Almennar upplýsingar um nýliðaþjálfun Hjálparsveitar skáta í Reykjavík.
Inngangur
Á haustin gefst almenningi kostur á að hefja nýliðaþjálfun hjá Hjálparsveit skáta í Reykjavík (HSSR). Tilgangur þjálfunar er að fá fólk á útkallsskrá til virkrar þátttöku í leitar- og björgunarstarfi sem og öðru starfi sveitarinnar, t.d. fjáröflunum.
Nýliðaþjálfun HSSR er fyrir þig ef þú:
- sérð fram á að geta tekið þátt í útköllum eftir að þjálfun lýkur
- hefur áhuga á að kynnast og starfa með skemmtilegu fólki
- vilt taka þátt í fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum
Í þessum bæklingi er nýliðaþjálfun HSSR kynnt. Við hvetjum þig til þess að kynna þér dagskrána sem og þær kröfur sem gerðar eru til fólks í nýliðaþjálfun og kanna hvort þú eigir ekki samleið með okkur.
Nýliðateymi HSSR
Hjálparsveit
Kynning á HSSR
Hjálparsveit skáta í Reykjavík (HSSR) var stofnuð 1932 og er í dag ein stærsta björgunarsveit landsins. Hún er aðili að Slysavarnafélaginu Landsbjörg og er heildarfjöldi félaga um 250.
HSSR í hnotskurn
Fj. félaga: 251
Fj. útkalla á síðasta starfsári: 65
Fjöldi útkallshópa: 13
Kallmerki: Reykur
Útkallskerfi sveitarinnar er almennt virkjað af lögreglu eða Landhelgisgæslu og er sveitin hluti af viðbragði almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.
HSSR er landbjörgunarsveit og miðast búnaður félaga og þjálfun við það. Ávallt er fyrirliggjandi dagskrá með yfirliti yfir æfingar, ferðir og fyrirlestra auk annarra dagskrárliða, en fyrir utan nýliðadagskrá eru farnar fjölmargar ferðir á vegum sveitarinnar.
Sjö manna stjórn er yfir starfsemi HSSR. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæði og frumkvæði útkallshópa sem og félaganna sjálfra. Sveitin er að mestu rekin fyrir sjálfsaflafé og er fjáröflun því talsverður hluti af starfi félaga og nýliða. Húsnæði sveitarinnar er að Malarhöfða 6 og er það um 1.200 m2 að stærð. Þar er búnaður sveitarinnar geymdur, en hún er vel tækjum búin. Nánar má fræðast um starfsemi sveitarinnar á vefnum hssr.is.
Bækistöð: Malarhöfði 6 (M6)
Starfsárið 2023-24 fóru félagar í samtals 65 útköll. Leitaraðgerðir voru stærsti hluti þessara útkalla og björgunaraðgerðir komu þar á eftir.
Nýliðar fá alhliða þjálfun í öllu því sem gerir þá hæfa til að taka þátt í flóknum og erfiðum leitar- og björgunaraðgerðum.
Á þjálfunartíma fá nýliðar kennslu í fjölmörgum atriðum sem snerta björgunarstörf. Ekki er um tæmandi þjálfun að ræða og er það á ábyrgð
nýliða að halda áfram uns þeir hafa náð fullnægjandi tökum á viðfangsefninu. Umsjónarfólk þjálfunar er ávallt reiðubúið til að aðstoða og leiðbeina
nýliðum í þessum efnum.
Umsjón nýliðaþjálfunar
Starf í björgunarsveit hefur mótandi áhrif á líf manns, hvort sem maður er mjög virkur í aðgerðum eða kýs að taka þátt og styðja við sveitina með öðrum hætti, því það er óvíða sem gefast tækifæri til að vinna jafn náið með eins fjölbreyttum einstaklingum að sameiginlegum markmiðum, af innlifun og hugsjón. Og eitt það mikilvægasta sem leggur grundvöllinn að þessu er að við búum að sameiginlegri reynslu og þekkingu úr nýliðaþjálfuninni.
Áherslan í nýliðaþjálfun hjá HSSR er að nýliðar læri að lifa og líða vel í náttúrunni og upplifa sig örugg í öllum aðstæðum. Að nýliðar tileinki sér námsefnið með virkum hætti og læri að takast á við verkefni undir erfiðum kringumstæðum og leysa þau af hendi á fumlausan hátt, hvort sem er ein eða í hópi. En ekki síst viljum við að nýliðar læri að meta aðstæður og leggja mat á eigin getu þannig að þau hafi sjálfstraust til þess að greina hvort halda eigi áfram eða stoppa og snúa við - sem er oft erfiðasta ákvörðunin.
Á tímabilinu munu fjölmörg úr sveitinni taka þátt, leiðbeina eða aðstoða, með einum eða öðrum hætti, við þjálfun, æfingar og all kyns önnur verkefni. Það er okkar von að nýliðar taki virkan þátt í því samtalið því það er þannig sem við lærum öll hvert af öðru og þetta er allt fólk sem hefur til að bera mismunandi of of dýrmæta reynslu.
Sjálfur er ég t.d. alinn upp við all nokkra útivist og var m.a. í skátunum um tíma, þar sem fengum óáreitt að reyna okkur við vetrarútilegur í alls kyns veðri með hætti sem seint yrði leyft í dag. Ábyrðartilfinning hefur blessunarlega aukist með árunum og síðustu árin hef ég verið mjög virkur á útkallsskrá HSSR, auk þess að ég stunda líka alls kyns aðra útivist.
Af eigin reynslu get ég staðfest að það að takast á við nýliðaþjálfun er fyrst og fremst gefandi áskorun. Hún veitir tækifæri til að kynnast nýju fólki og læra mjög mikið, með það að markmiði að láta gott af sér leiða.
Okkur hlakkar öllum til þess að fá að kynnast ykkur betur.
F.h. nýliðateymis HSSR,
Stefán Baldur
Spurningar og svör
Hverjir geta hafið nýliðastarf?
Aldurstakmark er 18 ár, en þjálfunin hentar hraustu fólki á öllum aldri. Þú þarft að vera í góðu líkamlegu og andlegu formi, en einnig er mjög mikilvægt að eiga gott með að vinna í hópi hress fólks og að vera félagslega hæf/ hæfur. Reynsla af útivist er mikill kostur. Námskeið, sem og í raun öll verkefni
nýliðar séu í þokkalega góðu formi þegar þjálfunin hefst. Gott viðmið er að nýliðar komist upp að Steini á Esju á innan við klukkustund.
á vegum sveitarinnar, fara fram á íslensku og eru góð tök á íslensku máli, töluðu og rituðu, því ófrávíkjanlegt skilyrði.
Stelpur eða strákar?
Aldrei hefur verið gerður munur á hlutverkum kvenna og karla innan HSSR. Þar ganga allir félagar jafnt í öll verk.
Er þetta tímafrekt?
Dagskráin er þétt og miklar ur eru gerðar um mætingu á aflanir. Þar að auki er ætlast til að þú undirbúir þig fyrir öll námskeið. Dagskrá vetrarins er á síðu 20. Til viðbótar því sem hér er upp talið er gert ráð fyrir að nýliðar gefi sér góðan tíma til æfinga utan reglubundinnar dagskrár og að þeir hafi sjálfir frumkvæði að því að æfa það frekar sem kennt á námskeiðum.
Þarf maður að vera í góðu formi?
Á flestum námskeiðum er gengið töluvert, oft með miklar byrðar. Því er mikilvægt að
Þarf að mæta í alla dagskrárliði í þjálfuninni?
Allir dagskrárliðir hafa tilgang og ekkert er óþarft. Mikil áhersla er lögð á stundvísi í öllu starfi sveitarinnar. Ef upp koma aðstæður sem aftra þér frá að mæta á stöku viðburði er slíkt metið hverju sinni.
Forfallist nýliði þarf hann að láta vita strax með tölvupósti í netfangið nylidar.2024@ hssr.is og tilkynningu í Facebook-hópinn sem verður notaður til upplýsingamiðlunar. Þá er rík áhersla lögð á góða mætingu í fjáröflunarverkefni.
Kröfum um mætingu er nánar lýst á síðu 16.
Kostar þetta eitthvað?
Nýliðar greiða á kostnaðarverði námsefni, gistigjöld og annan tilfallandi kostnað. Sá kostnaður sem eftir stendur vegna þátttöku í námskeiðum og ferðum er greiddur af HSSR. Þar koma á móti fjáraflanir sem nýliðar eiga að taka virkan þátt í.
Þarf ég að eiga allar græjur?
Nýliðar þurfa að hafa allan almennan búnað til fullra umráða á þjálfunartímanum, en sérstaklega er mælt með því að þeir reyni eftir fremsta megni að fá dýran og sérhæfðan búnað lánaðan á meðan á þjálfun stendur.
Búnaðarlisti er á síðu 15. Fullgildir félagar á útkallsskrá verða þó að eiga allan sinn persónubúnað.
Fara nýliðar í útköll?
Nei, aðeins fullgildir félagar eru sendir í útköll á vegum sveitarinnar. Hins vegar er stundum óskað eftir aðstoð nýliða í húsi í lengri útköllum.
Hvað tekur nýliðaþjálfun langan tíma?
Þjálfunin tekur í heild 21 mánuð, en hægt er að lengja tímann í 30 mánuði ef þurfa þykir. Fyrsta árið í þjálfun eru einstaklingar í hópnum Nýliðar 1. Eftir þann tíma eru tekin einstaklingsviðtöl og þeir sem hafa staðist kröfur verða Nýliðar 2
Hvernig er þjálfunin uppbyggð?
Mikil áhersla er lögð á liðsheild og samvinnu, en jafnframt á að byggja upp frumkvæði einstaklingins sem og getu hans til sjálfsbjargar. Nýliðaþjálfunin er byggð upp af skyldunámskeiðum, æfingaferðum, nýliðakvöldum, fjáröflunum og fleiru. Á skyldunámskeiðum er frammistaða oftast metin af leiðbeinendum, en stundum eru formleg próf. Dagskráin fyrra árið er nokkuð þétt og í föstum skorðum en á því síðara snýr starfið að miklu leyti um það að nýliðar kynni sér sérhæfingu innan sveitarinnar og taki virkan þátt í því hópastarfi sem þar fer fram.
Miðvikudagar eru nýliðadagar. Oft er formleg dagskrá, en annars nýta nýliðar þá til þjálfunar og æfinga.
Spurningar og svör, frh.
Hvernig er framvindan metin?
Nokkrum sinnum í þjálfunarferlinu er hver nýliði metinn af umsjónarfólki þjálfunar sem og leiðbeinendum. Matskröfur byggja á því að fólk nýtist í björgunarstarfi og er m.a. tekið mið af mætingu, frammistöðu, áhuga og félagslegri hæfni. Þeim sem hafa ekki sýnt nægilega ástundun eða viðunandi frammistöðu verður, eftir atvikum, gefið færi á að bæta sig eða vera vísað úr þjálfun.
Eru nýliðar gjaldgengir í almennt starf?
Nýliðar eru velkomnir í alla almenna viðburði og fundi á vegum HSSR. Einu undantekningarnar eru viðburðir sem krefjast þjálfunar eða hæfni á einhverjum sviðum sem nýliðar hafa þá ekki enn tileinkað sér.
Hvernig er haldið utan um nýliðastarf?
Tilnefndir umsjónaraðilar halda utan um nýliðastarf með nýliðateymi HSSR sér við hlið. Stöðufundir eru haldnir með nýliðum nokkrum sinnum á þjálfunartímabilinu þar sem farið er yfir það sem á undan er gengið og það sem í vændum er.
Hvað eiga félagar í HSSR sameiginlegt?
Brennandi áhugi á leitar- og björgunarmálum sameinar félaga í HSSR. Það sem knýr félaga þó ekki síður áfram er mikill og innilegur áhugi á hvers konar útivist og ferðamennsku og samheldni fjölbreytilegs hóps af skemmtilegu fólki, bæði á léttum stundum og við erfiðari og meira krefjandi kringumstæður.
Námskeið og ástundun
Ætlast er til þess að nýliðar láti námskeið í þjálfuninni ganga fyrir öðru starfi eða viðburðum í sveitinni. Þannig mæta nýliðar á námskeið í þjálfunardagskránni þrátt fyrir að aðrir spennandi viðburðir í almennri dagskrá sveitarinnar standi þeim til boða.
Eigin þjálfun og æfingar
Eins og áður hefur komið fram ber nýliðum að þjálfa sig í þeirri hæfni sem kynnt er fyrir þeim á námskeiðum. Þessi þjálfun er alfarið á ábyrgð nýliðanna og er best að þeir æfi saman í litlum hópum utan reglubundinnar dagskrár. Húsnæði HSSR við Malarhöfða stendur nýliðum opið í samráði við umsjónarfólk þjálfunarinnar.
Upplýsingamiðlun, samskipti og dagskrá Stofnaður verður lokaður hópur á Facebook fyrir nýliða og verður hann miðpunktur miðlunar upplýsinga. Þá er netfangið nylidar.2024@hssr.is virkt fyrir einkasendingar til umsjónarfólks.
HSSR notar dagskrárkerfi til að halda utan um starfsemi sveitarinnar, þ.m.t. dagskrá í nýliðaþjálfun. Nýliðar munu fljótlega fá aðgang að þessu kerfi og í því geta þeir nálgast upplýsingar um viðburði sem og að skrá sig í þá.
Reynt verður eins og kostur er að halda uppgefinni dagskrá. Hins vegar geta komið upp aðstæður sem gera það óhjákvæmilegt að gera breytingar og eru þær þá kynntar í dagskrárkerfi og lokaða Facebook-hópnum.
Út fyrir þægindarammann
Á þjálfunartíma upplifa nýliðar fjölmargt nýtt og sumt ýtir þeim eitthvað út fyrir þægindarammann.
Í ferðum er oft farið á framandi slóðir og vel reynt á þrek og þor. Fyllsta öryggis er ávallt gætt, enda er markmiðið alltaf að allir ferðalangar komi heim úr ferðunum ögn betri en þegar lagt var af stað.
Búnaðarþörf nýliða
Hér er að finna yfirlit yfir þann búnað sem nýliðar þurfa að nota í þjálfuninni. Mikilvægt er að hver nýliði verði sér úti um þann búnað sem hann ætlar að nota, enda er nauðsynlegt að kynnast og venjast eigin búnaði vel. Megnið af búnaðinum nýtist fólki vel í almennri ferðamennsku þannig að það er síður en svo glatað fé sem fer í búnað af þessu tagi.
Oft er hægt að fá búnað lánaðan hjá fjölskyldu og vinum, en þá er nauðsynlegt að hafa í huga að hann er mikið notaður á þjálfunartíma og þarf því yfirleitt að vera laus til notkunar. Í byrjun er nýliðum ráðlagt að reyna að fá lánaðan allan dýran og sérhæfðan búnað, s.s. snjóflóða-, klifur- og sigbúnað, ef nokkur kostur er. Sveitin á svo nokkurt magn búnaðar sem hægt er að fá lánaðan, ef í nauðirnar rekur. Eftirfarandi er upptalning á búnaði sem nýliðar þurfa að nota í þjálfun sinni.
Persónubúnaður: Göngubuxur, gönguskór, jakki úr öndunarefni (skel), buxur úr öndunarefni (skel), peysa (flís eða ull), bolur (helst ull), föðurland (helst ull), göngusokkar, vettlingar eða hanskar, skel yfir vettlinga og húfa. Áttaviti, hitabrúsi, sjúkrabúnaður, höfuðljós og auka rafhlöður. Svefnpoki, einangrunardýna, bakpoki fyrir dagsferðir og lengri ferðir, vatnsheldur innri poki í bakpoka.
Allir nýliðar þurfa að ljúka eftirtöldum námskeiðum til þess að öðlast fullgildingu sem björgunarmenn HSSR. Hver nýliði er ábyrgur fyrir eigin framgangi á þjálfunartíma.
Námskeið Klst. Rauntími Lokið, dagsetning
Fyrra ár (nýliðar 1)
Ferðamennska og rötun* 18 Helgi
Fjallamennska 1 20 Helgi
Fjarskipti grunnur* 3 Kvöld
Fyrsta hjálp 1* 20 Helgi
Gengið á jökli 10 Dagur GPS 4 Kvöld
Snjóflóð 1 20 Helgi
Veðurfræði til fjalla 3 Kvöld
Seinna ár (nýliðar 2)
Aðgerðagrunnur 4 Kvöld
Björgunarmaður í aðgerðum* 3 Kvöld
Fyrsta hjálp 2 20 Helgi
Félagastuðningur* 4 Kvöld / dagspartur
Fjallamennska 2 20 Helgi
Leitartækni 16 Helgi
Straumvatnsbjörgun 1 og 2 20 Helgi
Öryggi við sjó og vötn 3 Kvöld
*Þau námskeið sem eru stjörnumerkt mynda svonefnd kjarnanámskeið skv. skilgreiningu SL.
Valnámskeið
Auk skyldunámskeiða býður Björgunarskólinn upp á fleiri námskeið sem hugsuð eru til að dýpka enn frekar þekkingu nýliða sem og björgunarfólks almennt. Þessi námskeið eru að jafnaði tekin á seinna ári þjálfunarinnar og misjafnt er á hverjum tíma hvað er í boði. Með þátttöku í þessum valnámskeiðum geta nýliðar sérhæft sig enn frekar út frá eigin áhugasviði og hafa þeir val um að taka tvö námskeið í samráði við umsjónarfólk nýliðaþjálfunar.
Ferðir
Á þjálfunartíma fara nýliðar í nokkrar lengri og styttri gönguferðir. Lögð er áhersla á að
þjálfa nýliða í að undirbúa og skipuleggja langar ferðir ásamt því að vera sjálfbjarga í íslenskri náttúru. Öllum nýliðum er skylt að fara í fimm efstu ferðirnar en þar fyrir neðan eru tillögur að fleiri ferðum sem gaman gæti verið að fara í, í samvinnu við nýliðateymið og/eða aðra félaga sveitarinnar.
Lýsing
Sumarferð (3-4 saman)
Vetrarferð (3-4 saman)
Jómfrúarferð (N1)
Nýliðaraunin (N2)
Helgargönguferð
Esjan endilöng
Fjallaferð í skála
Skíðaganga
Rauntími Lokið, dagsetning
Tvær nætur Skylda
Ein nótt Skylda
Dagur Skylda
Dagur Skylda
Tvær nætur Skylda
Dagur
Tvær nætur
Ein nótt
Fjallaferð Dagur
Jöklaferð Dagur
Alpavorferð
Tvær nætur
Gleðin í góðra vina hópi
Á þjálfunartíma myndast iðulega varanleg og traust tengsl á milli nýliða. Þegar fólk hefur gengið saman í gegnum þjálfunina, hefur það oft upplifað hluti sem fáir skilja nema þeir sem voru með í för.
Upp úr standa svo gleðin og ánægjan sem fylgja því að ná markmiðinu með dugnaði og góðri ástundun.
Dagskrá fyrra kennslutímabils (2024-25)
Hér er tíunduð dagskrá fyrir N1 fyrir utan tilfallandi fjáröflunarverkefni. Athugið að sumir viðburðir eru háðir ytri aðstæðum eins og t.d. veðri og snjóalögum og því er ekki hægt að ganga að því sem vísu að þeir verði á dagskrá skv. eftirfarandi áætlun. Þá er ekki gert ráð fyrir öllum þeim tíma sem nýliðar setja í æfingar utan skipulagðrar dagskrár, en hann ætti að vera umtalsverður.
Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.
Kvöldganga / 4. september
Létt ganga á Helgafell.
Dagsganga / 7. sept.
Gengið á Vörðu-Skeggja í góðum félagsskap.
Búnaðarkynning / 10. sept.
Félagi, sannarlega hokinn af reynslu, sýnir nýliðum hvað hann er með í bakpokanum sínum.
Lokafrestur umsóknar / 11. sept.
Vefslóð: hssr.is/nylidar
Ferðamennska og rötun / 13.-15. sep.
Grunnatriði ferðamennsku: kortalestur, notkun áttavita og GPS. Mögnuð lokaraun.
Nýliðakvöld / 25. september
Kvöldnámskeið, fyrirlestur eða stutt æfing? Hver veit nema þau sem mæta?
Helgargönguferð / 27.-29. sept.
Upphitunarferð fyrir veturinn, hæfilega ögrandi. Tjaldgisting? Eina vitið.
Nýliðakvöld / 9. október
Gengið á jökli / 12. eða 13. okt.
Brunað á nálægan jökul hvar nýliðar fá kennslu í því hvernig þeir athafna sig í slíku umhverfi.
Nýliðakvöld / 23. okt.
Helgarferð með tjald/í skála / 25.-27. okt. Reynt verður á þá þekkingu sem nýliðar hafa tileinkað sér.
Neyðarkall / 31. okt. - 3. nóvember
Sala Neyðarkalls er skemmtilegt verkefni sem allir nýliðar taka kátir þátt í.
Nýliðakvöld / 6. nóv.
Fyrsta hjálp 1 / 22.-24. nóv.
Aðkoma að vettvangi, greining á aðstæðum, ástandsskoðun þolenda og fyrstu viðbrögð.
Nýliðakvöld / 27. nóv.
Flugeldar, undirbúningur og sala / 9.-31. desember
Undirbúningur fyrir flugeldasölu hefst. Nýliðum ber að sinna þeim verkefnum sem upp koma og taka svo nokkrar söluvaktir þegar þær hefjast. Sala flugelda er hryggjarstykkið og burðarásinn í fjármögnun sveitarinnar, en líka einn allra, allra, allra skemmtilegasti viðburðurinn. Þessu má enginn missa af!
Flugeldar, sala og frágangur / 2.-15. janúar
Gengið verður frá öllu sem viðkemur flugeldasölunni og Þrettándasöluvaktir mannaaðar Uppskeruhátíð flugeldasölu fylgir í kjölfarið.
Nýliðakvöld
Snjóflóð 1
Kynnt verða helstu atriði sem tengjast mati á snjó Þá er farið yfir hvað beri að hafa í huga við skipulagningu og framkvæmd leitar í snjóflóði.
Nýliðakvöld
Fjallamennska 1
Erfið og krefjandi helgi við vetrar náttúru. Verk þjálfun í undirstöðuatriðum sem tengjast vetrarferðamennsku á fjöllum. Eitthvað sem allir munu hugsa hlýlega til eftir á.
Nýliðakvöld
Dagskrá fyrra kennslutímabils (2024-25), frh.
Gönguskíðafjör / 1.-2. mars
Við festum á okkur skíðin og höldum til heiða. Tjöldum, hlöðum skjólveggi og horfum til himins.
Nýliðakvöld / 19. mars og 2. apríl
Jómfrúarferð / 5.-6. apr.
Hér eru nýliðar reyndir í öllu: Hnútum, línuvinnu, fjarskiptum, böruburði, ýlaleit og meira til.
Spurningar og verkefni = gleði!
Klettaklifur / 30. apr.
Farið verður yfir grunnatriði klettaklifurs til undirbúnings fyrir komandi ævintýri.
Nýliðakvöld / 14. maí
Alpavorferð / 16.-18. maí
Sannkallað fjall ársins, metnaðarfull ferð í hverri áfangastaðurinn er einn af meiri háttar tindum fósturjarðarinnar!
Sumarferð / júní-ágúst
Nýliðar fara 3-4 saman í tveggja nátta sumarferðir um mestmegnis ótroðnar slóðir. Ferðaáætlun skilað til umsjónarfólks fyrir brottför.
Lokadagur til að klára sumarferð er 1. september.
Hengilsverkefnið / vor, sumar og haust
Fjáröflun í fallegu landslagi Hengilssvæðisins. Góð leið til að kynnast þessu skemmtilega svæði sem er svo nærri, en margir hafa ekki séð.
Menningarnótt / ágúst
Flugeldasýningin á Menningarnótt undirbúin!
Eldheitt áhugafólk um flugelda ættu ekki að láta þetta fram hjá sér fara. Hér er alls ekki verið að vinna með dótið sem er í flugeldapakkanum Tralla.
Draumurinn rætist
Við höfum flest látið okkur dreyma um að taka þátt í einhverju sem er stærra en við ein ráðum við.
Markmiðið með nýliðaþjálfun er að verða fullgildur björgunarmaður, taka þátt í útköllum og almennu starfi í sveitinni og koma öðrum til hjálpar í verstu kringumstæðum sem þau hafa máské upplifað.
Þetta er uppskeran úr þeim tíma sem margir segja einn þann skemmtilegasta sem þeir hafa upplifað, að hafa farið í gegnum þjálfunina með góðum vinum og félögum.
Er ekki tímabært að slá til og stökkva af stað?
Dagskrá seinna kennslutímabils
(2025-26)
Dagskrá seinna tímabilsins krefst meira sjálfstæðis en á því fyrra og er aðeins lausara í reipunum. Nýliðar 2 hefja þá starf með hópum sveitarinnar og sjá enn meira um sinn framgang í þjálfuninni en áður. Nokkrum skyldunámskeiðum þarf að ljúka (sjá bls.16) en auk þeirra er Björgunarskólinn með valnámskeið sem geta verið í boði fyrir hópinn í samráði við umsjónarmenn nýliða.
Til viðmiðunar er ætlast til að á seinna ári nýliðaþjálfunnar sæki fólk skyldunámskeið, taki þátt í almennu starfi sveitarinnar s.s. ferðum og æfingum, hópastarfi (50 klst.) og fjáröflunum (40 klst.).
Fjáraflanir
Hjálparsveitir og slysavarnadeildir reka sig að langmestu leyti á sjálfsaflafé. Í HSSR eru þessar fjáraflanir helstar:
Flugeldasala Neyðarkall Hengilsverkefnið
Menningarnótt Lokunarverkefni
Að jafnaði er hver vakt í þessum fjáröflunarverkefnum 3-4 tímar að lengd og eru þær yfirleitt unnar eftir dagvinnutíma, en þó geta verið á því undantekningar.
Ætlast er til þess að nýliðar taki fullan þátt í þessu mikilvæga starfi strax frá byrjun og skili, að lágmarki, 2-3 vöktum í hverri fjáröflun eða 40 klukkustundum á hvoru tímabili þjálfunar. Þetta er ein forsendan fyrir því að nýliðar geti orðið fullgildir björgunarmenn við lok þjálfunar.