4 SÍNE
6 LÍS
8 Brexit
10 Íslenska námslánakerfið
16 FRAKKLAND
22 KÝPUR
26 BANDARÍKIN
30 ÁSTRALÍA
34 Persónuleikapróf
38 ÞÝSKALAND
42 DANMÖRK
44 Landsþing LÍS 2021
46 KOSTA RÍKA
SAMTÖK ÍSLENSKRA NÁMSMANNA ERLENDIS
3 Ávarp ritstjóra
SÆMUNDUR 2020/2021
2
SÆMUNDUR 2020/2021
4 SÍNE 6 LÍS 8 Brexit 10 Íslenska námslánakerfið
Ávarp ritstjóra
3 Ávarp ritstjóra
FREYJA INGADÓTTIR
16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021 46 KOSTA RÍKA
Gleðilegt sumar, Freyja Ingadóttir, ritstýra Sæmundar
34 Persónuleikapróf
Síðastliðnir 14 mánuðir hafa verið skrýtnir og jafnvel erfiðir tímar fyrir marga, þá sérstaklega námsmenn erlendis. Upplifunin af námi erlendis hefur litast af allskyns áhyggjum tengdum heimsfaraldrinum. En ég vil ekki leggja of mikla áherslu á það enda nóg annað jákvætt til þess að einblína á. Í blaðinu má finna greinar eftir námsmenn af ólíkum fræðasviðum, frá sjö mismunandi löndum og fjórum heimsálfum. Eitt hafa allar greinarnar sameiginlegt, það er alltaf jafn frábært að halda út fyrir landsteinana og sækja sér nýja þekkingu, upplifanir og lífsreynslu, sama hvað bjátar á. Blaðið ber einnig að geyma hollráð og heilræði varðandi námslán, hvernig staðan hefur breyst fyrir íslenska nema í Bretlandi og persónuleikapróf, ef þú veist ekkert hvert þig langar í nám. Að auki eru nokkur skemmtileg ávörp frá forsetum stúdentasamtaka sem sýna hversu vel er haldið utan um hag íslenskra námsmanna og úrræði má finna hvarvetna. Vona ég að blaðið nýtist ykkur og veiti gagnlegar upplýsingar um námsaðstöðu í hverju landi, auk þess að vera áhugaverð og skemmtileg lesning. Það er sannarlega mikið í boði fyrir þá sem stefna á nám erlendis og býst ég við að þetta blað verði hvati til þess að kaupa sér flugmiða og fljúga úr hreiðrinu.
4
HAUKUR LOGI KARLSSON
Starf SÍNE í heimsfaraldri
SÆMUNDUR 2020/2021
6 LÍS 8 Brexit 10 Íslenska námslánakerfið 16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021
Haukur Logi Karlsson, formaður Sigríður María Egilsdóttir, varaformaður Freyja Ingadóttir, gjaldkeri og ritstjóri Sæmundar Áslaug Heiða Gunnarsdóttir, ritari Bjarki Þór Grönfeldt, meðstjórnandi Nanna Elísa Jakobsdóttir, meðstjórnandi Ragnar Auðun Árnason, meðstjórnandi og Menntasjóðsfulltrúi SÍNE og LÍS
4 SÍNE
Námsmenn erlendis hafa ekki farið varhluta af þeim sviptingum og þeirri óvissu sem fylgt hefur heimsfaraldrinum. Víða um lönd hefur ástandið verið erfitt og margir skólar einungis boðið upp á kennslu í fjarnámi, sem aukið hefur á félagslega einangrun þeirra nema sem dvalið hafa í námslöndum. Ferðatakmarkanir og kostnaður við ýmsar ráðstafanir vegna ferðalaga hafa bitnað á nemum, auk þess sem óhagstæðar sveiflur í gengi gjaldmiðla gagnvart íslensku krónunni hafa aukið á óvissu í heimilisbókhaldi margra. SÍNE hefur á skólaárinu vakið máls á nokkrum vandamálum námsmanna erlendis við stjórnvöld eftir ábendingar félagsmanna. Eins og gengur, hefur verið brugðist við sumu en öðru ekki. Þeir námsmenn sem eru á framfærslu Menntasjóðs og hafa greitt skólagjöld á síðastliðnu skólaári fengu t.d. margir aukagreiðslu eftir athugasemdir SÍNE við gengisútreikning skólagjaldalána. Þá beitti SÍNE sér fyrir því að nemar á leið heim frá hááhættusvæðum faraldursins þyrftu ekki að greiða fyrir dvöl á sóttvarnarhótelum, sem á endanum varð raunin. SÍNE hefur einnig fylgst grannt með bólusetningaráætlunum og vakið athygli sóttvarnaryfirvalda á sérstakri stöðu námsmanna erlendis í því tilliti. Af baráttumálum sem ekki hafa enn þá náð í gegn má nefna ýmsa hnökra sem komið hafa upp í sambandi við ný lög um Menntasjóð námsmanna og stjórnsýslulega framkvæmd þeirra gagnvart námsmönnum erlendis. Sú nýbreytni var tekin upp að miða í meginatriðum framfærslu námsmanna erlendis við framfærslu námsmanna á Íslandi. Fyrir mörg námslönd kemur þetta út með hagstæðum hætti fyrir námsmenn, en ekki fyrir dýrari lönd þar sem einnig er að finna marga af virtustu háskólum heims. Í lögunum er gert ráð fyrir að staðaruppbót sé beitt til þess að gera nám í þessum löndum fjárhagslega fýsilegt, en því miður hefur skort á að þessu fyrirheiti laganna sé fylgt nægjanlega í framkvæmd Menntasjóðsins. SÍNE hefur lagt til breytingar á framkvæmdinni í gegnum úthlutunarreglur sjóðsins, en hefur enn sem komið er ekki fengið nægilegan hljómgrunn hjá stjórnvöldum við þeim hugmyndum. Starf SÍNE snýst einkum um hagsmunagæslu fyrir hönd íslenskra námsmanna erlendis gagnvart stjórnvöldum og því mikilvægt að námsmenn láti í sér heyra og leiti liðsinnis SÍNE við úrlausn margvíslegra vandamála sem þeir kunna að standa frammi fyrir. Reynslan sýnir að erindrekstur SÍNE skilar árangri, sem undirstrikar mikilvægi sambandsins og virðið í því fyrir námsmenn að hafa öflugan málssvara þegar á þarf að halda. Núverandi stjórn SÍNE var kosin til eins árs á sumarráðstefnu sambandsins í ágúst 2020 og er skipuð eftirfarandi fólki:
3 Ávarp ritstjóra
i
5
46 KOSTA RÍKA
SÍNE
6
LÍS
JÓHANNA ÁSGEIRSDÓTTIR DEREK T. ALLEN FORSETAR LÍS 2020-2021 OG 2021-2022
Samband íslenskra námsmanna erlendis er einstakt félag. Með því að eiga slíkt félag eru íslenskir námsmenn erlendis ekki sundurleitur hópur, að leita réttar síns hver í sínu horni, heldur geta þess í stað sameinað krafta sína í baráttu fyrir bættum kjörum gagnvart stuðningskerfum á Íslandi. Fyrir lítið eyland þar sem stór hluti fólks verður að leita utan landsteinanna að námi á sínu áhugasviði skiptir vinna SÍNE gríðarlegu máli. Eitt þessara stuðningskerfa sem er mikilvægt að þrýsta á er námslánakerfið. Menntasjóður námsmanna býr síður en svo til hvata til þess að stunda nám erlendis, allavega þar sem innheimt eru skólagjöld. Skólagjaldalán duga skammt fyrir námi í mörgum eftirsóttum löndum eins og Englandi, Bandaríkjunum eða Kína. Berjast þarf áfram fyrir hækkuðu hámarki skólagjaldalána og LÍS eru með ykkur í liði þar. Við berjumst jafntframt fyrir algjöru afnámi skólagjalda saman með Evrópusamtökum stúdenta og Global Student Forum. Þó að fjármunir séu mikil fyrirstaða þá fara tækifæri til náms vonandi vaxandi með aukinni alþjóðavæðingu háskóla um allan heim. Við þekkjum af eini skinni kosti alþjóðavæðingar í gegnum samstarf á mismunandi stigum. LÍS fylgist vel með skiptinámi, tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi stúdentafélaga og fylgist með þróun alþjóðavæðingar í háskólum á Íslandi og kosti þess fyrir gæði náms. Verkefni SÍNE varðandi námslán eru skýr, en hvaða fleiri kosti hefur það að safna saman námsmönnum erlendis í eitt félag? Jú, þá er hægt að leita til þeirra SÆMUNDUR 2020/2021
4 SÍNE 6 LÍS 8 Brexit 10 Íslenska námslánakerfið 16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND
að sérfræðiþekkingu og fjölbreyttum viðhorfum sem aðeins þau hafa. Fólk fer út í nám af fjölbreyttum ástæðum. Það getur verið að sækja sér sérþekkingar sem ekki er hægt að sækja innanlands eða vegna ævintýraþrár. Þau sem kjósa að koma aftur heim eftir nám skila þessari menntun og reynslu inn í sín fræðasvið og atvinnugreinar. En okkur grunar að þessi þekking skili sér ekki eins vel inn í háskólasamfélagið, að námsmenn erlendis sem koma heim fái ekki boð eða sjái ekki tækifæri til þess að hafa nokkur áhrif á háskólana hér. Það er ef til vill vegna skorts á tengslaneti, þar sem íslenska samfélagið snýst mikið um hver maður þekkir heldur en hvað maður þekkir. En þið kæru námsmenn erlendis eruð líka hluti af háskólasamfélagi Íslands og hafið mjög margt fram á að færa. Námsmenn erlendis fá menntun sem er ef til vill ekki til á Íslandi en einnig þekkingu á öðru menntakerfi. Hvort tveggja er dýrmætt fyrir íslenskt menntakerfi, innihald fræðanna og uppbyggingu námsins. Hvernig getum við nýtt þessa dýrmætu þekkingu ykkar, félagsmanna SÍNE? Hvernig getum við leyft háskólunum á Íslandi að njóta góðs af því sem íslenskir stúdentar erlendis bjóða upp á? Það er til dæmis hægt með því að taka þátt í starfi stúdentasamtaka, eins og SÍNE og LÍS. SÍNE er jafngildur meðlimur í LÍS og stúdentafélög íslenskra háskóla, og eru gjaldgeng í verkefni sem hafa raunveruleg áhrif á þróun háskólanáms hérlendis. Fulltrúar SÍNE sinna fjölbreyttum verkefnum sem hafa bein og óbein áhrif á bæði tækifæri fólks til þess að sækja sér menntunar erlendis en einnig á menntakerfið hér á landi. Með fræðslu, ráðgjöf, viðburðum og greinaskrifum hafa stúdentafulltrúar áhrif á viðhorf almennings en einnig á fólk í valdastöðu. Með herferðum og lobbíisma gagnvart stjórnvöldum ná stúdentafulltrúar oft fram stórum sigrum fyrir bættum kjörum stúdenta en einnig varðandi framþróun í menntamálum. SÍNE og LÍS fá oft umboð til þess að skipa stúdenta í gæðaúttektir eða nefndir hjá hinu opinbera þar sem mikilvægar ákvarðanir eru teknar, sem er þá dæmi um mjög bein áhrif. Þar kemur reynsla af námi erlendis inn sem mikill kostur. Í slíkri vinnu getur stúdentafulltrúi sem hefur reynslu af námi erlendis veitt gagnlegan samanburð íslenska kerfissins við önnur menntakerfi, komið með ferska sýn og nýjar hugmyndir. Við þökkum SÍNE fyrir vel unnin störf og virkni innanlands sem utan, og hvetjum námsmenn erlendis til þess að taka þátt í mótun háskólasamfélagsins á Íslandi og á alþjóðavettvangi.
3 Ávarp ritstjóra
7
42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021 46 KOSTA RÍKA
LÍS
8
Hverju Brexit breytti fyrir íslenska námsmenn
SÆMUNDUR 2020/2021
8 Brexit 10 Íslenska námslánakerfið 16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND
Þið sem eruð í námi í Bretlandi og stefnið á útskrift núna í sumar getið unnið eða leitað að vinnu í Bretlandi í allt að tvö ár frá útskrift, eða þrjú ef þið eruð í doktorsnámi. Þið sækið þá um settled að pre-settled status ef þið viljið halda áfram að búa í Bretlandi. Settled status er fyrir þá sem hafa búið lengur en 5 ár í Bretlandi, ef þú færð settled status getur þú einnig sótt um breskan ríkis borgararétt. Pre-settled status er fyrir þá sem hafa búið skemur en 5 ár. Presettled status gefur þér rétt til þess að vera 5 ár í viðbót í landinu. Bæði þessi réttindi gefa meðal annars leyfi til þess að vinna í Bretlandi og nota heilbrigðis kerfið. Mælt er með því að sækja um þessi leyfi sem fyrst. Ef þú hyggur á að vinna í Bretlandi verður þú að vera með annað hvort leyfið til þess að geta sótt um National Insurance Number (NINO). NINO er eins og kennitala og án hennar getur þú ekki fengið vinnu. Passið uppá að allar síður séu merktar gov.uk – það er mikið af síðum sem reyna að plotta af ykkur peninga fyrir að sækja um landvistar eða vinnuleyfi. Þessi leyfi kosta ekki neitt en þið gætuð þurft að fara í viðtal til þess að fá NINO. Nánari upplýsingar má finna hjá Sendiráði Bretlands á Íslandi og Sendiráði Íslands í London.
6 LÍS
• Vegabréfsáritun • Unconditional offer • Tungumálapróf • Fjármögnun
4 SÍNE
Um áramótin gekk Bretland úr Evrópusambandinu og þar með evrópska efnahagssvæðinu. Nú gilda því ekki lengur reglur EES um frjálsa för fólks um Bretland. Þannig ef þú kæri lesandi stefnir á nám í Bretlandi þarft þú að hafa ýmislegt í huga. Þú þarft að sækja um vegabréfsáritun og uppfylla ákveðin skilyrði samkvæmt nýju innflytjendakerfi breskra stjórnvalda. Þú getur sótt um vegabréfsáritun til þess að stunda nám í Bretlandi ef þú hefur fengið boð um skólavist (unconditional offer), og sýnt fram á að þú getir talað, lesið, skrifað og skilið ensku. Sönnun fyrir því er tungumálapróf, TOEFL eða sambærilegt. Einnig þarftu að sýna fram á að þú getir framfleitt sjálfum þér og borgað fyrir námið. Ef þú átt ekki nægilegt fjármagn á bankabókinni til þess að sýna fram á það þá dugar skólagjaldalán og framfærslulán frá Menntasjóðnum til þess.
3 Ávarp ritstjóra
9
42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021 46 KOSTA RÍKA
BREXIT
10
Um íslenska námslánakerfið
SÆMUNDUR 2020/2021
RAGNAR AUÐUNN ÁRNASON
10 Íslenska námslánakerfið 16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021
Frítekjumark námslána Frítekjumark námslána er 1.410.000 kr. 45% þeirra tekna sem fara fram yfir frítekjumarkið koma til frádráttar á útreikning á lánsupphæð og er skerðingunni dreift hlutfallslega á umsóttar einingar. Heimilt er að fimmfalda frítekjumark námsmanns ef námsmaður hefur ekki verið á námslánum hjá sjóðnum sl. 6 mánuði.
8 Brexit
Tímabundin hækkun grunnframfærslu Vegna tímabundinna aðstæðna í þjóðfélaginu (Covid-19) er fyrirhugað að bjóða námsmönnum viðbótarlán vegna skólaársins 2021-2022. Lánið getur numið 6% álagi á grunnframfærslu framfærslulána, nái áætlaðar tekjur námsmannsins ekki heimiluðu frítekjumarki. Námsmenn verða þó að sækja sérstaklega um þessa viðbótarframfærslu.
6 LÍS
HELSTU UPPLÝSINGAR Grunnframfærsla Við útreikning framfærslugrunns Menntasjóðs námsmanna er byggt á grunnviðmiði neysluviðmiða velferðarráðuneytisins og er hann uppreiknaður miðað við hækkun vísitölu neysluverðs frá Hagstofu Íslands. Húsnæðiskostnaður er reiknaður miðað við sömu verðlagsforsendur en tekur jafnframt mið af leigu á stúdentagörðum háskólanna fyrir einstaklings-, para- og fjölskylduhúsnæði.
4 SÍNE
ÍSLENSK NÁMSLÁN • Námslán eru ekki hreinir styrkir og mikilvægt að námsmenn sem sækja um námslán geri sér grein fyrir því. Þó fellur 30% niður af höfuðstóli lánins niður klári námsmaður lánið á réttum tíma. • Í stjórn Menntasjóðsnámsmanna sitja tíu manns þar af fjórir fulltrúar námsmanna og einn fulltrúi BHM. • Hlutverk Menntasjóðs námsmanna er að tryggja þeim sem falla undir lög um sjóðinn tækifæri til náms án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti. • Lánin eru verðtryggð fyrir vísitölu neysluverðs en vaxtalaus fram að námslokum. Þegar að skuldabréfi hefur verið lokað er lántaka heimilt að velja hvort skuldabréfið skui vera verðtryggt eða óverðtryggt. Þá getur lántaki einnig valið hvort endurgreiðslufyrirkomulag bréfsins skuli vera háð lántökufjárhæð eða háð tekjum (svo lengi sem hann klárar nám fyrir 35 ára aldur). • Upphæð námsláns ákvarðast í meginatriðum út frá grunnframfærslu, fjölskylduhögum og búsetuformi, árstekjum og námsframvindu. • Einstaklingur sem er að endurgreina námslán samkvæmt eldir lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna á rétt á afslætti aukainnborgunar sem nemur 5-15% af ógjaldföllnum eftirstöðvum skuldabréfs fyrir greiðslu. Hlutfall afsláttar af aukainnborgun ræðst af eftirstöðvum námslána greiðenda.
3 Ávarp ritstjóra
11
46 KOSTA RÍKA
UM NÁMSLÁN
12
RAGNAR AUÐUNN ÁRNASON Námsframvinda Almennt telst námsmaður í fullu námi ljúki hann 60 ECTS–einingum eða ígildi þeirra á skólaári í einum námsferli. Nýr námsferill hefst skipti námsmaður um skóla, námsgrein eða námsgráðu. Í misseraskólum (með skipulaginu haustmisseri, vormisseri og eftir atvikum sumarönn) er að hámarki veitt lán fyrir 30 ECTS-einingum á hvoru misseri og 20 ECTS-einingum á sumarönn, samtals að hámarki 80 ECTS-einingar fyrir námsárið. Jafngildir það 12 mánaða framfærslu. Lágmarksárangur til að eiga rétt á láni á einstökum önnum er 22 ECTS-einingar á haust- eða vormisseri en 15 ECTS-einingar á sumarönn. Nám á sumarönn tilheyrir undangengnu skólaári. Sækja þarf sérstaklega um sumarlán. Að sækja um lán Sækja skal sérstaklega um námslán fyrir hverja önn (Þó hægt sé að sækja um nám fyrir haust og vorönn saman). Umsóknarfrestir eru eftirfarandi: Haust 2021 til og með 15. september 2021 Vetur og vor 2022 til og með 15. janúar 2022 Sumar 2022 til og með 15. júní 2022 Námslengd Alls getur námsmaður fengið lán frá Menntasjóðnum fyrir 480 ECTS einingum, það eru þó ákveðin skilyrði, námsmaður getur þ.a.l. ekki nýtt allar þessar einingar í t.a.m. meistaraprófsgráður. Hlutfallið skiptist eins og sýnt er hér að neðan: Grunnnám: 180 ECTS Meistaranám: 120 ECTS Doktorsnám: 60 ECTS Svigrúm: 120 ECTS Samtals: 480 ECTS Skilyrði fyrir því að geta sótt um námslán • Skilyrði til aðstoðar frá sjóðnum er að umsækjandi verði fjárráða á þeirri önn sem sótt er um námslán fyrir. • Það nám sem lánþegi stundar þarf að vera lánshæft, sbr. 2. kafla og lánþegi þarf að uppfylla lágmarkskröfur um námsframvindu, sbr. 3. kafla. • Námsmaður getur ekki fengið lán frá sjóðnum ef hann þiggur á sama tíma námsaðstoð frá öðru ríki. • Til þess að námsmaður teljist lánshæfur hjá sjóðnum má hann ekki vera í vanskilum við sjóðinn þegar sótt er um lán. • Ef námsmaður hefur vísvitandi veitt sjóðnum rangar eða villandi upplýsingar fellur öll námsaðstoð við hann niður og aðstoð sem hann kann að hafa fengið vegna slíkra upplýsinga ber námsmanni að endurgreiða með verðbótum frá útborgunardegi. Þetta á m.a. við ef sannað þykir að námsmaður hafi gefið upp rangar tekjur samkvæmt skilgreiningu sjóðsins um tekjur þegar viðkomandi skattári er lokið.
SÆMUNDUR 2020/2021
22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021 46 KOSTA RÍKA
UM NÁMSLÁN
16 FRAKKLAND
Land / borg Krónur á mánuði Ástralía 3.806 Bandaríkin A 128.344 Bandaríkin B 29.462 Kaupmannahöfn 7.276 England 4.637 London 15.072 París 11.487 Írska lýðveldið 34.047 Ísrael 40.228 Ítalía 15.968 Róm 64.488 Japan 8.693 Kosta Ríka 49.888 Mónakó 35.902
10 Íslenska námslánakerfið
Staðaruppbót Þar sem verulega munar á íslenskri framfærslu og framfærslu í landinu er námsmaður stundar nám (þ.e. erlendis) er heimilt að veita viðbótarframfærslu (staðaruppbót). Nánari upplýsingar um staðaruppbótina eru í úthlutunarreglum sjóðsins. Ef námsmenn telja sig eiga rétt á staðaruppbót en landið/borgin sem þeir búa í er ekki tekin með í upptalningu lánasjóðsins, hvetur SÍNE þá námsmenn að láta sambandið vita tafarlaust.
8 Brexit
1) Eitt ár umfram þann tíma sem skipulag iðn-, starfs- og aðfaranáms kveður á um. 2) Eitt ár umfram þann tíma sem skipulag bakkalárs- og meistaranáms kveður á um. 3) Sex mánuðir umfram þann tíma sem skipulag diplómanáms kveður á um. 4) Tvö ár umfram þann tíma sem skipulag doktorsnáms kveður á um.
6 LÍS
Námsstyrkur við námslok Námsmaður á rétt á námsstyrk sem nemur 30% niðurfærslu á höfuðstól námslánaskuldar ásamt verðbótum á þeim degi sem skuldabréfi er lokað ef lokið er við prófgráðu á þeim tíma sem skipulag skólans á náminu gerir ráð fyrir. Námsstyrkur er einungis veittur vegna náms sem er skipulagt sem fullt nám í að lágmarki tvær annir, þ.e. sem nemur að lágmarki 60 ECTS-einingum eða ígildi þeirra. Námsmenn hafa svigrúm til seinkunnar í námi án þess að réttur til náms styrks skerðist og er eftirfarandi:
4 SÍNE
Útborgun námslána Skilyrði fyrir því að mánaðarlegar greiðslur hefjist á síðari önnum námsársins er að búið sé að ganga frá fyrri námsmönnum hvað varðar skil á námsárangri og/ eða endurgreiðslu vegna ofgreiðslu. Skili námsmaður ekki tilskildum lágmarks námsárangri (60 ECTS) eftir viðkomandi skólaár eru fyrirframgreidd lán endur kræf samkvæmt úthlutunarreglum Menntasjóðs.
3 Ávarp ritstjóra
13
14
RAGNAR AUÐUNN ÁRNASON Norður Írland 3.961 Sameinuðu arabísku furstadæmin 146.741 Síle 22.158 Sviss 87.864 Tæland 15.350 Undanþágur Þeir námsmenn sem uppfylla ekki skilyrði sjóðsins um lágmarksnámsframvindu, þ.e. að ljúka a.m.k 22 ECTS einingum, t.d. vegna þeirra aðstæðna sem tilgreindar eru hér að neðan: 1) Námslok eru í sjónmáli (15 – 21 ECTS einingar eru eftir af námi) 2) Námsmaður hefur lagt stund á nám þar sem einungis eru 10 ECTS eða 20 ECTS eininga áfangar og námsmaður stenst ekki einn þeirra. 3) Veikindi, barnsburður, örorka eða lesblinda, hindra eða tefja framgang námsmannsins í náminu. HEILRÆÐI SÍNE Aðstoð SÍNE og lánasjóðsfulltrúa SÍNE Ekki hika við að hafa samband við SÍNE! Námsmönnum stendur til boða að leita til SÍNE og lánasjóðsfulltrúa SÍNE varðandi mál er tengjast Menntasjóði námsmanna. Ragnar Auðun Árnason er núverandi lánasjóðsfulltrúi SÍNE og veitir stúdentum aðstoð og leiðbeiningar varðandi málefni Menntasjóðsins (sine@sine. is og raggiau@gmail.com). Hann situr einnig í stjórn sjóðsins fyrir hönd SÍNE. Skrifleg samskipti Þegar sótt er um námslán getur ýmislegt skolast til beggja borðsins og því er mikilvægt að hafa hlutina á hreinu. SÍNE vill benda lántökum á að aukið öryggi geti falist í því að hafa samskipti og fyrirspurnir til Menntasjóðsins skriflegar (ATH. Sjóðurinn og þjónustufulltrúar hans geta tekið langan tíma í að svara því er betra að senda strax póst en ekki bíða með það). Það getur verið betra að senda tölvupóst frekar en að hringja vegna fyrirspurna. Með því móti er auðveldara að rekja samskiptasöguna og hægt að koma í veg fyrir „orð gegn orði“ stöðu milli lántakenda og starfsmanns Menntasjóðsins. Fá staðfestingu á móttöku umsóknar Mikilvægt er að vera viss um að umsókn hafi borist sjóðnum og best er að halda öllum staðfestingum þess efnis til haga. Þekkja úthlutnarreglur og undanþágur Eins og var sagt í byrjun þá eru námslán, lán þrátt fyrir styrk ef námsmaður klárar á tilskildum tíma. Því er mjög mikilvægt að lántakar kynni sér úthlutunarreglur sjóðsins vel og lánaskilmála sem þeir gangast við um leið og þeir skrifa undir skuldabréf. Sérstök athygli er vakin á reglum sem veita undanþágur og aukið svigrúm, t.d. vegna veikinda, örorku og lesblindu. Námsmenn verða oft fyrir tekjutapi sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir ef námsmaður hefði kynnt sér úthlutunarreglur Menntasjóðsins.
SÆMUNDUR 2020/2021
10 Íslenska námslánakerfið 16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN
1.764.342 116.187 79.851 196.038
8 Brexit 30 ÁSTRALÍA
Einhleypur í leigu eða eigin húsnæði
6 LÍS
Í foreldrahúsi
Framfærsla Grunnframfærsla Húsnæðisframfærsla Alls framfærsla á skóla ári á mánuði á mánuði á mánuði 810.909 90.101 0 90.101
4 SÍNE
Vinsælustu námslöndin Land 2011 2016 Danmörk 1.082 Bandaríkin 329 288 England 220 188 Svíþjóð 181 154 Holland 101 111 Ungverjaland 82 100 Noregur 67 99 Þýskaland // Slóvakía 63 79 Skotland // Þýskaland 57 64 Spánn // Skotland 55 47 Önnur lönd 258 259 Samtals 2.495 1.727
3 Ávarp ritstjóra
15
Sambúð, 2 börn e.fl.
1.687.707 116.187 71.336 187.523
Einstæður, 1 barn
2.233.827 116.187 132.016 248.203
Einstæður, 2 börn e.fl.
2.329.731 116.187 142.672 258.859
44 Landsþing LÍS 2021
1.639.755 116.187 66.008 182.195
42 DANMÖRK
Sambúð, eitt barn
38 ÞÝSKALAND
1.553.544 116.187 56.429 172.616
34 Persónuleikapróf
Í sambúð, barnlaus
46 KOSTA RÍKA
UM NÁMSLÁN
16
ÁSGERÐUR ÓLÖF ÁSGEIRSDÓTTIR
FRAKKLAND
SÆMUNDUR 2020/2021
8 Brexit 10 Íslenska námslánakerfið 16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021 46 KOSTA RÍKA
FRAKKLAND
6 LÍS
TUNGUMÁL OG FRAMTÍÐ ENSKUNNAR Mér þótti það tilvalið sem nemandi í alþjóðasamskiptum að prófa að búa erlendis. Ég hef lengi vel verið mikil áhugamanneskja um Frakkland og franska tungu og það vill svo til að franska er mest talaða tungumál innan stjórnmála geirans á alþjóðavísu - á eftir enskunni, auðvitað. Frakkar og Belgar hafa þannig spilað mikilvæg hlutverk þegar kemur að alþjóðlegu samstarfi, en Atlantshafs bandalagið (NATO) og Evrópusambandið (ESB) eru með sínar bækistöðvar í Brussel, á meðan Evrópuráðið (Council of Europe) og fleiri þekktar alþjóða stofnanir eru staðsettar í Frakklandi. Fyrir þá sem vilja vinna fyrir hönd Íslands á alþjóðavettvangi er gott að hafa góð tök á Norðurlandatungumáli og frönsku – verst er að mér gengur heldur illa að ná tökum á þeim! Til dæmis hefur verið umræða meðal franskra stjórnmálamanna um framtíð enskunnar innan Evrópusambandsins. Opinber tungumál Evrópusam bandsins eru 24 en eru enska, franska og þýska notuð mest við störf sam bandsins. Vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu hafa Frakkar og aðrir áhugamenn frönskunnar verið talsmenn frönskumælandi (e. francophone)
4 SÍNE
Ég stunda nám við Sciences Po háskólann í París. Skólinn er meðal fremstu háskóla á sviði stjórnmálafræða og alþjóðasamskipta. Sciences Po er stytting á franska orðinu fyrir „stjórnmálafræði“ (fr. sciences politique). Skólinn það sem kallast Grande École, og er einn af gamalgrónum háskólum Frakklands sem eru samkeppnishæfir, opinberir háskólar – svipaðir eins og Ivy League-háskólar Bandaríkjanna. Hann var stofnaður árið 1872 af Émile Boutmy og vinum hans, hópur fræðimanna sem óttaðist að vanhæfni meðal stjórnmálamanna og erin dreka myndi leiða til endaloka Frakklands sem stórveldi. Þess má til gamans geta að LSE háskólinn í Bretlandi, sem stofnaður var árið 1895, notaði námskrá og uppsetningu Sciences Po háskólans sem fyrirmynd. Ég stunda meistaranám í alþjóðasamskiptum og opinberri stefnumótun (e. international public management). Nú er búið að breyta nafni námsleiðarinnar í ríkiserindrekstur og opinber stjórnun (e. diplomacy and public governance), sem lýsir eiginlega námsleiðinni mun betur. Mér bauðst að leggja áherslu á ákveðin málefni innan alþjóðasamskipta og ég valdi að leggja áherslu á diplómatíska aðferðafræði og Evrópusamstarf. Meistaranámið við skólann er tvö ár og er þriðja önnin tileinkuð þremur valkostum; hægt er að velja á milli að skrifa hefð bundna meistararitgerð, fara í skiptinám eða fara í starfsnám. Valkostirnir eru gefnir til þess að bjóða nemendum upp á upplifa sjálfir alþjóðasamfélagið og samskipti innan stjórnmálageirans. Ég valdi að fara í starfsnám hjá Evrópuráðinu á minni þriðju önn. Ég þurfti samt að gera meistararitgerð en í smækkaðri mynd, um verkefni tengd Evrópuráðinu, og verja hana fyrir dómnefnd. Ég er með B.A. gráðu í stjórnmálafræði og alþjóðalögfræði og vildi sér hæfa mig í alþjóðlegum stjórnmálum, en mér þótti erfitt að velja námsleið; mér leist vel á eina sem snerist um ábyrgð fjölmiðla í alþjóðlegu stjórnmálasamfélagi, aðra sem snerist um Evrópusamstarf og svo eina aðra sem snérist að mann réttindum og alþjóðlegum mannréttindalögum. Ég ákvað eiginlega að fara í þetta allt þar sem mín námsleið bauð mér upp á að velja áfanga um mismunandi mál efni með því markmiði að greina áhrif og hlutverk stjórnvalda, einkageirans og alþjóðlegra samtaka á samfélagið.
3 Ávarp ritstjóra
17
18
ÁSGERÐUR ÓLÖF ÁSGEIRSDÓTTIR Evrópusambandi vegna þess að aðeins 1% íbúa ESB hafa ensku að móðurmáli (verið er að vinna að því að gera írsku að opinberu tungumáli ESB). Með þessum rökum ætti þó franskan að víkja fyrir þýskunni, þar sem 20% íbúa ESB hafa hana sem móðurmál sitt, en 14% frönskuna. Hinsvegar hafa 44% íbúa ESB ensku sem annað tungumál, og því skiljanlegt að opinberar tilkynningar og störf stofnana innan ESB séu birt fyrst á ensku – og síðan þýdd yfir á hin 23 tungumálin – svo skilaboðin komi sem fyrst til skila til flestra. HEIMSFARALDURINN SETTI STRIK Í REIKNINGINN Heimsfaraldurinn skall á áður en ég náði að klára fyrsta árið mitt í náminu og ég flúði til Íslands í mars 2020, en fór aftur til Frakklands í september. Ég var mjög heppin með starfsnám, Evrópuráðið bauð upp á starfsnám á staðnum, í Strassborg, og þrátt fyrir að geta ekki fengið að fylgjast með málaferlum innan Mannréttindadómstóli Evrópu eða fundum Ráðherraráðsins (vegna fjölda takmarkana) þá fékk ég að mæta til vinnu á skrifstofu, borða hádegismat með öðrum starfsnemum og fleira sem maður tók sem gefnu fyrir heimsfaraldurinn.
SÆMUNDUR 2020/2021
10 Íslenska námslánakerfið 16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021 46 KOSTA RÍKA
FRAKKLAND
8 Brexit
KREFJANDI EN GEFANDI AÐ STUNDA NÁM ERLENDIS Námið sjálft var vissulega erfitt en ég var vonsvikin yfir því hvað mér gekk illa að læra frönsku á meðan ég var í námi á ensku. Maður hefur lítinn tíma fyrir annað en námið sjálft og jafnvel þótt ég var tvisvar sinnum í viku í frönskutímum, sem var innifalið í náminu, fór öll mín helstu samskipti fram á ensku. Ég var hörð á því að þegar ég myndi flytja til Frakklands þá ætlaði ég að tala frönsku við allt og alla þegar ég gat. Síðan kemur maður til landsins og finnur fyrir óörygginu sem fylgir
6 LÍS
GÓÐ RÁÐ FYRIR ÞÁ SEM HUGA AÐ NÁMI Í PARÍS Mitt helsta ráð er að gleyma þér í landinu sem þú flytur til. Í nútímasamfélagi er mjög auðvelt að búa til dæmis í París án þess að upplifa París – sérstaklega þegar maður fer í alþjóðlegan skóla. Mikilvægt er að reyna að njóta þess að setjast á franskt kaffihús í staðinn fyrir Starbucks, hlusta á franska útvarpsstöð í stað þess að hlusta á íslenskt hlaðvarp og fara í bíó á franska kvikmynd – þótt maður skilji ekki neitt. Í Frakklandi skaltu búa þig undir allskonar bardaga við franska skrifræðið. Þú átt eftir að þurfa að fylla út blöð sem virðast vera algjörlega óþörf en gert að máli upp á líf og dauða - til þess eins að fá aðgangskort í neðanjarðarlestina, til dæmis. Svo lærir maður inn á kerfið og man að draga djúpt andann, en til þess að þurfa að vesenast sem minnst í þessum málum mæli ég með að leigja íbúð þar sem internet og wifi-tenging er innifalin, það mun spara þér mikinn tíma og tár. Frakkland allt er ofboðslega fallegt - en ég mæli ekki með að ætla að spara pening með því að leigja í útjaðri borgarinnar þegar þú getur búið í lítilli íbúð (chambre de bonne) í Haussmann-byggingu með þrjú bakarí innan 10 metra radíus, fyrir aðeins meiri pening.
4 SÍNE
FJÖLMENNING OG SÉRSTAÐA ÍSLANDS Ég mæli sannarlega með því að íslenskir námsmenn fari í nám erlendis. Maður getur lært svo mikið af því að kynnast öðrum áherslum en þeim sem tíðkast á Íslandi. Mér fannst til dæmis mjög áhugavert að fara til Frakklands, þar sem hinn venjulegi, franski stjórnmálafræðinemi þekkir stöðu Norður-Afríkulanda líkt og Algeríu og Líbýu mun betur en íslenskir, vegna tengsla sem Frakkland hefur við þessi lönd, og lærði ég mikið af þeim. Í mínu námi kynntist ég allskonar fólki allsstaðar að. Eitt verkefni vann ég með pakístanskri konu sem hafði setið á þingi í heimalandi sínu, hún hafði öðruvísi hugmyndir að því hvernig við ættum að nálgast verkefnin en rússnesk, ung kona af auðugum ættum sem hafði svo öðruvísi sýn á verkefnin en franskur karlmaður sem var smyglaður sem barn á flótta frá Algeríu til Frakklands. Í slíkri fjölmenningu lærir maður að taka sig ekki of alvarlega. Mér þykir líka mjög mikilvægt að íslenskir námsmenn fari í nám erlendis vegna sérstöðu okkar. Mér fannst til dæmis mjög gaman að geta mætt í tíma í áfanga um utanríkisstefnu Kína og sagt kennaranum og nemendunum frá því hvernig viðvera kínverska námufyrirtækja á Grænlandi hafði áhrif á að grænlenska landstjórnin sundraðist í byrjun árs 2021. Þau höfðu ekkert heyrt um kínverskan námugröft á Grænlandi og var þessum vangaveltum mætt með áhuga – kennarinn var ánægður með að geta tengt þetta við stórveldapólítikina á milli Bandaríkjanna og Kína!
3 Ávarp ritstjóra
19
20
ÁSGERÐUR ÓLÖF ÁSGEIRSDÓTTIR því að flytja út og fer fljótt að skipta yfir í enskuna til þess að róa taugarnar. Mig langaði afskaplega að taka að mér aukavinnu á kaffihúsi bara svo ég neyddist til að ná almennilegum tökum á tungumálinu, en þá held ég að ég hefði alveg brunnið út! Það kom mér á óvart hversu auðvelt það er að flytja út og kynnast nýju fólki. Mér fannst vel tekið á móti mér hvort sem það voru heimamenn eða aðrir alþjóðlegir nemendur sem voru líka fluttir að heiman til þess að kynnast fólki frá öðrum löndum, læra nýja siði og menningu annarra. Mér finnst mikilvægt að þau sem stunda nám við hugvísindi taki sér tíma til þess að stunda eitthvað af náminu erlendis. Þessi reynsla getur gefið manni nýja sýn á lífið og getur fært manni hæfni til þess að skilja náungann betur. All flestir sem ég hef talað við sem hafa búið erlendis segja það saman þegar þeir koma heim; maður lærði hvað við á Íslandi höfum það gott. Hvort sem það er aðgengi að heilbrigðisþjónustu (sem að mínu mati vantaði reyndar ekki upp á í Frakklandi) eða upphitun á húsum (sem að mínu mati vantaði mjög mikið upp á í Frakklandi), þá er gott fyrir alla að prófa að upplifa öðruvísi aðstæður. TUNGUMÁLAKUNNÁTTA ER MÁLIÐ Þegar ég var í menntaskóla fannst mér þeir sem fóru í skiptinám vera lúðar. Um leið og ég var orðin of gömul til að skrá mig í skiptinám í gegnum AFS þá áttaði ég mig á því að þessir lúðar voru bara krakkar sem voru ansi hugrakkir fyrir að ákveða að vera í eitt ár í erlendu landi, kunna kannski ekki tungumálið og þekktu engann fyrir. Þegar ég útskrifaðist úr menntaskóla fannst mér þau sem fóru sem aupair vera bara krakkar sem elskuðu börn. Núna þegar ég er orðin eldri þá hef ég áttað mig á því að ég var sem ung hrædd við ábyrgðina sem fylgir því að passa börn og fannst þau bara vera nokkuð hugrökk fyrir að þora að fara til erlends lands, ókunnugrar fjölskyldu og passa börn sem þau þekkja ekki neitt. Þegar ég kláraði B.A.-námið mitt við Háskóla Íslands áttaði ég mig á því að það að stimpla skiptinema sem lúða var ákveðið hegðunarmynstur af ótta og öfundsýki, ég hefði aldrei þorað sjálf að fara eitt ár út, missa af vinum mínum og öllu því skemmtilega slúðri sem væri að gerast hér heima. Hver einasti skiptinemi sem ég þekki hefur sagt; „þegar ég kom heim, þá var allt eins, ekkert breyttist á meðan ég var úti, jú sumir byrjuðu saman, aðrir hættu saman. En ég kom heim eftir að hafa kynnst nýrri menningu, lært nýtt tungumál og eignast nýja fjölskyldu. Það sem ég sá eftir því að hafa ekki farið í skiptinám. Nú er ég 27 ára mastersnemi með þráhyggju fyrir því að læra tungumál. Mér finnst mest töff liðið á Íslandi vera fólkið sem kann önnur tungumál en íslensku og ensku.
SÆMUNDUR 2020/2021
3 Ávarp ritstjóra
21
4 SÍNE 6 LÍS 8 Brexit 10 Íslenska námslánakerfið 16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 44 Landsþing LÍS 2021
• Tungumálapróf • Skólagjöld • Réttindi námsmanna • Nám á ensku
42 DANMÖRK 46 KOSTA RÍKA
• Háskólanám erlendis • Viðurkenningu náms • Hvernig sótt er um • Umsóknarfresti • Styrki • Inntökupróf
38 ÞÝSKALAND
FaraBara.is er fyrsti viðkomustaður þeirra sem hafa hug á að stunda nám erlendis. Á vefnum er gríðarlegt magn upplýsinga um þau fjölmörgu námstækifæri sem í boði eru um allan heim, þar á meðal:
www.farabara.is FaraBara er samstarfsvefur Sambands íslenskra námsmanna erlendis og Rannís
PARÍS
22
ERLA GUÐBJÖRG HALLGRÍMSDÓTTIR
KÝPUR
SÆMUNDUR 2020/2021
3 Ávarp ritstjóra
23
4 SÍNE 6 LÍS 8 Brexit 10 Íslenska námslánakerfið 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021 46 KOSTA RÍKA
KÝPUR
26 BANDARÍKIN
ÓMETANLEGT AÐ FLJÚGA ÚR HREIÐRINU Ég mæli eindregið með að fara út í nám, hvort sem það er allt námið eða nokkra vikna skiptinám. Reynslan sem fylgir því að fljúga úr Íslandshreiðri er ómetanleg. Nám erlendis veitir nemum ný tækifæri og nýja sýn á lífið, það kynnir manni fyrir nýjum vandamálum og nýjum lausnum, og svo er þetta einfaldlega svo gaman!
22 KÝPUR
SÓLIN HEILLAÐI Þegar ég var að sækja um háskólanám kom ekkert annað til greina en að fara til útlanda, það hefur alltaf verið draumurinn. Mig langaði að kynnast nýrri menn ingu, nýjum hugarheim og nýju fólki. Þegar ég byrjaði að svipast eftir námi, vissi ég ekki hvað mig langaði að leggja fyrir mig. Ég tók árspásu, las um allskonar nám, ýmsa skóla og staði. Eftir það var ég ákveðin að fara til Kýpur ef það tæki færi skyldi bjóðast. Kýpur bauð upp á nýtt nám í alþjóðlegu umhverfi og mér leist vel á nám skrána. Auðvitað skemmdi náttúran og sólin ekki en mig langaði að næstu ár ævi minnar væru á stað sem mér myndi líða vel, þá sérstaklega samhliða þessu erfiða námi.
16 FRAKKLAND
Ég stunda læknisfræði á hinni yndisfögru miðjarðarhafseyju Kýpur í skólanum European University Cyprus (EUC). Læknisfræðideildin í EUC var stofnuð árið 2013 og er skólinn nýstárlegur með háþróaða eftirlíkingu af sjúkrahúsadeild og gínur sem læknanemar fá að spreyta sig á áður en þau mæta upp á sjúkrahús. Eins og gefur að skilja leggur skólinn mikið upp úr tækni, sem hefur nýst vel á tímum covid og fjarkennslu. Í faraldrinum hefur EUC komið til móts við nem endur, m.a. að leyfa og hjálpa nemum að vera í verknámi í sínu heimalandi og senda búnað svo nemar geta æft sig, t.d. blóðþrýstingsmæla. Annars er hverju ári skipt í tvær annir og á fyrstu þremur árunum eru kennd 5 fög á hverri önn. Dögunum er líka skipt í tvennt: bóklegt og verklegt. Það eru tvær prófatíðir á önn: miðannar- og lokapróf. Skólaárið klárast yfirleitt í lok maí eða byrjun júní og næsta skólaár byrjar í september. Þetta langa sumarfrí gefur kost á góðri sumar vinnu sem hefur nýst vel í að safna fyrir vetrinum.
24
ERLA GUÐBJÖRG HALLGRÍMSDÓTTIR Ég mæli með að þau sem ætla sér út í nám að kynna sér vel skólanna sem þau eru að sækja um í. T.a.m. er mikilvægt kynna sér stefnur skólans, námskrá og kennaranna. Annað sem ég hef einsett mér að skrifa ekki undir langtímaleigu fyrr en ég hef fengið að labba um og skoða nágrennið. Ég og unnustinn minn ákváðum t.a.m. að vera aðeins lengra frá skólanum í litlu hverfi þar sem flestir íbúar eru Kýpverjar og það var stutt í matvöruverslun og líkamsræktarstöð. Áður en við lögðum af stað til Kýpur vorum við svo heppin að hitta á Ís lendinga sem búa á Kýpur sem mældu með að pakka niður föðurlandi og ullar sokkum fyrir dvölina. Ég vil koma þessum ráðum áfram. Við Íslendingar þekkjum ekki að vera kalt inni en það eru ekki öll lönd svo heppin. Verið líka opin fyrir öðruvísi matarmenningu! Bakarí er ein besta leið til að sjá mun á milli landa. Bakarí á Kýpur eru ekki með snúða með glassúr eða kleinur. Þau eru með feta og ólífu fyllt brauð og ýmiss sætindi með hunang. Ég mæli líka með að smakka kýpverskt kaffi og rósa ís. Síðasta ráðið mitt er að nota eins mikið af fríum til að skoða landið. Þó það sé freistandi að nýta þau frí og ferðast heim og vera með fjölskyldu og vinum þá er þetta góður tími til að kynnast nýja landinu og allt sem það hefur uppá að bjóða. Það einna helst sem kom mér á óvart voru reykingarnar og flokkun, eða frekar hversu léleg þau voru í að flokka rusl. Kýpverjar reykja mikið og er reykt á skólasvæðum. Einu sinni í kennslupásu leitaði ég ráða til kennara sem bað mig að stíga með sér út svo hann gæti fengið sér sígó. Hann hafði verið að fræða okkur um afleiðingar af sígarettureykingum … Ég vil hvetja alla nema sem huga að námi erlendis að skoða alla þá kosti sem eru í boði. Heimurinn hefur upp á svo margt að bjóða, taktu þinn tíma að kynna þér kostina sem henta þér. Og ef þú stefnir til Kýpur, ekki hika við að hafa samband!
SÆMUNDUR 2020/2021
4 SÍNE
6 LÍS
8 Brexit
10 Íslenska námslánakerfið
16 FRAKKLAND
22 KÝPUR
26 BANDARÍKIN
30 ÁSTRALÍA
34 Persónuleikapróf
38 ÞÝSKALAND
42 DANMÖRK
44 Landsþing LÍS 2021
46 KOSTA RÍKA
KÝPUR
3 Ávarp ritstjóra
25
26
SIGURÐUR ÞRÁINN GEIRSSON
BANDARÍKIN
SÆMUNDUR 2020/2021
8 Brexit 10 Íslenska námslánakerfið 16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021
NOKKUR RÁÐ TIL ÞEIRRA SEM HUGA AÐ NÁMI Í BANDARÍKJUNUM • Allavegana að skoða það að flýta námi. Oft er hægt að taka Gen Ed áfanga yfir sumrin og um jólin og/eða taka fleiri áfanga á önn en gert er ráð fyrir. Þetta getur verið smá auka vinna en fyrir vikið getur maður líka flýtt útskrift og sparað sér jafnvel heila önn á campus og tilfallandi kostnaði. • Nýta úrræði! Sem alþjóðlegur nemandi er að nægu að huga og allskonar kröfur og skilyrði sem mikilvægt er að vera með á hreinu (don’t get me started á skattinum og sjúkratryggingum...). Til þess að koma til móts við nemendur bjóða skólar upp á allskonar aðstoð og stuðning og hvet ég þau ykkar sem farið út að kynnast ráðgjafanum ykkar vel því gott samband við hann eða hana getur verið dýrmætt ef eitthvað kemur uppá og það þarf að leysa úr einhverjum flækjum. • Stofna bankareikning. Einfaldar lífið töluvert.
6 LÍS
HÁSKÓLANÁM HEIMA HEILLAÐI EKKI. Ég hafði aðeins þreifað mig áfram í háskólanum hér heima, fyrst í hagfræði og svo í heimspeki en ég sá ekki fyrir mér að taka 3 heil ár í þeim. Eftir ár frá námi fann ég svo að ég var aftur tilbúinn að fórna mér á altari fræðanna og ákvað að víkka leitina að námi. Þar sem ég var nú líka í fótbolta kom hugmyndin upp um að fara til Bandaríkjanna í nám og nýta tækifærið til að komast á styrk. Skólastyrkirnir sem ég fékk eru í raun lang stærstu „samningarnir“ sem ég hefði getað vonast eftir að fá út á fótboltann svo ég er gífurlega þakklátur fyrir tækifærin sem boltinn gaf mér.
4 SÍNE
Ég stundaði nám í stjórnmálafræði við University of New Hampshire og meistaranám í Georgetown University í Washington DC í conflict resolution. Grunnnámið var ósköp hefðbundið stjórnmálafræðinám fyrir utan það að nokkrir skylduáfanganna snéru alfarið að Bandarískri stjórnsýslu. Eins og í flestu fjögurra ára háskólanámi í Bandaríkjunum þurfti ég að taka áfanga sem gengu upp í það sem er kallað Gen Ed. Það felur í sér að óháð því námi sem maður er í, þá þarf að taka áfanga sem uppfylla kröfur sem gerðar eru um að ljúka námi, t.d einum listaáfanga, náttúruvísindaáfanga, ritlistaráfanga o.s.frv. Meistaranámið var mun áhugaverðara. Þá var ég bæði kominn með þrengra áhugasvið og spenntur fyrir meira krefjandi námi. Ég valdi Conflict Resolution deildina eftir að hafa heimsótt skólann og hitt stjórnanda deildarinnar. Úrvalið af áföngum var mjög spennandi, kennararnir við deildina reyndir og framarlega á sínum sviðum, og loforð um hagnýta áfanga í samningaviðræðum og sáttaumleitun hrifu. Námið var mjög krefjandi og fyrsta önnin litaðist mjög af því að ég var hluti af fótboltaliði skólans. Það var smá púsl að finna áfanga sem gengu upp þegar að ég þurfti að leggja fimm tíma á dag til hliðar fyrir æfingar og öðru tengdu boltanum. Tímabilið okkar kláraðist svo ekki fyrr en í lok desember og reyndist það ærið verkefni að halda í við lesefnið og milli þess ferðast með liðinu þvert yfir Bandaríkin. Síðustu tvær annirnar kláraði í ég fjarnámi og var kominn heim til Íslands. Venjulegur dagur var þá að vakna og læra yfir daginn og undirbúa fyrir tíma og svo voru umræðutímarnir flestir frá einhverstaðar milli þrjú á daginn til hálf tvö á nóttunni.
3 Ávarp ritstjóra
N
27
46 KOSTA RÍKA
BANDARÍKIN
28
SIGURÐUR ÞRÁINN GEIRSSON SKIN OG SKÚRIR Ég viðurkenni að það komu alveg tímabil þar sem ég hringdi í mömmu tvisvar á dag, ansi lítill í mér... Ég held að það sé mikilvægt að vera undir þann veruleika búinn að það skiptast alltaf á skin og skúrir. Það verður hellings tilbreyting að fara út en eins og með allt annað þá lærir maður með tímanum inn á umhverfið og taktinn. Áður en maður veit fara góðu og lærdómsríku stundirnar að yfirgnæfa allt hitt og þegar upp er staðið verða það þær sem þú munt muna best eftir. Að fara erlendis í nám er stór ákvörðun og það er að mörgu að huga en ef það er vel ígrunduð ákvörðun að fara út þá segi ég: „100% já“. Þetta mun vera krefjandi á köflum, en ég get lofað þér því að þú munt líka læra heilan helling og skapa minningar til lífstíðar.
SÆMUNDUR 2020/2021
4 SÍNE
6 LÍS
8 Brexit
10 Íslenska námslánakerfið
16 FRAKKLAND
22 KÝPUR
26 BANDARÍKIN
30 ÁSTRALÍA
34 Persónuleikapróf
38 ÞÝSKALAND
42 DANMÖRK
44 Landsþing LÍS 2021
46 KOSTA RÍKA
BANDARÍKIN
3 Ávarp ritstjóra
29
30
VALGERÐUR ANNA EINARSDÓTTIR
ÁSTRALÍA
SÆMUNDUR 2020/2021
10 Íslenska námslánakerfið 16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021 46 KOSTA RÍKA
ÁSTRALÍA
8 Brexit
LÆRDÓMUR, ÆVINTÝRI OG NÝJAR UPPLIFANIR Þremur árum eftir að ég kom heim ákvað ég að fara í meistaranám og eina ferðina enn, vildi eitthvað öðruvísi. Ég ákvað að fara aftur til Ástralíu í meistara nám í viðskiptum með áherslu á markaðsfræði við University of New South Wales og bjó í Sydney í 1,5 ár. Námið var 4 annir með mikla áherslu á raunverk efni, nýsköpun og nýja þekkingu í viðskiptum. Það er hægt að velja úr fjórtán mismunandi aðalgreinum, t.d. markaðsfræði, alþjóðaviðskipti, áhættustjórnun og
6 LÍS
ÞORSTINN Í NÝJAR UPPLIFANIR BYRJAÐI SNEMMA Ég ákvað eins og svo margir að taka mér pásu eftir menntaskóla. Ég vildi prófa eitthvað nýtt, eitthvað allt annað en Ísland. Ég ákvað að flytja til Hawai’i og vann sem Au Pair fyrir bandaríska fjölskyldu í ár. Já, að vera 19 ára, vinna og búa í Honolulu er jafn geggjað og það hljómar. Ég man samt alltaf eftir því hvað það var ógeðslega erfitt að fara frá Íslandi. Mér leið eins og ég myndi aldrei koma aftur, heimþráin í Leifsstöð var óbærileg og ég í alvörunni grét alla leiðina. Þó svo að ár sé ekki langur tími þegar maður horfir til baka, er það samt langur tími. Sérstaklega þegar maður er einn og langt frá vinum, fjölskyldu og íslenskum mat. Eftir að ég kom heim byrjaði ég í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og allt í einu var ég komin aftur á sama gamla 10km radíusinn. Kannski er það bara ég en þegar maður er búinn að fara einu sinni og prufa eitthvað alveg nýtt þá er það ávanabindandi. Ég varð þyrst í nýjar upplifanir, fara til nýrra landa, krefjandi áskoranir og þar fram eftir götunum. Eftir tvö ár í námi ákvað ég að fara í skiptinám í gegnum HÍ. Háskóli Íslands býður uppá ótrúlega skiptináms möguleika út um allan heim og er í samstarfi við yfir 400 erlenda háskóla. Eins og áður, þráði ég eitthvað alveg nýtt og spennandi (og helst sólríkt). Haustið 2015 pakkaði ég aftur í eina 23kg tösku og við tók 51 tíma ferðalag til Gold Coast á austurströnd Ástralíu. Gott er að taka það fram að það er hægt að ferðast þangað hraðar en ég var fátækur námsmaður og valdi ódýrustu en lengstu leiðina með verstu tengiflugunum. Ég mæli með að eyða aðeins meira og komast hraðar og betur á áfangastað! Þegar ég flutti til Gold Coast var ég að fara í fyrsta sinn alveg sjálfstæð. Það var engin fjölskylda sem tók á móti mér á flugvellinum. Griffith University er stórkostlegur háskóli sem er með mikið stuðningsnet fyrir alþjóðlega nemendur. Það er allt gert til þess að hjálpa manni að aðlagast nýju lífi í nýju landi. Griffith er með háskólasvæði á fimm stöðum í Queensland fylki, ég valdi Gold Coast. Gold Coast er eins og Las Vegas þeirra Ástrala. Eins og nafnið gefur til kynna er borgin staðsett á strandlengju sem spannar 70 km og þarna fara fullt af Áströlum í frí. Ég blikkaði augunum og árið á Gold Coast var búið. Eitt af skemmtilegastu árum lífs míns. Stútfullt af ævintýrum, ferðalögum og lærdómi. Eins og það var gott að koma heim og hitta fjölskylduna vissi ég að ég væri alltaf að fara aftur út.
4 SÍNE
Það eru kostir og gallar sem fylgja því að alast upp á landi þar sem búa u.þ.b. 356.000 manns. Heimurinn minn var lítill. Ég er fædd og uppalin í vesturbænum, fór í Melaskóla, Hagaskóla, MR, fór í íþróttir í KR, lærði að synda í Vesturbæjar lauginni og æfði á fiðlu í DoReMí. Ég var samt mjög heppin og ferðaðist mikið með fjölskyldunni, bæði innanlands og utan en ég var bókstaflega á sama 10km radíusnum í 19 ár.
3 Ávarp ritstjóra
31
32
VALGERÐUR ANNA EINARSDÓTTIR nýsköpun- og frumkvöðlafræði. Ekki misskilja mig, ég valdi ekki bara þessa staði til þess að liggja á ströndinni í heilt ár þó svo að það hafi verið partur af planinu. Skólarnar sem ég fór í bæði, Griffith University og UNSW eru stórkostlegir skólar með virkilega flott nám, ýmis námskeið sem eru ekki kennd á Íslandi, tækifæri og sterka umgjörð fyrir alþjóðlega nemendur. UNSW er 67 besti háskóli í heiminum samkvæmt Times Higher Education World University Rankings. ÞÚ GETUR ALLTAF KOMIÐ AFTUR HEIM Nú hef ég gert þetta nokkrum sinnum og alls ekki hætt svo ég held að ég geti talað af reynslu. Mín ráð fyrir alla sem eru að velta fyrir sér að fara að vinna, í skiptinám eða læra erlendis er bara að gera það. Þetta er ósköp einfalt, það þarf bara að loka augunum, kaupa flugmiða, henda sér út í djúpu laugina og prófa! Það er ótrúlega þroskandi, gefandi, erfitt, skemmtilegt en ég lofa að þú munnt kynnast sjálfum þér betur, gera hluti sem þú hefðir aldrei gert í bómullinni heima við, skapa minningar, verða klárari og eignast vini fyrir lífstíð. Ekki bara það, þá verðuru verðmætari starfskraftur með alþjóðlega reynslu fyrir vikið. Þú sem ein staklingur verður heildsteyptari, sterkari, hugrakkari og hefur getu til að takast á við krefjandi áskoranir í atvinnulífinu sem tekur við að námi loknu. Svo er mjög mikilvægt að muna að það er alltaf hægt að koma aftur heim. Það er frekar styrkur en skömm í því að segja að eitthvað sé ekki fyrir sig. Þá notar maður bara tækifærið nýtur þess að skoða nýja borg og fer svo aftur heim. Maður getur alltaf farið til útlanda að læra og leika sér ef manni sýnist svo. Það sem þarf að hafa í huga er að það tekur tíma fyrir mann að aðlagast, græja símanúmer, bankareikning, finna stað til að búa á, eignast vini, kynnast skólasvæðinu, læra á almenningssamgöngur, skoða borgina og svo framvegis. Aðalatriðið er að gefa þessu smá tíma til að verða skemmtilegt og sérstaklega gefa sjálfum sér tækifæri á að geta búið einn í öðru landi.
SÆMUNDUR 2020/2021
4 SÍNE
6 LÍS
8 Brexit
10 Íslenska námslánakerfið
16 FRAKKLAND
22 KÝPUR
26 BANDARÍKIN
30 ÁSTRALÍA
34 Persónuleikapróf
38 ÞÝSKALAND
42 DANMÖRK
44 Landsþing LÍS 2021
46 KOSTA RÍKA
ÁSTRALÍA
3 Ávarp ritstjóra
33
34
Persónuleikapróf Í hvaða landi ættir þú að stunda nám?
ATH. Þetta próf er einungis til gamans, ekki skal taka mið af þessu prófi við ákvarðanatöku um hvert skuli halda í nám.
SÆMUNDUR 2020/2021
8 Brexit 10 Íslenska námslánakerfið 16 FRAKKLAND 22 KÝPUR
Hverskonar dýr ert þú? a) Þvottabjörn b) Kóalabjörn c) Íkorni d) Letidýr e) Otur f) Villisvín
6 LÍS
Eftir langa viku af fyrirlestrum og verkefnaskilum, hvað viltu gera til þess að njóta? a) Fara á söngleik eða hafnarboltaleik b) Fara á brimbretti og njóta sólarinnar c) Fá mér ógeðslega dýran bjór við höfnina d) Finna bar þar sem þar er dansað salsa fram á rauða nótt e) Taka lest til lítils þorps og skoða miðaldarústir f) Kaupa baguette og fara í lautarferð við árbakkana með vel völdum vinum
4 SÍNE
Hvað er það fyrsta sem þú ætlar að gera þegar þú mætir? a) Fara kynningarfund hjá nemendafélaginu, ég vil kynnast öllum sem fyrst b) Fara á ströndina c) Kaupa mér hjól d) Aðstoða í dýraathvarfi e) Skoða kastala og finna góðan pöbb f) Fara á söfn og finna besta bakaríið í hverfinu
3 Ávarp ritstjóra
35
26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA
Hvernig nám langar þig í? a) Tölvunarfræði b) Félagsfræði c) Læknisfræði d) Líffræði e) Lögfræði f) Listfræði
34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND
Hverskonar matur finnst þér bestur? a) Hamborgarar og franskar b) Marengsterta c) Pulsur d) Ef það er kóríender á því þá vil ég það e) Fiskur og franskar (e.Fish and chips) f) Sniglar
42 DANMÖRK 46 KOSTA RÍKA
PERSÓNULEIKAPRÓF
44 Landsþing LÍS 2021
Hvernig langar þig að ferðast milli skóla og heimilis? a) Rafmagnshlaupahjóli b) Hjólabretti eða línuskautum c) Hjóli d)Labba e) Strætó en hann þarf að vera rauður og á tveim hæðum f) Neðanjarðarlest
36 Hvernig vilt þú geta klætt þig? a) Íþróttaföt við öll tækifæri b) Stuttbuxur sama hvernig viðrar c) Levis gallabuxum, hvítum air force 1 og 66 dúnúlpu d) Strandarklæðnaði e) Barbour jakka f) Röndóttum bol og með alpahúfu Hvaða bíómynd lýsir best hverju þú býst við af náminu þínu? a) Legally Blonde b) Crocodile Dundee c) Druk d) Jurassic Park e) Harry Potter f) Midnight in Paris Flest A. Bandaríkin Til hamingju þú ert að fara í nám í landi frelsisins og tækifæranna! Þarna rætast stóru draumarnir, hvort sem það verður í Stóra Eplinu eða á sólríkri ströndu við Kyrrahafið. Bandaríkin bjóða upp á framúrskarandi nám á allskyns sviðum. Hvort sem þú stefnir á lögfræði í Harvard, forritun í MIT, leiklistarnám í Julliard eða hvort þig langi í ekta ameríska upplifun eins og í bíómyndunum þá eru Bandaríkin fyrir þig. Þú munt lifa með himinn háum skuldum það sem eftir er en það er allt í lagi því ekkert mun koma í staðinn fyrir upplifunina. Flest B. Ástralía Þú ert ekki alveg viss hvort þig langi í nám erlendis eða hvort þig langi að komast eins langt frá þessum klaka eins og mögulegt er. Þú þráir í sól og hita, læra á brimbretti og verða bitin af snáki. Þú óttast ekki öll skordýrin sem gætu drepið þig í svefni. Þú ert ævintýramanneskja en kannt líka að meta að slappa af á ströndinni. Þú munt líklega kynnast framtíðar makanum þínum í Ástralíu og snúa aldrei aftur heim. Flest C. Danmörk Þú þjáist af alvarlegu Stokkhólmsheilkenni, frændur vorir í Danmörku eru ekkert nema nýlenduherrar sem vanræktu okkur í gegnum aldirnar. En ég óska þér alls hins besta í landi pulsanna. Þú munt líklega aldrei snúa aftur heim því þú hefur áttað þig á því að við hefðum aldrei átt að yfirgefa Konungsríkið og erum verr sett án þess. Flest D. Kosta Ríka Þú lifir fyrir dýrin og umhverfið. Þetta er himnaríki fyri þá sem stefna á nám í líffræði, vistfræði eða spænsku. Náttúrufegurðin er allsríkjandi, hvítar strendur og blár sjór, frumskógar og fjölbreytt dýralíf. Í þokkabót er Kosta Ríka friðsælt ríki með vingjarnlegu fólki. Kosta Ríka er draumurinn fyrir þá sem þora að fara aðra leið í lífinu.
SÆMUNDUR 2020/2021
6 LÍS 8 Brexit 10 Íslenska námslánakerfið
Flest F. Frakkland Þú ert rómantíkus og átt heima í Frakklandi. Frakkland er ekki bara land rómantíkur heldur líka land nautnaseggjanna, þar finnur þú góðan mat og gott vín á hverju horni. Frakkarnir virka kannski hrokafullir í fyrstu en um leið og þú segir “Bonjour, ca va?” með brosi á vör eru þeir ekkert nema kurteisin uppmáluð.
4 SÍNE
Flest E. Bretland Ef þú varst og ert jafnvel enn heltekin af Harry Potter, þá kæri lesandi mæli ég með að þú farir í nám í Bretlandi. Frábærir háskólar sem gefa Harry Potter fíling eru auðvitað Cambridge og Oxford en Durham og sérstaklega Edinborg (þar sem bækurnar voru skrifaðar). Í þokkabót eru þetta virkilega fallegar borgir og sem bjóða upp á endalausa möguleika til afþreyingar. Þú getur eytt helgunum í að ferðast með lest og skoðað hinar fjölbreyttu sveitir Bretlands og notið þess að vera í barbour jakkanum þínum án þess að líta út fyrir að vera algjört snobb.
3 Ávarp ritstjóra
37
16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021 46 KOSTA RÍKA
PERSÓNULEIKAPRÓF
38
EINAR DAGUR JÓNSSON
ÞÝSKALAND
SÆMUNDUR 2020/2021
6 LÍS 8 Brexit 10 Íslenska námslánakerfið 16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021
BETRI KOSTIR ERLENDIS Mig langaði alltaf til þess að fara erlendis í nám, þar sem óperusöngnám á Íslandi er því miður ekki eins vel fjármagnað og spennandi eins og staðan er í dag. Þó svo að miklar breytingar hafa orðið á náminu á Íslandi er það ekki komið á þann stall sem nám erlendis er á. Þess vegna var alltaf klárt að ég yrði að fara frá Íslandi til þess að halda áfram námi mínu og fyrir valinu varð Þýskaland. Þýskaland er eitt stærsta landið þegar kemur að óperusöngnámi. Landið sjálft heldur mikið upp á þessa grein og styður hana gríðarlega vel fjárhagslega. Í næstum hverju þorpi eða borg er eitt leikhús þar sem hinar klassísku listir eru settar á svið; leikrit, óperur og ballett. Þess vegna ákvað ég að fara til Þýskalands eins og svo margir sem vilja hefja feril í klassískum listum. Maður sér það einnig á skólanum mínum. Þar eru nemendur af 68 mismunandi þjóðernum! Í rauninni var það alltaf planað hjá mér að fara í þetta nám. Eftir að móðir mín hafði tuðað um það í dálítinn tíma tók ég minn fyrsta söngtíma þegar ég var 17 ára í Söngskóla Reykjavíkur hjá Agli Árna Pálssyni. Eftir nokkur ár í Söngskólanum varð mér það ljóst að þetta væri nákvæmlega það sem mig langaði að gera. Eins galið og það er stundum að segja að maður sé að læra óperusöng erlendis og starfa við það var það eini vegurinn sem kom til greina eftir fyrsta söngtímann minn í Söngskólanum. Ég varð svo heillaður af listgreininni og í rauninni var aldrei aftur snúið. Þess vegna ákvað ég að leggja af stað í þessa vegferð til þess að þróa hæfileika mína sem og stunda söngnám á háskólastigi. Mín persónulega skoðun er að allir Íslendingar ættu að fara í nám erlendis ef völ er á. Ekki bara er það rosalega gefandi að búa í öðru landi heldur eignast maður fullt af nýjum vinum, sögum, reynslu. Ef maður er rosalega duglegur nær maður tökum á nýju tungumáli sem er reynsla sem ekki fæst keypt og gefur manni algjörlega nýja sýn á heiminn. Við Íslendingar erum svo heppnir að geta farið til annarra landa og stundað þar nám, jafnvel ókeypis og jafnvel í landi sem er töluvert ódýrara að lifa í eins og til dæmis Þýskalandi. Ég gæti í rauninni sagt að ég beinlega spara á því að stunda námið mitt hér.
4 SÍNE
Ég hóf óperusöngnám árið 2018 við Tónlistarháskólann í Karlsruhe í Þýskalandi (Hochschule für Musik Karlsruhe) og er ég núna að ljúka bakkalársgráðunni minni. Námið mitt er hið venjulega 8 anna kerfi sem lýkur með bachelor gráðu eða eins og sagt væri á ensku B.M (Bachelor of music). Aðalgreinin mín eru söngtímar hjá prófessornum mínum og fer ég til hans tvisvar í viku. Þar vinnum við saman að söngtækni og æfum mismunandi óperur. Ég fer einnig í píanótíma, leiklistartíma, tónfræði og tungumálatíma. Í píanótímunum fer kennarinn yfir tæknina mína og lætur mig spila mismunandi lög. Í leiklistartímunum er unnið með sviðstækni og framkomu sem óperusöngvari þarf á sviðinu. Tónfræðitímarnir fara aðallega í nótnalestur, greiningu á tónlist og hljómfræði. Ég ferð í sérstaka tíma til þess að æfa þýskan framburð, þar sem við erum látin lesa mismunandi texta, ljóð og senur úr leikritum. Einnig skylda hjá okkur að fara í samskonar ítölsku tíma þar sem þó nokkrar óperur eru skrifaðar á ítölsku. Í rauninni mætti lengi telja hvers konar tíma við förum í. Allt frá förðunartímum fyrir sviðið til sviðsskylmninga.
3 Ávarp ritstjóra
39
46 KOSTA RÍKA
ÞÝSKALAND
40
EINAR DAGUR JÓNSSON EKKI VERA HRÆDD OG PRÓFIÐ NÝJA HLUTI! Best ráð sem ég get gefið þeim sem hyggja á nám erlendis er að vera ekki hrædd eða hræddur. Þetta er mjög stressandi fyrir marga að fara til annars lands til þess að stunda nám en láttu verða að því ef þig langar! Það er mikið auð veldara en maður heldur og sérstaklega þar sem Ísland er hluti af Evrópu auð veldar það manni að ferðast og stunda nám í öðrum löndum innan Evrópu. Ef völ er á, finndu Íslending sem býr í landinu sem þig langar til og spurðu hann eða hana spjörunum úr varðandi námið og borgina. Við getum talið okkur heppinn að vera fámenn þjóð og að náungakærleikurinn meðal Íslendinga er oftast mikill og maður getur auðveldlega fengið góð ráð. Komdu þér vel fyrir og reyndu að skrá þig í allskonar hópa með öðru fólki sem er að gera svipaða hluti, sem dæmi Erasmus félög eða annarskonar hópa ætlaðir fyrir erlenda námsmenn. Ekki missa þig í djamminu, það getur stundum gerst þegar Íslendingar fá aðgang að ódýru áfengi og er á stað þar sem hægt er að djamma oftar en bara á föstudögum og laugardögum. Reyndu að nýta tímann sem þú hefur þarna til þess að ferðast. Hjá mér í grenndinni eru til dæmis : París, Alparnir, München og Bæjaraland. Stærsta ráðið sem ég get gefið öllum er að læra tungumálið! Sér staklega ef þú ert í námi til lengri tíma og ert að jafnvel að pæla að ílengjast. Það gefur þér svo miklu meiri ánægju, þú tengist staðnum mun betur og allt verður 10 sinnum auðveldara. Það að eiga samtal við manneskju sem talar ekki ensku á því tungumáli sem þú ert búin/n að læra er eitt það magnaðasta sem maður getur upplifað. Ekki gleyma! Það að læra nýtt tungumál tekur tíma, mikinn misskilning, bugun og stundum langar manni bara að gefast upp. En að ná tökum á nýju tungumáli er svo rosalega gefandi og það opnar fullt af nýjum tækifærum fyrir þér, vinalega, vinnulega og vitsmunalega. Hlutirnir verða bara svo miklu betri á alla vegu og það er í rauninni algjör synd að stunda nám einhversstaðar og enda á því að læra aldrei tungumálið. SKEMMTILEGT EN ERFITT FERLI Það að komast inn í tónlistarháskóla í Evrópu er ekkert grín. Maður er stundum að keppast við fleiri hundruð manns um örfá pláss. Maður þarf að undirbúa sig gríðarlega vel. Tala tungumálið í inntökuprófinu og keppast við fullt af öðru hæfi leikaríku fólki. Maður þarf að ferðast til borgarinnar, hitta kennara og syngja fyrir þá. Síðan þarf maður að koma aftur til þess að fara í inntökurnar sem eru oftast nokkrir dagar og fela í sér allskonar inntökupróf. Í mínu tilviki voru þrjár umferðir af söngprófi, svo var nótna og hljómfræðipróf, píanópróf, leiklistarpróf og að lokum flutningur af ljóði/texta á þýsku. Í skólanum mínum þarf maður að standast B2 í þýsku til þess að fá inn göngu. Þannig að ég þurfti á einum mánuði að standast fyrst B1 prófið og mánuðinn þar á eftir B2. Það að standa einhversstaðar og skilja hvorki upp né niður í mikilvægu samtali tók svo sannarlega á. Það að geta ekki tjáð sig eins og maður vildi getur verið gífurlega þreytandi og pirrandi til langs tíma. Hinsvegar eftir hundruði klukkutíma, mikinn misskilning og svita er það rosalega gefandi að vita að manni tókst að ná tökum á nýju tungumáli. Að þurfa að yfirgefa vini, fjölskyldu og maka til þess að fara í nám getur tekið mjög á og sérstaklega til lengri tíma. Aðeins draumurinn um hvert maður ætlar að stefna er það sem gefur manni kraft í lífið daglega.
SÆMUNDUR 2020/2021
6 LÍS 8 Brexit 10 Íslenska námslánakerfið 16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA
NÝTUM OKKUR EVRÓPUSAMSTARF Ísland á hlut að mjög fallegu samstarfi sem kallast Evrópusambandið. Það að geta farið til annars lands og stundað þar nám án þess að þurfa að fara í gegnum bunka af pappírsvinnu og eiga hættu á að fá ekki framlengingu á landvistarleyfi er eitthvað sem er ekki sjálfsagt. Þetta er stórt vandamál fyrir krakkana sem ekki koma frá Evrópu. Þau þurfa að borga 20 föld skólagjöld, borga fyrir landvistarleyfi og sækja um leyfi fyrir til þess vera í Evrópu eftir að náminu lýkur. Þetta er ekkert grín. Nýtið ykkur það að fara í nám til annars lands! Það getur verið gott og blessað að stunda nám heima í þægindum en það gefur manni svo mikið að fara erlendis og sjá nýja hluti og sérstaklega ef farið er til annarra landa en Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar eða þeirra landa sem flestir fara til. Lokaorð: Áfram Evrópa!
4 SÍNE
FJÁRHAGSLEGUR STUÐNINGUR TIL SKÓLANNA MUN MEIRI Það kom mér mjög á óvart hversu gríðarlega vel skólarnir hér eru fjárhagslega studdir. Sem dæmi getur maður fengið borgað fyrir að gegna allskonar störfum innan veggja skólans. Ég var heilt ár í nemendafélagi skólans og fékk borgað fyrir þá stöðu frá skólanum. Allskonar auka störf eru einnig í boði hjá skólanum, til dæmis kenna öðrum á hljóðfæri, vera í nefndum, starfa við tónleikahald og svo lengi mætti áfram telja. Einnig kom mér það mjög á óvart að hér vinna mjög fáir meðfram náminu. Á Íslandi er það mjög algengt að fólk er í aukavinnu til þess að fjármagna nám sitt og uppihald. Hér er það nokkuð öðruvísi. Hér eru krakkarnir fjárhagslega studdir af foreldrum sínum eða fá styrki sem hægt er að sækja um á ýmsum stöðum. Það að vera ekki í 50% starfi meðfram náminu var mjög undarleg tilfinning til þess að byrja með.
3 Ávarp ritstjóra
41
34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021 46 KOSTA RÍKA
ÞÝSKALAND
42
RANNVEIG DÓRA BALDURSDÓTTIR
DANMÖRK
SÆMUNDUR 2020/2021
8 Brexit 10 Íslenska námslánakerfið 16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021 46 KOSTA RÍKA
DANMÖRK
6 LÍS
FULLORÐNAST HRATT ERLENDIS Nú hef ég búið erlendis í að verða fimm ár. Það er fátt eins þroskandi eins og að flytja að heiman og þurfa að standa alveg á eigin fótum í fyrsta sinn. Auðvitað getur verið erfitt að koma sér inn í allt þetta praktíska, kannski þarf að læra nýtt tungumál og maður getur fengið heimþrá. En á sama tíma fullorðnast maður hratt, kynnist nýju fólki sem seinna verða manns bestu vinir og fjölskylda á náms árunum. Maður fær tækifæri til að ferðast hagstætt og svo margt fleira jákvætt. Jákvæðu hliðar náms erlendis vega að mínu mati upp á móti þeim neikvæðu. Þegar upp er staðið hefði ég ekki viljað fara neina aðra leið í náminu. Síðustu ár hafa mótað mig að þeirri manneskju sem ég er í dag og kennt mér að takast á við hluti sem ég er nokkuð viss um að ég hefði ekki gert heima í kjallaranum hjá mömmu og pabba. Háskólanám erlendis fær mína hæstu einkunn og ég hvet alla til að nýta sér það!
4 SÍNE
Ég er á mínu fimmta ári í læknisfræði við Syddansk Universitet í Odense, Danmörku. Þetta er annað árið mitt í SDU þar sem ég tek kandídatshluta læknisfræðinnar. Þar áður lærði ég í Martin, Slóvakíu og kláraði þar það sem svarar til bachelor hluta læknisfræðinnar. Mér finnst ég frekar heppin að hafa náð að skipta þessu langa námi í tvennt, bæði fyrir fjölbreytileika og tækifæri til búa í tveimur mismunandi löndum. Það er ákvörðun sem ég sé ekki eftir. Sá hluti læknisfræðinnar sem ég tók í Slóvakíu var mjög bóklegur og byggði góðan grunn fyrir áframhaldandi nám í Danmörku. Ég fann það þó að námsfyrirkomulagið í Danmörku hentaði mér betur. Á fjórða og fimmta ári eru þessar hefðbundnu haust- og vorannir. Önnunum er skipt í tvær lotur, sem eru byggðar upp af fyrirlestrum, verklegum tímum, umræðutímum og hóptímum. Tvær lotur kandídatsnámsins fara alfarið í verknám, annars vegar sex vikur þar sem verknám fer fram á geðdeild, barnadeild og á heilsugæslu og hinsvegar átta vikur sem skiptast í mánuð á skurðdeild og mánuð á lyflæknisdeild. Sjötta og síðasta árið sker sig svo aðeins úr þar sem fyrri önnin fer í ritgerðarskrif (d. kandidatsspeciale) og sú seinni fer í undirbúningsfyrirlestra og lestur fyrir embættisprófið eða OSCE. Hægt er að velja á milli rannsóknar-, klíník-, paraklíník- og alþjóðlegs prófíls fyrir kandidatsspeciale, þar sem munurinn liggur í undirbúningi fyrir ritgerðarskrifin. Einnig er hægt vinna stærri rannsókn og taka svokallað prægraduat-ár en þá sækir maður um hálfsárs leyfi til að vinna rannsókn og hliðrar náminu um eina önn. Þessa leið ákvað ég að fara og mun því útskrifast eftir sex og hálfs árs nám. Í SDU er urmull af nemendafélögum svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Sem dæmi er SAKS (studerendes almene kirurgiske selskab) sem er nemendafélag fyrir læknanema með áhuga á skurðlæknisfræði. Á þeirra vegum eru haldin allskonar námskeið, fyrirlestrar, kanóferðir og ýmislegt fleira. Ég varð virkur meðlimur í SAKS strax á mínu fyrsta ári hér við SDU, og kynntist þar dönskum samnemendum á öllum námsárum. Þrátt fyrir að síðasta ár hafi verið töluvert öðruvísi en ég bjóst við þegar ég flutti til Danmerkur og ég sakni þess að hafa ekki verið meira í skólanum, get ég ekki verið annað en hæst ánægð með námið og kennsluna. Nú er því svo komið að árgangurinn minn fær að mæta í um það bil einn tíma á viku og námið fer að líkjast því sem það var.
3 Ávarp ritstjóra
43
44
Landsþing LÍS 2021
SÆMUNDUR 2020/2021
4 SÍNE 6 LÍS 8 Brexit 10 Íslenska námslánakerfið
Landssamtök Íslenskra Stúdenta héldu glæsilegt landsþing á Bifröst í byrjun mars. Upprunalega stefndi í að landsþingið yrði haldið á netinu vegna kórónuveirunnar en þökk sé fáum smitum og rýmkun á samkomutakmörkunum var mögulegt fyrir 50 stúdentafulltrúa að mæta. Þema þingsins var menntun á umrótartímum þar sem að markmiðið var að kortleggja áhrif Covid-19 á stúdenta. Landsþing LÍS er styrkt af Erasmus+ sem verkefni í flokknum Fundir ungs fólks og ráðamanna. Styrkurinn er stúdentum gífurlega mikilvægur enda landsþing æðsta vald LÍS sem tekur stefnumótandi ákvarðanir í hagsmunabaráttu stúdenta. Lesa má nánar um landsþingið á www.studentar.is sem og aðra mikilvæga vinnu sem LÍS stendur að.
3 Ávarp ritstjóra
45
16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021 46 KOSTA RÍKA
LANDSÞING LÍS 2021
46
KOLFINNA TÓMASDÓTTIR
KOSTA RÍKA
SÆMUNDUR 2020/2021
10 Íslenska námslánakerfið 16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021 46 KOSTA RÍKA
KOSTA RÍKA
8 Brexit
NÝ SÝN Á HEIMINN Lagadeildin hér úti telur 20 einstaklinga frá 14 löndum, en í öllum skólanum erum við um 90 nemar frá 60 löndum. Kennararnir koma allsstaðar að, en við fáum einnig marga gestakennara sem eru sérfræðingar á heimsvísu á sínu sviði. Ég áttaði mig snemma á því að á þessu ári myndi ég ekki einungis læra mikið í krefjandi námi á öðru tungumáli, heldur hversu mikið ég myndi læra af samnemendum mínum frá öðrum menningarheimum. Það varð ljóst strax fyrstu vikuna í náminu þegar nemendur áttu að nefna helstu deilumálin í
6 LÍS
STÓRAR HUGMYNDIR Á LITLU FJALLI Eftir strembna Covid-haustönn með tímamismuni sem gerði dagana skrautlega, kom að því í lok síðasta árs að ég komst út og gat mætt í skólann. Friðarháskóli Sameinuðu þjóðanna er staðsettur í El Rodeo, sem er rétt fyrir utan bæinn Ciudad Colón, þar sem ég bý. Ciudad Colón er í um 20 mínútna fjarlægð frá höfuðborg Kosta Ríka, San José. Ciudad Colón skartar fallegum trjám og miklum gróðri og hefur allt til alls, þar á meðal dásamlegan bændamarkað alla þriðjudaga þar sem hægt er að kaupa ferskt grænmeti á góðu verði. Skólarútan sækir nemendur alla morgna, en aksturinn að skólanum er rúmur hálftími. Skólinn sjálfur er staðsettur uppi á litlu fjalli, en mér þykir það táknrænt hvernig við nemendurnir förum saman þangað alla morgna til að stunda fróðlegt nám og undirbúa okkur sem leiðtogar friðar í heiminum. Í náminu í alþjóðalögum og úrlausn deilumála fæ ég góða innsýn í ólík deilumál innan lögfræðinnar, þ.á.m. á sviði vinnuréttar, hafréttar, efnahagsréttar, lýðræðis, mannréttinda, gerðardómstóla og almennrar úrlausnar deilumála. Ég er sannfærð um að þessi innsýn sé nauðsynleg fyrir þann heim sem við búum í til að tryggja áframhaldandi framþróun. Ég hef mikinn áhuga á stafrænu öryggi, mannréttindum og úrlausn deilumála milli ríkja og hef m.a. mikinn áhuga á að rannsaka frekar einhliða þvingunaraðgerðir milli þjóða, sem og stafræna glæpi og hryðjuverk, en miðlun slíkrar þekkingar frá kennurum UPEACE hefur verið framúrskarandi. Ég ákvað að fara í nám erlendis því ég vildi öðlast dýpri skilning á alþjóðlegu umhverfi. Ég skoðaði marga skóla og ýmsar námsbrautir, en kom alltaf aftur að alþjóðalögum í UPEACE og þeirri nálgun sem skólinn hefur gagnvart náminu. Að læra við háskóla sem leggur áherslu á mannréttindi og frið í öllum deildum námsins gerir upplifunina einstaka, en heildræna nálgunin með frið og úrlausn átaka sem rauða þráðinn í gegnum námið hefur verið ómetanleg. Viðhorf mitt til alþjóðamála hefur þroskast mikið og ég hlakka til að beita þekkingu minni í atvinnulífinu. Námsframboð skólans er fjölbreytt og áhugavert, en ég hef einnig fengið að sitja kúrsa í öðrum deildum.
4 SÍNE
Síðasta vetur rættist langþráður draumur þegar umsókn mín um framhaldsnám í Friðarháskóla Sameinuðu þjóðanna í Kosta Ríka, UPEACE, var samþykkt. Ég hafði sótt um meistaranám í alþjóðalögum og úrlausn deilumála (e. International Law and the Settlement of Disputes) fyrir skólaárið 2020-2021, en þetta fram haldsnám var stór ástæða þess að ég valdi að læra lögfræði við Háskóla Íslands til að byrja með. Tilhlökkunin var mikil, en mig grunaði ekki á þessum tímapunkti að ég myndi taka fyrstu önnina á Zoom heima hjá mömmu, en ekki í sumarlandinu fallega.
3 Ávarp ritstjóra
47
48
KOLFINNA TÓMASDÓTTIR fjölmiðlum heima hjá sér þar sem nemandi frá Cameroon talaði um mánudags útgöngubannið og nemandi frá Nígeríu lýsti mótmælum sem voru orðin verulega ofbeldisfull – en á sama tíma var helsta deilumálið í fjölmiðlum á Íslandi um hvort það ætti að malbika veg í Öskjuhlíðinni eða ekki. Á svipstundu bliknuðu deilurnar sem ég upplifði í samanburði við daglegt brauð samnemenda minna. Til að byrja með átti ég mjög erfitt með fjalla um deilumál innan Íslands, en eftir því sem leið á námið fann ég styrk í því að Ísland sé friðsælt og að þar ríki mesta jafnrétti í heimi, þrátt fyrir að við eigum enn langt í land. Það eru nokkrir nemendur frá Myanmar í fjarnámi frá skólanum, en í hræðilegu ástandi þar hefur verið ótrúlegt að fylgjast með seiglu þeirra. STAÐA NÁMSMANNA ERLENDIS OFT ERFIÐ Það kom mér á óvart hversu erfið staða námsmanna erlendis er ef horft er til framkvæmdar Menntasjóðs námsmanna. Til að mynda fæ ég einungis greitt námslán fram í maí, en námið er fram í miðjan júní. Lokaverkefnið sem ég sinni í haust er svo ekki lánshæft, því það er ekki nægilega margar einingar. Samt sem áður er lokaverkefnið héðan full vinna í þrjá mánuði. Ég sé því fram á að vera framfærslulaus síðustu fjóra mánuðina af náminu, bara því reglurnar eru þannig. Ég vil taka fram að þetta er ekki tekjutengt, heldur eru reglurnar svona. Ég fékk greiddan ferðastyrk þegar ég kom út, en hann náði ekki yfir flugmiðann hingað til Kosta Ríka, og ég fæ engan ferðastyrk fyrir leiðinni heim. Ég treysti því sterklega á endurgreiðslu frá RSK í júní og geng hratt á þann litla sparisjóð sem ég á. Það er virkilega dapurlegt að námsmenn séu settir í aftursætið þegar kemur að því að þurfa að lifa, en það er því miður ekki nýtt af nálinni. Barátta SÍNE er hér gríðarlega mikilvæg til að bæta stöðu íslenskra námsmanna erlendis. TICO-TIME Í námi erlendis er mikilvægt að vera með góða tryggingu ef eitthvað kemur uppá, en vera líka með nauðsynlega hluti meðferðis, eins og lyf og þess háttar, en það er ekki endilega auðvelt að senda slíkt milli landa. Eitt það mikilvægasta er þó að vera opin fyrir nýjum gildum og ólíkum menningarheimum, og skilja hversu ólík við erum. Árekstrar vegna tungumálaörðugleika eða mismunandi upplifana geta komið frá ólíklegustu athæfum, en það þykir t.d. virkilega dónalegt að benda í sumum löndum, á meðan Íslendingar hika oft ekki við það. Öryggið sem við búum við á Íslandi, bæði í gegnum hin ýmsu kerfi sem og minni líkur á hættu legri árás, gera það að verkum að við getum verið berskjaldaðri fyrir ýmsum ókvæðum annars staðar. Í Kosta Ríka gengur allt á öðru tempói en heima, en hið svokallaða „tico-time“ felur í sér að fólk er alls ekki að drífa sig og er almennt seint þegar það mælir sér mót. Það tók mig t.d. tvo klukkutíma að fá SIM-kort hér, þrátt fyrir að enginn annar kúnni hafi verið í búðinni, og ég hafi verið með öll rétt gögn klár. Þú getur reiknað með að þjónn á veitingastað taki pantanirnar hjá öllum gestum og spjalli við þá í leiðinni, áður en hann sendir þína pöntun inn í eldhús. Rútu- og strætó dagskrá getur verið óáreiðanleg, og kóríander er vinsæll í matargerð hér. Mikilvægast af öllu er þó að vera vel undirbúin og fara út með opinn hug fyrir nýjum ævintýrum, því þetta verður magnað.
SÆMUNDUR 2020/2021
4 SÍNE 6 LÍS 8 Brexit 10 Íslenska námslánakerfið
ÞROSKANDI REYNSLA Námið við UPEACE hefur verið gríðarlega gefandi og undir lok skólaársins get ég með sanni sagt að þetta nám hefur haft mikil áhrif á sýn mína á heiminn og hvernig ég mun í framtíðinni leysa úr hinum ýmsu deilumálum í starfi og einkalífi. Ég er sannfærð um að þessi óvænta reynsla haustannarinnar á Zoom og upplifun af Covid í nýju landi muni gera mig sterkari og þakklátari fyrir lífið og tilveruna og ég hlakka til að læra meira. Ég hvet íslenska námsmenn ein dregið til að sækja nám á framandi slóðum, en lærdómurinn sem fylgir nýju umhverfi er ómetanlegur. Það er einstaklega þroskandi að kynnast fjölda fólks frá ólíkum löndum og læra af þeim, en vináttan sem myndast í jafn fjölbreyttu námsumhverfi er ómetanleg.
3 Ávarp ritstjóra
49
16 FRAKKLAND 22 KÝPUR 26 BANDARÍKIN 30 ÁSTRALÍA 34 Persónuleikapróf 38 ÞÝSKALAND 42 DANMÖRK 44 Landsþing LÍS 2021 46 KOSTA RÍKA
KOSTA RÍKA
50
Hefur þú áhuga á hagsmunum stúdenta?
Sumarráðstefna og aðalfundur SÍNE verður haldinn í águst 2021 Nánari dagsetning auglýst síðar á heimasíðunni og facebook SÆMUNDUR 2020/2021
4 SÍNE
6 LÍS
8 Brexit
10 Íslenska námslánakerfið
16 FRAKKLAND
22 KÝPUR
26 BANDARÍKIN
30 ÁSTRALÍA
34 Persónuleikapróf
38 ÞÝSKALAND
42 DANMÖRK
44 Landsþing LÍS 2021
46 KOSTA RÍKA
Haust 2021 til og með 15. september 2021 Vetur og vor 2022 til og með 15. janúar 2022 Sumar 2022 til og með 15. júní 2022
3 Ávarp ritstjóra
Umsóknarfrestir hjá Menntasjóði Námsmanna
51
52
SÆMUNDUR 2020/2021
KOLFINNA TÓMASDÓTTIR