Skip to main content

HJARTAÐ ÞITT 2026 (2)

Page 1


Hjartað þitt

Hjarta,æðarogkvenbundnir þættir

Það skiptir máli að taka inn í áhættumat það sem mætti kalla kvenbundna þætti sem eru frábrugnir hinum hefðbundnu Konur þurfa að vera meðvitaðar um heilsuna sína og taka af skarið

Viðvildumaukaþekkingu kvenna

Vilborg Sigurðardóttir hjartasérfræðingur hefur lengst af starfað í Svíþjóð og í Sviss. Hún var fyrsti formaður GoRed og hefur enn margt á prjónunum

Streita

Streituviðbrögð geta verið nauðsynleg t d þegar við erum í keppni eða þurfum að taka hraustlega á því Það er hinsvegar ekkert huggulegt við það þegar streituhormón kyndast upp að nóttu til

Hjartavernd

Hjartavernd hefur boðið upp á áhættumat fyrir einstaklinga sem ekki eru þegar með hjarta- og kransæðasjúkdóma; háþrýsting, hafa farið í kransæðaþræðingu eða fengið hjartaáfall og þar fram eftir götunum Þetta er leiðbeinandi mat sem krefst túlkunar læknis, en gott tæki sem er notað til spá fyrir um 10 ára áhættu

GoRedprjónauppskrift2026

Að þessu sinni fengum við uppskrift frá Kristínu Örnólfsdóttur, öflugum prjónara og hönnuði sem gefur GoRed aðgang að vettlinga/grifflu uppskrift sem kemur sér vel í þurru köldu veðri

Hjarta,æðar& kvenbundnir þættir

Hjarta- og æðasjúkdómar eru ein algengasta dánarorsök kvenna um allan heim, en samt er enn algengt að fólk tengi hjartasjúkdóma fyrst og fremst við karla Á síðastliðnum áratugum hafa orðið miklar framfarir í greiningu og meðferð hjartasjúkdóma en rannsóknir sýna að dánartíðni karla af völdum hjarta- og æðasjúkdóma hefur lækkað meira en hjá konum. Þetta bendir til þess að konur séu ekki metnar í nægilega mikilli áhættu og að þær sjálfar hlusti ef til vill síður á líkamann sinn og leiti þannig ekki hjálpar nógu fljótt, sem veldur seinkun á greiningu og meðferð

Bráður kransæðasjúkdómur (e acute coronary syndrome, ACS) er samheiti yfir sjúkdómstilvik þar sem blóðflæði til hjartavöðvans skerðist skyndilega Þetta veldur vanalega bráðum brjóstverk ásamt öðrum einkennum. Hjá konum getur birtingarmyndin þó virst flóknari en hjá körlum og viðbrögðin ; bæði sjúklings og nærstaddra ekki eins fumlaus

Áhættuþættir – hefðbundnir og kvenbundnir Hefðbundnir áhættuþættir fyrir hjarta- og æðasjúkdóma eins og reykingar, sykursýki, of hár blóðþrýstingur, hækkaðar blóðfitur og offita skipta konur síst minna máli en karla

Sykursýki virðist til dæmis hafa meiri hlutfallsleg áhrif á konur en karla og reykingar eru stærri áhættuþáttur hjá konum (3 3 faldur en í kringum 1 9 faldur körlum) Á sama tíma hefur offita meðal kvenna aukist og orðið verulegt alþjóðlegt heilbrigðisvandamál.

Kransæðarnar hjá konum eru yfirleitt minni að þvermáli en hjá körlum, jafnvel þegar tekið er mið af líkamsstærð og hjartastærð.

Hjartasjúkdómar láta oftast á sér kræla hjá konum eftir tíðarhvörf Áhrif kvenhormóna, sérstaklega estrógens, skipta hér máli: þau hafa jákvæð áhrif á blóðfitur, draga úr blóðstorknun og styrkja æðaveggi Þegar estrógenmagn minnkar eða hverfur eftir tíðahvörf breytist þessi mynd á blóðþrýstingi, fitudreifingu og insúlínnæmi, teygjanleiki æðanna minnkar og áhætta á æðasjúkdómum eykst

Hins vegar hefur ekki verið sýnt fram á að gjöf tíðarhvarfarhormóna dragi úr áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum og að mörgu er að huga þegar kemur að hormónanotkun almennt

Hefðbundinn áhættureiknir tekur ekki mið af algengum og mikilvægum kvenbundnum áhættuþáttum

Sjúkdómar og hormónatruflanir eins og PCOS (fjölblöðrueggjastokkaheilkenni), fyrirburafæðingar, meðgöngueitrun, háþrýstingur á meðgöngu og sykursýki á meðgöngu hafa sterk tengsl við aukna áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum síðar á ævinni Snemmkomin tíðahvörf og brottnám eggjastokka geta einnig aukið áhættuna. Sjálfsónæmissjúkdómar, sem eru algengari hjá konum til dæmis rauðir úlfar og iktsýki –auka líka hættu á hjarta- og æðasjúkdómum.

Lyf&geislar

Krabbameinsmeðferð, bæði lyfjameðferð og geislun á brjósthol líkt og við brjóstakrabbamein getur líka skaðað hjartað, þannig að sama kona getur borið með sér bæði hefðbundna og “kvenbundna” áhættu þætti án þess að það sé alltaf tekið saman í heild.

Ólíkar orsakir kransæðavanda hjákonum

Ekki aðeins eru áhættuþættirnir oft vannýttir í mati, heldur eru undirliggjandi orsakir bráðra kransæðasjúkdóma stundum aðrar hjá konum Konur eru til dæmis oftar með dreifðan eða vægari æðakölkun en karlar, en geta samt fengið hjartaáfall

Eitt dæmi er svokallað MINOCA (Myocardial Infarction with Non-Obstructive Coronary Arteries) eða hjartaáfall án þess að greinileg stífla sjáist í stórum kransæðum við kransæðamyndatöku Þetta er algengara hjá konum en körlum Ástæðan getur verið örrof í litlum veggskellum, æðakrampi, bólga í hjartavöðva, truflun í smáæðum eða aðrar fínlegar breytingar sem ekki sjást sem klassísk stífla

Annað fyrirbæri sem sést hjá konum er svokallað SCAD (spontaneous coronary artery dissection) eða sjálfsprottið rof í vegg kransæða. Í SCAD myndast rof eða aðskilnaður í æðaveggnum, blóð safnast inn í vegginn og býr til þrengsli í æðinni sem getur stöðvað blóðflæði til hluta hjartans Meðal sjúklinga með SCAD eru konur í miklum meirihluta, og sjúkdómurinn greinist hjá ungum eða miðaldra konum sem ekki falla í hefðbundinn “há-áhættuhóp”. Þess vegna getur verið hætta á að einkenni séu afskrifuð sem kvíði, vöðvaverkir eða þreyta vegna álags.

Takotsubo heilkennið, einnig nefnt

Harmslegill eða brostið hjarta, er annað dæmi. Það er mikið algengara hjá konum eftir tíðahvörf en körlum, oftast í kjölfar sterks tilfinningalegs áfalls, t d andláts nákomins ættingja, skyndilegrar mikillar hræðslu eða annarra áfalla. Hjartað veikist skyndilega, einkenni eru svipuð og við hjartaáfall, en undirliggjandi orsök er talin tengjast skyndilegri og mikilli örvun í taugakerfinu og streituhormónum en þá er ekki um kransæðastíflu að ræða

Smáæðasjúkdómur (coronary microvascular dysfunction, CMVD) er einnig oftar greindur hjá konum Þá virðast stóru kransæðarnar vera opnar, en blóðflæði í örsmáum æðum í hjartavöðvanum sjálfum er truflað

Konan finnur fyrir brjóstverk og mæði, en kransæðamyndataka sýnir ekki endilega þrengingar í stórum æðum Það getur leitt til þess að vandinn er ekki skoðaður nánar þar sem einkennin eru væg eða almenn, þótt raunverulegur súrefnisskortur í hjartavöðva sé til staðar

Meðgangaog hjartaheilsan

Meðganga er sérstakt tímabil í lífi hverrar konu og það er ekki síður merkilegt fyrir hjartað. Blóðmagn eykst, álag á hjarta og æðakerfi vex og hormónabreytingar hafa áhrif á storknun blóðs og æðar líkamans

Fylgikvillar á meðgöngu, eins og meðgöngueitrun, háþrýstingur, fyrirburafæðing og sykursýki á meðgöngu, eru ekki bara tímabundnir kvillar sem “ganga yfir” Þeir eru merki um undirliggjandi vandamál og tengjast aukinni hjartaáhættu síðar á ævinni Þess vegna ætti saga um erfiða meðgöngu að vera mikilvægur þáttur sem þarf að meta með tilliti áhættu vegna hjarta- og æðasjúkdóma síðar á ævinni

Og það er ekki bara mikilvægt að skoða móðurina heldur einnig barnið sem hefur dvalið í sama umhverfinu í kviði móðurinnar jafnvel góðan hluta meðgöngunnar Þannig er mikilvægt að börnin fái þessa vitneskju þegar þau vaxa úr grasi og geti látið fylgjast með sér einnig

Brjóstverkur er vissulega algengasta og þekktasta einkenni bráðs kransæðasjúkdóms, bæði hjá konum og körlum.

En oft upplifa konur ekki þennan dæmigerða verk og lýsa í staðinn öðrum og ódæmigerðum einkennum. Þær geta til dæmis fundið fyrir mikilli mæði, þyngslum yfir bringu eins og fíll standi á þeim, ógleði, uppköstum, verk í kjálka eða hálsi, yfirþyrmandi þreytu, svima eða hjartsláttaróreglu Slík einkenni eru því miður oft þau sömu og einkenni streitu og kvíða, magavanda eða jafnvel vöðva- og stoðkerfisvanda

Röng greining seinkar ferlinu og algengast er að konan sjálf bíði eftir að þessi óskilgreindu einkenni gangi yfir og vill ekki gera veður úr þeim, þetta hljóti að lagast. Þetta getur fylgt yngri konum sem telja að þær séu of ungar til að vera með hjartavanda eða séu ekki hinn dæmigerði hjartasjúklingur og það verði ekki litið á þær sem slíkar og þær mögulega ekki teknar alvarlega þó að það eigi auðvitað ekki að vera reyndin í heilbrigðiskerfinu.

Við greiningu geta ýmsar mælingar líka verið frábrugðnari körlum og þarf því að beita kynbundnum viðmiðunarmörkum.

Læknar á Mauriziano sjúkrahúsinu á Ítalíu settu upp einstakt verkefni sem fékk heitið CardioDonna (hjartakona) árið 2023. Þar er boðið upp á þjónustu fyrir konur á barneignaraldri, að jafnaði 30–50 ára, þar sem teymi sinnir þeim með forvörnum og fræðslu, greinir undirliggjandi vanda og sinnir meðferð sé þess þörf

Fyrstu niðurstöður þaðan sýna að stór hluti þessara ungu kvenna er með marga áhættuþætti; reykingar, hækkaðar blóðfitur, bólgusjúkdóma, háþrýsting og flókna meðgöngusögu og sumar hafa þegar greinst með kransæðasjúkdóma Nokkuð sem þeim hefði ekki endilega hugkvæmst að láta skoða ef ekki hefði komið til þetta sérstaka átak Að sjálfsögðu sýnir þetta mismunandi áherslur í heilbrigðiskerfum heimsins að það þurfi sérstakt átak til þess að skoða konur en það má líka líta þetta þeim augum að það eru ekki einungis eldri konur sem eru í áhættu sem áréttar mikilvægi þess að konur taki frumkvæði í eigin heilsu

Á Íslandi er konum vel sinnt þegar þær leita sér aðstoðar, en lykilatriðið er að þær séu meðvitaðar um mikilvægi góðrar hjarta- og æðaheilsu og taki af skarið um eigin heilsu, forvarnir og lífsstíl.

CardioDonna

Hvaðskiptirmáli?

Að konur taki áhættuþætti alvarlega

Að skoðaðir séu kvenbundnir áhættuþætti, eins og saga um meðgöngufylgikvilla, hormónameðferð, snemmkomin tíðahvörf og bólgusjúkdóma.

Að konur séu meðvitaðar um ódæmigerð einkenni s s mæði, ógleði, kjálkaverk, mikla þreytu og bíði ekki endilega eftir hinum klassíska brjóstverk.

Að konur þekki ættarsögu sína vel

Með því að efla fræðslu og taka ákvarðanir út frá kynjamun í líffræði kvenna og karla sem og sjúkdómsmynstri, sjúkra- og ættarsögu má hamla þróun alvarlega hjartasjúkdóma og betrumbæta eftirfylgni

Alltof oft er litið á konur sem “sjálfkrafa í minni áhættu” bara af því að þær eru konur, jafnvel þó þær séu með marga áhættuþætti samtímis.

Það er talsverð einföldun.

VIÐ VILDUM AUKA ÞEKKINGU KVENNA

Vilborg

Sigurðardóttir hjartasérfræðingur

Upphafið að GoRed á rætur sínar til ársins 2008. Þrjár öflugar konur leiddu verkefnið. Okkur lék forvitni á að vita hvernig þetta kom til og höfðum samband við Vilborgu Sigurðardóttur hjartalækni sem býr og starfar í Sviss. Hún hefur nýverið tekist á hendur nám í fræðum sem tengjast meltingu og samspili við önnur kerfi líkamans, einnig hjartað

Hvernigkviknaðihugmyndin aðGoRedáÍslandi?

Hugmyndin að GoRed á Íslandi kviknaði á hjartalæknaþingi í Chicago árið 2008, þar sem World Heart Federation kynnti GoRed for Women. Að loknum fundinum ræddum við ég og Þorgerður Benediktsdóttir möguleikann á að innleiða þetta öfluga verkefni á Íslandi Við mótuðum saman áætlun um samstarfsaðila og skipuðum fulltrúa í nefnd, og fengum formlegt samþykki frá World Heart Federation til að setja verkefnið af stað hér heima.

Hvertvar meginmarkmið

GoRedþegarþið hófuðstarfið?

Markmiðið var mjög skýrt: að auka vitund kvenna og heilbrigðisstarfsfólks um áhættu og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma, og þannig bæta greiningu og meðferð Við settum strax af stað vinnu við að safna tölulegum upplýsingum um hjarta- og æðasjúkdóma hjá konum á Íslandi með aðstoð Hjartaverndar og héldum opna fræðslufundi í Reykjavík og á Akureyri

Stuðningur við verkefnið kom víða að. Hjartavernd var meðal fyrstu og mikilvægustu samstarfsaðila og þau skipuðu Bylgju Valtýsdóttur sem verkefnastjóra og hún starfaði sem slík í mörg ár

Landspítalinn gerðist einnig samstarfsaðili og skipaði Unni Sigtryggsdóttur hjúkrunarfræðing sem fulltrúa sinn í verkefninu Þá tók Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, að sér að verða verndari GoRed á Íslandi Fjölmargar stofnanir og félagasamtök bættust í hópinn, þar á meðal fagdeildir hjúkrunarfræðinga, Hjartaheill, Heilaheill, Lýðheilsustöð, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og fleiri

Við fengum jafnframt leyfi til að lýsa Ráðhús Reykjavíkur, Háskóla Íslands og Landspítala upp í rauðum lit í GoRed-mánuðinum og hönnunarkeppni var haldin um hinn rauða kjól

Hvaðaviðburðir stóðuuppúr?

Frá 2009 til 2011 voru margir vel heppnaðir viðburðir haldnir, þar sem vitundarvakningin fékk mikla athygli:

1 GoRed í Ráðhúsi Reykjavíkur 22 febrúar 2009

2.GoRed í Háskóla Íslands 21. febrúar 2010

3 GoRed í Smáralind 17 febrúar 2011

Fulltrúar verkefnisins, sérfræðingar og hjartasjúklingar tóku þátt í fjölmörgum viðtölum og greinum í fjölmiðlum.

Árið 2011 fékk ég þann heiður að kynna GoRed fyrir Heilbrigðisnefnd Alþingis og færa Jóhönnu Sigurðardóttur, þáverandi forsætisráðherra, rauðu GoRed-næluna

Árið 2009 var markmiðið að benda á staðreynd sem áður hafði verið hunsuð: að konur eru í mikilli áhættu fyrir hjartaog æðasjúkdómum, sérstaklega eftir tíðahvörf

Síðan þá hefur vitund aukist verulega bæði meðal almennings og heilbrigðisstarfsfólks. Á alþjóðlegum vettvangi hefur kynjamismunur í hjartasjúkdómum orðið sífellt stærra rannsóknarefni, og nýtt fræðasetur í Sviss undir stjórn Carolin Lerchenmüller hefur sett fókus á kynbundna læknisfræði.

Vilborg hefur starfað erlendis meginhluta starfsferils síns sem hjartasérfræðingur bæði í Svíþjóð og nú síðast í Sviss, en hvers vegna fór hún að einbeita sér meira að forvörnum og sérsniðinni þjónustu fyrir konur ?

Eftir margra ára klínísk störf í Svíþjóð, á Íslandi og í Sviss ákvað ég að snúa mér að starfi á hjarta- og lungnalæknastofu í Basel Þar varð ljóst að konur leituðu sífellt oftar með óljós einkenni sem hefðbundnar greiningaraðferðir brugðust stundum við Nýjar greiningarleiðir hafa gert okkur kleift að meta:

brjóstverkjaheilkenni án stíflu í kransæðum

hjartabilun með eðlilegri dælugetu (HFpEF) mæði, bjúg og aðra ósértæka hjartaþreytu

Snemma í ferlinu mátti sjá að konur höfðu annan áhættuprófíl en karlar oft með meiri tíðni háþrýstings, sykursýki og ofþyngdar.

Ný lyf og meðferðir hafa nú gjörbreytt möguleikunum og bætt lífsgæði fjölmargra kvenna

Vilborghefur síðustumisseri veriðupptekiní nýjuverkefni

Offita og yfirþyngd hafa aukist hratt á Íslandi og sömu þróun má sjá víða í heiminum Þetta hefur haft djúp áhrif á konur sem leita vegna hjartaeinkenna.

Efnaskiptaheilkenni með mittismálið sem lykilþátt hefur lengi verið rannsóknarefni í mínum störfum og var aðalviðfangsefni doktorsritgerðar minnar

Meðferðarúrræði eins og: efnaskipta- og offituaðgerðir ný ofþyngdarlyf markviss forvarnarvinna

hafa sýnt fram á að hægt er að draga verulega úr hættu á hjartaáföllum, heilablóðfalli og ótímabærum dauðsföllum.

Meltingoghjarta?

Í seinni tíð hef ég kafa dýpra í starfsemi meltingarvegsins og tengsl hans við heilsu Ég tók upp nám í MayrPrevent®, sem byggir á kenningum Dr. Franz Xaver Mayr, sem taldi meltingarveginn „rótarkerfi“ mannslíkamans

MayrPrevent® leggur áherslu á: eflingu meltingarstarfsemi fyrirbyggingu sjúkdóma betri heilsu í gegnum jafnvægi meltingar og taugakerfis

Þekkingin sem hefur byggst upp sýnir að meltingartruflanir og ekki aðeins ofþyngd eru undirrót margra langvinnra sjúkdóma nútímans, þar á meðal hjarta- og æðasjúkdóma

SkilaboðVilborgareru skýr

Að mínu mati þarf að efla einstaklingsbundna heilbrigðisþjónustu með tilliti til kynbundinnar læknisfræði sem viðurkennir að heilsa og veikindi eru undir áhrifum bæði líffræðilegra (kyns) og félags- og menningarlegra (gender) þátta. Þættir sem snúa að líffræðilegu kyni (litningar, hormón og líffærafræði) og að kyn/gender (félagsleg hlutverk, hegðun, sjálfsmynd og reynsla) hafa einnig áhrif á áhættu, einkenni, greiningu og meðferð hjarta- og æðasjúkdóma.

Framtíðar heilbrigðisstarfsmenn þurfa að geta greint og tekist á við kynbundnar heilbrigðisþarfir á skilvirkan hátt.

Þaðersama...

...hvaða kyn við erum.

Öll eigum við aðeins eitt hjarta sem við þurfum að næra og passa alla ævi.

Þaðerhinsvegar...

...mikilvægt að viðurkenna og vinna með líffræðilegan kynjamismun þegar kemur að hjartaheilsunni okkar

ÞÖKKUM STUÐNINGINN

ÞÖKKUM STUÐNINGINN

ÞÖKKUM STUÐNINGINN

Streita

Streita er ekki bara eitthvað sem við finnum fyrir í huganum hún hefur raunveruleg áhrif á líkamann Þegar við erum stressuð fer líkaminn í „viðbragðsstöðu“ og framleiðir streituhormón eins og adrenalín og kortisól Þetta er gagnlegt í stuttan tíma, en ef þetta ástand stendur lengi á líkaminn erfitt með að slaka á og það hefur áhrif á svefninn

Viðvarandi streita getur valdið því að við eigum erfitt með að sofna, sofum grunnt eða vöknum oft Þá fær líkaminn ekki tækifæri til að jafna sig yfir nóttina, hjartsláttur helst hraðari, blóðþrýstingur hærri og líkaminn nær ekki að endurhlaða sig eins og hann þarf.

Rannsóknir sýna að þegar svefninn er truflaður aftur og aftur hvort sem hann er of stuttur eða bara af lélegum gæðum hefur það bein áhrif á hjartaheilsu

Slíkur svefn tengist meiri líkum á háþrýstingi og hjarta- og æðasjúkdómum Þetta gerist meðal annars vegna þess að líkaminn er lengur í „stressgír“ og bólga í líkamanum eykst

Sérfræðingar sem rannsaka svefn hafa bent á að það er ekki bara fjöldi klukkustunda sem skiptir máli, heldur einnig hversu reglulegur og rólegur

svefninn er Þegar við sofum vel lækkar blóðþrýstingur, hjartað fær að hvíla sig og hormónakerfið nær jafnvægi Þegar svefninn er skertur, kvöld eftir kvöld, getur hjartað aldrei alveg slakað á Svefnleysi er sérstaklega áhrifaríkt í

þessu samhengi Fólk sem glímir við svefnleysi og sefur sannanlega minna en líkaminn þarf, er í meiri hættu á að þróa með sér háþrýsting og

hjartasjúkdóma

Þetta á sérstaklega við ef svefnleysið varir í langan tíma.

Allt þetta þýðir að það er ekki nóg að „halda út“ í stressi og bæta síðan upp svefn um helgar – líkaminn þarf reglu og hvíld til að halda hjartanu í lagi

Streita og svefn eru nátengd og ef annað fer úr skorðum fylgir hitt oft á eftir

Niðurstaðan er einföld . Að hlúa að svefninum og finna leiðir til að draga úr streitu er ekki munaður, heldur mikilvægur hluti af því að vernda hjartaheilsuna til lengri tíma Því meira sem við gerum svefn og rólegar stundir að venju, því betur hlúum við að okkur sjálfur bæði líkamlega og andlega.

Eflaust eru einhverjir sem kannast við áhættureikni Hjartaverndar sem má nálgast á hjarta.is , hafa farið inn á síðuna eða jafnvel farið í áhættumat til þess að kanna líkur á hjarta-og æðasjúkdómum út frá

Þar er metin áhætta einstaklings á að fá hjartasjúkdóm á næstu 10 árum og byggir á öflugu vísindastarfi Hjartaverndar síðastliðin 50 ár.

Aðferðafræðin og áhættumatið eru í samræmi við áhættumat í Evrópu (SCORE, European Society of Caridology).

Það ber þó að að taka áætlun sem þessari með þeim fyrirvara að áhættumatið er ekki fyrir fólk sem þegar er með hjarta- og æðasjúkdóma ,hefur fengið kransæðastíflu eða farið í hjartaaðgerð.

Ennfremur er nauðsynlegt að læknir túlki niðurstöðurnar og útskýri nákvæmar hvað niðurstaðan þýðir og hvað beri að huga að í framtíðinni

Læknar nota áhættumatið gjarnan til að styðjast við til útskýringa fyrir fólk sem er ekki með sjúkdóm

Vettlingar og grifflur

Ath. Ég mæli með því að ganga frá endum jafnóðum og skipt er um lit.

Á Instagramsíðunni minni @kristinornolfs er hægt að finna myndbönd þar sem ég sýni aðferðina sem ég nota Einnig er hægt að finna myndbönd á YouTube þar sem slík aðferð er sýnd

Að ganga frá endum jafnóðum og skipt er um lit er virkilega skemmtileg aðferð og hentar einstaklega vel fyrir ullargarn eins og Saga Mini. Svo er líka svo gaman að þurfa aðeins að ganga frá örfáum endum í lokin.

Að sjálfsögðu er líka hægt að dunda sér við að ganga frá endum þegar prjónaskapnum er lokið, t.d. yfir góðri bíómynd eða skemmtilegum þáttum í sjónvarpinu.

Reykjavík

A.Margeirssonehf

Aðalhreinsir-Drífa ehf

Aðalvík ehf

Altak - Artic ehf

Arctica Finance hf

Arkitektastofan OG ehf

Atvinnueign ehf

Augnlæknar Reykjavíkur ehf

Aurum

ÁS sjúkraþjálfun ehf

ÁTVR Vínbúðir

B&B gluggatjaldahreinsun ehf

Bátar og búnaður ehf

Beyki ehf

Bílahöllin-Bílaryðvörn hf

Bílaréttingar og bílasprautun Sævars ehf

Bílasmiðurinn hf

Bor ehf

Borg fasteignasala ehf

Bókabúðin Sjónarlind

Bókhaldsstofan Stemma ehf

Bókhaldsþjónustan Örninn ehf

Bón Fús

Brynja leigufélag ses

BSRB - bandalag starfsmanna ríkis og bæja

Bygg Ben ehf

Daddi's pizza

Dea Medica ehf

EEV Framkvæmd og ráðgjöf ehf

Efnalausnir ehf

Ellen Ingvadóttir, löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi

Endurskoðun VSK ehf

Felgur smiðja ehf

Félag íslenskra bifreiðaeigenda

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga

Félag slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna

Fiskbúðin Hafberg

Fiskkaup hf

Fjaðrabúðin Partur ehf

Fjölver ehf, olíurannsóknir

Fold uppboðshús ehf

Frumherji hf

Garðheimar

GB Tjónaviðgerðir ehf

Gleipnir verktakar ehf

Glitur ehf

Gnýr ehf

Golfskálinn, golfverslun

Grettir, vatnskassar ehf

Gull og silfur ehf

Gullnesti ehf

Gunnar O Rósarsson tannlæknir - Tanngo slf

Gunnar Örn - málningarþjónusta

Gúmmívinnustofan SP dekk ehf

H.Jónsson ehf, rétting og sprautun

Hagkaup

Hallgrímskirkja

Hamborgarabúlla Tómasar

Hárgreiðslustofan Delila & Samson

Hársnyrtistofa Dóra

Hársnyrtistofan Aida

HEI - Medical Travel-www.hei.is

Heimili ehf-fasteignasala

Hekla hf

Henson sports

Hitastýring hf

Hjúkrunarheimilið Skjól

Hótel Frón ehf

Hótel Leifur Eiríksson ehf

Hraði ehf

Hrafnistuheimilin

Hringsjá endurhæfing

HS pípulagnir ehf

HS smíðar ehf

Höfðakaffi ehf

IcePhone ehf

Iclean ehf

Iðnver ehf

Íbúðagisting.is

ÍslandsApótek ehf

Íþróttabandalag Reykjavíkur

Íþróttafélagið Fylkir

JA Lögmenn ehf

Járn og gler hf

Jón og Óskar úra- og skartgripaverslun

JYSK

K. H. G. Þjónustan ehf

Kári Arnórsson ehf, byggingarverktaki

Kemi ehf-www kemi is

Kj Kjartansson hf

KK Kranabíll

Klapparvör ehf

Klettur - sala og þjónusta ehf

Klettur-Skipaafgreiðsla ehf

Kramhúsið ehf

KTM og Husqvarnaumboðið á Íslandi

Kurt og Pí ehf

Landslag ehf

Landsnet hf-www landsnet is

Landssamband lögreglumanna

Landssamtök lífeyrissjóða

Leigulistinn ehf

Lerkitré ehf

Litróf ehf

Límtré Vírnet ehf

Ljósmyndir Rutar og Silju ehf

Marvís ehf

MATVÍS

Málmtækni hf

Meba- úr og skart

Millimetri sf

MS Armann skipamiðlun ehf

Múrarameistarafélag Reykjavíkur

NORDIK lögfræðiþjónusta

Nortek ehf

Nýja sendibílastöðin hf

Olíudreifing ehf

Optic Reykjavík ehf

Orka ehf

Ottó B Arnar ehf

Ófeigur gullsmiðja ehf

Ósal ehf

ÓV jarðvegur ehf

Penninn

Pixel ehf

Pípulagnaþjónusta Reykjavík ehf

Plastiðjan ehf

Pólýhúðun ehf

PricewaterhouseCoopers ehf

Rafha ehf

Rafiðnaðarsamband Íslands

Rafstjórn ehf

Reyktal þjónusta ehf

Rikki Chan ehf

Rima Apótek

Rolf Johansen & Co ehf

Saumsprettan ehf

SHV pípulagningaþjónusta ehf

Skolphreinsun Ásgeirs sf

Skorri ehf

Skrifstofuvörur ehf

Smith og Norland hf

Smurstöðin Klöpp ehf

Stálbyggingar ehf

Svampur ehf

Svefn og heilsa

Sýnileiki ehf

Tannlæknafélag Íslands

Tannréttingar sf

Tannval Kristínar Gígju

Tark - Arkitektar

THG arkitektar ehf

Tóbaksverslunin Björk

Trackwell hf

Trausti fasteignasala ehf

Trésmiðja Pálma ehf / Pálmi Ingólfsson

Umslag ehf

Úðafoss ehf, efnalaug

Útfaraþjónusta Rúnars Geirmundssonar

Úti og inni sf

Vatnaskil ehf

Vektor, hönnun og ráðgjöf ehf

Verkengi ehf

Verkfræðistofan Skipatækni ehf

Verkfræðistofan Víðsjá ehf

Vernd, fangahjálp

Vélvík ehf

Við og Við sf

Vilhjálmsson sf, heildverslun

Vinnumálastofnun

Víkurvagnar ehf

VK verkfræðistofa ehf

VMB verkfræðiþjónusta

Vörn, öryggisfyrirtæki

Vörukaup ehf

Würth á Íslandi ehf

Þ.G. verktakar ehf

Kópavogur

Alhliða pípulagnir sf

Allt-af ehf

AMG Aukaraf ehf

AP varahlutir ehf

Arkís arkitektar ehf

Arnardalur sf

Birtingaholt ehf

Bílasprautun og réttingar Auðuns

Bliki bílamálun og réttingar ehf

Blikksmiðjan Vík ehf

Deloitte hf

Domusnova fasteignasala

Efnissalan ehf

Einar Ágústsson & Co ehf

Fagtækni hf

Fosslagnir ehf, pípulagnir

goddi is

Guðmundur Skúlason ehf

Hafið-fiskverslun ehf

HÁ hreinu ehf

Hvammshólar ehf

Hvísl ehf

Íslandslyftur ehf

JS ljósasmiðjan - Sláttuvélamarkaðurinn

Lakkskemman ehf

Lindabakarí ehf

Litlaprent ehf

Lín design

Loft og raftæki ehf

Lokasjóður ehf

Lyfjaval ehf

MHG verslun ehf

Pottagaldrar ehf

Rafsetning ehf

Rakarastofan Herramenn

Sjómannaheilsa ehf

Skómeistarinn ehf

Snæland

Sport Company ehf

Topplagnir ehf

Útfararstofa Íslands ehf

Verkfræðistofa Bjarna Viðar ehf

Vélastilling sf

Vinnuföt, heildverslun ehf

Víkingbátar ehf

Þ.B. verktakar ehf

Garðabær

Dráttarbílar vélaleiga ehf

Fimir ehf

Garðabær

Geislatækni ehf - Laser þjónustan

Hagráð ehf

Hásandur ehf

Icewear

Járnsmiðja Óðins

Loftorka Reykjavík ehf

Nýþrif - ræstingaverktaki ehf

Rafboði

Smurstöðin Garðabæ ehf

Sparnaður - Bayern Líf

Val - Ás ehf

Hafnarfjörður

Aðalskoðun hf

Aflhlutir ehf

Annriki, Þjóðbúningar og skart-www.annriki.is

Bílaverk ehf bílamálun og réttingar

Bjarnar ehf

Brettasmiðjan ehf

Byggingafélagið Sandfell ehf

Colas Ísland

Donna ehf

EÓ-Tréverk sf

G.S. múrverk ehf

GC Rieber Minerals ehf

Geymsla Eitt ehf

Gólflausnir Malland ehf

Gröfuþjónusta Grafa og grjót ehf

Hafnarfjarðarbær

Hafnarfjarðarhöfn

Hagmálun slf

Hagstál ehf

Hamraborg ehf

Hvalur hf

Jarðboranir hf, verktaki

Lýsing og hönnun

Netorka hf

Nonni Gull

Prentmiðlun ehf

Rúnir verktakar ehf

Sjúkraþjálfarinn ehf

Trésmiðjan okkar ehf

Vélsmiðja Konráðs Jónssonar sf

Véltak ehf

Vír og lykkjur ehf

Þaktak ehf

Vogar

Við sjóinn ehf - tjaldstæði - Vogum

Reykjanesbær

Benni pípari ehf

Bergraf ehf

Bílar og Hjól ehf

Bílasprautun Magga Jóns ehf

Bílaþjónusta Fitjavíkur sf

Bílrúðuþjónustan ehf

Blikksmiðja Ágústs Guðjónssonar ehf

DMM Lausnir ehf

Dýralæknastofa Suðurnesja

Ellert Skúlason ehf

Fjölbrautaskóli Suðurnesja Ístek ehf

Kalka sorpeyðingarstöð sf

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

Millvúd Pípulagnir ehf

Nettó

OSN lagnir ehf

Rafiðn ehf

Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf

Skólar ehf

TM Bygg ehf

TSA ehf

Víkurfréttir ehf

Grindavík

Bláa Lónið

Grindavíkurbær

H H Smíði ehf

Palóma Föt og skart ehf

Stakkavík ehf

Veiðafæraþjónustan ehf

Suðurnesjabær

Aukin Ökuréttindi ehf

ÁÁ verktakar ehf

Bílaþjónustan Bakki ehf

Lighthouse Inn

SI raflagnir ehf

Vélsmiðja Sandgerðis ehf

Mosfellsbær

Álgluggar JG ehf

bilalokkun is-www kopsson is

Byggingafélagið Bakki ehf

Dalsgarður ehf, gróðrarstöð

Elektrus ehf

Esja eignir ehf

Fasteignasalan - FastMos

Glertækni ehf

Guðmundur S Borgarsson ehf

Ístak hf

Lionsklúbburinn Úa Mosfellsbæ

Malbikstöðin ehf

MIG Verk ehf

Mosfellsbakarí

Múr og meira ehf

Nonni litli ehf

Nýja bílasmiðjan hf

Stjörnugrís hf

VGH-Mosfellsbæ ehf

Akranes

Akraberg ehf

Apótek Vesturlands ehf

Bílaverkstæði Hjalta ehf

Garðar Jónsson málarameistari

Kallabakarí

Meitill - GT Tækni ehf

Norðanfiskur ehf

Verkalýðsfélag Akraness

Verslunin Einar Ólafsson ehf

Vogir ehf

Borgarnes

B Björnsson ehf

Blómasetrið - Kaffi kyrrð

Guðbjörn Charlesson

HSS verktak, s: 892 3044

Landnámssetur Íslands

Sprautu- og bifreiðaverkstæðið Borgarness sf

UMÍS ehf, Environice

Stykkishólmur

Eyja- og Miklaholtshreppur, Snæfellsnesi

Marz sjávarafurðir ehf

Málflutningsstofa Snæfellsness

Skipavík ehf

Þórsnes ehf

Grundarfjörður

ILDI ehf

Soffanías Cecilsson hf Ólafsvík

TS Vélaleiga ehf

Útgerðarfélagið Guðmundur ehf

Hellissandur

Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga

Gilbakki Kaffihús

Skarðsvík ehf

Snæfellsbær

Útnes ehf

Búðardalur

Blys veitingastaður

BS Þjónunstan ehf

Rafsel Búðardal ehf Ísafjörður

Ferðaþjónustan í Heydal Hamraborg ehf

Ísblikk ehf

Orkubú Vestfjarða ohf

Samgöngufélagið-www.samgongur.is Smali ehf Vesturferðir ehf

Hnífsdalur

Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf

Bolungarvík

Endurskoðun Vestfjarða ehf

Jakob Valgeir ehf

Sigurgeir G. Jóhannsson ehf

Súðavík

Súðavíkurhreppur

Flateyri

Sytra ehf

Suðureyri

Fiskvinnslan Íslandssaga hf

Patreksfjörður

Bílaverkstæðið Smur- og dekk

Eyfaraf ehf

Oddi hf, fiskvinnsla-útgerð Ungmennafélag Barðstrendinga

Villi Á ehf

Bíldudalur

Lás ehf

Drangsnes

Hveravík ehf

Hvammstangi

Kvenfélagið Freyja

Sláturhús KVH ehf

Blönduós

Glaðheimar, sumar- og gistihús opið allt árið

Kvenfélag Svínavatnshrepps

Sörlatunga ehf

Skagaströnd

Vík ehf

Sauðárkrókur

Aldan - stéttarfélag

Bókhaldsþjónusta KOM ehf

Dögun ehf

FISK-Seafood ehf

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra

Friðrik Jónsson ehf

K-Tak ehf

Steinull hf

Verslunarmannafélag Skagafjarðar

Siglufjörður

JE Vélaverkstæði ehf

Snerpa, íþróttafélag fatlaðra og aldraðra

Akureyri

Baldur Halldórsson ehf

Bifreiðaverkstæði Bjarnhéðins ehf

Bílaprýði

Bútur ehf

Dexta orkutæknilausnir ehf

Dýralæknaþjónusta Eyjafjarðar ehf

Eining-Iðja

Endurhæfingarstöðin ehf

Enor ehf

Fasteignasalan Hvammur ehf

Grófargil ehf

Herradeild JMJ

HSH verktakar ehf

Ísbúðin Akureyri

Líkamsræktin Bjarg ehf

Matur og mörk hf

Meindýravarnir MVE

Rafmenn ehf

S.Guðmundsson ehf, múrverktaki

S.S. byggir ehf

Samvirkni ehf

Tannlæknastofa Hauks og Bessa

Vélsmiðjan Ásverk ehf

Grenivík

Grýtubakkahreppur

Dalvík

EB ehf

Sæplast Iceland ehf

Vélvirki ehf, verkstæði

Whales Hauganes ehf

Ólafsfjörður

SiggiOddsehf

Húsavík

Tjörneshreppur

Trésmiðjan Rein ehf

Víkurraf ehf

Laugar

Norðurpóll ehf, trésmiðja

Sparisjóður Þingeyinga

Þingeyjarsveit

Mývatn

Reykjahlíðarsókn

Sel Hótel, Mývatn

Þórshöfn

Geir ehf

Vopnafjörður

Bílar og vélar ehf

Pétur Valdimar Jónsson

Egilsstaðir

Austfjarðaflutningar ehf

Ársverk ehf

Gistihúsið Egilsstöðum - Lake Hotel Egilsstadir

HEF veitur ehf

Héraðsprent ehf

Hótel Valaskjálf

Menntaskólinn á Egilsstöðum

Tréiðjan Einir ehf

Seyðisfjörður

PG stálsmíði ehf

Reyðarfjörður

Fjarðaveitingar ehf

Eskifjörður

Egersund Ísland ehf

Fjarðaþvottur ehf

LF fasteignasala - Reykjavík - Austurland

R H gröfur ehf

Tandrabretti ehf

Neskaupstaður

Fjarðalagnir ehf

G.Skúlason vélaverkstæði ehf

Haki ehf verkstæði

Samvinnufélag útgerðamanna

Síldarvinnslan hf

Fáskrúðsfjörður

Fáskrúðsfjarðarkirkja Vöggur ehf

Djúpavogur

Hótel Framtíð ehf

Höfn í Hornafirði

Birkifell ehf - Birkifelli

Ferðaþjónustan Árnanesi

GlacierAdventure

Jökulfell ehf

Klifá ehf, ferðaþjónustan Gerði ehf

Króm og hvítt ehf

Málningarþjónusta Horna ehf

Rósaberg ehf

Ögmund ehf

Öryggi og gæsla ehf

Selfoss

Bifreiðaverkstæðið Klettur ehf

Bílaþjónusta Péturs ehf

Bíltak ehf

Bílverk BÁ ehf, bílamálun og bílaréttingar

Bjarnabúð

Búhnykkur sf

Eiðfaxi ehf

EM heima gallerí

Fagform ehf

Framsóknarfélag Árnessýslu

Gólflist ehf

Gróðrarstöðin Ártangi ehf

JÁ pípulagnir ehf

Jáverk ehf

K.Þ Verktakar ehf

Lumen ehf

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Máttur sjúkraþjálfun ehf

Mika Restaurant

Minni Borgir ehf

Pípulagnir Suðurlands ehf

Rafmagnsverkstæði Jens og Róberts ehf

Reykhóll ehf

Set ehf, röraverksmiðja

Sólheimar í Grímsnesi

Stálkrókur ehf

Súperlagnir ehf

Tannlæknaþjónustan is, s: 482 3333

Tæki og tól ehf

Ullarverslunin Þingborg ehf

VBF Mjölnir ehf

Verkfræðistofa Guðjóns

Vélaþjónusta Ingvars

Vélsmiðja Suðurlands ehf

X5 ehf

Österby-hár

Hveragerði

Auðflutt ehf, flutningaþjónusta s: 862 5600

Ficus ehf

Flóra garðyrkjustöð

Hótel Örk

Kjörís ehf

Norbygg ehf

Þorlákshöfn

Bíliðjan ehf, verkstæði

Járnkarlinn ehf

Sveitarfélagið Ölfus

Ölfus

Eldhestar ehf

Gljúfurbústaðir ehf

Gróðrarstöðin Kjarr

Hraunsós ehf

Icelandic Water Holdings hf

Flúðir

Fögrusteinar ehf

Gröfutækni ehf

Hitaveita Flúða og nágrennis

Hella

Hellismenn ehf

Kanslarinn veitingahús

Hvolsvöllur

Krappi ehf, byggingaverktakar

Kvenfélagið Freyja

Torf ehf

Vík

Framrás ehf

Hótel Dyrhólaey Ás

Hótel Vík í Mýrdal

Kötlusetur

Mýrdælingur ehf

RafSuð ehf

Vestmannaeyjar

Bíla- og vélaverkstæðið Nethamar ehf

Bílaverkstæði Sigurjóns

Bókasafn Vestmannaeyja

Bragginn sf, bílaverkstæði

Ísfélag hf,Guðmundur Jóhann Árnason

Narfi ehf

Skipalyftan ehf

Vélaverkstæðið Þór ehf

Watt ehf

Við þökkum velunnurum öllum hjartanlega fyrir stuðninginn og óskum ykkur

góðrar hjartaheilsu

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook