Skip to main content

Árbæjarblaðið

Page 1

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/9/2026 7:39 PM Page 1

Árbæjarblaðið 9. tbl. 24. árg. 2026 september

Fréttablað íbúa í Árbæjarhverfi

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir

Fótboltastrákar í Fylki fóru á Norðurálsmótið á Skaganum í sumar og skemmtu sér vel. Á myndinni eru Rikki, Teddi, ÁB-mynd Katrín J. Björgvinsdóttir. Emil, Þórir Rúnar, Alex og Kristian Birnir úr 8. flokki Fylkis.

Gjafir fyrir veiðimenn og fyrirtæki Gröfum nöfn á boxin Persónuleg og falleg gjöf Íslenskt birki

Sjá nánar á Krafla.is og í síma 698-2844

,,Mahoný’’


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/8/2026 6:11 PM Page 2

2

Fréttir

Árbæjarblaðið

Sársaukafullar en Árbæjarblaðið nauðsynlegar breytingar tÚtgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson - abl@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti og Norðlingaholti.

Ófremdarástand Á meðan nýmyndaður meirihluti í Reykjavík leggst yfir rekstur borgarinnar og dregur saman í rekstrinum í hagræðingarskyni gefur ríkisstjórnin í sem aldrei fyrr og hækkar kílómetragjald um 16%, annað árið í röð og boðar 5,2% hækkun á opinberum gjöldum um næstu áramót. Á meðan ríkisstjórnin boðar þessar hækkanir upp á 5,2% er yfirlýst verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands 2,5%. Hvernig á að vera hægt að lækka verðbólgu í landinu þegar ríkisstjórnin gengur fram með þessum hætti? Á þessum tímum, þegar yfirlýst kosningaloforð eru einskis virði og vextir og verðbólga æða áfram er ekki skrítið að spurt sé; Hvar er sleggjan og planið? Hvar eru efndir kosningaloforða? Og síðan dundu á okkur niðurstöður PISA könnunar á dögunum. Útkoma Íslands þar var hræðileg svo ekki sé sterkar að orði kveðið. Í ljós kom að aðeins rétt rúmur helmingur barna býr yfir lágmarks hæfni þegar lesskilningur er annars vegar við fimmtán ára aldur. Um helmingur 15 ára barna skilur sem sagt ekki það sem hann les. Nákvæmt hlutfall er 56%. Fyrir áratug var þetta sama hlutfall 78%. Ef litið er til hinna svokölluðu OECD-ríkja og hinna Norðurlandanna er Ísland langt undir meðaltali og skrapar í raun botninn. Hvernig getur staðið á því að þessi staða er komin upp? Það er greinilega eitthvað mikið að hjá okkur og við erum greinilega á kolrangri braut sem við verðum að komast af sem fyrst. Hver ber ábyrgðina? Eru einhverjar líkur á að einhver axli ábyrgð á þessari hrikalegu stöðu? Ljóst er að stjórnendur menntamála á Íslandi undanfarin ár bera hér helstu ábyrgðina. Nú verður fólk sem stjórnar þessum málum að girða sig Stefán Kristjánsson í brók og laga þessi mál.

abl@skrautas.is

- eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Það er ekkert gleðiefni þegar fólk missir vinnuna. Á bak við hvert starf er einstaklingur og fjölskylda og því ber að ræða þær breytingar sem nú eiga sér stað hjá Reykjavíkurborg af virðingu og yfirvegun.

ári. Breytingarnar ná til 86 starfsmanna. Af þeim fá 32 boð um ný eða breytt störf en 54 fá ekki áframhaldandi starf. Þetta eru stórar og sársaukafullar ákvarðanir. Það þýðir ekkert að fegra það. En þessar 900 milljónir nema aðeins um 15% af þeirri hagræðingu sem nauðsynlegt er að ná. Það sýnir umfang verkefnisins.

En ábyrgð kjörinna fulltrúa felst líka í því að taka erfiðar ákvarðanir þegar þær eru nauðsynlegar. Staðreyndin er sú að óbreyttur rekstur A-hluta Reykjavíkurborgar er ekki sjálfbær til lengri tíma. Tölurnar sýna það ágætlega. Rekstrarniðurstaða A-hlutans var neikvæð um 5,3 milljarða króna árið 2025. Veltufé frá rekstri nam 6,9% af tekjum, undir 7,5% markmiði fjármálastefnu borgarinnar. Það verður þó að halda því til haga að óvenjuhá gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga hafði veruleg áhrif á niðurstöðu ársins. Þróunin á þessu ári undirstrikar hins vegar vandann enn frekar. Fyrstu þrjá mánuði ársins 2026 var rekstrarniðurstaða A-hlutans neikvæð um tæpa 4,6 milljarða króna og tæplega 1,6 milljörðum verri en áætlað hafði verið. Nettó fjármagnsgjöld voru ein og sér rúmum 1,5 milljörðum króna yfir áætlun. Þetta eru ekki tölur sem ábyrgir stjórnendur geta horft fram hjá.

Björn Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Við getum ekki frestað nauðsynlegum ákvörðunum Fjármálaskrifstofa borgarinnar hefur metið að ná þurfi 5–6 milljarða króna hagræðingu á ári til að markmið fjármálastefnu Reykjavíkurborgar náist. Það setur þær erfiðu ákvarðanir sem nú hafa verið teknar í mikilvægt samhengi. Nýlegar breytingar á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði eiga að skila um 900 milljóna króna hagræðingu á

VISSIR ÞÚ?

Við sjálfstæðismenn höfum um árabil kallað eftir því að yfirbygging borgarinnar verði minnkuð, stjórnsýslan einfölduð og fjármunum forgangsraðað í þágu grunnþjónustunnar. Nú er verið að taka nauðsynleg skref í þá átt. Hagræðing er ekki markmið í sjálfu sér. Hún snýst ekki um að skera niður fyrir sakir niðurskurðar. Hún snýst um að skapa sjálfbæran rekstur, tryggja að hver króna skattgreiðenda nýtist betur og verja þá þjónustu sem skiptir borgarbúa mestu máli, grunnþjónustuna. Það væri auðveldara að fresta erfiðum ákvörðunum, halda áfram á sömu braut og ýta vandanum á undan sér. En það væri ekki ábyrg stjórnun. Ábyrgðin felst stundum í því að taka sársaukafullar ákvarðanir í dag til þess að tryggja sterkari fjárhag og betri grunnþjónustu á morgun. Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

AÐ KEILAN Á UPPRUNA SINN 3200 FYRIR KRIST. ÞÚ GETUR BÓKAÐ BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/15/2026 1:47 PM Page 3


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/6/2026 8:27 PM Page 4

4

Fréttir

Árbæjarblaðið

Auður Eysteinsdóttir myndlistarkennari og Rósa Harðardóttir skólastjóri fyrir framan listaverk sem nemendur skólans bjuggu til og afhentu skólanum sem gjöf.

Kennararnir Stefanía Ósk Þórisdóttir, Hjördís Unnur Björnsdóttir, Sigríður Hallsteinsdóttir, Salóme Gísladóttir og Ragna Þórunn W. Ragnarsdóttir.

Selásskóli 40 ára

Í vor ríkti mikil afmælisstemmning í Selásskóla þegar haldið var upp á 40 ára afmæli skólastarfs í hverfinu. Skólaganga barna í Selásskóla hófst haustið 1986 og fögnuðu nemendur og starfs-fólk þessum merka áfanga fimmtu-daginn 30. apríl síðastliðinn með glæsi-legri afmælishátíð og opnu húsi.

svo til sýnis á opnu húsi. Skólinn fylltist af lífi og gleði þegar fjöldi gesta mætti til að fagna deginum með skólasamfélaginu – en meðal gesta voru núverandi nemendur, foreldrar, ömmur og afar, auk fjölda fyrrverandi nemenda og starfsmanna sem komu til að minnast liðinna tíma.

Þemadagar um sögu skólans og samfélagsins Hefðbundin stundatafla var lögð til hliðar og fjölbreyttir þemadagar fóru fram dagana 28. til 30. apríl þar sem meginþemað var saga skólans og samfélagssagan á þeim fjórum áratugum sem liðnir eru frá stofnun hans. Nemendum var skipt upp í hópa þvert á árganga þar sem þeir unnu saman að mörgum ólíkum og skemmtilegum verkefnum.

Fimm skólastjórar á 40 árum Saga Selásskóla er samofin sögu hverfisins. Þegar skólinn hóf starfsemi sína haustið 1986 voru nemendur 188

Afrakstur þessarar vinnu, ásamt fjölbreyttum verkefnum vetrarins, var

Ljósmyndir Katrín J. Björgvinsdóttir talsins. Fyrsti skólastjóri skólans var Kristín Hólmfríður Tryggvadóttir, sem stýrði skólanum fyrsta áratuginn, eða frá 1986 til 1996. Við keflinu tók Hafsteinn Karlsson (1996–2001), því næst Örn Halldórsson (2001–2012) og þá Sigfús Grétarsson

(2012–2020). Árið 2020 tók Rósa Harðardóttir við lyklunum og er hún núverandi skólastjóri Selásskóla. Breytingar í hverfinu Skólinn hefur stækkað og breyst í takt við byggðina í hverfinu. Þegar fjölmennast var í skólanum stunduðu allt að 447 börn þar nám. Í dag hefur nemendum fækkað og eru þeir nú 174 talsins. Þessi þróun endurspeglar vel hve gott er að búa í Seláshverfi; fólk festir þar rætur og notar húsnæðið til langs tíma og endurnýjun í hverfinu er því hæg. Afmælishátíðin bar þess skýr merki að í skólanum er góður andi. Starfsfólk og nemendur geta verið afar stolt af því glæsilega starfi sem unnið hefur verið í Selásskóla í fjóra áratugi. Katrín J. Björgvinsdóttir, ljósmyndari Árbæjarblaðsins, leit við í Selásskóla í tilefni afmælisins og við birtum myndir hennar frá hátíðinni. Einnig myndir á bls. 6.

Kennararnir Brynja Ólafsdóttir og Sigrún María Karlsdóttir.

María Ágústsdóttir formaður foreldrafélagsins og Berglind Magnúsdóttir í stjórn félagsins afhentu fyrir hönd foreldrafélags Selásskóla rausnarlega þrívíddarprentara að gjöf í tilefni af 40 ára afmæli Selásskóla.

Helga Guðrún Loftsdóttir og Fríða Haraldsdóttir.

Berglind Magnúsdóttir úr stjórn foreldrafélagsins Anna Guðbjartsdóttir kennari og Rósa Harðardóttir skólastjóri.

Kristín Þórðardóttir, Soffía Jóna Bjarnadóttir og Sigríður Ása Einarsdóttir.

Áslaug Ó. Harðardóttir og Björg Ársælsdóttir, Soffía Jóna Bjarnadóttir og Rósa Harðardóttir skólastjóri.

Elín Vigdís Ólafsdóttir og Guðrún Magnúsdóttir.


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/5/2026 9:57 PM Page 5

j ``"! !" "`!" !"7


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/6/2026 8:28 PM Page 6

6

Fréttir

Árbæjarblaðið

Aðstoðarskólastjórarnir úr Árbæjarskóla, Guðrún Erna Þórhallsdóttir, Þórhildur Þorbersdóttir og Rannveig Þorvaldsdóttir komu í heimsókn í tilefni dagsins. Á milli þeirra eru Margrét Rós Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri og Rósa Harðardóttir skólastjóri Selásskóla.

Hópur af kennurum sem hafa kennt við skólann í áraraðir. Aftasta röð f.v. Fríða Haraldsdóttir, Auður Eysteinsdóttir, Kristín Þórðardóttir, Anna Guðrún Jósefsdóttir, Helga Guðrún Loftsdóttir, Rósa Harðardóttir skólastjóri, Guðrún Björnsdóttir, Elín Vigdís Ólafsdóttir, Gerður Pálsdóttir, Soffía Jóna Bjarnadóttir, Nanna Þóra Andrésdóttir, Hrefna Jónsdóttir, Kristbjörg Ásta Ingvarsdóttir. Fremsta röð f.v. Guðrún Magnúsdóttir, Sigríður Ása Einarsdóttir, Erla Frederiksen, Edda Sigrún Guðmundsdóttir og Þórunn Ósk Sigurbjörnsdóttir.

Feðgarnir Elmar Bergþórssn og Bergþór Ólafsson kennari.

Ingibjörg Gísladóttir ásamt barnabarninu sínu Haraldi Ingvarssyni.

Frænkurnar Henný Guðrún Gylfadóttir og Elísabet Björgvinsdóttir sem kom fyrir hönd Norðlingaskóla.

Hjónin Sigurjón Ingvarsson og Rósa Harðardóttir með barnabörnin sín Aldísi og Halla.

Anna Guðrún Jósefsdóttir, Hrefna Jónsdóttir, Gerður Pálsdóttir og Erla Frederiksen.

Auður Eysteinsdóttir myndlistarkennari að útskýra tímalínuna sem unnin var af nemendum skólans. Mjög áhugaverðar upplýsingar um skólastarfið og þjóðfélagið.

Íris Williamsdóttir skrifstofustjóri og Steinunn Þórisdóttir.

Apríl Sjöfn Tómasdóttir og Saga Kristín Tómasdóttir fengu sögustund á bókasaninu hjá ömmu sinni Sjöfn Jóhannesdóttur.

Rósa Harðardóttir skólastjóri Selásskóla og Ellen Gísladóttir skólastjóri Ártúnsskóla.

Sigríður Helga Jónsdóttir stuðningsfulltrúi, María Valsdóttir kennari og Gestný Kolbrún Kolbeinsdóttir þroskaþjálfi.

Ólöf Huld Ómarsdóttir kennari og Brynjar Freyr Stefánsson umsjónarmaður fasteigna.

Hekla Móey Ingadóttir og nemendur skólans, Hafdís Lóa Ingadóttir, Lea Júlíhuld Atladóttir og Hildigunnur Ásta Gunnlaugsdóttir.

Þorkell Daníel Jónsson skólastjóri Breiðagerðisskóla, Margrét Rós Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri og Ingunn Ásta Sigmundsdóttir verkefnastjóri á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar.


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/5/2026 9:58 PM Page 7

Ö l garðverk Öl kfæri kf

Sláttu uorf, Sláttuvélar og slá átturóbotar

Frábært úrval

! f a t l l a i erð

ærum af garðverkfæ

v u ð ó g á i ð æ G

Lavor háþrý ýstidælur

Colorex r málning og v viðarvörn Úrrva val af flísum

Vín ínyl- og ha arðparket

G Gott verð fyrir alla a, alltaf!

Sérfræðinga ar í múrefnum


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/6/2026 3:13 PM Page 8

8

Fréttir

Árbæjarblaðið

2025

Láttu okkur sjá um húsfélagið! Við erum með 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög ffa asteigna. Þjónustuverið okkar svarar fyrirspurnum hratt og örugglega; í síma 585-4800 eða á netspjallinu. Einnig er hægt að senda póst á thjonusta@eignaumsjon.iss.

Heyrðu í okkur og við gerum þér tilboð!

Knattspyrnuskóli og Tækniskóli Fylkis Suðurlandsbraut 30 Reykjavík | Sími 585 4800

eignaumsjon.is umsjon is

Að venju var haldinn Knattspyrnuskóli og Tækniskóli fyrir krakkana í hverfinu í ágúst. Áhersla var lögð á grunntækni, leikæfingar og almenna gleði. Tæplega 300 krakkar tóku þátt í

sumar og undir lok sumars komu jafnvel börn úr öðrum hverfum, sem er merki um vel unnið starf. Á myndinni hér að ofan eru hressir strákar sem voru á síðasta námskeiði

Gæludýraþáttur í boði Dýrabæjar í Spöng:

Sleikimottur eru snilldin ein Frábær gjöf fyrir veiðimenn og konur

Uppl. í síma 698-2844 og á Krafla.is

LickiMat var upprunalega hannað í samstarfi við dýralækna til að bæta tannheilsu hunda. Sleikjuhreyfingin örvar munnvatn og losar um endorfín sem róa dýrið, og mottan hefur orðið eitt vinsælasta tólið gegn kvíða og til að hægja á áti. Marga mottur þola uppþvottavél og frysti, hentar bæði hundum og köttum. Lickimat – snilldin á sleikimottunni Hvað er svona sniðugt við Lickimat? Þetta er sleikimotta með munstri sem gerir matartímann að leik í stað þess að klárast á 10 sekúndum. Einfalt en ótrúlega áhrifaríkt fyrir bæði hunda og ketti. Afhverju að nota hana? Hún hægir á átinu, sem er frábært fyrir dýr sem gleypa matinn of hratt. Sleikihreyfingin losar líka endorfín og róar taugakerfið, fullkomið fyrir kvíðna hunda, flugeldahræðslu, bílferðir eða baðferðir eða bara til að

róa niður orkubolt-ana. Auk þess veitir hún andlega örvun og heldur leiðindum í skefjum. Hvað er sett á sleikimottuna? Allt blautt og maukkennt: blautfóður eða pate frá Dr. Clauder's og Canagan, nammi í mauki, kotasæla eða náttúruleg jógúrt án sætuefna. Tips & trikk: • Frystu mottuna í 1-2 klst. fyrir extra langvarandi skemmtun. • Festu hana á flísar/vegg með sogskálinni. • Notaðu sem róandi tól í baði eða klóasnyrtingu. • Byrjaðu á einföldu munstri, erfiðari útgáfur koma síðar. Fæst í næstu Dýrabær-verslun!

sumarsins ásamt þjálfurum sínum þeim Halldóri Þorsteinssyni aðalþjálfara, Gunnari Andra Stefánssyni, Kára Gunnarssyni, Elís Þór Kjartanssyni, Daníel Smára Briem og Kristínu Birnu Steinarsdóttur.


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/15/2026 1:46 PM Page 9

9

Fréttir

Árbæjarblaðið

Fylkisstúlkur í Lengjudeild - og karlalið í úrslitaleikinn um sæti í Bestu deild gegn Þrótti Reykjavík

Kvennalið Fylkis tryggði sér sæti í Lengjudeild kvenna að ári þegar þær

höfðu betur, 2-1, gegn Einherja í lokaumferð 2. deildar kvenna.

Fylkisstelpurnar fagna sætinu í Lengjudeildinni eftir sigurinn gegn Einherja. Spennan var gríðarleg í lokaumferð 2. deildar kvenna og voru það fjögur lið sem áttu möguleika á að tryggja sér sæti í Lengjudeildinni, þar á meðal Fylkir og Einherji. Fyrir leikinn var Einherji með einu stigi meira en Fylkir og því ljóst að stelpurnar þurftu á sigri að halda til að tryggja sér sæti í Lengjudeildinni að ári. Það tókst með marki frá Mariju Radojicic á 70. mínútu leiksins. Markið var jafnframt síðasta markið sem Marija skoraði á ferlinum, en hún var að leika sinn síðasta leik og náði að enda ferilinn á magnaðasta hátt – með sigurmarki sem tryggði liðinu sæti upp um deild. Kvennalið Fylkis mun því koma til með að spila í Lengjudeild kvenna árið 2027 eftir að hafa fallið úr deildinni árið 2025.

Fylkir í Bestu Deild Guðmundur Tyrfingsson fagnar markinu mikilvæga gegn HK.

Það var mikið líf og fjör á vellinum um helgina en spennan náði hámarki á

sunnudaginn þegar karlalið Fylkis tók á móti HK í síðari undanúrslitaleik liðanna í umspilinu um sæti í úrslitaleik á Laugardalsvelli. Það var metmæting á völlinn í sumar þegar 1.793 stuðningsmenn lögðu leið sína á völlinn til að styðja liðin sín áfram í þessum mikilvæga leik undir flóðaljósunum – og ekki skemmdi fyrir það sem næstu 120 mínútur höfðu upp á að bjóða. Fylkisliðið komst yfir, 1-0, í fyrri hálfleik eftir mark frá Theodóri Inga eftir mikið klafs í teignum. Fylkir leiddi því 1-0 í hálfleik, eða samtals 4-2 í einvíginu, og farið að líta ansi vel út fyrir okkur appelsínugulu. Hins vegar mættu HK-ingar af miklum krafti í síðari hálfleik og voru búnir að snúa leiknum sér í hag eftir 65 mínútna leik, 1-2. Þannig tókst þeim að jafna einvígið í 4-4 og allt í járnum frá 65. mínútu. Bæði lið sóttu hart að marki hvors annars og fengu nokkur góð tækifæri til

að stela sigrinum. Jafnt var þó eftir 90 mínútna leik og því þurfti að framlengja. Mikil spenna var í stúkunni og voru lætin slík að kvartanir bárust meira að segja úr íbúðahverfi í Breiðholtinu, sem er í um 2–3 km fjarlægð frá vellinum. En það var á 105. mínútu sem allt ætlaði um koll að keyra þegar hetjan Guðmundur Tyrfingsson slapp einn inn fyrir og kláraði færið vel. Hann jafnaði leikinn í 2-2 og kom Fylki jafnframt yfir í einvíginu, 5-4. Sú staða hélst allt þar til á lokamínútum framlengingar þegar dómarinn flautaði til leiksloka. Þá ætlaði allt um koll að keyra Fylkismegin í stúkunni af fögnuði og ljóst að liðið er komið í úrslitaleikinn á Laugardalsvelli næstkomandi laugardag. Þar mætir Fylkir Þrótti á Laugardalsvelli kl. 16:15 og verður barist um sæti í Bestu deild karla árið 2027.


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/1/2026 10:52 PM Page 10

10

Árbæjarblaðið

Fréttir

Lúxus lax með engifer-, lime- og hunangshjúp

karamelluseraðan hjúp má setja grillstillingu á í 1–2 mínútur í lokin. Fylgist vel með því hunangið getur brúnast hratt. 8. Látið laxinn hvíla í nokkrar mínútur áður en hann er borinn fram. 9. Toppið með miklu fersku kóríanderi, chili og ferskum lime-safa rétt áður en hann fer á borðið. Meðlæti sem passar sérstaklega vel Ég myndi bera þennan lax fram með: • Jasmín- eða basmatihrísgrjónum. • Léttu gúrku- og avókadósalati. • Edamame-baunum. • Lime- og kóríandersalati. • Eða einföldu grænu salati með sesam/lime-dressingu.

- frábær uppskrift sem vert er að prófa Þetta er einstaklega safaríkur og bragðmikill lax þar sem sæta, salta, súra og örlítið sterka bragðið blandast saman. Engifer, lime og chili gefa ferskleika en hunangið karamelliserast fallega í ofninum. Sesamfræin og kasjúhneturnar gefa svo hjúpnum dásamlegt crunch. Hráefni - Laxinn • 1 veglegt laxaflak frá sælkera og Fiskbúðinni Aldan. • Salt og nýmalaður svartur

pipar.Instragram.is • Örlítið af ólífuolíu. Engifer- og limehjúpurinn • 2–3 msk. ferskt engifer, fínt rifið. • 2 msk. tamari eða góð sojasósa. • 2 msk. ferskur lime-safi. • 1–2 msk. akasíuhunang. • 1 ferskur chili, smátt saxaður. • 1–2 msk. sesamfræ. • 2–3 kaffir-lauf, mjög fínt söxuð (má sleppa). • ½–1 dl. kasjúhnetur, gróft saxaðar

Lúxuslaxinn hennar Jönu er sannkallað lostæti. Ofan á • Góður slatti af fersku kóríander. • Lime í bátum. • Mögulega smá ferskur chili. Aðferð

Spönginni Grafarvogi

1. Hitið ofninn í 200 gráður. 2. Setjið laxinn á bökunarpappír og kryddið létt með salti og pipar. Ekki nota of mikið salt þar sem tamari/sojasósan er sölt. 3. Blandið saman í skál rifnu

engifer, tamari, lime-safa, hunangi og chili. Smakkið til. Hjúpurinn á að vera bragðmikill – saltur, sætur, ferskur og örlítið sterkur. 4. Bætið sesamfræjum og kaffirlaufum saman við. Ef blandan er mjög þykk má bæta við örlitlum lime-safa. 5. Smyrjið hjúpnum ríkulega yfir allan laxinn. Stráið síðan söxuðum kasjúhnetum yfir. 6. Setjið í ofn og bakið í um 15–20 mínútur, eftir stærð og þykkt flaksins. Laxinn á að vera safaríkur og rétt eldaður í miðjunni. 7. Fyrir fallegan, gylltan og örlítið

Kristjana Steingrímsdóttir (Jana). Gott ráð Það er líka mjög gott að setja smá af hjúpnum til hliðar áður en hann fer á óeldaðan laxinn og bera hann fram sem sósu með matnum. Þá fær maður enn meira af þessu góða engifer-, lime- og hunangsbragði. Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) Jana.is - Instragram.com/Janast

Bókaðu tíma í sjónmælingu Þú getur bókað tíma í sjónmælingu með stuttum fyrirvara í verslunum Eyesland í Kringlunni, Glæsibæ, Spönginni, Granda og á Keflavíkurflugvelli. Sjónmæling gengur upp í gleraugnakaup séu þau gerð í framhaldinu.

Spönginni Kringlan Grandi Glæsibær Keflavíkurflugvöllur

eyesland.is


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/6/2026 8:52 PM Page 11


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/1/2026 10:53 PM Page 12

12

Fréttir

Árbæjarblaðið

Í Metabolica mætir fólk á öllum aldri og nær góðum árangri.

Spönginni

Besta fjárfestingin er í góðri heilsu - ný önn að hefjast hjá Metabolic Reykjavík!

Ný önn er að hefja göngu sína hjá Metabolic og spennandi tímar eru fram undan. Við höfum nýtt tímann vel í sumar í stækkun, lagfæringar og búnaðarkaup sem við búumst við að muni falla vel í kramið hjá ykkur. Þegar kemur að því að rækta líkamann og bæta lífsgæðin er ein meginregla sem stendur upp úr: Góð heilsa er alltaf besta fjárfestingin sem þú gerir fyrir sjálfa þig. Orkan sem þú notar á æfingunni skilar líklega bestu ávöxtun sem völ er á. Því þó það hljómi kannski ótrúlega, þá færðu mun meiri orku til langs tíma þegar þú ræktar líkamann reglulega.

Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár

Við leggjum okkar lóð á vogarskálarnar í buddunni Okkur finnst að hreyfing eigi að vera aðgengileg, skemmtileg og raunhæfur hluti

í gildi hjá okkar áskrifendum. Ótímabundin áskrift lækkar mest Til að gera þér enn auðveldara fyrir að taka skrefið og halda stöðugleika í æfingunum, lækkum við verðið á ótímabundnum áskriftum: - Nýtt mánaðarverð: 16.990 kr. (var 20.990 kr.) Þetta þýðir að þú færð sömu gæðaþjálfunina, öfluga félagsskapinn og alla okkar sérsniðnu æfingatíma á miklu hagstæðara verði — og enn lægra verð býðst ef þú staðgreiðir árskort. af hversdagslífinu. Þess vegna viljum við koma til móts við okkar fólk og lækka öll okkar verð! Það á bæði við um nýjar áskriftir og líka samninga sem eru nú þegar

Hvers vegna Metabolic? Hjá Metabolic snýst þjálfunin ekki um óraunhæfar kröfur eða að pína líkamann, heldur um að byggja upp varanlegan styrk,

Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .

V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N

bæta úthaldið og rækta góða heilsu á þínum forsendum. Hvort sem þú ert að snúa aftur eftir stutta pásu, vilt dýpka núverandi rútínu eða ert að stíga þín fyrstu skref í ræktinni, þá tekur hópurinn okkar vel á móti þér. Við meira að segja gefum þér fyrstu tvær vikurnar frítt! Skráðu þig í frípassa án allra skuldbindinga áður en þú bindur þig í áskrift. Eða komdu við hjá okkur, þó ekki væri nema til að kíkja í kaffi og færa okkur eina nýja afsökun í stóru afsökunarbókina okkar — þar sem við geymum allar fyndnustu og fáránlegustu afsakanirnar fyrir því af hverju fólk mætir ekki á æfingu!

Er stí昀að? FJARLÆGJUM STÍFLUR

Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar

Þekking og áratuga reynsla

VALUR H ELGASON ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is

Ný önn er fullkomið tækifæri til að byrja upp á nýtt, setja sjálfa þig í forgang og fjárfesta í eigin vellíðan.

Þálfunarstöðin Metabolic Reykjavík er staður fyrir venjulegt fólk. Þar mætast allir á jafnréttisgrundvelli og þar er tekið afar vel á móti fólki.

Prófaðu nýja önn með okkur – skráning í frípassa er hafin!


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/7/2026 8:19 PM Page 13

13

Fréttir

Árbæjarblaðið

Strákarnir enda tímabilið í 3. sæti og stelpurnar berjast um sæti í 1. deildinni Meistaraflokkur karla lauk á dögunum hefðbundnu deildarkeppni Lengjudeildarinnar þar sem leikið er um sæti í Bestu deildinni að ári. Strákarnir áttu mun betra tímabil í ár en í fyrra, en þá endaði liðið í 8. sæti deildarinnar og var í fallbaráttu allt fram að síðasta leik. Undir stjórn Heimis Guðjónssonar, sem tók við liðinu fyrir tímabilið, hefur Fylkisliðið sýnt mun betri frammistöðu og var í harðri toppbaráttu allt sumarið. Liðið barðist lengi við Aftureldingu og Þrótt Reykjavík um efstu sætin, en að lokum hafði Afturelding betur í toppbaráttunni, Þróttur hafnaði í 2. sæti og Fylkir í 3. sæti, aðeins fimm stigum frá toppsætinu. Þriðja sætið gefur Fylki hins vegar sæti í umspili um eitt laust sæti í Bestu deildinni að ári. Þar mætast liðin sem hafna í 2.–5. sæti deildarinnar. Liðið í 2. sæti mætir liðinu í 5. sæti og liðin í 3. og 4. sæti mætast í tveggja leikja einvígi. Sigurvegarar þeirra einvígja mætast síðan í úrslitaleik á Laugardalsvelli, þar sem sigurvegarinn tryggir sér sæti í Bestu deildinni. Umspilið hefur jafnan verið kallað „70 milljóna króna leikurinn“, enda er talið að tekjur félags aukist að jafnaði um allt að 70 milljónir króna við það að komast upp í efstu deild. Fylkir var í baráttunni um efsta sætið allt fram að næstsíðustu umferð deildarinnar. Þá mættu strákarnir Gróttu á Tekk-vellinum og höfðu betur,

3–1. Mörk Fylkis skoruðu Kári Sigfússon, Hlynur Sævar og hinn 16 ára gamli Magnús Daði, sem er uppalinn hjá Fylki. Með sigrinum var ljóst að Fylkir þyrfti að treysta á önnur úrslit til að eiga möguleika á toppsætinu, en þær niðurstöður sem þurfti að fá féllu ekki með liðinu. Í lokaumferð deildarinnar var því komið að bæjarleiðangri í Kópavog þar sem Fylkir mætti HK í Kórnum. Þar hafði liðið lítið að spila fyrir, enda þriðja sætið þegar tryggt. HK hafði betur, 2–1, eftir að heimamenn komust í 2–0. Nikulás Val minnkaði muninn á 71. mínútu en þrátt fyrir nokkrar tilraunir tókst Fylki ekki að jafna metin. Þrátt fyrir tapið er þriðja sætið sterkur árangur fyrir Fylki og gefur liðinu tækifæri til að berjast um sæti í Bestu deildinni þegar umspilið hefst. Stelpurnar í algjörum úrslitaleik um sæti í 1. deild Meistaraflokkur kvenna tryggði sér sæti í úrslitakeppni 2. deildar kvenna í júlí og hefur liðið átt spennandi baráttu um sæti í 1. deildinni. Fyrirkomulag úrslitakeppninnar er þannig að fjögur efstu lið deildarinnar mætast innbyrðis heima og að heiman. Fylkisstelpurnar fengu erfiða byrjun á úrslitakeppninni. Fyrst gerðu þær 2–2 jafntefli gegn toppliði Fjölnis eftir að Fjölniskonur jöfnuðu metin á lokamínútum leiksins. Í kjölfarið kom 0–1 tap gegn Vestra á heimavelli og 2–

1 tap gegn Einherja á útivelli. Eftir aðeins eitt stig úr fyrstu þremur leikjunum var því orðin ansi mikil brekka fyrir Fylki og liðið komið í 4. sæti. En stelpurnar voru ekki tilbúnar að gefast upp. Þær mættu Fjölni á Tekk-vellinum og sýndu þar frábæra frammistöðu. Fylkir hafði að lokum stórsigur, 4–1, eftir mörk frá Emmu Sól, Birnu Eiríksdóttur, sem skoraði tvö mörk, og Kolfinnu Baldursdóttur. Með sigrinum lifnaði vonin á ný og ljóst að Fylkir þurfti að vinna síðustu tvo leiki tímabilsins til að eiga möguleika á að tryggja sér sæti í 1. deild. Næst lá leiðin vestur á Ísafjörð þar sem Fylkir mætti Vestra á ný. Eftir tapið á heimavelli í fyrri leik liðanna voru stelpurnar staðráðnar í að hefna fyrir það tap. Það tókst svo sannarlega og Eva Stefánsdóttir skoraði eina mark leiksins og tryggði Fylki gríðarlega mikilvægan sigur og þrjú stig sem fylgdu liðinu heim í Árbæinn. Með þeim úrslitum er ljóst að fram

Leikmenn Fylkis og áhangendur fagna góðum sigri í sumar. undan er algjör úrslitaleikur gegn Einherja laugardaginn 12. september. Þar er sæti í 1. deild undir og sigur Fylkis tryggir liðinu sæti í deildinni að ári. Markatalan gæti einnig leikið lykilhlutverk í lokaumferðinni þar sem þrjú lið geta endað með 36 stig. Takist Fylki að vinna Einherja mun liðið því eiga möguleika á að standa uppi sem sigurvegari 2. deildar kvenna árið 2026 á markatölu. Jafntefli eða tap gegn Einherja dugar

hins vegar ekki til að komast upp og því er um hreinan skyldusigur að ræða fyrir Fylkisstelpurnar. Það verður því sannkallaður spennuleikur í lokaumferðinni þar sem öll fjögur efstu liðin eiga enn möguleika á að komast upp um deild. Fylkisfólk getur því átt von á spennandi lokakafla hjá báðum meistaraflokkum félagsins, þar sem bæði karla- og kvennaliðið berjast um sæti í efri deildum.

,,,+*)('&%**$#"!$ "'"'! ' ( (! ! ' + *% ,,, # $ ('!+% "! +% "! !+*)('&%**$#( (!+*!+ %! !'($#%*( ,,, ! + ('!&+'% !( &+' %$ + "! + ! & !" !$ %#"! # $ ( ,,, !+'!" !+*)('&%**"! #!" ('! !" ('

Fylkisstúlkur hafa oft haft ástæðu til að fagna í sumar.

Tólf spor – Andlegt ferðalag

Tólf spor – Andlegt ferðalag. Tólf sporin – Andlegt ferðalag í Mosfellsbæ í vetur. Fyrsti opni spora fundur vetrarins verður 7. október kl. 19.30. Í Safnaðarheimili Lágafellssóknar að Þverholti 3, Þrjú næstu miðvikudagskvöld verða opnirfundir til frekari viðkynningar. Allir eru velkomnir og ekki þarf að skrá sig.

'"+*%'$ " "',%$! ! '"(*

! ! ! '"+ +*%' $ " "',%$! ! !


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/7/2026 10:25 PM Page 14

14

Gamla myndin

Árbæjarblaðið

gul gata

Fyrsta stjórn Fylkis Gamla myndin að þessu sinni er af fyrstu aðalstjórn Fylkis en þessi

Allar almennar bílaviðgerðir

;9B56= 7@9 B56= 7@ 5D ( A 5D

fyrsta stjórn félagsins sat frá 1967 til 1968 en félagið var stofnað 28. maí

árið 1967.

- KGG


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/1/2026 11:20 PM Page 15

15

Fréttir

Árbæjarblaðið

Ónefnd gata í ónefndu hverfi - eftir sr. Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarsókn Það var einn af þessum fallegu, björtu sumardögum þegar Reykjavík skartar sínu fegursta seint í júní. Ég var á leið í 40 ára afmæli á ónefndum stað og ónefndu húsi við ónefnda götu í ónefndu póstnúmeri. Afmælisbarnið og makinn höfðu ákveðið að lauma einu „smáatriði“ inn í dagskrána, þau ætluðu að gifta sig í tilefni dagsins. Það átti enginn að vita, nema brúðhjónin og auðvitað ég undirritaður. Ég hafði fengið einföld fyrirmæli: „Komdu á þessum tíma, útidyrahurðin verður ólæst, forstofuhurðin verður lokuð og passað verður upp á að enginn verði í gangingum, komdu inn á slaginu 19.30 og athöfnin byrjar.“ Þetta hljómar vel á blaði og í huga. Hvað getur farið úrskeiðis? Segir ekki einhvers staðar að mennirnir ætli en guð ræður för, sem þýðir að þrátt fyrir áætlanir fólks geta aðstæður eða örlögin breytt niðurstöðunni. Til að gera langa sögu stutta var ég mættur aðeins fyrir áætlaðan tíma. Það var fallegt sumarkvöld sem mátaði vel við það sem fram undan var. Blá heiðríkan lá yfir húsum og mönnum og dýrum eins og hlý værðarvoð. Ég lagði bílnum í nærliggjandi götu svo lítið bar á. Þegar tíminn var kominn læddist ég eftir götunni svona á pari við þjóf að nóttu og gætti þess að enginn sæi mig, allavega ekki afmælisgestir í ónefndu húsi við ónefnda götu hér í borg. Þegar ég kom að húsinu var dálítill spölur frá götu inn í garð sem skreyttur var blöðrum og konfettibréfum að útidyrunum. Glasaglaumur, masandi fólk og tónlist fylltu loftið í kyrrlátu nágrenninu. Ég stend við útidyrnar, fletti í handbókinni, ræðan á sínum stað, síðasta tékk, dreg djúpt andann, set upp kollarinn (þetta hvíta sem prestar eru með um hálsinn), tók í

hurðahúninn og opnaði. Í stað þess, í höndum og greinilega eitthvað eins og um var rætt á fundi með sterkara en malt í sumum þeirra. Allir afmælisbarninu og tilvonandi brúð- voru í góðum gír. Þögn sló á hjónum nokkrum dögum áður, átti enginn að vera í anddyrinu á þeim tíma þegar ég mætti. Þannig var uppleggið eins og að framan greinir. Það var fjarri óskrifaða handritinu, það sem á eftir gekk. Horft til baka af öllum þeim 50+ gestum sem þarna voru var sú manneskja sem í ganginum var ekki sú heppilegasta til að vera þar ef svo mætti að orði komast. Inni í anddyrinu, þar sem enginn átti að vera á þeim tíma sem ég mætti og opnaði dyrnar, stóð móðir afmælisbarnsins. Augu okkar mættust, það voru alls ekki augu eins og í spaghettivestra um miðjan 7. áratug síðustu aldar, Clint Eastwood með pírð augu í nærmynd, augu sem vita og hræðast ekkert. Nei, það var augnaráð „dýrs“ sem bílljós fellur á á fáförnum sveitavegi, sr. Þór Hauksson. ótta-svipur. Presturinn með kollarinn stendur í mannskapinn, meira að segja dró niður anddyrinu – ergo - eitthvað slæmt í tónlistinni. Ég sá spurningarnar í hefur gerst skein úr augum augum fólksins: Hvað er eiginlega að móðurinnar. Af svip hennar að dæma gerast? Prestur? Hvað hefur gerst? var það greinilega meira en hún hafði Með aðstoð afmælisbarnsins/brúðgert ráð fyrir að sjá prest þennan dag á arinnar kem ég móðurinni inn í eldhús 40 ára afmælisdegi dóttur sinnar. og milli þess að konan fékk vatnssopa Henni brá mjög svo ranghvolfdust í seitlaðist orð dóttur hennar í vitund henni augun og hún hneig niður, hún móður hennar að presturinn væri féll í öngvit. Ég greip hana þarna í kominn til að gifta hana. Hún þurfti að holinu. Þarna stóð ég allt í einu með endurtaka það aftur og aftur. Mamma, móður afmælisbarnsins í fanginu, það er enginn dáinn! Presturinn er hér nánast meðvitundarlausa, og vissi til að gifta mig og...! Móðirin komst til eiginlega ekki hvort ég væri kominn í sjálfs síns um síðir. Þegar ég kom heim síðla þetta kvöld afmæli/brúðkaup eða líkvöku. Ég náði að opna forstofuhurðina. Við mér og spurði konan mín hvernig hefði nær meðvitundarlausri móður afmæl- gengið. Ég sagði henni frá uppákomisbarnsins blasti fólk í sparifötum, glös unni og öllu því sem fylgdi. Hún hló

og sagði eitthvað um að þetta gæti bara gerst fyrir mig. Henni varð ekki hlátur í huga fáeinum augnblikum síðar. Henni varð nefnilega á að spyrja. „Þú ert í ganginum með konuna í fanginu hálfmeðvitunarlausa og gestirnir starandi á þig. Hvað sagðir þú?“ Ég svaraði: „Nú ég þurfti að segja eitthvað. Ég var með konuna í fanginu og þögnin orðin næstum óþægileg. Þá datt mér það eina í hug sem mér fannst viðeigandi á þeirri stundu: „Þetta gerist stundum þegar konur sjá mig.“ Þögnin sem fylgdi orðum mínum sá sæng sína útbreidda og lét sig hverfa út um næstu dyr, út í milt sumarkvöldið seint í júní með sína bjartsýni og kyrrð og lofandi stundir vék um stund fyrir óumræðanlegri í

fyllstu orðsins merkingu, þegar orðið viðeigandi þrýstist upp úr dýpstu hjartans rótum viðmælanda míns upp kerfið og út úr munni með kvæsandi hljóði“ Viiið... eigandi!” sagðirðu það virkilega! „Hvað átti ég að segja, það var bara það fyrsta sem mér datt í hug,” svaraði ég og var orðin heldur þurr í munninum. Viðmælandi minn spurði: Hvað sagði fólkið? Ég: „Ekkert... fyrr en á eftir í miðri athöfn að einn brúðkaupsgesta skellir upp úr og byrjar að hlæja hysteriskum hlátri. Af hverju skellti gesturinn upp úr?“ spyr viðmælandi minn. „Ekki bara hún,“ segi ég, „heldur og allir sem þarna voru. Milli hláturs og gráturs afsakaði hún sig og sagðist hafa farið að hugsa um hvað presturinn sagði þarna í dyragættinni. „Já, ég skil,“ segir viðmælandi minn og nær áttum á ný og segir: „Henni hafi þótt tilhugsunin fyndin að yfirleitt einhver falli í yfirlið að sjá þig.“ Þótt ég leyfði mér að hafa aðra hugmynd um það ákvað ég að láta gott heita og sagði „já, þú meinar. Þór Hauksson

Opna húsið í Árbæjarkirkju alla miðvikudaga Opna húsið í Árbæjarkirkju alla miðvikudaga kl. 12-16. Þangað eru allir fullorðnir velkomnir og þar er ýmislegt á dagskrá. Byrjað er með kyrrðarstund í kirkjunni, síðan er léttur hádegisverður á vægu verði (kr. 1500). Að því loknu er hin sívinsæla stólaleikfeimi og svo er spjallað eða einhver gestur mætir í heimsókn. Endað er á gómsætu síðdegiskaffi. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir. Helgihald hvern sunnudag kl.11.00 Annan sunnudag hvers mánaðar er Fjölskylduguðsþjónusta kl.11.00


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 9/9/2026 7:49 PM Page 16

BknaTT BA T T A AR R tts p yrna


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Árbæjarblaðið by Skrautás Ehf. - Issuu