
1 minute read
Þvagleki
Algengustu gerðir þvagleka
Áreynsluþvagleki
Dropar sem orsakast meðal annars af slökum grindarbotnsvöðvum. Grindarbotninn breytist oft eftir barnsburð. Vöðvarnir geta skaddast þannig að þeir halda ekki blöðrunni og þvagrásinni uppi eins og áður. Á breytingaskeiðinu minnkar hormónaframleiðsla líkamans sem hefur í för með sér að slímhúðin í fæðingarvegi og þvagrás þynnist og stenst ekki eins vel og áður þrýstinginn frá blöðrunni. Eðlileg öldrun, blöðru-, leg- eða þarmasig getur einnig haft í för með sér þvagleka.
Bráðaþvagleki
Óviðráðanleg þvaglát með sterkri þvaglátsþörf. Orsakast oft af ósjálfráðum samdráttum í blöðruvöðvanum. Sé þvagblaðran ofvirk gefst oft mjög takmarkað ráðrúm til að komast á snyrtingu áður en hún tæmist að hluta eða öllu leyti. Önnur einkenni geta verið tíð þvaglát og sterk þvaglátsþörf. Hjá sumum verður þörfin fyrir að tæma blöðruna mjög sterk og jafnvel svo mikil að ekki er hægt að halda í sér. Það leka nokkrir dropar eða jafnvel margir. Aðrir hafa algjörlega misst stjórn og missa allt þvag án nokkurs fyrirvara og án þess að finna fyrir því. Þá er getan til að halda í sér með öllu horfin.
Erfitt að ræða um vandamálið
Þvagleki er algengur hér á landi sem og annars staðar í heiminum og má ætla að um 50 þúsund Íslendingar líði fyrir þetta vandamál í dag. Tíðni þvagleka er þrisvar sinnum hærri hjá konum en körlum og eykst eftir því sem fólk eldist. Almennt á fólk mjög erfitt með að ræða um þvagleka við aðra og afleiðingin getur orðið sú að það einangrast eða treystir sér ekki til þess að fara út á meðal fólks.
Í mörgum tilfellum má segja að grindarbotnsæfingar og blöðruþjálfun geti átt stóran þátt í að meðhöndla þvaglekavandamál. En þegar læknir hefur greint vandamálið, getur verið að hann leggi til önnur meðferðarúrræði.
Gott að vita
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) aðstoða fólk sem á við þvagleka að etja með því að greiða niður hjálpargögn. Þá er sá háttur hafður á að eigi einstaklingur við þvagleka að stríða, ber honum að snúa sér til síns læknis sem greinir hvers eðlis þvaglekinn er og hvort hægt sé að ráða bót á honum. Læknirinn sendir umsókn til Sjúkratrygginga Íslands um hjálpargögn vegna þvagleka til skemmri eða lengri tíma. Þegar umsóknin hefur verið samþykkt fær viðkomandi bréf frá SÍ sent heim.