Sóknarfæri Mars 2017
Frumkvæði og fagmennska í íslenskum sjávarútvegi
Nýsmíðabyltingin
hafin í togaraflotanum Kræklingarækt stefnir í metár Nýr sjávarútvegsráðherra vill sanngirni og sátt um greinina Stutt og kröftug loðnuvertíð
2 | SÓKNARFÆRI
Bylting í sjávarútvegi
Jóhann Ólafur Halldórsson ritstjóri skrifar.
Óhætt er að tala um að bylting sé að eiga sér stað í fiskiskipaflotanum um þessar mundir, eins og talsvert er fjallað um í þessari útgáfu blaðsins Sóknarfæri í sjávarútvegi. Ný skip hafa bæst í uppsjávarflotann á síðustu árum og ávinningur þess birtist m.a. í þeirri afkastagetu sem flotinn hafði þegar verkfalli lauk á dögunum og stuttur tími var til stefnu að ná útgefnum loðnukvóta. En þó ber að hafa í huga að veðurguðirnir voru líka óvenju hliðhollir loðnusjómönnum, loðnutorfur þéttar og varla að úr félli dagur frá veiðum. Síðustu mánuðir hafa enn og aftur sýnt fram á hversu mikið lotterí loðnuveiðarnar eru. Ekkert benti til loðnuveiða eftir stofnrannsóknir í haust, staðan varð eilítið skárri eftir nýjar mælingar strax eftir áramót en allt breyttist við nýjan mælingarleiðangur þegar kom fram í byrjun febrúar. Og svo tala sjómenn um eina bestu loðnuvertíð á háa herrans tíð, nú þegar vertíðin er á enda.
Alls koma níu ísfisktogarar nýsmíðaðir til landsins á árinu og einn frystitogari, gangi allar áætlanir eftir. Togaraflotinn mun gjörbreytast við þetta. Á svo margan hátt. Eitt er að horfa til þess hversu gömul þessi atvinnutæki okkar eru orðin. Meðalaldur togara náði 30 árum árið 2015 og hefur staðið í stað síðan þá. Mun þá væntanlega lækka á nýjan leik þegar þessi nýju skip bætast í flotann, sem yrði fyrsti viðsnúningur í meðalaldursþróun fiskiskipaflotans í yfir 20 ár. Við tölum á tyllidögum um mikilvægi atvinnugreinarinnar sjávarútvegs en líkast til er óvíða hægt að finna greinar sem byggja á jafn gömlum atvinnutækjum í grunninn. Vissulega verður líka að halda því til haga að útgerðir hafa haldið þessum gömlu fiskiskipum vel við. En engu að síður eru erfitt að fylgja eftir þróun í svo langan tíma með gömlum skipum. Þar má nefna þætti eins og vélbúnað og orkunýtingu, nýjustu þekkingu í skrokkhönnun út frá sjóhæfni og orkusparnaði og þannig mætti
áfram telja. Vissulega er hér um að ræða tugmilljarða fjárfestingu í heild en um leið mikinn ávinning. Mikil þróun er að eiga sér stað í meðferð afla úti á sjó, sem sérstaklega hefur að markmiði að auka gæði ferskra sjávarafurða, unnum í landi. Það er önnur hlið á þeirri miklu byltingu sem nýju ísfisktogararnir eru. Mikil þróun er að eiga sér stað í kælingu, meðferð og frágangi afla og hugsunin snýst um allt ferlið; frá veiðum þar til afurðin er komin heim í eldhús neytandans erlendis eða í hendur matreiðslumanna veitingahúsa. Breytingar verða á vinnuaðstæðum áhafna skipanna, tækni og sjálfvirkni stóreykst. Það er nánast sama hvert litið er þegar farið er um borð í þessi skip – alls staðar má sjá nýjungar; framþróun. Og það sem meira er; stór hluti tækniframfaranna í skipunum á rætur sínar að rekja í íslenskt hugvit og innlend tækniog þjónustufyrirtæki. Það skiptir svo sannarlega máli.
Tíu nýir togarar til landsins í ár Ársins 2017 mun án efa verða lengi minnst í íslenskri útgerðarsögu. Aldrei hafa jafn margir nýsmíðaðir togarar komið til landsins á einu ári en fari sem horfir koma allir nýju togararnir heim áður en árið er úti, 10 skip alls.
Engey fyrst þriggja togara HB Granda Fyrsti ísfisktorarinn af þremur samskonar fyrir HB Granda hf., Engey RE 91, kom til landsins í janúar síðastliðnum og hélt þegar í stað til Akraness þar sem er verið að setja vinnslu- og lestarbúnað í skipið. Líkt og fjallað er um á öðrum stað í blaðinu er reiknað með að skipið haldi til veiða í aprílmánuði. Í vor er reiknað með næsta skipi fyrir HB Granda, sem ber nafnið Akurey AK og það þriðja er væntanlegt í árslok og heitir Viðey RE. Eins og áður segir eru þetta samskonar skip, smíðuð í Celiktrans skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Skipin eru tæplega 55 metrar metrar að lengd og 13,5 metra breið. Skipin hannaði Nautic ehf. Nýsmíðar til Dalvíkur, Akureyrar og Sauðárkróks Á dögunum tók Útgerðarfélag Akureyringa á móti nýjum Kaldbaki EA 1 sem er fyrsti ísfisktogarinn af fjórum samskonar sem Samherji hf. og FISK Seafood á Sauðárkróki sömdu um smíði á við Cemre skipasmíðastöðina í Tyrklandi. Næsta skip í þessari röð verður Björgúlfur EA sem kemur í stað núverandi Björgúlfs EA á Dalvík. Skipið er væntanlegt í vor eða snemmsumars. Í haust er síðan væntanlegt þriðja skipið í þessari röð sem heita mun Drangey SK og er í eigu FISK Seafood á Sauðárkróki. Fjórða skipið sem er í eigu Samherja hf. er síðan áætluð í heimahöfn fyrir árslok. Þetta eru samskonar skip, 63,5 metra löng og 13,5 metra breið. Skipin voru hönnuð af Skiptatækni ehf.
Frystitogarinn Sólberg ÓF 1 er stærsta skipið sem nú er í smíðum fyrir Mynd: skoger123.is íslenskar útgerðir.
Svona kemur Breki VE til með að líta út fullkláraður.
Hnífsdal. Þetta eru 50 metra löng skip og 13 metra breið, hönnuð með óvenju stórri skrúfu miðað við skrokkstærðina. Togararnir verða búnir þremur rafdrifnum togvindum og geta dregið tvær botnvörpur samtímis. Heimsigling skipanna mun taka yfir 40 sólarhringa og eftir að heim kemur bíður þeirra lokaáfangi smíðanna, sem er niðursetning vinnslubúnaðar. Skipin eru hönnuð hjá Skipasýn ehf.
Systurskipin Breki VE og Páll Pálsson ÍS í smíðum í Kína. Prufusigling er áformuð nú um helgina.
Breki og Páll Pálsson í Kína Í Huanghai skipasmíðastöðinni í Shidao í Kína eru tveir samskonar
Sóknarfæri
Frumkvæði og fagmennska í íslenskum sjávarútvegi
ísfisktogarar í smíðum sem reiknað er með að komi til landsins í sumar. Um er að ræða Breka VE fyrir
Útgefandi: Athygli ehf. Útgáfustjóri: Valþór Hlöðversson (ábm). Umsjón, textavinnsla og umbrot: Athygli ehf. Auglýsingar: Augljós miðlun. Sími 515-5206. GSM 898-8022, inga@athygli.is Suðurlandsbraut 30, Reykjavík
Mynd: Finnur Kristinsson
Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum og hins vegar Pál Pálsson ÍS fyrir Hraðfrystihúsið Gunnvöru í
Prentun: Landsprent ehf. Dreift með prentaðri útgáfu Morgunblaðsins föstudaginn 17. mars 2017.
Frystitogarinn Sólberg stærstur Tíunda skipið, það stærsta og mest búna, er frystitogarann Sólberg ÓF 1. Skipið er í eigu Ramma hf. í Fjallabyggð og er smíðað í Tyrklandi. Áformað er að það komi til landsins nú í vor. Sólberg er 80 metra langt, 15,4 metra breitt og hefur frystigetu upp á 90 tonn á sólarhring. Í lest skipsins komast 1200 tonn af afurðum en í því verður einnig mjölvinnsla. Þetta verður í fyrsta sinn svo vitað sé að frystitogari verði búinn vatnsskurðarvél auk flakavinnslulínu og annars búnaðar sem fullbúið vinnsluskip á borð við þetta krefst. Sólberg ÓF 1 er hannað af Skipsteknisk AS í Noregi.
SÓKNARFÆRI | 3
Búðu þig undir ferska framtíð Það er sama hvað grunnhugmyndin er einföld og þekkingin djúp: Til að byggja upp fyrirtæki þarf trausta samstarfsaðila sem trúa á það sem þú ert að gera.
Arion fyrirtækjaþjónusta
Alda Agnes Gylfadóttir framkvæmdastjóri Einhamar Seafood í Grindavík
1989
„Þegar ég byrjaði var allt fryst, allir frystar landsins fullir og það tók einhverjar vikur að koma fiskinum á markað.“
2017
H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A – 1 6 - 2 6 2 9
„Hjá okkur er ekki framleitt eitt einasta flak sem ekki er búið að panta. Fiskurinn er kominn til neytanda í Boston 36 tímum eftir löndun.“
4 | SÓKNARFÆRI
Þorlákshöfn-Rotterdam
Ný flutningaleið opnar um mánaðarmótin „Nú fer að styttast í að reglubundnar fraktsiglingar hefjist frá Þorlákshöfn til útlanda en Mykines, 19 þúsund tonna flutningaferja Smyril Line Cargo, er væntanleg til Þorlákshafnar frá Rotterdam 31. mars nk. Þar með verður brotið blað í flutningasögu Íslendinga og reglubundnar fraktsiglingar hafnar héðan til meginlands Evrópu. Við erum stolt og ánægð með þessi miklu kaflaskil og albúin að veita þá þjónustu hér á svæðinu sem þetta krefst,“ segir Hjörtur B. Jónsson, hafnarstjóri í Þorlákshöfn. Breytingar hafa staðið yfir á hafnarsvæðinu í Þorlákshöfn síðustu mánuði til að gera höfnina betur í stakk búna að taka við þessu nýja hlutverki. Hefur verið unnið ötullega frá morgni til kvölds til að tryggja að öllum undirbúningi verði lokið áður en vöruflutningaferjan Mykines hefur siglingar milli Rotterdam og Þorlákshafnar um mánaðamótin mars og apríl.
Glæsileg stórskipahöfn „Þegar þessum framkvæmdum lýkur verðum við mjög vel í stakk búin til að taka á móti stærri skipum,“ segir Hjörtur. „Meginþungi framkvæmdanna hefur annars vegar hvílt á herðum Björgunar, sem
tengivagna og 500 bíla í hverri ferð. Verið er að reka niður stálþil og steypa ramp svo hægt verði að aka bílum og flutningavögnum um borð í ferjuna og frá borði. Samhliða þessu er einnig unnið við að útbúa tollvörusvæði hafnarinnar, girða það af eins og lög og reglur kveða á um og koma fyrir eftirlitsmyndavélum og öðrum nauðsynlegum búnaði. Mykines er allstórt skip, ríflega 138 metra langt, um 19 þúsund tonn og getur flutt 90 tengivagna og 500 bíla í hverri ferð.
Það er fagurt um að litast í Þorlákshöfn; víðáttumikið útsýni til allra átta, gnægð lóða og fagurt mannlíf í þróttmiklu bæjarfélagi.
sér um dýpkunarframkvæmdir og hins vegar Suðurverks, sem annast alla vinnu frá landi. „Undanfarið hefur Suðurverk verið að sprengja og fjarlægja svokallaða Norðurbryggju en verkefni Björgunar hefur einkum falist í að dýpka höfnina inn að fiskvinnslunni Frostfiski. Að þessum framkvæmdum loknum verðum við komin með um 230 metra snúningssvæði sem gerir stórum flutningaskipum kleift að athafna sig innan hafnarinnar.“ Framkvæmdir við að bæta aðstöðu fyrir ferjuna Mykines við Skarfaskersbryggju eru einnig á lokastigi og allt verður tilbúið þegar hún leggst að bryggju þann 31. mars nk. Mykines er allstórt skip, ríflega 138 metra langt, um 19 þúsund tonn og getur flutt 90
Byggt upp til framtíðar „Við erum auðvitað að byggja okkur upp til framtíðar með þessum framkvæmdum og teljum okkur bjóða upp á mjög áhugaverða þjónustu við flutninga á sjó,“ segir Hjörtur. Hann segir að stígandi hafi verið í vöruflutningum til og frá Þorlákshöfn á síðustu misserum, m.a. með vikur og svartan sand til steinullarframleiðslu og aukin umsvif fyrirséð með vikulegum siglingum Smyril Line Cargo. „Það verður bara frábært að fá enn betri nýtingu á hafnarmannvirkin okkur hér í Þorlákshöfn og við horfum björtum augum til framtíðarinnar. Hér er gnægð lóða fyrir atvinnustarfsemi í tengslum við uppbyggingu hafnarsvæðisins og góðar samgöngur til allra átta.“ olfus.is
Allt fyrir ferskleikann 60 x 40 kassalínan frá Tempru er hagkvæmari, sterkari og veitir lengra geymsluþol 10, 13 og 15 kg línan er þannig hönnuð að hún viðheldur ferskleika matvöru lengur en sambærilegar umbúðir. Kostir nýju kassanna eru eftirtaldir: aukin lengd og rúmtak leiða til betri meðferðar á afurðum stærð kassanna er 60 x 40 sm og staflast þeir betur á vörubrettin vegna aukins styrks er hægt að stafla í hærri stæður en áður lengri fiskflök raðast betur innan kassa meira rými er fyrir ís eða kælimottur rúnnuð hornin auka einangrun og lengja geymsluþol breytt hönnun á hornum gerir kassana sterkari en áður betri einangrun næst með þéttari stöflun á bretti Temprukassarnir eru undirstaða þess að íslenskur fiskur kemst ferskari til neytenda um allan heim.
21 20 19 18 17 16 15 14 13 12 11 10 9 8 7 6 5 4 3 2 1 0
Fiskur EPS
Hitastig (°C)55mm mm fyrir ofan Hitastig (°C) fyrir ofan botnbotn 60x40nýja cm 60x40 cm 10 kg kg kassans viðvið 20 20 °C °C umhverfishita. 10 kassanseftir eftir6 6klst. klst. umhverfishita.
einangrun – umbúðir
TEMPRA EHF • Íshella 8 • 221 Hafnarfjörður • Sími: 520 5400 • tempra@tempra.is • www.tempra.is
SÓKNARFÆRI | 5
Til hamingju með nýjan Kaldbak EA Landsbankinn óskar eigendum og starfsfólki Útgerðarfélags Akureyringa innilega til hamingju með nýjan Kaldbak EA. Hjá Landsbankanum starfar öflugur hópur sérfræðinga með mikla reynslu sem aðstoðar þig við að koma hugmyndum í framkvæmd. Við tökum virkan þátt í uppbyggingu í sjávarútvegi og erum traustur bakhjarl og samstarfsaðili.
Landsbankinn
landsbankinn.is
410 4000
6 | SÓKNARFÆRI
Mesta nýsköpun í ísfisktogurum á Íslandi hingað til Rætt við Alfreð Tulinius, skipatæknifræðing og hönnuð Engeyjar RE-91
Alfreð Tulinius, skipatæknifræðingur hjá Nautic ehf.
Mynd: Guðmundur Arnar Alfreðsson.
„Þessir nýju ísfisktogar eru bylting í íslenskum sjávarútvegi – ekkert minna en það. Í mínum huga má líkja þessu saman við það þegar frystihúsa- og skuttogaravæðingin gjörbreytti sjávarútvegi á Íslandi á sínum tíma. Í sögunni hefur aldrei verið stigið jafn stórt skref hér á landi í nýsköpun í ísfisktogurum og meðhöndlun ferskfisks,“ segir Alfreð Tulinius, skipatæknifræðingur hjá Nautic ehf., hönnuður togarans Engeyjar RE og systurskipa sem væntanleg eru til HB Granda. Bæði hafa Engey RE og nýtt skip Útgerðarfélags Akureyrar, Kaldbakur EA, vakið athygli hjá almenningi fyrir skrokkhönnunina og kúlulaga stefni en hönnuðir skipanna tveggja hafa undanfarin ár fylgst að í þróun þessarar hugmyndafræði.
Eingöngu kostir við nýja skrokklagið „Samherjafrændur, þeir Þorsteinn Már og Kristján, eiga stóran þátt í því að hafa hvatt okkur til að halda áfram í þróun á perustefninu sem Bárður Hafsteinsson hjá Skipatækni kom fram með árið 1985. Það skipti miklu máli því menn eru ekki móttækilegir fyrir miklum útlitsbreytingum á skipum en ávinningur af þessum breytingum er verulegur,“ segir Alfreð. „Við þetta stefni og hönnun er enginn ókostur, hvorki í vindi og erfiðum aðstæðum, ekki fyrir stöðugleika og þannig má lengi telja. Í hönnuninni byggjum við upp flot í framskipinu hægar en áður, leyfum skipinu að fara aðeins meira í ölduna en það kemur líka hægar upp úr henni líka. Munurinn á þessu og hefðbundnu skipsformi þar sem þú ert með litla peru og
Hönnuður Engeyjar segir eingöngu kosti fylgja þessari nýju skrokkhönnun sem birtist í þessu skipi, sem og fleirum sem nú eru að bætast í fiskiskipaflotann.
útsleginn bóg þar fyrir ofan er sá að að hér fær Arkimedes að vinna sína vinnu hægt og rólega og skila skipinu upp úr öldunni. Í hinu tilfellinu erum við með minna særými neðarlega í skipinu, en ennþá meiri og brattari aukningu þegar ofar degur og þá virkar það eins og Arkimedes á sterum, ef svo má segja. Og þá gerist það að skipin fara að berjast við sjóinn, kasta honum frá sér og
í það fer mikil orka. Þegar fólk horfir á skip sigla á móti öldu og kasta henni frá sér finnst mörgum það mjög tignarleg sjón en það þykir okkur skipahönnuðunum ekki glæsilegt. Við vitum að þá eru skip að tapa siglingarhraða og þurfa meiri orku en ella væri. Þegar við horfum á Engey RE í þessum aðstæðum þá fer sjórinn upp á stefnið og síðan hægt og rólega út af því. Þetta er það
sem við vorum að sækjast eftir,“ útskýrir Alfreð.
Stærsti róbót í fiskiskipi á Íslandi Verulegur ávinningur annar er af nýja skrokklaginu. Hægt er að staðsetja brúna hlutfallslega aftar á skipinu og viðhalda samt góðu útsýni framfyrir skipið, sem Alfreð segir mikinn kost. Meira rými verður
SÓKNARFÆRI | 7
FPT báta- og skipavélar Nútímatækni - Mikið afl - Góð eldsneytisnýting - aðalvélar í báta og skip
FTP tvisvar verið með “DIESEL OF THE YEAR”
Tí Tímaritið Diesel valdi Cursor 16-díselvélina sem DIESEL OF THE YEAR ® 2014. „Diesel hefur í tuttugu ár fjallað um málefni sem tengjast þróun, framleiðslu og notkun díselvéla í Evrópu og verðlaunin staðfesta þann árangur í rannsóknum og nýsköpun sem við byggjum á,“ sagði Massimo Siracusa, aðstoðarforstjóri framleiðslu hjá FPT.
Floscan eyðslumælar fyrir díselvélar Marsili hefur framleitt stýrisdælur í meira en 50 ár og bjóða þær fyrir bæði 12 og 24 volta spennu. Gæðavara á góðu verði.
Halyard hljóðkútar og pústlagnir Tidesmarine öxulþétti með varapakkdós
- hlutlaust gagnvart raftæringu - sjókæling á pakkdós og legu - engir hreyfanlegir hlutir - ryðgar ekki
Halyard framleiða hljóðkúta sem geta minnkað hávaða um 40% með hefðbundnum hljóðkút, um 70% með tvöföldum hljóðkút og allt að 90% með vatnsblöndun í hljóðkút.
Whale og Cim lensidælur Öflugar 24 volta CIM dælur úr níðsterku og sjóþolnu plasti með afköst upp á 13.200 l/klst og lyftihæð upp á 8 metra.
Ambassador skrúfuhnífar minnka tæringu
Ambassador skrúfuhnífarnir eru ekki bara hnífur til að skera bönd og kaðla af skrúfuöxlum, því hönnunin minnkar einnig tæringu á skrúfublöðunum. Hnífurinn er með straumgöng sem beina sjóstraum að blöðunum sem splundra loftbólunum sem myndast.
Tecnoseal sink í mörgum stærðum
Aflmiklar og hraðvirkar Whale lensidælur. Stíflast ekki og engin þörf á síu. Hönnun sem byggir á áratuga reynslu
BT Marine báta- og skipaskrúfur
BT Marine er leiðandi í hönnun og framleiðslu á skrúfum, öxlum og stefnisrörum. Skrokklag skipa og báta er mismunandi og þess vegna þarf að velja góðan skrúfubúnað til að hámarka nýtingu á vélarafli.
Helac snúningsliðir fyrir lúgur
Umboðsaðilar á landsbyggðinni:
ÁSAFL
Hjallahrauni 2 - 220 Hafnarfjörður Sími 562 3833 -www.asafl.is
8 | SÓKNARFÆRI
Engey RE er nú við bryggju á Akranesi þar sem unnið er að niðursetningu vinnslulínu og Mynd: Guðmundur Arnar Alfreðsson. lestarkerfis sem ekki á sér hliðstæðu.
Tilfærsla á fiskikörum í lest Engeyjar RE verður algjörlega sjálfvirk. Hér er unnið að uppsetningu kerfisins. Mynd: Guðmundur Arnar Alfreðsson.
framskips fyrir grandaravindur, geymslurými og fleira. Óhætt er að segja að á lykilsvæðum í Engey RE, vinnsluþilfari og lest, verði gjörbreyting frá því sem verið hefur í ísfisktogurum hér á landi hingað til. Tæknifyrirtækin Skaginn 3X, Kælismiðjan Frost og fleiri hafa þróað vinnslukerfi sem byggir á undirkælingu aflans, eða öðru nafni ofurkælingu. Fyrsta skipið til að reyna þessa tækni var togarinn Málmey en í stuttu máli er ferlið þannig að eftir slægingu og þvott á fiskinum fer hann í gegnum tegunda- og stærðargreiningu í myndbúnaði og þaðan í flokkun og þrepaskipta kælingu. Eftir síðasta þrep kælingarinnar fer aflinn í fiskiker, 300 kg skammtur í hvert, og áfram íslaus í lest þar sem haldið er -0,1 gráðu kulda í fiskholdinu. Engey RE mun að því leyti verða í fararbroddi ísfisktogara í heiminum að í lest
aðalatriðið að hún skili fiski til vinnslu sem er hráefni í hæsta gæðaflokki, enn betra en áður og með því er lagður grunnur að verðmætari afurðum til útflutnings. „Við erum alltaf að keppa við dauðastirðnunarferlið og í Engey RE erum við að vinna út frá lausn sem gerir kleift að skila vöru til neytenda erlendis enn ferskari en hægt var áður. Við lengjum þar með líftíma vörunnar – sem er mjög mikilvægt,“ segir Alfreð. Nefna má ýmsa aðra áhugaverða þætti í hönnun Engeyjar. Engar súlur eru á vinnsluþilfari né í lest og aðveldar það alla úfærslu búnaðar. Allar íbúðir eru bakborðsmegin í skipinu og það er gert til að skilja betur á milli vinnuumferðar og svefnsvæða til að viðhalda næði á hvíldarsvæði. „Af nýjungum í vélbúnaði má nefna að hugbúnaður vinnur út frá bestunarforsendum hvað varðar togspil, skrúfu og aðalvél. Búnaðurinn stillir sig þannig sjálfur
skipsins þarf engan starfsmann! Allur fiskur er settur í ker á vinnsluþilfari en hleðslustöðvarnar eru átta, sem eru mannaðar eftir þörfum. Fimm ker staflast í hverja hæð og þegar því er náð ýtir sjálfvirkur þjarkur kerastæðunni inn í sína hleðslurás í lestinni. Sama brautarkerfi nýtist síðan við löndun úr skipinu. Í heild komast 635 kör í lestina í Engey, eða sem nemur 190 tonnum af fiski. „Hugmyndafræðin að þessari nálgun á lestarkerfi kom upphaflega frá Guðmundi Hafsteinssyni hjá HB Granda en síðan hefur lausnin verið tæknilega útfærð í samstarfi við Skagann 3X ehf. sem bæði framleiðir búnaðinn og vinnur nú að uppsetningu hans. Lestarkerfið er stærsti róbót sem komið hefur verið fyrir í íslenskt fiskiskip hingað til,“ segir Alfreð.
Grunnur að betri afurðum En þó tæknin sé áhugaverð sem slík er
á bestu nýtingu orku eftir því hvort skipið er að veiðum eða á siglingu. Ég er lítið fyrir fullyrðingar um orkusparnað en get þó engu að síður sagt að í þessari tæknilausn felst umtalsverður orkusparnaður,“ segir Alfreð.
Íslenskt hugvit og lausnir Nýjustu og bestu tækni er að finna í brú hvað varðar fiskileitar- og siglingatækni. Á skjávegg geta skipstjórnendur unnið með forritsmyndir eftir þörfum en þessi búnaður kemur frá Brimrún. Rafmagnsspil eru á skipinu frá Naust Marine ehf. „Tækninýjungar er að finna í Engey hvert sem litið er og eitt það ánægjulegasta við þetta verkefni er hversu stór þáttur íslenskra fyrirtækja er í búnaði og lausnum í skipinu,“ segir Alfreð Tulinius. nautic.is
Afltækni óskar útgerð og áhöfn Engeyjar RE til hamingju með nýtt og glæsilegt skip
SÓKNARFÆRI | 9
Aflamverðmæti fiskaflans minnkar Samkvæmt samantekt Fiskistofu nam aflaverðmæti í nóvember síðastliðnum 10,2 milljörðum króna og er það samdráttur um 16,8% frá nóvember árið 2015. Gengisþróun er því að koma fram af umtalsverðum þunga þar sem um samdrátt í verðmæti er að ræða í öllum tegundaflokkum. Stærstur hluti aflaverðmætisins er í botnfiski og var í nóvember 7,7 milljarðar króna. Það er samdráttur um 14,2% frá fyrra ári. Uppistaðan í verðmæti botnfiskaflans var þorskur en verðmæti hans nam 5,5 milljörðum sem er 2,6% minna en í nóvember 2015. Verðmæti uppsjávarafla dróst einnig saman á milli ára, nam tæpum 1,9 milljörðum sem er 21,2% minna en í nóvember 2015. Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 25,5% og nam 522 milljónum króna í nóvember. Aflaverðmæti skelfisks dróst saman um 50,8% og nam um 88 milljónum samanborið við
tæpar 179 milljónir í nóvember 2015. Á 12 mánaða tímabili, þ.e. frá desember 2015 til nóvember 2016, sýna tölur Hagstofu Íslands að aflaverðmæti hafi verið 134,9 milljarðar króna. Það er 10,5% samdráttur miðað við sama tímabil
ári fyrr. Verðmæti botnfiskafla dróst saman um 7,4 milljarða á milli tímabila. Verðmæti uppsjávartegunda dróst einnig saman á milli þessara 12 mánaða tímabila, vegur þar þyngst 7,7 milljarða samdráttur á verðmæti loðnuafla.
Verðmæti þorskaflans í nóvember síðastliðnum var 2,6% minna en í sama mánuði 2015.
HÁGÆÐA
HRÁEFNI ÞARFNAST HÁGÆÐA VINNSLU
Lopu Des Mers er af gerðinni Cleopatra 33.
Trefjar selja bát til Frakklands Á dögunum afgreiddu Trefjar nýjan Cleopatra bát til Noirmoutier á vesturströnd Frakklands. Að útgerðinni stendur Christophe Corbrejaud sem jafnframt er skipstjóri á bátnum. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið „Loup Des Mers“. Hann er 11 brúttótonn og af gerðinni Cleopatra 33. Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C90 tengd ZF286IV gír. Siglingatæki eru frá Furuno og Simrad. Báturinn er útbúinn til línuveiða og fyrir lítið troll til veiða á lifandi beitu sem notuð er við línuveiðarnar. Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking. Rými er fyrir 12 stk 380 lítra kör í einangraðri lest. Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp. Tveir menn eru í áhöfn. Samkvæmt upplýsingum útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Noirmoutier allt árið en reiknað er með að hann hefji veiðar nú um miðjan marsmánuð.
Meðhöndlun og vinnsla geta skipt sköpum fyrir gæði afurðarinnar. Háþróaður tækjaog hugbúnaður frá Marel er hannaður til að hámarka afköst, gæði og nýtingu á hráefni. Fáðu nánari upplýsingar eða bókaðu fund með sérfræðingum okkar á Seafood Processing Global 2017 í Brussel á marel.com/brussels2017 Skráðu þig frítt á sýninguna með VIP kóðanum: 204711 á seafoodexpo.com/global
10 | SÓKNARFÆRI
Ný Engey RE 91 á veiðar í apríl
Fyrsti togari heims með mannlausa lest Engey RE 91, fyrsti ísfisktogarinn af þremur sem HB Grandi hf. lætur smíða fyrir sig í Celiktrans skipasmíðastöðinni í Tyrklandi, kom til landsins í janúar. Togararnir þrír eru nákvæmlega eins og koma hingað til lands frágengnir að öðru leyti en því að eftir er að setja niður vinnslubúnað á milliþilfar og lestarkerfi en sú nýjung er í þessum skipum að sjálfvirkt kerfi í lestinni sér um lestun hennar. Því er ekki þörf á mannshönd í lestinni á meðan á veiðiferð stendur en Engey RE verður fyrsti togarinn sem vitað er um í heiminum með algjörlega sjálfvirka lest og mannlausa. Auk heldur verður skipið með vinnslubúnað til undirkælingar á afla, öðru nafni ofurkælingu, og er þá afli frágenginn í kör í lestina án þess að notast sé við ís, eins og hefðbundið hefur verið fram að þessu. Þetta er tækni sem fyrirtækið Skaginn 3X á Akranesi hefur þróað en þar er nú unnið að niðursetningu búnaðarins í Engey. Þess er vænst að skipið haldi á veiðar í aprílmánuði.
Allt það besta í búnaði Engey RE 91 er rúmlega 55 metrar að lengd og 13,5 á breidd. Ganghraði skipsins er 13 hnútar og hef-
Engey RE verður fyrst á veiðar nýju togaranna sem nú bætast í flotann hver á fætur öðrum. Nýjungar og tæknilausnir er að finna nánast hvert sem litið er um borð.
ur það 45 tonna togkraft. Fiskvinnslusvæði er 265 fermetrar en lest rúmar 635 ker, 440 lítra. Lestin tekur um 190 tonna afla. Aðalvél skipsins er 1795 kW en skipið er búið aðal- og ljósavélum og
skrúfu frá MAN. Umboðsaðili hér á landi er Afltækni ehf. Allt vindukerfi skipsins er rafmagnsknúið og er sá búnaður frá Naust Marine. Hvað mestu tímamótin í þessu nýja skipi, frá því algengast hefur
Óskum HB Granda og áhöfn Engeyjar RE 91 til hamingju með nýtt og glæsilegt skip.
Engey RE er fyrsti togarinn af þremur sem HB Grandi fær nýsmíðaða frá Tyrklandi á þessu ári.
– Veiðarfæri eru okkar fag
verið er í útfærslu ísfisktogara, felast í búnaði á vinnsluþilfari og áðurnefndu sjálfvirku lestarkerfi fyrir fiskikörin. Um að ræða blóðgunarog slægingarlínu, tegunda- og stærðarflokkun, Rotex kælikerfi og fleira. Allur er búnaðurinn smíðaður hjá Skaganum 3X en sú nýbreytni fylgir þessu kerfi að frá öllum afla er gengið í kör á stöðvum á vinnsluþilfari í stað þess að það sé gert í lest eins og almennt hefur
tíðkast. Kælibúnaður skipsins er frá Kælismiðjunni Frost ehf. Skipið er einnig búið tromluvél til framleiðslu á ís og því er hægt að velja mismunandi leiðir til kælingar afla eftir því sem hentar hverju sinni. Framleiðslugeta á flöguís er um 10 tonn á sólarhring. Myndavéla- og öryggiskerfi í skipinu er frá Nortec ehf. og fiskileitar-, siglinga-, fjarskiptatæki og fleira í brú kemur frá Brimrún ehf.
SÓKNARFÆRI | 11
Friðleifur Einarsson, skipstjóri, var ánægður með reynsluna af Engey á heimsiglingunni frá Tyrklandi í janúar. Hann kemur með áhöfn sína af Ásbirni RE yfir á Engey.
Þá hafði Sérefni ehf. með höndum málningu skipsins. Engey RE verður búin nemakerfi frá Marport ehf. Nautic ehf. hannaði skipið.
Koma í stað 40 ára gamalla skipa „Niðursetning búnaðar í Engey hefur gengið vel síðustu vikurnar en þetta er mikið verk, eins og vitað var fyrirfram. Við miðum við að skipið komist á veiðar í aprílmánuði eftir að við höfum tekið á móti því fullbúnu og frágengnu. Þetta eru mikil tímamót fyrir okkur hjá HB Granda,“ segir Birkir Hrannar Hjálmarsson, útgerðarstjóri ísfiskskipa fyrirtækisins. Allir verða þessir þrír nýju ísfisktogarar HB Granda hf. útfærðir með sama hætti hvað varðar vinnslubúnað og sjálfvirkt lestarkerfi. Birkir segir reiknað með að
Akurey AK leggi af stað heim á leið frá Tyrklandi í byrjun júní og Viðey RE kemur til landsins í árslok. Líkt og Engey halda skipin beint til Akraness þar sem vinnslukerfin verða sett niður. En útheimtir tilkoma þessara skipa og ofurkæling um borð í þeim sérstakar breytingar í landvinnslu HB Granda? „Við erum þessa dagana að gera breytingar í móttöku hjá okkur og stækka kælirýmið, sem tengist komu nýju skipanna. En við komum til með að taka þetta skref fyrir skref. Fyrst um sinn reiknum við með að gera Engey RE út með hefðbundinni ískælingu á meðan eldri skipin eru enn í rekstri. Breytingarnar yfir í ofurkælingu aflans munu síðan verða eftir því sem við fáum nýju skipin inn í rekstur á þessu ári og því næsta. Við gerum ráð fyrir að snemma
Lestarkerfið í Engey er sú nýjung sem vekur hvað mesta eftirtekt enda fyrsta skipið í heiminum með sjálfvirka og þar með mannlausa lest.
vors 2018 verði öll nýju skipin þrjú komin í rekstur hjá okkur og samhliða komu þeirra hverfa þrjú eldri skip úr rekstri, þ.e. Ásbjörn RE 50, Ottó N. Þorláksson RE 203 og Sturlaugur H. Böðvarsson AK 10,“ segir Birkir en Ásbjörn RE er elstur þessara togara, smíðaður 1978 en hinir tveir árið 1981.
Tryggir jafnara hráefnisflæði Birkir segir miklu skipta fyrir ísfisktogaraútgerð fyrirtæksins að hafa á að skipa samskonar skipum. „Togararnir verða á sömu veiðum fyrir vinnsluna í landi og þegar þeir eru eins búin oqg hafa sömu burðargetu á afla fæst bæði jafnara hráefni og flæði til vinnslunnar. Þetta eru mun stærri skip en þau sem hverfa úr rekstri og hafa hliðstæða burðargetu og togarinn Helga
Hamingjuóskir
María sem er fjórða ísfiskskipið okkar. Þetta eru lykilatriði í svona útgerð,“ segir Birkir en skipin veiða þorsk, karfa og ufsa í nokkuð jöfnum hlutföllum. Veiðiferðir eru að jafnaði 3-5 dagar. Eins og áður segir verður sjálfvirknin í lest Engeyjar algjör nýjung á heimsvísu. Sú sjálfvirkni og mörg önnur atriði sem snerta vinnuaðstæður áhafnarinnar og aðbúnaðinn um borð segir Birkir mikilvægustu breytinguna sem nýju skipunum fylgir. „Frá mínum bæjardyrum séð er aðbúnaður áhafnarinnar það sem fyrst ber að nefna. Það er talsverð slysahætta í vinnu í fiskilestum og mjög mikilvægt að geta skipt því starfi út fyrir sjálfvirkan búnað. Vinna á trolldekki hefur líka þróast út frá lágmörkun slysahættu og þannig má áfram telja. Markmiðið
til HB Granda hf. og áhafnar með Engey RE-91
Megi gæfa og gjörvileiki fylgja skipinu, um alla tíð.
er að útfæra vinnustaðinn sem allra best fyrir þá sem starfa og búa um borð,“ segir Birkir.
Mikil breyting frá Ásbirni RE Við komu Engeyjar RE til sagði Friðleifur Einarsson, skipstjóri á Engey RE 91, að ólíku væri saman að jafna fyrir hann og áhöfn sína á Ásbirni RE að fara yfir á þetta nýja skip. „Það er allt önnur aðstaða hér um borð en maður hefur vanist í gegnum tíðina. Aðbúnaðurinn er allur margfalt betri fyrir áhafnarmeðlimina og svo er Engey auðvitað stórt og mikið skip. Það hefur áhrif á marga þætti,“ segir Friðleifur og bætti við að það sé tilhlökkunarefni að reyna skipið á miðunum þegar nær dregur vorinu.
12 | SÓKNARFÆRI
Metnaðarfull hönnun hjá NAVIS
Línubátur knúinn íslenskri orku NAVIS hefur í samstarfi við fleiri íslensk fyrirtæki undanfarið hálft annað ár unnið að hönnun á fyrsta hybrid línubátnum í heiminum. Ef af smíði verður mun báturinn verða knúinn áfram með raforku frá stórum rafhlöðum og auk þess búinn lítilli og eyðslugrannri aflvél til notkunar þegar orkuþörfin er meiri en rafhlöðurnar duga til. Orkukostnaður við útgerðina gæti lækkað um 50% og þar með kolefnisfótsporið. Hægt er að fullhanna bátinn innan tveggja ára og smíði hans getur þá hafist. „Þessi hugmynd hefur verið í gerjun hjá okkur undanfarin misseri en hún gengur í stuttu máli út á að hanna frá grunni línubát, allt að 15 m, sem væri knúinn með með tvinnafli frá rafhlöðum og lítilli aðalvél er gengi fyrir metonóli. Rafhlöðurnar yrðu hlaðnar frá rafkerfi hafnarinnar þegar báturinn er við landfestar en við stefnum einnig á að síhlaða þær af sólar- og vindorku, bæði á sjó og í höfn. Á þennan hátt yrðu þarfir bátsins um orkugjafa uppfylltar af hreinni sjálfbærri, íslenskri orku. Við höfum sótt um styrki til að ljúka verkefninu og þau mál eru enn í athugun,“ segir Hjörtur Emilsson, framkvæmdastjóri NAVIS.
Mikill orkusparnaður „Það bendir allt til þess að með þessari hybrid tækni megi spara 50% í eldsneytiskostnaði miðað við dieselolíu og þannig minnka kolefnisfótspor tilsvarandi,“ segir Hjörtur. Hann segir að til þessa hafi ekki hafi verið mikið hugað að orkunýtingu minni báta og smábáta, einkum hin síðari ár eftir að
Hjörtur Emilsson, framkvæmdastjóri NAVIS. „Fiskkaupendur krefjast þess í auknum mæli að varan sé umhverfisvottuð og fiskurinn veiddur með sjálfbærum hætti.“
olíuverð fór lækkandi en nú sé áhugi á umhverfisvænum orkugjöfum stöðugt að aukast enda krefjist fiskkaupendur þess í auknum mæli að varan sé umhverfisvottuð og fiskurinn veiddur með sjálfbærum hætti. Neytendur séu líka tilbúnir að greiða meira fyrir slíka afurð. „Fiskibátar af þessari stærð eru flestir hannaðir með það fyrir augum að ná miklum hraða og því búnir stórum og aflmiklum dieselvélum. Athuganir okkar leiða í ljós að þeir nýta sjaldnast þá eiginleika en keyra á hálfum hraða og varla það á stíminu á miðin. Okkar hug-
mynd gengur út á að nýta rafmagnið sem mest og búa svo bátinn lítilli metonólvél til viðbótar ef þörf er á. Eftir því sem við kynnum þetta betur finnum við að áhugi bæði sjómanna og útvegsmanna á þessum hugmyndum fer vaxandi.“
Fjölbreytt önnur ráðgjöf Viðskiptavinum NAVIS stendur til boða fjölbreytt ráðgjöf á sviði verkfræði, skipasmíða og útgerðar. Fyrirtækið hefur meðal annars séð um leiðbeiningar og mat á verkefnum áður en í þau er ráðist, undirbúið,
aðstoðað við og gert útboðsgögn sem undanfara framkvæmda og tekið þátt í og leitt samningaviðræður og metið og samið um verklok og greiðslur. Fyrirtækið sér um hallaprófanir, stöðugleikaútreikninga og margs konar önnur tæknimál og áætlanir fyrir útgerðarmenn, skipasmíðastöðvar og þjónustuaðila. Á seinni árum hafa tjónaskoðanir og matsgerðir af ýmsu tagi fyrir innlend og erlend
tryggingafélög og skipafélög verið vaxandi þáttur í starfseminni. NAVIS er m.a. þátttakandi í Green Marine Technology samstarfinu sem hefur það yfirlýsta markmið að þróa umhverfisvænar lausnir sem byggja á grænni orku og minni olíunotkun og stuðla að aukinni framleiðslu og framlegð. navis.is
Erlend skip með 78.600 tonn af loðnu Færeysk og norsk skip stunduðu loðnuveiðar innan lögsögunnar á fyrstu mánuðum ársins, líkt og undanfarin ár. Alls lönduðu fimm færeysk loðnuveiðiskip afla af Íslandsmiðum, alls 7.507 tonnum. Aflahæsta skipið var Finnur Fríði með 2.975 tonn og næst kom Norðborg með 1.845 tonn. Á vertíðinni lönduðu norsk loðnuveiðiskip 59.382 tonnum. Alls stunduðu 41 norsk skip veiðar hér við land á nýliðinni vertíð og var Österbris aflahæst með 1.356 tonn og Gerda Marie með 1.274 tonn. Norsku skipin veiddu alls 24.916 tonn og lönduðu þau öllum aflanum í íslenskum höfnum. Tvö grænlensk skip, Polar Amaroq og Qavak, veiddu loðnu á Íslandsmiðum á þessari vertíð og var samanlagður afli þeirra á tveimur fyrstu mánuðum ársins 11.712 tonn. Þar af veiddi Polar Amaroq 10.178 tonn. Alls stunduðu fjórir færeyskir bátar veiðar á botnfiski í íslenskri lögsögu í febrúar og lönduðu alls átta sinnum. Sex landanir voru í íslenskum höfnum og tvær í Færeyjum. Aflahæstur færeysku bátanna var Skörin með 101,2 tonn og
Á fyrstu tveimur mánuðum ársins stundaði 41 norskt skip loðnuveiðar hér við land og var afli þeirra samanlagt tæplega 60 þúsund tonn.
Sandshavið með 95,2 tonn. Alls veiddu færeysk skip 149 tonn af þorski og 109 tonn af ýsu í síðasta mánuði. Færeysku línubátarnir hófu veiðar fyrr á þessari vertíð en þeirri síðustu en þá landaði Sigmund fyrstur færeyskra línubáta þann 7. mars. Á þessari vertíð voru færeysku bátarnir mánuði fyrr á ferð og landaði Jákup B þann 6. febrúar sl. alls 73 tonnum af botnfiski í Ólafsvíkurhöfn.
SÓKNARFÆRI | 13
Óskum HB Granda og áhöfn til hamingju með glæsilegt skip
marport.com
533 3838
14 | SÓKNARFÆRI
Blængur NK 125 hefur sannarlega gengið í endurnýjun lífdaga.
Blængur NK til veiða eftir viðamiklar endurbætur Frystitogarinn Blængur NK, sem er í eigu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað er kominn á veiðar eftir viðamiklar breytingar og endurbætur. „Það má segja að hér hafi allt verið hreinsað út nema vélin. Þetta er eins og að vera á nýju skipi,“ sagði Bjarni Ólafur Hjálmarsson, skipstjóri á dögunum eftir stuttan reynslutúr norður fyrir land. Blængur heldur senn á veiðar á gullkarfa djúpt suður af landinu en þar er nú farið að veiðast vel.
Skip með mikla sögu Blængur NK hét áður Freri RE og þar á undan Ingólfur Arnarson RE. Skipið var smíðað á Spáni árið 1973 og var fyrst í eigu Bæjarútgerðar Reykjavíkur en síðan eignaðist Ögurvík skipið. Togarinn var lengdur árið 2000 og er nú tæplega 79 metrar og í honum er 5000 hestafla Wartsila aðalvél. Síldarvinnslan í Neskaupstað eignaðist skipið árið 2015 og snemma á síðasta ári var því siglt til Póllands þar sem skipið var sandblásið og málað. Allar innréttingar voru hreinsaðar út og endurnýjaðar í brú skipsins, áhafnarklefar sömuleiðis endurnýjaðir, millidekk sandblásið og málað og breytingar gerðar í lest, m.a. steypt nýtt gólf. Ný löndunarlúga var sett á skipið. Sett var hliðarskrúfa á skipið og er hún af gerðinni DTG sem Ásafl ehf. hefur umboð fyrir hér á landi. Allir ljóskastarar á skipinu eru nýir og með LED tækni. Skjáir voru endurnýjaðir í stjórnpúlti
Vinnsluþilfarið er vel búið tækjum. Hér er Theódór skipstjóri við eitt af blæðingar- og kælikörum vinnslulínunnar.
skiptjóra í brú og er í skipinu nýr Furuno dýptarmælir og JRC straummælir.
Komið var fyrir rafmagnspotti með nuddi og segja skipstjórarnir að þá nýjung nýti áhafnarmeðlimir sér óspart eftir vaktirnar. Á skipinu er 26 manna áhöfn.
Rösklega 30 gráðu frost er í lestinni. Rafmagnslyftari er notaður til að stafla brettum með afurðum í lestina.
Breytingar í Póllandi og á Akureyri Að loknum breytingunum í Póllandi var skipinu siglt til Akureyrar þar sem síðari áfanga verkefnsins var lokið nú upp úr áramótum. Settur var niður vinnslubúnaðar á millidekki en hluti hans var áður í frystitogaranum Barða NK í eigu sömu útgerðar. Slippurinn Akureyri ehf. hafði þann áfanga með
SÓKNARFÆRI | 15
NÝ C-2031
glæSilEg Ný Roðvél fRá CuRio tRyggiR HámaRkS NýtiNgu og aRðSEmi. fallEg áfERð og lítið loS í flökum að viNNSlu lokiNNi.
ýSa
ÞORSKUR ufSi
LAX
kEila
blEikja SiluNguR LANGA STEINBÍTUR
lýSiNguR
ROÐFLETTIVÉL
RoðfléttiNg - tEguNDiR
FYRIR BOLFISK & LAX
RoðflEttivéliN C2031 ER NýjaSta fiSkviNNSluvéliN í fRamlEiðSlu CuRio HöNNuð til viNNSlu á bolfiSki og laxi Roðflettivélin C2031 er nýjasta fiskvinnsluvélin í framleiðslu Curio. Þessi vél er hönnuð til vinnslu á öllum bolfiski og laxi. Vélarnar
samanstanda af tæplega 1000 vélarhlutum sem eru að stærstum hluta smíðaðir úr ryðfríu stáli en aðrir hlutar hennar
eru úr tæringarþolnu plasti. Meginmarkmiðið með hönnun roðflettivélarinnar var að ná því takmarki að fjarlægja roðið af
C-2031 Roðfléttivél C-2015 - Brýni
C-3027 - Hausari
Fiskvinnslutækin frá Curio eru hágæða íslenskt hugverk og handverk og stærstu þremur
fiskinum með sem mýkstum hætti til að tryggja lítið los í flökunum og fallegri áferð að vinnslu lokinni.
HáþRóuð, SkilviRk og glæSilEg fiSkviNNSlutæki, HámaRkS NýtiNg og aRðSEmi
C-2011 - Flökunarvél
tækjunum – hausara, flökunarvél og roðflettivél – er stillt upp í heildstæða framleiðslulínu sem
hentar afar vel fyrir bæði litlar og stórar fiskvinnslur.
Curio ehf. / Eyrartröð 4 / 220 Hafnarfirði / Sími: 587 4040 / Netfang: curio@curio.is
www.curio.is
16 | SÓKNARFÆRI
Skipstjórarnir á Blæng NK, þeir Bjarni Ólafur Hjálmarsson og Theódór Haraldsson, í brúnni sem endurnýjuð var frá grunni.
Nýjungin í Blæng frá því sem var í frystitogaranum Barða er að kössum er nú staflað á bretti á vinnsluþilfarinu og þau plöstuð áður en lyftibúnaður færir brettin í lestina.
höndum og smíðaði hluta vinnslubúnaðar. Rafeyri ehf. annaðist raflagnaþáttinn og Kælismiðjan Frost ehf. sá um frystibúnaðinn. Blængur er útbúinn til flakafrystingar og áætla skipstjórnendur að frysta alla jafna um 1600 kassa á sólarhring. Sú breyting verður í Blæng frá því sem áhöfnin var áður
ar á Blæng NK og voru hæstánægðir með reynsluna þegar skipið hafði stutta viðdvöl á Akureyri í síðustu viku eftir reynslutúrinn. „Þetta er mikil breyting frá Barða NK, skipið er auðvitað mun stærra og allt mjög öflugt hér um borð. Við fengum góða reynslu á vinnsluna í túrnum en síðan er
lyftari er í lestinni og því fljótgert að ganga frá brettum í stæður jafnóðum og þær berast frá vinnslunni. Í lestina er áætlað að komist um um 20 þúsund kassar.
vön í Barða að í skipinu er búnaður til að gagna frá kössum á bretti uppi á vinnsludekki og er plastfilma sett utan um brettið áður en lyftibúnaður skilar því niður í lest. Frá afurðum er því gengið tilbúnum á bretti í lest að lokinni vinnslu og flýtir það talsvert fyrir þegar landað er úr skipinu. Rafmagns-
Öflugt skip Bjarni Ólafur Hjálmarsson og Theódór Haraldsson eru skipstjór-
framundan að fara suður fyrir land í gullkarfaveiði. Það eru næg verkefni á komandi mánuðum fyrir okkur,“ segja skipstjórarnir á Blæng NK.
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUM HÖNDUM hjá volvo penta á íslandi Öryggi á sjó. Áreiðanleiki, afl og ending ásamt hagstæðum rekstri og góðri þjónustu er trygging Volvo Penta. Skoðaðu Volvo Penta í dag
Breið lína bátavéla sem henta margvíslegum gerðum og stærðum báta. Komdu og skoðaðu sýningarvélar í dag og ræddu við ráðgjafa.
Uppítaka á bátavélum
Við tökum eldri Penta vélbúnað upp í kaup á nýjum búnaði. Eigum til uppgerðan vélbúnað til sölu á lager. Kynntu þér notaðar bátavélar til sölu.
Öflug Volvo Penta þjónusta
Hjá Volvo Penta á Íslandi | Brimborg starfar framúrskarandi teymi sem samanstendur af öflugum fagmönnum Brimborgar og samstarfsaðilum um land allt. Vélaverkstæði Brimborgar og þjónustuaðilar um land allt taka að sér þjónustu og niðursetningu á Volvo Penta vélbúnaði. Neyðarþjónusta okkar fyrir Volvo Penta vélbúnað, ljósavélar og rafstöðvar er margþætt enda aðstæður viðskiptavina okkar misjafnar. Fáðu verðtilboð í þjónustu.
Kauptu bestu varahlutina
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg er með gott úrval varahluta á lager og á mjög hagstæðu verði. Varahlutasérfræðingar okkar veita þér fyrirtaksþjónustu og ráðgjöf við kaup.
Traust teymi Volvo Penta á Íslandi | Brimborg Á myndinni eru frá vinstri: Jóhann Rúnar Ívarsson þjónustustjóri, Hilmar Skúli Hjartarson vélvirki, Ingvar Karl Ingason verk- og tæknistjóri, Gissur Kristjánsson söluráðgjafi varahluta, Guðmundur Gísli Sigurðsson söluráðgjafi vélbúnaðar, Gunnar Hjálmarsson söluráðgjafi varahluta og Kristinn Már Emilsson framkvæmdastjóri Volvo Penta á Íslandi.
HAFÐU SAMBAND Í DAG • Sími: 515 7070 • Netfang: volvopenta@brimborg.is • Ný heimasíða: volvopenta.is
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg
• Hældrifsvélar • Gírvélar • IPS vélbúnaður • Rafstöðvar og ljósavélar
•
Bíldshöfða 6
•
Sími 515 7070
•
volvopenta.is
SÓKNARFÆRI | 17
Stólpi Gámar
fyrir atvinnulífið
Stólpi Gámar bjóða gámalausnir fyrir atvinnulífið – til leigu eða sölu þurrgáma hitastýrða gáma
geymslugáma einangraða gáma
fleti og tankgáma gáma með hliðaropnun
Einnig gámahús og salernishús frá Containex, færanlega starfsmannaðstöðu frá EuroWagon.dk og vinnu- og vörulyftur frá ATN og Maber Hafðu samband 568 010 0
www.stolpigamar.is
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði
18 | SÓKNARFÆRI
Nótt Thorberg er framkvæmdastjóri Marel á Íslandi: „Við verðum að einblína á leiðir til að tryggja að hágæða matvæli séu framleidd á hagkvæman og sjálfbæran hátt. Því er nauðsynlegt að fjárfesta í nýsköpun og hlúa vel að þekkingarsamfélaginu.“
Að hlúa að þekkingarsamfélagi Nótt Thorberg tók við starfi framkvæmdastjóra Marel á Íslandi fyrir níu mánuðum en
starfaði fram að því á markaðssviði fyrirtækisins. Marel er í stöðugri framþróun og þá
er ekki síður nauðsynlegt að hlúa vel að innviðum og starfsumhverfi og ýta undir jákvæða vinnustaðamenningu. Búa til öfluga liðsheild. „Ég er ábyrg fyrir starfsemi Marel á Íslandi við innleiðingu á stefnu og rekstrarmarkmiðum Marel í nánu samstarfi við iðnaðinn og alþjóðleg stoðsvið félagsins,“ segir Nótt en undir hana heyra stoðsvið hérlendis sem eru fjármál, framleiðsla, mannauður og vöruþróun er jafnframt heyra undir alþjóðleg stoðsvið félagsins. Eins og Íslendingar þekkja er Marel í fararbroddi á heimsvísu hvað varðar þjónustu og þróun hátæknibúnaðar og kerfa til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Félagið er með starfsstöðvar í 30 löndum um heim allan og eru starfsmenn um 4.600. Á Íslandi starfa um 530 manns við nýsköpun, framleiðslu, sölu og þjónustu. Nótt hefur fjölbreyttan bakgrunn, er menntuð í myndlist og með leiðsögumannapróf auk þess að vera með M.Sc. gráðu í markaðsmálum frá the University of Strathclyde í Skotlandi og hafa lokið tveimur diplómagráðum á vegum the Chartered Institute of Marketing. Blaðamaður rifjar upp gömul menntaskólakynni af Nótt þegar hún starfaði, samhliða námi, í söluturni í miðbæ Reykjavíkur auk þess að hanna og framleiða eigin skartgripi sem hún seldi í vinsælum fataverslunum. Nótt hlær að þeirri minningu: „Ég hef
Við þurfum að fylgja straumum og stefnum í tækni- og vöruþróun en það er einnig afar mikilvægt að huga að því hvernig við fóstrum fólkið okkar og leyfum því að efla þekkingu sína og getu, starfa í umhverfi sem því líður vel í og hámarka þannig starfsánægju.“
alltaf haft marga bolti á lofti og átt fjölbreytt áhugasvið. Það er kannski þess vegna sem ég kann svo vel við mig hjá Marel. Hér er fjölbreytt og krefjandi umhverfi sem ég þrífst vel í. Við erum sífellt að huga að framtíðinni þegar kemur að framþróun í matvælavinnslu og að geta boðið nýjar endurbættar lausnir til að mæta aukinni eftirspurn í heiminum. Við erum sífellt að læra og bæta okkur og leggjum áherslu á þekkingarmiðlun, hugvit, gæði og gott samstarf. Að gera betur á morgun það sem vel er gert í dag.“
Að skapa réttu aðstæðurnar Blaðamaður situr með Nótt í glæsilegum matsal fyrirtækisins, Bistro Blue, sem í raun má líkja við blöndu af hágæða veitingahúsi og notalegu kaffihúsi. Marel hefur fjárfest mikið í innviðum á undanförnum árum og nú standa
yfir umfangsmiklar endurbætur og stækkun á húsnæðinu í Garðabæ. „Samhliða því höfum við verið að vinna að því að skapa góðar aðstæður til að auka enn frekar samstarf milli sviða og ýta þannig undir jákvæða og hvetjandi vinnustaðamenningu sem jafnframt leiðir af sér enn betri árangur í störfum okkar. Breytingar á húsnæði eru mikivægur liður í því en umhverfið og aukin samskipti spila saman til að skapa frjótt nýsköpunarumhverfi,“ segir Nótt. „Hér starfar afar fjölbreyttur hópur fólks með breiða þekkingu og sérþjálfun á mjög ólíkum sviðum. Hvernig tengjum við saman slíkan hóp og búum til gott og frjótt andrúmsloft? Stór hluti af mínu starfi felst þannig í að skapa réttu aðstæðurnar til að búa til öfluga liðsheild. Við erum eitt teymi, með sameiginleg markmið og einn tilgang. Saman náum við
SÓKNARFÆRI | 19
árangri. Gildi félagsins; samheldni, nýsköpun og metnaður, tengja okkur saman og eru órjúfanlegur hluti af menningu okkar. Við horfum til þeirra gilda við ákvarðanatöku, í samskiptum og við úrlausn verkefna. Við vinnum jafnframt markvisst með fleiri þætti til að efla liðsheildina og teymisvinnu. Þessa dagana erum við til að mynda að vinna með hrós og endurgjöf. Við þurfum að fylgja straumum og stefnum í tækni- og vöruþróun en það er einnig afar mikilvægt að huga að því hvernig við fóstrum fólkið okkar og leyfum því að efla þekkingu sína og getu, starfa í umhverfi sem því líður vel í og hámarka þannig starfsánægju. Í þekkingarmiðuðu samfélagi er hver hlekkur mikilvægur og samvinna því afar mikilvæg. Í raun er Marel þekkingarsamfélag og það er allra hagur að við sköpum jákvætt og þroskandi starfsumhverfi,“ segir Nótt og bendir á að innan Marel starfi ólíkir hópar með ólíkar þarfir. „Innanhúss er til að mynda stórt hugbúnaðarhús, Innova, sem er framleiðsluhugbúnaður Marel og sem er einn stærsti vaxtarbroddur framtíðarinnar. Þar starfa hátt í 50 manns en í heildina starfa hér á Íslandi um 100 manns á sviði forritunar og í tengdum störfum. Í þessum hópi hefur orðið töluverð nýliðun á undanförnum árum. Þetta er gjarnan ungt fólk sem gerir kröfur um líflegra félagslíf og aukið frelsi hvað varðar stað og stund í vinnu.“
FleXicut skurðarvélin frá Marel er hjartað í þeirri tæknilausn sem fjórða fiskvinnslulína fyrirtækisins er.
Tímamót í fiskvinnslu með fjórðu línunni Marel hefur ávallt haft nýsköpun að leiðarljósi en sú hugsun hefur breytt Marel úr sprotafyrirtæki í heimsleiðtoga á sínu sviði. Nótt bendir á að breytingar á markaði séu örar, tækniþróun fljúgi fram og krafan um aukna sjálfvirkni, gæði og afköst verði æ meiri. „Spurn eftir matvælum vex gríðarlega og má búast við að hún
aukist um 50% á næstu 15 árum. Við verðum að einblína á leiðir til að tryggja að hágæðamatvæli séu framleidd á hagkvæman og sjálfbæran hátt. Því er nauðsynlegt að fjárfesta í nýsköpun og hlúa vel að þekkingarsamfélaginu.“ Marel leggur að meðaltali 5-6% af veltu í rannsóknar- og þróunarstarf á ári hverju, sem er hæsta hlutfall sem fyrirfinnst í greininni. „Í vöruþróun Marel á Íslandi starfa
til að mynda 120 manns. Fjórða kynslóð fiskvinnslulína okkar markar tímamót í fiskvinnslu. Má þar nefna tækni eins og FleXicut vatnsskurðavélar sem ýta ennfremur undir skilvirkni, bæta meðhöndlun og auka virði og nýtingu hráefnis. Íslensk fiskvinnslufyrirtæki eru dugleg að nýta sér nýjustu tækni en þróunarvinna okkar er gjarnan í nánu samstarfi við viðskiptavini okkar. Það góða
samstarf hefur leitt af sér nýsköpun og lausnir sem hafa átt stóran þátt í að umbyta matvælavinnslunni,“ segir Nótt að lokum. marel.com
Samhentir óskar útgerð og áhöfn Engeyjar RE til hamingju með nýtt og glæsilegt skip
20 | SÓKNARFÆRI
Grindavík
Mikill vöxtur hjá HP Gámum Fyrirtækið HP Gámar í Grindavík hefur farið ört vaxandi síðustu ár. Starfsmannafjöldi hefur farið úr 2 í 26 á rúmum áratug og verkefnin eru fjölþætt. Fyrirtækið byggir á gömlum merg sem er útgerðarfélagið Hópsnes en það var stofnað árið 1965 af Edvard Júlíussyni, Jens Óskarssyni og Guðlaugi Óskarssyni. Það starfaði sem útgerð og fiskvinnsla til 1995. Þá var útgerðinni hætt vegna kvótaskerðingar og aflaheimildir seldar í Grindavík. Þess var gætt að ekkert af þeim færu úr plássinu og kvótanum skipt á milli fyrirtækja. Þeir sem ekki gátu borgað strax fengu að gera það seinna.
Byrjað í leigu og salti „Afi minn Edvard Júlíusson, heldur þá því sem eftir er af fyrirtækinu, sem var fyrst og fremst húsnæðið hér. Upp úr því er farið að geyma hér salt og leigja hluta hússins út í ýmsan rekstur. Út frá því fer að spinnast eitthvað meira og 2005 til 2006 tekur faðir minn, Sigmar Edvardsson við rekstri Hópsnes ehf. af foreldrum sínum og fékk mig með sér og saman höfum við byggt upp fyrirtækið eins og það er orðið í dag. Við vorum þá tveir og síðan með einn starfsmann til að sinna því sem gera þurfti. Við þjónustum saltfiskverkanirnar hér í plássinu og á Suðurnesjum með salti frá Saltkaupum og höfum gert lengi,“ segir Otti Rafn Sigmarsson, sölu- og þjónustustjóri HP Gáma. „Næst fjárfestum við í öðrum vörubíl og öðrum lyftara. Út frá
Otti Rafn á skrifstofunni í gamla Hópsnesshúsinu.
því kemur bíll útbúinn fyrir gáma og svo vantaði bíl til að dreifa saltinu. Við vorum stundum í vandræðum með að koma saltinu af bryggjunni og inn í hús til okkar.
Okkur datt í huga að kaupa bíl með svokölluðu krókheysi eða fjölnota bíl. Til að hann gæti verið með flatan pall og dreift saltinu, og skipt svo og sett vörubílsskúffu á
Naust Marine óskar eigendum og áhöfn á Engey til hamingju með nýtt og glæsilegt skip
Miðhella 4 | 221 Hafnarfjörður | www.naust.is
hann og keyrt saltinu úr skipi og inn í hús þegar það kæmi til okkar.“ Í framhaldinu kom upp sú hugmynd að kaupa opna og lokaða ruslagáma og stefnt á fyrirtækjamarkaðinn með sorphirðu fyrir fyrirtæki. Þá kom það til að menn vildu ekki bara vera með svona stóra ruslagáma og því voru ruslatunnurnar teknar líka og í framhaldinu var keyptur ruslabíll til að sinna því.
Fóru í ruslið „Árið 2012 varð mesta sprengingin í þessu hjá okkur því þá tókum við þátt í útboði hjá Kölku, sorpeyðingarstöðinni, sem sveitarfélögin á Suðurnesjum eiga. Við vorum með lægsta tilboðið í sorphirðu fyrir heimili á öllum Suðurnesjum. Við höfum síðan sinnt því verkefni. Við höfum haldið áfram að sinna saltinu og reka gámaþjónustuna og boðið upp á hana til heimila, fyrirtækja og opinberra aðila á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu.
Við erum þá með alhliða þjónustu hvort sem er í flokkun, stórum gámum eða pressugámum. Árið 2014 byrjuðum við að gera út sendibíl fyrir ákveðna aðila í bænum og nú hefur það undið upp á sig eins og svo margt annað hjá okkur og í dag rekum við nokkra flutningabíla og sinnum flutningaleiðinni bæði fyrir Samskip og Eimskip til Grindavíkur af höfuðborgarsvæðinu og í Voga eftir að við keyptum meirihlutann í Flutningaþjónustu Sigga hér í bæ. Það gerðist um áramótin og þeir strákar komu yfir til okkar. Við höfum svo verið að breyta gamla húsnæðinu hjá okkur og byggja nýtt. Stærsti leigjandinn hjá okkur er Bláa lónið. Við leigjum þeim tæpa 2.000 fermetra undir lager, þvottahús og geymslu,“ segir Otti Rafn. „Við starfrækjum einnig verkstæði hér fyrir bílana og tækin okkar og reynum að sjá um okkur eins og við getum sjálfir. Það er til dæmis mikið verk að viðhalda öll-
Fjórir ættliðir. Otti Rafn Sigmarsson, Markús Daði Ottason, Edvard Júlíusson, og Sigmar Edvardsson.
SÓKNARFÆRI | 21
um þessum gámum. Þeir eru gerðir úr stáli. Þá þarf að mála reglulega og gera við. Við erum því með stórt og mikið verkstæði hér og sprautuklefa til að mála heila gáma í einu.“
Kurla tré og bretti En HP Gámar eru á fleiri sviðum og ansi frábrugðnum hinum. „Við erum svo með stóran og mikinn trjákurlara, stærsta færanlega kurlara á Íslandi. Við kurlum fyrir kirkjugarðana í Reykjavík og kurlum tré og garðaúrgang fyrir ýmis sveitarfélög eins og Garðabæ, Bláskógabyggð og Flúðir og sveitarfélögin á Suðurnesjum. Við eigum svo fyrirtæki sem heitir Skógarvinnslan. Þangað hefur skilað sér í gegnum tíðina mikið magn trjágróðurs, m.a. trjábolir trjáa sem hafa verið felld í Reykjavík síðastliðin ár. Þar eru teknir stórir bolir og greinarnar sagðar af þeim. Bolirnir eru svo heflaðir niður og þurrkaðir og nýttir í spæni undir hesta. Saman við það blöndum við kurluðum vörubrettum, sem naglarnir hafa verið hreinsaðir úr. Greinarnar eru kurlaðar líka og notaðar í moltugerð. Þetta er gert í Reykjavík. Kurlarinn tekur bæði
Færeyingar gerðu í fyrra tilraun með uppboð á takmörkuðum hluta aflaheimilda og skoða nú að tengja hluta úthlutaðra veiðiheimilda við landsvæði.
Svæðakvótar ræddir í Færeyjum Staðir í Færeyjum, sem ekki hafa aðgang að fiskveiðum nú, gætu fengið tækifæri til að nýta fiskveiðiauðlindina að mati Högna Hoydal, sjávarútvegsráðherra Færeyja. Þar er hann að ræða um svokallaða svæðiskvóta, sem er nýjasta tillaga færeysku landstjórnarinnar í fiskveiðistjórnun. Fiskveiðum við Færeyjar er stjórnað með svonefndu fiskidagakerfi, þar sem úthlutað er ákveðnum fjölda veiðidaga til skipaflokka og skipa innan þeirra. Á síðasta ári voru gerðar tilraunir til uppboða á takmörkuðum hluta aflaheimilda í þorski í Barentshafi og uppsjávartegundum. Samkvæmt tillögu landstjórnarinnar er ætlunin að bjóða út hluta veiðiheimilda sem tengdar verða ákveðnum landshlutum. Rætt er um gegnsæja skipan, þar sem skilyrði og kvaðir muni liggja ljós fyrir. Það verður ekki ráðherrann sem ræður hverjir fái heimildirnar, heldur er gert ráð fyrir almennu útboði.
timburbretti, trjáboli og greinar. Kurlarinn er 18 tonn að þyng og er dreginn af krókheysisbíl milli staða þar sem verið er að vinna hverju sinni. Þessi starfsemi fer vaxandi.“ Grunnskólarnir og leikskólarnir í Grindavík hafa verið að taka upp grænfánafyrirkomulag og hafa HP Gámar verið að vinna með þeim í flokkun á efnum og úrgangi og eins hjá Bláa lóninu.
Saltinu landað. HP gámar þjónusta saltfiskverkanirnar á Suðurnesjum með salti frá Saltkaupum og hafa gert lengi.
Á kafi í þessu sjálfir „Það sem orsakað hefur þennan vöxt hjá okkur er að viðskiptavinirnir okkar hafa stækkað gríðarlega frekar en að þeim hafi fjölgað. Það má nefna Bláa lónið og útgerðar-
félögin í Grindavík. Það er alltaf að aukast þjónustan við sömu viðskiptavinina.“ Reksturinn hefur gengið vel hjá þeim feðgum, enda ekki teflt í neina tvísýnu. „Mesta áskorunin hefur verið að halda vel utanum hraðvaxandi starfsemi og passa að ekki sé byggt á einhverjum brauðfótum. Þess vegna höfum við verið á kafi í þessu sjálfir alla tíð og verðum það um ókomna tíð. Maður þarf að gefa sig allan í þetta ef maður vil hafa reksturinn almennilegan og þjónustuna góða,“ segir Otti Rafn Sigmarsson. hpgamar.is
22 | SÓKNARFÆRI
Á leið heim með fullt skip Rætt við Ólaf Einarsson, skipstjóra á Heimaey VE Loðnan er brellin og erfið viðureignar á stundum. Suma daga er mokveiði, aðra daga finnst hún ekki. Vertíðin nú hefur reyndar verið nokkur undantekning frá fyrri vertíðum. Frá upphafi og til 11. þessa mánaðar hafði enginn dagur fallið úr veiðum fyrr en blaðamaður hringdi í Ólaf Einarsson skipstjóra á uppsjávarskipinu Heimaey frá Vestmannaeyjum. „Nú sést ekkert af henni,“ sagði hann á laugardaginn síðasta. Á sunnudagskvöld var allt annað hljóð í Ólafi: „Við eru á leið heim með fullt skip.“ „Við vorum komnir vestnorðvestur úr Bjarginu einhverjar 20 til 25 mílur. Þar var heldur meira að sjá þó það væri ekki mjög mikið. Þar voru einhverjar torfur sem gáfu ekki mikið, en það náðist. Þetta er held ég restin af þessu, að verða síðustu dagarnir í þessari göngu. En nú er veiði fyrir norðan, ágætis veiði,“ sagði Ólafur á sunnudagskvöldinu. „Það var leiðindaveður framan
Ólafur Einarsson, skipstjóri á Heimaey VE, er ánægður með loðnuvertíðina.
Myndir: Óskar Pétur Friðriksson
af degi í gær og erfitt að komast út til að leita. Við fundum ekkert fyrr en það lygndi undir kvöld. Þá fundum við eina torfu og náðum um 800 til 900 tonnum í tveimur köstum. Svo fór þetta náttúrlega í fokk í myrkrinu. Síðan fannst þetta dýpra í morgun og í dag. Það hefði þurft að vera betra veður í gær til að komast utar til að leita. Þetta var svona suðvestan fýla,“ sagði Ólafur í seinna símtalinu.
Ætli hún sé ekki bara að hrygna Svona var hljóðið í honum í fyrra símtalinu: „Nú sjáum við ekkert af henni, ætli hún sé ekki bara að hrygna. Það hefur ekkert sést í dag, en þessi dagur hlaut að koma, fyrsti dagurinn á vertíðinni þar
sem ekki er veiði. Það er voðalega margt sem bendir til þess að botninn sé að detta úr veiðinni úr göngunni sem við höfum verið að elta hérna. Reyndar var leiðindaveður hér í morgun en menn voru að vonast til að þetta yrði betra þegar liði á daginn, en það virðist ekki ætla að gera það ennþá. Það er bara spurning um að finna eitthvað nýtt. Það eru fregnir af loðnu fyrir norðan land og víðar. Það þarf bara að athuga það, ef ekkert meira verður úr þessu. Þetta er eitthvað rólegt hjá okkur. Við höfum ekkert fregnað af loðnugöngu að vestan, en það gæti nú komið á næstu dögum.“ Við ræðum svo um vertíðina til þessa en hún hefur gengið alveg skínandi vel frá upphafi. „Þetta
Loðnan flæðir úr góðu kasti niður í lestina.
SÓKNARFÆRI | 23
Það er gjarnan stutt á milli skipa á loðnumiðunum. Hér er Vilhelm Þorsteinsson EA að kasta.
Fumlaus og hröð handtök áhafnarinnar á Heimaey og innan stundar er búið að dæla úr nótinni.
hefur haft. Hann étur heil ósköp og sundrar torfunum.“ Engar veiðar í troll voru stundaðar á vertíðinni nú fyrir norðan og austan eins og oft hefur verið áður þar til loðnan þéttir sig. Ólafur segir að það kunni vel að vera að það hafi haft einhver áhrif. Um þetta viti enginn. Hann telur að meira muni um allan hvalinn í þessu en einhverjar veiðar í troll. Það hafi til dæmis ekkert verið trollað í fyrra, en þá hafi ekki verið neitt svipað form á þessu og núna. „Ég held að þetta snúist fyrst og fremst um magnið og þéttleikann á fiskinum.“
hefur snúist um það að koma þessu í mestu verðmætin, frystingu eða hrogn og þá erum við að halda aftur af okkur við veiðarnar þess vegna er aflinn minni ef aðeins væri veitt í bræðslu.“
Nær enginn hvalur á eftir loðnunni Ólafur segir að þessi vertíð hafi hefur verið mjög frábrugðin því sem verið hefur undanfarin ár. „Tíðarfarið hefur verið miklu betra og miklu þéttari og öflugari lóðningar. Auk þess hefur loðnan sjaldan verið jafn stór og góð. Hún er vel haldin greyið. Þetta er það sem skilur þessa vertíð frá þeim síðustu. Það hefur verið mikið minna af hval með þessari göngu en í fyrra og hitteðfyrra. Sáralítið eða ekkert. Hann var áður að djöflast í þessu allan sólarhringinn svo maður getur ímyndað sér hvaða áhrif það
Ólafur skipstjóri og Sigurður Ólafsson fylgjast með skjáum og mælum í brúnni.
Góð sárabót eftir langt verkfall Mikil óvissa var um það hvort einhver loðnuvertíð yrði að þessu sinni og í haust bentu mælingar fiskifræðinga til þess að engin veiði
Kælismiðjan Frost óskar útgerð og áhöfn Engeyjar RE til hamingju með nýtt og glæsilegt skip
yrði. Síðan birti aðeins til og seinni leiðangur gaf til kynna að veiða mætti 50.000 tonn. Loks skilaði leiðangur í febrúar niðurstöðum sem leiddu til útgáfu 300.000 tonna kvóta. Ólafur segir að menn þurfi að fara yfir það hvernig standa skuli að loðnuleiðöngrum. Menn hafi verið búnir lýsa því yfir að engin vertíð yrði núna og ekki heldur á næsta ári. Hann haldi því að fiskifræðingarnir hafi ekki síður verið hissa en skipstjórarnir. „En hvað um það. Þessi loðnuvertíð er góð sárabót eftir langt verkfall.“ Eftir loðnuvertíð tekur kolmunnaveiði við hjá flestum loðnuskipunum. „Það er þá spurning hvenær fiskurinn gengur að sunnan inn í lögsögu Færeyja, en þar megum við veiða, en ekki fara inn í lögsögu ESB. Það er spurningin um það hvað menn vilja elta þetta langt suður,“ sagði Ólafur.
24 | SÓKNARFÆRI
Friðrik Sigurðsson, kokkur á Heimaey VE.
Myndir: Óskar Pétur Friðriksson
Heimaey VE við bryggju á Þórshöfn á miðri vertíðinni og að sjálfsögðu með fullfermi.
Loðnan er ekki góður matur - segir Friðrik Sigurðsson, kokkkur á uppsjávarskipinu Heimaey VE „Loðnan er ekki góður matur. Ég býð ekki upp á hana hér um borð. Ég prufaði þetta nokkrum sinnum þegar ég var á gamla Sigurði, steikti hana og djúpsteikti. Það mátti svo
sem hafa hana með öðrum mat, en menn vilja helst bara gamla góða heimilismatinn og þannig hefur þetta verið hjá mér,“ segir Friðrik Sigurðsson, kokkur á Heimaey.
Hann segir að gamla sagan um að áhöfnin láti það bitna á kokkinum ef illa veiðist, eigi alla vega ekki við um sig. Kannski vegna þess að yfirleitt veiðist vel. Hann var að ganga frá eftir kvöldmatinn þegar
Skaginn 3X óskar útgerð og áhöfn ENGEY RE til hamingju með nýtt og glæsilegt skip
spjallað var við hann, bara nokkuð ánægður með fullt skip á heimleið til Eyja.
Þetta er bara vinna! Kokkurinn á uppsjávarveiðiskipunum gengur nú á dekk þegar verið er að kasta og draga, hvort sem er á nót eða trolli. Á nótinni eru 11 um borð en 9 á nótinni og því fer kokkurinn á dekk hvort sem er að nóttu eða degi. „Hér áður fyrr á nótinni voru 14 eða 15 menn um
borð og þá var maður bara í kokkaríinu og hafði nóg að gera að elda ofan í 14 karla og eins á trollinu. Engu að síður er maður með hádegis- og kvöldmat og svo nætursnarl, brauð og svoleiðis fyrir karlana og svo alltaf eitthvað með kaffinu.“ Friðrik segist ekki gera mikinn greinarmun á því hvort verið sé á nót eða trolli. „Þetta er bara vinna,“ segir hann.
Loðnuskipin hafa oft fengið mjög stór köst á vertíðinni.
SÓKNARFÆRI | 25
26 | SÓKNARFÆRI
Fiskiskipin færri og eldri Tölur um fiskiskipastólinn á undanförnum árum endurspegla vel hvaða þróun hefur átt sér stað. Fiskiskipum í heild hefur fækkað, sama til hvaða skipaflokks er litið. Meðalaldur fiskiskipanna hefur á sama tíma hækkað umtalsvert en hins vegar gerðist það í fyrsta skipti á síðustu 18 árum að milli áranna 2015 og 2016 stóð meðalaldurinn í stað. Nýju skuttogararnir sem eru að koma til landsins í ár ættu líkast til að hafa þau áhrif að þróunin í aldri skipastólsins snúi við í fyrsta skipti í langan tíma.
Opnum bátum fækkað um fjórðung Skráð fiskiskip á Íslandi voru á árinu 2016 1.647 talsins. Árið 1999 voru þau hins vegar 1.976. Á þessu tímabili urðu þau flest árið 2001 eða 2.012 en þá fylgdi í kjölfarið nokkuð skörp fækkun alveg niður í 1.582 fiskiskip árið 2008. Hægt og bítandi hefur skipunum því fjölgað á nýjan leik. Opnir fiskibátar voru á síðasta ári 857 talsins en voru 1.134 árið 1999. Fækkunin í þessum flokki er 25%. Fæstir urðu opnu fiskibátarnir árið 2008 eða 700 talsins. Vélskip voru á síðasta ári 747 og þessi flokkur sker sig talsvert úr vegna þess að þetta er nánast sami fjöldi og var árið 1999, þá 751 vélskip skráð. Þau urðu flest rösklega 870 árið 2002 en hefur síðan fækkað jafnt og þétt. Stærstu breytinguna má sjá í flokki togara. Þeir voru 91 talsins árið 1999 en hins vegar aðeins 43 í fyrra. Aðeins einu sinni á þessu tímabili fjölgaði togurum milli ára, þ.e. um eitt skip milli áranna 2006 og 2007.
Nýjum Venusi fagnað á Vopnafirði vorið 2015. Hægst hefur á hækkun meðalaldurs fiskiskipastólsins að undanförnu en hann er nú 29 ár, litið til fiskiskipaflotans í heild.
Fjölgun fiskiskipa á Vestfjörðum og Norðurlandi eystra Á umræddu tímabili, þ.e. frá 1999 til 2016 minnkaði brúttótonna fjöldi fiskiskipastólsins úr röskum 180 þúsund tonnum niður í 151 þúsund tonn og afl aðalvéla í kílóvöttum fór úr 509 þúsund kW í tæplega 454 þúsund kW. Á höfuðborgarsvæðinu voru skráð 128 skip í fyrra en rúmlega tvöfalt fleiri árið 1999, eða 258 fiskiskip. Vesturland hefur hins vegar nánast haldið sínum fjölda, tæplega 300 skipum, þau voru 396
talsins á Vestfjörðum í fyrra sem er fjölgun frá 1999 og enn meiri er fjölgunin á Norðurlandi vestra á þessu tímabili, þ.e. úr 88 í 123 í fyrra. Aftur á móti fækkaði fiskiskipunum á Norðurlandi eystra úr 292 árið 1999 í 224 árið 2016, sömuleiðis á Austfjörðum þar sem þau voru 243 í fyrra en 288 árið 1999. Veruleg breyting hefur orðið á Suðurlandi á þessu árabili, eða fækkun fiskiskipa úr 140 í 80 í fyrra og sömu sögu er að segja um Suðurnes þar sem fiskiskipunum fækkaði úr 229 í 159 í fyrra.
Meðalaldur hækkað um áratug frá 1999 Fjöldi nýsmíða í fiskiskipastólnum þessi misserin kemur ekki á óvart þegar skoðaðar eru tölur um þróun í meðalaldri hans frá árinu 1999. Á tímabilinu hækkaði meðalaldurinn um heilan áratug, litið til allra fiskiskipa eða úr 19 árum að meðaltali árið 1999 í 29 ár árið 2016. Meðalaldurinn stóð í stað milli áranna 2015 og 2016, sem endurspeglar áhrif endurnýjunar fiskiskipanna og tilkomu nýsmíða og yngri skipa í stað þeirra eldri. Opnir fiskibátar voru að meðal-
tali 31 árs í fyrra en meðalaldur þeirra var 17 ár árið 1999. Hækkun meðaldurs vélskipa hefur verið hægari á tímabilinu, farið úr 20 árum árið 1999 í 26 ár í fyrra. Togaraflotinn endurspeglar einnig meiri endurnýjun á síðari árum og þannig stóð hann í stað þrjú ár í röð, þ.e. árin 2014-2016 þegar hann var 30 ár. Meðaldur togara var hins vegar 20 ár árið 1999. Viðsnúningur í þessum flokki fiskiskipa ætti að verða mjög greinilegur þegar nýju togararnir koma hver af öðrum til landsins í ár.
Sérefni óskar útgerð og áhöfn ENGEY RE til hamingju með nýtt og glæsilegt skip
International skipamálning www.serefni.is
Frá árinu 1999 hefur fiskiskipum í heild fjölgað á Vestfjörðum og Norðurlandi eystra og fjöldinn nánast staðið í stað á Vesturlandi. Á öðrum landsvæðum fækkaði fiskiskipunum.
Skráðum togurum hefur fækkað jafnt og þétt frá árinu 1999.
SÓKNARFÆRI | 27
Landaður botnfiskafli 2016
Norðurlandshafnirnar sækja á Samantekt Fiskistofu um sjávarafla á síðasta ári sýnir að mesta aukningin í lönduðum botnfiskafla var á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra. Að sama skapi gáfu Suðurnesjahafnir eftir í löndun botnfisks. Reykjavíkurhöfn ber sem fyrr höfuð og herðar yfir aðrar hafnir hvað landaðan botnfisk varðar. Í heild var tæplega 90 þúsund tonnum af botnfiski landað í Reykjavíurhöfn í fyrra. Það svarar til aukningar um 2,1% eða tæplega um 1.900 tonn. Landaður botnfiskur í Reykjavík er rúmlega tvöfalt meiri en í Grindavík sem næst kemur á þessum lista. Þar var rúmlega 38 þúsund tonnum af botnfiski landað í fyrra og varð samdráttur um 17,2% eða tæplega 8 þúsund tonn. Það var mesti samdráttur í aflamagni til löndunar á landinu. Samdráttur varð á Ísafirði í löndun botnfisks um 2.900 tonn. Aftur á móti varð mesta aukningin í einstökum höfnum í Hafnarfirði um 6.300 tonn og í Bolungarvík um 4.000 tonn. Hlutur höfuðborgarsvæðisins í löndun botnfisks jókst á síðasta ári frá árinu 2015 úr 23,6% í 24,5%. Fiskistofa vekur athygli á að hlutur höfuðborgarsvæðisins var 25,7%
Talsverður hlutfallssamdráttur varð í löndun botnfisks á Suðurnesjum milli áranna 2015 og 2016. Norðurlandshafnirnar bættu mestu við sig af þessum Mynd: Hjörtur Gíslason afla á sama tíma.
fyrir tveimur árum og fyrir hálfum áratug nam hann 31%. Samkvæmt samantekt Fiskistofu jókst landaður botnfiskafli á Norðurlandi vestra um 7,5% milli
áranna 2015 og 2016, fór úr 27 þúsund tonnum í rúmlega 29 þúsund tonn í fyrra. Hlutfallslega varð aukningin lítið eitt meiri á Norðurlandi eystra milli ára, eða úr tæp-
lega 82 þúsund tonnum í 88 þúsund tonn. Suðurnes voru eina landsvæðið þar sem landað var minni botnfiskafla í fyrra en árið á undan, dróst
hann saman um 6.300 tonn eða 10,2%.
Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með glæsilegt skip Eftirtalinn búnaður er frá Brimrún er í ENGEY RE Siglingatæki
Fjarskiptatæki
Annar búnaður
Furuno FAR-2x17, X-Band Radar m/ 6.5’ loftneti Furuno FAR-2x17, X-Band Radar m/ 4’ loftneti Time Zero Professional, MaxSea siglingahugbúnaður, 2 stk. Tölvur frá Brimrún, fyrir Time Zero, 2 stk. Furuno GP-170, GPS staðsetningatæki, 2 stk. Furuno FA-150, AIS tæki Aflestrarskjáir frá Brimrún, 3 stk. Cassen & Plath seguláttaviti Furuno SC-110, GPS áttaviti
Furuno FM-8900, GMDSS VHF talstöðvar, 2 stk Furuno FM-4721, VHF talstöð Furuno FS-1575, GMDSS MF/HF talstöð Furuno Felcom 18, GMDSS Standard-C tæki Furuno NX-700B, veðurriti (NavTex) Furuno KU-100, VSAT, internet og tal yfir gervitungl Tölva frá Brimrún, fyrir VSAT Palo Alto PA-200, eldveggur Iridium Open-Port, gervitunglasími Furuno PR-850, GMDSS hleðslutæki Furuno PR-300, GMDSS hleðslutæki McMurdo R5, GMDSS VHF talstöðvar, 3 stk McMurdo S5, AIS neyðarbaujur, 2 stk McMurdo G5A, EPIRB neyðarbauja Viðvörunar panell fyrir GMDSS í brú Rafmagnstafla fyrir GMDSS 3G netbeinir
Thies Clima, vindmælir David Clark, hjálma samskiptakerfi Veinland, vökustöð (BNWAS) Símkerfi Neyðarsímar, innanskips, 3 stk Kallkerfi Paging kerfi FM og sjónvarpsdreifikerfi með lekum COAX KNS gervihnattadiskur fyrir sjónvarp 32”, 47” og 60” sjónvörp, 20 stk Skrifstofutölva Skjástjórnunarkerfi 23” tölvuskjáir, 16 stk 27” tölvuskjáir, 11 stk NMEA dreifikerfi með skiptaraplötu í brú
Fiskileitartæki Furuno FCV-1900G, CHIRP dýptarmælir, 3 kW Furuno DFF3, FFS dýptarmælir, 3 kW WASSP, fjölgeisladýptarmælir, 80 kHz, 1 kW Furuno CI-68, straummælir, 244 kHz Marport M4
MAREIND
Reykjavík - Sími 5 250 250 – Akureyri - Sími 5 250 260
Grundarfirði Sími 438 6611
28 | SÓKNARFÆRI
Tjónið verður ekki unnið til baka Rætt við Gunnar Tómasson, annan framkvæmdastjóra Þorbjarnar hf. í Grindavík
Gunnar Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar, fylgist með vinnslunni.
„Ekki er hægt að búa við þær aðstæður að verkföll geti lamað sjávarútveginn í langan tíma. Þetta verkfall flokkast hreinlega undir óhappaverk, tapið verður ekki unnið til baka. Það á bæði við beint fjárhagslegt tjón allra þeirra sem verkfallið bitnaði á og tapaða markaðshlutdeild í framtíðinni,“ segir Gunnar Tómasson, annar framkvæmdastjóra Þorbjarnar hf. í Grindavík, um stöðuna nú þegar allt er að færast nær eðlilegu horfi eftir verkfall sjómanna. „Margir kaupendur leystu sín mál með því að semja við aðra birgja en okkur Íslendinga og eðlilega vilja þeir ekkert hætta samskiptum við þá þó við komum aftur inn á markaðinn. Viðskiptavinirnir okkar taka við okkur á ný, en ekki í sama mæli og áður. Við erum með laskaðan trúverðugleika og náum ekki sömu viðskiptum og áður,“ segir Gunnar ennfremur og heldur áfram að lýsa stöðunni: „Þetta á helst við ferska fiskinn en líka við frystar og saltaðar afurðir. Kaupendur hugsa sem svo að fyrst þetta kom fyrir nú, getur
það alveg eins gerst aftur og bitnað á þeim. Í saltfiskinum er sú hefð í viðskiptunum að kaupendur eiga sjálfir sínar birgðir, kaupa fiskinn á ákveðnum tíma, verka hann síðan og dreifa á helsta neyslutímabilinu. Þetta gera þeir til að ná fram ákveðinni verkun sem passar fyrir þeirra markað. En af því að þetta gerðist núna á þessum tíma fyrir jólin og síðan páska, ganga kaupendur á sínar birgðir og nokkrir viðskiptavinir sem við þekkjum til, voru hreinlega búnir með sínar brigðir. Þeir standa þá frammi fyrir því að aðalsölutíminn um páskana er að koma og þeir eiga ekki neitt. Þeir hugsa sér þá væntanlega að lenda aldrei í þessu aftur og taka því kannski upp viðskipti við aðra birgja en okkur Íslendingana.“
Niðursveifla í verði Gunnar segir margt hafa tapast. „Allir markaðir hafa skaðast á einhvern hátt. Enginn þeirra hefur sloppið alveg, en ferskfiskmarkaðurinn fór verst út úr þessu. Sá markaður sem er tiltölulega nýr, hefur verið okkur mjög dýrmætur og hefur verið að borga best. Núna, þegar við erum komnir
Myndir: Hjörtur Gíslason.
þar inn á ný, er komin niðursveifla í verðið. Að hluta til er það af markaðsástæðum þar sem Norðmenn koma inn með mikið af fiski á þessum tíma og verðið lækkar vegna mikils framboðs og að hluta til vegna þess að nýir birgar hafa komið inn í staðinn fyrir okkur. Það er að miklu leyti fiskur frá Noregi, sem hefur verið seldur óunninn til landa eins og Danmerkur og Póllands og ríkja í AusturEvrópu. Þar er hann svo unninn og seldur inn á fiskmarkaðina í Evrópu. Svo er það ansi erfitt að nú bitnar á okkur styrkingin á krónunni í ofanálag. Hún er líka að fara illa með okkur. Þetta allt saman gerir það að verkum að maður er svolítið eins og að byrja upp á nýtt og mikið þarf að leggja á sig til að ná sömu stöðu á ný, hvað þá að auka sóknina inn á markaðina. Núna þarf verulega að vanda sig.“ Staðan í Bandríkjunum er svipuð og í Evrópu, segir Gunnar. „Þeir taka stöðugt meira af fiski frá Noregi og vinna hann og selja sem „ferskar“ afurðir. Þannig hafa menn leyst stöðuna á ferskfiskmörkuðunum bæði í Bandaríkjunum og Evrópu með því að kaupa heilan fisk og vinna og selja sem
ferskan. Við komum svo þarna inn á ný, hægt og rólega. Það var þó einn kostur í stöðunni að um jólin og í byrjun árs voru margir hér að vinna ferskan fisk af smábátum og senda inn á markaðina og héldu leiðunum opnum að einhverju leyti. Þegar tveir mánuðir eru teknir út úr veiðum og vinnslu er óhjákvæmilegt að framhaldið verði annað en ella. Við komum til dæmis til með að vinna þorsk á tíma sem nýtingin er ekki eins góð og á öðrum tímum, þ.e. sumarið. Gæðin verða þá heldur slakari, en við verðum samt að vinna eitthvað upp af þessum tapaða tíma í sumar. Við verðum að vinna úr þessu í ár og á næsta ári, við náum því ekki á þessu kvótaári.“
Lágt verð á fiskmörkuðum Nú hefur fiskverð á mörkuðum innan lands lækkað umtalsvert miðað við sama tíma í fyrra og Gunnar gerir ráð fyrir að sú þróun verði viðvarandi fram yfir páska. Bæði sé mikil veiði og ákveðin fyrirstaða í afurðamörkuðunum að taka við fiskinum og verð lágt í krónum vegna gengisþróunar. „Þetta hefur svona hvað áhrif á annað. Svo má
SÓKNARFÆRI | 29
Alhliða þjónusta í sjávarútvegi Brandenburg | sía
Við höfum allt frá upphafi haft það að markmiði að sinna orkuþörf einstaklinga og fyrirtækja hratt og örugglega í sátt við umhverfið. Skipaþjónusta Skeljungs veitir alhliða þjónustu í sjávarútvegi, útgerð og vinnslu til viðskiptavina félagsins. Við leggjum ríka áherslu á fyrirtaks þjónustu við þessa mikilvægu atvinnugrein og munum halda því áfram um ókomin ár. Skeljungur — fyrir þá sem ferðast og framkvæma
Skeljungur hf. | Borgartún 26 | 105 Reykjavík | 444 3000 | skeljungur@skeljungur.is | skeljungur.is
30 | SÓKNARFÆRI
Meðalþyngd á þorski hefur stöðugt verið að aukast. Hér er verið að fletja fyrir söltun.
benda á að stóru fyrirtækin voru ekkert á mörkuðunum í verkfallinu og hafa ekkert verið þar enn, því nú hafa þau nægar veiðiheimildir fyrir sig. Þessi fyrirtæki hafa stundum haldið uppi verðinu, en þau eru ekki að gera það nú að minnsta kosti. Það hefur líka áhrif á markaðsverðið.“ Nú er krónan í hæstu hæðum, svipuð að styrkleika og fyrir hrun 2008, sem dregur verulega úr tekjum útgerðar, sjómanna og fiskframleiðenda. Gunnar segist ekki sjá annað framundan en að krónan verði áfram sterk og að þá verði einhverjir orðnir haltir þegar líða fer á sumarið. Þetta taki alveg svakalega í. Þetta umhverfi allt dragi svo úr heildartekjum útgerðar og fiskvinnslu og hafi áhrif á getuna til að greiða veiðigjöld, sem eru reiknuð út frá afkomu. Í þeim útreikningi er miðað við tveggja ára gamlar tölur, þannig að í ár verður borgað í samræmi við afkomuna 2015. Gunnar segir það mikið óhagræði og við ákvörðun veiðigjalda verði menn að taka tillit til þess að setja ekki allt í stórt stopp. Greinin verði að hafa eitthvað aflögu til endurnýjunar, uppbyggingar og þróunar. Sum árin sé afkoman góð og þá geti sjávarútvegurinn skilað meiru til samfélagsins, en því miður minna þegar illa árar.
Alls staðar góð veiði „Eftir lok verkfallsins fóru línuskipin að sækja á miðin suðvestanlands og vinnslan hefur gengið á hefðbundinn hátt. Við höfum aðallega verið að salta en líka verið að vinna í ferskt. Ferskfiskvinnslan hefur eðlilega dregist saman og því aukum við söltunina á móti. Við vonumst til að það þetta verði komið í meira jafnvægi þegar kemur fram á vorið.
Gunnar segir að það muni taka fyrirtækin langan tíma að vinna úr áhrifum af sjómannaverkfallinu.
Saltfiski pakkað í vinnslu Þorbjarnar.
Frystitogararnir byrjuðu af krafti í þorski til að fylla á pípurnar og síðan fara þeir í annað. Gnúpur fer í Barentshafið í þorskinn þar og svo fer Hrafn Sveinbjarnarson í karfa, ufsa og grálúðu til að vinna á kvótanum sem eftir er. Við eigum auðvitað eftir mikinn kvóta vegna þessa langa stopps en kosturinn er að það fiskast mjög vel. Menn þurfa jafnvel að halda aftur af sér til að ofgera ekki vinnslunni. Vinnslugetan um borð í frystitogurunum er takmörkuð og sníða verður veiðina að henni til að fara sem best
Á meðan ferskfiskmarkaðurinn nær sér sá strik á nýjan leik fer hærra hlutfall en áður í saltaðar afurðir hjá Þorbirni.
með hráefnið. Það er svipað á línunni. Fækka verður rekkum svo mannskapurinn á millidekkinu hafi undan við að taka á móti fiskinum. Ekki má kasta til hendinni, þó fiskirí sé mikið. Við kærum okkur ekkert um að vera með þriðja flokks fisk.“ Gunnar segist heyra af meiri áhuga í Portúgal á saltfiski frá Íslandi en verið hafi undanfarin ár. „Það eru aukin tækifæri fyrir okkur og vonandi að við getum þá hugað betur að þeim markaði, sem byggist á hefðbundinni saltfiskvinnslu. Gott að fá
rsf.is
Reiknistofa fiskmarkaða
Iðavellir 7 | 232 Reykjanesbær | rsf@rsf.is | Sími 420-2000
þann markað inn á sama tíma og við eigum í svolitlum erfiðleikum í ferska fiskinum. Við verðum að sinna þessum mörkuðum eins og við getum, þeir eru okkur mikilvægir og nú kemur á land ekta vertíðarfiskur, sem hentar vel í saltið.“
Vonast eftir auknum kvóta Meðalþyngdin á fiski fer nú hækkandi og það er alveg sama hvar menn eru, alls staðar er sama góða fiskiríið. „Nú er Hafró í togararallinu og netarall framundan. Vonandi koma þær mælingar vel út og að ástæða verði til að bæta við kvótann á næsta fiskveiðiári. Manni finnst að miðað við sífellt stækkandi hrygningarstofn og veiðistofn hafi kvóti aukist lítið í samræmi. Þeir hafa kannski nokkuð góð rök fyrir tillögum sínum, en ekki má gleyma því að nýtingarstuðullinn er kominn niður í 20% af veiðistofni, sem er í raun og veru alltof lágt. Það var farið með hann svona neðarlega vegna þess að menn voru alltaf í einhverjum pólitískum ráðstöfunum; að taka meira en nýtingarstuðullinn gaf tilefni til. Nú falla ákvarðanir undir nýtingarstuðulinn og hafa gert árum saman. Þar með mætti lyfta honum aðeins. Það eru margar þjóðir með mun hærri nýtingarstuðul en þetta. Svo lengi sem menn halda sig innan varúðarmarka við veiðarnar er það í góðu lagi.“ Gunnar segir að markaðir fyrir aukaafurðir eins og þurrkaða hausa séu enn erfiðir. Menn haldi sig við hefðbundna markaði. Þó verð sé lágt í Nígeríu séu þeir samt að kaupa. Markaðurinn sé þar enn, en greiðslugetan sé ekki sú sama og var. Það sé því ekkert að safnast upp í því. Þá sé aukin eftirspurn í Kína eftir hryggjum og dálkum og líka eftir sundmögum. Einnig sé fín eftirspurn eftir öðrum aukaafurðum eins og gellum og þunnildum og flakabitum. Kínverjarnir séu býsna margir og þar sé óplægður akur.
SÓKNARFÆRI | 31
Fiskeldisnám við Fisktækniskóla Íslands að hefjast Kennsla á eins árs námi í fiskeldi mun hefjast á þessu ári og fer námið fram í Fisktækniskóla Íslands í samstarfi við fyrirtæki í fiskeldi og Háskólann á Hólum. Námið er hagnýtt og mun miðast við að undirbúa nema undir þau margvíslegu störf sem eru í nútíma fiskeldisstöð. Markaðir sýna að hagvöxtur verður í sölu á sjávarfangi sem kemur frá fiskeldi, og að mikill vöxtur verði í greininni á næstu árum. Til að mæta þessari þróun þarf greinin því á vel þjálfuðu vinnuafli að halda á komandi árum. Inntökuskilyrði í námið er að hafa lokið námi í fisktækni, sambærilegu námi eða að nemendur hafi reynslu af tengdum störfum. Námið geta nemendur stundað með vinnu og verður kennt hálfs mánaðarlega í staðlotum frá seinniparti fimmtudags til laugardags. Námið gefur nemendum möguleika á því að komast í framhaldsnám í fiskeldi við Háskólann á Hólum. Í náminu verður lögð áhersla á hagnýta þekkingu á umsjón og eftirliti með vexti fiska ásamt því að
hafa umsjón með uppleystum efnum í vatni, seltu, lofttegundum, sýrustigi og eðlisþyngd vatns, næringarþarfir fisklifra, smáfiska og stærri fiska. Af öðrum áherslum námsins má nefna: Nemendur læra að kunna skil á helstu flokkum sjúkdóma í fiskeldi, skil á opinberu eftirliti með heilbrigði fiska í eldi, geti bólusett eldisfisk, baðað hrogn og seiði og greint algeng sníkjudýr á íslenskum eldisfiski í smásjá. Nemendur öðlast þekkingu til að gera einfaldar framleiðsluáætlanir og vaxtaútreikninga, áætlanir um fóðurþörf, fóðurkostnað og aðra kostnaðartengda þætti sem tengjast fiskinum og rekstri fiskeldisstöðvar. Nemendur læra að að gera einfalda útreikninga á vatnsþörf, flutningi vatns inn og út úr eldisrými, straumsetningu í keri, viðhaldi vatnsgæða og rýmisþörf. Nemendur öðlast þekkingu á næringar- og orkuþörf eldisfisks á ýmsum stigum og læra aðferðir við mat á vexti og fóðurnýtingu.
Fiskeldisnám við Fisktækniskólann er víðtækt og tekur til seiðaeldis, landeldis og sjóeldis.
Í náminu er fjallað um seiðaeldi, landeldi og sjóeldi, haf- og veðurfræði, lagnir og dælur, fóður og fóðrun, slátrun og allt um líffræði fiska og eldisfræði. Inngangur að efna- og líffræði er einnig lið-
ur í náminu og hvernig reikna á út fóður og vöxt miðað við rúmmál kerja. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu Fisktækniskóla Íslands og/eða hjá Klemenz Sæ-
mundssyni, klemenz@fiskt.is, sími 864 7171. fiskt.is
Skipatækni óskar útgerð og áhöfn Kaldbaks EA til hamingju með nýtt og glæsilegt skip
32 | SÓKNARFÆRI
Grindavíkurhöfn
Framkvæmdir við nýjan Miðgarð að hefjast Framkvæmdir við nýjan Miðgarð í Grindavíkurhöfn hefjast innan skamms en í fyrsta verkhluta verður rekið niður 250 metra stálþil framan núverandi stálþils. Þetta er framkvæmd sem beðið hefur verið eftir all lengi hjá Grindavíkurhöfn og skiptir verulegu máli fyrir þjónustu hafnarinnar enda fjórðungur af viðlegurými hennar. Þrjú tilboð bárust í verkið þegar það var boðið út fyrir áramót og segist Sigurður Arnar Kristmundsson, hafnarstjóri í Grindavík, vera mjög ánægður með niðurstöðu útboðsins.
Hagstætt tilboð „Á grundvelli tilboðs var gengið til samninga við fyrirtækið Hagtak hf. í Hafnarfirði en tilboð þeirra var rösklega 70% af kostnaðaráætlun þessa verkáfanga, um 270 milljónir króna,“ segir Sigurður Arnar. Auk þess að reka stálþilið niður tilheyrir jarðvegsfylling að þilinu einnig þessum verkáfanga en gengið er út
frá að honum verði lokið í haust. Síðari hluti verksins verður síðan steypa á þekju bryggjunnar en ekki er orðið ljóst hvort farið verður í þann verkþátt í beinu framhaldi. Tryggja þarf að landfylling hafi sigið að fullu áður en þekjan verður steypt. „Miðgarður er, ef svo má segja, hjartað í höfninni hjá okkur. Bryggjan er miðsvæðis og nýtist okkur bæði við afgreiðslu á fiskiskipum og flutningaskipum en raunar höfum við þjónustað flutningaskipin á öðrum stað í höfninni vegna þess að Miðgarður var orðinn úr sér genginn. Nýja bryggjan mun því skipta miklu fyrir þjónustu Grindavíkurhafnar til framtíðar og mæta þeim kröfum sem gerðar eru til hafnarþjónustu í dag,“ segir Sigurður Arnar.
Tekur við djúpristum skipum Auk stálþilsins, jarðvegsfyllingar og þekju tilheyrir dýpkun í höfninni þessari framkvæmd í heild en áætlað er að kostnaðar nemi yfir milljarði króna þegar upp verður staðið. Stefnt er að því að ná 8 metra dýpi
Sigurður Arnar Kristmannsson, hafnarstjóri í Grindavík.
Óskum áhöfn og útgerð til hamingju með nýtt og stórglæsilegt skip.
YANMAR aðalvél þ YANMAR hjálparvél þ REINTJES niðurfærslugír þ
Marás ehf. Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ Sími: 555 6444 - Fax: 565 7230 www.maras.is - maras@maras.is
BERG skiptiskrúfa þ SCANTROL autotroll þ NORSAP skipstjórastólar þ
Fagleg ráðgjöf, sala og þjónusta Bjóðum aðeins viðurkenndan búnað
Ljósmynd: Langhelgisgæsla Íslands
Óskum áhöfn og útgerð til hamingju með nýtt og stórglæsilegt skip.
SÓKNARFÆRI | 33
við viðlegukantinn og þannig geta stærstu skip lagst að bryggjunni. Þá er miðað við að hitakerfi verði í þekju Miðgarðsbryggju og að þær útgerðir sem það vilja geti tengst hitaveitu á bryggjunni. Nýjasta tækni í landtengingum og eftirlitsbúnaði með rafmagnsnotkun skipa er einnig í farvatninu tengt þessari framkvæmd en allt miðar þetta að því að nýta orku á bæði hagkvæmasta hátt og með sem minnstum umhverfisáhrifum. Gengið er út
frá að framkvæmdatíminn í heild verði 2-3 ár að meðtöldum dýpkunarframkvæmdum en næstu vikur og mánuði segir Sigurður Arnar að búast megi við þrengslum í höfninni. „Framkvæmdirnar munu hafa sín áhrif meðan á stendur,“ segir hann.
Landað við Miðgarð. Nýr viðlegukantur verður 250 metra langur.
Tölur í Noregi benda ekki til norskur sjávarútvegur hafi gripið tækifærið og aukið útflutning sinn á ferskum þorski meðan sjómannaverkfall stóð yfir á Íslandi.
Minni útflutningur á þorski frá Noregi Útflutningur Norðmanna á þorski, bæði ferskum og frystum, dróst saman í síðasta mánuði, þrátt fyrir verkfall sjómanna á Íslandi á sama tíma og litla samkeppni héðan á afurðamörkuðunum ytra. Líklegt hefði mátt telja að Norðmenn nýttu sér takmarkaðan útflutning héðan til að auka útflutning sinn, en svo virðist ekki hafa verið raunin. Norðmenn fluttu utan 12.600 tonn af ferskum þorski í febrúar að verðmæti 5,4 milljarðar íslenskra króna. Það er 1.200 tonnum minna en í sama mánuði í fyrra. Verðmæti útflutningsins lækkaði um 165 milljónir íslenskra króna eða 3% þrátt fyrir verðhækkun á þorskafurðaverði um 6% að meðaltali. Útflutningur á frystum þorskafurðum var 6.300 tonn að verðmæti 2,8 milljarðar króna, samdráttur um 1.000 tonn í magni og 101 milljón króna, eða 4% í verðmætum. Á fyrstu tveimur mánuðum ársins fluttu Norðmenn út 15.000 tonn af frystum þorski að verðmæti 6,2 milljarðar íslenskra króna. Betur gekk í útflutningi á þurrkuðum flöttum saltfiski sem náði 6.800 tonnum í febrúar. Verðmætið var 3,5 milljarðar. Aukning í magni varð 2.000 tonn og verðmætið hækkaði um 849 milljónir. Þar spilar inn í hagstæð þróun á gengi. Sala á blautverkuðum saltfiski dróst saman um 800 tonn og varð 2.000 tonn að verðmæti einn milljarður sem er samdráttur um 24%. Mest af þessum fiski fór til Grikklands og Portúgal.
Mikið fiskirí en lágt fiskverð Eftir rólega byrjun á árinu í Grindavíkurhöfn, líkt og flestum öðrum fiskihöfnum landsins, fóru hjólin að snúast á fullri ferð þegar sjómannaverkfallinu lauk. Fiskiríið hefur síðan þá verið með afbrigðum gott og segir Sigurður Arnar að á köflum láti nærri að skip þurfi að bíða löndunar.
„Verkfallið hafði að sjálfsögðu áhrif meðan á stóð og einnig í haust þegar í það stefndi. Á þeim árstíma sem verkfallið stóð landa bátar héðan gjarnan annars staðar og hefja síðan vertíðina hér um mánaðamótin janúar-febrúar. Fyrir rekstur hafnarinnar var því mjög mikilvægt að verkfallið stóð ekki lengur. En hins vegar skynjum við áhrif af lágu fiskverði á mörkuðum síðustu vikur. Það hefur áhrif á útgerðarmynstur bátanna. Sumir fara sér hægar núna vegna þessarar stöðu,“ segir Sigurður Arnar. grindavik.is/hofnin
34 | SÓKNARFÆRI
Nýtt skrokklag
sem skilar mikilli sjóhæfni segir Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja hf.
„Í þessum nýju togurum erum við að nýta okkur þá bestu þekkingu sem til staðar er í skrokkhönnun skipa og það skilar okkur betra sjóhæfni. Það er fyrst og fremst mikilvægt fyrir mannskapinn um borð en skilar líka ávinningi í mörgum þáttum, t.d. olíusparnaði, rými um borð og ýmsu öðru,“ segir Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja hf. um nýjan Kaldbak EA 1, skip Útgerðarfélags Akureyringa, sem er dótturfélag Samherja hf. Eins og fram hefur komið er Kaldbakur EA 1 fyrsti ísfisktogarinn af þremur sem Samherji og ÚA fá á þessu ári frá Cemre skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Smíði Kaldbaks hófst fyrir röskum tveimur árum í Tyrklandi og þessa dagana er smíði Björgúlfs EA 312 að ljúka.
Orkan nýtt sem best Kristján segir orkunýtingu og orkusparnað lykilþætti í þessum nýju skipum. Nýjar vélar eru spar-
Gamli og nýi Kaldbakur sigla saman inn Eyjafjörð.
Rúmgóður matsalur og setustofur.
Guðmundur Arason ehf. óskar útgerð og áhöfn Kaldbaks EA til hamingju með nýtt og glæsilegt skip
neytnari en áður var og einnig er varmi frá vélunum nýttur til upphitunar. Þá nefnir hann einnig að öll ljós í skipinu eru með LED tækni og nota því mun minni orku en almennt hefur verið í skipum fram til þessa. „Kaldbakur er tæplega 63 metrar á lengd, lítið eitt styttri en gamli Kaldbakur en hins vegar mun breiðari og það skiptir miklu máli fyrir alla vinnuaðstöðu um borð. Það er á allan hátt ólíku saman að jafna við gamla Kaldbak – hér erum við að fá nýtt skip í stað 43 ára gamals skips sem er mikið keyrt og orðið úr sér gengið,“ segir Kristján.
Vinnslubúnaður smíðaður á Akureyri Slippurinn Akureyri ehf. mun annast smíði aðgerðar- og vinnslulínu á vinnsluþilfar skipsins. Kristján áætlar að því verkefni verði lokið í júnímánuði og þá haldi skipið til veiða. „Í aflameðhöndlun á vinnsluþilfari er lögð áhersla á kælingu aflans en við gerum ráð fyrir að aflinn værði kældur með ískrapa í ker,” segir Kristján. Sú breyting er með þessari nýju kynslóð skipa að í stað þess að fiski sé raðað í ker í lest er frá honum gengið á sérstökum hleðlustöðvum á vinnsuþilfari en
SÓKNARFÆRI | 35
Sjávarútvegsráðherra fagnaði með starfsmönnum Samherja og gestum í brúnni á Kaldbak EA við komu skipsins til Akureyrar. Frá vinstri: Angantýr Arnar Árnason skipstjóri, Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf., Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra, Sigtryggur Gíslason skipstjóri og Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja hf.
Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með glæsilegt skip Eftirtalinn búnaður er frá Brimrún er í KALDBAK EA Siglingatæki Furuno FAR-2x17, X-Band Radar m/ 6.5’ loftneti Furuno FAR-2x17, X-Band Radar m/ 4’ loftneti Furuno MU-190, 19” IMO skjár Time Zero Professional, MaxSea siglingahugbúnaður, 2 stk. Tölvur frá Brimrún, fyrir Time Zero, 2 stk. Furuno FMD-3100, ECDIS, 2 stk. Furuno GP-170, GPS staðsetningatæki, 2 stk. Furuno FA-150, AIS tæki Aflestrarskjáir frá Brimrún, 3 stk. Cassen & Plath seguláttaviti Furuno SC-110, GPS áttaviti
Fiskileitartæki Furuno FCV-1900G, CHIRP dýptarmælir, 3 kW Furuno DFF3, FFS dýptarmælir, 3 kW WASSP, fjölgeisladýptarmælir, 80 kHz, 1 kW Furuno CI-68, straummælir, 244 kHz Marport M4
Fjarskiptatæki
Annar búnaður
Furuno FM-8900, GMDSS VHF talstöðvar, 2 stk Furuno FM-4721, VHF talstöð Furuno FS-1575, GMDSS MF/HF talstöð Furuno Felcom 18, GMDSS Standard-C tæki Furuno NX-700B, veðurriti (NavTex) Furuno KU-100, VSAT, internet og tal yfir gervitungl Tölva frá Brimrún, fyrir VSAT Palo Alto PA-200, eldveggur Iridium Open-Port, gervitunglasími Furuno PR-850, GMDSS hleðslutæki Furuno PR-300, GMDSS hleðslutæki McMurdo R5, GMDSS VHF talstöðvar, 3 stk McMurdo S5, AIS neyðarbaujur, 2 stk McMurdo G5A, EPIRB neyðarbauja Viðvörunar panell fyrir GMDSS í brú Rafmagnstafla fyrir GMDSS 3G netbeinir
Thies Clima, vindmælir David Clark, hjálma samskiptakerfi Veinland, vökustöð (BNWAS) Símkerfi Neyðarsímar, innanskips, 3 stk Kallkerfi Paging kerfi FM og sjónvarpsdreifikerfi með lekum COAX KNS gervihnattadiskur fyrir sjónvarp 32”, 47” og 60” sjónvörp, 14 stk Skrifstofutölvur, 5 stk Skjáveggur 32” tölvuskjáir, 2 stk 23” tölvuskjáir, 5 stk NMEA dreifikerfi með skiptaraplötu í brú
MAREIND
Reykjavík - Sími 5 250 250 – Akureyri - Sími 5 250 260
Grundarfirði Sími 438 6611
36 | SÓKNARFÆRI
Í þessum sal á vinnsluþilfari verður komið fyrir búnaði á næstu mánuðum til að gera að afla og ganga frá í kör sem síðan fara niður í lest skipsins.
lyftubúnaður sér um að færa kerin niður í lest. Vinnuaðstæður við frágang aflans í kerin eru þannig talsvert frábrugðnar því sem áður hefur verið.
Nýjung í lestarbúnaði Eina af tækninýjungum í Kaldbak er að finna í lest skipsins en Kaldbakur EA er fyrsta fiskiskipið í heiminum með nýjum búnaði frá fyrirtækinu Crane Solutions B.V. í Hollandi. Um er að ræða nokkurs konar hlaupakött. „Þessi búnaður nýtist til að flytja kör og að stafla þeim í lestina,“ segir Kristján en í hana kemst um 225 tonna afli. Kristján gerir ráð fyrir að 13 manna áhöfn verði öllu jöfnu á
Klefar eru eins og tveggja manna.
Kaldbakur EA 1 – Helstu stærðir Lengd 62,54 m Breidd 13,5 m Brúttótonn 2081 Mesti siglingarhraði 14 hnútar
Togkraftur Fiskvinnslusvæði Fiskilest
40 tonn 406 ferm. 995 rúmm. – 750 stk 460 lítra kör (225 tonn)
skipinu og er aðbúnaður eins og best verður á kosið. Stærstur hluti áhafnar er í eins manns klefum. Fjölmörg íslensk fyrirtæki hafa komið að verkefninu, auk starfsmanna Samherja, bæði á undirbúnings- og smíðatímanum. Þeirra á meðal eru tveir eftirlitsmenn sem hafa dvalið allan smíðatímann á vegum fyrirtækisins í Tyrklandi, þeir Baldur Kjartansson og Marius Petco. Þeir fylgja eftir smíði á þeim tveimur togurum sem enn eru í smíðum í stöðinni fyrir Samherja ásamt einu systurskipi FISK Seafood.
Til hamingju Samherji með nýja Kaldbak
Dagsbirta um nætur...
Um leið og við óskum Samherja, starfsfólki þeirra sem og öðrum Akureyringum innilega til hamingju með nýja Kaldbak langar okkur að fá að þakka fyrir það traust sem okkur og Rightlux LED lýsingarlausnum hefur verið sýnt.
Hlíðasmára 11 • 201 Kópavogur • Sími 551-3000 hermann@ledlysing.is • www.ledlysing.is • www.rightlux.is
SÓKNARFÆRI | 37
ÞORLÁKSHÖFN - framtíðarstaðsetning fyrir þitt fyrirtæki? Þorlákshöfn er á SV-strönd landsins og er hún eina flutnings- og fiskiskipahöfnin á Suðurlandi allt austur að Hornafirði. Frá Þorlákshöfn eru góðar og greiðfærar samgöngur á landi til allra átta, aðeins 40 km til Reykjavíkur og ekki nema 85 km í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eftir Suðurstrandarveginum.
Í Þorlákshöfn er mikið úrval lóða ætlaðar fyrirtækjum af ýmsum stærðum og gerðum. Fyrir liggur skipulag á stóru iðnaðar- og þjónustusvæði við höfnina og á upplandi hafnarinnar. Landrými er mikið og aðstæður allar góðar til uppbyggingar. Staðsetningin er mjög heppileg út frá helstu skilyrðum sem fjárfestar setja t.d. um staðarval fyrir iðnað og framleiðslu en er ekki síður kjörin vegna annarrar starfsemi. Vikulegar ferjusiglingar með Smyril Line Cargo milli Þorlákshafnar og Rotterdam munu hefjast í apríl 2017. Með þessari siglingarleið verður flutningstíminn sá stysti sem er í boði á sjóflutningum til og frá landinu.
Ef þetta eru kostir sem henta þínu fyrirtæki og/eða áhugi er á að skoða málið betur þá tökum við vel á móti þér.
olfus@olfus.is
Hafnarbergi 1 815 Þorlákshöfn 480 3800
38 | SÓKNARFÆRI
Sérhannað skip fyrir þau verkefni sem því er ætlað að leysa segir Bárður Hafsteinsson, skipaverkfræðingur og hönnuður Kaldbaks EA Bárður Hafsteinsson, skipaverkfræðingur hjá Verkfræðistofunni Skipatækni, hannaði Kaldbak EA 1 í samstarfi við stjórnendur og starfsmenn Samherja hf. Hann segir mikilsverðasta atriðið í hönnuninni felast í stærð skipsins. Ólíkt fyrri tíð hafi í hönnunarferlinu ekki þurft að laga skipið að einhverjum takmörkunum eða reglugerðum stjórnvalda. Með öðrum orðum hafi útgangs punkturinn verið að hanna skip sem best mæti öllum kröfum, þörfum og óskum útgerðarinnar.
Engar takmarkandi reglugerðir lengur „Í gegnum tíðina höfum við þurft að laga okkur að einhverjum reglugerðum, úreldingu eldri skipa eða einhverju slíku. Sjálfur hef ég lengi barist fyrir því að hægt væri að hanna skipin eingöngu út frá veiðiheimildunum og þeim verkefnum sem skipunum væri ætlað að leysa.
Kaldbakur EA 1 er því fyrsta skipið sem við hönnum óháð slíkum reglugerðum og takmörkunum,“ segir Bárður. Hann hefur áratuga reynslu í hönnun fiskiskipa og segir vissulega miður hversu gömul mörg lykilskip í fiskiskipaflotanum eru orðin. Æskilegt hefði verið að ný skip leystu þessi gömlu af hólmi mun fyrr. Sem dæmi þá var eldri Kaldbakur EA smíðaður á Spáni árið 1974 og því kominn á fimmta áratuginn í aldri. Því gefur auga leið að nýi Kaldbakur er gjörbylting frá því skipi.
Perustefnið skilar margvíslegum ávinningi „Það atriði við nýja Kaldbak sem vekur athygli flestra er væntanlega þetta mikla perustefni. Þetta er þróun sem hófst hjá okkur um 1985-1986 þegar togararnir Sjóli og Haraldur komu. Þeir voru með nokkuð stóra peru sem síðan hefur þróast áfram í hönnun og birtist í þeirri mynd sem fólk sér á Kaldbaki EA. Perustefnið skilar okkur
Kaldbakur á leið inn Eyjafjörð. Heimsiglingin frá Tyrklandi tók 14 sólarhringa og reyndist skipið hið besta.
VIÐ ERUM TIL STAÐAR FYRIR ÞIG
Nortek hefur stóraukið vörulínu sína til að geta þjónustað sjávarútveginn enn betur. Þegar velja
Nortek hefurfyrir stóraukið vöru-erog þjónustulínu sína til tæknilega að þjónusta sjávarútveginn enn á öryggistækni skip og útgerðir lykilatriði að hægt sé að fá aðstoð hvar og betur. hvenær sem er hjá innlendum fagaðilum til að tryggja rekstraröryggi. Þegar velja á öryggistækni fyrir skip og útgerðir er lykilatriði að hægt sé að fá tæknilega Hægt er að ná fram hagræðingu með því að fá ráðgjöf og þjónustu fyrir öll eftirlitskerfi á einum aðstoð hvar hvenær sem stað. Nortek er og því til staðar fyrir þig.er hjá innlendum fagaðilum til að tryggja rekstraröryggi. Við bjóðum upp á ráðgjöf og þjónustu fyrir öll eftirlitskerfi á einum stað, sem eykur hagræði og yfirsýn viðskiptavinarins. HÖNNUN Eykur verðmæti fjárfestingarinnar Vel hannaður búnaður uppfyllir væntingar um virkni, afkastagetu og eykur um leið öryggi fjárfestingarinnar. ÞJÓNUSTA Á vakt 24/7 Beint samband við tæknimann allan sólarhringinn. Þjónustusamningar og lögbundnar skoðanir á brunaviðvörunarkerfum, slökkvikerfum og handslökkvibúnaði.
BRUNAVIÐVÖRUN Hámarks stöðugleiki Rauntíma upplýsingar á milli stjórnstöðva tryggja styttri viðbragðstíma.
HANDSLÖKKVIBÚNAÐUR Viðurkenndur öryggisbúnaður Nortek er vottaður þjónustu- og eftirlitsaðili handslökkvibúnaðar.
LED LÝSING Minni orkunotkun Orkunotkun 1/7 af Halogen og tífaldur líftími.
MYNDEFTIRLIT Heildar yfirsýn á einum stað Frá stjórnstöð er auðvelt að fylgjast með allri starfsemi um borð. KALLKERFI Gott samband Tryggir gott samband um allt skip.
MOB BÁTAR / DAVÍÐUR Öryggisbátar Áreiðanlegir og aðgengilegir fyrir 6 manns með allt að 60 hp utanborðsmótor.
SAMSKIPTAKERFI OG DREIFISKÁPAR Skapa tölvubúnaði æskilegt starfsumhverfi Marine vottaðar lausnir til uppbyggingar á truflanafríu, nákvæmu og hröðu netkerfi fyrir lykilkerfi um borð í skipum. AFLGJAFAR / UPS / HLEÐSLUSTÖÐVAR Eitt samtengt kerfi Miðlægur varabúnaður og álagsdreifing stuðlar að öruggum rekstri.
18
NEYÐARLÝSING OG FLÓTTALEIÐAMERKINGAR Vísar leiðina í neyð Úrval neyðarljósa ásamt flóttaleiðamerkingum fyrir allar aðstæður. ORKUSTJÓRNUNARKERFI Minnkar kostnað og eykur öryggi Kerfið veitir upplýsingar um orkuþörf og notkun. Setur inn neyðarafl ef þörf krefur. SLÖKKVIKERFI Standa vörð um áhafnir og skip á sjó Með Novec 1230 færðu hraða og árangursríka brunavörn án þess að áhöfn, skipskerfi eða umhverfið skaðist.
BJÖRGUNAR- OG VINNUGALLAR Getur skilið á milli lífs og dauða Halda mönnum á floti, vernda fyrir hitatapi og lengja lífsmöguleika í sjó. UPPLÝSINGA OG VÉLGÆSLUKERFI Áreiðanlegt eftirlit Miklar upplýsingar frá kerfum. Rekjanlegt aftur í tímann, samtengimöguleikar og stjórnun búnaðar.
SJÚKRAHÚSBÚNAÐUR Læknir um borð Medi 3 heldur utan um birgðir apóteks. Gagnvirkt rauntímasamband við lækni í hljóði og mynd
NEYÐARKALLKERFI Tryggir öryggi Þráðlaus neyðarbúnaður sem sendir neyðarkall til stjórnenda.
TANKMÆLIKERFI Tryggir stöðugleika Með einföldum hætti fást upplýsingar um hámark og lágmark í hverjum tanki. Stjórnun á dælingu milli tanka.
Nortek og Nordata óska útgerðum og áhöfnum Kaldbaks og Engeyjar til hamingju með ný og glæsileg skip. Þökkum samstarfið
SÓKNARFÆRI | 39
„Kaldbakur er líka hljóðlátasta fiskiskip sem ég hef komið um borð í. Þessu er náð fram á margan hátt, bæði með vali á búnaði en að sjálfsögðu einnig í hönnuninni. Þannig eru klefar sérstaklega einangraðir, sama má segja um vélarrúm, gólf eru fljótandi og margt annað skilar því að skipið er afar hljóðlátt. Að sjálfsögðu skiptir það áhöfnina miklu máli en í heild er í hönnun skipsins horft til þess að gera skipið á allan hátt sem best úr garði fyrir áhöfnina, sem vinnustað og íverustað,“ segir Bárður. Vistlegir og vel búnir klefar.
margvíslegum ávinningi. Í fyrsta lagi betri sjóhæfni vegna þess að skipið klýfur ölduna í stað þess að það höggvi niður í hana og að þannig dragi úr siglingarhraðanum. Ávinningurinn er fyrir vikið að minni orku þarf til að knýja skipið í gegnum ölduna. Í skipinu sjálfu fæst líka mun meira rými vegna perustefnisins og það nýtist fyrir grandaraspilin og líka fyrir geymslur fyrir veiðarfæri og fleira,“ segir Bárður.
skipataekni.is
Góð yfirsýn er á togþilfarið úr brúnni.
Einstaklega hljóðlátt skip Ónefnt er enn það atriði sem að sjálfsögðu er mikilsverðast, þ.e. að-
búnaður áhafnar, hvort heldur eru vinnusvæði skipsins eða íverustaðir. Í brú eru allar þær helstu nýj-
ungar sem finna má í fiskileitar- og siglingatækjum, rúmgóðir klefar, setustofa og matsalur.
Orkan nýtist vel Aðalvél Kaldbaks er 1620 kílówött og sú orka segir Bárður að nýtist vel, bæði í siglingarhraða og togkrafti. „Skrúfan er einnig stærrri en áður tíðkaðist. Hún er 3,8 metrar í þvermál en var gjarnan um tveir metrar í þvermál á þessum 40 ára gömlu ísfiskskipum. Þau voru gjarnan með viðmiðum um togkraft upp á 17 tonn en til samanburðar er nýi Kaldbakur með 40 tonna togkraft. Munurinn er því mjög mikill. En við skulum líka hafa í huga að hér erum við að bera saman hönnun skipa með 40 ára millibili,“ segir Bárður. Rúmgott vinnsluþilfar Mörg önnur atriði vekja athygli þegar horft er til hönnunar Kaldbaks. Engar járnsúlur eru á vinnsluþilfarinu eins og alltaf tíðkaðist og það eitt og sér segir Bárður auðvelda verulega alla útfærslu vinnslubúnaðarins. Kaldbakur er ísfisktogari og lykilatriði í aflameðferðinni á vinnsluþilfarinu verður kæling aflans og meðferð hans en breytingin frá því sem almennt tíðkaðist áður fyrr er að frá aflanum verður gengið í ker á vinnsluþilfarinu í stað þess að aflinn fari á rennum niður í lest og að þar sé fiskinum raðað í kerin. Lyftubúnaður færir kerin niður í lest af vinnsluþilfarinu og þar er enn ein nýjungin í Kaldbaki, hollenskur lyftubúnaður, nokkurs konar hlaupaköttur, sem notaður er til að raða kerunum í lestina. Eins og annars staðar kemur fram um nýja Kaldbak verður búnaður á vinnsluþilfari smíðaður og settur í skipið á komandi mánuðum við bryggju á Akureyri. Rafmagn í öllum spilbúnaði Í Kaldbaki er allur spilbúnaður knúinn rafmagni og eru spilin frá norska framleiðandanum Seonics en umboðsaðili hér á landi er Vélar og skip. Sú lausn þykir bæði umhverfisvænni, sparar orku og er til muna hljóðlátari búnaður en vökvaknúnu spilin voru áður. „Orkunýting er einn af stóru þáttunum í hönnun skipsins og á öllum sviðum er horft til þess að spara orku og nýta sem best. Afgas er þannig notað fyrir upphitun skipsins og til að hita olíu. Þar er um að ræða varmaorku sem áður fyrr fór ónýtt út,“ segir Bárður.
Fagmenn
til SjóS og landS Kynntu þér málið á www.vm.is
VM-Félag vélstjóra og málmtæknimanna
-
Stórhöfða 25
-
110 Reykjavík
-
575 9800
Landsfélag í vél- og málmtækni
40 | SÓKNARFÆRI
Skipstjórarnir tveir, þeir Angantýr Arnar Árnason (t.v) og Sigtryggur Gíslason, í brúnni og hér við skjávegginn, eina af tækninýjungunum sem er að finna í skipinu. Þessi búnaður er frá Nordata ehf. í samvinnu við Brimrún ehf.
Brosum alveg hringinn segir Sigtryggur Gíslason, skipstjóri á Kaldbak EA „Við fengum allar veðurútgáfur á siglingunni frá Tyrklandi heim til Íslands þannig að kynntumst því vel hvernig skipið stendur sig í sjógangi. Við brosum bara alveg hringinn. Þetta er augljóslega mjög flott hönnun á skipi,“ segir Sigtryggur Gíslason, annar tveggja skipstjóra á Kaldbaki EA 1 en hinn skipstjórinn er Angantýr Arnar Árnason.
Öllu haganlega fyrir komið Sigtryggur segir ólíku saman að jafna að koma af gamla Kaldbak yfir á þann nýja. Enda aldursmunurinn á skipunum rösklega fjórir áratugir. „Þetta er vinnustaður sem áhöfnin býr jafnframt á og þá skiptir höfuðmáli hvernig aðbúnaðurinn er á öllum sviðum. Hér er enginn íburður en allt vel útfært, vandað og snyrtileg. Ég er ekki í vafa um að áhöfninni á eftir að líða vel hér um borð,“ segir Sigtryggur. Einn af mörgum þáttum sem nefndir hafa verið sem áhersluefni í þessari nýju skipahönnun er hljóðvistin og Sigtryggur segir það hafa sannað sig á heimsiglingunni. „Hljóðvistin er allt önnur en við höfum átt að venjast á gömlu skipunum og til að mynda hér uppi í brúnni þarf maður stundum að kíkja á mælana til að sjá hvort aðalvélin sé örugglega í gangi! Svo er það líka mikil breyting fyrir okkur skipstjórnarmennina að búið er að færa tölvubúnaðinn í sérstakt rými
Kaldbakur er fyrsta fiskiskipið með lyftarabúnaði í lest frá hollenska fyrirtækinu Crane Solutions B.V.
undir brúnni og kominn stór skjáveggur þar sem við höfum þau siglinga- og fiskileitarforrit sem við erum að vinna með hverju sinni. Þetta er fyrsta skipið sem kemur með þessum skjávegg en það er mikill munur að vera laus við hvininn og suðið sem fylgir tölvunum.“
Hreinn Skúli Erhardsson, yfirvélstjóri á Kaldbak við aðalvélina sem er japönsk af gerðinni Yanmar frá Marás ehf. Hún brennir bæði svartolíu og gasolíu.
Farsæld fylgt Kaldbaksnafninu Sigtryggur nefnir að fyrir skipstjórana sé einnig mikil bylting að fá það öfluga myndavélakerfi sem er um borð í skipinu. Úr brúnni má þannig fylgjast með 16 myndavélum um borð. „Við höfum með þessum hætti mikla yfirsýn á það
sem er að gerast í skipinu og mjög skýrar og góðar myndir. Það er mikið öryggi fólgið í því,“ segir Sigtryggur. Aðalvél Kaldbaks er 1620 kW og af gerðinni Yanmar. Vélin keyrir bæði á svartolíu og gasolíu. Líkt og annar búnaður skipsins reyndist hún vel á heimsiglingunni, að sögn Hreins Skúla Erhardssonar, yfirvélstjóra á Kaldbaki. „Það er mjög spennandi að koma heim með nýtt skip og halda síðan til veiða þegar þar að kemur. Ekki síst vegna nafnsins á skipinu sem á að baki 43 ára sögu hér á Akureyri. Þetta eru ánægjuleg tímamót,“ segir Sigtryggur.
SÓKNARFÆRI | 41
Óskum ÚA, Samherja og áhöfn til hamingju með glæsilegt skip
marport.com
533 3838
42 | SÓKNARFÆRI
Að þora að sættast Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók við embætti sjávarútvegsráðherra í upphafi árs 2017. Það hefur gustað um sjávarútveginn að undanförnu og vildi Sóknarfæri því grípa tækifærið og forvitnast aðeins um áherslur ráðherra í sjávarútvegsmálum, vegferð fiskiðnaðarins og framtíðarþróun. Var það óskaembætti að taka við ráðherradómi sjávaútvegs- og landbúnaðarmála? Blundar í þér sjávarútvegsáhugi? „Já, það má alveg segja að ég sé komin í óskastöðu hér í þessu ráðuneyti. Báðar þessar greinar, landbúnaðurinn og sjávarútvegurinn, hafa verið undirstöðuatvinnuvegir Íslendinga árum og öldum saman. En auk þess að hafa efnahagslega þýðingu eru þær samofnar menningu þjóðarinnar. Og það er viss rómantískur blær yfir sjávarút-
veginum. Þess vegna er varla annað hægt en að hafa áhuga á þessum málum og hann hef ég svo sannarlega. En einmitt vegna þess hve þessar greinar eru okkur þýðingarmiklar eru þær vandmeðfarnar og margar áskoranir fólgnar í því að stýra þeim. Í þjóðfélaginu eru uppi mjög ólík sjónarmið um þessar greinar, hvaða hlutverki þær gegna og hverju þær eigi að skila til samfélagsins. Það er hlutverk stjórnmálanna að reyna að skilja og sætta ólík sjónarmið. Ég tek því hlutverkið alvarlega og af miklum áhuga.“
Sjávarútvegurinn er fyrirmyndargrein Getum við enn talað um sjávarútveg sem burðargrein í íslensku atvinnulífi? „Í gegnum tíðina hafa Íslendingar að lang mestu leyti byggt afkomu sína á sjósókn og sjávarút-
Innan skamms mun taka til starfa nefnd sem hefur það verkefni að setja fram tillögur um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins og gjaldtöku fyrir aflaheimildir. Hún mun hafa breiða pólitíska skírskotun, horfa til ólíkra sjónarmiða og styðjast við bestu sérfræðiráðgjöf sem völ er á.“
vegurinn er svo sannarlega burðargrein í íslensku samfélagi enn í dag. Við höfum hins vegar horft upp á miklar breytingar í íslensku
Óskum útgerð og áhöfn Kaldbaks EA til hamingju með nýtt og glæsilegt skip
atvinnulífi á undanförnum árum. Hlutfallslegt vægi sjávarútvegsins er ekki það sama og það var. Um miðja síðustu öld voru sjávarafurðir um það bil 90% af heildarútflutningi þjóðarinnar. Þessi mynd er gjörbreytt í dag. En það eru aðrar greinar sem eru að vaxa. Sjávarútvegurinn er eftir sem áður sterkur. Það er gríðarlega jákvætt að atvinnulífið sé orðið fjölbreyttara og stoðirnar fleiri. Það er reyndar mjög athyglisvert að sjávarútvegurinn er í algjörum sérflokki að því er varðar arðsemi og framleiðni. Þetta var meðal þess sem fram kom í McKinsey skýrslunni um árið. Sjávarútvegurinn er með öðrum orðum fyrirmyndaratvinnugrein í þessu tilliti. Sterk atvinnugrein sem skilar miklum tekjum til samfélagsins. Svo má ekki gleyma því að í kringum sjávarútveginn hafa á undanförnum árum sprottið upp fyrirtæki sem byggja á þekkingu og hugviti, framsækin fyrirtæki sem t.d. framleiða hágæða tækjabúnað fyrir fiskvinnslu og fyrirtæki sem vinna margs konar verðmæti úr sjávarafurðum sem ekki voru nýtt áður fyrr. Verðmætasköpunin er því meiri en nokkru sinni fyrr. Sjávarútvegurinn er orðin þekkingariðnaður og getur af sér mikla sprotastarfsemi sem ella hefði ekki litið dagsins ljós. Ef við höfum þetta í huga þá held ég að það sé yfir allan vafa hafið að sjávarútvegurinn sé ótvíræð burðargrein í íslensku atvinnulífi.“
Samþjöppun í greininni hefur verið mikil á undanförnum árum – sérðu fyrir þér að sú þróun haldi áfram? „Samþjöppun helst í hendur við hagkvæmni upp að vissu marki. Við höfum byggt upp fiskveiðistjórnunarkerfi hér á Íslandi sem ýtir undir hagræðingu og er til þess fallið að auka arðsemi greinarinnar. Fyrirtæki í góðum rekstri dafna og stækka. Í þessu ljósi hefur samþjöppunin komið sér vel fyrir þjóðarbúið og fyrir skattgreiðendur. Á árum áður þurftu stjórnvöld gjarnan að styðja við bakið á sjávarútveginum þegar illa áraði, t.d. með gegnisfellingum. Í dag eru fyrirtækin almennt sterkari og hafa meiri burði til þess að stíga ölduna. Hins vegar hljóta því að vera takmörk sett hve mikil samþjöppun er æskileg. Reyndin er sú að í lögum eru takmörk fyrir því hvað einstakir aðilar mega halda um stóran hluta aflaheimilda. Og það verður ekki kvikað frá þeirri stefnu. Markmiðin með lögum um stjórn fiskveiða eru fleiri en einber hagkvæmni. Kerfið á að sjálfsögðu að byggja á sjónarmiðum um sjálfbæra nýtingu en það á jafnframt að stuðla að byggð og traustri atvinnu um landið allt. Ég vil líka leggja áherslu á sanngirni og réttlæti. Samþjöppun getur stangast á við slík sjónarmið. Við verðum alltaf að gæta þess að það ríki jafnvægi á milli hagkvæmnisjónarmiða og annarra sjónarmiða.“ Er í íslenskum sjávarútvegi og umræðu um greinina of mikið einblínt á kerfi og veiðar umfram það sem kannski skiptir enn meira máli, þ.e. markaðsmálin og sölu afurða? „Við höfum náð miklum árangri í veiðum og vinnslu. Eins og ég gat um áðan þá er íslenskur sjávarútvegur arðbær atvinnugrein sem byggir á skynsamlegri og sjálfbærri nýtingu auðlindarinnar. Þetta er nokkuð sem við getum verið stolt af. Auðvitað hefur líka verið unnið mjög gott starf í markaðssetningu. Íslensk fyrirtæki selja ferska hágæða vöru inn á markaði þar sem gerðar eru miklar kröfur. En það er líklega alveg rétt að við getum gert betur í þessum efnum. Kannski hafa langvarandi deilur um kvótakerfið og auðlindagjöld sett strik í reikninginn og gert það að verkum að athyglin hefur fyrst og fremst beinst að þessum átök-
SÓKNARFÆRI | 43
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. „Ef það á að skapast starfsumhverfi fyrir sjávarútveginn sem einkennist af raunverulegum stöðugleika og gerir útgerðarfélögum kleift að gera fyrirsjáanlegar langtímaáætlanir verður að ríkja samfélagsleg sátt um greinina. Þessi sátt næst ekki nema hún byggi á sanngirni.“
um. Ég veit hins vegar að það er mikill vilji til þess að setja kraft í markaðsstarfið. Ísland hefur jákvæða ímynd sem er jafnan tengd við hreinleika og óspillta náttúru. Við eigum að einsetja okkur að nýta þessa ímynd sem best og höfða til kröfuhörðustu neytendanna sem eru tilbúnir að greiða hærra verð fyrir framúrskarandi vöru. Ég tel að einn liður í þessari vinnu snúi inn á við, þ.e.a.s. að því að byggja upp sterkari vitund um íslenska matvælamenningu í samfélaginu. Í stað þess að selja bara fisk sem kemur úr sjónum getum við boðið upp á matvöru sem hefur sterka og raunverulega skýrskotun í söguna og menninguna. Nokkurs konar upplifun af íslenskum veruleika. Við ætlum á næstu vikum að hrinda af stað verkefni sem hefur einmitt þetta markmið; að leiða saman íslenska matvælaframleiðendur og hagsmunaaðila úr öðrum greinum, svo sem ferðaþjónustu og menningargeiranum. Hugmyndin er að efla vitund um matarmenningu og styrkja ímynd íslenskrar matvælaframleiðslu. Ég er sannfærð um að markaðssetning íslenskra sjávaráfurða gæti notið góðs af slíku.“
Græn þróun í sjávarútvegi Sjávarútvegur skiptir miklu varðandi þróun í losun gróðurhúsalofttegunda. Hyggst þú beita þér fyrir aðgerðum sem geti dregið úr henni í greininni? „Já, ég legg mikla áherslu á góða umgengni við náttúruna bæði í landbúnaði og sjávarútvegi. Stóra verkefnið sem við stöndum frammi fyrir í dag er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda til þess að sporna gegn hlýnun jarðar. Ísland hefur skuldbundið sig til þess að minnka kolefnislosun verulega frá því sem var árið 1990 og til þess að ná því markmiði verðum við öll að leggja okkar af mörkum. Þróunin í sjávarútveginum hefur reyndar verið mjög jákvæð. Á síðustu 25 árum eða svo hefur losun frá sjávarútvegi dregist saman um meira en 40%. Rafvæðing fiskimjölsverksmiðja hefur t.d. haft sitt að segja en líka meiri skilvirkni fiskiskipaflotans. En það má gera betur. Til að mynda hafa væntingar um aukna notkun lífeldsneytis ekki gengið eftir enn sem komið er. Ég bind líka vonir við að þróun veiðarfæra geti haft í för með sér enn meiri samdrátt í kolefnislosun. Togveiðar eru t.d. ákaflega orkufrekar og ný tækni gæti leitt til mikils elds-
neytissparnaðar. Þessi umhverfissjónarmið eru markmið í sjálfum sér. En það verður líka æ mikilvægara í markaðsstarfi að geta sýnt fram á umhverfisvænar veiðar og framleiðslu. Þannig að það eru margvíslegir hagsmunir í húfi. Ég mun svo sannarlega beita mér fyrir því að greinin í heild muni halda áfram að draga úr kolefnislosun eins og kostur er.
Endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins Mun þessi ríkisstjórn koma á langtímasamningum við útgerðir um aflaheimildir? Getur slíkt farið saman með aukinni markaðsvæðingu, líkt og Viðreisn hefur talað um? „Í málefnasáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að endurskoða skuli núgildandi fiskveiðistjórnunarkerfi. Þar er sérstaklega vikið bæði að langtímasamningum og markaðstengdri gjaldtöku, sem gæti t.d. falist í uppboðsleið. Þetta tvennt er fullkomlega samrýmanlegt. Bæði uppboð og samningar eru mikilvægur hluti af markaðshagkerfi. Það sem mestu máli skiptir er að rekstrarumhverfi útgerðarinnar verði fyrirsjáanlegt og hagfellt á sama tíma og þjóðin
njóti sanngjarns arðs af sameiginlegri auðlind. Ég trúi því að einhvers konar markaðsleið sé vænlegust til þess að ná þessum markmiðum. Gjaldtaka fyrir afnot af auðlindinni færi þá eftir markaðsaðstæðum hverju sinni, hún yrði í réttu hlutfalli við getu útgerðarinnar til þess að standa undir henni. Innan skamms mun taka til starfa nefnd sem hefur það verkefni að setja fram tillögur um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins og gjaldtöku fyrir aflaheimildir. Hún mun hafa breiða pólitíska skírskotun, horfa til ólíkra sjónarmiða og styðjast við bestu sérfræðiráðgjöf sem völ er á. En eins og ég segi þá er þessi vinna að fara í gang og við skulum sjá hvaða niðurstöður hún færir okkur.“ Eru einhverjar sérstakar áherslur sem þú hefur sem ráðherra hvað varðar breytingar í greininni? „Ég vil fyrst og fremst stefna að því markmiði að það skapist varanleg sátt um sjávarútveginn. Hann hefur verið bitbein í íslensku samfélagi alltof lengi. Atvinnugreinin getur ekki búið við það til langframa að um hana sé deilt jafn hart og verið hefur. Ef það á að skapast starfsumhverfi fyrir sjávarútveginn sem einkennist af raunverulegum
stöðugleika og gerir útgerðarfélögum kleift að gera fyrirsjáanlegar langtímaáætlanir, þá verður að ríkja samfélagsleg sátt um greinina. Þessi sátt næst ekki nema hún byggi á sanngirni. Þess vegna segi ég að þjóðin verði að njóta sanngjarns arðs af auðlindinni sem við eigum öll í sameiningu. En að sama skapi verður sjávarútvegur að vera arðbær atvinnugrein fyrir þá sem hana stunda og taka áhættu með því að fjárfesta í henni. Það eru sameiginlegir hagsmunir okkar allra að skapa þá sátt sem gerir greininni kleift að dafna og skapa verðmæti. Í mínum huga er þessi sátt nauðsynleg forsenda þess að sjávarútvegurinn verði þessi öfluga atvinnugrein til framtíðar. Við verðum að nálgast þetta verkefni af ákveðinni auðmýkt. Þegar hart er deilt þarf fólk að leitast við að skilja sjónarmið annarra og bera virðingu fyrir ólíkum hagsmunum. Hagsmunirnir og sjónarmiðin eru vissulega margslungin í þessu máli. En við verður alltaf verr sett ef við leggjum árar í bát og þorum ekki að takast á við áskorunina. Kannski er það lykillinn að sáttinni: að þora að sættast.“
44 | SÓKNARFÆRI
Hreint haf – hagur Íslands Hafið okkar er okkar dýrmætasta auðlind og virðing fyrir því verður að vera okkar helsta baráttumálefni. Sjómenn og aðrir sem umgangast hafið bera mikla ábyrgð á því að auðlindin og lífríki þess endist okkur vel og lengi.
Milljónir tonna af plasti í hafið Núna eru margar blikur á lofti í málefnum hafsins. Það eru stöðugar ráðstefnur um alls konar hættur sem steðja að lífríki hafsins og skal engan undra. Umgengni við hafið hefur ekki verið upp á marga fiska undanfarin ár og áratugi. Talið er að á hverju ári fari um 10% af því plasti sem framleitt er beint eða óbeint í hafið. Þetta eru risatölur og talað er um milljónir tonna. Víða eru strandlengjur svo þaktar af rusli og drasli að það sést ekki í sandinn. Svo eru heilu plastflekkirnir fljótandi í straumhvörfum og þar eru flekkirnir sem eru taldir stærstir á stærð við Frakkland, svo dæmi sé tekið. Svartsýnustu skýrslur segja að það muni ekki líða nema fáir áratugir þangað til að meira plast verði í hafinu en fiskar. Hvað er til ráða
Tómas J. Knútsson. Veiðarfæri eða hlutar veiðarfæra er gjarnan að finna í fjörunum.
gætu sumir spurt sig. Það þarf auðvitað að finna lausnir svo ekki fari mjög illa.
Meira en nóg á hafsbotinum Fyrir rúmum 20 árum hóf undirritaður að benda á umgengni í og við hafnir og strendur landsins. Í byrjun var þessi barátta mjög svo erfið og fórnarkostnaðurinn var mikill.
Alls kyns fólk, örugglega hið besta fólk, kallaði mig klikkaðan og sjúkan mann sem greinilega vantaði athygli. Ég var menntaður sportköfunarkennari og hafði stundað köfun í hartnær 20 ár. Köfunarferill minn byrjaði þegar ég var 16 ára árið 1973 og mitt fyrsta alþjóðlega skírteini var gefið út árið 1976 sem sportkafari. Árið 1991 lærði ég til
Sérefni óskar útgerð og áhöfn Kaldbaks EA til hamingju með nýtt og glæsilegt skip
International skipamálning www.serefni.is
Ker Umbúðamiðlunar eru eingöngu ætluð til leigu undir matvæli.
sportköfunarkennara og byrjaði á fullu að breiða út þann boðskap að virða hafið fyrir mínum nemendum. Þar sem ég lærði erlendis var brýnt fyrir okkur að ástunda í kennslu okkar að kynna fyrir nemendum umhverfisverkefni sem hægt væri að vinna að sem sportkafari. Það eru mörg stig sem hægt er að læra sem sportkafari og þegar reynslan er farin að segja til sín í sportinu er hægt að fara að t.d. lyfta að hafsbotni léttum hlutum með lyftibelgjum, tína rusl í poka og fleira sem nóg er af á botninum. Allar hafnir eru stútfullar af drasli sem í flestum tilfellum kemur frá sjómönnum, því miður.
54 þúsund vinnustundir í þrif strandlengjunnar Þarna fæddist hugmyndin að stofnun Bláa hersins sem undirritaður hefur rekið sem sjálfboðaliði allan tímann. Þau verkefni sem við höfum staðið fyrir eru yfir 130 talsins, sjálfboðaliðar eru yfir 2000 frá upphafi og unnar hafa verið yfir 54 þúsund vinnustundir við að þrífa strandlengjuna, nokkrar hafnir og mörg opin svæði, aðallega á Reykjanesinu en einnig höfum við farið í heimsóknir út á land. Samtals hafa verið tekin úr náttúru landsins yfir 1300 tonn af drasli (hráefni) og farið með í endurvinnslu. Næsta verkefni Bláa hersins er samstarfsverkefni með öflugum aðilum sem vilja endurvinna ruslið úr fjörunum. Hingað til hafa veiðarfærin verið um helmingur af því sem er í fjörunum, hitt er plast sem annað hvort er fleygt í hafið eða skolast af landi og út í sjó. Þær fjörur sem við förum reglulega og þrífum eru 7 talsins á Reykjanesinu og eiga það sammerkt að þar er um 1 tonn af rusli á kílómetra. Þetta er allt of mikið og er í raun algjörlega
óásættanlegt. Veiðarfærin sum hver veit ég að sjómenn missa við veiðar en annað fer óvart í hafið. Einnota ílát og olíubrúsar eru ofsalega algeng sjón, því miður. Á síðustu sjávarútvegssýningu var ég með til sýnis og glöggvunar fyrir gesti og gangandi sýningarglugga með rusli úr hafinu og af hafsbotni. Sjómenn sögðu mér margar sögur af því hvernig þessum málefnum væri háttað um borð hjá þeim og ég var mjög snortinn að heyra hvernig sumar útgerðir eru hreinlega með þetta allt á hreinu. EN einhverra hluta vegna fer ennþá alltof mikið rusl í hafið. Ef við tökum okkur tak og hugsum þetta þannig að hafið sé rúmið okkar þar sem við ætlum að sofa þá er ég fullviss um að þið mynduð ekki vilja hafa það fullt af drasli eftir erfiðan dag við veiðar. Blái herinn skorar á sjómenn að hugsa vel og vandlega um þessa mestu auðlind okkar, koma með það í land sem þeir ekki nota meira og setja í réttan endurvinnsluferil. Þá er ég viss um að með tíð og tíma snúum við þessarri óheillaþróun við og hafið verður okkar mesta auðlind um aldur og ævi. Ef einhverjir áhugasamir aðilar vilja sjá veg og vanda Bláa hersins í framtíðinni sem mestan þá eru frjáls framlög alltaf vel þegin. Við höfum oft viljað hætta en þá kemur alltaf eitthvað jákvætt til okkar sem heldur okkar baráttu áfram. Núna treysti ég á sjómenn á fleiri en einu sviði að hjálpa okkur að hafa auðlindina sem hreinasta. Það kostar blóð, svita og tár. Góðar stundir. Höfundur er Tómas J. Knútsson, stofnandi og formaður Bláa hersins.
SÓKNARFÆRI | 45
Reiknistofa fiskmarkaða
Ný uppboðsklukka komin í notkun Reiknistofa fiskmarkaða hefur tekið í notkun nýtt uppboðskerfi en það hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið. Eyjólfur Þór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri RSF, segir nýja kerfið skref inn í nútímann frá gamla kerfinu sem tekið var í notkun árið 2003. „Eldra kerfið var á sínum tíma bylting og gekk mjög vel en það var orðið barn síns tíma og erfitt að halda því við. Með nýja kerfinu höfum við meiri möguleika til áframhaldandi þróunar. Því kerfi fylgja að sjálfsögðu ýmsar nýjungar en þó er ekki um að ræða neinar byltingarkenndar breytingar fyrir notendur. Nýja kerfið er keyrt í vefviðmóti en áður hlóðu menn forritinu niður og keyrðu í sínum tölvum. Markmiðið er fyrst og fremst að þægilegra sé fyrir notendurna að vinna með kerfið en einnig er mikilvægt að geta bæði brugðist við ábendingum um það sem betur má fara og haldið áfram að þróa kerfið með nýjungum inn í framtíðina,“ segir Eyjólfur. Prófanir á uppboðskerfinu, eða klukkunni eins og það er í daglegu tali nefnt, fóru fram síðustu vikur og mánuði áður en kerfinu var formlega hleypt af stokkunum. Auk þess efndi Reiknistofa fiskmarkaða til kynningarfunda með notendum. „Notendur gátu því
Í höfninni í Grundarfirði.
komið á framfæri við okkur athugasemdum og ábendingum og verið á þann hátt virkir þátttakendur í þróun kerfisins á undirbúningstímanum,“ segir Eyjólfur.
Erlingur Þorsteinsson, yfirmaður tölvusviðs RSF hefur hefur haft umsjón með gerð nýja uppboðskerfisins og að baki honum eru þeir Ellert Eiríksson, stjórnarformaður RSF og Eyjólfur Þór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri RSF Mynd: Hjörtur Gíslason. að kynna nýja kerfið.
40% samdráttur í janúar vegna verkfalls Eyjólfur segir um 250 fiskkaupendur skráða með aðgang að uppboðskerfinu en að meðaltali gera um 100 virkir kaupendur tilboð í kerfinu á degi hverjum. Vegna sjómannaverkfallsins voru umtalsvert minni umsvif hjá fiskmörkuðunum í janúar síðastliðnum en alla jafna er. „Áhrifin eru þó mismunandi eftir mörkuðum. Salan í kerfinu hjá okkur var um 5000 tonn í janúar en rúm 8200 tonn á sama tímabili í fyrra. Það svarar til um
40% samdráttar milli ára. Víða út um landið eru smábátar stærsti hluti þeirra sem leggja upp hjá fiskmörkunum og þeir voru að róa eftir því sem gaf á sjó. Það er því misjafnt eftir svæðum og mörkuðum hversu mikil áhrif verkfallið hafði,“ segir Eyjólfur en hjólin fóru að snúast hraðar þegar verkfallinu lauk. „Samt má segja að enn sé eins mikill gangur og var áður þar sem verð hefur verið lágt á mörkuðunum og við vitum að sumar útgerðir halda að sér höndum meðan sú staða er uppi. En við erum mjög ánægð með hvernig nýja kerfið hefur staðið sig það sem af er,“ segir Eyjólfur. rsf.is
Samhentir óskar útgerð og áhöfn Kaldbaks EA til hamingju með nýtt og glæsilegt skip
46 | SÓKNARFÆRI
Blámar í örum vexti Fiskveiðiþjóðin Ísland hefur ekki mikið verið að markaðssetja fisk fyrir sjálfri sér. Í matvöruverslunum hefur úrvalið af ferskum fiski verið afar takmarkað, gjarnan boðið upp á fiskflök í hvítum frauðbakka sem lekur í innkaupapokann á leiðinni heim. Þegar Valdís Fjölnisdóttir og Pálmi Jónsson keyptu Blámar árið 2015 hafði hvorugt þeirra reynslu af störfum innan sjávariðnaðarins. Sem betur fer, má segja, því þau hafa komið með nýja og ferska sýn á markaðssetningu sjávarfangs á Íslandi, með handhægum og girnilegum neytendaumbúðum sem tryggja ferskleika. „Við sáum að það væri markaður fyrir handhægar neytendaumbúðir fyrir fisk,“ segir Valdís. „Við vildum gera fiskinn aðgengilegri og girnilegri, ekki síst fyrir yngra fólki sem er meðvitað um heilsuna en hefur ekki eldað eins mikið af fiski og eldri kynslóðir. Þetta hentar vel fjölskyldum og öðrum sem hafa ekki tíma til að standa í tímafrekri eldamennsku eða heimsækja fleiri en eina verslun á leiðinni heim úr vinnunni. Við bjóðum nú upp á margar tegundir af fiski, ferskan og hráan, og höfum verið að fikra okkur áfram með að bjóða upp á marineraðan fisk og aðra rétti sem
Vörur Blámars hafa vakið athygli fyrir fallega og handhæga hönnun á umbúðum.
hægt er að smella beint í ofninn. Þá færðu gómsæta og holla máltíð með lágmarks fyrirhöfn.“
Valdís Fjölnisdóttir og Pálmi Jónsson keyptu Blámar árið 2015 en fyrirtækið hefur vaxið ört síðan.
Útrásin góður skóli Vörur Blámars fást nú í verslunarkeðjum í Hong Kong og Danmörku og eru viðræður í gangi við aðrar borgir og lönd. „Hong Kong kom einfaldlega til vegna þess að það var tengiliður frá Hong Kong á ferðalagi hér á Íslandi, sá vörurnar okkar í verslunum og vildi koma þeim í sölu hjá sér. Það hefur gengið vonum framar en við erum nú komin í viðræður við verslunar-
keðjur um að selja í fleiri borgum í Kína. Í Kína er til siðs að kaupa í matinn á hverjum degi og eru kæliskápar og frystar litlir í samræmi við það. Þeim hentar því vel að kaupa vörurnar okkar,“ útskýrir Valdís. „Það er langt ferli og mikill skóli að koma nýjum vörum á markað erlendis. Það var til að mynda hátt í tveggja ára ferli að komast inn í IRMA verslunarkeðjuna í Danmörku sem leggur áherslu á gæðavörur. Verslunarkeðjur eru margar með sína staðla og þurfa að tryggja að ákveðnir
SÓKNARFÆRI | 47
Valdís segir mikla eftirspurn vera eftir fiski í handhægum neytendapakkningum.
hlutir séu í lagi áður en vörur eru seldar í verslunum þeirra. Það getur verið erfitt fyrir óþolinmóða, en að sama skapi er það ákveðinn gæðastimpill fyrir okkur að selja vörurnar þar,“ segir Valdís og viðurkennir brosandi að þolinmæðin sé ef til vill ekki hennar sterkasta hlið.
ýmsan vanda. Við höfum verið að prófa okkur áfram með og þróa nýjar vörur eins og tilbúna rétti, kryddleginn og marineraðan fisk,“ segir Valdís og bendir jafnframt á að áskoranir í starfsumhverfi hvetji oft til spennandi nýsköpunar. „Við lentum til að mynda í skorti á hráefni í nýafstöðnu verkfalli, eins og svo margir, en nýttum þann tíma í að þróa nýja vöru sem við settum nú á markað, Eðal fiskibollur og plokkfisk, sem hefur rokið út hjá okkur. Fiskibollurnar okkar eru 80% fiskur og plokkfiskurinn 65% fiskur en ekki aðallega sósa og kartöflur og er því sérlega hollur.“
Lítið um nýsköpun á neytendavörumarkaði Valdís segir ekki mikinn hvata fyrir nýsköpun í íslenskum sjáarútvegi, a.m.k. ekki hvað neytendavörur varðar. „Íslenskur sjávarútvegur gengur mjög vel og því hafa margir ekki séð þörf á að breyta til, fylgja straumnum eða þróa með sér nýjar vörulínur. Fjölmörg útgerðarfyrirtæki hafa ekki einu sinni starfhæfa heimasíðu. Við erum enn frumframleiðsluland og seljum fiskinn að megninu til beint úr landi óunninn. Þegar við hófum störf voru margir sem sögðu þetta vonlaust, að þetta hefði verið reynt og ekki gengið. En við höfum sem
betur fer afsannað það, það er engin ástæða til að fullvinna ekki fiskinn hér og markaðssetja hann beint til neytenda.“ Rannsóknir erlendis sýna að um 60% fisks á neytendamarkaði er rangt merktur, norski eldislaxinn sem neytandinn keypti dýru verði reynist kannski frá Grimsby. Rannsókn MATÍS frá því í fyrra leiddi einnig í ljós að í 30% tilvika var borinn fram allt annar og ódýrari fiskur en pantaður var á veitingastöðum í Reykjavík. Valdís segir að verslanir og neytendur á erlendum mörkuðum geri sífellt meiri kröfur um upprunavottun eða staðfestingu á því
að varan sé sú sem uppgefið er. „Í Hong Kong vildu þau til að mynda í fyrstu ekki þýða pakkningarnar okkar, því þær væru ákveðin sönnun þess að um íslenskan fisk sé að ræða: íslenskur fiskur sem er unninn og pakkaður á Íslandi. Þetta skiptir miklu máli og tryggir ennfremur að varan sem þú verslar sé sú sem hún á að vera. Þetta sýnir okkur ennfremur gildi þess og möguleika sem felast í því að fullvinna hráefnið hér heima.“ blamar.is
Fullt af góðum hugmyndum
Gjöfult samstarf við Sjófisk „Samhliða þessum öra vexti höfum við þurft að gera miklar breytingar, auka framleiðslugetu okkar og afköst. Við eigum nú í góðu samstarfi við Sjófisk sem hefur leyst
Fiskur í matinn
Norðanfiskur með nýja vörulínu Náðu þér í innilitakortið á næsta útsölustað okkar
Útsölustaðir Málningar: BYKO, Kópavogi • BYKO, Granda • Litaver, Grensásvegi • BAUHAUS • Vélsmiðja Árna Jónssonar, Hellissandi • Málningarbúðin, Ísafirði Vilhelm Guðbjartsson málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauðárkróki • BYKO, Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfirði • BYKO, Reyðarfirði ORMSSON VÍK, Egilsstöðum • Verslunin PAN, Neskaupstað • BYKO, Selfossi • Miðstöðin, Vestmannaeyjum • BYKO, Keflavík • N1 verslun, Grindavík
ÍSLENSKA / SIA.IS / MAL 81306 09/16
Norðanfiskur, dótturfélag HB Granda, hefur hafið kynningu á nýrri vörulínu sem kallast Fiskur í matinn. „Íslendingum býðst nú að kaupa ferskan fisk frá Norðanfiski í neytendavænum umbúðum sem auðvelt er að elda. Þær fisktegundir sem verða í boði eru bleikja, gullkarfi, lax, ýsa og þorskur. Vonast er til að með þessu verði hægt að auka neyslu Íslendinga á fiski og um leið auka þekkingu landsmanna á gullkarfa og hversu góður matfiskur hann er,“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda. Að sögn Vilhjálms tekst Norðanfiskur á við virkilega spennandi verkefni með þessari vörulínu sem breikkar enn vöruúrval fyrirtækisins. Hægt er að nálgast Fisk í matinn í Bónus og er vörulínan nú þegar komin í verslanir. Samhliða setti Norðanfiskur nýja heimasíðu í loftið, fiskurimatinn.is, en þar má finna úrval af girnilegum fiskuppskriftum ásamt fróðleik um þessa góðu matfiska.
48 | SÓKNARFÆRI
Stefnir í metár í kræklingaframleiðslunni Aðal ræktunarsvæði kræklings eru nú í Hvalfirði, Breiðafirði og Steingrímsfirði.
Bláskel er eftirsótt og anna framleiðendur ekki innlendri eftirspurn, auk heldur sem tækifæri eru í útflutningi. Afsetning afurða er því ekki vandamál í þessari atvinnugrein.
„Fari sem horfir á þessu ári þá gæti framleiðsla á kræklingi hér á landi numið um 200 tonnum og það yrði sögulegt met,“ segir Elvar Árni Lund, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Fjarðarskeljar ehf. og formaður Skelræktar, sem eru samtök skelræktenda hér á landi. Ræktunarlínur Fjarðarskeljar eru í Hvalfirði en helstu ræktunarsvæði bláskeljar þess utan eru í Breiðafirði og Steingrímsfirði. Ræktun hefur einnig verið reynd við Voga og Keflavík, á sunnanverðum Vestfjörðum, í Eyjafirði og á Austurlandi.
Íslenska tíðarfarið getur valdið usla Bláskeljarækt hér á landi er mjög lítil grein og hefur orðið fyrir talsverðum áföllum í gegnum tíðina. Elvar Árni segir að íslenska tíðarfarið geti haft mikil áhrif; stormar og úthafsaldan geti valdið miklum usla en sömuleiðis leika hitastigið og sólfarið stórt hlutverk. „Ræktunartíminn hér fyrir sunnan getur verið alveg niður í 16 mánuði en er alla jafna um 2 ár eða lengri fyrir norðan. Það skýrist af lægri sjávarhita fyrir norðan. Sólarljósið hefur líka mikið að segja um framganginn í þörungaframleiðslunni, sjávarselta og fleiri þættir,“ segir Elvar Árni. „Munur á milli ára getur verið
ótrúlega mikill. Nægir þar að nefna að sumarið 2015 einkenndist skelrækt í Hvalfirði af hægum vexti og skelin var illa undirbúin fyrir veturinn. Annað og gjörólíkt veðurfar einkenndi síðasta sumar og haustveður réðu ríkjum fram yfir áramót og skelvöxtur eftir því mikill.“
Reglugerð í vinnslu Margir hafa reynt fyrir sér í krækl ingarækt hér á landi á undanförnum árum en orðið frá að hverfa þar sem fyrirtækin hafa verið lítil og viðkvæm fyrir áföllum og kostnaði. „Því miður eru ekki tiltækar upplýsingar um margt af því sem hefur verið reynt í þessari rækt hérlendis og þar af leiðandi hætt við að mistök eigi sér stað aftur, sem
Vélar og Skip ehf. óskar útgerð og áhöfn Kaldbaks EA til hamingju með nýtt og glæsilegt skip Í skipinu er spil frá Seaonics
Elvar Árni Lund, framkvæmdastjóri Fjarðarskeljar ehf. og formaður Skelræktar, samtaka skelræktenda.
hefði verið hægt að forðast. Nauðsynlegt er að koma skipulagðri gagnasöfnun á. Árið 2008 var vinna vel á veg komin um tillögur um hvernig ríkisvaldið geti stutt við greinina en líkt og margt annað frá þessum tíma var það síðan lagt til hliðar um árabil. Við í Skelrækt fengum síðan áheyrn Sigurðar Inga Jóhannssonar, þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, árið 2015 og í framhaldi af því var skipaður starfshópur sem er langt á veg kominn að vinna reglugerð sem tekur á mörgum mikilvægum þáttum sem geta bætt starfsskilyrði kræklingaræktarinnar,“ segir Elvar Árni.
Vöktun á sjónum æskileg Litið til framleiðslu á bláskel á heimsvísu er þessi atvinnugrein hér á landi örsmá. „Kræklingaeldi er þekkt mjög víða í nágrannalöndum okkar, til að mynda í Noregi, við Írland og víðar. Við getum að einhverju marki sótt þekkingu erlendis og samt sem áður getum við ekki yfirfært allt til Íslands vegna þess að sumt í okkar aðstæðum þekkist ekki annars staðar. Okkar eigin þekkingaruppbygging er því mjög mikilvæg,“ segir Elvar Árni og bendir á að víða erlendis hafi framleiðendur aðgang að nákvæmri vöktun á sjónum á ræktunarsvæðum skeljarinnar og geti þannig brugðist við breytingum í sjónum, t.d. hvað varðar seltu. „Þetta er eitt af því sem æskilegt væri að koma á fót hér á landi. Áhugann skortir ekki hjá stofnunum á borð við Hafrannsóknastofnun heldur liggur vandinn í því að fjármagn er ekki til staðar.“
Kostnaðarsamar sýnarannsóknir Reglugerðir kveða á um að framleiðendur þurfa að senda sýni til rannsóknarstofa reglubundið til að tryggja sér uppskeruleyfi. Þessar rannsóknir eru alfarið erlendis enn sem komið er og kostnaður vegna þeirra því mjög mikill. „Núna er unnið að AVS verkefni sem gengur út á að þessar rannsóknir færist til Matís hérna heima og er Matís langt komið með að geta greint sumar tegundir eiturs nú þegar. Faggilding er þó ekki væntanleg fyrr en í haust, ef vel gengur. Með því yrði viðbragðstíminn mun styttri fyrir okkur framleiðendur og kostnaður við þetta ferli umtalsvert lægri. Greiningar sýna eru þessum litlu fyrirtækjum í kræklingaræktinni mjög mikill kostnaðarbaggi. Í nágrannalöndunum standa stjórnvöld hins vegar straum af þessum kostnaði þar sem litið er svo á að greining sýna og uppskeruheimildir í kjölfarið sé lýðheilsumál,“ segir Elvar Árni. Nægir markaðir Kræklingaræktendur þurfa ekki að hafa áhyggjur af afsetningu afurða sinna. Markaðir eru nægir. „Sú framleiðsla sem hefur verið hér á landi að undanförnu hefur öll farið á innanlandsmarkað. Nær öll framleiðslan er ferskvara og það takmarkar svolítið tækifærin í útflutningi því líftími vörunnar er um 10 sólarhringar eftir að skelin er skorin af línunum. Reyndar er okkur að opnast nýr og áhugaverður valkostur þegar Smyril Line hefur fraktsiglingar frá Þorlákshöfn nú í vor. Þá gætum við sent skel utan á föstudagskvöld, skipað henni upp í Rotterdam á mánudagskvöld og hefðum síðan viku til að selja skelina úti. Það breytir miklu. Hins vegar er mikill markaður hér heima og eftirspurnin vex samhliða auknum ferðamannastraumi. Bláskeljaræktendur hafa því fyrst og fremst framleitt fyrir innanlandsmarkað og við vitum að mörg hérlend veitingahús gætu tekið við mun meira magni ef við náum meiri stöðugleika í greinina og framleiðsluna. Tækifærin hvað þennan hluta kræklingaræktarinnar varðar eru því fyllilega til staðar.“ skelraekt.is
SÓKNARFÆRI | 49
WORLD SEAFOOD CONGRESS 2017 Vöxtur í bláa lífhagkerfinu Hagnýt nálgun og vandaðar rannsóknir til markaðsnýsköpunar, öruggs framboðs sjávarfangs og heilinda í framleiðslu matvæla. Matís ásamt þekktum alþjóðlegum samstarfsaðilum skipuleggur ráðstefnuna sem haldin verður í Hörpu 10.-13. september 2017, nú í fyrsta skipti á Norðurlöndum. Markmið ráðstefnunnar er að tengja saman íslenska og alþjóðlega nýsköpun ásamt heilindum í framleiðslu sjávarafurða við alþjóðastofnanir og alþjóðleg sjávarútvegsfyrirtæki. Meginviðfangsefni ráðstefnunnar er mikilvægi fjárfestinga og aukin þekking í samhengi við tæknilegar umbyltingar í virðiskeðju sjávarfangs. Meðal fyrirlesara eru: -
John Bell, Bioeconomy Directorate EC DG Ray Hilborn, University of Washington Tanja Hoel, NCE Seafood Innovation Cluster Lynette Kusca, Natural Machines David M. Malone, United Nations University Árni Mathiesen, FAO Marie C. Monfort, Marketing Seafood & Sea-Matters wsc2017.com
Fisheries Training Programme
50 | SÓKNARFÆRI
FISKELDI Hagnýtt eins árs nám hjá Fisktækniskóla Íslands í samstarfi við Hólaskóla og starfandi fyrirtæki í greininni. Kennsla fer fram í staðlotum. Fyrri lotan byrjar seinni partinn í ágúst og kennt fram í byrjun desember. Seinni lotan er frá miðjum janúar og kennt fram í maí. Inntökuskilyrði Nám í fisktækni eða sambærilegt nám. Reynsla og þekking úr sjávarútvegi og/eða fiskeldi fæst einnig metin til að uppfylla inntökuskilyrði.
Nánari upplýsingar Fisktækniskóli Íslands • Víkurbraut 56 • 240 Grindavík Sími 412 5966 • info@fiskt.is • www.fiskt.is og á Facebook
Um 15 tonn af grásleppu hafa komið sem meðafli það sem af er ári.
Minna um grásleppu sem meðafla Það sem af er ári hefur mun minna veiðst af grásleppu sem meðafla heldur en á sama tíma í fyrra. Aflinn nú er 40% af því sem landað hafði verið í fyrra, eða 15 tonn á móti 38 tonnum. Einnig er minna um að rauðmagi komi sem meðafli. Búið er að landa 12 tonnum af rauðmaga á móti 28 tonnum, hlutfallsega meiru en af grásleppunni. „Hluti þessa afla hefur farið á markað, en þó er það mun lægra
hlutfall heldur en 2016. Verðið á mörkuðunum hefur hins vegar tekið kipp upp á við. Fyrir hvert kíló af grásleppu hafa verið greiddar 76 kr sem er 46% hækkun milli ára. Rauðmaginn er einnig dýrari, verðið nú 129 krónur á móti 84 í fyrra – rúmlega 50% upp á við. Hvort veiði og verð á grásleppu er ávísun um gang vertíðarinnar sem hefst 20. mars næstkomandi skal ósagt látið,“ segir á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.
Aflinn í febrúar
刀礀欀猀甀最甀爀 昀礀爀椀爀 戀氀愀甀琀琀 漀最 ︀甀爀爀琀 䜀甀昀甀栀︀爀ﴀ猀琀椀搀氀甀爀 䠀︀爀ﴀ猀琀椀搀氀甀爀 䠀︀爀ﴀ猀琀椀欀攀爀爀
唀洀戀漀 漀最 ︀樀渀甀猀琀愀
Loðnan vegur upp minni botnfiskafla Áhrifa sjómannaverkfallsins gætir í tölum um fiskafla í febrúarmánuði en afli fiskiskipaflotans nam þá 85.678 tonnum, sem er 4% minna en heildaraflinn í febrúar 2016. Þetta segir þó ekki alla söguna því því uppsjávarafli var 65% meiri í febrúar í ár en í sama mánuði í fyrra og en botnfiskafli aftur á móti 58 prósentum minni. Þorskaflinn var í febrúar 14.500 tonn, eða réttur helmingur þess sem hann var í mánuðinum í fyrra. Sama hlutfall gildir um ýsuna en
samdráttur í karfa var aftur á móti rúm 80% milli ára. Botnfiskaflinn í ferbrúar í ár var 14,5 þúsund tonn og uppsjávaraflinn 65 þúsund tonn. Það er líka sérstakt við uppsjávaraflann í febrúar í ár að eingöngu var um að ræða loðnu, ólíkt því sem var í fyrra. Fiskaflinn á 12 mánaða tímabili, frá mars 2016 til febrúar 2017 dróst saman um 165 þúsund tonn, eða 14%, samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.
SÓKNARFÆRI | 51
Hlutverk okkar er að veita skipum öryggi og þjónustu
Velkomin til Grindavíkur!
Grindavíkurhöfn
Seljabót 2a, 240 Grindavík Sími 426 8046 (hafnarvog) GSM 660 7305 (hafnarstjóri) Fax 426 7435 ghofn@grindavik.is www.grindavik.is
52 | SÓKNARFÆRI
Íslenskur saltfiskur áberandi á föstunni á Spáni Þessar vikurnar er íslenskur þorskur vel sýnilegur í Barcelona og raunar um allan Spán. Liður í markaðsverkefni fyrir íslenskan útvatnaðan saltfisk er þátttaka í matarmenningarviðburðinum Ruta del Baccallà í Barcelona sem nú stendur yfir og lýkur þann 26. mars. Þar er um að ræða samstarf við DAMM Estrella bjórframleiðandann og útvatnarasamtökin Gremi de bacallaners, líkt og í fyrra. Þetta er í 5. sinn sem þessi viðburður er haldinn og í annað skipti sem markaðsverkefni fyrir íslensku saltfiskafurðirnar tekur þátt.
Náð til almennings með kynningum og samfélagsmiðlum Við opnun Ruta del Baccallà var komið inn á sérstök gæði íslenska þorsksins í pallborðsumræðum. „Kynningarefni frá okkur var hluti af fundargögnum, við fengum sýnileika á stórum skjá við sviðið og allir gestir fengu hágæða saltfiskhnakka merktan verkefninu, sem útvatnarar höfðu útbúið. Þá fékk „nýliði ársins“ meðal útvatnara verðlaun. Í þetta skiptið var nýliðinn Albert Om, þekktur katalónskur útvarpsmaður en þáttur hans heitir „Góðan daginn Ísland“. Fékk hann sérstakan verðlaunagrip merktan Bacalao de Islandia.
u.þ.b. 530.000 fylgjendur á Face book,“ segir Guðný Káradóttir, markaðsstjóri Iceland Responsible Fisheries hjá Íslandsstofu.
Kynningar, þátttaka í sýningum og viðburðum auk markvissrar miðlunar í gegnum samfélagsmiðla og aðra fjölmiðla er meðal þeirra verkfæra sem notuð eru í starfi markaðsátaks fyrir íslenska saltfiskinn á Spáni.
Í þessar vikur sem Ruta del Baccallà stendur mun markaðsverkefnið bjóða upp á þorsksmakk á ákveðnum sölustöðum en þar verður markaðsefni og svuntum dreift. Þá verða framleidd þrjú stutt myndskeið sem fjalla um upprunalandið Ísland, hefðirnar, sjómanninn og vinnsluna og munum við útvega myndefnið ásamt útvatnarasamtökunum. Þessum myndskeiðum verður m.a. dreift á Gastronósfera sem er öflugur matvælamiðill í eigu DAMM, með
Þorskurinn í 300 spænskum verslunum á föstunni Frá og með deginum í dag til 16. apríl, eða í kringum föstuna, mun íslenskur þorskur verða sýnilegur í 300 verslunum La Sirena verslanakeðjunnar um allan Spán. Þar af eru 250 verslanir í Madrid og Katalóníu. Efni frá Bacalao de Islandia um gæði og uppruna íslenska þorsksins verður nýtt á samfélagsmiðlum La Sirena í tengslum við kynninguna og vísað um leið á samfélagsmiðla Bacalao de Islandia. Á Facebook verður einnig getraunaleikur með Íslandsferð í vinning. Smakkviðburðir verða í völdum verslunum og kynningarefni um íslenska saltfiskinn vel sýnilegt. „Þar að auki munum við bjóða vinsælum matarbloggara að heimsækja Ísland og kynnast upprunalandinu. La Sirena er með 146.490 fylgjendur á Facebook og 4.232 á Twitter þannig að við teljum okkur ná til fjölda fólks með þessum hætti,“ segir Guðný. islandsstofa.is
Þeir eru girnilegir saltfiskréttirnir hjá Spánverjum.
GÆÐAVÖRUR FYRIR SJÁVARÚTVEGINN
Kemi ehf | Tunguhálsi 10 | 110 Reykjavík | S: 415 4000 | kemi@kemi.is | www.kemi.is www.kemi.is
SÓKNARFÆRI | 53
Íslenskt framleiðsla í 68 ár
Íslensk framleiðsla í yfir 70 ár
RB dýnurnar eru íslensk framleiðsla. RB springdýnurnar eru íslensk framleiðsla. Framleiddar í öllum stærðum. Gæðadýnur fyrirfyrir íslenska sjómenn. Gæðadýnur íslenska sjómenn. Seljum einnig:
Seljum einnig svamp-, heilsukodda yfirdýnur gelheilsukodda gelyfirdýnur latexog þrýstijöfnundýnur. þrýstijöfnunaryfirdýnur þrýstijöfnunarkodda eggjabakkadýnur
dúnkodda fíberkodda
Fást í öllum stærðum. Fást í öllum stærðum. Myndir á heimasíðunni: www.rbrum.is
Opið virka daga 09:00 til 18:00 / laugardaga 10:00 til 14:00
54 | SÓKNARFÆRI
Íslenskur sjávarútvegur, matur og menning í Boston Íslandsstofa hefur umsjón með þátttöku 15 íslenskra fyrirtækja í sjávarútvegssýningunni í Boston sem fram fer 19.-21. mars. Á þjóðarbásum Íslands munu fyrirtækin kynna fiskafurðir og tækni og lausnir fyrir sjávarútveg. Samhliða sýningunni fer fram í Boston kynning á íslenskum mat og menningu á vegum „Iceland Naturally“. Sjávarútvegssýningin í Boston er stærsta sýning sinnar tegundar í Norður-Ameríku og sækja hana um 22.000 manns. Þátttakendum frá Íslandi hefur fjölgað töluvert síðustu ár auk þess sem fjöldi gesta frá Íslandi sækir sýninguna heim. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra heimsækir sýninguna, hittir íslensku fyrirtækin og kynnir sér viðskiptaumhverfi þeirra.
Íslenskar afurðir og tæknilausnir kynntar Á afurðahluta sýningarinnar eru sameiginlegir hagsmunir íslenskra útflytjenda sjávarafurða kynntir undir merkjum „Iceland Responsible Fisheries“ með áherslu á vottun íslenskra fiskistofna og ábyrgar
Sjávarútvegssýningin í Boston er jafnan fjölsótt og hafa íslensk fyrirtæki í vaxandi mæli nýtt þennan vettvang til að ná augum og eyrum viðskiptavina vestan hafs.
fiskveiðar. Íslenskir framleiðendur og útflytjendur sjávarafurða sem njóta þjónustu viðskiptafulltrúans í New York og Íslandsstofu kynna afurðir sínar og þjónustu undir yf-
irskriftinni „Fresh or Frozen – Sourcing from Iceland“. Þetta eru HB Grandi, Iceland Seafood, Novo Food, Ice-Co Foods, Matorka, Reykjavík Seafood, Blámar, Arnarlax og Ísfiskur. Þau íslensku tæknifyrirtæki sem kynna á sýningunni lausnir tengdar veiðum og vinnslu eru Skaginn 3X, Valka, Optimar Kapp, Wise, Eimskip og Marel. Þá kynnir Matís í þjóðarbásnum ráðstefnuna
Landkynningarhátíðin Taste of Iceland verður nú haldin í áttunda sinn í Boston.
World Seafood Congress sem haldin verður í Reykjavík 10.-14. september næstkomandi en um er að ræða einn stærsta viðræðuvettvang í heimi á sviði verðmætasköpunar í sjávarútvegi og matvælaöryggis.
Markmiðið er að kynna Ísland og vörur og þjónustu frá Íslandi fyrir heimamönnum í gegnum upplifun á mat og menningu. Meðal menningarviðburða eru tónleikarnir Reykjavík Calling, myndlistarsýning og stuttmyndadagskrá.
„Taste of Iceland“ Landkynningarhátíðin Taste of Iceland verður haldin í Boston í áttunda sinn dagana 16.-20. mars.
islandsstofa.is
FRAMÚRSKARANDI lausnir fyrir fiskframleiðendur
Röntgenstýrð beina- og bitaskurðarvél
Nákvæmur bitaskurður
Hámarks nýting
Endalausir möguleikar
Tel: (+354) 430 0600 | sales@valka.is | www.valka.is
SÓKNARFÆRI | 55
56 | SÓKNARFÆRI
Öflugur sjávárútvegur er þjóðarhagur
Sigurbjörn ehf. Grímsey
Félag skipstjórnarmanna
Hvalur hf. Reykjavíkurvegi 48 220 Hafnarfjörður
VIGNIR G. JÓNSSON HF.
SÓKNARFÆRI | 57
Njóta skal byrjar þá býðst! Alþjóðlega sjávarútvegssýningin Iceland Fishing Expo/Sjávarútvegur 2016 var haldin sl. haust og tókst afar vel. Yfir 140 fyrirtæki auk umboðsfyrirtækja innan bása kynntu þar starfsemi sína og ríflega 12.000 gestir komu í heimsókn. Vegna frábærra undirtekta hefur verið ákveðið að halda næstu sýningu í Laugardalshöll dagana 25.-27. september 2019. Tryggið ykkur strax bás á þessari alíslensku stórsýningu sjávarútvegsins og nýtið einstakt tækifæri til að koma ár ykkar vel fyrir borð!
ICELAND FISHING EXPO Laugardalshöll Reykjavík Iceland
Sjávarútvegur 2019
25. - 27. september 2019
58 | SÓKNARFÆRI
Mikil óvissa hjá grásleppusjómönnum í upphafi vertíðar „Þegar veiðar á grásleppu hefjast er talsverð óvissa um verð afurðanna á vertíðinni og hvort dagafjöldinn verður sá sami og í fyrra eða hvort aðeins verða leyfðar veiðar í þá 20 daga sem reglugerðin kveður á um. Grásleppusjómenn vita því lítið um við hverju er að búast á vertíðinni framundan,“ segir Axel Helgason, formaður Landssambands smábátaeigenda um útlitið fyrir komandi grásleppuvertíð. Veiðar geta hafist þann 20. mars næstkomandi samkvæmt nýútgefinni reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins.
Litlar hrognabirgðir til Sótt var um grásleppuleyfi fyrir tæplega 250 báta í fyrra, sem var yfir 30% fækkun frá vertíðinni 2015. Aflinn í fyrra var 12.000 tunnur af hrognum. „Aðstæður núna hvað heimsmarkaðinn varðar eru nokkuð hagstæðar okkur. Íslendingar og Grænlendingar standa að baki stærstum hluta markaðar fyrir grásleppuhrogn á heimsvísu og á Grænlandi var talsvert minna veitt í fyrra en áður, eða um 5.700
Litlar birgðir eru til af grásleppuhrognum á heimsmarkaði en óvissa er um verð og dagafjölda á vertíðinni, auk þess sem gengisþróun hefur sín áhrif á væntingar manna um vertíðina.
Formaður Landssambands smábátaeigenda á ekki von á að ásókn í grásleppuleyfi aukist frá í fyrra.
tunnur. Því eru litlar birgðir til af hrognum og útlit fyrir að Grænlendingar auki ekki veiðar sínar frá því sem var í fyrra. Hvað þetta varðar er því ýmislegt jákvætt fyrir okkur en vandinn hins vegar sá að við höfum enga vitneskju um hvaða verð er í boði. Grásleppu markaðurinn er fákeppnismarkaður og kaupendur eru ragir við að
hafa frumkvæði að verði, því þegar verðið er orðið lágt þá skiptir hver króna máli í að halda sjómönnum í viðskiptum. Inn í þetta spila líka þættir eins og gengisþróun,“ segir Axel.
Veiðiráðgjöf liggi fyrr fyrir Grásleppu hefur orðið vart í þorskanetum í vetur og í sumum
tilfellum í verulegum mæli. Hafrannsóknastofnun mun gefa út ráðgjöf eftir að vertíð byrjar og þá skýrist hvort dögum verður fjölgað líkt og gerðist í fyrra þegar dögum var fjölgað í 32. „Meiri rannsóknir á grásleppu eru nauðsynlegar. Við vitum alltof lítið um þennan fiskistofn og það væri að mínu mati nauðsynlegt að
Skipahönnun | Ráðgjöf | Eftirlit
Skipahönnun, Nýsmíði og breytingar.
Verklýsingar, Til endurbóta og viðgerða.
Gerð verklýsinga og útboðsgagna, Kostnaðaráætlanir og mat á tilboðum.
Draft eða Bunker Survey, Úttektir af ýmsu tagi, t.d. ástandsskoanir við kaup, sölu eða leigu skips.
Eftirlit og umsjón, Með verkum, hvort sem það eru nýsmíði, breytingar eða viðgerði. Skoðun og ráðgjöf, Val á vélbúnaði skipa, hönnun vinnslulína um borð, útvegun tilboða og mat á þeim. Hallaprófanir, stöðuleikaútreikningar, Þykktarmælingar og tonnamælingar. Tjónaskoðanir og mat á tjónum á skipum, vélum og farmi.
Hús Sjávarklasans sími: 544 2450
Ráðgjöf um ISM- og ISPS- kóða, Alhliða ráðgjöf um skiparekstur og skipa- og vélaverkfræði. SOPEP Shipboard Oil Pollution Emergency Plan Viðbragðsáætlun við olíuóhöppum SEEMP Ship Energy Efficiency Management Plan Orkunýtingar áætlun skipa
Grandagarði 16 navis@navis.is
101 Reykjavík www.navis.is
veiðiráðgjöf lægi fyrir áður en vertíðin hefst í stað þess að hún komi þegar nokkuð er liðið af þessari stuttu vertíð. En miðað við allar aðstæður núna þá á ég von á því að fjöldi báta verði svipaður því sem var í fyrra,“ segir Axel.
SÓKNARFÆRI | 59
Það er gott að vera í viðskiptum við Samskip Pétur Hafsteinn Pálsson
ENNEMM / SÍA / NM78585
framkvæmdastjóri Vísis
> Við hjá Samskipum leggjum okkur fram um að kynnast viðskiptavinum okkar og þekkja þarfir þeirra Samskip bjóða upp á heildarlausnir á sviði flutninga og við leggjum stolt okkar í að uppfylla væntingar kröfuharðra viðskiptavina. Persónuleg og traust þjónusta um allan heim.
Saman náum við árangri
www.samskip.is