
3 minute read
Simberg
Tækin í skipin hjá Simberg
Simberg er fyrirtæki í þjónustu við sjávarútveg sem hóf formlega starfsemi þann 1. maí 2015. Á sama tíma tók fyrirtækið við umboði fyrir Simrad Kongsberg og Kongsberg Automation en síðan þá hafa bæst við ný umboð, m.a. JRC, Sperry Marine og Jotron ásamt búnaði frá Zodiac, talstöðvum og fleiru. Simberg annast bæði sölu og þjónustu á tækjum og búnaði frá þessum framleiðendum.
Advertisement
Hjá Simberg starfa 7 manns sem hafa langa reynslu af alhliða þjónustu við siglinga-, fjarskipta- og fiskileitartæki ásamt sjálfvirknibúnaði í vinnslu og vélarúmi . Valdimar Einisson hjá Simberg segir verkefnastöðu fyrirtæksins hafa verið góða frá stofnun . Mikil verkefni hafi verið hér heima að undanförnu við undirbúning á nýsmíði og endurnýjun á búnaði í eldri skipum en minna erlendis ólíkt því sem var fyrir Covid faraldur .
Fjöldi nýjunga frá Simrad Kongsberg

Simrad Kongsberg hefur lengi verið leiðandi í þróun á búnaði fyrir fiskveiðar og hafrannsóknir og segir Valdimar að stór hluti af uppsjávarskipum sé búinn með Simrad sónurum og dýptarmælum . ES80 dýptarmælirinn sé í flestum togurum og standi hann upp úr þegar kemur að greiningu á fisklóði, t .d . stærðargreiningu og botnhörkugreiningu .
Helstu tæki sem Valdimar segir Simberg hafa að bjóða frá Simrad Kongsberg eru:
ES80 Dýptarmælir fullur af nýjungum, margar tíðnir sem henta öllum stærðum og gerðum af skipum og bátum .
SN90 . Í senn dýptarmælir og sónar, frábær mælir fyrir uppsjávar eða botnfiskveiðar .
ST90 . Öflugasti sónarinn á markaðnum í dag í sínum flokki með mikla langdrægni og aðgreiningu . Tíðnisvið 14 til 24 kHz sem er lægsta tíðni sem sónar á almennum markaði vinnur á .
MF90 . Nýr millitíðnisónar, sá fyrsti í heiminum sem kemur með composite botnstykki 70 til 90 kHz chirp . Hann er mun næmari og með meiri langdrægni en fyrri millitíðnisónarar .
SY50 . Nýr hringleitarsónar á 50 kHz sem er hugsaður fyrir minni báta og skip t .d . togbáta sem leita að fiski eða hörðum botni .
TV80 . Veiðistjórnunarkerfi sem er í senn einfalt en býður upp á margar framsetningar . Nýtt trollauga ásamt fjölda nema, m .a . hlera-, halla-, afla-, hita-, straum- og dýpisnema .
FM90i . Nýr trollsónar með omni-botnstykki sem sýnir allt opið í trollinu og innkomu á fiski í einni sendingu, ásamt því að hafa innbyggt TV80 trollkerfi sem tekur á móti merkjum frá Simrad nemum . Einnig verður hægt að tengja myndavél sem sýnir mynd í rauntíma úr trollinu .
CP60 . Nýtt straum logg sem sýnir strauma á mismunandi dýpum ásamt því að vera góður dýptarmælir á grunnu vatni, t .d . við makrílveiðar .
ES80 dýptarmælir frá Simrad Kongsberg. Hér eru fjórar tíðnir frá sama botnstykkinu sem nýtast vel til að greina fisktegundir.
CP60 er nýr straummælir með dýptarmæli frá Simrad Kongsberg.
Vélarúmskerfi og skjáveggir
Frá Kongberg Automation býður Simberg heildarlausnir fyrir vélarúm, K-Chief 600 PMS, sem er m .a . viðvörunarkerfi, EO/UMS sem vaktar og stjórnar vélbúnaði skipsins, skrúfustjórnun, samkeyrslukerfi rafala, tankapælikerfi og dælustýringu, RSW stýringu og tengingu við framleiðslukerfi .
Frá JRC býður Simberg breiða línu siglinga- og fiskileitartækja, m .a . radara straummæla, GPS og GPS compass, AIS búnað, fjarskiptabúnað og fleira .
Frá Jotron býður Simberg GMDSS neyðarbaug og talstöðvar . Frá Sperry Marine eru í boði Gyro compass radarar, ECDIS plotterar, sjálfstýringar og annar búnaður .
Loks nefnir Valdimar skjáveggi sem Simberg býður en þeir hafa tekið við af fjölda minni skjáa í brúm skipa . „Við bjóðum 55“ skjái ásamt öðrum stærðum sem má raða saman að vild og með skjáveggjastýringu má kalla fram mismunandi myndir úr ólíkum tækjum . Öllu er stjórnað með einni mús eða snertiskjá . Einnig erum við með rafdrifin púlt og stóla í brúna sem gerir vinnuaðstöðu skipstjórnarmanna fyrsta flokks .
simberg.is