Sóknarfæri
SÓKNARFÆRI | 1
Október 2026
Frumkvæði og fagmennska í íslensku atvinnulífi
Íslenskur landbúnaður
2 | SÓKNARFÆRI
Gamlir traktorarar vekja alltaf áhuga en það eru fyrst og fremst nýjungarnar í vélbúnaði, þjónustu og framleiðslu sem gestir sýningarinnar Íslenskur landbúnaður 2026 munu njóta.
Íslenskur landbúnaður í Höllinni Íslenskur landbúnaður verður í aðalhlutverki á samnefndri sýningu í Laugardalshöll helgina 9.-11. október næstkomandi. Það er fagsýningarfyrirtækið Ritsýn sem stendur að sýningunni og er þetta þriðja landbúnaðarsýning þess. Sýningarrými seldust upp fyrir nokkrum mánuðum en sýnendur eru hátt í 100 bæði innan og utan dyra í Laugardalnum.
Íslenskur landbúnaður verður stöðugt fjölbreyttari og í raun sífellt mikilvægari fyrir íslenskt samfélag.
Endurspeglar fjölbreytileika og grósku Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri Ritsýnar, segir að það þurfi ekki að koma á óvart að drifkraftur landbúnaðarins endurspeglist í góðri þátttöku sýnenda. Áhugi almennings fyrir landbúnaði hafi komið skýrt fram í aðsókn að fyrri landbúnaðarsýningum og búast megi við því sama í ár. „Íslenskur landbúnaður verður stöðugt fjölbreyttari og í raun sífellt mikilvægari
fyrir íslenskt samfélag. Gestir munu fá að kynnast þessum mikla fjölbreytileika og grósku í fjölmörgum sýningarbásum í Laugardalshöll. Þar má nefna matvælafyrirtæki sem kynna hinar hreinu afurðir Létt yfir gestum og sýnendum á landbúnaðarsýningu.
okkar góða lands, hvers kyns þjónustu við landbúnaðinn og spennandi tæki sem verða sýnis bæði á inni- og útisvæðum. Svo fátt eitt sé nefnt. Það er af svo mörgu að taka, auðvitað er bara best fyrir gesti að spígspora um sýningarsvæðin og njóta þess er fyrir augu ber,“ segir Ólafur. Búist er við mikilli aðsókn á sýningunni.
Sóknarfæri Útgefandi: Ritform ehf. Ritstjóri: Jóhann Ólafur Halldórsson (ábm). Umsjón: Ritform ehf.
Rafræn útgáfa á blaðinu er á ritform.is og mbl.is Við erum líka á Facebook
Umbrot: Myndróf slf. Auglýsingar: Inga Ágústsdóttir inga@ritform.is
Prentun: Landsprent Dreifing: Íslandspóstur
Þrír sýningardagar og búist við metaðsókn Sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 er haldin í samstarfi við Bændasamtök
Íslands. Hún var síðast haustið 2022 og komu þá tugþúsundir gesta á sýninguna. Sýningin verður opnuð föstudaginn 9. október kl. 14 og verður opin þann dag til kl. 19. Sýningin verður opin kl. 10-18 laugardaginn 10. október og kl. 10-17. sunnudaginn 11 október.
landbunadarsyningin.is
Sérhæfing í útgáfu kynningarblaða Ritform ehf. sérhæfir sig í útgáfu kynningarblaða fyrir íslenskt atvinnulíf þar sem fjallað er um sjávarútveg, fiskeldi, ferðamál og fleira. Auk þess gefur fyrirtækið út sjávarútvegstímaritið Ægi og rekur sjávarútvegsfréttaveituna Auðlindina. Forsíðumynd: Jóhann Gylfi Jóhannsson
Léttum þér reksturinn Í rekstri er að mörgu að huga. Hjá okkur færðu orkuna, búnaðinn, rekstrarvörurnar og ýmsa þjónustu svo að þú getir einbeitt þér að því sem þú gerir best. Komdu í viðskipti og finndu léttu leiðina fyrir þig.
n1.is | 440 1000
4 | SÓKNARFÆRI
Aflvélar sækja fram á landbúnaðarsviðinu Aflvélar hafa undanfarin sex ár byggt markvisst upp landbúnaðarstarfsemi sína á Selfossi. Á landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll dagana 9.–11. október kynna Aflvélar og Búvélar fjölbreytt úrval véla og tækja ásamt nýju Yamaha umboði Aflvéla á Íslandi. „Hjarta landbúnaðarstarfseminnar er á Selfossi. Þar erum við með sýningarsal, verkstæði og varahlutaþjónustu og sjáum mikil tækifæri til frekari vaxtar,“ segir Friðrik Ingi Friðriksson, forstjóri og eigandi Aflvéla ehf.
Vélasalan hófst árið 1987 Friðrik Ingi stofnaði Aflvélar sem sjálfstætt félag árið 2004 en saga fjölskyldunnar í vélasölu hófst mun fyrr. Afi hans stofnaði Burstagerðina árið 1930 og faðir Friðriks Inga tók síðar við rekstrinum. Árið 1987 seldi Burstagerðin fyrsta flugvallarsópinn til Reykjavíkurflugvallar. Í framhaldinu náðust samningar við Schmidt, sem nú tilheyrir Aebi-Schmidt samstæðunni, um sölu á sérhæfðum vélum til viðhalds og snjóhreinsunar á vegum og flugvöllum. „Þegar Aflvélar voru stofnaðar árið 2004 var þegar komin sautján ára reynsla af vélasölu og samstarfi við flugvelli. Saga fjölskyldunnar á þessu sviði nær því aftur til ársins 1987,“ segir Friðrik Ingi.
Burstagerðin starfar enn við hlið Aflvéla í Garðabæ en einbeitir sér nú að framleiðslu bursta og sölu á hreinlætisvörum. Höfuðstöðvar Aflvéla eru í Garðabæ, landbúnaðarstarfsemin á Selfossi og auk þess er fyrirtækið með starfsstöð á Akureyri.
Valtra og Massey Ferguson Valtra er eitt helsta vörumerki Aflvéla á landbúnaðarsviðinu og hafa dráttarvélar merkisins lengi þjónað íslenskum bændum. Búvélar ehf. eru sjálfstætt félag sem er til húsa hjá Aflvélum á Selfossi. Búvélar annast sölu og þjónustu á Massey Ferguson dráttarvélum og landbúnaðartækjum og tóku við umboðinu árið 2020. Saga Massey Ferguson á Íslandi nær aftur til ársins 1949 og er merkið það söluhæsta á íslenska dráttarvélamarkaðinum frá upphafi. Aflvélar bjóða einnig minni dráttarvélar frá TYM, heyvinnutæki frá Pronar, haugsugur og mykjutæki frá NC og áburðardreifara frá Bogballe. Hjá Búvélum fást meðal annars heyvinnutæki, jarðvinnslutæki, skotbómulyftarar og þreskivélar frá Massey Ferguson. Síðsumars afhentu Búvélar nýja þreskivél til hóps bænda á Suðurlandi. Friðrik Ingi segir það endurspegla aukinn áhuga á kornrækt og samvinnu bænda um stórar fjárfestingar.
Á landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll kynna Aflvélar nýjasta umboð sitt sem er fyrir Yamaha sem meðal annars tekur til fjórhjóla og buggy bíla.
Aflvélar hafa lengi átt samstarf við Aebi Schmidt um sölu á sérhæfðum flugvallartækjum frá fyrirtækinu á Íslandi og Grænlandi.
Friðrik Ingi Friðriksson, forstjóri og eigandi Aflvéla ehf.
þjónustar búnað á flugvöllum bæði á Íslandi og Grænlandi. „Á flugvöllum eru gerðar miklar kröfur um afköst og rekstraröryggi. Flugbrautin þarf að vera tilbúin þegar flugvélin kemur og því þurfa bæði tækin og þjónustan að standast miklar kröfur,“ segir Friðrik Ingi.
Yamaha bætist við
Tækniframfarir verða einnig sýnilegar á landbúnaðarsýningunni. Þar verða meðal annars kynntar stiglausar skiptingar, sjálfvirk stjórnun vinnutækja og lausnir sem auka vinnuþægindi og bæta nýtingu vélanna.
Langt samstarf við Aebi Schmidt Starfsemi Aflvéla nær langt út fyrir hefðbundinn landbúnað. Fyrirtækið býður snjóplóga, snjóblásara, sópa og dreifibúnað frá framleiðendum á borð við Aebi-Schmidt, Tokvam og Pronar. Samstarfið við Aebi Schmidt á rætur að rekja til ársins 1987. Aflvélar hafa því nær fjögurra áratuga reynslu af sölu og þjónustu á sérhæfðum vega- og flugvallartækjum. Fyrirtækið
Búvélar, dótturfélag Aflvéla, er umboðsaðili fyrir Massey Ferguson sem er mest selda merki í dráttarvélum á Íslandi frá upphafi. Hér er ein af nýjustu vélunum í þeirri línu, Massey Ferguson S88.
Valtra dráttarvélar hafa notið mikilla vinsælda á Íslandi og hér er ein slík frá Aflvélum með Pronar fjölplóg og Tekvam snjóblásara sem fyrirtækið selur einnig.
Í byrjun hausts var gengið frá samningi um að Aflvélar taki við umboði Yamaha á Íslandi. Umboðið nær meðal annars til mótorhjóla, fjórhjóla, buggybíla, vélsleða, fjölnotabíla, utanborðsmótora, báta og sæþota. „Yamaha er eitt þekktasta vörumerki heims á sínu sviði og er þekkt fyrir einstök gæði og endingu. Vörurnar falla vel að núverandi starfsemi okkar og við munum byggja upp öfluga varahluta- og verkstæðisþjónustu samhliða sölunni,“ segir Friðrik Ingi. Yamaha umboðið verður kynnt á landbúnaðarsýningunni ásamt dráttarvélum og öðrum tækjum frá Aflvélum og Búvélum. Aflvélar hafa verið valdar Framúrskarandi fyrirtæki samfellt frá árinu 2018.
aflvelar.is buvelar.is
Ánægja er ... persónuleg þjónusta um land allt Sjóvá hefur verið efst tryggingafélaga í Íslensku ánægjuvoginni 9 ár í röð
6 | SÓKNARFÆRI MYND: BERNHARD KRISTINN
Hagsmunir okkar og dreifbýlisins fara saman segir Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar og framtíðar hjá Rarik „Hagsmunir Rarik, dreifbýlisins og þar með landbúnaðarins haldast mjög í hendur enda er okkar dreifisvæði um 93% af flatarmáli landsins. Háspennta kerfið okkar er um 10 þúsund kílómetrar að lengd og viðskiptavinir í kerfinu um 40 þúsund sem segir okkur að við erum með fjóra viðskiptavini á hvern kílómetra. Þetta undirstrikar þá mikilvægu grunnstoð sem við erum í dreifðum byggðum landsins,“ segir Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar og framtíðar hjá Rarik.
Um 84% dreifikerfisins í jarðstrengjum Kristín Soff ía segir þá áherslu síðari ára að færa loftlínur í jarðstrengi hafa stóraukið öryggi
í dreifingu og afhendingu raforku til landbúnaðarstarfsemi og annarrar atvinnustarfsemi í dreifðum byggðum. Nú er staðan sú að um 84% dreifikerfis Rarik eru í jarðstrengjum. „Vissulega geta samt sem áður komið upp rafmagnstruflanir í kerfinu en með jarðstrengjunum erum við laus við hættu af til dæmis áflugi og ísingu loftlína en vitanlega geta líka orðið truflanir í jarðstrengjakerfinu vegna flóða í ám, framkvæmda eða einhverra annarra þátta. En í alþjóðlegum samanburði erum við komin með mjög ásættanlegt afhendingaröryggi á okkar dreifisvæði og það er mjög mikilvægt. Okkar stóra markmið er að afhending raforku eigi ekki að vera hindrun í neinni
Loftpressur - mikið úrval
LANDVÉLAR | SMIÐJUVEGI 66 LANDVELAR.IS
atvinnustarfsemi á okkar dreifisvæði,“ segir Kristín Soffía og svarar því aðspurð að lokamarkmiðið sé ekki endilega að koma öllu dreifikerfinu í jarðstrengi heldur fyrst og fremst á þeim svæðum þar sem aðstæður eru erfiðari og meiri hætta á truflunum í loftlínukerfinu. „Á sumum svæðum erum við með mjög góðar loftlínur sem hafa verið tryggar og eiga talsverðan líftíma eftir og þær munu áfram gegna hlutverki sínu,“ segir hún.
Kristín Soffía Jónsdóttir.
Raforka er lykilþáttur í matvælaöryggi Í nútímalandbúnaði og ekki hvað síst í mjólkurframleiðslu, þar sem meirihluti framleiðslunnar treystir á mjaltaþjóna sem þurfa að vera virkir allan sólarhringinn, er afhendingaröryggi raforku lykilatriði. Stjórnvöld og Rarik unnu að sérstöku átaksverkefni fyrir nokkrum árum þar sem sérstaklega var hugað að þessum þætti gagnvart mjólkurframleiðslunni. „Í þessu samhengi er mér mjög hugleikið hvort við Íslendingar þurfum ekki að huga mun betur að matvælaöryggi í landinu. Á stundum er eins og bændur sitji einir uppi með umræðu um þennan mikilvæga þátt í samfélaginu. Að mínu mati mættum við gera mun betur, vera stefnumiðaðri í því hvert raforkan á að fara og beita þannig löggjöfinni til að tryggja örugga afhendingu raforku til matvælaframleiðslu. Afhendingaröryggi snýst bæði um aðgengi að orku og verð. Við þurfum öll að standa vörð um það að landbúnaðurinn sé ekki í samkeppni um raforkuna við aðra starfsemi, sem mögulega er tilbúin að greiða hærra verð. Hagsmunir landbúnaðarins, önnur atvinnustarfsemi og nýsköpun í dreifbýlinu á allt undir því að aðgengi að raforku sé gott og okkar hlutverk hjá Rarik er að tryggja að
Vel undirbúin fyrir orkuskiptin
Að mati Kristínar Soffíu þarf að auka umræðu hvert innlend raforka á að fara og beita löggjöf til að tryggja örugga afhendingu raforku til matvælaframleiðslu.
svo sé. Þess vegna fara hagsmunir okkar og landbúnaðarins algjörlega saman í þessum málum. Vegna þeirrar fjárfestingar sem liggur í dreifikerfinu er það okkar hagur að landbúnaður og önnur atvinnuuppbygging í dreifbýli séu öflug og að mínu mati mætti almenningur standa meira með þeirri orðræðu um matvælaöryggi sem bændur hafa haldið á lofti,“ segir Kristín Soffía.
Auk áherslunnar á að færa línur í jörð segir Kristín Soff ía það markmið Rarik að þrífasa rafmagn verði komið á öll byggð ból fyrir 2030. Hún segir fyrirtækið einnig horfa til þess að styðja við orkuskipti í dreifðum byggðum eins og er áhersluefni á öðrum sviðum samfélagsins. „Við sjáum vöxt í hleðsluálagi á okkar svæðum og erum mjög meðvituð um að það hvernig til tekst í orkuskiptum í dreifbýli byggist mjög á því hvernig við stöndum okkur í að styðja við fjölgun hleðslustöðva. Við höfum unnið aflspá fyrir okkar dreifisvæði sem miðar að fullum orkuskiptum á komandi árum og það er sú sviðsmynd sem við vinnum út frá í okkar fjárfestingum og uppbyggingu kerfisins. Við erum því vel undirbúin með okkar kerfi til að taka af fullum þunga þátt í að ná árangri með okkar viðskiptavinum í orkuskiptum framtíðarinnar,“ segir Kristín Soff ía Jónsdóttir.
rarik.is
Nánar á aflvelar.is:
Motocross & Endurohjól
Buggy bílar
Fjórhjól
Nýtt heimili Yamaha á Íslandi Utanborðsmótorar
Sæþotur
Enginn vír. Engin viðmiðunarstöð
KÍKTU VIÐ HJÁ OKKUR Á LANDBÚNAÐARSÝNINGUNNI 9.–11. október Básar B-28/29/30/35 Útisvæði A & B
GARÐABÆ | SELFOSSI | AKUREYRI | sími 480-0000 | www.aflvelar.is
8 | SÓKNARFÆRI
Sterkar rætur Vélfangs í landbúnaði „Okkar þjónusta er fyrst og fremst við landbúnað og verktaka. Fyrirtækið var á sínum tíma stofnað um þjónustu við landbúnað og í þeirri grein má segja að rætur okkur hafi alltaf verið hvað sterkastar. Bændur eru frábærir viðskiptavinir, margir hafa fylgt okkur frá upphafi og eins og gengur myndast sterk vinatengsl í gegnum svona samvinnu. Við erum auðvitað glaðir að sjá bú þar sem öll tæki eru frá okkur en erum líka meðvitaðir um ábyrgðina því bændur þurfa að treysta á góð tæki og góða þjónustu þegar stuttur tími gefst á sumrin til að ná sem bestum vetrarforða,“ segir Eyjólfur Pétur Pálmason, forstjóri Vélfangs ehf. sem flytur inn og þjónustar fjölbreytt úrval landbúnaðartækja. Fyrirtækið stofnuðu Eyjólfur og fjórir vinir hans fyrir 22 árum og hafa síðan markvisst byggt reksturinn upp í að verða eitt af stærri þjónustufyrirtækjum landsins á sínu sviði. Vélfang er með starfsstöðvar á þremur stöðum á landinu, þ.e. í Reykjavík, á Akureyri og þá nýjustu á Selfossi. Á öllum stöðunum rekur Vélfang þjónustu- og viðgerðaverkstæði.
Endalaus þróun og nýjungar Meðal þekktustu vörumerkja sem Vélfang hefur að bjóða fyrir landbúnað eru Fendt dráttarvélar, Claas dráttarvélar og heyvinnutæki, Kuhn heyvinnutæki, Kverneland jarðvinnslutæki og Schäffer liðléttingar. Nýjasta umboðið hjá Vélfangi eru Strautmann sjálfhleðsluvagnar, taðdreifarar og fóðurblandarar. „Við fengum umboð fyrir Strautmann í fyrra og höfum þegar selt nokkra sjálfhleðsluvagna fyrir stæðuverkun á heyi. Það eru æ fleiri að horfa til þessarar verkunaraðferðar í heyskap af ýmsum ástæðum. Heyskapurinn gengur hratt fyrir sig, fóðrið er strax komið heim í stæðu, það hentar vel að vera með
Eyjólfur Pétur Pálmason, forstjóri Vélfangs, stofnaði fyrirtækið ásamt félögum sínum fyrir 22 árum og hefur síðan byggt markvisst upp þjónustu við landbúnaðinn og fleiri greinar.
Nýjasta umboð Vélfangs er Strautmann sem framleiðir sjálfhleðsluvagna, taðdreifara og fóðurblandara.
FENDT 516 Gen4 dráttarvélin verður sýnd í fyrsta skipti á svæði Vélfangs á landbúnaðarsýningunni.
Búum er að fækka og þau stækka. Um leið er áberandi að þörfin fyrir stærri vélar eykst samhliða því að annar vélbúnaður verður stærri og öflugri. Í dag má segja að lágmarksstærð á dráttarvél í landbúnaði sé komin upp undir 150 hestöfl en var vel innan við 100 hestöfl þegar ég var að byrja í þessu.“
Íslenskir bændur áhugasamir um framfarir
CLAAS 6.190 dráttarvél verður frumsýnd á sýningunni Íslenskum landbúnaði 2026. stæðu þegar notaðir eru fóðurblandarar í fjósunum, síðan má nefna plastsparnað og ýmislegt fleira sem bændur horfa til. Þetta er gott dæmi um þá endalausu þróun sem er í landbúnaðinum og þar með í okkar framboði af tækni og tækjabúnaði. Það má aldrei stoppa,“ segir Eyjólfur.
Dráttarvélarnar stærri en markaðurinn minni Mikil þróun er í dráttarvélum, líkt og öðrum landbúnaðartækjum sem Vélfang hefur að bjóða. Fendt og Claas eru framleiðendur sem hafa mjög langa sögu að baki sér
í framleiðslu á dráttarvélum og hafa báðar tegundir selst vel hér á landi á síðustu áratugum. „Sala dráttarvéla hefur verið ágæt á þessu ári en auðvitað hefur almenn þróun í landbúnaði haft mikil áhrif. Bændum hefur fækkað mikið síðustu áratugi og sem dæmi þá seldust um 300 nýjar dráttarvélar hér á landi árlega þegar ég kynntist þessari þjónustu fyrst um síðustu aldamót. Í fyrra voru nýskráðar 85 dráttarvélar þannig að markaðurinn hefur dregist mikið saman. En þetta er ekki bara þróun hér á landi, þetta er að gerast með sama hætti í öðrum löndum.
Almennt segir Eyjólfur að íslenskir bændur séu mjög áhugasamir um framþróun í landbúnaðartækni og fylgist vel með því sem er að gerast á þessu sviði erlendis. Vélfang leggi sig fram um að bjóða nýjustu tækni í tækjum hér á landi, greininni til hagsbóta. „Dæmi um tækni sem komið hefur fram á síðari árum er GPS staðsetningarbúnaður fyrir dreifingu á áburði til að tryggja hárrétta nýtingu áburðar og að skörun verði ekki í dreifingu. Annað dæmi er mikil þróun í sáðvélum bæði fyrir kornrækt og endurræktun túna. Síðan get ég líka nefnt búnað frá Slurry Cat á Írlandi sem við seljum sem eru svokölluð slöngukerfi fyrir dreifingu á húsdýraáburði. Þá er búnaður settur upp heima í haughúsi sem dælir í slöngu allt að sex kílómetra út á tún og þar er traktor með greiðubúnað tengdur við og leggur áburðinn út. Þetta er tækni sem afkastar margfalt meira en hefðbundin útkeyrsla, 250-300
rúmmetrum á klukkustund á móti um 50 rúmmetrum á klukkustund í útkeyrslu með haugsugu. Því til viðbótar er svo tímasparnaðurinn, minni eldsneytiskostnaður og minna álag á túnin. Við höfum líka séð hjá viðskiptavinum að þeir sem nýta sér þessa tækni komast fyrr af stað í dreifingu á vorin,“ segir Eyjólfur.
Góð þjónusta lykilatriði Tækninni fleygir svo sannarlega fram í landbúnaði. Þrátt fyrir að margir telji að meiri tæknibúnaði fylgi hærri bilanatíðni segir Eyjólfur það ekki sjálfgefið. Skynjarabúnaður eða mengunarvarnabúnaður í t.d. dráttarvélum standi sig mjög vel. „Eins og í allri annarri tækniþróun þá verður þessi búnaður ódýrari með árunum og þróast. Mín tilfinning er sú að dráttarvélar hafi verið hlutfallslega talsvert meiri fjárfesting fyrir nokkrum áratugum en er í dag. En hvað okkar rekstur varðar þá er þjónustan lykilatriði. Ráðgjöf fyrir viðskiptavini og rekstur þjónustuverkstæða, að eiga helstu varahluti og að bregðast hratt við þegar viðskiptavinir þurfa á að halda. Sjálf sala tækjanna er bara byrjunin,“ segir Eyjólfur Pétur Pálmason.
velfang.is
DUCAR Rafstöð bensín 3Kw 212Cc VNR: DG4650
68.700 kr. DUCAR Háþrýstidæla bensín 303 bör 420cc VNR: DGPW44T
159.750 kr.
DUCAR Rafstöð
bensín 9,5Kw 550Cc VNR: DG14500E
189.750 kr. DUCAR Háþrýstidæla
bensín 254 bör 212cc VNR: DGPW3400H
49.750 kr.
Réttu olíurnar fyrir vinnuvélina
Smurolíur, gírolíur og glussi fyrir krefjandi vinnu og íslenskar aðstæður.
Sendum um land allt!
Kemi ehf | Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | kemi@kemi.is | www.kemi.is
10 | SÓKNARFÆRI
Skotbómulyftararnir frá Merlo voru í upphafi ekki hvað síst hannaðir út frá þörfum landbúnaðarins.
Merlo léttir störfin í landbúnaði Klettur tók á síðasta ári við umboði hér á landi fyrir ítölsku skotbómulyftarana Merlo og mun kynna þá línu, og þá sérstaklega sérhannaða lyftara fyrir landbúnað, á sameiginlegum bás félaga Styrkás samstæðunnar, á sýningunni Íslenskur landbúnaður 2026 í Laugardalshöll. Adolf Þ. Andersen, sölustjóri lyftara og vöruhúsalausna hjá Kletti, segir Merlo bjóða lausnir fyrir allt frá smæstu verkefnum til þeirra stærri. Merlo-lyftararnir séu traustir og liprir, sem geri það að verkum að bændur geti horft til þeirra þegar þeir velja tæki til að létta sér störfin.
á fóðurgöngum í fjósum og sú gerð er jafnframt til rafmagnsdrifin. Á næsta ári áformar Merlo svo að bjóða stóran 4,5 tonna skotbómulyftara í rafmagnsútfærslu þannig að rafvæðingin er til staðar í Merlo eins og á öðrum sviðum,“ segir Adolf.
Sókn í viðskiptum við bændur Notkun Merlo skotbómulyftaranna hér á landi hefur einkum verið í sjávarútvegi, flutningageiranum og byggingariðnaði, að sögn Adolfs. „Okkar hugur stendur til þess að fjölga viðskiptavinum í landbúnaði og við munum einmitt verða á sýningunni í Laugardalshöll með mann frá Merlo sem er bæði uppalinn sveitastrákur á Ítalíu og alinn upp við notkun á Merlo við landbúnaðar-
Skotbómulyftarar og vélhjólbörur „Vörulínunni frá Merlo má skipta í nokkra flokka, allt frá minnstu lyfturunum sem hafa um 2,5 tonna lyftigetu og upp í þá stærstu sem geta lyft allt að 12 tonnum. Þarna á milli eru svo fjölbreytilegir valkostir fyrir viðskiptavini, bómur allt upp í 27 metra að lengd, þannig að þetta fer allt eftir því hvað hentar hverjum og einum viðskiptavini,“ segir Adolf. Auk skotbómulyftaranna framleiðir Merlo svokallaðar vélhjólbörur á beltum og þau tæki er Klettur einnig að bjóða á íslenska markaðnum.
Hönnun út frá þörfum landbúnaðarins Merlo er fjölskyldufyrirtæki sem rekur sögu sína allt aftur til ársins 1911 en fyrirtækið hefur framleitt skotbómulyftara frá því um 1981. „Þetta fyrirtæki hefur alla tíð lagt mikið upp úr hönnun og notagildi sinna tækja og það er áhugavert að Merlo-lyftararnir eru upphaflega hannaðir út frá þörfum í ítölskum landbúnaði. Með tíð og tíma hefur þróun tækjanna náð til annarra notkunarsviða en tengsl Merlo við notkun í landbúnaði hafa samt frá upphafi verið mjög sterk. Það sést meðal annars á því að í Merlo-línunni er hægt að fá skotbómulyftara sem er fjölnota og búinn aflúttaki
störf. Hann gjörþekkir því notkun þessara tækja í landbúnaði,“ segir Adolf. Auk sölu á Merlo-lyfturum annast Klettur alla viðhalds- og varahlutaþjónustu, líkt og á öðrum tækjum sem fyrirtækið selur. „Við erum með nokkra sérhæfða þjónustumenn í tækjum hjá okkur sem hafa setið námskeið í þjónustu við Merlo, þannig að hér hefur verið lögð áhersla á að fylgja þessu nýja umboði okkar sem best eftir. Auk þjónustuverkstæða Kletts í Reykjavík, Hafnarfirði og á Akureyri erum við líka með samstarfsaðila í þjónustu út um landið, þannig að viðskiptavinir geti sótt hana í sínu nærumhverfi.“
klettur.is
Adolf Þ. Andersen, sölustjóri.
og þrítengi, þannig að hægt er að nota hann eins og dráttarvél í slátt og önnur verkefni. Þetta er einn af kostum Merlo sem við viljum sérstaklega vekja athygli bænda á og munum kynna þeim á sýningunni í Laugardalshöll,“ segir Adolf.
Opnar bændum nýja möguleika Lipur skotbómulyftari getur létt mörg störf í landbúnaði og einfaldað verkin. „Sem dæmi er hægt að nýta betur rýmið við útihúsin með þessum skotbómulyfturum, með því að stafla rúllum í fleiri hæðir en hægt er með dráttarvélum eða raða rúllum hærra inni í hlöðum. Ég þekki líka dæmi um hrossabónda sem nýtir skotbómuna til að setja rúllur yfir girðingar lengra inn á tún og þannig mætti áfram telja. Þetta eru líka tæki sem hafa mikla lipurð því þau beygja á öllum hjólum. Minnstu lyftarana nota menn
Klettur tók á síðasta ári við umboði fyrir ítalska framleiðandann Merlo og býður nú skotbómulyftara í mörgum útfærslum og vélhjólbörur.
12 | SÓKNARFÆRI
Styrkur N1 felst í breiðu vöruframboði og þjónustu segir Reynir Leósson, aðstoðarframkvæmdastjóri
N1 er með þétt þjónustunet um allt land auk þess að reka sívaxandi vefverslun sem viðskiptavinir nýta sér.
„N1 kemur mjög víða við sögu í atvinnulífinu og í reynd á öllum sviðum atvinnulífsins. Styrkur okkar liggur ekki hvað síst í mikilli breidd í vöruframboði og þjónustu. Þannig styðjum við best við fyrirtæki um allt land í þeirra daglega rekstri,“ segir Reynir Leósson, aðstoðarframkvæmdastjóri N1. Hann segir þjónustu við landbúnað einn af lykilþáttum í þjónustu N1, líkt og gildir um sjávarútveg, iðnað, verktakastarfsemi og ferðaþjónustu.
Svo miklu meira en sala á eldsneyti „Eldsneyti er okkar stærsti vöruflokkur og hefur verið mjög lengi en snertifletir okkar í þjónustu við viðskiptavini eru mun fleiri. Þar get ég nefnt sem dæmi smurolíur, hjólbarða, efnavörur, vinnufatnað, ýmiss konar rekstrarvörur og þannig mætti áfram telja. Allt snýr þetta að viðskiptavinum okkar og gagnast öllum sviðum atvinnulífsins. Við leggjum okkur fram um að þjónusta viðskiptavini um allt land. Það gerum við í gegnum okkar net sem byggist á verslunum og þjónustustöðvum um landið en á sama tíma hefur vefverslun N1
orðið sífellt mikilvægari hluti af þjónustunni. Við höfum lagt mikla áherslu á þróun hennar undanfarin ár og sjáum að viðskiptavinir nýta sér í auknum mæli þann möguleika að skoða úrvalið og ganga frá kaupum þegar þeim hentar. Breiddin í vefversluninni hefur jafnframt aukist mikið og þar er hægt að panta allt frá rúðusköfum og minni rekstrarvörum upp í stór dekk, smurolíur og olíutunnur. Þetta skiptir ekki síst máli fyrir fyrirtæki og viðskiptavini utan höfuðborgarsvæðisins, þar sem aðgengi að breiðu vöruúrvali verður einfaldara óháð staðsetningu. Vefverslunin er því orðin mikilvæg viðbót við okkar sterka þjónustunet um landið og við sjáum áfram mikil tækifæri í að þróa þá þjónustu.
Reynir Leósson, aðstoðarframkvæmdastjóri.
Á næstu mánuðum tekur N1 í notkun nýtt og glæsilegt dekkjahótel við Borgahellu í Hafnarfirði. Markmiðið er einfalt; að gera viðskiptavinum eins auðvelt og mögulegt er að eiga viðskipti við N1, hvort sem það er á þjónustustöð, í verslun eða á n1.is. Við viljum vera til staðar fyrir viðskiptavinina, hvort heldur þeir eru til sjávar eða sveita, og með góðri þjónustu og einföldum lausnum létta þeim enn einn daginn,“ segir Reynir.
Raforkusalan stöðugt að aukast Sala á rafmagni er þjónustuþáttur sem hefur vaxið hratt hjá N1 á síðari árum og nær sú þjónusta bæði til fyrirtækja og einstaklinga. „Uppbygging á raforkusölukerfinu hjá okkur hefur gengið mjög vel og við erum með fjölda viðskiptavina í atvinnulífinu.
Á þessu sviði, líkt og öðrum, erum með að mæta þörfum viðskiptavina. Það er vöxtur í sölu raforku til atvinnufyrirtækja hjá okkur jafnframt því sem við erum að byggja upp hleðslunet á þjónustustöðvunum um land allt og erum sífellt að efla það kerfi. Raforkusalan fellur mjög vel að annarri þjónustu við viðskiptavini N1 og því markmiði að mæta þeirra þörfum,“ segir Reynir.
Stórt dekkjahótel við Borgahellu í byggingu Sala hjólbarða og rekstur þjónustustöðva fyrir bíleigendur eru meðal stærri sviða í rekstri N1. Tvö stór framkvæmdaverkefni á þessu sviði standa yfir; annars vegar bygging hjólbarðaverkstæðis og bílaþvottastöðvar á
Akranesi og hins vegar hús við Borgahellu í Hafnarfirði þar sem verður hjólbarða- og smurþjónusta, sjálfvirkar þvottastöðvar fyrir stór atvinnutæki og fólksbíla, þvottabásar og stórt dekkjahótel. „Húsið við Borgahellu verður hjartað í rekstri dekkjahótela fyrir viðskiptavini okkar hér á höfuðborgarsvæðinu og mun þjónusta aðrar stöðvar okkar með geymslu á dekkjum. Tilkoma stöðvarinnar við Borgahellu á komandi mánuðum verður því stórt skref fyrir okkur í áframhaldandi þróun þjónustu N1,“ segir Reynir Leósson.
n1.is
Vagnar til sýnis á útisvæði!
Þú finnur okkar á bás
B39
546 3500
Er búið að panta keðjur fyrir veturinn?
Keðjustrekkjarar
D-Lásar
Hífikeðjur
Hífa, festa, draga? Skoðaðu úrvalið!
14 | SÓKNARFÆRI
Haumbaur kerra með sturtubúnaði.
Öflugar tveggja öxla hestakerrur.
Hreinlætislausnir Áfangar ehf.
Hreinlætisvörur og kerrur fyrir landbúnaðinn Fyrirtækið Hreinlætislausnir Áfangar ehf. býður þjónustu sína í landbúnaði líkt og í öðrum greinum íslensks atvinnulífs. Fyrirtækið er eitt það umsvifamesta í sölu á sápum, sótthreinsum, hreinsiefnum til fiskvinnslna, fiskeldis og kjötiðnaðar. Auk þess er það leiðandi í sölu á sýrum og selur bændum m.a. Kofasil til íblöndunar við heyverkun í rúllur eða stæður en með notkun þess batna heygæði, næringarinnihald fóðursins eykst, sem og lystugleiki. Þá er fyrirtækið einnig m.a. með umboð fyrir bíla- og sturtukerrur en það kynnir þjónustu sína og vörur á landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll.
Hreinlætisvörur og sótthreinsiefni fyrir landbúnaðinn
Allt frá fólksbílakerrum upp í sturtukerrur
Halldór Karlsson, gæða- og sölustjóri Hreinlætislausna Áfanga, segir fyrirtækið hafa fjölþætta þjónustu að bjóða bændum. „Við erum með mikið úrval af hágæða hreinlætisvörum og sótthreinsiefnum fyrir matvælaiðnað og höfum mikla reynslu af því að vinna með matvælaframleiðendum. Bændur geta því bæði sótt til okkar öflugar vörur á þessu sviði og ráðgjöf um þrifalausnir, auk ýmissa almennra rekstrarvara til búrekstrarins,“ segir Halldór en einn stærsti birgi fyrirtækisins í sápum og hreinlætisvörum
Fyrir rösku ári keypti Hreinlætislausnir Áfangar fyrirtækið Topplausnir og yfirtók samhliða umboð fyrir bílakerrur frá Haumbaur, sem er stærsti kerruframleiðandi Þýskalands og Debon sem framleiddar eru í Póllandi. Kerrurnar verða kynntar gestum landbúnaðarsýningarinnar. Samúel Guðmundsson, eigandi Hreinlætislausna Áfanga, segir allar stærðir og gerðir í boði af kerrum, allt frá litlum 750 kílóa kerrum upp í 3,5 tonna tveggja öxla kerrur. „Þetta eru allt frá litlum bílakerrum upp í tveggja öxla hesta- og flutningskerrur. Stærstu flutningskerrurnar eru einnig fáanlegar með sturtum og þetta eru því öflugar kerrur sem koma sér vel í búrekstrinum hjá bændum,“ segi Samúel.
EPA-160 pinnavél með tösku og köpplum
Bændur geta því bæði sótt til okkar öflugar vörur á þessu sviði og ráðgjöf um þrifalausnir er belgíska fyrirtækið Christeyns sem er einn stærsti sápuframleiðandi í Evrópu. Hreinlætisvörur Áfangar leggja aukna áherslu á sölu á rúlluplasti til bænda og er einnig með fjölbreyttar rekstarvörur, svo sem pappír, einnota hanska, bursta og klúta, svo dæmi séu tekin. Einnig býður fyrirtækið sápur og þrifaefni fyrir tól og tæki; bíla og vinnuvélar á borð við dráttarvélar og landbúnaðartæki.
Tilboðsverð 49.999 kr. m/vsk
LANDVÉLAR | SMIÐJUVEGI 66 LANDVELAR.IS
Stæðuverkun á heyi er að færast í vöxt hér á landi. Íblöndun Kofasil efnisins frá Hreinlætislausnum Áföngum ehf. bætir heygæði, næringarinnihald fóðursins eykst, sem og lystugleiki.
B21 DYNJANDI OG 3M PELTOR SAMAN Í YFIR 60 ÁR
DÚNDURTILBOÐ Á PELTORUM
ALERT XPI+ Á HÖFUÐ OG HJÁLM
ALERT XP+ Á HÖFUÐ OG HJÁLM
ALERT X+ Á HÖFUÐ OG HJÁLM
ALERT XPV SOLAR Á HÖFUÐ
PEMRX21AWS7 PEMRX21P3EWS7
PEMRX21A2WS7 PEMRX21P3E2WS7
PEMRX21A3WS7 PEMRX21P3E3WS7
PEMRX21A1WS7
Verð áður: 103. 498 kr. m/vsk
Verð áður: 88.499 kr. m/vsk
Verð áður: 70.999 kr. m/vsk
Verð áður: 104.499 kr. m/vsk
TILBOÐSVERÐ:
TILBOÐSVERÐ:
TILBOÐSVERÐ:
TILBOÐSVERÐ:
69.999 m/vsk
59.999 m/vsk
49.999 m/vsk
69.999 m/vsk
SJÁUMST Í B21
Dynjandi · Skeifunni 3h · Sími: 588 5080 · dynjandi.is
16 | SÓKNARFÆRI
Guðný Drífa starfar sem ráðgjafi hjá Sjóvá og rekur jafnframt sauðfjárbú á Austurlandi. MYND: KORMÁKUR MÁNI HAFSTEINSSON
„Við þekkjum landbúnaðinn vel“ Hjá Sjóvá starfar sérhæft teymi sem hefur áratuga reynslu af ráðgjöf til bænda um tryggingar og forvarnir. Innan hópsins eru einnig starfsmenn sem hafa sjálfir reynslu af búskap og þekkja því veruleika íslenskra bænda af eigin raun. Ein þeirra er Guðný Drífa Snæland á Egilsstöðum sem starfar sem ráðgjafi hjá Sjóvá og er jafnframt sauðfjárbóndi. Segðu okkur aðeins frá þér, búskapnum og starfinu hjá Sjóvá. „Ég fluttist austur á land árið 2005 þar sem ég tók saman við mann hér af svæðinu. Hann er uppalinn í sveit svo við fluttum á hans heimaslóðir árið 2008 og höfum starfað við búskapinn síðan þá í samvinnu við tengdapabba minn. Við tókum svo formlega við öllu árið 2020. Ég byrjaði að vinna hjá Sjóvá fyrir þremur árum sem ráðgjafi og lagði strax áherslu á að vera tengiliður bænda hér á svæðinu og þjónusta þá sérstaklega. Við hjá Sjóvá erum samstilltur hópur sem vinnur náið saman þvert á landið og því skiptir staðsetning litlu máli. Þannig getum við veitt bændum góða ráðgjöf og þjónustu hvar sem þeir eru á landinu.“ Hvernig nýtist reynslan af búskapnum þér í samskiptum við bændur sem leita til Sjóvá? „Það að hafa verið innvinkluð í störf bænda gefur mér betri sýn á það hvað við, sem stundum þess háttar rekstur, raunverulega þurfum að hugsa um og hvaða tryggingar henta þessum hópi. Ég hef stundum sagt að bóndinn sjálfur sé einstaklingur og fyrirtæki þar sem við erum í raun að blanda saman tryggingum fyrir fjölskyldur og einstaklinga og svo tryggingum sem alla jafna tilheyra atvinnurekstri.“ Hvað finnst þér skipta mestu máli þegar kemur að tryggingum og ráðgjöf fyrir bændur? „Að veita rétta ráðgjöf miðað við þann rekstur sem stundaður er á hverju búi
Persónuleg þjónusta Hjá Sjóvá starfar öflugur hópur sérfræðinga í bændatryggingum sem þekkir íslenskan landbúnað vel. Þar á meðal eru: l Guðný Drífa Snæland Þjónusturáðgjafi á Egilsstöðum og sauðfjárbóndi l Hrönn Helgadóttir Útibússtjóri á Egilsstöðum l Anna Sigurbjörg Sævarsdóttir Þjónusturáðgjafi á Höfn í Hornafirði og bóndi l Valgeir Páll Guðmundsson Svæðisútibússtjóri á Norðurlandi l Hólmgeir Þorsteinsson Viðskiptastjóri á Norðurlandi l Pétur Ringsted Viðskiptastjóri á Norðurlandi l Arnar Guðmundsson Þjónusturáðgjafi á Húsavík l Kristín Jónsdóttir Útibússtjóri í Borgarnesi l Hjalti Rósinkrans Benediktsson Þjónusturáðgjafi í Borgarnesi l Guðmundur Karl Sigurdórsson Þjónusturáðgjafi á Selfossi l Elísabet Ósk Guðlaugsdóttir Útibússtjóri á Selfossi l Haraldur Ingólfsson Útibússtjóri á Akranesi Ásamt öðrum sérfræðingum hjá Sjóvá mynda þau teymi sem veitir bændum um allt land persónulega ráðgjöf um tryggingar og forvarnir.
og svo stærð búsins. Við viljum ekki að bóndinn borgi fyrir tryggingar sem hann þarf ekki að hafa en við viljum ekki að hann vanti tryggingu þegar á reynir.“
Hjá Sjóvá starfa sérfræðingar um allt land og meðal þeirra eru einnig starfsmenn með reynslu af búskap. Hvers virði er sú þekking fyrir viðskiptavini? „Viðskiptavinir geta með þessu treyst því að við höfum sannarlega þekkingu á því sem við erum að ráðleggja og við eigum þannig auðveldara með að setja okkur í sporin og greina þarfir hvers og eins.“ Hvaða áhættur eða tjón sjáið þið oftast hjá íslenskum bændum í dag? „Ætli algengasta tjónið sé ekki þegar ekið er á búfénað en þegar við erum að
Guðný Drífa þjónustar bændur um allt land frá Egilsstöðum. MYND: ÚR EINKASAFNI.
Reynsla af búskap hjálpar til við að skilja áskoranir og þarfir íslenskra bænda. MYND: ÚR EINKASAFNI.
hugsa um áhættur þá vil ég nefna fyrst af öllu brunahættu í útihúsum og hvernig við umgöngumst allar þær vinnuvélar sem finna má á býlum landsins. Þetta á bæði við um stór tæki og lítil, eins og sexhjól til dæmis. Reglulega bendi ég á að það er ekki nóg að við sem rekum búin kunnum að umgangast tækin heldur líka þau sem koma og aðstoða okkur við hin ýmsu verkefni.“ Hvað geta bændur gert til að draga úr áhættu og fyrirbyggja tjón á búinu? „Bændur ættu að skoða reglulega hvernig gengið er frá rafmagni og þess háttar í útihúsum til þess að minnka brunahættu. Einnig að sjá til þess að viðeigandi búnaður sé til staðar ef upp kemur eldur. Eins og áður sagði er líka mikilvægt að umgangast tæki og tól þannig að minnka megi líkur á slysum og passa að gestir og gangandi geri það einnig.“ Hvers vegna telur þú mikilvægt að Sjóvá taki þátt í Landbúnaðarsýningunni? „Mér finnst mikilvægt að við hjá Sjóvá séum sýnileg og minnum bændur á að huga að sínum tryggingum og hvort þær séu í lagi. Hjá Sjóvá starfar fólk með þekkingu á viðfangsefninu og getur veitt faglega og persónulega ráðgjöf.“ Ertu með einhver góð ráð fyrir bændur varðandi rekstur, forvarnir eða tryggingar? „Já, ég myndi ráðleggja bændum að velja sér einhvern fastan tíma á hverju ári til að yfirfara tryggingarnar, í samráði við fagaðila og passa þannig að ekkert vanti upp á ef tjón verður. Við hvetjum bændur einnig til að huga að forvörnum og sem dæmi; láta rafvirkja yfirfara rafmagnstöflur reglulega og hitamæla þær til að takmarka hættu á brunatjóni. Á heimasíðunni okkar er forvarnagátlisti fyrir bændur sem gott er að fara yfir til að tryggja öryggi á bænum.“
18 | SÓKNARFÆRI
Gervigreindin komin til sögunnar í DeLaval mjaltaþjónunum Rætt við Hólmgeir Karlsson, framkvæmdastjóra Bústólpa, umboðsaðila DeLaval á Íslandi DeLaval og forveri þess, AlfaLaval, er líkast til það vörumerki í mjaltabúnaði sem fylgt hefur íslenskri mjólkurframleiðslu hvað lengst. Fyrstu mjaltaþjónarnir frá DeLaval voru teknir í notkun hér á landi laust eftir síðustu aldamót og eru þeir elstu enn í notkun. Bústólpi ehf. er umboðs- og þjónustuaðili DeLaval á Íslandi og undir fyrirtækið heyrir sala á fjölbreyttum DeLaval búnaði fyrir landbúnað; mjaltaþjónum, varahlutum, sápum, kjarnfóðurkerfum, sköfuróbótum og ýmsum öðrum vörum. Stærsti þátturinn í þessari þjónustu snýr að sölu og þjónustu við mjaltaþjóna hjá bændum og eru sérhæfðir þjónustumenn Bústólpa í DeLaval þjónstununni á vakt um allt land og hvenær sem er sólarhringsins ef mikið liggur vð. Hólmgeir Karlsson, framkvæmdastjóri Bústólpa, segir engan vafa leika á að mjaltaþjónatæknin sé stærsta bylting síðari ára í mjólkurframleiðslu á Íslandi.
bætast nokkrir nýir mjaltaþjónar við á hverju ári hjá mjólkurbúum sem eru að taka þessa tækni í þjónustu sína. Starfsmenn í DeLaval þjónustu Bústólpa eru á Akureyri, Suðurlandi, Skagafirði og í Borgarfirði og auk uppsetninga á nýjum mjaltaþjónum annast þeir reglubundnar þjónustuheimsóknir þar sem unnið er að reglubundnu viðhaldi eftir fyrirfram ákveðnu kerfi frá framleiðanda. Allt er þetta gert til þess gert að lágmarka bilanir og frátafir frá mjöltum af þeim ástæðum. Komi slík tilvik upp er Bústólpi með útkallsþjónustu en í heild eru sex starfsmenn í þessari deild fyrirtækisins.
Gervigreindin nýjasta hjálpartækið
Mjaltaþjónar betri en mannshöndin „Þegar maltaþjónar komu til sögunnar voru margar efasemdarraddir sem töldu að vélbúnaður gæti aldrei orðið betri í mjöltum en mannshöndin. Reynslan hefur hins vegar sýnt annað. Með þessari tækni er hægt að fylgja betur eftir mjaltaþörfinni hjá kúnum allan sólarhringinn og með stöðugri þróun mjaltaþjónanna er velferðarþáttur kúnna stöðugt að vaxa. Margir segja þess vegna fullum fetum að það fari engin mannshönd eins vel og blíðlega að kúnum eins og mjaltaþjónarnir gera í dag. Tæknin í mjaltaþjónunum frá DeLaval hefur þróast mikið og mun þróast enn meira í nánustu framtíð með til dæmis gervigreindarbyltingunni,“ segir Hólmgeir sem sjálfur er menntaður mjólkurverkfræðingur og hefur fylgst með tækniþróun í mjólkurframleiðslu í langan tíma. Hann segir ótvírætt að sjálfvirkir mjaltaþjónar hafi stuðlað að betra heilbrigði kúa, umbylt vinnuumhverfi bænda og létt þeirra daglegu störf.
Með tilkomu mjaltaþjóna hefur starf bænda í mjöltum tekið miklum breytingum.
Meiri nyt í mjaltaþjónafjósum Hólmgeir segir að í nýjustu kynslóð DeLaval mjaltaþjóna sé stöðugt unnið með nýjungar í hugbúnaðaruppfærslum sem snúa að velferð kúnna, heilbrigði þeirra og þar með mjólkurgæðum. Síðasta kynslóð mjaltaþjónanna frá DeLaval kom fram með þrívíddartækni til að lesa spenastaðsetningu og síðan þá hafa notendur þessara mjaltaþjóna fengið viðamiklar nýjungar í sogkerfi þannig að það aðlagar sig mjólkurflæðinu á hverju júgri fyrir sig. „Mjaltaþjónninn er stöðugt að gæta þess að ofmjólka ekki kýrnar með tilheyrandi
Tæplega 130 mjaltaþjónar frá DeLaval eru nú í þjónustu bænda á Íslandi. Um síðustu áramót voru rúmlega 60% allra fjósa á Íslandi lausgöngufjós með mjaltaþjóni.
þjón í hefðbundið fjós. Þá líður undantekningalaust ekki á löngu þar til að nytin fer að aukast. Ein af ástæðum þess er að mjaltaþjónninn fylgir vel ef mjólkuskeiði kúnna og mjólkar þær þannig í takt við kúrfu mjólkuskeiðsins. Það er auðvitað grundvallarbreyting frá því fyrirkomulagi þegar bara er mjólkað kvölds og morgna,“ segir Hólmgeir.
Þjónustustarfsmenn dreifðir um landið mögulegum vandamálum. Öll hönnun og þróun mjaltaþjónanna miðar að því að auka heilbrigði kúnna, hámarka nyt þeirra og fá sem mest
mjólkurgæði. Enda er það staðreynd að nyt eykst með tilkomu mjaltaþjóna og það fáum við alltaf staðfest þegar við setjum inn nýjan mjalta-
Í dag eru 127 DeLaval mjaltaþjónar á Íslandi. Hólmgeir segir að eigendur elstu mjaltaþjónanna séu byrjaðir að skipta þeim út fyrir nýjustu þjónana en síðan
Nýjasti DeLaval mjaltaþjónninn er V300 sem stöðugt er í framþróun hjá notendum með hugbúnaðaruppfærslum og viðbótum, líkt og áður segir. Hólmgeir segir DeLaval stöðugt vinna að framþróun og nýjungum í þessari tækni. „Með fullri virðingu fyrir öðrum framleiðendum tel ég að DeLaval hafi verið í fararbroddi í stórum tækniframförum mörg undanfarin ár. Fyrirtækið hefur haft velferð kúnna að leiðarljósi í þróun búnaðarins og í því felast vitanlega hagsmunir mjólkurframleiðendanna. Heilbrigðar kýr skila miklum og góðum afurðum og þar með fleiri krónum í kassa eigendanna,“ segir Hólmgeir. Eitt af stærstu og nýjustu kerfunum í V300 mjaltaþjóninum heitir Repro en þetta er kerfi sem vaktar hormónastöðu hjá kúnni, segir til um hvenær eigið að sæða kúna, hvort hún hafi látið kálfi og ýmislegt fleira. „Á síðasta ári kom viðbót í DeLaval mjaltaþjónana sem telur frumur í mjólk með mikilli nákvæmni og þannig sjá bændur í rauntíma hvort þarf að grípa inn í vegna júgurbólgu hjá viðkomandi kú. Næsta stig í þessari þróun er verkefni sem nokkrir bændur hér á landi eru þegar tengdir við en það er svokallað DeLaval Plus. Í því kerfi eru allar upplýsingar frá mjaltaþjóninum sendar reglulega og með sjálfvirkum hætti í upplýsingaský DeLaval sem gervigreind vinnur með. Úr öllum þessum upplýsingum les hún frávik og þróun yfir lengri tíma og lætur bóndann vita ef t.d. þróun hjá einhverri kú bendir til að hún sé að byrja að þróa með sér júgurbólgu. Gervigreindin er því að nýtast sem mjög dýrmætt forvarnartæki fyrir notendur DeLaval mjaltaþjónanna og hjálpa þeim að gera gott fjós og góða framleiðslu enn betri,“ segir Hólmgeir Karlsson.
bustolpi.is
SÓKNARFÆRI | 19
Traust tenging Við aukum lífsgæði og verðmætasköpun á landsbyggðinni
Traust og örugg afhending raforku styður við þróttmikið atvinnulíf og kraftmikla byggð. Við styrkjum og þróum dreifikerfið með þarfir landbúnaðar, atvinnuþróunar og orkuskipta að leiðarljósi og tryggjum að raforkan sé til staðar þar sem hennar er þörf.
RARIK.IS
20 | SÓKNARFÆRI
Trausti segir víða mikla grósku í landbúnaði og tækifæri sem hægt sé að nýta, meðal annars í ræktun. MYND: JÓHANN GYLFI JÓHANNSSON
Landbúnaðurinn á að blása til sóknar Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands, bindur vonir við jákvæða niðurstöðu í gerð nýs búvörusamnings á næstu mánuðum „Landbúnaðurinn hefur að mínu mati verið of lengi í varnarstöðu. Þess vegna bind ég miklar vonir við nýjan búvörusaming sem byrjað er að vinna að og á að taka gildi í upphafi árs 2028. Ef okkur og stjórnvöldum ber gæfa til þess að stuðla með honum að því að landbúnaðurinn geti áfram blómstrað þá getum við samhliða verið að ýta undir svo margt jákvætt sem er að gerast í greininni. Hvað þetta varðar er það mín skoðun að á þessum tímapunkti stöndum við fyrst og fremst frammi fyrir tækifærum í íslenskum landbúnaði,“ segir Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands og sauðfjárbóndi í Austurhlíð í Biskupstungum.
Búvörusamningur getur opnað ný tækifæri Með búvörusamningi Bændasamtakanna við ríkisvaldið er lagður fjárhagslegur grunnur til lengri tíma og skiptir niðurstaða samningsgerðarinnar því miklu máli. Trausti vonast til að hægt verði að ljúka viðræðum fljótt upp úr næstu áramótum og að þannig skapist ákveðin fótfesta og rammi fyrir stærstu greinar landbúnaðarins að vinna eftir í nánustu framtíð. „Við sjáum að það er mikill áhugi fyrir landbúnaði, búsetu í sveitum, rekstri í
til framtíðar hvernig við nýtum landið sem við höfum til ráðstöfunar og að við gætum þess að ganga ekki á möguleika landbúnaðarins í framtíðinni með annarri landnotkun. Hvað varðar heimavinnslu afurða þá er það mitt mat að með nýjum búvörusamningi sé einmitt tækifæri til að velta upp möguleikum fyrir bændur til að auka fjölbreytni í sínum störfum. Kerfið þarf að virka þannig að það þvælist ekki fyrir nýjum tækifærum í landbúnaði heldur þvert á móti að kerfið verði einfaldara, skilvirkara og hvetji fólk til nýsköpunar og framkvæmda til sveita,“ segir Trausti.
Við stöndum fyrst og fremst frammi fyrir tækifærum í íslenskum landbúnaði.
Ásættanleg niðurstaða vel möguleg hefðbundnum landbúnaði og að nýta atvinnutækifæri í ýmsum nýjum vaxtarsprotum til sveita. Fólk þarf að sjá fram úr því að fjárfesting borgi sig, aðgangur verði áfram tryggður að markaði og að framleiðsluvörur komist í verð. Á þessu byggi ég þá skoðun að landbúnaðurinn standi vel og hafi burði til að blása til sóknar. Með búvörusamningnum er skapaður grundvöllur til að búin geti staðið undir því að framleiða hágæða vörur fyrir innlendan markað jafnframt því að skapa svigrúm fyrir nýsköpun. Hún er möguleg bæði í hefðbundum búskap en einnig í yl-
Trausti Hjálmarsson hefur verið formaður Bændasamtaka Ísland síðastliðin tvö ár og var endurkjörinn til tveggja ára í mars síðastliðnum. rækt, útiræktun grænmetis, heimavinnslu afurða, beinni sölu afurða og þannig má áfram telja. Ég nefni líka þau miklu tækifæri sem eru í skógrækt á Íslandi en við þurfum líka að fara að huga að því
Aðspurður segir Trausti að stjórnvöld á hverjum tíma vilji setja mark sitt á þróun landbúnaðar og þau áhrif birtast helst í gegnum búvörusamninga. „Við erum með gildandi landbúnaðarstefnu fyrir Ísland sem samþykkt var á Alþingi á sínum tíma. Ef sú stefna getur orðið grundvöllur þeirra áherslna sem stjórnvöld hafa við samningaborðið og við setjum fram þau stefnumál sem við höfum mótað þá tel ég að vel sé hægt að ná ásættanlegum samningi fyrir báða aðila. Sú niðurstaða getur um leið orðið mjög góð fyrir neytendur sem að sjálfsögðu er líka grundvallaratriði,“ segir hann.
22 | SÓKNARFÆRI
Ímynd landbúnaðarins er almennt sterk í augum Íslendinga.
„Bændur þurfa fyrirsjáanleika en það er alltof snemmt að segja til um hvaða kerfisbreytingar fylgja nýjum samningi. Samtalið er rétt að hefjast.“
Bændur skilvísir og traustir viðskiptavinir Trausti segir verðbólgu og háa vexti bitna á búrekstri, líkt og öllum öðrum í landinu. Hann segir fjármálastofanir hafa staðið vel við bakið á bændum varðandi fyrirgreiðslu og fjármögnun og þess sjáist ekki merki að þær hafi kippt að sér höndum. Auk viðskiptabankanna hafi Byggðastofnun einnig komið í auknum mæli að fjármögnun í landbúnaði og áframhald verði á þeirri þróun. „Innan bankakerfisins eru allir sammála um að bændur eru almennt mjög skilvísir og góðir viðskiptavinir. Ég heyri ekki annað en landbúnaðurinn fái fyrirgreiðslu í fjármálakerfinu eins og hann þarf á að halda, bæði til framkvæmda og við kynslóðaskipti. En að sjálfsögðu þarf alltaf að vera grundvöllur fyrir lántökum líkt og í öllum öðrum atvinnurekstri.“
Jákvæðni í garð landbúnaðarins dýrmæt auðlind Trausti segir ánægjulegt að sjá mikla
MYND: JÓHANN GYLFI JÓHANNSSON
aðsókn að Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Ungt fólk sé áhugasamt um landbúnað og raunar sé almennt mikil jákvæðni í þjóðfélaginu í garð íslensks landbúnaðar. „Þessi jákvæðni er auðlind sem við þurfum að fara mjög vel með. Ég hef ekki áhyggjur af því að hún hafi laskast í umræðu síðustu mánaða. Ímynd landbúnaðarins er almennt sterk í hugum Íslendinga og það byggist ekki síst á gæðum þeirra afurða sem við framleiðum fyrir neytendamarkað. Markmiðið á í mínum huga að snúast um að Íslendingar hafi aðgang að heilnæmum og hollum gæða matvælum á sem sanngjörnustu verði. En að því sögðu þá þarf líka að hafa í huga að há-
gæða matvæli kosta peninga og slíkar vörur geta aldrei orðið ódýrasti kosturinn.“
Fækkun búa endurspeglar tækniþróun Búum hefur farið fækkandi síðustu áratugi og leggur Trausti áherslu á að fækkun búa geti komið til af mismunandi ástæðum. „Það er slæmt ef bændur bregða búi vegna þess að reksturinn gengur ekki upp þrátt fyrir elju og áhuga búrekenda og við verðum að búa bændum starfsumhverfi sem styður við þá.“ Hins vegar sé landbúnaður tæknivædd grein sem hafi þróast mikið á undanförnum árum og rekstrareiningarnar stækkað. Þetta segir Trausti ekki vera birtingarform hnignunar heldur fyrst og fremst merki um þróun.
„Núna þarf færri hendur til að framleiða meira magn af afurðum í hæsta gæðaflokki fyrir neytendamarkað. Þetta er eðlileg þróun og birtist í fleiri greinum. Tæknin afkastar meiru en mannshendurnar. Þetta er því margslungið og undirstrikar mikilvægi þess að við örvum nýliðun og greiðum leið ungs fólks inn í búrekstur. Við sjáum öfluga endurnýjun á sumum svæðum en á öðrum gengur þetta hægar og þar þarf að skoða hvort með einhverjum hætti er hægt að liðka fyrir.“
bondi.is
ER KOMINN TÍMI Á NÝJA BÍLSKÚRS- EÐA IÐNAÐARHURÐ? GÆÐA HURÐIR FRÁ TOORS
20ÁRA REYNSLA Á ÍSLANDI
BÍLSKÚRS - OG IÐNAÐARHURÐIR
860 0206 | rek@rek.is | www.rek.is
Við verðum á landbúnaða Benedikt Hjaltason
flatgryfjur - stoðveggir fjósgólf - innréttingar
arsýningunni
EPA-160 pinnavél með tösku og köpplum Tilboðsverð 49.999 kr. m/vsk
LANDVÉLAR | SMIÐJUVEGI 66 LANDVELAR.IS
Sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 verður í Laugardalshöllinni dagana 9.-11. október
26 | SÓKNARFÆRI
Sýningarsvæðið Aflvélar
Verndun og ræktun
Benedikt Hjaltason
Samtök smáframleiðenda matvæla
Benedikt Hjaltason B-30
SkógLand og skógur ræktarfélag
Aflvélar
Íslands
B-35
BJB motors
Matarkistan
Stálvörur Nítró
B-33
B-32
B-31
B-34
B-30 Aðfangaleið
EXIT
Matís
Fastparts
Eco-Garden .
Aflvélar
Aflvélar
Sany Elfoss
VHE / PON
LBHÍ
Vélfang
.
Stormur
Dronefly .
B-29 B-28
EXIT
B-27
B-26
B-25
B-24
B-23 EXIT
.
Dynjandi
Styrkás Skeljungur Klettur Stólpi
Vinnuvélar og Ásafl
GOS verk
samsalan
Meindýraeyðir Ljósorka Íslands
Ellingsen
Gastec
Arna B-21
EXIT
Fjárborg
Skralli Mjólkur-
Lífland
Hydroscand
.
.
Jöklavín
B-22
Brunatækni
B-20
.
B-19
Hreinlætislausnir Áfangar
Diapro
Rafeining
B-16
B-18
B-17
EXIT
B-15
Jón Bergsson
Bruna- Hitatækni hólf Fríorka
N1
DJI Reykjavík
Landlausnir
Kraftvélar
Loftvist
Hesja
Jóhann Helgi og Co.
Aðfangaleið
Ritform B-36
B-14
.
Tryggingamiðlun Íslands
Ístex
Veso
Nortek
.
Costco
Rek
B-12
Fóðurblandan
B-11
B-10
Landvélar
Íslyft
Íslyft Bláorka
Fergusonfélagið
B-9 .
AB varahlutir
Bambahús
Dalberg
Bændasamtök Íslands Orkuland Bluetti
B-13
.
Sjóvá
Límtré Vírnet
PAGO Hús
.
.
INNGANGUR Búvís
VÍS
.
Búvörur SS Kaupfélag Borgfirðinga
B-8
B-7
B-6
B-5 B-2
B-3
EXIT
Ykkar Pest Control
Sólspor
Motul
Bayern Líf
B-4 B-1
Senitio
.
SÓKNARFÆRI | 27
Sýnendur í sal AB varahlutir Aflvélar
B-7 B-28 / 29 / 30 / 35
Arna B-19 Bændasamtök Íslands
B-11
Bambahús B-8 Bayern Líf
B-2
Benedikt Hjaltason
B-30
BJB motors
B-33
Bláorka B-7 Brunahólf B-14 Brunatækni
B-18
Búvís B-5 Búvörur SS
B-7
Costco B-9 Dalberg B-3 Diapro
B-22
DJI Reykjavík
B-13
Dronefly B-23 Dynjandi B-21 Eco-Garden
B-24
Ellingsen B-18 Fastparts
B-23
Fergusonfélagið B-6 Fjárborg B-18 Fóðurblandan
B-6
Gastec B-17 GOS verk
B-18
Hesja
B-14
Hitatækni / Fríorka
B-14
Hreinlætislausnir Áfangar
B-16
Hydroscand B-17
Sjóvá
B-3
Íslyft
B-4 / 5
Skógræktarfélag Íslands
B-34
Ístex
B-3
Skralli B-19
Jóhann Helgi & Co.
B-13
Sólspor B-2
Jöklavín
B-19
Stálvörur B-31
Jón Bergsson
B-15
Stormur B-24
Kaupfélag Borgfirðinga
B-3
Styrkás / Klettur / Skeljungur / Stólpi
B-20
Kraftvélar B-12
Tryggingamiðlun Íslands
B-8
Land og skógur
B-34
Vélfang B-25
Landbúnaðarháskóli Íslands
B-23
Verndun og ræktun
B-30
Landlausnir B-15
Veso
B-8
Landvélar B-5
VHE / PON
B-26
Lífland B-21
Vinnuvélar og Ásafl
B-22
Límtré Vírnet
VÍS
B-8
Ykkar Pest Control
B-2
B-13
Ljósorka B-17 Loftvist B-15 Matarkistan
B-32
Matís B-33
Sýnendur á útisvæði
Meindýraeyðir Íslands
Aflvélar
B-17
Mjólkursamsalan B-19
Búlausnir
N1 B-10
Íslyft
Nítró B-31
Klettur
Nortek B-9
Kraftvélar
Orkuland / Bluetti
B-10
Nítró
PAGO Hús
B-9
Skralli
Rafeining
B-19
Stólpi
Rek B-7
Vélfang
Ritform B-36
VHE / PON
Samtök smáframleiðenda matvæla
B-30
Víkurvagnar
Sany Elfoss
B-27
Senito B-1
28 | SÓKNARFÆRI
Rek ehf.
Kynna bílskúrs- og iðnaðarhurðir frá Toors Fyrirtækið Rek ehf. á Akureyri kynnir á landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll bílskúrs- og iðnaðarhurðir frá Toors sem er í grunninn tékkneskt fyrirtæki og sérhæfir sig í þessari framleiðslu og búnaði sem hurðunum tengist. Rek ehf. fagnar á þessu ári 20 ára afmæli en það var stofnað í Grindavík og keypt fyrr á þessu ári til Akureyrar. Hjónin Hafþór Helgason, húsasmíðameistari og Sædís Eva Gunnarsdóttir standa að fyrirtækinu ásamt sonum sínum, Róbert Darra, Helga Frey og Óliver Mána en þau eiga einnig byggingar- og verktakafyrirtækið HHS verktaka ehf. á Akureyri sem hefur byggt iðnaðarhúsnæði á Akureyri og
Fjölskyldan að baki Rek ehf. og HHS verktökum ehf. á Akureyri. Synir þeirra Sædísar Evu Gunnarsdóttur og Hafþórs Helgasonar taka virkan þátt í fyrirtækjarekstri foreldra sinna.
Við erum mikið í kringum starfsemina og ég hef unnið síðustu þrjú sumur hjá HHS.
víðar síðustu ár. Í þessi verkefni hafa HHS verkakar einmitt notað Toors hurðir á síðustu árum þar sem þær hafa staðið sig vel við íslenskar aðstæður
og uppfyllt óskir viðskiptavina um vandaðar hurðir og góðar lausnir.
Toors með vel hannaðar hurðalausnir
HHS verktakar ehf. eru að hefja byggingu á þriggja íbúða raðhúsi í nýju Móahverfi á Akureyri.
Til liðs við náttúruna!
Markmiðið hjá Rek ehf. er að bjóða Toors hurðir í auknum mæli til notkunar í iðnaðar- og íbúðarhúsnæði enda traustar, endingargóðar og vel hannaðar hurðalausnir. Auk þess að veita viðskiptavinum ráðgjöf um bestu lausnir er Rek með úrval auka- og varahluta fyrir hurðirnar og uppsetningarþjónustu bæði á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. „Við getum því komið á verkstað og mælt fyrir hurðum ef
óskað er eftir en áhugasamir viðskiptavinir geta líka sent okkur tölvupóst á rek@rek.is með málum og fengið tilboð. Auk þess að bjóða hurðirnar sjálfar í ýmsum litum og útfærslum bjóðum við mótora og fjarstýringar fyrir hurðirnar og ýmislegt fleira. Allt þetta kynnum við á sýningunni,“ segja þau Sædís og Hafþór.
Synirnir áhugasamir Óhætt er að segja að þau reki sannkallað fjölskyldufyrirtæki því synir þeirra eru mjög virkir að aðstoða í verkefnum, þó ungir séu að árum. Enda stendur skammstöfunin í nafni fyrirtækisins fyrir Hafþór Helgason
og synir. Elstur þeirra er Róbert Darri sem stefnir á nám í húsasmíði eða rafvirkjun að loknu grunnskólaprófi í vor. „Við erum mikið í kringum starfsemina og ég hef unnið síðustu þrjú sumur hjá HHS. Þetta er mjög skemmtilegt og þess vegna stefni ég að því að fara inn á þetta svið í námi. Það er mjög gaman að fá að fylgjast með því sem er að gerast í starfseminni í fjölskyldufyrirtækinu, mikil verkefni og nóg að gera,“ segir Róbert Darri.
Við leggjum áherslu á að hönnun og framleiðsla sé í takt við kröfur viðskiptavina og opinberra aðila. Með stöðugri vöruþróun og samvinnu við fagfólk tryggjum við að vörurnar uppfylli þarfir nútíma byggingariðnaðar, án þess að slá af kröfum um gæði og hámarks öryggi.
Skiljur Rotþrær Brunnar Vatnstankar
rek.is
Hjartað í íslenskum landbúnaði
bustolpi@bustolpi.is • Sími 460 3350 • www.bustolpi.is
30 | SÓKNARFÆRI
Sveinn Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands: „Gríðarlegar umbætur hafa orðið í íslenskum landbúnaði á síðustu ártugum.“
Meiri sérhæfing – aukin framleiðsla Rætt við Svein Sigurmundsson, framkvæmdastjóra Búnaðarsambands Suðurlands „Það er óhætt segja að landbúnaðurinn hér á Suðurlandi hafi tekið algerum stakkaskiptum á síðustu áratugum og þróast mjög hratt frá því sem var um t.d. um 1960 til 1970. Þá voru flest bú blönduð og tiltölulega lítil. Í dag einkennist atvinnugreinin af meiri sérhæfingu, einkum í mjólkurframleiðslu þótt einnig séu hér mörg blönduð bú með sauðfé, kýr, hesta og allt þetta sem við ólumst upp við í gamla daga. Þá eru einnig á þessu svæði fjölmörg glæsileg hrossabú, öflugir garðyrkjubændur og vaxandi ferðaþjónusta sem er orðin vinsæl aukabúgrein og svo er líka um öflugan hótelrekstur að ræða,“ segir Sveinn Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands í spjalli við Sóknarfæri.
Margvísleg þjónusta í boði Búnaðarsamband Suðurlands var stofnað 6. júlí árið 1908 en félagssvæði þess nær yfir fjórar sýslur; Árnessýslu,Rangárvallasýslu, Vestur-Skaftafellssýslu og Austur-Skaftafellssýslu. Framan af fólst starfsemin einkum í leiðbeiningum varðandi jarðrækt en árið 1932 var fyrsti héraðsráðunauturinn ráðinn til starfa og upp úr því hefst skipulögð ráðgjöf í búfjárrækt sem lengst af hefur verið hryggjarstykkið í starfseminni. Rekstur tilraunabús nautgripa hófst í Laugardælum 1952, árið 1958 var Kynbótastöðin í Þorleifskoti stofnuð en hún sér um kúasæðingar og 10 árum síðar hófst starfsemi Sauðfjársæðingarstöðvar Suðurlands. Þáttaskil urðu árið 1979 þegar systkinin á Stóra Ármóti þau Jón, Sigríður og Ingileif gáfu Búnaðarsambandinu jörðina. Stóra Ármót er um 650 ha að
Þar er möguleiki á að mjólka kýrnar oftar en tvisvar á sólarhring sem kemur sér vel þegar nytin er mikil. stærð en jörðin liggur að ármótum þar sem Sogið og Hvítá renna saman í Ölfusá. Búnaðarsambandið tók strax við fjárstofninum sem var á Stóra Ármóti og árið 1987 fluttist til-
raunastarfsemi tengd nautgripum þangað þegar Laugardælabúið var lagt af. Í gegnum áratugina hefur mikil uppbygging orðið á Stóra Ármóti og þar er í dag rekið allstórt býli undir stjórn bústjóra. Þar er einnig rekin Nautgriparæktarmiðstöð Íslands, í daglegu tali kölluð Nautís. Hún er í eigu Bændasamtaka Íslands, Landssambands kúabænda og Búnaðarsambands Suðurlands en þetta er einangrunarstöð fyrir Aberdeen Angus holdagripi frá Noregi. Tilgangurinn er að auka hagkvæmni í framleiðslu nautakjöts hér á landi með því að auka vaxtarhraða og kjötgæði með kostameiri gripum. Fjölmargir bændur eru nú komnir með gripi úr hjörðinni og framleiða gæðanautakjöt sem stenst ríkar kröfur neytenda. Búnaðarsambandið sinnir ýmsum fleiri verkefnum, m.a.
rekstri Bændabókhalds BSSL en það fyrirtæki sinnir bókhaldsþjónustu fyrir bændur þar sem er veitt aðstoð við virðisaukaskattsuppgjör, skattaskil, gerð ársreikninga, reikningagerð, launavinnslur ofl.
Gríðarleg afurðaaukning Sveinn Sigurmundsson hefur starfað lengi við ráðunautastörf og síðar framkvæmdastjórn hjá BSSL. „Já, ég er hér orðinn allra karla elstur. Hóf störf hjá sambandinu árið 1983 og hef verið framkvæmdastjóri frá 1987. Á liðnum árum hafa orðið miklar framfarir og breytingar í mjólkurframleiðslunni og má t.d. geta þess að árið 1980 voru ríflega 2.300 innleggjendur í landinu en þeir eru innan við 450 í dag. Samfara þessu hafa búin stækkað en einnig hefur framleiðsla á hverja kú stóraukist eða úr 3.800
Fjöldi innleggjenda og Fjöldimjólk/árskú innleggjenda og mjólk/árskú 7000
6.615
6000 5000 4000
3000
3769
2.334
2000 1000
0
449
1980
1985
1990
1995
2000
Mjólk/árskú
2005
2010
2015
2020
Innleggjendur
Hér sést hvernig innleggjendum mjólkur hefur fækkað frá 1980 en meðalnytin að sama skapi aukist. MYNDRIT: GUÐMUNDUR JÓHANNESSON/RML
2025
kg árið 1980 í 6.600 kg í dag. Ef við horfum bara aftur til síðustu aldamóta skilar meðalbúið í dag um þrisvar sinnum meiri afurðum eða 330.000 lítrum á ári í stað 100.000 lítra um aldamót. Þennan árangur má rekja til margra þátta, m.a. bættrar fóðrunar, skipulagðra kynbóta og aukinnar velferðar dýra og einnig má nefna tæknilega hluti eins og mjaltaþjóninn sem kom til landsins árið 1999. Þar er möguleiki á að mjólka kýrnar oftar en tvisvar á sólarhring sem kemur sér vel þegar nytin er mikil.“
Útsjónasamir bændur Við ræðum afkomu bænda á Suðurlandi og spyrjum Svein út í þá sálma. Hann segir okkur að almennt sé staðan viðunandi en þar skipti þó mestu hvort skuldsetning sé há eða lág. „Þetta er eins og í öðrum atvinnurekstri: Menn þurfa að vera útsjónasamir og opnir fyrir því að nýta sér þá möguleika sem kunna að vera í boði. Flest býli hér eru hefðbundin fjölskyldufyrirtæki þar sem eigendur helga sig bústörfum allt árið, gjarnan í einhverri aðalgrein eins og mjólkurframleiðslu. Aðrir bændur, ekki síst þeir sem stunda sauðfjárrækt, vinna önnur störf út í frá eða sinna skyldri starfsemi á sínum bæ eins og ferðaþjónustu, garðyrkju eða hrossarækt svo dæmi séu tekin. Fyrst og fremst er Suðurlandið gjöfult landbúnaðarhérað með fjölbreytta möguleika og því kjörlendi bænda sem vilja nýta landsins gæði til að tryggja afkomu sína og sinna.“
bssl.is
SÓKNARFÆRI | 31
Finnum mikinn meðbyr segir Oddný Anna Björnsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda á Íslandi „Við lítum björtum augum til framtíðar. Eftirspurn eftir vörum beint frá býli bænda og annarra smáframleiðenda um land allt fer vaxandi og almenningur áttar sig æ betur á mikilvægi þeirra fyrir samfélagið,“ segir Oddný Anna Björnsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda matvæla (SSFM) og Beint frá býli (BFB). „Matarfrumkvöðlar stunda kraftmikla nýsköpun og stuðla þannig að fjölbreyttara úrvali matvæla. Þeir nýta innlend hráefni að hluta eða öllu leyti, oft þau sem eru vannýtt og skapa þannig aukin verðmæti. Starf þeirra eykur því fæðuöryggi, byggðafestu og skapar störf um land allt, ekki síst í hinum dreifðu byggðum. Þá halda þeir matarhandverki lifandi, dýrmætum menningararfi þar sem hefðir og nýsköpun mætast.“
Öflugur málsvari Hún segir meginhlutverk samtakanna að vera öflugur málsvari smáframleiðenda, vinna að hagsmunamálum þeirra og opna leiðir að nýjum tækifærum. Meginmarkmiðið sé að efla samstarf og samtakamátt smáframleiðenda matvæla um land allt og skapa þeim skilyrði til að blómstra. SSFM voru stofnuð í desember árið 2019 eftir margra mánaða undirbúning. Oddný leiddi undirbúningsvinnuna og hefur verið framkvæmdastjóri frá stofnun. Félagið Beint frá býli, sem var stofnað árið 2008, varð aðildarfélag SSFM vorið 2021 og hafa félögin frá þeim tíma starfað eftir sameiginlegri stefnu og aðgerðaáætlun.
Póstlistinn mikilvægur Eitt það verðmætasta sem hefur komið út úr stofnun samtakanna að mati Oddnýjar er að eiga lista yfir þá sem stunda smáframleiðslu matvæla um land allt. Mikil vinna hefur farið í að finna þessa oft földu gimsteina og er sú vinna viðvarandi. Þannig hefur verið hægt að byggja upp samfélag smáframleiðenda sem geta leitað til hvers annars, miðlað þekkingu og stofnað til samstarfs. Samtökin hafa jafnframt orðið eins konar gátt inn til smáframleiðanda fyrir þá sem vilja bjóða þeim þjónustu, afla upplýsinga eða standa fyrir viðburðum og fræðslu. Póstlisti samtakanna gegnir þar mikilvægu hlutverki.
Fjölbreyttir og vinsælir viðburðir Þau hafa sömuleiðis staðið sjálf fyrir fjölbreyttum viðburðum eins og hinum árlega Beint frá býli degi, árshátíðum, námskeiðum, mörkuðum og vettvangsferðum, auk þess að vera með sameiginlegan bás á stórum sýningum. Samtökin hafa þróað verkfæri sem nýtast félagsmönnum í rekstri, samið um hagstæðari kjör, þróað og bent á söluleiðir, veitt
Hanna Kjartansdóttir kynnir framleiðslu Mýranauts á landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll 2022.
Oddný Anna Björnsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda og Beint frá býli.
ráðgjöf og stuðning og miðlað til þeirra gagnlegum upplýsingum. Hagsmunagæsla hefur sömuleiðis verið stór þáttur í starfinu, einkum varðandi þróun regluverks og starfsumhverfi smáframleiðenda.
Bróðurparturinn á landsbyggðinni Ríflega tvö hundruð framleiðendur eru innan vébanda samtakanna en frá stofnun hafa yfir þrjú hundruð skráð sig í þau. Um 10% hafa lagt niður starfsemi ár hvert eða sameinast öðrum sem er að sögn Oddnýjar eðli frumkvöðlastarfs. „Það ganga ekki allar hugmyndir upp af ólíkum ástæðum.“ Um 80% félagsmanna starfa á landsbyggðinni og 20% á höfuðborgarsvæðinu. Flestir eru á Norðurlandi, eða tæplegur fjórðungur og tæplega 20% á Suðurlandi. Um 60% félagsmanna starfa á lögbýlum og um fimmtungur í þéttbýli á landsbyggðinni. Ríflega þriðjungur framleiðenda framleiðir og selur kjötvörur. Litlu færri eru með ýmiss konar plöntuafurðir, hunang
Matarfrumkvöðlar stunda kraftmikla nýsköpun og stuðla þannig að fjölbreyttara úrvali matvæla. eða salt. Mjólkurvörur, bakstur, sætindi, fiskur og sjávarfang eru einnig meðal vöruflokka félagsmanna.
Mikil vinna á bak við hverja vöru „Það er mikil gróska í starfseminni og hugur í fólki, enda vörunum jafnan vel tekið. Að baki þeim liggur þó mikil vinna og alúð sem einkennir matarhandverk og framleiðslu í smáum stíl. Beint frá býli bændur sem vinna úr eigin afurðum eiga oft erfitt með að anna eftirspurn, því framleiðslugetan er takmörkuð en áhuginn mikill. Á ákveðnum tímapunkti standa smáframleiðendur frammi fyrir þeirri ákvörðun hvort þeir vilji taka skrefið og skala framleiðsluna upp en við það getur eðli rekstrarins gerbreyst,“ segir Oddný Anna. Flestir félagsmenn sinna matvælaframleiðslunni samhliða búrekstri og/eða fullu starfi annars staðar. „Það er stórt skref að segja upp föstu starfi og veðja á að geta lifað af eigin framleiðslu,“ segir hún. Í flestum tilvikum er eitt stöðugildi eða minna við framleiðsluna en um þriðjungur framleiðenda eru með tvo eða fleiri starfsmenn. Fari veltan yfir hundrað milljónir á ári er fyrirtækið orðið of stórt fyrir samtökin.
Vilja vita hvaðan maturinn kemur Kristín G. Pétursdóttir frá Litlabýli kynnir afurðir sínar.
Oddný bendir á að bein samskipti milli framleiðenda og neytenda séu mikilvægur þáttur í starfseminni. Þau eigi sér meðal annars stað á matarmörkuðum,
Meðal verkefna samtakanna á síðustu árum er Matarbúrið sem var samstarfsverkefni með Krónunni þar sem vörum félagsmanna var tímabundið stillt fram á sérstöku svæði.
við vörukynningar í verslunum, í gegnum eigin sölumiðla og þegar framleiðendur afhenda vörurnar sjálfir. Sífellt fleiri neytendur vilji vita hvaðan maturinn kemur, hvernig hann er framleiddur og hver standi að baki honum. Fyrir framleiðendur sé jafnframt verðmætt að eiga samtal við viðskiptavini og fá beina endurgjöf um vörurnar.
Meðbyr þrátt fyrir hindranir Smáframleiðendur finna fyrir meðbyr og Oddný segir neytendur meðvitaða um kosti þess að kaupa matvæli beint frá framleiðendum. En þrátt fyrir vaxandi áhuga mæta þeir ýmsum hindrunum. Hún bendir meðal annars á svokallaða „blýhúðun“, þegar íslensk stjórnvöld ganga lengra en regluverk ESB krefst og setja við innleiðingu þess bönn eða aðrar íþyngjandi viðbótarkröfur. Flókið regluverk, þungt leyfisveitingaferli og skortur á sveigjanleika í eftirliti geti dregið úr framkvæmdavilja og gert framleiðendum erfitt fyrir að láta reksturinn ganga upp. Smáframleiðsla sé jafnframt kostnaðarsöm, enda njóti hún takmarkaðrar stærðarhagkvæmni og dreifing getur verið áskorun. Framleiðendur þurfi auk þess oft að sinna öllum þáttum rekstrarins sjálfir, án þess að hafa endilega bakgrunn eða þekkingu á hverju sviði. „Smáframleiðendur standa sig engu að síður ótrúlega vel og það er mikill hugur í okkar fólki.“
ssfm.is
32 | SÓKNARFÆRI
Forsendur til að stórauka kornrækt við Eyjafjörð segir Hermann Ingi Gunnarsson, bóndi í Klauf í Eyjafjarðarsveit og einn eigenda nýrrar kornþurrkstöðvar á Laugalandi „Við höfum einstaklega góðar aðstæður til kornræktar hér við Eyjafjörð og það eru allar forsendur til að stórauka hana á komandi árum. Ég er ekki í nokkrum vafa um að Eyjafjarðarsvæðið sem mjólkurframleiðsluhérað mun styrkja sína stöðu í samkeppninni á komandi árum með aukinni kornrækt og þessi nýja þurrkstöð okkar skiptir verulegu máli í þessari uppbyggingu,“ segir Hermann Ingi Gunnarsson, bóndi í Klauf
í Eyjafjarðarsveit en fimm býli í Eyjafjarðarsveit standa að nýrri kornþurrkstöð sem tekin var í notkun á Laugalandi á síðasta ári. Korn er þurrkað frá um 10 bæjum í stöðinni og juku þeir allir kornrækt sína verulega í ár, t.d. búið í Klauf sem tvöfaldaði kornræktina.
Geta þurrkað 2000 tonn á uppskerutímanum Fyrir tilkomu nýju þurrkstöðvarinnar á Laugalandi
var kornið frá Klauf þurrkað í lítilli stöð á Hjalteyri sem bæði var óhagkvæmt vegna mikillar fjarlægðar og afköst of lítil. Þegar stjórnvöld boðuðu fyrir nokkrum árum fjárfestingarstuðning til bygginga nýrra þurrkstöðva með eflingu kornræktar á landinu að markmiði ákváðu bændurnir í Eyjafjarðarsveit að ráðast í verkefnið. Nýja stöðin afkastar um 2000 tonnum á uppskerutímanum og við stöðina eru tvö síló sem taka
Fyrst og fremst erum við að horfa á kornræktina sem hagkvæma fóðurframleiðslu fyrir okkar eigin búrekstur.
500 tonn af þurrkuðu korni hvort um sig. Hermann segist gera ráð fyrir að í ár verði þurrkuð hátt í 1600 tonn af korni í stöðinni en kornið leggja bændur síðan inn sem hráefni hjá fóðurverksmiðju Bústólpa á Akureyri og fá unnar kjarnfóðurblöndur í staðinn. Þetta segir Hermann Ingi bæði þægilegt fyrirkomulag og hagkvæmt en í Klauf er heimaræktað korn um 60% af kjarnfóðurnotkun búsins.
SÓKNARFÆRI | 33
Hermann Ingi Gunnarsson við fallegan kornakur sem var þresktur á dögunum. Uppskera haustins í stefnir í að verða mjög góð.
Þresking á fallegum haustdegi í Eyjafjarðarsveit. MYND: HERMANN INGI GUNNARSSON
Ég tel að það sé ekki óraunhæft að ætla að á næsta áratug geti kornrækt á Eyjafjarðarsvæðinu þrefaldast lítra þá hef ég hvergi séð lægri fóðurkostnað en hjá okkur og aðeins um 3% búa í greiningunni eru með lægri breytilegan kostnað. Kornræktin er að skila okkur um 15-18 krónum í sparnað á hvern mjólkurlítra. Þetta er því gríðarlega hagkvæmt fyrir búreksturinn og lækkun framleiðslukostnaðar er auðvitað lykilatriði fyrir framtíðina í landbúnaði.“ Nýja þurrkstöðin á Laugalandi í Eyjafjarðarsveit. Fjær sést yfir Hrafnagilshverfi.
Veruleg lækkun framleiðslukostnaðar í búrekstrinum „Reyndar höfum við líka selt korn úr stöðinni til brugghússins á Siglufirði þar sem er byrjað að brugga viskí úr eyfirska korninu þannig að það eru ýmsir möguleikar til að nýta gott korn. En fyrst og fremst erum við að horfa á kornræktina sem hagkvæma fóðurframleiðslu fyrir okkar eigin búrekstur,“ segir Hermann Ingi.
Aðspurður um hversu hagkvæm kornræktin er í búrekstrinum segist hann í gegnum verkefni á vegum RML um rekstur kúabúa hafa borið rekstur á eigin búi saman við tölur annarra mjólkurframleiðenda sem ekki eru í kornrækt og byggja alfarið á heyfeng og aðkeyptu kjarnfóðri. „Þegar ég ber saman kostnað við kjarnfóður á hvern lítra framleiddrar mjólkur og breytilegan kostnað á hvern mjólkur-
sem gefa mikið af sér. Því má segja að áhrifin af kornræktinni komi líka fram í hagkvæmari heyframleiðslu,“ segir Hermann.
Eyjafjörður kjörlendi fyrir kornrækt Hermann segir að samanburðartölur sýni að kornbændur í Eyjafjarðarsveit fáu mestu uppskeru á landinu á hvern hektara, um fimm tonn. Svæðið sé því kjörlendi fyrir aukna kornframleiðslu á komandi árum. „Ég tel að það sé ekki óraunhæft að ætla að á næsta áratug geti kornrækt á Eyjafjarðarsvæðinu þrefaldast en hún er
Slönguhjól og kefli
Nýta heitt vatn á Laugalandi Staðsetning þurrkstöðvarinnar á Laugalandi er ekki tilviljun því þar eru borholur Norðurorku fyrir heitt vatn. Þegar þurrkstöðin er í gangi er heita vatnið notað í þurrkarann og hluti varmans nýttur en vatninu er síðan dælt niður í borholurnar aftur. Hermann segir að húsið og grunn búnaður geri ráð fyrir mögulegri stækkun þurrkstöðvarinnar og þar með auknum afköstum. „Kornræktin gerir það líka að verkum að við þurfum að vera í meiri skiptiræktun á túnum og því erum við alltaf með ung tún
um 2000 tonn í dag. En þetta gerist ekki af sjálfu sér og af reynslunni vitum við að það er ekki hægt að stytta sér leið í kornrækt. Það þarf að vanda til allra þátta, til sáningar á vorin, úða varnarefnum á ræktunartímanum og dreifa áburði yfir sumarið. Allt stuðlar þetta að því að við fáum heilbrigðari plöntur, betra korn, meiri uppskeru og verðum ekki fyrir veðurfarslegum áföllum í haustveðrum eins og gerðist áður fyrr. Þekking og reynsla hefur því skilað miklum ávinningi. Þetta er mikil vinna en gríðarlega skemmtileg,“ segir Hermann Ingi.
LANDVÉLAR | SMIÐJUVEGI 66 LANDVELAR.IS
34 | SÓKNARFÆRI
Unnið að uppsetningu á sjálfvirku smurkerfi í vinnuvél.
Aðaleigendur Skralla ehf. þeir Örvar S. Haraldsson (tv.) og Vilmundur Theodórsson.
Veturinn nálgast og þá koma snjóplógar að góðum notum.
Skralli ehf.
Sturtuvagnar og sjálfvirk smurkerfi „Okkar kjarnastarfsemi snýst annars vegar um sölu, uppsetningu og þjónustu við sjálfvirk smurkerfi í vélar og tæki og hins vegar um innflutning á sturtuvögnum, hífi- og festibúnaði, snjóplógum, snjókeðjum og fleiri vörum. Á landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll munum við einmitt kynna viðskiptavinum norsku Gigant sturtuvagnana sem eru gríðarlega öflugir og hafa komið vel út hjá verktökum og bændum hér á landi,“ segir Vilmundur Theodórsson, framkvæmdastjóri Skralla ehf. í Hafnarfirði. Smurkerfin og aðrar vörur Skralla koma frá Noregi sem Vilmundur segir fyrst og fremst skýrast af því að hann bjó þar í 10 ár og starfaði hjá Caterpillar umboðinu í Noregi. „Á þeim tíma komst ég í kynni við marga öfluga birgja og framleiðendur búnaðar í Noregi og því lá beint við að
Fyrsti Gigant vagninn sem Skralli seldi hér á landi var úr verktakalínunni. Þessi vagn hefur 16,5 tonna burðargetu og er á Efri-Reykjum í Bláskógabyggð.
bjóða þeirra vörur hér á landi,“ segir Vilmundur sem flutti heim árið 2020. Síðla árs 2021 var fyrirtækið Skralli stofnað og hóf starfsemi í ársbyrjun 2022. Stofnendur og eigendur ásamt honum eru Örvar S. Haraldsson og tveir synir Vilmundar; Hlynur Ísak og Óskar Fannar.
verktökum til umboða sem selja vélbúnað og svo get ég nefnt stórar verksmiðjur, t.d. álverin. Okkar þjónusta snýst um sölu, uppsetningu og viðhald smurkerfanna. Þetta geta verið allt frá smágröfum upp í stórar verksmiðjuvélar sem við erum að setja kerfin í,“ segir Vilmundur.
Sjálfvirk smurkerfi í vélar og stóriðjuver
Sterkir sturtuvagnar frá Gigant
Sjálfvirk smurkerfi segir Vilmundur stöðugt að verða algengari í vinnuvélum og vélbúnaði almennt. Bæði spari þessi kerfi vinnu en um leið eru smurkerfin mikilvægur liður í að koma í veg fyrir ótímabærar bilanir. „Í dag má heita að við séum þeir einu hér á landi sem bjóða þá þjónustu að klæðskerasauma sjálfvirk smurkerfi í vélar og tæki. Viðskiptavinir okkar eru fjölbreyttur hópur, allt frá bændum og
Innflutningur búnaðar segir Vilmundur að fari stöðugt vaxandi hjá Skralla. Aðstæður eru um margt krefjandi í Noregi og hliðstæðar því sem gerist hér á landi og því segir Vilmundur að norsku tækin standi undantekningalaust fyrir sínu hjá íslenskum notendum. „Gott dæmi eru Gigant sturtuvagnarnir. Þetta eru vagnar sem framleiddir eru eftir norskum kröfum og eru ekki hvað síst hugsaðir fyrir verktaka og bændur. Norska grjótið er mjög hart og þar af
Gigant vagnarnir eru sérlega hentugir aftan í hjólagröfur.
leiðandi þurfa vagnar að vera mjög sterkbyggðir til að standast álagið. Við höfum selt nokkra tugi af Gigant vögnunum hér á landi frá því við hófum starfsemi og stór hluti þeirra eru vagnar sem notaðir eru aftan í hjólagröfur. Gigant býður sína vagna raunar í þremur vörulínum, þ.e. hjólagröfuvagna, landbúnaðarvagna og síðan fjölbreytta línu fyrir verktaka og þá er um að ræða stærstu vagnana. Sem dæmi seldum við fyrir stuttu 20 tonna verktakavagn sem er á loftpúðafjöðrun, með diskabremsum og ABS kerfi,“ segir Vilmundur en Gigant vagnarnir eru þeir söluhæstu í Noregi.
Vetrarvörur og þjónusta um allt land Veturinn er fram undan og hefur Skralli á boðstólum ýmsar vetrartengdar vörur, svo sem snjóplóga og sanddreifara frá Gigant og snjókeðjur fyrir dráttarvélar, vinnuvélar og vörubíla frá Lilleseth. „Við horfum til þess að leggja meiri áherslu á landbúnaðinn. Góð þjónusta skiptir mestu máli og við förum víða um land í verkefni ef á þarf að halda, t.d. í uppsetningu á smurkerfum. Eitt af því sem við þá gerum er að bjóða viðskiptavinum fast verð og við finnum að það kunna þeir vel að meta,“ segir Vilmundur Theódórsson.
skralli.is
SLÖNGUR OG
TENGIBÚNAÐUR Í FISKELDI Hydroscand er með mikið úrval af slöngum og tengi fyrir fiskeldi. Við rekum meira en 240 verslanir og slönguviðgerðarverkstæði um allan heim og erum til staðar í 20 löndum.
Hydroscand Ísland | Vagnhöfða 27 |110 Reykjavik | 516 3300 | hydroscand.is
36 | SÓKNARFÆRI
Sveinn Símonarson, viðskiptastjóri hjá Styrkás.
Öflug þjónusta við íslenskan landbúnað segir Sveinn Símonarson, viðskiptastjóri lykilviðskiptavina hjá Styrkás hf. „Fyrirtækin innan samstæðu Styrkás eru í þjónustu við grunnatvinnuvegina alla daga, árið um kring, þar á meðal landbúnað, sjávarútveg, byggingariðnað og fleiri greinar,“ segir Sveinn Símonarson, viðskiptastjóri lykilviðskiptavina hjá Styrkás hf., rekstrarfélagi og móðurfélagi fjögurra þekktra þjónustufyrirtækja í íslensku atvinnulífi: Skeljungs, Kletts, Stólpa og Hreinsitækni. Rekstrarfélagið var stofnað árið 2022 með það að markmiði að verða leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði með styrk til að þjónusta innviðaog atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi.
Stólpi sérhæfir sig í gámalausnum og húseiningum.
Skotbómulyftari af gerðinni Merlo frá Kletti.
Sérstaða hvers félags, styrkur samstæðunnar Á sýningunni Íslenskur landbúnaður 2026 í Laugardalshöll standa dótturfélögin Skeljungur, Klettur og Stólpi saman að sýningarbás Styrkás-samstæðunnar, þar sem gestir geta kynnst þjónustuframboði félaganna á sviði landbúnaðar og spjallað við fulltrúa þeirra á staðnum. Allir eru hjartanlega velkomnir að kíkja við. „Við leggjum upp úr því að fyrirtækin haldi sérstöðu í starfsemi og þjónustu við sína viðskiptavini en nýti um leið þann styrk sem felst í að starfa saman innan samstæðu Styrkás eftir því sem við á. Þannig vinnum við öll
Sprettur er tilbúinn áburður sem framleiddur er í Bretlandi fyrir Skeljung. að því sameiginlega markmiði að veita góða þjónustu. Góð þjónusta er lykillinn að því að viðskiptavinir leiti til okkar og kaupi okkar vörur,“ segir Sveinn, sem sjálfur var meðal stofnenda Kletts á sínum tíma og tók við nýju hlutverki innan Styrkás eftir að Klettur varð hluti af samstæðunni.
Landbúnaður stór hluti viðskiptavinahópsins Sveinn segir áhersluna vera á þjónustu við atvinnulífið og að viðskiptavinir í landbúnaði séu stór hópur viðskiptavina dótturfélaganna. Skeljungur selur bændum meðal annars eldsneyti, rekstrarvörur, rúlluplast og
áburðinn Sprett. Félagið birtir kolefnisspor hverrar áburðartegundar til að auðvelda bændum upplýstar ákvarðanir og útbýr jafnframt smurkort fyrir dráttarvélar og heyvinnuvélar. Stólpi útvegar geymslu- og gámalausnir auk sérsniðinna húseininga fyrir bændur. Klettur er sölu- og þjónustuaðili Merlo skotbómulyftara, sem eru öflugar og fjölhæfar vinnuvélar sem henta sérlega vel fyrir landbúnað auk þess að selja ljósmöstur frá Trime og Maxam landbúnaðar- og vinnuvéladekk. Þjónustunet Kletts nær til Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og Akureyrar, auk viðurkenndra þjónustuaðila á Ísafirði og Reyðarfirði.
Sveinn segir að Styrkás horfi til áframhaldandi vaxtar í þjónustu við landbúnaðinn og að dótturfélögin muni halda áfram að þróa lausnir sem mæta þörfum bænda um land allt. „Landbúnaður er einn af okkar mikilvægustu viðskiptavinahópum og við ætlum að halda áfram að byggja upp þjónustu sem hentar bændum, hvort sem það er eldsneyti, tæki, geymslulausnir eða annað sem til þarf. Við hlökkum til að hitta gesti á sýningunni og heyra hvað brennur á bændum,“ segir Sveinn Símonarson, viðskiptastjóri.
styrkas.is
38 | SÓKNARFÆRI
Rödd fyrirtækjanna í íslenskum landbúnaði Samtök fyrirtækja í landbúnaði, SAFL, voru stofnuð árið 2022. Á skömmum tíma hafa samtökin orðið sýnileg rödd í umræðu um starfsumhverfi, fæðuöryggi og samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu. Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri SAFL, segir meginverkefnið vera að ákvarðanir stjórnvalda taki mið af raunverulegum aðstæðum greinarinnar og fyrirtækjanna sem tengja saman frumframleiðslu, vinnslu og markað. Íslenskur landbúnaður er meira en sveitir landsins. Auk frumframleiðslunnar eru fjölbreytt fyrirtæki hringinn í kring um landið sem annast meðal annars afurðavinnslu, slátrun, mjólkurvinnslu, fóðurframleiðslu og dreifingu. SAFL voru, að sögn Margrétar, stofnuð til að sameina rödd þeirra. „SAFL eru atvinnurekenda- og hagsmunasamtök fyrirtækja í landbúnaði. Við horfum á alla virðiskeðjuna og reynum að tryggja að íslensk framleiðsla búi við skilyrði sem gera henni kleift að þróast,
fjárfesta og standast samkeppni. Sterk fyrirtæki eru forsenda þess að afurðir bænda komist í vinnslu og á markað og að neytendur hafi áfram aðgang að fjölbreyttum íslenskum matvælum,“ segir Margrét.
Sérstaða innan landbúnaðarins Eðli SAFL er að nokkru öðruvísi en samtaka sem fyrst og fremst gæta hagsmuna bænda eða tiltekinna búgreina. Aðildarfyrirtækin starfa á ólíkum sviðum en eiga það sameiginlegt að rekstur þeirra byggist að verulegu leyti á úrvinnslu afurða og þjónustu við frumframleiðsluna. Hlutverk samtakanna er því bæði að gæta beinna hagsmuna félagsmanna og að styrkja heildarumhverfi greinarinnar. Markmið SAFL eru meðal annars að efla samkeppnisstöðu og ímynd íslensks landbúnaðar, stuðla að hagkvæmni og vera í forsvari gagnvart stjórnvöldum. Samtökin fylgjast einnig með þróun regluverks og landbúnaðarstefnu erlendis.
Sterk fyrirtæki eru forsenda þess að afurðir bænda komist í vinnslu og á markað og að neytendur hafi áfram aðgang að fjölbreyttum íslenskum matvælum.
gerðum. Okkar hlutverk er líka að horfa lengra fram á veginn. Hvernig ætlum við að tryggja næga innlenda framleiðslu, hvernig sköpum við hvata til fjárfestinga og nýsköpunar og hvernig tryggjum við að íslensk landbúnaðarfyrirtæki sitji ekki eftir þegar önnur ríki styrkja markvisst sína matvælaframleiðslu,“ segir Margrét. Frá ársbyrjun 2024 hafa SAFL verið aðili að og starfað náið með Samtökum iðnaðarins. Þar fá fyrirtæki í landbúnaði aðgang að stærra faglegu umhverfi á sviði lögfræði, hagfræði, samskipta og greininga. Um leið halda SAFL sjálfstæðri rödd í málum landbúnaðar og innlendrar matvælaframleiðslu.
Starfsumhverfi og regluverk í forgrunni Horfa lengra fram á veginn „Við vinnum ekki aðeins að því að bregðast við einstökum frumvörpum eða reglu-
„Við viljum að íslenskur landbúnaður sé metnaðarfullur, nútímalegur og tilbúinn að takast á við breytingar,” segir Margrét. MYND: JÓHANN GYLFI JÓHANNSSON
Stór hluti starfsins undanfarið hefur falist í umsögnum til Alþingis og öðrum samskiptum við stjórnvöld. Þar hafa SAFL meðal annars fjallað um breytingar á búvörulögum, framlengingu búvörusamninga, skipulag opinbers eftirlits og nýjar kröfur sem geta haft áhrif á daglegan rekstur fyrirtækja. Rauði þráðurinn hefur verið krafa um fyrirsjáanleika, skýrari reglur og almennt að forðast álögur á atvinnulífið umfram það sem nauðsyn ber til. Samtökin hafa stutt markmið um einfaldara og samræmdara eftirlit en jafnframt varað við því að breytingar sem kynntar eru sem einföldun geti í framkvæmd aukið kostnað, tvíverknað eða óvissu. Sama sjónarmið hefur komið fram í umræðu um nýtt evrópskt regluverk, svo sem reglur um umbúðir og umbúðaúrgang. Þar geta góð umhverfismarkmið haft ófyrirséðar afleiðingar fyrir lítil fyrirtæki og smáan markað, til dæmis vegna skráningarkrafna, vottana og takmarkaðs framboðs á hentugum umbúðum. „Við leggjumst ekki gegn kröfum um öryggi, umhverfisvernd eða gagnsæi. Þvert á móti. En reglur þurfa að ná markmiðum sínum án þess að skapa óþarfa kostnað eða veikja innlenda framleiðslu.
MYND: JÓHANN GYLFI JÓHANNSSON
SÓKNARFÆRI | 39
beru stuðningskerfi landbúnaðar, líkt og tíðkast í öllum helstu viðskiptalöndum Íslands, og að ekki sé hægt að veikja einn þátt kerfisins án þess að meta áhrifin á heildina.
Margrét Gísladóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.
Fæðuöryggi og breyttur heimur Margrét segir áherslu á fæðuöryggi hefur verið stór hluti af starfi SAFL frá stofnun samtakanna. Stríð, hækkandi orkuverð, röskun aðfangakeðja og vaxandi geópólitísk spenna hafa sýnt hversu viðkvæm matvælakerfi geta verið. Samtökin hafi bent á að Evrópuríki og Noregur líti í auknum mæli á matvælaframleiðslu sem hluta af þjóðaröryggi. „Fæðuöryggi verður ekki tryggt með orðum og vilja einum saman. Það byggist á því að hér séu bændur og fyrirtæki sem hafa þekkingu, starfsfólk, búnað og fjárhagslega getu til að halda framleiðslu gangandi. Ef rekstrargrundvöllurinn veikist árum saman er ekki hægt að kveikja aftur á framleiðslunni með einum rofa þegar áfall verður,“ segir Margrét.
Starfsskilyrði, tollar og samkeppnishæfni
Á litlum markaði getur krafa sem virðist hófleg í stóru Evrópuríki orðið hlutfallslega mjög þung fyrir íslenskt fyrirtæki,“ segir Margrét.
SAFL hafa tekið virkan þátt í umræðu um rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni innlendrar matvælaframleiðslu. Samtökin hafa lagt áherslu á að horfa verði til allrar virðiskeðjunnar og heildarmyndarinnar þegar starfsskilyrði greinarinnar eru metin. Undirliggjandi þættir á borð við launakostnað, vaxtastig, flutninga, orku, húsnæði, opinber gjöld, eftirlit og kostnað við innflutt aðföng hafi veruleg áhrif á rekstrarforsendur framleiðslunnar. Hafa samtökin kallað eftir vandaðri nálgun í opinberri umræðu og greiningum um þessi mál, sem taki meðal annars mið af launum, kaupmætti og almennu kostnaðarstigi á Íslandi. „Opinber umræða um starfsumhverfi innlendrar matvælaframleiðslu á að vera gagnrýnin en hún verður líka að vera sanngjörn og byggð á heildarmyndinni. Ef markmiðið er að efla samkeppnishæfni greinarinnar og styðja hag neytenda til lengri tíma þurfum við að horfa til undirliggjandi rekstrarskilyrða í öllu hagkerfinu. Það er mikilvægt að stjórnvöld líti til þess hvernig opinberar álögur, vaxtastig
Upplýst umræða og sterkari rödd
Á litlum markaði getur krafa sem virðist hófleg í stóru Evrópuríki orðið hlutfallslega mjög þung fyrir íslenskt fyrirtæki. og almennur kostnaður móta þau skilyrði sem innlendri framleiðslu eru búin,“ segir Margrét. Tollvernd og tollflokkun landbúnaðarvara hafa sömuleiðis verið meðal stærstu mála samtakanna. SAFL hafa meðal annars fjallað ítarlega um tollflokkun svonefnds pítsaosts og bent á að breytingar geti haft veruleg áhrif á innlenda mjólkurframleiðslu. Afstaðan byggist á því að tollar séu hluti af opin-
Reimalausnir fyrir alla flutninga
Sterkbyggðu M5085 böndin eru einstaklega þrifavæn
Erum sterk í öllum matvælaböndum hvort sem er á sjó eða landi
Samhliða hagsmunagæslu hafa SAFL lagt áherslu á miðlun upplýsinga. Greinar, fréttir, umsagnir, viðtöl og greiningar á kostnaðarþróun og starfsumhverfi eru hluti af þeirri viðleitni að auka málefnalega umræðu um landbúnað. Samtökin hafa einnig brugðist við þegar öryggi fyrirtækja og starfsfólks hefur verið ógnað, meðal annars með því að fordæma nýlega innbrotahrinu í landbúnaðarfyrirtæki og minna á mikilvægi smitvarna, dýraheilbrigðis og starfsöryggis. Margrét segir framtíðarverkefnin skýr: að bæta samkeppnishæfni, draga úr óþarfa reglu- og kostnaðarbyrði, efla framþróun og festa fæðuöryggi betur í opinberri stefnumótun. „Við viljum að íslenskur landbúnaður sé metnaðarfullur, nútímalegur og tilbúinn að takast á við breytingar. En til þess þarf samtal sem byggist á staðreyndum og skilningi á því hvernig fyrirtækin starfa. Hlutverk SAFL er að koma með þá þekkingu að borðinu og tryggja að rödd fyrirtækjanna í landbúnaði heyrist þegar ákvarðanir eru teknar.“
Í yfir 70 ár!
Lestarbönd í miklu úrvali
Gylfaflöt 3 • 112 Reykjavík • Sími: 567 4467 • gummisteypa@gummisteypa.is • www.gummisteypa.is Gúmmísteypa Þ. Lárusson_ISC1025_210x146.indd 1
29-01-2024 12:22:39
40 | SÓKNARFÆRI
Margrét Katrín Guðnadóttir við hillur með landbúnaðarvörum í versluninni í Borgarnesi.
„Við erum í sóknarhug“ Rætt við Margréti Katrínu Guðnadóttur, kaupfélagsstjóra Kaupfélags Borgfirðinga „Við erum í sóknarhug og sjáum ýmis tækifæri til að efla starfsemi í okkar verslun,“ segir Margrét Katrín Guðnadóttir, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Borgfirðinga, KB í Borgarnesi. Hún er fyrsta konan til að gegna stöðu kaupfélagsstjóra í þessu gamalgróna kaupfélagi sem stofnað var 4. janúar árið 1904. „Það er auðvitað skemmtilegt að vera fyrsta konan í þessu starfi,“ bætir hún við. Hún tók við stöðunni árið 2019 en hafði þá um árabil verið verslunarstjóri hjá KB. Margrét er dýralæknir að mennt ásamt því að hafa lokið MBA í viðskiptafræði. Margrét á ættir að rekja vestur á firði, er fædd á Ísafirði og ólst upp í Hnífsdal. Móðir hennar er úr Fljótavík á Hornstöndum þar sem ræturnar liggja og fjölskyldan tengist staðnum sterkum böndum. Faðir hennar er ættaður frá Djúpavogi og úr Dalasýslu. Hún flutti til Ísafjarðar 16 ára gömul með foreldrum sínum og stundaði nám við Menntaskólann á Ísafirði þaðan sem hún lauk stúdentsprófi. Hún stundaði nám í líffræði við Háskóla Íslands einn vetur en hélt að honum loknum til Kaupmannahafnar þar sem hún fór í dýralæknanám. „Ég bjó í Danmörku í 7 ár, fyrst ein en svo flutti maðurinn minn, Jón Arnar Sigurþórsson, til mín. Okkur líkaði mjög vel í Danmörku en þegar við vorum komin með eitt barn
þá fundum við að okkur langaði að flytja heim. Mér bauðst að vinna bæði með héraðsdýralæknunum í Borgarnesi og í Búðardal og því ákváðum við að setjast að í Borgarnesi. Það hentaði okkur mjög vel því við erum bæði frekar miklar sveitatúttur og okkur langaði engan veginn að setjast að á höfuðborgarsvæðinu. Við kunnum hins vegar að meta nálægðina við það.“
Réttardagur Þverárrétt í Borgarfirði. MYND: JÓHANN GYLFI JÓHANNSSON
Mikill akstur og langir vinnudagar Starfssvæðið var stórt, allur Borgarfjörðurinn, Mýrarnar og hálfur Hvalfjörður, Dalirnir allir, Reykhólasveit og allt vestur í Mjóafjörð í Djúpi. „Ég keyrði óskaplega mikið á þessum árum, oft um 5 þúsund kílómetra á mánuði. Nokkur haust sá ég um sláturhúsin bæði á Króks-
Borgarfjörður hefur í gegnum tíðina verið öflugt landbúnaðarhérað. MYND: JÓHANN GYLFI JÓHANNSSON
fjarðarnesi og Óspakseyri og þá var maður fjarri heimilinu heila viku í senn. Það var yfirleitt mikið að gera og vinnudagarnir langir, teygðust oftar en ekki langt fram á kvöld,“ segir hún. Árið 2008 voru börnin orðin þrjú. Margréti þótti þá tími til komin að sinna þeim betur en hægt var í annasömu starfi dýralæknis. „Ég ákvað að gera smá hlé og fá mér aðra vinnu sem ekki krefðist svona mikillar fjarveru frá heimilinu. Ég ætlaði að gefa því tvö ár,“ segir Margrét en í kjölfarið tók hún við sem verslunstjóri KB. Þegar að því kom að Margréti langaði að snúa á ný til starfa við dýralækningar kom í ljós að hún var komin með mikið ofnæmi, m.a. fyrir heyi og skepnum. Hún ákvað að setja heilsuna í fyrsta sæti og fóta sig á nýjum vettvangi. Margrét hefur þó ávallt rekið litla dýralæknastofu í bílskúrnum heima hjá sér og tekur þar enn á móti smádýrum, einkum hundum og köttum.
Kertastjakar og kjarnfóður KB rekur verslun við Egilsholt 1 í Borgarnesi þar sem boðið er upp á fjölbreytt úrval. „Fólk hefur gaman af því að koma til okkar og sjá úrvalið, hér má finna allt frá kertastökum upp í kjarnfóður,“ segir Margrét. „Þetta er ekta kaupfélag þar sem fjölbreytnin er mikil. Enda segir sagan að ef þú færð það ekki í kaupfélaginu þá þarftu það ekki.“
SÓKNARFÆRI | 41
KB lifir góðu lífi. Við erum öflugt samvinnufélag í eigu um 2000 félagsmanna. Sóknarfæri varðandi sauðfjárbúin Mikil áhersla er á vörur sem tengjast landbúnaði. „Við bjóðum rekstrarvörur fyrir landbúnað og höfum séð ákveðin sóknarfæri í sauðfjártengdum vörum. Þarfir kúabænda hafa breyst mikið með tilkomu mjaltaþjóna en við kappkostum að sinna þeim og sauðfjárbændum eins vel og hægt er. Við erum með netverslun og við okkur versla bændur og aðrir um allt land. Það er ánægjulegt og gefur okkur byr undir báða vængi að standa okkur vel fyrir þá,“ segir hún. Fljótlega eftir að Margrét tók við sem verslunarstjóri hóf hún beinan innflutning á mörgum vörum m.a. á fæðubótar – og bætiefnum fyrir skepnur. Féll sá vöruflokkur strax í kramið hjá viðskiptavinum og hefur vaxið og dafnað síðan.
„KB lifir góðu lífi. Við erum öflugt samvinnufélag í eigu um 2000 félagsmanna sem láta sér annt um félagið. Aðalfundur er haldinn árlega og þar hafa allir félagsmenn rétt til að koma og taka þátt í að móta framtíð félagsins. Okkar dyr standa ávallt opnar og við hvetjum félagsmenn og aðra til að koma og ræða við okkur hvort heldur sem er til að lofa eða lasta. Við viljum gjarnan fá endurgjöf á það sem við erum að gera og getum þá lagt okkur fram um að gera enn betur,“ segir hún. Verslunarhús KB í Borgarnesi.
kb.is
Burðarás í atvinnulífi Kaupfélag Borgfirðinga á sér langa sögu og var í fyrri tíð burðarás í atvinnulífi héraðsins. Eftir því sem leið á síðustu öld fór smám saman að fjara undan rekstri kaupfélaga um land allt og áttu mörg undir högg að sækja. Það gilti einnig um KB sem lagði niður ýmsan fyrri rekstur; vöruhús, mjólkursamlag, sláturhús og vöruflutningastöð sem dæmi. Sama þróun hefur verið í landbúnaði í Borgarfirði og annars staðar á landinu, búum fækkar en sum þeirra stækka, á einhverjum jörðum hefur búskap verið hætt. „Það hefur verið samdráttur í greininni, umsvifin hafa minnkað en við bregðumst við því með því að bjóða upp á meiri breidd í vöruúrvali og beina sjónum að því þar sem helst eru tækifæri, eins og til að mynda að vera ávallt með fjölbreytt úrval af öllu sem hugsanlega vantar á sauðfjárbúi og höfum verið að efla okkar innflutning á slíkum varningi,“ segir hún. Auk búrekstrardeildarinnar er Kaupfélag Borgfirðinga hluthafi í Dröngum, sem á m.a. Samkaup, Orkuna, Löður og Lyfjaval auk nokkurra fasteigna sem eru í útleigu bæði í Borgarnesi og á Akranesi. KB á einnig dótturfélagið Borgarland sem leigir út nokkrar fasteignir, t.d. Hyrnutorg (að stærstum hluta) og Digranesgötu. Margrét er stjórnarformaður Borgarlands og sér um daglegan rekstur þess félags. Alls starfa sjö manns hjá Kaupfélagi Borgfirðinga, tveir á skrifstofu og fimm í versluninni.
Hreinsibúnaður og vélar
K Háþrýstidælur – mest 180 bör
HD Háþrýstidælur – mest 250 bör
HDS Háþrýstidælur/Hitadælur – mest 210 bör & vatnshiti 155°C
PGG Rafstöðvar – 1 & 3 fasa, 2200W-7200W
NT Ryksugur – Stærð 22-65 ltr & verksmiðju rykugur
Brunndælur – Ýmsar stærðir
Styðja vel við nærsamfélagið Margrét segir KB vera mikilvægt félag í héraði og sem dæmi styðji það við nærsamfélagið með styrkjum til góðra verkefna. Þar megi nefna íþrótta- og tómstundastarf bæði fyrir börn og eldri borgara.
Rafver er stoltur umboðsog þjónustuaðili Kärcher á Íslandi í 42 ár!
Rafver • Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is
42 | SÓKNARFÆRI
Áburðardreifing með dróna Fyrirtækið DJI Reykjavík, sem er eini viðurkenndi endursöluaðili DJI dróna á Íslandi, kynnir á landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll það sem DJI hefur að bjóða í svokölluðum Agras drónum fyrir landbúnað. Fyrsti Agras dróninn var kynntur 2015 og síðan þá hafa Agras drónar vakið hvað mesta athygli á meðal dróna sem hannaðir eru til frædreifingar og áburðardreifingar í landbúnaði.
Sérhæfðir fyrir áburðardreifingu Stærsti dreifingardróninn sem DJI framleiðir í dag heitir DJI Agras T100P en hann getur borið allt að 100 lítra af úðavökva eða 100 kíló af tilbúnum áburði til dreifingar í hverri dreifingarlotu. Dróninn er með dreifikerfi sem ræður líka við fjölbreytt kornað efni og er dreifiradíusinn allt að 10 metrar. Jafnframt því að geta dreift áburði er dróninn hannaður með það fyrir augum að nýtast til sáningar. Sigurður Þór Helgason, forstjóri DJI Reykjavík, segir dreifingardrónana hafa marga kosti fyrir hefðbundinn landbúnað, skógrækt, garðyrkju, landgræðslu og fleiri greinar. „Dreifingin veldur engu raski á landi og dróninn á auðvelt með að fylgja eftir erfiðu landi, t.d. í blautu eða hallandi landi. Nákvæmnin í áburðardreifingu
er mjög mikil en dróninn notar ratsjá, tvíaugnasjón og RTK-staðsetningu fyrir örugga og nákvæma leiðsögn yfir flóknu landslagi. Vinnusparnaður er mjög mikill, enginn eldsneytiskostnaður né útblástur. Þetta er dæmi um hvernig drónatæknin getur nýst í landbúnaði og mun vafalaust þróast enn frekar á næstu árum,“ segir
Sigurður Þór en Agras dróni til áburðardreifingar er þegar kominn í notkun á golfvellinum í Þorlákshöfn og reyndist prýðilega síðastliðið sumar. Agras drónar eru víða í noktun í landbúnaði hér á landi.
Flutnings- og smaladrónar Hægt er einnig að útfæra landbúnaðardrónana með lyftibúnaði
og getur t.d. Agras T70P borið 65 kg og þannig nýst til að flytja girðingarefni, fóður eða búnað upp á heiðar og á illfær svæði. „Síðan erum við með minni dróna sem sauðfjárbændur hér á landi hafi í mjög vaxandi mæli nýtt sér. Þeir hafa mikla leitarhæfni, eru búnir öflugum myndavélabúnaði, hitamyndavél og hátalarakerfi þannig að
hægt er að senda t.d. köll eða gelt úr drónanum til að smala skepnum. Það eru margir hér á landi komnir með góða reynslu af þessum drónum og spara sér mikla vinnu,“ segir Sigurður Þór.
djireykjavik.is
Ertu stjórnandi? Við vinnum fyrir þig. Ertu stjórnandi?
Við vinnum fyrir þig. Sjómenn – til hamingju með daginn!
www.stf.is
www.stf.is
Það borgar sig að vera í stjórnendafélagi! Ert þú í stjórnunarstöðu hjá fyrirtæki eða starfsmaður sem hefur mannaforráð?
Ert þúborgar einyrki og stundar atvinnustarfsemi? Það sigsjálfstæða að vera í stjórnendafélagi! Aðildarfélög Sambands stjórnendafélaga eru sjö talsins um land allt.
Ert þú í stjórnunarstöðu hjá fyrirtæki eða starfsmaður sem hefur mannaforráð? Félagsmenn eiga rétt á aðstoð úr einum besta sjúkrasjóði landsins og njóta styrkja Ert þú einyrki og stundar sjálfstæða atvinnustarfsemi? úr einum öflugasta menntasjóði landsins til að sækja sér aukna menntun í starfi. Aðildarfélög Sambands stjórnendafélaga eru sjö talsins um land allt. Kannaðu hvort þú eigir erindi í eitthvert af sjö aðildarfélögum STF. Félagsmenn eiga rétt á aðstoð úr einum besta sjúkrasjóði landsins og njóta styrkja Við tökum vel á móti þér! úr einum öflugasta menntasjóði landsins til að sækja sér aukna menntun í starfi.
Kannaðu hvort þú eigir erindi í eitthvert af sjö aðildarfélögum STF.
Við tökum vel á móti þér!
44 | SÓKNARFÆRI
Bjóða öryggiskerfi fyrir landbúnað Nortek fagnar 30 ára afmæli í ár en fyrirtækið sérhæfir sig í öryggisbúnaði og brunavörnum. Bjarki Páll Bergsson hefur verið sölustjóri Nortek síðustu átta ár og segir fyrirtækið stöðugt hafa vaxið í þjónustu við fyrirtæki og einstaklinga. „Við erum stolt af þessum 30 árum en líka spennt fyrir því að halda áfram að þjónunsta viðskiptavini með þá reynslu sem við höfum öðlast í búnaði sem hentar íslenskum aðstæðum,“ segir hann en Nortek mun á sýningunni Íslenskur landbúnaður 2026 kynna launir sínar fyrir landbúnað.
AJAX öryggiskerfi fyrir heimili og fyrirtæki.
Öryggisbúnaður þróast hratt „Við bjóðum meðal annars upp á brunaviðvörun, myndavélakerfi, innbrotavarnir og aðgangsstýringar. Okkar þjónusta felst einnig í aðstoð og ráðgjöf til viðskiptavina við að finna lausnir sem henta þeirra húsnæði og starfsemi,“ segir Bjarki Páll og bætir við að stöðug framþróun sé í öryggisbúnaði. „Kerfin eru orðin einfaldari í notkun og aðgengilegri. Nú er til dæmis hægt að fá tilkynningar í síma og fylgjast með stöðu kerfa eða myndavéla þótt maður sé ekki á staðnum. Einnig eru komnar öflugar þráðlausar lausnir sem gefa fleiri möguleika en áður.“
Lausnir sem nýtast í landbúnaði Bjarki Páll segir landbúnaðarsýninguna vera gott tækifæri til að kynnast betur þeim áskorunum sem fólk í greininni stendur frammi fyrir. Góður öryggisbúnaður sé mikilvægur í landbúnaði, líkt og í öðrum atvinnugreinum. „Margar af okkar lausnum nýtast vel í landbúnaði og sýningin er góður vettvangur til að eiga beint samtal við þá sem
þekkja rekstur í landbúnaði best. Fólk getur séð kerfin í raunverulegri notkun á sýningunni, prófað búnaðinn sjálft á staðnum og rætt við okkur um hvað gæti hentað þeirra rekstri eða heimili,“ segir Bjarki Páll. Hann segir aðstæður á hverjum stað ráða mestu um hvaða lausnir henta best.
Háþrýstidælur - Gott verð
LANDVÉLAR | SMIÐJUVEGI 66 LANDVELAR.IS
Landbúnaðarsýningin er kjörinn vettvangur til að kynnast þörfum landbúnaðarins á öryggissviðinu og kynna þær lausnir sem við höfum að bjóða. „Á sveitabæjum er oft nokkuð langt á milli bygginga og ekki alltaf einhver á staðnum. Svo geta umhverfisaðstæður
Bjarki Páll Bergsson, sölustjóri Nortek.
verið krefjandi, til dæmis ryk, raki, kuldi og miklar hitabreytingar. Þess vegna þarf að velja búnað og útfærslu sem hentar hverjum stað.“
nortek.is
46 | SÓKNARFÆRI
Viljum alltaf vera í fremstu röð í þróun og framleiðslu á fóðri segir Einar Ásgeirsson, fóðurfræðingur hjá Fóðurblöndunni „Fóðurblandan er fyrirtæki sem þjónustar landbúnað í heild sinni og má segja að fóður sé okkar ær og kýr. Við höfum alla tíð lagt okkur fram um að vera í fremstu röð í nýjungum og þróun í fóðurframleiðslu jafnframt því að nota eins mikið af íslenskum hráefnum og er í boði hverju sinni. Það skiptir miklu máli að geta með þessum hætti nýtt það sem landið gefur af sér,“ segir Einar Ásgeirsson, fóðurfræðingur hjá Fóðurblöndunni í Reykjavík. Fyrirtækið framleiðir um 25 þúsund tonn af fóðri á ársgrundvelli, mest fyrir landbúnað en einnig fyrir landeldi á fiski en því til viðbótar selur fyrirtækið annað eins magn af hráefnum til fóðurgerðar á svínabúum.
Íslensk kornframleiðsla á uppleið Þau íslensku hráefni sem Fóðurblandan notar eru meðal annars fiskimjöl, kalkþörungar, lýsi, bygg og hveiti. „Við reynum eftir megni að tryggja að sem mest af okkar virðiskeðju í framleiðslu byggist á innlendum hráefnum. Kornrækt hjá bændum hefur verið að aukast á undanförnum árum, bæði vegna aukins stuðnings við kornrækt og svo þróast þessi framleiðsla með auknum fjárfestingum og betri innviðum. Þurrkstöðvum fyrir korn fer fjölgandi og þekking á kornræktinni er sömuleiðis alltaf að verða meiri og allt styður þetta við aukna framleiðslu. Fyrst og fremst hefur kornframleiðsla hér innanlands byggt á kornrækt sem hliðarbúgrein hjá kúabændum en ég sé alveg fyrir mér að í framtíðinni geti orðið grundvöllur fyrir rekstri á hreinum kornræktarbúum sem einbeiti sér að þeirri framleiðslu. Gæði íslensku hráefnanna fyrir okkur
Einar Ásgeirsson, fóðurfræðingur, metur gróffóðrið með Óttari Braga Þráinssyni, bónda í Miklaholti. hafa síðustu ár verið nokkuð góð, sér í lagi með tilkomu nýrra þurrkstöðva þannig að það er fullkomlega raunhæft að gera ráð fyrir að þetta hráefni í innlenda fóðurframleiðslu fari vaxandi í framtíðinni. Reynslan sýnir að byggrækt í stórum stíl á Íslandi er vel möguleg,“ segir Einar.
Lykilatriði að vinna náið með viðskiptavinum Náin samvinna með viðskiptavinum segir Einar vera lykilatriði í hans starfi. Fóðurbland-
Landsliðið í dælum
LANDVÉLAR | SMIÐJUVEGI 66 LANDVELAR.IS
Reynslan sýnir að byggrækt í stórum stíl á Íslandi er vel möguleg. an annast sýnatöku hjá öllum viðskiptavinum í mjólkurframleiðlu úr heyfeng sumarsins og upplýsingar sem rannsóknir á þeim gefa eru grundvöllur kjarnfóðuráætlana sem Einar vinnur í sínum kerfum fyrir bændurna. Sömuleiðis aðstoðar Einar bændur við að lesa úr jarðvegssýnum. Niðurstöður jarðvegssýna eru undirstaða áburðaráætlana en Fóðurblandan flytur inn áburð og selur til landbúnaðar. Einar segir þessar áætlanir og nána samvinnu við bændur ótvírætt leggja grunn að farsæld í framleiðslu búanna. „Niðurstöður úr sýnatöku úr gróffóðrinu segja til um hvaða kjarnfóðurblanda hentar, þ.e. hversu mikið hún þarf að innihalda af próteinum, vítamínum, steinefnum, kolvetnum og trefjum. Síðan höfum við gott samstarf með kröftugum erlendum fyrirtækjum sem framleiða þessi bætiefni og í gegnum þeirra framleiðslu eru líka stöðugt að koma nýjungar sem nýtast okkar viðskiptavinum,“ segir Einar. Stóra byltingin segir hann að hafi orðið í fóðrun í landbúnaði þegar rúllutæknin kom til sögunnar og nú er stæðugerð á heyi að ryðja sér til rúms.
Dreifingarsvæði Fóðurblöndunnar er víðfeðmt.
„Skilyrði til að rækta gott gras á Íslandi eru góð, jafnvel þótt að við fáum ekki mikið magn af hverjum hektara vegna þess hversu stutt sumar við búum við. Menn reyna að vera með eins mikið magn af heimaræktuðu fóðri og hægt er en síðan er grundvallaratriði að vera með rétt kjarnfóður því til viðbótar til að hámarka framleiðslu búsins og ná sem bestum árangri. Þar kemur að okkar stóra hlutverki í þjónustu við bændur auk þess sem við komum einnig að fjölþættri ráðgjöf til bænda hvað varðar búreksturinn. Góð samvinna með viðskiptavinum er mikils virði fyrir alla,“ segir Einar en þjónustusvæði Fóðurblöndunnar er víðfeðmt. Það nær til Suðurlands allt austur til Hafnar í Hornafirði, Vesturlands, Vestfjarða og norður í Skagafjörð.
Stöðug vöruþróun í þágu viðskiptavina „Við erum stöðugt að horfa til nýjunga og vöruþróunar. Dæmi
um það er nýtt form D vítamíns sem við settum inn í blöndurnar okkar í fyrra sem hefur jákvæð áhrif á framleiðslu og heilsufar gripanna. Annað dæmi um okkar vöruþróun eru svokallaðir geldstöðukögglar sem eiga sér enga hliðstæðu í fóðurframleiðslu. Þeir hafa þann tilgang að undirbúa geldkýr á réttan hátt fyrir næsta mjaltaskeið. Krítískasta tímabil kúnna er fyrsti mánuðurinn eftir burð og því er mikilvægt að kýrnar séu vel undirbúnar fyrir það mikla álag sem verður í upphafi mjólkurskeiðsins og þessi nýja vara styrkir þær fyrir þetta tímabil. Vöruþróun er mikilvæg og allt sem við sjáum að er ávinningur fyrir viðskiptavini tökum við inn í okkar framleiðslu enda vitum við að rétt fóðrun bætir heilsufar gripanna, bætir framleiðsluna og lengir líftíma þeirra,“ segir Einar Ásgeirsson.
fodurblandan.is
B21
STÍGVÉL, KULDAGALLAR, HJÁLMAR o.fl. -allt fyrir öryggið!
Dynjandi · Skeifunni 3h · Sími: 588 5080 · dynjandi.is