Gildisposturinn febrúar 2016 - 1. tbl. 23. árg

Page 1

Fréttabréf St. Georgsgildisins í Hafnarfirði

1. tbl.

Febrúar 2016

23. árg.

Aðalfundur

Aðalfundur St. Georgsgildisins í Hafnarfirði verður haldinn fimmtudaginn 10. mars kl. 20 í Hraunbyrgi. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa ætlar Gunnar Svavarsson, formaður stjórnar nýs Landspítala, að segja okk­ur frá því sem þar er að gerast í máli og myndum. Gunnar er gamall skáti og verður formlega tekinn inn í gildið ásamt fleirum á fundinum. Það verður því hátíðarbragur á þessu öllu en létt og skemmtilegt yfir öllu að venju og eru félagar hvattir til að fjöl­ menna. Kjósa á skv. lögum félagsins í eftirt­alin embætti: Gildismeistara til eins árs

Gjaldkera til tveggja ára Meðstjórnanda til tveggja ára Tveggja varamanna til eins árs Tveggja endurskoðenda Einnig skal kjósa í fastanefndir og formenn þeirra. Í stjórn núna eru: Guðni Gíslason gildismeistari, Edda Magndís Halldórsdóttir varagildis­ meistari, Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir ritari, Þórey Valgeirsdóttir gjaldkeri og Ægir Ellertsson meðstjórnandi. Í varastjórn eru Sigurður Baldvinsson og Jónína Kristín Helgadóttir.

Skátaflokkurinn Æringjar úr Reykjavík komu í heimsókn í Skátalund í nóvember og fengu kaffi.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.