1961 Grein úr Stúden tablað inu 1.dese mber ta , er nefnas t Samban d íslenz kra stúden Ekki alls fyrir löngu voru stofnu ð samtök ið geri nokkra grein fyrir aðdrag anda erlend is. Þykir hlýða, að Stúden tablað þessar a samtak a og tilgan gi þeirra . lögðu stúden tar, sem stunda nám erlend is og Í septem ber s.l. komu saman nokkri r nna ernámsma kra íslenz kjör ræða að til drög að því, að boðað yrði til fundar jórnar efnaha gsráðs tafani r núvera ndi ríkist lendis , en þau þrengd ust eðlile ga við auk þess sem a, nanleg tilfin ar garinn fellin s.l. vetur. Einkum voru áhrif gengis í landin u komu hart niður á námsmö nnum. stórhæ kkuð fargjö ld og vaxand i dýrtíð num yfirle itt ekki góðs af þeim gagnrá ðstöfu Við þetta bætist , að námsme nn njóta almenn ings. sem vega skyldu upp á móti kjarar ýrnun
og var á hinum fyrri samþyk kt að Haldni r voru tveir fundir um þetta mál og færa honum samþyk kt fundar ins ðherra senda nefnd manna á fund mennta málará um kjaram álin.
til um hærri námslá n og styki námsmö nnum Í samþyk kt þessar i eru gerðar kröfur ingar afleið þær á bent er mur Ennfre r. greini handa og raktar þær ástæðu r er fyrr n sína til menntu sækja að ulegt illmög yrði sem af kunna að hljóta st, ef stúden tum ra viðbúi ð er að svo verði, ef hið opinbe annarr a landa vegna efnale ysis. En hleypu r ekki undir bagga hið fyrsta . viðræð ur nefnd sú er áður getur um hafði átt Síðari fundur inn var haldin n eftir að jóra mennta málará ðs. Höfðu aðilar þesvið mennta málará ðherra og framkv æmdast málum þessum í viðuna ndi horf og lofaði sir fullan skilni ng og vilja á að koma stúrp á Alþing i um samein ingu lánasj óðs mennta málará ðherra að leggja fram frumva r yrðu is, og beita sér fyrir að lán og styrki denta er náms stunda heima og erlend hlutum árlegs námsko stnaða r. hækkað ir, svo að næmi tveimu r þriðju fyrir hugmyn d um að stofnu n heilda rsamta ka Á fyrrne fndum fundum kom einnig fram is, erlend ta stúden kra íslenz na hagsmu íslenz ka námsme nn erlend is til að ,,gæta erlenkjör og náms un tilhög nnum námsmö efla samhel dni þeirra í millum og kynna dis”.
sé íslenz kra stúden ta erlend is eða hópar, Aðilar að samban dinu geta orðið félög lönsamban dsins er skipuð 5 mönnum og er ekki félög á viðkom andi stað. Stjórn nna og námsma fjölda eftir svæði í skipt í, dum þeim, sem íslenz kir stúden tar nema í því Stjórn in er kosin af fulltr úaráði , en er einn stjórn armeðl imur frá hverju . eða hóp, sem í samtök unum er. eiga sæti fulltr úar frá hverju félagi öll sem hefur aðsetu r í Reykja vík og annast Samban dið hefur ráðis sér starfs mann Evrópu . heima, þar sem hún er dreifð víða um störf, sem stjórn in felur honum hér on. Starfs maður samban dsins er Hilmar Ólafss s verið hinum nýstof nuðu samtök um innan Einnig hefur Stúden taráð Háskól a Ísland megi reiðsl u. Er vonand i að samtök þessi handar og veitt þeim ýmiss konar fyrirg sóma og stúden tum til hagsbó ta. vel dafna og gegna hlutve rki sínu til
SÍNE 50 ára.......................................................................................................bls. 4 Afmæliskveðjur..............................................................................................bls. 6-8 Lækkaðu símareikninginn .............................................................................bls. 10 Forvitnin rekur mig áfram ..............................................................................bls.12 Sæmundur Fróði..............................................................................................bls.14 Búsetureglur LÍN.............................................................................................bls.16 Arkitektúr í Glasgow.......................................................................................bls. 18 Viðtal Halldór Gíslason..................................................................................bls. 20 Starfsþjálfun í Utanríkisþjónustu...................................................................bls. 24 Saga LÍN.........................................................................................................bls. 31 Viðtöl við fyrrverandi framkvæmdastjóra SÍNE.............................................bls.33 Doktorsmenntun Íslendinga...........................................................................bls. 36
Samband íslenskra námsmanna erlendis skrifstofa SÍNE Pósthússtræti 3-5 101 Reykjavík Netfang : sine@sine.is Veffang : www.sine.is Skrifstofan er opin alla virka daga frá 9-12 Stjórn SÍNE Formaður og Lín fulltrúi: Auður Sigrúnardóttir Varaformaður: Sólveig Lísa Tryggvadóttir Meðstjórnandi: Erla Björk Baldursdóttir Ritstjóri: Hjördís Jónsdóttir Umbrot og hönnun: Fanney Sizemore
Stjórn og framkvæmdastjóri SÍNE
Þann 13.ágúst 1961 var Samband íslenskra námsmanna stofnað. Undirbúningur hófst þó þegar árið 1960. Efnahagsleg og pólitísk kveikja að stofnuninni var sú að í febrúar 1960 var gengi íslensku krónunnar fellt geysimikið og afnuminn svonefndur námsmanna g jaldeyrir. Á þessum árum var margflókið gengis-kerfi og var sölugengi íslensku krónunnar miðað við til hverra nota g jaldeyrinn átti að fara í. Helstu forgöngumenn stofnunar voru Andri Ísaksson og Ólafur Jónsson. Var það mat þeirra að ekki væri hægt að láta bjóða sér þessa miklu kjaraskerðingu án þess að bera hönd yfir höfuð sér. Könnuðu þeir undirtektir meðal námsfélaga sinna í Frakklandi og í Svíþjóð. Voru undirtektir að vonum góðar og var undirbúningsfundur haldinn í Menntaskólanum í Reykjavík í ágúst sama ár. Á fundinum var kosin fimm manna undirbúningsnefnd sem undirbjó og samdi áætlun um hvernig haldið yrði uppi samræðum á milli landa og námsstaða yfir veturinn. Einnig voru menn sendir á fund menntamálaráðherra, Gylfa Þ. Gíslasonar, til að kynna honum hugmyndirnar.
4
Með þessu var grunnurinn lagður og SÍSE ( Samband íslenskra stúdenta erlendis) var síðan formlega stofnað þann 13.ágúst 1961. Fyrstu árin voru aðaltekjur SÍSE styrkur af fjárlögum en menntamálaráðherra þótti
rétt að veita SÍSE sambærilegan styrk og Stúdentaráði Háskóla Íslands þar sem SÍSE var fulltrúi stór hóps námsmanna. Styrkurinn dugði fyrir opnun skrifstofu og var hún í fyrstu opin tvo daga í viku í nokkra tíma í senn. Á aðalfundi SÍSE árið 1969 var nafni samtakanna breytt í Samband íslenskra námsmanna erlendis. Í röksemdum þáverandi stjórnar kemur fram að það sé gert til að ,,taka tillit til þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað erlendis og skilin milli háskólamenntunar og annarrar æðri menntunar t.d. tæknimenntunar verða æ óskýrari. Er það víða undir hælinn lagt, hvort sumar námsgreinar eru kenndar við hina svokölluðu klassísku háskóla eða við fag- og tækniskóla.” Eftir breytinguna eiga allir námsmenn erlendis þess kost á að ganga í SÍNE svo fremi að þeir stundi nám erlendis að minnsta kosti eitt ár. Þar með voru komin á fót heildarsamtök námsmanna erlendis sem láta sig hagsmuni allra varða. LÍN Lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN) var stofnaður árið 1961 og fagnar því einnig 50 ára afmæli í ár. Undanfarnar áratugi hefur SÍNE fylgst með og haft þróun á starf LÍN. SÍNE fékk fulltrúa í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna ásamt námsmannahreyfingunum, Bandalag íslenskra sérskólanema (BÍSN), Iðnnemasambandinu (INSÍ) sem nú hefur sameinast
félaginu Samband íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) og Stúdentaráði Háskóla Íslands (SHÍ). Námsmannahreyfingarnar hafa í gegnum tíðina átt í góðu samstarfi og stutt við mál hver annarra. Endurskoðun úthlutunarreglna LÍN á hverju vori hefur verið hluti af þessu samstarfi og einnig hafa fulltrúar þeirra átt sæti í ýmsum nefndum á vegum LÍN. SÍNE hefur undanfarin ár átt fulltrúa í vafamálanefnd LÍN. En þar eru haldnir fundir 1-2 í mánuði og farið yfir vafmál sem upp geta komið. Þar hefur fulltrúi SÍNE getað talað máli námsmanna í samskiptum við sjóðinn.
Kynning á námi erlendis SÍNE hefur einnig verið ötult að kynna nám erlendis. Haldnar hafa verið ófáar kynningar í framhaldsskólum landsins í gegnum tíðina, þáttaka í Alþjóðadegi Háskóla Íslands og öðrum þeim kynningum og ráðstefnum sem að SÍNE hefur verið boðin þáttaka á. Haldnar hafa verið ráðstefnur um mikilvægi náms erlendis, áhrif gengisþróunar á kjör námsmanna erlendis og önnur mikilvæg mál sem hafa brunnið á námsmönnum erlendis á hverjum tíma fyrir sig.
Útgáfa Baráttumál SÍNE Í gegnum árin hefur útgáfa verið mismikil á vegum sambandsins. Í ár fagnar Sæmundur tímarit SÍNE 30. árgangi sínum en áður fyrr komu út blöð og ritlingar frá stjórninni og á tímabili var SÍNE í samtarfi við Stúdentaráð Háskóla Íslands um útgáfu á Stúdentablaðinu. Handbók um nám erlendis var gefin út á árum áður og var sú bók mjög mikilvæg þeim sem hugðu á nám erlendis þar sem upplýsingar voru af skornum skammti. Nú hefur handbókin verið færð á vefsíðuna, www.sine.is. Einnig hefur verið sent út net-fréttabréf reglulega til félagsmanna til að miðla mikilvægum upplýsingum.
LÍN hefur löngum tengst baráttumálum SÍNE í gegnum tíðina. Í samvinnu við hinar námsmannahreyfingarnar hafa jákvæðum breytingum verið komið til leiðar. Mjög mikilvægt er fyrir fulltrúa SÍNE að sitja í stjórn LÍN og fá að fylg jast með og reyna að hafa áhrif á þær breytingar og ákvarðanir sem teknar eru vegna námsmanna erlendis. SÍNE félagar hafa verið duglegir að koma með ábendingar og leitað til SÍNE með sín áhygg juefni og vafamál sem svo seinna hafa verið undirstaðan að leiðréttingu á þeirra hag og annarra í sömu stöðu.
5
Katrín Jakobsdóttir Mennta- og menningarmálaráðherra
6
Þegar Þorlákur helgi biskup fór út til náms í Frakklandi á 12. öld er ekki vitað hvort hann lenti í miklum vandræðum við að finna sér húsnæði, fá g jaldeyri eða við að senda bréf heim. Raunar segir fátt í Þorláks sögu um dvöl hans annað en að hann hafi löngum verið í bóknámi og oft að riti, á milli þess sem hann lá í ættfræði og mannfræði. Löngu seinna fóru stúdentar til annarra landa í öðrum tilgangi. Stefán Ólafsson dvaldi hjá Ole Worm í Kaupmanna-höfn um miðja 17. öld og þýddi Völuspá á latínu. Rúmri öld síðan fór Þórður Thoroddi til Svíþjóðar að læra um landbúnað og varð síðar sérfræðingur í brennisteinsvinnslu. Þannig hafa Íslendingar löngum farið til útlanda og sótt sér nýja þekkingu, menntun og fært hana heim, löndum sínum til hagsbóta. Fimmtíu ár eru liðin síðan Samband íslenskra námsmanna erlendis, SÍNE, var stofnað en félagið hefur sinnt íslenskum námsmönnum í útlöndum, gætt hagsmuna þeirra og veitt þeim ráðg jöf í ýmsum hagnýtum efnum. Félagið gefur út málgagnið Sæmund og bókina Nám erlendis og sinnir ýmiss konar þjónustu við íslenska námsmenn erlendis. Íslendingar hafa ávallt sótt til útlanda eftir menntun og þekkingu. Það er okkur sem lítilli eyþjóð sérlega mikilvægt, ekki síður nú en þegar Þorlákur helgi sótti menntun sína til útlanda. Íslendingar hafa um aldir sótt ná um allan heim og þannig viljum við að það verði áfram. Þar skiptir SÍNE máli sem öflugur talsmaður þegar kemur að ýmsum framfaramálum fyrir námsmenn, meðal annars í samskiptum við stjórnvöld á hverjum tíma. Ég óska Sambandi íslenskra námsmanna erlendis hjartanlega til haming ju með 50 ára afmælið og óska öllum námsmönnum um heim allan velgengni í námi og starfi.
Kristiane Roe Hammer, President of ANSA (Association of Norwegian students abroad)
Dear SINE and dear Icelandic students abroad, congratulations on 50 completed years! This is quite the milestone. On behalf of your sister organization in Norway, ANSA - Association of Norwegian Students Abroad I would also like to take this opportunity to congratulate all of you on your choice of going abroad. Norway and Iceland are both relatively small nations and need the impulses and experiences we gain in going abroad and can bring back to our countries. That is why we in ANSA like to say ‘Make Norway a better place - study abroad’. Each one of you have taken the challenge and are helping to make Iceland an even better place. The languages and cultural understanding that we bring back are invaluable, but each also experience personal growth in going abroad. Learning to be independent,
curious, flexible and open minded. We explore ourselves just as we explore our surroundings. While you are celebrating your 50th anniversary we in Norway are celebrating two of our great explorers this year; Fridtjof Nansen was born 150 years ago and Roald Amundsen reached the Southpole 100 years ago this year. Nansen was the first to cross Greenland on skies and was also a great humanitarian and aid worker which eventually earned him the Nobel Peace Prize. Amundsen became the first person to reach the Southpole and also carried out several other dearing expeditions that at the time helped gather important data about the world we are living in. Both of these men took a challenge, rose to the task and explored new frontiers. They wanted to make the world a better place. Good luck, and I hope you keep exploring frontiers.
7
Ólafur Ragnar Grímsson Forseti Íslands
8
Fyrir hálfri öld bar samfélagið enn svipmót ríkra hefða sem áttu djúpar rætur í fyrri tíð. Lærði skólinn við Lækjargötu og vettvangur stúdenta í Kaupmannahöfn höfðu lengi verið helstu áfangarnir á þeirri menntabraut sem Íslendingar þekktu best. Svo ruddist SÍNE inn í þessa rólegu veröld, samtök námsmanna sem haldið höfðu í margar áttir, sótt lærdóm og áhrif um Evrópu alla og einnig vestur yfir Atlantshaf. Hagsmunirnir voru vissulega meginhvati að samtökunum, hin samfellda barátta fyrir námslánum og betri kjörum, en viljinn til að umbylta og sjá veg vísa til nýrra tíma varð snemma að köllun margra sem gerðu SÍNE að vettvangi baráttunnar fyrir betri heimi. Árin sem nú eru oft kennd við róttækni unga fólksins tengdust SÍNE í íslenskri vitund. Þau sem heima sátu og sóttu fyrirlestra á Melunum hlökkuðu jafnan til sumardaga þegar órólega deildin kom til Íslands með hugsjón byltingar í farteskinu. Fyrir þessa kynslóð er fimmtugsafmæli SÍNE kjörið tilefni til að líta um öxl og spyrja: Hvað ávannst í hita leiksins? Breyttist Ísland vegna baráttunnar? Þessu svarar hver og einn en hitt er víst að sú fjölmenna sveit sem sótt hefur nám vítt og breitt um veröldina hefur heim komin látið ríkulega að sér kveða: í menningu og vísindum, í atvinnulífi og þjónustu í þágu velferðar og heilbrigðis, í menntun og tækni, nýsköpun og rannsóknum. Sú söguskýring er nokkuð trúverðug að mestu hafi ráðið um árangur Íslendinga að ungu fólki var strax á fyrstu áratugum lýðveldisins gert kleift að sækja skóla hvert sem hugurinn girntist. Námslánin, þótt oft væru umdeild, opnuðu öllum nýjar leiðir, tækifærin voru ekki lengur bundin við hástéttina eina. SÍNE hefur þjónað þessu fólki vel, verið rödd þess og traustur hagsmunavörður en líka haldið á lofti kröfunni um jafnrétti til náms. Á þann hátt hefur SÍNE átt ríka hlutdeild í nýrri samfélagsskipan sem færði fátækri þjóð meiri farsæld en flestar aðrar hafa notið.
Ljósmynd: Hermann Sigurðsson
Einfalt og þægilegt
Amivox er nýtt íslenskt forrit fyrir farsíma sem gerir fólki mögulegt að lækka verulega kostnað vegna símtala til útlanda. Sparnaðurinn getur hlaupið á tugum prósenta miðað við hefðbundnar áskriftaleiðir ef hringt er úr farsíma á milli landa. Amivox ætti því að henta sérstaklega þörfum námsmanna erlendis sem dvelja fjarri vinum og ætting jum og þurfa að velta hverri krónu fyrir sér. Helsti kosturinn við Amivox er að það er hægt að nota í venjulegum farsímum og er notandinn því ekki bundinn við tölvu eða snjallsíma líkt og raunin er með Skype og álíka forrit sem notið hafa vinsælda meðal námsmanna erlendis. ,,Fólk spyr okkur alltaf af hverju notið þið ekki bara Skype? Það er frítt. Okkur finnst fínt ef fólk getur notað Skype og það er rétt að það er frítt þegar hringt er úr tölvu í tölvu. Ef þú ætlar að hring ja í gsm-síma eða heimasíma úr Skype þá er það miklu dýrara en Amivox,” segir Birkir Marteinsson hjá Amivox.
Notendaviðmót Amivox er einfalt og auðskiljanlegt enda er forritið fyrst og fremst sniðið að þörfum almennings en ekki tæknigrúskara. Ekki er heldur nauðsynlegt að eiga fínustu og dýrustu farsímana til að geta nýtt sér þessa tækni þar sem hana má nota í nær öllum símum. Síðast en ekki síst þarf fólk ekki að hlaupa til og skipta um símafyrirtæki því að Amivox virkar með hefðbundnum áskriftarleiðum símafyrirtækja. Það eina sem maður þarf að gera er að fara inn á www.amivox.com, skrá símanúmerið sitt og fá lykilorð. Engin mánaðarg jöld eru innheimt heldur er aðeins greitt fyrir notkun.
En hvernig er þetta hægt ? Amivox heimalína er bein símalína milli landa á innanlands verði. Tæknin sem Amivox-kerfið byggist á gengur út á að notandinn getur valið úr hvaða símanúmeri hann hringir, óháð því símtæki sem hann hefur í hendinni. Hann getur því talað úr borðsímanum sínum þó að hann hringi með farsíma númerinu. Amivox býður upp á ýmsa aðra þjónustu svo sem talskilaboð sem virka að flestu leyti eins og sms en í stað þess að rita skilaboðin er einfaldlega hægt að lesa þau og senda hvort heldur er úr farsíma eða tölvu.
Íslenskt og alþjóðlegt í senn Amivox var stofnað árið 2007 af þremur ungum mönnum sem allir bjuggu yfir víðtækri starfsreynslu af símamarkaðinum. Frá upphafi var stefnan sett á alþjóðlegan símamarkað og eru viðskiptavinir þess um allan heim. Notendur Amivox eru nú þegar um 22.000 og fjölgar stöðugt. Þar á meðal eru stórfyrirtæki og stofnanir á borð við Grupo Simon (Spáni) og Landspítalann sem eiga í miklum samskiptum við útlönd og þurfa að senda starfsmenn sína reglulega út fyrir landsteinana. Nánari uppýsingar um fyrirtækið og þjónustu þess má finna á www.amivox.com.
Sparnaður sem munar um Sem dæmi um verðskrá Amivox má benda á að það kostar tæplega 14 íslenskar krónur á mínútu að hring ja í íslenskan farsíma með Amivox frá Bandaríkjunum. Skype-out hringt í íslenskan farsíma = 39 kr / min -Amivox-sip hringt í danskan farsíma = 13 kr / min Hringt með Skype-out í danskan farsíma = 32 kr / min -Amivox-sip hringt í danskan farsíma = 13 kr / min Þá er hægt að spara milli 25-90 % þegar maður notar Amivox í íslenskum farsíma á ferðalagi. Verðskrá Amivox má sjá á www.amivox.com.
Heimalína um allan heim Amivox heimalínu er nú hægt að fá í eftirfarandi löndum: Alsír, Argentína, Ástralía, Austurríki, Barein, Bandaríkin, Belgía, Brasilía, Bretland, Búlgaría, Danmörk, Dominikanska Lýðveldið, El Salvador, Eistland, Finnland, Frakkland, Georgía, Grikkland, Gvatemala Hong Kong , Holland, Kanada, Kína, Kólumbía Kosta Rica Króatía Kýpur, Írland, Ísrael, Ítalía, Japan, Jórdanía, Lettland, Litháen, Luxemborg , Malasía, Malta, Mexíkó, Nýja Sjáland, Noregur, Panama, Peru, Pólland, Portugal, Porto Riko, Rúmenia, Rússland, Singapore, Síle, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Tékkland,Ung verjaland, Úkraína, Venesúela og Þýskaland. Til að fá nánari upplýsingar um Amivox heima-línu er best að senda tölvupóst á yourvoice@amivox.com.
11
Það er óhætt að seg ja að Karl Birgir Björnsson, nemi á lokaári í viðskiptafræði við Háskólann í Kent í Canterbury í Englandi, sé sannkallaður heimsborgari. Hann hefur búið erlendis frá því að hann var tíu ára, stundað háskólanám í tveimur heimsálfum og ferðast vítt og breitt um heiminn. Í námi sínu leggur Karl Birgir áherslu á asískar viðskiptavenjur og fór því á þriðja ári sem skiptinemi til Hong Kong. ,,Ég hef mjög mikinn áhuga á Asíu og asískum mörkuðum, sérstaklega Kína. Það er mjög merkilegt hvernig þetta land þróaðist frá byltingu kommúnista fram til 1978 þegar Deng Xiao Ping tók við og breytti landinu með því að innleiða hagkerfi sem virkaði. Þeir gerðu þetta á sinn eigin hátt sem hafði aldrei verið reyndur áður. Um leið hef ég áhuga á að læra meira um menninguna sem býr að baki þessu.“
Lifi mig inn í menninguna
12
Á meðan Karl Birgir var við nám í Hong Kong notaði hann tækifærið og ferðaðist til ýmissa landa í Suðaustur-Asíu svo sem Tælands, Víetnam, Filipseyja og Kampútseu. Einnig hefur hann ferðast um flest lönd Evrópu, Bandaríkin, Norður-Afríku og Eyjaálfu þar sem hann dvaldi um fjögurra mánaða skeið áður
en hann hóf háskólanám. ,,Mér finnst mjög gaman að ferðast og sjá nýja staði. Ég er búinn að kynnast ólíkum venjum og háttum á þessum stöðum og lifa mig aðeins inn í menninguna. Eitt af því sem mér finnst skemmtilegast við að ferðast er einmitt að kynnast nýrri menningu,“ segir Karl Birgir sem telur að forvitnin reki hann áfram í öll þessi ferðalög. ,,Maður heyrir um einhvern stað sem mann langar til að skoða. Þegar maður er kominn af stað verður maður einhvern veginn að halda áfram, skoða meira og fara lengra. Svo er maður eiginlega orðinn vanur því að vera ekki alltaf á sama stað,“ segir Karl Birgir og tekur undir að það geti verið erfitt að venja sig af ferðaáráttunni. Eins og aðrir Íslendingar sem dvelja langdvölum erlendis þarf Karl Birgir að vera í miklu sambandi við fólk heima á Fróni. ,,Þar sem ég hef ferðast mikið hef ég oft þurft að redda auðveldum og ódýrum leiðum til þess að hring ja heim í vini og fjölskyldu,“ segir Karl Birgir sem hefur prófað ýmis forrit og símkerfi svo sem Skype, Viper og Whatsapp. Fyrir skömmu fór að hann að nota Amivox og segir að það hafi reynst sér vel. ,,Amivox er ódýrt í notkun. Þegar ég hef notað Skype hefur inneignin mín oft klárast á nokkrum dögum þó að símtölin hafi ekki verið sérstaklega löng.“
Við Kínamúrinn. Áhugi Karls Birgis á asískri menningu og viðskipta-háttum leiddi hann í skiptinám til Hong Kong. Meðan hann var þar nýtti hann tækifærið og ferðaðist víða um Asíu. Karl Birgir ásamt unnustu sinni á ferðalagi um framandi slóðir. Amivox gerir þeim kleift að vera í meira og betra sambandi en áður þrátt fyrir að þau búi hvort í sínu landinu.
Amivox bætti sambandið við kærustuna Hann lýkur einnig lofsorði á hljóðgæði Amivox-kerfisins. ,,Þegar ég hringi heim til Íslands hringi ég oftast í kærustuna mína. Hún kvartaði oft yfir því að það heyrðist illa í mér gegnum Skype, hvort sem ég hringdi úr Skype í síma eða úr Skype í Skype. Þegar ég byrjaði að nota Amivox tók hún strax eftir því að það heyrðist mun betur í mér en áður,“ segir Karl Birgir sem heyrir sjálfur betur í þeim sem hann talar við eftir að hann fór að nota Amivox. ,,Fyrir stuttu reddaði Amivox foreldrum mínum bresku númeri sem þýðir að ég get hringt beint úr breska númerinu mínu heim til Íslands án þess að ég sé rukkaður fyrir að hring ja út úr landi. Þetta hefur gert
það að verkum að það er ódýrara fyrir mig að hring ja í heimasímann hjá foreldrum mínum heldur en það er að hring ja í gemsa hjá vinum mínum á Bretlandi,“ segir Karl Birgir en þessi þjónusta stendur öllum notendum hugbúnaðarins til boða. ,,Amivox er líka að vinna í því að teng ja kærustuna mína við breska númerið heima á Íslandi sem þýðir að ég mun geta hringt í hana að kostnaðarlausu. Þá mun ég geta valið við hvern ég tala þegar ég hringi í breska númerið á Íslandi,“ segir Karl Birgir Björnsson að lokum.
13
Blað Sambands íslenskra námsmanna erlendis, er nefnt Sæmundur eftir ekki ómerkari manni en Sæmundi fróða Sig fússyni ( 1056-1133).
En hver var Sæmundur fróði? Samkvæmt Vísindavef Háskóla Íslands, var hann goðorðsmaður og prestur í Odda og hefur verið í hópi lærðustu Íslendinga sinnar tíðar. Enda þótt rit hans séu öll glötuð, þá er vitað að hann skrifaði töluvert um söguleg efni, þar á meðal sögu Noregskonunga, og hafa þau rit líklega verið á latínu. Um menntun Sæmundar eru fáar heimildir. Í Íslendingabók segir að hann hafi komið sunnan frá Frakklandi og tekið vígslu á ofanverðum dögum Ísleifs biskups Gissurarsonar (í annálum segir að þetta hafi verið 1076). Sagnfræðingar hafa sett fyrirvara við þessar upplýsingar og meðal annars hefur verið bent á að landið sunnan við Saxland og ofan við Rín í Þýskalandi hafi verið nefnt Franconia eða Franken á þessum tíma. Hugsanlegt sé að Sæmundur hafi lært þar, fremur en í París eða annars staðar í Frakklandi. Eiginlegur háskóli var ekki til í París á þessum tíma, né annars staðar í Evrópu, svo að Sæmundur hefur ekki stundað nám í háskóla. Síðar mynduðust hins vegar þjóðsögur af ýmsu tagi um háskólanám Sæmundar. Í munnmælasögum sem skrifaðar voru niður á 17.öld segir að það sé mál manna að Sæmundur fróði hafi numið fjölkynngi eður svartra rúna list utanlands, þar sem almennilega er nafnkenndur Svartiskóli.
14
Var hald manna að djöfullinn væri skólameistari þar og hirti hann sál þess nemenda sem síðastur gengi út. Kom það í hlut Sæmundar, en hann var með skikkjuna lausa á öxlunum og greip fjandinn hana, en Sæmundur slapp.
Margir þekkja söguna af því þegar Sæmundur fróði fór heim úr Svartaskóla og lét kölska breyta sér í sel og synda með sig til Íslands. Þegar þeir Sæmundur, Kálfur og Hálfdán komu úr Svarta-skóla, var Oddinn laus, og báðu þeir þá allir kónginn að veita sér hann. Kóngurinn vissi dável, við hverja hann átti, og segir, að sá þeirra skuli hafa Oddann, sem fljótastur verði að komast þangað. Fer þá Sæmundur undir eins og kallar á kölska og segir ,,Syntu nú með mig til Íslands, og ef þú kemur mér þar á land án þess að væta kjóllafið mitt í sjónum, þá máttu eiga mig.” Kölski gekk að þessu, brá sér í selslíki og fór með Sæmund á bakinu. En á leiðinni var Sæmundur alltaf að lesa í Saltaranum. Voru þeir eftir lítinn tíma komnir undir land á Íslandi. Þá slær Sæmundur Saltaranum í hausinn á selnum, svo hann sökk, en Sæmundur fór í kaf og synti til lands. Með þessi varð kölski af kaupinu; en Sæmundur fékk Oddann. Heimildir: www.visindavefur.is, www.snerpa.is
Margir hafa sent inn fyrirspurnir til SÍNE varðandi nýja búsetureglu hjá LÍN. Á heimasíðunni www.lin.is, má finna eftirfarandi upplýsingar: Búsetuskilyrði á Íslandi Umsækjendur þurfa að uppfylla tiltekin búsetuskilyrði til að eiga rétt á námslánum. Íslenskir ríkisborgarar: * Verða að hafa starfað hér á landi í 12 mánuði fyrir umsóknardag og haft búsetu hér á landi á sama tíma eða; * starfað skemmri tíma en 12 mánuði og haft búsetu hér á landi í samanlagt 2 ár á samfelldu 5 ára tímabili fyrir umsóknardag. * Ef viðkomandi hefur ekki stundað vinnu hér þá þarf hann að hafa búið hér í samfellt 5 ár fyrir umsóknardag ef búseta hefur hafist í öðru augnamiði en að stunda nám. * Ef viðkomandi uppfyllir ekki ofangreind skilyrði er stjórn sjóðsins heimilt í sérstökum tilfellum að legg ja sterk tengsl íslensks ríkisborgara við Ísland að jöfnu við framgreind skilyrði. Verður umsækjandi þá að gera grein fyrir sterkum tengslum við Ísland í erindi til sjóðsins. Nánari upplýsingar um efnis slíks erindis, æskileg fylgiskjöl og þau sjónarmið sem stjórn sjóðsins byggir ákvörðun sína á má finna á heimasíðu LÍN.
16
Erlendir ríkisborgarar: * Erlendir ríkisborgarar af EES-svæðinu með búsetu hér á landi vegna starfs síns, fjölskyldur þeirra og aðrir sem eru eða hafa verið á þeirra framfæri eiga rétt á námslánum eins og íslenskir námsmenn, þegar samhengi er á milli náms og fyrra starfs hér á landi. * Erlendir ríkisborgarar sem eru giftir íslenskum ríkisborgurum og hafa átt lögheimili á Íslandi að lágmarki í 2 ár af síðustu 5 árum, geta sótt um lán vegna náms á Íslandi eða Norðurlöndunum. * EES-borgarar sem ekki eru farandlaunþegar geta átt rétt á lánum hér eftir samfellda 5 ára búsetu. * Aðrir erlendir ríkisborgarar geta átt rétt á náms lánum ef íslenskir ríkisborgarar njóta sambærilegra réttinda í heimalandi þeirra. Teljir þú þig eiga rétta á námslánum frá LÍN, sbr. framangreint, verður þú að legg ja fram staðfestar upplýsingar um stöðu þína, til að mynda skattframtöl og skráningu Þjóðskrár á komu þinni til landsins eða önnur sambærileg gögn. Ef umsækjandi er farandlaunþegi frá Evrópska efnahagssvæðinu (EES) óskar sjóðurinn eftir því að gert sé grein fyrir samhengi milli náms og fyrra starfs hér á landi.
ISIC er eina alþjóðlega viðurkennda kortið sem staðfestir skólavist. Kortið hefur fengið viðurkenningu frá stofnunum eins og UNESCO og the European Council on Culture. Einnig eru kortin viðurkennd af menntastofnunum, háskólum, stúdentafélögum, ríkisstjórnum og menntamálaráðuneytum um allan heim. Meira en 4.5 milljón stúdenta frá 120 löndum nýta sér ár hvert ISIC kortið til að fá tilboð á ferðalögum, hótelum, smásölu, menningu, íþróttum, viðburðum og fleira, út um allan heim. ISIC er gefið út í gegnum hinar ýmsu dreifileiðir um allan heim. KILROY hefur einkaleyfið á ISIC á Íslandi og selur kortin í samstarfi við Stúdentaráð Háskóla Íslands (SHÍ). Kortið mun einnig veita allskonar afslætti hér á Íslandi. Hægt er að panta kort í gegnum heimasíðu KILROY, www.kilroy.is.
Andri Ingólfsson SÍNE félagi deilir reynslu sinni af námi erlendis
Í hvaða landi stundar þú nám? Skotlandi Hvaða nám stundar þú? Arkitektúr Afhverju valdir þú þetta land/skóla? Skotland er mjög svipað Íslandi á marga vegu og Skotar eru mjög skemmtilegir, ég vildi fá tækifæri til að gera eitthvað nýtt og eitthvað sem ekki margir aðrir hafa gert áður, og ég vildi ekki vera eins og allir aðrir og fara til Danmerkur þó svo að það sé mikið ódýrara. Og hvað skólann varðar er þetta einn besti Arkitekta skólinn í Evrópu. Segðu okkur aðeins frá skólanum og náminu? Glasgow School of Art er elsti listaháskólinn í Bretlandi og Arkitekta deildin í skólanum er talin ein sú besta í Evrópu. Skólinn hefur ótrúlega marga möguleika upp á að bjóða, hann er með þrjár megin deildir Architecture, Design og Fine Art. Og innan hverrar deildar eru margar deildir. Hvað hefur komið þér á óvart ? Hvað allir eru almennilegir í þinn garð, ef það er eitthvað sem þig vantar þá færðu ávallt leiðsögn um leið, til dæmis fyrsta daginn minn hérna viltist ég og ég var búinn að standa á sama staðnum í svona 1mínútu þegar maður kom að mér og spurði hvert ég væri að fara og hvort hann gæti hjálpað.
mynd 1: Andri við vinnu í skólanum mynd 2: Glasgow School of Art
Mælir þú með námi erlendis? Já tvímælalaust þetta er frábært tækifæri til að komast í burtu frá Íslandi og standa á eigin fótum í nokkur ár og koma svo aftur eftir það. Stefnir þú á að koma til Íslands eftir útskrift ? Já og ég hyggst búa til mína eigin arkitekta stofu. Annað sem að þú vilt koma á framfæri? Þó svo að það rigni hér öðru hvoru þá er alltaf eitthvað um að vera hérna í Glasgow, ótrúlega mikið háskóla líf og mikið af tónleikum og leiksýningum. Hæsta bíó í Evrópu með 18 kvikmyndasali, mjög mikið af pubbum sem eru mjög góðir fyrir veskið, bjór fyrir 1pund sem eru 185 kr. Hérna í Glasgow er einnig mjög stór háskóli sem kennir mjög margt og í honum eru u.þ.b. 300.000 nemendur. Það má því seg ja að Glasgow sé háskólaborg
Vefsíður sem Andri mælir með: Vefsíða Glasgow School of Art: http://www.gsa.ac.uk/ Bókasafn skólans: http://www.guardian.co.uk/ artanddesign/ interactive/2011/sep/09/glasgow-school-artlibrary-360-interactive-panoramic?intcmp=239 Vefsíða University of Glasgow: http://www.gla.ac.uk/ Tónleikar á næstunni: http://www.gigsinscotland.com/
19
Viðtal við Halldór Gíslason arkitekt og prófessor í hönnun Við fengum að skyggnast inn í hugarheim Halldórs Gíslasonar sem að undanfarna áratugi hefur helgað störf sín hönnun ásamt kennslu hennar og miðlun. Hann er menntaður í arkitektúr í Bretlandi og stofnaði hönnunardeildina við Listaháskóla Íslands og stjórnaði henni í 10 ár. Listaháskólinn í höfuðborginni Osló í Noregi hefur einnig notið krafta hans og í gegnum þá vinnu hefur hann verið viðriðinn stofnun hönnunardeildar í Listaháskóla í Mósambík. Hann er prófessor í stefnumótandi hönnun og verkefnastjóri í kennsludeild hönnunar í National Academy of Arts í Noregi og Institute Superiore de Artes e Cultura í Maputo í Mósambík. Í dag starfar hann að mestu í Mapútó í Mósambík ásamt því að vera með annan fótinn í Osló, verkefni hans er að styðja fyrstu æðri menntastofnun í listum og hönnun í landinu og samfélagsleg verkefni, þar sem hann einblínir á nýsköpun, frumkvöðlastarfsemi, hönnun og jafnrétti. Í Listaháskólanum í Osló sér hann m.a. um námsbrautir í hönnun samskipta, tísku, búninga, húsgagna og innanhús hönnun. Sinnir rannsóknarstörfum og kennir námskeið í fjölbreyttum greinum. Samhliða því rekur hann hönnunar og arkitekta stofu. Í gegnum störf sín hefur rauði þráðurinn verið sjálfbær þróun og hvernig bæta má líf fólks með hönnun. Félagslegar lausnir og jafnrétti eru honum mikilvægir þættir hönnunar.
20
Verkefni sem að hann hefur komið að eru t.d. sjálfbær hreinlætisaðstaða sem að hefur hlotið styrk frá góðgerðarsjóði Bill og Melindu Gates. ENZA í SAfríku en þar eru innfæddum kennt að búa til kreditkortaveski úr endurvinnanlegum umbúðum sem eru í
umhverfi þeirra, t.d. úr fernum ávaxtasafa. Sólarorku GSM er annað verkefni í þar sem aðilum er kennt að nýta sér sólarorku til að hlaða farsíma sína. Við lögðum fyrir hann nokkrar spurningar og byrjuðum á því að biðja hann að segja okkur frá reynslu sinni á því að vera námsmaður erlendis. Ég var alltaf með þann draum að verða arkitekt. Fannst þannig kallar ansi kúl held ég (er að meina þegar ég var ca 10 ára) og svo fannst mér alltaf gaman að skálda eitthvað, smíðaði endalaust kofa og kassabíla. Ég ákvað að fara í nám til Englands því að svotil allir fóru til Norðurlanda og mig langaði að fá aðra reynslu. Ég var líka lélegur í málum og skást var enskan. Að koma í skóla í fagi sem ég elskaði var alg jör upplifun ég naut hvers dags að skapa, fikta, smíða módel og líka pæla og skemmta mér með álíka liði. Við vorum allt öðru vísi en liðið í tækninámi osfrv. Samskipti okkar voru meira með listadeildinni og við vorum nokkuð mörg frá öðrum löndum en Englandi. Kennarar voru líka margir erlendir og sá sem hafði mest áhrif á mig var Spánverji með menntun í listaheimspeki en mátti ekki vera í sínu landi vegna Frankos sem hann var pólitískt búinn að vinna gegn. Eftir að ég lauk meistaranámi með sérstefnu á semíólógíu (táknfræði) fór ég til Bologna á Ítalíu og lærði meira í því hjá Umberto Eco. Að lokum kom ég heim og fór í BA í heimspeki þar sem ég var búinn að finna út að grunnurinn þar er mikilvægur fyrir skapandi- og uppbyggingarstarf. Okkur langaði að vita hvað heillaði hann einna mest við alþjóðasamtarf. Það sem heillar mig er þróun og hvernig skapandi fólk getur stutt þjóðfélagsþróun. Nokkuð sem er ekki vel metið, heldur monta stjórnmálamenn sig af verkum sínum.
Halldór Gíslason í Maputo ásamt innfæddum listamanni.
Þegar ég fór frá Noregi ákvað ég að fara þangað sem hönnun getur breytt aðstæðum fólks sterkt og ekki til landa þar sem hellingur af hönnuðum eru nú þegar að starfa. Því miður að vísu stýrt af hörðum viðskiptasjónarmiðum. En hönnun snýst um fólk og lausnir á lífinu, ekki að selja rusl á milli heimsálfa. En að mati Halldórs hver er helsti munur á Listaháskóla á Íslandi, Noregi, Mósambík? Mjög áhugaverð spurning get svarað í tæknilegum þáttum og kanski með menninguna. Það er mjög mikill munur á þessum skólum. Noregur hefur mjög mikil fjárráð sem getur gert kennara og nemendur fjarlæga raunveruleikanum og áhugalaust um starfið. Íslenski skólinn er með mjög lítil fjárráð en með sérstaklega áhugasama nemendur sem basla við það litla sem þau hafa en eru um leið mjög vel að sér um það sem er að gerast á alþjóðavettvangi. Í Mozambík er skólinn nú á 3ja ári og frumherjastarf enn ráðandi en einnig eru fjárráð af mjög skornum skammti. Sá skóli minnir mig meira á fyrstu árin mín með hönnunardeildina í Reykjavík. Áhugi nemenda mikill en stuðningur lítill. Hinn þátturinn gæti verið að í raun eru þetta ekki svo ólíkir skólar hvað varðar áhuga, fókus og vinnubrögð.
Hönnun er fag sem snertir alla þætti lífsins. Við notum í dag leiðandi stefnumótun sem heitir Triple Bottom Line (Grundvallar Þættirnir Þrír) þar sem mat á hönnun miðar við að allar lausnir í hönnun verða að sinna þessum þremur þáttum: (people, planet, profit) Maðurinn, Jörðin og Hagnaður. Í dag er orðið meira ráðandi að öll hönnun verður að uppylla allar þessar kröfur en ekki bara tvær eins og var oft áður þegar voru gerðar lausnir sem eingöngu stíliseruðu fyrrverandi lausnir og jafnvel oft til meiri vandræða vegna stæla í hönnun. Hönnun er á þessum grundvelli alfarið alþjóðleg en um leið eru alltaf að aukast ráðandi lókal aðstæður vegna umhverfisástæðna, orkuverðs og það er einnig aukin tíska. Þessi mæliaðferð var sköpuð til að hönnun meti alltaf líka umhverfis og félagslega þætti lausna en ekki eingöngu efnahagslegan ávinning. En getur þú skilgreint fyrir okkur hönnun í nokkrum orðum? Það sem ég geri alltaf í dag er að nota Þættina Þrjá til að meta góða hönnun. Þá hef ég viðmið þar sem ég get notað við mat mitt. Síðan er afstætt hvað manni finnst fegurð vera eða stíll osfrv. En nú orðið er mikið meira um það að hönnun sem kemur frá hjarta fólks til lausnar eða skemmtunar er mikið vinsælli en bara stælar.
21
Mynd 1: Veggmynd eftir listanema í Mósambík Mynd 2: Hönnunarnemar einbeittir á svip.
Ég á margar skilgreiningar á hönnun í fyrirlestrum mínum en einmitt því miður varð ráðandi verkfræðileg stefna um hönnun í upphafi 20. aldar þar sem ráðandi varð að allt fólk sé eins og það væri hægt að gera lausnir sem passa öllum. Þetta varð mjög ráðandi um miðbik síðustu aldar og við erum enn að reyna að hrista það af okkur. Tækniheimurinn og verkfræðin er með tilbúnar lausnir með ,,universal” röksemdir að baki að svona sé besta lausnin fyrir alla. Í dag erum við loks að komast að þeirri niðurstöðu að það sé grundvallar misskilningur og mun meira ráðandi í dag er að við erum öll mismunandi og það þarf að sinna okkur þannig. Við blómstrum ekki sem persónur ef við fáum ekki að vera við sjálf. Þar liggur skilgreining hönnunar fyrir fólk í dag á hvaða sviði sem er: fata, matar, bygginga, leikfanga, íþrótta, myndrænt og svo framvegis. Í dag eru í ensku máli 2500 orðasamsetningar þar sem orðið ,,design” kemur fram sem í raun sýnir að við erum með í öllum fögum og aðgerðum mannsins. Að lokum báðum við hann um góð ráð handa íslenskum námsmönnum erlendis, einhver lífsspeki sem að hefur reynst honum vel? Að vera Íslendingur hefur reynst mér vel. Ekki að apa eftir lókal aðferðum og hefðum þar sem ég vil heldur fá að vera ég og vinna út frá mínum uppvexti og reynslu. En helst án þess að þurfa að nota það til að monta sig. Við Íslendingar erum soldið sérstök þar sem við erum svo fá og lifum svo einangrað og þá er um að gera að njóta þess.
22
Það er forvitnilegt að skoða vefsíðu Halldórs og skoða þar hin marg víslegu verkefni sem hann hefur og er að vinna að. Hann er duglegur að setja upplýsingar og myndir um verkefnin sín á netið.
Nokkur verkefni sem Halldór Gíslason hefur komið að: Dig Equality (Hönnun = jafnrétti), verkefni sem að nýlega hlaut styrk úr Hönnunarsjóðinum en verkefnið er unnið í samvinnu við Sóleyju Stefánsdóttur. DIGEquality (Design Innovation for Gender Equality), sem byggir á þeirri hugsjón að hönnun sé afl til samfélagslegra breytinga. Porthöfn Innrás í Hornafjörð Iceland dialogue (kúrs í LHÍ) Hönnunarnemar heimsóttu þennan áhugaverða bæ, sem hefur upp á svo margt að bjóða bæði menningu og fallega náttúru. Framleiðslan í bænum er fjölbreytileg en ákveðið var að einbeita sér að því sem að fangað er í sjónum og fengu nemarnir að spreyta sig á því fjölbreytilega hráefni í sköpun sinni. Sjónræna Grænland Áfangi sem haldinn var í samstarfi við NAPA, Cirrus, Listaháskólanum í Osló og Listaháskóla Íslands. Þar var áherslan á myndrænt tungumál Inúíta og menningarlegrar þróunar í grafískri hönnun. Nemarnir tóku þátt í rannsóknum og námskeiðum í Nuuk. Halldór og Guðmundur Oddur Magnússon prófessorar leiddu námskeiðið. Áhugaverðar vefsíður þar sem hægt er að kynna sér nánar þau verkefni sem Halldór hefur komið að á undanförnum árum: www.dorigislason.com
24
Utanríkisráðuneytið hefur frá árinu 2002 auglýst árlega eftir almennum starfsnemum í starfsþjálfun. Starfsþjálfunin fer fram á einhverri starfstöð utanríkisráðuneytisins erlendis eðaá aðalskrifstofu ráðuneytisins og stendur yfir í um sex mánuði. Markmiðið er að gefa ungu fólki sem er að hefja starfsferil sinn færi á að kynnast störfum utanríkisþjónustunnar. Auglýst er tvisvar á ári, að hausti fyrir tímabilið janúar til júní og að vori fyrir tímabilið júlí til desember. Allt að fjórir starfsnemar hafa verið ráðnir hvort tímabil, samtals 8 á ári, og hefur hver þeirra starfað í einni af sendiskrifstofum Íslands erlendis eða á aðalskrifstofu ráðuneytisins. Mismunandi er frá ári til árs hvaða sendiskrifstofur um ræðir.
frönsku eða þýsku og eða öðrum tungumálum sem nýst geta á þeim starfsstöðvum sem í boði eru hverju sinni. Leitað er að duglegum og samviskusömum einstaklingum með góða aðlögunarhæfni.
Menntunarkröfur fyrir starfsþjálfun eru a.m.k. B.A. eða B.S. gráða eða samsvarandi nám. Þá er krafist góðrar kunnáttu í íslensku, ensku og Norðurlandamáli, auk þess sem æskilegt er að viðkomandi hafi vald á
Heimild: www.utanrikisraduneyti.is
Ráðuneytið býður einnig skv. sérstökum samningum uppá starfsnám í ráðuneytinu fyrir nemendur í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Akureyri. Starfsþjálfun er launað starf, og er upphæð launa miðuð við að duga til framfærslu að mestu leyti. Nánari upplýsingar veitir Anna Ósk Kolbeinsdóttir, mannauðs- og launafulltrúi á mannauðsskrifstofu ráðuneytisins.
Sæmundur hafði samband við nokkra starfsnema og fékk að spyrja þá spurninga um þeirra upplifun:
Ég heiti Snorri Matthíasson og er 24 ára gamall stjórnmálafræðingur. Ég er fæddur á Sauðárkrók og bjó líka á Akureyri en flutti til Noregs þegar ég var sjö ára. Ég bjó þar þangað til 2006 þegar ég flutti til Bretlands í nám. Bachelornámið stundaði ég við háskólann í Aberystwyth í Wales, og fór svo áfram í meistaranám við the London School of Economics. Ég lærði alþjóðasamskipti (International Relations) í Aber og alþjóðakenningar við LSE. Ég byrjaði svo í vinnu við Utanríkisráðuneytið í janúar sl. Hvar fer þitt starfsnám fram? Ég er við Utanríkisráðuneytið í Reykjavík, og starfa við alþjóða- og öryggissvið. Í hverju felst starfsnámið? Það er svolítið flókið hjá mér – það mætti í raun seg ja að ég sé aðstoðarmaður embættismanna hérna á sviðinu mínu. Sumir starfsnemar hafa föst verkefni yfir lengri tíma sem þau bera ábyrgð á, en ég sinni fyrst og fremst verkefnum sem koma upp þegar starfsmenn alþjóða- og öryggissviðsins þurfa á aðstoð að halda. Þá kem ég oft fyrst að verkefni áður en það fer áfram upp stigann jarðýtuvinnan, eins og einn yfirmaður minn kallar það. Það þýðir þó samt ekki að verkefnin eru leiðinleg eða ómerkileg – alls ekki! Sem dæmi má nefna undurbúningur fyrir embættis- og ráðherrafunda, skýrslugerð, samantektir, fyrstu drög að ræðum og formleg samskipti við erlend sendiráð. Allt á milli himins og jarðar á alþjóða- og öryggissviði. Týpískt verkefni hjá mér væri að skrifa skýrslu sem fer til
yfirmanns, sem gerir breytingar og sendir hana áfram á næsta mann og svo verður þetta að lokum samþykkt og sent til ráðherra, ráðuneytisstjóra eða utanríkismálanefnd. Afhverju ákvaðstu að sækja um starfsnámið? Ég hef alltaf haft áhuga á Utanríkisráðuneytinu og vildi hefja starfsferilinn minn hér. Ég fylgdist aðeins með umsóknarferlinu fyrir starfsnámið og sótti svo um þegar ég kláraði meistaranámið. Eitthvað sem hefur komið þér á óvart ? Ég vissi ekki alveg hverju ég átti að búast við þegar ég kom, svo það kom mér ekki mikið á óvart. En ég gæti nefnt hversu frábært mötuneytið er hérna – kokkurinn okkar, Friðrik Sigurðsson er landsliðskokkur og býður upp á glæsilegan hádegismat hvern einasta dag. Það finnst mér vera helsti kosturinn við að vinna hérna, fyrir utan yndislega starsfólkið, að sjálfsögðu... Góðar ábendingar um þá borg sem að þú dvelur í: t.d. veitngastaðir, vefsíður, ókeypis í borginni (eitthvað skemmtilegt sem má benda á t.d. söfn etc.) Ef þú þekkir starfsmann við Utanríkisráðuneytið hérna í Reykjavík, spurðu þá hann/hana hvort þeir eru til í að bjóða þér í mat í vinnunni á fimmtudögum – þá er sem oftast besti maturinn í boði. ;)
25
Hinrika Sandra Ingimundardóttir, útskrifaðist með Mag.jur próf frá Lagadeild Háskóla Íslands í október 2011. Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, stundar meistarnám í lögfræði við Lagadeild Háskóla Íslands. Í hverju felst starfsnámið? Í starfsnáminu felst í raun allt milli himins og jarðar! Við gerum vikulegt fréttabréf um hvað er í gangi í ESB og umdæmisríkjum sendiráðsins og lesum því afar mikið af fréttum. Við sitjum hina ýmsu fundi og gerum samantektir upp úr þeim. Við söfnum saman upplýsingum og gerum yfirlitsskjöl yfir allt mögulegt. Það sem er skemmtilegt við svona starfsnám er að enginn dagur er eins og maður veit aldrei hverju maður á von á og endar þess vegna í mjög fjölbreyttum verkefnum.
26
Afhverju ákvaðstu að sækja um starfsnámið? Sandra: Eins ótrúlega hallærislegt og það hljómar þá sá ég sambærilega auglýsingu í Morgunblaðinu þegar ég var svona 17 ára. Ég hugsaði þá með mér að einn daginn ætlaði ég að sækja um þetta starf. Fyrir tilviljun sá ég þessa auglýsingu fyrir ári síðan í sama blaði og ákvað að henda inn umsókn áður en það yrði um seinan. Svo einfalt var það nú, en annars hef ég alla tíð haft lúmskan áhuga á utanríkismálum og fannst mér þetta því kjörið tækifæri til að fá innsýn í þann heim. Sigrún: Ég er á síðasta árinu mínu í lögfræðinni og var að velta fyrir mér að fara í skiptinám eina önn en sá síðan auglýst starfsnám í utanríkisþjónustunni og ákvað að sækja frekar um það. Ég vissi auðvitað ekkert hvort ég fengi það og hvað þá hvort ég yrði send eitthvert erlendis en hugsaði með mér að það gæti verið skemmtilegt tækifæri og ef ég yrði svo heppin að vera send erlendis myndi ég slá tvær flugur í einu höggi, búa erlendis og fá starfsreynslu í leiðinni. Mér fannst áhugavert að fá innsýn inn í störf utanríkisþjónustunnar enda hef ég lagt áherslu á evrópurétt og þjóðarétt í lögfræðinni.
Eitthvað sem hefur komið ykkur á óvart ? Við vissum hvorugar hvað við vorum að fara út í, svo eiginlega kom allt og ekkert á óvart! Það sem kom okkur sérstaklega á óvart voru tækifærin sem við fáum til að sækja áhugaverða fundi, en það er eflaust helsti kosturinn við að koma frá þetta lítilli þjóð! Góðar ábendingar um þá borg sem þið dveljið í: Borgin er mjög falleg og skemmtileg þegar maður veit hvert maður á að fara. Áður en við komum hingað höfðum við heyrt ansi margar hryllingssögur af Brussel og hvað bæri að varast. Við vorum hins vegar ekki lengi að afskrifa þessar sögur þegar við fórum að kynnast borginni og getum sagt með fullri vissu að það er allt í lagi að taka metró-ið á kvöldin og sunnudögum! Auðvitað þarf alltaf að hafa varann á eins og á við um aðrar borgir, en af okkar reynslu er Brussel ekkert öðruvísi en aðrar stórborgir þegar kemur að þessu. Það sem er skemmtilegt að gera í borginni er m.a. að fara í hverfið í kringum Bourse, gömlu verðbréfahöllina, þar er mikið af litlum og sætum búðum, skemmtileg kaffihús, veitingastaðir og barir. Mælum við eindregið með kaffihúsi sem heitir Coffee company, en þar er að finna bestu cupcakes í bænum. Við mælum einnig sérstaklega með að fara í Sablon á sunnudögum, en það er eini parturinn af borginni sem er opinn á sunnudögum, annars er g jörsamlega allt lokað. Í því hverfi er mikið líf en þar er alltaf haldinn markaður á sunnudögum, þar er einnig að finna mikið af antík og vintage búðum sem er gaman að glugga í. Að öðru leyti er í raun það besta við Brussel hvað það er fljótlegt og auðvelt að komast út úr Brussel, en af lestarstöðvum borgarinnar er hægt að komast hvert sem er í Belgíu og Evrópu. Við höfum verið ansi duglegar að ferðast um Belgíu um helgar. Það er ódýrara að ferðast um helgar heldur en á virkum dögum svo við mælum hiklaust með dagsferðum til Bruges, Gent og Antwerpen fyrir þá sem eru í Brussel! Einnig er afar auðvelt og fljótlegt að fara til Parísar, Amsterdam og London og gaman að skella sér í helgarferð ef færi gefst.
Nafn: Elín Sif Kjartansdóttir. Menntun: LL.M í þjóðarétti með áherslu á mannréttindi frá Maastricht University, B.A. í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri og er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri. Hvar fer þitt starfsnám fram? Starfsnámið fer fram í New York, hjá Fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. Í hverju felst starfsnámið? Starfsnámið felst í því að taka þátt í starfi Sameinuðu þjóðanna fyrir hönd Fastanefndar Íslands. Verkefnin eru afar fjölbreytt líkt og starfsemi Sameinuðu þjóðanna, en ég hef verið að sitja fundi 6. nefndar sem sér um þjóðréttarmál og ýmsa óformlega fundi hjá 3. nefnd sem sér um félags og mannréttindamál svo eitthvað sé nefnt. Af hverju ákvaðstu að sækja um starfsnámið? Ég hef lengi haft áhuga á utanríkismálum og þá sérstaklega málefnum sem snúa að mannréttindum og þjóðarétti. Að loknu námi fannst mér það kjörið tækifæri að sækja um starfsnámið og eiga möguleika á að kynnast starfsemi utanríkisþjónustunnar. Eitthvað sem hefur komið þér á óvart ? Ef eitthvað, þá helst hvað tíminn hefur liðið hratt, en það ætti þó ekki að koma mikið á óvart þar sem það er mjög gaman í vinnunni. Góðar ábendingar um þá borg sem að þú dvelur í: t.d. veitingastaðir, vefsíður, ókeypis í borginni (eitthvað skemmtilegt sem má benda á t.d. söfn etc.): Það fyrsta sem kemur upp í huga minn eru höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna. Það ættu allir sem koma til New York að nota tækifærið og skoða þær. Annar staður sem er í miklu uppáhaldi hjá mér er High Line Park. Svo er alltaf ókeypis að ganga um
28
götur New York borgar.
Það munar miklu að vera í Námunni Náman er vildarþjónusta fyrir alla námsmenn, 16 ára og eldri. Lögð er áhersla á þjónustu sem sniðin er að þörfum hvers og eins, betri kjör og fjölbreytt fríðindi.
Jónsson & Le’macks
•
jl.is
•
sÍa
Kynntu þér Námuna á landsbankinn.is, í næsta útibúi eða í síma 410 4000.
Landsbankinn
landsbankinn.is
410 4000
1961: Lög um LÍN samþykkt í fyrsta sinn þann 20. mars. Lán og styrkir, M- og N-lán. Stúdentarvið Háskóla Íslands eiga kost á láni frá og með 3. ári náms, en námsmenn erlendis frá byrjun. 1967: Lagabreyting , L-lán. Stúdentar við H.Í. eiga kost á láni frá byrjun náms eins og námsmennerlendis. Endurgreiðslur hefjast 5 árum eftir námslok og greiðast á 15 árum með jöfnumafborgunum. Fyrsti starfsmaður LÍN ráðinn. 1969: Aðrir nemendur á Íslandi en í H.Í. fengu aðgang að LÍN í fyrsta skipti. Það voru nemendur við Kennaraskóla Íslands og Tækniskóla Íslands. 1970: Byrjað að afgreiða svokölluð haustlán til námsmanna erlendis, þ.e. hluta lánsins fyrirfram. 1971: Haustlán líka afgreidd til námsmanna við H.Í. 1972: Lagabreytingar sem trygg ja nemendum enn fleiri skóla á Íslandi aðgang að LÍN. Allir nemar á Íslandi eiga kost á haustúthlutun nema 1. árs nemar. 1975: Tölvuskráning lánþega LÍN hefst í upphafi árs. 1976: Ný lög um LÍN, V-lán. Lánin eru nú verðtryggð, en vaxtalaus. Afborganir hefjast þremur árum eftir námslok.Afborganir eru tekjutengdar og greitt af þeim í 20 ár.
1982: Ný lög um LÍN, S-lán. Sett í lög að námslán skuli vera 100% af framfærsluþörf námsmanna. Lánin eru nú til 40 ára. 1992: Ný lög um LÍN, R-lán. Verðtryggð lán með 1-3% vöxtum. Greitt af lánum þar til þau eru uppgreidd. Áfram tekjutengd afborgun, nú 4,75% af tekjum. Fyrirframgreiðslu framfærslulána er hætt og upphæð lána tengd námsframvindu. Námslán greidd út eftir hverja önn þegar námsárangur hefur borist. Samkomulag gert við banka um að þeir veiti námsmönnum fyrirgreiðslu meðan beðið er eftir námslánum. Hætt er að lána fyrir skólag jöldum erlendis í grunnnámi. Í staðinn er boðið upp á svokölluð markaðskjaralán (lán á almennum bankakjörum) fyrir skólag jöldum. Hámark sett á lán til skólag jalda. 1997: Lög sett um Málskotsnefnd LÍN. 2002: Í fyrsta sinn hafa makatekjur ekki áhrif á upphæð námsláns hjá námsmanni, nema í þeim tilfellum þegar námsmaður sækir um viðbótarlán vegna maka. 2005: Nýr lánaflokkur, G-lán þar sem tekjutengd afborgun lækkar í 3,75% af launum, en í staðinn er líka horft á fjármagnstekjur. Lánþegum með R-lán var gefinn kostur á að sækja um skuldbreytingu. Hætt er að veita markaðskjaralán fyrir skólag jöldum erlendis í grunnnámi. 2007: Byrjað er aftur að veita almenn námslán fyrir skólag jöldum erlendis í grunnnámi, þó með árlegum takmörkunum. 2009: Breyting á lögum umLÍN. Ábyrgðarmannakerfið er afnumið. Nú þarf ekki lengur ábyrgðarmann fyrir námslánum. Heimild: Lín
31
Ég var framkvæmdastjóri SÍNE í 2 ár, 1982-1984. Baráttumálin voru þau sömu og oftast, lánamálin en einnig það að berjast fyrir tilverurétti SÍNE sem hagsmunasamtaka. Stjórn SÍNE vildi að LÍN innheimti félagsg jöld fyrir SÍNE en sjálfstæðismenn (Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra 1983-85) töldu að ekki ætti að skylda námsmenn til þátttöku í félagasamtökum og vildu því fella niður þessa innheimtu og gera hana að valmöguleika fyrir þá sem vildu. En aðalverkefni skrifstofunnar sem slíkrar voru eftirfarandi: 1) Sæmundur. Í fyrsta lagi var ákveðið að stofna blað til að koma upplýsingum til námsmanna erlendis. Nafnið var Sæmundur fróði. Þröstur Haraldsson var ráðinn ritstjóri. Sæmundur kom út annan hvern mánuð eða 6 sinnum hvern vetur. 2. Fyrsta verkefni mitt sem framkvæmdastjóra var að koma á fót samræmdri heimilisfangaskrá námsmanna erlendis. Á þeim tíma hafði LÍN ekki heimilisföng námsmannanna sjálfra heldur umboðsmanna þeirra. Ég fékk heimilisföng umboðsmanna hjá LÍN og sendi bréf til allra og náði þannig smátt og smátt að bygg ja upp námsmannaskrá fyrir SÍNE. Markmið SÍNE var að hafa beint samband við námsmenn i gegnum Sæmund. 3. Nám erlendis. Fljótlega rak ég mig á að upplýsingaþjónusta fyrir þá sem höfðu áhuga á að komast í nám erlendis var lítil sem engin. Menntamálaráðuneytið var með námsráðg jafa sem hafði viðtalstíma milli kl 15:00-15:30 aðra hverja viku. Fyrsta tilraun mín til að heimsækja hann gekk ekki því hann var ekki við. Í annarri tilraun tók kurteis og velviljaður maður á móti mér á Hverfisgötu 6 en gat ekki sagt annað en að benda á sendiráð og Fulbrightstofnunina, ásamt því að sýna mér nokkra bæklinga frá einstökum skólum.
Í kjölfarið lagði ég fram þá tillögu við stjórn SÍNE að SÍNE tæki að sér að útbúa leiðbeiningarit fyrir námsmenn. Markmiðið var að hafa á einum stað yfirlit yfir þær upplýsingar sem gætu gagnast námsmönnum. Þetta var samþykkt. Nám erlendis kom út árið 1983, 80 síðna rit. Margt var minnistætt. Ef velja á eitt má nefna kvöldin þegar Sæmundur kom út og stjórn og starfsmenn sátu á skrifstofunni á 2. hæð í Félagsstofnun stúdenta og límdu heimilisföng á blöðin. Skrifstofan var væntanlega 15-20 fm og þar sátu 4-5 manns saman og reyktu flestir eftir bestu getu. Ekki hefur þetta verið heilsusamlegt, en engum fannst neitt athugavert við athæfið. Og framkvæmdastjórinn sem ekki reykti sá enga ástæðu til að kvarta. En í minningunni eru bláir Gauloises pakkar og sterk lyktin af þessum upprunalega tyrknesku sígarettum ansi fyrirferðamiklir.
33
Á hvaða tímabili starfaðir þú fyrir SÍNE? Ég byrjaði hjá SÍNE vorið 2000 og hætti eftir annað fæðingarorlofið á tveimur árum, árið 2005. Á þessum tíma átti ég yndislegt samstarf við metnaðarfulla stjórnarmeðlimi og afar vandaða einstaklinga, sem voru tilbúnir að fórna frítíma sínum í hagsmunagæslu fyrir félaga sína erlendis.
34
Hver voru helstu baráttumálin á þeim tíma? Það sem stendur upp úr í baráttumálum eru auðvitað lánamálin eilífu. Íslenzka krónan styrktist töluvert á þessum tíma og það hafði þau áhrif að námsmenn fengu lægri lán í íslenzkum krónum en lánsloforðið gerði ráð fyrir því erlenda upphæðin var útgangspunktur. Það hafði þau áhrif að námslánin dugðu ekki fyrir yfirdráttarlánum bankanna. Þetta gat munað töluverðum upphæðum og kom sér afskaplega illa fyrir okkar fólk. Mitt síðasta verk var því að gera samning við SPRON sem kom í veg fyrir þessa miklu gengisáhættu sem námsmenn erlendis þurftu að taka. Ég var mjög ánægð með að ljúka þeim samningi en veit síðan ekki hversu margir nýttu sér þessa leið. Vonandi sem flestir. Eins var ég í forsvari, ásamt Gísla Trygg vasyni, þáverandi framkvæmdastjóra BHM, fyrir vinnuhópi námsmanna og launþega um endurskoðun á endurgreiðslubyrði námslána. Sú nefnd skilaði mjög merkilegri skýrslu sem Þórólfur Matthíasson gerði fyrir okkur, og sýndi fram á ábata ríkisins af lánveitingum vegna náms. Ríkið hagnast, í formi skatttekna, af auknu eða hærra menntunarstigi landsmanna, umfram þann kostnað sem lánveiting hefur í för með sér. Mjög merkilegt og ekki næg janlega vel haldið á lofti. Einhver atvik eða viðburðir sem eru þér minnistæðir ? Þeir gátu verið býsna skrautlegir margir fundirnir sem ég sat á þessum árum og margt sem ég upplifðu í pólitíkinni, sem var bæði einkennilegt og ergilegt – en lærdómsríkt. Sem betur fer standa góðu
stundirnar uppúr í minningaflórunni og sigrarnir sem unnust á þessum tíma. Ég átti góð samskipti við hagsmunaaðila á þessum tíma og lagði mikið upp úr því að vinna á jafnréttisgrundvelli með námsmannahreyfingunum og stjórnendum og starfsfólki LÍN. Það skildi eftir sig góð vinatengsl og skemmtilegar minningar. Þetta var góður tími. Fylgist þú með starfi SÍNE enn í dag? Já, ég les alltaf greinar og fréttatilkynningar sem koma frá félaginu og fór lengi vel reglulega inn á heimasíðuna til að sjá hvað væri á döfinni. Ég er ánægð að sjá hvað kynningarefnið – myndirnar á heimasíðu - sem ég lét gera á sínum tíma lifir vel. Það var virkilega skemmtilegt PR verkefni og hugmyndavinna sem ég vann með Oddvari ljósmyndara. Eitthvað að lokum? Haldið áfram baráttunni, verið sýnileg og þjarmið að stjórnvöldum svo hagur félagsmanna, og námsmanna allra, megi verða betri en í gær. Þetta er eilíf barátta, sem aldrei má hætta. Mikilvægt að senda líka súkkulaði til tengiliða í desember. Mjög mikilvægt!!
Höfundur: Gunnar Örn Ingólfsson Doktorsnemi í sálfræði Ball State University
Who is the leader? Change is on the horizon... We find ourselves full of hope, Our hands reaching to the sky waiting for the sun to break through. Change is on the horizon… We find ourselves waiting, Our hands getting tired and you being less admired. Change is not here... We find ourselves angry, sad, and scared, Our hands down by our sides, seemingly helpless to act. Change is everywhere... We find ourselves doing something different every day, Our hands are never idle, when filled with purpose. Change is coming... We purposefully seek what the world needs, Our hands are those of an activist, a loving friend, a citizen concerned with the world We live in. It is you...
Some people like to say that love is not enough… We argue that it is… Love is powerful. Love is strong.
Love is giving. Love has no boundaries…
Love is all We need.
With love We will lack for nothing… If you are thirsty, you will be given water. If you are hungry, you will be given food. If you are lonely you, will be given company. The only way love may not be enough is when nobody has enough… That is not the case with the world today. In fact… a few have way more than they need, while most have less than they deserve. All We need is love...
35
Þorvaldur Finnbjörnsson Sviðstjóri Greiningar Rannís
36
Rannís hefur tekið saman upplýsingar um útskriftir Íslendinga með doktorsgráðu, bæði frá íslenskum og erlendum háskólum. Markmiðið með þessari samantekt er að hafa á takteinum upplýsingar um fjölda einstaklinga sem útskrifast með doktorsgráðu, námssvið, kyn og útskriftarland. Doktorsmenntun er sérlega góður undirbúningur að kröfuhörðu starfi svo sem við rannsóknir og þróun og er því að mörgu leyti drifkraftur nýsköpunar. Fjöldi doktorsútskrifta er einmitt mælikvarði sem fjölmargar alþjóðastofnanir nota til að meta möguleika landa til að stunda rannsóknir og nýsköpun. Þó menntun þýði ekki endilega sama og færni til að leysa flókin verkefni er hún þó sá þáttur sem vegur hvað þyngst við uppbyggingu á færni. Útskriftir doktorsmenntaðra á Íslandi hafa jafnan verið frá Háskóla Íslands en nýverið hafa einnig komið doktorsútskriftir frá Háskólanum í Reykjavík og Landbúnaðarháskólanum. Fjöldi Íslendinga sem útskrifast með doktorsgráðu frá erlendum háskólum hefur verið nokkuð mismunandi eða allt frá rúmlega 25 til 60 einstaklinga ár hvert. Frá 2007 hefur útskriftum doktorsmenntaðra á Íslandi fjölgað úr 10 manns í tæplega 40 með toppi árið 2010 þegar útskriftir þar voru tæplega 40. Það er áhugavert að skoða fjöldaþróun útskrifaðra doktora bæði frá háskólum á Íslandi og frá erlendum háskólum. Fram til 2007 eru útskriftir á Íslandi nokkuð jafnstór hópur eða í kringum einn tugur. Frá erlendum háskólum er mikil fjölgun árin 2002 og 2003 en þá dregur úr fjölguninni og fækkun verður frá 2003 til 2009 úr rúmlega 60 manns í um 25 manns.
Árið 2008 og 2009 fjölgar útskriftum á Íslandi verulega og fór árið 2009 í fyrsta sinn fram úr útskriftum frá erlendum háskólum. Árið 2010 er fjöldinn mjög svipaður í báðum hópunum. Heildarfjöldi útskrifaðra doktora á Íslandi og erlendis nær toppi árið 2009 þegar 82 einstaklingar útskrifast með doktorsgráðu. Það dregur aðeins úr fjöldanum árið 2010. Talið er að aukinn fjöldi útskrifta doktora á Íslandi megi meðal annars þakka markmiðum Háskóla Íslands um að komast í hóp 100 bestu háskóla í heiminum. Það er áhugavert að skoða hlutfall allra útskrifaðra doktora frá íslenskum háskólum og útskriftir Íslendinga frá erlendum háskólum af öllum útskrifuðum doktorum á Norðurlöndum. Á tímabilinu frá árinu 2000 til 2010 er þetta hlutfall á bilinu 0,9% til 1,2%. Hlutfallið helst í hendur við fjöldaþróunina í heild fyrir Ísland en fjöldi doktorsútskrifta árið 2010 á öllum Norðurlöndunum var tæplega sjö þúsund. Ef skoðuð er skipting þeirra sem fengið hafa doktorsgráðu á fimm ára tímabili frá 2006 til 2010 eftir fagsviðum og kyni, kemur í ljós að doktorsútskriftir kvenna eru nokkuð fleiri en karla.
Flestar doktorsútskriftir eru á sviði raunvísinda og félagsvísinda. Heilbrigðisvísindi fylg ja þar fast á eftir. Þetta eru einnig þau svið sem þar sem konur eru í meirihluta. Dreifing karla eftir fagsviðum er nokkuð jafnari þó mismunur sé á milli sviða. Það vekur athygli að á sviði verkfræði og tækni og á sviði landbúnaðar eru karlar í meirihluta. Þess má geta að Rannís hefur lagt áherslu á að afla upplýsinga um sem flesta Íslendinga sem hafa fengið doktorsgráðu fyrr og síðar. Í doktoragrunni Rannís eru um 2.100 nöfn og var fyrsta útskriftin árið 1666 en það var Þórður Þorláksson sem útskrifaðist með doktorsgráðu frá Martin Luther-Universität í Þýskalandi. Samtals 20 doktorsútskriftir fóru fram fyrir árið 1900. Rannís hefur áhuga á að allir nýútskrifaðir doktorar láti vita af sér svo hægt sé að átta sig á umfangi þessa mikilvæga mannauðs. Heimild: Rannís og Norbal
Útskriftir Íslendinga með doktorsgráðu á Íslandi og í öðrum löndum eftir kyni og fagsviði á fimm ára tímabili frá 2006 til 2010.
Með kæru þakklæti fyrir stuðninginn Alþýðusamband Íslands • Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins • DMM lausnir Faxaflóahafnir • Fjölbrautaskóli Norðurlands • Flugstöð Leifs Eiríkssonar Garðabær • Guðmundur Jónasson • Hallo Norden • Krappi ehf • Litlaland Margmiðlun Jóhannesar & Sigurjóns • Menntaskólinn á Egilsstöðum Pökkun og Flutningar • Reykjanesbær • Síldarvinnslan
39
> Ertu að flytja yfir hafið? ENNEMM / SÍA / NM39538
Alhliða þjónusta vegna búslóðaflutninga Á vef Samskipa www.samskip.is má finna gagnlegar upplýsingar um búslóðaflutninga til og frá Íslandi. Gott er að byrja á að: > Gera sér grein fyrir umfangi búslóðar – þarftu 20 feta gám, heilan 40 feta gám eða nokkur bretti? > Kynna sér hvaða lög gilda um tollafgreiðslu í landinu sem flutt er til > Fá skriflegt verðtilboð og aðrar upplýsingar > Ganga frá nauðsynlegum pappírum > Tryggja búslóðina > Bóka flutning Þjónustulipurt starfsfólk Samskipa og umboðsmenn um allan heim gera sitt besta svo flutningurinn verði sem þægilegastur.
www.samskip.is
Saman náum við árangri