Skip to main content

Árbæjarblaðið

Page 1

ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/13/2026 3:46 PM Page 1

Árbæjarblaðið 10. tbl. 24. árg. 2026 október

Fréttablað íbúa í Árbæjarhverfi

Bifreiðaverkstæði Grafarvogs

Allar almennar bílaviðgerðir

Úrbætur á umdeildum gatnamótum - sjá bls. 8

Gjafir fyrir veiðimenn og fyrirtæki Gröfum nöfn á boxin Persónuleg og falleg gjöf Íslenskt birki

Sjá nánar á Krafla.is og í síma 698-2844

,,Mahoný’’


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/14/2026 3:07 PM Page 2

2

Fréttir

Árbæjarblaðið

15, 23 eða 68 borgarÁrbæjarblaðið fulltrúar? Hver á að ráða? tÚtgefandi: Skrautás ehf. Netfang: abl@skrautas.is Ritstjóri og ábm.: Stefán Kristjánsson. Ritstjórn: Símar 698–2844 og 699-1322. Netfang Árbæjarblaðsins: abl@skrautas.is Útlit og hönnun: Skrautás ehf. Auglýsingar: 698-2844 og 699-1322 - Stefán Kristjánsson - abl@skrautas.is Prentun: Landsprent ehf. Ljósmyndarar: Katrín J. Björgvinsdóttir. Dreifing: Póstdreifing. Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll íbúðarhús í Árbæ, Ártúnsholti, Grafarholti og Norðlingaholti.

Íþróttir og forvarnir Íþróttaiðkun barna og ungmenna er besta forvörn sem til er. Í íþróttastarfi eru ákveðnar reglur og skyldur í hávegum hafðar og ungir iðkendur læra að fara eftir reglunum, verði á því misbrestur hefur það jafnan afleiðingar í för með sér. Reglusemi er í hávegum höfð þegar íþróttir eru annars vegar og þeim sem ekki rata rétta veginn í þeim efnum er jafnan refsað á einhvern hátt. Þegar íþróttamenn eiga hlut að máli er jafnan helsta markmiðið að komast í landslið eða atvinnumennsku. Metnaðarfullir íþróttamenn setja stefnuna þangað og margir gera allt sem þeir geta til að ná háleitum markmiðum sínum. Á dögunum urðu einhverjir landsliðsmenn í landsliði karla í knattspyrnu uppvísir að því að brjóta agareglur landsliðsins. Einhverjir leikmenn landsliðsins fóru ,,út á lífið” á milli leikja í landsleikjahrinu og gerðu sér glaðan dag. Upp komst um þetta háttalag þeirra og greint var frá aga-brotum leikmannanna í fjölmiðlum. Þar kom fram að Knattspyrnusambandi Íslands var kunnugt um þessi agabrot og málin voru rædd og skoðuð innan sambandsins. Niðurstaða KSÍ var að ræða málið við umrædda leikmenn og stjórnendur landsliðsins með það fyrir augum að komast að því hvað hefði gerst. Og í framhaldinu ákvað KSÍ að gera ekkert í málinu. Þetta er algjörlega óviðunandi niðurstaða hvernig sem á hana er litið. Og enn og aftur virðist KSÍ ófært um að finna réttu lausnina þegar upp koma vandamál innan hreyfingarinnar. Eina rétta niðurstaðan í málinu var auðvitað að refsa þeim leikmönnum sem brutu agareglur landsliðsins. Þó ekki væri nema fyrir þær sakir að sýna ungum knattspyrnumönnum afar slæmt fordæmi og móðga stóran hóp áhugamanna sem jafnan sækir leiki liðsins. Þeir leikmenn sem áttu í hlut eiga að stíga fram og biðjst afsökunar. Stefán Kristjánsson

abl@skrautas.is

- eftir Björn Gíslason fyrsta varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Á síðasta fundi borgarstjórnar, þriðjudaginn 6. október, var samþykkt sameiginleg tillaga Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um að skora á Alþingi að breyta sveitarstjórnarlögum þannig að sveitarfélög geti sjálf ákveðið fjölda kjörinna fulltrúa sinna. Tillagan var samþykkt með 15 atkvæðum gegn þremur, með stuðningi Miðflokksins, en Samfylkingin sat hjá. Kjarni málsins er einfaldur að mínu mati. Sveitarfélögunum sjálfum á að vera treyst til að meta hvaða fjöldi kjörinna fulltrúa hentar best, með hliðsjón af kostnaði, skilvirkni og lýðræði. Umræðan fékk svo áhugavert framhaldslíf á Alþingi aðeins tveimur dögum síðar, fimmtudaginn 8. október. Þar fór fram fyrsta umræða um frumvarp Sigríðar Á. Andersen, þingmanns, sem myndi heimila Reykjavík að fara með fjölda borgarfulltrúa niður í 15, eins og þeir voru, í stað 23 að lágmarki eins og nú er. Þess má jafnframt geta að Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur áður og nú aftur lagt fram frumvarp á yfirstandandi þingi sem gengur enn lengra í þá átt að efla sjálfstjórn sveitarfélaga. Samkvæmt því yrði sveitarfélögunum sjálfum falið að ákveða fjölda kjörinna fulltrúa, að uppfylltu því skilyrði að þeir væru að lágmarki þrír og ávallt oddatala. Frumvarpið liggur fyrir Alþingi og bíður fyrstu umræðu. Dagur og borgarfulltrúarnir 68 Í þingumræðunni tók Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og núverandi þingmaður Samfylkingarinnar, til máls og setti fram nokkuð athyglisverðan samanburð. Dagur benti á að í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur sætu samtals 56 kjörnir fulltrúar. Ef Reykjavík hefði hlutfallslega jafn marga fulltrúa miðað við íbúafjölda ættu borgarfulltrúarnir samkvæmt útreikningi hans að vera 68 talsins. Já, 68 borgarfulltrúar! Til samanburðar sitja 63 þingmenn á Alþingi Íslendinga, kjörnir í sex kjördæmum. Dagur var vissulega að setja fram samanburð en ekki formlega tillögu um slíka fjölgun. Hann spurði jafnframt hvers vegna borgarfulltrúar Reykvíkinga ættu að vera færri en þingmenn Reykjavíkur, sem

ákvæði, þótt annað mætti ætla af málflutningi Dags. Og jafnvel þótt allir hefðu verið sammála árið 2011 hlýtur að mega endurskoða lögin fimmtán árum síðar. Dagur velti því einnig upp hvort umræðan væri einhvers konar pólitísk keila gagnvart borgarstjórn Reykjavíkur. Það er nokkuð sérstök nálgun þegar haft er í huga að meirihluti borgarstjórnar hefur sjálfur samþykkt að skora á Alþingi að endurskoða lögin.

Björn Gíslason er fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. eru 22. Þar má þó minna á að borgarfulltrúar eru nú þegar 23. Ég tel að slíkur talnasamanburður segi takmarkað um hversu margir borgarfulltrúar þurfi að vera. Fleiri kjörnir fulltrúar tryggja ekki sjálfkrafa betri stjórnsýslu, aukið lýðræði eða meiri skilvirkni. Það skiptir ekki síður máli hvernig þeir sinna störfum sínum og hvaða árangri þeir skila fyrir borgarbúa. Var enginn ágreiningur árið 2011? Dagur rifjaði einnig upp að sveitarstjórnarlögin frá 2011 hefðu verið samþykkt á Alþingi með 42 atkvæðum gegn engu. Það er rétt að sveitarstjórnarlögin í heild nutu víðtæks stuðnings og voru samþykkt með 42 atkvæðum gegn engu. Hins vegar er mikilvægt að halda því til haga að þegar ákvæðið um fjölda sveitarstjórnarmanna, sem nú er til umræðu, var afgreitt sérstaklega við aðra umræðu á Alþingi var það samþykkt með 28 atkvæðum gegn 13. Þrír þingmenn greiddu ekki atkvæði og 19 voru fjarverandi eða skráðir í fjarvist. Enginn þingmaður Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði með ákvæðinu. Það er því villandi að vísa til samhljóða samþykktar laganna í heild sem vísbendingar um að samstaða hafi ríkt um þetta tiltekna ákvæði. Þvert á móti sýnir atkvæðagreiðslan að um það var verulegur ágreiningur á Alþingi.Það var því sannarlega ágreiningur um þetta tiltekna

Sjálfstjórn sveitarfélaganna í forgrunni Frumvarp Diljár Mistar byggist á þeirri hugsun að sveitarfélögin sjálf eigi að ákveða fjölda kjörinna fulltrúa sinna, þó aldrei færri en þrjá. Það gengur því lengra í sjálfstjórnarátt en frumvarp Sigríðar sem nú er rætt á Alþingi og endurspeglar í raun betur það sem borgarstjórn er nú að kalla eftir. Tillagan sem við samþykktum í borgarstjórn gerir ráð fyrir að sveitarfélög geti sjálf ákveðið fjöldann, að lágmarki fimm og að hámarki 31 fulltrúa. Með samþykkt hennar er ekki verið að ákveða fækkun borgarfulltrúa heldur óska eftir því að sveitarfélögin fái sjálf heimild til að taka slíka ákvörðun. Treystum borginni fyrir ákvörðuninni Árið 2018 var borgarfulltrúum í Reykjavík fjölgað úr 15 í 23. Átta árum síðar er full ástæða til að meta hvort sú breyting hafi reynst vel. Við eigum að horfa til kostnaðar, skilvirkni, lýðræðislegrar þátttöku og þess hversu vel kjörnir fulltrúar sinna hagsmunum borgarbúa. Mér finnst nokkuð sérstakt að sveitarfélögum sé treyst til að reka skóla, sinna velferðarþjónustu, skipuleggja heilu hverfin og ráðstafa milljörðum króna, en ekki til að ákveða fjölda kjörinna fulltrúa sinna. Hvort borgarfulltrúar eigi að vera 15, 23 eða einhver annar fjöldi á að ráðast af því hvað þjónar borgarbúum best. Það er ákvörðun sem á heima hjá Reykjavíkurborg, ekki Alþingi. Björn Gíslason, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/12/2026 8:53 PM Page 3


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/12/2026 7:46 PM Page 4

4

Fréttir

Árbæjarblaðið

Hjónin Gunnar Þór Guðmannsson og Sigrún Jónsdóttir alltaf jafn hress.

Líf og fjör í Opna húsinu í Árbæjarkirkju.

Hattadagurinn

Vinkonurnar Jóna Lárusdóttir og Marta Hermannsdóttir.

- á opnu húsi í Árbæjarkirkju Það er alltaf mjög fjölmennt og góðmennt í Opna húsinu enda er vel tekið á móti öllum. Gleðin og kærleikurinn er í fyrirrúmi, einstaklega gott starfsfólk sem tekur á móti gestum með opnum örmum. Opna húsið, starf fullorðna, hefst kl 12 í Árbæjarkirkju alla miðvikudaga með bæna og kyrrðarstund, síðan er léttur hádegisverður á vægu verði. Að því loknu er hin vinsæla stólaleikfimi, svo er spjallað eða einhver gestur mætir í heimsókn.

Endað er á gómsætu síðdegiskaffi. Sigrún Jónsdóttir, Alda Magnúsdóttir og Guðrún Nikulásdóttir eiga mikið hrós skilið fyrir fyrir allan dugnaðinn, kærleikann og hlýjuna í Opna húsinu, þær gerast ekki betri!

son kirkjuvörður og sr. Bjarki Geirdal Guðfinnsson fóru á kostum með óundirbúinn leikþátt um Rauðhettu og Úlfinn. Það ætlaði allt um koll að keyra í salnum enda miklir snillingar á ferð.

Ljósmyndir Katrín J. Björgvinsdóttir

Á haustin og á vorin er alltaf farið í skemmtilega ferð út á land.

Hattadagur er árlegur og vekur alltaf mikla kátínu. Sr. Þór Hauksson sóknarprestur, Magnús Sævar Magnús-

Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega í Opna húsið á miðvikudög-um kl 12-16 og allir eru velkomnir í kirkjuna okkar!

Sigrún Eymundsdóttir og Guðbjörg Sigurðardóttir.

Sigriður Burney og Valgerður Efemía Tómasdóttir.

Katrín Björgvinsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Guðrún Nikulásdóttir og Magnhildur Sigurbjörnsdóttir.

Ellen Olga Svavarsdóttir og Unnur Ágústsdóttir.

Guðríður Pálmadóttir, Lilja Ingólfsdóttir og Sigurlína Guðmundsdóttir.

Hjónin Inga Dóra Þorsteinsdóttir og Guðmundur Helgi Guðjónsson.


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/13/2026 1:29 PM Page 5

Stæ ærðin sk kiptir ekki máli.

Breiðhöfða 13

Á Nesdekki Brreiðhöfða 13 finnur þú eitt fullkomnasta h hjólbar ðaverkstæ æði landsins þa ar sem hægt er að þjónusta bíla af öllu um stærðum og gerðum. ðum Bókaðu tíma á nesdekk.is

Bókað ðu tíma á netinu

B Bókaðu tím ma og skoð ðaðu d dekkjaúrva alið á nesde ekk.is Breiðhöfði 13

110 Reykjavík 590 2080

Stæ ærðin skiptir ekki máli á Brre eiðhöffða 13.

nesdekk.iis / 561 4200


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/13/2026 10:42 AM Page 6

6

Fréttir

Árbæjarblaðið

Af hverju velja sífellt fleiri að búa hjá Búseta? Búseti hefur vaxið hratt á undanförnum árum og sífellt fleiri uppgötva kosti þessa norræna búsetuforms sem sameinar húsnæðisöryggi, fjárhagslegan fyrirsjáanleika og þægindi í daglegu lífi. Nú gefst áhugasömum sérstakt tækifæri til að eignast búseturétt í glæsilegum nýjum íbúðum við Eirhöfða 3–5 á Ártúnshöfða, óháð því hversu lengi þeir hafa verið félagsmenn. Við ræddum við Elínborgu Önnu Rúnarsdóttur Erludóttur hjá Búseta um kosti búsetuformsins og þau spennandi tækifæri sem nú bjóðast. „Fólk áttar sig oft ekki á því hvað þetta er hagstætt fyrirkomulag“ - Elínborg Anna, hvað gerir Búseta að svona áhugaverðum valkosti á húsnæðismarkaði? „Það er fyrst og fremst þessi skemmtilega blanda af húsnæðisöryggi, þægindum og fjárhagslegum fyrirsjáanleika,“ segir Elínborg Anna. „Þegar fólk kaupir búseturétt eignast það verðmæta eign, en Búseti sér um rekstur fasteignarinnar og stóran hluta þeirra verkefna sem venjulega hvíla á herðum fasteignaeigenda. Þannig getur fólk notið þess að eiga sitt heimili án þess að þurfa að hafa áhyggjur af öllum þeim skuldbindingum og óvæntu útgjöldum sem geta fylgt hefðbundnu eignarhaldi.“ Hún segir fyrirkomulagið eiga sér sterkar rætur á Norðurlöndunum og vinsældir þess hér á landi hafa aukist jafnt og þétt. „Enginn ákveður að selja heimilið þitt nema þú sjálfur“ - En hvað felst nákvæmlega í því að eiga búseturétt? „Þetta er atriði sem við þurfum stundum að útskýra. Búseturéttur er eignarréttur sem er tryggður með þinglýsingu. Það er eigandi búseturéttarins sem ákveður hvenær hann vill selja og flytja. Hann getur

búið í íbúðinni eins lengi og hann kýs, svo framarlega sem hann uppfyllir skyldur sínar samkvæmt búsetusamningnum.“ Elínborg Anna segir annað mikilvægt atriði vera að búseturétturinn sé vísitölutengdur. „Þegar búseturétturinn er seldur er verðið uppreiknað samkvæmt þróun vísitölu neysluverðs, að teknu tilliti til þeirra uppgjörsreglna sem gilda. Þannig er búseturétturinn varinn gagnvart áhrifum verðbólgu. Þetta er kostur sem margir átta sig ekki á fyrr en við förum yfir fyrirkomulagið með þeim.“ „Þú færð ekki skyndilega milljónareikning vegna þaksins“ - Þið leggið líka mikla áherslu á fyrirsjáanleika í rekstri. Hvað felst í því? „Þetta er einn allra stærsti kosturinn að mínu mati,“ segir Elínborg Anna. „Í hefðbundnu fjölbýlishúsi getur komið upp sú staða að skipta þurfi um þak, glugga eða ráðast í aðrar stórframkvæmdir. Þá geta eigendur allt í einu staðið frammi fyrir reikningum upp á margar milljónir króna. Hjá Búseta er þessu öðruvísi háttað. Félagið sér um utanhússviðhald fasteignanna og fyrir því er safnað með reglulegum framlögum í viðhaldssjóði. Þannig þarf fólk ekki að óttast óvænta stóra reikninga vegna utanhússviðhalds.“

saman í eitt mánaðarlegt gjald. Það einfaldar heimilisbókhaldið verulega.“ „Það þarf ekki að greiða milljónir í fasteignasöluþóknun“ - En hvað ef fólk vill síðar flytja í stærri eða minni íbúð? „Þá kemur enn einn kosturinn í ljós,“ segir Elínborg Anna og brosir. „Þarfir fólks breytast í gegnum lífið. Ungt par byrjar kannski í tveggja herbergja íbúð, stækkar svo við sig þegar fjölskyldan stækkar og minnkar aftur við sig þegar börnin flytja að heiman. Við erum með fjölbreytt úrval íbúða, allt frá minni íbúðum upp í rúmgóðar fjölskylduíbúðir og jafnvel sérbýli.“ Hún segir það líka mun hagkvæmara að skipta um húsnæði innan félagsins en margir geri sér grein fyrir. „Búseti annast umsýslu vegna sölu og kaupa búseturétta og fyrir það er greitt hóflegt þjónustugjald. Fólk þarf því ekki að greiða háar fasteignasöluþóknanir sem geta hlaupið á milljónum króna.“ Um 4.000 manns búa hjá Búseta - Búseti hefur stækkað mikið undanfarin ár. Hverjir eru helst að velja þetta búsetuform? „Það er í raun fólk á öllum aldri og öllum stigum lífsins. Við erum með ungt fólk að stíga sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði, barnafjölskyldur

,,Ég held að það komi fólki skemmtilega á óvart, hversu fallegar og vandaðar íbúðirnar eru og hversu margir kostir fylgja því að vera hjá Búseta,“ segir Elínborg Anna Rúnarsdóttir Erludóttir markaðsstjóri hjá Búseta.

Og hvað er innifalið í mánaðarlega búsetugjaldinu? „Allt nema rafmagnsnotkun íbúðarinnar! Þar eru meðal annars fjármagnskostnaður fasteignarinnar, fasteignagjöld, hiti, hússjóður, tryggingar, þjónusta og framlög í viðhaldssjóð.“ Hún segir mikilvægt að bera saman heildarkostnað þegar fólk skoðar mismunandi húsnæðiskosti. „Það er auðvelt að horfa eingöngu á greiðslubyrðina af húsnæðisláni og gleyma öllum öðrum útgjöldum. Hjá Búseta er þessi kostnaður tekinn

Frá afhendingu á Eirhöfða til Búseta. Frá vinstri Bjarni Þór Þórólfsson framkvæmdastjóri, Rafn Hermannsson forstöðumaður Eignaumsjónar, Anna S. Garðarsdóttir Blomsterberg fjármálastjóri, Linda Björk Unnarsdóttir sérfræðingur á samskiptasviði og Hlynur Örn Björgvinsson verkefnastjóri. og eldra fólk sem vill minnka við sig nýjan og spennandi borgarhluta þar aldri félagsnúmers. og einfalda lífið.“ sem íbúðabyggð, þjónusta og útivist „Það þýðir að fólk sem er nýgengið Elínborg Anna segir um 4.000 fléttast saman. í Búseta, eða ákveður að ganga í einstaklinga nú búa í húsnæði á „Staðsetningin er frábær, stutt í félagið núna, getur átt raunhæfan vegum Búseta og starfsemina ná til Elliðaárdalinn, göngu- og hjólaleiðir möguleika á að eignast búseturétt í allra sveitarfélaga og helstu samgönguæðar borgarinnar. glænýrri íbúð. Slík tækifæri gefast höfuðborgarsvæðisins. Hér er spennandi tækifæri til að ekki á hverjum degi.“ „Við leggjum mikla áherslu á eignast heimili í nýju hverfi sem á vandaðar byggingar, góða hönnun og eftir að vaxa og dafna á komandi - Hvað myndirðu segja við fólk fjölbreytt úrval íbúða. Þessi norræna árum.“ sem hefur ekki áður velt Búseta fyrir leið að öruggu heimili hefur sér? greinilega sannað gildi sitt og sífellt „Þú þarft ekki að hafa verið „Ég myndi einfaldlega hvetja það félagsmaður árum saman“ til að kynna sér þetta vel og koma að fleiri uppgötva kosti hennar.“ - En þarf fólk ekki að vera með skoða íbúðirnar við Eirhöfða. Ég held Nýjar íbúðir við Eirhöfða – sérstakt mjög gamalt félagsnúmer til að fá að það komi fólki skemmtilega á tækifæri íbúð hjá Búseta? óvart, bæði á því hversu fallegar og - Nú eruð þið að bjóða nýjar íbúðir „Jú, almennt skiptir félagsnúmer vandaðar íbúðirnar eru og hversu við Eirhöfða 3–5. Hvað gerir þær máli við úthlutun íbúða og því er margir kostir fylgja því að vera hjá áhugaverðar? skynsamlegt að ganga snemma í Búseta.“ „Við erum virkilega ánægð með félagið. En þegar margar nýjar íbúðir Hún brosir að lokum og bætir við: þetta verkefni. Hér er um að ræða koma í sölu samtímis, eins og þegar „Heimilið á að vera staðurinn þar glæsilegar, vandaðar og vel hannaðar heilt fjölbýlishús er tekið í notkun, sem maður nýtur lífsins, ekki uppspretta endalausra áhyggjuefna. íbúðir á einu helsta uppbyggingar- geta skapast sérstök tækifæri.“ svæði Reykjavíkur.“ Hún segir nokkrar glæsilegar íbúðir Það er í raun kjarninn í því sem Búseti Elínborg Anna bendir á að Ártúns- enn lausar við Eirhöfða 3–5 og þær stendur fyrir.“ höfði og Elliðaárvogur séu að þróast í standi nú áhugasömum til boða óháð


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/12/2026 8:51 PM Page 7

EIRHÖFÐI 3 3-5 110 Reykjavík k

Nokkrar glæsileg gar 3ja herbergja íb búðir óseldar Ve erð rð frá krr.. 13.269.000 13 269 000 og mánaðarlegt mánað ðarlegt búsetug gjald gj jald frá krr.. 292.000. 292 000 Flestar íbúðanna eru með stæði í bílageymslu. Skoða íbúðir

1 2 . n óve em b er 2 0 2 6 k l . 1 9 : 3 0

m i ða v e r ð 7. 50 0 k r


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/13/2026 3:40 PM Page 8

8

Fréttir

Árbæjarblaðið

Kvennaliðið í Lengjudeild en súrt tap karlaliðsins Knattspyrnutímabilinu er að ljúka. Lið Fylkis í meistaraflokki náðu ágætum árangri í sumar og litlu munaði að bæði lið færu upp um deild. Súrt tap Fylkis gegn Þrótti um sæti í Bestu deild karla var mikil vonbrigði og karlalið Fylkis leikur í Lengjudeildinni á næst ári. Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu tryggði sér sæti í Lengjudeild kvenna að ári eftir æsispennandi úrsláttarkeppni í 2. deild kvenna í haust. Liðið náði eftirtektarverðum árangri í sumar sem tryggði sæti í úrsláttarkeppninni. Upphaf hennar gekk þó ekki eftir áætlun. Fylkir sótti aðeins eitt stig í fyrstu þremur leikjunum og þegar síðari umferðin hófst var liðið í fjórða sæti. Þá voru aðeins þrír leikir eftir og sömu andstæðingar fram undan – lið sem Fylkir hafði aðeins náð einu stigi gegn í fyrri umferðinni. Staðan fyrir síðustu þrjár umferðir var: • Fjölnir – 35 stig • Einherji – 33 stig • Vestri – 30 stig • Fylkir – 27 stig En þá sýndu Fylkisstúlkurnar hvað í þeim býr. Liðið vann alla þrjá síðustu leikina og úrslit annarra leikja féllu einnig með Fylki. Að lokum hafði liðið sótt 9 stig af 9 mögulegum og stokkið upp í annað sæti. Lokastaðan varð: • Fjölnir – 37 stig • Fylkir – 36 stig • Einherji – 34 stig • Vestri – 34 stig Fylkir tryggði sér því annað sætið og þar með sæti í Lengjudeild kvenna 2027 – aðeins einu stigi á eftir toppliði Fjölnis, þrátt fyrir að hafa verið átta stigum á eftir þegar þrjár umferðir voru eftir. Síðasti leikurinn fór fram á Tekkvellinum þar sem um 400 manns mættu til að styðja stelpurnar í baráttunni við Einherja. Fyrir leikinn var Fylkir í þriðja sæti með 33 stig en Einherji í öðru sæti með 34 stig. Það var því ljóst að Fylkir þurfti

sigur til að tryggja sér sæti í Lengjudeildinni. Birna Kristín kom Fylki yfir strax á 5. mínútu, en Einherji jafnaði metin á 51. mínútu. Þá var staðan þannig að Einherji var á leið upp um deild. En á 62. mínútu steig Marija Radojicic fram og kom Fylki yfir á ný, 2–1. Næstu 30 mínúturnar voru Tekk-völlurinn og allir á honum ein stór taugahrúga. Leikurinn var gríðarlega jafn og mikil harka var í honum. Einherji gafst ekki upp enda aðeins eitt mark frá því að tryggja sér sæti í Lengjudeildinni. Eftir 94 mínútna leik flautaði dómarinn til leiksloka og fögnuður braust út á Tekk-vellinum. Fylkir hafði tryggt sér sæti í Lengjudeild kvenna.

Marija kveður sem Fylkisgoðsögn Sigurmarkið reyndist jafnframt síðasta mark Mariju Radojicic fyrir Fylki. Hún lagði skóna á hilluna 12. september síðastliðinn, 34 ára gömul, eftir magnaðan feril. Marija kom fyrst til Íslands árið 2015 og lék þá með Val eitt tímabil þar sem hún spilaði fimm leiki. Hún hélt síðan aftur til Serbíu þar sem hún lék í serbnesku úrvalsdeildinni í þrjú tímabil áður en hún kom aftur til Íslands og gekk til liðs við Fylki. Við komuna til Fylkis árið 2018 var ljóst að um gríðarlegan liðsstyrk væri að ræða. Marija var á þeim tíma landsliðskona Serbíu og hafði leikið með stórum liðum í Serbíu og Austurríki. Það leið ekki á löngu þar til hún varð mikilvægur hluti af Fylkisfjölskyld-unni. Á sínu fyrsta tímabili með félaginu skoraði hún 16 mörk í 21 leik í öllum keppnum og hjálpaði liðinu að verða deildarmeistari í 1. deild kvenna. Tímabilið þar á eftir hélt hún áfram uppteknum hætti og skoraði 11 mörk í 25

leikjum í öllum keppnum, þar af sex mörk í 17 leikjum í efstu deild kvenna. Fylkir hafnaði þá í sjötta sæti tíu liða deildar. Í heildina lék Marija 126 leiki fyrir Fylki á árunum 2018–2026, með nokkrum hléum þar sem hún lék meðal annars með stórliði í Serbíu og tók þátt í Meistaradeild kvenna tímabilið 2025– 2026. Í þessum 126 leikjum skoraði hún 47 mörk fyrir félagið. Það síðasta var svo sannarlega mikilvægt – sigurmarkið í lokaleiknum sem tryggði Fylki sæti í Lengjudeildinni. Það er því erfitt að hugsa sér betri endi á glæsilegum ferli. Knattspyrnudeild Fylkis óskar Mariju Radojicic innilega til hamingju með frábæran feril og þakkar henni fyrir ómetanlegt framlag til félagsins.

Í þessum 126 leikjum skoraði hún 47 mörk fyrir félagið. Það síðasta var svo sannarlega mikilvægt – sigurmarkið í lokaleiknum sem tryggði Fylki sæti í Lengjudeildinni. Það er því erfitt að hugsa sér betri endi á glæsilegum ferli.

Stuðningsmenn Fylkis fjölmenntu á leiki liðsins í sumar og árangurinn var góður þrátt fyrir súrt tap gegn Þrótti í lokin.

Úrbætur á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls - eftir Guðnýju Maríu Jóhannsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og formann umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur

Frá því að breytingar voru gerðar á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls á

síðasta ári hefur umferðarflæði þar verið óviðunandi. Breytingarnar voru gerðar í

2025

Láttu okkur sjá um húsfélagið! Við erum með 25 ára þekkingu og reynslu í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög ffa asteigna. Þjónustuverið okkar svarar fyrirspurnum hratt og örugglega; í síma 585-4800 eða á netspjallinu. Einnig er hægt að senda póst á thjonusta@eignaumsjon.iss.

Heyrðu í okkur og við gerum þér tilboð!

Suðurlandsbraut 30 Reykjavík | Sími 585 4800

eignaumsjon.is umsjon is

því skyni að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda, þrátt fyrir að fyrri meirihluta væri ljóst að þær myndu hafa neikvæð áhrif á umferðarflæði um gatnamótin. Samkvæmt umferðartalningu sem gerð var í janúar á þessu ári fóru rúmlega 33 þúsund bílar um gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls á sólarhring. Á álagstímum myndast langar bílaraðir og umferðartafir sem bitna bæði á íbúum Árbæjar, atvinnulífinu á nærliggjandi svæði og öðrum sem um gatnamótin þurfa að fara. Umferðartafirnar hafa jafnframt orðið til þess að bílaumferð hefur leitað inn í nærliggjandi íbúðahverfi, þar sem aukin gegnumakstursumferð getur skapað hættu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Aukin afkastageta gatnamótanna Með ákvörðun um að hefja undirbúning að úrbótum á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls er Sjálfstæðisflokkurinn að fylgja eftir einu af verkefnunum á verkefnalista sínum, með það að markmiði að greiða fyrir umferð, stytta ferðatíma og draga úr þeim töfum sem vegfarendur hafa þurft að búa við. Tillagan að úrbótum gerir ráð fyrir að endurgera hægribeygjuframhjáhlaup frá Bæjarhálsi til norðurs inn á Höfðabakka, lengja vinstribeygjuakrein frá Bæjarhálsi, lengja akrein sunnan gatnamótanna og breyta akreinaskipan frá Streng aftur til fyrra horfs. Markmiðið er að nýta betur það göturými sem fyrir er og auka afkastagetu gatnamótanna. Öryggi og umferðarflæði þurfa að fara saman Til að tryggja enn betur öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda verður einnig kannaður fýsileiki þess að gera undirgöng

undir Höfðabakka, rétt norðan við gatnamótin. Slík lausn myndi auka umferðaröryggi til muna með því að aðskilja umferð gangandi og hjólandi frá bílaumferð, um leið og skapaðar yrðu forsendur fyrir greiðara umferðarflæði um gatnamótin. Við hönnun hægribeygjuframhjáhlaups

Guðný María Jóhannsdóttir. frá Bæjarhálsi verður lögð rík áhersla á öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Gert verður ráð fyrir upphækkaðri gönguþverun auk þess sem skoðaðar verða breytingar á lögun beygjunnar og bættar sjónlínur. Markmiðið er að draga úr beygjuhraða, auka árvekni ökumanna og lágmarka hættu á aftanákeyrslum, þannig að útfærslan verði eins örugg og kostur er fyrir alla vegfarendur. Í um 250 metra fjarlægð frá gatnamótunum eru undirgöng við Árbæjarsafn sem gera gangandi og hjólandi veg-

farendum kleift að fara undir Höfðabakka án þess að þvera akbrautina. Undirgöngin eru öruggur valkostur fyrir þá sem vilja komast leiðar sinnar án þess að fara um gatnamótin sjálf. Atvinnulífið þarf að komast leiðar sinnar Gott umferðarflæði um gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls skiptir ekki aðeins miklu máli fyrir íbúa Árbæjar og nærliggjandi hverfa heldur einnig fyrir þá umfangsmiklu og fjölbreyttu atvinnustarfsemi sem er á Hálsunum. Þar er fjöldi fyrirtækja sem reiðir sig á greiðar samgöngur, hvort sem um er að ræða vöruflutninga, þjónustustarfsemi eða daglegar ferðir starfsfólks og viðskiptavina. Umferðartafir hafa því ekki aðeins áhrif á ferðatíma fólks heldur geta þær einnig aukið rekstrarkostnað fyrirtækja og dregið úr skilvirkni í starfsemi þeirra. Greiðar samgöngur eru mikilvægur þáttur í góðu rekstrarumhverfi atvinnulífsins og því er brýnt að bæta umferðarflæði á þessum mikilvægu gatnamótum. Vissulega væri betra að þurfa ekki að verja skattfé borgarbúa í kostnaðarsamar úrbætur á gatnamótum sem var breytt fyrir aðeins rúmu ári vegna ákvörðunar fyrri meirihluta. Sú ákvörðun og afleiðingar hennar hafa nú kallað á endurskoðun á útfærslu gatnamótanna. Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að láta umferðarvandann dragast á langinn heldur hefja undirbúning nauðsynlegra úrbóta án tafar og gera ráð fyrir fram-kvæmdunum í fjárhags- og framkvæmda-áætlunum borgarinnar strax á næsta ári.


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/13/2026 1:26 PM Page 9


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/9/2026 5:24 PM Page 10

10

Árbæjarblaðið

Fréttir

Steinbítur frá Öldunni með „veisluhjúp” - frábær uppskrift sem vert er að prófa Þessi uppskrift er alveg sturluð og ég mæli með að fólk prófi hana og Steinbít frá Öldunni. Steinbítur fra Öldunni með „veislu“- hjúp Fiskurinn fyrir 4 • 800 gr. Steinbítur. • Salt og svartur pipar. • 1 msk. ólífuolía. • Smá sítrónusafi.

Stökki gúmmelaðishjúpurinn • 100 gr. mjúkt smjör. • 1 hvítlauksrif, pressað. • 5 gr. fersk steinselja, smátt söxuð. • 1 msk. vorlaukur, saxaður smátt. • 1 box basil, saxað smátt. • Rifinn börkur af 1 sítrónu og safi frá 1/2 sítrónu. • 1 tsk. Dijon-sinnep. • 1½ msk. hunang. • 50 gr. pankó raspur. • 50 gr. parmesan, fínt rifinn.

Steinbíturinn frá Öldunni er sannkallað lostæti. kryddaðu með salt og pipar. • ½ tsk. paprika. • Smá salt og pipar. 5. Þrýstu ríflegu lagi af hjúpnum yfir Aðferð: hvern fiskbita. 1. Hitaðu ofninn í 200 gráður, blástur. 2. Þerraðu fiskinn vel og kryddaðu með salti og pipar.

Spönginni Grafarvogi

3. Blandaðu öllu í hjúpinn saman. Hann á að vera þykkur og svolítið klessulegur. 4. Settu fiskinn í eldfast mót og

6.Bakaðu í um 15–18 mínútur, eftir þykkt. 7.Settu undir grill í 1–2 mínútur í lokin þar til hjúpurinn er fallega gylltur og stökkur. Smá auka til að gera þetta að extra veislumat: Settu smá klípu af smjöri, 1 tsk. af

Kristjana Steingrímsdóttir (Jana). hunangi og smá sítrónusafa í pönnu eftir að fiskurinn kemur úr ofninum. Bræddu saman og helltu örlitlu yfir fiskinn rétt áður en hann fer á borðið. Dásamlegur réttur sem kemur svo sannarlega á óvart. Frábært að bera fram með fersku salati og hrísgrjónum eða íslenskum nýjum kartöflum. Kristjana Steingrímsdóttir (Jana) Jana.is - Instragram.com/Janast


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/9/2026 9:54 PM Page 11


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/12/2026 5:31 PM Page 12

12

Fréttir

Árbæjarblaðið

Endurvinnslustöð Sorpu við Lamhagaveg var hönnuð með það að leiðarljósi að hafa öryggi og flæði sem best fyrir bæði gesti og starfsfólk.

Ný endurvinnslustöð Sorpu við Lambhagaveg:

Hönnuð frá grunni með gesti í huga SORPA opnaði nýja endurvinnslustöð við Lambhagaveg 14 þann 1. september síðastliðinn, og hefur stöðin þegar tekið á móti fjölda gesta. Stöðin á Lambhagavegi á sér nokkra sérstöðu. Hún er fyrsta endurvinnslustöðin sem SORPA hefur fengið tækifæri til að byggja og hanna alveg frá grunni. Stöðin var hönnuð með það að leiðarljósi að hafa öryggi og flæði sem best fyrir bæði gesti og starfsfólk.

Útf tfararþjónusta í yfi fir 70 ár Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | u t for f .is .

V I Ð Þ J Ó N U M AL L AN SÓL AR H R I NGI NN N

Er stí昀að? FJARLÆGJUM STÍFLUR

Hreinsum brunna • rotþrær • niðurföll þakniðurföll • 昀tuskiljur • olíuskiljur • lagnir Staðsetning lagna og dýptarmælingar

Þekking og áratuga reynsla

VALUR H ELGASON ehf. Sími 896 1100 & 568 8806 • www.sti昀a.is

Öryggi og gott flæði Stöðin er byggð á tveimur pöllum þannig að bílar gesta eru aðskildir frá gámaflutningabílum og öðrum þjónustutækjum. Þannig dregur úr

skörun í umferðinni og umhverfið verður öruggara fyrir alla. Stöðin er einnig hringlaga. Gestir aka einfaldlega hringinn, stoppa við þá gáma sem þeir þurfa og halda svo áfram án þess að teppa umferð annarra. Þrjú innkeyrsluhlið gera það að verkum að biðraðir styttast og heimsóknin tekur skemmri tíma. Allt á einum stað Á Lambhagavegi er tekið á móti öllum sömu flokkum og á stærri endurvinnslustöðvum SORPU, t.d. pappír og pappa, plasti, málmum, timbri, garðaúrgangi, raftækjum, spilliefnum, textíl og öðrum flokkum. Það þýðir að gestir geta losað sig við nánast allt sem fellur til á heimilinu

sem og framkvæmdarrusli, í einni ferð Góði hirðirinn er einnig með starfsemi á stöðinni, með áherslu á framkvæmdaefni og búnað sem nýtist við framkvæmdir og viðhald. Þar er bæði hægt að gefa nothæfa hluti áfram og finna efni í næsta verkefni á góðu verði, sem er hringrásarhagkerfið í verki. Verið velkomin Stöðin er opin frá kl 09-19 alla daga. Við hvetjum öll til að kíkja við, kynnast nýju stöðinni og hjálpa okkur að koma sem mestu aftur inn í hringrásina. Takk fyrir að flokka!

MÓT studio opnar í Hraunbæ Ný vinnustofa, MÓT studio, opnar í Hraunbæ 102a, þar sem búsáhaldaverslunin Þorsteinn Bergmann var áður til húsa. Að henni standa fjórar listakonur: keramikhönnuðirnir Örk Guðmundsdóttir, Gamin Choi og Unnur Regína Gunnarsdóttir og vöruhönnuðurinn Ylfa Geirsdóttir. Þær koma úr ólíkum áttum en deila ástríðu fyrir hönnun, handverki og skapandi vinnu. Föstudaginn 30. október kl. 17–19 bjóða þær til opnunar þar sem gestir geta skoðað vinnustofuna, spjallað við listakonurnar og kynnst starfseminni. Árbæingar og aðrir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir. Í vetur mun MÓT studio bjóða upp á námskeið og viðburði fyrir börn og fullorðna með áherslu á leir og skapandi verkefni. Engin reynsla er nauðsynleg, aðeins áhugi og löngun til að prófa eitthvað nýtt. Markmiðið er að skapa hlýlegan og notalegan vettvang þar sem fólk getur lært, notið samveru og skapað eigin verk. Þá verður opin vinnustofa alla laugardaga kl. 13–17. Þar geta gestir og gangandi keypt fallega gjafavöru eða fengið sér kaffi. Í nóvember verða sérstakir kvöldviðburðir undir heitinu „Leir og léttvín“, ætlaðir einstaklingum jafnt sem hópum sem vilja eiga notalega kvöldstund og kynnast því að vinna með leir. Nánari upplýsingar um námskeið, viðburði og opnunartíma verða birtar á www.motstudio.is og á Instagram undir heitinu MÓT studio.

Ný og glæsileg vinnustofa Mót studio.

Eigendur Mót studio sem opnar í Hraunbæ 102 þann 30. október.


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/14/2026 3:18 PM Page 13

13

Fréttir

Árbæjarblaðið

Stórtónleikar í Grafarvogskirkju 12. nóvember Fimmtudaginn 12. nóvember verða hinir árlegu stórtónleikar Lionsklúbbsins Fjörgynjar í Grafarvogskirkju til stuðnings BUGL og líknarsjóði klúbbsins. Tónleikarnir hefjast klukkan 19:30. Miðasala er á TIX.is. Fyrstu tónleikar klúbbsins voru 2003 og þetta er í 22. sinn sem þeir eru haldnir, en hlé var gert á tónleikahaldi á Covidárunum. Gegnum árin hafa landskunnir tónlistarmenn komið fram og hafa þeir ávallt gefið sína vinnu til styrktar málefninu. Flytjendur í ár eru söngdívan Dísella Lárusdóttir og stórtenórinn Gissur Páll. Kristján Kristjánsson (KK) mætir með kassagítarinn sinn. Einnig mun Mugison stíga á fjöl. Feðgarnir Herbert Guðmundsson og Guðmundur Herberstsson hafa slegið

í gegn að undanförnu. Páll Óskar mun birtast, einnig Rebekka Blöndal. Karlakórinn Esja mun láta heyra vel í sér. Frést hefur að Gunni og Felix mæti. Loks er þess að geta að fram kemur á tónleikunum ung söngkona, Aþena Rut Friðriksdóttir, sem verður ævin-lega þakklát fyrir þjónustu BUGL, en ákveðið teymi þar reyndist henni ómetanlegur styrkur í veikindum. Með framlagi sínu á tónleikunum vill Aþena þakka aðstoðina við að ná bata. Í hópi undirleikara eru Steingrímur Teague, Ásgeir Ásgeirsson, Pálmi Sigurhjartarson og Lára Bryndís Eggertsdóttir, organisti Grafarvogskirkju. Lára mun væntanlega grípa bæði í flygil og hið frábæra orgel kirkjunnar. Felix Bergsson verður kynnir á

KK á útkíkkinu. Hann mætir á stórtónleikana í Grafarvogskirkju 12. nóvember. tónleikunum. Að vanda mun Lionsklúbburinn Fold vera með veitingasölu til styrktar sínum líknarsjóði. Fold hefur m.a. styrkt Konukot, Bergið og Einstök börn. Fyrir hönd félaga í Lionsklúbbnum Fjörgyn Þór Steinarsson Herbert Guðmundsson og sonur hans og Páll Óskar verða í miklu stuði á árlegum stórtónleikum Lionsklúbbsins Fjörgyn í Grafarvogskirkju þann 12. nóvember.

,,,+*)('&%**$#"!$ "'"'! ' ( (! ! ' + *% ,,, # $ ('!+% "! +% "! !+*)('&%**$#( (!+*!+ %! !'($#%*( ,,, ! + ('!&+'% !( &+' %$ + "! + ! & !" !$ %#"! # $ ( Mugison hinn eini sanni skemmtir gestum á stórtónleikunum í Grafarvogskirkju þann 12. nóvember.

,,, !+'!" !+*)('&%**"! #!" ('! !" ('

Tólf spor – Andlegt ferðalag

Tólf spor – Andlegt ferðalag. Tólf sporin – Andlegt ferðalag í Mosfellsbæ í vetur. Fyrsti opni spora fundur vetrarins verður 7. október kl. 19.30. Í Safnaðarheimili Lágafellssóknar að Þverholti 3, Þrjú næstu miðvikudagskvöld verða opnirfundir til frekari viðkynningar. Allir eru velkomnir og ekki þarf að skrá sig.

'"+*%'$ " "',%$! ! '"(*

! ! ! '"+ +*%' $ " "',%$! ! !


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/13/2026 4:34 PM Page 14

14

Fréttir

Gamla myndin

Árbæjarblaðið

Blóðsykurmælingar - í Húsgagnahöllinni 21. nóvember Blóðsykurmælingar í boði Lionsklúbbanna Fold og Fjörgyn verða í boði laugardaginn 21. nóvember á Bíldshöfða 20 (Húsgagnahöllin) milli 11:00 og 16:00. Sykursýkisvarnir er eitt af höfuðverkefnum Lions um allan heim og eru ýmsir viðburðir því tengdu á dagskrá hjá Lionsklúbbum svo sem fræðsla og mælingar blóðsykurs. Lionsklúbburinn Fjörgyn hóf að bjóða upp á blóðsykurmælingar árið 2012 og höfum við gert það árlega eftir það að undanskildum Covid árunum og höfum við fengið aðstöðu í verslunarkjarnanum Bíldshöfða 20 en þar hafa Krónan, JYSK og Húsgagnahöllin veitt okkur húsaskjól fyrir þetta verkefni. Frá árinu 2017 höfum við átt í góðu samstarf við Lionsklúbbinn Fold við mælingarnar og höfum við ávallt skilað af okkur flestum mælingum á landsvísu. Þessi þjónusta er að öllu leiti í boði

klúbbanna og höfum við átt því láni að fagna að hafa gott aðgengi að heilbrigðis starfsmanni sem hefur verið okkur til halds og trausts og veitt þeim ráðgjöf sem þess þurfa. Á þessum árum höfum við mælt blóðsykur í 6081 einstaklingum, 3591 konur og 2490 karlar, Þetta er fólk á öllum aldri frá barnsaldri og yfir nírætt og kemur fólk í sumum tilfellur á staðinn þegar það veit að þessi þjónusta okkar er í boði. Þetta er verkefni er mjög góð og öflug kynning fyrir Lions hreyfinguna og veitir það okkur félögunum mikla ánægju að fá að taka þátt í þessu verkefni. Í ár bjóða Lionsklúbbarnir Fjörgyn og Fold upp á blóðsykurmælingar á Bíldshöfða 20 laugar-daginn 21. nóvember n.k. og hvetjum við alla til að koma og fá mælingu hjá okkur. Fyrir hönd félaga í Fjörgyn og Fold, Guðmundur Helgi Gunnarsson

Fyrsta kvennalið Fylkis Gömlu myndirnar okkar vekja gjarnan mikla athygli og vekja líka upp gamlar og skemmtilegar

minningar. Gamla myndin að þessu sinni er ,,ekki nema” cirka 44 ára og er af

fyrsta meistaraflokki kvenna í fótbolta hjá Fylki árið 1982. KGG

Frábær árangur Fylkis í karate Félagar í Lionsklúbbunum Fjörgyn og Fold bjóða upp á blóðsykurmælingar í Húsgagnahöllinni þann 21. nóvember nk.

Þann 26. september síðast liðinn fór fram þriðja Grand Prix mót ársins í karate. Fylkir átti fjóra keppendur á mótinu sem að komu, sáu og sigruðu í piltaflokki. Allir í Fylki og Árbænum eru afskaplega stoltir af þessum drengjum og svo gaman að fá að fylgjast með þeim! Allir unnu þeir sinn flokk. Daniel Hassoun Nasser í kumite 11 ára pilta. Gunnar Gylfi Guðmundsson í kumite 12 ára pilta. Simon Hassoun Nasser í flokki 15 ára pilta. Saker Hassoun Nasser í flokki 16-17 ára pilta.

gul gata

Allar almennar bílaviðgerðir

Keppendur Fylkis á Grand Prix mótinu í karate. Allir fjórir keppendurnir unnu til gullverðlauna í sínum flokki.


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/13/2026 1:43 PM Page 15

15

Fréttir

Árbæjarblaðið

Fréttamolar frá kirkjustarfinu Fjölbreytt starf fyrir alla aldurshópa í Árbæjarkirkju 2026 til vorsins 2027 Almennar guðsþjónustur í Árbæjarkirkju alla sunnudaga kl. 11.00 Fjölskylduguðsþjónusta annan sunnudag hvers mánaðar kl. 11.00 Kyrrðastundir alla miðvikudaga kl. 12.00. Altarisganga og fyrirbænir. Léttur hádegisverður á vægu verði. Starf eldri borgara (Opið hús) alla miðvikudaga kl. 13.00 - 15.30 Helgistund Hraunbæ 105 Félagsmiðstöð eldri borgara alla fimmtudaga kl. 9:30 Sunnudagaskólinn er í safnaðarheimili kirkjunnar á sunnudögum kl. 11.00 þar sem ungir og aldnir skemmta sér saman. Annan sunnudag hvers mánaðar fjölskylduðsþjónusta kl. 11.00 Barnastarf Árbæjarkirkju. Á þriðjudögum er boðið er upp á sérstakt starf fyrir bæði 7-9 ára börn (STN starf) kl.15.00-15.40 og 10-12 ára börn (TTT- starf).16.00- 17.00 Skrá þarf sérstaklega börnin í STN (1.-3. bekkur) og TTT-starfið (5-7. bekkur). Skráning fer fram á heimasíðu kirkjunnar. Í haust var stofnaður barnakór við kirkjuna. Barnakórsæfingar 1-4. bekkur æfa miðvikudaga kl 16-16:40 og 5-7. bekkur æfa miðvikudaga kl 17 - 17:50. 3000 kr. þátttökugjald er greitt fyrir skólaárið. Auk þess að hafa gaman af því að syngja saman leggjum við einnig áherslu á hópefli og munum enda hverja önn með jóla/vortónleikum. Skráning og nánari upplýsingar má finna í gegnum barnakor@arbaejarkirkja.is. Unglingastarf Árbæjarkirkju. Æskulýðsfélagið saKÚL hittist á fimmtudagskvöldum kl. 20.15. Unglingastarfið er opið öllum ungmennum og hvetjum við fermingarbörnin sérstaklega til að taka þátt.

Skoðið nánar á heimasíðu kirkjunnar www.arbaejarkirkja.is

„Að vera eða vera ekki“ - eftir sr. Þór Hauksson sóknarprest í Árbæjarsókn Að standa í röð í matvöruverslun eða hvar sem er, til dæmis á leið til útlanda á Keflavíkurflugvelli eða erlendis, er varla í frásögu færandi, það er ekkert merkilegt við það, bara eitthvað hversdagslegt eins og að hugsa um William Shakespeare og verkin hans og áhrif á nútímamanneskjuna. Það er einmitt málið. Hvort sem okkur líkar betur eða verr eru raðir hvers konar stór hluti af lífinu og samt ræðum við þær nánast aldrei. Um okkur Íslendinga hefur verið sagt að við kunnum ekki að vera í röð. Nýverið rakst ég á grein í erlendu blaði sem vakti áhuga minn á því hversu lengi meðalmanneskja stendur í röð á ári, grein sem varð kveikjan að þessum pistli. Niðurstaðan var 4-7 klukkustundir sem við stöndum í röð á ýmsum stöðum. Við ræðum fasteignaverð, vexti, stjórn landsins, borgar og bæja, veðrið og íþróttakappleiki, hvort eigi að ráða eða reka þennan eða hinn landsliðsþjálfarann. En við ræðum ekki eitt stærsta siðferðilega álitamál nútímans: „Hvenær má skipta um röð?“ Þetta er alvöru spurning því öll höfum við reynslu af að standa í röð en fæst okkar hafa komið að stjórn landsins eða íþróttaþjálfun, en samt erum við tilbúin að tjá okkur í spað um þessi málefni. Þú ert staddur eða stödd í búð og þar eru tvær raðir eða fleiri við kassann eða á flugvelli með 6 raðir á leið í flug. Eða í bíl í morgun eða eftirmiðdagsumferðinni. Þú velur eina því ekki er hægt að vera í tveimur röðum í einu, hvort heldur þú ert með innkaupakörfu eða með ferðatösku í innskráningarröð að ekki sé talað um bíl. Um leið og þú hefur valið fer hin röðin af stað en þín röð stendur í stað. Þetta gerist alltof oft. Nánast náttúrulögmál. Manneskjan sem var fyrir aftan þig í hinni röðinni er allt í einu komin að kassanum eða innskráningarborðinu.

Þú ert enn fyrir aftan viðskiptavin sem er að reyna að komast að því hvort jógúrtið hafi verið á tilboði eða farþegann sem er ekki viss um að taskan sé undir 20 kg. Þú þarft að ákveða á einum hundraðasta hvað þú gerir... skipta um röð eða ekki. Eða eins og Shakespare sagði án þess að hafa reynslu af að standa í röð: „Að vera eða vera ekki. Það er spurningin.“ Hvaða lærdóm er hægt að draga af þessu ofansögðu? Er heppilegra að vera bara í „sinni“ röð eða ekki? Þetta er röðin þín í búðinni eða á fjölfarinni götu að morgni dags og þú ert korteri í að vera of sein/seinn í vinnu, skóla eða flugið. Þú verður að standa með ákvörðun þinni. Fara yfir í hina röðina á bílnum, körfuna, töskuna, allt eftir eðli raðarinnar. Þú reynir að láta lítið fyrir þér fara. Flestir sem í röðunum eru sjá það og hugsa. Við vitum hvað þú gerðir. Þú gafst upp. Það besta er þegar gamla röðin fer svo skyndilega af stað. Þú stendur eða situr í nýju röðinni og horfir á gömlu röðina þína renna fram hjá. Það hlakkar í þeim sem héldu sig við sína röð. Þau leyfa sér jafnvel að hugsa að réttlæti sé til í heiminum. Siðferðilegar spurningar leita upp í hugann í hversdagslegri búðarferð og á það ekki bara við um raðir. Hvenær varð í lagi að skilja innkaupakerru eftir á miðjum ganginum í verslun? Kerran þversum. Eigandinn horfinn. Indriði, persóna í sketsaþætti Jóns Gnarrs og Sigurjóns Kjartanssonar, um árið, riðst upp í hugann. Indriði spurði oft og iðurlega sjálfan sig: „Á ég að sjá um þetta?“ Annars vegar er þetta kerra einhvers viðskiptavinar sem ég þekki eða ekki. Má snerta hana? Betra að bíða eða taka krók fram hjá ef það er hægt. Þessu tengt þeir sem hittir vin eða kunningja í búðinni. Af hverju þarf „fundurinn“ alltaf að fara fram á þrengsta staðnum í búðinni? Tveir standa með kerrurnar hlið við hlið.

„Nei, blessaður! Hvað segirðu?“ Þú stendur fyrir aftan, segir ekkert en hugsar þitt. Innra með þér ertu orðinn George Costanza í sjónvarpsþættinum Seinfeld sem sýndur var hér um árið. Við erum stödd á gangi! Gangurinn er til að ganga um! Ekki til að rifja upp

sr. Þór Hauksson. þegar þú fórst holu í höggi á spænskum golfvelli einhverjum vikum áður. Flest okkar höfum verið í þessari stöðu, annars vegar þau sem „loka“ aðgengi að ganginum og vörurekkunum og hins vegar þau sem „loka“ ganginum. Við erum bara ekki alltaf tilbúin að viðurkenna það. Við segjum: „Þetta skiptir engu máli.“ En jú, það skiptir greinilega máli. Annars værirðu ekki búinn að hugsa um manneskjuna sem fór fram fyrir þig í röðinni í þrjá daga á eftir eða hindraði för þína að vörunni sem þú komst til að versla og uppgötvaðir þegar heim er komið að það var það eina sem þú varst beðin um að kaupa.

Áður á þessum vettvangi hefur verið skrifað um bandarísku sjónvarpsseríuna Seinfeld (1989–1998) sem þáttur um „Ekkert.“Á yngri árum segir allt að lífið sé stóru hlutirnir. Hvað ætlarðu að verða? Hvert ætlarðu? Hverju ætlarðu að áorka? Svo líða árin og þau kenna af reynslu hvað ótrúlega stór hluti lífsins fer í að leita að hleðslutæki. Hvar er hleðslutækið? Það var hér. Hver tók það? Enginn tók það. Þetta er merkilegt á heimilum. Hlutir hverfa og enginn tók þá. „Hver tók skærin?“ Enginn. „Hver kláraði mjólkina?“ Enginn. „Hver skildi þetta eftir hér?“ Enginn. Það býr greinilega einhver með okkur öllum sem heitir „Enginn“. Enginn er hræðileg sambýlismanneskja. Hún klárar klósettpappírinn. Hún setur tómar umbúðir aftur inn í ísskáp. Hún skilur

eftir sig snýtubréf hér og þar þannig að áður en þú veist af er „Indriði“ fluttur inn á þig leigufrítt, hrópandi út í tómið. „Á ég að gera þetta!“ Það eru þessi smáu atriði. Þau eru fáránleg í einfaldleika sínum. Þau eru hversdagurinn. Hversdagurinn er miklu skrýtnari en við höldum eða kannski réttara að segja leggjum ekki hugann að. „Ekkert“er nefnilega ekki tómið eitt. Það er fullt af manneskjum, venjum, óskrifuðum reglum. Litlum pirringi, vandræðalegum augnablikum. Öllum þessum fáránlegu hlutum sem við gerum á hverjum einasta degi án þess að velta þeim fyrir okkur. Þangað til einhver gerir það. Þá er ekki hægt að hætta að sjá þá. Þú sérð ekki lengur bara röð. Þú sérð samfélag. Þú sérð ekki innkaupakerru á miðjum gangi. Þú sérð siðferðisbrest. „Að halda kyrru fyrir eða ekki? Það er spurningin. Með kveðju, Þór Hauksson, Sóknarprestur Árbæjarsafnaðar

Opna húsið í Árbæjarkirkju alla miðvikudaga Opna húsið í Árbæjarkirkju alla miðvikudaga kl. 12-16. Þangað eru allir fullorðnir velkomnir og þar er ýmislegt á dagskrá. Byrjað er með kyrrðarstund í kirkjunni, síðan er léttur hádegisverður á vægu verði (kr. 1500). Að því loknu er hin sívinsæla stólaleikfeimi og svo er spjallað eða einhver gestur mætir í heimsókn. Endað er á gómsætu síðdegiskaffi. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir. Það þarf ekki að skrá sig sérstaklega og allir eru velkomnir. Helgihald hvern sunnudag kl.11.00 Annan sunnudag hvers mánaðar er Fjölskylduguðsþjónusta kl.11.00


ÁB NÝ 2022_Árbær Aðsent efni - .qxd 10/10/2026 10:12 PM Page 16

Velko omin á nýja omin nýja endurrvinnslustöð Nú höfum við opnað nnýja og heldur betur glæsilega endurvinnslustöð við La ambhagaveg 14. Við hlökkum til að sjá vana flokkara, nýja a flokkara og allt þar á milli. Takk fyrir að flokka a! g

or ut p or

Ba

Lambhag gavegur

uh au s

K


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook