Fréttabréf St. Georgsgildisins í Hafnarfirði
1. tbl.
Október 2017
24. árg.
„Súpa með léttu ívafi“
Sameinumst endilega í bíla
Ljósm.: Guðni Gíslason
Í Skátalundi miðvikudaginn 11. október kl. 19.30
Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn í Skátalundi miðvikudaginn 11. október kl. 19.30. Í boði verður súpa með léttu ívafi. Það er Þórey Valgeirsdóttir ásamt góðu fólki sem sér um fundinn að þessu sinni. Þeir sem vilja fá far upp í Skátalund mæti við Hafnarfjarðarkirkju kl. 19. Vinsamlega hringið í Þóreyju í síma 6910396 til að tilkynna þátttöku. Vonumst til að sjá sem flesta.
Landsþingið
Landsþingið sem var í okkar umsjá í ár gekk mjög vel og eru allir mjög ánægðir með þinghaldið og fram kvæmd þess. Nánar um þingið í fund ar gerð og fylgiskjölum á nýrri heimasíðu Skátagildanna á Íslandi sem fer í loftið á næstu mánuðum. Hægt er að fylgjast með þróun síðunnar á nytt.skatagildi.is
Hafnfirskir gildisskátar stýrðu 400 manna móti í Hafnarfirði Bjarnadóttir, Fríða Ragnarsdóttir og Ásdís Elín Guðmundsdóttir kaffihús, Claus Hermann Magnússon víkinga þorp í dagskrá og síðan Hrafnhildur Ýr Hafsteinsdóttir félagsforingi Hraunbúa sem skipulagði vaktir starfs fólks. Það er samdóma álit allra að mjög vel hafi tekist til bæði með dagskrá og aðbúnað. HAFNARFJÖRÐUR
Ljósm.: Guðni Gíslason
360 skátar víðs vegar að úr heiminum og 40 manna erlent aðstoðarfólk mætti á Víðistaðatún þann 25. júlí síðastliðinn og dvaldi hópurinn á túninu til 29. júlí þegar haldið var á Úlfljótsvatn. Í Hafnarfirði var ein af 11 stöðvum víðs vegar um landið sem hinir fjölmörgu erlendu skátar sem sóttu 15. heimsmót róverskáta fóru á. Á dagskrá voru m.a. rútuferðir í Krýsuvík og á Krýsu víkurbjarg, gönguferðir á Helgafell og þar í nágrenninu, bæjarferðir, sigling á vegum siglingaklúbbsins og heimsókn til skotfélagsins. Sameiginleg kvöld vaka var á föstudagskvöldi. Fyrir um ári var skipuð undirbúningsnefnd og voru gildisfélagar fjölmennir í henni. Sjö gildisfélagar sáu um skipulag mótsins, Guðni Gíslason svæðisstjóri, Kristjana Þ. Ásgeirsdóttir matarúthlut un, dagskrá og fleira, Hreiðar Sigur jóns son tæknistjóri, Sigríður Júlía
Fleiri myndir má sjá á Facebook síðu Fjarðarfrétta.
Skátamót með engum fyrirvara 10. ágúst kom ósk til gildisins frá Skátamiðstöðinni á Úlfljótsvatni hvort það gæti tekið að sér að sjá um mótið Camp Iceland, sem er nýtt fyrirkomulag á skátamóti á vegum skátamiðstöðvar innar á Úlfljótsvatni. Sökum þess að loka þurfti skátamiðstöðinni vegna
nórusýkingar var óskað eftir því að fá aðstöðu í og við Hraunbyrgi og átti mótið að hefjast samdægurs! Guðni og Kristjana tóku þetta að sér fyrir hönd gildisins og Sigrún Júlía, Una Björg og Salvör aðstoðuðu einnig. Þá komu Hanna og Trausti úr Garðabæ einnig
Útgefandi: St. Georgsgildið í Hafnarfirði • Umsjón og ábm.: Guðni Gíslason, gudni@hhus.is • Umbrot og prentun: Hönnunarhúsið ehf.
Heimsmót róverskáta
Ljósm.: Guðni Gíslason
til aðstoðar. Í heildina urðu þetta tæp lega 26 skátar, 19 frá Bandaríkjunum, 2 frá Englandi og 4 frá Selfossi. Var slegið upp tjalbúð á flötinni bakvið skátaheimilið. Útbúin var aðstaða í skemmunni til þess að matast. Dagskráin var sniðin eftir aðstæðum, gönguferð um miðbæinn og á Ham arinn, gengið á Helgafell og hellar skoðaðir, elduð íslensk kjötsúpa og kvöldvaka við varðeldinn. Farið var í Suðurbæjarlaug og í ísbúð en hópurinn var sóttur síðla sunnudags, ánægður og þakklátur fyrir móttökurnar í Hafn arfirði.
Skátalundur
ræktarfélagið en stígurinn nýtist sem ný gönguleið að skálanum.
UMHVERFISVERÐLAUN HAFNARFJARÐARBÆJAR 31. ágúst var St. Georgsgildinu í Hafn ar firði veitt viðurkenning fyrir snyrtileika og fallegt umhverfi við Skátalund. Guðni Gíslason og Sigurður Baldvinsson tóku á móti viðurkenn ingunni og einu furutré í Þöll, húsnæði skógræktarfélagsins.
Ljósm.: Guðni Gíslason
GRILLHÚSIÐ Vel hefur gengið með grillhúsið, búið er að ljúka við þakið, setja stífur og framundan er að setja hellur inn í það og fyrir framan. PALLURINN Vinna er hafin við að endurnýja pallinn framan við skálann og stækka en áætlað er að efniskostnaður verð ekki undir 200 þúsund krónur. Nú er verið að setja þar niður plaströr sem verður steypt í fyrir nýjar undirstöður. NÝR STÍGUR Í tengslum við heimsmótið sinntu skátarnir samfélagsverkefnum. Eitt þeirra var að leggja stíg í gegnum skóginn ofan við Skátalund. Unnu skátarnir stíginn i samvinnu við Hafn arfjarðarbæ. Ekki var lokið við stíginn en það verður gert í samvinnu skóg
<<Nafn>> <<Maki>> <<Heimili>> <<Postfang>> Tilbakasendist á: Hönnunarhúsið ehf., Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Starfsáætlun Október Gildisfundur í Skátalundi kl. 20. Súpa með léttu ívafi í umsjón Þóreyjar. Vináttudagur gildanna kl. 14 - nánar síðar
11. október 29. október
Nóvember Gildisfundur í Hraunbyrgi kl. 20 - Umsjón Edda M. Friðarloginn afhentur í Klaustrinu
8. nóvember nóvember
Desember desember 9. desember
Friðarloginn afhentur í kirkjum með Hraunbúum Jólafundur skátagildanna í Hafnarfirði í Skátalundi kl. 14
Janúar 11./17. janúar
Gildisfundur í Hraunbyrgi kl. 20 - öðrum gildum boðið
Febrúar 28. febrúar
Aðalfundur kl. 20- öðrum gildum boðið
Mars 16. mars
Kótelettukvöld í Hraunbyrgi - Taktu kvöldið frá! Flesta sunnudagsmorgna mæta félagar úr skálahópnum í Skátalund kl. 10-12. Kaffi á könnunni. Allir velkomnir! Finndu Skátalund á Facebook
St. Georgsgildið í Hafnarfirði Stofnað 22. maí 1963
http://stgildi.hraunbuar.is og Skátagildi á Facebook