Tinna Gilbertsdóttir, formaður Kvenna í sjávarútvegi (KIS)
Erfitt að yfirgefa sjávarútveginn
8 Linda Ósk Kjartansdóttir, fjármálasjóri Ganta í Grindavík Karllægur heimur en það er að breytast
12 Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS Konur í sjávarútvegi, Þuríður formaður og Kambsránið
16
Fanney Björk Friðriksdóttir, verkefnastjóri starfsmannamála og skjalavinnslu hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Brim Hægt að vera eins og mús en þá gerist lítið
20 Silja Baldvinsdóttir, gæðastjóri Arnarlax „Eiginlega enginn dagur eins“
24 Þormóður Dagsson, markaðs- og samskiptastjóri Matís Verðmætasköpun úr laxablóði
28 Ingigerður Helgadóttir er flokksstjóri í uppsjávardeild Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum Ég held að þau séu öll sátt við mig
34 Vorblanda með túnfiski
Útgefandi: Tímaritið Sjávarafl ehf
Sími: 6622 600
Ritstjóri og
ábyrgðarmaður: Elín Bragadóttir elin@sjavarafl.is
Vefsíða: www.sjavarafl.is
Blaðamenn: Bára Huld Beck
Guðrún Erlingdóttir
Óskar Þór Halldórsson
Sigrún Erna Geirsdóttir
Svava Jónsdóttir
Ljósmyndir: Óskar Ólafsson
Prófarkalestur: Óskar Ólafsson
Umbrot og hönnun: Prentmet Oddi ehf
Forsíðumynd: Óskar Ólafsson
Prentun: Prentmet Oddi ehf
Konur eru konum bestar
Konur í sjávarútvegsgeiranum á Íslandi eru nú orðnar ómissandi hluti af þeirri menningu og hefð sem tengist þessum mikilvæga atvinnuvegi. Þó að sjávarútvegur hafi oft verið talinn karlmannsheimur hefur þátttaka kvenna aukist gífurlega á síðustu áratugum. Mikilvægi kvenna í sjávarútvegsgeiranum eru í öllum störfum, frá veiðum til vinnslu, þar sem þær sjá um að tryggja að auðlindir séu nýttar skynsamlega og að framleiðslan sé árangursrík. Þær koma einnig að nýsköpun og rannsóknum í sjávarútvegi, þar sem þær hvetja til sjálfbærni og betri nýtingar á auðlindum. Í þessu skyni hafa konur sýnt að þær hafa ekki aðeins hæfileika, heldur einnig ferskar hugmyndir sem geta leitt til arðbærra aðferða og tækni, sem eru nauðsynlegar fyrir framtíð okkar takmörkuðu auðlindar.
Með því að hvetja til fleiri tækifæra og veita konum aðgang að menntun og þjálfun erum við að leggja grunn að því að byggja upp framtíð sjálfbærs sjávarútvegs. Konur sjávarútvegsins eru ekki aðeins að efla eigin stöðu, heldur einnig að greina og þróa nýjar leiðir til að hámarka velgengni atvinnuvegarins. Til að tryggja frekari aukningu á þessari jákvæðu þróun eru áherslur á jafnrétti og fjölbreytileika bráðnauðsynlegar. Með sameiginlegum krafti getum við tryggt að íslenskur sjávarútvegur verði áfram leiðandi atvinnugrein með djúpan skilning á gildi kvenna í öllum hennar þáttum.
Páskaútgáfa Sjávarafls er sérstaklega tileinkuð konum í sjávarútvegsgeiranum sem með dugnaði og ástríðu móta iðnaðinn. Þessar konur eru hvatamenn breytinga og hafa lagt sitt af mörkum til sjálfbærni og nýsköpunar. Við fögnum þeirra framlagi og styrk sem skapar betri framtíð fyrir sjávarútveginn.
Elín Bragadóttir ritstjóri
Bára Huld Beck blaðamaður
Óskar Þór Halldórsson blaðamaður
Svava Jónsdóttir blaðamaður
Guðrún Erlingsdóttir blaðamaður
Óskar Ólafsson ljósmyndari og prófarkalesari
Sigrún Erna Geirsdóttir blaðamaður
Síldarvinnslan hf. óskar starfsfólki og landsmönnum öllum gleðilegra páska
KIS skipuleggur alls kyns tengslamyndunar- eða fræðslutengda viðburði ásamt því að fara í skipulagðar heimsóknir til fyrirtækja í sjávarútvegi. Mynd: Aðsend
Erfitt að yfirgefa sjávarútveginn
Formaður Kvenna í sjávarútvegi segir að þegar hún steig fyrstu skrefin í bransanum hafi framtíðin verið ráðin. Hún hefur á starfsferli sínum sankað að sér mikilli reynslu og margþættri þekkingu – allt frá kortlagningu virðiskeðja til markaðs- og tryggingamála. „Það er ótrúlega erfitt að fara alveg út úr sjávarútvegi þegar maður er kominn inn í hann.“
Tinna Gilbertsdóttir, formaður Kvenna í sjávarútvegi (KIS) og viðskiptastjóri hjá VÍS tryggingum, hefur starfað um árabil í sjávarútveginum og þekkir hann inn og út – og út frá hinum ýmsu sjónarhornum. Hún er menntaður stjórnmálafræðingur og vann einnig í opinberri stjórnsýslu fyrstu ár starfsævinnar, bæði í utanríkis- og forsætisráðuneytinu, sem og sem ritari nokkurra utanríkisráðherra. „Ég vatt svo kvæði mínu í kross og fór í master í alþjóðaviðskiptum. Fyrir algjöra tilviljun byrjaði ég í sumarstarfi hjá Brim hf. sem heitir nú Útgerðarfélag Reykjavíkur. Þar átti ég að kanna möguleika á þurrkuðum afurðum inn til Asíu fyrir Laugafisk sem þá var dótturfélag fyrirtækisins. Það sumarstarf endaði í fastráðningu og þá var einhvern veginn búið að markera spor mín inn í sjávarútveginn. Ég hef ekki getað skilið við hann síðan. Þá var framtíðin í raun ráðin því að það er ótrúlega erfitt að fara alveg út úr sjávarútvegi þegar maður er kominn inn í hann. Það segja þetta margir,“ segir hún.
Langaði að henda sér í atið Tinna vann náið með Guðmundi Kristjánssyni eiganda Útgerðarfélags Reykjavíkur og Ingu Jónu Friðgeirsdóttur sem var framkvæmdastjóri fyrirtækisins á þessum tíma. „Ég er alltaf þakklát henni fyrir að hafa
ráðið mig – að hún hafi ákveðið að veðja á mig. Þá fór ég í að kortleggja virðiskeðjuna í sjávarútveginum. Fyrirtækið vildi færa sig nær kaupandanum og skilja markaðina aðeins betur sem þau voru að selja vörur sínar inn á. Það var alveg hrikalega skemmtileg innsýn inn í útgerðirnar.“
Hún sá síðar tækifæri í að fara yfir til Iceland Seafood þar sem hún vann á sjófrysti- og uppsjávarsviði sem sölustjóri í 13 ár eða frá 2012 til 2025. „Mig langaði smá að henda mér í atið, að vera að kaupa og selja – og flytja vörur út. Það var frábært að vinna þar. Þetta átti að vera smá innsýn inn í þennan heim og smá reynsla en þetta endaði í þrettán árum,“ segir hún og hlær.
Þar tók hún þátt í að byggja upp markaðinn í Tyrklandi meðal annars fyrir ufsa og makríl. „Hann varð, og er enn, mjög mikilvægur markaður fyrir íslenskan sjávarútveg. Ég vann einnig mikið inn á markaði í Asíu og S-Evrópu.“
„Það
sumarstarf endaði í fastráðningu og þá var einhvern veginn búið að markera spor mín inn í sjávarútveginn. Ég hef ekki getað skilið við hann síðan.“
Reynslan nýtist vel
Fyrir einu ári ákvað Tinna að venda kvæði sínu enn og aftur í kross þegar hún kastaði sér í djúpu laugina og fór að starfa í tryggingabransanum. Hún starfar fyrir VÍS í dag en ástæðan fyrir því að hún fór þangað er að fyrirtækið vildi stækka hlut sinn í sjótryggingum. „VÍS hefur tryggt stóra og smáa aðila í sjávarútveginum frá upphafi en það var vilji til þess að setja enn meiri fókus á sjávarútveginn. Við erum tvö í teymi með þetta sem sérstakan fókus hjá fyrirtækinu.“
Fyrir ári síðan ákvað Tinna að venda kvæði sínu í kross þegar hún kastaði sér í djúpu laugina og fór að starfa í tryggingabransanum. Mynd: Aðsend.
„Sjórinn hefur alltaf heillað mig. Ég man að þegar ég var lítil fór ég oft á bryggjurúnt með pabba.“
Þannig gat Tinna ekki alveg sagt skilið við sjávarútveginn enda nýtist reynsla hennar vel í störfum hennar fyrir VÍS. „Núna er ég í beinu sambandi við útgerðaraðila og önnur sjávarútvegstengd félög, eins og ég vil hafa það.“
Sjórinn hefur alltaf kallað
Hvað er það sem heillar eða heldur fólki í geiranum?
„Sjórinn hefur alltaf heillað mig. Ég man að þegar ég var lítil fór ég oft á bryggjurúnt með pabba. Þegar ég fékk bílpróf og eignaðist bíl í fyrsta skiptið og fór í ísbíltúr með vinkonunum, þá dró ég þær oftar en ekki í bryggjurúnt í leiðinni til að skoða skipin. Sjórinn hefur alltaf einhvern veginn kallað á mig,“ svarar Tinna.
„Þegar ég talaði við útgerðaraðila á Fáskrúðsfirði þá var ég eilítill Fáskrúðsfirðingur í þeirra augum og þegar ég talaði við Grindvíkingana þá var ég Grindvíkingur – og svo smá Vestmannaeyingur líka.“
Móðurætt hennar er frá Fáskrúðsfirði og föðurættin frá Vestmannaeyjum en hún átti einnig ömmu og afa sem bjuggu í áratugi í Grindavík. Þessar tengingar hentuðu Tinnu mjög vel því þrátt fyrir að vera uppalin á höfuðborgarsvæðinu þá var gott að geta sagt frá upprunanum við ákveðnar aðstæður. „Þegar ég talaði við útgerðaraðila á Fáskrúðsfirði þá var ég eilítill Fáskrúðsfirðingur í þeirra augum og þegar ég talaði við Grindvíkingana þá var ég Grindvíkingur – og svo smá Vestmannaeyingur líka. Þannig að það er mjög hentugt í þessum bransa að eiga uppruna sinn í sjávarplássum og að hafa slitið barnsskónum þar að hluta.“
Sjávarauðlindin er gersemi Íslendinga
Tinna segir að það sem heilli við sjávarútveginn sé meðal annars að hann sé undirstöðuatvinnuvegur Íslendinga. „Í rauninni það sem við þurfum að gera er að fara vel með þessa auðlind af því að hún er gersemin okkar sem endurnýjar sig sjálf.“
Hún bendir á að ótrúleg framþróun sé búin að eiga sér stað undanfarna áratugi og mikil gróska innan sjávarútvegarins. „Og spretta í fyrirtækjaflórunni. Maður fyllist svo miklu stolti af því að til dæmis hvert einasta snitti af afurðinni er nýtt og það er svo mikil nýsköpun alltaf í gangi.“
Tinna segir að mikil samstaða sé milli kvenna í KIS þar sem reynsla og þekking nýtist öðrum konum. Mynd: Þórkatla Sif Albertsdóttir
„Í rauninni það sem við þurfum að gera er að fara vel með þessa auðlind af því að hún er gersemin okkar sem endurnýjar sig sjálf.“
Svo má ekki gleyma fólkinu, að hennar mati. Flestir haldast vel og lengi í geiranum en hún segir að sem betur fer sé endurnýjun. „Fólk er alltaf að horfa meira og meira til þess hvað þetta sé spennandi bransi. Það er gaman að sjá ungt fólk fara í sjávarútvegsfræðina og sækjast í að starfa í sjávarútveginum. En fólkið í bransanum er að eldast og þess vegna þarf mögulega enn hraðari nýliðun.“
Ekki lengur bara „svört jakkaföt“ á
Sjávarútvegsráðstefnunni
Tinna bendir á þegar hún er spurð hvaða breytingar hún greini á þessum árum í starfi að starfsmannaflóran sé aðeins að verða fjölbreyttari. „Það eru ekki bara „svört jakkaföt“ á Sjávarútvegsráðstefnunni í Hörpu. Þetta er aðeins orðið fjölbreyttara – ekki bara karlmenn á miðjum aldri,“ segir hún og bætir því við að þegar hún hafi mætt á fyrstu ráðstefnuna sem var á Grand hótel, þá nýbyrjuð í bransanum, þá sló það hana hversu mikið var af karlmönnum á virðulegum aldri í dökkum jakkafötum í salnum. „En núna greinir maður meiri fjölbreytileika í salnum, sem er frábært.“
„Fólk er alltaf að horfa meira og meira til þess hvað þetta sé spennandi bransi. Það er gaman að sjá ungt fólk fara í sjávarútvegsfræðina og sækjast í að starfa í sjávarútveginum.“
Hvernig sérðu framtíð sjávarútvegsins fyrir þér?
Tinna segist hræðast það ef fiskvinnsla færist til útlanda í kjölfarið af hækkuðum veiðigjöldum. „Það væri mjög dapurlegt að sjá það gerast því við erum búin að ná svo miklum árangri í vinnslu hérlendis. Ég myndi ekki vilja sjá aukningu á gámafiski og lítið unn-
Sjórinn hefur alltaf kallað, að sögn Tinnu. Þegar hún fékk bílpróf og eignaðist bíl í fyrsta skiptið og fór í ísbíltúr með vinkonunum, þá dró hún þær oftar en ekki í bryggjurúnt í leiðinni til að skoða skipin. Mynd: Aðsend
Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir mætti á aðalfund KIS, ásamt Birnu Einarsdóttur fyrrverandi bankastjóra Íslandsbanka. Mynd: Þórkatla Sif Albertsdóttir
um fiski úr landi – og missa þá þann damp sem við höfum náð að byggja upp af mikilli seiglu og áræðni.“
Hún telur að ekki sé hægt að halda áfram að ganga lengra og lengra með gjaldheimtu á sjávarútveginn. „Þetta er bara aukin skattheimta sem verið er að leggja á sjávarútveginn núna. Það þarf að stíga mjög varlega til jarðar þar. Í rauninni óttast ég ekki framtíð sjávarútvegsins nema að þessu leyti. Ég vil alls ekki sjá lítil og meðalstór fyrirtæki í sjávarútvegi leggja upp laupana því þau ráði ekki við aukin veiðigjöld og að fiskvinnsla fari í auknum mæli úr landi.“
Tryggingaþörf eins og fingrafar
Hvernig er svo að vera komin í tryggingabransann?
„Mín fyrsta upplifun var að hugsa hvað þetta væri virkilega skemmtilegur bransi. Ég fékk þörf fyrir það að takast á við nýjar áskoranir en einmitt með sjávarútvegsvinklinum áfram. Ég vildi halda mér innan þeirra marka,“ svarar Tinna og segir að enginn dagur sé eins í tryggingaheiminum. „Þörf á tryggingavernd fyrirtækja er aldrei eins. Hún er eins og fingrafar, það er enginn með eins tryggingaþörf eða tryggingavernd. Það eru síbreytilegar þarfir hjá fyrirtækjum, þau eru að stækka eða kaupa nýja báta eða togara – minnka við sig á ákveðnum sviðum og auka uppbyggingu annars staðar. Maður þarf einhvern veginn alltaf að vera á tánum og hjálpa viðskiptavinum sínum að vera rétt tryggður og verndaður fyrir alls konar áföllum sem geta komið upp. Það er ábyrgðarhluti að geta gert þetta vel. Þetta er hraður og mjög lifandi bransi og bara hrikalega skemmtilegt sjónarhorn á sjávarútveginn.“
„Þetta
er aðeins orðið fjölbreyttara –ekki bara karlmenn á miðjum aldri.“
Þannig er Tinna í rauninni búin að fara frá frumhlekkjum virðiskeðjunnar, inn í sölu- og markaðsstarf og er „núna komin í hliðarspegil“. Reynsla Tinnu nýtist gríðarlega vel í þessu starfi enda var hún sérstaklega fengin inn í fyrirtækið vegna þess. „Ég er í hraðferð að læra inn á tryggingaheiminn en mín tengsl inn í sjávarútveginn voru það sem gáfu mér þetta tækifæri. Það kemur sér vel í starfinu að vera með reynslu af sjávarútvegi og að getað talað tungumálið . Ég segi stundum: Ég hef keypt og selt fisk, flutt hann út, en nú ætla ég að tryggja fiskinn,“ segir hún og kímir.
KIS vill gera konur sýnilegri
Tinna er, eins og áður segir, formaður Kvenna í sjávarútvegi (KIS) sem stofnað var árið 2013 af hópi kvenna sem fann fyrir þörf á aukinni tengingu, samstarfi og eflingu kvenna í greininni. Markmið félagsins er að gera konur sýnilegri bæði innan sjávarútvegsins og utan hans og að fá fleiri konur til liðs við hann. Félagsmenn eru rúmlega 300 talsins.
Markmið KIS er að gera konur sýnilegri bæði innan sjávarútvegsins og utan hans og að fá fleiri konur til liðs við hann. Félagsmenn eru rúmlega 300 talsins. Mynd: Þórkatla Sif Albertsdóttir
KIS skipuleggur alls kyns tengslamyndunar- eða fræðslutengda viðburði ásamt því að fara í skipulagðar heimsóknir til fyrirtækja í sjávarútvegi þar sem markmiðið er að kynnast öðrum konum í greininni, læra og auka skilning á sjávarútveginum og fjölbreytni fyrirtækja og stofnana innan hans. Tinna segir að ávallt sé vel tekið á móti þeim. „Við erum búnar að fara um allt land og heimsækja vinnslur og útgerðir sem tengdar eru sjávarútveginum.“
„Þetta
er bara aukin skattheimta sem verið er að leggja á sjávarútveginn núna. Það þarf að stíga mjög varlega til jarðar þar.“
Hvert ár fara þær í vorferð sem er hápunktur árlegra viðburða. Tilgangurinn með þessari árlegu ferð er að styrkja sambönd þeirra á meðan þær læra og víkka sjóndeildarhringinn. „Þetta er frábær félagsskapur með flottum konum og valdeflandi hópur. Það myndast sterkt tengslanet hjá okkur sem þarna erum,“ segir Tinna.
Mikil samstaða meðal kvenna
Konurnar í KIS vinna að því að auka sýnileika kvenna í greininni og búa til vettvang þar sem reynsla og þekking kvenna fær að njóta sín. „Það skiptir máli að öll sjónarhorn hafi rými og við erum búnar að auka sýnileika okkar innan greinarinnar með þessu flotta félagi okkar. Við viljum líka byggja upp okkar samfélag þannig að við getum styrkt hver aðra,“ bendir Tinna á.
Þannig sé mikil samstaða milli kvenna í félaginu þar sem reynsla og þekking nýtist öðrum konum. „Við látum til dæmis hver aðra vita af tækifærum innan greinarinnar.“
„Þetta
er frábær félagsskapur með flottum konum og valdeflandi hópur. Það myndast sterkt tengslanet hjá okkur sem þarna erum.“
Framundan hjá félaginu er rannsókn á stöðu kvenna innan greinarinnar sem framkvæmd verður á árinu. KIS hefur það að markmiði að framkvæma slíka rannsókn á fimm ára fresti og hafa tvær rannsóknir verið framkvæmdar nú þegar. Niðurstöður þeirra rannsókna sýndu meðal annars fram á það að staða kvenna í stjórnunarstöðum innan greinarinnar væri ekki ásættanleg – þar mætti spýta í lófana og gera betur. „Við viljum sjá hlut kvenna í æðstu stjórnunarstöðum innan fyrirtækja í greininni aukast enn frekar. Það verður áhugavert að sjá hvort við sjáum breytingu þar á núna í ár þegar við birtum niðurstöður rannsóknarinnar,“ segir Tinna að lokum.
Borgarfjarðarhöfn
Ports of Múlaþing
Hafnir Múlaþings óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra páska
Múlaþings
Djúpavogshöfn
Ports of Múlaþing
Seyðisfjarðarhöfn
Ports of Múlaþing
Karllægur heimur en það er að breytast
Linda Ósk Kjartansdóttir er fjármálasjóri útgerðarfyrirtækisins Ganta í Grindavík. Hún ólst upp í Grindavík, en flutti til Reykjanesbæjar í kjölfar náttúruhamfaranna á svæðinu, og byrjaði á unglingsárum að vinna hjá útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækinu Þorbirni á sumrin. Í dag er hún í stjórn Félags kvenna í sjávarútvegi. Ganti á ísfisktogarann Huldu Björnsdóttur GK sem er einn hátæknivæddasti ísfisktogari landsins. „Í janúar byrjuðum við með vinnslu sem kallast Ganti Seafood og kaupir vinnslan sitt hráefni af Huldu og selur léttsaltaðan frystan fisk til Spánar.“
Linda Ósk Kjartansdóttir ólst upp í Grindavík. „Eins og flestir vita er sjávarútvegurinn hjartað í Grindavík. Báðir foreldrar mínir hafa unnið við sjávarútveg, pabbi minn og bræður hafa allir verið á sjó og systir mín vann við fiskvinnslu sem unglingur þannig að við höfum öll verið viðloðandi sjávarútveg á einhverjum tímapunkti.“
Linda Ósk vann í tvö sumur á unglingsárunum í humri hjá útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækinu Þorbirni. Hún hóf fyrir rúmum áratug nám í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri og útskrifaðist fjórum árum síðar. „Ég byrjaði að vinna á skrifstofunni hjá Þorbirni árið 2020 og var í bókhaldi og launum. Svo hægt og rólega fékk ég fleiri tækifæri og verkefni og meiri ábyrgð.
Eins og flestir vita er sjávarútvegurinn hjartað í Grindavík.
Linda Ósk í skíðaferð í St. Anton í Austurríki. Mynd: Aðsend
„Greinin hefur kannski verið talin karlæg í gegnum tíðina en ég hef upplifað hana sem mjög faglegt starfsumhverfi. Ég hef notið góðs trausts í mínu starfi og finnst jákvætt að sjá fleiri konur taka að sér ábyrgðarhlutverk í sjávarútvegi.“ Mynd: Aðsend
Í kjölfar rýmingarinnar árið 2023 ákváðu stjórnendur fyrirtækisins að gera skipulagsbreytingar á fyrirtækinu og rekstri þess og við uppskiptinguna var mér boðið starf sem fjármálastjóri hjá Ganta,“ segir Linda Ósk en Ganti er eitt af fyrirtækjunum sem urðu til í kjölfarið. „Það var stórt skref fyrir mig persónulega að taka við því og ég er mjög þakklát fyrir það traust sem þau sýndu mér að fá mig í þetta starf.
Við erum ekki mörg í þessu fyrirtæki þannig að maður kemur nánast að öllu sem tengist rekstrinum.
Ég ber ábyrgð á fjármálum fyrirtækisins svo sem bókhaldi, uppgjörum og fjárhagsáætlunum. Ég sé sömuleiðis líka um allt aflabókhald - set inn allan aflann og geri reikninga fyrir því. Við erum ekki mörg í þessu fyrirtæki þannig að maður kemur nánast að öllu sem tengist rekstrinum. Við erum öll að reyna að gera þetta saman og það er ótrúlega gaman og lærdómsríkt að geta verið í öllum hornum.“ Í stjórn KIS
Linda segir að í sínum augum sé það eðlilegt að vera kona í sjávarútvegi, enda margar konur sem vinna í greininni. „Ég er 37 ára og er svo sem ekki búin að eiga langan starfsaldur í þessari grein. Greinin hefur kannski verið talin karlæg í gegnum tíðina en ég hef upplifað hana sem mjög faglegt starfsumhverfi. Ég hef notið góðs trausts í mínu starfi og finnst jákvætt að sjá fleiri konur taka að sér ábyrgðarhlutverk í sjávarútvegi.
Það hefur orðið mjög mikil þróun í mörgum störfum og er mjög gott að vera partur af félagi kvenna í sjávarútvegi, KIS.
Það hefur orðið mjög mikil þróun í mörgum störfum og er mjög gott að vera partur af félagi kvenna í sjávarútvegi, KIS, og geta hitt aðrar konur þar sem eru í sama geira, fá að kynnast þeim, þeirra störfum og læra hver af annarri og við deilum reynslum. Ég er búin að kynnast fullt af flottum konum þar og þeim fer fjölgandi.“ Um 350 konur eru meðlmir í KIS og er Linda Ósk nýlega komin í stjórn félagsins. „Félagið var stofnað árið 2013 en konur í sjávarútvegi fundu þörf fyrir að auka tengingu á milli þessara greina og auka sýnileika kvenna í sjávarútvegi. Það
er ótrúlega gott og uppbyggilegt að hittast til dæmis á viðburðum og spjalla.“ Á heimasíðu KIS stendur: „KIS var stofnað af hópi kvenna árið 2013 til að styrkja og efla konur í íslenskum sjávarútvegi og tengdum greinum með samstöðu, krafti, hjálpsemi og jákvæðni að leiðarljósi.“
Viljum vera dugleg að ferðast
Eins og þegar hefur komið fram býr Linda Ósk nú í Reykjanesbæ ásamt fjölskyldunni en hún og eiginmaður hennar byggðu þar hús eftir rýmingu. „Ég er gift Daníel Guðna en við kynntumst í gegnum sameiginlegan vin og höfum við verið í sambandi síðan 2008. Við höfum búið saman á mörgum stöðum, meðal annars í Svíþjóð þar sem hann var í námi. Saman eigum við þrjú börn á grunnskólaaldri. Þau eru öll í íþróttum og áhugasvið fjölskyldunnar er þar sömuleiðis svo mikið af okkar tíma fer í að fylgja þeim á æfingar og keppni sem er virkilega skemmtilegt. Á yngri árum var ég sjálf mikið í íþróttum og spilaði fótbolta einna helst. Í dag finnst okkur fjölskyldunni einnig mjög gaman að fara á skíði þegar tækifæri gefst. Ég spila líka blak ásamt fleiri stelpum úr Grindavík og við reynum að æfa saman reglulega og keppa svo einu sinni á ári. Það er gott fyrir okkur að viðhalda vináttunni þannig og gera skemmtilega hluti saman þó við séum dreifðar um landið.
Fyrir mér er mikilvægt að leggja sig fram í því sem maður tekur sér fyrir hendur, vera jákvæð og halda góðu jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs. Fjölskyldan og vinir eru mér mjög mikilvæg. Við viljum vera dugleg að ferðast, hvort sem það sé innan- eða utanlands, og skapa minningar saman því tíminn líður líka oft mun hraðar en maður vill.“
Fyrir mér er mikilvægt að leggja sig fram í því sem maður tekur sér fyrir hendur, vera jákvæð og halda góðu jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs.
Hjónin í Feneyjum. Mynd: Aðsend
Hulda Björnsdóttir GK
Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Þorbjörn var stofnað árið 1953. Í lok árs 2024 var Þorbirni skipt upp í þrennt eins og þegar hefur komið fram og eru nýju fyrirtækin Ganti ehf., Þorbjörn ehf. og Grindavík Seafood. Ganti er sjávarútvegsfyrirtæki sem leggur áherslu á ferskleika og gæði sjávarafurða. Starfsmenn á skrifstofunni eru fimm.
Í desember 2024 keypti Ganti ísfisktogarann Huldu Björnsdóttur GK af Þorbirni. Skipasýn hannaði togarann í samvinnu við kaupendur hans og var hann smíðaður á Spáni og kom því nýr til landsins. Togarinn er 58 metra langur og 13,60 metrar á breidd og er einn hátæknivæddasti ísfisktogari landsins.
Ísfisktogarinn er gerður út til bolfiskveiða. Tvær fimmtán manna áhafnir eru á skipinu og skipta þær með sér túrum á þriggja vikna fresti.
„Við erum mestmegnis að landa í Grindavík og seljum á markað og erum við einnig að selja til annarra fyrirtækja á Íslandi. Í janúar byrjuðum við með vinnslu sem kallast Ganti Seafood sem vinnur hráefni frá Huldu og selur léttsaltaðan frystan fisk til Spánar.“
Við erum mestmegnis að landa í Grindavík og seljum
á markað og erum við einnig að selja til annarra fyrirtækja á Íslandi. Í janúar byrjuðum við með vinnslu sem kallast Ganti Seafood sem vinnur hráefni frá
Huldu og selur léttsaltaðan frystan fisk til Spánar.
Vinnsla var á árum áður í núverandi húsnæði þar sem vinnsla Ganta Seafood fer fram í dag og þurfti að gera húsnæðið alveg upp árið 2025, gera alls kyns breytingar allt frá því að rífa niður veggi til að endurnýja móttökukælinn og stækka hann í leiðinni og að koma fyrir vinnslulínu, hausara, flökunarvél og fleira. Og í dag er vinnslan komin þar á fullt.
Að byggja upp samfélag
Náttúruöflin hafa skekið Grindavík og segir Linda Ósk að þetta sé allt saman búið að vera sérstakt en að fólk hafi haldið góðum tengslum og að starfsumhverfið sé gott. Hún flutti til Reykjanesbæjar vegna jarðhræringanna eins og þegar hefur komið fram. „Það var mikið áfall fyrst
Fjölskyldan á skíðum á Akureyri. Mynd: Aðsend
þegar þetta gerðist allt saman en Grindvíkingar eru samheldið samfélag og eru þeir að byggja upp bæinn aftur. Flest fyrirtækin á svæðinu eru til að mynda að styrkja íþróttaliðin sem spila áfram undir merkjum Grindavíkur og nú í Grindavík en kappleikirnir hafa reynst haldreipi samfélagsins frá rýmingu. Það hefur verið fólkinu mikilvægt að hittast reglulega á körfubolta- og fótboltaleikjum og halda í vinasambönd, bæði hjá okkur fullorðna fólkinu og hjá börnunum.
Ég kem til Grindavíkur á hverjum virkum degi og finnst mér vera ótrúlega gott að halda tengingunni við bæinn. Það er alltaf gott að sjá Huldu koma í land á þriðjudögum og sjá höfnina lifna við.“
Ég kem til Grindavíkur á hverjum virkum degi og finnst mér vera ótrúlega gott að halda tengingunni við bæinn. Það er alltaf gott að sjá Huldu koma í land á þriðjudögum og sjá höfnina lifna við.“
Hópmyndin var tekin þegar konur í KIS voru í vorferð 2024 í Færeyjum. Þessi hópur er allur úr Grindavík og eru allar að vinna í sjávarútvegsfyrirtækjum í Grindavík. Mynd: Aðsend
Umhve ishæfari smurning
með Shell Panolin
Hágæða, niðurbrjótanleg smur- og vökvakerfisolía sem veitir framúrskarandi vernd í krefjandi aðstæðum, þar sem bæði afköst og umhverfissjónarmið skipta máli.
Hafðu samband, sími 444-3000 eða á www.skeljungur.is
Konur í sjávarútvegi, Þuríður formaður og Kambsránið
Kona ein var nefnd Þuríður formaður og var uppi á árunum 1777-1868. Hún er á vef Wikipediu sögð hafa verið einn mesti kvenskörungur í Árnesþingi á 19. öld. Það má einkum rekja til formennskutíðar hennar á báti en hún sótti sjóinn allt til ársins 1843. Formennska hennar þótti einstök á þeim tíma. Upphaf sjómennsku Þuríðar má rekja til vorvertíðar hjá föður hennar, þá 11 ára gömul. Rúmlega tvítug gerðist hún háseti og hafði þá róið á vor- og haustvertíðum frá upphafi sjómennsku. Það þætti vel af sér vikið í dag. Það er auðvelt að draga þá ályktun af sögunni um Þuríði að hún hafi í raun verið eina konan sem sótti sjó á þessum árum. Sú ályktun virðist þó heldur víðtæk. Fram kemur á vefnum skald.is, þar sem vitnað er til skrifa Þórunnar Magnúsdóttur, sagnfræðings og mannfræðingsins Margaretar Willson, að það hafi ekki verið „… tiltökumál að konur stunduðu sjóinn á 18. og 19. öld.“ Þórunn telur að allt að þriðjungur þeirra sem sóttu sjóinn á þeim tíma hafi verið konur. Margaret telur að ástæðan hafi verið sú „… að þar sem þjóðin var svo fámenn þurftu konur að ganga í öll störf. Þær fengu jafnan hrós og voru lofsamaðar fyrir.“ Eftir miðja 19. öldina hafi síðan orðið viðhorfsbreyting og konum til sjós fækkað.
Það fer vel á því að Sjávarafl skuli helga þetta tölublað konum í sjávar-
útvegi. Ég tilheyri þeim stóra hópi en greinin er þó ekki um mig. Svo sjálfmiðuð er ég ekki, þótt af sjósóknarfólki sé komin. Því er oft haldið fram að konur séu lítt sjáanlegar í sjávarútvegi. Það kemur ögn á óvart, því þær eru ein meginstoða hans. Þó virðist sem svo að fram hjá þeirra hlut sé litið þegar rætt er um sjávarútveg og að talið beinist oftar en ekki að körlunum sem sækja sjóinn. En eins og ráða má af því sem að ofan er skrifað virðist sem konur hafi sótt sjóinn nokkuð stíft, fyrr á tíð, en svo hafi úr dregið. Rétt er það að fáar eru konurnar um borð í skipum og bátum, en sjómenn eru bara hluti af jöfnunni. Þegar komið er með afla að landi er ýmislegt eftir svo fiskurinn verði að vöru og verðmætum. Þar er hlutur kvenna langtum stærri. Þótt ég hafi nú ekki kannað það í tölfræðigögnum hvernig skiptingin er í fiskvinnslum þá hef ég séð nógu margar vinnslur um dagana til að draga þá ályktun að konurnar ráði þar ríkjum. Áður en fiskur er veiddur þarf að rannsaka hvað óhætt er að veiða mikið á hverju fiskveiðiári. Ekki verður betur séð en að konur séu verulegur hluti vísindamanna Hafró. Svona mætti að sjálfsögðu lengi telja en það er óþarfi, konur eru og hafa verið veigamikill hluti af íslenskum sjávarútvegi.
Jón Kjartansson Eskifirði
Það sem dregið hefur úr sýnileika þeirra er sennilega skilgreiningaratriði; hvað er sjávarútvegur? Þegar hugtakið er skilgreint þröngt fáum við út þá sem sækja sjóinn; sjómenn. En við það hverfur stór hluti þeirrar virðiskeðju sem sjávarútvegur svo sannarlega er. Og þar eru konurnar í miklu stærra hlutverki. Þegar horft er til þess sem er að gerast í íslenskum sjávarútvegi nú um stundir sést að fjölmörg tækniog nýsköpunarfyrirtæki með tengsl við sjávarútveg eru að ná fótfestu. Þar veldur mestu að fyrirtækin hafa haft borð fyrir báru til að fjárfesta og styðja við frumkvöðla og nýsköpun. Þar hafa bæði konur og karlar verið áberandi.
Það er engin ástæða til að bera kvíðboga fyrir þátttöku kvenna í sjávarútvegi þegar til framtíðar er litið. Það sem veldur kannski smá óþægindum er að stjórnvöld hafa ákveðið að stórhækka álögur á sjávarútveginn. Það getur leitt til þess að mjög dragi úr vilja fyrirtækja til þess að fjárfesta í nýjungum og sprotum. Á þeim vettvangi eru margar konur. Ekki verður skilið við söguna af Þuríði formanni án þess að minnast á hennar hlut við lausn Kambsránsins svokallaða árið 1827. Þá rændu fjórir grímuklæddir menn miklum fjármunum af Hirti Jónssyni bónda á bænum Kambi í Flóa. Þuríður formaður bar þar kennsl á ýmislegt sem þjófarnir skildu eftir sig á vettvangi glæps. Þeir voru handteknir og fluttir í fangelsi í Kaupmannahöfn árið 1830. Þrír fengu sakaruppgjöf frá konungi árið 1844 en sá fjórði varð fyrir því óláni að vera hálshöggvinn 1834. Þuríður lést 1863, 86 ára, „furðanlega“ ern til hins síðasta.
Á Vopnafirði er heimavöllur vinnslu Brims á uppsjávarfiski en á milli 60 til 70 manns vinna á starfsstöðinni þar. Mynd: Brim hf.
Hægt að vera eins og mús en þá gerist lítið
Vopnfirðingurinn Fanney Björk Friðriksdóttir telur að tækifærum fyrir konur hafi fjölgað undanfarin ár í sjávarútvegi og að opnast hafi fyrir fleiri möguleika. Þrátt fyrir það þurfi þó stundum að trana sér fram og „sækjast eftir því sem maður vill“. Í samtali við Sjávarafl segir hún frá því hvernig leið hennar lá inn í sjávarútveginn, hvað starf hennar felur í sér og hvernig hún sér framtíðina fyrir sér.
Fanney Björk Friðriksdóttir, verkefnastjóri starfsmannamála og skjalavinnslu hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Brim, er meðlimur í Konum í sjávarútvegi (KIS) og segist hún með þeim hætti umkringja sig með konum í greininni. Hún telur að jákvæðar breytingar hafi orðið á síðustu árum varðandi sýnileika kvenna og tækifæri innan bransans – og að sjávarútvegsgeirinn hafi þannig „opnast meira fyrir konur“.
„En svo snýst þetta líka um að standa með sjálfri sér – eða vera ákveðin. Maður þarf stundum að hafa fyrir því að láta heyra í sér en það á svo sem við um alla“ segir Fanney Björk. Þarna er hún ekki einungis að tala um sjávarútveginn heldur almennt um viðskiptalífið. „Maður getur líka verið eins og einhver mús en þá kannski gerist lítið. Það þarf aðeins að trana sér fram sjálfur og sækjast eftir því sem maður vill – segja það upphátt og vinna markvisst að markmiðum sínum.“
Vann á vertíð með skóla Fanney Björk fæddist í Reykjavík árið 1993 og ólst upp á Vopnafirði en foreldrar hennar koma þaðan. Eftir nám við Menntaskólann á Akureyri sneri hún aftur heim á Vopnafjörð þar sem hún vann á vertíð til að safna pening til að geta farið í heimsreisu.
Hún hafði þó unnið á vertíð í uppsjávarfrystihúsinu með menntaskólanum. „Þá kviknaði svona einhver smá áhugi,“ segir hún og útskýrir að einn af hennar bestu vinum hafi farið í sjávarútvegsfræði í Háskólanum á Akureyri og í raun kynntist hún fyrst náminu í gegnum hann. „Þá fór ég aðeins að hugsa þetta, hvort þetta væri ekki eitthvað sem væri sniðugt fyrir mig.“
Eftir heimsreisuna og þessa íhugun þá lá leiðin einmitt í sjávarútvegsfræði í Háskólanum á Akureyri. Eftir námið árið 2015 fastréð hún sig hjá Brim á Vopnafirði. „Já, og ég hef í rauninni bara verið hér síðan, sko.“ Brim stundar veiðar og vinnslu á botn- og uppsjávarfiski og hefur starfsstöðvar á fjórum stöðum á landinu. Hjá fyrirtækinu eru unnin um 800 ársverk bæði til sjós og lands. Það framleiðir afurðir úr ferskum fiski sem aflað er úr hafinu við Íslandsstrendur.
„En svo snýst þetta líka um að standa með sjálfri sér – eða vera ákveðin.“
Fanney Björk er búin að fara frá því að vera almennur starfsmaður á vertíðum yfir í að vera treyst til að vera vaktformaður. Hún vann einnig í gæðamálum og núna er hún verkefnastjóri á uppsjávarsviði og í mannauðsmálum. Mynd: Aðsend
Afurðirnar eru seldar um allan heim en helstu markaðir eru í Evrópu, Asíu, Norður-Ameríku og Afríku. Á vefsíðu fyrirtækisins segir að virðing fyrir umhverfinu og lífríki sjávar sé grundvöllur starfsemi þess og að lögð sé áhersla á góða umgengni um auðlindina og ábyrgar fiskveiðar svo komandi kynslóðir geti notið hennar áfram.
Ýmis hlutverk mátuð
Fanney Björk og fjölskylda hennar unir vel við sitt á Vopnafirði en að nógu er að huga. Hún kynntist eiginmanni sínum í vinnunni og átti hann þrjú börn fyrir. „Svo áttum við saman þrjú börn til viðbótar,“ segir hún. Elsti strákurinn þeirra saman er byrjaður í grunnskóla og tvær yngri stelpur eru í leikskóla.
Þegar hún er spurð út í starf hennar hjá Brim í gegnum tíðina segir hún að hún sé búin að prófa ýmislegt. „Mér finnst það í rauninni mjög dýrmætt. Ég er búin að fara frá því að vera bara svona almennur starfsmaður á vertíðum – í vinnslunni og skolinu – yfir í að vera treyst til að vera vaktformaður. Svo fór ég aðeins í gæðamálin eða gæðastjórann. Núna er ég verkefnastjóri á uppsjávarsviði og í mannauðsmálum,“ útskýrir hún.
„Ég er mjög þakklát fyrir það hvað ég er komin með víðtæka sýn.“
„Ég er mjög þakklát fyrir það hvað ég er komin með víðtæka sýn,“ segir hún og bætir því við að með því að starfa á svo fjölbreyttum sviðum innan fyrirtækisins þá geri það henni kleift að fá ákveðna heildarmynd af rekstri fyrirtækisins.
Vopnafjörður heimavöllur uppsjávarvinnslu Brims Starfsstöðvar Brims á landi eru í Reykjavík, á Vopnafirði og á Akranesi. Við Norðurgarð í Reykjavík er aðalskrifstofa Brims en þar er einnig botnfiskvinnslan sem tilheyrir nýjustu kynslóð tæknivæðingar í vinnslu á sjávarafurðum. Á skrifstofunni er yfirstjórn botnfisk- og uppsjávarsviðs staðsett ásamt fjármálasviði. Í botnfiskvinnslunni eru fjölmörg og fjölbreytt störf en þar eru framleiddir þúsundir matarskammtar á hverjum degi úr hágæða hráefni. Í uppsjávarvinnslu Brims á Akranesi eru unnin loðnuhrogn. Vinnslan er eingöngu starfrækt á loðnuvertíðinni frá febrúar til mars. Húsnæðið er sérhæft og starfsfólkið sérþjálfað í vinnslu á loðnuhrognum. Á Akranesi er einnig starfrækt fiskmjölsverksmiðja sem vinnur úr hliðarafurðum úr loðnu- og botnfiskvinnslu.
„Mér fannst uppsjávargeirinn mjög
skemmtilegur og spennandi eftir að ég prufaði að vinna á vertíð.“
Á Vopnafirði er heimavöllur vinnslu Brims á uppsjávarfiski. Einnig er þar starfrækt fiskmjölsverksmiðja og efnarannsóknarstofa þar sem framkvæmdar eru mælingar á ferskleika, fituinnihaldi og fleiru sem tengist starfseminni. Á milli 60 til 70 manns vinna á starfsstöðinni á Vopnafirði. Fanney Björk segir að stór fyrirtæki á borð við Brim skipti miklu máli fyrir lítil samfélög eins og Vopnafjörð.
Tækifærin eftir námið heilluðu
Starfsstöð Fanneyjar Bjarkar er auðvitað á Vopnafirði en hún þarf þó að ferðast um landið, til að mynda til Akraness. „Það er orðið aðeins meira flakk á mér en það er nú bara skemmtilegt að sjá eitthvað nýtt,“ segir Fanney Björk.
Hvað varð til þess að þú fórst í sjávarútvegsfræði? Hvað heillar við þennan bransa?
„Sko, ég er ekki viss um að ég hefði farið í þetta nám hefði ég byrjað í bolfiskvinnslu. Ég var alltaf með svolitla fordóma fyrir fiskvinnslu, sem stafaði af algjöru þekkingarleysi. Mér fannst uppsjávargeirinn mjög skemmtilegur og spennandi eftir að ég prufaði að vinna á vertíð en þetta snerist svolítið mikið um tækni. Síðan er mikið um eftirlitsstörf og svoleiðis og auðvitað eru miklu miklu víðtækari störf innan sjávarútvegs heldur en ég hélt og sá á þeim tíma. Þetta er ekki bara að flaka og snyrta, eins og ég hélt þá,“ segir hún.
„Það er svo mismunandi hvaða nám fólk er að taka eftir sjávarútvegsfræðina og framtíðarmöguleikar eru margir.“
„Hitt heillaði mig meira og þau tækifæri sem námið gefur,“ segir hún og útskýrir að möguleikarnir séu þannig margir að námi loknu. Ekki var verra að geta haft tækifæri á að vinna á Vopnafirði. „Svo ef ég vildi fara eitthvað annað þá er það líka alveg opið,“ segir hún. Möguleikar á framhaldsnámi eru margir og fjölbreytt úrval náms í boði eftir sjávarútvegsfræðina. Hún valdi að fara aðeins aðra leið og stundar nú meistaranám í stjórnun. „Það
Fanney Björk og fjölskylda hennar unir vel við sitt á Vopnafirði. Hún kynntist eiginmanni sínum í vinnunni og átti hann þrjú börn fyrir. Svo áttu þau saman þrjú börn til viðbótar. Mynd: Berglaug Petra Garðarsdóttir
Framtíðarmöguleikar eftir nám í sjávarútvegsfræði eru margvíslegir, að sögn
Fanneyjar Bjarkar. Mynd: Aðsend
er svo mismunandi hvaða nám fólk er að taka eftir sjávarútvegsfræðina og framtíðarmöguleikar eru margir.“
Fanney Björk segir að námið í Háskólanum á Akureyri hafi þannig verið mjög gefandi og skemmtilegt. „Ég var mjög glöð og mjög ánægð með að það myndaðist góð stemning í hópnum. Það eru líka mjög margir sem ég þekki úr skólanum að vinna í greininni. Þannig að það er líka mjög skemmtilegt,“ segir hún.
„Ég var mjög glöð og mjög ánægð með að það
myndaðist góð stemning í hópnum. Það eru líka mjög margir sem ég þekki úr skólanum að vinna í greininni.“
Áhersla lögð á nýsköpun og sjálfbærni
Brim á sér langa sögu og býr að mikilli reynslu og þekkingu á nýtingu auðlinda og framleiðslu sjávarafurða. Sjálfbær nýting fiskistofna hefur verið mikilvægur hluti af starfsemi fyrirtækisins frá stofnun þess árið 1985 og er leiðarljós í verðmætasköpun fyrirtækisins sem nýtir framþróun, nýsköpun, gæði og gott orðspor til að auka verðmæti takmarkaðrar auðlindar. Fanney Björk ítrekar að mikil áhersla sé lögð á
nýsköpun og sjálfbærni hjá Brim – og auðvitað sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar. Mikill metnaður sé í að því að vera fremst á sínu sviði og gera vel í sátt við samfélagið og náttúruna.
Fanney Björk greinir í þessu samhengi frá því að verið sé að skoða í samstarfi við Matís hvort hægt sé að vinna kolmunna til manneldis en hann hefur einungis verið bræddur í fiskmjöl og lýsi hingað til. Kolmunni er uppsjávarfiskur af þorskaætt og líkist ufsa talsvert í vexti en hann er ein af mest veiddu fisktegundum í heimi. Stofninn er mjög stór og er í Norðaustur-Atlantshafi, aðallega veiddur í flotvörpu. Nytsemi kolmunna er mikil. Hann er nýttur að mestu leyti til mjöl- og lýsisframleiðslu en lítið til manneldis, eins og áður segir. Áhugavert verður að sjá hvað kemur út úr samstarfi Brims og Matís.
Finna lausnir frekar en að leggja árar í bát
Margir sem ákveða að starfa í sjávarútveginum koma af fólki sem hefur með einum eða öðrum hætti unnið í bransanum – þó auðvitað ekki allir. Sjómennska er í ættinni hjá Fanneyju Björk þar sem faðir hennar og báðir afar voru á sjó. Hún segist ekki hafa tengt sjómennskuna við neitt gott þegar hún var yngri þar sem hún óttaðist um föður sinn þegar hann var á sjónum. „Mér fannst alveg hræðilegt þegar pabbi minn var á sjó, að hann hefði verið í burtu í svona langan tíma. En eins og mér finnst sjórinn hræðilegur þá finnst mér hann líka heillandi,“ segir hún og hlær.
„Við þurfum þá bara aðeins að breyta því sem við höfum verið að gera og haga seglum eftir vindi.“
Varðandi framtíð sjávarútvegs á Íslandi þá segir Fanney Björk að neikvæð umræða í kringum veiðigjöld dragi hana niður en á móti sé hægt að líta á hana sem tækifæri. „Við þurfum þá bara aðeins að breyta því sem við höfum verið að gera og haga seglum eftir vindi. Bara eins og Brim er núna vonandi að kaupa Lýsi.“ Vísar hún í fregnir þess efnis að í september síðastliðnum var kauptilboð Brims í alla hluti Lýsis hf. samþykkt. Í tilkynningu frá fyrirtækinu sagði að aðilar sæju „mikil samlegðar- og sóknarfæri til að efla hráefnisstöðu Lýsis hf. og fyrir Brim hf. að færa sig lengra í virðiskeðju sjávarafurða“.
„Finna lausnir í staðinn fyrir að leggja árar í bát. Það er hægt að horfa á þetta sem tækifæri til að gera betur.“
Fanney Björk bendir í þessu samhengi á að gott sé að leggja aðrar áherslur og fara yfir á önnur svið til að ná að stækka og halda samkeppnisforskoti. „Færa út angana þegar komið er í kvótaþakið,“ segir hún. „Finna lausnir í staðinn fyrir að leggja árar í bát. Það er hægt að horfa á þetta sem tækifæri til að gera betur,“ segir hún að lokum.
Rubix er leiðandi í Evrópu á sviði viðhalds, viðgerða og rekstrarvara (MRO).
Fyrir þig þýðir það óviðjafnanlegt vöruúrval, hagstæðari kjör og hámarks uppitíma í þínum rekstri.
Skannaðu og skráðu þitt fyrirtæki.
Traustur félagi í iðnaði
Þau hjá Arnarlaxi fagna öllum nýjungum sem koma á þeirra borð. Fyrirtækið hefur m.a. tekið í notkun myndavélar sem taka myndir af laxinum en þannig er heilsufarið skoðað. Mynd: Aðsend
„Eiginlega enginn dagur eins“
Gæðastjóri Arnarlax, Silja Baldvinsdóttir, segir starfsumhverfi sitt bæði skemmtilegt og krefjandi í atvinnugrein með mikla möguleika og er hún spennt fyrir nýjum vaxtartækifærum –bæði fyrir fyrirtækið og samfélagið á Vestfjörðum. Liðsheildin
í Arnarlaxi sé góð og saman byggja þau fyrirtæki sem leggur áherslu á gæði, samvinnu og sjálfbæran vöxt til framtíðar.
Laxeldi hefur vaxið hratt undanfarin ár á Íslandi og hefur greinin ekki verið óumdeild. Silja Baldvinsdóttir gæðastjóri hjá Arnarlax segir að þau hjá fyrirtækinu vonist svo sannarlega til að nýr lagarammi, sem er til umræðu á Alþingi um þessar mundir, muni setja iðnaðinum í heild skilmála og gera honum kleift að keppa við önnur lönd í framleiðslu – og eiga þá möguleika á frekari vexti. „Við viljum gera vel gagnvart umhverfinu og samfélaginu,“ segir hún í samtali við Sjávarafl en hún ræddi meðal annars lífið á Vestfjörðum, hvað varð til þess að hún fór að starfa í sjávarútveginum og starfsemi Arnarlax. Silja er fædd árið 1985 og uppalin á Reyðarfirði. Eftir nám við Menntaskólann á Egilsstöðum lá leiðin í Háskólann á Bifröst þar sem hún lærði viðskiptafræði. Hún lét ekki þar við sitja og fór þaðan í Háskólann í Reykjavík og tók þar mastersgráðu í alþjóðaviðskiptum með áherslu á kínversku og markaðsfræði.
Hún flutti á Bíldudal árið 2010 en barnsfaðir hennar er einmitt þaðan. Hann átti útgerð og gamla Kaupfélagshúsið sem var orðið að gistiheimili og sökkti hún sér í reksturinn á því. Hún segir að það hafi verið ótrúlega skemmtilegur tími og gefandi. „Þetta var rosalega gaman. Við vorum með rekstur til ársins 2016, ásamt því að vera með þrjú lítil börn og seldum þá húsið til Arnarlax. Það voru samt ekki kvaðir með því að ég myndi fylgja með í kaupunum,“ segir hún og hlær.
„Eftir að ég fór aftur á vinnumarkaðinn eftir að hafa verið með börnin mín heima þá fór ég fyrst að vinna á Vestfjarðarstofu.“ Silja stoppaði þar stutt við vegna þess að fljótlega sá hún auglýst starfið sem hún er í núna. „Ég ákvað að slá til. Það var árið 2019 og ég fékk starfið og er búin að vinna hér síðan.“
„Ég er í frábæru teymi fólks og það er ótrúlega skemmtilegt og krefjandi starfsumhverfi.“
Sökkti sér í heim fiskeldisfræðinnar
Eftir að Silja hóf störf hjá Arnarlaxi ákvað hún að sökkva sér betur í heim fiskeldisfræðinnar. „Ég fór í Háskólann á Hólum og kláraði diplómanám þar og kláraði einnig gæðastjórnun fyrir fiskvinnslur í Fisktækniskólanum. En hjá Arnarlax er ég yfir gæðamálum í gegnum alla virðiskeðjuna, frá seiðum til viðskiptavina, þannig að ég fann að mig vantaði þekkingu á heimi örverufræðinnar í tengslum við daglega vinnslu á laxinum.“ Bára
Hulda Beck
Hjá Arnarlaxi starfa 160 starfsmenn og flestallir búa þeir í Vesturbyggð. Mynd: Aðsend
Frá því að Silja hóf störf hjá fyrirtækinu hefur hún jafnframt verið í framkvæmdastjórn. „Ég er í frábæru teymi fólks og það er ótrúlega skemmtilegt og krefjandi starfsumhverfi. Skemmtilegir dagar – því það er eiginlega enginn dagur eins. Fjölbreytt verkefni og áhugaverðar áskoranir.“ Silja situr einnig í stjórn Kvenna í sjávarútvegi (KIS), ásamt því að vera í stjórnum Arnarlax og Eldisstöðvarinnar Ísþórs.
Hvernig er hinn týpíski dagur hjá þér?
Silja hugsar sig um og svarar: „Það er enginn týpískur dagur hjá mér. Það er bara alls konar sem getur komið upp og er aðkallandi dag frá degi, í rauninni. Núna til dæmis er ég að leggja lokahönd á sjálfbærnihlutann í ársskýrslunni okkar fyrir árið 2025 en ég sé líka um þau mál og að miðla þeim. Svo eru framundan skemmtilegir tímar. Við erum að fara í fyrstu ASC úttekt ársins en öll okkar 7 eldissvæði eru komin með vottun.“
„Það er enginn týpískur dagur hjá mér.
Það er bara alls konar sem getur komið upp og er aðkallandi dag frá degi.“
ASC-vottun (Aquaculture Stewardship Council) er ein strangasta umhverfisvottun þegar kemur að fiskeldi og þekkt um heim allan. Silja segir vottunina koma inn á ýmsa þætti á borð við vistkerfi, fiskivelferð og starfsfólk. Hún bætir því við að gott sé að vera með slíka vottun gagnvart viðskiptavinum en þeir geri víða miklar kröfur um ýmiss konar staðla.
Vilja gera vel gagnvart umhverfi og samfélagi
Silja útskýrir starfsemi fyrirtækisins nánar sem stofnað var árið 2010 á Bíldudal. „Fyrsta uppskeran úr sjó var árið 2016 og við vorum þá í rauninni rosalega lítil. Þá var allt að byrja á Íslandi í kringum þennan bransa. Svo árið 2019 jók Salmar í Noregi eignarhlut sinn í Arnarlaxi. Síðan þá höfum við verið í örum vexti samhliða áskorunum.“
Stundum má heyra neikvæða umræðu í kringum sjókvíaeldið og þegar Silja er spurð út í gagnrýni sem birtist á opinberum vettvangi og í fjölmiðlum þá segir hún að þau hjá Arnarlaxi reyni alltaf að gera betur dag frá degi. „Við viljum gera vel gagnvart umhverfinu og samfélaginu.“
Hún segir að fólkið á svæðinu eða á Vestfjörðum taki fyrirtækinu allajafna mjög vel. „Margir starfa hjá Arnarlaxi en við erum með 160 starfsmenn í dag. Flestallir búa þeir hér í Vesturbyggð.“ Arnarlax er með eina seiðaeldisstöð í Tálknafirði og eldissvæðin í þessum þremur fjörðum í Vesturbyggð, þ.e. Arnarfirði, Tálknafirði og Patreksfirði.
Arnarlax er með þrjár seiðaeldisstöðvar á Suðurlandi, tvær í Þorlákshöfn og eina á Hallkelshólum í uppsveitum við Borg í Grímsnesi. Mynd: Aðsend
„Við vonum svo sannarlega að þessi rammi muni setja okkur og iðnaðinum í heild skilmála og möguleika á frekari vexti til að geta keppt við önnur lönd í framleiðslu.“
Einnig er fyrirtækið með þrjár seiðaeldisstöðvar á Suðurlandi, tvær í Þorlákshöfn og eina á Hallkelshólum í uppsveitum við Borg í Grímsnesi. Söluskrifstofa Arnarlax er í Kópavogi en fyrirtækið selur allan þeirra lax sjálft og sér einnig um markaðsmálin.
Laxinn er aðallega seldur til Evrópu en árið 2025 fór 68 prósent aflans þangað. Einnig er selt til Asíu og til Bandaríkjanna. „Þegar við flytjum út til Bandaríkjanna reynum við að flytja sem mest með skipaleiðinni, með Eimskip, til Portland. Það er sjálfbærari leið sem við höfum kosið að fara í og eftir þessa sirka átta daga siglingu þá eru gæðin enn frábær. Þaðan fer fiskurinn svo til L.A. og víðar í Bandaríkjunum.“
Fagnar að gerðar verði kröfur
Varðandi gagnrýni á laxeldi þá vonast Silja til þess að nýi lagaramminn sem nú er í umræðunni á Alþingi komi til góða. „Við vonum svo sannarlega að þessi rammi muni setja okkur og iðnaðinum í heild skilmála og möguleika á frekari vexti til að geta keppt við önnur lönd í framleiðslu. Einnig auknar kröfur sem allir geta lifað við og er sjálfsagt að gera til okkar, við fögnum því.“
Silja segir að starfsumhverfi sitt sé „ótrúlega skemmtilegt og krefjandi“ í atvinnugrein með mikla vaxtarmöguleika. Mynd: Aðsend
er enginn týpískur dagur hjá mér,“ segir Silja. Mynd: Aðsend Arnarlax er að fara í fyrstu ASC úttekt ársins en öll 7 eldissvæði fyrirtækisins eru komin með vottun. Mynd: Aðsend
Hún útskýrir að vaxtarmöguleikar í laxeldi séu miklir og að á heildina litið væri hægt að ná 100.000 tonnum í sláturmagni ef nýju lögin myndu styðja við þann vöxt. Þá væri enn fremur vöxtur í afleiddum störfum fyrir vestan, sem og í laxeldinu. „Það á við um þjónustu við iðnaðinn sem og samfélagið í heild, þannig að ef við stækkum enn frekar þá eru jákvæðar horfur þar,“ segir hún.
„Leiserarnir
nema lús á fiskinum og skjóta hana. Þetta er góð forvörn og þá sérstaklega yfir vetrartímann þegar ekki er hægt að telja lús handvirkt vegna lágs sjávarhita.“
Þrátt fyrir að Arnarlax sé ekki í nýsköpun þá segir Silja að þau fagni öllum nýjungum sem koma á þeirra borð. Hún nefnir sem dæmi að fyrirtækið hafi tekið í notkun myndavélar sem taka myndir af laxinum og þannig sé heilsufarið skoðað: þyngd, vöxtur og fiskivelferð. „Þessar myndavélar telja einnig lús. Hér á Vestfjörðum erum við því miður með lús í náttúrulegu umhverfi þannig að við verðum að fylgjast vel með. Myndavélarnar hafa komið sér vel í að telja lús og meta lúsaálagið yfir vetrartímann þegar ekki er hægt að sinna handvirkri lúsatalningu vegna lágs sjávarhita. Svo á vorin þegar hitastig sjávar fer yfir fjórar gráður byrjum við einnig að telja lúsina handvirkt vikulega til þess að ekkert fari framhjá okkur.“
Skjóta lús með leiser
Einnig hefur fyrirtækið tekið í gagnið sérstakar leiser-vélar sem staðsettar eru í kvíunum. Þessi tækni nýtist vel og hefur þörfin á notkun grásleppu til lúsahreinsunar minnkað sem er jákvætt. Silja segir að mikilvægt sé að leita sjálfbærra leiða í lúsameðhöndlun með því að minnka notkun á lyfjum. „Leiserarnir nema lús á fiskinum og skjóta hana. Þetta er góð forvörn og þá sérstaklega yfir vetrartímann þegar ekki er hægt að telja lús handvirkt vegna lágs sjávarhita,“ útskýrir Silja.
„Í ár munum við halda áfram að nota Optilice-hitameðferð í aflúsun og beita henni eins oft og kostur er. Með Optilice-meðferð er laxinum dælt um borð í sérhannaðan brunnbát, hann fer í gegnum 28-34°C heitt vatn í um 20-30 sekúndur og að því loknu dælt aftur út í kví og drepur þetta lúsina.“
„Ég
á þrjú börn og maður veit ekki hvert framtíðin fer með mann. Ég mun allavega vera innan þessa bransa enn sem komið er því það er svo gaman.“
Silja segir að reynsla og þekking Norðmanna nýtist vel í laxeldi á Íslandi. „Þeir eru náttúrulega með áratuga reynslu í þessum bransa og tækninni hefur fleygt verulega fram þar. Einnig kemur þekking frá Skotlandi en þar er verið að gera góða hluti líka og eru Skotar stórir í laxeldi. Þannig að við erum með puttann á púlsinum og fylgjumst vel með. Við erum líka í góðu samstarfi við okkar stærsta hluthafa, Salmar í Noregi, sem er eitt stærsta laxeldisfyrirtækið þar í landi.“
Hvernig sérð þú fyrir þér framtíðina fyrir vestan?
Silja svarar og segir að einhvern tímann hafi verið sagt við hana að þegar „þú ert kominn inn í þennan bransa þá er rosalega erfitt að fara út vegna þess að það er svo gaman“. Þannig snúa þeir sem fara úr bransanum yfirleitt aftur „heim“ á einhverjum tímapunkti. „Við erum með nokkra þannig starfsmenn hjá okkur sem prófuðu að fara aðra leið en komu síðan aftur til okkar og eru hjá okkur enn.“
Skiljanlega er þó erfitt að segja til um framtíðina en Silja segir að eins og staðan er í dag þá stefni hún á að búa og starfa áfram fyrir vestan. „En aldrei að segja aldrei. Ég á þrjú börn og maður veit ekki hvert framtíðin fer með mann. Ég mun allavega vera innan þessa bransa enn sem komið er því það er svo gaman,“ segir hún að lokum.
„Það
Það
er ekki á vísan að róa
Frá upphafi hafa öryggismál í sjávarútvegi verið okkur hjartans mál
og við höfum beitt okkur um áratuga skeið fyrir aukinni vernd, fræðslu og aðbúnaði í greininni. Öryggi sjómanna og aðstæður um borð skipta okkur öll máli.
Öll róum við að sama marki — að koma heil í höfn.
Mættu því óvænta
Þormóður Dagsson
Markaðs- og samskiptastjóri hjá Matís
Verðmætasköpun úr laxablóði
Sífellt meiri áhersla er lögð á að nýta hráefni úr sjávarútvegi og fiskeldi sem best og draga úr sóun með því að finna nýjar leiðir til verðmætasköpunar. Rannsóknarverkefnið Verðmætasköpun úr laxablóði er dæmi um slíka nálgun, þar sem leitast var við að finna leiðir til að nýta laxablóð til þróunar nýrra afurða.
Verkefnið er samstarfsverkefni Matís, Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands, Slippsins á Akureyri og Samherja fiskeldis. Markmið þess var að kanna hvernig hægt væri að umbreyta laxablóði í verðmætar afurðir fyrir matvælaiðnað og heilsuvörumarkað. Með auknu umfangi fiskeldis hér á landi verður til sífellt meira af aukaafurðum við vinnslu hráefnis, og því er mikilvægt að finna leiðir til að nýta þær betur.
Blóð er í eðli sínu næringarríkt og inniheldur meðal annars mikið af járni og próteinum. Í verkefninu var því lögð sérstök áhersla á þróun járnríks fæðubótarefnis til manneldis, þar sem slíkar vörur geta verið áhugaverður kostur fyrir fólk sem þarf aukið járn í fæðunni. Samhliða var einnig unnið að þróun og prófun á öðrum þekktum blóðafurðum til matvælaframleiðslu.
Eitt af því sem vakti sérstaka athygli í verkefninu var tilraun með blóðmör úr laxablóði og laxalifur, sem meðal annars var fjallað um í sjónvarpsþættinum Landanum
Í skynmati þar sem afurðin var borin saman við hefðbundna blóðmör kom í ljós að hún stóð sig ágætlega. Þátttakendur í skynmatinu töldu muninn á afurðunum ekki mikinn, sem bendir til þess að laxablóð geti vel hentað sem hráefni í slíkar vörur.
Þótt blóð úr landbúnaði hafi lengi verið nýtt til matvælaframleiðslu, til dæmis í blóðmör eða svipuðum afurðum, hefur slíkt hráefni úr fiskeldi lítið verið nýtt hingað til. Niðurstöður verkefnisins sýna að þar leynast tækifæri til nýsköpunar og aukinnar verðmætasköpunar. Með frekari þróun og rannsóknum gætu slíkar lausnir stuðlað að fjölbreyttari nýtingu hráefna úr fiskeldi og aukið sjálfbærni greinarinnar.
Verkefnið undirstrikar einnig mikilvægi samstarfs fyrirtækja og rannsóknastofnana þegar kemur að þróun nýrra lausna í sjávarútvegi og fiskeldi. Með því að sameina þekkingu úr vísindasamfélaginu og reynslu úr atvinnulífinu skapast jarðvegur fyrir nýjar hugmyndir og nýjar afurðir sem geta aukið verðmæti íslensks hráefnis til framtíðar.
Ingigerður Helgadóttir er flokksstjóri í uppsjávardeild Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Hún hefur unnið hjá fyrirtækinu frá árinu 1995 og segir hún það vera þægilegan og góðan vinnustað. „Ég er svolítið ströng og hef alltaf verið það. Ég er kannski alin upp í þessu umhverfi í Vinnslustöðinni að maður á alveg að standa sína plikt. Ég er líka sanngjörn og ég reyni að vera ekki stressuð.“
Ingigerður Helgadóttir er úr Mýrarsýslu og flutti til Vestmannaeyja árið 1993. Tveimur árum síðar hóf hún störf hjá Vinnslustöðinni og hefur unnið þar síðan.
„Ég byrjaði á gólfinu. Þá vorum við í bolfiski og vorum að snyrta. Við vorum bæði í karfa og þorski og ég var reyndar líka í humri. Svo var settur upp lausfrystir og þurfti að lausfrysta þorskbita og alls konar
afurðir. Ég byrjaði sem flokksstjóri við þá vinnu og var það í nokkur ár. Þetta var mjög mikil vinna. Það var brjálað að gera. Svo fluttist ég yfir í uppsjávardeildina um fimmtán árum síðar þar sem ég er núna og þá er það makríll, síld, loðna og hrogn. Ég byrjaði að vinna sem venjulegur starfsmaður meðal annars í pökkun og á síldarvélum en svo vann maður sig smátt og smátt upp. Ég er flokksstjóri í uppsjávardeildinni og sé um að setja upp vaktir, manna og fleira með mínum yfirmanni. Það þarf að finna út hvað hentar hverjum. Svo þurfum við að fylgjast með gæðunum og að allt fari rétt fram. Við reynum að hafa þetta stresslaust umhverfi og þetta er þægilegur og góður vinnustaður.“
Ég byrjaði að vinna sem venjulegur starfsmaður meðal annars í pökkun og á síldarvélum en svo vann maður sig smátt og smátt upp.
„Ég er orðin ein eftir. Þetta er orðið karllægt en það er alveg tekið tillit til manns. Það er hlustað á mann og það sem maður vill koma á framfæri.“ Mynd: Aðsend
Á milli 400 - 500 manns vinna hjá Vinnslustöðinni og dótturfyrirtækjum svo sem sjómenn, fiskvinnslufólk, tækni- og iðnaðarmenn ásamt starfsfólki á skrifstofum.
„Stefna fyrirtækisins er áframhaldandi uppbygging í uppsjávarvinnslu og svo erum við búin að hasla okkur völl í saltfiski og erum að leggja áherslu á það. Vinnslustöðin keypti fyrirtæki í Portúgal svo við erum komin inn á markaðinn þar.“
Ég er flokksstjóri í uppsjávardeildinni og sé um að setja upp vaktir, manna og fleira með mínum yfirmanni.
Fyrirtækið á þrjú uppsjávarskip og eru tvö í notkun - Huginn og Gull berg. Þriðja uppsjávarskipið er Sighvatur Bjarnason. Þá á fyrirtækið þrjú bolfikskip, Breka, Drangavík og svo Kap sem er gert út á net. Vinnslu stöðin framleiðir tvær gerðir af fiskimjöli: NSM-mjöl, sem er hágæða fiskimjöl, og staðlað fiskimjöl. Einnig fram leiðir fyrirtækið lýsi.
Ströng en sanngjörn
Ingigerður segir að áður hafi verið mun fleiri konur starfandi sem bæði verkstjórar og flokksstjórar hjá fyrirtækinu. „Ég er orðin ein eftir. Þetta er orðið karllægt en það er alveg tekið tillit til manns. Það er hlustað á mann og það sem maður vill koma á framfæri.“
Við reynum að hafa þetta stresslaust umhverfi og þetta er þægilegur og góður vinnustaður.
Ingigerður er í vaktavinnu og segir að flokksstjóri mæti í vinnu klukkan sex á morgnana og vinni til sex á kvöldin eða þá að hann mætir klukk
an sex á kvöldin og er til sex á morgnana. „Fólkið er hálfátta. Núna erum við í loðnu og þetta er fjórða vikan okkar á vöktum án þess að stoppa,“ segir hún en viðtalið var tekið í byrjun mars. „Það er stanslaus keyrsla og fólk er leyst af. Það eru kannski þrjár stöður en þau eru fjögur um stöðuna og fimm ef það eru fjórar stöður. Það er alltaf einn sem leysir af á meðan einn fer í pásu. Ég get fylgst með í eftirlitsmyndavélum þannig að ég þarf ekki að vera á gólfinu allan tímann. Við getum sest niður og fylgst með og tekið svo hring. Þetta er mikil eftirfylgni og það þarf að passa upp á að allt sé í lagi.“
Stefna fyrirtækisins er áframhaldandi uppbygging í uppsjávarvinnslu og svo erum við búin að hasla okkur völl í saltfiski og erum að leggja áherslu á það.
Ingigerður talar um breytingar á vinnustaðnum hvað varðar þjóðerni starfsfólks. „Þegar við fluttum í nýja uppsjávarhúsið 2017 vorum við með íslenska krakka allt sumarið í makríl. Þá hugsaði maður á íslensku og tjáði sig á íslensku. Svo eftir Þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum komu útlendingar og maður fór bara að tala á ensku og hugsa á ensku. Flestir eru frá Póllandi og Portúgal og aðeins frá Úkraínu eftir að stríðið þar byrjaði. Íslendingar eru í minnihluta. Við erum bara nokkur. Við erum þrjátíu á vaktinni í dag og við erum fimm íslensk af þrjátíu manns. Fyrirmæli og eftirfylgni er á ensku.“
Ég er svolítið ströng og hef alltaf verið það. Ég er kannski alin upp í þessu umhverfi í Vinnslustöðinni að maður á alveg að standa sína plikt.
Hvernig er hún sem yfirmaður? „Ég er svolítið ströng og hef alltaf verið það. Ég er kannski alin upp í þessu umhverfi í Vinnslustöðinni að maður á alveg að standa sína plikt. Ég er líka sanngjörn og ég reyni að vera ekki stressuð. En ég fylgi vel eftir og læt þau ekki komast upp með neitt kjaftæði. Ég held að þau séu öll sátt við mig.“
Hestaferðir á sumrin
Ingigerður segist vera mikil fjölskyldukona. Hún er gift og eiga hjónin fjögur uppkomin börn - þetta er samsett fjölskylda og tvö börn frá hvoru. Sonur í Eyjum, dóttir og sonur í Njarðvík og sonur í Svíþjóð. Barnabörnin eru fimm og er von á því sjötta í sumar. „Við þurfum þess vegna að flakka svolítið á milli til að kíkja á þau,“ segir Ingigerður um það að ekki búa öll börnin í Eyjum. „Það er oft svolítið lengra til Eyja heldur en upp á land,“ segir hún og hlær.
Það er gott eftir langan og erfiðan vinnudag að fara upp í hesthús, moka og kúpla sig frá öllu.
Hestamennska er aðaláhugamálið.
„Ég er alveg á kafi í hestamennsku og á fjóra hesta og eitt trippi. Það er gott eftir langan og erfiðan vinnudag að fara upp í hesthús, moka og kúpla sig frá öllu. Og þeir kurra í mann. Þetta gefur manni svo mikið og endurhleður batteríin.“
Hestarnir heita Öðlingur, Partur, Blesi og Jarpur og trippið, sem er tveggja vetra, heitir Þrymur.
„Ég elska að fara í hestaferðir á sumrin. Hestarnir eru að mestu leyti í Eyjum og svo erum við með sumarbústað og átta hektara land á Suðurlandi þannig að ég get tekið þá með mér þegar ég fer upp á land á sumrin. Svo förum við í hestaferðir upp á fjöllin.“
Hún talar í sambandi við hestamennskuna um samveruna, félagsskapinn, landslagið og náttúruna.
„Ég elska að fara í hestaferðir á sumrin. Hestarnir eru að mestu leyti í Eyjum og svo erum við með sumarbústað og átta hektara land á Suðurlandi þannig að ég get tekið þá með mér þegar ég fer upp á land á sumrin.“
Mynd: Aðsend
Falleg fjölskylda við hátíðlegt tilefni. Mynd: Aðsend
GLEÐILEGA PÁSKA
Gefum út
Fishing the News
Þau fiska sem þróa
Aukið virði sjávarafurða í krafti rannsókna og nýsköpunar
Vorblanda með túnfiski
Eftir þungar máltíðir er gott að velja létt og næringarríkt salat sem hjálpar meltingu. Þetta salat er frábær máltíð fyrir þá sem vilja fá góða próteinhleðslu án þungra aðalrétta. Með túnfiski, harðsoðnum eggjum og mozzarella er prótein. Salatið sameinar ferskt grænmeti, vítamín, trefjar og ólífuolíu sem gefur hollar fitusýrur og girnilega blöndu af bragði og áferð.
Innihald (fyrir 4):
• 200 g blanda af salatlaufum
• 200 g spínat
• 4 stór harðsoðin egg
• 1 stór gulrót, skræld og sneidd í litla bita eða rifin
• 1 rauðlaukur, skorinn í þunna hringi
100 g svartar ólífur (heilar eða sneiddar)
• 1 dós túnfiskur í olíu
• 100 g litlar mozzarellakúlur
• 1 lítil rauð paprika, smátt skorin
• 2 msk. fínskorið ferskt basil eða steinselja (valfrjálst)
• Salt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk
Gott að vita:
Bætið við avókadó eða örlitlum kapers til að breyta bragðinu. Skiptu út túnfiski fyrir grillaðan kjúkling eða soðnar baunir til að hækka eða minnka próteininnihald. Bætirðu avókadó við færðu meiri hollar fitur og mýkri áferð.
Dressing:
• 4 msk extra virgin ólífuolía
• 2 msk. sítrónusafi eða eplasedik
• 1 tsk. dijon sinnep
• 1 tsk. hunang eða síróp (valfrjálst)
• Salt og pipar
Aðferð:
1. Skerið salatlaufin og leggið á stóran disk eða í skál. Dreifið spínati yfir ef notað.
2. Skerið eggin í fjórðunga og raðið ofan á salatið.
3. Bætið við túnfiski, mozzarella-kúlum, ólífum, gulrótarböndum, rauðlaukshringjum og papriku.
4. Blandið saman hráefnum í dressingu: olía, sítrónusafi/edik, sinnep, hunang, salt og pipar. Hristið eða pískið vel.
5. Hellið dressingunni yfir salatið rétt áður en það er borið fram. Kryddið með salti og pipar og dreifið fersku kryddi yfir.