Skip to main content

Árbæjarblaðið 6. tbl. 2026

Page 1


Árbæjarblaðið Árbæjarblaðið

Biður Björn afsökunar

Árbæjarblaðið Árbæjarblaðið

tÚtgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is

Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.

Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322.

Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf.

Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson - abl@skrautas.is

Prentun: Landsprent ehf.

Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir.

Dreifing: Póstdreifing.

Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti og Norðlingaholti.

Breytingar og bein Jónasar

Það eru líklega breyttir tímar framundan í Reykjavík. Úrslit kosninganna 16. maí voru ótvíræð, íbúar í Reykjavík öskruðu á breytingar. Sjálfstæðisflokkurinn vann stóran sigur, Miðflokkurinn einnig en Samfylkingin tapaði miklu fylgi. Breytinga var krafist frá þeim stjórnarháttum sem verið hafa allsráðandi í Ráðhúsinu undanfarna áratugi.

Eftir kosningarnar áttu margir von á samstarfi Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Margir Sjálfstæðismenn áttu síður von á því að Hildur Björnsdóttir myndi leita til Viðreisnar og Framsóknar en Miðflokks.

En af hverju valdi hún Viðreisn og Framsóknarflokkinn?

Við höfum öruggar heimildir fyrir því að framganga ákveðinna aðila í Miðflokknum undir lok kosningabaráttunnar hafi skapað mikla ólgu, heift og efasemdir innan Sjálfstæðisflokksins. Í okkar blöðum, Árbæjarblaðinu og Grafarvogsblaðinu, var frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, Björn Gíslason, sakaður um mjög alvarlega hluti varðandi gatnamótin við Höfðabakka og Bæjarháls af frambjóðanda Miðflokksins, Katrínu Magnúsdóttur. Strax eftir kosningarnar kom í ljós að þessar ásakanir voru hreinar lygar og Katrín biður Björn afsökunar á þessum ósannindum í blöðunum í dag.

Að öðru. Frétt varðandi stórskáldið Jónas Hallgrímsson. Upp hafa komið efasemdir varðandi líkamsleifar hans og að bein hans sem hvíla á Þingvöllum séu ekki hans.

Jónas lést af slysförum í Kaupmannahöfn um miðja nítjándu öldina, 1845 og hann var jarðsettur þar. Síðar var farið fram á að bein hans yrðu flutt til Íslands og var það gert og beinin jarðsett að Hrauni í Öxnadal, fæðingarstað skáldsins. Og enn eru framundan áform um að grafa bein Jónasar upp en nútíma tækni ræður yfir getu til að skera úr um hvers beinin eru og eyða öllum vafa. Stefán Kristjánsson

Nýtt upphaf í Reykjavík

- eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Nýr meirihluti hefur tekið við stjórn Reykjavíkur og með því hefst nýr kafli í sögu borgarinnar. Í nýafstöðnum kosningum kölluðu Reykvíkingar eftir breytingum. Þeir kölluðu eftir aukinni þjónustu, ábyrgari rekstri og borgarstjórn sem hlustar betur á fólkið sem býr í borginni. Nú hefst sú vinna. Það sást vel á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar þar sem lagður var grunnur að nýjum áherslum og nýrri stefnu fyrir borgina.

Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggur áherslu á að færa Reykjavík aftur nær sínum mikilvægustu verkefnum. Hlutverk borgarinnar er fyrst og fremst að tryggja öfluga grunnþjónustu, standa vörð um innviði og skapa umhverfi þar sem allar kynslóðir geta blómstrað. Á fyrsta fundi borgarstjórnar, 2. júní sl., voru tekin fyrstu skrefin í þá átt. Þar var meðal annars lagður grunnur að nýju leikskóla- og daggæsluráði, auk þess sem öldungaráð var endurvakið. Það eru mikilvæg skilaboð til eldra fólks í Reykjavík enda er það skoðun undirritaðs að eldra fólk eigi að hafa beina aðkomu að mótun þjónustunnar sem það nýtur.

Þá voru fyrstu skrefin tekin að hagræðingu og stjórnkerfisbreytingum í borgarkerfinu. Reykjavík á að vera þjónustustofnun fyrir borgarbúa þar sem

fjármunir eru nýttir í grunnþjónustu borgarinnar. Samgöngumál eru einnig ofarlega á

dagskrá. Við í Sjálfstæðisflokknum höfnum sérstakri gjaldtöku á umferð innan borgarmarkanna á núverandi gatnakerfi. Það er grundvallarmunur á slíkri gjaldtöku og einkaframkvæmdum, þar sem nýir innviðir eru byggðir og notendur hafa val um aðra gjaldfrjálsa leið, t.d. eins og Hvalfjarðargöng.

Árbær með sterka rödd

í nýrri borgarstjórn

Árbær mun skipa mikilvægan sess í nýrri stjórnskipan Reykjavíkurborgar eftir myndun nýs meirihluta, þar sem fulltrúar úr hverfinu taka að sér áhrifamikil hlutverk í stjórnsýslu borgarinnar.

Guðný María Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og íbúi í Árbænum, hefur verið kjörin formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, eitt mikilvægasta ráð borgarinnar, þar sem teknar eru ákvarðanir um skipulag, uppbyggingu og þróun borgarumhverfisins.

Þá verður Björn Gíslason, sem er lesendum þessa blaðs að góðu kunnur, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann mun gegna mikilvægu hlutverki í störfum borgarinnar á kjörtímabilinu með setu í íþrótta- og tómstundaráði, innkauparáði og öldungaráði Reykjavíkurborgar.

Með þessum skipunum má segja að Árbær eigi sterka rödd í nýrri borgarstjórn, með fulltrúa í áhrifamiklum hlutverkum sem snerta bæði þróun borgarinnar og mikilvæga þjónustu við borgarbúa.

Við teljum að borgarbúar eigi ekki að sæta gjaldtöku fyrir akstur um innviði sem þegar eru til staðar og hafa verið byggðir upp með skattfé. Borgarstjórn fól því borgarstjóra, Hildi Björnsdóttur, að hefja viðræður við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og fjármögnun hans. Fram undan eru fjölmörg mikilvæg verkefni. Samstarf við atvinnulíf um fjölbreyttari lausnir í leikskóla- og daggæslumálum, lengri opnun sundlauga, sterkari innviðir og aukinn áhersla á það sem snertir daglegt líf fólks með beinum hætti.

Það skiptir máli að Reykjavík sé borg þar sem fólk finnur að hlutirnir virki. Borg þar sem þjónustan er aðgengileg, hverfin sterk og stjórnsýslan skilvirk.

Nýr meirihluti er ekki myndaður til að viðhalda sama ástandi heldur til að bæta það sem betur má fara og horfa fram á veginn með breytingar að leiðarljósi.

Ég hvet borgarbúa til að kynna sér verkefni nýs meirihluta á verkefnalisti.is og fylgjast með þeirri vegferð sem nú er hafin. Það eru góðir tímar fram undan í Reykjavík.

Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

Guðný María Jóhannsdóttir er nýr formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.

Björn Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Vöfflur með rjóma í lauginni

Átján hressir krakkar á aldrinum 1114 ára úr Sunddeild Ármanns í Árbæ munu halda til Svíþjóðar í lok júni þar sem þau munu taka þátt á SPIF Stockholm Summer Cup 2026.

Þetta er alþjóðlegt mót þar sem búast má við rúmlega 40 liðum víðs vegar að, en eldri sundhópur frá Ármanni tók einmitt þátt á þessu móti á sl. ári. Í vetur hafa krakkarnir staðið fyrir ýmsum fjáröflunum, t.d. hafa þau reglulega boðið upp á rjúkandi heitar vöfflur með rjóma í anddyri Árbæjarlaugar.

Framundan er lokahnykkurinn í

fjáröflunum fyrir ferðina, en krakkarnir munu standa fyrir fjáröflunardegi í Árbæjarlaug laugardaginn 6. júní nk. Það verður mikið fjör í Árbæjarlaug þennan dag, veitingasala, happdrætti, tónlist og glens og gaman. Á dagskránni er áheitasund, en krakkarnir munu synda viðstöðulaust boðsund frá kl. 9-15. Einnig munu krakkarnir bjóða upp á örkennslu í sundi fyrir hvern sem er, t.d. tilvalið fyrir fullorðna sem vilja fínpússa sundtaktana.

Krakkarnir eru yfir sig spenntir yfir ferðinni og hlakka til að sjá sem flesta í Árbæjarlaug laugardaginn 6. júní!

Hluti af hópi Kafara úr Árbæ á sundmóti í Laugardalslaug í febrúar 2026.
Kafarar á Volvo móti Ármanns, 2026.
Sigursælir Kafarar á Gullmóti KR í Laugardalslaug, 2026.
Kafarar eftir sundæfingu í Árbæjarlaug, apríl 2026.

samningur um Fylkisselið

Reykjavíkurborg og Íþaka fasteignafélag skrifuðu á dögunum undir nýjan samning varðandi Fylkisselið Norðlingaholti en Fylkisselið hýsir í dag aðstöðu fimleikadeildar, karatedeildar og rafíþróttadeildar Fylkis.

Samningurinn kveður meðal annars á um stækkun hússins sem mun bæta aðstöðuna fyrir iðkendur, þjálfara og starfsfólk. Einnig verður aðstaða fyrir áhorfendur bætt til muna en í dag er sú

Theódór Óskarsson níræður

Theódór Óskarsson einn af stofnendum Íþróttafélagsins Fylkis varð níræður á dögunum.

Björn Gíslason formaður Fylkis og Hörður Guðjónsson framkvæmdastjóri Fylkis færðu Theódóri gjöf frá félaginu í tilefni dagsins.

Björn Gíslason, Thedór Óskarsson og Hörður Guðjónsson.

vinstri: Björn Gíslason formaður Fylkis, Heiða Björg Hilmisdóttir fyrrverandi borgarstjóri

Freyr Pétursson framkvæmdastjóri Íþöku fasteigna og Pétur Guðmundsson.

aðstaða mjög takmörkuð. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir það starf sem er í Fylkisselinu en auk starfs áðurnefndra Íþróttagreina er starf Betri Borgara

Fylkis í húsinu en þar koma saman yfir 200 manns á besta aldri þrisvar sinnum í viku og stunda líkamsrækt. Framkvæmdir við stækkunina munu

hefjast í sumar og eru áætluð verklok í lok árs 2027.

Frá
Reykjavíkur, Pétur

verk Öl Ö kf kfæri

Frábært ú l m

rðverkfæ f ga a

æru rva

r háþrý Lavo ýstidælur

og slá Sláttu á r u rf

l Color Ú g og v rex má a vi

yl- og ha a

ga Sérfræð a

G lla r a Gott verð fyri lltaf! a, a

Katrín dregur dylgjur um

Björn Gíslason til baka og biðst afsökunar

Katrín Magnúsdóttir, sem skipaði 8. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík í borgarstjórnarkosningunum, hefur beðist afsökunar á dylgjum um Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem birtust í þessu blaði í aðdraganda kosninganna.

Björn staðfestir jafnframt í samtali við blaðið að oddviti Miðflokksins í Reykjavík, Ari Edwald, hafi persónulega beðið hann afsökunar símleiðis vegna málsins. Að öðru leyti vildi Björn ekki tjá sig um málið.

Sagði Björn hafa stutt þrengingar Í grein sem birtist í Árbæjarblaðinu

og Grafarvogsblaðinu var fullyrt að Björn hefði samþykkt þrengingar við gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls. Fullyrðingin var sett fram sem hluti af gagnrýni á skipulags- og samgöngumál borgarinnar.

Málið vakti athygli enda hefur Björn Gíslason borgarfulltrúi, sem þá sat í minnihluta, ítrekað gagnrýnt

Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Katrín Magnúsdóttir, frambjóðandi Miðflokksins.

þreng-ingar gatna og breytingar á umferð-arskipulagi í Árbæ og Höfðabakka á opinberum vettvangi.

Viðurkennir misskilning og biðst velvirðingar

Katrín hefur nú birt afsökunarbeiðni þar sem hún viðurkennir að um misskilning hafi verið að ræða um hlutverk innkaupaog framkvæmda-ráðs Reykjavíkurborgar. „Í grein minni í Árbæjarblaðinu/Grafarvogsblaðinu kom fram að

Björn Gíslason hefði samþykkt þrengingar á Bæjarhálsi. Sú ályktun byggði á misskilningi um hlutverk innkaupa- og framkvæmdaráðs og bið ég Björn velvirðingar á því,“ skrifar Katrín á Facebook-síðu íbúa í Árbæ og Grafarvogs.

Þá liggur fyrir að innkaupa- og framkvæmdaráð fer með eftirlit með útboðs- og innkaupaferlum en tekur ekki pólitískar ákvarðanir um hvaða framkvæmdir ráðist er í hverju sinni.

Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:

Ferðalag innanlands með hundinn,

en kötturinn passar heimilið

Ferðalög innanlands geta verið skemmtileg fyrir alla fjölskylduna og líka gæludýrin, ef það er vel undirbúið.

Hundar geta oft komið með í ferðalagið, en kettir eru yfirleitt öruggari heima í sínu umhverfi.

Hér eru helstu atriði sem gott er að hafa í huga.

Hundur með í ferðalagið Þegar hundurinn fer með skiptir öryggi, þægindi og rútína mestu máli. Hafðu hundinn öruggan í bílnum, stoppaðu reglulega fyrir vatn og hreyfingu og taktu með það sem hann

þekkir best.

Forðastu að skilja hundinn eftir einann í heitum bíl.

Þegar kötturinn passar heimilið.

Flestum köttum líður best heima.

Undirbúðu heimilið vel, hafðu nóg af mat og vatni og tryggðu að sá sem passar köttinn hafi skyrar leiðbeiningar.

Gott er að skilja líka eftir símanúmer og upplýsingar um dýralækni ef eitthvað kemur uppá.

Góður undirbúningur gerir ferðalagið og dvölina heima þægilegri, öruggari og

Árbæjarblaðið

Knattspyrnudeild Fylkis á nokkru flugi

– bikarævintýri og frábær byrjun á sumrinu

Það hefur verið líf og fjör í Árbænum síðustu vikur þar sem bæði karla- og kvennalið Fylkis hafa vakið athygli fyrir sterka frammistöðu í Mjólkurbikarnum og góðan árangur í deildarkeppni sumarsins.

Bikarferð

kvennaliðsins

Kvennalið Fylkis skrifaði sinn eigin kafla í bikarsöguna þegar liðið varð eina félagið úr 2. deild sem komst í 16 liða úrslit Mjólkurbikarsins í ár. Vegferðin hófst í undankeppninni gegn Gróttu þar sem Fylkiskonur lentu undir strax á 3. mínútu. Þær sýndu þó mikinn karakter í síðari hálfleik og sneru leiknum sér í vil með mörkum frá Freyju Stefánsdóttur og Birtu Margréti sem tryggðu 2-1 sigur.

Í næstu umferð beið HK í Kórnum og þar hélt ævintýrið áfram. Fylkisstúlkur unnu skemmtilegan 3-2 útisigur þar sem Hildur Anna, Harpa Karen og Erna Þurý skoruðu mörkin.

Í 16 liða úrslitum fékk liðið síðan FHL í heimsókn á Tekk-völlinn. Gestirnir, sem léku í Bestu deildinni síðasta sumar, reyndust sterkir og höfðu að lokum 2-1 sigur. FHL komst í 2-0 um miðjan leik en Fylkiskonur gáfust ekki upp og minnkuðu muninn á 89. mínútu. Þrátt fyrir tapið skildu þær eftir afar jákvæða mynd og sýndu að liðið hefur burði til að gera góða hluti í sumar.

Karlaliðið áfram í

8 liða úrslit

Karlalið Fylkis hefur einnig verið í sviðsljósinu í Mjólkurbikarnum. Liðið hóf leik gegn KFA í 32 liða úrslitum þar sem Austfirðingarnir komu í heimsókn á Tekk-völlinn. Fylkir byrjaði af krafti þegar KFA skoraði sjálfsmark strax á fyrstu mínútu áður en Birkir Eyþórsson bætti við öðru marki og tryggði öruggan 2-0 sigur. Í 16 liða úrslitum beið síðan stórleikur gegn FH og mikil

Karlalið Fylkis er komið í 8-liða úrslit bikarsins eftir frábæran sigur gegn FH í Árbænum. Liðið er á góðri siglingu og sem stendur í öðru sæti í Lengjudeildinni.

eftirvænting ríkti fyrir leiknum. Heimir Guðjónsson stýrði þar Fylki gegn sínu gamla félagi og margir voru spenntir að sjá hvernig nýtt Fylkislið myndi standa sig gegn liði úr Bestu deildinni. Fylkir svaraði öllum spurningum með stórkostlegri frammistöðu. Máni Austmann kom liðinu yfir á 7. mínútu eftir glæsilegan undirbúning Kára Sigfússonar. Hlynur Sævar bætti við öðru marki og Máni skoraði svo aftur áður en hálfleikur gekk í garð. Staðan var því ótrúleg 3-0 í hálfleik eftir yfirburði heimamanna.

Fylkir hélt áfram í sama gír eftir hlé. Dagur Traustason skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið gegn sínum gömlu félögum áður en Máni Austmann fullkomnaði þrennuna sína og kom Fylki í 5-0. Fleiri urðu mörkin ekki en um var að ræða einn eftirminnilegasta sigur félagsins síðari ár. Fylkir er því komið í 8 liða úrslit þar sem Grótta

kemur í heimsókn á Tekk-völlinn þann 10. júní.

Frábær byrjun í Lengjudeildinni

Karlaliðið hefur einnig byrjað Lengjudeildina af miklum krafti undir stjórn Heimis Guðjónssonar. Eftir vonbrigðatímabil í fyrra hefur liðið tekið stór skref fram á við og situr nú á toppi deildarinnar eftir sex umferðir með 15 stig. Fylkir hefur unnið fimm leiki og aðeins tapað einum, með markatöluna 11-3. Sigurleikir hafa komið gegn Leikni R., Völsungi, ÍR, Vestra og Ægi en eina tapið kom gegn Njarðvík þar sem Fylkismenn léku manni færri stóran hluta leiksins.

frá

liðinu

eru gerðar til hennar á komandi

Körfuknattleiks-

deild Fylkis

Körfuknattleiksdeild Fylkis hefur á undanförnum árum unnið markvisst að uppbyggingu bæði hjá meistaraflokki og í öflugu barna- og ungmennastarfi félagsins. Markmið deildarinnar er að skapa umhverfi þar sem ungir iðkendur úr Árbænum fá raunhæf tækifæri til að þróast og leika fyrir meistaraflokk félagsins í framtíðinni.

Á þessu ári hefur starf deildarinnar tekið stór skref fram á við með fjölgun iðkenda, kynningu á krílabolta fyrir leikskólabörn og sérstöku körfuboltastarfi fyrir heyrnarlaus börn og fullorðna. Þeir sem vilja styrkja starf körfuknattleiksdeildarinnar geta haft samband í gegnum netfangið karfa@fylkir.is eða lagt inn á reikning deildarinnar:

• Bankareikningur: 0515-26480294

• Kennitala: 480294-2389

Fyrir hönd körfuknattleiksdeildar Fylkis, Margrét Ingunn - Formadur Körfuknattleiksdeildar Fylkis David Patchell, yfirpjálfari Körfuknattleiksdeildar.

Takk fyrir að

styðja deildina

Sóknarleikurinn hefur verið öflugur og þeir Benedikt Daríus, Máni Austmann og Guðmundur Tyrfings hafa allir skorað tvö mörk. Þá hefur Kári Sigfússon farið á kostum með sex stoðsendingar og eitt mark í fyrstu sex leikjunum.

Fylkisstúlkur með

fullt hús stiga

Kvennaliðið hefur einnig byrjað deildarkeppnina af krafti í 2. deildinni. Fyrsti leikur sumarsins fór fram á Húsavík þar sem Fylkir vann sannfærandi 5-1 sigur á Dalvík/Reyni. Karen Dís skoraði fyrsta deildarmark sumarsins áður en Birna Kristín, Katla Sigrún og Birta Margrét bættu við mörkum.

Í næsta leik mætti liðið Augnabliki á Kópavogsvelli og vann glæsilegan 6-0 útisigur. Eva Stefánsdóttir skoraði þrennu, Birta Margrét bætti við tveimur mörkum og Marija Radojicic skoraði einnig.

Eftir tvo leiki er Fylkir því með fullt hús stiga og markatöluna 11-1.

Knattspyrnudeild Fylkis senti nýlega kröfu á alla íbúa með lögheimili 110, en með kröfuna er óskað eftir styrkjum fyrir starfi deildarinnar sem heldur utan um mjög metnaðarfullt starf en undir knattspyrnudeild Fylkis er yngri flokkar þar sem yfir 600 krakkar úr hverfinu æfa vikulega ásamt afreksstarfi deildarinnar og meistaraflokkunum sem er meðal bestu á landinu en bæði liðin hafa leikið undanfarinn ár í Bestu deildinni en í ár leik liðin í Lengjudeild karla og 2. Deild kvenna og er markið stefnt á komandi árum að koma liðunum á þann stað sem félagið á heima, Bestu deildinni. En til þess að ná markmiðum okkar treystum við á fólkið í hverfinu okkar og finnum við sannarlega mikla meðbyr með félaginu þar sem mikið félagslíf myndast í kringum yngri flokkana ásamt Meistaraflokkunum þar sem fjöldi manns sækja völlinn vikulega. Við þökkum ykkur kærlega fyrir að taka vel undir og styrkja deildina okkar. Fyrir þá sem fengu ekki valkröfu eða höfðu ekki tök á að greiða en velja leggja deildinni í lið þá er hægt að millifæra á deildina kt: 571083-0199 Rn: 0535-26-80360

Margt smátt gerir eitt stórt Bestu þakkir, Knattspyrnudeild Fylkis.

Marija Radojicic er komin heim.
Marija Radojicic er komin aftur heim í Fylki
Mikilvæg viðbót við kvennaliðið kom þegar Marija Radojicic sneri aftur til félagsins
serbneska
Spartak Subotica. Marija hefur áður leikið 110 leiki fyrir Fylki og skorað 39 mörk fyrir félagið. Miklar væntingar
tímabili.
Kári Sigfússon hefur átt mjög góða leiki með Fylki það sem af er tímabilinu.

Sólskinsþorskur með mangósalsa og lime

- frábær uppskrift sem vert er að prófa

Litríkur og sumarlegur réttur sem er

bæði léttur og bragðmikill — fullkominn fyrir gott sumarkvöld.

Rétturinn er fyrir 4

Þú þarft:

1 kg þorskhnakka.

2 msk. ólífuolía.

1 tsk. paprikukrydd.

2 hvítlauksgeira.

½ tsk. chiliflögur. salt og pipar.

1 lime.

Mangósalsa:

1 þroskað mangó.

½ rauð paprika.

½ rauðlaukur.

Handfylli af fersku kóríander eða steinselju.

Safi úr ½ lime.

Smá salt.

Meðlæti:

Hrísgrjón eða couscous. Grænt salat.

Aðferð: Hitið ofninn í 200 gráður. Penslið þorskhnakkana með ólífuolíu og kryddið með papriku, chiliflögum, smátt söxuðum hvítlauk, salti og pipar. Setjið í eldfast mót og bakið í 12–15 mínútur.

Skerið mangó, papriku og rauðlauk í litla bita og blandið saman við lime-safa og ferskum kryddjurtum.

Kreistið lime yfir fiskinn áður en hann er borinn fram.

Kokkurinn Halli mælir:

Mangósalsað gefur ferskt og suðrænt bragð sem passar einstaklega vel með íslenskum þorski.

Einnig hægt að bæta við grískri jógurt ef þú vilt létta mangó sósu í stað salsa. „Léttur sumarmatur sem gleður alla við borðið.”

Verði ykkur að góðu! Halli hjá Aldan Fiskverslun

f l o G ð i

Ze og Maui Jim frá Þú finnur gott úrva

í verslunum Eyesla eal al af útivistargleraugu s u and. um

Sólskinsþorskur með mangósalsa og lime er einstaklega góður réttur.

Grillhorn

Nautalund De Luxe

NAUTALUND DE LUXE

Hún liggur undir rifjunum á nautinu og er álagið á vöðvanum frekar lítið og lundin því oft kölluð latasti vöðvi skepnunnar.

ELDUNARLEIÐBEININGAR

Hitið grillið mjög vel, lokið lundinni á háum hita í ca. 1-2 mínútur á hvorri hlið. Lækkið svo

hitann á grillinu í ca. 100 gráður og klárið eldun í ca. 52 gráðum í kjarna. Látið steikina hvíla í 5 mínútur.

KRYDDSMJÖR

300 gr. mjúkt smjör. 10 gr. fersk steinselja, söxuð. 10 gr. ferskur graslaukur, saxaður. 20 gr. hvítlauksolía. 10 gr. hunang. ½ tsk. karrý. 5 gr. salt.

AÐFERÐ

Setjið smjörið í hrærivél og hrærið í ca. 2-3 mínútur, þangað til smjörið verður ljóst á litinn, setjið þá öll kryddin saman við og hrærið vel saman. Pakkið smjörinu inn í plastfilmu, rúllið upp og kælið.

Grilluð nautalund De Luxe frá Kjötkompaníinu er algjört salgæti.

Árbæjarblaðið

Líkamsrækt

Besta ráðið í sumar:

Sterkur grunnur til að njóta útivistar!

Sumarið kallar hátt á okkur. Löngu björtu kvöldin og smávegis lofthiti dregur okkur í útilegur, hlaup í fersku lofti, grill hittinga og alls konar ævintýri. Það er nákvæmlega þetta sem lífið snýst um! En áður en þú hendir ræktar skónum innst í skápinn og geymir þangað til í september, bið ég þig að staldra aðeins við.

Galdurinn við að njóta sumarsins í botn er nefnilega ekki að velja á milli þess að vera inni í sal eða úti í náttúrunni – heldur að láta þetta tvennt vinna saman.

Metó leggur grunninn fyrir sumarævintýrin

Hvers vegna æfum við hjá Metabolic Reykjavík? Við gerum það til að byggja upp líkama sem virkar. Við æfum fyrir lífið sjálft. Styrkurinn og úthaldið sem þú byggir upp í salnum mun nefnilega hjálpa þér upp brekkurnar í fjallgöngunni, halda bakinu góðu þegar þú sefur á dýnu í tjaldvagninum og gefur þér aukna orku í að hlaupa um með krökkunum eða hundinum.

Ef við hættum alveg að mæta yfir sumarið gerist tvennt:

1. Útivistin verður erfiðari og líkaminn stirðari.

2. Við mætum á algjörum núllpunkti í september og þurfum að eyða öllu haustinu í að vinna upp það sem tapaðist.

Með því að halda reglunni og mæta í Metó, jafnvel þótt það sé sjaldnar en á veturna, heldurðu vöðvunum við, liðunum mjúkum og hjartanu sterku.

Við ætlum saman á fjöll í júní!

Við elskum útivist alveg jafn mikið og þú. Þess vegna ætlum við að nýta það sem við höfum verið að byggja upp í vetur og taka samfélagið með okkur út undir bert loft.

Metabolic er með virkan og skemmtilegan fjallgönguhóp í sumar og við erum með hvorki meira né minna en þrjár skipulagðar göngur á dagskrá núna í júní!

Þetta er fullkomið tækifæri til að:

● Prófa hvað Metabolic-formið er að gera fyrir þig úti á svæðinu.

● Hitta vinalega fólkið úr salnum í allt öðru umhverfi.

● Njóta náttúrunnar með frábærum hópi þar sem enginn er að flýta sér og allir eru á eigin forsendum.

Finndu ÞITT sumarjafnvægi

Lykillinn er sveigjanleiki. Þú þarft ekki að mæta fimm sinnum í viku ef það passar ekki við sumaráætlunina þína. Mættu tvisvar eða þrisvar. Notaðu Metabolic sem akkeri til að viðhalda kraftinum, og notaðu svo dagana í hlaup, hjólreiðar, sund eða hvaðeina sem þér finnst skemmtilegast að brasa í sólinni.

Ekki setja heilsuna í sumarfrí. Nældu þér í sumar áskrift á frábæru tilboðsverði núna í júní, smelltu þér inn á heimasíðuna www.metabolicreykjavik.is

Hlökkum til að sjá þig í salnum – og á fjöllum í júní! Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík

025

Láttu okkur sjá um

húsfélagið!

linu. 4800 eða á netspjal - glega; í síma 585 og örug tt yrirspurnum hra erið okkar svarar f Þjónustuv faasteigna. ekstrar í þjónustu við húsfélög og r

2 s 800

Sími 585 4 | Reykjavík ut 30 Suðurlandsbra félög f umsjon is eigna

erum þér tilboð! yrðu í okkur og við g He a@eignaumsjon.i t að senda póst á thjonust innig er hæg E

eynslu 5 ára þekkingu og r ið erum með 2 V eignaumsjonis

Allar almennar bílaviðgerðir

Fylkir- Breiðablik árið 2000

Við sjáum mynd úr 5-0 heimasigri Fylkis á Breiðabliki. Á myndinni er Hrafnkell Helgi Helgason núverandi formaður meistaraflokksráðs karla. Sævar Þór Gíslason (2 mörk), Gylfi Einarsson (2 mörk) og Ómar Valdimarsson kafsigldu Breiðablik þennan dag (1. júní árið 2000). En Fylkismenn háðu hatramma baráttu um Íslandsmeistaratitlinn við KR þetta ár en þurftu að lúta í lægra haldi. Mynd: RAX

Hafðu samband við okkur!

Skynsemdarógnin

- eftir sr. Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarsókn

Það er af ástæðu eða full innistæða fyrir því að synir okkar hjóna urðu að orði um daginn, ekki laust við að kvíði væri í rödd þeirra. „Sá ykkur einhver?“

Sumarið er tíminn þegar við ætlum okkur að gera allt sem alla jafna er ekki gert. Við þreyjum föl á brá, vormánuð, þorrann og góuna fram á bjarta sumardaga lofandi verka því allt sem hefur beðið eins og fryst í krumlu vetrarins rís upp eins og uppvakningur og minnir á að nú þarf að taka til hendinni, einhverjum til gleði og öðrum til ama.

Horft til þessa er undirritaður að hallast að því sama og ein ágæt vinkona sagði um daginn að hún þyldi ekki sumarið með sínum björtu dögum og kröfu um að vera utandyra með græna fingur að róta í moldu. Henni liði best í myrkrinu og kuldanum sem gæfi henni „afsökun“ fyrir því að kúra undir teppi og horfa á uppvakningamyndir. Á mínu heimili er það ekki svo gott eða slæmt eftir því hvernig á það er litið þegar horft er út um gluggann. Fram hjá því er ekki horft, garður sem þarf á ást og umhyggju að halda eftir svefn vetrarins. Fjölmiðar dusta rykið af þeim sem vita meira en við flest hvernig best er að haga sér við voreða sumarverkin. Þau birtast í fréttum eða samfélagsmiðlum, ábúðarfull og minna á að nú er komið að því að snyrta trén og aðrar plöntur í garðinum áður en sumarið trítlar inn í tilveruna með fuglasöng og kisu nágrannans sem kemur sér makindalega fyrir á útipallinum og fylgist af áhuga með fiðruðum verum fljúga hjá undir bláma himins.

Svo mjög var orðið aðþrengt hvað tíma varðar að ganga í útiverkin að „korter” var í að snurfusa garðinn áður en trén færu að bruma. Er ekki sagt að

„illu sé best af lokið?“ Betri helmingnum á heimilinu varð að orði einn laugardagsmorguninn þar sem hún stendur út við gluggann í eldhúsinu:

„Við verðum að láta klippa þessi tré.“ Það eina sem ég heyrði var „Við verðum að „LÁTA“. „Hvað kostar það?“ spurði ég. „Svona 50 þúsund krónur,“ var svarið. Ég missti næstum morgunkaffið yfir mig þar sem ég sat og hrópaði upp yfir mig „50 kall... sæl, svafstu illa í nótt.“ Ég saup hveljur. „Fyrir að klippa greinar?! Kemur ekki til greina. Ég get alveg gert þetta sjálfur!“ Þarna hefði einhver með tvö grömm af skynsemi ... þagað. Eftir á að hyggja kann að vera að skynsemin hafi orðið eftir í kaffibollanum eða það sullast á gólfið. Skynsöm manneskja hefði ekki stuttu síðar, þennan laugardagsmorgun seint í maí, verið komin með keðjusög í hendur sem keypt var í einhverju bjartsýniskasti um árið. Stáltáar vinnuskó sem ekki höfðu þefað af sveittum fótum svo árum skipti að ógleymdum bláum samfestingi, hlífðar-gleraugum og einu viðbrögðin sem sá „skynsami“ fékk voru að viðkomandi liti út eins og fjöldamorðingi í lélegri Hollywoodmynd. Ekki slæmt, hugsaði hin meinta „skynsemi“ er hún leit í

spegilinn frammi í forstofunni. Sannfærð um að trén og gróðurinn í garðinum myndu hreinlega beygja sig

sr. Þór Hauksson.

í ótta við þá ógn sem biði þeirra þarna innan við dyrnar. Varð reyndar fyrir því að þjófstarta ógninni, þ.e.a.s. söginni. Sneyddi hausinn af tréstyttu sem þar stóð. Ég læt liggja milli hluta, eða höf- uðs og búks, hvaða orð flugu á eftir „skynsemisógninni“ út í garð. Eitthvað höfðu hæstu greinar teygt úr sér upp í himinblámann frá því fyrir ári síðan, svo mjög að ekki dugði annað til en að vera með stiga til að ná upp á toppinn. Stundum er sagt að eina

leiðin að toppnum sé niður. Sú fullyrðing átti sitt staðfesta heimilisfang í hverfi 110 þennan laugardagsmorgunn seint í maí, Eitthvað fannst mínum betri helmingi „skynseminnar“ verk ganga hægt fyrir sig. Í tilfelli betri helmingsins, þar sem hún er jarðbundnari en ég, sé tekið tillit til hæðar og starfsvals, náði hún ekki upp á toppinn þrátt fyrir stigann sem hún stóð á. Eins og gerast vill þegar of hátt er seilst, eins og Íkarus, sonur meistarasmiðsins Dædalosar sem segir frá í grísku goðafræðinni, sem flaug of nærri sólu með þeim afleiðingum að vaxið sem hélt fjöðrunum saman bráðnaði og hann féll til jarðar. Það var ekki alveg þannig með betri helming skynseminnar. Reyndar féll hún í átt að jörðu með viðkomu á garðbekk og lá þar um stund. Varð ekki meint af fyrr en nokkrum dögum seinna, þá hvað stirðleika líkamans varðar. Stuttu seinna gerðist slíkt hið sama þar sem hin meinta skynsemdarógn sjálf hugðist stíga niður af stiganum ofan á steinvegg. Ekki vildi betur til en svo að „skynsemin” rankaði við sér á bakinu

inni í runna eftir viðkomu á gasgrilli heimilisins. „Skynsemin” gat sig ekki hreyft, svona eftir á að hyggja var það bara ágætt allra vegna. Sé litið til þessa falls „skynseminnar“ sætir það ekki furðu að strákarnir spurðu hvort einhver hefði séð okkur. Áhyggjurnar voru ekki hvort miðaldra settið hefði slasað sig. Áhyggjurnar þeirra voru þær að nágrannar okkar í fyrsta lagi hefðu séð til okkar. Í öðru lagi að faðir þeirra hefði dottið í messuvínið. Í þriðja lagi að frúin hefði fengið sér eitthvað sterkara en malt extract sem að sögn bæði kætir og hressir.

Á mánudeginum snemma morguns leit garðyrkjumaðurinn yfir eyðilegginguna, brotna bekkinn, hálfskemmda grillið og keðjusögina fasta í runna. Eftir smá þögn sagði hann:

„Hvað gerðist?“ Þrátt fyrir harðsperrur, lítandi út eins og skilgetinn sonur spýtustráksins Gosa, horft til göngulagsins sagði skynsemin sem hafði náð sínum vopnum:

„Inn á hvaða reikning á ég að leggja?“ sr. Þór Hauksson

Opna húsið í Árbæjarkirkju alla miðvikudaga kl. 12-16. Þangað eru allir fullorðnir velkomnir og þar er ýmislegt á dagskrá. Byrjað er með kyrrðarstund í kirkjunni, síðan er léttur hádegisverður á vægu verði (kr. 1500). Að því loknu er hin sívinsæla stólaleikfeimi og svo er spjallað eða einhver gestur mætir í heimsókn.

Endað er á gómsætu síðdegiskaffi. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir. Helgihald hvern sunnudag kl.11.00 Annan sunnudag hvers mánaðar er Fjölskylduguðsþjónusta kl.11.00

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Árbæjarblaðið 6. tbl. 2026 by Skrautás Ehf. - Issuu