Skip to main content

Árbæjarblaðið 5. tbl. 2026

Page 1


Árbæjarblaðið Árbæjarblaðið

,,Nú þarf borgin einfaldlega að standa með Árbæ”

- viðtal við Einar Þorsteinsson fyrrum borgarstjóra og oddvita

Þú hefur lagt mikla áherslu á úthverfin í þinni kosningabaráttu. Hvers vegna?

Ég bý sjálfur í úthverfi þar sem náttúran er rétt handan við hornið og samfélagið sterkt. Ég þekki hvað það skiptir miklu máli – að geta farið út með börnin, hitt fólk í hverfinu og byggt upp gott daglegt líf. Það er nákvæmlega þessi styrkur sem ég heyri og sé að er til staðar í Árbæ. Þegar ég var borgarstjóri lagði ég líka áherslu á að fara strax út í hverfin og ræða við borgarbúa. Ég átti frábæran fund með íbúum í Árbæ. Á fundinum kom þetta skýrt fram: fólk elskar hverfið sitt, náttúruna, Elliðaárdalinn, íþróttastarfið og skólana. En á sama tíma fann ég líka ákveðna óþreyju yfir því að borgin hafi ekki alltaf fylgt eftir loforðum og mótað öfluga framtíðarsýn í nánu samráði við íbúana.

Hvað meinarðu með því – hvar er helst brotalöm?

Það sem íbúar sögðu mér er í raun mjög einfalt: grunnurinn er góður, en borgin hefur ekki haldið í við hverfið. Þetta snýst ekki um stór orð heldur daglegt líf. Aðstaða fyrir börn, samgöngur sem virka, þjónusta sem er nálægt og umhverfi sem er snyrtilegt. Til dæmis að laga gangstéttar og róluvelli. Þetta eru hlutir sem eiga að vera sjálfsagðir.

Framsóknar í Reykjavík

Íþróttamálin komu mjög sterkt fram á fundinum. Hvað ætlarðu að gera þar? Það var eitt skýrasta ákallið. Íbúar töluðu sérstaklega um aðstöðu Fylkis og þörfina fyrir uppbyggingu og viðhald. Ég ætla að setja það mál í forgang og vinna það áfram með félaginu. Þetta snýst ekki bara um íþróttir – þetta er félagslegt öryggisnet fyrir börn og ungmenni. Ef við ætlum að styðja við sterkt samfélag, þá verðum við að fjárfesta í svona innviðum.

Samgöngur voru líka nefndar sem forgangsmál?

Já íbúar voru mjög skýrir: almenningssamgöngur þurfa að batna –bæði innan hverfisins og milli hverfa, og jafnvel tengingar við útivistarsvæði eins og Elliðaárdalinn. Það þarf auðvitað að halda áfram mikilvægri uppbyggingu almenningssamgangna, en svo eru einfaldir hlutir sem ætti að vera hægt að laga auðveldlega. Dæmi um þetta eru breytingar á gatnamótum á Höfðabakka, þar sem búið er að taka aðreinar sem liðkuðu mikið fyrir umferð. Í dag er staðan því þannig að nú myndast bílaraðir langt inn í hverfin. Þetta er auðvitað óboðlegt. Ég ætla að setja samgöngur í forgang í rekstri borgarinnar þannig að fólk finni fyrir raunverulegum umbótum. Þetta snýst um tíma fólks, einfaldara líf og betri tengingar.

Þú nefnir rekstur borgarinnar oft. Hvað þarf að breytast þar til að þetta gerist?

Fyrst og fremst þurfum við að ná aftur tökum á rekstrinum og koma borginni réttu megin við núllið. Það er vel hægt, og það höfum við í Framsókn gert áður. Í upphafi kjörtímabilsins tókum við við 16 milljarða halla Samfylkingarinnar. Og það var augljóst að rekstur borgarinnar var ekki nægilega agaður, fókusinn fór oft í stór og dýr verkefni á meðan hlutir sem skipta fólk mestu máli sátu á hakanum. Við snerum þessu við og okkur tókst að skila borgarsjóði í 5 milljarða afgangi með útsjónarsemi og aga. Og það er það sem við þurfum að horfast í augu við: það er margt hægt að gera, en þetta er spurning um betri forgangsröðun. Borgin á fjármagn – en það þarf að fara betur með það. Ég vil sjá styrkari stjórn, meiri ábyrgðarkennd og að fjármunir fari fyrst í það sem skiptir íbúa mestu máli. Það þýðir að úthverfi eins og Árbær fái raunverulega athygli – ekki bara í orði, heldur í framkvæmdum.

Staðan í dag er auðvitað orðin þannig að eftir eitt ár af vinstri meirihluta undir stjórn Samfylkingarinnar er borgarsjóður aftur kominn í 5 milljarða halla. Þessu þarf að snúa við strax. Ég veit að það sé hægt. Við sýndum að það er hægt. En þá þarf að hafa kjark til að forgangsraða og halda sig við það.

Hvað með þjónustu og daglegt líf í hverfinu?

Það hefur komið mjög skýrt fram í samtölum mínum við íbúa í Árbæ að þjónustan er of langt frá fólki. Á íbúafundinum með hverfinu var einmitt nefnt að þjónustan væri of dreifð og að Austurmiðstöðin þjónaði of stóru svæði. Ég vil styrkja hverfiskjarnann í Árbæ þannig að fólk geti sótt þjónustu nær sér. Þetta snýst um að gera lífið einfaldara –sérstaklega fyrir fjölskyldur.

Og þessi „smærri“ mál – göngustígar, sorphirða, umhverfi?

Þetta eru ekki smá mál, þetta eru risa mál. Þetta eru hlutirnir sem fólk sér og finnur fyrir á hverjum degi. Íbúar nefndu að bæta þyrfti göngustíga, gera umhverfið snyrtilegra og laga sorphirðu. Þetta eru verkefni sem ég tel að eigi að fara af stað strax. Þetta er spurning um virðingu fyrir hverfinu og fólkinu sem þar býr.

Ef þú dregur þetta saman – Hvað tekurðu með þér inn í kosningabaráttuna eftir samtöl þín við íbúa Árbæjar?

Að fólk vill einfaldlega að borgin standi með sér. Í lok íbúafundarins sögðu íbúar skýrt að samgöngur og skólamál ættu að vera í forgangi og að úthverfin fengju meiri athygli. Þetta eru ekki flókin skilaboð eða heimtufrekja, þetta eru fullkomlega eðlilegar og sanngjarnar kröfur.

Ég skil af hverju fólk velur að búa í hverfum eins og Árbæ – ég geri það sjálfur. Þetta eru frábær samfélög. En þá þarf borgin líka að standa með þeim. Ég hef gert það, og mun halda áfram að gera það með skýrum aðgerðum, betri forgangsröðun og raunverulegum framkvæmdum.

Árbær á ekki bara að vera gott hverfi til að búa í – Árbær á að vera í forgangi hjá borginni. Nú er tíminn til að gera það að veruleika.

Einar og Magnea sem skipar annað sætið hjá Framsókn í Reykjavík.
Einar ræðir málin á íbúafundi í Reykjavík.
Frá íbúafundi í borginni.

BYYRG A ÞETTTA ÁB

I GAAR A SNÝ G

EK ÝST U R UM KSTUR

Í BORGINN G I

skilað rams B F gars ði bor BORG sókn sner sjóði með ekst ri við r

ða 5 milljar trinum í bo gangi a af ginni og or .

Borgarlínuskattur kæmi hart niður á Árbæingum

- segir Ari Edwald, borgarstjóraefni Miðflokksins

Árlegur skattur vegna borgarlínu gæti numið um hálfri milljón króna á fjölskyldu í Árbæ segir Ari Edwald, efsti maður á lista Miðflokksins, í samtali við Árbæjarblaðið um málefni hverfisins.

Ari bjó í Grafarvogi á annan áratug en hefur nú fest kaup á húsi í Seljahverfi ásamt unnustu sinni, Ingibjörgu Davíðsdóttur alþingismanni.

Ari telur að Árbær, Selás, Ártúnsholt og Norðlingaholt hafi verið vanrækt og jafnvel gleymd hverfi hjá borgarstjórn. ,,Þetta kemur fram með ýmsum hætti, t.d. varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja, sem hefur gengið afar seinlega fyrir sig í Árbænum.

Samgöngumálin eru einnig vanrækt og það kemur hvað eftir annað í ljós að vinstri meirihlutinn hefur engan metnað gagnvart úthverfunum og lítur frekar á þau eins og einhver olnbogabörn í borginni.

Borgarlínuskatt? – Nei takk!

Ari segir mikilvægt að frambjóðendur til borgarstjórnar hafi skýra stefnu í helstu málaflokkum svo

að kjósendur viti fyrir hvað þeir standi. Samgöngumálin séu dæmi um þetta en þar tali Miðflokkurinn skýrum rómi. ,,Við tökum eindregna afstöðu gegn svokallaðri borgarlínu, ekki síst vegna hinnar miklu viðbótarskattheimtu sem hún myndi hafa í för með sér. Ólíklegt er að kostnaður við borgarlínu verði undir 200 milljörðum króna. Fjármagna á verkefnið með nýjum skatti, sem myndi leggjast þyngst á íbúa Árbæjar og annarra eystri hverfa borgarinnar. Kostnaður fjölskyldu í Árbæ vegna skattsins gæti numið um hálfri milljón króna á ári miðað við kynntar forsendur. Þessi skattur yrði því margfalt hærri en kílómetragjaldið, sem ríkið hóf að innheimta um sl. áramót.

Miðflokkurinn vill hlífa Reykvíkingum við þessum borgarlínuskatti og talar því skýrt gegn borgarlínu. Stefna miðflokksins er að bæta strætó; leiðarkerfið, vagnana og biðstöðvarnar, auka tíðni, nýta snjallljósastýringu og fjölga forgangsakreinum hægra megin við umferð. Þessi leið er mun ódýrari en Borgarlína og hefur ekki sama rask í

för með sér.“

Heimgreiðslur og samræmd próf Miðflokkurinn vill afnema svokölluð vaxtarmörk og auka lóðaframboð í borginni. Einnig vill hann draga úr margvíslegri gjaldheimtu á íbúðakaupendur og stuðla þannig að því sem flestir geti eignast þak yfir höfuðið. Þéttingarstefnan hefur eins og umferðartafir kostað borgarbúa gríðarlegar fjárhæðir. Þá leggur flokkurinn áherslu á dagvistarmál, vill m.a. semja um rekstur vinnustaðatengdra leikskóla og taka upp heimgreiðslur fyrir foreldra, sem hafa ekki fengið leikskólarými fyrir börn sín við tólf mánaða aldur og til tveggja ára. Áhersla verði einnig lögð á að efla grunnskólann, t.d. með því að bæta starfsaðstæður kennara svo þeir geti einbeitt sér að kennslu. Þá verði samræmd próf tekin upp við lok grunnskólagöngu og einkunnir gefnar í tölustöfum.

Málefni Árbæjar í forgang

Ari segir að of lengi hafi málefni

Árbæjar og annarra eystri hverfa verið vanrækt en Miðflokkurinn vilji breyta því. ,,Forgangsmál okkar er að laga gatnamót Bæjarháls-Höfðabakka og opna beygjuakreinar þar að nýju. Þrenging gatnamótanna síðasta sumar var fáránleg framkvæmd, sem hefur valdið miklum umferðartöfum á stóru svæði. Þessar tafir hafa daglega mikinn kostnað í för með sér fyrir Árbæinga og aðra íbúa í efri byggðum.“

Árið 2020 samþykkti borgarráð tillögur starfshóps um forgangsröðun

íþróttamannvirkja í borginni. Starfshópurinn raðaði stækkun á Fylkisseli, fimleikahúsi Fylkis, efst á forgangslistann en enn hefur ekki orðið af framkvæmdum. Ari vill bæta úr þessu enda sé starfsemin í Fylkisseli mjög öflug og því brýn þörf á stækkun. Viðhaldsátak í Árbæ

Viðhald hefur setið á hakanum hjá Reykjavíkurborg og á þetta ekki síst við um Árbæ að sögn Ara. ,,Víða í hverfinu eru gangstéttir ójafnar og brotnar enda komnar til ára sinna. Þetta á við um Hraunbæ, Rofabæ, Fylkisveg, Selásbraut, Streng og Straum svo einhverjar götur séu nefndar. Ágætur Árbæingur hefur ítrekað bent á það á íbúasíðu hverfisins að orðið sé illfært fyrir gangandi og fólk með barnavagna í hverfinu. Þá þurfa margir leikvellir í hverfinu sárlega á endurbótum að halda. Viðhaldi ljósastaura hefur einnig verið mjög ábótavant í hverfinu, sem og á stígum í Elliðaárdal og Víðidal. Miðflokkurinn vill ráðast í viðhaldsátak í Árbænum þar sem áhersla verður lögð á þessi atriði.“ Ari bendir einnig á að auka þurfi umferðaröryggi í Árbæjarhverfum. ,,Víða þarf að koma fyrir vel merktum og upplýstum gangbrautum, t.d. í Norðlingaholti. Þá þarf að auka umferðaröryggi við Fylkissel og félagsmiðstöðina Holtið við Norðlingabraut. Óviðunandi er að þar sé ekki merkt gönguleið fyrir börnin yfir bílastæðið þar sem lýsingu er einnig ábótavant.“ Árbæingar í framboði Ari segir að frambjóðendur Miðflokksins þekki vel þarfir íbúa í Árbænum. ,,Við búum svo vel að hafa tvo öfluga Árbæinga ofarlega á framboðslistanum, þau Lárus Blöndal Sigurðsson framkvæmdastjóra, sem skipar þriðja sæti listans, og Katrínu Magnúsdóttur, náms- og starfsráðgjafa, sem er í áttunda sæti. Saman ætlum við að leggja áherslu á málefni Árbæjar og annarra eystri hverfa í störfum okkar í borgarstjórn á komandi kjörtímabili. Við hvetjum því alla Árbæinga til að setja X við M,“ segir Ari Edwald að lokum.

Ari Edwald.
okkar er að laga gatnamót Bæjarháls-Höfðabakka og opna beygjuakreinar þar að nýju,# segir Ari Edwald.

Peningana aftur

út í hverfin

- eftir Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar í Reykjavík

Ég fór í pólitík út af mygluðum leikskóla. Reyndar er sagan flóknari. Eftir að ég eignaðist barn áttaði ég mig fá því á hversu vondum stað leikskólar í Reykjavík eru. Við fjölskyldan byrjuðum á því að bíða í 33 mánuði eftir plássi í hverfinu. Mánuði eftir að drengurinn var kominn í hverfisleikskólann var okkur foreldrum tilkynnt að sú skólabygging væri nánast ónýt og að þessi 60 barna leikskóli yrði því fluttur í þarnæsta hverfi. Slatti af starfsfólkinu fylgdi ekki með. Eftir örfáa mánuði á nýja staðnum var okkur svo tillkynnt að sú bygging væri á niðurrifsáætlun borgarinnar. Niðurstaðan: næstum því þrjú ár í biðröð eftir leikskólaplássi og á einu ári mun strákurinn minn hafa verið í þremur leikskólabyggingum, tvær þeirra vel myglaðar og að hruni komnar.

Þessi staða er ekki bundin við hverfið mitt í 108. Þetta er staðan úti um alla borg. Innviðir eru í molum, borgin hefur ekki sinnt viðhaldi og grundvallaratriðum. Á sama tíma og við fjölskyldan höfum verið í þessari stöðu stæra borgaryfirvöld sig af því að inntökualdur á leikskóla sé að færast niður í borginni og að vel gangi að ná tökum á vandanum. Það er einfaldlega ekki rétt og hljómar meira eins og gaslýsing en sannleikur. Samfylkingin hefur meira og minna haldið á þessum málaflokki síðustu þrjú kjörtímabil og siglt honum í strand - sem og öðru.

Hvert í ósköpunum hafa peningarnir farið?

Reykjavíkurborg fjárfestir að jafnaði fyrir 20 milljarða á ári. Þetta hljómar sem há tala en þegar horft er á ástand innviða í hverfum borgarinnar flækjast málin. Hvert í ósköpunum hafa þessir peningar farið miðað við ástandið á húsum, mygluna, brotnar gangstéttir og þar fram eftir götunum? Að okkar mati hafa of mörg hégómaverkefni fengið framgöngu, eitthvað sem er næs en ekki nauðsynlegt. Þegar kemur að því að forgangsraða peningum í fjárfestingar munum við horfa á hverfin í heild og forgangsraða í þágu barna í borginni. Ef borg er góð fyrir börn, er hún góð fyrir öll.

Reykjavíkurborg hefur um 200 milljarða króna í tekjur á ári þegar allt er talið: útsvarið, tekjur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, arðgreiðslur og einskiptistekjur. 200 milljarðar króna er auðvitað svimandi há fjárhæð samanborið við heimilisbókhaldið en megnið af peningunum fer strax aftur í rekstur á nauðsynlegum verkefnum á borð við leik- og grunnskóla, velferðar-

þjónustu, sorphirðu og þjónustu við fatlað fólk. Mestmegnis eru þetta verkefni sem Reykjavík ber samkvæmt lögum að sinna.

Á sama tíma fer of mikið fjármagn í löng og yfirmannafrek skipurit og flækjur innan borgarkerfisins. Við í Viðreisn ætlum að forgangsraða fjármunum borgarinnar með öðrum hætti: við ætlum að setja minni pening í kerfið og meiri pening í fólkið. Markmið okkar er skýrt: Reykjavíkurborg á að njóta stærðarhagkvæmni sem langstærsta sveitarfélagið þegar kemur að rekstri á þjónustu við íbúa. Staðan er einfaldlega ekki þannig í dag.

Við viljum að þessir 200 milljarðar sem borgin fær í tekjur á ári hverju skili sér með sem skilvirkustum hætti aftur út í hverfi borgarinnar - að þeir fari í grunnþjónustu við borgarbúa.

Við erum að tala um sundlaugarnar, leikskólana, grunnskólana, velferðina og það að halda borginni okkar hreinni og fínni. Við erum líka að tala um eignir Reykjavíkurborgar.

Eignasjóður borgarinnar er eitt stærsta fasteignafélag landsins og þar leynast mörg af djásnum Reykjavíkur; söfn, skólabyggingar og íþróttamannvirki. Borgin hefur markvisst sleppt því að halda

byggingum sínum við og eytt peningunum í annað. Það er því ljóst að innviðaskuld fjölmargra mannvirkja borgarinnar hleypur á tugum milljarða. Viðreisn ætlar að setja stjórn yfir fasteignir borgarinnar þannig að ljóst sé hvar ábyrgðin liggur. Í framkvæmdum borgarinnar, sem einkum eru á vegum Eignasjóðs, viljum við að gagnsæi ríki með mælaborði framkvæmda.

Við bjóðum okkur fram til þess að taka ábyrgð 13 prósent landsmanna treysta borgarstjórn Reykjavíkur. Þetta vantraust þarf ekki að koma á óvart þegar litið er til Braggans, Brákarborgar og Græna gímaldsinssem eru þrjú helstu klúður síðustu ára í Reykjavík. Ótrúlegt en satt benda kjörnir fulltrúar á hvern annan þegar spurt er: hver ber ábyrgð á þessum húsum? Ef við skiljum ekki hvernig þetta gerðist, hvernig eigum við þá að fyrirbyggja að svona gerist aftur?

Í mínum huga er ljóst að skerpa þarf á ábyrgðarkeðju innan borgarinnar þannig að ljóst sé á hverju pólitíkin beri ábyrgð á og á hverju stjórnkerfið beri ábyrgð á. Við í Viðreisn bjóðum okkur fram til að taka ábyrgð á því sem gerist í borginni á meðan við sitjum í borgarstjórn. Það er mikilvægur liður í því að snúa

vantrausti í traust.

Annar mikilvægur hlekkur í því að byggja upp traust er að treysta á móti. Við í Viðreisn ætlum að gera það. Við ætlum að treysta fagfólkinu í skólunum, við ætlum að treysta atvinnulífinu, við ætlum að treysta fólki sem vill skapa og gera borgina skemmtilegri og treysta fjölskyldum til að lifa sínu lífi.

Snúum Reykjavík við Allir sjá að eitthvað er að en það er ekki nóg. Það er ekkert mál að greina og tala um vandamálin við eldhúsborðið eða á samfélagsmiðlum.

Annað er að bjóða fram lausnir. Við í Viðreisn bjóðum fram lausnir til þess að snúa Reykjavík við. Við erum teymi sem getur unnið saman og látið þessar lausnir raungerast. Við erum ekki að leita að þægilegri innivinnu heldur bjóðum við okkur fram til að mæta glöð og peppuð í vinnuna á hverjum degi fyrir borgarbúa. Við bjóðum okkur fram til þess að búa til skemmtilegri og betri borg sem Reykvíkingar eru stoltir af og velja að búa í.

Ég hvet þig til að kynna þér málefnin okkar nánar á vidreisnreykjavik.is - og svo setja X við C þann 16. maí næstkomandi. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Reykjavík

Björg Magnúsdóttir. Mynd Gunnar Bjarki
Björg ræðir við RÚV um stefnu flokksins í borginni. Mynd Gunnar Bjarki

Reykjavíkurborg er aukaleikari

-

eftir Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Stundum er sagt að bestu knattspyrnudómararnir séu þeir sem áhorfandinn tekur ekki eftir. Þeir leyfa leiknum að fljóta og grípa ekki inn í nema ýtrasta nauðsyn krefji. Þeir skapa umgjörð þar sem leikmennirnir – ekki dómarinn – eru í aðalhlutverki.

Sama má segja um hið opinbera. Hlutverk borgaryfirvalda í Reykjavík er ekki að þvælast fyrir íbúunum í hversdeginum, heldur að gera þeim kleift að lifa sínu lífi, upplifa drauma og þrár án afskipta. Reykjavíkurborg á

ekki að hafa skoðun á barnaafmælum eða hvort bjóða eigi upp á pylsur í grillveislum.

Okkar hlutverk er hið sama og knattspyrnudómarans. Sjá til þess að lífið fljóti og að borgararnir verði fyrir sem minnstum afskiptum frá borgaryfirvöldum.

Hvert er hlutverk borgarinnar?

Íbúar í Reykjavík eiga rétt á því að grunnþjónustunni sé sinnt, og að þeir

á að þrífa reglulega, ruslið skal tæma, snjó að moka, gras að slá og arfa að reyta. Stefnu borgaryfirvalda um „viljandi villt“, þarf að afnema, enda ekkert annað en umbúðir utan um skort á vilja og getu til að hirða almennilega um borgarlandið.

Við þurfum að sjá til þess að fólk fái leikskólapláss í sínum hverfum og að samgöngur gangi greiðar fyrir sig. Hvort tveggja tekur auðvitað tíma eftir áratuga óstjórn í þessum málaflokkum, en strax þarf að hefjast handa við að

Hildur á meðal fólks á fallegum degi í Reykjavík.

Björnsdóttir.

leysa úr flækjunum.

Sama gildir um húsnæðismarkaðinn. Tölur sýna að borgarbúar vilja ekki ofurþéttingu, og margra hæða hús. Þá dreymir um eigið húsnæði, og þar skipta hlutir eins og bílastæði og góð ljósvist miklu máli. Auðvitað má þétta þar sem það á við, en við verðum að hverfa frá þeirri ofurþéttingarstefnu sem hér hefur verið rekin undanfarin ár.

Að lifa á sínu forsendum

Tryggja þarf að íþróttaaðstaða í öllum hverfum borgarinnar sé fyrsta flokks. Íþróttamiðstöðvar og sundlaugar eru lykilþáttur í lífi Reykvíkinga. Sama gildir um grænu

svæðin sem eru hverfunum okkar svo mikilvæg. Þau þarf að vernda hvað sem það kostar.

Reykjavíkurborg á að sinna sínu grunnhlutverki en láta íbúana að öðru leyti í friði. Reykjavík á að vera borg þar sem grunnþjónustan virkar, og íbúar komast leiðar sinnar stóráfallalaust.

Borgaryfirvöld eru ekki í aðalhlutverki, heldur íbúarnir.

Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Tryggjum rödd árbæinga í borgarstjórn

- eftir Guðnýju Maríu Jóhannsdóttur, 6.sæti á lista Sjálfstæðisflokksins

Nú styttist í að við borgarbúar göngum til kosninga og tökum afstöðu til þess hvaða einstaklingar það verða sem stýra muni borginni okkar næstu fjögur árin. Ég er búsett í Árbænum, gift tveggja barna móðir sem hefur ákveðið að verja næstu fjórum árum í að vinna að því markmiði að bæta þjónustu við íbúa og fyrirtæki í Reykjavík. Á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er öflugt fólk með fjölbreyttan bakgrunn sem hefur gefið út sinn verkefnalista fyrir næstu fjögur ár inn á www.xdreykjavik.is Þar höfum við sett fram hvað við ætlum að gera fyrstu 100 dagana, fyrstu 12 mánuðina og svo næstu fjögur árin. En við byrjum auðvitað á því sem að hægt er að gera strax. Í mínum huga eru það forréttindi að búa í Árbænum, í nálægð við

Elliðaárdalinn og Heiðmörkina. Hverfið okkar hefur mikla sérstöðu og við ætlum að tryggja að svo verði áfram. Í Árbæ er hlutfall starfa miðað við íbúafjölda mjög hátt og mikil og blómleg atvinnustarfsemi og þjónusta er á höfðanum og hálsunum. Hverfið er fjölskylduvænt og bíður upp á fjölbreytta búsetukosti. Heilbrigður rekstur Reykjavíkurborgar er forsenda þess að mögulegt sé að veita góða þjónustu og standa undir lögbundnum verkefnum.

Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að ráðast í hagræðingaraðgerðir í rekstri borgarinnar og tryggja góða þjónustu við borgarbúa á öllum æviskeiðum. Í okkar góða hverfi þurfum við að fara í viðhaldsátak á gangstéttum og leikvöllum og bæta lýsingu á göngustígum. Það á að vera auðvelt

fyrir fólk á öllum æviskeiðum að komast um innan hverfisins. Það er stórt lýðheilsumál að umhverfið okkar sé snyrtilegt og fallegt og hvetjandi fyrir okkur til að stunda daglega hreyfingu. Þetta er dæmi um verkefni sem ráðast má í strax. Við þurfum að taka vel utan um íþróttafélagið okkar Fylki og hestamannafélagið Fák þar sem sjálfboðaliðar vinna kraftaverkastarf alla daga til að gera samfélagið okkar betra.

Sjálfstæðisflokkurinn vill ýta undir meiri þjónustu innan hverfa borgarinnar. Með því að einfalda leyfismál, þjónustuvæða embætti skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa og vera í góðu samtali við atvinnulífið og hlusta á þeirra þarfir. Þetta má ráðast í strax. Borgarbúar vilja komast hraðar á

milli staða og Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að laga umferðarflæðið á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls svo að m.a. við íbúar í Árbæ komumst hraðar á milli staða innan hverfis.

Of lengi hafa borgarbúar búið við að máluð sé glansmynd um fjarlægja framtíð. Á meðan líða, dagar, vikur, mánuðir og ár, en ekkert gerist. Lífið er núna og við viljum einblína á það sem hægt er að gera strax svo bæta megi borgina okkar. Tími er kominn til að breyta um forystu í Reykjavík. Dæmin sýna að eina leiðin til að tryggja að svo verði er að tryggja Sjálfstæðisflokknum nægjanlegan styrk. Settu X við D þann 16. maí og tryggðu löngu tímabærar breytingar í Reykjavík

Guðný María Jóhannsdóttir.

Hildur

Árbæjarblaðið Árbæjarblaðið

tÚtgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is

Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.

Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322.

Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is

Útlit og hönnun: Skrautás ehf.

Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson - abl@skrautas.is

Prentun: Landsprent ehf.

Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir.

Dreifing: Póstdreifing.

Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti og Norðlingaholti.

Kjóstu rétt á laugardaginn

Næsta laugardag verður gengið til sveitastjórnakosninga og landsmenn fá tækifæri til að tjá sig í kjörklefanum og meta frammistöðu stjórnmálamanna síðustu fjögur árin.

Kosningarnar í Reykjavík vekja eðlilega mestan áhuga og útlit er fyrir að kosningarnar verði mjög spennandi í Reykjavík.

Kjósendur hafa í skoðanakönnunum síðustu vikurnar lagt ríka áherslu á að breytinga sé þörf í Reykjavík. Um 73% kjósenda segjast vilja breytingar. Mörg framboðin segjast vilja breytingar og nú er bara að sjá hverjir veljast til meirihluta starfa í borginni og hvort einhverjar breytingar eigi sér stað.

Þessar kosningar verða mjög mikilvægar fyrir úthverfin í Reykjavík. Að margra mati hefur verið valtað yfir íbúa í úthverfunum í mörgum málum, til að mynda í þéttingarmálum. Allir muna eftir græna gímaldinu í Breiðholti, gatnamótunum við Bæjarháls og Höfðabakka og hvernig mál hafa gengið fyrir sig hjá Fram í Úlfarsárdal og Fylki í Árbænum.

Núna síðustu dagana fyrir kosningarnar hefur verið rokið til í nokkrum málum og reynt að bjarga andlitum. Slík viðbrögð korteri fyrir kosningar kalla á verðskuldað vantraust.

Íbúar í úthverfunum þurfa að kjósa rétt á laugardaginn og hafa í huga hvernig mál hafa þróast síðustu fjögur árin. Og kjósendur þurfa að íhuga vel hvaða flokk er best að kjósa með raunverulegar breytingar í huga.

Það eru margir óánægðir og aðeins er ein leið fær til að gera breytingar. Það er að kjósa flokk sem íbúar treysta. Það er spennandi laugardagur framundan og ekki aðeins kosningar. Þann daginn er söngvakeppni Evrópu líka á dagskrá. Ég kýs að hundsa hana en mun nýta atkvæði mitt með breytingar í huga. Stefán Kristjánsson

Gerum borgarbúum lífið einfaldara

- eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Íbúar í úthverfum Reykjavíkur þekkja það vel að daglegt líf tekur sífellt meiri tíma. Að koma börnum í skóla og tómstundir, aka til vinnu eða einfaldlega komast á milli staða er orðið mun erfiðara en það þarf að vera og var áður fyrr. Umferðin þyngist, tafir aukast og ákvarðanir virðast of oft teknar án þess að horft sé til þess hvernig fólk lifir raunverulega í borginni.

Þetta finna íbúar í Árbæ og Norðlingaholti, Grafarvogi, Grafarholti og Úlfarsárdal, Breiðholti og víðar fyrir á hverjum degi.

Á sama tíma hefur borgarstjórnarmeirihlutinn lagt megináherslu á að þrengja að umferð, fækka bílastæðum og þétta byggð án þess að innviðir ráði við fjölgunina. Fólk upplifir sífellt meiri tafir og meiri flækjur í stað betri samgangna.

Þessu er vel hægt að breyta og það strax, enda eru þetta pólitískar ákvarðanir.

Við getum lagað umferðina strax

Sjálfstæðisflokkurinn vill fara aðra leið. Við viljum borg sem byggir á skynsemi, jafnvægi og raunverulegum þörfum fólks. Borg þar sem markmiðið er að auðvelda fólki lífið í stað þess að gera það flóknara.

Þess vegna höfum við lagt fram skýran aðgerðalista í samgöngumálum.

Á fyrstu 100 dögunum ætlum við að endurskoða samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og kalla eftir gagnsæi í fjármögnun hans. Borgarbúar eiga rétt á að vita hvað framkvæmdin kostar og hver borgar reikninginn. Við viljum einnig hafna fyrirhuguðu

deiliskipulagi við Suðurlandsbraut sem mun auka álag á þegar þunga umferð. Þá ætlum við að vinda ofan af þrengingum á gatnamótum við Höfðabakka strax, þar sem breytingar hafa haft augljós áhrif á flæði og tafir í umferð. Við munum stytta gjaldskyldutíma bílastæða í miðborginni svo ekki verði rukkað eftir klukkan 18 og fjarlægja

Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

aðskotahluti úr bílastæðum sem hafa þrengt að aðgengi fólks og fyrirtækja. Þá viljum við afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar og veita 90% afslátt af gatnagerðargjaldi við gerð bílakjallara til að auðvelda uppbyggingu og minnka álag á göturými í íbúðahverfum.

Sveigjanlegri mætingartími

En þetta snýst ekki eingöngu um bíla.

Þetta snýst um að samgöngukerfið allt virki betur. Á næstu tólf mánuðum viljum við flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa um alla borg, bæta snjómokstur og hreinsun gatna, bæta lýsingu á gönguleiðum barna og nýta tæknilausnir og gervigreind til að bæta þjónustu Strætó út frá raunverulegri notkun. Við ætlum enn fremur að vinna með Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Landspítalanum að betri dreifingu álags í umferðinni með sveigjanlegri mætingartíma. Það þarf ekki alltaf flóknar og dýrar lausnir til að bæta umferðina, stundum þarf einfaldlega að skipuleggja hlutina betur. Til lengri tíma þurfum við síðan að ráðast í alvöru innviðauppbyggingu. Þar eru Miklubrautargöng, mislæg gatnamót við Reykjanesbraut og Bústaðaveg og uppbygging Sundabrautar lykilverkefni. Við viljum jafnframt endurskoða Borgarlínuna frá grunni og byggja upp hraðvagnakerfi á sérakreinum sem bætir almenningssamgöngur án þess að þrengja að annarri umferð.

Góð borg tryggir fjölbreytta valkosti og greiðar samgöngur fyrir alla. Reykjavík á að vera borg sem virkar fyrir fjölskyldur í úthverfunum, fyrir atvinnulífið og fyrir allt það fólk sem heldur samfélaginu gangandi á hverjum degi.

Við getum gert betur. Og við eigum að gera það strax.

Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

Sterk velferð –stolt Reykjavík

- eftir Pétur Marteinsson, oddvita

Samfylkingarinnar í Reykjavík

Reykjavík er frábær borg. Á síðustu árum og áratugum hefur hún vaxið og dafnað á fjölmörgum sviðum. Tímabilið 2019–2024 var eitt mesta uppbyggingartímabil í sögu borgarinnar og Reykjavík hefur á síðustu árum verið á meðal þeirra borga í Evrópu sem eru hlutfallslega í örustum vexti. Þessu vaxtartímabili hafa fylgt stóraukin lífsgæði fyrir borgarbúa og landsmenn alla, sem eiga höfuðborgina saman. En því hafa líka fylgt áskoranir sem margir borgarbúar finna fyrir á hverjum degi. Það er skortur á ákveðinni tegund af húsnæði. Sívaxandi umferð er mörgum erfið og leikskólakerfið er ekki að virka eins og við öll viljum. Hér er einungis stiklað á stóru. Flóknari samfélagsgerð fylgja einfaldlega flóknari verkefni.

Vel rekin borg og öflugt atvinnulíf Við slíkar aðstæður er nauðsynlegt að halda vel á rekstri borgarinnar svo hægt sé að standa undir þeim kröfum sem íbúar gera til hennar þegar kemur að innviðafjárfestingu og þjónustuveitingu. Allar lykiltölur um fjármálalegt heilbrigði sýna stöðu Reykjavíkur vera betur rekna en meira og minna öll önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, sem flestum er stýrt af Sjálfstæðisflokknum.

Það þarf þó að gera betur og við í Samfylkingunni leggjum sérstaka áherslu á að einfalda lífið fyrir fólk og fyrirtæki eftir komandi kosningar. Að hagræða í yfirbyggingu án þess að það bitni á gæðum þjónustu, létta á og stytta biðtíma. Borgin á að vera með atvinnulífinu í liði, ekki hindra framgang þess.

Það kemur ekki til greina að rífa upp sáttmálann

Sú mikla fjölgun íbúa sem orðið hefur í Reykjavík og í nágrannasveitarfélögum hennar hefur gert það að verkum að umferðin hefur þyngst hratt. Frá árinu 2016 hafa um 70 bílar bæst við umferðina á höfuðborgarsvæðinu í hverri viku.

Vegna þessa var ráðist í að gera samgöngusáttmála fyrir svæðið allt. Hann var gerður 2019 með það fyrir augum að liðka fyrir einkabílnum, almenningssamgöngum, gangandi og hjólandi. Í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna árið 2022 var sáttmálinn tekinn upp að nýju og endurskoðaður og hann var undirritaður, að uppistöðu af fulltrúum Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks frá ríki og sveitarfélögum, fyrir tæpum tveimur árum. Nú tveimur árum eftir að þeirri endurskoðun lauk, sem tók tvö ár, vilja ýmis framboð hefja það ferli aftur, með fleiri nefndum og meiri töfum. Það kemur ekki til greina af hálfu okkar í Samfylkingunni vegna þess að það væri gríðarlega ábyrgðarlaust og myndi fresta úrbótum fyrir alla, sama hvernig

þeir ferðast frá A til B, um mörg ár.

Börnin í fyrsta sæti

Við ætlum að lögfesta rétt barna til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi í samstarfi við ríkið, taka upp systkinaforgang, bæta vinnuaðstæður og fjölga leikskólaplássum um 1.500 á kjörtímabilinu til að bjóða yngri börnum inn á leikskóla.

Þessar áherslur koma í kjölfar Reykjavíkurleiðarinnar svokölluðu sem kynnt var fyrr á árinu og hefur það markmið að gera leikskóla borgarinnar að aðlaðandi vinnustað, að minnka bil milli vinnutíma starfsfólks og vistunartíma barna, bæta mönnunarstöðu og um leið mæta foreldrum á jafnræðisgrundvelli út frá efnahagslegri stöðu þeirra.

Vel hefur verið tekið í leiðina og skráning nýs vistunartíma verið umfram áætlanir.

Byggjum húsnæði fyrir fólk

Samfylkingin vill byggja upp húsnæðismarkað þar sem allir geta fundið sér heimili við hæfi, þar sem húsnæðisöryggi er tryggt, meðal annars

með óhagnaðardrifinni uppbyggingu. Í kosningaáherslum okkar er lagt upp með að byggja um 6.000 nýjar íbúðir í Reykjavík á næstu fjórum árum. Auk þess hefur náðst tímamótasamkomulag milli ríkisstjórnarinnar, sem leidd er af Samfylkingunni, og borgarinnar um uppbyggingu allt að 1.400 íbúða á reitum innan borgarinnar sem eru í eigu ríkisins.

Með þessum áherslum verður til stöðug og fyrirsjáanleg uppbygging þar sem markmiðið er að ná jafnvægi á húsnæðismarkaði og mæta raunverulegri þörf allra borgarbúa.

Verjum árangurinn og sækjum fram En fyrst og síðast þarf Reykjavík að vera borg sem gerir okkur stolt. Þar sem við einblínum á það sem skiptir mestu máli og tökum ábyrgð hvert á öðru. Setjum börnin í fyrsta sæti, byggjum fyrir alla tekjuhópa og hlúum að fólkinu sem byggði landið.

Marteinsson er oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík.

Það er afar mikilvægt að þeir flokkar sem boða kúvendingar komist ekki í aðstöðu til að grafa undan því samfélagi sem við höfum byggt upp. Harkaleg U-beygja til hægri, þar sem við hættum að byggja fyrir alla hópa, seljum eignir og látum stórfyrirtæki sjá um leikskólana bitnar alltaf verst á venjulegu fólki og því sem við eigum saman.

Mótvægið við því eru breytingar á grunni jafnaðarmennsku. Þar sem við pössum upp það sem við eigum hérna saman og tryggjum að kerfið virki fyrir fólkið. Við í Samfylkingu bjóðum fram nýtt fólk, nýjar áherslur en sama markmið: Sterk velferð – stolt Reykjavík.

Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík

Pétur
Samfylkingin ætlar að létta á kerfinu.

Árbærinn og Norðlingaholtið eru dásamleg hverfi – og við viljum halda þeim þannig

eftir Ingimar Þór Friðriksson sem skipar 1. sætið á G-lista Góða dagsins í Reykjavík

Ég býð mig fram til borgarstjórnar því mér finnst sjónarmið íbúa úthverfa of oft ekki fá næga athygli í ákvörðunum borgarinnar. Ég er fjölskyldufaðir, á þrjár dætur og fjögur barnabörn, og vil leggja mitt af mörkum til að gera borgina enn betri – ekki síst fyrir komandi kynslóðir. Það er einfaldlega hægt að gera mun betur á mörgum sviðum.

Ég hef víðtæka reynslu af rekstri sveitarfélaga. Á árunum 2011–2025 starfaði ég sem stjórnandi hjá

Kópavogsbæ þar sem ég leiddi stafræna umbreytingu, upplýsingatækni og þjónustu. Ég vann að umbótum á þjónustuferlum með það að markmiði að einfalda líf íbúa og bæta upplifun þeirra með góðum árangri. Góð þjónusta á að vera grunnstoð í allri starfsemi sveitarfélaga. Ég hef sérstakan áhuga á skólamálum. Konan mín og systir eru grunnskólakennarar og ég kenndi sjálfur við háskóla í 11 ár. Ég stýrði einnig átaki í breyttum kennsluháttum í Kópavogi og hef góða

innsýn í áskoranir og tækifæri í skólastarfi.

Í Kópavogsbæ sá ég meðal annars um uppbyggingu á vöruhúsi gagna sem gerði stjórnendum kleift að hafa betri og áreiðanlegri gögn til ákvarðanatöku. Ýmis mælaborð voru síðan sett ofan á gögnin, sem gerði kleift að mæla árangur í starfseminni og bregðast hraðar við ef eitthvað fór að fara aflaga. Ég leiddi meðal annars verkefnið „Hvert fara peningarnir“ árið 2016. Með því verkefni opnaði Kópavogsbær bókhald sitt upp á gátt og varð fyrsti opinberi aðilinn á Íslandi til að gera slíkt. Í kjölfarið lagði ég mig fram við að aðstoða aðra við að fara sömu leið og kom meðal annars að því að styðja Reykjavíkurborg í slíkri innleiðingu.

Ég vill sjá aukið gagnsæi og gott aðgengi að upplýsingum til að styðja við ákvörðunartöku og hagræðingu. Góð þjónusta við borgarbúa er mér afar hugleikin og ég vil nýta rafrænar

mælingar á þjónustustigi til að geta brugðist við og aðlagað þjónustu að þörfum borgarbúa. Árið 2022 var ég skipaður í Íbúaráð Grafarvogs. Þar sá ég fljótt að þrátt fyrir skýrar ábendingar og breiða samstöðu íbúa var oft lítið brugðist við – og stundum farið í þveröfuga átt. Sömu sögu er að segja frá öðrum Íbúaráðum. Lítið brugðist við bókunum Íbúaráðanna.

Árbær og Norðlingaholt eru frábærir staðir til að búa á. Hér er sterkt og fjölskylduvænt samfélag, góðir skólar og leikskólar og öflugt íþrótta- og menningarlíf. Við njótum Elliðaárdalsins, Heiðmerkur, Rauðavatns, sundlaugarinnar, stíganna, hesthúsanna og alls þess sem gerir hverfið einstakt. Þetta viljum við vernda og efla.

Ég býð mig fram til að nýta þessa reynslu í þágu borgarbúa. Það skiptir máli að hafa góða þekkingu og reynslu í borgarstjórn. Ég mun leggja mig allan

fram til að ná árangri – ef mér verður treyst fyrir því verkefni og vinna málefnalega með öllum þeim sem þangað veljast. Ingimar Þór Friðriksson Höfundur skipar 1. sætið á G-lista Góða dagsins í Reykjavík.

Þór Friðriksson.. Frá vinstri Theodóra S. Þorsteinsdóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs, Árman Kr. Ólafsson bæjarstjóri og Ingimar Þór Friðriksson Ljósmynd: Haraldur Guðjónson Birt í Viðskiptablaðinu 16.09.2016. Í faðmi fjölskyldunnar. Ljósmynd: Ingimar Þór Friðriksson

Traustur rekstur | Virðum vilja íbúa

1. sæti – Ingimar Þór Friðriksson

Þekking í stað flokkspólitíkur

Ingimar hefur undanfarin 15 ár starfað sem stjórnandi hjá Kópavogsbæ við að bæta þjónustuferla og styrkja innviði bæjarins með góðum árangri en bærinn er leiðandi í þessum málum á landsvísu.

2. sæti – Hjördís Dröfn

Sjálfbær rekstur borgarinnar

Einföldum skipulag borgarinnar, hagræðum í rekstri, drögum úr skuldasöfnun og leggjum áherslu á traustar stjórnsýsluaðferðir.

3. sæti – Torfi Markússon Bætum umferðina, næg bílastæði og aðgát í þéttingu byggðar

Við viljum að íbúar geti valið sér raunhæfa samgöngumáta.

4. sæti – Nathalia B. Tómasdóttir

Grunnskólinn

Endurskoða skóla án aðgreiningar, meta árangurinn og taka svo upplýsta ákvörðun um breytingu.

5. sæti – Jón L. Árnason

Eldri borgarar

Mikilvægt er að eiga gott samtal við eldri borgara um hverjar þarfir þeirra eru. Það munum við m.a. gera með reglulegum viðhorfskönnunum.

6. sæti – Björn Jóhann Þórsson

Skemmtilegri borg

Styðjum fjölbreytta menningu og ýtum undir sköpun.

Eflum fræðslu og forvarnir og styðjum við lýðheilsu í víðum skilningi. Hlustum á íþróttafélögin og bregðumst við.

Hann hefur meðal annars leitt stafræna umbreytingu, innleitt notkun gervigreindar og stýrt átaki í breyttum kennsluháttum.

Þekking í stað flokkspólitíkur

Ingimar þekkir þjónustuferla sveitarfélaga vel og veit hvernig má bæta þá og lækka kostnað.

Til að bæta rekstur borgarinnar þarf skýra stefnu, mælanleg markmið og hæft fólk í borgarstjórn.

Þetta eru lykilforsendur við sjálfbæran rekstur og betri þjónustu til lengri tíma.

Þekking í stað flokkspólitíkur

Áríðandi er að bæta samgönguvandamál bæði fyrir bíla og almennings samgöngur. Hægt er að útfæra lausnir án þess að þrengja að umferðinni með snjallljósastýringum og álíka lausnum.

Að fá Ingimar inn í borgarstjórn er gríðarlegt tækifæri fyrir borgarbúa – þar kemur inn djúp þekking á rekstri og skýr sýn á hvernig má bæta þjónustu og nýta fjármuni betur.

Betri vinnustaður

Árangur borgarinnar byggir á öflugu starfsfólki. Við viljum skapa vinnuumhverfi þar sem það nýtur trausts, stuðnings og góðra starfsskilyrða.

Góður vinnustaður er forsenda góðrar þjónustu.

Góð viðmið um birtu íbúða er skilyrði.

Þétting byggðar á aðeins að eiga sér stað í góðri sátt við íbúa og innviði hverfa.

Við viljum tryggja raunhæft skipulag hverfa með að lágmarki 1,5 bílastæði á hverja íbúð, og heimila uppbyggingu bílastæðahúsa þar sem það á við.

Grunnskólinn er ein mikilvægasta þjónusta borgarinnar og hefur afgerandi áhrif á framtíð samfélagsins.

Við viljum styrkja stuðning við nemendur með fjölbreyttan bakgrunn, þar á meðal þá sem ekki hafa íslensku að móðurmáli.

Þekking í stað flokkspólitíkur

Við viljum styðja við það að fólk geti búið sem lengst heima og þá með þjónustu. Mikilvægt er að sporna við félagslegri einangrun eldra fólks.

Við viljum eiga samtal við eldri borgara um breytingar á húsnæðisþörf þeirra á efri árum.

Við viljum fjölga góðum dögum í Reykjavík, góð lýðheilsa og gott menningarlíf er stór þáttur í því.

Við leggjum því mikið upp úr öflugu íþróttastarfi og viljum leggja okkar á vogarskálarnar til efla það.

Auðvelda þarf aðgang efnaminni og erlendra barna að skipulögðu frístundastarfi.

Fjölga skólaúrræðum fyrir fötluð börn sem þess óska.

Þjónusta við borgarbúa

Mikilvægasta hlutverk Reykjavíkurborgar er að veita íbúum góða og áreiðanlega þjónustu. Við viljum setja þjónustuna í forgang og tryggja að hún taki mið af raunverulegum þörfum borgarbúa.

Til að mæta óskum íbúa viljum við gera reglulega þjónustukannanir. Við munum mæla árangur þjónustunnar markvisst og birta niðurstöður með gagnsæjum hætti. Þetta á við um alla þjónustuþætti borgarinnar, þar á meðal meðferð ábendinga og erinda frá íbúum.

X

Betri borgarar í Víetnam

Í mars síðastliðnum fór hópur úr leikfimihópi Betri borgara hjá Fylki í ferðalag til Víetnam og Taílands. Alls lögðu 30 manns af stað í ferðina og var lagt upp frá Árbænum með rútu til Keflavíkurflugvallar þann 3. mars.

Hópurinn flaug með SAS til Bangkok með millilendingu í Kaupmannahöfn. Að morgni 4. mars lenti hópurinn í Bangkok og gisti eina nótt á litlu hóteli nálægt flugvellinum til að jafna sig eftir ferðalagið.

Daginn eftir, 5. mars, var haldið áfram til Víetnam, nánar tiltekið til borgarinnar Da Nang, þar sem hópurinn dvaldi í fimm nætur. Á meðan á dvölinni stóð

var farið í fróðlegar skoðunarferðir, meðal annars í Marmarafjöllin og Ba Na Hills, sem er einstakur staður að heimsækja. Einnig fór hópurinn í siglingu um ána Han sem rennur í gegnum Da Nang, þar sem meðal annars mátti sjá hina upplýstu Drekabrú með eldspúandi drekahausum. Þann 10. mars hélt hópurinn áfram ferð sinni til Taílands, til borgarinnar Pattaya, þar sem dvalið var í tíu nætur. Pattaya er lífleg borg þar sem margt er að skoða. Þar heimsótti hópurinn meðal annars einstakan blómagarð sem skreyttur var eftirlíkingum af ýmsum dýra-

tegundum víðs vegar að úr heiminum. Einnig var farið á fljótandi markað og í fleiri skoðunarferðir í nágrenninu. Markmið ferðarinnar var að eiga góðar stundir saman og halda áfram að hreyfa sig á framandi slóðum. Hópurinn stundaði leikfimi undir stjórn Guðnýjar, þjálfara hópsins, auk þess sem ferðalangar nutu sólarinnar, kíktu í verslanir og gerðu vel við sig í mat og drykk. Heimferðin hófst frá Bangkok þann 20. mars með millilendingu í Kaupmannahöfn. Þar þurfti hópurinn að gista eina nótt þar sem flugi til Íslands hafði verið aflýst vegna veðurs.

Ferðin gekk afar vel í alla staði og voru ferðafélagarnir bæði skemmtilegir og samheldnir, sem gerði ferðina sérstaklega eftirminnilega.

Erfitt er að greina vilja borgarbúa í komandi kosningum þegar horft er til skoðanakannana undanfarið. Undanfarna áratugi hefur Samfylkingin verið í forystu í stjórn borgarinnar með öðrum flokkum. Í hverjum kosningum hefur meirihlutinn fallið en samt skrölt áfram með nýju varadekki, hvort sem það er kennt við Pírata, Viðreisn, Framsókn eða Flokk fólksins.

Nýleg skoðanakönnun bendir til þess að tæplega þrír af hverjum fjórum borgarbúum vilji raunverulegar breytingar á stjórn borgarinnar. Borgarbúar virðast líta svo á að allt sem skiptir þá máli sé í skrúfunni, hvort sem það lýtur að fjármálum borgarinnar, álögum á borgarbúa, leikog grunnskólum, umferðar-og skipulagsmálum og þjónustu sem varða borgarbúa miklu.

Þrátt fyrir þessa skoðanakönnun verður ekki annað ráðið að þessir flokkar sem hafa stjórnað borginni öll þessi ár séu enn með meirihluta samkvæmt öðrum könnunum. Það mun því engu breyta við stjórn borgarinnar þótt atkvæði færist frá Samfylkingu yfir til Vinstri grænna, Sósíalista, Pírata, Flokk fólksins eða Viðreisnar sem hafa starfað með þeim öll þessi ár. Áfram mun þessi sami meirihluti skrölta að óbreyttu. Í komandi borgarstjórnarkosningum verður kosið um breytingar. Vilja borgarbúar það sama eða vilja þeir

raunverulegar breytingar. Öllum ætti að vera það augljóst að það verða ekki breytingar á stjórn borgarinnar nema Sjálfstæðisflokkurinn komi nægilega sterkur út úr kosningunum. Þótt staða Sjálfstæðisflokksins sé sterk í þessum nýju skoðanakönnunum er hún ekki nægilega sterk til að tryggja breytingar. Þeir sem horfa til hægri í tilverunni og vilja raunverulegar og áþreifanlegar breytingar í borginni ættu nú að nýta tækifærið og tryggja að Sjálfstæðisflokkurinn verði kjöl-festan í stjórn borgarinnar eftir næstu kosningar.

Á framboðslista Sjálfstæðisflokksins eru óvenju samhentur hópur sem er með skýr markmið. Kynntur hefur verið nákvæmur tímasettur verkefnalisti fyrir næsta kjörtímabil þar sem horft er til hagsmuna og vilja borgarbúa.

Sjálfstæðisflokkurinn var þekktur þegar hann stjórnaði borginni fyrir að standa við fyrirætlanir sínar. Enginn ástæða er til að ætla að það verði ekki þannig áfram fái hann styrk til að vera ráðandi afl við stjórn borgarinnar eftir kosningarnar.

Brynjar Níelsson
Brynjar Níelsson.
Þetta hressa fólk skartaði höttum að hætti heimamanna.
Glæsilegur hópur betri borgara hjá Fylki í Víetnam.
Þetta ágæta fólk skemmti sér vel í Víetnam á dögunum.

Fimleikar:

Glæsilegur árangur

Fylkis á Þrepamóti FSÍ

Fylkir átti stórglæsilega fulltrúa á Þrepamóti FSÍ sem fram fór 27.-28. febrúar, þar sem keppendur mættu frá öllum heimshornum til að sýna hæfni sína í ýmsum þrepum. Félagið sendi keppendur í 3. þrepi kvenna og bæði 2. þrepi karla og kvenna, og stóðu þeir sig frábærlega.

Keppendur Fylkis sýndu styrk, einbeitingu og góða tækni á mótinu, sem skilaði sér í glæsilegum árangri. Félagið óskar öllum keppendum innilega til hamingju með frábæran árangur og þakkar þeim fyrir að sýna hvernig metnaður og æfingar skila sér í árangri.

Þrepamótið er mikilvægur liður í þjálfun og þróun íþróttamanna og gefur keppendum tækifæri til að prófa sig á alþjóðlegum mælikvarða og undirbúa sig fyrir komandi mót. Með svona glæsilegum fulltrúum má sjá bjarta framtíð í íþróttum hjá Fylki.

Fimleikastelpur framtíðarinnar.

Rök fyrir Sundagöngum í stað Sundabrautar

Saga Sundabrautar er löng og einkennileg að mörgu leyti. Deilur um Sundabrautina hafa lengi einkennst af flokksdráttum og skotgröfum. Hugmyndin var fyrst sett fram árið 1975 og síðar var Sundabrautin skilgreind sem þjóðbraut, og þar með á ábyrgð ríkisins en ekki Reykjavíkurborgar. Úthverfin í Reykjavík hafa lengi beðið eftir þessari framkvæmd enda mun hún leiða af sér mun minni umferðartafir á Vesturlandsvegi. Þetta er því mjög mikilvæg samgöngubót fyrir öll úthverfi borgarinnar, sérstaklega þau sem eru austan Elliðaár og hefði átt að koma til framkvæmda miklu fyrr. Nú, loks 50 árum síðar, 13. október 2025, kom út Umhverfismat – samantektarskýrsla Vegagerðarinnar um þessa framkvæmd. Niðurstaða umhverfismats Vegagerðarinnar er að allir aðalvalkostir teljast uppfylla markmið framkvæmdarinnar. En það kemur vissulega mikið á óvart að brú er talin uppfylla markmiðin betur en göng. Stöldrum hér aðeins við. Íbúaráð Grafarvogs hafði rætt aðalvalkosti framkvæmdanna ítarlega. Ráðið komst einróma að þeirri niðurstöðu að göng væru mun fýsilegri kostur. En í hverju felst þessi mikli munur á afstöðu Íbúaráðs og niðurstöðum

Vegagerðarinnar?

Í skýrslu um umhverfismatið kemur fram að sett eru sex meginmarkmið sem valkostirnir (göng eða brú) þurfa að uppfylla. Byggt á þessum markmiðum kemst Vegagerðin sem sagt að þeirri niðurstöðu að brú uppfylli markmiðin betur en gögn. Í þessum samanburði er niðurstaða Vegagerðarinnar að brúin sé besti kosturinn í þremur markmiðum af sex, sjá meðfylgjandi töflu.

Ef markmiðin sjálf eru skoðuð má þó sjá að mikið vantar. Það vantar að uppfæra markmið framkvæmdarinnar með hliðsjón af nútímakröfum um lýðheilsu íbúa, náttúruvernd og færð. Í raun vantar að setja eftirfarandi markmið fram:

• Íbúar geti notið ósnortinnar strandlengju

• Íbúar geti notið kyrrðar og friðs ofanjarðar (ekkert suð yfir 30 Db)

• Íbúar hafi trygga samgöngubót sem ekki þarf að loka fyrirvaralaust vegna veðurs

Með einföldu mati, sem auðvitað þyrfti að vinna betur, þar sem einnig er lagt mat á þessi viðbótar markmið þá myndu Sundagöng að öllum líkindum teljast betri kostur. Afar mikilvægt er að setja rétt markmið þegar jafn mikilvæg undirbúningsvinna er unnin eins og umhverfismat er í þessu tilfelli. Þegar framkvæmdirnar og breytingin á

umhverfinu eru óafturkræfar. Því er mikilvægt að rýna markmiðin vel og ná samstöðu um þau áður en útreikningar og samanburður er gerður á mögulegum valkostum. Markmiðin leiða niðurstöðuna – og því er lykilatriði að þau séu rétt í upphafi. Ef forsendurnar eru rangar verður niðurstaðan það einnig. Það er líklega ástæðan fyrir niðurstöðu Vegagerðarinnar. Þessu til viðbótar teljum við sem skrifum þessa grein að brú myndi ekki bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta. Jú, hægt er að ganga og hjóla yfir brúna, en þá í miklum umferðarhávaða og berskjöldun fyrir óblíðu veðri. Mun vænlegra er að ganga eða hjóla í friði, ró og í mildara veðri meðfram strandlengjunni og fara yfir voginn undir Gullinbrú. Eins og Grafarvogsbúar eru vanir að gera. Sú leið býður upp á mun ánægjulegri upplifun í ósnortnu umhverfi og meiri veðursæld.

Við sem skipum G-lista Góða dagsins munum beita okkur fyrir því að opnað verði á umhverfismatið eins og það var unnið og bæta við þeim markmiðum sem hér eru talin fram og hefja í kjölfarið gangnagerð. Höfundar: Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir, skipar 2. sæti á G-lista Góða dagsins

Torfi Markússon, skipar 3. sæti á G-lista Góða dagsins

Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir.Torfi Markússon.

Tafla: Niðurstaða umhverfismats Vegagerðarinnar og viðbótarmarkmið um lýðheilsu, náttúruvernd og færð

Stoltir sigurvegarar með verðlaunin og þjálfara sínum.
Stoltar stúlkur á verðlaunapalli.
Þessar vinkonur kepptu á slá og unnu til verðlauna.

Vinna saman að hagsmunamálum eigenda fasteigna

Eignaumsjón og Húseigendafélagið hafa gert með sér samkomulag um samstarf og samvinnu og munu beita sér saman fyrir hagsmunamálum eigenda fasteigna þegar við á. Samkomulagið hefur þegar tekið gildi. Auk þess að beita sér saman fyrir hagsmunamálum eigenda fasteigna þegar við á, nær samkomulagið einnig til eftirfarandi þátta:

• Eignaumsjón fær aðgang að lögfræðingum Húseigendafélagsins fyrir viðskiptavini Eignaumsjónar, skv. gjaldskrá Húseigendafélagsins.

• Húseigendafélagið leigir fundasali hjá Eignaumsjón á hagstæðu verði og

Eignaumsjón fær aðgang að fundarstjórum sem Húseigendafélagið hefur í starfi, eftir nánara samkomulagi hverju sinni.

• Eignaumsjón getur boðið viðskiptavinum sínum upp á námskeið Húseigendafélagsins gegn hagstæðu gjaldi og fær aðgang að eldra fræðsluefni og greinaskrifum Húseigendafélagsins til úrvinnslu.

Húseigendafélagið, sem er yfir 100 ára gamalt og telur um 10.000 félagsmenn, hefur í áratugi barist fyrir bættum hag félagsmanna sinna, einkum með bættri löggjöf, og sinnt fræðslu til félagsmanna og almennings.

Eignaumsjón er umsvifamesta fyrirtæki landsins í þjónustu við hús- og rekstrarfélög og hefur verið brautryðjandi í þessari þjónustu hér á landi í 25 ár. Í dag hefur félagið umsjón með daglegum rekstri ríflega 1.350 félaga með hátt í 32.000 eignarhlutum.

Að lokum má til gamans geta þess að Húseigendafélagið var einn af stofnendum Eignaumsjónar árið 2000, en stofnendurnir höfðu allir reynslu af að þjóna eigendum fasteigna og höfðu áður rekið Ráðgjafarþjónustu húsfélaga, Húsráð, um nokkurra ára skeið.

Hildur Ýr Viðarsdóttir, formaður Húseigendafélagsins og Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, að lokinni undirritun samkomulags félaganna.

Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:

Canagan er besti blautmaturinn að mati kattaeigenda!

Við hjá Dýrabæ erum gífurlega stolt af því að segja frá því að Canagan hefur verið valið „Best Wet Food“ hjá hinum virtu Your Cat Product Awards 2026.

Þetta eru ekki hvaða verðlaun sem er, því það eru neytendurnir sjálfir, kattaeigendur sem vilja dýrunum sínum það allra besta – sem greiða atkvæðin.

Af hverju vann Canagan?

Verðlaunin staðfesta það sem viðskiptavinir okkar hafa vitað lengi: Canagan er í algjörum sérflokki þegar kemur að gæðum og bragði.

Hágæða prótein: Blautmaturinn inniheldur raunverulegt kjöt og fisk í „human-grade“ gæðum sem þú sérð um

leið og þú opnar dósina.

Náttúruleg næring: Fóðrið er þróað með líffræðilegar þarfir katta í huga –hátt kjötinnihald (allt að 65%), engin kornvara og engin gerviefni.

Ómótstæðilegt bragð: Jafnvel kröfuhörðustu kettir elska bragðið af Canagan, hvort sem það er túnfiskur, kjúklingur eða villibráð.

Canagan hefur verið kosið númer eitt í Bretlandi og nú er blautmaturinn formlega sá besti samkvæmt Your Cat verðlaununum 2026.

Gefðu kettinum þínum verðlaunamat!

Kettir eru kjötætur í eðli sínu og góður blautmatur skiptir sköpum fyrir

vökvabúskap þeirra og almenna heilsu.

Með Canagan ertu ekki bara að gefa þeim mat, heldur ertu að tryggja þeim bestu mögulegu næringuna sem völ er

á. Kíktu við í Dýrabæ eða pantaðu á netinu og leyfðu kettinum þínum að smakka það besta!

FRAMBOÐIÐ

1. sæti

ksson riðr gimar Þór F In ik d iþíhö f ðtf til r eldu sérf

ð starf a af

íb gaæðin

Körfuknattleikur: Fylkir hélt sæti sínu í 1. deild

Körfuboltalið Fylkis tryggði sér áframhaldandi sæti í 1. deild karla í síðustu umferð tímabilsins þegar liðið sýndi sterkan karakter á útivelli gegn Breiðabliki. Með sigrinum tókst liðinu að halda sæti sínu í deildinni fyrir næsta tímabil eftir spennandi lokasprett.

Stuðningsfólk Fylkis lét sig ekki vanta og fjölmennti á heimavöll

Breiðabliks til að styðja sitt lið. Stuðningurinn var áberandi og skipti miklu máli þegar mest á reyndi í lokaleik tímabilsins.

Rétt eftir að tímabilinu lauk tilkynnti körfuknattleiksdeild Fylkis einnig um nýjan styrktaraðila. Fyrirtækið Goodenuf2 hefur gengið til liðs við félagið og mun styðja við starfsemi liðsins á komandi tímabili. Goodenuf2 er bandarískt

ráðgjafarfyrirtæki stofnað af Herman Senor II og sérhæfir sig í þjónustu fyrir íþróttafólk og fyrirtækjaeigendur sem vilja hámarka árangur sinn og ná markmiðum sínum. Meðal þjónustu fyrirtækisins eru þjálfun, fatnaður, vörur og markaðssetning á samfélagsmiðlum.

Herman Senor II segist spenntur fyrir samstarfinu við Fylki.

„Þetta er frábært! Ég er virkilega spenntur að vera hluti af félaginu og hlakka til að sjá hvernig þróun þess verður. Ég er mjög ánægður með að taka þátt í henni,“ segir hann. Körfuknattleiksdeild Fylkis hvetur jafnframt fyrirtæki á svæðinu til að kynna sér samstarfsmöguleika við deildina með því að hafa samband við–karfa@fylkir.is

ð leiða ynslu af a atugare a ár ar haf dur okk rambjóðen

ætur á þjónustu, ela í sér umb ni sem f erkef il v umfangsmik

ekstri gu í r durskipulagnin óun, en ramþr æna f r staf

gu mannauðs. og eflin

TIL AÐ NÁ BETRI ÁRANGRI Í BORGINNI da um eftir umboði kjósen ið ósk V

G garstjórn í bor ön ir þína h fyyr

AÐRAR ÁHERSL .is gdf . w w

F w

UR • BETRI ÁRANGUR • A

UKIN LÍF

SGÆÐI

Sigrinum gegn Breiðabliki fagnað og þar með sætinu áfram í 1. deild.

Miðflokkurinn eða meira af því sama?

- eftir Helga Áss Grétarsson frambjóðanda Miðflokksins

Borgarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí og í aðdraganda þeirra hefur Miðflokkurinn meðal annars lagt áherslu á breytta samgöngustefnu, stöðvun ofurþéttingar byggðar og að tekið sé til í rekstri Reykjavíkurborgar.

Síðastnefnda atriðið er mikilvægt þar eð ólíkt öðrum framboðum býður Miðflokkurinn upp á oddvita sem hefur áralanga og farsæla reynslu af því að stýra stórum rekstrareiningum.

En hvaða spurning er mikilvægust fyrir kjósendur?

Það er nokkuð ljóst að kosningabaráttan í höfuðborginni hefur verið eilítið óreiðukennd. Ein ástæðan er að kjósendur geta valið á milli

fjölmargra framboða, samtals 11. Í því skyni fjarlægja óreiðutilfinninguna verður að greina mikilvægustu spurninguna sem kjósendur verða að svara. Þegar það er gert er ljóst að Samfylkingin og meðreiðarsveinar þess flokks hafa stýrt borgarsjóði um langt árabil. Valdamestu starfsmenn borgarkerfisins hafa verið ráðnir í tíð meirihluta vinstri-flokkana í borginni. Spurningin er því, vilja kjósendur viðhalda þessum valdastrúktur, sem er alltumlykjandi við stjórn borgarinnar?

Við mat á þeirri spurningu verður til þess að líta að uppstillingar framboðslista Sjálfstæðisflokksins og

Viðreisnar gefa til kynna að ekki sé útilokað að nýr meirihluti samanstandi af þeim tveimur flokkum ásamt

Samfylkingunni. Í slíkum meirihluta yrði áframhald á stefnu Samfylkingarinnar í skipulags- og samgöngumálum, enda alþekkt að oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar í borgarstjórn hafi lítið sem ekkert á móti þeirri stefnu.

Spurningin sem kjósendur standa frammi fyrir er því raun og veru þessi, viltu að Samfylkingin haldi áfram að stjórna borginni, eftir atvikum með nýjum varadekkjum, svo sem eins og

Sjálfstæðisflokknum? Eða viltu stuðla að raunverulegum breytingum?

Miðflokkurinn er svarið! Raunverulegar breytingar geta eingöngu orðið í kjölfar þess að Miðflokkurinn standi sterkt að vígi í borgarstjórn að kosningum loknum.

Setjum X við M enda er tækifærið núna til að bjarga borginni!

Höfundur skipar 5. sætið á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Helgi Áss Grétarsson er frambjóðandi Miðflokksins.
XM frekar en meira af því sama! Mynd tekin af ruv.is

Árbæjarblaðið

Hátíðarstemning í Árbæ 1. maí

- Árbæingar sporðrenndu um 1000 pylsum

Það var sannkölluð hátíðarstemning í Árbænum 1. maí sl. þegar um eitt þúsund Árbæingar lögðu leið sína að Fylkishöll og Árbæjarlaug þar sem Sjálfstæðismenn í hverfinu stóðu fyrir grillveislu og buðu gestum upp á pylsur ásamt Strax-D ísnum vinsæla. Árbæingar sporðrenndu hátt í eitt þúsund pylsum á viðburðinum. Rótgrónir Árbæingar, fjölskyldur og gestir á öllum aldri komu saman í blíðskaparveðri og nutu dagsins í góðum félagsskap. Mikil gleði ríkti á svæðinu og greinilegt að íbúar kunnu vel að meta framtakið og tækifærið til að hittast og eiga saman notalega stund í hverfinu.

Aðstandendur viðburðarins sögðu afar ánægjulegt að sjá hversu margir Árbæingar létu sjá sig og tóku þátt í deginum. Þá bentu þau jafnframt á að

Sjálfstæðisflokkurinn legði ríka áherslu á málefni hverfisins, en Björn Gíslason borgarfulltrúi og Guðný María Jóhannsdóttir, verðandi borgarfulltrúi, sem bæði eru búsett í Árbænum, eru ofarlega á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

„Það var virkilega ánægjulegt að sjá svona marga Árbæinga koma saman í góðu veðri og njóta dagsins með okkur sjálfstæðismönnum. Samfélagsandinn í Árbænum er einstakur og það er greinilegt að íbúar vilja sjá breytingar og öflugri forystu fyrir hverfið sitt,“ sagði Björn Gíslason, borgarfulltrúi og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins.

Þá var jafnframt horft til komandi sveitarstjórnarkosninga þar sem áhersla var lögð á að bæta þjónustu og innviði í borginni.

„Það er greinilegt að Árbæingar vilja sjá breytingar. Við ætlum að vinna fyrir

fólkið í borginni og gera Reykjavík að betri stað fyrir fjölskyldur,“ sagði Guðný María Jóhannsdóttir, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins og íbúi í Árbænum.

Björgum borginni,

Framundan eru sennilega mikilvægustu kosningar í Reykjavík í langan tíma. Það hefur komið skýrt fram í aðdraganda þessara kosninga að veruleg óánægja er til staðar hjá flestum borgarbúum vegna meirihlutans undanfarin ár og nýtur stjórn borgarinnar minna trausts en áður hefur sést.

Og það er nánast sama hvaða málaflokk er minnst á, alls staðar virðist fólk óánægt. Fjármál borgarinnar eru í stórum vanda, leikskólamál hafa verið og eru enn einusinni óleyst, bílastæðavandinn er skelfilegur, óskiljanlegt fjáraustur á sér stað í hælisleitendur, skólamálin eru í frjálsu falli þar sem árangur hríðversnar, snjómokstur er engan vegin nægur, ofurþétting byggðar er komin á endastöð, skipulagskvaðir í nýbyggingum eru hættulega íþyngjandi, þrif á götum alltof lítið, viðhald gangstétta nánast ekkert, sorphirða of sjaldan og svo mætti lengi

telja. Miðflokkurinn vill laga alla þessa málaflokka og mun jafnframt sýna ábyrgð og aðhald í rekstri borgarinnar. Hér í Árbænum þarf að huga að endurnýjun og viðhaldi á göngustígum og leikvöllum, bæta lýsingu á götum og stígum. Þá mun Miðflokkurinn leggja áherslu á víðtækt samstarf við íþróttafélögin og að Reykjavíkurborg standi við gerða samninga við þau sem og undirbúi framtíðar uppbyggingu á mannvirkjum íþróttafélagana. Þá þarf bæta samskipti á milli íþróttafélagana og borgarinna sem og samvinnu milli íþróttafélaga, skóla og frístundarheimila. Þá vill Miðflokkurinn komast til móts við fjölskyldufólk með því að hækka frístundastyrk í 100.000 kr, en hann hefur verið óbreyttur frá byrjun árs 2023. Við ætlum líka að lengja opnunartíma sundlauga á kvöldin. Allt eru þetta mikilvæg verkefni sem þarf að ganga í og leysa og munum við í Miðflokknum gera það. En það sem verður að stöðva núna og verður

sennilega ekki hægt að snúa til baka eftir þessar kosningar eru samgöngumálin og borgarlínan. Því ef að borgarlínuverkefnið heldur áfram í óbreyttri mynd, þá mun veruleiki Reykvíkinga verða enn verri en nú er í samgöngumálum, og sennilega verður ekki hægt að breyta því í kosningum eftir fjögur ár. Þetta verður að gerast í þessum kosningum. Nú höfum við borgarbúar byrjað að fá smjörþef af því hvað er í vændum með borgarlínunni. Byrjað er að taka í burtu af og aðreinar, beyjuvasa á gatnamótum og heilu akreinarnar fyrir bíla. Þetta þekkjum við Árbæingar vel þar sem slíkar framkvæmdir voru framkvæmdar við Bæjarháls og á Höfðabakkabrú nýlega. Miðflokkurinn lofar að þessar breytingar til baka og koma þessum gatnamótum í fyrra horf, enda eru þessar breytingar alveg glórulausar og óþarfar og tefja bara umferð. Og nú heldur þessi þrengingarstefna

áfram hjá núverandi borgaryfirvöldum, með því að fækkað verður akreinum á Laugavegi og á Suðurlandsbraut. Þá verður bara ein akbraut bíla í hvora átt og hámarkshraði 40km. Og það verður bara byrjunin. Þetta er gjörsamlega ótrúleg ákvörðun og allir hljóta að sjá að þetta mun aldrei bæta umferðina. Umferðin mun bara versna. Hvernig má það vera að samgönguframkvæmd sem er áætlað að kosti um 140 milljarða (og það er áætlun, hún mun örugglega kosta meira) hefur það að markmiði að þrengja að einkabílnum?

Og þessi borgarlína mun ekki gera neitt fyrir okkar hverfi í Árbænum annað en að tefja enn frekar för okkar, því ekki kemur hún upp í okkar hverfi.

Það er alveg ljóst að til þess að stöðva þetta vonlausa verkefni, sem borgarlínan er, er bara einn möguleiki. Það er að kjósa Miðflokkinn. Miðflokkurinn er eini flokkurinn sem hefur skýrt sagt: Við munum stöðva

Lárus Bl.

aðförina að einkabílnum og stöðva borgarlínu. Við munum breyta vegamótum á Bæjarhálsi og Höfðabakka til baka í upprunalegt horf. Við munum stöðva fyrirhugaðar breytingar á Suðurlandsbraut og öðrum götum þar sem á að taka burt bílaakreinar. Ef fólk vill breytingar og stöðva núverandi stjórnvöld í Reykjavík, þá verður það að kjósa Miðflokkinn.

Björgum borginni, tækifærið er núna!

Lárus Blöndal Sigurðsson Í þriðja sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík

Sigurðsson.
Mikið fjölmenni mætti í grillveislu sjálfstæðismanna þann 1. maí
Björn Gíslason lét ekki sitt eftir liggja í fánamálunum.
Guðný María Jóhannsdóttir, frambjóðandi og Árbæingur til hægri, gaf ekkert eftir í pylsunum.
Hildur Björnsdóttir ræddi við gesti og gangandi.
Mikið fjölmenni lagði leið sína í griullveisluna 1. maí.

Yfir nóttu hafrar

með kaffi og kakói

- frábær uppskrift sem vert er að prófa

Hér er ein ljúffeng uppskrift sem vert er að prófa við fyrsta tækifæri.

Yfir nóttu hafrar með kaffi og kakói.

Þetta er einföld og bragðgóð uppskrift að yfir nóttu höfrum með kaffiskoti og kakói – fullkomin fyrir morguninn þegar þú vilt eitthvað fljótlegt en orkumikið.

Þetta er morgunmatur sem kveikir á þér – en heldur þér líka í jafnvægi.

Hráefni (1 skammtur)

• 1 dl hafrar.

• 1 dl mjólk (eða plöntumjólk).

• ½ dl sterkt kaffi (kælt ).

• 1 msk. kakó.

• 1–2 tsk. hunang eða annað sætuefni.

• ½ tsk. vanilludropar (valfrjálst).

• Smá klípa salt.

Aðferð 1. Settu allt hráefnið í krukku eða

skál.

2. Hrærið vel saman.

3. Settu í ísskáp yfir nótt (minnst 4 klst).

4. Hrærið aftur áður en þú borðar –bættu við mjólk ef þú vilt þynnra.

Hugmyndir af toppum á þennan dásamlega morgunverð:

- Heslihnetur eða möndlur.

- Smá kakóduft.

- Bananabita.

- Kókosflögur. - Ber.

Þessi morgunverður gefur þér: Jafna og stöðuga orku. Fókus + ró í einu. Smá ,,treat” tilfinningu sem gerir morguninn skemmtilegri.

Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instagram.com/janast

Spönginni Grafarvogi

Yfir nóttu hafrar með kaffi og kakói sem gerir morguninn skemmtilegri.

Kefla Spön Eyesl

Mátað avíkurflugvelli á Du nginni eða á Granda land í Kringlunni, G ðu gleraugun í vers uty free verði. a og sæktu á Glæsibæ, slunum

Kristjana Steingrímsdóttir (Jana).

verk Öl Ö kf kfæri

Frábært ú l m

rðverkfæ f ga a

æru rva

r háþrý Lavo ýstidælur

og slá Sláttu á r u rf

l Color Ú g og v rex má a vi

yl- og ha a

ga Sérfræð a

G lla r a Gott verð fyri lltaf! a, a

Spönginni

Grillhorn Árbæjarblaðsins: Lambakonfektið

Lambakonfektið klikkar ekki og kemur með sumarið til okkar! Það er vöruliður sem hefur fylgt okkur frá stofnun fyrirtækisins og er það einn vinsælasti vöruliðurinn okkar í dag.

ELDUNARLEIÐBEININGAR

Stillið grillið á meðalhita og raðið konfektinu á grillið, það er gott að hafa þolinmæði í þetta og elda á medium hita, því við viljum ekki brenna þetta lostæti. Gott er að velta konfektinu í ca. 8 mínútur á grillinu og setja jafnvel í 3-4 mínútur á efri hæðina á grillinu þar sem er hita minna svæði ef það er svoleiðis svæði á grillinu.

HVÍTLAUKS LIME SÓSA

Mayones 200 gr.

Sýrður rjómi 100 gr. Salt 6 gr.

Hvítlauksolía 20 gr. Limesafi úr hálfu fersku lime. Steinselja fersk söxuð fínt.

Blandið öllu saman og hrærið vel, sósan er best þegar hún hefur fengið að vera í kæli yfir nótt.

Nokkur góð ráð við val á kjöti:

Það er góð regla að spyrja kjötkaupmanninn hvað steikin sem þú ert að kaupa er búin að hanga/meyrna í langan tíma. Ef kaupmaðurinn getur ekki svarað því þá ertu ekki á réttum stað. Svarið sem þú vilt heyra er að vöðvinn sé búinn að hanga að lágmarki í 25 daga.

Það sem skilar einnig góðu bragði og mikilli mýkt í kjötið er fitan, því er okkar slagorð ,,Í fitunni felast gæðin."

Liturinn á kjöti sem er tilbúið til neyslu er yfirleitt

rauð/matt/burgundy rautt.

Forðastu steik sem er fitulaus og skærrauð á litinn, annars ertu að fara að slást við steikina á disknum eftir eldun.

Ef þú ert með sérþarfir vertu þá ekki feimin/n við að bera fram þínar óskir, hlutverk kjötkaupmannsins er að koma til móts við allar séróskir.

Okkar ráð er: Kauptu gott kjöt og eldaðu það á einfaldan máta.

Eldunartips:

Númer eitt, tvö og þrjú - veljið gott kjöt á grillið! Gæðin svíkja þig ekki. Passið að þrífa grillið vel eftir

hverja notkun. Notið alltaf kjarnhitamæli til að hitta á réttu steikninguna, ef þið eigið hann ekki þá er best að drífa sig að kaupa einn slíkan.

Ef þú ert með nautasteik, gefðu þér góðan tíma í eldamennskuna, það er yfirleitt best að elda steikina á lágum hita og fá jafna steikningu í gegnum allan vöðvann. Okkar ráð er að loka steikinni á miklum hita og lækka svo hitann í 80-100 gráður og klára eldun. Láta steikina hvíla í 5-10 mínútur, fer eftir stærð.

Lamba konfektið frá Kjötkompaníinu er frábært á grillið.

Hreyfing fyrir lífið

Sumarið og samfelldnin: Hreyfing fyrir lífið, ekki bara fyrir tímabilið Sumarið á Íslandi er dásamlegur tími. Dagarnir lengjast, sólin hækkar á lofti og við fyllumst mörg hver nýrri orku. Með hærra hitastigi og fríum fylgir hins vegar oft sú gildra að við setjum heilsuna og rútínuna í „sumarfrí“. Við hugsum jafnvel að nú sé tíminn til að slaka á öllum viðmiðum, bara njóta og byrja svo af krafti í september.

En hvað ef við breytum þessari nálgun? Hvað ef hreyfing væri ekki eitthvað sem við gerum til að „verða tilbúin fyrir sumarið“, heldur eitthvað sem við gerum til að njóta sumarsins – og lífsins alls – betur?

Forðastu „byrjunarreitinn“ í september

● Líkaminn er verkfæri, ekki

sýningargripur: Þegar við hættum að einblína á spegilmyndina og förum að einblína á getuna, þá verður hreyfingin ánægjulegri. Við mætum vegna þess að okkur þykir vænt um líkamann og viljum halda honum starfhæfum til langs tíma. Musteri sálarinnar.

Sjáumst hress í Metabolic í allt sumar – þar sem við keppum bara við okkur sjálf! Kíktu við hjá okkur á Stórhöfðanum, prófaðu tvær vikur frítt! Og finndu muninn á líkama og sál. Við hlökkum til að taka á móti þér!

Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík

025

Láttu okkur sjá um

eynslu 5 ára þekkingu og r ið erum með 2 V

Við þekkjum þetta mörg. Eftir nokkurra vikna eða mánaða hlé frá skipulagðri hreyfingu er eins og maður sé á byrjunarreit þegar haustið bankar upp á. Þreytan er fljótari að láta á sér kræla, vöðvarnir eru stífir og tilhugsunin við að mæta aftur virðist óyfirstíganleg.

Með því að halda regluseminni áfram yfir sumarmánuðina – jafnvel þótt við drögum aðeins úr eða mætum á öðrum tímum – getum við komið í veg fyrir þetta bakslag. Það er miklu auðveldara að viðhalda forminu en að þurfa að byggja það upp frá grunni á hverju hausti! Samfelldni er lykillinn að því að líkaminn haldi áfram að vinna með okkur, en ekki á móti okkur.

Við hreyfum okkur fyrir lífið – ekki útlitið

Hjá Metabolic Reykjavík leggjum við áherslu á að hreyfing sé fjárfesting í lífsgæðum. Þegar við hreyfum okkur með það að markmiði að líða vel, styrkja vöðva og bæta hjartaheilsu ásamt þeirri andlegu, þá skiptir minna máli hvernig við lítum út í sundfötum og meira máli hvernig okkur tekst að takast á við verkefni dagsins.

● Orka í ævintýrin: Við hreyfum okkur svo við getum gengið á fjöll, leikið við börnin eða barnabörnin, hjólað um landið og notið útivistar án þess að líkaminn setji okkur takmörk. Að vera frjáls í eigin skinni.

● Andlegt jafnvægi: Sumarið getur verið annasamt með ferðalögum og hittingum. Regluleg hreyfing er akkerið okkar; hún gefur okkur andlegt rými og heldur stressinu í skefjum. Veitir okkur hugarró.

Reglusemi með sveigjanleika

Að halda áfram í sumar þýðir ekki að þú þurfir að fórna öllu hinu. Það snýst um að finna jafnvægið. Kannski mætirðu sjaldnar, eða kemur í morguntímana svo þú eigir eftirmiðdaginn fyrir gleði og grill. Aðalatriðið er að rjúfa ekki tengslin við þína eigin vellíðan og persónulega uppbyggingu.

Látum sumarið vera tíma þar sem við ræktum styrkinn okkar, höldum rútínunni lifandi og mætum septembermánuði með forskot. Ekki vegna þess að við „þurfum“ að líta út á ákveðinn hátt, heldur vegna þess að okkur líður svo miklu betur þegar við erum á hreyfingu.

erum þér tilboð! yrðu í okkur og við g He a@eignaumsjon.i t að senda póst á thjonust innig er hæg E linu. 4800 eða á netspjal - glega; í síma 585 og örug tt yrirspurnum hra erið okkar svarar f Þjónustuv faasteigna. ekstrar í þjónustu við húsfélög og r

2 s 800

eignaumsjonis

Sími 585 4 | Reykjavík ut 30 Suðurlandsbra félög f umsjon is eigna Árbæjarblaðið

Metabolica mætir fólk á öllum aldri og nær góðum árangri.

Allar almennar bílaviðgerðir

Sjálfstæðisflokkurinn studdi

þrengingu Höfðabakka-Bæjarháls

- eftir Katrínu Magnúsdóttur, frambjóðanda Miðflokksins

Björn Gíslason borgarfulltrúi og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins til borgarstjórnar skrifar fastar greinar í þetta blað um borgarmál. Greinarnar eru yfirleitt góðar og taka á þeim málum sem eru ofarlega á baugi hjá okkur úthverfabúum.

Í síðasta blaði fjallaði Björn um bílastæðastefnu Reykjavíkurborgar og gagnrýndi hana harðlega. Sagði hann réttilega að Reykjavíkurborg hefur undanfarin ár skipulagt miklu færri bílastæði í nýjum hverfum en þörf er fyrir. Björn nefndi Keldnaland og fleiri þéttingarreiti í efri byggðum. Björn benti á skortstefnu í bílastæðamálum sem Reykjavíkurborg hefur innleitt og vandræði vegna hennar.

Stuðningur við þrengingu

Höfðabakka

Þrenging gatnamóta Höfðabakka og Bæjarháls er ein galnasta framkvæmd vinstri meirihlutans á kjörtímabilinu. Björn hefur gagnrýnt þessa framkvæmd harðlega í fjölmiðlum og m.a. hér í blaðinu.

Þessi gagnrýni Björns kom á óvart vegna þess að sjálfur studdi hann þrengingu gatnamótanna í borgarstjórn. Á fundi Innkaupa- og framkvæmdaráðs Reykjavíkur 22. maí 2025 samþykkti

Björn þrengingu gatnamóta

Höfðabakka-Bæjarháls ásamt öðrum framkvæmdum á Höfðabakka og gerði engan fyrirvara við atkvæði sitt. Hann segir því ett en gerir annað.

Stuðningur við skortstefnu bílastæða Þegar grein Björns er lesin vaknar sú spurning hvort hann sé í röngum flokki. Borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins

Hildur Björnsdóttir styður nefnilega skortstefnuna í bílastæðamálum þótt Björn geri það ekki. Árið 2021 gekk Hildur í lið með Samfylkingunni og öðrum vinstri flokkum þegar samþykkt var í borgarstjórn að bílastæðum í borginni skyldi fækkað. Á kjörtímabilinu hefur oddvitinn síðan setið hjá þegar vinstri meirihlutinn hefur fækkað bílastæðum í íbúagötum. Hildur sat einnig í dómnefnd vegna verðlaunasamkeppni um Keldnalandið en útkoman úr þeirri vinnu var að aðeins ætti að hafa rúmlega 2.000 bílastæði fyrir 12.000 íbúa. Björn skrifaði einnig um Borgarlínu hér í blaðið nýlega. Hjá Birni kom ekki fram andstaða við verkefnið sem slíkt heldur sagði hann mikilvægt að fá á hreint hvernig ætti að standa að fjármögnun Borgarlínunnar. Þarna er

Björn sammála Hildi oddvita sínum sem hefur stutt Borgarlínu og sagt að það þurfi bara að laga verkefnið. Stuðningur við Borgarlínuskatt Borgarlínan myndi kosta nokkur hundruð milljarða króna og hana á að fjármagna með nýjum skatti Þessi skattur mun leggjast þyngst á okkur íbúum í úthverfum Reykjavíkur. Ekki fer mikið fyrir andstöðu við Borgarlínuskattinn í grein Björns. Hann tekur ekki afstöðu gegn skattinum heldur segir bara að það geti ekki verið ,,sjálfgefið að lausnin felist í nýjum gjöldum á borgarbúa.“ Segir Björn að slíkar hugmyndir verði að standast bæði sanngirni og raunhæfni. Þar höfum við það. Það er mjög lin afstaða til skattlagningar þegar kjörinn fulltrúi segir að hún sé ekki ,,sjálfgefin“ og verði að vera bæði sanngjörn og raunhæf.

Miðflokkurinn þorir

Við íbúar efri byggða þurfum ekki stjórnmálamenn sem skrifa eitt en gera annað. Við þurfum ekki borgarfulltrúa sem segjast vera á móti Borgarlínu, fækkun bílastæða og þrengingu gatnamóta en kjósa síðan samt alla þessa hluti.

Við þurfum borgarfulltrúa sem þora að kjósa gegn Borgarlínu, fækkun bílastæða og þrengingu gatnamóta. Það þorum við í Miðflokknum. Við gerum það sem við segjumst ætla að gera.

Höfundur eru frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Katrín Magnúsdóttir.

Fréttamolar frá kirkjustarfinu

Í dag fimmtudaginn 14. maí

Uppstigningadagur

Hátíðarguðsþjónusta í Árbæjarkirkju kl.14.00

Kirkjukórinn leiðir hátíðarsöng. Organisti Guðmundur Sigurðsson.

Katrín Halldóra leik- og söngkona syngur nokkur hrífandi lög í ljúfri hátíðarmessu. sr. Sigurður Rúnar Ragnarsson fyrrverandi sóknarprestur á Neskaupsstað prédikar. Prestarnir, Þór og Bjarki þjóna fyrir altari.

Soroptimistaklúbbur Árbæjar býður kirkjugestum til hátíðarkaffisamsætis

eftir guðsþjónustuna í safnaðaheimili kirkjunnar.

Skoðið nánar á heimasíðu kirkjunnar www.arbaejarkirkja.is

Sálin mín er á sumarbeit

- eftir sr. Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarsókn

Hversu oft í gegnum tíðina höfum við upplifað og jafnvel hummað texta söngvaskáldsins Bubba Morthens í einu ljóða hans sem hljóðar svo: „Sumarið er farið, það fraus í hylnum. Eins og hvítt lín kom snjórinn í nótt. Þrestirnir dansa á ísuðum ísnum en hér er allt stillt og rótt.“

Það er kannski ekki hægt að segja að sumardagurinn fyrsti 24. apríl síðastliðinn hafi verið stilltur og rólegur fyrir þau sem lögðu á sig að hlaupa svokallað litahlaup frá Fella- og Hólakirkju sem leið lá í Árbæjarkirkju í grillaðar pylsur, sykurskerta kókómjólk og ávaxtasafa til að skola herlegheitunum niður og fagna sumri.

Á fjórða hundrað pylsum var sporðrennt, ekki bara af þeim sem tóku hlaupið heldur og gestum öðrum sem af forvitni einni mættu, að ógleymdum vængjuðum mávum sem biðu rólegir álengdar eftir að tvífætlingarnir færu sína leið í skrúðgöngu sumars. Einhverjir, þá aðallega einstaklingar og fjölskyldur af erlendum uppruna, komu með spurnarorð á vörum, hverju væri verið að fagna. Undrunin tók á sig enn hærri undrunarmynd á andlitum þeirra að verið væri að fagna fyrsta sumardegi. ÞAÐ ER KOMIÐ SUMAR! Látum það liggja undir steini að fagnað væri sumri. Grilluðum pylsunum var vel fagnað beint af eldheitum teinum grillsins. Horft á heiðbláan himininn í sinni einföldustu mynd.

Sagt er að fjarlægðin geri fjöllin blá og er það víst og þá ekki bara fjöllin heldur minningarnar sem við burðumst með á hverjum degi, þungar sem léttar. Einhverjar þeirra staldra stutt við en aðrar fylgja okkur hvert sem við förum og minna reglulega á sig. Mér ber ekki minni til að gömlu rómantísku skáld 19. aldar sem ortu um vorið og sumarið hafi verið eins kaldhæðin (í fyllstu

merkingu) og fyrrnefndur Bubbi og önnur nútímaskáld þegar ort er um vorið og sumarið. Ein skýringin gæti verið að rómantísku skáldin, sum hver, höfðu yfirgefið skerið okkar og sest að í höfuðstaðnum á þeim tíma í Köben í herbergiskyrtru í sagga og seiru og brattra stiga að feta sig á og hugsað heim í söknuði með „bláleitan“ huga fjarlægðar til túnsins heima þar sem Lóan vappar um og kveður burt leiðindi því það getur hún og ber með sér von um vorið þar sem helsi kalda krumlu vetrarins sleppir takinu „leys klakans hönd með hlýrri hönd...” yrkir eitt rómantíska skáldið. Þá var ekki í bakhöndinni spurning um að geta sólað sig á Austurvelli með einn kaldan við hönd eða flatmaga í einhverri sundlaug borgarinnar og láta sólargeisla leika um stærsta líffærið, húðina, nei, á tímum rómantísku skáldanna var það spurning um að lifa eftir bjargræðistíma vors og sumars sem greindi á milli lífs og dauða. Í dag ef sólin lætur ekki sjá sig er bara tekin næsta flugvél eitthvað út í himinblámann.

Samanborið við rómantísku skáldin okkar Jónas Hallgrímsson og Bjarna Thorarensen, svo einhverjir séu nefndir, þá er ekki hægt að segja að skáld nútímans sem yrkja um vorið og

Þór Hauksson.

sumarið séu með vott af rómantík í sínum æðum eða hvað?

hans í bókinni – Jóðl. „Vorið er komið, kalt og blautt./Og klyfjað meiningum./Huggulegt, en helst til snautt af hitaeiningum.

Við eigum heimsmetið í sjálfsblekkingum vors og sumars og þá er ég ekki að vísa til höfðatölu heldur er sumardagurinn sá fyrsti dagur ársins þegar Íslendingar sameinast um eitt: að horfa út um gluggann, sjá snjóél eða slagviðri og segja samt með fullri alvöru: „Ahh, loksins komið sumar.“

„Uppistandararnir“ á veðurstofunni taka þátt í gríninu. Þau sem þar starfa segja hluti eins og „smá væta“ sem þýðir í raun lárétt rigning sem við fáum í andlitið eins og blautt handklæði. Vindurinn er „hægur“ sem þýðir að þú getur enn gengið. Það besta er samt fatavalið. Sumardaginn fyrsta ákveða Íslendingar að klæða sig „sumarlega“. Lúðrasveitir dusta rykið af gjallandi lúðrum og trommum og arka af stað um stræti borgar þar sem kuldalegir túrhestar íklæddir kuldaúlpum, húfum og vettlingum spyrja í forundran hvort landsleikur sé fram undan og þau sem í skrúðgöngunni þramma segja með

stolti, því það má segja að það sé „landsleikur“ að fagna sumri á sumardaginn fyrsta.

Einhver, einhvers staðar, ákveður að „vígja grilltímabilið“. Hann stendur úti í rokinu, heldur lokinu með annarri hendi svo það fjúki ekki yfir í garð nágrannans og snýr pylsum með tár í augunum, ekki af tilfinningu, heldur af vindstyrk. Samt er þetta dásamlegt. Því þrátt fyrir allt þetta, eða kannski einmitt vegna þess, er sumardagurinn fyrsti einn bjartasti dagur ársins. Ekki vegna sólar, heldur vegna þess að við hlæjum öll saman að þessari sameiginlegu vitleysu. Við vitum að sumarið er kannski ekki komið… en sumarið er á leiðinni. Þangað til tökum við undir í laginu Pastoral með strákunum í hljómsveitinni Geirfuglunum en þar segja þeir meðal annars: Þangað til er „sálin mín á sumarbeit“. Segjum svo að rómantíkin á tímum kaldhæðni eigi ekki sitt skjól og sitt lögheimili í hjarta hvers Íslendings.

Gleðilegt sumar, kæri lesandi. Þór Hauksson

Einhvers konar fegurðarþrá er að finna hjá rómantísku skáldunum, að vilja sjá heiminn í æðra og tignara ljósi en hið hversdagslega líf gat veitt þeim. Skáldin lögðu áherslu á ímyndunaraflið og dvöldu því gjarnan í ríki fegurðarinnar eða í heimum ævintýra.

Skáldin í dag leyfa sér að vera kaldhæðin og leika sér með huga lesenda með enga von um vor eða sumar, því það fraus í hyl væntinga í gær. Það skiptir ekki öllu fyrir járnbenta kynslóð borgar- og bæjarsamfélags nútímans eins og einu skilgetnu afkvæmi þess, Braga Valdimari Skúlasyni, verður að orði í einu ljóða

Opna húsið í Árbæjarkirkju alla miðvikudaga kl. 12-16. Þangað eru allir fullorðnir velkomnir og þar er ýmislegt á dagskrá. Byrjað er með kyrrðarstund í kirkjunni, síðan er léttur hádegisverður á vægu verði (kr. 1500). Að því loknu er hin sívinsæla stólaleikfeimi og svo er spjallað eða einhver gestur mætir í heimsókn. Endað er á gómsætu síðdegiskaffi. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir. Helgihald hvern sunnudag kl.11.00 Annan sunnudag hvers mánaðar er Fjölskylduguðsþjónusta kl.11.00

ylkinginSamf R y a

vík kj e í

Ste l kvrk k velferð k –

Bj u kkæ•L sto lfil ðbantsomk R t o ótjh s klaónra bf k ykey víja

muúl•H gg•y B lródðlme a rauyra mf afu gryrjiöko aaeup t km

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Árbæjarblaðið 5. tbl. 2026 by Skrautás Ehf. - Issuu