


![]()



2. tbl. 24. árg. 2026 febrúar Fréttablað íbúa í Árbæjarhverfi

Ásgeir Guðni Andrason, Kolfinna Birgisdóttir, Katrín Ósk Alexandersdóttir, Ísir 7 ára, Emma Rún Sigurjónsdóttir og Alexandra Árný Andradóttir voru í göngutúr við Rauðavatn í kulda og trekki á dögunum. Katrín J. Björgvinsdóttir, ljósmyndari Árbæjarblaðsins, hitti þau og fleiri Árbæinga við vatnið rauða og við birtum margar myndir hennar á bls. 8 og 9.

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs - sjá bls. 8 og 9


Allar almennar bílaviðgerðir



tÚtgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is
Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson.
Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322.
Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is
Útlit og hönnun: Skrautás ehf.
Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson - abl@skrautas.is
Prentun: Landsprent ehf.
Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir.
Dreifing: Póstdreifing.
Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti og Norðlingaholti.
Núna þegar að þrír mánuðir eru í sveitastjórakosningar er rétt að minna kjósendur á að þar gefst kærkomið tækifæri til að leysa vanhæfa stjórnmálamenn frá störfum. Stjórnmálamenn sem hafa ítrekað sýnt það á síðustu árum að þeir kunna ekki að fara með peningana okkar.
Pólitík snýst um forgangsröðun, hvernig farið er með þá peninga sem þjóðin hefur yfir að ráða. Á undanförnum árum hefur það komið greinilega í ljós, trekk í trekk, að kjósendur hafa valið vanhæft fólk til forystu.
Maður veit eiginlega ekki hvar á að byrja. Borgarlínan er nærtækt dæmi. Búið er að eyða hundruðum milljóna í undirbúning þessa fyrirbæris sem mun aldrei skila sér, hvorki fjárhagslega né í bættum samgöngum. Enginn veit hvað Borgarlínan kemur til með að kosta og ekki er enn búið að ákveða hver á að borga brúsann. Almenningur mun hafna Borgarlínunni frá fyrsta degi og í uppsiglingu er mesta skipulagsslys í sögu höfuðborgarsvæðisins.
Troða á Borgarlínunni niður í rótgróin hverfi þar sem umferðarmál eru nú þegar í algjörum ólestri. Dæmið um Suðurlandsbrautina er þekkt og algjörlega galið. Fyrirtæki við brautina eru þegar farin að skipuleggja flótta af svæðinu. Viðskiptavinir munu ekki skila sér þegar búið verður að fækka akreinum um helming og allt mun stíflast á þessu svæði þegar framkvæmdir hefjast og munu taka nokkur ár.
Enn er tími til að forða þessu stóra slysi. Kjósendur verða að greiða atkvæði þeim flokkum sem vilja staldra við og hætta jafnvel við þetta rugl.
Talað er um að Borgarlínan muni kosta 250-300 milljarða. Þeir vita sem vilja að áætlanir á Íslandi standast aldrei. Borg-arlínan mun því kosta 400500 milljarða þegar upp er staðið.
Enn er tími til að hætta við. Talandi um peninga. Stjórnmálamenn sem fara með völdin á Íslandi í dag kunna ekki að fara með peninga. Nánast daglega er greint frá afglöpum ráðherra og fer utanríkisráðherrann þar í fararbroddi. Hún ver meiri tíma erlendis en heima fyrir. Á sama tíma og sjúklingar komast ekki að á bráðamóttöku Landsspítalans spreðar Þorgerður Katrín milljörðum í vopnakaup. Vopnin eru notuð til að drepa unga rússneska og úkraínska hermenn. Það verður að koma svona stjórnmálamönnum frá við fyrsta tækifæri. Stefán Kristjánsson
- eftir Björn Gíslason borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Í grein sem ég ritaði sl. haust undir yfirskriftinni „Hættuleg þrenging að umferð við Höfðabakka“ fjallaði ég um alvarlegar afleiðingar þeirra breytinga við Höfðabakka og Bæjarháls sem þá voru fyrirhugaðar en hafa nú orðið að veruleika. Þar benti ég á að með því að fjarlægja beygjuvasa og þrengja að umferð væri verið að skapa tafir, auka slysahættu og tefja neyðarakstur – allt í nafni öryggis sem þegar var tryggt með öðrum úrræðum.
Sú þróun sem varað var við hefur því miður raungerst.
Umferð um Höfðabakka verri en áður
Eftir umfangsmiklar framkvæmdir við Höfðabakka, meðal annars við Bæjarháls, Dvergshöfða, Stórhöfða og á Höfðabakkabrú, er umferð á svæðinu nú þyngri en áður. Bílar raðast eftir öllum Höfðabakkanum, oft langt inn í Grafarvog og niður Ártúnsbrekku og umferð hefur í auknum mæli leitað inn í íbúðahverfi þegar ökumenn reyna að komast hjá teppum á stofnæðinni.
Þrátt fyrir að umferðaröryggi og skilvirkni eigi að vera leiðarljós slíkra framkvæmda hefur hvorugt batnað. Þvert á móti er niðurstaðan verri en áður. Meðal annars hafa Íbúasamtök Grafarvogs sent borgarfulltrúum formlega áskorun um endurskoðun breytinganna, án þess að svör hafi borist. Það er ekki boðlegt.

Björn Gíslason er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins..
Borgin vissi af afleiðingunum Komið hefur fram að borgaryfirvöld vissu fyrir fram að við það að fjarlægja beygjuvasana myndu tafir aukast í umferð. Greining sem unnin var fyrir borgina sýndi jafnframt að biðtími á háannatíma gæti farið úr um níu sekúndum í allt að 92 sekúndur. Sú greining var hins vegar ekki lögð fram eða kynnt borgarfulltrúum og
almenningi við ákvörðunartökur. Jafnframt liggur fyrir að engin slys á gangandi eða hjólandi vegfarendum hafa orðið í þeim beygjuvösum sem fjarlægðir voru, þrátt fyrir áratugalanga notkun. Það dregur verulega í efa þau rök sem breytingarnar voru byggðar á. Hver sekúnda skiptir máli
Það skiptir máli að það sé sérstök áhersla lögð á áhrif neyðaraksturs. Ég tala þar af reynslu sem fyrrverandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður þegar ég segi að hver sekúnda skiptir máli þegar á reynir. Ákvarðanir sem auka líkur á töfum við slíkar aðstæður eru einfaldlega ekki ásættanlegar. Ég tel mikilvægt að öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda verði náð með uppfærðri og snjallari ljósastýringu og nýtingu rauntímagagna, án þess að fórna þeim beygjuvösum sem í áraraðir hafa tryggt gott umferðarflæði. Tími til að staldra við Höfðabakki er ein af lykiltengingum borgarinnar. Allar breytingar á slíkum stofnæðum verða að byggjast á faglegum gögnum, heildarsýn og raunverulegu mati á afleiðingum. Þegar niðurstaðan er verri en áður ber að staldra við, hlusta á íbúa og leiðrétta kúrsinn.
Björn Gíslason borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
BRAUT Á KEILUHOLLIN.IS OG Í SÍMA 5 11 53 00




































- frábær uppskrift sem vert er að prófa
Þessar próteinríku brownies eru fullkomin blanda af sætu, mjúku og saðsömu – án þess að vera of þungar. Gríska jógúrtin gefur þeim extra prótein og mýkt, á meðan möndlumjölið og kakóið skapa djúpt og gott bragð. Hvítu súkkulaðibitarnir bráðna örlítið í ofninum og gera hvern bita sérstaklega ljúffengan.
Þær henta einstaklega vel:
- Sem hollara nammi með kaffinu.
- Eftir æfingu þegar þig langar í eitthvað sætt og próteinríkt.
- Í nestisboxið.
- Þegar þig langar í einfalt og fljótlegt bakkelsi.
Geymast vel í ísskáp í 3–4 daga – og má líka frysta.
Innihald (ca. 9 stk.)
• 2 egg.
• 150 gr. grísk jógúrt frá Arna.
• 50 gr. möndlumjöl.
• 30 gr. kakó.
• 40–60 gr. sæta að eigin vali (td hunang, hlynsíróp.)
• 40 gr. haframjöl eða meira möndlumjöl.
• 1 tsk. lyftiduft.
• 1 tsk. vanilla.
• 40–60 gr. hvítt súkkulaði, saxað.
• Smá salt.
Aðferð:
Hitið ofn í 180 gráður. Þeytið egg og sætu létt saman. Bætið grískri jógúrt og vanillu út í.
Blandið þurrefnum saman og hrærið út í deigið. Hrærið hvítu súkkulaði varlega saman við. Hellið í lítið form (klætt bökunarpappír). Bakið í 18–22 mínútur – miðjan má vera örlítið blaut.
Kælið og skerið í bita.
Verði ykkur að góðu, Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) jana.is - instagram.com/janast

Spönginni Grafarvogi

































Kvennalið Fylkis hefur leikið tvo leiki frá síðustu útgáfu Árbæjarblaðsins. Fyrri leikurinn var æfingaleikur gegn Haukum þann 19. janúar sem lauk með 5–3 sigri Fylkis, sem er liður í undirbúningi liðsins fyrir Lengjubikarinn sem hefst 20. febrúar. Mörk Fylkis skoruðu Emilía Sif, Sigríður Skaftadóttir, Birta Margrét, Arna Ósk og Hildur Anna.
Síðar mættu stelpurnar Val í Reykjavíkurmótinu, þar sem leikurinn endaði með 0–2 sigri gestanna. Þrátt fyrir tap sýndi liðið mjög flotta frammistöðu gegn liði úr Bestu deildinni sem síðar stóð
uppi sem sigurvegari mótsins. Meistaraflokkur karla
Karlalið Fylkis hefur verið í góðum gír síðustu vikur. Þann 20. janúar vann liðið glæsilegan 5–0 sigur gegn Val á Tekk-vellinum. Benedikt Daríus skoraði tvö mörk, en Magnús Daði, Hlynur Sævar og Máni Austmann skoruðu eitt hvor. Síðar í sömu viku gerði liðið jafntefli, 0–0, gegn Þrótti í spennandi leik. Þá hófst Lengjubikarinn á glæsilegan hátt þegar Fylkir lagði Breiðablik að velli, 3–0, á heimavelli. Theodór Ingi skoraði eitt mark og Guðmundur Tyrfings tvö. Frábær byrjun í keppninni hjá strákunum.


Hvenær veit ég að það er kominn tími til að skipta um fóður hjá hundinum mínum?
Hundaeigendur velta oft fyrir sér hvort að fóðrið sem þau eru að bjóða sínum ferfætlingum er í raun að henta þeim.
Ef hundurinn þinn er með viðkvæma meltingu, óstöðugan hægðagang eða einfaldlega virðist ekki alveg upp á sitt besta getur svarið oft leynst í fóðrinu.
Hér kynnum við tvær vinsælar fóðurlínur frá Dr. Clauder's sem hafa reynst sérstaklega vel fyrir hunda sem þurfa milda og vandlega samsetta næringu sem kemur meltingakerfinu í jafnvægi
• Dr.Clauder's Sensitive Lamb & Rice er frábær kostur fyrir hvolpa og
fullorðna hunda sem þurfa jafnvægi og auðmeltanleika.
Fóðrið er laust við hveiti og inniheldur prebiotic trefja sem styðja við meltinguna og hjálpa líkamanum að nýta næringuna til fulls.
Dr.Clauder's Sensitive Lamb & Rice fæst í þessum útgáfum: o - Lamb & Rice Junior, fyrir hvolpa frá 8.viku.
o - Lamb & Rice Adult, fyrir fullorðna hunda.
o - Lamb & Rice Adult Mini, (Nýtt hjá Dýrabæ!) fyrir fullorðna hunda sem kjósa minni bita.
• Fyrir einstaklega viðkvæma hunda mælum við hiklaust með Dr.Clauder's Hyposensitive Duck & Potato. Kornlaust fóður sem byggir á einum próteingjafa stuðlar að

auðmeltanleika, tryggir hámarks næringanýtingu og getur skipt sköpum fyrir hunda með fæðuóðol.
Dr. Clauder's Hyposensitive fæst einnig í Mini útgáfu fyrir minnstu hundana.
Að skipta um fóður þarf ekki að vera flókið, en rétt val getur haft ótrúleg áhrif á daglega líðan hundsins þíns. Þegar skipt er um fóður er mikilvægt að gera það rétt og með vellíðan hundsins í forgrunni.
Best er að byrja á að blanda 25% af nýja fóðrinu við 75% af því gamla fyrstu tvo dagana, fara síðan í 50/50 næstu tvo daga og loks 75% nýtt og 25% gamalt áður en skipt er alveg yfir í 100% nýtt fóður – svo lengi sem allt gengur vel. Sjá töflu.
Hver hundur er einstakur og getur
aðlögunin tekið mislangan tíma. Fylgstu vel með líðan og hægðum; ef maginn er viðkvæmur er gott að taka skref til baka og gefa breytingunni aðeins meiri tíma. Ef hundurinn tekur nýja fóðrinu vel má hins vegar halda rólega áfram. Til að styðja enn betur við meltinguna mælum við með góðgerlum, sérstaklega fyrir viðkvæma maga. Góðgerlakrem frá Dr. Clauder’s inniheldur róandi kamillu og humla ásamt FOS og Yucca Shidigera sem hjálpa til við að byggja upp heilbrigða þarmaflóru og stuðla að jafnvægi í meltingu. Auðvelt er að gefa kremið daglega með fóðri eða eitt og sér. Einföld viðbót sem getur skipt miklu máli fyrir vellíðan hundsins.






























































































































































Erla Björnsdóttir,
Fá hverfi, ef nokkur í Reykjavík, búa að jafn miklum útivistarparadísum og Árbæjarhverfi.
Elliðaárdalurinn er líklegast fegursti partur höfuðborgarinnar. Skartar í senn einstöku dýralífi og gróðurinn er einstakur. Um dalinn hríslast ein besta laxveiðiá landsins og um er að ræða
einsdæmi á heimsvísu. Önnur perla Árbæinga er Rauðavatn.
Frá Vesturlandsvegi lætur vatnið lítið
Ljósmyndir
Katrín J. Björgvinsdóttir
yfir sér en umhverfi þess er þeim mun

skautakona hjá SR og margfaldur Íslandsmeistari, Magnús Þeyr Magnússon og Karítas Viðja Magnúsdóttir.




fegurra. Þar leynast frábærir göngustígar sem íbúar hverfisins eru mjög duglegir að nýta sér. Þegar vatnið leggur flykkjast skautaunnendur á svellið með börn sín og ferfætlinga. Kata ljosmyndari var á ferð við vatnið rauða í 12 stiga frosti á dögunum með myndavélina að vopni.

Systkinin Sandra Ýr Þorkelsdóttir og Axel Garðar Axelsson.













Arndís Lára Garðarsdóttir, Garðar Sveinbjörnsson, Arnaldur Garðarsson og Bára Dís Benediktsdóttir.



Hekla Hallgrímsdóttir, Hallgrímur H. Gunnarsson, Helgi Þór Hallgrímsson og Hildur Ólafsdóttir.


Rún




Fylkir heldur áfram að styrkja hópa sína fyrir komandi tímabil. Harpa Karen og Eva Stefánsdóttir, sem gengu til liðs
Blakdeild Fylkis býður upp á sameiginlegar og séræfingar fyrir stráka og hvetjum við alla áhugasama til að koma og prófa. Æfingatímar eru eftirfarandi:
• Mánudagar: kl. 18:00–20:00 (Árbæjarskóli)
• Þriðjudagar: kl. 19:00–20:00 (Árbæjarskóli)
• Fimmtudagar: kl. 17:00–18:00 (Árbæjarskóli)
• Laugardagar: kl. 12:00–13:30 (Norðlingaskóli) – séræfing fyrir stráka.
Kvennalið Fylkis hefur leikið tvo leiki frá síðustu útgáfu. Fyrri leikurinn var æfingaleikur gegn Haukum þann 19. janúar sem lauk með 5–3 sigri Fylkis, sem er liður í undirbúningi liðsins fyrir Lengjubikarinn sem hefst 20. febrúar. Mörk Fylkis skoruðu Emilía Sif, Sigríður Skaftadóttir, Birta Margrét, Arna Ósk og Hildur Anna. Síðar mættu stelpurnar Val í Reykjavíkurmótinu, þar sem leikurinn endaði með 0–2 sigri gestanna. Þrátt fyrir tap sýndi liðið mjög flotta frammistöðu gegn liði úr Bestu deildinni sem síðar stóð uppi sem sigurvegari mótsins. Meistaraflokkur karla
Karlalið Fylkis hefur verið í góðum gír síðustu vikur. Þann 20. janúar vann liðið glæsilegan 5–0 sigur gegn Val á Tekk-vellinum. Benedikt Daríus skoraði tvö mörk, en Magnús Daði, Hlynur Sævar og Máni Austmann skoruðu eitt hvor.
Síðar í sömu viku gerði liðið jafntefli, 0–0, gegn Þrótti í spennandi leik. Þá hófst Lengjubikarinn á glæsilegan hátt þegar Fylkir lagði Breiðablik að velli, 3–0, á heimavelli.
Theodór Ingi skoraði eitt mark og Guðmundur Tyrfings tvö. Frábær byrjun í keppninni hjá strákunum.
SÍ – Yngri andslið
Undirbúningur er nú í fullum gangi hjá yngri landsliðum KSÍ, þar sem æfinga- og úrtakshópar eru valdir. Fylkir átti fjölmarga fulltrúa í verkefnum síðustu vikur:
• U17 – æfingahópur: Jón Ólafur Kjartansson (valinn 2x).
• U17 – æfingahópur: Júlía Huld Birkisdóttir (valin 2x).
• U15 – æfingahópur: Karen Dís Vigfúsdóttir og Kristín Birna Steinarsdóttir.
• U16 – æfingahópur: Magnús Daði Ottesen.
• U15 – æfingahópur: Kári Gunnarsson og Arnór Steinsen.
• Hæfileikamótun 2012: Rakel Björnsdóttir, Embla Elmarsdóttir & Eva Arnarsdóttir. Knattspyrnudeild Fylkis er gríðarlega stolt af þessum fulltrúum sínum.
við félagið fyrir tímabilið 2025, hafa báðar framlengt samninga sína til loka keppnistímabilsins 2026. Eva lék með Fylki að láni frá Val á síðasta tímabili en hefur nú gengið endanlega til liðs við félagið.
Kvennaliðið fékk einnig góða styrkingu þegar markvörðurinn Ísabella Júlía Óskarsdóttir, fædd 2005, gekk til liðs við félagið. Ísabella hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 95 meistaraflokksleiki fyrir Völsung, Dalvík og Þór/KA. Hún lék sinn fyrsta leik fyrir Fylki í
Reykjavíkurmótinu gegn Val. Karlaliðið tryggði einnig áframhaldandi þjónustu Mána Austmann Hilmarssonar, sem framlengdi samning sinn til ársins 2026 hið minnsta. Máni gekk til liðs við Fylki frá Fjölni síðasta sumar en glímdi við meiðsli. Nú er hann kominn á fullt skrið og hefur vakið mikla athygli á undirbúningstímabilinu.
Þá gekk Guðfinnur Þór, 27 ára varnarog miðjumaður, til liðs við Fylki. Guðfinnur hefur leikið með Víkingi Ó., Aftureldingu, Kára og síðast með ÍA í
Bestu deildinni. Hann á að baki 212 meistaraflokksleiki og 26 mörk, og kemur með dýrmæta reynslu inn í hópinn. Að lokum sneri Kári Sigfússon aftur heim í Árbæinn. Kári, sem er 24 ára sóknarmaður, er uppalinn hjá Fylki en hefur leikið með Elliða, Þrótti Vogum og síðast Keflavík, þar sem hann skoraði 9 mörk í 22 leikjum á síðasta tímabili og var valinn besti leikmaður liðsins síðasta sumar. Miklar vonir eru bundnar við endurkomu hans.


Sigfússon ásamt afa sínum, sem flestir Árbæingar þekkja vel.

Fylkir er að gera góða hluti í körfuboltanum og frábær sigur á Skallagrími á dögunum lofar góðu fyrir framhaldið.
Meistaraflokkur Fylkis í körfuknattleik landaði gríðarlega mikilvægum sigri gegn Skallagrími í Fylkishöllinni þegar leiknum lauk með 97–96 sigri Fylkis. Með sigrinum bættust tvö dýrmæt stig í safnið og lyfti liðið sér um leið upp af botni deildarinnar, en aðeins eitt lið fellur í deildinni. Leikurinn var æsispennandi allt til loka. Fylkir var einu stigi undir þegar um tíu sekúndur voru eftir, en eftir erfiða baráttu gegn þéttri vörn gestanna tókst liðinu að brjóta sér leið í gegn þegar ein og hálf sekúnda var eftir og skora sigurkörfuna. Glæsileg




Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á fleiri gatnamótum við Höfðabakka, sem eru til þess fallnar að tefja fyrir umferð að óþörfu og skapa jafnvel hættu. Um er að ræða gatnamótin við Bíldshöfða, Dvergshöfða, Stórhöfða og Vesturlandsveg.
Spönginni Vaxandi
















N NGI I R H AR SÓL AN L AL M U N Ó J Þ Ð I V f t u | utfor@utfor.is | 551 1266 s. | Fossvogi | esturhlíð 2 V NN .isfor.


Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir
Staðsetning lagna og dýptarmælingar Þekking og áratuga reynsla
VALUR H ELGASON ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is

- eftir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Helsta markmið borgarstjórnar ætti að vera að taka sem flestar ákvarðanir, sem létta venjulegu fólki lífið. Sumar ákvarðanir vinstri meirihlutans í borgarstjórn eru hins vegar til þess fallnar að flækja líf borgaranna og gera það erfiðara og dýrara.
Höfðabakki er mikilvæg umferðartenging milli eystri hverfa borgarinnar, t.d. Árbæjar, Breiðholts og Grafarvogs. Undanfarna mánuði hafa ýmsar breytingar verið gerðar á götunni í tengslum við framkvæmdir þar. Margar þessar breytingar eru til þess fallnar að þrengja að umferð og skapa umferðartafir og jafnvel umferðaröngþveiti eins og dæmin sanna. Þrenging gatnamóta Höfðabakka og Bæjarháls hefur verið til mikillar óþurftar, skapað umferðaröngþveiti á gatnamótunum og stórauknar umferðartafir á stóru svæði í austurhluta borgarinnar.
Opna þarf beygjuakreinar að nýju
Áðurnefnd þrenging var vísvitandi gerð í því skyni að tefja fyrir umferð og er því í fullu samræmi við stefnu vinstri meirihlutans í borgarstjórn. Áður en ráðist var í framkvæmdirnar var gerð úttekt á mismunandi útfærslum væntanlegra breytinga. Í úttektinni kom skýrt fram að lokun beygjuakreina við Höfðabakka-Bæjarháls myndi lengja bílaraðir og valda stórauknum umferðartöfum á gatnamótunum.
Við borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðumst gegn þrengingu gatnamótanna á sínum tíma. Þá höfum við ítrekað lagt til að umræddar beygjuakreinar verði opnaðar að nýju en meirihluti Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna hefur fellt þær tillögur. Meirihlutinn er því ekki fær um að horfast í augu við eigin mistök og leiðrétta þau vegna kreddufullrar afstöðu til umferðarmála.
Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á fleiri gatnamótum á Höfðabakka, sem eru til þess fallnar að tefja fyrir umferð að óþörfu og skapa jafnvel hættu. Um er að ræða gatnamótin við
Bíldshöfða, Dvergshöfða, Stórhöfða og Vesturlandsveg. Akreinar hafa verið þrengdar en miðeyjur stækkaðar. Stöðvunarlínur hafa verið færðar til með þeim afleiðingum að enn frekari tafir á umferð hljótast af. Vanstillt umferðarljós

Kjartan Magnússon.
Að auki eru umferðarljós á Höfðabakka vanstillt með þeim afleiðingum að enn frekari umferðartafir verða við götuna. Á álagstímum ríkir hreinlega ófremdarástand á Höfðabakka og aðliggjandi götum eins og t.d. Vesturlandsvegi. Reglulega kemur fyrir að bílaröð á Vesturlandsvegi á leið til austurs, nær niður Ártúnsbrekku og tengist við bílaröð, sem myndast við gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar. Afleiðingin er sú að umferð leitar inn í íbúahverfi í mun meiri mæli en áður. Tafirnar kosta tugmilljarða Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu hafa aukist mjög undanfarin ár vegna stefnu vinstri flokkanna í borgarstjórn. Kostnaður einstaklinga vegna slíkra tafa er ekki undir sjötíu milljörðum króna árlega en þjóðhagslegur kostnaður er mun hærri. Þessi mikli kostnaður er í raun aukaskattur á borgarbúa, sem leggst þyngst á Árbæinga og aðra íbúa eystri hverfa.

Á álagstímum ríkir hreinlega ófremdarástand á Höfðabakka og aðliggjandi götum eins og t.d. Vesturlandsvegi.

Stundum er sagt að við, mannfólkið, séum ,,ekkert nema vaninn”!
Og það er að einhverju leyti rétt; líkaminn er heimsins besti hagfræðingur og leitar í sífellu leiða til að spara orku, hann fer því ósjálfrátt oft í sömu aðgerðir og áður - til einföldunar.
Leiddu hugann að dæmigerðum degi í þínu lífi. Hvaða hegðun hefur með tímanum breyst í venju? Getur verið að þú keyrir alltaf sömu leiðina í vinnuna? Eða að þú leggir í sama stæðið? Þetta eru dæmi um hvernig hugurinn hefur einfaldað líf þitt. Með því sparast orka og þú þarft aldrei að muna sérstaklega eftir því hvar þú lagðir bílnum, því líklega er hann alltaf á sama stað.
Þegar kemur að heilsusamlegum venjum er af mörgu að taka, því svo miklu meira er hægt að gera í daglegu lífi til að bæta heilsu, heldur en að mæta í ræktinaþó svo að ég mæli eindregið með því líka!
stigann í stað þess að taka lyftuna, þá leggur þú í hvert sinn inn á heilsubankann hjá þér. Áður en þú veist af er það, að taka stigann, orðinn hluti af þínum persónuleika - þú verður, með tímanum, manneskjan sem tekur stigann frekar en lyftuna.
Heimfærðu þetta á hvaða athöfn sem er sem þú gerir oft yfir vikuna eða jafnvel daglega.
Tannburstun er gott dæmi! Þú getur líklega ekki hugsað þér að sleppa því!? Það er einmitt eitthvað sem þú hefur vanið þig á með hjálp foreldra, skóla og samfélagsins alls. Það er hluti af þér og þínum daglegum venjum. Það þýðir líka að þú hefur heilbrigðari tennur lengur.
Með þessum skrifum vil ég hvetja þig að velja þér hollari kostinn í lífinu almennt!
upp góðum venjum og svo munu þær skapa þig og þín lífsgæði!
Þetta virkar nefnilega líka í hina áttina. Þegar þú velur þér sófann og snakkið fram yfir hreyfingu og hollustu ertu líka að venja líkamann og hugann á þá athöfn.
Veldu vel, því vaninn mun móta þig, þína heilsu og líðan. Eygló Egils, eigandi hjá Metabolic Reykjavík


s 800 erum þér tilboð! yrðu í okkur og við g He a@eignaumsjon.i t að senda póst á thjonust innig er hæg E linu. 4800 eða á netspjal - glega; í síma 585 og örug tt yrirspurnum hra erið okkar svarar f Þjónustuv faasteigna. ekstrar í þjónustu við húsfélög og r eynslu 5 ára þekkingu og r ið erum með 2 V eignaumsjonis Sími 585 4 | Reykjavík ut 30 Suðurlandsbra félög f Árbæjarblaðið
Ef þú gerir það að venju að útbúa vikumatseðil og gerir svo innkaup vikunnar í einni ferð, er ólíklegra að þú takir vonda ákvörðun í lok dags sem gæti leitt til skyndibita í kvöldmatinn.
Ef þú gerir það að vana að ganga upp
Þraukaðu erfiðar tvær, þrjár vikur meðan þú ert að koma vananum inn í systemið þitt, en svo mun heilsan þakka þér seinna og verðlauna þig með heilbrigðari líkama langt inn í æviskeiðið. Það er nefnilega ekkert auðvelt að vera heilsulaus. Veldu þér erfitt, núna eða seinna!
Hvort sem það er stiginn, eða aukning í grænmetisneyslu, fjölgun göngutúra yfir vikuna eða betri svefnvenjur. Komdu þér


Við mælum með að kíkja við í þjálfunarstöðinni Metabolic Reykjavík, þar færðu fyrstu tvær vikurnar í þjálfun alveg fríar og getur þannig mátað æfingarnar á eigin skinni án allra skuldbindinga.

Láttu okkur sjá um







Helgihald í Árbæjarkirkju 22. febrúar - 22. mars
Sunnudaginn 22. febrúar
Guðsþjónusta kl. 11:00 Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn
Guðmundar Sigurðssonar organista. sr. Bjarki Geirdal Guðfinnsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall eftir stundina.
Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Aldísar Elvu Sveinsdóttur æskulýðsfulltrúa.
Sunnudaginn 1. mars
Æskulýðsdagurinn - fjölbreytt dagskár í tali og tónum. (Auglýst þegar nær dregur).
Sunnudaginn 8. mars
Guðsþjónusta kl. 11:00. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn
Guðmundar Sigurðssonar organista. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall eftir stundina. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Aldísar Elvu Sveinsdóttur æskulýðsfulltrúa.
Sunnudaginn 15. mars
Guðsþjónusta kl. 11:00. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn
Guðmundar Sigurðssonar organista. sr. Bjarki Geirdal Guðfinnsson prédikar og sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Aldísar Elvu Sveinsdóttur æskulýðsfulltrúa. Fundur með foreldrum fermingarbarna eftir guðsþjónustuna.

Fullorðinsstarf - Opið hús – félagsstarf fullorðinna Opið hús er í safnaðarheimili Árbæjarkirkju á miðvikudögum frá kl. 12 til 16 þar sem fólk á öllum aldri kemur saman. Í Opna húsinu er leitast við að bjóða upp á létta og fjölbreytta dagskrá til að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Stólaleikfimi hefur notið mikilla vinsælda og er fastur liður í Opna húsinu fyrir þá sem það kjósa. Við fáum líka oft gesti í heimsókn sem hafa eitthvað skemmtilegt fram að færa. Ekki má gleyma haust- og vorferð Opna hússins.
Barnastarfið í vetur:
Það verður líf og fjör í barnastarfi Árbæjarkirkju í vetur og ættu allir krakkar að finna eitthvað við sitt hæfi. Það hefur löngum verið mikill metnaður að halda úti öflugu barna- og unglingastarfi í söfnuðinum.
Tilgangurinn með starfinu er að kenna börnunum í gegnum sögur, söngva og leiki um kristna trú og siðfræði, gera hjálparstarfsverkefni og margt fleira.
Skrá þarf sérstaklega börnin í STN (6-9 ára) og TTT-starf (10-12 ára). Það er gert á heimasíðunni. Allt barna- og unglingastarf á vegum Árbæjarkirkju er ókeypis.
1. -3. bekkur. STN - Þriðjudagar kl.15:00 – 16:00
4. -7. bekkur. TTT - Þriðjudagar kl. 16:00 – 17:00
Allar nánari upplýsingar um barna- og unglingastarf Árbæjarkirkju veitir Aldís Elva Sveinsdóttir á netfangið:aldiskvaran@gmail.com

Skoðið nánar á heimasíðu kirkjunnar www.arbaejarkirkja.is



- eftir sr. Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarsókn
Undanfarið hefur heyrst ákall úr hinum stóra heimi sem hefur ómað alla leið hingað á skerið okkar. Þjóðin eigi að stíga skref til baka, fara aftur í fortíðina og vera frábær á ný. Það er horft stíft í baksýnisspegilinn, eins og framtíðin sé helst til vandræðaleg og best sé að keyra áfram með augun föst á það sem var.
Við sem ökum daglega um borg og bæi og landið vitum þó að baksýnisspegillinn er til gagns í stutt augnablik. Ef starað er of lengi í hann endar ferðin yfirleitt illa. Það á ekki bara við í umferðinni.
Ég hef spurt kunningja minn sem gengur um með derhúfu á höfði eða íklæðist bol með þessum frasa hvað hann þýði nákvæmlega. Yfirleitt fæ ég þögn eða muldur um að í gamla daga hafi allt verið betra. Hvenær nákvæmlega það var virðist þó óljóst. Fyrir rafmagn? Fyrir Internet? Fyrir verðtryggingu? Á þeim tíma er bændur og búalið, leiguliðar rifu sig upp frá búi og fjölskyldu að hausti, karlar og konur fóru fótgangandi yfir hálendi landsins til að setjast að í verbúð á haust- og vetrarvertíð.
Dagarnir runnu saman í vosbúð og kulda. Fyrir 66° norður hlífðarfatnað. Viljum við vera þar? Í kjölfar Móðuharðindanna munaði fimm mínútum að forfeður og mæður okkar yrðu flutt á Jóskuheiðarnar í Danmörku af einskærri góðvild Danakonungs í kjölfar þess að þriðjungur landsmanna lést úr hungri.
Þetta sem var kastar undirrituðum
aftur um tæp 45 ár, á tíma sem á að hafa verið frábær og, jú, að vissu leyti var hann það. Til dæmis þegar ég rambaði inn sællar minningar á tónleika með Utangarðsmönnum í Stúdentakjallaranum við Hringbraut.
Ég hafði rekist á auglýsingu á einmanna ljósastaur að þessi tiltekna hljómsveit væri með tónleika. Við vinirnir mættum. Í fáum orðum sagt bar þar við eitthvað nýtt. Ég segi ekki, eins og stundum er sagt þegar eitthvað heillar, „ekki vekja mig“, en undirritaður man eftir að það sem var á undan í tónlistarlífinu mátti alveg flytjast á Jóskuheiðarnar. Til að gera langa sögu stundum var öskrað:
„EKKERT SVAR!“ í eyru okkar þarna sem við vinirnir stóðum í reykmettaðri þvögunni, með eitthvað sterkara en malt í glasinu. Slánalegir gaurar birtust á sviðinu í leðurjökkum með kögri. Án fyrirvara eða kynningar hófst hljóðvistarleg árás. Gítarar grétu, ámótlega strekktar húðir lamdar og einhver Bubbi Morthens farandverkamaður öskraði úr sér lungun af lífi og sálarkröftum hvert lagið á eftir öðru. Viðstaddir náðu vart andanum. Tilfinningin var eins og að standa úti á berangri í norðanstormaslyddusnjó sem lagðist á líkama og vitund. Töffaraskapur hljómsveitameðlima lak af sviðinu og niður á gólf. Við á gólfinu vorum einfaldlega vitni að því að stelpurnar hengu utan á þeim eins og bænaband í höndum ítalsks kaþólikka.
Í minningunni eftir tónleikana rönkuðum við við okkur úti á
gangstétt og sögðum ekkert. Ekki vegna heimspekilegrar dýptar, heldur af því að við heyrðum ekki neitt lengur. Hlustirnar voru fylltar Hirosima og „þið munið öll, þið munið öll deyja“. Auðvitað tókum við undir, vissum ekki af hverju, en stemningin var bara þannig og við fluttum þennan boðskap út á götu á leiðinni heim til þeirra sem hristu höfuðið yfir ungdómnum sem var ekki með Jónas Hallgrímsson eða Einar Ben á vörunum heldur einhvern gúanórokkara sem tróð sér inn í tónlistarsenuna. Eflaust hefur einhver góðborgarinn hugsað með sér hversu allt var betra hér áður. Heimur versnandi fer. Við vorum utangarðsmenn með púlssláttinn réttan, eða því sem næst, því ekki voru stelpurnar að stökkva upp í fangið á okkur.
Einhverjum stundum seinna heima á baðherberginu beið raunveruleikinn. Spegillinn sagði mér hreinskilnislega að ég væri ekki þessi Bubbi, ekki einu sinni nálægt því. Leðurjakki stóra bróður breytti þar engu. Daginn eftir var Fender-gítar mátaður í hlóðfæraversluninni Rín en hann bætti engu við, ekki einu skrefi nær. Vinur minn sem stóð þar nærri orðaði þetta best:
„Að sjá þig er eins og að stilla Porsche og Trabant hlið við hlið. Og þú ert Trabant.“
Þótt það sé notalegt að dvelja í minningunum þýðir það ekki að fortíðin sé staður sem við viljum flytja aftur til. Hún er skemmtileg í heimsókn, en ópraktísk til framtíðar. Og það er kannski það merki-
legasta við frasann „Gerum Ísland frábært á ný“. Hann segir ekkert um hvenær Ísland var frábært, fyrir hvern það var frábært og hvað nákvæmlega á að endurtaka.
Frasinn er eins og baksýnisspegill: nytsamlegur í smá stund en hættulegur ef maður keyrir áfram með augun föst þar. Þór Hauksson

sr. Þór Hauksson.
Opna húsið í Árbæjarkirkju alla miðvikudaga kl. 12-16. Þangað eru allir fullorðnir velkomnir og þar er ýmislegt á dagskrá. Byrjað er með kyrrðarstund í kirkjunni, síðan er léttur hádegisverður á vægu verði (kr. 1500). Að því loknu er hin sívinsæla stólaleikfeimi og svo er spjallað eða einhver gestur mætir í heimsókn.
Endað er á gómsætu síðdegiskaffi. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir.
Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir.
Helgihald hvern sunnudag kl.11.00
Annan sunnudag hvers mánaðar er Fjölskylduguðsþjónusta kl.11.00
