segja að við séum í skýjunum með viðtökurnar – frá því við opnuðum í mars hefur verið stöðug fjölgun gesta – sem bendir vonandi til þess að viðskiptavinirnir séu ánægðir. Síg-andi lukka er best - við erum ekki að auglýsa mikið því besta auglýsingin eru
ánægðir viðskiptavinir og góður almannarómur. Við ætlum að halda okkur við það.“ „Við erum líka með salarleigu og veisluþjónustu – en salurinn í Skálanum hentar vel í ýmsa viðburði og er sveigjanlegur við getum minnkað/stækkað salinn þannig að hann henti litlum og stórum hópum – allt frá 20-200 í sæti eða hátt í 300 fyrir standandi gesti. Svo er veislu-þjónustan okkar klár í flest – allt frá pinnamat í 5 rétta lúxusveislur og allt þar á milli. „Við ákváðum að byrja að bjóða upp á mat í hádeginu en við höfum fengið hvatningu um að opna á kvöldin líka. Við erum að skoða það en við ætlum að taka eitt skref í einu – hvað framtíðin ber í skauti sér er óvíst en við erum að huga að næstu skrefum,“ segir Benedikt að lokum Það verður fróðlegt að sjá hver þróunin verður hjá þeim í Skálanum – hægt er að skoða salinn, matseðla dagsins/vikunnar á www.skalinngufunesi.is og svo á Facebook síðu staðarins.
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/19/2026 1:07 PM Page 14
14
Árbæjarblaðið
Fréttir
Langa með stökku kryddjurta-, pistasíu- og parmesan toppingi - frábær uppskrift sem vert er að prófa Þessi fiskrettur er einstaklega ferskur, góður og sumarlegur.
Topping
Í þessari uppskrift fær fiskurinn Langa ferskt og stökkt topping úr kryddjurtum, pistasíum, kapers, sítrónu og parmesan sem lyftir réttinum á næsta stig. Ég notaði ferska löngu frá Fisk og sælkerabúðinni Öldunni í Spönginni sem er alltaf frábær grunnur fyrir góðan fiskrétt. Berið fram með kartöflum og fersku salati fyrir einfaldan en glæsilegan kvöldverð. Langa með stökku kryddjurta-, pistasíu- og parmesan toppingi
• 40 gr. pistasíur, grófsaxaðar. • 2–3 hvítlauksrif, pressuð eða smátt söxuð. • 2 msk. fersk steinselja, söxuð. • 2 msk. ferskt dill, saxað. • 2 msk. fersk basilíka, söxuð. • 1 msk fersk mynta, söxuð. • 2 msk. kapers, grófsaxaðir. • Rifinn börkur af 1 sítrónu. • Safi úr ½ sítrónu. • 50 gr fínt rifinn parmesan. • 2–3 msk ólífuolía. • Smá salt og pipar.
Hráefni • 600–800 gr. lönguflök. • Salt og nýmalaður svartur pipar. • 1 msk. ólífuolía.
Aðferð 1. Hitið ofninn í 180°C. 2. Kryddið lönguna með salti og
Spönginni Grafarvogi
Í þessari uppskrift fær fiskurinn Langa ferskt og stökkt topping úr kryddjurtum, pistasíum, kapers, sítrónu og parmesan sem lyftir réttinum á pipar og leggið í eldfast mót. Dreypið 6. Kreistið smá ferskan sítrónusafa smá ólífuolíu yfir. yfir rétt áður en borið er fram. 3. Blandið öllum hráefnunum fyrir toppingið saman í skál þar til það verður Berið fram með safaríkt og vel blandað. Bökuðum kartöflum eða 4. Dreifið toppinginu jafnt yfir kartöflumús fiskinn. - Stóru fersku salati eða ofnbökuðu 5. Bakið í 15–20 mínútur, eða þar til grænmeti fiskurinn flagnar auðveldlega. - Auka sítrónubátum
Kristjana Steingrímsdóttir (Jana). Þessi samsetning af kryddjurtum, kapers, pistasíum, sítrónu og parmesan gerir fiskinn bæði ferskan, stökkari og fullan af bragði. Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instragram.com/janast
Bókaðu tíma í sjónmælingu Þú getur bókað tíma í sjónmælingu með stuttum fyrirvara í verslunum Eyesland í Kringlunni, Glæsibæ, Spönginni, Granda og á Keflavíkurflugvelli. Sjónmæling gengur upp í gleraugnakaup séu þau gerð í framhaldinu.
Spönginni Kringlan Grandi Glæsibær Keflavíkurflugvöllur
eyesland.is
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/14/2026 3:15 PM Page 15
j ``"! !" "`!" !"7
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/18/2026 10:11 PM Page 16
16
Fréttir
Árbæjarblaðið
Rekstraruppgjör tryggir rétta kostnaðarskiptingu í húsfélögum Ein af grunnforsendum góðs reksturs húsfélaga er að hver eigandi greiði sinn réttmæta hlut af sameiginlegum kostnaði samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu. Til að tryggja það kveða fjöleignarhúsalög á um að árlega skuli gera rekstraruppgjör hússjóðs og jafna frávik milli áætlaðs kostnaðar og raunútgjalda. „Rekstraruppgjörið er mikilvægt til að tryggja að kostnaður skiptist með réttum hætti milli eigenda og að enginn greiði meira eða minna en honum ber samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu,“ segir Ágústa Katrín Auðunsdóttir, forstöðumaður fjármálasviðs Eignaumsjónar.
Spönginni
kostnað sem henni ber og að fjármunir einstakra deilda eða stigaganga nýtist eingöngu þeim sem eiga rétt á þeim. Rekstraruppgjör er lagt fram á aðalfundi húsfélags. Að fundi loknum er uppgjörið jafnað þannig að eigendur sem skulda greiða mismuninn, en þeir sem eiga inneign fá hana jafnaða á móti húsgjöldum. Tryggir gagnsæi og traustan rekstur Að sögn Ágústu verður rekstur húsfélaga jafnan flóknari eftir því sem
eignirnar eru stærri og fjölbreyttari. Í minni húsfélögum sé fyrst og fremst verið að halda utan um rekstur sameignar sem skiptist á alla eigendur, en í stærri og flóknari félögum þurfi einnig að halda utan um sameignir sem aðeins tilheyra ákveðnum deildum eða stigagöngum. „Meginmarkmiðið er samt alltaf það sama; að halda utan um fjármuni hvers eignarhluta með skýrum hætti og tryggja rétta kostnaðarskiptingu,“ segir Ágústa og áréttar að rekstraruppgjör sé því mun meira en formlega lagaskylda.
Húsgjöld byggja á rekstrar- og framkvæmdaáætlun sem samþykkt er á aðalfundi húsfélags. Þar sem um áætlun er að ræða verða nær alltaf einhver frávik milli innheimtra húsgjalda og raunverulegs kostnaðar. Samkvæmt 49. gr. fjöleignarhúsalaga skal þessi munur jafnaður við árlegt heildaruppgjör reikninga húsfélagsins. Passað upp á eigið fé hverrar eignar Eignaumsjón sérhæfir sig í rekstrarog kostnaðaruppgjöri húsfélaga. Með uppgjörinu kemur fram hvort eigandi hafi greitt meira eða minna en honum bar á árinu og hvort inneign eða skuld hafi myndast gagnvart hússjóðnum. „Með uppgjörinu sjá eigendur skýrt hver staða þeirra er gagnvart húsfélaginu. Það stuðlar að gagnsæi og eykur traust á rekstri húsfélagsins,“ segir Ágústa. Jafnframt er haldið utan um eigið fé hverrar eignar í bókhaldi húsfélagsins. Þannig er tryggt að hver íbúð eða atvinnueining greiði nákvæmlega þann
Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .
V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N
„Rekstraruppgjörið er mikilvægt til að tryggja að kostnaður skiptist með réttum hætti milli eigenda og að enginn greiði meira eða minna en honum ber samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu,“ segir Ágústa Katrín Auðunsdóttir, forstöðumaður fjármálasviðs Eignaumsjónar.
Fylkir í harðri baráttu Fylkir er í toppbaráttu í Lengjudeild karla og úrslitakeppni kvenna er í fullum gangi (sjá bls. 18). Nú eru einungis fimm leikir eftir af tímabilinu í Lengjudeild karla og spennan er farin að aukast verulega í baráttunni um deildarmeistaratitilinn. Eins og staðan er nú eru þrjú lið sem berjast um efsta sætið; Afturelding, Þróttur og Fylkir. Afturelding og Þróttur sitja í 1. og 2. sæti deildarinnar með 34 stig hvort, en Fylkir fylgir fast á hæla þeirra í 3. sæti með 33 stig. Því er allt galopið í toppbaráttunni þegar aðeins fimm leikir eru eftir.
Er stí昀að? FJARLÆGJUM STÍFLUR
Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar
Þekking og áratuga reynsla
VALUR H ELGASON ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is
Næstu tveir leikir Fylkis verða afar mikilvægir í þeirri baráttu. Fyrst mæta strákarnir Aftureldingu á Tekk vellinum og í kjölfarið tekur við útileikur gegn Þrótti á AVIS-vellinum í Laugardal. Þar gæti margt skýrst í toppbaráttunni og ljóst er að stig í þessum leikjum verða gríðarlega mikilvæg fyrir Fylki ætli liðið sér að standa uppi sem deildarmeistari í haust.
Fylkismenn fagna marki gegn Völsungi á dögunum.
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/14/2026 3:14 PM Page 17
17
Líkamsrækt
Árbæjarblaðið
Að byggja upp varanlega orku Það kemur að því hjá okkur öllum að bensínið klárast. Hvatningin sem var til staðar í upphafi dvínar, verkefnin virðast yfirþyrmandi og innri neistinn dvínar eða hverfur alveg. Oft erum við fljót að dæma okkur sjálf þegar þetta gerist og halda að eitthvað sé „að“ okkur. Raunveruleikinn er hins vegar sá að drifkraftur er sjaldnast tilviljunarkenndur tilfinningablossi. Hann er afleiðing af umhverfi, venjum og skýrri stefnu. Ef þig vantar drifkraft er lausnin sjaldnast að „ætla sér að vera duglegri“, heldur að breyta nálguninni. 1. Byrjaðu á litlum, óumdeilanlegum sigrum Drifkraftur verður ekki til í tómarúmi; hann kviknar við framkvæmd. Þegar mótspyrnan er mikil er besta tækið að lækka viðmiðin. Nýttu 5-mínútna regluna: skuldbittu þig til að vinna að verkefninu í aðeins fimm mínútur. Ef þú vilt hætta að þeim tíma loknum máttu það. Í flestum tilfellum er erfiðasti hjallinn einfaldlega að byrja, og um leið og hjólin fara að snúast fylgir orkan í kjölfarið. Eins og þegar þig langar ekki neitt á æfingu er gott að segja við sjálfan sig: „ég ætla bara að gera upphitunina og láta það duga“ - þegar upphitunin er búin, er nánast öruggt að þig langar ekkert að hætta og þú tekur æfinguna sem þú hefðir annars sleppt!
4. Breyttu skammvinnum neista í varanlegan vana Reiddu þig ekki á að „vilja“ gera hlutina á hverjum degi. Breyttu drifkrafti í kerfi með því að tengja nýja siði við fasta venju sem þú framkvæmir nú þegar. Þegar umhverfið og rútínan auðvelda réttu skrefin þarftu ekki að reita hvatningu einu saman — hlutirnir
Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík
Láttu okkur sjá um húsfélagið! Við erum með 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög ffa asteigna. Þjónustuverið okkar svarar fyrirspurnum hratt og örugglega; í síma 585-4800 eða á netspjallinu. Einnig er hægt að senda póst á thjonusta@eignaumsjon.iss.
Heyrðu í okkur og við gerum þér tilboð!
Suðurlandsbraut 30 Reykjavík | Sími 585 4800
eignaumsjon.is umsjon is Í Metabolica mætir fólk á öllum aldri og nær góðum árangri.
2. Tengdu við tilgang og framfarir Hvatafesta dvínar hratt ef við vinnum að markmiðum af því að okkur finnst við þurfa það frekar en að vilja það. Spyrðu þig hvernig verkefnið þjónar þínum gildum. Settu fókus svo á framkvæmdina frekar en fullkomnun. Þegar þú mælir árangur þinn við hvar þú varst í gær — frekar en við óraunhæfa framtíðarmynd — færðu stöðuga tilfinningu fyrir framförum sem elar af sér aukinn drifkraft. „Drifkraftur fæðist af innri löngun, en fastar rútínur halda honum gangandi þegar nennan er í lágmarki.“ 3. Fjarlægðu mótspyrnu úr umhverfinu Sjálfsstjórn er takmörkuð auðlind. Ef umhverfið þitt vinnur gegn þér tæmist rafhlaðan hratt. Minnkaðu óþarfa ákvarðanatöku með því að undirbúa allt sem þú getur, daginn áður. Til dæmis að pakka í íþróttatöskuna kvöldið áður, eða eiga frekar harðfisk en súkkulaði í skápunum þegar þú veist að þig langar í síðdegis snarl. Þá skiptir máli að huga að stafrænni áreitisstjórnun; stöðugar tilkynningar og skjáir stela dópamíni og skilja heilann eftir orkulausan. Búðu til tækjalaus tímahólf í daglegu lífi til að leyfa andlegri orku að hlaðast á ný.
að framleiða dópamín og endorfín sem smita orku og eldmóði yfir í öll önnur svið lífsins. Hafðu það gott í sumar og kíktu til okkar á Stórhöfðann þegar þú ert klár til að taka upp æfingaþráðinn aftur.
2025
,,,+*)('&%**$#"!$ "'"'! ' ( (! ! ' + *% gerast sjálfkrafa. Þetta er eitt lykilatriðið úr bókinni ,,atomic habits” eftir James Clear. Ef þig vantar enn lesefni fyrir sumarfríið, er óhætt að mæla með þessari. 5. Hlúðu að líkamlegum grunni Hugur og líkami eru eitt. Það er ómögulegt að finna fyrir sterkum andlegum drifkrafti ef líkamlega rafhlöðan er tóm. Fáðu dagsbirtu í augun snemma á morgnana til að stilla dægursveifluna og stýra orkustigi dagsins. Reglubundin hreyfing og góð næring eru ekki bara fyrir útlit eða heilsu — þau eru áhrifaríkustu tækin til
Þálfunarstöðin Metabolic Reykjavík er staður fyrir venjulegt fólk. Þar mætast allir á jafnréttisgrundvelli og þar er tekið afar vel á móti fólki.
,,, # $ ('!+% "! +% "! !+*)('&%**$#( (!+*!+ %! !'($#%*( ,,, ! + ('!&+'% !( &+' %$ + "! + ! & !" !$ %#"! # $ ( ,,, !+'!" !+*)('&%**"! #!" ('! !" ('
'"+*%'$ " "',%$! ! '"(*
! ! ! '"+ +*%' $ " "',%$! ! !
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/18/2026 10:00 PM Page 18
18
Gamla myndin
Árbæjarblaðið
gul gata
Sigurvegarar árið 1999 Allar almennar bílaviðgerðir
Leikmenn Fylkis fagna eftir sigur í 1.deild karla árið 1999. Fylkisliðið vann deildina með fádæma yfirburðum, unnu 15 leiki af 18 og voru 17 stigum á undan næsta liði. KGG
Fylkisstúlkur á flugi Úrslitakeppni 2. deildar kvenna er nú hafin þar sem fjögur lið berjast um tvö laus sæti í Lengjudeild kvenna árið 2027. Fylkiskonur hafa verið á miklu flugi að undanförnu og eru taplausar í síðustu átta leikjum sínum, allt frá 6. júní. Frá síðustu útgáfu Árbæjarblaðsins hafa þær leikið fimm leiki, unnið þrjá og gert tvö jafntefli. Fylkir vann glæsilegan 6-0 sigur gegn ÍR á heimavelli þar sem Birna Kristín, Elísa Björk, Birta Margrét, Karen Dís, Tinna Harðardóttir og Kolfinna Baldursdóttir skoruðu mörkin. Því næst fylgdi góður 1-2 útisigur gegn nágrönnum okkar í Fjölni. Birta Margrét og Birna Kristín skoruðu mörk Fylkis. Næst tók við hörkuleikur gegn Aftureldingu þar sem liðin skildu jöfn, 1-1. Hildur Anna skoraði mark Fylkis. Stelpurnar komust síðan aftur á sigurbraut gegn KÞ og unnu þar stórsigur, 6-0. Mörkin skoruðu Sara Rún, Karen Dís, Harpa Karen, Birta Margrét og Hildur Anna. Fylkir endaði því í 4. sæti í hefðbundinni deildarkeppni með 26 stig, aðeins tveimur stigum frá toppsætinu þar sem Fjölnir hafnaði með 28 stig. Fylkir var þó með langbestu markatöluna af öllum liðunum í deildinni. Úrslitakeppnin hafin Nú tekur við úrslitakeppni 2. deildar A þar sem fjögur efstu liðin, Fjölnir, Einherji, Vestri og Fylkir, mætast í tvöfaldri umferð, heima og að heiman. Eftir sex leiki tryggja tvö efstu liðin sér sæti í Lengjudeild kvenna árið 2027 og liðið sem endar í efsta sæti verður jafnframt deildarmeistari 2. deildar
kvenna árið 2026. Fylkir hefur þegar leikið einn leik í úrslitakeppninni. Liðið gerði 2-2 jafntefli á útivelli gegn Fjölni, þar sem Eva Stefánsdóttir og Birna Kristín skoruðu mörk Fylkis. Næstu leikir eru eftirfarandi: Laugardagur 15. ágúst: Fylkir – Vestri kl. 14:00 á Tekk vellinum Laugardagur 22. ágúst: Einherji – Fylkir kl. 14:00 á Vopnafjarðarvelli Laugardagur 29. ágúst: Fylkir – Fjölnir kl. 14:00 á Tekk vellinum Sunnudagur 6. september: Vestri – Fylkir kl. 14:00 á Kerecisvellinum Laugardagur 12. september: Fylkir –
Einherji kl. 13:00 á Tekk vellinum Eva Rut snýr aftur eftir kross-bandsslit Í síðasta leik Fylkis gegn Fjölni í úrslitakeppninni kom Eva Rut inn á 81. mínútu og lék þar með sinn fyrsta leik fyrir Fylki eftir að hafa snúið aftur til félagsins eftir stutt stopp hjá Þór/KA á Akureyri. Endurkoma Evu Rutar er sérstaklega ánægjuleg í ljósi þess að hún er nýkomin til baka eftir alvarleg meiðsli. Hún varð fyrir krossbandsslitum í sínum fyrsta deildarleik með Þór/KA gegn Víkingi R. á síðasta tímabili, auk þess sem hún varð fyrir meiðslum á liðþófa.
Endurkoma Evu Rutar mun styrkja lið Fylkis verulega í næstu leikjum.
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/14/2026 3:09 PM Page 19
19
Fréttir
Árbæjarblaðið
Geymsla og gleymska - eftir sr. Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarsókn Það er eitthvað sérstakt við ágústmánuð. Hann stendur á mörkum tveggja árstíða, eins og brú á milli sumars og hausts. Sumarið er ekki alveg tilbúið að kveðja en haustið er farið að láta vita af sér með svalari morgnum, rökkvuðum kvöldum og þeirri tilfinningu að lífið sé að fara aftur í fastar skorður. Verslunarmannahelgin er hjá mörgum eins konar lokakafli sumarsins. Vikan fyrir og vikan í kjölfar verslunarmannahelgarinnar eru eins og einskis manns land, þar sem þögnin ríkir. Það er sem allir haldi niðri í sér andanum í þeirri von að hversdagurinn gleymi sér og nái ekki tökum á huga og sinni. Tjöldin eru þurrkuð, hjólhýsin lögð til hliðar, grillið fær að hvíla sig og ferðatöskurnar fara aftur upp í neðstu hillu geymslu og gleymsku. Hvort sem fólk hefur ferðast um landið, farið í útilegu eða notið þess einfaldlega að vera heima, þá fylgir fyrstu viku ágústmánaðar ákveðin tilfinning um að nú sé komið að nýjum kafla. Og svo tekur hversdagurinn við. Skólar opna dyr sínar, yngstu börnin mæta með nýjar skólatöskur og foreldrar velta því fyrir sér hvernig sumarið gat liðið svona hratt. Kennarar taka á móti nýjum nemendum, vinnustaðir lifna við á ný og dagatölin fyllast aftur af fundum, æfingum og öðrum verkefnum. Það er merkilegt hvað við bíðum oft spennt eftir sumarfríinu en finnum svo fljótlega aftur notalegan takt í hversdeginum. Kannski er það vegna þess að við þurfum bæði hvíld og verkefni. Lífið verður oft best þegar jafnvægi næst þar á milli. Ágúst hefur líka ákveðna kyrrð yfir sér. Náttúran er enn græn, berin fara að þroskast og fyrstu haustlitirnir láta á sér kræla. Kvöldin verða notalegri, kertaljósin fara að flökta í rökkrinu og
það er fátt betra en að koma inn úr heldur fagna því sem fram undan er. Nú þegar lífið fer aftur í sinn fersku loftinu og kúra í betri sófanum með heitan kaffibolla eða kakóbolla í reglubundna takt skulum við halda í það besta úr sumrinu – léttleikann, hönd. Kannski er það einmitt á þessum samveruna og gleðina – og taka hana árstíma sem við áttum okkur á því að gleðin býr sjaldnast í stórkostlegum ferðalögum eða dýrum upplifunum. Hún leynist frekar í litlu hlutunum, göngutúr með góðum vini/vinkonu í hlátri barnanna, ilminum af nýbökuðu brauði eða rólegri kvöldstund á pallinum þegar sólin sekkur hægt til viðar. Við Íslendingar höfum líka þann góða sið að taka veðrinu með húmor. Ef sólin skín segjum við að það hljóti að vera eitthvað grunsamlegt í gangi, fyrirboði eldgoss eða jarðskjálfta. Ef rignir minnum við hvert annað á að það sé gott fyrir gróðurinn. Kannski er það einmitt þessi léttleiki sem hjálpar okkur að njóta lífsins, sama hvernig sr. Þór Hauksson. viðrar. með okkur inn í haustið. Ágúst er jafnframt góður tími til að Undirritaður óskar öllum lesendum hefja nýjan kafla, ekki endilega með gleðilegs ágústmánaðar, góðrar skólastórum loforðum eða metnaðarfullum og vinnubyrjunar og þess að haustið áætlunum eins og vill vera um áramót, verði fullt af hlýjum stundum, góðum heldur með litlum ákvörðunum. Að samskiptum og bjartsýni. ganga oftar út, lesa góða bók, hitta vini oftar eða einfaldlega gefa sér meiri Gleymum ekki að nýta dagana vel. tíma með fjölskyldunni. Þeir verða fljótt að fallegum Sumarið skilur eftir sig minningar minningum. en haustið kemur með ný tækifæri. Við Þór Hauksson þurfum ekki að syrgja það sem er liðið
Opna húsið í Árbæjarkirkju alla miðvikudaga Opna húsið í Árbæjarkirkju alla miðvikudaga kl. 12-16. Þangað eru allir fullorðnir velkomnir og þar er ýmislegt á dagskrá. Byrjað er með kyrrðarstund í kirkjunni, síðan er léttur hádegisverður á vægu verði (kr. 1500). Að því loknu er hin sívinsæla stólaleikfeimi og svo er spjallað eða einhver gestur mætir í heimsókn. Endað er á gómsætu síðdegiskaffi. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir. Helgihald hvern sunnudag kl.11.00 Annan sunnudag hvers mánaðar er Fjölskylduguðsþjónusta kl.11.00
VISSIR ÞÚ?
AÐ KEILA ER LEIKIN AF 120.000.000 MANNS Í YFIR 90 LÖNDUM. KÍKTU Í KEILU, PÍLU, KAREOKE, PIZZU, DRYKK, BOLTA OG FJÖR. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00
ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 8/14/2026 3:08 PM Page 20