

Ferðalag um Ísland 2026

POTTAGALDRAR VIÐ GRILLIÐ Í SUMAR
Grísk


Gistiskáli Útivistar í Básum endurnýjaður
„Básar í Goðalandi í Þórsmörk eru hjartað í starfsemi Útivistar. Þar erum við með okkar stærsta gistiskála, annan skála til og veitingasölu á sumrin, að ógleymdu einu stærsta óbyggða tjaldstæði landsins. Endurbygging stóra skálans í Básum á síðustu mánuðum hefur verið mikið verkefni og við erum ákaflega ánægð með þær viðtökur sem endurbygging hússins hefur fengið hjá okkar félagsfólki og viðskiptavinum,“ segir Hörður Magnússon, framkvæmdastjóri Útivistar en á liðnum vetri unnu sjálfboðaliðar félagsins baki brotnu að umfangsmikilli endurnýjun stóra skálans sem félagið rekur í Básum.
Þórsmörk einstakur staður Í heild eru svefnrými fyrir 50-60 manns í stóra skálanum og samanlagt fyrir rúmlega 70 manns í skálunum báðum. Hörður segir þjónustu Útivistar bæði ná til félagsfólks en einnig njóti hinn almenni hálendisferðamaður húsanna, tjaldsvæðisins og veitingaþjónustunnar. „Þarna rekum við huggulegt óbyggðaveitingahús yfir sumartímann þar sem áhersla er fjölbreyttan og spennandi mat. Markmiðið í endurnýjun stóra skálans var að færa aðstöðuna meira til nútímans en hafa samt þessa sönnu Básastemningu áfram í heiðri. Þetta kann fólk að meta,“ segir Hörður en allt innra byrði svefnaðstöðu skálans var endurnýjað. Eldhús og sturtur voru endurnýjuð fyrir nokkrum árum.
„Þórsmörk er einstakur staður og fólk sem þangað kemur stendur alltaf á öndinni yfir fegurðinni sem við blasir. Þetta er sá staður landsins sem Íslendingum þykir einna vænst um,“ segir Hörður.


Skælingum og við Sveinstind en þeir þrír síðastnefndu eru allir smekklega uppgerð gangnamannahús. Hörður segir fjallaskálana mikilvægan hlekk í starfsemi félagsins, ekki síður en fjölbreytta ferðadagskrá Útivistar sem í boði er árið um kring þó hátindur starfseminnar sé vissulega yfir sumartímann.
„Áhersla Útivistar er að bjóða vandaða skála fyrir allan almenning enda viljum ekki sjá gistingu á hálendinu þróast í margra stjörnu hótel. Þessi nýjasta framkvæmd okkar í Básum sýnir vel hvernig hægt er að búa skálana út með hæfilegum nútíma þægindum án þess að víkja frá fjallaskálatilfinningunni,“ segir Hörður og hvetur ferðalanga til að heimsækja Bása og Þórsmörk.
Fjölbreytt dagskrá í boði Sem fyrr segir er mikil fjölbreytni í ferðum Útivistar í sumar, líkt og undanfarin ár.
„Við bjóðum til að mynda upp á vin-

sælar gönguferðir, bæði stuttar og lengri landið. Á heimasíðu félagsins er yfirlit yfir alla dagskrá og hægt að bóka ferðir en ég hvet áhugasama til þess að huga sem fyrst að því að bóka haustferðirnar því þær eru jafnan fljótar að fyllast. Þórsmörk er til að mynda svæði sem er alveg einstakt að heimsækja síðsumars og snemma hausts,“ segir Hörður Magnússon.
utivist.is
Útgefandi: Ritform ehf.
Ritstjóri: Valþór Hlöðversson (ábm). Hönnun og umbrot: Guðmundur Þorsteinsson.
Auglýsingar: Ingibjörg Ágústsdóttir.
Prentun: Prentmiðlun í Lettlandi
Forsíðumynd: Náttúrufegurðin við Mývatn er einstök. Ljósm. Markaðsstofa Norðurlands.
Ljósmyndir í blaðinu eru úr fórum Markaðsstofa landshlutanna nema annað sé tekið fram. Þeim er þökkuð aðstoð við vinnslu blaðsins. Ævintýralandinu er dreift frítt á stöðvum N1 víða um land.


Líttu við hjá okkur í Poulsen, Skeifunni 2 eða á www.poulsen.is
FARANGURSBOX
Ítölsk hágæða farangursbox í mörgum stærðum og gerðum

Poulsen | Skeifunni 2 - 108 Reykjavík 530 5900 | poulsen@poulsen.is | poulsen.is

VESTURLAND
Upplifðu Vesturland // west.is
Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri sýnir sögu og þróun íslensks landbúnaðar, með áherslu á tímabilið frá 1880 fram undir lok 20. aldar. Sýning safnsins er í Halldórsfjósi á Hvanneyri og er daglegur opnunartími kl. 11-17 yfir sumarið frá 15. maí til 30. september.
Pakkhúsið í Ólafsvík er gamalt verslunarhús, byggt árið 1844. Á fyrstu hæð hússins er hægt að setjast niður og njóta kaffiveitinga og kruðerís innan um fallegar listasýningar.
Reykholt er höfðingjasetur í Borgarfirði og þar bjó Snorri Sturluson skáld og stjórnmálamaður. Í Reykholti er Snorrastofa, safn og rannsóknarstofnun um þennan heimskunna rithöfund.
Æðarsetur Íslands er í Stykkishólmi. Það er upplýsinga- og fræðslusetur um æðarfuglinn, æðardúninn og æðarræktina, hið fullkomna og fallega samspil manns og náttúru. Æðarsetrið er staðsett við Frúarstíg 6 í gamla bænum í Stykkishólmi.
Vínlandssetrið Leifsbúð er í Búðardal og geymir m.a. sýningu um landnám norrænna manna á Grænlandi og fund Ameríku löngu fyrir daga Kristófers Kólumbusar. Á neðri hæð hússins er að finna frábæran veitingastað.
Vitarnir á Breiðinni við Akranes eru tveir og þá er gaman heim að sækja. Haldnir hafa verið ýmsir viðburðir í nýja vitanum, tónleikar og listasýningar.
Mikilfengleg náttúra á Arnarstapa
Á ferð um Snæfellsnes er vert að hafa viðdvöl á Arnarstapa. Þetta litla þorp á sunnanverðu nesinu er undir Stapafelli, milli Hellna og Breiðuvíkur, og á sér langa sögu. Á Arnarstapa er svokallað Stapahús, gamla amtmannshúsið, sem reist var á árunum 1774-1787. Húsið er því meðal allra elstu húsa á Íslandi en það var tekið niður árið 1849, flutt að Vogi á Mýrum en síðan reist aftur á Arnarstapa 1985-1986. Húsið var svo friðað árið 1990.
Líkt og með flest önnur sjávarpláss á Íslandi hefur byggð myndast á Arnarstapa vegna fiskimiða úti fyrir en þó sér í lagi vegna góðra skilyrða til lendingar fyrir báta frá náttúrunnar hendi. Þar var

kaupstaður á tíma einokunarverslunar innar en í dag er allnokkur smáútgerð frá Arnarstapa og ágæt hafnaraðstaða. Staðurinn er einnig vinsæll sumardvalarstaður og áningarstaður ferðamanna.
Líkt og á öðrum stöðum á Snæfellsnesi er náttúran mikilfengleg. Ströndin
milli Stranda og Hellna er friðland en vestur af henni er svokallaður Gatklettur sem er mögnuð náttúrusmíð og dæmi um hvaða kynjamyndir hafrótið býr til á löngum tíma. Gönguleið er að klettinum.

Upplifðu
íslenska
náttúru

Gjafabréf FÍ
er ávísun á góða samverustund, útivist, hreyfingu og upplifun í íslenskri náttúru.
Gjafabréf FÍ gildir sem inneign í ferðir félagsins, fjalla- og gönguhópa, skálagistingu, félagsaðildar eða til kaupa á miklu úrvali ferðabóka sem fást á skrifstofunni.
Hægt er að kaupa gjafabréf FÍ á heimasíðu félagsins www.fi.is og á skrifstofu FÍ Mörkinni 6.

Tilvalin gjöf fyrir alla ferðafélaga og útivistarfólk

Útsýni og menning í Akranesvita
Útsýnið frá toppi Akranesvita er stórfenglegt allan hringinn, allt frá Reykjanesskaga, yfir höfuðborgina, Faxaflóann og út að Snæfellsjökli. Vitinn er notaður undir listarsýningar og ljósmyndarsýningar en einnig eru haldnir þar tónleikar enda hljómburðurinn einstakur. Upplýsingamiðstöð er einnig staðsett í vitanum.
Akranesviti er 19,2 m hár, reistur á árunum 1943-1944. Efst á vitanum er efnismikið steinsteypt handrið með rimlum. Í vitanum eru fjögur steinsteypt milligólf og stigar milli hæða. Yfir sumartímann eða frá 16. maí til 15. september er vitinn opinn gestum og gangandi frá kl. 10-16 alla daga vikunnar en aðeins virka daga yfir vetrartímann.
Eldri viti er einnig yst á Syðriflös, 10 m hár, byggður úr steinsteypu árið 1918. Hann er einnig opinn almenningi sem útsýnisturn.


Akranesviti yngri var reistur á árunum 1943-1944.


ULLARFATNAÐUR FYRIR ÞÍNA VELLÍÐAN

Hjá okkur finnur þú mikið úrval af ullarfatnaði með áherslu á góð gæði, gott verð og góða þjónustu þar sem við hjálpum þér að finna fatnað sem hentar þér Hvor t sem það er í útivistina eða daglegt líf Við bjóðum mikið úrval af þykkum og þunnum ullarfatnaði á fullorðna og börn svo auðvelt er að finna það sem hentar þínum þörfum
Ver tu velkomin í verslun okkar í Skeifunni eða skoðaðu úrvalið á ullarkistan is, þar sem hægt er að panta og fá sent um allt land
VESTURLAND

Vatnshellir er vinsæll ferðamannastaður í Purkhólahrauni á Snæfellsnesi.

Surtshellir er víðfrægur en margar sagnir eru til um mannvistir í honum fyrr á tíð.
Víðgelmir og Surtshellir
Í Hallmundarhrauni er að finna tvo af þekktustu hellum landsins, Víðgelmi og Surtshelli. Sá fyrrnefndi er stærsti hellir landsins en sá síðarnefndi sá lengsti. Báðir eru þeir ótrúleg náttúrusmíð. Hallmundarhraun er helluhraun sem talið er hafa myndast skömmu eftir landnám Íslands, einhvern tímann á 10. öld. Það er kennt við Hallmund
þann sem Grettis saga segir að hafi átt sér bústað á þessum slóðum. Víðgelmir er einn stærsti hraunhellir í heimi og er hann friðaður. Fjölbreytileiki hans og glæsileiki er engu líkur og heimsókn í hellinn er upplifun sem ekki gleymist. Boðið er upp á leiðsögn um hellinn, frá hvelfingu til hvelfingar, sem tekur eina og hálfa klukkustund.
Kjörland fuglaskoðarans
Af 75 fuglategundum er talið að um 60 verpi árlega á Vesturlandi og því er svæðið kjörið þeim sem sækjast eftir að skoða fuglalífið á ferð sinni um landið. Vesturland við matarkistuna Breiðafjörð er því sannarlega kjörland fugla skoðarans en þar eru m.a. heimkynni dílaskarfs, toppskarfs og hafarnar.

Fuglaskoðunarstaðir eru fjölmargir en vert að benda á Arnarstapa, Álftafjörð, þar sem álftir eru í hundruðum eða þúsundum á sumrin, Hofgarðatjörn í Staðarsveit þar sem möguleiki er að sjá t.d. flórgoða, Kolgrafarfjörð, Saxhólabjarg yst á Snæfellsnesi og Breiða fjarðareyjar. Þá má líka nefna staði í
Surtshellir er kunnasti hellir á Íslandi, 1310 m langur. Mjög seinfarið er um hellinn því á botni hans er víða stórgrýtt urð, sem fallið hefur úr þakinu. Margar sagnir eru til um mannvistir í Surtshelli en flestar eru þjóðsagnakenndar. Hellirinn var þekktur snemma á söguöld og virtust menn þá trúa því að þar byggi jötunn sem héti Surtur.
Dölum á borð við fjallið Klofning, Gilsfjarðarbrú og Saurbæjarósa. Í uppsveitum Borgarfjarðar er mögulegt að hitta fyrir brandendur og blesgæsir. Þá er vert að geta kríubyggða á utanverðu Snæfellsnesi, sem er meðal

Húsasafn
í Stykkishólmi
Stykkishólmur á Snæfellsnesi á sér yfir 400 ára sögu sem verslunarstaður og hafa mörg gömul hús verið gerð upp og eru mikil bæjarprýði. Í bænum eru hótel, veitingastaðir, tjaldstæði og söfn sem áhugavert er að skoða, ásamt afar skemmtilegu bæjarstæði. Ekki spillir útsýnið yfir Breiðafjörð. Frá Stykkishólmi til Reykjavíkur eru 172 km og þaðan er auðvelt að komast til Flateyjar.
Stykkishólmsbær hefur hlotið alþjóðlegar viðurkenningar vegna markvissrar uppbyggingar gömlu húsanna í bænum. Þau hafa gengið í endurnýjun lífdaga og öðlast nýtt hlutverk í ferðaþjónustu, þar sem sjálfbærni- og umhverfishugsun er í forgrunni.
Norska húsið, fyrsta tvílyfta húsið á Íslandi, er t.d. mikil bæjarprýði en þar er Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla til húsa. Það var byggt úr tilsniðnum viði frá Noregi árið 1832 og er því 194 ára

Fjölmörg falleg og merkileg hús hafa verið gerð upp í Stykkishólmi. Þetta er Egilshús þar sem nú er rekið hotel.
gamalt. Egilshús í Stykkishólmi var byggt árið 1865 og þar er nú rekið Hótel Egilsen. Fjölmörg önnur áhugaverð eldri
Byggðasafnið í Görðum
Byggðasafnið í Görðum á Akranesi býður gestum einstaka innsýn í liðna tíma en sýningar safnsins eru afar fjölbreyttar, m.a. í nokkrum húsum sem sum hafa verið flutt á svæði safnsins. Við safnið er jafnframt eldsmiðja en íslenskir eldsmiðir stunda iðju sína þar
og gefst gestum stundum tækifæri á að fylgjast með þeim að störfum. Í fastasýningu safnsins er fjallað um lífið til sjós, lífið í landi, lífið í vinnu og lífið í leik. Þar er saga Akraness rakin allt frá litlu sjávarþorpi á 17. öld til nútímalegs kaupstaðar með á áttunda

Á fastasýningu Byggðasafnsins í Görðum er sagan rakin allt frá litlu sjávarþorpi á 17. öld til nútímalegs kaupstaðar.
hús eru í húsasafni Stykkishólms og áhugavert að skoða.
þúsund íbúa. Sýningin miðlar fróðleik með fjölbreyttum hætti og má þar nefna ljósmyndir, lifandi myndir, fatnað sem gjarnan má prófa að ógleymdum safnmunum. Hljóðleiðsögn er innifalin í aðgangseyri.

Það er við hæfi að fótboltar frá öndverðu séu sýningargripir í knattspyrnubænum Akranesi.
VESTFIRÐIR

er stærsta fuglabjarg Evrópu. Þar verður margt að sjá síðdegis þann 12. ágúst í sumar.
Sólmyrkvi og sjófuglar
Þeir ferðalangar sem eiga leið um sunnanverða Vestfirði mega ekki láta hjá líða að koma við á Látrabjargi sem er hrikaleg náttúrusmíð og stærsta fuglabjarg Evrópu. Þeir sem verða staddir á bjarginu 12. ágúst í sumar munu verða í kjörstöðu til að sjá þar og upplifa almyrkva á sólu. Þannig háttar nefnilega til að alskuggi tunglsins nemur fyrst land á Íslandi á Vestfjörðum kl. 17:43 þennan dag og stendur myrkvinn lengst yfir á Látabjargi eða í 2 mínútur og 13 sekúndur!
Látrabjarg er um 14 km á lengd og liggur það frá Bjargtöngum í vestri að Keflavík í austri. Hæst liggur það í yfir 440 m hæð þar sem heitir Heiðnakinn en víðast hvar annars staðar er það um og yfir 300 m hátt. Milljónir sjófugla verpa og lifa í bjarginu yfir sumartímann og um aldir hafa bændur sem eiga jarðir að bjarginu haft af því miklar nytjar.
Húsin í Neðstakaupstað
Ferðamenn hafa úr mörgum áhugaverðum afþreyingarkostum að velja í heimsókn sinni til Ísafjarðar, auk heldur sem þar má finna prýðisgóða veitingastaði.
Ganga um Neðstakaupstað er í raun ein stór safnaskoðun því húsin eiga sér langa og stórmerkilega sögu sem hægt er að fræðast um. Elsta húsið er Krambúðin frtá 1753 en það telst vera 3ja elsta hús landsins ásamt Hóladómkirkju. Einnig má nefna Tjöruhúsið sem reist var árið 1781 sem vörugeymsla, Turnhúsið frá árinu 1784 og Smiðjuna þar sem rekin var málmsteypa og járnsmíði, samhliða skipasmíði Marsellíusar Bernharðssonar. Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað er í húsum einokunarverslunarinnar frá 18. öld og er eitt af skemmtilegustu söfnum landsins.

Tjöruhúsið í Neðstakaupstað var reist árið 1781. Þar hefur um margra ára skeið verið rekinn einn vinsælasti fiskveitingastaður landsins.
Upplifðu Vestfirði // westfjords.is
Vigur er ein þriggja eyja á Ísafjarðardjúpi og liggur úti fyrir mynni Skötufjarðar og Hestfjarðar. Hún er löng og mjó og dregur nafn af lögun sinni, en orðið vigur merkir spjót. Vaxandi ferðaþjónusta er á eynni og eru erlendir ferðamenn sífellt tíðari gestir.
Söfn á Vestfjörðum hafa aðdráttarafl. Mörg þeirra eru nokkuð hefðbundin og má þar nefna bóka- lista- og minjasöfn, önnur eru óhefðbundnari og eru sem dæmi tileinkuð göldrum, skrímslum og ýmsu öðru forvitnilegu.
Bolafjall er frábær útsýnisstaður fyrir ofan Bolungarvík og er fjallið einn helsti viðkomustaður ferðamanna á norðanverðum Vestfjörðum. Þaðan er stórbrotið útsýni til Hornstranda og yfir Jökulfirði iog Ísafjarðardjúp.
Drangaskörð eru eitt helsta kennileiti Vestfjarða. Þau eru í Árneshreppi á Ströndum og sjást best úr fjarlægð frá Reykjanesi við bæinn
Munaðarnes. Af þeim dregur Drangajökull nafn sitt.
Neðstikaupstaður á Ísafirði er þyrping gamalla húsa og þar er Byggðasafn Vestfjarða. Í svokölluðu Turnhúsi hefur verið sett upp sýning á sjóminjum og utan við safnið er fiskreitur, eldsmiðja, slippur og nokkrir bátar.
Dynjandi í botni Arnarfjarðar fellur niður um 100 metra hátt og bungumyndað berg. Fossarnir í Dynjanda eru sex. Efst er Fjallfoss, þá Hundafoss, Strokkur, Göngumannafoss, Hrísvaðsfoss og Sjóarfoss.


VESTFIRÐIR
Eyjarnar óteljandi á Breiðafirði
Talið er að eyjarnar á Breiðafirði séu um 2700-2800 talsins og auk þeirra eru fjöldamörg sker og boðar. Ýmsar þessara eyja voru byggðar fyrrum en langflestar þeirra eru nú í eyði. Víða eru eyjarnar þétt saman og mynda eyjaklasa sem hafa fengið nöfn eins og Skáleyjar, Svefneyjar, Bjarnareyjar, Rifgirðingar og Garðeyjar. Margar eyjanna voru í byggð fyrir ekki svo löngu síðan líkt og Hvallátur, Svefneyjar og Akureyjar en það er af sem áður var. Flatey er eina undantekningin en hún er stærst Breiðafjarðareyja og er í byggð allt árið. Eyjarnar eiga það allar sameiginlegt að hafa myndast undan afli skriðjökla á ísaldartímanum. Þær eru flatlendar að mestu og jarðlögin svipuð og á Vestfjörðum. Í mörgum eyjanna er mikil gróska og margar tegundir plantna. Sagt er að fólk sem bjó við Breiðafjörð og á eyjunum hafi sjaldan eða aldrei liðið matarskort. Eyjarnar

iða af fuglalífi og flesta fuglana má nytja. Auk þess var gnægð fisks og sjávarspendýra í flóanum, fjörubeit og fleira.
Hornbjarg í friðlandi
Hornbjarg er þverhnípt bjarg í friðlandinu á Hornströndum. Nyrsti oddi Hornbjargs heitir Horn og er nyrsti tangi Vestfjarða og þaðan fá Hornstrandir nafn sitt. Bjargið er snarbratt og hæsti tindur þess, Kálfatindur er í 534 metra hæð, tindurinn Jörundur er þar næstur í 429 metra hæð.
Hornbjarg er eitt af mestu fuglabjörgum landsins og þar verpa fjölmargar tegundir bjarg og sjófugla. Mikið er um langvíu í Hornbjargi en einnig eru þar milljónir af stuttnefju, máfi og ritu. Einnig eru þar fuglategundir eins og hvítmáfur, álka, fýll, æðarfugl, svart-
bakur, hávella, toppönd, óðinshani, lundi og teista.
Í Flateyjarbók er sagt frá ferð fóstbræðranna Þormóðs Kolbrúnarskálds og Þorgeirs Hávarðssonar í Hornbjarg þar sem Þorgeir missti fótfestu í bjarginu en bjargaði sér með að halda í
Breiðafjarðarferjan Baldur siglir allan ársins hring á milli Stykkishólms og Brjánslækjar á sunnanverðum Vestfjörðum með viðkomu í Flatey.
hvannnjóla þar til Þormóður kom honum til bjargar.
Til að komast að Hornbjargi þarf að fara með bát frá Ísafirði. Ferðaskrifstofur skipuleggja lengri gönguferðir um svæðið en einnig dagsferðir.

sem hrapa í sjó fram.

Flatey er eina eyjan á Breiðafirði þar sem er búið allt árið.


VERTU NJÓTTU





finna í Kristnesi í Eyjafjarðarsveit. Þessi staðsetning söguseturs um þann illvíga sjúkdóm sem berklarnir voru er ekki tilviljun því í Kristnesi var reist berklahæli árið 1927 þegar berklar geisuðu. Þetta var lífshættulegur smitsjúkdómur sem lagðist ekki síst á ungt fólk sem var þá tekið úr umferð og einangrað á berklahælum.
Á Hælinu er fróðleg og áhrifarík sýning um berklanna á Íslandi sem oft hafa
á fjölbreytilegan hátt um missi, sorg og örvæntingu þeirrra sem glímdu við sjúkdóminn í bland við bjartsýnina æðruleysið og lífsþorstann. Þegar gestir hafa skoðað sýninguna er tilvalið fyrir þá að setjast niður á kaffihúsi Hælisins og bragða á heimabökuðu kruðeríi með rjúkandi heitu kaffinu.
Hælið er opið alla daga yfir sumartímann.
Upplifðu Norðurlandi // northiceland.is
Söfnin á Norðurlandi eru af margvíslegu tagi og víða tengd ferðaþjónustunni. Dæmi: Textílsafnið á Blönduósi, Síldarminjasafnið á Siglufirði, Byggðasafnið Hvoll á Dalvík, Hvalasafnið á Húsavík og Vesturfarasetrið á Hofsósi.
Fuglalíf á Norðurlandi er afar fjölskrúðugt. Víða er góð aðstaða til að fylgjast með fuglum enda kjörlendi þeirra víða, t.d. Mývatnssveit, Svarfaðardalur, Grímsey, Rauðinúpur og Langanes svo einhver séu nefnd.
Vatnsnes er griðastaður fjölskrúðugs dýralífs og þar er að finna ein aðgengilegustu og stærstu sellátur á landinu, þar sem skoða má landseli í
töluverðu návígi. Aðstaða til selaskoðunar hefur verið byggð upp á Illugastöðum, Svalbarði og Ósum.
Dettifoss í Jökulsá á Fjöllum er aflmesti foss í Evrópu, 44 metra hár og rúmlega 100 m breiður. Þeir eru ófáir, staðirnir eins og þessi, þar sem maður upplifir smæð mannsins eins skýrt og við þennan mikilfenglega foss.
Vatnsdalshólar eru sérkennilegir ásýndum. Þeir eru í Húnaþingi og ná yfir rúmlega fjögurra ferkílómetra svæði. Hólarnir hafa verið taldir meðal þriggja náttúrufyrirbrigða á Íslandi sem væru óteljandi, hin tvö eru vötnin á Arnarvatnsheiði og eyjarnar á Breiðafirði!
BESTI STAÐURINN!















Upplýsingamiðstöð | Afþreying
Viðburðir | Gönguleiðir
Matur | Gisting
Hrísey – perla Eyjafjarðar
Það er stutt sigling með ferjunni Sæv ari frá Ársskógssandi yfir til Hríseyjar á Eyjafirði. Um leið og stigið er á land í Hrísey er eins og skipt sé yfir í slökun argírinn!
Margt er hægt að sjá og gera í Hrís eyjarheimsókn. Þar er að finna veitinga stað og verslun og hægt að bregða sér í sund, minigolf eða frisbígolf og hjóla brettabrautin og ærslabelgurinn draga börnin alltaf til sín. Þá er upplagt að skoða Hús Hákarla-Jörundar en þar er hægt að kynnast sögu Hríseyjar í máli og myndum auk þess sem þar má einnig fræðast um hákarlaveiðar. Safnið er opið daglega yfir sumartímann.
Gönguleiðir eru margar og skemmti legar í Hrísey og tilvalið er að leggja leið sína á austurhluta eyjunnar þar sem sögð er vera önnur mesta orkulind landsins. Geislar friðar og elsku streyma frá fjallinu Kaldbaki sem gnæf


Náttúruperla á Skaga
Kálfshamarsvík á Skaga er einstök náttúruperla sem ferðalangar ættu að heimsækja. Raunar er kjörið að fara hringinn á Skaga ef farið er á annað borð í Kálfshamarsvík enda margt að skoða á þeirri leið. Þar er m.a. að finna Kálfshamarsvita sem er í fúnkisstíl, líkt og nokkrir aðrir hér á landi en Axel Sveinsson verkfræðingur teiknaði turnbygginguna. Vitinn var tekinn í notkun 1942 og er hann 16,3 metrar á hæð.
Í Kálfshamarsvík má sjá sérkennilega en jafnframt fallega náttúrusmíð sem eru sjávarhamrar úr formuðu stuðlabergi
sem talið er að hafi myndast fyrir um tveimur milljónum ára. Kálfshamarsvík er rúmum 20 kílómetrum norðan Skagastrandar og er því farið út af hringveginum við Blönduós og ekið sem leið liggur til Skagastrandar og áfram í Kálfshamarsvík. Staðurinn er ekki síst merkilegur fyrir þær sakir að þar var vísir að litlu þorpi í upphafi 20. aldar. Flestir bjuggu þar á þriðja áratug aldarinnar, rétt um 100 manns og höfðu lífsviðurværi sitt af útgerð. Um 1940 má heita að Kálfshamarsvík hafði verið komin í eyði.
hrisey.is

Hátíðir í
Fjallabyggð 2026
Júní
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní Siglufjörður og Ólafsfjörður
Berjadagar í Ólafsfirði 26.–28. júní í Ólafsfirði
Júlí
Þjóðlagahátíð – Folkfestival Siglufirði 1.–5. júlí
Frjó listahátíð á Siglufirði 10.–12. júlí
Trilludagar á Siglufirði 25. júlí
Ágúst
Síldarævintýri 30. júlí – 2. ágúst Siglufirði
Fjarðarhlaupið 15. ágúst í Ólafsfirði
Auður Hafs og stranda Siglufirði 27.–30. ágúst
September
Fjarðarhjólið 5. sept. Ólafsfirði
Myndasöguhátíð 11.–13. sept.
Haustglæður Ljóðahátíð Siglufirði
NORÐURLAND

um Norðurland, jafnframt því að stór auka umferðaröryggi. Göngin eru 7,5 kílómetrar að lengd og eru upplýsingaskilti á útskotum beggja vegna ganganna þar sem hægt er að sjá verðskrá þegar greitt er í gegnum vefsíðuna www.veggjald.is eða www. tunnel.is. Allar nánari upplýsingar er að finna á sömu vefsíðum.
Einfaldara að greiða fyrir ferðina Greiðslufyrirkomulag fyrir þá sem nota göngin sjaldan hefur verið einfaldað. Ekki er nauðsynlegt að greiða á netinu
ferð, án viðbótarkostnaðar. Fyrir þá sem fara reglulega um göngin er þó hagkvæmast að stofna aðgang á veggjald.is eða í gegnum Veggjalds appið. Hægt er að kaupa afsláttarferðir og skrá allt að 10 ökutæki sem geta notað þær.
Í sumar verða settir upp sjálfvirkir nettengdir sjálfsafgreiðsluposar á gjaldtökusvæðum beggja vegna ganganna göngin og eru þeir liður í aukinni þjónustu við ferðafólk og þá vegfarendur sem nota göngin sjaldan og vilja borga á staðnum.
Umferðaröryggi og fækkun slysa Á þeim árum sem liðin eru frá opnun Vaðlaheiðarganga hafa engin umferðarslys orðið í þeim. Göngin eru samgönguvalkostur í stað Víkurskarðs og sýna tölulegar upplýsingar að tilkoma ganganna hefur fækkað umferðarslysum á Víkurskarðsleiðinni um 80% ef borin eru saman 7 ára tímabil fyrir og eftir að Vaðlaheiðargöng komu til sögunnar.

Með smáforriti í snjallsíma geta vegfarendur nálgast allar nauðsynlegar ferðaupplýsingar, skráð ökutæki, greit veggjald í göngin og fylgst með stöðu á fyrirframgreiddum ferðum.
Sem fyrr eru ökumenn hvattir til að sýna fyllstu aðgát nú þegar sumarumferðin nær hámarki. Minnt er á að hámarkshraði í Vaðlaheiðargöngum er 70 km/ klst og er æskilegt að bil á milli ökutækja sé ekki minna en 50 metrar.
veggjald.is








Uppsalahnjúkur
möðruvellir
Leyningshólar
NORÐURLAND

Gestir boðnir velkomnir í ný og glæsileg Jarðböð
Jarðbörðin við Mývatn hafa opnað nýja aðstöðu, bæði nýtt húsnæði og stærra baðlón. Jarðböðin eru annað elsta baðlón landsins, opnuð árið 2004 og hafa verið fjölsótt allar götur síðan, bæði af innlendum sem erlendum gestum. Gjörbylting er orðin nú í allri aðstöðu frá því sem áður var og upplifun gesta Jarðbaðanna verður til muna meiri. Með þessari nýju aðstöðu verður hægt að taka við um það bil 600 gestum en það er um 33% aukning frá fyrrverandi aðstöðu auk þess sem baðlónið sjálft stækkaði um 35% að flatarmáli.
Byggingar felldar að náttúrunni og umhverfinu
Við hönnun nýrrar þjónustubyggingar var tekið mið af einstakri náttúru Mývatnssveitar og þannig endurspeglast í húsinu náttúrumyndanir í umhverfi þess. Byggingin er tæpir 4.000 fermetrar að stærð og með henni varð rúmlega þreföldun frá fyrra húsnæði. Hún er felld inn í umhverfið og grjót af svæðinu er m.a. nýtt sem farg á þak, í þakkanta, í
klæðningar utanhúss, á veggi innanhúss og í terrazzo-gólf. Byggingin stendur austan við baðlónið og tengist eldra baðlóninu með nýju lóni sem er mótað í kringum túffstabbaeyju, gjá og hraunklettaveggi. Gestir geta því gengið beint ofan í lónið úr búningsklefum og farið um þrjú mismunandi svæði í lóninu.
Ný aðstaða - nýr veitingastaður Miklar breytingar hafa verið gerðar á eldra baðlóninu og aðstöðu í kringum það. Auk áðurnefndrar stækkunar var m.a. bætt við tveimur heitum pottum, settur upp nýr og stærri bar, setsvæði voru stækkuð og aðkoma að gufubaði bætt. Með nýja lóninu bætast við upplifanir eins og grjótgufubað sem synt er inn í, foss, nýr lónsbar og hellir þar sem gestir munu ferðast í gegnum gjá til að fara yfir í stærri og opnari hluta lónsins. Nýtt bistro, Earth Lagoon Bistro, með ferskum réttum unnum úr hráefni úr héraði ásamt léttum matseðli, er meðal nýjunga. Veitingasalurinn tekur 150 manns í sæti en veitinga- og móttöku-
salur Jarðbaðanna er með útsýni til vesturs yfir lónið og Mývatn. Útisvæði er einnig fyrir gesti veitingastaðarins til að njóta á sumardögum.
Upplifun gesta aukin
Ragnhildur Hólm Sigurðarsdóttir, mannauðs- og markaðsstjóri Jarðbaðanna við Mývatn, segir að bæði stærra lón og mun stærra þjónustuhús bjóði upp á nýja möguleika í þjónustu við gesti.
„Þetta eru á allan hátt ný Jarðböð, bæði hvað varðar aðstöðuna og þjónustu við gesti. Við aukum úrval í veitingaþjónustu, bjóðum til að mynda meiri fjölbreytni í upplifunum með nuddþjónustu, hér verður nýtt gufubað í boði og þannig má áfram telja. Markmiðið með þessum breytingum var að bæta aðstöðu, auka við þjónustu við gesti og lyfta upplifun þeirra á hærra plan, sem mér finnst hafa tekist framúrskarandi vel. Það verður ánægjulegt að taka á móti nýjum og auðvitað eldri viðskiptavinum í nýjum Jarðböðum.”


Mismunandi aðgangspakkar í boði
Gestir Jarðbaðanna við Mývatn geta nú valið um þrjá mismundandi aðgangspakka með mismunandi klefum og upplifunum.
Kjarni (pakki 1)
Búningsklefum er skipt niður í einingar þannig að vel rúmt verður um alla gesti. Þá eru allar sturturnar einkasturtur og verður í boði að geyma handklæði/ síma í sérstökum munaskáp áður en farið er út í lón.
Kvika (pakki 2)
Aðgangur að hraunklefum, þar sem klettaveggir hafa verið nýttir sem útveggir í búningsklefa, ásamt því að hraunveggur skilur á milli kvenna- og karlaklefa. Handklæði fylgir með en vinsamlegast athugið að engar einkasturtur eru í hraunklefum. Gestir ganga svo um stórfenglegan hraunveggjagang út í lónið.
Kyrrð (pakki 3)
Einkaklefi fyrir tvo og hægt verður að panta veitingar af mat- og vínseðli arinstofunnar. Aðgangur að hvíldarherbergi, arinstofu og sér lóni sem eingöngu er ætlað fyrir þá gesti sem nýta einkaklefana. Gestir í Kyrrð hafa einnig aðgang að almennu lóni ásamt öllu því sem það hefur upp á að bjóða.




NORÐURLAND
Fjölbreytt Akureyrarvaka
Akureyrarvaka verður haldin föstudaginn 28. og laugardaginn 29. ágúst, sem jafnframt er afmælisdagur Akureyrarbæjar. Ný áhersla er í uppbyggingu dagskrárinnar í ár og stefnt að fjölbreyttri og lifandi dagskrá um allan bæ með viðburðum fyrir íbúa og gesti á öllum aldri.
Rökkurró í Lystigarðinum verður á sínum stað á föstudagskvöldinu. Á laugardeginum tekur við fjölbreytt dagskrá og um kvöldið verður miðbærinn lífgaður upp með tónlist, listum og uppákomum á mörgum stöðum í stað eins stórs tónleikaviðburðar að kvöldi laug-
ardagsins, líkt og verið hefur undanfarin ár.
Listafólk, fyrirtæki, félög og bæjarbúar taka þannig höndum saman um hugmyndir og viðburði til að skapa einstaka bæjarstemningu. Sérstaklega var í undirbúningi dagskrárinnar kallað eftir skapandi verkefnum sem glæði miðbæinn og önnur svæði bæjarins lífi með tónleikum, sýningum, leiklist, dans, gjörningum, smiðjum, matarmenningu eða öðrum viðburðum.
Landsmönnum er boðið að njóta með Akureyringum á Akureyrarvöku 2026.

Kjarnaskógur – paradís við bæ
Kjarnaskógur er eitt vinsælasta útivistarsvæði Akureyringa, um 800 hektarar að stærð. Við upphaf skógræktar á svæðinu um 1950 var þetta landrými skóglaust með öllu. Síðan þá hefur verið plantað um 1,5 milljónum plantna og er þar mikil gróðursæld og gott skjól. Trjágróður í Kjarnaskógi er afar fjölbreyttur og trjásýnistígur liggur um hjarta skógarins meðfram Brunná.
Í Kjarnaskógi er meðal annars að finna:
» Þrjú leiksvæði með fjölda leiktækja.
» Blakvelli og trimmtæki.
» Yfirbyggðar grillaðstöður sem

henta jafnt einstaklingum sem hópum.
» Stærsta skipulagða gönguskíðasvæði landsins (í skóglendi) með allt að 20 km troðnum brautum, þar af eru 6 km upplýstir.
» Á veturna er einnig boðið upp á sleðabrekkur þegar hægt er og eru þær við Einar skógarvörð og fyrir neðan Sólúrið á Kjarnatúni.
» Sérhannaða fjallahjólabraut með tengingu við fjallahjólabrautina í Hlíðarfjalli. Samanlagt er hún 21,6 km og er með lengstu fjallahjólabrautum landsins.
» Um 12 km af malarbornum stígum, þar af eru 6 km upplýstir, auk fjölda annarra skógarstíga.
» Snyrtingar og vatnsbrunn.
» Fjögur bílastæði.
visitakureyri.is
Afmælisár Sumartónleika í Akureyrarkirkju

Í ár er fertugasta starfsár Sumartónleika í Akureyrarkirkju en tónleikarnir eru í boði alla sunnudaga í júlí. Aðgangur er ókeypis. Tónleikarnir hefjast allir kl. 17 og er dagskráin að vanda fjölbreytt.
Sunnudagur 5. júlí
Margrét Árnadóttir og Páll Barna Szabó flytja sönglög fyrir sópran og píanó eftir m.a. Jórunni Viðar og C. Schumann og frumflytja nýtt sönglag eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur.
Sunnudagur 12. júlí
Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel verk eftir Báru Grímsdóttur, Johann Sebastian Bach, Jón Nordal, Pál Ísólfsson og Louis Vierne og frumflytur nýtt hátíðarfanfar fyrir orgel eftir Þorvald Örn Davíðsson.
Sunnudagur 19. júlí
Tríó Öræfi ásamt Arnaldi Arnarsyni gítar flytur verk eftir J. Kreuzer, F. Schubert/W. Matiegka og N. Paganini og frumflytur nýtt verk fyrir flautu, víólu, selló og gítar eftir Oliver Kentish. Tríó Öræfi skipa Sóley Þrastardóttir, Þórunn Harðardóttir og Ásdís Arnardóttir.
Sunnudagur 26. júlí
Andrew Yang leikur á píanó verk eftir D. Scarlatti, F. Chopin, M. Ravel, S. Rachmaninoff og J. Brahms og frumflytur nýtt verk úr eigin smiðju.
Mynd: Visit North Iceland
Sannarlega Ein með öllu um verslunarmannahelgina!
Verslunarmannahelgin verður þéttbók uð á Akureyri þar sem verður hátíðin Ein með öllu. Meðal viðburða má nefna Óskalagatónleika í Akureyrarkirkju, fjáröflunarviðburðinn Mömmur og möffins, tívolí, barnaskemmtun, Spari tónleika og margt fleira.
Þétt dagskrá alla helgina
Dagskráin hefst á hádegi föstudaginn 31. júlí með markaðsstemningu í miðbænum sem mun vara alla helgina. Risatívolí verður á Akureyrarvelli, veitingaog tónleikastaðir bæjarins iða af mannlífi og fjöri alla helgina. Að kvöldi föstudagsins verða svo hinir löngu þekktu óskalagatónleikar í Akureyrarkirkju með þeim Eyþóri Inga Jónssyni, Óskari Péturssyni og Ívari Helgasyni.


Af dagskrárliðum laugardagsins má nefna sýningu Leikhópsins Lottu á MA túninu ofan Lystigarðsins, krakkaskemmtun á Akureyrarvelli milli kl. 14-16 og um kvöldið verða stórtónleikarnir Öll í einu með FM95Blö en þetta er í fyrsta skipti sem þessi viðburður er í boði um verslunarmannhelgina á Akureyri. Meðal þeirra sem koma fram eru DJ Muscleboy & Doctor Viktor, Úlfur Úlfur, Birnir, Jóhanna Guðrún, Saint Pete, Sverrir Bergmann og Ragga Gísla. Selt er inn á viðburðinn.
Á sunnudeginum verður skógardagur Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi og allir fastir dagskrárliðir helgarinnar en hátíðin nær hámarki með Spari-



tónleikum um kvöldið á Akureyrarvelli.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 en svæðið verður opnað kl. 18. Meðal þeirra sem skemmta gestum eru Aron Can, Bríet, Dynjandi, Herra Hnetusmjör, Laddi & Hljómsveit mannanna og Páll Óskar.
Tónleikarnir eru öllum opnir í boði styrktaraðila hátíðarinnar.
Hátíðinni lýkur svo með glæsilegri flugeldasýningu í umsjá Björgunarsveitarinnar Súlna að tónleikum loknum.
Eyjafjörður í hers höndum
Í Minjasafninu á Akureyri stendur nú yfir sýning sem ber yfirskriftina. Í hers höndum og fjallar um veru breskra, bandarískra, norskra og kanadískra hermanna í Eyjafirði í seinni heimsstyrjöldinni.
Þann 17. maí 1940 duggaði varðskipið Ægir upp að bryggju á Akureyri, viku eftir hernám Reykjavíkur. Um borð voru 40 sjóveikir hermenn sem hertóku Eyjafjörð. Í kjölfarið fylgdu þúsundir hermanna sem fylltu á fjórða tug herbúða á Akureyri eða í nærsveitum. Dregin var varnarlína um Hrísey og tundurdufl lögð í sjó. Eyjafjörður var sannarlega í hers höndum. Þetta er söguefni sýningarinnar en hún byggir á ljósmynd-
Hlaupaserían Súlur Vertical
Liður í hátíðarhöldum verslunarmannahelgarinnar er hlaupaserían Súlur Vertical sem er stórbrotin upplifun fyrir hlaupara og áhugafólk um óspillta náttúru og fagurt umhverfi. Hlaupin verða haldin dagana 31. júlí - 1. ágúst og spanna allt frá Krakkahlaupi í Kjarnaskógi, 19 km hlaupi á stígum í bæjarlandinu og upp í 100 km hlaup sem hefst hjá Goðafossi. 100 kílómetra hlaupið er nú haldið í fjórða skipti og hefur mikið verið lagt uppúr hlaupaleiðinni.

Sýningin Í hers höndum varpar ljósi á ólíka heima hermanna og heimafólks á stríðsárunum.
um, kvikmyndum og samtímasögum frá hermönnum og heimafólki ásamt munum, kortum og ýmsu öðru. Sögurnar á sýningunni draga upp ólíkan heim hermanna og heimafólks sem stundum verður kómískur í árekstrum framandi menningarheima. minjasafn.is
FM95Blö verður með tónleika á Akureyrar velli.
Leikhópurinn Lotta kann að skemmta ungum sem eldri.
Laddi og hljómsveit mannnanna.
NORÐURLAND

Byggðarlögin Ólafsfjörður og Siglufjörður mynda sveitarfélagið Fjallabyggð og tengja Héðinsfjarðargöng þau saman. Með göngunum er Héðinsfjörður kominn í alfaraleið og Tröllaskagi orðinn ákjósanlegur áfangastaður ferðamanna að sumri sem vetri. Í Fjallabyggð er að finna fjölbreyttar gönguleiðir, fjölskrúðugt fuglalíf og mikla afþreyingarmöguleika eins og miðnætursiglingar, sjósund, kajakróður, jet ski, brimbretti og margt fleira tengt hafi og strönd.
Áhugaverð náttúra
Margt áhugavert er að skoða í Fjallabyggð. Skógræktin á Siglufirði er sannkölluð náttúruperla, hvort heldur er að vetri eða sumri. Þar er kjörið að ganga um stíga eða njóta sín á bekkjum eða í lautarferð. Tveir 9 holu golfvellir eru í Fjallabyggð, annars vegar Skeggjabrekkuvöllur í Ólafsfirði og hins vegar golfvöllurinn á Siglufirði. Ólafsfjarðarvatn er á náttúruminjaskrá, enda mjög sérstakt náttúrufyrirbrigði þar sem ferskt vatn flýtur ofan á söltu. Vegna þessara eiginleika vatnsins veiðast þar margar sérstakar fisktegundir. Vinsælt er að ganga eða hjóla í kringum vatnið, en það er um 13 km leið. Snjóflóðavarn-

Listasmiðjur og gallerí laða að gesti og gangandi.

Smábátahöfnin og glæsilegt Sigló Hótel.
Hátíðir í Fjallabyggð
argarðarnir á Siglufirði er annað fyrirbæri sem vert er að minnast á en þeir voru vígðir árið 2009 og hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir góða hönnun og eru áhugaverðir sem gönguleið við allra hæfi.
Blómlegt menningarlíf Í Fjallabyggð er einnig blómlegt menn ingarlíf. Fjölda veitingahúsa með fjöl
UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ OG TJALDSVÆÐI
Opnunartími: 15. maí – 15. sept. kl. 10:00–22:00
Sími: 416 0580
Tjaldsvæði: 15. maí 15. september Upplýsingasíða: https://evanger.is/en/info
Fyrirspurnir: evanger@evanger.is
breytta matseðla er að finna og gistimöguleikar miklir. Einnig eru nokkur gallerí og listamannavinnustofur sem áhugavert er að heimsækja og svo má ekki gleyma söfnum og setrum. Þar má nefna stærsta og án efa vinsælasta viðkomustað ferðamannsins; Síldarminjasafnið, sem er eitt stærsta sjóminja- og

strauma og stefnur í íslenskum kveðskap allt frá landnámsöld til okkar tíma og í Pálshúsi, Náttúrugripasafni Ólafsfjarðar, er að finna mikið safn fugla sem tilheyra flestum þeim fuglategundum sem er að finna á Íslandi auk fjölda annarra gripa. Í Þjóðlagasetrinu eru íslensk þjóðlög kynnt á aðgengilegan og skemmtilegan hátt. Þar er boðið upp á myndbönd af fólki á öllum aldri sem syngur, kveður eða leikur á hljóðfæri.
Líf og fjör í Fjallabyggð Óvíða finnast jafn fjölbreyttir og skemmtilegir möguleikar til þess að láta sér líða vel í jafn fallegu umhverfi og afslöppuðu andrúmslofti og er í Fjallabyggð. Yfir sumarið eru hátíðir og viðburðir um hverja helgi í Fjallabyggð og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Stærstu hátíðirnar eru Þjóðlagahátíð, Sápuboltinn, Trilludagar, Síldarævintýrið, Myndasöguhátíðin, Berjadagar og Ljóðahátíðin Haustglæður.
NORÐURLAND

Í friðlandinu verpa yfir 30 tegundir fugla sem gerir svæðið að kjörlendi fuglaskoðunarfólks.
Friðland Svarfdæla – einstakt náttúrufar
Friðland Svarfdæla í Svarfaðardal er um 540 ha. að stærð, eða um 8 km2, votlendissvæði beggja vegna Svarfaðardalsár, neðan frá sjó og fram að Húsabakka. Svæðið var friðlýst að frum-
kvæði landeigenda árið 1972 og er elsta votlendisfriðland landsins. Náttúrufar svæðisins skapar kjörlendi fyrir hinar ýmsu fuglategundir en víðáttumikið landflæmið skiptist í þurra árbakka og

Hús Hákarla Jörundar
Opið alla daga 1. júní – 31. ágúst frá kl. 14:00-17:00
Í þessu elsta húsi
Hríseyjar er búið að koma upp vísi að sýningu sem tengist hákarlaveiðum og sögu eyjarinnar
Þar er einnig hægt að nálgast upplýsingar um eyjuna og hvað hún hefur upp á að bjóða.
blautar mýrar með stararflóum, síkjum og gróðursælum seftjörnum.
Göngustígar og fuglaskoðunarhús Frá Húsabakka er búið að leggja merktar, auðfarnar gönguleiðir um hluta friðlandsins þar sem hægt er að sjá upplýsingar um fugla og gróðurfar. Þar er einnig búið að setja niður fuglaskoðunarhús og flotbr ýr til að auðvelda umferð um svæðið. Göngubrú liggur af svæðinu yfir Svarfaðardalsá og tengir saman friðlandið og Hánefsstaðareit sem er skógarreitur með stígum og áningarstöðum.
Auk þess að ganga um friðlandið frá Húsabakka er einnig hægt að ganga merktan stíg frá Olís á Dalvík, stíg sem liggur umhverfis svokallaðan Hrísahöfða við Hrísatjörn í mynni Svarfaðardals, en þar er einnig skilti með upplýsingum um fugla og gróðurfar auk fuglaskoðunarhúss.
Akureyri
Víkurskarð
2014-2018 27 umferðarslys þar af 4 alvarleg*
2019-2025 6 umferðarslys þar af 2 alvarleg*
*Heimild: Slysakort Samgöngustofu
fækkun umferðarslysa eftir að göngin opnuðu
Öruggari leið í gegnum
Vaðlaheiðargöng
Engin umferðarslys hafa orðið í göngunum á þeim fimm árum sem liðin eru frá opnun þeirra

Keyrðu í gegn og borgaðu í heimabanka – Engin skráning – engar tafir – ekkert innheimtugjald
NORÐURLAND
Eyjafjarðarsveit – hin norðlenska sveitasæla
Sveitarfélagið Eyjafjarðarsveit hefur margt að bjóða ferðafólki. Stærsti þéttbýliskjarni sveitarfélagsins er Hrafnagilshverfi þar sem sundlaug er opin árið um kring og þar er einnig tjaldsvæði sem góðri aðstöðu. Íbúar sveitarfélagsins eru um 1.200 og er landbúnaður stærsta atvinnugreinin en einnig hefur byggst upp fjölbreytt ferðaþjónusta á síðustu árum.
Fjölbreytt gisting er í boði í sveitarfélaginu og afþreyging af ýmsu tagi. Í Kristnesi er Hælið þar sem er sýningin Hvíti dauði - saga berkla á Íslandi. Sýningin hefur algjöra sérstöðu í íslenskri safna- og sýningaflóru, áhrifarík frásögn af þessum sjúkdómi sem markaði djúp spor á sínum tíma í margar íslenskar fjölskyldur. Sýningin og kaffihúsið á Hælinu eru opin alla daga yfir sumarið.
Af öðrum áhugaverðum áningarstöðum á ferð um Eyjafjarðarsveit má nefna Holtsel þar sem í boði er heimagerður og ljúffengur ís. Einnig er hægt að kaupa nauta- og nautgripakjöt beint frá Holtselsbýlinu.
Verslanirnar Jólagarðurinn og Bakgarðurinn í jaðri Hrafnagilshverfis eru fyrir löngu orðnar landsþekktar fyrir vöruúrval sem hvergi er annars staðar að finna. Í senn verslunarstaður og upplifun fyrir gesti.
Smámunasafn Sverris Hermannssonar í Sólgarði er sömuleiðis staður sem hefur algjöra sérstöðu á Íslandi og þó víðar væri leitað. Sverrir safnaði öllu milli himins og jarðar og því er safnið í senn minjasafn, landbúnaðarsafn, verkfærasafn, búsáhaldasafn, naglasafn, járnsmíðasafn, lyklasafn og meira til.


Það er vel þess virði að skoða kúna Eddu, listaverk eftir Beate Stormo.
Í heimsókninni í Sólgarð er einnig til valið að virða fyrir sér nýjasta listaverk sveitarinnar; kúna Eddu sem er járnskúlptúr og listasmíð eldsmiðsins Beate Stormo í Kristnesi. Kýrin Edda er engin smásmíð, um þrír metrar á hæð og fimm metrar á lengd og er við hæfi að hún horfi af stalli sínum yfir blómlegan landbúnaðinn í Eyjafjarðarsveit.
Fyrir þá sem vilja leggja áherslu á heilsuna á ferðalögum sínum má vekja athygli á fjölbreyttum göngu- og hjólaleiðum, bæði á láglendi og í fjölskrúðugu fjalllendinu. Einn allra nýjasti baðstaður landsins, Skógarböðin, er í Eyjafjarðarsveit og óhætt er að segja að vellíðan og heilsa séu einnig í fyrirrúmi hjá Vökulandi Wellness.
Upplýsingar um þetta og margt annað í ferðaþjónustu í Eyjafjarðarsveit má fá í afgreiðslu sundlaugarinnar í Hrafnagilshverfi.
esveit.is

Í Hrafnagilshverfi er m.a. sundlaug og vel búið tjaldstæði. Mynd: Sigurgeir Sigurgeirsson.


Fullt box
899,1.690,- Verð áður Krakkabox
*Gildir til 13. ágúst á N1 Akranesi, Borgarnesi, Staðarskála, Blönduósi, Sauðárkróki, Húsavík, Egilsstöðum og Hvolsvelli


NORÐURLAND

Skagafjörður – til að eiga góða stund

Fyrir þau sem vilja upplifa Ísland án þess að flýta sér er Skagafjörður nauðsynlegur viðkomustaður. Hér fléttast saman menning, náttúra og vellíðan og skapa andrúmsloft sem krefst þess að numið sé staðar.
Sagnaslóðir
Hér drýpur sagan af hverju strái, ýmist af grimmilegum örlögum eða þjóðsögur um álfa og huldufólk. Í norðri gnæfir Drangey úr firðinum, órjúfanlega tengd sögu Grettis Ásmundarsonar. Að horfa yfir til Drangeyjar af ströndinni, eða sigla út í eyjuna á góðum degi, er ferðalag inn í goðsagnarheim. Þar má ímynda sér hvernig kappinn hafi kveikt eld sinn eftir frægt sund sitt af eyjunni og í land til að sækja glæður fyrir sig og Illuga bróður sinn. Þetta er saga um einangrun, þrautseigju og mannlegan mátt gegn náttúruöflunum – saga sem enn á erindi til okkar í dag. En það er ekki bara stríð og hetjuskapur sem einkennir sögu héraðsins. Trúarsaga og menntun eiga sér einnig djúpar rætur í Skagafirði. Hólar í Hjaltadal voru biskupssetur og helsta menningarmiðstöð Norðurlands í tæp sjö hundruð ár. Þegar gengið er um Hólastað má finna kraft staðarins. Hóladómkirkja, reist úr rauðum sandsteini úr héraðinu, er elsta steinkirkja landsins og geymir ómetanlega listmuni. Í kringum kirkjuna ómar sagan af lærdómi, prentverki og kristindómi. Í Skagafirði má finna fjölda safna og sýninga sem miðla menningararfi Íslendinga á fjölbreyttan hátt.



hrossarækt í hæsta gæðaflokki og víða má finna hestaleigur sem bjóða ýmist lengri eða styttri ferðir.
» Flúðasiglingar um jökulárnar er ógleymanleg upplifun.
» Frá fjöru til fjalla. Víða má finna fjölbreyttar göngu- eða hjólaleiðir og fyrir vana göngugarpa bjóða Mælifellshnjúkur og Tröllaskagi upp á magnaðar áskoranir.
» Sundlaugar. Sundlaugar er að finna í helstu þéttbýliskjörnum, sundlaugin á Sauðárkróki hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum, sundlaugin í Varmahlíð er vinsæl fjölskyldulaug og
vallar á Sauðárkróki, sem er einn glæsilegasti 9 holu völlur landsins og þar er nú glænýr og glæsilegur skáli.
Veitingar Skagafjörður er eitt helsta matvælahérað landsins, hér er öflugur sjávarútvegur, landbúnaður og mikil gróska meðal smáframleiðanda. Fjöldi veitingastaða og kaffihúsa er um allan fjörð þar sem finna má gómsæta rétti úr hágæða hráefni úr héraði.
Gerðu vel við þig og þína og eigið góðar stundir í Skagafirði.
















Sumarlegir kjúklingaréttir




Fyrir 4
Hráefni
4 kjúklingabringur
2 msk ólífuolía safi úr einni sítrónu rifinn börkur af einni sítrónu tvö pressuð hvítlauksrif
1 tsk oregano
1 tsk timjan salt og svartur pipar fersk steinselja til skrauts
Aðferð
Blandið saman ólífuolíu, sítrónusafa, sítrónuberki, hvítlauk, oregano, timjani, salti og pipar.
Penslið kjúklinginn vel með marineringunni og látið standa í 30 mínútur (eða lengur ef tími gefst).
Grillið kjúklinginn í 6–7 mínútur á hvorri hlið þar til hann er fulleldaður. Stráið ferskri steinselju yfir áður en borið er fram.
Meðlæti:
Grænt salat, perlu kúskús og jógúrtsósa.
Fyrir 4
Hráefni
4 kjúklingabringur (má líka nota kjúklingalundir)
1 msk ólífuolía
1 tsk paprikuduft
1 tsk hvítlauksduft
salt og pipar
Skálin
2 bollar soðin hrísgrjón
1 mangó, skorið í teninga
1 avókadó, skorið í teninga
1 bolli kirsuberjatómatar, helmingaðir ½ rauðlaukur, smátt saxaður ferskt kóríander
safi úr einu lime
Aðferð
Kryddið kjúklinginn með olíu, papriku, hvítlauksdufti, salti og pipar.
Grillið eða steikið í 5-6 mínútur á hvorri hlið.
Skerið kjúklinginn í sneiðar.
Setjið hrísgrjón í skál og raðið mangói, avókadó, tómötum og rauðlauk yfir.
Leggið kjúklinginn ofan á.
Kreistið lime yfir og skreytið með fersku kóríander.
Meðlæti:
Grísk jógúrtsósa eða mangó salsa.
Fyrir 4
Hráefni
Spjót
500 g kjúklingabringur, skornar í bita
1 rauð paprika
1 gul paprika
1 rauðlaukur
1 kúrbítur
Marinering:
2 msk ólífuolía
2 msk sítrónusafi
2 hvítlauksrif, pressuð
1 tsk cumin
1 tsk paprikuduft salt og pipar
Jógúrtsósa
2 dl grísk jógúrt
1 hvítlauksrif, pressað
1 msk sítrónusafi
1 msk smátt söxuð steinselja eða dill salt og pipar
Aðferð
Blandið saman hráefnum í marineringuna.
Látið kjúklinginn marinerast í að minnsta kosti 30 mínútur.
Þræðið kjúkling og grænmeti til skiptis á grillspjót.
Grillið í 10–12 mínútur og snúið reglulega þar til kjúklingurinn er eldaður.
Hrærið saman hráefnum í jógúrtsósuna og berið fram með spjótunum.
Meðlæti:
Ferskt salat, grillaðar kartöflur eða hvítlauksbrauð.

KJÚKLINGUR OG KALKÚNN FRÁ ÍSFUGLI ER REKJANLEGUR TIL
BÓNDA

Kíktu í heimsókn tilÍsfuglsbónda!





AUSTURLAND


Gengið af Vatnsskarði í Stórurð.
Stórurð undir hamraveggjum Dyrfjalla
Ein hrikalegasta náttúrusmíð landsins er Stórurð sem gengið er í frá Vatnsskarði þegar farið er á Borgarfjörð eystri. Stórurð er undir hamraveggjum Dyrfjalla og hefur myndast þegar risavaxin móbergs- og þursabergsbjörg hafa fallið ofan á skálarjökul sem legið hefur við Dyrfjöll en enn má sjá leifar af honum undir hömrum fjallanna. Jökullinn hefur skriðið niður dalinn undan eigin þunga og björgin borist með honum langa leið.
Stórurð eins og hún er í dag hefur að mestu mótast af síðasta ísaldarskeiði sem lauk fyrir um 10.000 árum. Þegar jökullinn hopaði urðu þessar risavöxnu steinblokkir eftir í dalbotninum og hafa staðið þar óhreyfðar um þúsundir ára.
Stórurð er mikil um sig og þar er margt forvitnilegt að sjá. Hægt er að finna þar skjólgóða stóra hellisskúta og ganga um raufir milli risavaxinna kletta. Blágrænar tjarnir er víða að finna og inn á milli rennisléttar grundir. Saman mynda þessi náttúrufyrirbrigði ævintýralega veröld sem lætur engan ósnortinn.
Fimm merktar gönguleiðir liggja að Stórurð, frá Héraði, Vatnsskarði, Njarðvík og tvær frá Borgarfirði. Ganga utan merktra leiða í Stórurð getur verið vafasöm í þoku því villugjarnt er á þessum slóðum. Ganga í Stórurð er nokkuð löng og má í það minnsta gera ráð fyrir 6 klst í ferðina.
Upplifðu Austurland // east.is
Sænautasel á Jökuldalsheiði við samnefnt vatn var endurbyggt í lok síðustu aldar sem góður fulltrúi heiðarbýlanna fyrrum tíð. Í Sænautaseli er boðið upp á hina ýmsu skemmtun og léttar veitingar að þjóðlegum hætti. Opið er alla daga í júní-ágúst.
Innra Hvannagil er í Njarðvík við Borgarfjörð eystra og hægt er að aka alveg að gilinu. Frá bílastæði er gengið er um 100 m. upp með ánni, upp fyrir berggang sem byrgir útsýn inn í gilið. Þar opnast ævintýraheimur.
Hallormsstaðarskógur er víðáttumesti skógur landsins en hann liggur meðfram Lagarfljóti að austanverðu. Atlavík er innarlega í skóginum en við hana er vinsælt tjaldsvæði. Allt svæðið er ferðafólki mjög aðgengilegt.
Víknaslóðir eru eitt best skipulagða göngusvæði landsins. Fjölbreytt þjónusta er við göngufólk svo sem ferðaskipulag, gisting, leiðsögn, flutningar (trúss) og matsala og þrjá vel búna gönguskála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs er að finna í Loðmundarfirði, Húsavík og Breiðuvík.
Helgustaðanáma er silfurbergsnámuna í Helgustaðalandi á leiðinni frá Eskifirði til Vöðlavíkur og liggur göngustígur upp að henni. Hún er ein frægasta silfurbergsnáma í heimi. Náman er nú friðlýst sem náttúruvætti.
Hengifoss er í norðanverðum Fljótsdal á móts við innri enda Lagarfljóts. Hann er næsthæsti foss landsins, 128 m hár. Auðvelt er að ganga upp að Hengifossi frá upphafsstað en það tekur um 4060 mínútur að ganga frá bílastæði að fossinum.


Hjá okkur finnur þú mikið úrval af ullarfatnaði með áherslu á góð gæði, gott verð og góða þjónustu þar sem við hjálpum þér að finna fatnað sem hentar þér. Hvor t sem það er í útivistina eða daglegt líf. Við bjóðum mikið úrval af þykkum og þunnum ullarfatnaði á fullorðna og börn svo auðvelt er að finna það sem hentar þínum þörfum.
Ver tu velkomin í verslun okkar í Skeifunni eða skoðaðu úrvalið á ullarkistan is, þar sem hægt er að panta og fá sent um allt land.

AUSTURLAND

Fossahringurinn genginn
Af fjölmörgum hugmyndum um skemmtilega gönguferð á
Austurlandi má nefna svokallaðan Fossahring sem er 8 kílómetra gönguhringur sem byrjar og endar í Laugarfelli sem staðsett er á austanverðu hálendi Íslands, rétt norðan við Snæfell, hið fagra auðkennisfjall svæðisins. Ferðalöngum til glöggvunar þá liggur Kárahnjúkavegur nánast að Laugarfelli en aðeins er um tveggja kílómetra leið á ágætum malarvegi að skálanum.
Að breyta fjalli...
Búlandstindur er 1069 metra hátt basaltfjall, tákn Djúpavogs og meðal formfegurstu fjalla á Íslandi. Stefán Jónsson fréttamaður skrifaði ágæta bók með ofangreindum titli og vísaði þar í sögn af föður sínum sem tókst það verk á hendur að hækka Búlandstind með því að reisa vörðu á toppnum. Fjöldi fólks leggur leið sína á tindinn á hverju ári. Best er að fara eftir vegar-
Gera má ráð fyrir að það taki 2-3 klukkutíma að ganga Fossahringinn. Á gönguleiðinni má sjá fimm fossa og eitt gljúfur. Sumir þessara fossa eru meðal vatnsmestu fossa á Austurlandi og eru þeirra þekktastir Kirkjufoss og Faxi en þeir eru í Jökulsá í Fljótsdal sem rennur út í Lagarfljót. Öll er leiðin stikuð en að göngu lokinni er tilvalið að baða sig í náttúrulaugunum í Laugarfelli.
slóða sem liggur meðfram Búlandsá skarð fyrir innan Búlandstind. Þar á eftir

Búlandstindur er tákn Djúpavogs og meðal formfegurstu fjalla á Íslandi.
Fossinn Faxi er einn þeirra sem fengið er að á Fossahringnum.














SUÐURLAND
Kaffihús og kruðerí á Sólheimum
Á ferð um Suðurland er tilvalið að hafa viðkomu á þeim fallega stað Sólheimum í Grímsnesi. Sólheimar eru sem kunnugt er sjálfbært samfélag þar sem rúmlega 100 einstaklingar búa og starfa saman en starfseminni kom Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir á fót árið 1930.
Fjölbreytt starfsemi er á Sólheimum svo sem rekstur skógræktar- og garðyrkjustöðva sem báðar stunda lífræna ræktun. Einnig er rekið þar bakarí og matvinnsla, verslun, listhús, kaffihús og gistiheimili og listvinnustofa. Ferðafólk getur því sest niður, notið kaffiveitinga og stutt starfsemi Sólheima með kaup-

til stuðnings starfseminni á Sólheimum.

Notalegt er að setjast niður á Grænu könnunni í Sólheimum.
um á list- og nytjamunum, sem og grænmeti.
Sólheimar bjóða upp á gistingu, veitingar, afþreyingu, sýningar, safn og listmuni.
Kaffihúsið Græna Kannan og Verslunin Vala eru opin virka daga og laugardaga frá klukkan 11:00 til 16:00. Mötuneytið er opið alla virka daga frá 11:30 til 13:00.
solheimar.is
Upplifðu Suðurland // south.is
Bláhnúkur er líparítfjall (943 m y.s.) við Landmannalaugar. Bláhnúkur er litfagur, venjulega með fannarblesu. Talið er að hann hafi orðið til við gos undir jökli.
Dímon, Stóri- og Litli-Dímon eru á Markarfljótsaurum. Stóri-Dímon er stórt, grasi gróið fell (178 m y.s.) í mynni Markarfljótsdals, að mestu úr móbergi. Koma saman í því mörk Austur-Landeyja, Fljótshlíðar og Vestur-Eyjafjalla.
Flóaáveitan eru skurðir sem liggja um gjörvallan
Flóa eða allt frá Ölfusá í vestri að Þjórsá í austri.
Þetta stórvirki síns tíma samanstóð af 300 km

Lífrænt kaffi frá kaffibrennslu Sólheima.
löngum skurðum sem að mestu voru handgrafnir og 900 km af flóðvarnargörðum.
Hverasvæðið í Hveragerði er í miðjum kaupstaðnum og er það eitt af merkilegri náttúruperlum Suðurlands. Á staðnum er móttaka fyrir ferðamenn í skála sem er við Hveramörk, austast á hverasvæðinu.
Núpsstaðarskógar eru í landi Núpsstaðar en Núpsstaður er austasti bærinn í Skaftárhreppi og stendur við Lómagnúp. Á Núpsstað standa einkar merkileg gömul bæjarhús sem talin eru dæmigerð fyrir bæi á Íslandi á síðustu öldum.
Fáðu vönduð dekk hjá Kletti

Dekkin eru eini snertiflötur þinn við veginn í akstri og einn mikilvægasti öryggisbúnaður bílsins. Klettur býður upp á vönduð og örugg dekk frá Goodyear og Hankook. Bókaðu tíma á klettur.is

Traustur félagi
Þú færð hágæða smur- og bílhreinsivörur frá Shell og
Koch-Chemie í verslunum okkar eða á vefverslun Svkeljungs
SUÐURLAND
Ferðavænt hálendi Suðurlands
Á Suðurlandi er ferðavænt hálendi þar sem kostur er að fara í ævintýralegar jeppaferðir. Margir ferðaskipuleggjendur sérhæfa sig í mismunandi tegundum af slíkum ferðum.
Á sumrin eru jöklaferðir vinsælar en það er ógleymanlegt ævintýri hvort sem það er jöklaganga, ísklifur, eða jeppaferðir. Vélsleða- eða fjórhjólaferðir henta öllum sem eru að leita að smá spennu og ævintýri meðan þeir eru í fríi. Svo er líka hægt að fara kajak á jökullónum.

Jeppaferð á með stórkostlegu útsýni getur sannarlega verið eftirminnileg upplifun.
Velkomin í ELDHEIMA




Staldrað við í Skógasafni
Skógasafn er eitt elsta byggðasafn landsins og safnkosturinn samanstendur af meira en 18 þúsund munum, að mestu frá Rangárvallasýslu og

Vestur-Skaftafellssýslu. Skógasafn skiptist í raun í þrjú söfn: byggðasafn, húsasafn og samgöngusafn og þar er full ástæða til að staldra við á leið um landið og skoða allt það áhugaverða sem þar er að finna.
Byggðasafn og sunnlensk byggingararfleifð

Íbúðarhúsið frá Holti á Síðu var fyrsta timburhús í Vestur-Skaftafellssýslu, allt byggt úr rekaviði árið 1878.
ásamt skemmu. Efst er íbúðarhús frá Holti á Síðu sem var fyrsta timburhús í Vestur-Skaftafellssýslu, byggt að öllu leyti úr rekavið árið 1878.
Fróðlegt samgöngusafn
Byggðasafnið er elsti hluti safnsins og sýningarhúsnæðið er á þremur hæðum. Þar má finna sjósóknardeild, landbúnaðardeild, náttúrugripadeild, vefnað, forn handrit og bækur, þar á meðal eintak af Guðbrandsbiblíu frá 1584 ásamt munum frá Víkingaöld. Í húsasafninu finnast góðir fulltrúar fyrir húsagerð fyrr á öldum. Á neðri hluta sýningar-
svæðisins setur torfbærinn mikinn svip á svæðið en þar eru fjós, skemma, baðstofa, hlóðaeldhús, búr og stofa. Í efri hluta svæðisins er skólabygging sem er dæmigerð fyrir sveitaskóla í upphafi 20. aldar. Einnig er þar Skógakirkja, sem var vígð árið 1998 og fjósbaðstofa
Í Samgöngusafninu er rakin saga samgangna og tækniþróunar á Íslandi á 19. og 20. öld. Þar má meðal annars kynnast þróun samgangna frá hestum til bíla, sögu símans á Íslandi, upphafi rafmagnsnotkunar ásamt póstsamgöngum fyrr á tímum. Þar eru einnig til sýnis bílar frá upphafi bílaaldar, vegminjar frá Vegagerðinni, fjarskiptasafn Sigurðar Harðarsonar og sýning Landsbjargar um björgunarsveitirnar í landinu ásamt mörgu öðru. Í Samgöngusafninu er einnig minjagripaverslun og kaffitería. Nánari upplýsingar um safnið eru á www.skogasafn.is/is og starfsmenn þess eru duglegir að miðla efni á samfélagsmiðlum, bæði á Facebook og Instagram.
skogasafn.is
SUÐURLAND
Sagan við hvert fótmál í Odda

Þegar ekinn er þjóðvegurinn um Suðurland er upplagt að renna í hlað á Odda á Rangárvöllum, einum sögufrægasta stað á landinu. Þar er víðsýnt um Suðurland frá Gamma brekku og sagan við hvert fótmál. Í eigu Oddakirkju er silfur kaleikur sem talinn er vera frá árinu 1300, altaristafla frá árinu 1895 sem sýnir Krist í grasagarðinum Gestemane og skírnarfontur sem er útskorinn og málaður af Ámunda snikkara Jónssyni.
asti höfðingi á Íslandi. Hjá Jóni ólst upp Snorri Sturluson (11781241), sagnaritari og lögsögumaður, sem telja má frægasta Íslending fyrr og síðar.



Sýningarhús Eldheima er sérhannað yfir það sem eftir er af einbýlishúsi við Gerðisbraut 10 en það fór undir ösku í Heimaeyjargosinu fyrir rúmlega hálfri öld.
Upplifðu Heimaeyjargosið
á áhrifaríkan hátt
Gosminjasýningin Eldheimar í Vestmannaeyjum lýsir á áhrifamikinn hátt sögu Vestmannaeyjagossins árið 1973 og afleiðingum þess. Gosið stóð í fimm mánuði og eyðilagði þriðjung byggðarinnar í Eyjum. Þetta var heimsviðburður á sínum tíma og til Íslands flykktust fréttamenn og vísindamenn úr öllum heimshornum.
Gerðisbraut 10
Sýningarhús Eldheima er byggt yfir húsið við Gerðisbraut 10 sem hvarf undir ösku á sínum tíma en var grafið upp og er í raun miðpunktur sýningarinnar. Því er mikil upplifun fyrir gesti að sjá hvernig umhorfs er í húsi sem grófst í ösku í þessum atburði sem markaði djúp spor í sögu Vestmannaeyja. Gestir safnsins fá hljóðleiðsögn um sýninguna og reynt er á þann hátt að gera upplifun þeirra sem raunverulegasta og að þeir hafi á tilfinningunni að þeir séu staddir á vettvangi atburðanna fyrir hálfri öld.
Sýning um Surtsey
Auk gosminjasýningarinnar er í Eldheimum sýning um Surtseyjargosið árið 1963 en það stóð yfir í tæplega 4 ár.

Eldgosið á Heimaey var sannarlega ógnaratburður og gestir sýningarinnar í Eldheimum hrífast af stórglæsilegu myndefni og kraftmikilli hljóðleiðsögn.
Surtsey er á heimsminjaskrá UNESCO og er hún lokað náttúruverndarsvæði sem gerir vísindamönnum heimsins kleift að fylgjast með því hvernig nýtt líf og vistkerfi verður til.
Opið er í Eldheimum alla daga kl. 1117.
eldheimar.is
REYKJANES

Undur veraldar á Reykjanesi
Flaggskip ferðaþjónustunnar á Reykjanesi er án efa Bláa lónið sem jafnframt er eitt öflugasta ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Í lóninu er jarðsjór sem að tveimur þriðju hlutum er saltvatn og einum þriðja hluta ferskvatn. Hann finnst á allt að 2000 metra dýpi og er leiddur með lögn frá uppsprettunni að heilsulindinni en rennur einnig af sjálfsdáðum um hraunið umhverfis.
Jarðsjórinn er ríkur af steinefnum, kísli og þörungum og á sínum tíma sótti fólk í að baða sig í lóninu vegna þeirra jákvæðu áhrifa sem jarðsjórinn hafði á húðina. Bláa lónið var stofnað 1992 og síðan þá hefur markvisst verið unnið að því að byggja upp heilsu- og lækningalind, jafnframt þróun heilsuvara en í Bláa lóninu er einnig veitingaþjónusta, aðstaða til funda- og ráðstefnuhalda og hótelgisting.

Hátíð í bæ á Ljósanótt. Hefð er fyrir að jafnaldrar hittist í svokallaðri árgangagöngu
í sessi sem ein af stærri bæjarhátíðum landsins en hún er alla jafna haldin fyrstu helgina í september. Hátíðin verður í ár haldin dagana 3.-6. september. Fyrsta Ljósanóttin var haldin haustið 2000.
Ljósanótt er menningar- og fjölskylduhátíð þar sem áhersla er lögð á fjölbreytta viðburði frá fimtudegi til sunnudags en hápunkturinn er á laugar-
sess í tónlistarbænum Reykjanesbæ og kemur fjöldi tónlistarmanna fram en auk þess er mikið um myndlistarsýningar í galleríum og á vinnustofum listamanna, sérstök atriði fyrir börnin, akstur bifhjóla og fornbíla og margt, margt fleira.
ljosanott.is
blaalonid.is
Upplifðu Reykjanes // visitreykjanes.is
Almenningur er hraunspilda sem hefur runnið úr
Hrútagjárdyngju fyrir um 7.000 árum. Er dyngjan nyrst í Móhálsadalnum sem er dalur milli
Sveifluháls og Núpshlíðarháls.
Básendar eru fornt útræði og verslunarstaður sunnan við Stafnes. Þar var löngum ein af höfnum einokunarverslunarinnar og náði verslunarsvæðið yfir Hafnir, Stafnes og Miðnes. Básendar eyðilögðust í ofsalegu sjávarflóði, aðfaranótt 9. janúar 1799.
Eldborg er langstærstur fimm gíga sem liggja í gossprungu í hlíðum Geitafells og oft kallaður
Stóra-Eldborg. Hægt er að ganga upp að Stóru-Eldborg, sem margir telja fegursta gíg
Suðvesturlands, og þaðan niður í Litlu-Eldborg þar sem hægt er að sjá ofan í gíginn.
Kálfatjörn er bær, kirkjustaður og áður prestsetur á Vatnsleysuströnd. Á Kálfatjörn var kirkja helguð Pétri postula í kaþólskum sið. Núverandi kirkja var reist 1892-1893 og vígð 11. júní 1893.
Selatangar er gömul verstöð miðja vegu milli Grindavíkur og Krýsuvíkur. Útræði lagðist niður á Selatöngum eftir 1880. Allmiklar verbúðarústir eru þar og víða hefur verið hlaðið fyrir hraunhella sem vermenn höfðu til ýmissa nytja. Minjar þar eru friðlýstar.
Sogin er sérkennilegt háhitasvæði sunnan við Trölladyngju og Grænudyngju. Svæðið er allt ummyndað af jarðhita og gefur hlíðunum sem eru myndaðar af Sogaselslæknum fjölbreytta litaskrúð.
Gunnuhver – ógleymanleg
Rétt austan við Reykjanesvita er mikið jarðhitasvæði, eitt af mörgum á Reykjanesi. Gunnuhver er þekktasti hverinn þar en hann mun draga nafn sitt af Guðrúnu nokkurri sem gekk aftur og olli miklum usla á svæðinu þar til að Eiríki Magnússyni, presti í Vogsósum, tókst að koma draugnum fyrir með því að senda hann í hverinn. Gunnuhver er einn dramatískasti staður Reykjaness og gefur einstaka innsýn í samspil elds og jarðar á Íslandi. Heimsókn á svæðið er ógleymanleg upplifun þar sem náttúruöflin eru bæði sýnileg og áþreifanleg.
Jarðhitasvæðið hefur tekið miklum breytingum í gegnum tíðina, sérstaklega í kjölfar jarðskjálfta sem einkenna Reykjanesskagann. Sprungukerfi sem liggur frá Valbjargagjá um Gunnuhver hefur margsinnis hreyfst og aukið hveravirkni tímabundið.
Aðgengi að Gunnuhver hefur verið stórbætt á síðustu árum. Göngustígar og útsýnispallar gera gestum kleift að skoða hverina úr öruggri fjarlægð. Mikil-
upplifun

Aðgengi að Gunnuhveri hefur verið stórbætt á síðustu árum.
vægt er að halda sig á merktum stígum þar sem jarðvegur er viðkvæmur og hitastig getur verið afar hátt. Í nágrenni Gunnuhvers eru margir
vinsælir áfangastaðir, þar á meðal Brimketill, Karlinn, Kirkjuvogskirkja, Hvalneskirkja, Húsatóftavöllur, Sandgerði og Keflavík.
REYKJANES
Saga seiglu og hamfara

Það eru fáir staðir á Íslandi sem hafa verið jafn mikið í fréttum síðustu árin og Grindavík. Heimsókn til Grindavíkur er einstök upplifun. Hjá Discover Grindavík fá gestir að heyra söguna, fá innsýn í hamfaratíma bæjarins sem hófst með kvikusöfnun í janúar 2020. Eldgos hófust í mars 2021 í Fagradalsfjalli, svo aftur í ágúst 2022 og í júlí 2023. Þá kom lognið á undan storminum. Saga Grindavíkur er saga sem þarf að upplifa í gegnum heimamanneskju.
Milljónir manna um allan heim fylgdust með eldgosum, glóandi hraunstraumum og myndum af bæ sem þurfti að rýma á örfáum klukkustundum. Fyrirsagnirnar sögðu frá náttúruöflunum. Myndirnar sýndu eldgosin og eyðilegginguna.

En myndir segja ekki alla söguna. Bak við fréttirnar er samfélag. Fólk sem ólst upp í sjávarplássi, byggði líf sitt í Grindavík og þurfti skyndilega að yfirgefa heimili sín. Samfélag sem hefur staðið saman af ótrúlegri seiglu og heldur áfram að skrifa nýjan kafla í sögu bæjarins.
Í dag gefst gestum einstakt tækifæri til að heimsækja Grindavík á ný. Fá einstaka fræðslu og kynningu á sögunni, ganga um bæinn með heimamanneskju sem þekkir svæðið eins og lófann á sér. Að sjá hvernig nýtt hraun mætir gömlu samfélagi. Að skilja hvað raunverulega gerðist – og hvernig lífið heldur áfram.

Kristín María Birgisdóttir er eigandi Discover Grindavík.
Leiðsögn með Discover Grindavík er ekki hefðbundin skoðunarferð. Hún er ferð inn í lifandi sögu Grindavíkur og Íslands. Þú heimsækir staðina sem heimsbyggðin fylgdist með í beinni útsendingu, en færð um leið að kynnast fólkinu, menningunni og samfélaginu sem fréttirnar náðu aldrei að segja frá. Grindavík er enn eitt merkasta náttúruundur Evrópu. En það sem gerir heimsóknina ógleymanlega er ekki aðeins hraunið eða eldgosin. Heldur fólkið.
Velkomin til Grindavíkur.

Saga Grindavíkur er saga sem þarf að upplifa í gegnum heimamanneskju.
Sögur fólksins sem upplifði hamfarirnar SEIGLA SAMFÉLAGSINS

ÓGLEYMANLEG
REYNSLA
Ferð sem þú gleymir aldrei
REYKJANES

Ekki missa af þessu!
Náttúran á Reykjanesskaganum er stórbrotin með sínu mikla háhitasvæði með frussandi hverum og gufustrókum, hraunbreiðum og heimsþekktum fuglabjörgum sem dýralífsunnendur mega alls ekki láta fram hjá sér fara. Á Reykjanesi er hægt að finna 100 mismunandi gíga, hella, hraunbreiður, kletta og svartar strendur.
Valahnúkur er samsettur úr móbergstúfflögum, bólstrabergi og bólstrabrotabergi. Hnúkurinn myndaðist í einu gosi en sýnir mismunandi ásýndir í virkni gossins. Móbergstúffið myndaðist við sprengivirkni í gosinu en bólstrabergið við hraunrennsli í vatn.

Karlinn (Karl) er um 50-60 metra hár klettur eða forn gígtappi sem stendur tignarlegur í hafinu úti fyrir Valahnúk. Karlinn er vinsæll meðal ferðamanna og ljósmyndara.
Gunnuhver er rétt austan við Reykjanesvita, eitt af mörgum jarðhitasvæðum á Reykjanesi. Leirhverinn mun draga nafn sitt af Guðrúnu nokkurri sem gekk aftur og olli miklum usla uns tókst að kveða hana í hverinn.
Grænavatn er stærsti sprengigígur á svæði Krýsuvíkur. Eins og nafnið gefur til kynna er vatnið grænt sem er vegna samblöndu brennisteinstegunda. Vatn-
ferkílómetra hrauni sem flæddi í gosog rekhrinunni Reykjaneseldum á árabilinu 1210 til 1240. Áður fyrr voru bökuð brauð í Eldvörpum og liggur svokallaður Brauðstígur þangað frá Grindavík. Grænadyngja og Trölladyngja eru brött móbergsfjöll vestan við Sogin. Þau einkennast af ungum gossprungum, háhitasvæðum og mikilli litadýrð. Apalhraun rann frá gosstöðvum suður til sjávar við Reykjanesbraut og myndaði meðal annars Afstapahraun.


UPPLIFÐU NÝ ÆVINTÝRI Á REYKJANESI
Ferðalagið þitt byrjar hér





REYKJANES

byggðina við sjávarsíðuna fyrr á tíð.
Stekkjarkot við Njarðarbraut
Hvernig skyldu menn hafa búið hér áður fyrr, fyrir daga bárujárnshúsa og áður en íslenska steinsteypuöldin gekk yfir? Eitt dæmi um slíkt má finna í Reykjanesbæ en það er þurrabúðin Stekkjarkot við Njarðabraut sem Byggðasafn Reykjaesbæjar hefur umsjón með.
Stekkjarkot er endurgerð á koti sem stóð í Innri-Njarðvík. Húsið er reist úr torfi og grjóti og er dæmigert fyrir þau fjölmörgu kot sem einkenndu búsetu á svæðinu á 19. öld og upphafi 20. aldar. Stekkjarkot var þurrabúð sem þýddi að landið var leigt og þar mátti ekki halda skepnur. Íbúar þurftu því að framfleyta sér með sjósókn.
Stekkjarkot er aðins opið á sumrin og hægt að sækja það heim í samráði við safnið. Vinsamlegast sendið fyrirspurnir á: byggdasafn@reykjanesbaer.is.
Keilir – einkennisfjall Reykjaness
Keilir er einkennisfjall Reykjanesskaga, 379 metra hátt tengt við lágan hrygg sem nefnist Keilisbörn. Keilir er vinsæll til fjallgöngu og af toppnum er afar víðsýnt. Auðvelt er að ganga á fjallið að norðaustanverðu.
Keilir myndaðist í einu stöku gosi undir nokkuð þykkum ísaldarjökli. Slíkar eldstöðvar eru yfirleitt úr móbergi og gjósa þær aðeins einu sinni á lífstíð sinni. Keilir er því það sem kallast móbergsfell eða jafnvel móbergskeila vegna lögunar sinnar. Þegar ekið er í suðurátt eftir Suðurgötu í Reykjavík er Keilir beint fyrir augum. Sjómenn hafa löngum haft Keili sem mið og er hann til dæmis notaður þegar siglt er inn Hamarssund á leið inn til Sandgerðis.

Víkingaskipið Íslendingur
Fróðlegt er að sækja heim safnið Víkingaheima í Reykjanesbæ en þar er m.a. að finna nákvæma eftirgerð af Gauksstaðaskipinu norska frá 9. öld. Þetta skip sem nú liggur í nausti á þessu frábæra safni sigldi árið 2000 yfir Atlantshafið til að minnast ferðar Leifs Eiríkssonar til Nýja heimsins þúsund árum fyrr. Safnið í Reykjanesbæ er auðvitað við Víkingabraut 1.
Þegar menn lögðust í víking á öldum áður var farkosturinn ekki slakur enda kom í ljós við endurgerð víkingaskipsins Íslendings að slík fley höfðu til að bera einstaka haffærni og siglingar á víkingaöld því ekki eins hættulegar eða ómannúðlegar og við höfum talið. Það var hagleikssmiðurinn Gunnar Marel
Eggertsson sem komst að þessari niðurstöðu en hann sigldi skipinu til Ameríku á sínum tíma.

Glæsilegt sýningarhús Víkingaheima er með gott aðgengi fyrir alla.
Í Víkingaheimum eru að jafnaði áhugaverðar sýningar, m.a. um norræna
goðafræði, sögu víkinga, landnámið, fornleifar á Suðurnesjum og fleira.
Af Keili er mikil og falleg útsýn og er auðvelt að ganga á fjallið að norðaustanverðu.

„Sumarið er einn líflegasti tími ársins hjá Ferðafélagi Íslands,“ segir Heiða Meldal, ferðafulltrúi hjá FÍ. „Framundan er fjölbreytt úrval ferða um allt land, þar sem þátttakendur geta valið úr dagsferðum, sumarleyfisferðum, hálendisferðum, fjölskylduferðum, hjólaferðum og göngum á nokkra af fallegustu tindum landsins.“
Þekktar perlur og fáfarnar slóðir Heiða segir að ferðirnar nái yfir bæði þekktar náttúruperlur og fáfarnari slóðir, frá Þórsmörk, Landmannalaugum og Hornströndum yfir í Laugaveginn og Lónsöræfi og fjölmargar aðrar leiðir þar sem íslensk náttúra fær að njóta sín. „Við viljum auðvelda fólki að njóta íslenskrar náttúru á öruggan og ábyrgan hátt,“ segir Heiða.
Stór hluti sumarsins snýst líka um skálana. Skálar Ferðafélags Íslands og deilda FÍ eru um 41 talsins víðs vegar um landið og yfir sumartímann eru skálaverðir í flestum stærri skálum við fjölfarnar gönguleiðir, svo sem á Laugaveginum. „Á hálendinu verður sannkallað líf og fjör á sumrin,“ segir Heiða. „Þar mætast göngufólk, skálaverðir, fararstjórar og ferðalangar alls staðar að úr heiminum. Skálaverðirnir taka á móti fólki, veita upplýsingar, vísa veginn og hjálpa til þegar eitthvað kemur upp á.“

„Ferðafélag Íslands er félag allra sem vilja njóta útivistar og íslenskrar náttúru,“ segir Heiða Meldal, ferðafulltrúi hjá FÍ.
Fólk ferðist vel undirbúið „Veðrið á hálendinu getur verið alveg jafn fjölbreytt og ferðafólkið sjálft,“ segir Heiða. „Sumir dagar eru bjartir og mildir, en aðra daga minnir hálendið rækilega á sig. Þá geta tjöld fokið og áætlanir breyst mjög hratt. Þetta er hluti af hálendisævintýrinu, en líka góð áminning um að fólk þarf að vera vel undirbúið þegar ferðast er til fjalla.“
Að sögn Heiðu skapa skipulagðar ferðir, merktar gönguleiðir og skálar FÍ mikilvægan ramma utan um ferðalög
fólks um viðkvæm svæði landsins. „Með góðri fararstjórn, skálavörslu, leiðbeiningum og fræðslu stuðlum við að auknu öryggi, betri umgengni um náttúruna og góðri upplifun ferðafólks. Sumarið fram undan verður annasamt, fjölbreytt og fullt af ævintýrum ,bæði fyrir vana fjallagarpa og þau sem eru að taka sín fyrstu skref á göngustígunum.“
fi.is
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ

um hálfrar aldar skeið. Íslenska ríkið keypti húsið árið 2002, þegar öld var liðin frá fæðingu skáldsins og tveimur árum síðar var það opnað almenningi. Húsgögn og munir innanstokks eru þeir sömu og voru í tíð Halldórs og hans fjölskyldu sem þar bjó frá árinu 1945. Safnið á Gljúfrasteini er opið í sumar kl. 10-17.
Margmiðlunarsýning og safnbúð
Móttökuhúsið er fyrsti viðkomustaður gesta á Gljúfrasteini. Ævi og verkum Halldórs Laxness eru gerð góð skil í máli og myndum í margmiðlunarsýningu í móttökuhúsinu. Þar geta gestir sjálfir kynnst skáldinu frá vöggu til grafar og skoðað sýninguna sem er á snertiskjá. Fjöldi ljósmynda og kvikmynda er notaður í sýningunni sem er aðgengileg á gagnvirkum snertiskjá á íslensku og nokkrum erlendum málum. Í móttökuhúsinu er einnig safnbúð.
Garðurinn og gönguleiðirnar
Halldór Laxness var mikill útivistarmaður og gekk mikið í nágrenni Gljúfrasteins enda umhverfið fagurt. Gestir eru hvattir til að nýta sér gönguleiðirnar
hann m.a. þennan Jagúar árgerð 1968.

í nágrenni hússins sem stendur við ána Köldukvísl og er byggt í landi jarðarinnar Laxness þar sem Halldór ólst upp. Garðurinn umhverfis húsið er opinn almenningi og hentugar gönguleiðir eru til dæmis upp með ánni í átt að eyðibýlinu Bringum og niður með Köldukvísl í áttina að Guddulaug. Starfsfólk Gljúfrasteins getur leiðbeint fólki um gönguleiðir en einnig er hægt að nálgast göngukort í safnabúðinni.
Stofutónleikar á sunnudögum
Allt frá árinu 2006 hafa verið haldnir stofutónleikar á Gljúfrasteini á sunnudögum yfir sumartímann. Miðar á tónleikana eru seldir í safnbúð Gljúfrasteins samdægurs og viðburðirnir jafnan auglýstir á heimasíðu safnsins og Facebooksíðu þess.
gljufrasteinn.is
Suma í bæn

2026

meðal fjölbreyttra viðburða í Hafnarfirði í sumar. Tónlist, leiklist, sagnfræði, listasýningar og lifandi mannlíf. Já, sumrin eru einfaldlega betri með viðkomu í firðinum fagra.
ára afmæli í ár og endurspeglar það fjölbreytta menningarstarf sem á sér stað í Hafnarfirði. Skemmtun, fjölbreytt verslun og þjónusta, kósí kaffihús, vinalegir veitingastaðir og ný ævintýri við hvert fótmál. Frítt fyrir börnin í sund og ókeypis aðgangur að söfnunum. Við tökum vel á móti þér!
hfj.is/vidburdir
hfj.is/bjartirdagar
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Gröndal í Grjótaþorpi
Gröndalshús í Grjótaþorpi, á horni Fichersunds og Mjóstrætis, er afar snoturt uppgert hús sem áður og fyrr var nefnd Púltið vegna sérkennilegs byggingarlags. Það var byggt við Vest urgötu 16b en flutt í Grjótaþorp og tekið í notkun árið 2017. Þetta hús var áður heimili Benedikts Gröndals (1826-1907), rithöfundar, teiknara og fræðimanns. Benedikt Gröndal var stórhugi á sín um tíma og má kalla hann glæsilegan fulltrúa nítjándu aldarinnar sem og hús ið sem við hann er kennt. Benedikt var einnig áhugamaður um mótun bæjarins og þróun Reykjavíkur sem höfuðstaðar Íslands. Sjálfsævisaga hans er ein rómaðasta sjálfsævisaga ís lenskra bókmennta.
Gröndalshús var að stórum hluta byggt úr timbri úr skipinu Jamestown sem strandaði við Garðskaga fulllestað timbri árið 1881. Á aðalhæð hússins og í risi er vinnuaðstaða fyrir orðlistafólk og í kjallara er gestaíbúð fyrir erlenda rit höfunda, fræðimenn og þýðendur ís lenskra bókmennta sem vilja vinna að list sinni í Reykjavík. Húsið er rekið af Reykjavík, bókmenntaborg UNESCO.

Upplifðu höfuðborgarsvæðið // visitreykjavik.is
Helgafell er 340 m hátt móbergsfjall skammt frá Kaldárseli suðaustan Hafnarfjarðar. Það er auðvelt uppgöngu að norðaustan og gott útsýni er af fjallinu yfir Reykjanesið norðanvert og út á Faxaflóa.
Elliðaárdalurinn er ein helsta útivistarperla Reykjavíkur. Þar eru merkilegir sögustaðir og friðlýstar minjar. Friðsældin í dalnum er einstök og þangað er gott að koma til að hvíla sig frá skarkala borgarinnar.
Ylströndin í Nauthólsvík var vígð sumarið 2000 og ári síðar var opnuð þjónustumiðstöð með búningsklefum, baðaðstöðu og veitingasölu. Við ákjósanlegustu aðstæður er hitastig sjávarlónsins innan grjótgarðanna 18-20°C og pottarnir eru 3035°C heitir.
Viðey er stærsta eyjan í Kollafirði, 1,7 km². Hæst liggur hún á Heljarkinn, 32 m.y.s. Hún er í tveimur hlutum, sem eru tengdir með eiði. Þar eru gönguleiðir góðar. Auðvelt er að fara út í Viðey með Viðeyjarferjunni sem hefur samastað í Klettsvör í Sundahöfn.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn í Laugardal er staður þar sem ungir og aldnir geta notið lífsins. Garðurinn er vel búinn skemmtilegum leiktækjum og vaðtjörn fyrir börnin. Innan borgarmarkanna finnst ekki betri staður til að kynnast íslensku húsdýrunum.
Miðborg Reykjavíkur iðar af lífi, ekki síst yfir sumartímann. Þar er gnótt veitingastaða, menningharhúsa og verslana. Göngugöturnar er skemmtilegt að stika innan um erlendu ferðamennina.
Gröndalshús er nú fræðasetur og rekið af Reykjavíkurborg.
Gljúfrasteinn býður gesti velkomna í allt sumar
• Leiðsögn um húsið
• Safnbúð – bækur, minjagripir
• Stofutónleikar á sunnudögum
Opið alla daga í sumar frá kl. 10.00-17.00.
Frekari upplýsingar á: www.gljufrasteinn.is
www.instagram.com/gljufrasteinn/ www.facebook.com/gljufrasteinn #gljufrasteinn #Laxness

Pósthólf 250 / 270 Mosfellsbær / Sími 586 8066 / gljufrasteinn@gljufrasteinn.is / www.gljufrasteinn.is
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Salurinn, fyrsti sérhannaði tónleikasalur landsins, er á Borgarholti í Kópavogi.
Menning og listir í Kópavogi

Menning og listir eiga sér sterkar rætur í Kópavogi og eru glæsileg menningar hús bæjarins gott vitni um það. Það er vel þess virði að gera sér ferð í Kópavoginn og verja góðum degi á Borgarholtinu en þar eru menningarhúsin og má þar fyrst nefna Gerðarsafn, sem er listasafn Kópavogsbæjar. Safnið var reist til heiðurs Gerði Helgadóttur lista-
Á Borgarholti er einnig Salurinn, fyrsti sérhannaði tónleikasalur landsins en tónlistarmönnum ber saman um að í þessum sal sé að finna óviðjafnanlegan hljómburð. Í næsta húsi við Salinn er Bókasafni Kópavogs og þar er hægt að að lokum má geta Kópavogskirkju sem stendur efst á Borgarholtinu. Frá henni er mikið og fagurt útsýni yfir höfuðborgarsvæðið. Steindir gluggar kirkjunnar eru eftir fyrrnefnda Gerði Helgadóttur.
Gengið í Gróttu
Grótta er örfirisey yst á Seltjarnarnesi og þangað er gaman að taka sér spássitúr á fjöru. Hægt er að dvelja þar í um 6 klukkustundir áður en flæðir að. Grótta er hluti af vinsælu útivistarsvæði og er hún friðland vegna fuglalífs frá árinu 1974. Umferð fólks er bönnuð þar frá 1. maí til 1. júlí ár hvert vegna fuglavarps.
Orðið grótta merkir jarðfall eða hola, en það gæti einnig hafa þýtt hellir, sbr „grotta“ í sænsku. Grótta (eða grótti, kk) getur einnig verið kvörn til að mala korn. Miklar breytingar hafa orðið við Gróttu frá því að land byggðist, bæði vegna landsigs og landbrots, og geta
því þau einkenni sem voru tilefni nafnsins verið horfin.
Viti var reistur í Gróttu árið 1897 en núverandi viti er frá árinu 1947. Áður fyrr var bær í Gróttu og er fyrst getið um hann í heimildum 1547. Bærinn fór síðar

Allt fyrir útivistina















HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Súrrealískur draumur rætist í Hellisgerði
„Draumurinn er að sjá fjölda fólks á öllum stundum njóta króka, kima, hella og lauta í Hellisgerði eins og ég gerði sem krakki,“ segir Knútur Hreiðarsson matreiðslumaður sem ásamt eiginkonu sinni Theódóru Ingibergsdóttur hefur ráðist í veitingarekstur í Hellisgerði, lystigarði Hafnarfjarðar.
„Ég vil hafa krakka í garðinum öllum stundum. Skapa stemninguna sem ég upplifði og ævintýraheim sem hentar fjölskyldunni allri; svæði þar sem öll fjölskyldan fer saman út að leika og borða.“ Hann upplifir endurminningar úr æskunni alla daga í gegnum gestina.
Heiðra fortíðina
„Það er mikilvægt að virkja það sem garðurinn á skilið.“ Þau hjónin hafa lagt mikla vinnu í að endurbæta Oddrúnarbæ í hjarta Hellisgerði en einnig sækja muni sem þar voru áður aftur heim.
„Við erum til að mynda komin með mynd frá barnabarni Oddrúnar Oddsdóttur sem hann málaði tíu ára fyrir aftan húsið. Við höldum í söguna og minningarnar,“ segir Knútur sem vill ekki aðeins bjóða frábærar veitingar heldur
Friðaður lystigarður

einnig gefa fólki tækifæri til að sitja inni í Oddrúnarbæ, sem reistur var árið 1924.
„Við viljum blása lífi í Hellisgerði í heild sinni og skapa upplifun sem fellur náttúrulega að garðinum, sögu hans og þeirri dulúð sem svæðið býr yfir.“
Draumur frá æsku
En hvernig tilfinning er svo að opna
Hellisgerði, lystigarður Hafnfirðinga, er umkringdur langstærsta verndarsvæði í byggð á Íslandi.
Ganga um friðaðan vesturbæinn með viðkomu á byggðasafninu, þar sem er frítt inn, er frábær upplifun. „Svo er einstakt að spotta álfa í klettunum í stað þess að vera límd við símann,“ segir Knútur Hreiðarsson eigandi Helliskaffis í lystigarðinum. Já, álfar búa í Hellisgerði. Hefur hann fundið fyrir þeim? „Það hefur eitt og eitt verkfæri færst úr stað nú í undirbúningum,“ segir hann glettinn. „En við finnum almenna ánægju.“
Álfahátíð í Hellisgerði

Árleg álfahátíð verður haldin í Hellisgerði, lystigarði Hafnarfjarðar, sunnudaginn 16. ágúst. Álfar sem tengjast börnunum eru sérstaklega velkomnir.
Hátíðin er haldin til að heiðra tengingu Hafnarfjarðar og álfa en sögurnar fléttast saman. Þetta er fjölskylduskemmtun þar sem börnin sjálf og börn í anda fá að leika sér, hlæja og dreyma. Komdu og vertu með.
kaffihús á þessum einstaka stað? „Súrrelísk,“ segir Knútur. „Ég hef séð fyrir mér síðan ég var gutti að opna kaffihús í þessu húsi sem mér fannst þá svo stórt en sé nú að er enn minna að innan en utan. Þetta er draumur.“ Hann hlær.
„Ég hlakka svo til að sjá fjölskyldur koma út að borða í Hellisgerði – Sjá fólk koma hingað í hópum og njóta.“

Jónatan Garðarsson leiddi fyrstu göngu sumarsins sem var gríðarlega vel sótt. Um 200 mættu.
Mynd: Tanja
Göngum saman
í Hafnarfirði
Tugir mæta í menningar- og heilsugöngur í Hafnarfirði á miðvikudögum í sumar. Yfir 200 í þeirri vinsælustu. Heyrðu um samtímavíkinga eða skelltu þér í núvitundargöngu við Hvaleyrarvatn. Boðið er upp á menningar- og heilsugöngur alla miðvikudaga í sumar í Hafnarfirði.
hfj.is/gongur
Hjónin Theódóra Ingibergsdóttir og Knútur Hreiðarsson reka saman Helliskaffi í Hellisgerði. Mynd: Árdís



Ekki vera í fýlu á ferðalaginu!






Sendum um land allt!
