Skip to main content

Gildispótsurinn 2012 júlí - 2. tbl. 19. árg.

Page 1

Fréttabréf St. Georgsgildisins í Hafnarfirði 2. tbl.

júlí 2012

19. árg.

Hittumst á Landsmóti skáta á Úlfljótsvatni laugardaginn 28. júlí

Um helgina hefst eitt glæsilegasta Landsmót skáta sem haldið hefur verið. Þetta er hátíðarmót enda er verið að fagna 100 ára skátastarfi á Íslandi. Hafnfirskir skátar verða áberandi bæði í almennum búðum og í fjölskyldubúðum. Gildisfélagar eru hvattir til að heimsækja mótið á afmælishátíðinni laugardaginn 28. júlí og mun gildismeistari taka á móti félögunum í fjölskyldubúðum Hraunbúa. Hátíð verður þar sem farðið verður yfir sögu skátastarfsins, finna má lifandi bókasafn þar sem fá má sögur frá Landsmóti, Haustleikarnir 1926 á Jófríðastaðatúninu verða endurteknir, 100 pósta póstaleikur og svo verður skátasýningina í Ljósafoss verð­ur opin fram að kvölddagskrá. Kaffihús og minjagripaverslun verða á mótinu.

Skógardeild í Skátalundi

Samið við Hafnarfjarðarbæ um afnot leikskóla að Skátalundi Samið hefur verið við Hafnarfjarðarbæ um leigu leikskólans Hlíðarenda á Skátalundi alla virka daga kl. 8-16 frá 1. september nk. til 30. júní. Hlíðarendi verður þar með skógardeild en markmiðið er að efla útistarf og þekkingu barna á náttúrunni. Samningurinn veitir einhverjar tekjur fyrir gildið og er stjórnin ánægð með samstarfið en samningur um afnotin var undirritaður í Skátalundi 28. júní sl. Samningur undirritaður í Skátalundi 28. júní sl.


Starfsáætlun

St. Georgsgildisins í

Markmiðið er að bjóða upp á a.m.k. tvo atburði í mánuði til að mæta þörfum sem flestra. Stjórn gildisins hefur sett saman drög að starfsáætlun fyrir allt starfsárið. Allar ábendingar eru að sjálfsögðu vel þegnar. Þær má senda á: gudni@hhus.is eða hringja í 896 4613. Helsta áherslumál nýrrar stjórnar er efling eldriskátastarfs í Hafnarfirði með stofnun fleiri gilda undir einum hatti skátagildanna í Hafnarfirði.

Júlí 28.

Landsmót skáta Úlfljótsvatni - heimsóknardagur - gildismeistari tekur á móti

Ágúst 16. kl. 20 18. 18. 24. kl. 16

Hittingur í Skátalundi Skógardagur fjölskyldunnar - samtarf við Skógræktarfélagið 100 ára afmælisfagnaður í Reykjavík Stjórnarfundur

September 13. 21. kl. 17 27.

Hugmyndafundur í Hraunbyrgi - hópavinna Stjórnarfundur Skátakvöldvaka í Hraunbyrgi m/ Hraunbúum

Október 11. kl. 20 19. kl. 167 25. kl. 20

Trommusláttur í Hraunbyrgi - opinn gildisfundur Stjórnarfundur Gildisfundur í Skátalundi - Upplifun frá Landsmóti myndasýning.

Munið: http://stgildi.hraunbuar.is


Hafnarfirði 2012-2013 Nóvember 2. 8. kl. 20 16. kl. 17 22. kl. 20 29. kl. 20

100 ára afmæli skátastarfs á Íslandi Sameiginlegur fundur með Kópavogsgildinu Stjórnarfundur Tæknifundur í Hraunbyrgi - Facebook, Skype og snjallsímar Afhending friðarljóssins í Klaustrinu

Desember 2. 9. kl. 14

Friðarloginn afhentur í kirkjur - friðarganga Jólafjölskylduskemmtun í Skátalundi

Janúar 11. kl. 17 12. kl. 14 26. kl. 14

Stjórnarfundur Framtíðarráðstefna um eldriskátastarf í Hraunbyrgi Gönguskíðaferð

Febrúar 1. kl. 17 Stjórnarfundur - ársskýrsla 14. Stofnfundur nýs skátagildis 21. Aðalfundur 23. kl. 16 Stofnfundur „Skátagildanna í Hafnarfirði“

Mars Stjórnarfundur Árshátíð gildanna í Hraunbyrgi Tímasetningar og staðsetningar geta breyst og verða kynntar nánar þegar nær dregur m.a. á http://stgildi.hraunbuar.is


<<Nafn>> <<Nafn2>> <<Heimili>> <<Postfang>>

Ný stjórn

Björt framtíðarsýn um eflingu eldriskátastarfs í Hafnarfirði Guðni Gíslason kjörinn gildismeistari

Framhaldsaðalfundur St. Georgs­gildisins í Hafnarfirði var haldinn 24. maí sl. í Skátalundi og var vel mætt. Upp­stillinganefnd lagði til að Guðni Gíslason yrði kjörinn gildismeistari og komu ekki fram aðrar tillögur. Áður en fundarstjóri lýsti hann sjálfkjörinn gerði Guðni grein fyrir þeim forsendum sem hann hefði fyrir því að taka að sér þetta verkefni. Sagði hann vilja sinn að efla starf eldri skáta í Hafnarfirði og að gildum yrði fjölgað undir regnhlíf samtaka skátagilda í Hafnarfirði. Óskaði hann eftir meðbyr til þeirra starfa og sagði hann að með þessum hugsjónum væri hann tilbúinn til starfa. Var Guðni síðan lýstur réttkjörinn gildismeistari.

Tillögur komu fram um Pétrúnu Péturs­ dóttur og Ægir Ellertsson í stöðu gjaldkera og meðstjórnanda og eftir að samþykkt höfðu verið afbrigði og stjórn falið að skipta með sér verkum voru þau réttkjörin. Formenn nefnda voru kjörnir: Gunnar Einars­ son formaður laganefndar, Hreið­ ar Sigur­­jónsson formaður uppstillinga­nefndar, Ólakur K. Guðmundsson for­ maður skála­ nefnd­ar, Renata Sörensen formaður Friðar­ loganefndar og skála­nefnd­inni falið að hafa umsjón með leiði Eiríks Jóhannessonar. Létt var yfir fundinum, sungið og snætt og greinilegt að gildisfélagar horfðu björt­ um augum til framtíðarinnar.

Nýja stjórnin, fv. Guðni Gíslason gildismeistari, Ægir Ellertsson meðstjórn­andi, Sigurður Baldvinsson varamaður, Pétrún Pétursdóttir gjaldkeri og Kristjana Þ. Ásgeirsdóttir ritari. Á myndina vantar Eddu M. Halldórsdóttur varagildismeistara og Eddu M. Hjaltested varamann.

St. Georgsgildið í Hafnarfirði Stofnað 22. maí 1963


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Gildispótsurinn 2012 júlí - 2. tbl. 19. árg. by Skátagildi - Issuu