Skip to main content

Árbæjarblaðið 7. tbl. 2026

Page 1

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/29/2026 6:29 PM Page 1

Árbæjarblaðið 7. tbl. 24. árg. 2026 júlí

Fréttablað íbúa í Árbæjarhverfi

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir

Fylkir í bikarúrslitin? - sjá nánar á bls. 6

Gjafir fyrir veiðimenn og fyrirtæki Gröfum nöfn á boxin Persónuleg og falleg gjöf Íslenskt birki

Sjá nánar á Krafla.is og í síma 698-2844

,,Mahoný’’

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 7/1/2026 11:33 AM Page 2

2

Fréttir

Árbæjarblaðið

Meirihlutinn gengur Árbæjarblaðið hreint til verks í bílastæðamálum tÚtgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson - abl@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti og Norðlingaholti.

Einar Ásgeirsson Einar Ásgeirsson, ljósmyndari og Fylkismaður, lést þann 18. júní sl. Einar var einn dyggasti stuðningsmaður Fylkis frá upphafi og helgaði hann félaginu krafta sína áratugum saman. Það er hverju félagi hvalreki að eiga stuðningsmann eins og Einar. Hann var boðinn og búinn alla tíð að leggja félagi sínu lið og gera veg Fylkis sem mestan og bestan. Oft gaf á bátinn í starfi félagsins og þá var gott fyrir ungt félag í Árbænum að geta teflt fram öflugum liðsmanni sem stigið hafði ölduna áratugum saman og sigrast á mótbyr, erfiðleikum, og mótlæti. Á síðari árum sínum helgaði Einar krafta sína sérstakri nefnd innan Fylkis, sögunefnd, sem hafði það að markmiði og meginstefnu að varðveita sögu Fylkis og halda til haga verðmætum minningum. Með Einari í þessari nefnd voru nokkrir samferðamenn í Fylki sem lögðu einnig mikið til málanna og eiga heiður skilinn fyrir tryggð sína við félagið á efri árum. Einar Ásgeirsson var mikill áhugamaður um ljósmyndun og hann var góður ljósmyndari. Var næmur á gott myndefni og hafði gott auga fyrir réttum augnablikum. Árið 2003, fyrir 23 árum hófum við útgáfu Árbæjarblaðsins. Nokkru síðar vantaði okkur ljósmyndara. Hverju blaði er afar nauðsynlegt að hafa góðan ljósmyndara innanborðs. Okkur var bent á Einar Ásgeirsson hjá Fylki og hann tók okkur opnum örmum frá fyrsta degi. Við þekktum hann ekki þá en mjög fljótlega var þessu vörpulegi Fylkismaður, sem alltaf mætti á Herrakvöldin með hattinn fræga, orðinn einn af okkur sem vildum veg Árbæjarblaðsins sem mestan. Einar var okkur ómetanlegur liðsauki í baráttunni. Fyrir nokkrum árum gaf heilsan sig og myndavélin var lögð á hilluna. Kata okkar yndisleg tók við keflinu. Að leiðarlokum þökkum við af alhug samfylgdina og samvinnuna öll árin okkar saman. Við sendum fjölskyldu Einars Ásgeirssonar innilegar samúðarkveðjur. Stefán Kristjánsson

abl@skrautas.is

- eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Á síðasta fundi borgarstjórnar fyrir sumarleyfi samþykkti borgarstjórn tillögu nýja meirihlutans um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík. Með henni er nýr meirihluti að ganga hreint til verks og hefja nauðsynlegar úrbætur í málaflokki sem snertir daglegt líf fjölda borgarbúa, atvinnurekenda og gesta borgarinnar. Tillagan felur í sér skýr og raunhæf skref. Gjaldskyldutími bílastæða í miðborginni verður styttur í samráði við íbúa og hagaðila, rafrænir greiðslumátar verða einfaldaðir og horfið verður frá ósveigjanlegum reglum um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. Daglegt líf í eystri hverfum Fyrir íbúa í hverfum á borð við Árbæ, Grafarvog, Grafarholt og Úlfarsárdal snúast bílastæðamál ekki um hugmyndafræði. Þau snúast um daglegt líf fólks. Til að mynda að komast til og frá vinnu, skutla börnum á æfingar, sækja þjónustu og eiga kost á að fara í miðborgina þegar tilefni er til þess. Það er löngu orðið tímabært að horfast í augu við að sú stefna að fækka bílastæðum og torvelda aðgengi hentar ekki öllum borgarbúum. Aðstæður fólks eru ólíkar eftir hverfum. Margir íbúar í austurhluta borgarinnar þurfa einfaldlega að reiða sig á bílinn í sínu daglega lífi, hvort sem það er vegna vinnu, barna, tímafrekra ferða eða þess að almenningssamgöngur henta ekki alltaf ferðavenjum þeirra. Ekki pólitískar kreddur Borgin verður að taka mið af þessum veruleika. Það er ekki hægt að skipuleggja Reykjavík eftir einni forskrift og ætla að sama lausn henti alls staðar. Árbær, miðborgin, Grafarvogur, Grafarholt, Úlfarsárdalur, Breiðholt og önnur hverfi hafa ólíkar þarfir. Borgarskipulag verður að byggjast á því hvernig fólk lifir og ferðast í raun, ekki pólitískum kreddum um hvernig það eigi að lifa. Það er hlutverk okkar sem borgarfulltrúa að leysa vandamál, ekki að búa þau til með pólitískum kreddum eða verja þau með því að berja hausnum við steininn. Sveigjanleiki í uppbyggingu Þetta skiptir ekki síst máli fyrir uppbyggingu í hverfunum. Nýjar íbúðir

Þá felur tillagan sem samþykkt var einnig í sér að veittur verði 90 prósenta afsláttur af gatnagerðargjaldi vegna stæða í bílakjöllurum. Sú breyting getur skipt miklu fyrir uppbyggingu og aukið sveigjanleika þar sem þörfin er mest.

Björn Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. þurfa að taka mið af raunverulegum þörfum fólksins sem þar býr. Fjölskyldur eiga ekki að búa við það að bílastæði séu af skornum skammti vegna reglna sem gera ekki ráð fyrir daglegu lífi þeirra.

VISSIR ÞÚ?

Aðgengileg miðborg fyrir alla Jafnframt verður unnið að því að bæta aðgengi að miðborginni. Skoðað verður hvar hægt sé að koma bílastæðum aftur í notkun, lýsing og eftirlit í bílastæðahúsum verða bætt og svigrúm fyrir vörudreifingu og sendla verður jafnframt skoðað. Miðborgin á að vera aðgengileg öllum borgarbúum, líka þeim sem búa lengra frá henni. Við eigum að byggja borg þar sem ólíkir ferðamátar geta farið saman. Nýr meirihluti ætlar að hlusta betur á íbúa, taka mið af ólíkum aðstæðum í hverfum borgarinnar og ráðast í raunverulegar úrbætur. Það er það sem borgarbúar kölluðu eftir og það er sú stefna sem þessi meirihluti vinnur eftir og Reykjavík þarf á að halda. Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/25/2026 9:48 PM Page 3

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/29/2026 3:51 PM Page 4

4

Fréttir

Árbæjarblaðið

Trotec dagar í Múrbúðinni - 20 til 50% afsláttur Það er fátt sem gleður handlagna Íslendinga meira en góð verkfæri á góðu verði. Nú er komið að einni skemmtilegustu hefð ársins hjá Múrbúðinni: Trotec dagarnir eru mættir aftur – og þeir verða stærri, betri og gulir eins og sólin á góðum sumardegi. Öll rafmagnsverkfæri frá Trotec eru með 20–50% afslætti, og það er ekki lítið þegar um er að ræða eitt vinsælasta verkfæramerki landsins. Þýskt merki sem hefur sannað sig á Íslandi Það er engin tilviljun að Trotec sé mest selda merkið í

rafmagnsverkfærum hjá Múrbúðinni. Hvort sem verið er að bora í steypu, saga timbur, brjóta niður steypu nú eða pússa timbur, þá hefur Trotec reynst traustur félagi í verkið. Reynslan talar sínu máli Við spurðum Svavar Þórisson verslunarstjóra, sem hefur fylgst náið með Trotec frá því merkið kom fyrst til landsins, hvað skýri vinsældirnar. Hann þurfti ekki að hugsa sig lengi um: „Viðskiptavinir eru ótrúlega ánægðir með Trotec. Það sem fólk segir aftur og aftur er að verkfærin séu kraftmikil, endingargóð og svo

spillir verðið ekki fyrir. Þetta eru traustar græjur sem gera það sem þær eiga að gera,“ segir Svavar Þórisson. Þessi orð Svavars endurspegla það sem margir hafa upplifað: Trotec er merki sem stendur undir væntingum. Af hverju Trotec? • Frábært verð samanborið við gæði, þú færð mikið fyrir peninginn, og enn meira núna því það er 20 – 50% afsláttur! • Trotec býður breiða línu af rafmagnsverkfærum og hægt er að nota sömu rafhlöðuna í flest öll rafhlöðutæki frá Trotec. • Trotec hefur sannað sig við íslenskar aðstæður • Vel hönnuð tæki sem eru fullkomin fyrir öll verk á heimilinu. Þetta er ástæðan fyrir því að Trotec hefur orðið fastur liður í verkfærakössum landsmanna. Trotec dagar – rétti tíminn til að uppfæra verkfærakassann Ef það er eitthvað sem Íslendingar kunna, þá er það að nýta góð tilboð. Trotec dagarnir eru fullkomið tækifæri til að: • Uppfæra gömul verkfæri sem eru farin að hiksta. • Bæta við sérhæfðum tækjum sem þú hefur lengi ætlað að kaupa. • Fá gæðavörur á verði sem sést ekki oft. • Gera sig kláran fyrir sumarið og framtíðina.

Trotec dagar eru núna í Múrbúðinni – þýsk gæði á íslensku verði.

„Viðskiptavinir okkar eru ótrúlega ánægðir með Trotec. Það sem fólk segir aftur og aftur er að verkfærin séu kraftmikil, endingargóð og svo spillir verðið ekki fyrir,” segir Svavar Þórisson verslunarstjóri Múrbúðarinnar. Múrbúðin – þar sem góð verkfæri Komdu og finndu þitt Trotec eiga heima verkfæri Múrbúðin hefur lengi verið Trotec dagarnir eru rétti tíminn heimavöllur þeirra sem vilja gæði, til að gera góð kaup. Þú færð þýsk þjónustu og faglega ráðgjöf. Við gæði, og áreiðanleika og það á vitum að góð verkfæri skipta máli. verði sem lætur mann brosa út að Þau spara tíma og þau gera eyrum. verkefnin skemmtilegri. Trotec dagar í Múrbúðinni – þýsk gæði á íslensku verði.

Íslensk Hönnun Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur Gröfum nöfn veiðimanna á boxin Nánari upplýsingar á www.Krafla.is (698-2844)

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/25/2026 9:48 PM Page 5

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/29/2026 3:50 PM Page 6

6

Fréttir

Árbæjarblaðið

Nýr meirihluti lætur verkin tala

- eftir Guðnýju Maríu Jóhannsdóttur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og formann umhverfis- og skipulagsráðs og Sigrúnu Ástu Einarsdóttur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og formann leikskóla- og daggæsluráðs Fyrstu vikur nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í Reykjavík hafa einkennst af hraðri innleiðingu þeirra verkefna sem kynnt voru samhliða meirihlutasáttmálanum. Með sérstökum verkefnalista hefur meirihlutinn sett sér skýr tímamörk og markmið, með það að leiðarljósi að auka gagnsæi og gera borgarbúum auðveldara að fylgjast með framvindu verkefna. Á 100 daga verkefnalistanum hefur þegar verið lokið við að endurvekja öldungaráð

Reykjavíkurborgar, að íslenski fáninn verði dreginn daglega að húni við Ráðhús Reykjavíkur, samþykkja að símafrí í grunnskólum verði innleitt strax við upphaf nýs skólaárs í haust og samþykkja að lengja opnunartíma sundlauga til kl. 22.00 um helgar frá og með 1. september. Af þeim verkefnum sem eru hafin má nefna samningaviðræður við einkaaðila um uppbyggingu hagkvæms húsnæðis fyrir leikskóla og dagheimili, en þar er unnið að umgjörð um nýtt daggæslustig fyrir 12 til 30 mánaða börn og

endurskoðun deiliskipulags Suðurlandsbrautar eftir að fyrirliggjandi tillögu var hafnað. Einnig er vinna farin í gang við heildstæða endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík og viðhaldsátak á gangstéttum í öllum hverfum borgarinnar. Í kjölfar alvarlegs slyss í Grafarvogi var strax ráðist í lagfæringar á gangstétt við Langarima og verður áfram unnið markvisst að því að bæta aðgengi og öryggi gangandi vegfarenda með auknu fjármagni í næstu fjárfestingaáætlun.

Sigrún Ásta Einarsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Guðný María Jóhannsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Í síðustu viku voru kynntar breytingar á stjórnskipulagi skrifstofu borgarstjóra og borgar-ritara með það að markmiði að einfalda stjórnsýsluna, auka skilvirkni og gagnsæi, draga úr yfirbyggingu og tryggja betri nýtingu fjármuna borgarinnar. Með þessum fyrstu skrefum sýnir nýr meirihluti að áhersla er lögð á að standa við þau verkefni sem kynnt voru við myndun meirihlutans og skila áþreifanlegum árangri strax í

upphafi kjörtímabilsins. Það eru margar erfiðar ákvarðanir sem þarf að taka við stjórn borgarinnar. Nýr meirihluti ber ábyrgð á því að fara vel með skattfé borgarbúa og tryggja góða grunnþjónustu. Aðlaga þarf rekstur borgarinnar að breyttu starfsumhverfi, einfalda skipulagið og stytta boðleiðir. Þetta verkefni krefst kjarks og við erum tilbúin að takast á við það.

Kemst Fylkir í úrslitin í bikarkeppninni? Frá síðustu útgáfu hefur heldur betur verið líf og fjör hjá Knattspyrnudeild Fylkis. Mikil stemning hefur verið á Fylkissvæðinu undanfarið eftir að skólaslitum lauk, þar sem ungir iðkendur félagsins hafa sótt sumarnámskeið af miklum krafti og leikmenn félagsins lagt hart að sér á æfingasvæðinu. Það er virkilega gaman að fylgjast með þeim framförum sem yngri iðkendur taka frá viku til viku og ljóst að framtíð félagsins er björt. Þótt flestar deildir félagsins séu nú komnar í sumarfrí frá æfingum og

keppni heldur knattspyrnan áfram af fullum krafti enda er sumarið annasamasti tími ársins hjá knattspyrnufólki. Mikið hefur verið um að vera hjá meistaraflokkum karla og kvenna að undanförnu. Frá síðustu útgáfu hafa liðin tvö spilað alls tíu leiki á aðeins þremur vikum og því hefur verið sannkölluð veisla fyrir stuðningsfólk Fylkis. Nú þegar júlí er genginn í garð er fyrri hluti tímabilsins að baki hjá meistaraflokki karla. Liðið hefur lokið

Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en nú mun Víðir taka við keflinu og klára verkið. Kjartani Gunnari eru færðar bestu þakkir fyrir sitt framlag. Víðir mun hefja störf 1.júlí og er áætlað að bókin komi út fyrir 60 ára afmæli félagsins sem verður 28.maí 2027. Meðfylgjandi mynd er af Víði Sigurðssyni og Birni Gíslasyni við undirskrift samningsins. Þeir félagsmenn sem luma á skemmtilegu efni eða myndum sem gætu átt erindi í bókina eru beðnir um að hafa sambandi við skrifstofu Fylkis eða senda tölvupóst á fylkir@fylkir.is.

Víðir Sigurðsson og Björn Gíslason, formaður Fylkis.

Stuðningsmenn Fylkis hafa haft ástæður til að fagna í sumar og spennandi seinni hluti sumarsins er framundan. ellefu leikjum í Lengjudeildinni og þar með fyrri umferð mótsins. Mánaðamótin maí og júní reyndust strákunum erfið. Eftir sex sigurleiki í röð kom fyrsta tapið þegar liðið heimsótti Aftureldingu í Mosfellsbæ og tapaði þar 5-1. Í kjölfarið kom Þróttur í heimsókn á Tekk völlinn og þar beið Fylkismanna annað tap, að þessu sinni 3-1. Þessi tvö lið voru einmitt fyrir tímabilið talin meðal sterkustu liða deildarinnar ásamt Fylki. Í kjölfarið tók við landsleikjahlé sem kom sér vel fyrir leikmannahópinn eftir þétt leikjaprógramm bæði í deild og bikarkeppni. Eftir hléið heimsótti liðið Grindavík þar sem Fylkismenn unnu mikilvægan 1-0 sigur á Stakkavíkurvelli. Sigurmarkið skoraði Kári Sigfússon á 81. mínútu og tryggði þar með þrjú dýrmæt stig til Árbæjar. Skömmu síðar tók Fylkir á móti Gróttu í átta liða úrslitum Mjólkurbikars KSÍ. Um var að ræða viðureign tveggja Lengjudeildarliða þar sem sæti í undanúrslitum var undir. Leikurinn reyndist Fylkismönnum afar erfiður og Grótta komst yfir rétt fyrir hálfleik. Þrátt fyrir mikla sókn í síðari hálfleik gekk illa að skapa sér afgerandi færi og allt stefndi í sigur gestanna. Á 89. mínútu varð hins vegar óvænt vendipunktur þegar Grótta skoraði sjálfsmark og jafnaði metin. Í framlengingunni kom ungi varamaðurinn Aron Snær Guðbjörnsson Fylki yfir með skalla, en Grótta jafnaði skömmu síðar. Þegar líða tók á framlenginguna steig fyrirliðinn Orri Sveinn Segatta fram og kom Fylki yfir á ný. Undir lok leiksins innsiglaði Kári Sigfússon síðan sigurinn með fjórða marki Fylkis eftir að hafa komist einn í gegn. Lokatölur urðu 4-2 og þar með tryggði Fylkir sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í fyrsta skipti síðan árið

2008. Stuðningurinn á Tekk vellinum var frábær og áhorfendur áttu stóran þátt í þessari eftirminnilegu kvöldstund. Nokkrum dögum síðar mættust sömu lið aftur í deildarkeppninni á Seltjarnarnesi. Þar hafði Fylkir betur 5-2 eftir að hafa lent 2-0 undir. Markaskorarar Fylkis voru Guðmundur Tyrfingsson með tvö mörk auk þeirra Arons Snæs Guðbjörnssonar, Mána Austmanns og Kára Sigfússonar. Dregið hefur verið í undanúrslit Mjólkurbikarsins og þar kom í ljós að Fylkir fær heimaleik gegn Aftureldingu.

Þar með er ljóst að lið úr Lengjudeildinni mun leika til úrslita í fyrsta sinn í átján ár. Fylkir lék síðast til úrslita í bikarkeppni KSÍ árið 2002 þegar liðið lagði Fram 3-1 að velli og varð bikarmeistari annað árið í röð. Vonir standa því til þess að félagið geti nú loksins endurtekið leikinn og tryggt sér sæti í úrslitaleiknum á ný. Undanúrslitaleikurinn fer fram á Tekk vellinum þriðjudaginn 21. júlí klukkan 19:30 og hvetur knattspyrnudeild Fylkis alla Árbæinga til að fjölmenna á völlinn og styðja liðið í þessum sögulega leik.

Kári Sigfússon hefur leikið frábærlega með Fylki í sumar.

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/25/2026 9:50 PM Page 7

sumarið! Verð áðurr: 39.998

999 % 31.9 20ttu r afslá

Lavor háþrrýstidæla Space 180bör 2500W

tapakki! a Risa aukahlu

3.565

Verð áður: 2.499

Allir blómapotttar

% 1.875 25ttu r

30% afsláttur

Pallahreinsir Hagmanss Trralltvatt – 4 lítrar T

afslá

Garðverkfæri sett með hnjápúða 4 stk.

Ve V erð áður: 2.998

2.549 15% ttur afslá

Verð áður: 28.2

% 22.61 20ttu r

Hagmans Premium V & viðarvörn 3L

afslá

Stigi - 3x7 þrep

Verð áður: 15.995

% 11.197 30ttu ur f lá

ð

Verð áðu ur: 3.995

% 3.1 20ttu 196 r

Verð áður: 5.897

afslá

% 4.423 25ttu r afslá

Hitabyssa a-T Trrotec HyStream m 200

Oden Eðalviðarvörn & pallaolía 2,7L

Verð áður: 37.465 Ve

% 27.72 26ttu 25 r afslá

Verð áð Ve ður: 11.995

596 9.5

Verkfærasett í tösku 187 styk kki

Hjólböru ur 90L með óspreng gjanlegt dekk

Verð áður: 67.999

40.800 % 4 40ttu r afslá

Verð áður: 25.429

% 19.835 22ttu r afslá

Trrappa Pro 4 þrep (Blá) T

Verð áður: 24.995

Verð áður: 17.899

50% 8.950 afsláttur

Kletthálsi 7 110 Reykjavík Virkir dagar opið 08-18 Laugardagar opið 10-16 Sími: 412 2500

LuT Lu To T ool Gráðukúttsög 305mm blað 1600W 3

Selhella 6 221 Hafnarfjörðu ur Virkir dagar opið 08-18 0 Laugardagar opið ð 10-16 Sími: 412 2500

Tec Hjólsög PCSS oT Tro Tr 190mm 10-1400W

Fuglavík 18 230 Reykjanesbær Virkir dagar opið 08-18 Laugardagar opið 10-14 Sími: 421 1090

997 % 14.9 40ttu r afslá

IR 2400 Palla-/Svalahitari 2,4kW

Gott verð rð ffy yrir allla, alltaf!

Birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og mynd dvillur.

Allt fyrir

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/29/2026 3:50 PM Page 8

8

Fréttir

Árbæjarblaðið

Fylkiskonur hafa verið á miklu flugi í sumar Meistaraflokkur kvenna hefur einnig verið á miklu flugi í sumar. Eftir tvo sigra í fyrstu leikjum tímabilsins tók liðið á móti Vestra á Tekk vellinum. Þar lentu Fylkiskonur undir en Marija Radojicic jafnaði metin á 90. mínútu og tryggði liðinu mikilvægt stig í baráttunni um efstu sæti deildarinnar. Næsti leikur var gegn Einherja á Vopnafirði þar sem tvö efstu lið deildarinnar mættust. Heimakonur byrjuðu af miklum krafti og voru komnar í 2-0 eftir aðeins átta mínútur. Fylkiskonur náðu ekki að svara fyrir sig og lokatölur urðu 4-0. Við tók hins vegar sannkölluð markaveisla hjá liðinu. Fyrst mætti Álftanes á Tekk völlinn þar sem Fylkir vann stórsigur, 12-0. Birta

Margrét Gestsdóttir skoraði fimm mörk, Marija Radojicic þrjú mörk og fleiri leikmenn komust á blað í glæsilegum sigri. Í kjölfarið heimsóttu Fylkiskonur Smára í Kópavogi og unnu þar 18-0 sigur. Þar skiptust mörkin á marga leikmenn og sýndi liðið mikinn styrk sóknarlega. Þriðji stórsigurinn í röð kom svo þegar KFR heimsótti Tekk völlinn. Þar unnu Fylkiskonur 14-0 og héldu áfram að bæta markatöluna með glæsilegum hætti. Þessir þrír leikir skiluðu liðinu samtals 44 mörkum án þess að fá eitt mark á sig. Eftir sjö leiki hefur liðið skorað 56 mörk og aðeins fengið á sig sex, sem gefur markatöluna +50. Fylkir situr nú í þriðja sæti deildarinnar, aðeins tveimur stigum frá toppsætinu.

Birta Margrét Gestsdóttir skoraði fimm mörk fyrir Fylki gegn Álftanesi. Vert er að minna á að keppnisfyrirkomulag 2. deildar kvenna er frá-brugðið hefðbundinni deildarkeppni. Öll tólf lið deildarinnar mætast einu sinni áður en deildinni er skipt upp í þrjá hluta eftir

ellefu leiki. Fjögur efstu liðin fara í úrslitakeppni um deildarsigurinn og tvö efstu liðin að henni lokinni tryggja sér sæti í Lengjudeild kvenna á næsta tímabili.

Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:

Það er því óhætt að segja að sumarið hafi verið afar viðburðaríkt hjá knattspyrnudeild Fylkis og margt spennandi fram undan hjá bæði karla- og kvennaliði félagsins.

Eru hundarnir í alvörunni litblindir? Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur

Uppl. í síma 698-2844 og á Krafla.is

Hundar eru ekki beint litblindir, hinsvegar sjá þeir heiminn öðruvísi en maðurinn. Hundar eru með takmarkað litaskyn en mannskepnan, við höfum þrjár megin gerðir af litakeilum í augunum, hundar hafa annars vegar bara tvær megin keilur. Þetta þýðir að fyrir hundi þá er heimurinn að mestu leyti blár, gulur, grár og svartur! Afhverju? Sjón hunda mótast af þróunarsögu þeirra sem rándýr, þeir eru með fleiri stafi og færri keilur. Þróunin fórnaði breiðu litasviði fyrir einstaklega öflugum skynfærum. Þetta gerir þeim kleift að sjá töluvert betur í myrkri og að greina örsmáar hreyfingar úr mikilli fjarlægð. Keilurnar tvær eru næmar fyrir bláum og gulum ljósbylgjum. Þar sem þá vantar rauðar og grænar keilur, þá virðist litir eins og rauður, appelsínugulur og grænn vera

dofnir eða renna saman í tóna af brúnu og gráu. Hvað get ég gert til að tryggja að hundurinn minn sjái leikföngin sín betur? Það sem þú getur gert er að kaupa leikföng sem eru gul eða blá, sérstaklega ef mikið er leikið úti í grasi. Þegar rauður eða appelsínugulur bolti lendir á grænu grasi þá er erfiðara fyrir hundinn að finna leikfangið. Það er samt ekki alslæmt! Hundar eru gáfaðri en við gefum okkur, og þegar þeir finna ekki leikfangið með augunum þá reynir það á lyktarskynið þeirra, sem er um 10.000x til 100.000x betra en hjá okkur! (fer eftir tegundum). Við hjá Dýrabæ erum meira en tilbúin að aðstoða þig að finna bestu leikföngin fyrir dýrið þitt, enda eiga dýrin alltaf það besta skilið!

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/25/2026 9:50 PM Page 9

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/25/2026 9:57 PM Page 10

10

Árbæjarblaðið

Fréttir

Ferskleiki, litir og næring á sumardiskinn - frábær uppskrift sem vert er að prófa Á sumrin sækjum við oft í einfaldar lausnir sem eru bæði bragðgóðar og næringarríkar. Þessi granateplasalsa er ein af þeim uppskriftum sem ég gríp reglulega til þegar mig langar að bæta ferskleika, lit og lífi við máltíðina. Granatepli er ríkt af andoxunarefnum og gefur salsanu fallegan lit og safaríkt bragð. Eplið bætir við stökkri áferð, sítrónan gefur ferska sýru og kóríander ásamt chili skapa spennandi bragðsamspil. Útkoman er létt og ljúffeng salsa sem passar með grilluðum fiski, kjúklingi, kjöti eða sem fersk viðbót við salöt og aðra sumarrétti. Stundum þarf ekki flóknar uppskriftir til að gera matinn aðeins meira spennandi. Nokkur fersk hráefni geta breytt einfaldri máltíð í litríka og næringarríka upplifun.

Granateplasalsa • Fræ úr 1 granatepli • 1 epli, skorið í litla bita • Handfylli af fersku kóríander, saxað • Smá chili eftir smekk • 2–3 msk marineraður rauðlaukur • Góð sletta af ólífuolíu • Safi úr ½–1 sítrónu • Salt og pipar eftir smekk Blandaðu öllu saman og leyfðu bragðinu að njóta sín í nokkrar mínútur áður en borið er fram. Njóttu með uppáhalds sumarmatnum þínum og leyfðu litunum og ferskleikanum að fá að njóta sín á disknum. Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instragram.com/janast Granateplasalsa bætir við lit, ferskleika og lífi við máltíðina.

Kristjana Steingrímsdóttir (Jana).

Spönginni Grafarvogi

Allt að 50%

Grandi

Glæsibær

Kringlan

Spöng

Keflavíkurflugvöllur

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/25/2026 9:57 PM Page 11

Ö l garðverk Öl kfæri kf

Sláttu uorf, Sláttuvélar og slá átturóbotar

Frábært úrval

! f a t l l a i erð

ærum af garðverkfæ

v u ð ó g á i ð æ G

Lavor háþrý ýstidælur

Colorex r málning og v viðarvörn Úrrva val af flísum

Vín ínyl- og ha arðparket

G Gott verð fyrir alla a, alltaf!

Sérfræðinga ar í múrefnum

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/25/2026 10:49 PM Page 12

12

Matreiðsla

Árbæjarblaðið

Nauta Ribeye steikin frá Kjötkompaníinu er vel fitusprengd og stórkostleg á grillið.

Spönginni

Grillhorn Árbæjarblaðsins í samstarfi með Kjötkompaníinu:

Nauta Ribeye Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .

V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N

Nauta ribeye er steik sem klikkar ekki og er ein sú vinsælasta hjá okkur. Við val á steik er mjög mikilvægt að velja vel fitusprengdan vöðva og vel hanginn, ekki undir 25 dögum. Þessi vöðvi er mjög bragðmikill og góður, vöðvinn einkennist af fitu-auganu sem er í miðjum vöðvanum og aðskilur framfile og cap vöðvann. Fituaugað getur verið misstórt, það fer eftir því hvar skorið hefur verið á ribeye vöðvann. ELDUNARLEIÐBEININGAR Hitið grillið mjög vel og lokið steikinni á miklum hita í ca 2 mínútur á hvorri hlið, lækkið svo í lægsta hita og klárið eldun í 52 gráður í kjarna, í ca 3-4 mínútur á hvorri hlið.

er okkar slagorð ,,Í fitunni felast gæðin.” Liturinn á kjöti sem er tilbúið til neyslu er yfirleitt rauð/matt/brugnum rautt. Forðastu steik sem er fitulaus og skærrauð á litinn, annars ertu að fara að slást við steikina á disknum eftir eldun. Ef þú ert með sérþarfir vertu þá ekki feimin/n við að bera fram þínar óskir, hlutverk kjötkaupmannsins er að koma til móts við allar séróskir. Okkar ráð er: Kauptu gott kjöt og eldaðu það á einfaldan máta.

Eldunartips Númer eitt, tvö og þrjú - veljið gott kjöt á grillið! Gæðin svíkja þig ekki. Passið að þrífa grillið vel eftir hverja notkun. Notið alltaf kjarnhitamæli til að hitta á réttu steikninguna, ef þið eigið hann ekki þá er best að drífa sig að kaupa einn slíkan. Ef þú ert með nautasteik, gefðu þér góðan tíma í eldamennskuna, það er yfirleitt best að elda steikina á lágum hita og fá jafna steikningu í gegnum allan vöðvann. Okkar ráð er að loka steikinni á

PORTOBELLO FYLLTUR MEÐ GORGONZOLA Takið stilkinn af sveppunum og fyllið með gorgonzola osti, hvítlauksolíu og fersku timían. Grillið portobello sveppinn í ca 1214 mínútur á meðal hita eða þar til osturinn er farinn að krauma í sveppnum. Nokkur góð ráð við val á kjöti: Það er góð regla að spyrja kjötkaupmanninn hvað steikin sem þú ert að kaupa er búin að hanga/meyrna í langan tíma. Ef kaupmaðurinn getur ekki svarað því þá ertu ekki á réttum stað. Svarið sem þú vilt heyra er að vöðvinn sé búinn að hanga að lágmarki í 25 daga.

Er stí昀að? FJARLÆGJUM STÍFLUR

Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar

Þekking og áratuga reynsla

VALUR H ELGASON ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is

Það sem skilar einnig góðu bragði og mikilli mýkt í kjötið er fitan, því

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/25/2026 10:09 PM Page 13

13

Líkamsrækt

Árbæjarblaðið

Orkan í jafnvægi, takk! Sumarferðalög á Íslandi bjóða upp á langar keyrslur, óvænt ævintýri og dásamlegar stundir á flakki um hreina náttúruna. En við þekkjum þetta flest: Eftir nokkra tíma í bílnum fer maginn að láta á sér kræla og skyndilausnin á næstu bensínstöð virðist freistandi. Þótt það sé algjörlega hluti af sumrinu að njóta og leyfa sér að slaka á, þá er ekki víst að borgari og franskar í hverju einasta stoppi sé það sem við ættum endilega að láta eftir okkur. Þegar við eyðum löngum dögum á ferðinni er auðvelt að gleyma næringunni, sem endar oft í orkufalli, stanslausri nart-þörf og þreytu. Lykillinn að því að halda orkunni stöðugri – og mæta fersk í næsta stopp eða fjallgöngu – er að huga vel að tveimur hlutum: próteini og trefjum. Öflugasta tvennan í bílinn: Prótein og trefjar Ef við lifum á kexi, snakki eða einföldum kolvetnum á ferðalaginu fáum við snögga orku sem hrynur jafnharðan niður aftur. Það leiðir af sér meira nart og jafnvel pirring. Með því að tengja saman prótein og trefjar býrðu til fullkomið eldsneyti sem endist. ● Af hverju prótein? Prótein er fyllsta næringarefnið okkar. Það heldur blóðsykrinum stöðugum og tryggir að vöðvarnir fái það byggingarefni sem þeir þurfa til að viðhalda styrknum úr Metabolicsalnum. ● Af hverju trefjar? Trefjar hægja á meltingunni sem þýðir að orkan úr matnum síast jafnt og þétt út í kerfið í stað þess að valda orkutoppum og dýfum. Auk þess eru refjar algjört lykilatriði til að halda meltingunni gangandi og koma í veg fyrir þráláta sumar þembu. Snjallt nestisbox sem geymir bæði Það þarf ekki að vera flókið að borða vel á ferðalögum. Með því að skipuleggja nestisboxið aðeins áður en lagt er af stað spararðu bæði peninga og kemur í veg fyrir skyndiákvarðanir. Hér eru nokkrar frábærar hugmyndir sem sameina prótein og trefjar: ● Grænmeti og dýfa: Skerið niður gulrætur, sellerí, papriku eða gúrkur (trefjar) og dýfið í próteinríkt skyr- eða kotasælubaserað jógúrt-dip (prótein). ● Ávextir og hnetur: Epli eða perur (trefjar) passa fullkomlega með lúku af möndlum eða hnetum (prótein og hollar fitur). ● Heilhveiti- eða hrökkbrauð: Toppað með vel af skinku, osti eða eggi. Hér færðu trefjarnar úr grófa korninu og próteinið ofan á. ● Harðfiskur:

Þjóðlegt, próteinríkt og geymist nánast endalaust í hanskahólfinu. ● Hreint skyr eða próteindrykkir: Fullkomið og svalt til að grípa með í kæliboxið eða kaupa í næstu búð hvar sem er á landinu. Jafnvægi en ekki öfgar

Sjáumst hress í Metabolic á milli ferðalaga. Kíktu við hjá okkur á Stórhöfðanum á milli útileganna og ferðalaganna. Við hlökkum til að taka á móti þér! Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík

2025

Láttu okkur sjá um húsfélagið! Við erum með 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög ffa asteigna. Þjónustuverið okkar svarar fyrirspurnum hratt og örugglega; í síma 585-4800 eða á netspjallinu. Einnig er hægt að senda póst á thjonusta@eignaumsjon.iss.

Heyrðu í okkur og við gerum þér tilboð!

Suðurlandsbraut 30 Reykjavík | Sími 585 4800

eignaumsjon.is umsjon is Í Metabolica mætir fólk á öllum aldri og nær góðum árangri.

Þetta snýst ekki um að mega aldrei fá sér neitt djúsí á ferðalaginu – sumarið á að vera skemmtilegt og matur á að veita gleði. Galdurinn liggur í jafnvæginu. Ef þú tryggir að grunnurinn (morgunmaturinn og millimálin í bílnum) sé næringarríkur, þá er ekkert mál að njóta góðs kvöldverðar eða ísrúnts á áfangastað án þess að það hafi áhrif á líðan. Nærðu líkamann eins og verkfærið sem á að bera þig á vit sumarævintýranna. Gefðu honum gæða eldsneyti svo meltingin og orkan verði í toppstandi í sumar!

Þálfunarstöðin Metabolic Reykjavík er staður fyrir venjulegt fólk. Þar mætast allir á jafnréttisgrundvelli og þar er tekið afar vel á móti fólki.

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/25/2026 10:41 PM Page 14

14

Gamla myndin

Árbæjarblaðið

gul gata

Fyrsti meistaraflokkur Fylkis Allar almennar bílaviðgerðir

Þessi mynd sýnir leikmenn sem skipuðu fyrsta meistaraflokk Fylkis í knattspyrnu. Þeir eru talið í aftari röð frá vinstri: Guðmundur Bjarnason, Ásgeir Ólafsson, Einar S. Ágústsson, Guðmundur Sigurðsson, Pétur Mágur, Magnús Axelsson, Jakob Halldórsson og Óskar Sigurðsson þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Baldur Rafnsson, Kjartan Sigurðsson, Ásbjörn Skúlason, Júlíus Óskarsson og Jón Sigurðsson. Á myndina vantar Sigurð Haraldsson. Myndin var tekin á Varmárvelli árið 1972. KKG

Þakklæti til velunnara Lyftusjóðs Árbæjarkirkju Árbæjarkirkja vill færa Soroptimistaklúbbi Árbæjar, Rotaryklúbbi Árbæjar, Kiwanisklúbbnum Jörfa og Kvenfélagi Árbæjarsóknar innilegar þakkir fyrir rausnarlegan stuðning við Lyftusjóð Árbæjarkirkju. Jafnframt viljum við þakka þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem hafa stutt verkefnið með fjárframlögum, þjónustu eða öðrum hætti, sem og einstaklingum sem hafa lagt sjóðnum lið með fjárframlögum og öðrum stuðningi. Sérstakar þakkir færum við einnig þeim tónlistarmönnum sem hafa gefið vinnu sína til styrktarverkefna á vegum sjóðsins og lagt þannig mikilvægt af mörkum til að gera framtíðarsýnina að veruleika. Samstaða ykkar og velvilji hafa skipt sköpum fyrir framgang verkefnisins og sýna þann sterka samfélagsanda sem býr í Árbæjarhverfi. Markmið Lyftusjóðsins hefur frá upphafi verið að bæta aðgengi að Árbæjarkirkju svo allir geti notið kirkjunnar og tekið þátt í starfi hennar án hindrana. Nú hefur það gleðilega skref verið stigið að verkefnið er komið á framkvæmdarstig. Sá áfangi hefði ekki náðst án stuðnings félagasamtaka,

fyrirtækja, tónlistarmanna og einstaklinga sem hafa lagt málefninu lið af rausn og heilum hug. Fyrir hönd safnaðarins og allra þeirra sem munu njóta góðs af bættri aðstöðu í framtíðinni færum við öllum velunnurum sjóðsins okkar bestu

þakkir. Framlag ykkar er ekki aðeins fjárhagslegur stuðningur heldur einnig mikilvægt framlag til aukins aðgengis, þátttöku og samfélagslegrar samkenndar. Fylgir hér Qr kóði. Með kærri þökk og virðingu, Sóknarnefnd Árbæjarsafnaðar

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/25/2026 10:42 PM Page 15

15

Fréttir

Árbæjarblaðið

Heyrum í stað þess að hlusta - eftir sr. Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarsókn Núna á þessu augnabliki, einhvers staðar í nágrenni við þig eða úti í hinum stóra heimi, stendur hann/einhver einn úti í garði á ásólríkum degi og horfir á yfir sig sprottið grasið. Sláttuvélin er biluð og eina lausnin virðist vera að fá lánaða sláttuvél hjá nágrannanum. „Kannski ætti ég að banka hjá honum,“ hugsaði hann. En áður en hann lagði af stað tók hugurinn að spinna sögur. „Hann er líklega ekkert sérlega hrifinn af mér. Ég man að hann heilsaði mér frekar stuttlega um daginn. Kannski fannst honum ég dónalegur þegar ég klippti limgerðið of nálægt lóðarmörkunum. Og ef ég bið um sláttuvélina mun hann örugglega halda að ég sé alltaf að notfæra mér aðra.“ Eftir því sem hann kom nær húsi nágrannans varð sagan í höfðinu stærri sem hann heyrði. „Hann mun örugglega neita. Kannski mun hann jafnvel segja að ég eigi bara að kaupa mér mína eigin sláttuvél. Nú var okkar maður orðinn pirraður. Hann fann hvernig gremjan óx með hverju skrefi. „Hver heldur hann eiginlega að hann sé? Ég myndi sjálfur lána honum hvað sem er. En hann? Nei, hann myndi aldrei hjálpa.“ Hann stóð fyrir framan dyr nágrannans og bankaði þéttingsfast á dyrnar. Andartaki seinna opnuðust dyrnar og í dyragættinni stóð nágranninn brosandi út að eyrum. Áður en hann náði að segja orð og nágranninn hlustaði hrópaði „okkar maður.“ „Veistu hvað? Þú mátt eiga þessa helvítis sláttuvél sjálfur!“ Með því sama gekk hann burt. Nágranninn stóð eftir í dyrunum ráðvilltur. Svipur hans sagði allt sem segja þurfti. „Hvað var þetta?“ Þessi tilbúna sena sem auðvitað

gæti alveg verið að gerast núna og á vissan hátt hefur verið að gerast og ef ekki í dag þá á morgun, minnir okkur á hversu auðvelt það er að byggja heila veröld á forsendum í eigin huga. Við heyrum í stað þess að hlusta. Hugurinn megnar að byggja heilu bæina og samfélögin og allt innvolsið án þess að finna til þreytu.

inni og hvað er úti. Daglega tökum við við upplýsingum, vinnum úr þeim, metum gildi þeirra og nýtum þær í starfi og samskiptum. Nútímamanneskjan upplifir ekki skort á upp-

Öll eða flest okkar getum rifjað upp að einhverju sinni höfum við fyrir fram ætlað einhverjum eitthvað eins og að finna fyrir höfnun einhvers og reiðumst jafnvel fólki fyrir orð eða gjörðir sem það hefur aldrei sagt eða gert. Hugur okkar ætlar bara að svo væri. Yfirleitt eru stærstu hindranirnar ekki náungi okkar. Miklu heldur í samtalinu sem við eigum við okkur sjálf. Við ætlum einhverjum eitthvað sem við höfum ekki sjálf kannað til hlítar hvað er. Að eiga samtal við sr. Þór Hauksson. okkur sjálf, að ekki sé talað við aðrar manneskjur, er lýsingum heldur ofgnótt þeirra. forsenda þess að komast að Staðreyndin er að aðeins örlítið brot af ásættanlegri niðurstöðu um hvaðeina því er raunverulega unnið eða munað sem á huga okkar kann að leita. Ekki eða nýtt. Þegar við ætlum einhverju ætla eitthvað sem kann að vera, sumt eitthvað án þess að hafa forsendur til skiptir ekki máli á meðan annað kann að vega og meta þá er betra að hlusta í að skipta sköpun um velsæld, stað þess að heyra. hamingju og sátt við okkur sjálf. Við erum öll meira og minna „sek” Við lifum á tímum upplýsingaflæðis um að ætla einhverjum eitthvað sem um hvernig við eigum að klæða okkur, við heyrum og dæmum út frá því sem hvað við eigum að segja og hvað er að eyrum okkar berst. Ágæt er sagan

af manninum sem fór í sund og ákvað að vera í útklefanum á góðviðrisdegi. Allt gekk vel. Hann synti sinn kílómeter, fór í kalda pottinn áður en gufan umlukti líkama og sálu og seinna dægurmálin rædd í heita pottinum. Það eina sem skyggði á þennan fallega dag í sundinu var að þegar hann kom í búningsklefann voru fötin hans ekki á snaganum. Hann ályktaði sem svo að hann hefði verið rændur. Starfsfólk sundlaugarinnar gerði sitt til að finna hverju sætti. Eftir jaml, japl og fuður kom eiginkonan að sækja eiginmanninn í laugina þar sem hann stóð fyrir utan í baðslopp merktum Sundlaugum Reykjavíkur með þeim orðum starfsmanns að fötin hans myndu finnast. Eiginmaðurinn heyrði í stað þess að hlusta, sem hann betur hefði gert eftir að hafa farið hamförum á lyklaborði tölvu sinnar þegar heim var komið um sín vandræði og þjófótta sundlaugagesti sem hann augljóslega varð fyrir barðinu á. Fékk hann heilmikla

hluttekningu eins og heimur versnandi fer, útlendingapakk og allur sá pakki. Þegar hallaði að kveldi og hann búinn að loka kortunum sínum og öllu því sem hægt var að loka og læsa og var heimilið ekki undanskilið. Í miðjum kvöldfréttum hringir sími eiginkonunnar. Eitthvað verður hún skrýtin á svipinn og segir: „Augnablik, hann er hérna við hliðina á mér.“ Eiginmaðurinn tekur við símanum. Hummar eitthvað og kinkar kolli. Stendur upp „já er það... ha! Hvernig stendur á því?“ Hann lagði símann frá sér. Það var eilítið skömmustulegur ef ekki flóttalegur sundlaugagestur sem renndi við í einni sundlaug borgarinnar snemma morguns næsta dag og varð að orði við afgreiðslustúlkuna. „Ég bara skil ekki að ég hafi afklæðst í kvennaklefanum.“

VISSIR ÞÚ?

AÐ KEILA ER LEIKIN AF 120.000.000 MANNS Í YFIR 90 LÖNDUM. KÍKTU Í KEILU, PÍLU, KAREOKE, PIZZU, DRYKK, BOLTA OG FJÖR. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00

Þór Hauksson

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 6/29/2026 3:54 PM Page 16

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook