Skip to main content

SJÁVARAFL maí 2026 2.tbl 13.árg

Page 1


SJÁVARAFL

Maí 2026 2. tölublað 13. árgangur

Tilhamingjumeð daginnsjómenn!

Fengu brot á sig og þrír fórust Róbótar og sjálfvirknivæðing Fækkun í áhöfn Strandveiðar Byggt upp öflugt samstarfsnet Kóngafæði

4 Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra Ómetanlegt framlag í aldanna rás

6 Guðmundur Jóhann Árnason, verkefnastjóri hjá Ísfélaginu

Viljum vera fyrirmynd umhverfis- og samfélagsmálum

10 Þormóður Dagsson, markaðs- og samskiptastjóri hjá Matís Matís sækir fram fyrir sjálfbærari sjávarútveg

12 Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins Sjómannadagurinn 2026

16 Haraldur Haraldsson, deildarstjóri hjá Icelandair Cargo Ferskleiki algjör lykilforsenda

20 Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda Sátt um sjávarútveg: sanngirni, byggðir og strandveiðar

24 Þröstur Jóhannsson kennari við Framhaldssk. í Vestmannaeyjum Samstarf við atvinnulífið skiptir sköpum

28 Sævar Kristinn Gestsson, fyrrverandi sjómaður og Ísfirðingur Byrjaði ellefu ára að vinna – og er enn að

34 Jónas Þór Jónasson hrl. hjá Lögmenn Jónas Þór slf. Um slysatryggingar sjómanna á íslenskum farskipum

38 Strandveiðar 2026

40 Skemmtiferðaskip og Vorboðinn

42 Gullsteiktur hvítlauksfiskur með brokkolí og kartöflum

Útgefandi: Tímaritið Sjávarafl ehf

Sími: 6622 600

Ritstjóri og

ábyrgðarmaður: Elín Bragadóttir elin@sjavarafl.is

Vefsíða: www.sjavarafl.is

Blaðamenn: Bára Huld Beck

Guðrún Erlingdóttir

Óskar Þór Halldórsson

Sigrún Erna Geirsdóttir

Svava Jónsdóttir

Ljósmyndir: Óskar Ólafsson

Prófarkalestur: Óskar Ólafsson

Umbrot og hönnun: Prentmet Oddi ehf

Forsíðumynd: Pixabay

Prentun: Prentmet Oddi ehf

Undirstaða samfélagsins

Upphaflega var Sjómannadagurinn haldinn árið 1938 og var það í Reykjavík og á Ísafirði. Dagurinn er ekki bara lögbundinn frídagur heldur líka gleðileg hátíð sem fer fram í bæjarfélögum um land allt. Þessi hátíð hefur vaxið mikið frá upphafi en hún hefst á morgnana og nær oft langt fram á nótt. Markmið Sjómannadagsins eru fjölbreytt, þau eru meðal annars að heiðra minningu látinna sjómanna og þeirra sem orðið hafa fyrir slysum. Einnig er verið að þakka fyrir það mikilvæga starf sem sjómenn hafa stundað.

Sjávarútvegurinn er grundvöllur efnahags Íslands og er háður stöðugum rannsóknum og vöruþróun. Þekkingin í greininni er lífsmiðja, sem skapar verðmæti og er í dag ein af mikilvægustu auðlindum þjóðarinnar. Sjómannadagurinn er einnig baráttudagur sjómanna, þar sem reynt er að huga að öryggismálum og slysavörnum.

Á þessum degi heiðrum við sjómenn, við minnumst þeirra vinnu og fórna, sem gegnir lykilhlutverki í efnahagslífi landsins. Við heiðrum sjómenn fyrir sitt mikilvæga starf ekki bara með veiði sinni heldur einnig í gegnum menningu og hefðir. Við sem ekki erum á sjó eigum sjómönnum mikið að þakka en ekkert jafnast á við að fá fiskinn á diskinn.

Kæru sjómenn, takk fyrir ykkar mikilvæga starf og megi sjósókn ykkar ávallt vera farsæl og fengsæl. Gleðilegan sjómannadag!

Elín Bragadóttir ritstjóri

Bára Huld Beck blaðamaður
Óskar Þór Halldórsson blaðamaður
Svava Jónsdóttir blaðamaður
Guðrún Erlingsdóttir blaðamaður
Óskar Ólafsson ljósmyndari og prófarkalesari
Sigrún Erna Geirsdóttir blaðamaður

Til hamingju með daginn sjómenn!

Ómetanlegt framlag í aldanna rás

Sjómannadagurinn er mikill hátíðisdagur og ánægjulegt að sjá hvað hann skipar enn stóran sess hjá þjóðinni, þrátt fyrir hraðar samfélagsbreytingar undanfarin ár og áratugi. Á þessum degi þökkum við sjómönnum og fjölskyldum þeirra fyrir þær miklu fórnir sem þeir hafa fært í gegnum aldirnar, minnumst þeirra sem farist hafa í sjóslysum og fögnum þeim miklu framförum sem orðið hafa í öryggismálum á sjó. Við munum líka eftir því að enn í dag þurfa sjómenn oft að vera lengi í burtu frá heimilum sínum og fjölskyldum í krefjandi aðstæðum.

Sjómennskan er ekki aðeins samofin sögu okkar og menningu, heldur er hún einnig lykilþáttur í þeirri gríðarlegu verðmætasköpun sem fer fram í íslenskum sjávarútvegi. Að sama skapi gegna íslenskir sjómenn mikilvægu hlutverki þegar kemur að því að framfylgja stefnu stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins.

Íslenskur sjávarútvegur er öflug atvinnugrein sem stendur á traustum grunni. Öllum er ljóst mikilvægi hans fyrir íslenskan efnahag, fyrir utan þá staðreynd að hann er lífæð margra byggðarlaga um land allt. Hitt er síðan að kerfið sem við höfum byggt upp í kringum nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar er fyrirmynd fyrir aðrar þjóðir í sjávarútvegi. Án sjómannanna okkar væri sjávarútvegurinn ekki á þeim stað.

Þetta fann ég sérstaklega sterkt þegar ég var í Barcelona í apríl sl. á stærstu sjávarútvegssýningu heims. Þótt við Íslendingar séum smáþjóð á flesta mælikvarða þá finnur maður það hvergi jafnsterkt og á sýningu sem þessari að við erum stórþjóð í sjávarútvegi. Við eigum að vera stolt af því.

Við eigum líka að vera stolt af því að íslenskur sjávarútvegur er í fremstu röð þegar kemur að nýsköpun og framþróun. Þetta endurspeglast vel í fyrirtækjum á borð við Marel og Kerecis sem hafa borið hróður íslensks sjávarútvegs og íslensks hugvits um allan heim.

Sem atvinnuvegaráðherra mun ég halda áfram að skapa skilyrði fyrir nýsköpun, þróun og framfarir í íslenskum sjávarútvegi. Ég mun einnig halda áfram að leitast við að skapa sátt um greinina og halda á lofti mikilvægi hafrannsókna og vísinda til að tryggja sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins.

Sjómennskan verður áfram samofin sögu okkar og menningu – og sjávarútvegurinn verður áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Nú, líkt og áður, er það sameiginlegt verkefni okkar allra að tryggja velferð greinarinnar.

Kæru sjómenn, innilega til hamingju með daginn og takk fyrir ykkar ómetanlega framlag í aldanna rás!

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra og þingmaður Viðreisnar

Fyrr á ferðinni

Við komum þínum afurðum ferskum til neytenda

Með víðfeðmu leiðarkerfi, fagmennsku, hárri flugtíðni og hraða tryggjum við að íslenskar sjávarafurðir komist örugglega til neytenda um allan heim. Ferskar og í fullum gæðum.

Sigurbjörg VE var afhent til félagsins í ágúst 2024 og er nýsmíði frá Tyrklandi

Viljum vera fyrirmynd þegar kemur að umhverfis- og samfélagsmálum

Ísfélagið hefur fjárfest mikið í vinnslu og skipum. Það gerir út átta skip og rekur starfsstöðvar í Vestmannaeyjum, á Þórshöfn og Siglufirði. Ísfélagið er með fiskvinnslu og fiskimjölsverksmiðju í Vestmannaeyjum og þar er ein öflugasta hreinsistöð í fiskvinnslu á Íslandi, það rekur fiskvinnslu og fiskimjölsverksmiðju á Þórshöfn og rækjuverksmiðju á Siglufirði. Primex er dótturfélag Ísfélagsins sem vinnur úr rækjuskelinni kítósan og framleiðir snyrtivörur og lækningavörur. Ísfélagið leggur ýmislegt til samfélagsins þar sem það er með starfsstöðvar.

Ísfélag hf. er elsta starfandi hlutafélagið á Íslandi en það var stofnað árið 1901. Markmiðið í upphafi var að safna ís en síðar varð félagið að útgerðarfélagi í sameiningu við ýmis fyrirtæki í Vestmannaeyjum svo sem Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf.. Ákveðin kaflaskil urðu árið

2023 þegar félagið, sem þá hét Ísfélag Vestmannaeyja hf., sameinaðist Ramma hf. á Siglufirði og var í kjölfarið skráð á almennan hlutabréfamarkað og var nafni félagsins breytt í Ísfélag hf.

„Félagið hefur fjárfest mikið í vinnslu og skipum og stendur vel að vígi í dag með einn yngsta flota landsins“ segir Guðmundur Jóhann Árnason verkefnastjóri. „Átta skip eru á okkar vegum. Við erum með fjögur nýleg uppsjávarskip, tvö bolfisksskip, einn frystitogara og einn krókabát.“

Þótt afurðir félagsins séu seldar um allan heim eru helstu markaðir í vestur og austur Evrópu ásamt Asíu. Ferskar og frosnar bolfiskafurðir eru aðallega seldar til meginlands Evrópu og Bretlands en uppsjávarafurðir eru aðallega seldar til austur Evrópu og Asíu. Mjöl og lýsi er síðan selt til framleiðenda laxafóðurs í Noregi og Skotlandi.

„Við leggjum áherslu á mikil gæði í okkar framleiðslu. Við erum með vottanir á öllum okkar ferlum og kerfum og það fer gott orð af afurðum Ísfélagsins hvar sem er í heiminum.“

Þrjú hundruð og tíu starfsmenn starfa að meðaltali hjá félaginu hverju sinni en Guðmundur Jóhann segir að miklar sveiflur séu í starfsmannafjölda sem tengist vertíðum.

Yfrilitsmynd yfir starfssvæði félagsins á Þórshöfn.

„Átta skip eru á okkar vegum. Við erum með fjögur nýleg uppsjávarskip, tvö bolfisksskip, einn frystitogara og einn krókabát.“

Ein öflugasta hreinsistöðin

Ísfélagið er með fiskvinnslu og fiskimjölsverksmiðju í Vestmannaeyjum.

„Staðsetningin skiptir máli þar sem það er mikilvægt að sem styst sé á miðin þannig að við komum með sem ferskastan afla í land.“ Frystihúsið er öflugt og er sérhæft til framleiðslu á uppsjávarafurðum og á milli uppsjávarvertíða er unninn bolfiskur í ferskar og frystar afurðir. Í fiskimjölsverksmiðjunni er framleitt fiskimjöl og lýsi úr uppsjávarafla og afskurði.

„Félagið tók í notkun árið 2013 eina öflugustu hreinsistöð í fiskvinnslu á Íslandi og við erum mjög stolt af henni. Lagðar voru lagnir sem liggja frá frystihúsinu yfir í fiskimjölsverksmiðjuna þannig að allur afskurður úr frystihúsinu fer beint í gegnum þessar lagnir í mjölverksmiðjuna og úr því er framleitt mjöl og lýsi og svo fer allt affall af framleiðslunni í hreinsistöðina og það er svo aftur síað; öll fita og prótein sem eru þar eru síuð frá þannig að við skilum af okkur í raun nánast hreinu affalli. Við nýtum allan afskurð og allt sem kemur til. Meðal annars seljum við roðið af fiskinum. Það er nánast allt nýtt sem hægt er að nýta úr aflanum. Svo liggur önnur lögn til baka í frystihúsið og þar er til dæmis hrognunum dælt þegar þau eru unnin í hrognahúsinu sem er staðsett hjá fiskimjölsverksmiðjunni en þeim er svo pakkað í frystihúsinu. Þessar lagnir spara um 8.000 kílómetra í akstri á ári en þessum afurðum var ekið á milli verksmiðjanna í Vestmannaeyjum áður en lagnirnar komu til.“

Settir voru upp nýir tankar viðhrognahúsið á staðnum sem flýtir allri löndun. „Það er aldrei staður í ferlinu þar sem afurðirnar eru ekki í kælingu frá því þær koma um borð í skipin og þangað til þær fara í vinnslu. Þetta skiptir máli upp á að ferskleikinn haldi sér alla leið og til að skipin komist fyrr út að sjálfsögðu, en tankarnir eru ígildi eins skips. Aflanum er dælt í tankana og þaðan í hrognavinnsluna svo vinnur mjölverksmiðjan hratið.“

„Félagið hefur fjárfest mikið í vinnslu og skipum og stendur vel að vígi í dag með einn yngsta flota landsins,“ segir Guðmundur Jóhann Árnason, verkefnastjóri mannauðs-, samfélags-, og umhverfismála.

Guðmundur Jóhann segir að Ísfélagið sé með þeim fremstu þegar kemur að vinnslu á loðnuhrognum. „Félagið byggði sérstakt hrognahús sem tekið var í gagnið í byrjun árs 2023. Þetta er fullkomið hrognahús sem er í raun bara notað í tvær vikur á ári ef það er gefinn út nægur loðnukvóti. Þetta eru miklar fjárfestingar fyrir lítinn tíma.

„Við leggjum áherslu á að allar afurðir séu ferskar. Við erum með vottanir á öllum okkar ferlum og kerfum og það fer gott orð af afurðum Ísfélagsins hvar sem er í heiminum.“

Róbótar og meiri sjálfvirknivæðing

Krókabáturinn, Litlanes, er gerður út frá Þórshöfn og þar er félagið með fiskvinnslu og fiskimjölsverksmiðju. „Á Þórshöfn er byggt á þorsk- og ufsasvinnslu á milli uppsjávarvertíða. Við höfum verið með lausfrysti á Þórshöfn þar sem við erum að vinna inn á ákveðna markaði. Við höfum nýlega sett upp lausfrysti í Vestmannaeyjum til að opna nýja möguleika af því að í raun og veru er Ísfélagið fyrst og fremst heildsala með fiskafurðir; við seljum afurðina sem er sem fer svo í áframvinnslu.“ Á Þórshöfn er Ísfélagið nýbúið að byggja 6.000 tonna frystigeymslu sem tryggir að birgðastjórnunin er mun betri. „Félagið byggði einnig nýlega nýja skrifstofu- og starfsmannaaðstöðu í Þórshöfn þannig að við höfum lagt í mikla fjárfestingu á Þórshöfn á undanförnum árum, meðal annars í róbótum og meiri sjálfvirknivæðingu í frystihúsinu.“

Nýleg rækjuverksmiðja

Frystitogarinn, Sólberg, landar á Siglufirði en þar í bæ rekur Ísfélagið skrifstofu og rækjuverksmiðju. „Þetta er nýleg rækjuverksmiðja og er með SEDEX og BRC vottanir til að selja inn á smásölumarkað í Evrópu.

„Öll skelin sem fellur til fer til Primex sem er dótturfélag Ísfélagsins og úr henni er unnið kítósan í snyrtivörur og lækningavörur, meðal annars sáragel sem hefur sýnt mikla virkni. Þannig að við fullnýtum hráefnið á Siglufirði.

Verksmiðja Primex á Siglufirði brann að hluta til í október á síðasta ári en við erum að hefja framleiðslu aftur á næstu vikum. Bruninn hafði því ekki mikil áhrif. “

„Félagið tók í notkun árið 2013 eina öflugustu hreinsistöð í fiskvinnslu á Íslandi og við erum mjög stolt af henni.“

Primex

Primex, sem þegar hefur verið minnst á, er dótturfélag Ísfélagsins og kom inn með sameiningunni við Ramma. „Það er mjög spennandi fyrirtæki sem vinnur úr rækjuskelinni kítósan sem hefur græðandi áhrif.“ Þess ber að geta að hágæða kítosan hefur eftirsótta eiginleika þegar kemur að framleiðslu á snyrtivörum, sárameðferðarefnum og fæðubótarefnum.

„Í raun skiptist Primex í tvennt - snyrtivörur og svo lækningavörur - og er komin breið lína af snyrtivörum frá Primex undir nafninu ChitoCare.“ Ísfélagið er hluthafi í ýmsum nýsköpunarfélögum og hefur fjárfest í og séð tækifæri í alls konar lausnum sem eru í þróun en Guðmundur Jóhann vill ekki fara nánar út í það.

„Það er nánast allt nýtt sem hægt er að nýta úr afurðunum.“

Styrkir nærsamfélögin

Ísfélagið leggur ýmislegt til samfélagsins og segir Guðmundur Jóhann að það geri sér grein fyrir hlutverki sínu í öllum samfélögum þar sem það er með starfsstöðvar. „Við styrkjum mikið í nærsamfélögunum, sérstaklega æskulýðs-, björgunar,- og líknarmál. Þá styrkjum við íþróttafélögin þar sem við erum með starfsstöðvar. Við tökum þátt í menningarviðburðum og stöndum meðal annars fyrir barnadagskrá á Goslokahátíð í Vestmannaeyjum og erum við með barnadagskrá á hátíðinni Kátir dagar á Þórshöfn og við styrktum minnisvarðann um síldarkonuna á Siglufirði.

Við teljum að Ísfélagið sé umhverfislega gott fyrirtæki; við erum til dæmis núna að rafvæða fiskimjölsverksmiðjuna í Vestmannaeyjum, þegar loksins er komið nægt rafmagn getum við farið að keyra verksmiðjuna á rafmagni, og það minnkar losun félagsins gífurlega mikið af því að meirihluti af útblæstri okkar kemur frá skipunum og fiskimjölsverksmiðjum félagsins. Svo standa vonir til að félagið fái nægt rafmagn á Þórshöfn á næstu árum og þá getum við farið að rafvæða þar. Við viljum vera fyrirmynd þegar kemur að umhverfismálum og samfélagsmálum. Við leggjum mikla áherslu á að félagið sé sterkur bakhjarl í þessum nærsamfélögum okkar.“ Framtíðin er björt hjá Ísfélaginu og segir Guðmundur Jóhann að þótt að sjávarútvegur sé fjárfrekur bransi og þó að eitt skip geti kostað marga milljarða sé félagið vel í stakk búið til áframhaldandi fjárfestinga. „Við sjáum mörg tækifæri fram undan og félagið heldur áfram að vaxa og dafna eins og það hefur gert hingað til.“

Ný Heimaey VE var afhent félaginu í maí árið 2025. Skipið kom í stað eldri Heimaey VE, sem var seld til Noregs.

Hér er Sigurður VE að dæla loðnu í lestar skipsins norður af Eyjum árið 2022.

FYRIR AUGNABLIK SEM SKIPTA MÁLI

Matís sækir fram fyrir sjálfbærari sjávarútveg

Matís vinnur nú að fjölda rannsókna- og nýsköpunarverkefna sem snúa að því að lágmarka umhverfisáhrif fiskveiða og stuðla að árangursríkri aðlögun sjávarútvegs að áhrifum loftslagsbreytinga. Verkefnin hafa það öll sameiginlegt að vinna að sjálfbærni með því að nýta gögn, nýsköpun og lausnir sem draga úr umhverfisáhrifum og bæta ákvarðanatöku.

Aukin þekking styður við vernd og sjálfbæra nýtingu hafsins

Aukin þekking er lykillinn að verndun sjávarvistkerfa og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Með markvissri gagnaöflun og þróun lausna sem styðja við upplýsta ákvarðanatöku er hægt að draga úr áhrifum mannlegra athafna á hafið.

Verkefnið  MarineGuardian hefur það að markmiði að efla sjálfbærar fiskveiðar og stuðla að verndun sjávarvistkerfa í Atlantshafi og Norðuríshafi. Með þróun lausna og aukinni þekkingu er unnið að því að draga úr meðafla, brottkasti og olíunotkun, auk þess að minnka áhrif á botnvistkerfi og bæta nýtingu afla. Stafrænar lausnir gegna mikilvægu hlutverki í verkefnum Matís, til að mynda við að bæta skilning á vistkerfum og nytjastofnum hafsins. Verkefnið  ARCHFISH notast við stafrænan tvífara (Digital Twin) sem nýtir haffræð-, veðurfræði-, líffræði- og fiskveiðigögn til að veita betri upplýsingar um hafsvæðin. Verkefnið  BioProtect  þróar einnig tæknilegar lausnir til að bregðast við lofslagsbreytingum. Verkefnið felur í sér vöktun á líffræðilegum fjölbreytileika og kortlagningu á áhrifum manna á hafið, með það að markmiði að styðja við ákvarðanir um nýtingu og verndun hafsvæða.

Tekist á við loftslagsbreytingar með öflugum mótvægisaðgerðum Hjá Matís eru í gangi nokkur metnaðarfull verkefni sem leggja áherslu á að efla viðbrögð sjávarútvegs og fiskeldis við áskorunum af völdum loftslagsbreytinga. Verkefnin eiga það sameiginlegt að leggja áherslu á þróun og innleiðingu raunhæfra lausna sem bæði draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og styðja við aðlögun atvinnugreina að breyttum aðstæðum. Í  MeCCAM er áhersla lögð á þróa og innleiða lausnir sem minnka kolefnisspor sjávarútvegsins, á meðan  OCCAM  beinist að mótvægis- og

aðlögunarðagerðum gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga fyrir fiskeldisiðnaðinn í Evrópu. NATALIE verkefnið vinnur að þróun og innleiðingu náttúrumiðaðra lausna (NbS) á strandsvæðum, þar sem áhersla er lögð á að vinna með vistkerfi sem hluta af lausninni. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við sveitarfélög og hagsmunaaðila með áherslu á að efla viðnámsþol bæði vistkerfa og samfélaga.

Aukið gagnsæi með betri gögnum

Vaxandi áhersla er á gagnsæi og mælingum á umhverfisáhrifum í sjávarútvegi og endurspeglast það í verkefnum sem miða að því að bæta aðgengi að áreiðanlegum gögnum og styrkja ákvarðanatöku.

Eitt þeirra verkefna er  Sýnileg Sjálfbærni, þar sem verið er að þróa veflægan gagnagrunn sem gerir fyrirtækjum kleift að skrá upplýsingar um veiðar og vinnslu og reikna kolefnisspor fyrir hverja framleiðslulotu. Á sama tíma er unnið að því að byggja upp samræmda og gagnsæa aðferð til að reikna kolefnisspor íslenskra sjávarafurða í verkefninu KÍMSjávarafurðir, þær niðurstöður verða birtar opinberlega í  ÍSGEM, samhliða næringarupplýsingum, sem eykur samanburðarhæfni og gagnsæi.

Einnig er mikilvægt fyrir íslenska matvælaframleiðslu að sjá hvar hún stendur. Verkefnið Græntól vinnur að því að leggja grunn að notendavænu umhverfisbókhaldi og reiknivél sem gerir kleift að fylgjast með aðfanganotkun, losun og umhverfisáhrifum niður á einstakar vörur og framleiðslustig.

Saman endurspegla þessi verkefni skýra þróun í átt að sjálfbærari, gagnadrifnum og umhverfisvænni sjávarútvegi, þar sem þekking, nýsköpun og gagnsæi eru lykilþættir í mótun framtíðar greinarinnar. Áðurnefnd verkefni eru unnin í góðu samstarfi við íslensk fyrirtæki og stofnanir og má þar m.a. nefna Hafrannsóknastofnun, Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Brim, Samherja, Trackwell, Hampiðjuna, Stiku umhverfislausnir, Eflu, Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins, Bændasamtökin, ásamt fjölda útgerða um land allt.

NÁNARI UPPLÝSINGAR

um öll þau verkefni sem Matís vinnur að

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN! SJÓMENN

Sjómannadagurinn 2026

Upp er runninn Sjómannadagur með stóru ESSI Ég ólst upp á Siglufirði og man fyrst eftir mér undir lok síldaráranna um 1966 þá 5 ára gamall. Ég á minningu um ömmu mína að fara í síldarsöltun á Sunnuplanið. Í kjallaranum hjá afa og ömmu voru lengi hangandi á vegg, gular síldarsvuntur, stígvél stóðu á gólfinu, þar voru síldarhnífar með vöfðu skafti, emeleraðir saltdiskar og kverkklippur voru líka í kjallaranum, löngu eftir að síldin hvarf. Eins og að bíða eftir næsta ræsi í síldina. Þetta eru góðar minningar þó hvarf síldarinnar hefi verið mörgum áfall. Með tilheyrandi niðurníðslu síldarbæjarins Siglufjarðar. Sjórinn, sjómenn, skip eru nátengdar minningar þeirra sem alast upp í sjávarplássi eins og Siglufirði. Ungir að árum vorum við guttarnir farnir að stelast á bryggjurnar til að veiða. Með pilk og snæri sem vafið var uppá spýtu. Mest var þetta ufsi og marhnútur. Að fara í ævintýraferðir undir gömlu síldarbryggjurnar var líka stundað. Ekki alltaf vinsælt hjá ömmu ef maður kom heim grútugur frá toppi til táar og fötin ónýt. Þá fékk maður að kúldrast í bælinu það sem eftir var dags. Gömlu síldarbryggjurnar voru hættulegar þegar lengra leið frá hvarfi síldarinnar. Ekkert viðhald og þær grotnuðu niður. Við ungmennin vorum þar löngum stundum að glæfrast um allt. Kíkja inn í brakkana og skúrana sem enn stóðu. Þar var margt að sjá. Allskonar pappírar, verkfæri, húsgögn og allskonar dót sem var þar eins og hlaupið hefði verið frá þessu öllu saman einn daginn og allt skilið eftir. Snemma fórum við vinirnir í Villimannahvefinu að snúast í kringum trillukallana þegar þeir komu í land eða voru að beita í gömlu síldarbrökkunum. Fengum nasasjón af sjómennskunni. Aflinn alltaf gefinn upp í pundum hjá trilluköllunum. Svo voru byggðir kajakar úr bárujárnsplötum. Við nöppuðum einhversstaðar notaðri bárujárnsplötu. Hún var sléttuð út með slaghömrum, trékubbar settir í langendana fyrir stafn og skut og neglt saman. Miðjunni slegið út og sett spýta á milli til að halda kajakanum í réttu lagi. Stálbik fékkst í SR 46. Það var brætt yfir eldi í málningardós og hellt í stafn og skut svo kajakinn væri þéttur. Ef naglagöt voru á bárujárninu, sem var oftast því ekki þorðum við að nappa nýju bárjárni, var stálbiksbiti tugginn og hnoðaður í götin. Árum var slegið saman úr kústskafti og krossvið, olíubrúsi notaður sem sæti í skut kajakans. Svo var róið. Við í villimannahverf inu rérum úr Hvanneyrarkróknum. Oft voru margir kajakar á sjó og róið út á miðj an fjörð. Ekki var til siðs í þann tíð að vera í björgunarvestum. Löggan kom til eftirlits og hirti af okkur fleyturn ar, bölvaðir. Þá var byrjað uppá nýtt. En auð vitað var þetta stórhættulegt atæfi að vera út

á miðjum firði á þessum skeljum með ekkert til að bjarga sér nema tóman olíubrúsa eða synda í land. Sjórinn ískaldur langt fram á sumar. Oft sökk undan okkur þegar við vorum að byrja þessa útgerð og læra að róa þessum völtu fleytum. Skítarörið eins og það var kallað lá út í Hvanneyrarkrókinn og stundum sökk undan okkur þar. Okkur fannst það ekki tiltökumál en lyktin var nú ekki sérlega góð.

Árið til sjávarins

Árið 2025 og líðandi ár hafa verið gjöful til sjávarins. Verð á fiski hefur hækkað stöðugt. Ágætis loðnuvertíð nýafstaðin. Sjómenn eru þó ekki alveg sáttir. Í kjarasamningi okkar er leiðbeinandi pappír um verðsamning á uppsjávarfiski. Sá verðsamningur inniheldur ekki skilgreint hráefnishlutfall, heldur er sjómönnum og útgerðarmönnum gert að semja um það. Hráefnishlutfallið skiptir höfuðmáli þegar kemur að aflahlut sjómanna. Hlutfallið er ákveðin stærð af afurðaverði. Hefur verið um 33% í uppsjávarfiskinum mjög lengi. Það má færa rök fyrir því að það eigi að vera hærra. Eftir að uppsjávarskipin stækkuðu og mönnunarreglur breyttust um síðustu aldamót, þá lækkaði launahlutfallið á uppsjávarskipunum mikið. Má segja að sjómenn eigi inni þegar kemur að hráefnishlutfallinu miðað við lækkun launahlutfallsins vegna fækkunar sjómanna.

Fækkun í áhöfn Þegar samið var um að hægt væri að fækka án þess að launahlutfall útgerðar hækkaði, var gengið út frá að mönnunin yrði í jafnvægi við þau störf sem vinnan um borð krefðist. Því miður var það svo að hásetum var fækkað niður í drep og vinnan sett á hina sem eftir voru. Matsveinn gengur nú vaktir á dekki sem og vélstjórar. Þeir sem sagt ganga í störf hásetanna sem settir voru í land. Auðvitað hafa skipin stækkað og aðstaða öll um borð í skipunum batnað mikið. Sjálfvirkni og tæki því tengd hafa létt mönnum störfin. En það er ennþá svo að allir þurfa sína hvíld þó allt annað sé til fyrirmyndar um borð að öðru leiti. Sagan hefur kennt okkur að illa sofinn sjómaður er hættulegur sjálfum sér og öðrum. Höfum það í huga.

Einnig hafa einhverjar útgerðir ísfisktogara fækkað um tvö háseta. Fjórum höndum færra sem vinna störfin um borð. Það munar um minna. Ekki eru til neinar reglur eða lög um mönnun fiskiskipa nema hve margir réttindamenn þurfa að vera um borð eftir stærð skips og vélarstærð. Ekkert um þá vinnu sem þarf að inna af hendi á hverjum tíma. Fullyrt var að skipstjórar og útgerðarmenn sæu til þess að alltaf væri „rétt“ mannað. Það hefur því miður ekki gengið eftir. Við verðum að staldra við og skoða þessi mál af fullri alvöru með velferð sjómanna í huga.

Kæru sjómenn komið heilir heim, ég óska ykkur, fjölskyldum ykkar og landsmönnum öllum gleði og ánægju á Sjómannadaginn, megi hann lengi lifa!

Valmundur Valmundsson formaður Sjómannasambands Íslands

Icelandair Cargo hefur jafnframt byggt upp öflugt samstarfsnet við önnur flugfélög sem gerir félaginu kleift að flytja ferskar sjávarafurðir áfram inn á nýja markaði eða þar sem beinar tengingar eru ekki til staðar.

Ferskleiki algjör lykilforsenda

Icelandair Cargo flýgur út í heim með íslenskar sjávarafurðir og eru helstu markaðirnir Evrópa og Norður-Ameríka. „Við sjáum einnig aukna dreifingu til annarra markaða, bæði í Evrópu og áfram í gegnum tengingar til Asíu. Staðsetning Íslands mitt á milli heimsálfa er þar lykilatriði og gerir okkur kleift að þjónusta bæði austur og vestur á skilvirkan og skjótan hátt,“ segir Haraldur Haraldsson, deildarstjóri útflutningssviðs.

Markvisst er unnið að því að lágmarka áhrifin hvað varðar kolefnisfótspor. Ferskleikinn er lykilforsenda í starfseminni og er unnið eftir ströngum alþjóðlegum stöðlum, þar á meðal IATA-reglum um flutning á sjávarafurðum.

„Icelandair Cargo hefur áratugareynslu í flutningi ferskra sjávarafurða og það sem einkennir félagið er sérhæfing og sveigjanleiki. Við skiljum íslenskan sjávarútveg mjög vel – bæði þarfir framleiðenda og kröfur markaða. Það sem við bjóðum upp á er einstaklega hröð afhending og sem dæmi má nefna að fiskur getur verið kominn á borð viðskiptavina á veitingastað í Boston 24 klukkustundum eftir að við tökum við hon-

um í Keflavík,“ segir Haraldur Haraldsson, deildarstjóri útflutningssviðs. „Helstu markaðirnir eru Norður-Ameríka og Evrópa, sérstaklega borgir eins og New York, Boston, Chicago, Baltimore og Seattle í Bandaríkjunum en Liege, París, Frankfurt, Brussel og Amsterdam Evrópumegin. Við sjáum einnig aukna dreifingu til annarra markaða, bæði í Evrópu og áfram í gegnum tengingar til Asíu. Staðsetning Íslands mitt á milli heimsálfa er þar lykilatriði og gerir okkur kleift að þjónusta bæði austur og vestur á skilvirkan og skjótan hátt.“ Icelandair Cargo hefur jafnframt byggt upp öflugt samstarfsnet við önnur flugfélög sem gerir félaginu kleift að flytja ferskar sjávarafurðir áfram inn á nýja markaði eða þar sem beinar tengingar eru ekki til staðar. Með þessum hætti nær þjónustan mun víðar en eigið leiðakerfi og gerir viðskiptavinum kleift að koma vörum sínum nánast hvert sem er í heiminum.

Haraldur segir að Icelandair Cargo vinni markvisst að því að lágmarka áhrifin þegar kemur að kolefnisfótspori. „Það gerum við meðal annars með því að hámarka nýtingu flugvéla og með fjárfestingum í nýjum sparneytnari flugvélum.“

Allt á fullu á hlaðinu – fraktvélin fyllist af flugpöllum og gámum áður en hún leggur af stað til Liege í Belgíu.

Sérhannað vöruhús er í Keflavík, sem Haraldur segir að sé hjartað í starfsemi félagsins, en það er fyrir kælivörur með mismunandi hitastigssvæðum. „Ferlar eru hannaðir til að lágmarka biðtíma og hámarka skilvirkni. Varan fer hratt í gegnum húsið, með stöðugu eftirliti og skýrum verkferlum. Á viðkomustöðum erlendis vinnum við með traustum samstarfsaðilum sem uppfylla sömu kröfur og við setjum okkur sjálf. Þannig tryggjum við að flutningskeðjan rofni ekki þegar varan fer úr okkar höndum.“

Lágmarka áhrifin Ýmsar kröfur og staðlar tengjast þessum flutningum og segir Haraldur að unnið sé eftir ströngum alþjóðlegum stöðlum, þar á meðal IATA-reglum um flutning á sjávarafurðum. „Við erum einnig með eigin innri gæðakerfi sem ganga oft lengra en reglugerðir kveða á um. Við lítum ekki bara á okkur sem flutningsaðila heldur samstarfsaðila okkar viðskiptavina – og því berum við ábyrgð á gæðum vörunnar allt til afhendingar.“

„Við vinnum náið með okkar viðskiptavinum til að tryggja að varan fari tafarlaust frá vinnslu í flug. Við tryggjum það að fiskurinn sem lendir í Boston eða Frakklandi sé í sama ástandi og þegar hann fór frá Íslandi.“

Haraldur segir að Icelandair Cargo vinni markvisst að því að lágmarka áhrifin þegar kemur að kolefnisfótspori. „Það gerum við meðal annars með því að hámarka nýtingu flugvéla og með fjárfestingum í nýjum sparneytnari flugvélum. Við leggjum áherslu á gagnsæi gagnvart viðskiptavinum og viðskiptavinir okkar geta fylgst með sínu kolefnisspori. Það er mikilvægt að horfa á heildarmyndina; ferskvara hefur takmarkaðan líftíma og með hraðari flutningum haldast gæðin betri og líftíminn lengist og þannig drögum við úr matarsóun sem hefur jákvæð áhrif á umhverfið.“

„Það sem við bjóðum upp á er einstaklega hröð afhending og sem dæmi má nefna að fiskur getur verið kominn á borð viðskiptavina á veitingastað í Boston 24 klukkustundum eftir að við tökum við honum í Keflavík,“ segir Haraldur Haraldsson, deildarstjóri útflutningssviðs.

Tími, kælikeðja og meðhöndlun

Haraldur segir að ferskleiki sé algjör lykilforsenda starfseminnar og í raun grunnurinn að virðiskeðju íslenskra sjávarafurða. „Við vinnum náið með okkar viðskiptavinum til að tryggja að varan fari tafarlaust frá vinnslu í flug. Við tryggjum það að fiskurinn sem lendir í Boston eða Frakklandi sé í sama ástandi og þegar hann fór frá Íslandi.“ Ýmislegt þarf að hafa í huga þegar kemur að flutningi sjávarafurða með flugi og nefnir Haraldur þrjá meginþætti - tíma, kælikeðju og meðhöndlun. „Í fyrsta lagi þarf flæðið að vera hnökralaust – tafir geta haft bein áhrif á gæði og verðmæti vörunnar. Í öðru lagi er mikilvægt að hitastigið á afurðinni sé eins lágt og kostur er við afhendingu til okkar. Afurðin berst iðulega til okkar fjórum klukkutímum fyrir brottför og er þá hlaðið á flugpalla sem fara beint inn í kæli. Þegar styttist í brottför er þeim ekið út að vél og hlaðið um borð. Í þriðja lagi skiptir meðhöndlun miklu máli; rétt pökkun, rétt stöflun og mjúk en hröð meðhöndlun í gegnum ferlið. Þetta er samspil margra aðila og þess vegna leggjum við mikla áherslu á þjálfun, skýra ferla og rekjanleika.“

„Í hvert sinn sem Icelandair kynnir nýjan áfangastað opnast ný tækifæri fyrir okkar viðskiptavini.“

Þekking, innviðir og teymi

Rætur Icelandair Cargo ná aftur til ársins 1937 þegar Flugfélag Akureyrar var stofnað sem síðar varð að Icelandair. Árið 1973 var komið á legg sérstakri fraktflutningadeild innan fyrirtækisins. Til að undirstrika mikilvægi fraktflutninga fyrir Icelandair var Icelandair Cargo stofnað árið 1999 sem sjálfstætt dótturfélag Icelandair. „Frá þeim tíma höfum við byggt upp sterka stöðu í flutningi ferskra afurða, sérstaklega sjávarafurða, og þróað sérhæfða þekkingu á því sviði.

Við notum meðal annars fraktútgáfur af Boeing 767 sem við fljúgum alla jafna á milli Liege í Belgíu og New York í Bandaríkjunum með viðkomu í Keflavík. Auk þess nýtum við laust fraktrými í farþegaleiðakerfi Icelandair sem veitir viðskiptavinum okkar aðgang á að geta flutt vörur djúpt inn á markaði. Í hvert sinn sem Icelandair kynnir nýjan áfanga

„Markmið okkar er ekki bara að flytja vörur frá A til B heldur að gera það á þann hátt að við viðhöldum gæðum, verndum verðmæti og orðspor íslenskra sjávarafurða.“

Flugflutningar sinna mikilvægum mörkuðum fyrir ferskar íslenskar sjávarafurðir. Við erum í raun brú á milli Íslands og alþjóðlegra markaða. Markmið okkar er ekki bara að flytja vörur frá A til B heldur að gera það á þann hátt að við viðhöldum gæðum, verndum verðmæti og orðspor íslenskra sjávarafurða. Það er ábyrgð sem við tökum alvarlega - og höfum byggt upp þekkingu, innviði og teymi sem styður við það á hverjum degi.“

Ýmsar kröfur og staðlar tengjast þessum flutningum og segir Haraldur að unnið sé eftir ströngum alþjóðlegum stöðlum, þar á meðal IATA-reglum um flutning á sjávarafurðum.

Hleðsla farþegaflugvélar á leið til Boston – fiskikassar fara um borð.

Verkalýðsfélag Vestfirðinga óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn

Sátt um sjávarútveg: sanngirni, byggðir og strandveiðar

Umræðan um íslenskan sjávarútveg festist oft í sérhagsmunum og slagorðum, en kjarni málsins er einfaldur: þjóðin á auðlindina, stjórnvöld setja leikreglurnar og brothættar byggðir blæða sökum kerfis sem ýtir undir samþjöppun. Á sama tíma er heimurinn að breytast; kröfur um vistvænar, rekjanlegar og félagslega ábyrgar veiðar verða sífellt háværari á mörkuðum sem skipta okkur mestu. Þessi þrýstingur –heima og heiman – varpar skýru ljósi á það hvers vegna smábátar og strandveiðar eru ekki jaðarfyrirbæri, heldur lykilatriði í sanngjarnari, arðbærari og trúverðugri nýtingu hafsins.

Veiðigjöldin

Stórútgerðin og hagsmunasamtök hennar halda því gjarnan fram að greinin skili ríkissjóði gríðarlegum tekjum og að álögur séu þegar of háar. Þrátt fyrir það er hver risaútgerðin af fætur annarri að auglýsa methagnað. Ofan á það bætist að lóðrétt samþætting veiða, vinnslu og sölu skapar hvata til að láta hagnað myndast utan landssteinanna. Þjóðin skynjar þetta ósamræmi, sem útskýrir hvers vegna krafan um hærri veiðigjöld og gagnsæi um kvótaeign færist sífellt ofar í almennri umræðu.

Í þessu samhengi er athyglisvert að smábátasjómenn hafa sjálfir lagt fram skýrt viðmið um hvað þeir telja sanngjarnt: tillögu um að greiða 4 milljarða í leigu á 30 þúsund tonn af þorski. Þá kemur í ljós að útfærslan á auðlindagjaldi getur verið allt önnur en sú mynd sem dregin er upp þegar á að verja óbreyttar reglur. Það að smábátar treysti sér til að bjóða hærra gjald bendir til þess að innan kerfisins er vitlaust gefið.

Kvótakerfið hefur, hvernig sem á það er litið, haft slæmar afleiðingar á byggðastefnu: samþjöppun aflaheimilda hefur dregið úr sjálfsprottinni atvinnu og sjálfstæði í sjávarplássum og flutt ákvörðunarvald frá bryggjum og heimahöfnum inn á skrifstofur örfárra stórra fyrirtækja. Þar sem kvótinn safnast á fáar hendur verður byggðafesta síður að raunverulegu markmiði og meira að þýðingarlitlu orðalagi í lögum og skýrslum. Fyrir brothættar byggðir getur ein ákvörðun um hagræðingu, sameiningu eða flutning vinnslu þýtt að stoðum sé kippt undan samfélagi sem byggir tilveru sína á hafinu.

Þess vegna skiptir máli að horfa út fyrir landsteinana. Í Noregi boðaði sjávarútvegsráðherra þeirra stefnubreytingu með því markmiði að úthluta kvóta á fyrirsjáanlegri og sanngjarnari hátt, tryggja fjölbreyttari flota og fleiri heilsársstörf meðfram ströndinni. Þar er meðal annars rætt um tilfærslu þorskkvóta frá togurum til smábáta og dreifingarregl-

Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda

ur milli haf- og strandflota sem taka mið af stærð heildarkvóta. Kjarni röksemdanna er tvíþættur: annars vegar að úthlutun sé ekki nægilega réttlát, hins vegar að stór hluti flotans hafi ekki sinnt samfélagslegri skyldu sinni um byggð og atvinnu. Það er umræða sem á fullt erindi til Íslands, ekki síst þegar hér heima eru reglur ítrekað mótaðar þannig að þær stuðli frekar að samþjöppun en nýliðun.

Við sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra hátíðarkveðjur

Strandveiðar

Í stuttu máli eru strandveiðar vistvænar, skapa verðmæti og styrkja samfélög. Kolefnisspor smábáta er mun lægra en hjá stórum togurum, röskun á botni er takmörkuð og töpuð veiðarfæri leiða síður til varanlegrar plastmengunar. Gæðin eru jafnframt lykilatriði: afla er landað samdægurs, meðferð er eins og best verður á kosið og vara sem er krókaveidd og rekjanleg fær hærra verð. Strandveiðar opna líka dyr fyrir þá sem vilja sækja sjóinn á eigin forsendum og byggja upp lífsviðurværi án þess að þurfa að kaupa sig inn í lokað kerfi með gríðarlegum fjármagnskostnaði. Og loks eru áhrifin á hafnirnar veruleg: þegar kerfið er fyrirsjáanlegt, myndast mikilvægar þjónustukeðjur, fiskmarkaðir og önnur afleidd störf verða til; ekki af því að strandveiðar séu niðurgreidd af ríkinu, heldur af því að varan er verðmæt og eftirspurnin til staðar. Strandveiðar eru byggðastefna sem borgar með sér.

Markaðurinn

Markaðsstaða krókaveidds fisks er eitthvað sem stjórnvöld mega ekki vanmeta. Í heimildarmyndinni Ocean eftir David Attenborough er botntrollum líkt við jarðýtur sem ryðja hafsbotninum og skilja eftir sig slóð eyðileggingar. Hvort sem menn telja myndmálið ýkt eða ekki, þá eru áhrifin á neyslumynstur afgerandi: Attenborough nýtur trausts á stærstu mörkuðum okkar, sérstaklega í Bretlandi. Þar hafa neytendur lengi lagt áherslu á sjálfbærni og í síauknum mæli vilja þeir vita með hvaða veiðarfærum fiskur er veiddur. Rannsóknir hafa jafnframt bent

til þess að krókaveiddur þorskur seljist á hærra verði en trollveiddur. Ef ímynd togveiða veikist enn frekar á alþjóðamörkuðum, er skynsamlegt að Ísland styrki þann hluta flotans sem fellur best að kröfum um vistvæni, rekjanleika og gæði í stað þess að láta smábátaútgerð hanga á sinni hungurlús og óvissu frá ári til árs.

Fjölbreytt útgerðarform er eina vitið

Svarið er ekki að setja ólík útgerðarform upp á móti hvor öðrum, né heldur að halda því fram að smábátar geti veitt allan fisk í íslenskri lögsögu. Svarið er að laga leikreglurnar þannig að fjölbreyttur floti fái að þrífast og að þjóðin fái sanngjarna hlutdeild í arðinum. Það kallar á gagnsæi um kvótaeign og raunverulegan hagnað, réttlátari úthlutun sem styður nýliðun, og fyrirsjáanlegt strandveiðikerfi þar sem dagar og heimildir eru tryggðar með skýrum hætti, ekki með reddingum á síðustu stundu. Þegar meirihluti þjóðarinnar kallar eftir því að styrkja strandveiðar og bæta í pottinn, þá er það ekki sérviska; það er ábending um að sáttin um sjávarútveginn verði ekki endurheimt nema stefnan miði að því sem lögin segja að hún eigi að miða að: traustri atvinnu og byggð í landinu.

Kjartan með myndarsteinbít
Kjartan með stóran þorsk

Hafnir Múlaþings

óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn

Múlaþings

Borgarfjarðarhöfn

Ports of Múlaþing

Djúpavogshöfn

Ports of Múlaþing

Seyðisfjarðarhöfn

Ports of Múlaþing

Samstarf við atvinnulífið skiptir sköpum

Sem kennari í verkgreinum sé ég á hverjum degi að samstarf skóla og atvinnulífs er ekki aukaatriði heldur forsenda góðs náms. Þegar tengslin eru raunveruleg verður kennslan skýrari, markvissari og nær þeim veruleika sem bíður nemenda að skólagöngu lokinni.

Sem verkgreinakennari sé ég það aftur og aftur að nám verður sterkara þegar það tengist raunveruleikanum. Í verkgreinum nægir ekki að kenna fræði og handtök innan veggja skólans. Nemendur þurfa líka að læra vinnubrögð, ábyrgð, samskipti, öryggisvitund og fagmennsku. Þeir þurfa að átta sig á því að verklag skiptir máli, gæði skipta máli og viðhorf til vinnu skiptir máli.

Þess vegna eru tengsl við atvinnulífið svo mikilvæg. Tengslin hjálpa nemendum að sjá að námið er ekki einangrað verkefni inni í skóla heldur undirbúningur fyrir raunveruleg verkefni og raunverulegt starf.

Þegar námið fær samhengi

Eitt það mikilvægasta sem samstarf við atvinnulífið gerir er að gefa náminu samhengi. Þegar nemendur sjá hvernig kunnátta þeirra tengist störfum, fyrirtækjum og verkefnum í samfélaginu verður auðveldara fyrir þá að skilja tilganginn með því sem þeir eru að læra. Þá verða kröfurnar skýrari og ábyrgðin merkingarbærari.

Nemendur finna fljótt muninn á því hvort verið er að kenna þeim eitthvað eingöngu til að ljúka áfanga eða hvort verið er að búa þá undir að takast á við raunverulegan veruleika. Þegar tengingin er skýr eykst oft bæði áhugi, seigla og metnaður. Þá sjá þeir betur hvers vegna það skiptir máli að mæta vel, nýta tímann, fara eftir verkferlum og vanda til verka.

REYKJANESBÆR

Faðir Sævars, Gestur Loftsson, stundaði sjómennsku og verkamannavinnu og reri á eigin trillu á sumrin. Hér má sjá hann á Sæunni. Mynd: Aðsend

Byrjaði ellefu ára að vinna – og er enn að

Miklar breytingar hafa orðið á högum sjómanna, réttindum þeirra og vinnuaðstöðu á síðustu áratugum en þær breytingar hafa ekki gerst af sjálfu sér. Sævar Kristinn Gestsson, fyrrverandi sjómaður, Ísfirðingur og reyndur verkalýðsbaráttumaður, segir að margt hafi áunnist í kjarabaráttu sjómanna en að enn séu mál sem berjast þurfi fyrir.

Sævar Kristinn Gestsson, formaður sjómannadeildar Verkalýðsfélags Vestfirðinga, er margreyndur sjómaður og hefur verið viðloðandi verkalýðsmál til tuga ára. Hann hefur marga fjöruna sopið í sjómennskunni og í samtali við Sjávarafl segir hann frá því hvað varð til þess að hann fór á sjó, þeim sjávarháska sem hann lenti í og afleiðingum hans – og þeim málum sem hann hefur barist fyrir á ferli sínum.

Sævar er fæddur í desember árið 1947 á Ísafirði og verður því 79 ára á þessu ári. Hann hefur búið mest allt lífið fyrir vestan, fyrir utan nokkur ár á Akureyri. Hann byrjaði ungur á sjó en 11 ára gamall fékk hann sína fyrstu vinnu. „Maður var alltaf að þvælast í kringum sjómenn sem gutti,“ segir hann til útskýringar.

Ekki mikið annað að gera en að fara á sjó Faðir Sævars hét Gestur Loftsson og var frá Dynjanda á Jökulfjörðum. „Hann var með trillur frá vori fram á haust. Ég fékk að stokka upp og beita lítinn stubb. Bróðir minn var eldri en ég, Bjarni Líndal Gestsson, en hann var þarna þá kominn fram yfir fermingu og mikið í að stokka

upp og beita fyrir gamla manninn ásamt öðrum manni sem var alltaf með honum í dokkunni,“ segir hann. „Svo fór maður að fikta við þetta –þá kominn á þennan aldur, svona ellefu eða tólf ára. Eftir fermingu fór ég á síld norður í land á Gunnhildinni árið 1962.“

Var algengt að drengir eða ungir menn færu á síld á þessum árum?

„Tjaa, það kom fyrir að fermingarstrákar fengju einn hlut saman. Þegar ég var á þessum aldri fór ég niður á bryggju og spurði Jónas Björnsson hvort ég mætti fara. Ég gæti þá fengið einhvern vin minn á móti mér.

Fyrir rest sagði hann við mig: „Nei, nei, ég tek þig með og þá kemur það í ljós hvort þú stendur og þá færðu heilan hlut.“ Svo tilkynnti hann mér það eftir mánuðinn að ég fengi heilan hlut. Mig minnir að við höfum verið í 12 vikur í burtu. Við fórum mánaðamótin maí-júní og komum í enda ágúst heim. Það var ekki lengra þá. Þetta var 60 tonna bátur og hét Gunnhildur,“ svarar Sævar.

Ákvaðstu eftir þennan túr að leggja sjómennskuna fyrir þig?

Hann segir að þegar hann var að alast upp hafi atvinnumarkaðurinn verið heldur einhæfur fyrir vestan. Mikið hafi verið um að fólk hafi farið á sjóinn eða unnið í frystihúsinu. „Það voru allir að vinna þar. Það var ekkert mikið annað hérna á Ísafirði þegar ég var að alast upp. Þetta voru kannski átta 40 til 60 tonna bátar sem voru gerðir út frá Ísafirði á línu. Svo voru kannski tveir til fjórir í Hnífsdal.“

„Svo fór maður að fikta við þetta – þá kominn á þennan aldur, svona ellefu eða tólf ára.“

Mikið var af línubátum fyrir vestan um miðja síðustu öld en eftir að þeim fækkaði fóru menn á síld á Siglufjörð norður í land. Menn gátu verið í fleiri mánuði að heiman þegar fiskaði vel. „Þegar ég var í þessu þá var síldin að ganga meira austur á bóginn. Fyrst þegar við fengum síld vorum við úti á Horninu og fórum með hana á Ísafjörð – svo Siglufjörð og svo Raufarhöfn. Svo enduðum við í kringum Norðfjörð, Seyðisfjörð og Vopnafjörð.“

Mikil félagsvera og finnst gaman að vera í kringum fólk Sævar vann á Gunnhildinni sumarið 1962 en hann segir að um haustið hafi hann ekki verið áfjáður í að halda áfram í skóla. „Ég nennti því ekki, ég sé svo sem eftir því, en þá lenti ég hjá frænda mínum á Hrönninni. Svo var ákveðið að Hrönnin færi ekki á síld,“ útskýrir hann. Örlögin höguðu því þannig að eftir nokkrar vikur hætti einn á Guðbjörgu og Sævar fékk pláss þar sem hann vann um árabil. Hann flutti til Akureyrar 1969 með eiginkonu sinni, Rögnu Arnaldsdóttur, um tíma en flutti til baka 1976.

„Það voru allir að vinna þar. Það var ekkert mikið annað hérna á Ísafirði þegar ég var að alast upp.“

Félagsstörfin áttu hug hans allan þegar hann kom til baka til Ísafjarðar. „Þegar ég kom að norðan þá var alltaf eitthvað um að vera.“ Sævar var skipaður í Sjómannadagsráð en eftir að það lognaðist út af þá hellti hann sér í verkalýðsbaráttuna. Hann fór í stjórn Sjómannafélags Ísfirðinga, varð gjaldkeri og endaði þar sem varaformaður – og síðan sem formaður árið 2000.

Sævar er nú starfandi formaður sjómannadeildar Verkalýðsfélags Vestfirðinga. Hann segist þó ætla að hætta á næstunni. „Ég er búinn að vera í framkvæmdastjórn Sjómannasambandsins frá 2000 og er þar ennþá. Það er búið að vera mikill lærdómur í þessu. Ég hef lært mikið og hitt mikið af fólki. Ég er félagsvera og hef gaman af því að hitta fólk. Ég segi alltaf að þetta hafi bjargað mér, að geta hitt fólk. Mér leiðist alltaf þegar ég er einn.“

Heiftarmikil vinna að koma með afla heim í vetrarvítum Upphaf sjómannaferils Sævars þróaðist á þennan hátt: Hann reri fyrst á línu, svo á netum, þá á síld og svo kláraðist þetta netaævintýri 1967. „Þá var þetta að deyja út vegna þess að það var búið að ganga svo nærri stofninum. Þegar við vorum á netunum fórum við alltaf suður í Breiðafjörð. Við drógum annan hvern dag og lönduðum annan hvern dag. Það var heiftarmikil vinna í því að komast með sæmilegan afla á kannski 100 tonna báti með 40 til 50 tonn í vetrarvítum heim. Við vorum kannski upp í 10 til 11 tíma að komast heim. Svo átti eftir að landa og þá komst maður heim, þreif sig eitthvað og svo var maður laus svona um 10 leytið á morgnana. Svo var maður farinn aftur út klukkan 5 seinna um daginn.“

Nýja Guggan var sótt til Hamborgar vorið 1967 en skipið var smíðað í Austur-Þýskalandi. Hér stendur Sævar með Bjarna Gunnarssyni háseta. Mynd: Pétur Sigurðsson

„Ég hef lært mikið og hitt mikið af fólki. Ég er félagsvera og hef gaman af því að hitta fólk. Ég segi alltaf að þetta hafi bjargað mér, að geta hitt fólk.“

Hann segir að á þessum tíma hafi engin helgarfrí verið. „Á línunni þá rérum við í sex daga og svo var frí á sunnudögum. Þegar ég kom á netin þá var ekkert frí nema bara á páskunum. Svo vorum við að sæta lagi og landa deginum áður til að geta verið úti á sjó 1. maí. Þá var ekkert hægt að gera við því. Svona var þetta bara,“ segir hann.   Lentirðu í sjávarháska á þínum ferli?

„Já,“ svarar Sævar um hæl og segir frá því að hann hafi lent í páskahretinu árið 1963. Vísar hann í eitt umtalaðasta páskahret síðustu aldar. Illviðri skall skyndilega á eftir miðjan dag í dymbilviku, 9. apríl 1963, með hörkufrosti og stormi eftir óvenju milda tíð. Miklir mannskaðar urðu í hretinu en 18 menn fórust á sjó og fádæma skemmdir urðu á gróðri. Á meðal þeirra sem létu lífið voru 16 íslenskir sjómenn, langflestir frá Dalvík og Akureyri.

„Við vorum úti á Barðanum á línu, í steinbít. Við komumst heim en sumir lentu inn undir Vigur og það var brjálað veður. Það var svakalegt. Þegar við komum að bryggjunni heima þá var ekkert hægt að taka lóðir eða neitt,“ segir hann og bætir því við að það eina sem þeir náðu að gera hafi verið að landa fiskinum.

„Það

var heiftarmikil vinna í því að komast með sæmilegan afla á kannski 100 tonna báti með 40 til 50 tonn í vetrarvítum heim.“

„Það var svoleiðis blankalognið um morguninn þegar við vorum að leggja, það blakti ekki hár á höfði. Í steinbítnum gátum við keyrt á milli þegar við vorum búnir að leggja. Þá var keyrt til baka þar sem við byrjuðum að leggja og af því að steinbíturinn var svo gráðugur þá vorum við byrjaðir að draga. Ég fór niður í hádeginu til þess að fá mér eitthvað snarl og þegar ég kom upp aftur var komið alveg geggjað veður – og

Sævar segir að á Ísafirði hafi mikið verið um að fólk hafi farið á sjóinn eða unnið í frystihúsinu hér áður fyrr. Mynd: Aðsend

Sjómenn unnu fótboltaleik gegn landmönnum á Sjómannadaginn árið 1967. Sævar var í vinningsliðinu. Mynd: Aðsend

stuttu á eftir var skorið á og keyrt upp undir,“ segir hann. „Maður var svo ungur að maður fattaði þetta ekki, maður gerði sér ekki grein fyrir hættunni.“

„Það

var svakalegt.

Þegar við

komum að bryggjunni

heima

þá var ekkert hægt að taka lóðir eða neitt.“

Fengu brot á sig og þrír fórust

Sævar rifjar upp annað og alvarlegra atvik fyrir hann persónulega sem hafði mikil áhrif á hann. Þá var hann á Guðbjörginni og í nóvember 1974 varð skipið fyrir brotsjó og þrír menn komu ekki heim aftur eftir þá ferð. „Við fengum brot á okkur inn á dekkið og þeir drukknuðu, Guðmundur Gíslason, Ísfirðingur, Garðar Jónsson og Ari Auðunn Jónsson. Það var mjög erfitt og sat lengi í mér,“ segir hann.

„Maður var svo ungur að maður fattaði þetta ekki, maður gerði sér ekki grein fyrir hættunni.“

Kannski hefur ekki verið mikil áfallahjálp á þessum tíma?

„Nei, það var ekkert svoleiðis þá. Varðskipið kom og dró okkur inn á Patreksfjarðarflóa. Þar var skorið úr skrúfunni. Við vorum á laugardegi klukkan þrjú á Ísafirði og það náttúrulega var fullt af fólki á höfninni. Þetta var mjög erfitt.“

Mynd af Sævari sem var tekin í tilefni af 100 ára afmæli Sjómannafélags Ísfirðinga 2016. Mynd/ Verkalýðsfélag Vestfirðinga

SJÁVARAFL

Hann segir að hann hafi verið orðinn mjög dasaður og þreyttur. „Þetta er eins og annað, þetta eru átök. Ég átti í svolitlum tíma í þessu. Ég svaf illa og svo endaði ég hjá lækni því það var eins og það væri verið að slökkna á mér,“ útskýrir hann.

Dró úr sjómennskunni og fór meira í land

Sævar fékk líkamleg einkenni sem lýstu sér í verkjum í brjósti sem leiddu fram í handleggi. Hann segist ekki hafa getað hreyft sig í þessu ástandi. Eftir að hann hresstist aðeins fór hann til læknis sem sagði honum að þegar hann slakaði á og taugakerfið róaðist þá kæmu verkirnir. „Ég horfði bara á hann og hélt að hann væri einhver vitleysingur.“ En áfallið hafði sín áhrif, um það var ekki að villast. Hann glímdi við afleiðingar áfallsins í einhverri mynd löngu á eftir. „Svo lagaðist þetta með árunum,“ segir hann.

„Þetta er eins og annað, þetta eru átök. Ég átti í svolitlum tíma í þessu.“

Veltir þú fyrir þér að hætta á sjó eftir þetta atvik?

Sævar segir að það hafi komið til greina að fara í land þar sem eiginkonu hans hafi ekki liðið vel með það að hann væri á sjó. „Hún er alin upp á Akureyri og vildi helst ekkert að ég væri á sjó. Ég dró aðeins úr vinnunni og fór meira að beita – enda fín laun í því.“

Miklar breytingar til góðs

Þá er kannski ekki tilviljun að Sævar hafi hellt sér út í félagsstörf á svipuðum tíma. Hann segist vera mikil félagsvera og að hann sinni þeim störfum vegna mikils áhuga.

Hver voru baráttumálin þegar þú fórst fyrst í verkalýðsmálin?

Sævar nefnir nokkur mál á borð við kauptryggingu, slysatryggingu og veikindarétt. „Það var verið að berjast fyrir fiskverði – það var svolítill hasar í því. Breytingarnar urðu miklar og það var í raun bylting hjá sjómönnum þegar þeir fóru að fá uppgjör einu sinni í mánuði miðað við áður en þá var uppgjörið um áramót, í maí, september. Það var sem sagt bara þrisvar gert upp á ári.“ Í dag er uppgjör gert fyrir hvern túr. „Svo kom inn í þetta frítt fæði og voru menn farnir að fá vinnufatnað. En svo var alltaf verið að reyna að fá meira úr kökunni. Einnig var markmiðið að fá meiri réttindi út úr lífeyrissjóðnum. Þetta er svo mikilvægt fyrir alla.“

„Ég horfði bara

á hann og hélt að hann væri einhver vitleysingur.“

Sævar var heiðraður í Sjómannamessu á Sjómannadaginn 2021. Honum voru þökkuð ómetanleg störf í þágu sjómanna sem hann hafði sinnt af mikilli staðfestu og prýði. Mynd: Verkalýðsfélag Vestfirðinga

h

s

Til hamingju

m e ð s j ó m a n n a d a g i n n !

S t a r f s f ó l k V o g u e f y r i r h e i m i l i ð ó s k a r ö l l u m

Dýna sjómannsins

Sævar var á Guðbjörgu ÍS 14 á árunum 1963 til 1967. Hér má sjá Sævar úti á dekki. Mynd: Bjarni L. Gestsson Þeir félagar, Ásgeir Guðbjartsson eða Geiri á Guggunni eins og hann var stundum kallaður og Sævar, unnu saman. Mynd: Aðsend

Hann segir að ýmis jákvæð mál hafi náðst í gegn á þessum tíma. Hann nefnir sem dæmi að í dag sé hægt að telja á fingrum annarrar handar að menn fá ekki launin sín á réttum tíma. „Það er alveg til fyrirmyndar miðað við hvernig þetta var stundum hér áður fyrr.“

Uggandi yfir fækkun manna á skipum

Sævar telur að leggja mætti meiri áherslu á að bæta aðstöðu landverkafólks en hann segir að hjá sjómönnum sé þetta orðið allt öðruvísi. „Útgerðinni gengur vel á Íslandi, sem betur fer.“ Hann segir að samningar gangi auðvitað misjafnlega og að stundum sé gaman að standa í þessu og stundum ekki. Þegar vel gengur og skrifað er undir samninga þá sé auðvitað ekki gefið að sjómönnum lítist síðan á – svo þetta er alls konar, að sögn Sævars.

Hver eru helstu baráttumálin núna?

„Ég myndi segja að það væri verðmyndunin á fiskinum,“ svarar Sævar. „Ég held að það hafi verið þokkalegt í botnfiskinum en það er alltaf einhver núningur í uppsjávargeiranum um verðin. Þá geta sjómenn farið að miða sig við Færeyinga eða Norðmenn – þegar þeir koma og landa þarna á Fáskrúðsfirði þá sjá þeir verðmuninn. Menn voru að benda á að útgerðin í uppsjávargeiranum var að borga sjómönnunum eitthvað ákveðið en svo koma sjómenn frá öðrum löndum með sömu tegundir af fiski og fá hærra borgað. Það er alltaf mikið verið að vinna í því og eru menn á tánum.“ Hann bendir á að mikið sé í húfi fyrir sjómenn hvað þetta varðar.

„Breytingarnar urðu miklar og það var í raun bylting hjá sjómönnum þegar þeir fóru að fá uppgjör einu sinni í mánuði miðað við áður en þá var uppgjörið um áramót, í maí, september.“

Einnig hafa komið upp vangaveltur um það hvort aðskilja ætti veiðar og vinnslu. „Það hefur nú ekki gerst ennþá,“ segir Sævar. Svo er það mönnunin: „Það er alltaf verið að fækka á dekkinu en það er ekki hægt að fækka í brúnni eða í vélstjóranum.“ Hann segir að auðvitað auðveldi aukin tækni vinnuna, það þurfi til að mynda ekki að landa loðnunni eins og áður var gert. „En það er það eina sem maður er alltaf uggandi yfir, að það sé alltaf verið að fækka mönnum. Það er alltaf verið að ræða það.“

„Einnig var markmiðið að fá meiri réttindi út úr lífeyrissjóðnum. Þetta er svo mikilvægt fyrir alla.“

Myndir þú mæla með þessari vinnu í dag?

Er starfsöryggi sjómanna tryggt?

Sævar segist mæla með því fyrir ungt fólk að fara í bransann, það sé engin spurning. „Þetta er gott starf og ágætis laun. Það er ekkert hægt

að kvarta yfir því.“ Helst er það kannski fjarvera frá fjölskyldunni sem spilar inn í, til dæmis á frystiskipum þar sem sjómenn þurfa að vera lengi úti á sjó. „Svo eru auðvitað aðstæður öðruvísi á öðrum skipum vegna þess að vinnslurnar í landi vilja fá sem ferskasta fiskinn upp á að fá verðmætari afla. Þetta var ekki eins og þegar maður var strákur þegar togararnir voru kannski úti í 21 dag.“ Þannig hafi tímarnir breyst.

„Menn voru að benda á að útgerðin í uppsjávargeiranum var að borga sjómönnunum eitthvað ákveðið en svo koma sjómenn frá öðrum löndum með sömu tegundir af fiski og fá hærra borgað.“

Forréttindi að vera við góða heilsu

Hvernig sérðu fyrir þér framtíðina á Vestfjörðum varðandi sjómennskuna? Sævar segir að hann vonist til að fyrirtækjarekstur haldist fyrir vestan. Það sé högg í svona litlu samfélagi þegar fyrirtæki leggja upp laupana eða flytja sig í aðra landsfjórðunga. Fólkið treysti auðvitað á þessi störf og þessa vinnu. „Það er allt svo brothætt á litlu stöðunum,“ bendir hann á. Fyrir þessar sakir leiti margir í vinnu á Ísafjörð og Bolungarvík en búi annars staðar.

„En það er það eina sem maður er alltaf uggandi yfir, að það sé alltaf verið að fækka mönnum.“

Varðandi hans eigin framtíð þá lítur hann hana björtum augum. Lífið gangi sinn vanagang fyrir vestan en hann mun fljótlega láta af störfum fyrir sjómannadeildina, eins og áður segir. Hann segist líta svo á að allt sé í blóma „á meðan maður er með góða heilsu og getur ferðast. Það eru forréttindi. Manni þótti gaman þegar maður var ungur að fá sér í tánna og reykti mikið en svo tók ég upp á þeirri vitleysu að hætta að reykja þegar ég var kominn í tvo pakka af Camel á dag og með pípur. Ég hætti því. Svo hætti ég eiginlega líka að nenna að drekka fyrir mörgum árum, maður er búinn með kvótann,“ segir hann og skellihlær en lýkur máli sínu á að auðvitað sé ekkert slæmt við það að fá sér í tánna einstaka sinnum, svona aðeins smakka – það sé bara hollt.

„Svo eru auðvitað aðstæður öðruvísi á öðrum skipum vegna þess að vinnslurnar í landi vilja fá sem ferskasta fiskinn upp á að fá verðmætari afla.“

Traustur félagi

í sjávarútvegi

Skeljungur hefur þjónað sjávarútveginum og smábátaeigendum í tugi ára. Skeljungur óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn

Staðan

í afla einstakra tegunda innan kvótans

ÞORSKUR

Aflamark 155.026.596 kg

Veitt hlutfall 80,4%

UFSI

Aflamark 54.111.344 kg

Veitt hlutfall 37,1%

KARFI

Aflamark 35.323.564 kg

Veitt hlutfall 69,9%

ÝSA

Aflamark 58.910.819 kg

Veitt hlutfall 89,6%

Um slysatryggingar sjómanna á íslenskum farskipum

Upp úr síðustu aldamótum voru gerðar grundvallarbreytingar á kjarasamningsbundnum slysatryggingarrétti sjómanna. Um var að ræða eina bestu og mestu kjarabót sem stéttarfélög sjómanna hafa samið um í seinni tíð, þegar samkomulag náðist um að bætur til sjómanna vegna vinnuslysa skyldu framvegis ákvarðast samkvæmt ákvæðum skaðabótalaga nr. 50/1993. Þessi breyting leiddi til þess að bætur til sjómanna vegna vinnuslysa hækkuðu til muna frá því sem verið hafði. Þá þurftu sjómenn ekki lengur að finna sökudólg eða kenna um ófullnægjandi vinnuaðstæðum eða verklagi, til þess að eiga möguleika á því að öðlast bótarétt samkvæmt skaðabótalögum. Það sem færri vita þá var jafnframt samið um það í kjarasamningum farmanna, að þeir væru jafnframt slysatryggðir samkvæmt skaðabótalögum vegna líkamstjóns sem þeir urðu fyrir í frítímaslysum. Skipverjar á íslenskum farskipum eru þannig mun betur slysatryggðir vegna frítímaslysa en aðrir launþegar, sem njóta almennt ekki kjarasamningsbundins slysatryggingaréttar vegna frítímaslysa. Er sá réttur þá einvörðungu samkvæmt frítímaslysatryggingu heimilis- og fjölskyldutryggingar eða samkvæmt slysatryggingu sem þeir kunna sjálfir að hafa keypt, en bótaréttur samkvæmt þessum tryggingum er miklum mun lakari en bótaréttur samkvæmt ákvæðum skaðabótalaga.

Þar sem mörg dæmi eru um að skipverjar á farskipum hafi slasast í frítímaslysum, en verið ókunnugt um framangreinda tryggingu og bótarétt, er full ástæða er því til að minnna á þennan bótarétt, en jafnframt það að bótarétturinn er háður takmörkunum, svo sem varðandi frest til tilkynningar slyss til tryggingafélagsins og frest til þess að láta fara fram mat á afleiðingum slyssins. Er því mikilvægt að sjómenn á farskipum sem slasast í frítímaslysum láti kjarasamningsbundinn bótarétt sinn ekki daga uppi, heldur geri strax ráðstafanir til að tryggja sinn rétt innan þess tíma sem þeir hafa samkvæmt íslenskum lögum og skilmálum slysatrygginga.

Jónas Þór Jónasson hrl. Lögmenn Jónas Þór slf. Stórhöfða 29 110 Reykjavík www.logmennjth.is

Til hamingju með daginn ykkar

Starfsfólk Sjávarafls óskar öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra hjartanlega til hamingju með Sjómannadaginn.

SJÁVARAFL

Þau fiska sem þróa

Aukið virði sjávarafurða í krafti rannsókna og nýsköpunar

Á strandveiðum. Ljósmynd/ Þórður Bragason

Strandveiðar 2026

Að heimsækja höfnina, sem er hjarta bæjarins, og fylgjast með löndun veitir hverju þorpi von um að þessi forna hefð haldi áfram að lifa, kynslóð eftir kynslóð. Sjómennirnir, sem hafa sjómennskuna í blóðinu, eru sannar hetjur hafsins, oft að berjast við hörð veðurfars- og kuldaskilyrði.

Breytingar hafa orðið á reglugerð um strandveiðar en hægt var að sækja um þótt skilyrði um haffæriskírteini væru ekki uppfyllt. Síðasti umsóknardagur rann út 15. apríl sl.

Á tímabilinu maí, júní, júlí og ágúst er heimilt að stunda veiðarnar svo framarlega að Fiskistofa hafi gefið leyfi til þess. Hver bátur má veiða fjóra daga í hverri viku og óheimilt er að stunda veiðar á rauðum dögum á almanaki eða helgidögum sem og föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Samkvæmt vef Fiskistofu hófst strandveiðitímabilið 5. maí. Þegar þessi orð eru skrifuð hafa verið gefin út 789 leyfi og í vinnslu eru 51 umsókn.

Heildaraflanum er skipt niður á fjögur veiðisvæði, sem eru: Svæði A, B, C og D. (Sjá mynd af yfirliti strandveiða). Langflestir bátar hafa róið á svæði A en það nær frá Arnarstapa til Súðavíkur.

SVÆÐI A

SVÆÐI B

SVÆÐI D

SVÆÐI C

Yfirlit strandveiðisvæða. Mynd/ Landssamband smábátaeiganda

Skemmtiferðaskip

Bókanir skemmtiferðaskipa eru sífellt að aukast og í sumar og haust er gert ráð fyrir rúmlega 300.000 ferðamönnum sem koma með skemmtiferðaskipum. Stefnan er að fjölga sem mest farþegum sem dvelja lengur á landinu og auka íslenskt efnahagslíf. Fyrir utan að ferðamenn komi í land og kaupi vörur og þjónustu þá fara töluvert af vörum til skipsins, ásamt því að íslenskt tónlistarfólk hefur verið að skemmta farþegum þegar skipin stoppa hér.

Við óskum sjómönnum, smábátaeigendum og starfsfólki í sjávarútvegi til hamingju með daginn

Fiskmarkaður Þórshafnar ehf. Fiskmarkaður Þórshafnar ehf.

Alhliða þjónusta Alhliða þjónusta Löndun - Ís - Slæging

Gullsteiktur hvítlauksfiskur með brokkolí og kartöflum

Þessi réttur er einungis fyrir þá sem elska hvítlauk en ef það á að sleppa hvítlauk mæli ég með að bornar séu fram sítrónusneiðar með réttinum.

Innihald (fyrir 4):

• þorskhnakkar (um 150–200 g fyrir hvern aðila)

• Salt og svartur pipar

• 1 dl hveiti

• 2 egg, léttpískuð

• 2 dl brauðrasp (eða fínhakkað pönnukex)

• 3 msk. olía + 2 msk. smjör til steikingar

• 6 stór hvítlauksrif, þunnskorin

• 600-700 g litlar kartöflur (eða stórar, afhýddar og skornar í helminga)

400 g brokkolí (skorið í litla bita)

• 2 msk. smjör (fyrir kartöflur/grænmeti)

• 2 msk. fersk steinselja eða graslaukur, saxað

Aðferð:

1. Sjóðið kartöflur í 15–20 mínútur þar til þær eru mjúkar.

2. Skerið hvern og einn þorskhnakka í 2-3 bita. Veltið bitunum upp úr hveiti, svo pískuðu eggi og svo upp úr brauðraspi sem búið er að krydda með salti og pipar. Hitið olíu og smjör á pönnu við meðalháan hita. Steikið fiskinn þar til hann er gullinn og gegnsteiktur (3–4 mín. á hvorri hlið, fer eftir þykkt).

3. Steikið þunnar hvítlauksflögur í 1–2 mínútur þar til þær verða gylltar og stökkar. Passið að þær brenni ekki.

4. Steikið brokkolí í 4–5 mínútur þar til það er mjúkt en enn grænt. Kryddið með salti og pipar.

5. Skerið soðnar kartöflur í hálfa til þriðjungsparta og steikið létt í smjöri í 2–3 mín. Kryddið og dreifið saxaðri steinselju/graslauk yfir.

ATH: Ef þið viljið minni fitu, bakið fiskinn í ofni við 200°C í 12–15 mín. í stað steikingar.

Ísfell óskar sjómönnum og fjölskyldum

þeirra til hamingju með sjómannadaginn

Vísir óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn

Visirhf.is

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
SJÁVARAFL maí 2026 2.tbl 13.árg by Sjávarafl - Issuu