Skip to main content

Ecco Kids

Page 1

WE ARE ECCO KIDS


VIÐ ERUM SÉRFRÆÐINGAR Í FÓTUM BARNA OG ER UMHUGAÐ UM ÞRÓUN ÞEIRRA VIÐ FRAMLEIÐUM SKÓ SEM ERU: • Unnir úr léttu, mjúku og sveigjanlegu efni til þess að tryggja hreyfanleika og þægindi. • Eru með tilgang - Allt ónauðsynlegt er fjarlægt. • Mjúkir með góðri fjöðrun. • Eru með góðri öndun. AF HVERJU ÆTTIRÐU AÐ VELJA ECCO BARNASKÓ? Við erum hágæða vörumerki, sem er dáð fyrir hönnunina og þekkt fyrir gæðin. Við prófum alla skó á börnum til þess að vera viss um að þeir virki í daglegu lífi. Við hlustum á þarfir barnanna og gætum þess að skórnir passi fótum þeirra, allt frá lögun til þess hvernig fóturinn stækkar og bregst við.

MYND


ECCO FIRST Verรฐ: 9.995 Stรฆrรฐir: 19-26


OKKAR LOFORÐ ALLIR OKKAR SKÓR BJÓÐA UPPÁ: • Styrkingu við hæl sem styður við rétt göngulag. • Stöðugt og gott grip sem veitir barninu öryggi. • Létt og sveigjanlegt hráefni í yfirborði og sóla sem gefur barninum frjálsræði í hreyfingum. • Að lögun skóna sé rétt og nægt rými sé fyrir tærnar að hreyfast. • Lág hæð á hælum sem dreifir líkamsþyngd jafnt yfir sólann.


ECCO BIOM MINI Verรฐ: 9.995,Stรฆrรฐir: 19-26


FRAMLEIDDIR AF KÆRLEIKA FYRIR LITLAR FÆTUR UPPRUNI OKKAR ECCO er hágæða vörumerki og hefur verið það síðan 1963. Gæðin eru ávallt í fyrsta sæti hjá ECCO sem eru sérfræðingar í barnaskóm. MARKMIÐ OKKAR Við skuldbindum okkur til að passa litla fætur. SKULDBINDINGAR OKKAR Hjá ECCO Kids hjálpum við börnum að vaxa frjálslega úr grasi, bæði líkamlega og andlega, án takmarka.

Við búum til hvert par af ECCO Kids skóm með kærleika, þannig að það passi fullkomlega fyrir litla fætur.

ECCO FIRST Verð: 9.995,Stærðir: 19-26


MYND

OKKUR ER UMHUGAÐ Við hvetjum til ævintýra og þess að skíta sig út. Þess vegna er einfalt að hugsa um skóna með 3-skrefa ferli. Línan okkar samanstendur af hreinsi, næringu og vörn sem er hönnuð til að halda regni, blettum og rispum frá skónum, þannig að börnin geti leikið sér frjálst allan daginn.

HREINSA - NÆRA - VERNDA Línan er sérhönnuð fyrir ECCO vörur og hefur verið prófuð á öllu ECCO leðri og tilbúnum skóm. Formúlurnar eru lausar við öll sterk leysiefni, sem gera þau umhverfisvænni og öruggari til notkunar. Fyrir frekari upplýsingar skoðið ECCO.com.

SKREF 1: HREINSA (CLEAN) Hreinsaðu skóna eftir skítug ævintýri. Hreinsilínan okkar þrífur á öflugan hátt drullu, endurvekur leðrið og frískar upp á skóna.

SKREF 2: NÆRA (CARE) Litlir fætur líta betur út mun lengur með næringunni okkar. Línan er hönnuð til að mýkja, næra og bæta teygjanleika leðursins.

SKREF 3: VERNDA (PROTECT) Vernda litla skó gegn erfiðum veðurskilyrðum. Varnarlínan okkar virkar sem verndarskel sem heldur regni og blettum í burtu.


HVAÐ Á SÉR STAÐ HJÁ BÖRNUM? Á ungaaldri eru beinin í fótunum mjög mjúk og sveiganleg. Börn þurfa skó sem veita stuðning og gerir vöðvunum í fætinu kleift að þróast eins frjálslega og mögulegt er. Við hjá ECCO Kids skiljum muninn á lögun fóta ungbarna sem og eldri barna. Það eru 26 bein og 28 liðir í fætinum og við vitum hvernig hver þeirra virkar og bregst við. 0 – 2 ÁRA:

Fætur ungbarna er mjög mjúkir og sveiganlegir. Lögun og vöðvar eru ekki full mótaðir.

3 – 7 ÁRA:

Lögun og vöðvar farnir að mótast.

VIÐKVÆMNI FYRIR ÞRÝSTINGI OG ÁLAGI Vegna viðkvæmni fyrir þrýstingi og álagi, höfum við hjá ECCO kids þróað ungbarnaskó sem gefur ungbörnum frelsi til hreyfinga fyrir viðkvæma fætur og með því geta fæturnir fengið það rými sem til þarf fyrir athafnir þeirra, uppgötvanir og skemmtanir.


ECCO FIRST Verรฐ: 9.995,Stรฆrรฐir: 19-26


ÞUMALFINGURREGLAN Fæturnir eru stöðugt að vaxa. En þeir vaxa í stigum. Fæturnir vaxa mjög hratt fyrstu 2 árin eða sirka um hálfa stærð á tveggja mánaða tímabili sem samsvarar um 2 cm á ári.

Frá 2-3 ára aldri stækkar fóturinn um hálfa stærð á þriggja mánaða timabili sem samsvarar um 1,5 cm á ári. Við mælum með því að þú látir mæla fótinn á barni þínu á tveggja til þriggja mánaða fresti. Þegar keyptir eru barna skór skalt hafa ÞUMALFINGURREGLUNA til athugunar. ÞÚ SKALT HAFA 1,5 CM AUTT BIL Á MILLI TÁNNA OG SKÓSINS. Þetta pláss bíður barninu uppá:

0,5 CM FYRIR GÖNGUNA

0,8 CM VEGNA VAXTAR FÓTARINS 0,25 CM SEM HOLRÚM FYRIR TÆRNAR


HVERNIG FINNUM VIÐ RÉTTA STÆRÐ? Til þess að mæla fótinn þurfum við: - Blað - Penna - Reglustriku

Settu blaðið á gólfið upp við vegg. Staðsettu fótinn á blaðið með hæl upp að veggnum

Merktu við lengsta punkt fótsins á blaðið. Gerðu þetta við báða fætur þar sem eðlilegt er að fætur séu misstórir.

Mældu báðar lengdinar í sentímetrum og berðu þá lengri saman við töfluna hér til hægri.


WE ARE ECCO KIDS


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook