Sumar 2017
Velkomin norður Eflum norðlenska verslun
GLERARTORG
MEÐ ALLT SEM ÞÚ ÞARFT FYRIR SUMARIÐ, LÁTTU SJÁ ÞIG
Glerártorg verslunarmiðstöð | Akureyri | www.glerartorg.is
–af lífi & sál–
2 | AKUREYRI // sumar 2017
Bjórbað og slökun í faðmi náttúrunnar
Bjórböðin á Árskógssandi.
Agnes Anna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bjórbaðanna og Bruggsmiðjunnar Kalda.
Útipottar eru við böðin og þaðan er víðsýnt um Eyjafjörð.
Í baðklefunum er tveggja manna viðarker sem í er blanda af humlum, geri, ungum bjór og vatni. Og á meðan fólk lætur líða úr sér getur það bragðað á framleiðslu Bruggsmiðjunnar Kalda.
Bjórböðin á Árskógssandi voru opnuð í byrjun júní en hafa nú þegar vakið mikla athygli um land allt. Þar er boðið upp á einstök bjórböð, heita potta, saunur og slökun, í fallegu umhverfi. „Tilfinningin er engu lík, þú róast bæði á líkama og sál,“ segir Agnes Anna Sigurðardóttir, fram kvæmdastjóri Bruggsmiðjunnar Kalda og Bjórbaðanna. Heilsulindin er sú fyrsta sinnar tegundar á Norðurlöndum en Agnes og eiginmaður hennar, Ólafur Þröstur Ólafsson, eru vön því að ryðja nýjar brautir. Í ár er rúmur áratugur frá því þau stofnuðu fyrsta handverksbrugghúsið hér á landi, Bruggsmiðjuna Kalda, sem hefur vaxið og dafnað frá stofnun. Í dag er Kaldi með tólf tegundir á markaði, en sjö af þeim eru árstíðabundnar. Heilsutengd ferðaþjónusta Hugmyndina að heilsulindinni fengu þau hjónin þegar þau kynntust slíkum bjórböðum í Tékklandi árið 2008 en nú í sumar varð draumurinn að veruleika þegar Bjórböðin SPA voru opnuð í sérbyggðu húsnæði á Árskógssandi. „Þetta er einstök upplifun. Þú dvelur í bjórbaðinu í 25 mínútur en svo fer fólk í slökun í aðrar 25 mínútur. Það er mjög mikilvægt og flestir ná að sofna í þeirri slökun. Þú nærð alveg að núllstilla þig. Að meðferð lokinni verður húðin silkimjúk og þú fullkomlega endurnærist,“ segir Agnes en baðvatnið er blanda af hreinu vatni úr Sólarfjalli, humlum úr Kalda, ungum bjór og svonefndu „bruggarageri“. Gerið er afar próteinríkt og inniheldur nánast allan B-vítamín skalann sem gerir húðinni mjög gott. Humlarnir hafa einnig góð áhrif en í þeim eru alfa-sýrur sem stuðla að jafnvægi á sýrustigi líkamans og eru ríkar af andoxunarefnum.“
Sumar 2017
Í öðru húsi Bjórbaðanna eru bar og veitingasalur.
Hvíldarherbergi á rishæðinni. Hér slaka gestir á eftir böðin og hverfa sumir inn í drauma landið!
Útgefandi: Athygli ehf. í samvinnu við Kaupmannafélag Akureyrar og Akureyrarstofu. Útgáfustjóri: Valþór Hlöðversson. Ritstjóri: Jóhann Ólafur Halldórsson, (ábm). Umsjón, textavinnsla og umbrot: Athygli ehf. Forsíðumynd: Þórhallur Jónsson / Pedromyndir Ljósmyndir: Auðunn Níelsson, Jóhann Ólafur Halldórsson, Margrét Þóra Þórsdóttir ofl. Auglýsingar: Inga Ágústsdóttir. Sími 515-5206. GSM 898-8022, inga@athygli.is
Velkomin norður Eflum norðlenska verslun
GLERARTORG
MEÐ ALLT SEM ÞÚ ÞARFT FYRIR SUMARIÐ, LÁTTU SJÁ ÞIG
Glerártorg verslunarmiðstöð | Akureyri | www.glerartorg.is
–af lífi & sál–
Prentun og dreifing: Prentað í Landsprenti. Dreift með prentaðri útgáfu Morgunblaðsins. Dreift til allra heimila á Akureyri í júlí 2017.
Fyrirmyndaraðstaða í fallegu umhverfi „Körin, sem eru sérsmíðuð úr Kambala-við frá Ghana, henta bæði einstaklingum og pörum en hvert ker er í notalegu sérherbergi. Þar er jafnframt Kaldi á krana fyrir fólk yfir tvítugu. Bjórblöndunni í baðinu er skipt út milli gesta og baðið þrifið. Öll aðstaða er eins og best verður á kosið. Við bjóðum einnig upp á hefðbundna saunu, infra-rauða saunu sem eykur blóðfæði líkamans, hreinsar húðina og eykur hitaeiningabrennslu. Einnig erum við með heita potta á útisvæði.“ Bjórböðin eru í nýbyggðu, sérhönnuðu húsi sem sómir sér vel í fallegri náttúrunni. Beggja vegna eru stór útisvæði og útsýni yfir
til Hríseyjar, á Ólafsfjarðarmúla, um Eyjafjörð og til Þorvaldsdals. „Veitingastaðurinn okkar tekur 80 manns í sæti en þar leggjum við áherslu á að bjóða upp á ferskt hráefni beint frá býli en í boði eru léttir réttir af ýmsu tagi og bjórtengdur matur,“ segir Agnes og bendir á að í raun væri ekki hægt að reka svona spa nema við hlið bruggverksmiðju. „Það er auðvitað alltaf ánægjulegt þegar draumar rætast og ég er himinlifandi með bæði aðstöðuna sem við bjóðum upp á og þær móttökur sem við höfum fengið. Þetta var mikil vinna, heilmikil törn að baki og nú er að njóta,“ segir Agnes Anna. bjorbodin.com
AKUREYRI // sumar 2017 | 3
OPIÐ 8-24
ALLA DAGA Á AKUREYRI
4 | AKUREYRI // sumar 2017
Akureyringurinn Andri Már dúxaði í hugbúnaðarverkfræði í Háskólanum í Reykjavík
Óþrjótandi tækifæri í tölvuheiminum ast í framhaldsnám þannig að ég tek mér tíma til að skoða framhaldið. Mér finnst allt opið – hvort heldur er hér á landi eða erlendis,“ segir Andri Már. „Erum enn í barnæsku tækniframfaranna“ Sú kenning hefur verið sett fram að helming ur þeirra starfa sem eru í heiminum í dag muni víkja fyrir sjálfvirknivæðingu á næstu 20 árum. „Við sjáum til dæmis veldisvöxt í fjölgun sjálfkeyrandi bíla og þar er notuð svokölluð tölvusjón til að stýra þeim. Að þessari þróun koma stórfyrirtæki á borð við Google, Apple, Uber og fleiri. Þau vinna náið með háskólum í sinni þróun og auðvitað væri gaman að geta tengst þessum fyrirtækjum í framtíðinni á einhvern hátt. En fyrst ætla ég að kynnast nánar markaðnum hér heima og forritun hjá Stokki í mjög spennandi verkefnum,“ segir Andri Már. Stokkur hugbúnaðarhús er einn stærsti framleiðandi smáforrita hér á landi og hefur gert slík fyrir t.d. Strætó, Arionbanka, flugfélagið Wow, fjarskiptafyrirtækið Nova og ýmsa fleiri. „Með smáforritum stóraukast möguleikar fólks til notkunar á snjallsímum í sínu daglega lífi og við eigum eftir að sjá mjög mikla þróun í þessu um allan heim á komandi árum. Eiginlega erum við bara í barnæskunni ennþá hvað þetta varðar. Með sýndarveruleika og gervigreindartækninni er í dag nokkuð auðvelt að leysa verkefni sem voru nánast óframkvæmanleg fyrir fáum árum. Þess vegna finnst mér mjög spennandi að fá tækifæri til að vinna í fyrirtæki eins og Stokki þar sem allir leggja fram hugmyndir til lausnar verkefnunum, ræða þær og komast að niðurstöðu um bestu lausnirnar. Það er mjög lærdómsríkt umhverfi að vinna í,“ segir Andri Már.
Andri Már Þórhallsson framan við Háskólann í Reykjavík.
Nú í júní útskrifaðist Akureyringurinn Andri Már Þórhallsson frá Háskólanum í Reykjavík með hæstu meðaleinkunn í hug búnaðarverkfræði, 9,73. Hann segir náms árangur á borð við þennan ekki nást fyrir hafnarlaust, til þurfi bæði að koma vinnu semi og skipulag en að stórum hluta geti hann þakkað árangurinn þeim góða grunni sem nám til stúdentsprófs af náttúrufræði braut Menntaskólans á Akureyri hafi verið á sínum tíma. Þar vaknaði áhugi Andra á kóðun og forritun fyrir alvöru, enda bæði mikill aðdáandi Apple tækja og þeirrar tækni sem fyrirtækið kynnti til sögunnar með svokölluðum smáforritum eða öppum – líkt og oftast eru kölluð hér á landi. Andri Már starfar í dag við framleiðslu á smáforritum hjá Stokki hugbúnaðarhúsi og segist sannfærður um að ekki sjáist nema í toppinn á ísjakanum í þeirri umbyltingu sem smáforrit, gervigreind og sýndarveruleikatækni muni leiða af sér fyrir daglegt líf fólks og atvinnulíf. Íslensk tæknifyrirtæki hafi þegar sannað hversu langt þau geti náð á heimsvísu og því megi meðal annars þakka háskólunum hér á landi. Vitvélar og gervigreind heilla „Hugbúnaðarverkfræðin er mjög skemmtilegt fag og býður upp á mikla möguleika. Titilinn hugbúnaðarverkfræðingur fæ ég hins vegar ekki fyrr en ég lýk meistaranámi
Andri Már tekur við viðurkenningum fyrir námsárangur á brautskráningarhátíð HR.
en get einnig valið að fara í framhaldsnám í tölvunarfræði þar sem fögin eru mjög skyld. Mér fannst margt mæla með að velja Háskólann í Reykjavík, stærðfræðikennslan er mjög skemmtileg þar, mikið af krefjandi og raunverulegum verkefnum að takast á við, t.d. í forritun, tölvukerfum, heimasíðum og slíku. Ég finn í minni vinnu í dag að þetta hefur verið mjög góður undirbúningur, enda mjög öflugur hópur kennara sem ég hafði,“
segir Andri Már. Hann segir valkosti til meistaraprófs í Háskólanum í Reykjavík mjög áhugaverða og ekki síðri en í boði eru erlendis. Nú taki hann sér hlé í náminu og skoði möguleikana í framhaldinu. „Við HR er starfandi setur þar sem stundaðar eru rannsóknir á vitvélum og gervigreind sem mér finnst gríðarlega spennandi valkostur fyrir meistaraprófsverkefni. Síðan spilar inn í þetta að skoða hvar styrkir bjóð-
Forritun verði kynnt börnum fyrr í skólakerfinu Ísland er örríki í heiminum – hvað þá í hinni víðfeðmu tölvuveröld. Engu að síður segir Andri Már hiklaust að Íslendingar geti náð miklum árangri í nýsköpun á heimsvísu í hugbúnaðar- og tölvugeiranum. „Ég held að við eigum ekki að vera með neina minnimáttarkennd gagnvart tækifærum í tækniþróun í heiminum, það hafa dæmin sannað með fyrirtækjum á borð við Quiz-up, CCP og mörgum öðrum. Að mínu mati eigum við að byrja fyrr í skólakerfinu að kynna forritun fyrir börnum og unglingum. Nota þannig þetta umhverfi þeirra í nútímanum til að virkja sköpunargleðina og sköpunarkraftinn. Appvæðingin var það sem kveikti áhugann hjá mér á sínum tíma og það markaði þá braut sem ég er síðan búinn að fara í námi og starfi,“ segir Andri Már.
HANDVERK Á HEIMSMÆLIKVARÐA SVEITASÆLA
10. - 13.ÁGÚST HÁTÍÐ TRÉ SIN S
ERLENDIR GESTIR
&
www.handverkshatiD.is Á FACEBOOK
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ FYRIR UNGA SEM ALDNA MATUR ÚR HEIMAHÖGUM
AKUREYRI // sumar 2017 | 5
Lifa borða njóta
Fullkomnaðu langa sumardaga með ljúffengum kvöldverði á Aurora Restaurant. Glænýr sumarmatseðill, léttur og spennandi. Við tökum vel á móti þér.
Icelandair Hotel Akureyri, Þingvallastraeti 23 Bókanir og upplýsingar í síma 518 1000 og á aurorarestaurant.is
6 | AKUREYRI // sumar 2017
Ísey í stað skyr.is Vörur í Léttmálslínunni frá MS hafa verið vinsælar meðal íþróttafólks enda enginn viðbættur sykur í þeim. Þótt nafnið breytist er innihaldið það sama. Hér er nýja nafnið Ísey komið í staðinn fyrir Skyr.is
„Markaðssvæði MS á Akureyri er gríðarstórt og nær frá Höfn í Hornafirði að Staðarskála í Hrútafirði, en undanfarið höfum við verið að auka og stórbæta þjónustuna á þessu svæði,“ segir Una Eggertsdóttir sölumaður á fyrirtækjamarkaði MS. Hún segir að nú séu þær tvær sem sjái um þetta svæði, annars vegar hún á fyrirtækjamarkaði og síðan Tinna Lóa Ómarsdóttir svæðissölustjóri sem sér um verslanirnar. Hún seg ir aukna áherslu á persónuleg samskipti með heimsóknum til viðskiptavina fyrirtækisins. Al mennt séu þeir mjög ánægðir þeg ar þær birtast því til þessa hafi þeir átt samskipti að mestu í gegnum síma eða net. Nú fái þeir hins vegar persónulegan tengilið sem þeir geta haft samband við ef eitthvað sérstakt kemur upp á. Þá segir hún að þjónustuvefur MS fyrir viðskiptavini á fyrirtækja markaði hafi mælst mjög vel fyrir enda sé hann mjög notendavænn.
Nýtt nafn – óbreytt innihald Una segir að stærsta markaðsmál þeirra um þessar mundir sé að nú er verið að kynna til sögunnar nýtt nafn á vörur sem áður hafa verið merktar skyr.is. Hætt verður að nota nafnið skyr.is en í staðinn tekið upp nafnið Ísey. Hins vegar mun KEA skyr halda áfram sínu nafni. Hún segir að með þessu sé verið að taka upp nafn sem tengist MS með beinum hætti. MS eigi ekki skyr nafnið heldur sé það tegundarheiti sem allir geta notað. „Við viljum tengja þessa einstöku vöru betur við okkur og í erlendri markaðssetningu er auðveldara að tengja vöruna Íslandi með þessu nýja nafni.“ Hún segir að nú sé lögð áhersla á að kynna þetta vel fyrir verslunarstjórum og öðrum stórum skyrseljendum. Una undirstrikar að nýja nafnið ÍSEY breyti engu um innihaldið. Það verði áfram jafn hollt og gott og áður.
Una Eggertsdóttir sölumaður hjá MS á Akureyri segir að undanfarið hafi verið unnið að því að stórbæta þjónustu við viðskiptavini á fyrirtækjamark aði.
Magneiningar Meðal annarra breytinga í markaðsmálum nefnir Una nýjar vörur í léttmálslínunni en það eru hreint skyr, kotasæla, grísk jógúrt og
grjónagrautur „með toppum“, en þá fylgja með í lítilli pakkningu ber, músli og allskonar fræ til að bragðbæta vöruna. „Íþróttafólk hefur verið sólgið í þessar vörur en þær eru ekki með neinum viðbættum sykri og því eins hreinar og hægt er að hafa þær. Þá má geta þess að kotasælan og grjónagrauturinn eru framleidd hérna á Akureyri.“ Um aðrar áherslur á fyrirtækjamarkaði segir Una að meðal annars sé verið að vekja athygli á að hægt er að fá ýmsar afurðir afgreiddar í stórum einingum sem geti verið talsvert hagstæðara. „Það getur hentað mörgum sem kaupa mikið af tiltekinni vöru, eins og til dæmis stóreldhúsum og mötuneytum, að fá þær afhentar í magnpakkningum. Það eru alls ekki allir sem gera sér grein fyrir hvað er til í stórum pakkningum og hvað ekki,“ segir Una Eggertsdóttir á fyrirtækjamarkaði MS á Akureyri. ms.is
Pollamót í þrítugasta sinn „Keppendur á Pollamótinu koma alls staðar að af landinu. Sumir eiga sér fortíð í keppnis fótboltanum, mörg liðanna eru svona „bumboltalið“ sem hittast allan veturinn en aðrir setja sam an lið til að taka þátt í mótinu,“ segir Valdimar Pálsson, fram kvæmdastjóri Íþróttafélagsins Þórs um Pollamót Þórs og Ice landair. Pollamótið hefst á Þórs svæðinu föstudaginn 7. júlí og lýkur með lokahófi og stórdans leik í Boganum kvöldið eftir. Þetta er þrítugasta Pollamótið í röðinni. „Af því tilefni leggjum við aðeins meira í lokakvöldið en venjulega og sækjum fyrirmynd af því í risasveitaballið á sínum tíma vegna 100 ára afmælis Þórs. Líkt og þá verðum við núna með Helga Björns og SS sól hjá okkur í miklu stuði á sveitaballi í Boganum og verður vafalítið dúndrandi fjör,“ segir Valdimar. Hátt á sjötta tug keppnisliða Keppt er á Pollamóti í bæði kvenna og karlaflokkum og er liðum skipt í þrjár deildir fyrir hvort kyn. Skilyrði fyrir þátttöku er að konur séu komnar yfir tvítugt og karlar yfir þrítugt. Valdimar segir þátttökuna með ágætum í ár. „Flest hafa liðin verið 64 á
Mörkunum rignir á Pollamóti!
Valdimar Pálsson, framkvæmdastjóri Íþróttafélagsins Þórs.
Pollamóti en ég reikna með að þau verði vel á sjötta tuginn í ár þannig að þetta verður flott mót,“ segir Valdimar og er ekki í vafa um að leikgleðin verði í fyrirrúmi á Þórssvæðinu þessa Pollamótsdaga líkt og áður. „Þetta er alltaf jafn skemmtilegt og mótið er líka mjög mikilvægt fyrir starf-
semi félagsins okkar. En þrátt fyrir að þetta sé fyrst og fremst gleði og skemmtun þá er keppnisskapið til staðar í þessu móti eins og öðrum og keppendur eru ekki alltaf sáttir við úrslitin eða dómgæsluna!“ thorsport.is
Keppnisandinn er algjörlega til staðar hjá eldri kempunum í fótboltanum.
AKUREYRI // sumar 2017 | 7
8 | AKUREYRI // sumar 2017
Air Iceland Connect hefur flug til Norður Írlands Sumrin eru mikill annatími hjá Air Iceland Connect sem áður hét Flugfélag Íslands. Félagið flýgur frá Reykjavík til Ísafjarðar, Akur eyrar og Egilsstaða innanlands en heldur að auki uppi reglubundn um áætlunarferðum til 5 áfanga staða á Grænlandi, til Færeyja og til Aberdeen á Skotlandi. Í byrjun júní bættist síðan nýr áfangastað ur við sem er Belfast á Norður Ír landi. Tækifæri til vaxtar Grímur Gíslason, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Air Iceland Connect segir flugið til Belfast samstarfsverkefni þeirra og Ice landair með sama hætti og flugið sem boðið hefur verið upp á til Aberdeen á Skotlandi síðastliðið ár. „Við höfum verið að bæta við leiðakerfið áfangastöðum erlendis sem eru innan þriggja klukkustunda ferðatíma en það hentar vélunum okkar vel. Við sjáum talsverð vaxtartækifæri á þessum leiðum og teljum að til lengri tíma muni þær styrkja reksturinn og gera okkur kleift að bæta þjónustuna í innanlandsfluginu enn frekar.“ Grímur segir þetta meðal annars hægt með tilkomu Bombardier vélanna sem nú hafa leyst Fokker vélarnar af hólmi. Keflavík – Akureyri Að sögn Gríms er beint flug milli Keflavíkur og Akureyrar enn í boði en ferðum hefur verið fækkað úr sex á viku í tvær sem helgast af því að minni eftirspurn er eftir þessum ferðum á sumrin en á veturna. Ferðamenn eru yfirleitt í lengri ferðum á sumrin og hafa rýmri tíma og nýta sér þá fleiri ferðakosti. Hann segir stefnt að því að fjölga ferðum milli Akureyrar og Keflavíkur aftur í sex á viku í haust. Grímur segir að með ferðum milli Keflavíkur og Akureyrar sé komið til móts við óskir Norðlendinga um að stytta ferðatímann á leið til útlanda með því að fljúga beint til Keflavíkur án þess að þurfa að fara fyrst til Reykjavíkur. Þetta hafi mælst sérstaklega vel fyrir hjá þeim sem eru á leiðinni í Evrópuflug þar sem brottfarir eru snemma á morgnana. Því séu ferðirnar tímasettar með hliðsjón af því. Hann segir að þetta gefi erlendum ferðamönnum einnig kost á að fljúga beint til Akureyrar með millilendingu í Keflavík. Þá sé ferðaleggurinn til Akureyrar skilgreindur sem hluti af millilandafluginu og tollafgreiðslan fari fram á Akureyri. „Þetta er tilraun sem við viljum sjá betur hvernig kemur út áður en frekari skref verða stigin. Við erum vongóð um að þetta muni festa sig í sessi og verða til þess að dreifa ferðamönnum jafnar um landið.“ Belfastflugið vel af stað Grímur segir Belfastflugið hafa farið vel af stað og það sé ánægjulegt að talsverð eftirspurn er nú þegar eftir þessum ferðum hjá ferðamönnum á leið til og frá Bandaríkjunum. Þeir millilendi hér og haldi svo áfram með Air Iceland Connect til Belfast. „Eitt af því sem systurfélag okkar, Icelandair, hefur lagt áherslu á er að kynna Ísland sem stoppistöð fyrir frekari ferðalög. Við sjáum þetta sem ákveðið tækifæri fyrir okkur því ef það tekst þá leiðir það væntanlega til þess að fólk fer líka að kynna sér
Grímur Gíslason, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs segir talsverð vaxtartækifæri á nýjum utanlandsleiðum Air Iceland Connect sem muni styrkja rekstur inn og gera þeim kleift að bæta þjónustuna í innanlandsfluginu enn frekar.
aðra valkosti eins og innanlandsflugið. Þannig sjáum við fyrir okkur að þetta muni styrkja innan-
landsflugið.“ Grímur segir mikilvægt að innanlandsflugið gangi vel og hvetur landsmenn til að nýta sér
það og þær viðbætur sem kynntar hafa verið til sögunnar núna með auknu millilandaflugi félagsins.
airicelandconnect.is
Nýir tímar hjá Sveinbjörgu
Nýtt nafn á nýjum stað Vorhus living by Sveinbjörg hefur nýlega komið sér fyrir í nýupp gerðu húsi við Hafnarstræti 71 á Akureyri. Húsið er fallegt stein hús sem var byggt um 1920 en hefur nú fengið andlitslyftingu og á því verið gerðar gagngerar end urbætur. Á jarðhæðinni hefur ým iskonar atvinnurekstur verið til húsa í gegnum tíðina en nú hýsir það verslun og skrifstofur Vorhus, sem er nýtt nafn á fyrirtæki lista konunnar Sveinbjargar Hallgríms dóttur. Söguteppi með Hrafna-Flóka væntanleg Nýjungar í ár eru til að mynda sængurverasett í mjúkum satín bómullarvefnaði sem kemur í sölu nú í júlí sem og nýjungar í servíettum, bökkum og postulíni. Söguteppi með Hrafna-Flóka og víkingunum var að koma í hús í nýjum gráum og brúnum lit. Skemmtilega lifandi teppi þar sem örsaga af Hrafna-Flóka fylgir með teppinu. Svo er von á hinum sívinsælu krumma thermo bollum í júlí. Eftir þeim hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda hafa þeir verið uppseldir síðan fyrir síðustu jól.
Verslun og skrifstofur Vorhus eru nú á nýjum stað, í Hafnarstræti 71, steinsnar göngugötunni í miðbæ Akureyrar. Myndir: Auðunn Níelsson
Góður andi og hlýlegt viðmót Í bland við vörur Vorhus living by Sveinbjörg eru einnig til sölu í versluninni valdar vörur á borð við frönsku baðvörulínuna frá Loth antique og skemmtilegar heimilisvörur frá finnska merkinu Aarikka. Það er því fjölbreytt vöruúrval í þessari litlu verslun sem kúrir í fallega steinhúsinu steinsnar frá miðbæ Akureyrar. Andinn þar inni er góður og viðmótið hlýlegt. Það verður því skemmtilegt að fylgjast með Vorhus vaxa á nýjum stað þar sem gömul saga mætir nýrri. vorhus.com
Söguteppi með Hrafna-Flóka og víkingunum.
Framleiðsla Vorhus living by Sveinbjörg er í bland við innfluttar vörur í nýju versluninni.
AKUREYRI // sumar 2017 | 9
Glerártorgi - Sími 461 1445 - Erum á
10 | AKUREYRI // sumar 2017
Icewear við Hafnarstræti
„Hér fæst allur fatnaður fyrir útivistina“ Sumarleyfistíminn fer í hönd og margir nýta sér hann til útivistar hér á landi, fara í útilegur, í gönguferðir eða njóta náttúrunnar með einhverjum öðrum hætti. Í verslunum Icewear er að finna mikið úrval af útivistarfatnaði og hvetur Aðalsteinn Árnason, versl unarstjóri í Icewear við Hafnar stræti á Akureyri bæjarbúa og nærsveitamenn til að kynna sér úrvalið. Hvergi hagstæðara verð „Útivistarfatnaðurinn okkar er sniðinn að íslenskum aðstæðum og sér í lagi er vert að hvetja fólk til að kynna sér hversu hagstætt verðið er hjá okkur. Við erum bæði með útivistarfatnað fyrir fullorðna og börn og erum einmitt um þessar mundir að stækka barnalínuna,“ segir Aðalsteinn en útivistarlínan hjá Icewear spannar allt frá ullarnærfatnaði upp í svokallaðar skeljar og fóðraðar úlpur. Og allt þar á milli. „Sem dæmi erum við með nærfatnað úr merino-ull og ystu flíkurnar, skeljarnar, eru léttar flíkur, skjólgóðar í vindi og regni en með mjög mikla öndun. Sem er einmitt það sem nauðsynlegt er í íslenska sumartíðarfarinu. Fyrir þá sem á þurfa að halda þykkri úlpum þá höfum við líka mikið úrval af þeim og þá er um að ræða dúnfóðraðar flíkur, þéttar, hlýjar og fínar. Við bjóðum ódýrustu dúnfóðruðu úlpuna á 12.990 krónur, sem gefur fólki ágæta hugmynd um hversu hagstætt verð er hjá okkur,“ segir Aðalsteinn en til viðbótar í þessari útivistarlínu Icewear má nefna mikið úrval af ullarfatnaði sem fyrirtækið framleiðir að stórum hluta í verksmiðju sinni í Vík í Mýrdal, bæði peysur í miklu úrvali og flottri hönnun sem og fylgihluti á borð við sokka, trefla, teppi og þannig mætti lengi telja. „Við leggjum upp úr vandaðri vöru, góðri hönnun og skemmtilegum
Aðalsteinn Árnason, verslnarstjóri. „Við höfum útivistarfatnaðinn fyrir íslenska veðurfarið.“
litum í allri okkar framleiðslu,“ segir Aðalsteinn. Gríðarleg auking ferðamanna Mikill ferðamannastraumur er alla daga í verslun Icewear við Hafnarstræti á Akureyri og segir Aðalsteinn síður en svo lát á. „Þetta ár er búið að vera mjög gott og gríðarleg aukning. Sem við teljum undirstrika að þegar krónan hefur styrkst eins mikið og raun ber vitni
þá leita erlendir ferðamenn í enn ríkara mæli til okkar vegna hagstæðs verðs hjá Icewear,“ segir Aðalsteinn en athyglisvert er hversu langur opnunartími er í verslun Icewear á Akureyri. Hún er opin frá kl. 8 á morgnana til kl. 22 á kvöldin. Það segir verslunarstjórinn að ferðamenn kunni að meta. „Ferðamenn koma gjarnan strax á morgnana enda komnir tímanlega af stað á sínum ferðalögum.
Og að sama skapi kunna þeir að meta að geta litið hingað inn á kvöldin og það sama á auðvitað líka við um íslenska viðskiptavinahópinn okkar,“ segir Aðalsteinn.
icewear.is
Verslun Icewear við Hafnarstræti á Akureyri er opin alla daga. Myndir: Auðunn Níelsson
AKUREYRI // sumar 2017 | 11
SLÁTTUVÉLAR · GARÐVERKFÆRI · HEKKKLIPPUR · KEÐJUSAGIR · PANILL
ala s t ú r a m u s a t · VATNSKLÆÐNING · VERMIREITIR · HÁÞRÝSIDÆLUR · ærs Okkar s·tBLÓMAKASSAR
FR
UFYLGIHLUTIR PPHAFI ÁLTRÖPPUR · STIGAR · RAFMAGNSVERKFÆRI B&D · HJÓLÁ OG
· GARÐHÚSGÖGN · ÚÐARAR · SLÖNGUHJÓL · TENGI · CLABER · ÚTIVISTAFATNAÐUR · JOTUN PALLAOLÍA JOTUN VIÐARVÖRN · ELECTROLUX RYKSUGUR · VEGGÞILJUR · LOFTAÞILJUR · LEIKFÖNG · BÚSÁHÖLD · BROILKING GRILL · GRILL FYLGIHLUTIR, BROIL KING, GRILLPRO · HARÐPARKET OG UNDIRLAG · ELECTROLUX SMÁRAFTÆKI · VERKFÆRATÖSKUR OG FLEIRA · SLÁTTUVÉLAR · GARÐVERKFÆRI · HEKKKLIPPUR · KEÐJUSAGIR · PANILL · VATNSKLÆÐNING · VERMIREITIR · BLÓMAKASSAR · HÁÞRÝSIDÆLUR · ÁLTRÖPPUR · STIGAR · RAFMAGNSVERKFÆRI B&D · HJÓL OG FYLGIHLUTIR · GARÐHÚSGÖGN · ÚÐARAR · SLÖNGUHJÓL · TENGI · CLABER · ÚTIVISTAFATNAÐUR · JOTUN PALLAOLÍA JOTUN VIÐARVÖRN · ELECTROLUX RYKSUGUR · VEGGÞILJUR · LOFTAÞILJUR · LEIKFÖNG · BÚSÁHÖLD · BROILKING GRILL · GRILL FYLGIHLUTIR, BROIL KING, GRILLPRO · HARÐPARKET OG UNDIRLAG · ELECTROLUX SMÁRAFTÆKI · VERKFÆRATÖSKUR OG FLEIRA · SLÁTTUVÉLAR · GARÐVERKFÆRI · HEKKKLIPPUR · KEÐJUSAGIR · PANILL · VATNSKLÆÐNING · VERMIREITIR · BLÓMAKASSAR · HÁÞRÝSIDÆLUR · ÁLTRÖPPUR · STIGAR · RAFMAGNSVERKFÆRI B&D · HJÓL OG FYLGIHLUTIR · GARÐHÚSGÖGN · ÚÐARAR · SLÖNGUHJÓL · TENGI · CLABER · ÚTIVISTAFATNAÐUR · JOTUN PALLAOLÍA JOTUN VIÐARVÖRN · ELECTROLUX RYKSUGUR · VEGGÞILJUR · LOFTAÞILJUR · LEIKFÖNG · BÚSÁHÖLD · BROILKING GRILL · GRILL FYLGIHLUTIR, BROIL KING, GRILLPRO · HARÐPARKET OG UNDIRLAG · ELEC-
AFSLÁTTUR
TROLUX SMÁRAFTÆKI · VERKFÆRATÖSKUR OG FLEIRA · SLÁTTUVÉLAR · GARÐVERKFÆRI · HEKKKLIPPUR · KEÐJUSAGIR · PANILL · VATNSKLÆÐNING · VERMIREITIR · BLÓMAKASSAR · HÁÞRÝSIDÆLUR · ÁLTRÖPPUR · STIGAR · RAFMAGNSVERKFÆRI B&D · HJÓL OG FYLGIHLUTIR · GARÐHÚSGÖGN · ÚÐARAR · SLÖNGUHJÓL · TENGI · CLABER · ÚTIVISTAFATNAÐUR · JOTUN JOTUN VIÐARVÖRN · ELECTROLUX RYKSumarblómPALLAOLÍA 30-50% · Tré og runnar 50% · Fjölærar plöntur 50% · Matjurtir 50% · Garðarósir 50% · Útipottar 30% · Garðstyttur 30% · Fræ og sáðbakkar 30% · Silkisumarblóm 30% · Vökvunarkönnur 30% · Úðabrúsar 30% · Sláttuvélar 20% · Garðverkfæri 25% · Hekkklippur 30% · Keðjusagir 30% · Vermireitir og blómakassar 20% · Háþrýstidælur 20% · Áltröppur og stigar 30% · Rafmagnsverkfæri Black&Decker 30% · Reiðjól og fylgihlutir 30% · Garðhúsgögn 30% · Úðarar, slönguhjól og tengi 30% · True North Útivistafatnaður 50% · Pallaolía 25% · viðarvörn 25% · Innimálning 25% · Útimálning 25% · Vegg- og loftaþiljur 25% · Leikföng 30% · Búsáhöld - 25% · BroilKing grill 20% · Grill fylgihlutir, Broil King, GrillPro 30% · Harðparket og undirlag 25% · Electrolux smáraftæki 20% · Verkfæratöskur 35% · Ferðavörur 25% og margt fleira
SUGUR · VEGGÞILJUR · LOFTAÞILJUR · LEIKFÖNG · BÚSÁHÖLD · BROILKING GRILL · GRILL FYLGIHLUTIR, BROIL KING, GRILLPRO · HARÐPARKET OG UNDIRLAG · ELECTROLUX SMÁRAFTÆKI · VERKFÆRATÖSKUR OG FLEIRA ·
Byggjum á betra verði
Frí heimsendinhugsa.is
slun wEÐA w MEI w.RAh u s a . i s í vefver SLAÐ ER FYRIR 5.990 KR. EF VER
12 | AKUREYRI // sumar 2017
Rafmagnsbíll – það er lífið!
„Þegar kom að því að endurnýja heimilisbílinn lögðum við þetta niður fyrir okkur í Excel-skjali. Reiknuðum fram og aftur og fengum alltaf sömu niðurstöðuna. Rafmagnsbíll var það allra skynsam legasta, sama hvernig við litum á málið,“ segir Óskar Þór.
Óskar Þór Vilhjálmsson við Nissan Leaf bílinn á bílastæðinu við vinnustaðinn sinn, Háskólann á Akureyri. Á meðan Óskar Þór sinnir störfum yfir daginn bætir hann hleðslu á bílinn.
„Það eru bara kostir við að eiga rafmagnsbíl, svo einfalt er það í mínum huga. Strax á fyrstu dög unum eftir að við eignuðumst bíl inn fórum við að tala um að þetta hefðum við átt að gera fyrir löngu,“ segir Óskar Þór Vil hjálmsson í Öldu í Eyjafjarðar sveit, tæpum 30 kílómetrum framan Akureyrar. Þau Auður Thorberg Jónasdóttir, eiginkona hans, tóku þá ákvörðun í lok árs 2015 að losa sig við bensínknúinn heimilisbíl og skipta yfir í raf magnsbíl sem er af gerðinni Niss an Leaf. Bæði stunda þau vinnu á Akureyri og hefur akstur heimilis bílsins verið um 30.000 km á ári.
Gjörbreyting á rekstrarkostnaði „Þegar kom að því að endurnýja heimilisbílinn þá lögðum við þetta niður fyrir okkur í Excel-skjali. Reiknuðum fram og aftur og fengum alltaf sömu niðurstöðuna. Rafmagnsbíll var það allra skynsamlegasta, sama hvernig við litum á málið,“ segir Óskar Þór en bæði ræddu þau við sína vinnuveitendur á Akureyri og fengu leyfi til að stinga bílnum í samband á vinnustað. Þess utan eru nú komnar hraðhleðslustöðvar á Akureyri og fleiri valkostir til að bæta á rafmagni ef á þarf að halda. „Reyndar kemur varla fyrir að við verðum tæp á hleðslu. Bíllinn er alltaf fullhlaðinn þegar við för-
um til vinnu á morgnana og síðan bætum við á hleðsluna meðan við erum í vinnunni,“ segir Óskar Þór sem segist mikið spurður um hvernig það gangi upp fyrir fjölskylduna í Öldu að vera eingöngu með rafmagnsbíl. „Við höfum á þessu tímabili þurft að fara til Reykjavíkur eða eitthvað lengra til og höfum í slíkum tilfellum skipt á bíl. Svo er hægt að leigja bíl ef á þarf að halda. Stóri munurinn liggur í rekstrinum, í stað þess að borga 40 þúsund á mánuði í eldsneyti þá nýtum við þá fjármuni í að borga af bílnum. Eini viðhaldskostnaðurinn er skipti á loftgæðasíu árlega en að öðru leyti á ég ekkert erindi með bílinn
á bensín- eða smurstöðvar. Og munar um minna,“ segir Óskar Þór. Kjöraðstæður fyrir rafmagnsbíla Það kemur mörgum á óvart hversu skemmtilegir rafmagnsbílar eru í akstri og umgengni. Til að mynda er bíllinn þannig stilltur að hann er orðinn heitur þegar lagt er úr hlaði á morgnana. Rúðusköfur eru óþekktar á heimilinu í Öldu, jafnvel í 20 stiga frosti! „Eitt af því sem við tókum eftir var þessi þögn í bílnum, enginn vélargnýr að yfirgnæfa samtalið. Að ég tali nú ekki um þau lífsgæði sem
felast í því að vera laus við útblástursmengunina og skemmtilegt að nefna í þessu samhengi að dætur okkar tvær fóru fljótt að tala um tvo flokka bíla, þ.e. bíla eins og okkar og svo mengunarbíla. Eftir að við eignuðumst rafmagnsbílinn fórum við að taka miklu meira eftir útblástursmenguninni sem fylgir umferðinni,“ segir Óskar Þór en hægt er að stilla bílinn þannig að hann framleiði rafmagn þegar ekið er niður brekkur og þegar rafgjöfinni er sleppt. Við bestu aðstæður dugar full hleðsla um 120 km en 80 km við erfiðustu skilyrði. „Mótstaða, snjór og kuldi eru allt atriði sem hafa áhrif á drægnina. Hleðslan dugar því fyrir færri kílómetrum á veturna en sumrin. En það er engin spurning í mínum huga að við búum við kjöraðstæður fyrir rekstur rafmagnsbíla hér á landi, státum af hreinustu raforku í heiminum og getum lagt mikið af mörkum til umhverfismála með því að rafvæða einkabílaflotann. Miðað við þær hringingar og spurningar sem ég fæ frá fólki þá er áhuginn á rafmagnsbílum sífellt að vaxa og það er gífurlega mikið að gerast í þróun rafmagnsbíla. Fjölgun hraðhleðslustöðva við hringveginn breytir líka miklu. Við spáðum því þegar við keyptum bílinn í árslok 2015 að við gætum farið á honum til Reykjavíkur sumarið 2017. Og það gerðum við líka á dögunum og gekk vel,“ segir Óskar Þór Vilhjálmsson.
Kryddjurtafylltur lambahryggur á teini
AKUREYRARAPÓTEK
ER OPIÐ ALLA DAGA ÁRSINS Virkir dagar
opið
9-18
Laugardagar
opið 10-16
Sunnudagar
opið 12-16
Helgidagar og rauðir dagar opið 12-16 (almennir frídagar)
www.akap.is
Kaupvangur v/ Mýrarveg
sími 460 9999
Fyrir 4-6 1 úrbeinaður lambahryggur með lundum Salt og nýmalaður pipar Fylling 1 lúka dvergbasil eða venjulegt, gróft saxað 1 lúka sítrónutimjan eða venjulegt, gróft saxað 2 msk rósmarínnálar, gróft saxaðar 2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir Fínt rifinn börkur af ¾ sítrónu Kryddið hrygginn að innan og utan ásamt lundunum með salti og pipar. Leggið helminginn af kryddjurtunum og sítrónuberkinum innan í hrygginn og leggið lundirnar eftir endilöngu. Þá er restin af kryddjurtunum og sítrónuberkinum sett ofan á lundirnar. Mótið rúllu úr hryggnum og vefjið hreinum blómavír þétt utan um hrygginn. Þræðið hrygginn upp á grilltein og grillið á milliheitu grilli í 1 klst. með snúningi. Ef þið eigið ekki grill með snúningsteini þá má setja hrygginn á álgrillbakka á mitt grillið og kveikja á grillinu sitthvorumegin við hrygginn og grilla í 1 klst. Snúið hryggnum reglulega. Takið vírinn af hryggnum og berið fram með t.d. kaldri hvítlaukssósu, grilluðu grænmeti, kartöflum og salati.
AKUREYRI // sumar 2017 | 13
HJARTAÐ Í ÍSLENSKUM LANDBÚNAÐI Í öllum þeim fjölbreyttu störfum sem tengjast íslenskum landbúnaði, hvort sem það er að yrkja landið, fóðra dýr, girða af land eða framleiða matvæli - þá er Bústólpi aldrei langt undan.
Bústólpi ehf - fóður og áburður - Oddeyrartanga - 600 Akureyri - bustolpi@bustolpi.is - Sími 460 3350 - www.bustolpi.is
14 | AKUREYRI // sumar 2017
Jakkar, buxur og jakkaföt í úrvali
Opið: Mánud.-föstud. kl. 10:00-18:00 / Laugard. kl. 11:00-16:00 JMJ og Joe´s eru tímabundið til húsa að Strandgötu 3 (v/hliðina á Sjóvá) Opnun svo nýjar og glæsilegar búðir á gamla staðnum í ágúst
AKUREYRI // sumar 2017 | 15
Gallabuxur og bolir í úrvali
Opið: Mánud.-föstud. kl. 10:00-18:00 / Laugard. kl. 11:00-16:00 Joe´s og JMJ eru tímabundið til húsa að Strandgötu 3 (v/hliðina á Sjóvá) Opnun svo nýjar og glæsilegar búðir á gamla staðnum í ágúst
16 | AKUREYRI // sumar 2017
Gott að slaka á í Jarðböðunum við Mývatn Það var annasamur dagur hjá Heiðu Halldórsdóttur, markaðs stjóra Jarðbaðanna við Mývatn, þegar blaðamaður Akureyrar blaðsins náði af henni tali enda verið að leggja lokahönd á stækk un veitingaaðstöðunnar. „Við tök um á móti sífellt auknum gesta fjölda en reynslan sýnir að fólk staldrar hér lengi við, bæði í lón inu sjálfu og nýtur síðan góðra veitinga. Við bjóðum upp á súpu og salatbar og aðrar léttar veiting ar á veitingahúsinu okkar, Kviku, en þar er einnig hægt að fá sér kaffi og meðlæti.“ „Það er vissulega í mörg horn að líta þegar mesta aðsóknin er yfir sumarmánuðina en þetta tekst með góðu skipulagi. Við erum einnig að byggja húsnæði fyrir starfsmenn hér á staðnum en á sumrin starfa hér fjörutíu manns. Jafnframt eru uppi áform um frekari breytingar á aðstöðu og stækkun á lóninu en of snemmt er að segja til um hvenær framkvæmdir munu hefjast og hvenær ný aðstaða verður tekin í notkun. En það er ljóst að núverandi aðstaða annar ekki þeim gestafjölda sem sækir Jarðböðin í dag,“ segir Heiða. Framkvæmdunum munu fylgja einhverjar breytingar í baðlóninu sjálfu en það er mjög rúmgott, 2100 fermetrar, auk 900 fermetra affallslóns. Hvetur Íslendinga til að koma í heimsókn Straumur ferðamanna er sterkur en
Heiða Halldórsdóttir, markaðsstjóri Jarðbaðanna við Mývatn.
í fyrra heimsóttu ríflega 200 þúsund gestir Jarðböðin og var fjölgunin um 34% milli ára. Fjölgunin hefur haldið áfram á þessu ári en virðist þó hafa hægst um nú í júní. „Það er örlítil aukning frá því í júní í fyrra en ekki eins mikil og undanfarin ár. Mikill meirihluta gesta kemur erlendis frá, eða 9095%, en við viljum endilega hvetja Íslendinga til að koma í heimsókn líka, enda tilvalið að koma hingað með fjölskylduna eða bara til að slaka á.“ Heiða bendir jafnframt á að
ekki sé þörf fyrir að bóka fyrirfram nema um stóra hópa sé að ræða. Komin heim á ný! Heiða tók við nýju starfi markaðsstjóra Jarðbaðanna við Mývatn fyrir skömmu. „Ég er ættuð frá Skútustöðum og maðurinn minn úr Vogum þannig að segja má að við séum komin heim. Árin 20052007 vann ég hér í afgreiðslunni í Jarðböðunum þannig að ég þekki fyrirtækið ágætlega. En þetta er mikil breyting frá sem þá var. Við vorum glöð að fá 150-200 manns á
stærstu dögum en það þykir lítið í dag. Tímarnir í ferðaþjónstunni eru mikið breyttir á fáum árum,“ segir Heiða.
jardbodin.is
Antella ný lína frá Sif Jakobs: Vandaðar vörur til heimilisins fást í Valrós í Viðjulundi.
Verslunin Valrós við Viðjulund
28.900 26.900
18.900
16.900
9.900
Þýskar gæðavörur og alltaf gott verð! „Viðskiptavinir mínir eru fyrst og fremst einstaklingar og heimilin en það gerist líka að fyrirtæki kaupi hér húsbúnað og þá eru það helst ferðaþjónustufyrirtæki. Allar mínar vörur koma frá Þýskalandi enda þekki ég það af reynslunni að þar er um gæðaframleiðslu að ræða og viðskiptavinir fá mikið fyrir peninginn. Og að sjálfsögðu býð ég alltaf lága verðið vegna góðs gengis. Það hefur alltaf fylgt mér og breytist ekki héðan af,“ segir hinn þrautreyndi kaupmaður Kristján Skarphéðinsson í verslun inni Valrós við Viðjulund á Akur eyri. Viðskiptavinirnir elta! Í Viðjulund flutti verslunin Valrós úr Hafnarstræti fyrir einu ári síðan og unir Kristján hag sínum vel á Brekkunni. „Viðskiptavinirnir elta mig eins og alltaf. Og svo koma margir nýir viðskiptavinir til mín, sem ég er auðvitað hæstánægður með,“ segir Kristján. Í versluninni Valrós er fjölbreytt úrval af húsbúnaði, matar- og kaffistellum, hnífaparasettum, eldhúsáhöldum og mörgu fleiru. Oft koma viðskiptavinir í verslunina til hans í leit að hlutum sem hafa glatast eða skemmst í stellum eða hnífaparasettum og
Hnífaparasett eru lífstíðareign.
oftar en ekki á Kristján þá hluti eða getur útvegað. Þjóðverjar standa sig í gæðunum „Þjóðverjarnir sem ég hef viðskipti við passa upp á gæðin í framleiðslu sinni og vita að þeirra vörur endast lengi. Þess vegna gæta þeir þess líka að hægt sé að fá nákvæmlega sömu vörur inn í bollastellin eða hnífaparasettin. Þetta kunna viðskiptavinir mínir vel að meta. Það er ekki langt síðan hingað kom inn maður að leita að gleri í könnu sem hafði brotnað fyrir mörgum árum og það átti ég hér uppi í hillu. Hann fór héðan út alsæll og þá líður mér vel,“ segir Kristján. Verslunin Valrós við Viðjulund er opin alla virka daga kl. 13:3018.
AKUREYRI // sumar 2017 | 17
ÞÚ ÁTT ÞAÐ SKILIÐ – NJÓTTU www.kexsmidjan.is www.facebook.com/Kexsmidjan
18 | AKUREYRI // sumar 2017
Miðaldadagar framundan
Gásakaupstaður endurskapaður
Kaupa má marga góða muni af Gásverjum.
Haraldur Þór Egilsson, forstöðumaður Minjasafnsins á Akureyri.
Miðaldadagar verða haldnir á hin um forna verslunarstað Gásum við Eyjafjörð dagana 14.-16. júlí næstkomandi. Hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 2003 og
hefur jafnan verið fjölsótt en reiknað er með að hana sæki yfir 2000 gestir í ár og að Gásverjar við leik og störf verði um 90 tals ins.
Sérsmíðum innréttingar og innihurðir Teiknum og gerum verðtilboð
Njarðarnesi 14 · 603 Akureyri · Sími 460 6100 www.ssbyggir.is · harpa@tak.is
AKUREYRI // sumar 2017 | 19
Járnsmiður í Gásakaupstað.
Gásir eru 11 kílómetrum norðan Akureyrar, vestanvert Eyjafjarðar. Gásir voru á miðöldum einn helsti verslunarstaður á Norðurlandi og eru hvergi varðveittar jafn miklar mannvistarleifar á verslunarstað hér á landi frá þessum tíma. Sögulegar heimildar benda til þess að Gásakaupstaður hafi byggst upp vegna aðgerða höfðingjans og goðans Guðmundar dýra sem lagði niður Vaðlaþing, vorþingstað héraðsins, en það mun hafa verið seint á 11. öld. Talið er að verslun hafi verið stunduð á Gásum allt fram á 16. öld að hún hófst á Akureyri og höfuðstaður Norðurlands tók að byggjast upp. Líf og fjör á Gásum Á sínum tíma var þeirri hugmynd hrundið í framkvæmd að endurskapa miðaldamannlíf á Gásum nokkra daga yfir sumartímann og voru á fyrstu miðaldadögunum þrjár konur í einu tjaldi. Á fjölmennustu Miðaldadögum á Gásum hafa Gásverjar verið yfir 100 talsins. „Það færist sannarlega líf og fjör í verslunarstaðinn Gása á Miðaldadögum og við reynum eftir mætti að endurskapa miðaldamannlíf á svæðinu og endurvekja Gásakaupstað. Þarna gefst gestum tækifæri til að upplifa fortíðina og upplifa verslunarstaðinn á blómatíma hans, hitta Gásverja, kynnast handverki og daglegum störfum, jafnvel fá að prófa eitt og annað,“ segir Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri en safnið á aðild að Gásakaupstað sem stendur að baki varðveislu og uppbyggingu Gása. Dagskrá á Miðaldadögum stendur frá föstudegi til sunnudags, kl. 11-17 alla daga. Boðið er upp á leiðsagnir um forleifasvæðið 2-3 sinnum á dag, Vandræðaskáld verða á svæðinu en hreint ekki með vandræði heldur skemmtilegar frásagnir. Það slær hins vegar reglulega í brýnu milli bardagamanna Rimmugígs og loks bregða meðlimir Handraðans einnig á leik. Auk viðburðanna verða fjölmargir handverksmenn að störfum og tónlistarfólk glæðir svæðið lífi í takt við leikþætti og taktfastan slátt eldsmiða. Annálaritari Gása hanterar skinn og saman búa gestir og Gásverjar til nýjan kafla í annál þessarar skemmtilegu fortíðarhátíð. gasir.is
Og svo takast menn á í leik.
Mikið líf færist í Gásir á Miðaldadögum.
20 | AKUREYRI // sumar 2017
Á fundi sínum 6. maí árið 2014 samþykkti bæjarstjórn nýtt aðalskipulag miðbæjarins. Meðfylgjandi yfirlitsmynd er hluti þeirrar samþykktar og sýnir hvernig akstursleiðum verður háttað og þar á meðal vistvæna Glerárgötu sem á að tryggja að umferð um hana á kaflanum frá Grænugötu til Kaupvangsstrætis verði hæg enda eðlilegt í miðbæ þar sem stefnt er að því að efla enn frekar mannlíf og viðskipti. Með þessari ákvörðun var jafnframt stefnt að því að uppfylla þá ósk íbúaþings að leiðin frá miðbænum niður að sjónum verði greið gangandi fólki.
Ragnar Sverrisson, greinarhöfundur.
Áfram Akureyri! Sem ég sat einn áheyranda á tveggja klukkustunda fundi bæjarstjórnar Akureyrar á dögunum, þar sem fjallað var um miðbæjarskipulagið, hvarlaði hugur minn þrettán ár aftur í tímann þegar grasrótarbarátta hófst fyrir því að kalla eftir vilja bæjarbúa hvernig þeir vildu sjá framtíðarskipan miðbæjarins. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Átaksverkefnið Akureyri í öndvegi varð til, meginlínur um vilja íbúa mótaðar á fjölmennu íbúaþingi, alþjóðleg samkeppni meðal arkitekta um tillögur þeirra á þeim grunni fór fram og síðan víðtæk vinna innan bæjarkerfisins um lokaútfærslu sem samþykktar voru með aðalskipulagi árið 2014. Þetta skipulag var auðvitað niðurstaða víðtækrar umræðu og allskonar málamiðlana um einstaka valkosti, en flestir virtust ánægðir með hana enda þótt enginn einn fengi allt sitt fram. Þannig er nú lýðræðisleg umræða með kostum sínum og göllum. Og þarna sat ég opinmynntur á bæjarstjórnarfundinum í einstæðingsskap mínum, hlustaði á umræður velmeinandi bæjarfulltrúa og velti fyrir mér hvort öll þessi vinna, allir þeir fjármunir sem í hana fóru (á annað hundrað milljóna króna) og allur sá afrakstur sem nýttur var við gerð nýs aðalskipulags hafi hreinlega farið framhjá þessu ágæta fólki. Flestir töluðu bæjarfulltrúar eins og þeir væru að koma að auðu borði og glænýju máli sem ekkert hafði verið fjallað um áður. Þeir voru með ýmsar vangaveltur um hugmyndir sem löngu eru útræddar og afgreiddar í aðalskipulagi. Því spurði ég sjálfan mig: Til hvers var barist?
Óhæfa látin viðgangast Nú er mála sannast að einstaka þættir í nýsamþykktu aðalskipulagi miðbæjarins hafi síðar verið vegnir og léttvægir fundnir og ákvarðanir teknar í bæjarkerfinu sem koma beinlínis í veg fyrir að unnt sé að framkvæma þær. Ljósasta dæmi um það er leyfisveiting embættismanns bæjarins að heimila upp á sitt eindæmi endurnýjun Brauns-verslunarhúsnæðisins þar sem það er nú enda þótt gert væri ráð fyrir í skipulaginu að það góða hús víki í samræmi við eina grundvallarniðurstöðu íbúaþingsins fjölmenna að opna leiðir frá miðbænum niður að Pollinum sem var svo staðfest í aðalskipulagi. Nei, ekki aldeilis; embættismaður í bæjarkerfinu gaf eiganda verslunarinnar leyfi til víðamikilla viðgerða á húsinu þar sem gengið var út frá því að það yrði þarna áfram hvað sem liði einhverjum ákvörðunum í aðalskipulagi um að húsið víki. Sérhagsmunir urðu ofaná og bæjaryfirvöld treysta sér ekki til að vinda ofan af þeirri óhæfu en horfa á þessa gjörð eins og skelfilegar náttúruhamfarir sem verði að laga sig að. Því sé RS_áfram_Akureyri_10x39_20170630_END.indd 1
ekki annað að gera en lúta í gras með framkvæmd mikilvægs hluta aðalskipulags miðbæjarins með öllum þeim afleiðingum sem því fylgir. Því spyr ég enn: Til hvers var barist? Veit vinstri hönd bæjarkerfisins ekki hvað sú hægri gerir? Er þess að vænta að slík og þvílík vinnubrögð verði látin viðgangast áfram hvað sem formlegum vilja og löglegum ákvörðunum bæjarstjórnar líður? Í þeirri von að núverandi bæjarstjórn (allir flokkar og framboð) vilji læra af þessum mistökum og bæta verklag við framkvæmd samþykkts skipulags leyfi ég mér að fjalla um það sem ég tel mikilvægast að vinna að á næstu misserum og árum innan gildandi aðalskipulags miðbæjarins.
Að nýta tímann Um þessar mundir er framkvæmdum að ljúka við uppbyggingu þess hluta miðbæjarins sem er sunnan Torfunefs. Þar fer saman lágreyst íbúðabyggð og myndarlegt hótel
AKUREYRI // sumar 2017 | 21
sem mynda glæsilega húsalínu þegar allt er frágengið. Vert er að vekja athygli á því að allar þessar framkvæmdir eru á vegum einkaaðila og til marks um að fjárfestar og byggingariðnaðurinn eru tilbúnir til að vinna að uppbyggingu slíkra svæða ef bæjaryfirvöld hafa lokið útfærslu samþykkts aðalskipulags og öðru sem að þeim snýr. Þess er því skammt að bíða að líf og atvinnustarfssemi dafni vel á svæði þar sem ekkert slíkt var fyrir og bæjarsjóður fái sínar tekjur þaðan í áratugi til þarfra verka fyrir samfélagið í bænum. Sem sagt: Góð fjárfesting fyrir bæinn að klára sitt og opna leiðir til uppbyggingar. Að þessu sögðu er mikilvægt að bæjaryfirvöld nýti tímann vel næstu mánuði til að ganga frá útfærslu endanlegs skipulags þess hluta miðbæjarins sem er fyrir norðan - frá Torfunefi og norður að Glerártorgi. Þá fyrst geta frekari framkvæmdir farið af stað á því svæði og eðlilegt að það gerist í beinu framhaldi af frágangi byggðarinnar sunnan Torfunefs. En til þess að það sé unnt þarf bæjarstjórn að taka endanlegar ákvarðanir um útfærslu þriggja framkvæmda. Þar á ég við þrengingu Glerárgötu frá Grænugötu suður að Kaupvangsstræti, uppbyggingu Umferðarmiðstöðvar og að ákveða staðsetningu og útfærslu bílahúss fyrir miðbæinn. Þegar ákvarðanir um þessar þrjár framkvæmdir liggja fyrir er loks hægt að bjóða áhugasömum fyrirtækjum og fjárfestum að byggja upp á öðrum svæðum miðbæjarins. Fyrr ekki.
Glerárgatan endurnýjuð Þrátt fyrir að búið sé að ákveða í aðalskipulagi að þrengja skuli Glerárgötuna frá Grænugötu suður að Kaupvangsstræti ræddu bæjarfulltrúar á fyrrgreindum fundi eins og sú útfærsla væri í lausu lofti og engar ákvarðanir hafi verið teknar. Vert er að minna á að þrengingin var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn og sérfræðingum bæjarins og Vegagerðarinnar eftir atvikum falið að útfæra þessa ákvörðun um þrengingu. En hvers vegna var ákveðið að þrengja götuna? Ein helsta ástæðan var sú að koma til móts við vilja íbúaþingsins sæla um að greiðar leiðir verði milli miðbæjarins og sjávar. Þetta var mjög eindregin skoðun íbúaþingsins og þá segir sig sjálft að ekki er hægt að hafa þarna hraðbraut sem hamlar eðlilegu ferli gangandi fólks frá miðbæ niður að Pollinum. Þess vegna var full samstaða um að þrengja þennan hluta götunnar, gera hana um leið vistvæna þannig að umferð truflaði sem minnst gangandi vegfarendur. Fjöldi dæma eru um slíka útfærslu og hef ég áður bent á vel heppnaða endurnýjun af þessu tagi við Borgartún í Reykjavík. Nefnt hefur verið að óþarfi sé að færa þennan hluta Glerárgötunnar ofurlítið austar en hún liggur nú, eins og stefnt er að í núgildandi skipulagi. Það skapi mikla vinnu við færslur á öllum leiðslum og lögnum í götunni og fleira í því sambandi sem gæti gert þessa framkvæmd dýrari en ástæða er til. Hugmynd hefur komið fram um að gera einhvers konar tilraun með því að þrengja Glerárgötuna til bráðabirgða með steypuklumpum og girðingum og sjá hvernig til tekst að aka eftir götunni þannig. Með því háttalagi er verið að safna saman því sem margir vilja kalla helstu galla slíkrar útfærslu en sleppa öllum þeim kostum sem þrengingunni myndu fylgja. Miðað við góða útfærslu slíkrar götu eru kostirnir fyrst og fremst þeir að vegfarendum þykir hreinlega gott að aka þessa leið hægt og rólega með glæsilegan miðbæ iðandi af mannlífi á aðra hönd og Pollinn og lífið þar á hina. Sú tilfinning kæmi trauðla ef fólk ætti einasta að aka í svig milli misljótra steinklumpa og hindrana sem á vegi verða. Ofangreind tilraun er því vond og andvana fædd og að mínum dómi ekkert annað en flótti frá því að koma sér að verki um að framkvæma það sem bæjarstjórn hefur þegar ákveðið um þrengingu þessa hluta Glerárgötunnar.
Umferðarmiðstöð Í gildandi aðal- og deiliskipulagi fyrir miðbæinn var ákveðið að umferðarmiðstöð verði byggð á svæðinu norðan ráðhúss bæjarins, milli Glerárgötu og íþróttasvæðisins. Þessu hefur núverandi stjórnarmeirihluti bæjarins fylgt eftir með því að stefna að því að byggja hana þarna á kjörtímabilinu. Fyrstu fjárveitingar (15 milljónir króna) hafa þegar verið eyrnamerktar til undirbúnings. Með slíkri umferðar- eða samgöngumiðstöð er stefnt að því að sameina á einn stað aðstöðu fyrir strætisvagna, hópferðabíla og leigubíla ásamt upplýsinga- og þjónustumiðstöð fyrir ferðamenn. Þar verði einnig almenningssalerni sem sárlega vantar í miðbænum. Bent hefur verið á að gott aðgengi ferðafólks á einum stað að allri þjónusta er talin ein forsenda þess að bær eins og Akureyri geti staðið undir nafni sem alvöru ferðamannabær. Núverandi aðstöðuleysi er bænum ekki bara til vansa heldur skaðar beinlínis þróun atvinnugreinar sem við viljum öll efla til hagsbóta fyrir bæjarfélagið. Þess vegna hefur verið tekin ákvörðun um að byggja slíka miðstöð og það á
kjörtímabilinu. Nýlega hef ég heyrt frá ábyrgum aðilum í bænum að kannski sé ekki þörf á slíkri miðstöð þegar allt kemur til alls. Ég vona að þetta sé bara flökkusaga enda var mikil samstaða við gerð aðal- og deiliskipulagsins um að byggja myndarlega umferðarmiðstöð. Það er einnig áréttað í sáttmála núverandi bæjarstjórnarmeirihluta og fastmælum bundið að þetta sé verkefni sem vinna þarf markvisst að á næstu misserum. Nú er bara að vona að orð verði ekki látin nægja en gengið frá útfærslu umferðarmiðstöðvar og síðan að byggja hana á þeim ágæta stað sem þegar hefur verið valinn.
Bílahús fyrir miðbæinn Í umfjöllun um skipulag miðbæjarins hefur töluvert verið rætt um hvernig bílastæðum verði háttað á svæðinu. Margir hafa miklar áhyggjur af því að þeim muni fækka svo að til vandræða horfi. Svo langt hefur gengið í þeirri umræðu að engu er líkara en að núverandi bílastæði, sem taka ógnar pláss, séu einhvers konar náttúruundur sem þurfi að vernda með öllum ráðum. Sem betur fer held ég að nú séu flestir sammála um að því dýrmæta plássi sem bílastæði í miðbænum spanna yfir sé betur varið til bygginga eins og núverandi skipulag gerir raunar ráð fyrir. En hvar eiga þá bílarnir að vera? Að mínum dómi er mikil nauðsyn á því að byggja bílahús sem næst kjarna miðbæjarins þar sem þorri bílaeigenda sem eiga erindi í miðbæinn geti lagt bílum sínum í lengri eða skemmri tíma. Jafnframt verði séð til þess að bílastæði fyrir fatlaða verði á víð og dreif um miðbæinn. Nokkur umræða hefur verið um hvar best sé að koma slíku bílahúsi fyrir. Ég leyfi mér að stinga upp á stað sem ég tel að hafi marga kosti fyrir slíkt hús. Þar á ég við svæðið fyrir neðan Brekkugötuna frá Hólabraut 19 (þar sem Hannes hjólesta var með verkstæðið sitt) og norður til móts að stóra hliðið að íþróttavellinum. Þar á milli verði grafið út fyrir tveggja eða þriggja hæða húsi upp að Brekkugötunni þannig að þak þess væri í svipaðri hæð og gatann sjálf. Þarna ætti að vera unnt að koma fyrir hundruðum bíla og losa um leið mikil svæði sem nú eru notuð fyrir bílastæði í miðbænum. Þetta svæði er nú í hálfgerðri órækt og vannýtt. Bílahúsið myndi ekki birgja íbúum Brekkugötunnar sýn til austurs og þeir ættu ekki að verða fyrir ónæði af umferð þar. Staðsetningin er líka að því leyti góð, að þangað ætti að vera greið leið neðan frá Glerárgötu, framhjá Umferðarmiðstöðinni nýju, fyrir umferð úr norðri og suðri í gegnum væntanlegt hringtorg við Grænugötu. Einnig væri hægt að komast þangað sunnan frá Gránufélagsgötu um Hólabraut. Samkvæmt vísindalegum göngumælingum mínum frá væntanlegu bílahúsi suður að Ráðhústorgi lætur nærri að sú vegalengd sé 200 metrar og taki allt venjulegt fólk uþb þrjár mínútur að ganga. Það ætti því ekki að vera nokkrum heilbrigðum manni mikil þolraun. Svo hvíslaði lítill fugl að mér þegar ég gekk þarna framhjá á dögunum að hægt væri að nýta þakið á bílahúsinu fyrir leikvöll eða einhverjar tómstundir fyrir börn og fullorðna. En þetta er nú svona aukainnlegg í þessa umræðu. Alltént þykir mér þessi hugmynd að bílahúsi og staðsetningu þess virði að hún sé skoðuð af alvöru því ekki gengur lengur að ræða um nauðsyn slíks húss en koma ekki fram með neinar tillögur um staðsetningu.
Að ganga til verka Nú hef ég farið um víðan völl í þessu spjalli um málefni sem mér hefur lengi verið hugleikið og skiptir bæinn okkar miklu máli. Hef gert að sérstöku umræðuefni þau þrjú verkefni sem ég tel að verði að ráðast í ef unnt á að vera að halda áfram uppbyggingu í miðbænum í samræmi við samþykkt aðalskipulag: Frágang Glerárgötu, byggingu umferðarmiðstöðvar og bílastæðahúss. Á meðan ekkert gerist í þessum verkefnum er allt annað, sem lýtur að frekari uppbyggingu miðbæjarins, í sjálfheldu; hver glápir á annan í ráðaleysi og þeir sem óska eftir að byggja og auka við starfsemi og líf í miðbænum fara erindisleysu þegar þeir falast eftir að lóðum þar. Ekki viðlit að afgreiða slíkar umsóknir meðan Glerárgatan er óklár, ekki búið að koma bílum fyrir á öðrum stað eða stöðum, ferðafólk ráfandii um bæinn í leit að salerni og hópferðabílar með enga aðstöðu fyrir sig. Þetta er auðvitað óviðunandi ástand sem verður að linna enda ekki eftir neinu að bíða. Þessar línur eru því hvatning til bæjarstjórnar um að einhenda sér í að klára þau verkefni sem hér hafa verið gerð að umræðuefni, enda allar útlínur í því fyrir hendi í nýsamþykktu aðalskipulagi miðbæjarins. Ég hvet þig og aðra bæjarbúa að láta í sér heyra og veita bæjarsntjórn og embættismönnum það aðhald sem heilbrigt lýðræði ætti sannarlega að gera. Þá mun framtíðarsýnin um öflugan og líflegan miðbæ rætast og Akureyri verður sannkallaður höfuðstaður Norðurlands sem veitir höfuðborgarsvæðinu verðuga samkeppni. Ragnar Sverrisson, kaupmaður
3. 7. 2017. 12:27:10
22 | AKUREYRI // sumar 2017
Bústólpi selur vörur frá Ástund
Vörur frá Ástund hafa fylgt hestamennsku á Íslandi í áratugi.
„Vörurnar frá Ástund falla vel að okkar starfsemi,“ segir Hanna Dögg Maronsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Bústólpa ehf.
„Við fundum fyrir áhuga hjá við skiptavinum okkar á að taka inn hestavörur. Við tókum vel í það og settum okkur í samband við Ástund og höfum nú hafið sölu á hestavörum frá þeim. Þessar vörur falla vel að þeirri þjónustu sem Bústólpi hefur byggt upp í versl unarrekstrinum eftir að við opn uðum nýju verslunina hér á Odd eyrartanga,“ segir Hanna Dögg Maronsdóttir, sölu- og markaðs stjóri Bústólpa ehf. á Akureyri. Ástund hefur þjónustað hestamenn á Íslandi í rúmlega 40 ár og býður fjölbreytt úrval af vörum fyrir hestamennskuna; reiðtygi, hjálma, fatnað og skó, að ógleymdum hnökkum en söðlaverkstæði hefur Ástund rekið um langt skeið. „Þessari nýjung hefur verið mjög vel tekið af viðskiptavinum og ætlunin er að byggja þjónustuna markvisst upp í takti við markaðinn hér á svæðinu. Hestamennska
er bæði atvinna margra og sport hjá stórum hópi fólks,“ segir Hanna Dögg. Átta mjaltaþjónar á fáum mánuðum Bústólpi ehf. er þjónustuaðili á búnaði til mjólkurframleiðslu frá DeLaval sem er leiðandi á heimsvísu í framleiðslu mjaltabúnaðar og
býður upp á lausnir sem ætlað er að tryggja mjólkurgæði, dýraheilbrigði og heildar lífsgæði. Lausnir frá DeLaval eru notaðar af milljónum mjólkurbúa um allan heim á hverjum degi. Auk þess að selja búnað frá DeLaval veitir Bústólpi viðhaldsþjónustu og ráðgjöf við fyrirkomulag í breytingum eða nýbyggingum fjósa og eru þjónustu-
starfsmenn fyrirtækisins staðsettir á Akureyri, í Hveragerði og Borgarnesi. Óhætt er að segja að það hafi verið mjög góð sala í mjaltaþjónum frá DeLaval að undanförnu. „Á síðustu vikum höfum við selt átta nýja mjaltaþjóna. Við getum ekki annað en verið hæstánægð með þessa eftirpurn og óskum kaupendum til hamingju með að velja DeLaval, jafnframt því sem við hlökkum til að veita þeim okkar þjónustu á komandi árum,“ segir Hanna Dögg. Gott vor og mikil sala Vorið kom snemma í ár og segir Hanna Dögg að mikil sala hafi verið í vörum sem tengjast vorverkunum, bæði í dreifbýli og þéttbýli. „Hátindur sölunnar í fræjum og
áburði til bænda var fyrr á ferð en undanfarin ár og sama má segja um garðverkin hjá fólki í þéttbýli. Við erum líka með fjölbreytt úrval af vörum fyrir sauðfjárbændur og sauðburðinn þannig að vorið er jafnan annasamur tími. En heilt yfir erum við líka mjög ánægð með mikla og vaxandi sölu á fóðurvörum frá Bústólpa. Það er mikill kraftur í bændum, sem er ákaflega jákvætt fyrir okkar þjónustusvæði hér á Norður- og Austurlandi,“ segir Hanna Dögg en Bústólpi er þessa mánuðina í umtalsverðum framkvæmdum þar sem átta ný kornsíló og 10 síló fyrir fullunna vöru munu rísa við verksmiðjuna á Akureyri á komandi mánuðum. bustolpi.is
Hver steinn er persónulegur minnisvarði Steinsmiðja Akureyrar hefur tekið miklum breytingum á undanförn um mánuðum sem má rekja til nýrra eigenda, hjónanna Birnis Vignissonar og Sunnevu Árna dóttur, sem tóku við fyrirtækinu í byrjun árs. „Við fluttum fyrirtæk ið í nýtt húsnæði hér á Njarðar nesi og höfum unnið hörðum
Opnunartími: Kl. 06:45-21:00 virka daga laugardaga í júlí kl. 08:00-20:30, sunnudaga kl. 08:00-19:30
höndum að því að skapa notalegt umhverfi og vitaskuld að bjóða upp á sömu framúrskarandi þjón ustu og hágæðavöru sem fyrirtæk ið hefur verið þekkt fyrir.“ Leitar um allan heim að réttu efni og gæðum Úrvalið í verslun Steinsmiðjunnar er sannarlega mikið og efniviðurinn kemur víðs vegar að. Yfir 100 gerðir legsteina eru fáanlegar. „Við flytjum inn steina, meðal annars frá Indlandi, Kína og Ítalíu, eða þar sem litirnir eru í fjöllunum, auk þess sem við bjóðum upp á fallega legsteina úr stuðlabergi. Íslenska stuðlabergið felur í sér aðeins meiri smíði því hráefnið er auðvitað aldrei eins,“ segir Birnir. Hann segir gæði skipta miklu máli því legsteinar og aðrir fylgihlutir séu til þess ætlaðir að standast tímans tönn. „Ég leita víða fanga að bestu vörunni, hvort sem það er í Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu eða Pakistan. Ég er mjög upptekinn af gæðum, en þessi vara verður að vera góð. Lugtir, vasar og fuglar eru t.d. úr ekta kopar og kristall í gluggum.“ Vönduð og persónuleg þjónusta „Hver steinn er persónulegur minnisvarði og við smíðum gjarnan eftir ákveðum hugmyndum eða tillögum frá viðskiptavinum,“ segir Birnir og bætir við að flest sé hægt í þeim efnum. „Við leggjum einnig mikið upp úr góðri og alhliða þjónustu. Við setjum upp steina og sjáum um frágang á öllu Norðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.“ Þrátt fyrir að megináherslan í fyrirtækinu sé á legsteina og fylgihluti við þá má finna ýmsa aðra hluti í versluninni. „Við erum til að mynda með fallega saltsteins-
Hjónin Birnir Vignisson og Sunneva Árnadóttir tóku við Steinsmiðju Akur eyrar í byrjun árs. Þau leggja höfuðáherslu á gæði og góða þjónustu. Myndir: Auðunn Níelsson
Steinsmiðja Akureyrar er nú til húsa í Njarðarnesi.
lampa sem við flytjum inn frá Himalayafjöllum í Pakistan og margir kannast við. Þeir hafa það orð á sér að búa yfir lækningamætti en það er líka afar hugguleg birta frá þeim. Það verða oft til skemmtilegar hugmyndir til í samveru með fjölskyldunni, en upp úr
fjöruferð með krökkunum spratt upp sú hugmynd að gera steinsnaga og þeir eru nú orðnir vinsæl vara hjá okkur.“ minnismerki.is
AKUREYRI // sumar 2017 | 23
Velkomin til Akureyrar
24 | AKUREYRI // sumar 2017
Háskólinn á Akureyri – skóli með sérstöðu Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri var stofnaður árið 1987 og fagnar því 30 ára afmæli á þessu ári. Skólinn hefur frá upphafi verið í stöð ugri þróun og haslað sér völl sem ein af helstu menntastofnunum þjóðarinnar. Und anfarin ár hefur sérstaða háskólans meðal annars verið sveigjanlegt nám með meiri fjarkennslu í gegnum netið en í öðrum skól um. Um þessar mundir stunda um 2000 nemendur nám við skólann og starfsmenn eru um 200 í 170 stöðugildum. En er skól inn kominn í þá stærð sem talin er heppileg eða er ennþá verið að fjölga nemendum og námsgreinum? Eyjólfur Guðmundsson, rektor skólans frá árinu 2014, segir að markmiðinu um að á hverjum tíma stundi 2000 til 2500 nemendur nám við skólann hafi þegar verið náð. Hann segir að ekki sé áhugi á að stækka skólann umfram þetta en hins vegar þurfi að styrkja námsframboðið þannig að skólinn geti betur þjónað hlutverki sínu. Aukið menntunarstig kvenna Eyjólfur segir það umhugsunarefni að um 78% nemenda séu konur en 22% karlar. „Eftir að HA tók til starfa og sérstaklega eftir að skólinn jók áherslu á fjarnám hefur menntunarstig kvenna utan höfuðborgarsvæðisins aukist verulega. Til dæmis eru konur í Eyjafirði með jafn mikla háskólamenntun í dag og konur í Reykjavík, en karlar á þessu sama svæði eru hins vegar aðeins hálfdrættingar á við karla á höfuðborgarsvæðinu. Reyndar gildir það sama um alla landsbyggðina. Þetta er ástæða þess að við verðum að huga að því hvernig við getum fengið karla í frekara háskólanám á næstu árum.“ Hann segir að vissulega sé ákveðin kynjatenging við tiltekið nám og störf en þeim hafi tekist að brjóta hana upp til dæmis í sjávarútvegsfræðinni. Þar voru eingöngu strákar í upphafi en nú er jöfn kynjaskipting í því námi. Sveigjanleiki Eyjólfur segir að með fjarkennslunni sé boðið upp á sveigjanlegt námssamfélag sem nýti bæði net- og raunheima. „Við höfum beitt ýmsum aðferðum til að tengja saman þessa tvo þætti en kjarninn í því er í grunninn tvíþættur. Annars vegar að nýta bestu fáanlegu tækni á hverjum tíma til að miðla námsefn-
Um 2000 nemendur stunda nám við Háskólann á Akureyri.
Nám í lögreglufræðum er meðal þess sem markar skólanum sérstöðu.
inu rafrænt með stuttum fyrirlestrum og kynningum og rafrænum prófum. Hins vegar að nemendurnir komi reglulega í námslotur og hópastarf og vinni verkefni með öðrum og kynnist samnemendum í eigin persónu. Þannig geta þeir myndað tengsl og námssamfélag sem auðveldar áframhaldandi samstarf yfir netið.“ Hann segir þetta svipað því sem fjöldi fyrirtækja sem er með starfsstöðvar víða um heim gerir í dag þar sem fólk vinnur saman yfir netið en hittist síðan af og til og myndar teymi sem vinna þvert á tímabelti, lönd og jafnvel heimsálfur. Sérstaða HA Aðspurður um sérstöðu HA segir Eyjólfur að
með sveigjanlegu námi hafi skólinn opnað fjölda fólks aðgengi að háskólanámi. Bæði sé boðið upp á hefðbundin fög eins og hjúkrunarfræði, kennslufræði, lögfræði og viðskiptafræði en að auki séu áherslur og annað námsframboð sem ekki sé í boði í öðrum skólum. Hann nefnir sem dæmi sjávarútvegsfræði innan auðlindadeildar sem hann segir hafa verið eitt helsta flaggskip skólans um árabil og veitt nemendum greiðan aðgang að störfum innan sjávarútvegs og tengdra greina. Þá bendir hann á að HA er eini háskólinn sem býður upp á nám í iðjuþjálfun og í samspili við hjúkrunarfræðina sé boðið upp á þverfaglegri nálgun á heilbrigðisvísindin en í öðrum skólum. Þar sé möguleiki á meistaranámi í þver-
faglegum heilbrigðisvísinum sem mikil aðsókn hafi verið í síðustu ár. Eyjólfur nefnir einnig tengingu skólans við norðurslóðir sem enn eitt dæmið um sérstöðu HA. „Ég tel að þáttur HA í norðurslóðarannsóknum hafi verið vanmetinn í gegnum tíðina. Meðal annars vegna þess að við Íslendingar hugsum aldrei um okkur sem þjóð á norðurslóð, þótt við séum eina þjóðin sem býr öll á norðurslóð. Umræðan hér hefur snúist meira um nauðsyn þess að færa okkur nær Evrópu eða Bandaríkjunum. Við hjá HA höfum lagt áherslu á að rannsaka félagsvísindalegt samhengi okkar Íslendinga og bera það saman við önnur samfélög á norðurslóðum. Síðast en ekki síst nefnir Eyjólfur nám í lögreglufræði sem dæmi um sérstöðu HA. Nýlega var ákveðið að vista námið á Akureyri vegna þess að skólinn gat boðið upp á öflugt fjarnám sem nær til alls landsins. Hann segir lögreglunámið hafa mælst vel fyrir en með því aðstoði skólinn fagstétt við að komast á hærra menntunarstig án þess þó að hún glati tengslum við upprunann. Umsókn um doktorsnám Til þessa hefur verið boðið upp á grunn- og meistaranám við Háskólann á Akureyri. Eyjólfur segir það hafa verið á stefnuskrá skólans síðan 2012 að bjóða upp á doktorsnám og var umsókn um heimild til doktorsnáms skilað til menntamálaráðuneytisins árið 2015. Sú umsókn er nú til meðferðar innan ráðuneytisins en lögum samkvæmt er það menntamálaráðherra sem tekur ákvörðun um hvort slík heimild verður veitt. Að sögn Eyjólfs er nú unnið að nýrri stefnumótun fyrir Háskólann á Akureyri til næstu 10 ára. „Við viljum sjá HA sem öfluga mennta- og rannsóknastofnun þar sem nemendur starfa í skapandi námsumhverfi í góðri tengingu við það doktorsnám sem heimilað verður. Við teljum að þetta verði eftirsóttur og vinsæll háskóli þar sem erfiðara verður að komast að en í dag. Innan hans verði öflugt teymi fræðimanna sem muni aðstoða íslenskt samfélag við að leysa þau stóru viðfangsefni sem þjóðin glímir við á hverjum tíma,“ segir Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri. unak.is
AKUREYRI // sumar 2017 | 25
26 | AKUREYRI // sumar 2017
Langþráðar endurbætur á Listasafninu á Akureyri standa yfir
Ný og breytt ásýnd í sjónmáli „Þetta verður alger bylting, sama hvernig á er litið,“ segir Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins á Akureyri en nú í vor var hafist handa við langþráðar endurbætur og stækkun á húsakynnum safns ins í Grófargili sem iðulega geng ur undir nafninu Listagil. Stefnt er að því að taka endurbætt hús næði í notkun í kringum þjóðhá tíðardaginn, 17. júní á næsta ári. „Við hlökkum auðvitað mjög mikið til, enda skapast fjölmörg ný tækfæri á aukinni og fjölbreytt ari starfsemi en áður var.“ Framkvæmdir hófust í maí síðastliðnum við stækkun og endurbætur á húsnæði Listasafnsins á Akureyri, en Hlynur segir upphafið þó mega rekja lengra aftur í tímann, til hugarflugsfundar sem efnt var til í Ketilhúsinu fyrir fáum árum. Þangað var stefnt fólki með mismunandi bakgrunn og lögðu allir í púkkið. Með það veganesti í farteskinu unnu arkitektarnir Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason hjá Kurt og pí sína tillögu sem nú er í óða önn verið að framkvæma. Þeir Ásmundur og Steinþór hafa sérhæft sig í að endurgerð verksmiðjuhúsnæðis, að breyta slíku húsnæði í sýningarsali og gallerí. Listasafnið á Akureyri er einmitt til húsa í iðnaðarhúsnæði, þar sem áður var
Verk af sýningunni Sumar eftir Magnús Helgason sem ber titilinn „Guð fær greitt í dollurum“.
mjólkursamlag og brauðgerð KEA. Til hefur staðið í eina tvo áratugi að taka fjórðu og efstu hæð hússins í notkun, en því hefur ævinlega verið slegið á frest. Nú hillir undir að draumurinn verði að veruleika og hæðin verði loks hluti af Listasafninu líkt og til hefur staðið um árabil.
„Ég hlakka mikið til að takast á við þau fjölbreyttu, skemmtilegu og ögrandi verkefni sem framundan eru þegar endurbótum lýkur að ári,“ segir Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins á Akureyri.
Aðstaðan stórbreytist til batnaðar „Aðstaðan stórbreytist til batnaðar á allan hátt að framkvæmdum loknum, við munum bjóða upp á fjölmarga sali af ýmsum stærðum, það verður tekin í notkun nýr og
glæsilegur inngangur í safnið og aðgengi fyrir hreyfihamlaða og fólk með barnavagna verður nú loksins gott í öllu húsinu, það kemur til að mynda lyfta í húsið. Við bætist kaffihús og safnabúð og þá verður mun betri aðstaða en áður fyrir safnafræðslu sem er stór hluti af okkar starfsemi og er nýtt af börnum og ungmennum á öllum skólastigum. Við munum í kjölfarið auka og efla þá starfsemi og sinna betur en áður var unnt,“ segir Hlynur. Aðstaða til að taka á móti listaverkum, pakka og geyma batnar einnig verulega.
VELKOMIN Á NÝJAN STAÐ - HAFNARSTRÆTI 71NÝ SENDING AF THERMO BOLLUM OG DISKUM ALLIR LITIR FÁANLEGIR Í ULLARTEPPUM
Höfuðborgarsvæðið: Epal Skeifunni, Laugarvegi, Kringlunni og Hörpunni. Dúka Kringlunni og Smáralind. Eymundsson Laugarvegi 77, Garðheimar, Safnbúð Þjóðminjasafnsins, Inspired by Iceland, Árbæjarblóm, Valfoss og 18 rauðar rósir. Landsbyggðin: Verslun Sveinbjargar, Kista í Menningarhúsinu Hofi og Eymundsson á Akureyri. Eymundsson í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Bústoð í Keflavík, @Home Akranesi, Blómakot Grindavík, Blómaborg Hveragerði, Motivo Selfossi, Húsgagnaval Höfn, Póley Vestmannaeyjum, Penninn Ísafirði, Blóma og gjafabúðin Sauðárkróki, Draumblá Dalvík, Salvía Húsavík, Vogafjós Mývatnssveit, Klassík og Hús Handanna á Egilsstöðum.
V O R H U S l i v i n g by Sve i n b j o rg · H a f n a r s t ræ t i 7 1 · Ak u re y r i · w w w. s ve i n b j o rg. i s
AKUREYRI // sumar 2017 | 27
Langsnið af húsnæði Listasafnsins á Akureyri sem arkitektastofan Kurt og pí hefur hannað.
Fleiri salir og opnara rými Listasafnið verður eftir breytingar opnara og mun rýmra en áður var, salirnir sem það mun hafa til umráða verða um 10 talsins, bæði stórir og litlir og segir Hlynur að þannig skapist tækifæri til að bjóða upp á mismunandi sýningar árið um kring. Horft er til þess að í gangi verði ein sýning sem standi til lengri tíma þar sem sýnd verða lykilverk í eigu safnsins. Þá er fyrirhugað að setja upp eins konar sögusýningu þar sem stiklað verður yfir sögu þeirra húsa sem standa við Listagilið og greint frá fyrra hlutverki þeirra, farið yfir sögu Listasafnsins sem verður 25 ára á næsta ári og þróun Listagilsins. Við opnun safnsins eftir endurbætur verða einnig opnaðar sýningar á verkum Anitu Hirlekar, Sigurðar Árna Sigurðssonar og Aðalheiðar Eysteinsdóttur.
gjörbreytta ásýnd m.a. með tengingu á milli Mjólkursamlagsins þar sem við höfum verið með okkar starfsemi og að Ketilhúsi, þannig myndast gott flæði, húsakynni verða að einni sameiginlegri heild,“ segir Hlynur. Mjólkurbúðin verður áfram á sínum stað með minni sýningar, vinnustofur listamanna sömuleiðis sem og sýningarrými rekin af listamönnum og gestavinnustofur. Breytingar munu einnig bjóða upp á aukin not á Ketilhúsi, sem til að mynda verður
nýtt í meira mæli en áður fyrir viðburði af ýmsu tagi, móttökur, veislur og ráðstefnur. „Að mínu mati verður Gilið, eftir þessar breytingar enn skemmtilegra og áhugaverðara en áður. Hér verður vonandi enn meira líf, straumur heima- og ferðamanna alla daga. Ég hlakka mikið til að takast á við þau fjölbreyttu, skemmtilegu og ögrandi verkefni sem framundan eru þegar endurbótum lýkur að ári,“ segir Hlynur.
Stórir og bjartir salir verða á efstu hæð Listasafnsins sem auka möguleika á fjölbreyttum sýningum.
Ein sameiginleg heild „Þær breytingar sem nú standa yfir munu færa Listasafninu nýja og
Á sýningunni Sumar getur að líta fjölbreytt verk eftir norð lenska listamenn. Sýningin er opin alla daga kl. 10-17 og stendur til 27. ágúst.
Sumarsýning í Ketilhúsi Listasafnið á Akureyri er, þrátt fyrir að miklar endurbætur standi yfir, ekki lokað. Í Ketilhúsinu er nú sýningin Sumar og stendur hún fram yfir Akureyrarvöku í lok ágúst. Þar má sjá verk eftir 21 norðlenskan listamann og eru þau af ýmsu tagi. Alla fimmtudaga er boðið upp á leiðsögn með listamanni sem segir frá verkum sínum og á þriðjudögum kl. 17 býður Helga Björg Jónasardóttir upp á hugleiðslu við verk sitt á sýningunni. Í haust tekur við gjörningahátíðin A! Og að henni lokinni tvær einkasýningar, annars vegar sýnir Rúrí verk sín og hins vegar Friðgeir Helgason ljósmyndari. Vídeóverk í eigu safnsins verða einnig sýnd í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Árinu lýkur svo með sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur. „Það er heilmikið um að vera hjá okkur þrátt fyrir að við stöndum í framkvæmdum og við tökum vel á móti okkar gestum,“ segir Hlynur.
Daladýrð er á bænum Brúnagerði í Fnjóskadal rétt við Vaglaskóg. Í Daladýrð er eitthvað fyrir alla. Frábært umhverfi, íslensku húsdýrin, trampólín, leiksvæði, ís og fleira góðgæti. Í Daladýrð er einnig vinnustofa og verslun hönnunarfyrirtækisins Gjósku þar sem seldar eru vörur úr íslenskri ull. Opnunartími: Virka daga frá 13-17, helgar frá 12-18. 30 mínútna akstur frá Akureyri.
28 | AKUREYRI // sumar 2017
Sáttir viðskiptavinir koma aftur og aftur Sæluhús á Akureyri verma nú í fjórða árið í röð efstu sætin á lista Tripadvisor í sínum flokki. „Við höfum ýmist verið í fyrsta eða öðru sæti sem segir okkur að gest irnir fara héðan mjög sáttir og við höfum fengið góð ummæli. Við bjóðum mikið fyrir peninginn, stór og skemmtileg herbergi fyrir gott verð. Hér kemur líka sama fólkið aftur og aftur, til að mynda höfum við tekið á móti sömu gestunum um páskana síðustu sjö árin,“ segir Jón Þór Hannesson hjá Sæluhúsum á Akureyri. „Við erum stolt af því sem við höfum upp á að bjóða. Við reynum að stilla öllu í hóf til að halda verðum eins neðarlega og hægt er en bjóða þó upp á góða þjónustu.“ Sæluhús reka í dag 7 rúmgóð einbýlishús og 33 íbúðir við Sunnutröð á Akureyri með góðu útsýni yfir Pollinn. Íslenskir gestir draga úr sveiflum. Akureyri hefur ekki farið varhluta af fækkun ferðamanna í ár frekar en aðrir landshlutar. „Ferðamenn ferðast ekki jafn mikið um landið
og áður og ég hef þá tilfinningu að þeim fari fækkandi. Ég hef grun um að við séum að mörgu leyti að verðleggja okkur út úr myndinni en hér hjá Sæluhúsum höfum við þó haldið verðinu nær óbreyttu undanfarin þrjú ár,“ segir Jón Þór sem segist þó ekki svartsýnn. „Það hefur verið lán okkar að meirihluti okkar gesta eru Íslendingar, eða um 60%, en það hefur dregið úr þessari sveiflu hjá okkur. Það koma bara Íslendingar í stað erlendra ferðamanna. Við erum því ekki svartsýn á framhaldið. Það er kannski kominn tími til að ferðamannaiðnaðurinn nái betra jafnvægi og það verði til einhver smá samkeppni milli þeirra sem bjóða þjónustu,“ segir Jón Þór en segist vitaskuld hafa samúð með þeim sem hafa verið að fjárfesta mikið í greininni að undanförnu. Tilvalinn áfangastaður „Hér á Akureyri höfum við upp á svo mikið að bjóða, bæði innan bæjar og utan. Hér er tilvalið að gista og fara svo í dagsferðir til Húsavíkur, Mývatns eða annarra nærliggjandi staða. Á veturna er
„Hér á Akureyri höfum við upp á svo mikið að bjóða, bæði innan bæjar og utan,“ segir Jón Þór Hannesson.
það síðan skíðafólkið og aðrir sem hingað koma til að hitta vini og ættingja eða sækja í menningarlífið hér en það er mikil tilbreyting fyrir Reykvíkinga og fólk á Austurlandi að koma til Akureyrar. Ég segi gjarnan; komið til Akureyrar því hér er allt sem þarf í viðráðanlegri fjarlægð!“ saeluhus.is
Sæluhúsin eru vel staðsett á suðurbrekkunni Akureyri.
Í þróunarsamstarfi við nokkrar stærstu útgerðir landsins „Þetta hefur verið mjög spenn andi tími og það hefur verið skemmtilegt að fá að taka þátt í þróa lausnir um borð í nýju skipin sem hafa verið að koma til landsins,“ segir Sæmundur Elíasson hjá Matís á Akureyri sem undanfarin ár hefur unnið að rannsóknum á bættri meðferð hráefna um borð í fiskiskipum. Sæmundur er annar tveggja starfsmanna Matís á Akureyri sem vinna að fjölbreyttum verk efnum sem tengjast vöruþróun og nýsköpun í atvinnulífinu. Með Sæmundi starfar á Akureyri Eva Kuttner en verkefni hennar tengjast aðallega mælingum og líftækni á meðan Sæmundur fæst mest við bætta meðhöndlun afla um borð í fiskiskipum. Millidekkin endurhönnuð Sæmundur vinnur nú að doktorsverkefni sem fjallar um að skilgreina bestu meðhöndlun bolfiskafla um borð í fiskiskipum en það er unnið í samstarfi við þrjú stór útgerðarfyrirtæki sem öll hafa verið að láta smíða fyrir sig ný fiskiskip en þetta eru Samherji á Akureyri, Fisk Seafood á Sauðárkróki og HB Grandi í Reykjavík. „Það eru 3-4 ár síðan ég fór í fyrstu túrana með eldri skipum þessara útgerða og síðan höfum við verið í allskonar rannsóknum og pælingum sem lúta að bættri meðferð hráefna um borð með breyttum vinnsluferlum og búnaði. Það má segja að menn hafi
tengdu námi í samstarfi við innlenda og erlenda háskóla, rannsóknastofnanir og fyrirtæki. Að nokkrum verkefnum Matís á Akureyri koma ennfremur nemendur í rannsóknatengdu framhaldsnámi til B.Sc. prófs í líftækni eða sjávarútvegsfræðum. Sæmundur segir nágrennið við Háskólann á Akureyri nýtast vel og að samstarfið við háskólann sé gott. Sjálfur kennir hann áfanga innan sjávarútvegsfræði skólans þar sem fjallað er um vinnsluferla sjávarafurða en einnig hefur hann tekið að sér að leiðbeina nemendum sem eru að vinna lokaverkefni í B.Sc. námi.
Doktorsverkefni Sæmundar fjallar um bætta meðhöndlun bolfiskafla um borð í fiskiskipum.
verið að endurhanna millidekk skipanna til að tryggja rétta meðferð hráefnisins.“ Hann segir verkefni sínu ekki lokið þrátt fyrir að fyrstu skipin sem hafa verið í smíðum erlendis séu komin til landsins. Aðspurður hvort eitthvað af hans rann-
sóknavinnu hafi skilað sér um borð í nýju skipin segir hann að svo vera. Það séu meðal annars þættir sem snúi að blóðgun og kælingu aflans og að lágmarka álag á hann til dæmis með því að draga úr fallhæðum þegar fiskurinn flyst á milli staða.
Gott samstarf við HA Matís á Akureyri er til húsa í Rannsóknahúsinu að Borgum en þar er rannsóknaaðstaða í næsta nágrenni við Háskólann á Akureyri. Við uppbyggingu Matís á Akureyri var lögð áhersla á aðkomu nemenda í rannsókna-
World Seafood Congress í Hörpu Sæmundur segir að á alþjóðlegu ráðstefnunni World Seafood Congress sem Matís hefur tekið að sér að halda í Hörpu dagana 10.-13. september nk. verði meðal annars málsstofa sem tengist tækniþróun og nýsköpun í sjávarútvegi. „Það verður gríðarlega áhugavert fyrir okkur sem vinnum í þessum geira hér á landi að kynnast þeim áherslum sem aðrir hafa og að fá tækifæri til að miðla þeirri þekkingu sem við búum yfir,“ segir Sæmundur Elíasson hjá Matís á Akureyri. matis.is
AKUREYRI // sumar 2017 | 29
Verslunarmannhelgin
Tónlistarveisla á Einni með öllu 2017
„Dagskrá Einnar með öllu hefur sjaldan verið jafn þétt og fjölbreytt, hlaðin bæði útivistarviðburðum, afþreyingu og landsþekktu tónlistarfólki. Það er því óhætt fyrir fólk að taka verslunarmannahelgina frá og leggja leið sína til Akureyrar,“ segir Rúnar Freyr Rúnarsson sem vinnur að undirbúningi hátíðarinnar Ein með öllu sem haldin verður á Akureyri um verslunarmannahelgina. Hún er orðin fastur liður í skemmtanahaldi bæjarbúa og landans á sumrin en sem fyrr standa hagsmunasamtökin Vinir Akureyrar fyrir hátíðinni. Um verslunarmannhelgina standa einnig yfir Sumarleikar á Akureyri – Iceland Summer Games 2017. Á leikunum er boðið upp á fjölda keppnisviðburða fyrir almenning og meðal annars keppt í hlaupum, hjólreiðum og göngu, svo fátt eitt sé nefnt. „Þó að dagskrá Einnar með öllu sé orðin mjög vegleg þá reiknum við með að enn eigi eftir að bætast á listann þegar nær dregur hátíðinni,“ segir Rúnar en tónlistin mun skipa veglegan sess í ár. Hátíðin stendur frá föstudegi til sunnudagskvölds og að vanda verður botninn sleginn í hana með veglegum tónleikum á grasflötinni við Samkomuhúsið á Akureyri. Strax að loknum tónleikunum verður glæsileg flugeldasýning sem lýsir upp Pollinn og nágrenni – lokapunktur eins og best verður á kosið. Útitónleikar þrjú kvöld í röð „Miðbærinn verður aðal vettvangur dagskrárliða hátíðarinnar. Við verðum með útitónleika bæði á föstudags- og laugardagskvöldi, auk sunnudagskvöldsins, og fáum meðal annars til okkar hljómsveitirnar 200.000 Naglbíta, Stuðmenn, Killer Queen og Úlf, Úlf, Pál Óskar, Aron Can og Grétu Salóme, auk heimamanna á borð við Rúnar Eff, rapparann Ká-aká og Birki Blæ. Við verðum einnig með djassdúettinn Marínu & Mikael og Voice stjörnurnar Eirík Hafdal og Steina Bjarka sem skipa dúettinn Steinrík. Síðan verður tilvalið að heimsækja söfn bæjarins, kíkja á markaðsstemningu á Ráðhústorgi eða fara með yngstu kynslóðina og fylgjast með frábærri barnadagskrá í miðbænum,“ segir Rúnar en til viðbótar má nefna að vatnaboltafjör verður í miðbænum og að um verslunarmannahelgina ætla slökkviliðsmenn á Akureyri að ganga í búningum og með reykköfunarbúnað hringinn í Eyjafjarðarsveit í áheitasöfnun vegna kaupa á búnaði til flutnings fyrirbura. Sannarlega verðugt málefni þar að styðja og tilvalið að bregða sér með í gönguna.
einmedollu.is
Kirkjutröppurnar geta líka verið kjörin hjólabraut!
Fjölmennt á lokatónleikum Einnar með öllu.
30 | AKUREYRI // sumar 2017
Brimborg
Aldrei verið hagstæðara að kaupa nýjan bíl „Það er mikil sala í bæði nýjum og notuðum bílum þessa mánuð ina. Sumarið er jafnan góður tími í sölu notaðra bíla og hvað nýju bílana varðar þá stefnir í að við sjáum talsverða söluaukningu miðað við árið í fyrra, sem þó var mjög gott hjá Brimborg. Þeir sem eru að leita að notuðum bíl ættu að líta inn á vefinn okkar, brim borg.is, en þar höfum við sett upp nýtt og notendavænt vefsvæði fyr ir sölu notaðra bíla,“ segir Jón Árelíus Þorvaldsson, fram kvæmdastjóri Brimborgar á Akur eyri. Hann segir verð á nýjum bíl um mjög hagstætt um þessar mundir og þegar það fari saman við miklar tækniframfarir í nýj ustu árgerðum bílaframleiðendum þá sé óhætt að segja að kaupendur fái mikið fyrir peninginn. Spennandi nýir bílar „Við erum að sjá spennandi nýjungar frá okkar framleiðendum þessa mánuðina. Sem dæmi erum við að fara að kynna nýjan Mazda CX-5, við höfum nýlega kynnt nýjan Volvo V90 Cross Country og í haust kemur nýr Volvo XC60, sem er mjög spennandi bíll í flokki smærri jeppa. Volvoinn hefur lengi verið okkar helsta flaggskip og mjög stór hópur viðskiptavina okkar sem alltaf heldur sig við þá tegund. Meirihluti Volvo eigenda vill fara aftur í Volvo þegar kemur að endurnýjun á heimilisbílnum,“ segir Jón Árelíus. Brimborg hefur einnig umboð
Jón Árelíus Þorvaldsson við tvö af flaggskipunum í sýningarsalnum á Akureyri, Volvo XC60 og Volvo V90 Cross Country.
fyrir Citroen og hefur nýverið kynnt Citroen C3 sem er bíll í smærri kantinum og hefur slegið í gegn í bílaheiminum og verið hlaðinn verðlaunum. „Þetta er bíll með 25 alþjóðleg verðlaun og í honum er að finna margar skemmtilegar nýjungar. Að ekki sé minnst á verðið á bílnum en hann er fáanlegur hjá okkur fyrir innan við tvær milljónir króna, sem er frá-
bært verð fyrir nýjan bíl í þessum gæðaflokki. Frá Ford bjóðum við líka Ford KA sem er annar valkostur í smábílaflokknum á verði undir tveimur milljónum króna. Stærstu tíðindin hjá okkur eru því annars vegar verðlækkanir nýrra bíla á síðustu mánuðum og miklar nýjungar sem eru að koma í bílunum frá okkur,“ segir Jón Árelíus.
Sundlaug Akureyrar
Stærstu rennibrautir landsins í notkun Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í sundlaugargarðinum á Akur eyri í allan vetur en nú í júlí verða teknar í notkun nýjar rennibrautir við laugina sem eru þær stærstu við sundlaug hér á landi. Braut irnar eru þrjár talsins og við þær er 14,5 metra hár upphitaður uppgönguturn sem gerir að verk um að hægt er að hafa brautirnar opnar árið um kring, hvernig sem viðrar. Forstöðumaður Sundlaug ar Akureyrar segir tilkomu nýju brautanna og annarrar aðstöðu sem þessum framkvæmdum fylgir vera stórt framfaraskref fyrir bæði bæjarbúa og ferðaþjónustu á Ak ureyri. „Ég er ekki í nokkrum vafa um að rennibrautirnar eiga eftir að laða fjölskyldufólk til bæjarins, árið um kring. Það er búin að vera mikil spenna, sérstaklega hjá yngstu kynslóðinni, síðustu mánuði og mikið spurt hvenær sé hægt að fara að renna sér í nýju brautunum. Og svo hefur mikið verið hringt til okkar til að spyrja hvenær við opnum. Það hafa því margir beðið spenntir undanfarna mánuði,“ segir Elín H. Gísladóttir, forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar. Tæplega 90 metra rennibraut Rennibrautirnar þrjár eru engin smásmíði. Sú lengsta er 86 metra
Nýju brautirnar eru engin smásmíði, sem best sést á því að uppgönguturninn nær í 14,5 metra hæð.
löng, næsta 28 metrar og sú stysta 9 metrar og hún er hugsuð fyrir yngstu gestina. „Það er ekki bara skemmtilegt að fara upp í turninn til að renna sér niður heldur ekki síður til að njóta útsýnisins yfir bæinn og Pollinn. Við erum að fá hingað til okkar einn af betri útsýnisstöðum á Akureyri í leiðinni,“ segir Elín. Hluti framkvæmdanna er nýr tvískiptur heitur pottur sem er með nuddbúnaði, vaðlaug og loks verður nýju sólbaðssvæði einnig komið upp. Framkvæmdir munu því standa næstu mánuði og vonast Elín til að framkvæmdum við
mannvirkin verði lokið fyrir veturinn en mögulega bíði lokafrágangur á svæðinu næsta sumars. Það ráðist af tíðarfarinu í haust. Í sundlaugargarðinum hafa síðustu ár verið bílar og önnur leiktæki sem þurftu að víkja fyrir þessum nýju mannvirkjum en þeim hefur nú verið fundinn nýr staður til framtíðar í Kjarnaskógi. „Þessi nýja aðstaða er mikil lyftistöng fyrir bæði okkur í Sundlaug Akureyrar og að mínu mati bæinn sem heild,“ segir Elín. akureyri.is
Tækniþróun á fleygiferð Áhugi viðskiptavina á bæði svokölluðum hybrid bílum og bílum sem ganga alfarið fyrir rafmagni fer vaxandi og segir Jón að ör þróun sé hjá öllum bílaframleiðendum hvað þetta varðar. „Volvo með hybrid búnaði er vinsæll hjá okkur og þar
er fólk að fá bíl sem hefur drægni með rafmagni á stærstan hluta af daglegum innanbæjarakstri en síðan tekur bensínvélin við, þetta eru bílar sem hægt er að stinga í samband hvar sem er í venjulegar innstungur. Mér kæmi ekki á óvart þó að innan fárra ára verði sala á hybrid bílum og rafmagnsbílum orðin mikið stærri hluti af markaðnum því þróunin er mjög ör í framleiðslunni. En við erum líka að sjá mjög miklar tækniframfarir á öðrum sviðum í bílunum. Af því sem snýr að öryggisbúnaði má nefna veglínuskynjara sem hjálpa ökumanni að halda bílnum á veginum, aðlögunarhæfan hraðastilli sem aðlagar aksturinn að umferðarhraðanum, sjálfvirkar bremsur sem taka við ef ökumaður bregst ekki við, bílar sem leggja sjálfir í stæði og sjálfvirk hækkun og lækkun á ljósum svo eitthvað sé nefnt. Þá er fáanleg í nýja Citroen C3 bílinn myndavél í framrúðu sem tekur allt upp fyrir framan bílinn á akstri og fær ökumaðurinn upptökuna senda í snjallsímann sinn. Þetta er hægt að nýta t.d. ef fólk lendir í árekstri til að sanna tildrögin. Auk þess eru tengimöguleikar snjallsíma við bílana alltaf að verða flottari og eyðsla og mengun hefur snarminnkað. Tæknþróunin er því sannarlega á fleygiferð í bílaheiminum.“ brimborg.is
Grilluð lambamjöðm með melónu og mangósalsa
0,8 - 1 kg lambamjaðmir ½ dl olía 1 msk BBQ & GRILL MESQUITE krydd Allt sett í skál og blandað vel saman. Grillið á milliheitu grilli í 12-15 mín. Snúið kjötinu reglulega. Penslið þá kjötið með 1 dl af bbq sósu frá Hotspot og grillið í 2-3 mín í viðbót. Skerið kjötið í fallegar sneiðar og berið fram með restinni af bbq sósunni, melónu og mangósalsa og t.d. grilluðum kartöflum, grænmeti og salati. Melónu og mangósalsa ½ mangó, skrældur og skorinn í litla teninga 3 dl melóna eftir smekk, skorin í litla teninga 1 dl minta, smátt söxuð 1 dl kóriander, smátt saxað 1/3 chilli, steinlaust og smátt saxað 1 tsk broddkúmen, steytt Safinn úr ½ sítrónu 1 msk olía
Allt sett í skál og blandað vel saman.
AKUREYRI // sumar 2017 | 31
32 | AKUREYRI // sumar 2017
Stórhuga Nökkvamenn „Nálægðin við Pollinn gerir að verkum að áhugi fyrir siglingum og sjósporti ýmis konar hefur allt af verið mikill á Akureyri,“ segir Rúnar Þór Björnsson formaður Nökkva, félags siglingamanna. Líf og fjör er alla daga yfir sumarið á athafnasvæði klúbbsins þegar þar standa yfir námskeið og æfingar. Til stendur á næstu mánuðum að hefja umfangsmiklar framkvæmd ir á svæðinu, en í haust verður byrjað á fyrri áfanga verkefnis sem gjörbreytir og bætir aðstöðu þeirra sem stunda siglingar. Rún ar Þór hefur staðið í stafni frá ár inu 2003, gengt formennsku frá þeim tíma og er öllum hnútum kunnugur varðandi starfsemi klúbbsins. Hann hefur haft um sjón með námskeiðum Nökkva frá árinu 2006. Félagsmenn í Nökkva, sem formlega var stofnaður árið 1963 eru um 120 talsins. Yfir sumarmánuðina er efnt til námskeiða fyrir börn á aldrinum 8 til 13 ára og eru þau jafnan vel sótt. Starfsmenn sem aðstoða á námskeiðunum eru á bilinu 16 til 18 talsins og koma við þá sögu bæði krakkar úr unglingavinnu og starfsmenn úr atvinnuátaki. Það er því mikill fjöldi á svæðinu alla daga og líflegt um að litast. Mikið líf í félaginu „Aðsókn á námskeiðin er yfirleitt mjög góð, en vissulega fer það svolítið eftir tíðarfari. Þegar veður er gott fyllist allt hjá okkur, en þegar kalt er í veðri eru það jaxlarnir sem mæta, á þá bítur ekkert og þeim er sama um að velkjast um blautir, bara ef þeir komast út að sigla og stunda sitt áhugamál,“ segir Rúnar Þór. Auk námskeiðanna er hópur sem stundar æfingar og keppir og undanfarin ár hefur Nökkvi verið með fjölmennasta liðið á Íslandsmótum. „Við erum ekki endilega fremstir, en fjölmennastir, sendum t.d. 23 á Íslandsmót í fyrra en næst fjölmennasta félagið var með 12 keppendur,“ segir Rúnar Þór. Til stendur á næstunni að endurvekja sportkafaradeild innan Nökkva, sérdeild innan félagsins sem heldur utan um það áhugamál. Þá er einnig að verða til vísir að kajakhóp innan félagsins en hann skipa fullorðnir einstaklingar sem áhuga hafa á kajaksiglingum. „Það er virkilegur áhugi fyrir sjósporti af ýmsu tagi hér um slóðir sem er ánægjulegt. Stóri draumurinn er að hér geti orðið til miðstöð siglingasports fyrir landið enda eru hér kjöraðstæður til þess.“ Metnaður til að gera vel Hann segir mikinn metnað ríkjandi innan klúbbsins að gera vel og standa faglega að málum. Þannig kom sænskur þjálfari til liðs við Nökkva í fyrrasumar og er einnig væntanlegur síðar í sumar. Þá á Nökkvi í samstarfi við Björgunarsveitina Súlur sem sér um skyndihjálparnámskeið fyrir starfsmenn sem og einnig námskeið varðandi öryggisbáta. Félagið fékk einmitt nýjan öryggisbát nú í vikunni og hefur þá yfir þremur slíkum að ráða. Ný ásýnd Svæði Nökkva mun á komandi árum taka miklum breytingum og aðstæður í kjölfarið batna til muna. Athafnasvæðið verður fært örlitið sunnar en það nú er. Hafist
„Nálægðin við Pollinn gerir að verkum að áhugi fyrir siglingum og sjósporti ýmis konar hefur alltaf verið mikill á Akureyri,“ segir Rúnar Þór Björnsson for maður Nökkva, félags siglingamanna.
Fjölbýlis- og orlofshús rísa Fyrirtækið SS Byggir á Akureyri fagnar brátt fjörutíu ára afmæli en það var stofnað í marsmánuði 1978. Fyrirtækið hefur alla tíð verið metnaðarfullt og hefur átt drjúgan þátt í mótun Akureyrar undanfarna áratugi en þar starfa um fimmtíu manns auk fjölda undirverktaka. „Verkefnin okkar eru í raun tvíþætt. Annars vegar er það rekstur verkstæðis sem smíðar TAK Innréttingar og innihurðir og hins vegar hefðbundin byggingaverktakastarfsemi,“ segir Helgi Örn Eyþórsson, verkefnastjóri hjá SS Byggi. „Við seljum innréttingar um land allt og vörumerkið er orðið býsna þekkt. Þrátt fyrir að afgreiðslutími geti verið nokkur vegna anna þá eru flestir okkar viðskiptavina tilbúnir að bíða, enda gæði TAK innréttinga löngu orðin landsþekkt.“ Mikil eftirspurn eftir húsnæði „Flest verkefni okkar eru nýbyggingar, sala íbúða á frjálsum markaði. Stórt verkefni er nú á lokametrum, en það eru 35 íbúðir við Undirhlíð 1. Þær íbúðir eru allar seldar en síðan erum við með lóð fyrir um 150 íbúðir í Hagahverfi. Þar erum við byrjuð að byggja fyrsta húsið af sex og jarðvegsskipti eru hafin fyrir hús nr. 2 og 3. Þetta verða falleg fjölbýlishús, bæði þriggja og fimm hæða, með eða án stæðis í bílageymslu,“ segir Helgi og segir mikla eftirspurn vera eftir húsnæði og sala íbúða hefur gengið mjög vel. „Við viljum alltaf ganga lengra er kemur að gæðum íbúða okkar. Við höfum um langt skeið einangrað öll okkar hús að utan sem er ótvíræður kostur, einnig erum við alltaf að þróa okkur áfram hvað varðar hljóðvist í fjölbýlishúsunum okkar og í íbúðunum í Hagahverfi mun sérstakur loftskiptibúnaður verða settur upp í hverja íbúð. Loftskiptibúnaðurinn mun tryggja heilbrigðara andrúmsloft í íbúðunum og lækka húshitunarkostnað verulega. Íbúðirnar í Hagahverfi fara í almenna sölu nú á haustdögum.
Helgi Örn Eyþórsson segir eftirspurn mikla eftir íbúðum og orlofshúsum.
Orlofshúsin í Hálöndum eru vel staðsett og stutt í alla afþreyingu.
Orlofsbyggðir rísa „Við erum líka með skemmtilegt verkefni uppi í Hálöndum en þar höfum við þegar selt og afhent 32 orlofshús. Þrjú hús til viðbótar eru í byggingu og eru þau í söluferli. Jafnframt er þriðji áfangi deiliskipulags svæðisins í vinnslu en í heildina geta húsin hæglega orðið rúmlega hundrað,“ segir Helgi en markaðurinn og eftirspurn muni segja til um áframhaldið.
Hálöndin eru staðsett við Hlíðarfjallsveg og mestan hluta skíðatímabilsins er hægt að renna sér beint niður að orlofshúsunum. „Á heilsárs grundvelli er þetta mjög skemmtilegt svæði, falleg náttúra og stutt í alls kyns afþreyingu. Þetta er góður valmöguleiki fyrir þá sem koma til Akureyrar og vilja leita eftir útivist og afþreyingu. SS Byggir keypti nýverið jörðina Fjósatungu í Fnjóskadal en þar
er nú unnið að deiliskipulagsmálum fyrir orlofshúsabyggð og byggð fyrir fasta búsetu. Það verður mjög áhugaverður valkostur,“ segir Helgi að lokum. ssbyggir.is
AKUREYRI // sumar 2017 | 33
Bygging þessa húss, sem er fyrri áfangi nýs húsakosts Nökka, hefst innan tíðar. Í húsinu verða geymsla fyrir báta klúbbsins, starfsmannaaðstaða og fleira.
Alls starfa um 16 til 18 manns hjá Nökkva þegar námskeið fyrir börn standa yfir. Félagsmenn eru 120 talsins.
verður handa í haust við að byggja nýtt og glæsilegt bátahús og viðri vel til útiverka á komandi vetri má búast við að það verði fullbúið næsta vor. Bátaskýlið mun eins og nafnið gefur til kynna hýsa bátaflota félagsins, en þar verður einnig aðstaða fyrir starfsmenn og börn sem sækja námskeið fá þar einnig inni með sitt hafurtask. „Þetta er það sem við höfum í hendi, fyrsta áfanga verksins og erum með samning við bæjarstjórn upp á það. Við gælum við að nýja húsið verði tekið í notkun næsta sumar, vonandi í tengslum við Íslandsmót sem haldið verður á Akureyri sumarið 2018.“ Vona að framhald verið á framkvæmdum Í næsta áfanga er svo gert ráð fyrir að þjónustuhús rísi þar sem m.a. verður kaffihús. Athafnasvæði Nökkva fellur inn í hinn nýja stíg sem liggur frá Torfunefi og suður að flugvelli og fellur mjög vel inn í umhverfið. Fanney Hauksdóttir arkitekt hjá AVH arkitektum hannaði byggingarnar og svæðið umhverfis. „Við vonum auðvitað að næsta bæjarstjórn, sú sem við tekur að loknum kosningum næsta vor verði velviljuð í okkar garð og sjái sóma sinn í að halda þessu góða verki áfram,“ segir Rúnar Þór. nokkvi.iba.is
Pollurinn er kjöraðstaða fyrir siglinganámskeið fyrir börn. Enda eru þau vinsæl.
ÍSLENSKAR NÁTTÚRULEGAR ANDLITSVÖRUR SEM NÆRA OG STYRKJA HÚÐINA DAG OG NÓTT.
ANDLITSSERUM blæs nýju lífi í húðina og er uppfullt af nauðsynlegum Omega fitusýrum, steinefnum, vítamínum (A, B, C og E) og veitir því húðinni fljölmörg næringarefni. Notist á kvöldin eftir hreinsun húðarinnar. UNDUR RÓSARINNAR nærandi andlitskrem fyrir
þroskaða húð. Frískar og endurnærir húðina. Inniheldur hafþyrnisolíu sem er þekkt þek fyrir innihalda mikið magn af náttúrulegum andoxunarefnum, draga úr bólgum í húðinni og að geta haft afturvirk áhrif á öldrun húðarinnar .
34 | AKUREYRI // sumar 2017
Líflegt í Húsasmiðjunni yfir sumarið
Uppgangur og aukin velta með fleiri viðskiptavinum ingur og er hann viðskiptavinum innan handar með val á plöntum og veitir ráðleggingar varðandi hvaða jurtir henta í hvern og einn garð. Á liðnu ári hóf Blómaval að selja gæludýravörur og hafa viðtökur að sögn Sigurðar verið með fádæmum góðar.
Sumarlegt er um að litast í verslun Blómavals.
„Það er mikið um að vera hér á svæðinu kringum okkur, margt að gerast og mikill uppgangur,“ segir Sigurður Harðarson rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar og Blómavals á Lónsbakka.
„Það er alltaf líflegt hjá okkur í Húsasmiðjunni yfir sumarið,“ segir Sigurður Harðarson rekstrar stjóri hjá Húsasmiðjunni og Blómavali á Lónsbakka. Á þeim tíma standa framkvæmdir sem hæst, verktakar og einstaklingar keppast við að klára útiverkin á meðan vel viðrar yfir sumarmán uðina. „Það má segja að verslunin fari í annan gír og hún skiptir um yfirbragð. Það er mikið um að vera í timbur- og stálsölunni og sumarvörurnar streyma inn, reiðhjól, garðhúsgögn, grillin og allt það sem sumrinu tilheyrir,“ segir Sigurður. Húsasmiðjan er aðallega með þrjár tegundir af grillum, Broil King, gæðagrill frá Kanada, Weber grillin sem þykja einkar góð og vönduð og Outback grillin sem eru áströlsk og fást á mjög hagstæðu verði.
Útisvæðið við Blómaval lifnar við Útisvæðið við Blómaval lifnar svo sannarlega við þegar sumarið gengur í garð, fyllist af jurtum, sumar-
Myndir: Auðunn Níelsson
Mikið um að vera á svæðinu „Á þessum tíma snúast hjólin mjög hratt,“ segir Sigurður. „Það er líf í tuskunum og mikil umferð viðskiptavina allan daginn. Það er mikið um að vera hér á svæðinu kringum okkur, margt að gerast og mikill uppgangur. Það höfum við vel fundið í mikilli fjölgun viðskiptavina og á aukinni veltu, það á við bæði um síðastliðið ár og það sem af er þessu.“
blómum og garðplöntum. Úrval ávaxtaplantna og trjáa eykst sífellt enda hefur áhugi viðskiptavina á slíkri ræktun farið mjög vaxandi. Í Blómavali starfar garðyrkjufræð-
husa.is
Imperial á Glerártorgi færir út kvíar
Hyggjast opna skóbúð næsta haust „Við höfum mikinn metnað til að bæta þjónustu við Akureyringa og nágranna þeirra og erum sífellt að leita leiða til þess. Okkar við skiptavinir koma reyndar víða að, það er iðulega mikið um ferðafólk á Glerártorgi sem gjarnan lítur við hjá okkur,“ segir Anna Freyja Guðmundsdóttir verslunarstjóri hjá Tískuvöruversluninni Imperi al sem staðsett er í verslunarmið stöðinni Glerártorgi. Utanbæjar fólk er áberandi í versluninni yfir sumarmánuðina, enda margir á faraldsfæti á þeim árstíma. Anna Freyja segir úrvalið mikið um þessar mundir og allir eigi að finna eitthvað við sitt hæfi. „Við
bjóðum fjölbreytt úrval af allra handa fatnaði, bæði á dömur og herra og þeir sem koma við og skoða ættu að geta skartað sínu fegursta yfir björtustu mánuði ársins,“ segir hún. Sumarið sé einmitt tíminn til að klæðast líflegum og litríkum fatnaði. Fölbleikt, útsaumuð blóm og rifnar gallarbuxur Gallabuxur eru ávallt góður og þægilegur klæðnaður og um þessar mundir er mikið úrval í boði í Imperial. Úrvalið hefur aukist undanfarið að sögn Önnu Freyju, skalinn hefur verið breikkaður og eru nú til í versluninni stærðir frá númer
Anna Freyja Guðmundsdóttir verslunarstjóri í Imperial segir að sífellt sé verið að leita leiða til að bæta þjónustu við bæjarbúa. Nú á komandi hausti Myndir: Auðunn Níelsson verður skóbúð bætt við þann rekstur sem fyrir er.
Gardínur - frábært úrval
34 og upp í 48. Gallajakkar eru einnig til í ýmsum stærðum og gerðum, bæði stuttir og síðir. Þá er áberandi í sumar að mikið er um rifinn fatnað, gallabuxur, jakka, peysur og boli. Eins er mikið um útsaumuð blóm á gallafatnaði, jökkum og buxum. Föl bleikur litur virðist einnig ætla að slá í gegn sumarið 2017, mikið er til að mynda um jakka í þeim lit. „Við leggjum mikla áherslu á að veita góða þjónustu og gott verð, við höfum undanfarið verið að
lækka verðið, sem okkar viðskiptavinir kunna vel að meta. Við hjá Imperial erum alltaf á vaktinni og höfum að leiðarljósi að bæta þjónustuna við bæjarbúa og gesti þeirra. Snemma í haust ætlum við því að opna skóbúð sem staðsett verður í rými við hlið verslunarinnar. Þar verðum við með skó í úrvali fyrir alla, dömur, herra og börn. Eins verðum við með netverslun fyrir þá sem kjósa að nýta sér þann kost,“ segir Anna Freyja.
Púðar og gjafavara í úrvali
HEILSURÚM Íslenskt hugvit og hönnun
Sængur - Koddar - Sængurver - Rúmteppi
Vefnaðarvara
Hofsbót 4 . Akureyri
Gallabuxur eru áberandi í sumartískunni og af gallafatnaði hverskonar er mikið úrval í verslun Imperial.
AKUREYRI // sumar 2017 | 35
30%
ALLAR SKÓLATÖSKUR!
VILDARAFSLÁTTUR
Skólataska - Fótbolti VILDARVERÐ: 13.649.Verð: 19.499.-
Skólataska - Bionicle VILDARVERÐ: 13.999.Verð: 19.999.-
Skólataska - Blómaveisla VILDARVERÐ: 13.999.Verð: 19.999.-
Skólataska - Hvolpakrútt VILDARVERÐ: 13.649.Verð: 19.499.-
Skólataska - Bleikur Trolls VILDARVERÐ: 13.999.Verð: 19.999.-
Skólataska - Frozen VILDARVERÐ: 9.799.Verð: 13.999.-
Skólataska - Freestyle VILDARVERÐ: 6.999.Verð: 9.999.-
3v0ilda% rafsláttur
Skólataska - Trolls VILDARVERÐ: 13.999.Verð: 19.999.-
Skólataska - Körfuknöttur VILDARVERÐ: 9.799.Verð: 13.999.-
Skólataska - Prinsessa VILDARVERÐ: 9.799.Verð: 13.999.-
Austurstræti 18
Álfabakka 16, Mjódd
Hafnarfirði - Strandgötu 31
Ísafirði - Hafnarstræti 2
Skólavörðustíg 11
Kringlunni norður
Keflavík - Sólvallagötu 2
Vestmannaeyjum - Bárustíg 2
Laugavegi 77
Kringlunni suður
Akureyri - Hafnarstræti 91-93
Húsavík - Garðarsbraut 9
Hallarmúla 4
Smáralind
Akranesi - Dalbraut 1
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
KOMDU OG GERÐU FRÁBÆR KAUP FYRIR NÝTT SKÓLAÁR!!
540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is
Vöruúrval mismunandi eftir verslunum. Gildistími vildarverða er frá 6. júli til og með 11. júlí eða meðan birgðir endast. Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur og myndabrengl.
36 | AKUREYRI // sumar 2017
Sjálfbærni og nýjar neysluvenjur
Lindex opnar netverslun á Íslandi Það er í nógu að snúast hjá Lin dex um þessar mundir en verið er að vinna að opnun tveggja nýrra verslana; í Reykjanesbæ og á net inu. „Vefsíðan opnar nú í haust á lindex.is en vörurnar verða af hentar beint úr nýju vöruhúsi Lindex sem mun tryggja að af hendingartími verður með stysta móti,“ segir Albert Þór Magnús son, sem á og rekur Lindex á Ís landi ásamt konu sinni, Lóu Dag björtu Kristjánsdóttur. „Með þessu móti komum við bæði til móts við nýjar neysluvenjur Ís lendinga og aukum þjónustu, m.a. við landsbyggðina.“
Fagna samkeppni á fatamarkaði Í sumar opnar H&M á Íslandi og hafa margir spáð breytingum á markaði í kjölfarið. Albert Þór segir Lindex þó ekki uggandi um stöðu sína. „Við fögnum aukinni samkeppni, hún heldur okkur á tánum og hvetur okkur til að gera enn betur. Lindex hefur starfað við hlið þeirra í Svíþjóð í rúm 60 ár og raunin er sú að viðskiptavinahópurinn er að mörgu leyti ekki sá sami. Lindex hefur stækkað mun hægar, m.a. til að halda í þau grunngildi sem fyrirtækið setti sér í upphafi, ekki síst á sviði samfélagslegrar ábyrgðar. Við höfum fyllstu trú á því að við höfum byggt upp
Forstjóri Lindex, Ingvar Larsson, heimsótti verslunina á Akureyri á dögunum. Á myndinni eru frá vinstri Eva Þórar insdóttir, Johan Isacson, Anna Árnadóttir, Ingvar Larson, Guðrún Arndís Aradóttir og Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir.
traustan viðskiptavinahóp á Íslandi sem kann að meta vörurnar okkar og lætur sig varða fyrir hvað fyrirtækið Lindex stendur.“ Sjálfbærni, gæði og hagkvæmt verð „Sjálfbærni og samfélagsleg ábyrgð er okkur hjá Lindex mikið hjartans mál og það kemur fram í hverju skrefi - allt frá því að varan er upphaflega hönnuð þar til varan er endurunninn eftir notkun. Við leggjum mikla áherslu á hagkvæmt verð og góð gæði en erum um leið meðvituð um þau áhrif sem við höfum á umhverfi okkar og leggjum okkur fram við að sjá til þess að komið sé fram við þá sem framleiða vörurnar okkar af réttlæti og virðingu. Okkar markmið er að
vera eitt sjálfbærasta og ábyrgasta fyrirtækið á okkar sviði. Í þeirri viðleitni hafa m.a. verið sett markmið um að 100% af okkar bómull verði lífræn fyrir árið 2020 en nú þegar er hlutfallið 91% auk þess sem 80% af öllum vörum skulu framleidd með sjálfbærum hætti,“ segir Albert Þór og bendir einnig á að Lindex sé dyggur stuðningsaðili Bleiku slaufunnar og kynni nýja línu árlega til stuðnings þessu mikilvæga málefni. Þá hafa Lindex og viðskiptavinir þess staðið með UNICEF í baráttunni fyrir bættum hag barna í heiminum. „Babyshower“ fyrir bumbuhópa Albert Þór segir trausta viðskiptavini undirstöðu hvers fyrirtækis en viðskiptavinum Lindex gefst kostur
á að ganga í Viðskiptamannaklúbb sem stofnaður var í fyrra. „Með því að ganga í hann fá viðskiptavinir 20% upphafsafslátt og safna auk þess punktum við hver kaup sem breytast svo í inneign. Þá njóta þeir ýmissa fríðinda, tilboða og fleira. More kvöldin okkar hafa einnig notið vinsælda en þá opnum við sérstaklega fyrir vildarvini og hópa að kvöldi til, bjóðum upp á stílistaþjónustu og mælingu og höfum tilboð á vörum. Í haust munum við einnig bjóða upp á „babys hower“ fyrir bumbuhópa og leysa allar mömmur út með veglegri gjöf!“ lindex.is
Velkomin á Glerártorg
Verslunarmiðstöðin Glerártorg.
Glerártorg er stærsta verslunarmiðstöð utan höfuðborgarsvæðisins með yfir 34 fjölbreyttar verslanir, veitingastaði og þjónustuaðila. Þar finnur þú fjölbreyttar vöruval fyrir heimilið, svo sem fatnað, matvöru, apótek, veitingarstaði og kaffihús. Gjafakort Glerártorgs eru tilvalin gjöf við öll tækifæri en þau eru seld í versluninni Imperial. Þau eru rafræn og virka eins og de-
betkort nema að því leyti að um handhafakort er að ræða. Auðvelt er að skoða stöðu og færsluyfirlit kortanna á heimasíðu Glerártorgs. Láttu fara vel um þig í hlýju og notalegu umhverfi Glerártorgs en þar er alltaf nóg af bílastæðum! glerartorg.is
AKUREYRI // sumar 2017 | 37
38 | AKUREYRI // sumar 2017
Jóhann Björn Jónasson verslunarstjóri segir að hjá Tengi séu einungis seldar vörur sem menn viti að hægt er að treysta.
Tímamót hjá Tengi á Norðurlandi Tengi er sérverslun sem hefur um árabil verið meðal leiðandi fyrir tækja hér á landi í innflutningi og sölu á hreinlætistækjum og pípu lagningarvörum. Tengi er fjöl skyldufyrirtæki, stofnað 1981 og er með höfuðstöðvar og rúmgóða verslun við Smiðjuveg í Kópavogi en frá árinu 2007 hefur fyrirtækið einnig rekið verslun við Baldurs nes 6 á Akureyri. Það eru því ákveðin tímamót hjá Tengi á Ak ureyri í ár þegar verslunin fagnar 10 ára afmæli. Jóhann Björn Jónasson verslunarstjóri hjá Tengi á Akureyri segir
mikinn uppgang í byggingariðnaði á Norðurlandi eins og víðar um land og að hjá þeim hafi verið mikið að gera undanfarið. Mikil uppbygging hafi verið í kringum ferðaþjónustuna en einnig hafi verið góður gangur í íbúðabyggingum á Akureyri. „Framkvæmdir í Kjarnagötu eru að klárast og þá tekur Hagahverfið við. Við erum inni í þessu öllu saman meira og minna,“ segir Jóhann. Tengi er með rúmgóðan sýningarsal í versluninni í Baldursnesi þar sem hann segir fólk fá mjög góða yfirsýn yfir þær vörur sem verslunin hefur á boð-
Velkomin til Hríseyjar! Hús Hákarla Jörundar Opið alla daga 1. júní – 31. ágúst frá kl. 13:00-17:00
Í þessu elsta húsi Hríseyjar er búið að koma upp vísi að sýningu sem tengist hákarlaveiðum og sögu eyjarinnar Þar er einnig hægt að nálgast upplýsingar um eyjuna og hvað hún hefur upp á að bjóða.
Allar nánari upplýsingar á hrisey@hrisey.is og í síma 695-0077 - Heimasíða www.hrisey.is
Verslun Tengis á Akureyri hefur verið starfrækt í 10 ár.
stólum. „Hingað eru allir velkomnir, hvort sem það eru fagmenn eða hinn almenni viðskiptavinur sem er að leita að blöndunareða hreinlætistækjum eða öðru sem hann kann að þurfa fyrir baðherbergið eða eldhúsið, en við erum líka með sérstaka lagnadeild þar sem píparar og aðrir fagmenn versla.“ Áhersla á gæði og þjónustu Jóhann segir Tengi leggja höfuðáherslu á gæði, ábyrgð og góða þjónustu við þær vörur sem þeir selja. Þannig selji þeir til dæmis
þekkt blöndunartæki sem komin sé mikil reynsla á frá Mora, Hansa og Vola og sturtuhurðir og salerni frá IFÖ og Intra stálvaska, svo fátt eitt sé nefnt. „Allt eru þetta klassískar vörur sem hafa reynst það vel að við erum enn að selja þær eftir 10 ár hér á Akureyri.“ Jóhann segir talsverða samkeppni í þessari grein og helstu samkeppnisaðilarnir séu stórverslanir Byko og Húsasmiðjunnar. Hann segist ekki verða var við annað en almenna ánægju með verslun Tengis á Akureyri, bæði hinn rúmgóða sýningarsal en einnig fái
þjónusta þeirra mjög góða dóma. Hann segir talsvert um að viðskiptavinir þeirra skoði úrvalið á ferðum sínum til höfuðborgarinnar en komi svo heim og gangi frá kaupunum hjá þeim. „Við fylgjumst vel með nýjungum og fólk veit að við tökum ekki annað inn í okkar verslun en það sem við vitum að hægt er að treysta,“ segir Jóhann Björn Jónasson verslunarstjóri Tengis á Akureyri. tengi.is
AKUREYRI // sumar 2017 | 39
I
r u k s n Ísle uni uppr
I
r a n æ v s i f r e v h Um úðir umb
a r a v a Gæð
I
I I a k s n men
I
r u k s n e l ð Nor skleiki fer
Fag
Go
d l ö v tt k
40 | AKUREYRI // sumar 2017
Kexsmiðjan í sumarskapi
Ómissandi í nestispokann Á sumrin leggja Íslendingar gjarn an land undir fót, grafa tjaldið og svefnpokana upp úr geymslunni og halda á vit ævintýranna. Þá er ekki úr vegi að grípa með sér í ferðalagið þægilegar matvörur á borð við kex og snúða sem gleðja alla í fjölskyldunni og krefjast lág marks fyrirhafnar. „Við finnum fyrir mikilli aukningu í sölu á okkar vörum á sumrin, hvort sem um kex, möffins, snúða eða veganesti að ræða,“ segir Ingólfur Gíslason, verksmiðjustjóri hjá Kexsmiðjunni á Akureyri. „Slíkur matur er sérlega hentugur á ferðalögum og þegar fólk vill gera vel við sig. Þá er gjarnan söluaukning í minni verslunum úti á landi.“ Hollar vörur í bland við sætabrauð Kexsmiðjan var stofnuð um mitt ár 1996 á Akureyri. Í fyrstu einskorðaðist framleiðslan við kex og smákökur en ekki leið á löngu þar til ýmsar tegundir af kaffibrauði bættust við, snúðar, muffins, vínarbrauð og fleira. Ingólfur segir stöðuga vöruþróun eiga sér stað hjá fyrirtækinu en Kexsmiðjan hefur verið leiðandi í að mæta þörfum neytenda varðandi hentugar smásölueiningar. „Að undanförnu hefur þróunin verið að færast yfir á hollustulínuna en við leggjum auðvitað áherslu á fjölbreytt úrval. Eitthvað fyrir alla. Sem dæmi um hollari vörur er Hrökkbitinn, sem er nýjasta varan í hollustulínunni. Hann er trefjaríkur, með miklu af fræjum, engu hvítu hveiti og engum viðbættum sykri. Hann hentar vel í millimál en er líka mjög góður með ostum og öðru slíku.“
Þá bendir Ingólfur ferðalöngum jafnframt á Veganesti, klatta sem hægt er að fá bæði með súkkulaði en einnig með höfrum. „Veganestið er mjög vinsælt á sumrin og þægilegt að grípa með í nestið.“ kexsmidjan.is
Ingólfur Gíslason segir vörulínu Kexsmiðjunnar fjölbreytta og allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi.
Góð aðsókn í húsdýragarðinn í Brúnagerði í Fnjóskadal „Ég held að það sé óhætt að segja að þetta hafi farið vel af stað. Á fyrstu viku húsdýragarðsins feng um við 500 heimsóknir sem er umfram björtustu vonir,“ segir Guðbergur Egill Egilsson sem ásamt konu sinni Birnu Friðriks dóttur hefur opnað húsdýragarð inn Daladýrð á bænum Brúna gerði í Fnjóskadal. Daladýrð er miðja vegu milli Vaglaskógar og Illugastaða sem Guðbergur segir hjarta ferðaþjónustunnar fyrir Íslendinga á ferð um Norðurland. „Hér í dalnum á leiðinni til okkar innan við þjóðveg eitt eru um 200 sumarbústaðir og fyrirhuguð er bygging 100 bústaða til viðbótar á næstu jörð auk áforma um að fjölga bústöðum á Illugastöðum úr 30 í 60. Vinsæl tjaldstæði eru bæði í Systragili og Vaglaskógi og einnig erum við Hvað er betra en að knúsa mjúkan og fallegan kanínuunga í húsdýragarðinum Daladýrð í Fnjóskadal?
Húsdýragarðurinn Daladýrð er á bænum Brúnagerði í Fnjóskadal, miðja vegu milli Vaglaskógar og Illuga staðar.
stutt frá Akureyri. Þetta er einstaklega gott bakland fyrir húsdýragarð því hér er mikið um ferðamenn á sumrin og það vantar alltaf afþreyingu fyrir fólk á öllum aldri.“ Ferhyrndur hrútur og bréfdúfan Dóra landkönnuður Guðbergur segir að í garðinum gefist fólki tækifæri til að kynnast íslensku húsdýrunum, svínum, nautgripum, hestum, geitum með kiðlinga og kindum með lömb auk þriggja hrúta, einum kollóttum, öðrum hyrndum og þeim þriðja ferhyrndum. Þá eru þarna kanínur, hundar og fimm tegundir hænsnfugla, auk bréfadúfunnar Dóru
Svínin í Daladýrð spóka sig í góða veðrinu í Fnjóskadal.
landkönnuðar sem villtist til þeirra sunnan frá Eyrarbakka. Guðbergur segir að enn sé að bætast í hópinn. Nú síðast var hringt í þau frá lögreglunni á Dalvík sem spurði hvort þau gætu ekki tekið að sér hrafn sem var í þeirra vörslu ófleygur eftir að hafa lent í kattarklóm. „Nú er krummi kominn hingað til okkar ósköp villtur og hræddur greyið og við munum þurfa dálítinn tíma til að venja hann við áður en við sendum hann út í ferðaþjónustuna.“ Hönnunarvörur frá Gjósku Birna kona Guðbergs er textílhönnuður sem hefur hannað fjöl-
breytta línu fata og fylgihluta undir nafninu Gjóska. Vörurnar eru framleiddar og seldar í opinni vinnustofu í Brúnagerði en einnig í versluninni Gjósku sem þau reka við Skólavörðustíg 20 í Reykjavík. Með heimsókn í Daladýrð í Fnjóskadal er því hægt að slá tvær flugur í einu höggi, skoða íslensku húsdýrin og kynnast fjölbreyttri framleiðslu þessa framsækna fyrirtækis og jafnvel að kaupa sér flík á staðnum. Nánari upplýsingar um hönnunarvörur Birnu er að finna á gjoska.is þar sem hægt er að kaupa vörurnar í gegnum póstverslun.
AKUREYRI // sumar 2017 | 41
GLASSLINE Unidrain® er þekkt um heim allan fyrir gólfniðurföll sem hafa breytt hugmyndum okkar hvar og hvernig niðurföllum er komið fyrir. Uppsetning á GlassLine (sambyggt niðurfall og sturtuhlið) frá unidrain® byggir á sömu grundvallarhugmyndum og er örugg lausn með sérstaklega fallegum frágangi.
www.unidrain.dk
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi
• Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri
Opið virka daga frá 8-18 • www.tengi.is • tengi@tengi.is
• Sími 414 1050
42 | AKUREYRI // sumar 2017
Akureyringurinn Einar Eyland stundar fjölbreytta útivist árið um kring
Akureyri er paradís fyrir útivistarfólk
Einar Eyland gengur mikið á hjólaskíðum yfir sumartímann. „Stærsti þátturinn er að vera úti í náttúrunni,” segir hann um útivistaráhugann.
„Við búum í einstakri paradís til útivistar hér á Akureyri. Við höfum Hlíðarfjallið á veturna til skíðaiðkunar, Kjarnaskóg með miklum fjölda leiða bæði fyrir gönguskíði á veturna, gönguferðir, hlaup og hjólreiðar á öðrum tímum, Glerárdal, fjalllendið hér í kring, stíginn við Pollinn og þannig mætti lengi telja. Og það tekur mann örfáar mín útur að fara frá heimili eða vinnu á alla þessa staði til að njóta útivistar,“ segir Einar Eyland á Akureyri. Hann hefur stundað markvissa útivist og hreyfingu mörg undan farin ár, keppt í fjallahlaupum bæði hér lendis og erlendis sem og gönguskíða keppnum en gönguskíðin eru sú íþrótt sem hann segist viðurkenna að hafa fallið hvað mest fyrir. Og í vetur er stefnt á þátttöku í þeirri heimsþekktu Vasagöngu í Svíþjóð, 90 kílómetra göngu, sem verður sú áttunda í röð hjá Einari. Heillaðist af gönguskíðunum „Ég var mikið í íþróttum þegar ég var ungur maður hér á Akureyri, bæði í boltaíþróttum og á skíðum, en eins og gengur hjá mörgum kom tímabil þar sem maður var uppteknari við annað. Þegar ég varð fertugur tók ég þráðinn upp á ný, fór að stunda hlaup og hef síðustu sextán árin stundað útivist og hreyfingu nokkuð markvisst. Eftir nokkur maraþon fór ég að færa mig af malbikinu í fjallahlaup og hef síðan mikið æft í Kjarnaskógi. Ég ákvað líka að prófa Vasagönguna og má segja að þá hafi ég heillast af gönguskíðunum. Það er holl alhliða íþrótt sem hægt er að stunda hér á Akureyri stóran hluta úr árinu. Ég get verið kominn frá skrifborðinu í vinnunni upp í fjall á skíði á fáum mínútum og skrepp oft upp í fjall á kvöldin. Mér finnst það miklu betra en vera heima í sófanum fyrir framan sjónvarpið með fjarstýringuna,“ segir Einar og brosir. Ætlaði aldrei aftur í Vasagönguna Þátttakendur í Vasagöngunni eru 15.800 á hverju ári og alltaf nokkur hópur Íslendinga sem tekur þátt. Einar segist hafa heitið því eftir fyrstu gönguna að gera þetta aldrei aftur. En það viðhorf breyttist hratt. „Ég var í fínu hlaupaformi – það vantaði ekki. Hins vegar var ég ekki í formi fyrir þessar miklu ýtingar með höndunum sem eru í skíðagöngunni og þurfti að leggja mikla áherslu á efri hluta líkamans. Þó ég hafi verið ákveðinn í að láta þessa fyrstu göngu verða
Feðgarnir Einar og Gísli Eyland koma glaðbeittir í mark í hálendishlaupinu Fire&Ice. Enda full ástæða til að gleðjast þegar 250 kílómetrar eru að baki!
þá einu þá fór mig fljótt að langa aftur og byrjaði fljótlega að undirbúa hana. Það er mikil upplifun að taka þátt í þessum viðburði og maður sér þarna þátttakendur sem komnir eru langt yfir 70 en samt í toppformi,“ segir Einar og mælir með gönguskíðaíþróttinni fyrir þá sem vilja skemmtilega útivist og góða hreyfingu. Hann segir þó mjög mikilvægt að halda fjölbreytni í æfingum og reglubundinni útivist. „Já, hún skiptir miklu máli. Það er misjafnt hvað ég geri þann og þann daginn en ég reyni að æfa sex daga vikunnar og þá er breytilegt hvað ég tek mér fyrir hendur; skíðaganga, hlaup, hjólaskíði hér á stígnum við Pollinn, sund eða hjólreiðar. Laugardagarnir eru alveg heilagir því þá fer ég alltaf á fætur kl. 7 og er kominn út kl. 8. Tek þá mjög langa æfingu, oftast skíðagöngu á veturna. Að sama skapi er alltaf frí á mánudögum en að öðru leyti er ég ekki með mjög fastákveðna rútínu í æfingum nema ég sé að undirbúa þátttöku í mótum.“
Maraþon á dag Einar hefur síðustu ár tekið þátt í fjallahlaupinu Fire&Ice sem er 250 kílómetra hlaup á sex dögum á hálendi Íslands og er haldið um mánaðamótin ágúst/september. Hann segist finna vel í því hlaupi hversu góð grunnþjálfun skíðagangan sé. „Í þessu hlaupi eru þátttakendur með allt með sér í bakpoka; svefnbúnað, föt og mat og þarna fær maður enn nýja útgáfu af upplifun af landinu,“ segir Einar. Nú í vor tók Einar ásamt syni sínum, Gísla, þátt í nýju fjallahlaupi í Nepal þar sem hlaupnir voru 220 kílómetrar á sex dögum. „Þetta var mjög skemmtilegt, ekki síst vegna þess að þarna gistum við hjá bændum og sums staðar vorum við á moldargólfi og sváfum á bambus. Ég hafði svolítið á tilfinningunni að maður væri kominn 150 ár aftur í tímann því þarna voru engir vegir og bændurnir lifðu á sínum litlu landskikum. Hæst fórum við í um 4000 metra hæð á þröngum stígum og þarna var hitabylgja og skrýtið að vera í þessari miklu hæð í yfir 20 stiga hita.“
Aðalatriðið að vera úti í náttúrunni Einar segist þakklátur fyrir að geta stundað sína útivist laus við meiðsli og hafa færi á að taka þátt í skemmtilegum viðburðum á borð við fjallahlaupin og Vasa. „Stærsti þátturinn er að vera úti í náttúrunni og mér finnst líka gaman að skipuleggja mig og undirbúa fyrir þessa viðburði. Þetta snýst ekki bara um líkamlegt form heldur líka andlegu hliðina,“ segir hann og þekkir af eigin reynslu að hlutirnir geta breyst skyndilega því sumarið 2014 lenti hann í mótorhjólaslysi og braut þá bæði rifbein og hendur. „Þá var ég viss um að ég kæmist ekki í Vasa veturinn eftir en það tókst samt sem áður og í dag finn ég ekkert fyrir þeim meiðslum sem ég varð þarna fyrir. Ég er þakklátur fyrir það og finnst forréttindi að búa á stað eins og Akureyri þar sem okkur almennum borgum gefast jafn mikil tækifæri til að stunda útivist og hreyfingu. Það eru lífsgæði.“
AKUREYRI // sumar 2017 | 43
Svíf þú inn í svefninn Svíf þú inn...íírúmi svefninn frá okkur! ...í rúmi frá okkur!
RÚM RÚM
Rúm, springdýnur, sængurver, púðar, rúmteppi & gjafavara! Rúm, springdýnur, sængurver, …við erum með þetta allt og meira til! púðar, rúmteppi & gjafavara! …við erum með þetta allt og meira til!
Við vorum að taka upp nýja sendingu af ilmstrám og Við vorum að upp nýja ilmkertum frátaka Mysenso. sendingu af ilmstrám og ilmkertum frá Mysenso.
44 | AKUREYRI // sumar 2017
Hátíð trésins
Handverkshátíð í aldarfjórðung Í ár verður Handverkshátíðin við Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit haldin í 25. skiptið og verður hún vegleg að vanda. „Undirbúningur er langt kominn og dagskráin að komast á hreint. Í ár munum við gera okkar ástkæra tré hátt undir höfði og höldum hátíð trésins. Aðalgesturinn í ár verður sænskur tréskurðarmeistari, Knut Östgård sem segja má að sé ein skærasta stjarnan þegar kemur að tréútskurði,“ segir Katrín Káradóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar
sem haldin verður 10.-13. ágúst. „Knut er okkur að góðu kunnur en hann hefur útvegað Handverkshátíðinni sérfræðinga í þjóðlegu norrænu handverki í allmörg ár auk þess að koma sjálfur,“ segir Katrín og bendir á að í Svíþjóð sé aldagömul tréskurðarhefð í hávegi höfð, fólk læri af ömmum og öfum sem hafi einnig lært af ömmum og öfum sínum. Unnið úr heilu birkitré Á hátíðinni verður einstök farandsýning sem kallast „Úr birki“ en í
Knut Östgård við útskurðinn en margir bíða spenntir eftir námskeiði hans.
tengslum við hana heldur Knut fyrirlestur og námskeið. Að sýningunni standa 22 handverksmenn og -konur sem skiptu á milli sín heilu birkitré og fengu það hlutverk að nýta allt efnið með frjálsum huga og höndum. „Verkefnið að vinna muni úr heilu birki hefur mig lengi dreymt um að framkvæma,“ segir Knut. „Nú hefur það orðið að veruleika. Við vorum 6 mánuði að vinna alla þessa muni en þess utan höfum við tekið allan spóninn og efnið sem ekki urðu að munum.“ Þarna verður jafnframt sýnt fram á
verðmætaaukningu þess að fullnýta viðinn í stað þess að hakka hann bara niður í eldivið eða sag. Lífleg og skemmtileg hátíð „Hátíðin er að venju fjölbreytt en hér er bæði fólk að sýna vinnu sína og afrakstur hennar og haldin verða skemmtileg námskeið og smiðjur. Þá verður skemmtileg dagskrá á hverjum degi, fyrir börn og fullorðna. Hér er handverkinu gert hátt undir höfði en námskeið og smiðjur eru ríkur þáttur í því að viðhalda fallegu handverki. Við
Björkin nýtist til ýmissa hluta, til dæmis til að sóla þessi fallegu rauðu stígvél.
Þú færð
Falleg taska eða ílát úr birki.
höfum séð fólk koma á námskeið og heillast svo af handverkinu að það hefur uppgötvað nýja ástríðu og lífsviðurværi,“ segir Katrín og bætir við að urmull sé af hæfileikaríku handverksfólki í nærsveitum og reyndar á landinu öllu. Hún bendir áhugasömum jafnframt á að enn sé hægt að leigja sölubás á handverksmarkaðnum sem er jafnframt sýningunni en hver fari þó að verða síðastur. Handverkshátíðin fær á bilinu 15-20.000 heimsóknir gesta og því tilvalið að kynna sig á þeim vettvangi. „Handverkshátíðin er jafnframt einstakt verkefni því að henni standa öll félög í sveitinni sem njóta ágóðans. Þarna vinna allir saman að því að gera eftirminnilega og skemmtilega hátíð fyrir unga sem aldna.“ handverkshatid.is
Janus
ullarfatnaðinn hjá okkur
Skoðaðu úrvalið og verðin á www.ullarkistan.is
www.ullarkistan.is Reykjavík & Akureyri
A4 (þjófur - no bleed)
AKUREYRI // sumar 2017 | 45
Þetta er ekkert venjulegt beikon þetta er íslenskt LAMBABEIKON - eitthvað sem þú verður að smakka
Við mælum með að þú eldir lambabeikonið þannig að það verði stökkt. Það er hægt að gera á grillinu í ofninum eða á pönnunni.
Kjarnafæði leggur höfuðáherslu á gæðamál, með virðingu við menn og umhverfi að leiðarljósi. Því er markvisst unnið að vöruþróun á hreinum vörum án óþolsvalda, viðbætts sykurs og aukefna. Kjötiðnaðarmeistarar Kjarnafæðis hafa hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir færni sína ásamt því að fyrirtækið getur státað af margskonar gæðavottunum, bæði innlendum og erlendum.
Kjarnafæði hf. Svalbarðseyri 601 Akureyri Sími 460 7400 kjarnafaedi.is
46 | AKUREYRI // sumar 2017
Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni
I C E L A N D I C B U S C O M PA N Y HJALTEYRARGÖTU 10 • 600 AKUREYRI • Fax: 5 500 701 HJALLAHRAUNI 2 • 220 HAFNARFIRÐI Sími: 5 500 770 • Fax: 5 500 771 sba@sba.is • www.sba.is
Sími: 5 500 700
AKUREYRI // sumar 2017 | 47
Kaffi Kú í Eyjafirði opið allt árið
Akureyringar okkar aðalkúnnar og töluvert rennirí alla daga Eigendur kaffihússins Kaffi Kú á fjósloftinu í Garði í Eyjafjarðar sveit, sem ákváðu í fyrra að hafa staðinn opinn allt árið, segja reksturinn hafa gengið bærilega enn sem komið er. Þeir eru þó hálf uggandi út af minni umferð ferðamanna á landsbyggðinni en treysta á að aðdráttarafl Akureyrar eigi eftir að skila góðu sumri í ferðaþjónustunni nyrðra. Kaffi Kú á fjósloftinu í Garði hefur verið starfrækt í á sjötta ár en staðurinn hefur þá sérstöðu meðal íslenskra kaffihúsa að þar geta gestir fylgst með lífinu í fjósinu og notið útsýnis yfir Eyjafjörðinn á meðan þeir njóta veitinganna. Fyrir rúmu ári réðust eigendur Kaffi Kú, hjónin Einar Aðalsteinsson og Sesselja Barðdal, í umfangsmiklar endurbætur á staðnum og á sama tíma var ákveðið að hafa staðinn opinn allt árið um kring. „Þetta hefur nú bara komið ágætlega út þegar á heildina er litið,“ segir Einar, inntur eftir því hvernig reksturinn hafi gengið eftir þessar breytingar. „Við ákváðum að láta reyna á þetta og stækka staðinn til að mæta auknum gestafjölda og það hefur bara gengið bærilega enn sem komið er. Aukningin á milli ára er um 20%, líkt og verið hefur undanfarin ár og bara töluvert rennirí alla daga.“ Nýta eigin afurðir í réttina Kaffi Kú er fyrst og fremst kaffihús þar sem íslensku vöfflurnar eru vinsælastar enda búnar til frá grunni og bakaðar á staðnum þar sem mjólkin af býlinu spilar stórt hlutverk. „Svo höfum við líka alltaf horft á það sem við erum að gera sem ákveðna afþreyingu og fræðslu, ég reyni að leggja mig fram við það að svara spurningum fólks og undirbý starfsfólkið líka, því það er jú upprunalega hugmyndin með staðnum að sýna fólki hvernig mjólkurframleiðslan er orðin og hefur þróast undanfarin ár.“
Kaffi Kú er í Garði Eyjafjarðarsveit, skammt frá Akureyri.
Beygla með roast beef.
Það er skemmtilegt að geta sest niður á Kaffi Kú, notið góðra veitinga og fylgst með kúnum í fjósinu.
Ein af breytingum síðasta sumars var að opna lítið eldhús á staðnum og spilar nautakjötið af býlinu þar stærsta hlutverkið. Á matseðlinum má meðal annars finna hamborgara, gúllassúpu, roast beef beyglur og ýmislegt fleira. „Við erum ekkert að gera flókna hluti í eldhúsinu fyrst og fremst erum við að nýta okkar eigið hráefni, mjólkina í baksturinn og svo nautakjötið í réttina og til að vera í takti við það búum við líka til mikið af meðlætinu, t.d sinnep á beygluna, pestó á pestóborgarann, gráðostafrauð og bláberjagrillsósu á einn af hamborgar-
anum okkar, súrar gúrkur og ýmislegt fleira.“ Umfangsmikil nautakjötsframleiðsla er í Garði og hafa bændurnir þar byggt upp sína eigin kjötvinnslu og einnig netverslunina nautakjot.is, þar sem fólk getur keypt nautakjöt milliliðalaust. Mikil spurn er eftir nautakjötinu frá Garði og stöðug aukning í sölunni. „Akureyringar eru okkar aðalkúnnar og taka með sér sína gesti hingað til okkar og þannig hefur starfsemin hjá okkar spurst út, bæði veitingareksturinn og kjötsalan. Hér getur fólk fengið sér eitt-
hvað gott í gogginn og keypt kjöt í leiðinni því við erum alltaf með tilbúnar pakkningar hér. Einnig er hægt að panta á netinu og í boði eru nokkrar útfærslur í magni og vinnslu, en öllu kjötinu er pakkað og það tilbúið í kistuna,“ segir Einar og bætir við að pantanir á Eyjafjarðarsvæðinu séu keyrðar heim til viðskiptavina en póstsendar til viðskiptavina sem fjær búa. Hálf uggandi út af minni umferð ferðamanna Þó heimamarkaðurinn á Akureyri og í Eyjafirði sé kjölfestan í rekstrinum á Kaffi Kú eru Einar og Sess-
elja hálf uggandi út af minni umferð ferðamanna á landsbyggðinni, eins og fleiri. „Mér finnst eins og ferðamannastraumurinn sé seinni í gang í sumar en verið hefur undanfarin sumur en við treystum því að það mikla aðdráttarafl sem Akureyri hefur alltaf haft, bæði fyrir innlenda og erlenda ferðalanga, eigi eftir að skila okkur góðu sumri,“ segir Einar. Inntur eftir því hvort veðrið spili þarna inn í telur hann svo ekki vera. „Við höfum fengið misgóð sumur undanfarin ár en það var ekki að setja strik í reikninginn hjá okkur. Það gæti hins vegar haft áhrif ef landinn er í auknum mæli að fara til útlanda í sumar en það er samt ótrúlega drjúgt hversu margir leggja leið sína hingað til Akureyrar,“ segir Einar en innlendir gestir hafa verið í meirihluta frá því Kaffi Kú tók til starfa og eru það enn. Erlendum gestum hefur einnig farið fjölgandi, þó svo lítið hafi verið gert til að ýta undir heimsóknir þeirra. „Það fer ekki heldur fram hjá okkur að þeir erlendu gestir sem eru að koma núna eru ekkert að spreða og eru greinilega mjög aðhaldssamir varðandi það sem þeir kaupa. Þeir eru hins vegar mjög áhugasamir og ánægðir með það sem við erum að bjóða upp á, mat beint frá býli og þeir sýna dýrunum mikinn áhuga. Sértaklega hef ég gaman af þeim gestum sem vilja varla koma inn í fyrstu en eru svo alveg uppnumdir yfir því að geta séð kýrnar og kálfana og hvernig allt gengur fyrir sig í fjósinu hjá okkur,“ segir Einar Aðalsteinsson, á veitingahúsinu Kaffi Kú, að lokum. kaffiku.is
48 | AKUREYRI // sumar 2017
Sportver á Glerártorgi með allt fyrir hjólreiðafólkið
Hjólreiðarnar aldrei verið vinsælli „Við erum að fylgja eftir mikilli uppsveiflu sem er í hjólreiðum al mennt, auka úrvalið fyrir við skiptavini bæði í hjólunum sjálf um og aukabúnaði, jafnframt því að bjóða viðgerðaþjónustu á reið hjólum og sérhæfðar stillingar. Æ fleiri eru að uppgötva hjólreiðar sem íþrótt, samgöngumáta eða af þreyingu og hér á Akureyri höfum við fínar aðstæður til að stunda þær,“ segir Egill Einarsson í íþróttavöruversluninni Sportver á Glerártorgi. Þar eru seld reiðhjól frá hinum þekktu framleiðendum GT og Cube, merki sem bjóða breiða línu í hjólum, hvort heldur horft er á verð eða útfærslur. Hraðskreiðari götuhjól og fulldempuð hjól „Hjólreiðarnar hafa verið að þróast hratt á allra síðustu árum. Þeir sem stunda hjólreiðar mikið voru áður fyrst og fremst á svokölluðum fjallahjólum en núna er fólk meira að færa sig yfir í það sem á fagmálinu er gjarnan kallað „enduroad/ cyclocross“ hjól. Þarna er um að ræða hönnun sem að hluta er byggð á „racer“ hjólunum en dekkin hafa verið breikkuð og ásetunni breytt þannig að þú ert uppréttari á hjólinu. Á þessum hjólum fær fólk marga af kostum „racer“ hjól-
kjóll 5990
bolur 1490
„Hjólreiðarnar hafa verið að þróast hratt á síðustu árum,“ segir Egill Einarsson í Sportveri.
buxur 7990 skór 4990
buxur 7990
buxur 5990 skór 4990
buxur 5990 skór 4990
buxur 7990
bolur 2990
bolur 2990
bolur 1490 buxur 5990
buxur 5990
buxur 6990
AKUREYRI // sumar 2017 | 49
Stærsta N1 mótið í sögunni N1 mótið í fótbolta stendur yfir á svæði KA á Akureyri nú fyrstu helgina í júlí en þetta er stærsti íþróttaviðburður norðan heiða á hverju sumri. Á N1 mótinu keppir 5. flokkur drengja og er mótið í ár það stærsta í sögunni. Skráð eru 188 lið til þátttöku og verða leiknir 792 leikir á félagssvæði KA. Með öðrum orðum gerir það tæplega 23.800 mínútur af æsispennandi knattspyrnu Nýtt hjól gert klárt fyrir kaupanda. Í Sportveri er þjónustuver fyrir Shim ano gírskiptingar.
anna, þau eru léttari og komast mun hraðar yfir en fjallahjólin og fara alla venjulega malarvegi/stíga auðveldlega. Fulldempuð hjól hafa líka aukist í sölu vegna aukins áhuga á fjallaferðum og frábærrar brautar hjá HFA frá Hlíðarfjalli og alveg niður á flugvöll,“ segir Egill en ekki þarf að horfa lengi í kringum sig á götum Akureyrar og í nágrenninu til að sjá að einmitt þetta hefur gerst, þ.e. að stórir hópar fólks hafa algjörlega fallið fyrir hjólreiðum sem líkamsrækt og útivist. HFA hjólahópar, hjólastígar „Það er mjög öflugt starf hjá Hjólreiðafélagi Akureyrar og félagið hefur staðið fyrir gerð hjólastíga sem Akureyrarbær hefur stutt við. Mikið sjálfboðastarf hefur verið unnið meðal félagsmanna. Stígarnir eru hér fyrir ofan bæinn og er t.d. hægt að fara á góðum fjallahjólum frá skíðasvæðinu yfir í Fálkafell og allt niður að flugvelli. Þetta eru frábærar leiðir. Akureyrarbær og Hjólreiðafélagið eiga mikið hrós skilið fyrir framtakið,“ segir Egill. HFA er einnig með fjölbreytta hjólahópa fyrir alla og allar gerðir af hjólum. Upplýsingar er að finna á HFA.is Viðgerðaþjónusta og aukahlutasala Viðgerðaþjónusta og aukahlutasala eru mikilvægur hluti af þjónustu Sportvers við reiðhjólaeigendur og nefnir Egill sem dæmi fatnað, öryggisbúnað, töskur fyrir hjól, bílfestingar og þannig mætti áfram telja. „Viðgerðarverkstæðið okkar er þjónustuaðili viðurkenndur af Shimano framleiðandanum sem er sá stærsti í heimi þegar kemur að gírskiptingum fyrir reiðhjól. Bæði snýr þetta að viðgerðum á gírskiptingum og stillingum, sem er líka mjög mikilvægur þáttur,“ segir Egill. Reiðhjól eru í dag á mjög breiðu verðbili í Sportver og getur fólk fengið fín hjól til að byrja í sportinu frá um og yfir 70.000 þúsund krónum. sportver.is gthjol.is
og þarf ekki að efa að mörkunum mun rigna! Jafnframt þeim mikla fjölda keppenda sem tekur þátt í mótinu fylgja margir aðstandendur þeim á mótið, auk þjálfara og annarra starfsmanna liðanna. Þeir skipta því þúsundum gestir Akureyrar vegna N1 mótsins og eiga vafalítið skemmtilega fótboltadaga. fotbolti.ka.is/n1-motid
Tæplega 800 fótboltaleikir verð á N1 mótinu í ár.
50 | AKUREYRI // sumar 2017
Icelandair hotels á Akureyri
Sumarið fer vel af stað en veturinn verður áskorun Sigrún Björk Jakobsdóttir, hótelstjóri. Að baki henni í gestamóttöku Icelandairhótelsins er nýtt listaverk Aðalheiðar Eysteinsdóttur.
„Vorið og sumarið það sem af er hefur farið þokkalega af stað hjá okkur.Við finnum vel fyrir áhrif um sterkrar krónu og erlendir gestir leyfa sér minna. Veitinga staðurinn okkar, Aurora hefur
samt verið mjög vinsæll og við sjáum þar töluverða aukningu á milli ára,“ segir Sigrún Björk Jak obsdóttir hótelstjóri á Icelandair hotels á Akureyri.
mjög vinsæl hjá gestunum okkar og ég efast ekki um að nýja rennibrautin eigi eftir að draga til sín hótelgestina líka.“ Icelandair hotels á Akureyri varð 6 ára í júní mánuði og segir Sigrún árin hafa verið ótrúlega fljót að líða. „Það er einkenni á ferðaþjónustunni að það er aldrei dauður tími í þessum geira, alltaf nóg um að vera og þá er tíminn fljótur að líða,“ segir hún. Á liðnum vetri var gerð breyting á gestamóttöku og bar og nýtt listaverk eftir Aðalheiði Eysteinsdóttur var sett upp. Það sýnir konu liggjandi að lesa í bók, Svörtum fjöðrum eftir Akureyrarskáldið Davíð Stefánsson. Verk eftir Aðalheiði eru á öllum Icelandair hótelum. „Við höfum haft hér frá opnun Skíðamanninn og hann er alveg ómissandi hluti af almenna rýminu okkar. Verk Öllu eru mikið mynduð hjá okkur þannig að það var gaman að bæta við fígúru í safnið.“
Icelandair hotel á Akureyri.
Matreiðslumenn á Auroru hafa sett saman nýjan sumarseðil og hefur hann fengið glimrandi góðar viðtökur, ekki síst hjá heimafólki sem sækir staðinn í verulegum mæli. Í boði eru hádegisverðarkort á hagstæðu verði og er umferð gesta sífellt að aukast. Þykir gaman að hitta innfædda
Þá segir Sigrún að „Hamingjustundin“ njóti vinsælda, „og við sjáum alveg umfjöllun á Trip Advisor um að hér sé greinilega vinsælt að vera af heimafólki og ég held að gestir hótelsins séu almennt ánægðir með að hitta innfædda hér á barnum og á veitingastaðnum – nú eða þá í heita pottinum í sundlauginni en hún er
Kann ekki að vera svartsýn „Ég kann ekki að vera svartsýn þannig að sumarið leggst vel í mig. Ég geri ráð fyrir að komandi vetur verði nokkur áskorun, en bind miklar vonir við beina flugið á milli Akureyrar og Keflavíkur. Það fór vel af stað í vetur og ég vona að framhaldið verði gott og að ferðamenn muni nýta sér það að fá tækifæri til að kynnast norðurhluta Íslands,“ segir Sigrún Björk. icelandairhotels.is
17-0910-HVÍTA HÚSIÐ / SÍA
AKUREYRI // sumar 2017 | 51
Nærandi millimál … er létt mál Nú getur þú valið úr fjórum hreinum grunnum með bragðgóðum toppum: grísk jógúrt, kotasæla, grjónagrautur og skyr.
52 | AKUREYRI // sumar 2017
Verslun Jötuns á Lónsbakka
„Fáar verslanir með annað eins vöruúrval“
Frönsku Goes fjórhjólin sem Jötunn er umboðsaðili fyrir hafa slegið í gegn.
Aðalsteinn Ólafsson verslunarstjóri sestur í ekilssætið á einum af mörgum sláttutraktorum sem Jötunn selur. Mikið úrval er einnig af garðsláttuvélum, sláttuorfum og öðrum sumartengdum vörum í versluninni.
„Eftir því sem ég kynnist því bet ur með hverjum deginum sem líð ur hversu gríðarlegt vöruúrval er á verslunarsviði Jötuns þá finnst mér liggja æ beinna við að segja að þetta sé eins og gömlu kaup félagsverslanirnar. Hér fæst allt – nema matvaran,“ segir Aðalsteinn Ólafsson sem tók í mars síðast
liðnum við starfi verslunarstjóra Jötuns á Lónsbakka á Akureyri. Garðsláttuvélar í röðum Aðalsteinn starfaði um sjö ára skeið í Íslandsbanka á Akureyri og síðan hjá fyrirtækinu Cobolt á Akureyri áður en leiðin lá til Jötuns. Hann segir verslun Jötuns í sumarbún-
ingi þessa dagana og vöruúrvalið sífellt að aukast. „Garðsláttuvélar, sláttuorf og sláttutraktorar í ýmsum stærðum eru dæmi um sumarvörurnar hjá okkur og þar höfum við aukið verulega úrvalið frá í fyrra, bæði í stærðum og hvað verð snertir. Við erum líka með mikið úrval af Trek
reiðhjólum og vörum sem því sporti tengist, garðáhöld, áburð, vinnufatnað, leikföng, gæludýrafóður, varahluti, gróðurhús, rekstrarvörur fyrir bændur og þannig mætti lengi telja. Það státa ekki margar verslanir af viðlíka vöruúrvali og hér eiga allir að geta fundið vörur sem gagnast þeim að einhverju leyti,“ segir Aðalsteinn. Goes fjórhjólin hafa slegið í gegn Jötunn er öflugt þjónustufyrirtæki við landbúnaðinn og selur bændum allt frá daglegum rekstrarvörum á borð við hreinsiefni upp í stærstu gerðir af dráttarvélum og landbúnaðartækjum.
„Síðan erum við með vörumerki á borð við fjórhjólin frá Goes sem bæði eru eftirsótt af bændum í þeirra daglegu störfum og þeim hópi fólks sem velur fjórhjól til að ferðast um landið að sumri sem vetri. Þetta eru hjól sem hafa komið vel út hjá kaupendum hér á landi og henta okkar aðstæðum mjög vel. Þau afhendum við götuskráð þannig að héðan geta fjórhjólaunnendur ekið af planinu hvert sem hugurinn girnist,“ segir Aðalsteinn. jotunn.is
Spark dróni á kr. 69.900,Þú færð DJI hjá okkur
Skipagata 16 - Akureyri www.pedro.is
AKUREYRI // sumar 2017 | 53
NÝR CITROËN C3 Yfir 25 alþjóðleg verðlaun 7” snertiskjár með Mirror Link GSM tengingu Hlífðarklæðning á hliðum
C3 LIVE BEINSKIPTUR FRÁ
1.970.000 KR.
C3 FEEL SJÁLFSKIPTUR FRÁ 2.520.000 KR.
Vindar breytinga blása nú um fjölbreytta bílalínu Citroën. Við kynnum nýjan Citroën C3, einstakan í útliti með stóru 300 lítra skotti og fáanlegur með hinni bráðsnjöllu Airbump hliðarklæðningu sem verndar fyrir hurðarskellum. Citroën C3 er hljóðlátur, búinn nýjustu kynslóð sparneytinna véla og er fáanlegur með nýrri 6 þrepa undurþýðri sjálfskiptingu sem gerir hann frábærlega skemmtilegan og mjúkan í akstri. Apple Car Play og Mirror Link tæknin, sem er fáanleg í SHINE útfærsluna, gerir þér kleift að spegla helstu forrit farsímans eins og t.d Google Maps á 7“ snertiskjáinn. Komdu. Sýndu þig í Citroën.
citroen.is
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
C3_NÝR_Ongoing_Vikublaðið_Akureyri_5x39_20170619.indd 1
19/06/2017 10:38
54 | AKUREYRI // sumar 2017
Tónabúðin
Þráðlaus hljómtæki fyrir heimilin
Stærri útgáfan af Naim hljómtækinu hjá Tónabúðinni.
„Við áttum mjög gott afmælisár í fyrra þegar við héldum upp 50 ára afmæli Tónabúðarinnar. Við gerðum það með margvíslegum hætti með okkar viðskiptavinum, vorum með uppákomur af þessu tilefni, afmælistilboð og ýmislegt fleira. Það er búinn að vera tals verður uppgangur síðustu ár og mánuði. Eitt af því ánægjulegra sem við finnum núna er aukinn áhugi yngstu kynslóðarinnar á að spila á hljóðfæri og eignast hljóð færi. Það er frábær þróun, sérstak
lega í ljósi þess að tónmennta kennsla er lítil sem engin í flestum grunnskólum bæjarins. Við finn um líka að fólk hefur aðeins meiri auraráð en áður og mjög gott að sjá það birtast í auknum hljóð færaáhuga,“ segir Trausti Ingólfs son, verslunarstjóri Tónabúðar innar á Akureyri. Naim hljómar vel Tónabúðin hefur alla tíð verið sérhæfð í sölu á hljóðfærum og tilheyrandi aukabúnaði, auk sölu
Hljómgæðin eru ótrúleg í Naim tækjunum og er hlustun sögu ríkari!
stórra sem smárra hjóðkerfa. Í upphafi voru einnig seld hljómtæki til heimilisnota, en því var hætt um 1985. Nú er breyting á og hefur sala hljómtækja hafist á ný í Tónabúðinni. „Þar erum við mestmegnis með eitt vörumerki af hljómtækjum og eitt af stökum hátölurum. Ætli þetta teljist ekki vera svokölluð „high end“-hljómtæki og koma þau frá fyrirtæki í Bretlandi sem heitir Naim og hátalarnir frá frönsku fyrirtæki sem heitir Focal.
Það sem við leggjum núna áherslu á eru nett „all-in-one“ hljómtæki; þ.e. að hægt er að tengja þau við heimilstölvuna, sjónvarpið eða símann þráðlaust og spila þannig tónlist eða hljóð í meiri gæðum en hingað til hefur þekkst. Við erum með svona box hér í búðinni sem fólk getur fengið að heyra í og það hafa margir orðið steinhissa að heyra hvílík hljómgæði koma úr ekki stærra hátalaraboxi. Hátalarann má staðsetja hvar sem er inni í íbúðinni eða húsunum og fólk er
þannig ekki eins bundið og áður með stóru hátalaraboxin. Hægt er að tengja saman þráðlaust nokkra hátalara og spila sömu tónlist í mörgum hátölurum sem jafnvel eru staðsettir í mismunandi rýmum. Þessu er svo öllu stýrt með appi í símanum eða spjaldtölvunni. Fólk ætti endilega að kíkja við hjá okkur og kynnast þessari tækni með eigin augum og eyrum,“ segir Trausti. tonabudin.is
Litið inn á Norðurslóð Norðurslóð - Into the Arctic er heiti á sýningu sem Arngrímur B. Jóhannsson, fyrrverandi flugstjóri, opnaði með viðhöfn í húsinu númer 53 við Strandgötu á Akureyri í janúar síðastliðnum. Á vissan hátt má segja að húsið geymi nokkrar sýningar sem þó allar eiga það sammerkt að tengjast norðurslóðunum með ýmsum hætti, náttúrunni á norðurslóðum, fólkinu á norðurslóðum, lífsbaráttunni á norðurslóðum. Svo fáeinar tengingar af mörgum séu nefndar. Fræðast má í sýningarsölunum um norðurskautið og kapphlaupið um það, sérstök fræðslusýning er helguð Vigfúsi Sigurðssyni Grænlandsfara, fyrsta Íslendingnum sem fór yfir Grænland. Fjallað er einnig um Vilhjálm Stefánsson, heimskautafara og hans stórmerku ferðir. Í safninu er einnig fjöldi uppstoppaðra dýra úr eigu Hafsteins Hólm Þorleifssonar sem bjó á Siglufirði en er látinn fyrir nokkrum árum. Afkomendur hans gáfu Norðurslóð safn hans. Þessu til viðbótar má nefna gömul siglingatæki, fræðsluefni um líf ínúíta á Grænlandi og safn landakorta í eigu Arngríms sjálfs en þeim hefur hann viðað að sér í gegnum árin. Mörg kortanna eru mjög gömul og gefa skemmtilega mynd af því hvernig kortagerð hefur þróast og hvernig t.d. Ísland hefur birst í kortum gegnum árin. Í Norðurslóð má sjá 200 ára gamla efndurgerð af Íslandskorti Hollendingsins Joris Caolus en upprunalega kortið er talið vera frá um 1530. Líkt og svo margar sögusýningar er sjón sögu ríkari og meðfylgjandi mynd gefa nokkra hugmynd um þá Norðurslóðaveröld sem gestir stíga inn í þegar komið er yfir þröskuldinn í Strandgötu 53.
Safn uppstoppaðra fugla og annarra dýra sem var í eigu Hafsteins Hólm Þorleifssonar á Siglufirði.
Vigfúsi Grænlandsfara eru gerð góð skil.
Arngrímur B. Jóhannsson lét draum um að setja upp sýningu um norðurslóðir verða að veruleika.
Þó alla jafna vilji fólk ekki mæta ís björnum þá er þessi harla meinlaus.
Í þessu herbergi er hægt að fylgjast með hundasleðaferð á Grænlandi.
AKUREYRI // sumar 2017 | 55
Strรกhattur,
2199,-
Ævinlega ð r o b m u n i m o velk
Nafnið breytist, en við erum enn til taks þegar ævintýraþráin gerir vart við sig. airicelandconnect.is