Skip to main content

Samband islenskra namsmanna erlendis

Page 1

Sæmundur Samband íslenskra námsmanna erlendis

29. árg. desember 2010


Efnisyfirlit

Ávarp framkvæmdastjóra >>

4

Er nám einungis fyrir efnaða? >>

6

Íþróttastyrkir og nám í Bandaríkjunnum >>

8

Hvað er framundan í starfi LÍN? >> 18

Að láta draumana rætast >> 20

Undirbúningslífið >> 22

Námsstyrkir VÍ til framhaldsnáms erlendis >> 27

Hefur þú áhuga á að sækja námskeið og ráðstefnur í Evrópu? >> 28

Flutningur til útlanda vegna náms >> 30

Kilroy býður námsráðgjöf fyrir Íslendinga sem ætla í nám erlendis >> 32

Lars von Tríó >> 34

Ertu á leið í nám erlendis? >> 36

Styrkir til háskólanáms í Finnlandi >> 38

Samband íslenskra námsmanna erlendis Skrifstofa SÍNE Pósthússtræti 3-5 101 Reykjavík Sími: 552 5315 Netfang: sine@sine.is Veffang: www.sine.is Skrifstofan er opin alla virka daga kl. 9-12

2 Síne/Sæmundur

Stjórn SÍNE Formaður: Auður Sigrúnardóttir Varaformaður: Sólveig Lísa Tryggvadóttir LÍN fulltrúi: Valur Þráinsson Gjaldkeri: Eyrún Jónsdóttir Sæmundur Ritstjóri: Hjördís Jónsdóttir Auglýsingar: Markaðsmenn Umbrot og prentun: Litróf Myndir: m.a. frá vefsíðunni www.sxc.hu


> Ertu að flytja yfir hafið? ENNEMM / SÍA / NM39538

Alhliða þjónusta vegna búslóðaflutninga Á vef Samskipa www.samskip.is má finna gagnlegar upplýsingar um búslóðaflutninga til og frá Íslandi. Gott er að byrja á að: > Gera sér grein fyrir umfangi búslóðar – þarftu 20 feta gám, heilan 40 feta gám eða nokkur bretti? > Kynna sér hvaða lög gilda um tollafgreiðslu í landinu sem flutt er til > Fá skriflegt verðtilboð og aðrar upplýsingar > Ganga frá nauðsynlegum pappírum > Tryggja búslóðina > Bóka flutning Þjónustulipurt starfsfólk Samskipa og umboðsmenn um allan heim gera sitt besta svo flutningurinn verði sem þægilegastur.

www.samskip.is

Saman náum við árangri


Ávarp framkvæmdastjóra

Kæru SÍNE félagar Árið 2010 er nú senn á enda og starfssemi SÍNE hefur gengið vel á árinu. Að venju hefur mikill tími farið í að veita upplýsingar til félagsmanna um LÍN, aðstoða náms­menn við ýmsar spurningar sem upp hafa komið, haldnar hafa verið kynningar í framhaldsskólum og á háskóladögum. Fulltrúi SÍNE var í nefnd skipaðri af mennta­málaráðuneytinu vegna styrkja norrænu ráðherra­­ nefndarinnar, sem úthlutaði styrkjum til náms­­­manna á Norðurlöndum í sumar. Í Sæmundi er nú sem endranær fjölbreytt efni, LÍN skipar að venju stóran sess og Valur Þráinsson fulltrúi SÍNE í stjórn lánasjóðsins tók saman pistil um starfið sem hefur farið fram þar að undanförnu. Sólveig Lísa Tryggvadóttir, varaformaður SÍNE skrifar um skólagjöld en boðaðar hafa verið sparnaðaraðgerðir frá og með næsta ári þar sem hluti af skólagjöldum verði námsmenn að fjármagna sjálfir. Við höfum safnað saman frásögnum frá námsmönnum í Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi. Vinir okkar hjá Fulbright leggja okkur til mjög fróðlega grein um íþróttastyrki í Bandaríkjunum. Þegar SÍNE hefur upp raust sína er hlustað, ýmsir hagsmunaaðilar s.s. ráðuneyti, sendiráð og aðrir taka eftir því sem að SÍNE hefur til málanna að leggja. Við erum þekkt fyrir að vera viðurkennd og virt samtök með mikilvæg skilaboð og að taka þátt í starfi SÍNE á einn eða annan hátt er lærdómsríkt og skemmtileg reynsla sem gott er að hafa á starfsferilskránni. Við viljum því hvetja ykkur að skoða það að koma í stjórn SÍNE að námi loknu, gerast trúnaðarmenn SÍNE ef þið búið erlendis og skrifa greinar í SÆMUND. Sendið okkur línu á netfangið: sine@sine.is Gleðilega hátíð og vonandi verður nýja árið ykkur heillavænlegt. Kveðja, Hjördís Jónsdóttir 4 Síne/Sæmundur


FRAMHALDSNÁM VIÐ HÁSKÓLANN Í REYKJAVÍK Framhaldsnám við Háskólann í Reykjavík á sér sterkar rætur í alþjóðasamfélaginu. Þetta á bæði við um hina fjölmörgu kennara í náminu sem koma frá virtum erlendum háskólum og alþjóðleg tengsl rannsóknarmanna í öllum deildum skólans.

Námið er afar fjölbreytt og hagnýtt og mikil áhersla er lögð á rannsóknir. Mikið er lagt upp úr persónulegum tengslum nemenda og kennara, en þau hafa frá upphafi verið eitt af aðalsmerkjum Háskólans í Reykjavík.

NÁMSLEIÐIR Á DOKTORS- OG MEISTARASTIGI LAGADEILD • PhD í lögfræði • ML í lögfræði VIÐSKIPTADEILD • PhD í viðskiptafræði • MSc í alþjóðaviðskiptum • MSc í reikningshaldi og endurskoðun • Meistaranám í fjármálum fyrirtækja • Meistaranám í fjárfestingarstjórnun • MBA

TÖLVUNARFRÆÐIDEILD • PhD í tölvunarfræði • MSc í tölvunarfræði • MSc í máltækni • MSc í hugbúnaðarverkfræði TÆKNI- OG VERKFRÆÐIDEILD • PhD í verk- og tæknivísindum • MSc í byggingarverkfræði – framkvæmdastjórnun – mannvirkjahönnun – steinsteyputækni – umferðar- og skipulagsfræði

• MSc í ákvarðanaverkfræði • MSc í fjármálaverkfræði • MSc í rekstrarverkfræði • MSc í heilbrigðisverkfræði • MEd í heilsuþjálfun og kennslu • MSc í íþróttavísindum og þjálfun • MSc í verkfræðilegum lífvísindum • MSc í orkuverkfræði • MSc í rafmagnsverkfræði • MSc í vélaverkfræði

Kynntu þér námið á www.hr.is


Er nám einungis fyrir efnaða? Sólveig Lísa Tryggvadóttir, varaformaður SÍNE Er rétt að láta greiðslugetu og aðgang námsmanna að fjármagni ráða náms­vali? Viljum við að nám við marga af bestu skólum heims standi aðeins þeim íslensku náms­mönnum til boða sem eru efnaðir eða hljóta styrki? Flestir stúdentar þekkja Lánasjóð íslensk­ra námsmanna (LÍN) af eigin raun. Sjóðurinn hefur þróast mikið undan­­farin ár og unnið hefur verið mikið og gott starf í þágu námsmanna. Fyrir­huguð breyting á úthlutunarreglum sem stjórn LÍN íhugar að gera fyrir næsta skólaár er þó ekki breyting til hins betra og mun hafa víðtæk áhrif á mögu­ leika stúdenta til að sækja nám erlendis. Það sem sjóðurinn leggur til er einfalt, frá og með skólaárinu 2011-2012 verður sjálfs­fjármögnun lánþega allt að 30% af lánshæfum skóla­gjöldum, að lágmarki þó 45.000 kr. Þetta mun gilda fyrir alla þá sem hefja nýjan námsferil á komandi skólaári. Augljóst er að þetta hefði aðal­lega áhrif á þá sem ekki hafa mikið milli hand­anna og drægi úr tækifærum þeirra til að fá fullt lán fyrir dýru námi, enda væri slíkt vafalaust óráð. Vissulega hefur löngum þótt eftirsóknarvert að auka menntunarstig í landinu og náms­­fólk hvatt til að nýta sér úrval námsleiða hér heima sem og erlendis. Algengt er að háskólar erlendis krefjist hárra skólagjalda og hefur LÍN boðið upp á skólagjaldalán sem hingað til hefur takmarkast við ákveðna upphæð miðað við námsland. Mörgum hefur þótt hámarksupphæð skólagjalda of lág en hugmyndir LÍN ganga hins vegar út á að takmarka lánveitingu til skólagjalda enn frekar. Tökum dæmi um hvaða afleiðingar umrædd breyting á úthlutunarreglum hefur í för með sér. Námsmaður ætlar sér að hefja framhaldsnám og taka LL.M gráðu í lögfræði við NYU law í New York. Námið er eitt ár að lengd og kostar samtals 44.820 dollara. Hámarkslán LÍN er 44.100 dollarar sem þýðir að fyrir breytinguna á úthlutunarreglunum þurfti námsmaðurinn einungis að leggja út 720 dollara fyrir 6 Síne/Sæmundur


skólagjöldum. Miðað við núverandi gengi 113,5 væri hann að greiða 81.720 kr. Ef við förum hins vegar eftir tillögunum að nýjum reglum þyrfti sami námsmaður að leggja út allt að 30% af heildarskólagjöldum sem þýðir allt að 13.446 dollara, eða 1.526.121 kr. miðað við sama gengi. Mismunurinn er 1.444.401 kr. sem er upphæð sem alla munar um og gæti hæglega útilokað framhaldsnámið hjá námsmanninum. Það er auðvitað hægt að stilla upp fjölmörgum dæmum um skólagjöld á mismunandi stigum háskólanáms en niðurstaðan verður alltaf sú sama að fyrir þann sem ekki hefur efni á að fjármagna sjálfur þessi 30% strax, skerðast möguleikar við námsval umtalsvert. LÍN á að bjóða upp á lán til náms á jafnræðisgrundvelli. Í 1. gr. fyrsta kafla laganna um LÍN er skýrt tekið fram: „Hlutverk Lánasjóðs íslenskra námsmanna er að tryggja þeim sem falla undir lög þessi tækifæri til náms án tillits til efnahags.“ Ef umræddar breytingar á úthlutunarreglum koma til framkvæmda, verður að telja að gengið sé gegn lögbundnu hlutverki LÍN og þar að auki gerð augljós tilraun til að stýra hvar sóst er eftir háskólamenntun án nokkurs tillits til gæða menntunar, úrvals eða áhuga nemans. Um er að ræða hindrun sem mörgum kann að reynast óyfirstíganleg og er tillagan til þess fallin að færri íslenskir námsmenn sæki háskólanám erlendis. Er það hið nýja Ísland sem ber að stefna að? SÍNE segir NEI og mun beita sér gegn því að þessi tillaga nái fram að ganga.

Capacent

LIGGUR TÆKIFÆRIÐ ÞITT Á BORÐINU HJÁ OKKUR?

7


Íþróttastyrkir og nám í Bandaríkjunnum Hjördís Bjartmars, ráðgjafi hjá Fulbright Ein leið til að fjármagna nám í Bandaríkjunum er að fá styrk til að stunda íþróttir. Þetta er ein hag­ kvæmasta leiðin fyrir þá sem vilja fara í grunnnám til Bandaríkjanna. Umtalsverð fjár­ hagsaðstoð getur verið í boði í formi beinna styrkja svo og minni aðstoð við niðurgreiðslu skólagjalda. Skóla­ gjöld eru mjög mismunandi í Banda­ ríkjunum; þau geta verið allt frá þrjú þúsund dollurum á ári upp í fleiri tugi þúsunda. Þeir allra ódýrustu eru venju­lega það sem kallast Community Colleges. Það eru tveggja ára skólar þar sem nemendur geta lokið fyrstu tveimur árum af fjögurra ára háskólanámi en flutt sig síðan yfir í hefðbundinn fjögurra ára skóla og lokið BA eða BS gráðu þaðan. Þetta er hægt að því tilskyldu að milli skólanna sé samningur þess efnis sem kallast Articulation Agreement og tryggir þannig flutning standist nemandi ákveðnar lágmarks kröfur. Kosturinn við þetta er helst sá að nám í þessum tveggja ára skólum kostar um 3-5.000 USD og flestir góðir 4 ára háskólar eru með samninga við svona skóla. Það er hægt að vera í íþróttum við þessa skóla, stundum með einhverri fjárhagsaðstoð sem þó er umtalsvert minni en það eru skólagjöldin líka. Þaðan er svo möguleiki á því að komast á hærri íþróttastyrk þegar kæmi að flutningi í fjögurra ára háskóla til að ljúka seinni hluta námsins. Það krefst mikillar vinnu og undirbúnings að finna skóla og þjálfara sem samþykkir mann í lið hjá sér, en í dag eru hæg heimatökin því flestar upplýsingar um ferlið er hægt að finna á netinu og því ættu nemendur sjálfir að geta komið sér á framfæri. Kröfurnar eru oft miklar og mikill tími fer í þjálfun íþrótta á meðan námi stendur og verður íþróttafólk jafnframt að standa sig í námi, annars fá þeir ekki að keppa fyrir hönd skólans og eiga þá á hættu að missa styrkinn. Á móti kemur að oft er mjög góð þjónusta við íþróttamenn og þeir fá aðstoð við námið og aðstaðan til fyrirmyndar. 8 Síne/Sæmundur


I D N A L S Í Á Y O R L I LOKSINS K ANDI LEIÐ ÚT Í HEIM NÝ OG SPENN U ÞIG vIÐ RÁÐFÆRÐ KILROY EDUcATION – ÁM ERLENDIS OKKUR vARÐANDI N

GUM

FERÐASÖ U D IL E D – S G KILROY bLOÐ ÖÐRUM E ÞÍNUM M

KILROY TRAvELS – bAKPOKAFERÐALÖG OGA ÆvINTÝR AFERÐIR UMHvERFIS JÖRÐIN Dreymir þig um að fara í nám erlendis? Taka eina önn eða fara í fullt nám? Þá skaltu fá Kilroy með þér í lið. Hjá okkur færðu aðstoð reyndra námsráðgjafa sem hjálpa þér að rata um frumskóg tækifæranna.

FÁÐU FREKARI UPPLÝSINGAR OG HAFÐU SAMbAND vIÐ OKKUR Á KILROY.IS

9


Ráðgjafi Fulbright stofnunarinnar veitir allar almennar upplýsingar um nám erlendis og hefja má undirbúninginn með því að tala við hann, og afla sér gagna um nám í Bandaríkjunum en stofnunin er til húsa á Laugavegi 59, 3. hæð. Ráðgjöfin er opin mánudaga og þriðjudaga frá 1-4 en einnig má hafa samband í gegnum tölvupóst: adviser@fulbright.is Helstu íþróttasamtökin eru NCAA, NAIA, or NJCAA. Í Bandaríkjunum er skólum skipt í deildir eftir stærð, en ekki endilega getu, og yfir­leitt keppir hver skóli í sömu deild í öllum greinum. Stærstu íþróttasamtökin eru NCAA (National Collegiate Athletic Association), NJCAA (National Junior College Athletic Association) og NAIA (National Association of Intercollegiate Athletics). Síðar í greininni er fjallað um megineinkenni helstu deilda þessara samtaka. Hvernig styrkir eru í boði? Íþróttastyrkir, oft kallaðir Grants-in-aid í Bandaríkjunum, ná yfirleitt yfir skólagjöld, fæði og húsnæði og bókakostnað. Hversu há þessi upphæð er getur verið mismunandi eftir skólum, þar sem gjöld hvers skóla fyrir sig eru mjög mismunandi. Hlutastyrkir, eða Partial Scholarships eru mun algengari en Grants-in-aid, þar sem strangar takmarkanir eru á fjölda styrkja í hverri grein í deildum NCAA samtakanna. Skólarnir reyna því oft að dreifa styrkjunum með því að veita hlutastyrki í stað fullra styrkja, og geta styrkirnir numið skólagjöldum eða hluta þeirra, fæði og húsnæði eða bókakostnaði svo að dæmi séu tekin. Engar fjöldatakmarkanir eru hjá NAIA skólum, en þeir veita oft hlutastyrki í stað Grants-in-aid til þess að nýta fjármagnið, sem þeir hafa til umráða, til að styrkja sem flest íþróttafólk. Niðurfelling hluta skólagjalda eða Out-of-State Tuition Waiver er einnig oft möguleiki 10 Síne/Sæmundur


hjá ríkis/fylkis-skólum. Slíkar niðurfellingar eru þá oft notaðar til að koma til móts við hlutastyrki. Gott er að spyrjast fyrir um þennan möguleika þegar haft er samband við skóla. Hverjir eiga mesta möguleika? Fjöldi styrkja er nokkuð misjafn eftir íþróttagreinum sem eflaust endurspeglar almenn­ an áhuga á íþróttinni í landinu. Þannig fara flestir styrkir í ruðning, körfu, hafnarbolta, frjálsar íþróttir, knattspyrnu, sund, glímu svo eitthvað sé nefnt. Mestu líkurnar á því að komast á íþróttastyrk er fyrir kvenræðara. Skólar geta fallið undir ákveðinn flokk innan íþróttafélaganna (Title IX )þar sem þeim er gert að veita konum jafn marga styrki og körlum. Þar sem flestir styrkir fara til ruðningsboltans getur verið ákveðinn kvóti af styrkjum sem eingöngu konur hafa aðgang að, en um 2300 kvenræðarar eru á íþróttastyrk. Meðal styrkupphæðin var um 10.000 USD undanfarin ár. Hjá NCAA eru einnig þróttastyrkir fyrir keilu sem eingöngu eru í boði fyrir konur. Þetta virðist kanski frekar fáránlegt eða misskipt en þegar hlutur karlíþróttamanna í ruðningsboltanum er skoðaður þá sést berlega að það er engin kvennaíþrótt með tærnar þar sem þeir hafa hælana í fjölda styrkveitinga. Mjög góðar líkur eru á að komast á íþróttastyrk í knattspyrnu fyrir konur en þær eru eftirsóttar um þessar mundir. Fyrir sundmenn t.d. eru meiri líkur á að fá styrk ef þeir eru með fjölbreytta getu en þá sem eingöngu keppa í einni grein og meiri líkur eru fyrir langhlaupara að fá styrk heldur en spretthlaupara svo dæmi séu tekin. Ivy League-skólarnir spila með fyrstu deild en bjóða enga íþróttastyrki. Klappstýru­ íþróttin er ekki viðurkennd af íþróttasamtökunum sem íþrótt en hinsvegar eru fleiri en tvö hundruð skólar sem veita styrki og jafnvel fulla styrki til þeirrar iðkunar. 11


En hvernig fer maður að þessu? Nemendur þurfa að koma sér í samband við þjálfara úti í Bandaríkjunum. Mikilvægt er að kynna sér reglur varðandi samskipti þjálfara og íþróttamanns því það er ekki sjálfgefið hvernig þau mega fara fram. Ákveðnar reglur eru um hvernig þessi samskipti skulu eiga sér stað og brot á þeim getur varðað sviptingu hugsanlegs styrks. Mikilvægast fyrir nemendurna er að þeir verði sérfræðingar í sínum eigin málum og treysti ekki á að einhver þjálfari eða „agent“ geri hlutina fyrir þá, eins og þeir sem vinna að því að leita að efnilegum íþróttamönnum eru stundum kallaðir. Efnilegir nemendur sem vel gætu komist á styrk geta átt á hættu að missa af frábæru tækifæri ef þeim er ekki sinnt sem skyldi. Auðvelt er að nálgast upplýsingar á netinu um hvernig á að bera sig að, hvernig maður getur fundið skóla eftir íþróttum og deildum og þar fram eftir götunum. Sérhæfðar leitarvélar eru aðgengilegar til að finna skóla eftir greinum, íþróttum, deildum eða hverju sem hentar. Markmið nemandans og íþróttamannsins er auðvitað að sameina nám og ástundun íþróttar með því að fá styrk fyrir hið síðarnefnda. Þannig komast margir í háskólanám sem þeir annars ættu ekki kost á. Best er að reyna að fá mörg tilboð um styrk og skólavist og koma sér þannig í þannig stöðu að geta valið úr mörgum tilboðum. Margir mæla með því að byrja að leita að möguleikum í neðstu deildum NJCAA, NAIA, NCAA Div III og færa sig þá frekar „upp á við“ ef tækifærin gefast en líkurnar á því að komast að þar eru mun meiri. Það getur verið snúið fyrir íþróttafólk að ákvarða sjálft hvar það stendur í íþrótt sinni meðal jafningja. Það er kannski auðvelt í einstaklingsíþróttum eins og golfi, sundi eða hlaupum, en erfiðara þegar kemur að hópíþróttum eins og fótbolta eða jafnvel tennis. Það sem íþróttamaðurinn þarf að hafa í huga er að hann þarf að vera mikilvægur liðinu en ekki endilega tíu sinnum betri en allir í liðinu. Á vefsíðum eins og www. berecruited.com er hægt að skoða ferilskrár íþróttafólks og bera þær saman við sína eigin. Gott er að spyrja íslensku þjálfarana um ráð þegar að þessu kemur og fá leiðbeiningar hjá þeim. Mikilvægt er að vera heiðarlegur og reyna að meta sjálfan sig á eins hlutlægum forsendum og hægt er. Það skiptir augljóslega máli hverskonar leikmanni bandarískir þjálfarar leita að, hvort viðkomandi sé góður liðsmaður, hafi keppnisskap og nauðsynlega hörku osfrv. Eitt allra mikilvægasta atriðið við að koma sér á framfæri er að senda myndbands­ upptöku. Margir Bandarískir þjálfara líta ekki einu sinni á umsóknir frá íþróttamönnumn ef þeir geta ekki séð myndband af leikmanni. Kynningarvideo þurfa að vera stutt og hnitmiðuð en gott er að eiga myndband af heilum leik líka ef þjálfari biður um það. Einfaldast er að gefa kynningarmyndina út á youtube og senda svo þjálfaranum link á myndbandið með tölvupósti. Þá er komið í veg fyrir að rusl-póstsía skólans eyði eða endursendi tölvupósta sem fara yfir einhverja ákveðna stærð en talið er að a.m.k. 20% kynningarmynda komist aldrei í hendur þjálfaranna og þar með kemur nemandinn aldrei til greina sem styrkþegi.

12 Síne/Sæmundur


•

Styrkir til náms og rannsókna í umhverfis− og orkumálum

SÍA •

102996

Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar auglýsir eftir umsóknum um náms− og verkefnastyrki: Styrkir til nemenda í meistara− eða doktorsnámi

Styrkir til efnilegra nemenda sem áforma eða stunda meistara− eða doktorsnám á sviði umhverfis− eða orkumála.

Styrkir til rannsókna á sviði umhverfis− og orkumála Almenn rannsóknarverkefni á sviði umhverfis og orkumála.

Fyrirspurnir má senda á netfangið orkurannsoknasjodur@lv.is. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2011. Markmið sjóðsins er að veita styrki til námsmanna, rannsóknar− verkefna á vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga. Styrkveitingar sjóðsins miða að því að gera fjárframlög Lands− virkjunar til rannsókna skilvirkari og sýnilegri, og tryggja að þær rannsóknir sem sjóðurinn styrkir samrýmist umhverfisstefnu Landsvirkjunar.

Upplýsingar um umsóknar− ferli og eyðublöð eru á www.landsvirkjun.is.

Eitt af markmiðum Landsvirkjunar er að styðja við rannsóknir, nýsköpun og tækniþróun.

13


Samsetning nemanda eða íþróttamanns sem líklegastur er til að hljóta styrki er eitthvað á þessa leið: Hæfileiki í íþrótt vegur 50% þ.á.m. stærð, hraði, tækni Einkunnir, meðaleinkunnir, meðaleinkunnir í kjarngreinum, hvernig nemandi er miðað við sinn bekk, ACT/SAT, TOEFL, Eligibility vegur um fjórðung. Síðast en ekki síst vega þættir eins og karakter, leiðtogahæfileikar, vinnulag og hæfileiki til að koma sér á framfæri og fylgja málum sínum eftir þungt því ef þvé er ekki sinnt er augljóst að nemandinn fer hvergi. „Kynningarpakki“ nemandans og íþróttamannsins þarf að innihalda eftirfarandi: • Fyrsti tölvupóstur til þjálfara þarf að vera vandaður og fylgja kurteisisvenjum Banda­ríkja­­manna, eins og að ávarpa hann með eftirnafni „Dear Coach LastName“. • Íþróttaferilskrá • Myndbandsupptöku • Meðmæli frá fyrrverandi/núverandi þjálfara • Keppni framundan • Senda greinar eða umfjöllun úr blöðum – það lítur vel út þó þeir skilji ekki bofs. • E mail addressan ykkar og hvernig þjálfari getur komist í samband við ykkur þarf að vera skýrt í öllum samskiptum. Notið alvarlegt netfang en ekki eitthvað í stíl við: waybetterthanbeckham@hotmail.com • Vertu búinn að kynna þér þjálfarann og liðið sem þú vilt fá styrk til að spila með áðuren þú hefur samband. • Þú getur sagt í stuttu máli frá sigrum og viðtölum við fjölmiðla o.þ.h • Vertu stuttorður og hnitmiðaður í kynningunni um sjálfan þig. Mikilvægt er að fjalla aðeins um af hverju þú heldur að einmitt þú sért kjörinn fyrir liðið sem þú vilt fá að spila með. Á vefsíðunni www.berecruited.com getur þú fundið efni frá öðrum íþrótta­mönnum og séð hvernig þeir kynna sig og hvernig það hefur gengið. Fleiri góðar vefsíður eru: • • • • • • •

http://www.collegesportsscholarships.com/resume.htm http://www.collegesportsscholarships.com/ http://espn.go.com/college-sports/ http://www.ncaa.com/ http://www.njcaa.org/index.cfm http://naia.cstv.com/ www.youtube.com

14 Síne/Sæmundur


PIPAR\TBWA • SÍA

Þátttaka í Happdrætti Háskólans borgar sig – fyrir þig! Er þetta hús byggt fyrir happdrættisfé? Já, áttu ekki örugglega miða?

Tryggðu þér miða á www.hhi.is, í síma 8OO 6611 eða hjá næsta umboðsmanni.15


Frekari upplýsingar um mismun á milli deilda: NCAA Division I: Þessir skólar eru yfirleitt mjög stórir og með mikla íþróttastarfsemi og leita gjarnan sjálfir eftir íþróttafólki. Styrkir eru oft mjög miklir. Fjöldi íþróttastyrkja er takmarkaður af NCAA samtökunum. NCAA Division II: Minni skólar upp í meðalstóra og flestir bjóða upp á nokkra styrki, líklega ekki eins háa og í fyrstu deild. Mjög algengt er að þeir leiti sjálfir eftir íþróttafólki. Flestir skólar bjóða upp á einhverja íþróttastyrki. NCAA Division III: Þetta er stærsta deildin og algengust í minnstu skólunum en engir íþróttastyrkir eru leyfðir í þessari deild. Einungis er boðið upp á fjárhagsaðstoð, sem miðast við fjármagnsþörf, og er sú aðstoð takmörkuð. Kostir NCAA skóla: Mest samkeppni er í fyrstu deildinni DI NCAA og erfiðast að komast inn í hana. Flestir styrkir eru veittir í fyrstu og annari deild, DI og DII. Margir atvinnumenn hefja feril sinn hjá þriðjudeild en sú deild NCAA er með hvað sveigjanlegastar reglur varðandi þátttöku. Kostir NAIA skóla: Allir fjögurra ára háskólar geta keppt í þessari deild. Yfir 350 skólar keppa í þessari deild og eru það yfirleitt minni skólar. Margir þessara skóla eru með mjög góðar íþróttadeildir og flestir bjóða upp á einhverja íþróttastyrki. Þar er einnig leikið í fyrstu og annarri deild og mikið af styrkjum í boði við minni skóla. Inntökuskylirði eru ekki eins ströng og hjá NCAA og því meiri líkur fyrir nemendur á að komast í samband við þjálfara NAIA skóla. Mestar líkur á því að fá að keppa á stórmótum fyrir hönd skólans er að spila með NAIA. NAIA býður sveigjanleika á að færa sig yfir í aðra skóla án þess að missa styrkinn. Kostir NJCAA skóla: NJCAA eru íþróttasamtök tveggja ára háskóla. Fjölbreyttur hópur náms- og íþrótta­ manna sækir þessa skóla og er sveigjanleiki töluverður. Þar er leikið í þriðju deild DIII. Mjög góð tækifæri til að færa sig yfir í fjögurra ára háskóla úr þessum skólum fyrir utan að skólagjöld eru afar lág. Hjördís Bjartmars adviser@fulbright.is

16 Síne/Sæmundur


SEATTLE HELSINKI TRONDHEIM STOCKHOLM OSLO BERGEN GOTHENBURG COPENHAGEN STAVANGER BERLIN BILLUND HAMBURG FRANKFURT REYKJAVIK AMSTERDAM MUNICH GLASGOW MANCHESTER BRUSSELSMILAN LONDON PARIS ICELAND

MINNEAPOLIS / ST. PAUL

BARCELONA TORONTO NEW YORK BOSTON HALIFAX ORLANDO

MADRID

ALICANTE

WASHINGTON D.C.

ÍSLAND BÝÐUR ÍSLENSKA NÁMSMENN ERLENDIS VELKOMNA UM BORÐ HJÁ ICELANDAIR BEINT ÁÆTLUNARFLUG TIL ÍSLANDS FRÁ VESTUR-EVRÓPU OG BANDARÍKJUNUM Strax og námsmenn stíga inn í Icelandair-vél erlendis fá þeir á tilfinninguna að þeir séu komnir langleiðina heim til Íslands. Það gerir andrúmsloftið um borð og hlýlegar móttökur áhafnarinnar sem heilsar námsmönnum á okkar „ástkæra, ylhýra“. Við bjóðum þægileg sæti með góðu persónulegu rými, afþreyingarkerfi þar sem hver maður hefur aðgang að sínum eigin skjá og – síðast en ekki síst – öryggi og stundvísi. Heim til Íslands með Icelandair! + Nánari upplýsingar á www.icelandair.com

*Vinsamlegast athugið: Einstaka sinnum kemur fyrir að farþegar Icelandair fljúgi með vél sem ekki er búið að setja í ný sæti og nýtt afþreyingarkerfi.

17 WWW.ICELANDAIR.COM


Hvað er framundan í starfi LÍN? Valur Þráinsson, fulltrúi SÍNE í stjórn LÍN Þrátt fyrir óvissu sem ríkir um það fjármagn sem LÍN hefur úr að spila frá framkvæmda­ valdinu á næstu árum og þau óþægindi sem það getur valdið námsmönnum erlendis mun ég í þessum pistli reyna að draga fram þau jákvæðu atriði sem eru framundan í starfi mínu fyrir hönd SÍNE í stjórn LÍN nú í vetur. Þar sem þetta er annar vetur minn þar sem ég sit í stjórn LÍN fyrir hönd SÍNE er því kominn nokkur skriður á þau mál sem SÍNE hefur sett á oddinn undanfarið ár. Í fyrsta lagi hefur verið lögð mikil áhersla á það af hálfu SÍNE að gengi, og jafnrétti, þeirra sem stunda nám erlendis til skólagjaldalána verði tryggt. Ákveðið var við gerð seinustu úthlutunarregla að skerða skólagjaldalán ekki að neinu leyti. Samt sem áður er þeirri málsgrein haldið inni í úthlutunarreglunum að sá möguleiki sé til staðar að sjálfsaflafé skólagjalda verði hækkað, allt upp í 30%. Augljóslega mun SÍNE berjast gegn því að breyting í þessa átt verði gerð á úthlutunarreglunum. Í öðru lagi vonast ég til að tillaga okkar í SÍNE sem lögð var fram fyrir stjórn LÍN seinasta vetur um að framfærsla nema erlendis yrði endurskoðuð og reiknuð út á gegnsæjan hátt verði framkvæmd nú í vetur. Í framhaldi af tillögunni sem lögð var fyrir seinasta vetur var skipaður starfshópur innan stjórnar LÍN sem fór yfir þá kosti sem komu til greina varðandi útreikning á framfærslu nema erlendis. Niðurstaða starfshópsins var sú að einfaldast og gegnsæjast væri að miða framfærsluna við annan og stærri lánasjóð, Sænska lánasjóðinn, sem reiknar út framfærslu fyrir sína félagsmenn eftir löndum. Hins vegar stendur yfir endurskoðun hjá sænska lánasjóðnum á því hvernig framfærsla þeirra nema er ákvörðuð og var því vinnu við endurskoðunina hjá LÍN frestað þar til niðurstöður lægju fyrir í Svíþjóð. Þeim útreikningum átti að vera lokið fyrir jól og því er óskandi að hægt verði að endurvekja starfshópinn innan stjórnar LÍN á nýju ári. Í þriðja lagi lagði SÍNE fram þá tillögu að stjórn LÍN endurskoðaði starfsreglur sínar en í þeim kveður m.a. að hlutverk LÍN sé: 1. að veita námsmönnum námslán, 2. að annast fjármál sjóðsins og gerð fjárhagsáætlana, 3. að annast gagnasöfnun varðandi þörf námsmanna á námslánum, 4. að setja reglur um úthlutun námslána, 18 Síne/Sæmundur


5. að skera úr vafamálum er varða einstaka lánþega og öðrum málum með bókuðum samþykktum. 6. að afla upplýsinga um námsskipan og námstíma þeirra skóla sem lánað er til, 7. að hafa eftirlit með árangri og ástundun námsmanna, 8. að annast útgáfustarfsemi og aðra kynningu á starfsemi sjóðsins. Að mati SÍNE þarf LÍN að skilgreina hér nánar hvernig sjóðurinn ætlar að sinna sínu lögbundna hlutverki. Þessi vinna stendur nú yfir og vonandi lýkur henni með farsællegum hætti nú vetur. Hér hefur verið tæpt á helstu atriðum sem SÍNE mun berjast fyrir í vetur. Þess ber þó að geta að að sjálfsögðu mun undirritaður halda áfram að berjast fyrir einstökum vafamálum sem koma fyrir stjórn LÍN og snerta námsmenn erlendis auk þess að reyna að vinna sjóðnum gagn sem nýtist bæði greiðendum og innlendum og erlendum námsmönnum. Að lokum óska ég þér lesandi góður góðs vetrar og vona að þú njótir lífsins hvar sem þú ert í heiminum.

Styrktaraðilar Sæmundar Alþýðusamband Íslands Faxaflóahafnir Guðmundur Jónasson Ísfugl ehf Kaffitár Kópavogsbær Krappi ehf Lakkskemman ehf Leturprent LK Rafverktakar

Margmiðlun Jóhannesar & Sigurjóns Menntaskólinn á Egilsstöðum Pökkun og Flutningar Rafstilling Rafsvið hf Reykjanesbær Seyðisfjarðarbær Síldarvinnslan Sónn Radioverkstæði Stofnun Árna Magnússonar 19


Að láta draumana rætast eftir Gunnþórunni Þorbergsdóttur Lundi, Svíþjóð Sumarið 2007 á sólríkum vordegi í einni heimsókn minni til systkina minna í Lundi í Svíþjóð, fékk ég þá flugu í höfuðið að gaman væri nú að prófa að vera námsmaður í Lundi. Fannst þetta þó frekar fjarstætt á þessum tíma þar sem ég var einungis nýbúin að skrá mig í fjarnám í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Fjarnám valdi ég svo ég gæti stundað nám með vinnu, því ekki treysti ég mér til að lifa á námslánum einum saman við að framfleyta mér og dóttur minni ásamt því standa við íbúðarskuldbindingar á Íslandi. Námlánin eru þó hærri þegar reiknuð er út framfærsla a.m.k. í Svíþjóð. Árin liðu eitt af öðru, ég kláraði 1-3 fög á önn í fjarnáminu mínu og alltaf hvíldi hug­ myndin um að vera námsmaður erlendis í huga mér. Það sem vakti einnig fyrir mér var að prófa að vera „bara“ í námi, eiga öll venjuleg skólafrí með dóttir minni, geta átt meiri tíma með henni, fá reynslu í reynslubankann, gefa aðeins í í náminu og að lokum vera nær systkinum mínum sem voru búin að vera nokkur ár erlendis í námi. Fyrir ári síðan, viðraði ég þessa hugmynd við vinnuveitendur mína og leist þeim vel á, úr varð að ég fengi ársnámsleyfi sumarið 2010. Eftir áramótin fóru svo hjólin að snúast. Ég fann það út að þar sem ég var nú ekki nema rétt að verða hálfnuð með námið mitt þá mundi henta mér ágætlega að fara út sem skiptinemi í gegnum ERASMUS prógrammið. Ég sótti um ERASMUS styrkinn, sótti um í háskólann í Lundi og þegar samþykkisbréfið kom varð ég mjög glöð. Loksins gat draumurinn minn orðið að veruleika. Við tóku nokkrar vikur af alls konar stússi, finna leigjanda, koma dóti og bíl út með skipi, athuga með allskonar pappíra og plögg sem þurfti að hafa meðferðis o.s.frv. Eitt babb kom þó í bátinn þegar allt annað var að verða klárt, það var póstur sem ég fékk frá tengilið mínum úti að því miður kæmist ég ekki í þá kúrsa sem ég hafði valið mér. Um tíma fannst mér öll plön mín hrunin því mjög mikilvægt var að ég fengi þessi fög til að ég fengið námið metið inn í skólann minn heima. Ég ákvað þó að halda áfram með allt, allir voru í sumarfríi og treysta því að þetta mundi leysast þegar út væri komið. Í júlí komum við svo út, byrjuðum að vera í sumarfríi með fjölskyldu okkar og svo tók við tímabil að koma okkur inn í daglega rútínu, útvega húsnæði, var þó búin að 20 Síne/Sæmundur


Dóttir Gunnþórunnar á góðum degi.

forvinna það heima, skrá dótturina í skóla, tómstundir og svo framvegis. Daginn áður en minn skóli átti svo að byrja komust kúrsamálin á hreint með smá undanþágum og látum. Nú er ég semsagt að upplifa að vera „bara“ í skóla. Verð þó að viðurkenna að það er pínu erfitt að aga sig sjálfur í heimanám þegar maður hefur allan daginn fyrir sér. Smá viðbrigði frá því að „skvísa“ þessu inn í dagskránna með fullri vinnu oþh. Einnig eru aðrar áherslur í náminu hér sem maður hefur þurft að venja sig við. Við njótum okkar vel, dóttirn er komin vel inn í sænskuna, búin að kynnast fullt af vinkonum og menningarheimum í gegnum þær þar sem það er mjög mikill multi-kúltúr hérna. Ég hef þó fengið að reyna það að ég er nánast kynslóð eldri en hinir skiptinemarnir en ég læt það nú ekkert á mig fá. Er ekki hérna á sömu forsendum og þau flest þar sem lífið gengur mikið út á partýstand og ferðalög. Mér finnst lífið ósköp ljúft, ég hef miklu meiri tíma með dóttur minni og við njótum þess vel. Tíminn líður líka á eðlilegri hraða núna heldur en áður, ekki er það verra. Maður er aldrei of gamall til að láta draumana rætast og taka sig upp í eitt ár eða fleiri og flytja á milli landa, en það er þó gott að vera búinn að undirbúa það aðeins. 21


Undirbúningslífið eftir Hildi Tryggvadóttur Flóvenz

Berlín Ég er nýlega flutt til Þýskalands. Í Þýska­landi ætla ég að verða mér út um mastergráðu. Það tók mig fjögur ár að ákveða hverskyns mastersgráðu ég vildi. Úrvalið var svo sem alveg nóg, það er hægt að læra allt. Hins vegar gat ég ekki ákveðið hvað væri rétta námið fyrir mig. Þegar ég hnaut um nám í Heidelberg háskóla í stjórnun og rekstri félagasamtaka var ekki aftur snúið. Við tók eins og hálfs árs undirbúningur. Ég setti mig í samband við skólann, fékk allar nauðsynlegar upplýsingar, fylgdist með hvað skólinn var að gera og sótti loks um og komst inn. Í upphafi næsta árs hefst svo loksins námið sjálft en hingað til Þýskalands er ég komin í lokasprettinum í undirbúningnum, nefnilega til að læra þýsku. Þýskunámið hefur án efa verið bæði erfiðasti og skrautlegasti undirbúningurinn. Það var satt best að segja ekki sérlega auðvelt að finna út úr því hvernig best er að læra þá þýsku sem til þarf ætli maður sér í nám í Þýskalandi. Margir bentu mér á að komast í útlendingadeild háskólanna. Í Heidelberg háskóla var það þó ekki möguleiki. Reglurnar eru nefnilega þannig að þú þarft að vera fullgildur nemandi í skólanum til að eiga rétt á að fara í þýskunám, hins vegar geturðu ekki orðið fullgildur nemandi í náminu sem ég ætla í nema fá hæstu einkunn á TesDaf prófi. Þangað til sú einkunn fæst staðfest ertu ekki fullgildur nemandi (þó það sé staðfest að maður verði fullgildur nemandi um leið og viðeigandi niðurstaða í tungumálaprófi fæst) við skólann og átt því ekki rétt á að sitja í þýskunám til undirbúnings. Þegar þetta allt var komið á hreint var því nauðsynlegt að leita annarra leiða. Einfaldasta leiðin var einkarekinn tungumálaskóli. Til allra hamingju lánar LÍN bæði fyrir skólagjöldum og framfærslu í tungumálanámi við einkaskóla til undirbúnings fyrir nám í háskóla. Ég fann því afar 22 Síne/Sæmundur


Framtíðin nálgast Vertu klár! www.uwestfjords.is

Hvernig verður sanngjörn auðlindanýting best útfærð? Loftslagsvá – hvað er til ráða? Hvernig má útfæra vistvæna ferðamennsku á strandsvæðum? Sóum við sjávarauðlindum? Hvernig undirbúum við okkur best undir opnun siglingaleiða um norðurskaut?

23

ljósmynd – www.gusti.is

Coastal and Marine Management Þverfaglegt meistaranám Umsóknarfrestur 15. apríl 2011


góðan tungumálaskóla í Berlín þar sem ég rembist nú við að læra að beygja þýskar sagnir og kunna skil á því hvaða forsetningar eigi við hvaða nafnorð. Satt best að segja vefst það svolítið fyrir mér! Lífið í tungumálaskólanum er merkilegt. Í skólanum er samansafn af allskyns fólki á öllum aldri, víða úr heiminum, sem allir hafa það eina markmið að bæta kunnáttu sína í þýsku. Ástæðurnar fyrir því af hverju fólk er þarna eru afar mismunandi, sumir eru að undirbúa sig fyrir háskólanám eins og ég, aðrir þurfa að læra þýsku vinnu sinnar vegna og enn aðrir stunda námið sér til gamans. Í bekknum mínum eru núna sjö manns. Ég, 29 ára Íslendingur, tveir karlkyns nemendur frá Tyrklandi, ungur tannlæknir frá HvítaRússlandi sem flutti til Þýskalands til að vera með eiginmanni sínum og japanskur barnalæknir sem til Berlín er kominn til að stýra sameiginlegu verkefni japansks og þýsks sjúkrahúss um krabbameinsrannsóknir barna. Að lokum eru tveir krakkar frá Kóreu sem eru annars vegar að prófa eitthvað nýtt og hins vegar auka möguleika sína á að nema við þýskan háskóla. Bekkurinn breytist nánast vikulega enda er hægt að byrja alla mánudaga í skólanum. Í bekknum hafa því líka verið spænskur doktorsnemi í verkfræði og frönsk stelpa sem nú er starfsnemi í stórri blómaverslun hér í Berlín. Allir sem hafa prófað að vera í alþjóðlegum bekk vita að það getur bæði verið bráð­ skemmtilegt en líka erfitt. Menningarmunur, skoðanir og skilningur á bæði á tungumáli og viðhorfum er mismunandi og því getur stundum verið erfitt að skilja hvert annað, hvað þá þegar enginn er góður í tungumálinu sem talað er. Í mínum bekk er lífið oftast gott en stundum ansi skrautlegt, sérstaklega þar sem kennarinn okkar er bæði forvitinn og síblaðrandi út fyrir efnið (sem er oftast gott, hverjum finnst svo sem gaman að læra þýska málfræði í 5 klukkutíma á dag?!). Það þýðir aftur að umræðurnar 24 Síne/Sæmundur


leiðast oft út í málefni sem menn hafa mjög mismunandi skoðanir á. Tökum sem dæmi þriðju og fjórðu kennslustund, þriðjudaginn 9. nóvember. Kennarinn var að tala um hið dásamlega þýska slagorð quadratisch – praktisch – gut (ferkantað, nyt­sam­ legt og gott) sem er slagorð Ritter Sport súkkulaðisins. Út frá því spunnust umræður um matarvenjur mismunandi landa sem endaði á heitum samræðum um sam­kyn­ hneigð. Skoðanirnar voru mismunandi, allt frá því að hafa enga skoðun, til þess að telja samkynhneigð ógnun við siðmenningu og genasamsetningu mannsins til þess að vera virkur talsmaður þess að samkynhneigðir njóti allra sömu réttinda og gagn­­kynhneigðir. Sannarlega skrautlegar umræður sem þarna fóru fram og margar mismunandi skoðanir voru látnar í ljós. Það er einmitt það sem gerir alþjóðlega bekki lærdómsríka og skemmtilega (þó ég vildi óska að það væri ekki til fólk sem styður ekki sömu réttindi fyrir samkynhneigða og gagnkynhneigða). Hvar annarstaðar en í svona bekk fær maður tækifæri til að sannfæra þröngsýnt fólk um að opna sjóndeilda hring sinn aðeins en um leið æfa sig í þýsku? Nú þegar líður að lokum tungumálanámsins og það sér fyrir endann á löngum undir­ búningi fyrir meistaranámið er ekki laust við að ég verði svolítið hrygg. Undirbúningslífið hefur sannarlega verið afar skemmtilegt og á því hef ég lært heilmikið, bæði heima og hér í Berlín. Næsta skref verður vonandi enn skemmtilegra, það er nefnilega ekki á hverjum degi sem maður fær tækifæri til að byrja í spennandi námi og þar að auki í jafn dásamlega ferköntuðu og nytsamlegu landi og Þýskalandi!

Styrktaraðilar Sæmundar

Pantone blár: 282 c Pantone rauður: 485 c CMYK blár: 100 - 72 - 0 - 56 CMYK rauður: 0 - 100 - 100 - 0 RGB: 0 - 38 - 66 Hex: 002642

25


Styrktaraðilar Sæmundar

Menntaskólinn á Akureyri

Miðnesheiði

26 Síne/Sæmundur


Námsstyrkir VÍ til framhaldsnáms erlendis Viðskiptaráð tekur virkan þátt í uppbyggingu menntunar og er bakhjarl bæði Verzlunarskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík í gegnum Sjálfseignarstofnun Viðskiptaráðs Íslands um viðskiptamenntun (SVÍV). Ráðið hefur um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis. Undanfarin ár hafa verið veittir fjórir styrkir árlega og hefur afhending þeirra farið fram á Viðskiptaþingi, sem haldið verður miðvikudaginn 16. febrúar 2011 næstkomandi. Hverjir geta fengið styrk? Tveir styrkir eru veittir til framhaldsnáms við erlenda háskóla eða aðra sambærilega skóla í greinum sem tengjast atvinnulífinu og stuðla að framþróun þess. Þá eru veittir tveir styrkir úr námssjóði um upplýsingatækni, sem eingöngu eru veittir umsækjendum í upplýsingatækninámi erlendis á framhaldsstigi. Hver styrkur er að upphæð kr. 400.000. Hvert á að skila umsóknum? Umsóknum skal skilað til Viðskiptaráðs Íslands, Kringlunni 7, 103 Reykjavík og skulu þær merktar „Námsstyrkur 2011“. Hægt er að senda umsóknir með tölvupósti til vi@vi.is eða á faxi: 568 6564. Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki Viðskiptaráðs 2011 er 28. janúar 2011, kl. 16:00. Allar nánari upplýsingar má nálgast hér. Nánari upplýsingar um Viðskiptaráð sem bakhjarl menntunar má nálgast á vefsíðu Viðskiptaráðs.

27


Hefur þú áhuga á að sækja námskeið og ráðstefnur í Evrópu? Evrópa unga fólksins styrkir ungmenni og aðila í ungmennastarfi til að sækja námskeið og ráðstefnur í Evrópu. Mörg þessara námskeiða eru til þess hugsuð að kynnast nánar ungmennaáætlun ESB og þeim möguleikum sem hún hefur uppá að bjóða ásamt því að vera vettvangur til tengslamyndunar til að skapa fjölþjóðleg verkefni með öðrum Evrópubúum. Evrópa unga fólksins styrkir ferðakostnað og uppihald að undanskildu 5.000 kr. mótframlagi frá styrkþega. Athugið að mótframlagið getur í sumum tilvikum verið greitt af vinnuveitenda eða stéttarfélagi. Athugið að í sumum verkefnum þurfa þátttakendur að greiða 30% af ferðakostnaði í mótframlag og er það sérstaklega tekið fram við þau námskeið. Hér getur þú lesið um hvað er í boði: www.salto-youth.net www.euf.is 28 Síne/Sæmundur


29


Ertu á leið erlendis? Nokkur gagnleg atriði til að hafa í huga.

Tekið saman af Ölmu Sigurðardóttir hjá Hallo Norden Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar ætluð fólki sem flytur milli Norðurlandanna. Verkefnið er fjármagnað af Norrænu ráðherra­ nefnd­­inni en rekið af Norrænu félaginu hér á landi. Verkefnisstjórar eru starfandi í Noregi, Danmörku, Finnlandi, Svíþjóð og á Íslandi. Á heimasíðu verkefnisins, www. hallonorden.org, má finna margvíslegar upplýsingar sem tengjast flutningi til Norður­ landanna en okkar verkefni er að leiðbeina fólki gegnum frumskóg norræns skrifræðis. Auk upplýsingagjafar til almennings sinnir upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd fræðslu um Norðurlandasamninga fyrir embættismenn auk þess að beita sér gegn landamærahindrunum. Landamærahindranir geta til dæmis verið lög eða reglur sem hindra flutninga yfir landamærin eða gera þá erfiða. Námsmenn á Norðurlöndum þurfa að huga að ýmsu við flutning og nauðsynlegt er að kynna sér vel aðstæður, réttindi, rög og reglur í því landi sem flutt er til. Að neðan má finna lista yfir heimasíður sem geta verið nytsamlegar til að afla upplýsinga bæði áður og eftir að flutt er utan í nám. Samnorrænar síður Halló Norðurlönd: www.hallonorden.org Á heimasíðu Halló Norðurlanda má finna margvíslegar upplýsingar tengdar flutningi og búsetu á Norðurlöndunum. Sérkafli er tileinkaður námsmönnum en aðrar upp­ lýsingar geta einnig nýst námsmönnum. Mögulegt er að senda fyrirspurnir gegnum heimasíðuna eða með því að hafa samband við skrifstofu verkefnisins í síma eða tölvupósti. Nordisk eTax: www.nordisketax.net Jafnvel þótt námsmenn stundi ekki vinnu með námi, borgar sig engu að síður að huga að skattamálum. Nordisk eTax er norræn skattasíða rekin af skattayfirvöldum á Norðurlöndunum. Upplýsingar á síðunni eru á mismunandi tungumálum, þar á meðal íslensku og mögulegt er að senda inn fyrirspurn á íslensku sem svo er svarað 30 Síne/Sæmundur


af skattayfirvöldum. Á síðunni má meðal annars finna upplýsingar um skattalega heimilifesti, hvaða reglur gilda varðandi skattlagningu þegar námsmenn leigja út fasteign á Íslandi og fleira í svipuðum dúr. Nordsoc: www.nordsoc.is Nordsoc er sameiginleg vefgátt um almannatryggingar sem haldið er uppi af Tryggingastofnun og sambærilegum stofnunum á Norðurlöndunum. Á síðunni má finna almennar upplýsingar um almannatryggingar á Norðurlöndunum á nokkrum norrænum tungumálum. Því er mögulegt að lesa um til að mynda sjúkratryggingar í Noregi á íslensku. Mögulegt er að senda inn fyrirspurnir gegnum heimasíðuna. Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins: www.ask.hi.is Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins rekur upplýsingastofu um nám erlendis. Á heima­ síðu skrifstofunnar má finna mjög góðar upplýsingar fyrir námsmenn, ekki síst þá sem eru að velta fyrir sér hvert skuli halda. Á síðunni eru meðal annars upplýsingar um húsnæðisleit sem og lista yfir námsstyrki. Síður tengdar ákveðnum löndum www.borger.dk Upplýsingar um lífið frá vöggu til grafar í Danmörku. Finna má upplýsingar sem miðaðar eru út frá ákveðnum sveitarfélögum, eyðublöð frá þeim og margt fleira nytsamlegt. www.ug.dk Á síðunni er kynnt nám á ýmsum stigum í Danmörku. www.studyinsweden.se Síða á ensku um nám í Svíþjóð. www.studera.nu Upplýsingar um nám á háskólastigi í Svíþjóð. www.sweden.se Almennar upplýsingar um að búa í Svíþjóð en einnig upplýsingar fyrir ferðamenn. www.yliopistohaku.fi Umsóknir um nám og leitarsíða fyrir þá sem hyggja á nám í Finnlandi. www.suomi.fi Finnsk síða um þjónustu á vegum hins opinbera. Síðan er á ensku, finnsku og sænsku. www.norge.no/ Leiðarvísir um hið opinbera kerfi í Noregi. www.utdanning.no Upplýsingasíða um nám í Noregi. www.studyinnorway.no Síða á ensku um nám í Noregi, meðal annars um framboð náms á ensku.

31


Kilroy býður námsráðgjöf fyrir Íslendinga sem ætla í nám erlendis Norræna ferðaskrifstofan Kilroy opnaði í haust útibú á Íslandi. Kilroy er þekkt fyrir að bjóða náms­mönnum og ungu fólki upp á ævin­ týraferðir um allan heim og því eykst möguleiki Íslendinga á að komast á hag­ kvæman hátt út fyrir hefð­ bundnar slóðir með innreið Kilroy á íslenska markaðinn. Um leið fá Íslend­ ingar aðgang að þjónustu sem Kilroy hefur verið að þróa síðustu ár, en það er námsráðgjöf og aðstoð við námsmenn sem Háskólinn í Auckland. hyggja á nám erlendis. Sérstaða Kilroy, sem starfað hefur í yfir 60 ár, hefur í gegnum tíðina falist í að aðstoða ungt fólk í ævintýraleit við að skipuleggja ferðir til framandi landa, allt frá styttri ferðalögum upp í heimsreisur. Nýlega var þjónusta Kilroy aukin með Kilroy Education, sem er ráðgjöf og þjónusta fyrir þá sem eru að leita að námi erlendis. Kilroy hefur jafnframt vakið athygli fyrir öfluga netþjónustu og býður ferðalöngum meðal annars að stofna sérstakt ferðablogg þar sem hægt er að halda úti ferðadagbók og fylgjast með ævintýrum annarra ferðalanga. Að baki Kilroy Education standa reyndir námsráðgjafar sem hafa sérhæft sig í að aðstoða námsmenn við að finna nám við hæfi utan heimalandsins, sækja um það og leysa öll þau verkefni sem fylgja því að fara utan í nám. Þetta er flókið ferli, möguleikarnir eru óteljandi og margar gryfjur sem hægt er að falla í á leiðinni. Kilroy getur aðstoðað við þetta ferli frá A til Ö, allt frá því að draumurinn um að fara erlendis í nám kviknar þar til námið hefst. Allir geta leitað til Kilroy gegnum Kilroy.is og fengið almennar upplýsingar um háskólakerfi um allan heim, kostnað og leiðir til að fjármagna námið, svo eitthvað sé nefnt. Þegar lengra er komið í ákvörðunarferlinu veitir Kilroy 32 Síne/Sæmundur


sérhæfðari aðstoð við umsóknarferli og öll samskipti við fjölmargra háskóla um allan heim sem fyrirtækið starfar sérstaklega með. Allt eru það hágæða háskólar sem leggja áherslu á alþjóðlegt nám fyrir námsmenn hvaðanæva að úr heiminum. Lista yfir samstarfsháskóla Kilroy ásamt nánari upplýsingum um Kilroy Education má finna á Kilroy.is. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þjónusta Kilroy hefur verið í boði á Íslandi, því Ferða­ skrifstofa Stúdenta hafði umboð fyrir Kilroy-ferðum um nokkurt skeið. Eftir að Kilroy hætti að starfa með umboðsskrifstofum upp úr síðustu aldamótum slitnuðu hins vegar tengsl Kilroy við Ísland. Síðustu árin hefur Ísland verið eina landið á Norðurlöndum án Kilroy-ferðaskrifstofu en nú heyrir sú sérstaða sögunni til. Það er tímanna tákn að útibú Kilroy á Íslandi er á vefsíðunni Kilroy.is, en þar hafa Íslendingar aðgang að upplýsingum, þjónustu og bókunarvél á íslensku. Gegnum Kilroy.is hafa áhugasamir ferðalangar jafnframt aðgang að fjölmörgum reyndum ferða- og námsráðgjöfum, íslenskum jafnt sem erlendum, sem svara fyrirspurnum og aðstoða eftir þörfum, hvort sem verið er að leita að rétta ferðalaginu eða rétta háskólanáminu erlendis. „Við erum stolt af því að geta loks talist al-norræn ferðaskrifstofa með opnun Kilroy á Íslandi. Við höfum mikla trú á að íslensk ungmenni hafi áhuga á að nýta sér þjónustu Kilroy á Íslandi, enda eru Íslendingar þekktir fyrir að ferðast mikið og vera víðsýnir þegar kemur að ferðamöguleikum. Íslendingar leggja jafnframt mikið upp úr því að sækja sér menntun erlendis og þar mun Kilroy Education án efa nýtast þeim vel. Kilroy hefur yfir 60 ára reynslu í að bjóða ævintýra- og bakpokaferðir um allan heim og við erum mjög ánægð með að geta aftur boðið Íslendingum þjónustu okkar,“ segir Anders Iversen, markaðsstjóri Kilroy.

Alþjóðlegir nemendur í Hawaii Pacific háskólanum.

33


Lars von Tríó 1) Hvað og hverjir eru Lars von Tríó? Lars Von Tríó er DJ hreyfing sem á rætur sínar að rekja til DJ senunar í Kaupmannahöfn. Samansett af þremur Íslendingum sem eru allir námsmenn erlendis. Í rauninni má segja að við erum hérna til þess að koma ákveðnum skilaboðum áleiðis, skilaboðum sem varða hvert mannsbarn og ef ekki, þá allavega Dani og útlendinga sem eru búsettir í Danmörku. Meðlimir tríósins eru Garðar Stefánsson, Kristján Egill Karlsson og Ólafur Páll Torfason. 2) Hvernig tónlist spilið þið? Lagaval okkar miðar að því að spila tónlist sem kemur fólki í gleðiham. Okkar markmið er að fylla dansgólf, fá fólk til að dilla rössum og svitna aðeins. Þannig að sú tónlist sem við spilum er allt frá því að vera elektrónísk danstónlist yfir í svalandi rokkballöður. 3) Hvað kom til að þið byrjuðuð að plötusnúðast? Það má eiginlega segja að fjármálakrísan hafi neytt okkur til þess að reyna að skaffa aukapening, þannig að við snérum okkur að því sem við kunnum best –að DJ-A. Það versta er að við fáum eiginlega oftast borgað í fríum bjór og komnir vel áleiðis með eyða fyriframgreiddu námslánunum okkar. Svo eru tveir meðlimir tríósins, Garðar og Kristján, nýbakaðir feður og haldnir svolitlum feðrafiðringi. Ólafi finnst þetta bara vera töff. 34 Síne/Sæmundur


4) Hvert stefnið þið sem band? Okkar draumur er náttúrulega að fá einhvern tíman borgað fyrir að spila í öðru en bjór. En svona í alvöru talað þá væri gaman að fá að spila hér í Kóngsins Köben. 5) Veit Lars von Trier af þessu? Hver er það? 6) Hvenær eru svo næstu DJ gigg hjá ykkur. Við spilum á Salonen í nóvember sem er hress staður hérna í Kaupmanna­ höfn. Erum svo pantaðir á Café Blasen 3. nóvember –sem er einn helsti samkomu­ staður Íslendinga í Kaup­ mannahöfn. Eftir áramót munum við spila á Jolene sem er þekktur fyrir að skarta DJ landsliði Danmerkur. Ekki leiðinlegt að spila þar. Okkur langar til að koma á framfæri að við sérstaklega opnir fyrir að spila í brúðkaupum og skírnum.

Ljósmyndir: Ingibjörg Torfadóttir. Stílisti: Eva Dögg Rúnarsdóttir. Grafík: Hjalti Axel Yngvason.

35


Ertu á lEið í nám ErlEndis?

samband íslEnskra námsmanna ErlEndis

Samband íslenskra námsmanna erlendis - SÍNE - var stofnað árið 1961 og hefur tilgangur þess ætíð verið að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og vera tengiliður þeirra við þau stjórnvöld sem koma að kjörum SÍNE félaga hér á landi. Á síðustu árum hefur þjónustan við tilvonandi félagsmenn, þ.e. námsmenn á leið út, vaxið mjög mikið. Aðild að félaginu er frjáls, en reynslan hefur sýnt að langflestir námsmenn sjá sér hag í að nýta þjónustu SÍNE. Félagsgjöld eru 2500 kr. fyrir námsárið, og eru dregin af fyrstu útborgun framfærslulána. Námsmenn sem ekki eru á námslánum verða að skrá sig sérstaklega á skrifstofu SÍNE. Skrifstofa SÍNE er staðsett í Pósthússtræti 3-5 (í Hinu húsinu), 2. hæð, og er opin alla virka daga frá 9-12. Síminn er 552-5315 og netfangið sine@sine.is.

Þjónustan – ÞríÞætt

Þjónusta við félagsmEnn: á lEið Út: • SÍNE reynir að aðstoða einstaklinga á leið út í nám eftir fremsta megni. Nú eru starfandi 45 trúnaðarmenn í 17 löndum sem eru boðnir og búnir að svara spurningum námsmanna sem til þeirra leita. Upplýsingar um netföng og símanúmer trúnaðarmanna er að finna á heimasíðu SÍNE • SÍNE gefur út bókina „nám erlendis“ en þar er að finna ítarlegar upplýsingar um þær stofnanir sem námsmaður á leið til útlanda þarf að hafa samskipti við, sem og umfjöllun og upplýsingar um helstu námslönd Íslendinga. Bókin er birt í heild sinni á heimasíðu SÍNE • SÍNE svarar spurningum og veitir ráðgjöf í málefnum Lánasjóðs íslenskra námsmanna • SÍNE kemur fólki í samband við félagsmenn úti 36 Síne/Sæmundur vanti það frekari upplýsingar um námsland, borg eða skóla

• Félagsmönnum er boðið að hringja “collect” á skrifstofu SÍNE hvaðanæva að úr heiminum • SÍNE félagar fá aðstoð í samskiptum sínum við lánasjóð íslenskra námsmanna en í stjórn LÍN situr fulltrúi frá SÍNE og vinnur stöðugt að bættum kjörum félagsmanna í lánamálum. • Framkvæmdastjóri SÍNE situr alla vafamálafundi lánasjóðsins og leiðbeinir félagsmönnum í málarekstri auk þess að tala máli allra námsmanna á þeim fundum • SÍNE félagar njóta afsláttarkjara hjá samskipum en þeir fá 12% afslátt af flutningsgjöldum hjá fyrirtækinu • trúnaðarmenn SÍNE viðkomandi námslandi

aðstoða

félagsmenn

í

• Stjórn SÍNE leitar allra leiða til að bæta hag námsmanna erlendis


starfsEmin á hEimasíðu sínE, www.sinE.is, Er að finna: • reikniforrit þar sem hægt er að reikna út væntanlegt lán frá LÍN • tékklista með helstu atriðum sem huga þarf að áður en nám hefst á erlendri grundu • Upplýsingar um heimasíður íslendingafélaga um allan heim • Fréttabréfið sæmi (NetSæmi) – gefið út ca. annan hvern mánuð • Upplýsingar um trúnaðarmenn SÍNE • Handbókina nám erlendis – þar er að finna hagnýtar upplýsingar um undirbúning fyrir námsdvöl í útlöndum • leigumiðlun/leigumarkað þar sem fólki gefst kostur á að auglýsa húsnæði sitt til leigu eða óska eftir leiguhúsnæði, hérlendis sem erlendis. Þjónustan er öllum aðgengileg og án endurgjalds • Auglýsingar um styrki sem í boði eru á hverjum tíma • Hagnýtar upplýsingar um tryggingar, skatta- og atvinnumál námsmanna erlendis • Ýmsar tilkynningar og tengingar við aðrar mikilvægar síður sem koma námsmönnum til góða

skrifstofan: • Er staðsett á Pósthússtræti 3-5 (Hitt Húsið) og er opin alla virka daga frá 9-12 • Hjá SÍNE starfar einn starfsmaður • Í stjórn sínE sitja sjö fyrrverandi SÍNE félagar • síminn er 552-5315 og netfangið er sine@sine.is

Útgáfa og fundir: • SÍNE gefur út fréttablaðið sæmund ca. tvisvar á hverju námsári • Í Sæmundi er birtar upplýsandi og fræðandi greinar fyrir félagsmenn jafnt tilkynningar og almennar fréttir af starfseminni • Auk þess er að finna í blaðinu reynslusögur og ýmislegt skemmtiefni • Þá er gefinn út netsnepillinn sæmi sem inniheldur áríðandi tilkynningar til félagsmanna • ráðstefnur og fundir eru haldnir reglulega og eru þeir auglýstir í blöðum, vefritum og á heimasíðu félagssins

Þjónusta við sínE félaga á hEimlEið: • SÍNE er í samstarfi við fyrirtæki og ýmsar atvinnumiðlanir uppá atvinnumöguleika fyrir námsmenn sem eru að koma úr námi erlendis • SÍNE hefur barist fyrir því að hluti námslána breytist í styrk að námi loknu • SÍNE hefur einnig lagt á það áherslu að endurgreiðsla hefjist seinna eftir að námi lýkur en nú tíðkast. • Þjónusta SÍNE er því margvísleg eins og hér gefur að líta

samband íslEnskra námsmanna ErlEndis PósthÚsstræti 3-5 101 rEYkjavík sími: 552-5315 37 sinE@sinE.is www.sinE.is


Styrkir til háskólanáms í Finnlandi Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í Finnlandi bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2011-2012. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver styrkur kemur í hlut Íslendinga. Styrkirnir eru ætlaðir til doktorsnáms, rannsókna og kennslu á háskólastigi. Umsóknir um styrki til doktorsnáms njóta forgangs. Styrkir eru veittir til 3 - 9 mánaða og nemur styrkfjárhæðin 1200 evrum á mánuði. Upplýsingar og eyðublöð er hægt að nálgast á vefsíðu CIMO (Centret for International Mobility) http://finland.cimo.fi (Scholarships | Postgraduate Studies and Research | Finnish Government Scholarship Pool). Mennta- og menningarmálaráðuneytið framsendir umsóknir er uppfylla skilyrði sem nánar eru tilgreind í upplýsingum um styrkina og skulu umsóknir, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, sendar ráðuneytinu. Nánari upplýsingar veitir Sunna Viðarsdóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti á sunna. vidarsdottir@mrn.is Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2011. 38 Síne/Sæmundur


S æm un du r ósk ar les en du m sín um gle ðil eg ra jól a og vel far na ða r á ný ju ári


Sérsniðin þjónusta fyrir allar tegundir námsmanna. Námsmenn okkar fá betri kjör og meiri fríðindi. • • • •

Ódýrari símgreiðslur í Netbanka Arion banka Betri kjör á yfirdrætti Framfærslulán í erlendri mynt á hagstæðum kjörum Sérstakan námsmannaráðgjafa

Kynntu þér málið á arionbanki.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook