Skip to main content

PRINT_NEWSPAPER_FinalForOnline

Page 1

TÍMARIT

MISSTU EKKI AF SÉRVIÐBURÐUM Á RIFF 2026! BLS. 4 & 5

PORTÚGAL ER Í FÓKUS–SPENNANDI MYNDIR OG HEIÐURSGESTIR BLS. 8

2026

Í HÁSKÓLABÍÓI

24. 4. SEPTEMBER — OKTÓBER

STÓRMYND Í HELLABÍÓI OG TVÖFÖLD TÍMAMÓTASÝNING Á RIFF! BLS. 14 & 15

UPPÁHALDS BÍÓMYND ALLRA TÍMA? FRAMHALDSSKÓLANEMAR SVARA. BLS. 19

2 1

TÍMARIT RIFF | 1


KVEÐJA FRÁ STAFFINU Á RIFF 2026 „Margar hendur vinna létt verk,” segir einhvers staðar.

H

ér á skrifstofu RIFF gildir að „margar hendur vinna kraftaverk,“ þetta árlega undur sem Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík er. Fámennur en afskaplega góðmennur hópur heilsárs starfsfólks nýtur þeirra forréttinda að fá til liðs við sig vaska sveit af einstaklega hæfileikaríkum starfsnemum af hinum ýmsu þjóðernum þar sem allir eiga það sameiginlegt að hrífast af sköpunar- og áhrifamætti kvikmyndanna, og elska að vinna við stóran viðburð sem hverfist um þetta sameiginlega áhugamál. Eins og fyrri daginn gildir að þar sem fólk með sameiginlega ástríðu kemur saman, þar er gaman. Það er alltaf gaman við undirbúning RIFF, alltaf nóg að gera – stundum jafnvel aðeins meira en nóg – en þegar líður að hátíðardögunum erum við ávallt tilbúin að svipta hulunni af RIFF, alþjóðlegri kvikmyndahátíð sem nýtur vinsælda og virðingar hérlendis sem erlendis eins og umfjöllun erlendra miðla er til vitnis um, og ekki síður hlý orð heimsfrægra heiðursgesta. Þessi góðu orð ylja og hvetja okkur ár hvert til að telja enn og aftur í og nú styttist í að við opnum stóra pakkann. Það styttist í RIFF 2026 og við hlökkum sem aldrei fyrr til að sjá ykkur í bíó, kæru hátíðargestir. STJÓRNANDI: Hrönn Marinósdóttir FRAMLEIÐANDI: Ólafur Þór Chelbat DAGSKRÁRSTJÓRI: Frédéric Boyer UMSJÓN MEÐ DAGSKRÁ: Ana Catalá Pedro Emilio Segura Bernal AÐSTOÐ: Luna Kanselaar DAGSKRÁRRÁÐ: Ana Catalá, Frédéric Boyer, Hrönn Marinósdóttir, Frédéric Boyer

ÞÝÐINGAR OG PRÓFARKARLESTUR: Bolli Valgarðsson LISTAMAÐUR HÁTÍÐAR: Alexander le Sage de Fontenay GRAFÍSK HÖNNUN OG UMBROT: Bjarney Hinriksdóttir GRAFÍSK AÐSTOÐ: Anna Vittoria Pasquato, Berta Šoltysová, Tammy Chang, Monika Benešová, Martyna Pisarczyk. UMSJÓN MEÐ SÝNINGAREINTÖKUM: Jenn Raptor AÐSTOÐ: Mariia Shmeleva

Una Gíslrún Schram SAMFÉLAGSMIÐLAR: Ylfa Þórhildur Guðmundsdóttir AÐSTOÐ: Puck Gregoor Ly Hoang BRANSADAGAR: Salvör Bergmann Maja Anita Jankowska AÐSTOÐ: Evelina Richter UMSJÓN GESTASTOFU: Maria Halina Barańcyk Jaana Pärnpuu

TÆKNI- OG SÝNINGARMÁL: Petter Trønsdal MIÐASALA: Ólöf Agnes Arnardóttir VEFUMSJÓN: Tomáš Hnaníček VERKEFNASTJÓRI UNGRIFF: Salvör Bergmann UMSJÓN MEÐ RIFF TALENT LAB: Hrafnkell Stefánsson SAMSTARFSSKÓLAR: Borgarholtsskóli, Fjölbraut í Ármúla

MEÐFRAMLEIÐANDI: Ólöf Agnes Arnardóttir

MARKAÐS- OG KYNNINGARMÁL: Embla Ýr Bolladóttir

AÐSTOÐ: Elena Dalla Cia Francisco Ferreira

VERKEFNASTJÓRI DAGSKRÁRRÁÐS UNGA FÓLKSINS: Una Schram

RITSTJÓRI: Jón Agnar Ólason

VERKEFNASTJÓRAR SÉRVIÐBURÐA: Ólöf Agnes Arnardóttir

UMSJÓN MEÐ HÁSKÓLABÍÓI: Kolbeinn Rastrick

LJÓSMYNDARAR: Martina Podda Diana Michaličová

Kvikmyndahátíð er jafnframt meira en úrval kvikmynda á hvíta tjaldinu. Hún er samkomustaður. Hún leiðir saman kvikmyndagerðarfólk og áhorfendur, nýjar raddir og reynda höfunda, ólíkar kynslóðir, hugmyndir og sjónarhorn. Á tímum þegar menningarneysla fer í síauknum mæli fram í einrúmi og algóritmar velja fyrir okkur hvað við sjáum, felst sérstakt gildi í því að koma saman í kvikmyndasal, beina athyglinni að sama verkinu og ræða það að sýningu lokinni.

Kvikmyndir sýna okkur ekki aðeins heiminn eins og hann er. Þær geta einnig opnað sýn á það sem hann gæti orðið. Þær varðveita minningar, veita ríkjandi hugmyndum mótspyrnu, vekja spurningar og gefa mynd af þeim möguleikum sem við höfum ekki enn fundið orð yfir. Í kvikmyndum getum við æft okkur í að ímynda okkur aðrar leiðir, annars konar samfélög og nýja framtíð. Kvikmyndir geta ekki einar og sér leyst vandamál heimsins. En þær geta breytt því hvernig við sjáum heiminn – og hvernig við sjáum hvert annað. Allar raunverulegar breytingar hefjast á því að við getum ímyndað okkur að hlutirnir geti verið öðruvísi.

Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF Ávarp

V

ið lifum á tímum þar sem fjarlægðir virðast í senn hafa minnkað og aukist. Heimurinn hefur sjaldan verið jafn samtengdur, en samt verða skilin milli fólks, samfélaga og þjóða sífellt sýnilegri. Stríð, átök, pólitísk skautun, loftslagsvá og vaxandi vantraust setja mark sitt á samtímann. Umræðan er gjarnan einfölduð niður í andstæður þar sem lína er dregin í sandinn og fylkingar mótaðar fyrirfram þar sem lítið rými gefst til að hlusta, efast eða sjá heiminn með augum annarra. En einmitt þar býr einstakur kraftur kvikmyndarinnar. Þegar ljósin dofna í kvikmyndasalnum göngum við um stund inn í veruleika annarrar manneskju. Við kynnumst stöðum sem við höfum aldrei heimsótt, aðstæðum sem við höfum ekki reynt og lífi sem kann í fyrstu að virðast fjarlægt okkar eigin. Kvikmyndin krefst þess ekki að við séum sammála persónum hennar eða höfundum. Hún biður okkur fyrst og fremst um að horfa, hlusta og vera móttækileg. Þannig getur hver kvikmynd orðið boð um að brúa fjarlægð – milli landa og menningarheima, en ekki síður milli einnar manneskju og annarrar.

2 | TÍMARIT RIFF

Slík samvera kann að virðast lítil í samanburði við þær áskoranir sem heimurinn stendur frammi fyrir. Hún er það þó ekki. Að safnast saman um sögur er leið til að rjúfa einangrun og minna okkur á að þrátt fyrir allt eigum við heiminn sameiginlegan. Þar skapast samfélag sem byggist ekki á því að allir séu sammála, heldur á forvitni, virðingu og vilja til að horfast í augu við það sem er flókið, framandi eða óþægilegt.

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík er fyrst og fremst hátíð þessarar ímyndunar, forvitni og sameiginlegu upplifunar. Við bjóðum ykkur velkomin til að stíga inn í ókunnuga heima, hlýða á nýjar raddir og taka þátt í samtali sem heldur áfram löngu eftir að ljósin kvikna á ný.

Verið hjartanlega velkomin á RIFF 2026.


DAVID LEITCH: FRÁ ÁHÆTTUATRIÐUM YFIR Í LEIKSTJÓRASTÓLINN Á

ður en David Leitch settist í leikstjórastól átti hann að baki meira en tveggja áratuga feril sem áhættuleikari og stjórnandi áhættuatriða, og var meðal annars fastur staðgengill Brad Pitt í kvikmyndum á borð við Fight Club, Troy og Mr. & Mrs. Smith, auk þess sem hann kom að stórmyndum á borð við The Bourne Ultimatum, The Matrix Reloaded og Ocean’s Eleven. Þessi einstaka reynsla hefur orðið eitt helsta höfundareinkenni hans sem kvikmyndagerðarmanns – í myndum hans er ekki dauðan punkt að finna.

Hasar fyrir lengra komna

David Leitch er einn áhrifamesti hasarkvikmyndaleikstjóri Hollywood um þessar mundir. Sem leikstjóri og framleiðandi hefur hann endurmótað hasarmyndina með stórbrotnum áhættuatriðum, hnyttnum húmor og kraftmikilli sjónrænni frásögn. David er meðal heiðursgesta RIFF í ár.

Leitch sló í gegn sem leikstjóri með John Wick (2014), kvikmynd sem breytti að vissu leyti nútímahasarbíó með sérlega eftirminnilegum bardagaatriðum, einstaklega áhugaverðu sögusviði og líkamlegri – nánast áþreifanlegri – nálgun. Í veröld Leitch eru sjaldnast neinir fangar teknir, ef svo má segja. Í kjölfarið fylgdi hver stórmyndin á fætur annarri, meðal annars Atomic Blonde (2017), þar sem Charlize Theron fer með hlutverk ljónharðs njósnara í Berlín á lokadögum kalda stríðsins, Deadpool 2 (2018) þar sem kolsvartur gálgahúmor er sem fyrr í öndvegi, hin stílhreina hasargamanmynd Bullet Train (2022), með Brad Pitt í fararbroddi glæsilegs leikarahóps, og The Fall Guy (2024), ástarbréf til áhættuleikara sem sækir innblástur í samnefnda sjónvarpsþætti og skartar þeim Ryan Gosling og Emily Blunt í aðalhlutverkum. Myndir hans eiga það sammerkt – fyrir utan ógleymanlegt sjónarspil áhættuatriðanna – að ískaldur húmorinn er aldrei langt undan.

Það verða læti Charlize Theron lætur mann og annan finna maklega fyrir sér í Atomic Blonde

Haukur í horni fyrir sína stétt

Sem annar stofnenda framleiðslufyrirtækisins 87North Productions (hinn stofnandinn er konan hans, Kelly McCormick – sjá hér fyrir neðan) hefur David Leitch jafnframt verið ötull talsmaður áhættuleikara og átt stóran þátt í að efla viðurkenningu á áhættuatriðum sem sjálfstæðri listgrein innan kvikmyndageirans. Kvikmyndir hans eru allt í senn; stórbrotið og áþreifanlegt

hasarverk með góðri sögu, sterkri persónusköpun og leikandi húmor. Fyrir bragðið er hann í dag talinn einn áhrifamesti kvikmyndagerðarmaðurinn í gerð stórmynda 21. aldarinnar.

KELLY MCCORMICK: LEIÐANDI AFL Í NÚTÍMAHASARBÍÓI Áður en Kelly McCormick stofnaði 87North Productions gegndi hún stöðu aðstoðarforstjóra framleiðslu og verkefnakaupa hjá Sierra/ Affinity. Þar tók hún þátt í að setja saman og þróa verðlaunamyndir á borð við Whiplash, Nightcrawler, Hell or High Water og Manchester by the Sea. Sú reynsla lagði grunninn að nálgun hennar sem framleiðanda: að góð kvikmynd hefjist á sterkri hugmynd, vel mótuðum persónum og handriti sem heldur áhorfandanum föstum – áður en fyrsta sprengingin verður.

Hasar með hjarta

Kelly McCormick er meðal áhrifamestu framleiðenda hasarmynda samtímans. Hún hefur skapað sér sérstöðu með því að sameina umfangsmikla kvikmyndaframleiðslu, sterka persónusköpun og djúpan skilning á því hvernig hasar getur þjónað sögunni. Kelly er meðal heiðursgesta RIFF í ár.

McCormick steig af fullum krafti inn í heim hasarmyndanna sem framleiðandi Atomic Blonde (2017), þar sem glæsilega sviðsett átök og ískaldur stíll fara saman við flókna njósnasögu og óvenjulega líkamlega frammistöðu Charlize Theron. Síðan hefur hún framleitt hverja eftirminnilegu hasarmyndina á fætur annarri. Í Nobody (2021) breytist hversdagslegur fjölskyldufaðir, leikinn af Bob Odenkirk, í óvænta hasarhetju, en Bullet Train (2022) lokar litríkum hópi leigumorðingja inni í japanskri hraðlest og blandar saman ærslafengnum húmor, hárnákvæmum bardögum og merkilega mannlegum persónum. Í jólamyndinni Violent Night (2022) tekur sjálfur jólasveinninn til sinna ráða gegn vopnuðum glæpamönnum, en The Fall Guy (2024) er í senn rómantísk gamanmynd, stórbrotin hasarmynd og innilegt ástarbréf til áhættuleikara. McCormick var jafnframt

framkvæmdaframleiðandi Deadpool 2 og Fast & Furious Presents: Hobbs & Shaw. Í öllum þessum verkefnum má greina sama útgangspunktinn: hasarinn má vera mikill og ævintýralegur, en hann verður að eiga rætur í persónunum og tilfinningalegum kjarna sögunnar.

Upplýsingar um myndir David & Kelly sem sýndar verða á hátíðinni má finna í ítarlegu dagskrárblaði RIFF 2026 sem er væntanlegt.

Arkitektinn að baki 87North Árið 2019 stofnuðu Kelly McCormick og eiginmaður hennar, David Leitch, framleiðslufyrirtækið 87North Productions. Þar leiðir McCormick meðal annars þróun verkefna og heldur utan um flókið samspil handrits, fjármögnunar, leikaravals og framkvæmdar. Ef Leitch er maðurinn sem veit hvernig hasaratriðið á að hreyfast er McCormick konan sem tryggir að það hafi ástæðu til að vera þar. Undir stjórn þeirra hefur 87North orðið eitt mest skapandi afl hasarmynda samtímans og jafnframt ötull málsvari áhættuleikara. Hjónin áttu meðal annars þátt í baráttunni fyrir því að áhættuatriðahönnun yrði viðurkennd sem sérstakur verðlaunaflokkur á Óskarsverðlaunahátíðinni. Með næmu auga fyrir sögum, persónum og möguleikum hasarmyndarinnar hefur Kelly McCormick skipað sér í fremstu röð framleiðenda í Hollywood – og sannað að á bak við hvert ógleymanlegt áhættuatriði liggur ekki aðeins dirfska heldur einnig hugmynd, skipulag og saga. Láttu þig ekki vanta! Aaron-Taylor Johnson væntir þess að sjá þig á Bullet Train á RIFF.

TÍMARIT RIFF | 3


RIFF 2026 Special Events

ROYALE WITH CHEESE? BIG KAHUNA? DURWARD KIRBY? P

ulp Fiction er myndin, svo mikið er á tæru. En hver borgarinn er til að hafa með henni? Það verða áhorfendur að gera upp við sig. $5 mjólkurhristingur er innifalinn. RIFF 2026 og Hamborgarabúlla Tómasar bjóða heldur betur til safaríkrar bíóveislu í ár þegar hátíðargestum gefst kostur á að sjá Pulp Fiction í Háskólabíó. Ekki nóg með það heldur fylgir ljúffengur hamborgari frá Hamborgarabúllu Tómasar með. Áhorfendur geta valið um þrenns lags borgara, í takt við borgarana þrjá sem koma fram með svo eftirminnilegum hætti í þessari sígildu verðlaunamynd Quentins Tarantino.

Royale With Cheese – út af metrakerfinu, sko Fyrsti borgarinn sem ber á góma er það sem Bandaríkjamenn kalla “Quarter Pounder With Cheese.” En eins og Vincent Vega (John Travolta) útskýrir svo skilmerkilega í myndinni – þegar hann er á leiðinni í smá gangsterbissness ásamt Jules Winnfield (Samuel L. Jackson) þá ber sá borgari annað nafn í Evrópu. Ástæðan? Jú, í Evrópu notar almenningur metrakerfið og hefur því ekki minnstu hugmynd um hvað “kvartpundari” er. Umræddur hamborgari nefnist því Royale With Cheese, og það gerir hann líka hjá okkur. Af því hér á Íslandi vitum við ekkert um pund, ekki frekar en aðrir Evrópubúar.

„Durward Kirby borgari . . . blóðugan“ (en samt ekki) Svo mælti Mia Wallace inni á Jack Rabbit Slim‘s, þeim undirfurðulega veitingastað sem Vincent og hún fara á til að fá sér kvöldverð. Staðurinn er einn allsherjar óður til bandarískrar dægurmenningar um miðja 20. öldina – „vaxmyndasafn með púls,“ eins og Vincent orðar það svo mælskulega – og þegar Buddy Holly (Steve Buscemi) tekur við pöntunum hjá þeim skötuhjúunum pantar Mia sér áðurnefndan borgara. Færri vita sjálfsagt að Durward þessi Kirby (1911-2000) var vinsæll fjölmiðlamaður og þáttastjórnandi í bandarísku sjónvarpi og reis stjarna hans hvað hæst á árunum frá 1950 til 1965; einmitt týpan sem Quentin Tarantino vill standa vörð um og minna á, svo hann falli ekki í algera gleymsku. Að þessu sinni verður Durward Kirby-borgarinn hins vegar ekki blóðugur eins og Mia vildi fá hann, heldur verður þetta grænmetisborgarinn sem við bjóðum upp á fyrir þá sem kjósa grænan kost með Pulp Fiction. Góða skemmtun!

Big Kahuna?! Það eru þarna Hawaiiborgararnir...! 4 | TÍMARIT RIFF

Vincent og Jules reka sín skuggalegu erindi í framhaldinu og hitta fyrir nokkra smákrimma í yngri kantinum sem þarf að kenna lexíu. Ungu mennirnir eru í þann mund að snæða árbít, hamborgara frá Big Kahuna – hamborgarabúllu frá Hawaii. Jules verður forvitinn og fær að smakka og viti menn, það reynist vera einn bragðgóður borgari! Ekki tókst að hafa uppi á uppskriftinni að Big Kahuna en Hamborgarabúlla Tómasar galdraði saman sólríkan borgara sem stendur vel undir nafninu og Hawaii-tengingunni. Við skulum segja að líkurnar á ananas séu yfirgnæfandi ...

KAUPTU MIÐA HÉR!


RIFF 2026 Special Events

BÚNINGAR, BÚBBLUR OG BARA GAMAN MEÐ JANE AUSTEN! Þ

að verður sannkölluð hátíð í bæ fyrir aðdáendur Jane Austen á RIFF mánudaginn 28. september þegar við sýnum stórmyndina Hroki og hleypidómar (Pride & Prejudice) frá árinu 2005 í samstarfi við Aðdáendaklúbb Jane Austen á Íslandi. Myndin hlaut frábæra dóma þegar hún var frumsýnd og hefur síðan þá verið tilnefnd til alls um 60 verðlauna víða um heim. Leikstjóri myndarinnar, Joe Wright, hlaut meðal annars BAFTA-verðlaunin sem besti nýi leikstjórinn en myndin var fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd, og Keira Knightley var tilnefnd til nánast allra verðlauna sem nöfnum tjáir að nefna fyrir frammistöðu sína í aðalhlutverkinu. Sjón er sögu ríkari.

Er hægt að laðast að þeim sem þú þolir ekki? Í myndinni segir frá Elizabeth Bennet og systrum hennar en móðir þeirra á þá ósk heitasta að finna dætrum sínum virðuleg eiginmannsefni. Þegar Elizabeth er kynnt fyrir hinum myndarlega en hægláta hr. Darcy lætur hún hann fara óstjórnlega í taugarnar á sér og finnst hann bæði þurr á manninn, snobbaður og hrokafullur. Í huga hennar er hr. Darcy síðasti maðurinn í heiminum sem hún gæti hugsað sér að giftast. En eigi má sköpum renna, eins og þar stendur, og eftir því sem hún kynnist honum betur fer hún að laðast sífellt meira að manninum sem hún hafði svarið að fyrirlíta. Og þá vandast málið.

Kampavín og klæði í takt við tilefnið

Aðdáendur og sérfræðingar, sameinist!

Hér er um einstakt tækifæri að ræða, ekki aðeins fyrir alla unnendur Jane Austen heldur alla sem kunna að meta góðar kvikmyndir og sér í lagi þá sem hafa dálæti á búningadrama og „períóðu“-myndum. Við viljum því hvetja alla til að leggja sitt af mörkum til stemningarinnar og mæta í fötum í anda myndarinnar sem gerist snemma á 19.öld. Einnig verður gestum boðið að skála í kampavíni fyrir sýningu.

Sem fyrr segir er myndin sýnd í samstarfi við Aðdáendaklúbb Jane Austen á Íslandi og formaður klúbbsins, Kristín Linda Jónsdóttir, er kynnir kvöldsins. Hin eina og sanna Silja Aðalsteinsdóttir, rithöfundur og bókmenntafræðingur, verður einnig með okkur en hún er sannkallaður sérfræðingur í öllu er lýtur að Jane Austen og munu hún og Kristín Linda leiða spjall að lokinni sýningu.

Pride and Prejudice sýningin á RIFF fer fram mánudaginn 28. september kl. 19:30. Tryggið yður miða í tæka tíð – takmarkað sætaframboð!

KAUPTU MIÐA HÉR!

TÍMARIT RIFF | 5


RIFF 2026 Q&A

HÖNNUÐUR RIFF 2026: ALEXANDER LE SAGE DE FONTENAY Þ

að er árlegur stórviðburður í starfsemi RIFF þegar nýtt útlit hátíðarinnar er kynnt, meðal annars með nýrri ásýnd heimasíðunnar, riff.is. Við kynnum til leiks hönnuð útlits RIFF fyrir árið 2026, Alexander Le Sage de Fontenay. Einn af vorboðunum ljúfu hér á landi er að Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fær íslenskan hönnuð til að spreyta sig á þessu viðamikla verkefni sem nær, að heita má, til allrar sjónrænnar framsetningar RIFF ár hvert. Í tilefni þess að ásýnd RIFF 2026 liggur nú fyrir, eins og meðal annars má sjá á heimasíðunni, fengum við Alexander í stutt spjall.

Viðeigandi verkefni fyrir kvikmyndaunnanda Alexander útskrifaðist frá LHÍ árið 2021 og hefur meðal annars starfað á auglýsingastofunni Brandenburg. Undanfarin misseri hefur hann starfað sjálfstætt og það er í stúdíói hans, sem heitir Hlemmur.Haus, þar sem hlutirnir gerast. „Ég er mikill kvikmyndaunnandi og með eitt ár í kvikmyndafræði undir beltinu, ásamt því að ég útskrifaðist með gráðu í listfræði,“ segir Alexander þegar við hittum hann í stúdíóinu. „Áður en ég byrjaði að pæla í grafískri hönnun var ég farinn að pæla í allskonar list og hönnun – og kvikmyndum, og þær hafa alltaf veitt mér mikla hamingju. Þetta verkefni mitt fyrir RIFF finnst mér því mjög rökrétt og viðeigandi,“ bætir hann við.

Tilvísanir í heim kvikmyndanna „Innblásturinn að útlitinu er kvikmyndasagan, kvikmyndagerð, kvikmyndaáhorf og jafnvel kvikmyndabrellur. Ég horfði til þess við hönnunina; bíókúltúr, að fara í bíó og að horfa á bíómyndir. Ég vildi svolítið beisla þær tilfinningar og ná að túlka þær á sjónrænan hátt.“ Óhætt er að segja að ýmsar táknmyndir og tilvísanir í heim kvikmyndanna leynist í hönnun Alexanders, og það er gesta RIFF – og fólks á förnum vegi þegar þar að kemur – að finna merkingarnar í hönnuninni með því að rýna í verkin og ráða í táknin.

Leikgleðin og sköpunarferlið

Í bíó allan daginn á RIFF

„Það er alltaf svolítið stutt í leikgleðina hjá mér og ég reyni að hafa hlutina alltaf svolítið leikræna, líflega og litríka þegar kemur að hönnuninni. Ég byrja oftast á því að skrifa hjá

Alexander hefur mætt sem gestur á RIFF í mörg ár, allt frá unglingsárunum, og má því með réttu kallast sannur RIFFari. „Ég á mjög góðar minningar frá því að eyða heilu dögunum í bíó. Það gat maður gert, þökk sé RIFF, bara fengið sér passa og verið í bíó allan daginn. Þegar mér var boðið að hanna útlitið í ár var ég geggjað til í það. Þetta var verkefni sem ég var mjög svo til í að taka að mér, að vera listamaður hátíðarinnar í ár.

„Ég er mikill kvikmyndaunnandi og með eitt ár í kvikmyndafræði undir beltinu, ásamt því að ég útskrifaðist með gráðu í listfræði“ Það sem helst hefur veitt Alexander innblástur upp á síðkastið er sjálfstætt starfandi listafólk, útskýrir hann – ekki síst af því að nú er hann orðinn sjálfstætt starfandi grafískur hönnuður. „Allt þetta frábæra listafólk, myndlistarmenn eins og Andy Warhol, grafískir hönnuðir eins og Lance Wyman, og stúdíóið sem ég vann hjá í starfsnáminu í New York, Karlssonwilker. Þeirra drifkraftur gefur mér drifkraft.“

6 | TÍMARIT RIFF

mér allskonar hugmyndir, tæmi bara heilann alveg, og svo nota ég útilokunaraðferðina og finn þannig út hvað virkar,“ segir Alexander aðspurður um sköpunarferlið hjá honum. „Þegar maður hefur verið að grafa eftir einhverju þá kemur að því að maður finnur eitthvað sem meikar sens, og það er náttúrulega langskemmtilegasti parturinn af vinnunni,“ bætir hann við.

Ég sagði auðvitað já og það er bara búið að vera mjög gaman. Ég hlakka mjög til framhaldsins, að sjá hönnunina birtast úti um allan bæ, smátt og smátt.“


„RIFF STYRKIR ÍMYND REYKJAVÍKUR“

RIFF 2026 Q&A

H

ildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, er alvöru bíóunnandi sem kann að meta upplifun í bíósal með bíópopp í hendi og ekki verra ef mynd eftir Tarantino rúllar á hvíta tjaldinu. Tímarit RIFF tók Hildi í stutt bíóspjall.

Hvaða kvikmynd hefur haft mest áhrif á þig á lífsleiðinni – og af hverju? Ég gleymi ekki kvikmyndinni The Boy in the Striped Pajamas sem fjallar um vináttu tveggja drengja sem kynnast sitthvoru megin girðingar, annar býr í útrýmingarbúðum nasista og hinn er sonur yfirmanns fangabúðanna. Ég var marga daga að jafna mig eftir áhorfið enda fjallar kvikmyndin um skelfilegan tíma í mannkynssögunni.

Hvaða mynd sástu síðast sem vakti þig til umhugsunar eða sat í þér? Ég horfði nýverið aftur á Lof mér að falla, það er óneitanlega kvikmynd sem situr lengi í manni.

Áttu þér uppáhalds leikara/ leikkonu eða leikstjóra? Ég hef lengi verið aðdáandi Tarantino og nokkrar af hans kvikmyndum eru í sérstöku uppáhaldi. Efst á listanum eru Django Unchained og Inglourious Basterds.

Hvers konar kvikmyndir hugnast borgarstjóra aðallega? Undanfarin ár horfi ég aðallega á kvikmyndir með fjölskyldunni svo þær þurfa almennt að vera barnvænar. Eftir því sem eldri börnin hafa stækkað hefur úrvalið hins vegar aukist og oft hægt að vekja áhuga hjá þeim á kvikmyndum sem byggja á sannsögulegum atburðum.

Hver er að þínu mati kosturinn við að fara í bíó samanborið við að streyma kvikmynd heima? Það er auðvitað allt önnur upplifun en að horfa á kvikmynd heima. Það hljómar kannski mótsagnakennt í ljósi þess að kvikmyndahúsin bjóða uppá öflug hljóðkerfi, en mér finnst þeim fylgja svo mikil hvíld og ró. Maður mætir í þeim eina tilgangi að horfa á kvikmynd, eiga í þöglu samkomulagi við aðra gesti um að hafa hljótt og verkefni heimilisins eru hvergi að trufla. Svo er bíópoppið alltaf ákveðið aðdráttarafl.

Hversu mikilvægt er í þínum huga að Reykjavík sé vettvangur menningar? Ef við viljum að Reykjavík verði áfram lifandi, kröftug og samkeppnishæf borg gegnir menningarlífið algjöru grundvallarhlutverki. Fjölbreytt menningarlíf gerir borgina bæði líflega og aðlaðandi fyrir íbúa og gesti - það eykur lífsgæði íbúa, skapar verðmæti og atvinnu og laðar að bæði ferðamenn og hæfileikafólk. Að mínu mati á Reykjavík að vera borg þar sem menning er hluti af daglegu lífi, aðgengileg öllum og sýnileg í hverfum, á torgum og í almenningsrými.

Hvað finnst þér RIFF gefa Reykjavík? RIFF er einn liður í því að gera Reykjavík að alþjóðlegri menningarborg. Hátíðin laðar að sér framúrskarandi kvikmyndagerðarfólk og gesti víðs vegar að úr heiminum, tengir íslenskt kvikmyndagerðarfólk við erlenda kollega, veitir borgarbúum aðgang að fjölbreyttri kvikmyndagerð og styrkir ímynd Reykjavíkur hérlendis sem erlendis.

TÍMARIT RIFF | 7


PORTÚGAL Í FÓKUS Á RIFF 2026 Á hverju ári beinir Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík kastljósi sínu að tilteknu landi, sýnir þaðan kvikmyndir og býður góðum gestum að koma á RIFF. Að þessu sinni er Portúgal í Fókus á RIFF og sýnir úrval portúgalskra mynda á hátíðinni í haust sem gefa góða mynd af bíólandinu Portúgal, því ferskasta sem landið býður upp á um þessar mundir. Sjónræn listaverk á mörkum raunveruleikans Þá mætir João Pedro Rodrigues sem er án vafa einn virtasti og frumlegasti kvikmyndaleikstjóri Portúgals. Frá því að hann vakti alþjóðlega athygli með fyrstu kvikmynd sinni, O Fantasma (2000), hefur hann skapað sér sérstöðu með djörfum, sjónrænt mögnuðum og persónulegum kvikmyndum sem fjalla gjarnan um sjálfsmynd, kynvitund, löngun og mörk raunveruleika og ímyndunar. Verk hans hafa reglulega verið valin til sýninga og verðlauna á virtustu kvikmyndahátíðum heims, þar á meðal í Cannes, Feneyjum og Locarno. Meðal þekktustu mynda Rodrigues eru To Die Like a Man (Morrer Como um Homem), The Ornithologist (O Ornitólogo), The Tsugua Diaries og Fireworks (Fogo-Fátuo). João Pedro Rodrigues er í dag talinn einn af mikilvægustu höfundum listrænnar evrópskrar kvikmyndagerðar og hefur haft djúpstæð áhrif á þróun portúgalskrar kvikmyndalistar á alþjóðavettvangi.

Portúgalskir heiðursgestir á RIFF Að vanda heiðra hátíðina góðir gestir frá landinu sem er í fókus og verða viðkomandi viðstödd sýningar á verkum sýnum, ásamt því að taka þátt í ýmsum viðburðum með áhorfendum. Fyrst er að nefna að hin heimsþekkta leikkona Maria de Medeiros kemur á hátíðina í ár en hún hlýtur „Heiðursverðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listfengi.“

Ein virtasta leikkona Portúgal María de Medeiros er ein virtasta kvikmyndaleikkona Portúgals auk þess að vera leikstjóri og söngkona. Hún hefur átt glæsilegan alþjóðlegan feril í meira en fjóra áratugi og leikið í kvikmyndum á mörgum tungumálum. Hún vakti fyrst alþjóðlega athygli í mynd Philip Kauffman, Henry & June (1990), en varð heimsþekkt fyrir hlutverk sitt sem Fabienne í hinni sígildu mynd Quentin Tarantino, Pulp Fiction, sem er í hópi vinsælustu mynda síðustu áratuga og hlaut meðal annars Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 1994. Sem leikstjóri hefur de Medeiros einnig markað sér mikilvægan sess. Kvikmynd hennar Capitães de Abril (April Captains), um Nellikubyltinguna í Portúgal árið 1974, var frumsýnd í Un Certain Regard-flokki kvikmyndahátíðarinnar í Cannes. Á ferli sínum hefur hún unnið með mörgum af fremstu kvikmyndagerðarmönnum Evrópu og hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga, þar á meðal Coppa Volpi-verðlaunin sem besta leikkonan á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum.

Í hópu áhrifamestu höfunda í Portúgal Loks býður RIFF velkominn Edgar Medina á RIFF, en hann er einn af fremstu handritshöfundum og framleiðendum portúgalskrar kvikmynda- og sjónvarpsgerðar. Eftir hann liggja nú þegar verðlaunaþættirnir Sul (South), Causa Própria (Natural Law), og Matilha (Dogpack) sem hlotið hafa mikið lof gagnrýnenda og fjölda portúgalskra sjónvarpsverðlauna. Edgar Medina lauk námi við London Film School og stofnaði framleiðslufyrirtækið Arquipélago Filmes í Lissabon. Hann vakti fyrst alþjóðlega athygli sem meðhöfundur kvikmyndarinnar Cartas da Guerra (Letters from War), sem var valin í aðalkeppni Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Berlín árið 2016. Með metnaðarfullri nálgun sinni og sterkri áherslu á persónudrifna frásögn hefur Edgar Medina skipað sér í hóp áhrifamestu höfunda nýrrar kynslóðar portúgalskrar sjónvarps- og kvikmyndagerðar.

Nánari upplýsingar um kvikmyndir framangreindra listamanna á RIFF 2026 og sýningardaga má innan skamms sjá í dagskrárblaði RIFF. 8 | TÍMARIT RIFF


10 ÓMISSANDI Á RIFF 2026

Eins og ávallt er dagskrá RIFF fleytifull af úrvals bíómyndum hvaðanæva að úr heiminum, bæði leiknar myndir sem og heimildarmyndir, og er ábyggilegt að þar finna allir eitthvað áhrifaríkt og ógleymanlegt við sitt hæfi. Tímarit RIFF bað dagskrárdeildina, sem vinnur hörðum höndum vikum og mánuðum saman við að velja það besta fyrir gesti RIFF, um að tína til nokkra góða titla sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Við gefum dagskrárdeildinni orðið: Club Kid (Partýpabbi) – Jordan Firstman „Jordan Firstman leikstýrir, skrifar og leikur í þessari stórskemmtilegu mynd um mikið partýljón sem rekur villtan næturklúbb í New York, og breytingarnar sem verða á högum hans þegar á svæðið mætir 10 ára sonurinn sem hann hafði ekki hugmynd um að hann ætti. Alveg geggjuð!“

La Gradiva – Marine Atlan „Mögnuð perla sem frumsýnd var í Cannes síðastliðið vor um hóp af frönskum menntaskólanemum sem fara í skoðunarferð til Pompeii og verða fyrir undarlegum áhrifum þegar þau upplifa þessa fornu veröld sem steypt er í ösku og sand. Mynd sem situr í manni.“

Nightborn (Barn næturinnar) – Hanna Bergholm

Amarga Navidad (Beisk jól) – Pedro Almodóvar

„Rosalegur finnskur folk-hryllingur fyrir þá sem þora. Ungt par ætlar að stofna fjölskyldu í kofa djúpt inni í dimmum skógi í Finnlandi og eignast í framhaldinu barn sem er ekki alveg eins og ungabörn eru flest. Var í keppnisflokki á Berlinale og uppskar þar mikið lof og mikinn hroll. Gaman að sjá Rupert Grint úr Harry Potter í hlutverki pabbans“

„Almodóvar er auðvitað alltaf eitt stórt „JÁ“ enda katalógurinn hans ein veisla. Mjög djúsí frásagnaraðferð hjá meistaranum að þessu sinni, með ólínulegri frásögn og sögu innan í sögu svo það er ekki séns að láta sér leiðast. Svo er tónlistin gersamlega geggjuð enda fékk hún verðlaun í Cannes sem Besta kvikmyndatónlistin. Gúrmei stöff!“

Red Rocks – Bruno Dumont

Chronovisor (Fortíðarsjáin) – Kevin Walker, Jack Auen.

„Ótrúlega flott mynd með stórbrotinni myndatöku um tvo strákahópa sem keppa innbyrðis í að stinga sér í sjóinn fram af háskalegum klettum á frönsku Miðjarðarhafsströndinni. Lygilegt landslag, magnaðir litir og ungir guttar sem leika eins og lærðir leikarar. Var frumsýnd á Director‘s Fortnight í Cannes og vakti þar mikla lukku.“

Pulp Fiction (Reyfari) – Quentin Tarantino „Þarf eitthvað að ræða þetta frekar? Ein mesta tímamótamynd í bíómenningu síðustu áratuga, leikbreytir á svo mörgum sviðum og hægt að horfa á hana endalaust. Maria de Medeiros verður á staðnum og mismunandi hamborgarar í anda myndarinnar. Sumum bíóviðburðum missir maður bara ekki af sko.“

„„Þetta er brilljant sagnfræðiráðgáta um fræðikonu sem er óttaleg sófakartafla sem kemst á snoðir um einskonar myndavél sem leynileg munkaregla smíðaði og getur fangað myndir af liðnum tíma. Einhverjir eru hins vegar tilbúnir til að verja leyndardóminn með öllum tiltækum ráðum. Smá Umberto Eco, smá Dan Brown, og bara gaman.“

I Only Rest in the Storm – Pedro Pinho (Portugal, France, Brazil, Romania) „Ein af mörgum perlum í portúgölskum fókus á RIFF í ár um Sergio sem ræður sig í vinnu í Vestur-Afríku við lagningu vegar frá skógi til sjávar en flækist í ástarþríhyrning á meðan og heyrir ofan á allt af dularfullum örlögum forvera síns í starfi. Margslungið bíó fullt af táknum og merkingu sem hefur sópað að sér veðlaunum hér og hvar.“

Fatherland – Paweł Pawlikowski

Wild at Heart (Tryllt ást) – David Lynch

„Tja, til að byrja með á maður bara að sjá allt eftir Pawlikowski, en þessa á maður að sjá af því hún á mikið erindi í dag, þótt hún gerist árið 1949. Hér segir frá rithöfundinum Thomas Mann sem fer í roadtrip ásamt dóttur sinni um Þýskaland sem er víða bara sviðin jörð eftir seinni heimsstyrjöldina. Þessi keppti um Gullpálmann í Cannes í maí og Pawlikowski var valinn besti leikstjórinn. Ógleymanleg og við mælum svo mikið með.“

„Ótrúlega spennandi að fá þetta meistaraverk í glænýrri 4K endurvinnslu á bæði mynd og hljóði. Kolbrjáluð snilld að hætti David Lynch og verðskuldaður Gullpálmi í Cannes 1990 þó að sumir hafi rifið kjaft yfir því. Nicolas Cage og Laura Dern eru æði, Willem Dafoe svakalegur og myndin öll einn magnaðasti og litríkasti vegatryllir seinni tíma. Ein sýning og færri munu komast að en vilja. Sorrý!“

TÍMARIT RIFF | 9


Upprennandi meistari á RIFF 2026

AMANDA KERNELL – EINSTÖK RÖDD Í NORRÆNNI KVIKMYNDAGERÐ Sænsk-samíski handritshöfundurinn og leikstjórinn Amanda Kernell hefur skipað sér í hóp áhugaverðustu kvikmyndagerðarmanna nýrrar norrænnar kynslóðar. Hún verður heiðruð á RIFF 2026 sem Upprennandi meistari. Hún fæddist í Umeå árið 1986, nam leikstjórn við Danska kvikmyndaskólann og gerði nokkrar rómaðar stuttmyndir áður en hún leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd.

Nýlenduhyggja og nístandi upprundi Sameblod (2016) fjallar um samíska unglingsstúlku sem reynir að snúa baki við uppruna sínum eftir að hafa sætt kynþáttafordómum og niðurlægjandi kynþáttamælingum í sænskum heimavistarskóla á fjórða áratug síðustu aldar. Myndin fléttar saman sögulegu og persónulegu sjónarhorni og tekst á við nýlenduhyggju, aðlögunarþrýsting og sár sem ganga milli kynslóða. Hún var frumsýnd á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum, þar sem Kernell hlaut FEDEORA-verðlaunin sem besti ungi leikstjórinn, og vann síðar Dragon-verðlaunin sem besta norræna kvikmyndin í Gautaborg.

Magnaðar myndir eftir upprennandi meistara Kernell snýr nú aftur í samískt samfélag með Brace Your Heart (Garrat du Váimmu), ástarsögu um sorg, arfgeng áföll og lífið innan hreindýraræktarsamfélagsins. Myndin verður heimsfrumsýnd í keppni á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto í september 2026.

Örþrifaráð einstæðrar móður Önnur mynd Kernell, Charter (2020), segir frá móður sem fer með börn sín í leyfisleysi til útlanda á meðan hún stendur frammi fyrir því að missa forræði yfir þeim. Þetta siðferðilega flókna fjölskyldudrama var frumsýnt á Sundance og valið framlag Svíþjóðar til Óskarsverðlaunanna sem besta alþjóðlega kvikmyndin.

10 | TÍMARIT RIFF

RIFF 2026 sýnir allar þrjár framangreindu myndirnar og hér er sannarlega komið frábært tækifæri fyrir gesti kvikmyndahátíðarinnar að sjá þessar mögnuðu myndir eftir upprennandi meistara ársins á RIFF. Þær eiga það sammerkt að hafa til að bera tilfinningalega nánd og sálfræðilegt næmi í bland við agaða myndatöku og oft naumhyggjulega framsetningu. Kernell gefur persónum sínum, einkum konum sem taka erfiðar ákvarðanir og verða ekki dæmdar með einföldum mælistikum, óvenjulegt rými og dýpt.


RÁÐGJAFARÁÐ RIFF

Upprennandi meistari á RIFF 2026

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík er það bæði heiður og ánægja að kynna Ráðgjafaráð RIFF, sem skipað er fagfólki í fremstu röð úr ýmsum skapandi greinum, ekki síst úr heimi sviðslista og kvikmyndanna. Ráðið skipa þau Ingvar E. Sigurðsson, Elísabet Ronaldsdóttir, Andri Snær Magnason, Yrsa Roca Fannberg, Margrét Örnólfsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Guðmundur Arnar Guðmundsson. Hlutverk ráðsins er að styrkja og styðja við starfsemi RIFF með því að vera til ráðgjafar og hafa þannig áhrif á dagskrá og starfsemi hátíðarinnar. Um leið getur starfsfólk hátíðar leitað til ráðsmanna eftir sérþekkingu, ráðum eða hugmyndum eða borið undir þá dagskrá og fengið álit þeirra. Jafnframt er ráðsmönnum frjálst og þeir hvattir til að koma með hugmyndir að dagskrá eða öðru því sem gæti orðið starfsemi Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík til framdráttar.

Heillaspor fyrir hátíðina Það er kvikmyndahátíð sönn ánægja að fá þennan glæsilega hóp fagfólks með í Ráðgjafaráð RIFF og ljóst að fjölbreytt sérþekking þeirra og ómetanleg reynsla á eftir að gagnast RIFF með margvíslegum hætti og að stofnun ráðsins verði mikið gæfuspor fyrir Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík. Ekki síst er sérstaklega spennandi að fá svona sterkan hóp til að móta kvikmyndahátíðina áfram. Með ráðgjafaráðinu er kominn vettvangur fyrir opið samtal, hugmyndir og innblástur og RIFF hlakkar til að fá þeirra sýn á það sem við erum að gera.

Elísabet Ronaldsdóttir, kvikmyndaklippari

Guðmundur Arnar Guðmundsson, leikstjóri og framleiðandi

Yrsa Roca Fannberg, kvikmyndagerðarkona Yrsa Roca Fannberg er í senn leikstjóri, handritshöfundur og kvikmyndatökukona sem hefur unnið að fjölbreyttum kvikmyndaverkefnum, bæði á Íslandi og erlendis. Verk hennar hafa verið sýnd á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum og vakið athygli fyrir sterka og persónulega nálgun, ekki síst verðlaunamyndin Jörðin undir fótum okkar sem sýnd var á RIFF 2025.

Sem fyrr segir er Ráðgjafaráð Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík skipað reynslumiklu fagfólki sem hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín í hinum ýmsu skapandi greinum innan kvikmyndalistarinnar.

Elísabet Ronaldsdóttir hefur starfað við kvikmyndir og sjónvarp bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Hún hefur komið að fjölda stórra erlendra verkefna, þar á meðal í Hollywood, og er sérstaklega þekkt fyrir kraftmikla klippingu í hasar- og spennumyndum á borð við Bullet Train sem skartaði Brad Pitt í aðalhlutverki, Atomic Blonde með Charlize Theron og nú síðast How To Rob a Bank með Zoë Kravitz og Nicholas Hoult sem frumsýnd verður í haust.

Ingvar E. Sigurðsson, leikari

Margrét Örnólfsdóttir, handritshöfundur og leikstjóri

Ólafur Darri Ólafsson, leikari og framleiðandi

Andri Snær Magnason, rithöfundur og leikstjóri

Ingvar E. Sigurðsson er í hópi þekktustu leikara þjóðarinnar og hefur hlotið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir störf sín í kvikmyndum, sjónvarpi og leikhúsi. Hann hefur unnið með helstu leikstjórum landsins og hlotið fjölda verðlauna, þar á meðal fyrir hlutverk sitt í Hvítur, hvítur dagur.

Margrét Örnólfsdóttir hefur starfað við kvikmyndir, sjónvarp og leikhús. Hún hefur komið að fjölbreyttum verkefnum, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi, og er meðal annars þekkt fyrir vinnu sína við sjónvarpsþættina Fangar, Pressa, Ófærð og Flateyjargátan. Auk þess er hún barnabókahöfundur og hefur gefið út verk fyrir yngri lesendur.

Ólafur Darri Ólafsson hefur haslað sér völl bæði á Íslandi og erlendis og er meðal annars þekktur fyrir aðalhlutverk sitt í hinum vinsælu þáttum Ófærð (Trapped). Hann hefur komið fram í fjölda alþjóðlegra kvikmynda og sjónvarpsþátta, þar á meðal The Secret Life of Walter Mitty. Auk leiklistar hefur hann einnig komið að handritsgerð og þróun efnis, og er einn af mest áberandi röddum íslenskrar kvikmyndagerðar.

Andri Snær Magnason er einn fjölhæfasti og mest verðlaunaði rithöfundur Íslands. Hann hefur skrifað skáldsögur, barnabækur, leikrit, ljóð og samfélagsrýni, og hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin í öllum flokkum. Andri Snær hefur leikstýrt fjórum kvikmyndum; þær eru Draumalandið (2009), heimildarmyndin Þriðji póllinn sem var opnunarmynd RIFF 2020, Tídægra/Apausalypse frá 2021 og svo National Geographic-heimildarmyndin Time and Water (2026).

Reynslumikið einvalalið í ráðgjafaráðinu

Guðmundur Arnar er íslenskur leikstjóri og framleiðandi. Eftir nám í myndlist lagði hann stund á handritaskrif í Danmörku. Á meðan á Cannes Cinéfondation-dvöl hans stóð þróaði hann og skrifaði sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd, Hjartastein, sem var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Næsta kvikmynd hans í fullri lengd, Berdreymi, var frumsýnd á Berlinale árið 2022.

TÍMARIT RIFF | 11


STARFSNEMAR RIFF Í NÆRMYND Einn skemmtilegasti hluti þess að starfa við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík ár hvert er hinn einstaki og alþjóðlegi hópur starfsnema sem leggur ómetanlega hönd á plóg við margvísleg störf til að allt smelli saman þegar kvikmyndahátíð gengur í garð. Við kynnum starfsnemana okkar árið 2026 með stolti og þakklæti.

Anna Vittoria

grafískur hönnuður (Ítalía)

Elena

gestastofa (Ítalía)

Monika

grafískur hönnuður (Tékkland)

Puck

framleiðsla (Holland)

Martyna

Það besta við starfið mitt hjá RIFF

Það sem kom mér mest á óvart við að starfa á Íslandi

Evelina, og að fá að sjá hönnun mína á prenti og nýtta í ákveðnum tilgangi og svo alþjóðlegt umhverfi og tækifæri til að kynnast ólíkum menningarheimum.

Að sjá fólk dýrka sólina vegna þess hve sjaldséð hún er / að fólk meti andlega heilsu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Að hitta nýtt fólk.

Tækifærið til að starfa erlendis, kynnast nýju fólki og njóta vinalegs andrúmslofts á vinnustaðnum. Það veitti mér líka þá tilfinningu að ég væri hluti af einhverju stærra.

Að fá að sökkva sér í gjörólíkt og einstakt umhverfi og kynnast nýju, skapandi fólki frá ýmsum löndum. Að upplifa samstarfið innan svo fjölbreytts hóps við að skapa vel heppnaða hátíð og sjá hana verða að veruleika.

Íslenskur matur sem ég elska

RIFF bjórinn

Aldeyjarfoss STÓRKOSTLEGUR FOSS

Hvað fólk borðar hádegismatinn snemma.

SKYR!!!

Dettifoss

Hvað fólk kann mikið að meta sólardagana og borðar hádegismatinn utandyra.

Nóa Kropp og rúgbrauð

Dettifoss með regnboga

Að fá borðtennisborð á skrifstofuna og halda mót – svo gaman! Og birgðirnar af RIFF bjór : )

Hraun, og döðlur með sítrónubragði frá Dave & John

grafískur hönnuður (Pólland)

Að upplifa ólíka menningu og starfsumhverfi, og kynnast íslenskri náttúru um leið og maður eignast nýjan og alþjóðlegan vinahóp.

Að geta farið út að ná í hádegismat og fara í göngutúr yfir daginn til að hlúa að andlegri heilsu.

Súper súra Trítlahlaupið

Tammy

Að heyra fjölbreyttar hugmyndir frá alþjóðlegum hópi samstarfsfólks og sjá eigin hönnun verða að veruleika.

Að geta aðskilið vinnu og frítíma í huganum og vita hvenær vinnudeginum er lokið.

Harðfiskur

grafískur hönnuður (Taiwan)

Neðansjávarveröldin í Silfru <3

Dettifoss með regnboga

Botnstjörn í Vatnajökulsþjóðgarði

Að starfa erlendis og hitta svo margt nýtt fólk.

Verðið á reiðhjólum!

Skyr

Trampólínið í garðinum hjá mér (en kannski er það bara af því ég hef ekki komist til að skoða mikið af landinu, en samt er mjög skemmtilegt þegar trampólín dúkkar fyrirvaralaust upp í garðinum hjá manni).

Að starfa með skapandi fólki allstaðar að úr Evrópu og víðar.

Skrifstofan í miðbænum.

Kleinur

Dettifoss

Að starfa á sviði grafískrar hönnunar, kynnast fólki frá ólíkum menningarheimum og uppgötva það sem við eigum sameiginlegt.

Hvernig allir eiga í kurteislegum og afslöppuðum samskiptum, án streitu eða álags.

Vefjur frá Fair Market

Íbúðin mín og Dettifoss

Anna <3 (og fólkið almennt).

Frelsið.

Hraun, ástin mín

Að kynnast nýju fólki og eiga stuðningsríkt samstarfsfólk.

Hversu afslappaðir allir eru og hversu frjálslega fólk sinnir störfum sínum.

Að kynnast frábæru fólki frá ýmsum hlutum Evrópu og öðlast reynslu af því að vinna að kraftmiklu verkefni sem þróast frá degi til dags.

Að þrátt fyrir gríðarlega kaffineyslu á skrifstofunni á hverjum degi, þá eru allir einhvern veginn gersamlega ónæmir fyrir stressi.

Francisco gestastofa (Portúgal)

Fallegasti staður á Íslandi

Luna

dagskrárstýring (Holland)

Berta

grafískur hönnuður (Tékkland)

Evelina

framleiðsla/Bransadagar (Þýskaland/Rússland)

Ly

samfélagsmiðlar (Víetnam/Finnland)

Tomáš

vefmál (Tékkland)

12 | TÍMARIT RIFF

Súpur! Kjötsúpa, tómatsúpa, skelfisksúpa borin fram í brauðhleif

Flatbrauð, Kókómjólk og bakkelsi frá Brauð & Co.

Fossarnir almennt, en jú – Dettifoss með regnboga

Það er stórkostlegt landslag allstaðar en ef ég verð að velja þá Gljúfrabúi

Snæfellsnesið


Leyndarmál um Reykjavík Mynd sem ég ætla sem mig langar að deila alls ekki að missa af á RIFF 2026

Fair Market! (Maður borgar 3 evrur við innganginn og fær eins mikið og maður vill)

Svo margir barir eru með hamingjustund

Dissociated me

Red Rocks

Fair Market, ótrúlegir fjársjóðir sem maður getur fundið í búðum í Reykjavík með notuð föt og svo Kvika, fótabaðið úr steini við sjávarsíðuna.

Pulp Fiction

Þetta er í raun ekkert4 leyndarmál því hljóðfærin heyrast langt að. Lifandi tónlist Bókabúðarhljómsveitarinnar á Húsi máls og menningar alla daga vikunnar tryggja manni kvöldstund fulla af gleði, dansi, góðri stemningu og rokki og róli!

Fatherland

Það eru djasstónleikar alla sunnudaga í Iðnó!

Wild At Heart

Letterboxd 4

Coherence, Interstellar, Predestination, Conclave ANNA VITTORIA

ELENA

MONIKA ELENAmo

PUCK

Belle De Jour, La Notte, Tár, The Graduate

Divergent, Cars, Interstellar, Catch Me If You Can

The Grand Budapest Hotel, Before Sunrise, Eternal Sunshine of the Spotless Mind, La Sociedad de la nieve

The Double, Saltburn, Loving Vincent, Parasite MARTYNA

Fallegir litlir grænir reitir sem leynast víða um Reykjavík – það þarf bara að rölta um og uppgötva þá.

Myndir í alþjóðlega stuttmyndaflokknum

Fight Club, Poor Things, Holy Motors, The House That Jack Built

The fair Market!

I Only Rest in the Storm

Drive My Car, Otto e Mezzo, Past lives, After Hours

Almenningsgarðurinn við English Pub (haha)

Tin Castle

La Haine, Surf‘s Up, Festen, The Big Lebowski

Nálægt Gróttuvita er Kvika, lítið jarðhitað fótabað sem öllum er frjálst að nota.

Once Upon a Time in Harlem

Kill Bill, Some Like it Hot, Arrivals, Inception

Það er einn skemmtilegur bar sem heitir Lebowski . . .

Teenage Sex and Death at Camp Misma

Challengers, La La Land, Dinner in America, Tangled

Fischersund, ilmvatnsverslun sem skapar ilmi innblásna af bragði, stemningu og ilmi Íslands.

Pride and Prejudice

Fallen Angels, Lady Bird, The Scent of Green Papaya, Perfect days

Þú þarft ekki að halda þig í miðbæ Reykjavíkur til að njóta besta útsýnisins. Kaffiganga eftir strandstígnum á Kársnesi býður upp á einstaka upplifun við hafið – án þess að þurfa að sveigja fram hjá einum einasta ferðamanni.

Pulp Fiction

Coco, Kill Bill, Shrek, The Cremator

TAMMY

FRANCISCO

LUNA

BERTA

EVELINA

LY

TOMÁŠ

TÍMARIT RIFF | 13


Sérviðburðir RIFF

HELLABÍÓ RIFF 2026 – RAIDERS OF THE LOST ARK

KAUPTU MIÐA HÉR!

Það er heldur betur stórmynd sem Alþjóðleg kvikmyndahátíð sýnir að þessu sinni í hinu árlega Hellabíói RIFF sem sýnt er í hinum magnaða Raufarhólshelli, en Hellabíóið er jafnan með vinsælustu sérviðburðum hátíðarinnar og yfirleitt komast færri að en vilja. Má fastlega gera ráð fyrir að svo verði einnig upp á teningnum í ár, ekki síst þegar haft er í huga hvaða mynd verður sýnd.

Eitt mesta ævintýri allra tíma Myndin er engin önnur en Leitin að týndu örkinni (Raiders of the Lost Ark) frá 1981 eftir Steven Spielberg, ein þekktasta spennu- og ævintýramynd allra tíma. Myndin sú mest sótta á heimsvísu árið sem hún var frumsýnd og hefur í engu glatað einstökum töfrum sínum. Myndin festi Harrison Ford í sessi sem eina stærstu kvikmyndastjörnu veraldar og var tilnefnd til 8 Óskarsverðlauna, þar á meðal sem besta mynd og Spielberg sem besti leikstjóri. Á endanum hreppti hún fern verðlaun; fyrir bestu klippingu, besta hljóð, bestu leikmynd/ listræna stjórnun auk sérstakrar viðurkenningar fyrir tæknibrellur.

Sáttmálaörkin og dularfullur máttur hennar Leitin að týndu örkinni gerist árið 1936. Fornleifafræðingurinn, prófessorinn og ævintýramaðurinn Dr. Indiana Jones fenginn til liðs við bandarísku leyniþjónustuna til að finna Sáttmálaörkina, sem sagt er frá í Biblíunni, áður en Þýskaland nasismans gerir það. Talið er að örkin búi yfir gríðarlegum eyðingarmætti – sem myndi gera hvern þann her sem beitti henni fyrir sig með öllu ósigrandi – og upplýsingar CIA segja að Þriðja ríki Adolfs Hitler ætli sér með öllum ráðum að komast yfir hana. Öllu skipti því að komast yfir örkina áður en nasistar gera það.

14 | TÍMARIT RIFF

Endalaus spenna – ógleymanleg skemmtun Ævintýraleg leit Dr. Jones leiðir hann frá Suður-Ameríku til Kaíró, þar sem hann hittir fyrrverandi ástkonu sína, Marion Ravenwood. Þar hittir hann einnig fyrir gamlan keppinaut sinn, óheiðarlegan franskan fornleifafræðing að nafni Belloq sem starfar nú fyrir nasista. Óþarfi er að tíunda söguþráðinn frekar en myndin er stanslaus röð háspennandi atriða þar sem Indy er stöðugt

í kapphlaupi við nasista í þeirri von að hinn yfirnáttúrulegi máttur Sáttmálaarkarinnar leysist ekki úr læðingi með afleiðingum sem enginn getur gert sér í hugarlund. Sjón er sannarlega sögu ríkari!

Ævintýraleg staðsetning fyrir bíó! Raufarhólshellir er einn lengsti hraunhellir Íslands, rúmlega 1300 metra langur, og býður upp á magnaða stemmingu fyrir spennumynd sem gerist að töluverðu leyti í hellum. Áhorfendur

munu ferðast inn í iður jarðar þar sem þeir munu horfa á myndina í einstöku umhverfi með hljóði sem magnar upp spennuna á óviðjafnanlegan hátt. Aðeins er boðið upp á mjög takmarkaðan fjölda miða vegna aðstæðna í hellinum – og er því ráðlagt að tryggja sér aðgöngumiða sem allra fyrst. Miðasala fer fram á riff.is þar sem einnig má finna nánari upplýsingar um samgöngur, búnað og öryggisráðstafanir fyrir sýninguna.


Sérviðburðir RIFF

Twin Peaks upphafsþátturinn + Wild at Heart í 4K endurvinnslu Propaganda Films tvennusýning að Sigurjóni Sighvatssyni viðstöddum Árið 2026 eru 40 ár liðin frá því að framleiðandinn Sigurjón Sighvatsson stofnaði Propaganda Films, ásamt fleirum. Fyrirtækið er nánast goðsagnakennt á sínu sviði og átti stóran þátt í að endurskilgreina myndmál kvikmynda, sjónvarps, auglýsinga og tónlistarmyndbanda. Af því tilefni efnir RIFF 2026 til einstakrar double-feature sýningar, að Sigurjóni viðstöddum, á tveimur tímamótaverkum sem Propaganda Films framleiddi á sínum tíma og eru bæði í leikstjórn David Lynch.

Propaganda haslar sér völl Frá því seint á níunda áratugnum og fram eftir þeim tíunda varð Propaganda Films að sannkallaðri sköpunarsmiðju og varð á fáum árum nánast allsráðandi; þegar mest var framleiddi félagið um þriðjung allra tónlistarmyndbanda sem búin voru til vestanhafs. Á þessum tíma ungaði Propaganda út leikstjórum á borð við David Fincher, Michael Bay, Spike Jonze og Antoine Fuqua sem allir hafa með myndum sínum sett varanlegan svip á Hollywood undanfarin 35 ár. Samhliða því framleiddi félagið sum áhrifamestu verk síns tíma á hvíta tjaldinu.

Nýr kafli í sjónvarpssögunni Í tilefni þessara merku tímamóta kynnir RIFF sérstaka tvöfalda sýningu á verkum úr smiðju Propaganda Films, framleiddum af Sigurjóni Sighvatssyni. Svo vill til að bæði eru hugarfóstur leikstjórans David Lynch, sem var tíður samstarfsmaður og vinur Sigurjóns: upphafsþátturinn (e. pilot) af Twin Peaks og svo kvikmyndin Wild at Heart, sem hlaut Gullpálmann á í Cannes. Verkin tvö komu út með aðeins fárra vikna millibili vorið 1990 og mörkuðu sannkölluð tímamót í frásagnarlist samtímans á hvíta tjaldinu og skjánum. Twin Peaks umbylti sjónvarpinu eins og við þekkjum það fyrir fullt og allt og sannaði að miðillinn gæti verið vettvangur fyrir efni með kvikmyndablæ, dularfullur með óræðum persónum og oft á tíðum með atburðarás sem áhorfendur fá ekki fullar skýringar á.

Einstæð sýn – enginn afsláttur Það þótti heilmikið nýmæli að leikstjórinn David Lynch gaf engan afslátt af listrænni sýn sinni þegar kom að Twin Peaks, en heillaði engu að síður milljónir áhorfenda um allan heim upp úr skónum með óræðum stíl sínum. Upphafsþátturinn að fyrstu seríu Twin Peaks – sem eru heilar 94 mínútur að lengd – var frumsýndur þann 8. apríl 1990 í Bandaríkjunum og samstundis varð almenningur haldinn þráhyggjukenndri þörf fyrir að komast að sannleikanum; hver myrti Lauru Palmer? Rúmum mánuði síðar var Wild at Heart frumsýnd í Cannes, og endaði á að hreppa aðalverðlaun hátíðarinnar, sjálfan Gullpálmann. Wild at Heart er allt í senn vegamynd, ástarsaga, suðurríkjagotneskja með biksvörtum húmor, allt sett fram með einstöku auga leikstjórans. Þau loforð sem segja má að David Lynch hafi gefið með Blue Velvet árið 1986 efndi hann rækilega með Wild at Heart, myndinni sem staðfesti hann sem eitt sérstæðasta og framsæknasta kvikmyndaskáld samtímans.

Endurgert meistaraverk – einstakt tækifæri Wild at Heart hefur nýverið hlotið glæsilega 4K-endurvinnslu, sem unnin var af Universal Pictures og The Criterion Collection upp úr upprunalegu 35 mm filmunum. Hljóðupptakan var sömuleiðis endurgerð úr upprunalega 35 mm segulbandinu í samstarfi við Dean Hurley, sem var einn nánasti samstarfsmaður Lynch. Allt ferlið var unnið undir handleiðslu kvikmyndatökustjórans, Frederick Elmes sem stýrði tökum á myndinni á sínum tíma, og með samþykki David Lynch Family Trust. Endurgerðin var frumsýnd á Il Cinema Ritrovato-hátíðinni í Bologna í júní síðastliðnum og er nú sýnd á Piazza Grande við Locarno-kvikmyndahátíðina, þar sem ný kynslóð áhorfenda fær tækifæri til að upplifa eina áhrifamestu kvikmynd Lynchs í sínum bestu gæðum frá upphafi. Gestir RIFF fá hér einstakt tækifæri til að upplifa þessa áhrifamiklu verðlaunakvikmynd að viðstöddum framleiðandanum, Sigurjóni Sighvatssyni.

Varanleg áhrif Lynch – og Propaganda Það er óhætt að segja að bæði David Lynch og Propaganda Films hafi farið með himinskautum árið 1990. Þegar áðurnefndu verkin tvö eru skoðuð saman birtist ekki aðeins kvikmyndagerðarmaður sem náð hefur hátindi sköpunarkrafts síns — heldur líka framleiðslufyrirtæki sem þorði að taka áhættu með verulega framsækinni frásagnarlist á tíma þegar fáir aðrir voru til í það. Meira en 35 árum síðar óma áhrif þeirra enn, bæði í kvikmyndum og sjónvarpi, og það gerir þessa tvöföldu sýningu ekki aðeins að hátíð til heiðurs Sigurjóni Sighvatssyni og David Lynch, heldur einnig til heiðurs einu áhrifamesta skapandi samstarfi í sögu nútíma skjámiðla.Við hlökkum til að sjá ykkur í Háskólabíói á þessum einstæða viðburði. Aðeins verður um þennan eina viðburð að ræða og er því takmarkað magn miða í boði.

TÍMARIT RIFF | 15


BRANSADAGAR RIFF – ÞAR SEM HJÓLIN SNÚAST OG HLUTIR GERAST Bransadagar RIFF fara að þessu sinni fram dagana 29. september til 3. október. Á Bransadögum verður til umhverfi sem er fagmannlegt og persónulegt í senn, þar sem koma saman kvikmyndagerðarfólk, framleiðendur, handritshöfundar og alþjóðlegir fagaðilar úr kvikmyndabransanum. Dagskráin í ár samanstendur af meistaraspjöllum, pallborðum, kynningum á verkum í vinnslu og fleiri viðburðum sem skapa nýjan vettvang fyrir upprennandi hæfileikafólk og hafa mótandi áhrif á kvikmyndagerð samtímans. Tímarit RIFF heyrði í verkefnastjóra Bransadaga til að fá frekari upplýsingar um dagskrána í ár.

Reynslusögur frá reynsluboltum „Gestir Bransadaga eru ekki af verri endanum frekar en fyrri ár og gríðarlegur fengur fyrir okkur að fá öll þessi stóru nöfn til að taka þátt með okkur,“ segir Salvör Bergmann, kvikmyndagerðarkona og verkefnastjóri Bransadaga RIFF 2026. „Framleiðandinn, Erik Hemmendorff, mun leiða meistaraspjall, þar sem hann ræðir langtímasamstarf sitt við leikstjórann Ruben Östlund, og kvikmyndagerðarkonan Amanda Kernell, sem er þekkt fyrir að gera myndir sem gerast í samfélagi frumbyggja Sama í norðurhluta Evrópu, mun einnig leiða spjall um hvernig upplifuð reynsla getur verið kvikmynduð án þess að vera smækkuð niður í sjálfsævisögu. Þá mun David Leitch, leikstjóri Atomic Blonde, Deadpool 2, Bullet train og The Fall Guy, mæta ásamt eiginkonu sinni, framleiðandanum Kelly McCormick og íslenska klipparanum Elísabetu Rónaldsdóttur til þess að rýna í hvernig skuli

nálgast það að byggja upp hasarmynd frá grunni. Loks langar mig að nefna João Pedro Rodrigues, brautryðjanda og áhrifamikla rödd í hinsegin kvikmyndagerð, sem mætir sem heiðursgestur RIFF og leiðir spjall um blygðunarlausa þrá, líkama, tabú, umbreytingar, ögrun og frelsið til þess að stunda kvikmyndagerð alfarið á eigin forsendum,“ segir Salvör.

Pallborð með alvöru umræðum! Pallborð ársins beina sjónum að þeim öflum sem ákvarða hvernig kvikmyndir eru gerðar og hvernig þeim er dreift, meðal annars með því að rýna í fjölmiðlalandslag dagsins í dag og hvernig það mótast af rangfærslum, áróðri og hagræðingu á skynjun almennings. Aðrar málstofur kanna ferðalagið frá kvikmyndahátíðum til sölu, þar sem fagfólk sviptir hulunni af raunverulegum ákvörðunum og því ferli sem dreifingaraðilar ganga í gegnum löngu eftir að kvikmynd eða stuttmynd er fullgerð. Önnur umræða mun snúa að raunveruleika meðframleiðslu hjá Íslandi, Portúgal, Norðurlöndunum og á smærri mörkuðum Evrópu. „Meðal gesta pallborðanna verða Susan Wendt frá TrustNordisk og Rémi Burah frá ARTE í Frakklandi. Portúgal, sem er land í Fókus á RIFF í ár, verður sérstaklega fagnað í gegnum dagsrkána í heild sinni með sérstökum viðburðum og verkefnum til samstarfs,“ bendir Salvör einnig á.

Ný og spennandi handritasmiðja Árið 2026 markar einnig upphaf tilraunaútgáfu Norðurslóða handritasmiðjunnar, þar sem tíu upprennandii handritshöfundar og leikstjórar þróa saman verkefni sín undir leiðsögn Dags Kára, og tengjast beint við þann alþjóðlega kvikmyndaiðnað sem sækir RIFF heim. Smiðjan er skipulögð í samstarfi við Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Nuuk og er styrkt af Norræna menningarsjóðnum. Samhliða opinberu dagskránni mun hugveitan Nordic Voices Think Tank: Staða handritagerðar leiða handritshöfunda saman til opinnar og hreinskilinnar umræðu um raunveruleika og áskoranir stéttarinnar í dag. Umræðan mun nýtast í skýrslu sem verður deilt með sjóðum og ákvörðunaraðilum í bransanum, sem hjálpar til við að koma umræðunni út fyrir herbergið og stuðla að raunverulegum breytingum. Framleiðendahófið (The Producers’ Gathering), í boði sænska sendiráðsins, mun bjóða upp á annað rými fyrir tengslamyndun, skoðanaskipti og nýtt samstarf.

16 | TÍMARIT RIFF

Árlegir og áhugaverðir viðburðir Verk í vinnslu snýr aftur með tíu verkefni hvaðanæva að frá Norðurlöndunum og víðar, á meðan Samtöl til áhrifa nota kvikmyndir sem útgangspunkt fyrir brýnar umræður um loftslagsbreytingar, ofsaferðamennsku og æsku í skugga stríðsátaka. Eins og ávallt er RIFF spjallið fastur liður á Bransadögum — tækifæri til að komast nær íslenska kvikmyndasamfélaginu og heyra beint í fólkinu sem lætur hjól þess snúast. „Umræður ársins í ár leiða saman tónskáldið Gabríel Ólafsson, framleiðandann Önnu Björk Valsdóttur, gagnrýnandann Tómas Valgeirsson, leikaravalstjórann Söru Rut og kvikmyndagerðarkonuna Grímu Irmudóttur,“ bætir Salvör við. „Bransadagar RIFF eru staðurinn þar sem verkefni finna meðbyr, kvikmyndagerðarfólk hittir samstarfsaðila framtíðarinnar, og þar sem þátttaka getur fært þig nær fólkinu sem mótar kvikmyndagerð dagsins í dag. Að sækja Bransadaga er ótrúlega sterkur leikur fyrir bæði fagfólk og upprennandi kvikmyndagerðarfólk. Þar gefast frábær tækifæri til að mynda tengsl, læra um stöðu bransans og styrkja sína persónulegu vegferð,” segir Salvör Bergmann verkefnastjóri að endingu.

KAUPTU MIÐA HÉR!


SJÖ SNIÐUGAR – SAMSTARFSNET UM NÝSKÖPUN Í KVIKMYNDAGEIRANUM OG HÁTÍÐAMENNINGU Fyrir fjórum árum tóku kvikmyndahátíðir í Póllandi, Litháen, Portúgal, Spáni, Grikklandi, Rúmeníu og á Íslandi höndum saman og stofnuðu samstarfsnet sem tengir sameiginleg markmið og framtíðarsýn ólíkra menningarog landfræðilegra svæða í Evrópu. Þannig varð til Smart7 – Sjö sniðugar.

Myndirnar sem sýndar verða sem Sjö sniðugar á RIFF 2026 eru eftirfarandi:

Meginmarkmið þessa samstarfs er ekki aðeins að bregðast við þörfum samtímans, heldur einnig að marka sameiginlega stefnu um framtíðarvöxt og þróun kvikmyndageirans og hátíðamenningar í Evrópu. Eftirtaldar kvikmyndahátíðir mynda Smart7-netið: New Horizons International Film Festival í Póllandi, IndieLisboa International Film Festival í Portúgal, Thessaloniki International Film Festival í Grikklandi, Transilvania International Film Festival í Rúmeníu, FILMADRID International Film Festival á Spáni, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík á Íslandi og Vilnius International Film Festival Kino Pavasaris í Litháen.

A River’s Gaze (Malul Vânăt) Leikstjóri: Andreea Cristina Borțun Lavinia er einstæð móðir sem reynir að skapa sér og þrettán ára syni sínum betra líf í fátæku þorpi í Rúmeníu. Hún er hvatvís, hættir til að mistúlka aðstæður og á erfitt með að tjá ást sína og veita syni sínum það sem hann þarfnast. Þegar hann stendur á þröskuldi unglingsáranna reynir á samband þeirra á ólíkum árstíðum heils árs.

Hátíðirnar flétta dagskrá sem þróuð er innan samstarfsnetsins inn í árlega dagskrá sína og vinna náið saman, um leið og hver þeirra heldur í sérkenni sín og sjálfstæðar áherslur við dagskrárgerð. Smart7 nýtur stuðnings Creative Europe MEDIA og European Festival Networks. Samstarfið er eðlilegt framhald af fyrri samvinnu hátíðanna sjö, sem deila jafnframt áþekkri sýn á framtíð kvikmyndageirans. Langflestar myndanna í úrvalinu, eða sex af sjö, koma frá löndum þar sem framleiðslugeta í kvikmyndaog sjónvarpsgeiranum er takmörkuð – Póllandi, Litháen, Grikklandi, Rúmeníu, Portúgal og Íslandi – en alþjóðlegir möguleikar eru engu að síður miklir. Smart7 skapar vettvang til að kynna kvikmyndir fyrir breiðari hópi áhorfenda og koma þeim á framfæri utan eigin landsteina. Jafnframt verður til nýr samkomustaður upprennandi kvikmyndagerðarfólks og áhorfenda. Samstarfið býður gestum hátíðanna fjölbreytta og auðgandi upplifun víðs vegar um Evrópu, í vestri jafnt sem austri – frá Reykjavík til Vilníus.

Patty Is Such a Girly Name (Πολύ κοριτσίστικο όνομα το Πάττυ) Leikstjóri: Giorgos Georgopoulos Daphne, unglingsstúlka og efnilegur júdókeppandi frá afskekktri grískri eyju, er tilbúin að yfirgefa heimahagana og fylgja þjálfara sínum, Yuri, til stórborgarinnar – og ef til vill alla leið á Ólympíuleikana. Yuri hefur haldið sig fjarri júdóinu árum saman af ástæðum sem hann leynir og leitar nú að nýju upphafi. Daphne þarf á sama tíma að kveðja frelsi unglingsáranna og takast á við miskunnarlausan veruleika fullorðinsáranna.

Eldarnir Leikstjóri: Ugla Hauksdóttir Anna Arnardóttir, fremsti eldfjallafræðingur Íslands, stendur frammi fyrir tvenns konar hamförum í senn: eldgosi sem ógnar öryggi höfuðborgarinnar og ástarsambandi sem gæti lagt hjónaband hennar í rúst.

The Visitor Leikstjóri: Vytautas Katkus Sumarið er á enda. Danielius, maður á fertugsaldri, snýr aftur í heimabæ sinn til að selja íbúð foreldra sinna. Þar sem ekkert rekur á eftir honum endurnýjar hann kynni sín af fólkinu og bænum sem hann tilheyrir ekki lengur. Um leið þarf hann að horfast í augu við kyrrláta en áleitna einsemd.

Eternal Flame (Óculos de Sol Pretos) Leikstjóri: Pedro Ramalhete Fyrir tilviljun hittast fyrrverandi skólafélagarnir João, sem er atvinnulaus, og Clara, sem starfar sem aðstoðarmaður við kvikmyndaframleiðslu. Þegar hún býður honum að taka þátt í nýjasta verkefni sínu sogast hann inn í sérkennilegan takt tökustaðarins. Eternal Flame er tregablandin gamanmynd um meðal kvikmyndatökuliðsins og þroskaskeið ungs iðjuleysingja – óður til hins nána samfélags portúgalskrar kvikmyndagerðar og kviklistarinnar sjálfrar.

No Ghosts on Good Street (Nie ma duchów w mieszkaniu na Dobrej) Leikstjóri: Emi Buchwald Fjögur systkini á þröskuldi fullorðinsáranna reyna að fóta sig sjálf í lífinu án þess að glata tengslunum sem halda þeim saman. Benek, yngstur systkinanna, glímir við höfnun Franeks, eldri bróður síns og fyrrverandi besta vinar, sem á nú í eigin erfiðleikum. Nastka leitar að ástinni en Jana, elst systkinanna, vonast til þess að listaverkefni hennar færi bæði henni og systkinum hennar nokkra lausn.

The Dashed Lines (As Liñas Descontinuas) Leikstjóri: Anxos Fazáns Leiðir Beu, fimmtugrar konu sem stendur í skilnaði, og Denís, 28 ára jaðarsetts transmanns, liggja saman í kjölfar óvænts atviks. Tilviljunarkenndur fundur þeirra á eftir að breyta lífi beggja til frambúðar.

TÍMARIT RIFF | 17


Í STÖÐUGU SAMTALI VIÐ RAUNVERULEIKANN Kvikmyndagerðarkonan Gríma Irmudóttir hlaut verðlaunin fyrir bestu stuttmyndina á RIFF 2025 fyrir mynd sína Minningaspor og í ár hlýtur hún Sólveigar Anspach-verðlaunin fyrir sömu mynd. Gríma er um þessar mundir búsett í Chicago og í samtali við Tímarit RIFF rifjar hún upp góðar stundir með föður sínum á RIFF, veltir fyrir sér fjarlægðinni við Ísland og hugsar um ábyrgðina sem fylgir því að segja sögur annarra. „Síðan ég man eftir mér hafa kvikmyndir verið stór hluti af lífi mínu. Ég horfði mikið á myndir með ömmu og afa þegar ég var lítil og svo sérstaklega með pabba mínum, sem var mikill kvikmyndaáhugamaður,“ segir Gríma aðspurð um uppruna bíóáhugans og ákvörðunina að helga sig kvikmyndagerð. „Hann var til dæmis mikið fyrir Coen-bræðurna og David Lynch og við horfðum saman á alls konar myndir, mikið af mysteríum og spennumyndum en líka gamanmyndum og ýmsu skrýtnara. Ég man að mér fannst alveg magnað að hugsa til þess að einhver hefði búið þessa heima til og að það væri í raun hægt að hafa það að vinnu að segja sögur á þennan hátt.“ Gríma nefnir í framhaldinu að hún tengi minningarnar um bíóferðir með föður sínum að sama skapi við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík. „Ég á mjög margar góðar minningar af RIFF og fór oft á hátíðina með pabba mínum þegar ég var yngri. Hann átti stóran þátt í að vekja með mér kvikmyndaáhugann og við horfðum mikið saman á myndir, bæði heima og í bíó. Hann kenndi mér líka að horfa aftur og aftur, spyrja spurninga og kafa aðeins dýpra ofan í sögurnar. RIFF var stór hluti af þessu fyrir okkur. Þar kynntist ég alls konar alþjóðlegum kvikmyndum sem ég hefði líklega ekki komist í kynni við annars. Ég man líka að ég uppgötvaði á RIFF hvað mér fannst hugmyndin um kvikmyndahátíð frábær – að maður gæti einfaldlega eytt heilum degi í bíó og farið úr einni mynd beint yfir á þá næstu.“

myndunum mínum, heldur í því hvernig ég hugsa um sjálft ferlið við heimildarmyndagerð. Ég sæki mikið til kvikmyndagerðarfólks sem hefur unnið markvisst með siðferðilegar spurningar sem fylgja miðlinum og velt fyrir sér hvernig hægt sé að vinna náið með fólki og samfélögum af virðingu og umhyggju, sérstaklega þegar maður er að segja sögu úr reynsluheimi sem er ekki manns eigin.“ Í framhaldinu ræðum við myndirnar sem hún getur horft á aftur og aftur. Auðheyrt er að Gríma hefur dálæti á leikstjórum sem hafa í sér tilraunakennda taug og leika sér með formið.

Hin breiða skírskotun Minningaspora

„Ein af mínum uppáhaldsheimildarmyndum síðustu ára er Geographies of Solitude eftir Jacquelyn Mills. Í meistaranáminu mínu í heimildarmyndagerð fékk ég að læra að taka upp á filmu og prófa alls konar tilraunakenndar aðferðir við kvikmyndagerð, sem opnaði fyrir mér alveg nýjan heim. Það sem mér finnst Geographies of Solitude gera svo vel er hvernig hún blandar þessari tilraunakenndu nálgun saman við mikilvæga sögu um náttúruna og loftslagsbreytingar. Formið verður aldrei bara tilraun formsins vegna, heldur hjálpar manni að upplifa og skynja viðfangsefnið á annan hátt. Mér finnst jafnvægið þar á milli ótrúlega vel heppnað og það er eitthvað sem mig langar sjálfa að kanna meira í minni kvikmyndagerð.

Allir sem séð hafa verðlaunamynd Grímu, Minningaspor, sjá að myndin er sprottin af mjög persónulegri reynslu. Myndin fylgir henni sjálfri, systur Grímu og mömmu þeirra þar sem mæðgurnar fara um landið til að finna stein til að merkja gröf pabba Grímu, en hann lést eftir að hafa lifað um langt árabil með Lewy-heilabilun. Hún trúði því þó alltaf að umfjöllunarefnið ætti erindi við áhorfendur.

„Minningaspor eru mjög persónuleg saga um mína eigin fjölskyldu og missi okkar. Það var ekki auðvelt að segja þá sögu, en missir er um leið eitthvað sem nánast allir upplifa einhvern tímann. Margir þekkja líka reynsluna af því að vera aðstandandi einhvers sem er veikur í langan tíma og hvernig sorgin getur byrjað löngu áður en manneskjan deyr.“

18 | TÍMARIT RIFF

Engu að síður komu tímar þar sem Gríma velti því fyrir sér hvort umfjöllunarefnið væri kannski of persónulegt og fjölskyldan fyrir bragðið of berskjölduð.

dóttir eða systir frekar en kvikmyndagerðarmaður. Svo þurfti ég að taka þessar ákvarðanir aftur í klippingunni. Bara vegna þess að eitthvað hafði verið tekið upp þýddi ekki að það ætti endilega heima í myndinni.“

„Já, algjörlega. Það var eitthvað sem ég hugsaði stöðugt um. Ferlið sem við vorum að ganga í gegnum var raunverulegt fjölskylduferli sem hefði átt sér stað hvort sem ég væri að gera kvikmynd eða ekki. Mér fannst því mjög mikilvægt að myndavélin fengi ekki sjálfkrafa aðgang að öllu bara vegna þess að ég hafði ákveðið að gera mynd. Stundum tók ég myndavélina með og fann að það var rétt að mynda, en á öðrum augnablikum ákvað ég einfaldlega að leggja hana frá mér og vera bara

Áhrifavaldar og uppáhaldsmyndir Talið berst næst að kvikmyndagerðarfólki sem Gríma hefur mætur á, þó sjáist kannski ekki bein merki þess í myndum hennar. „Elle-Máijá Tailfeathers og Verena Paravel eru góð dæmi um leikstjóra sem hafa haft mikil áhrif á mig, ekki endilega þannig að þess sjáist bein merki í

Það eru annars margar myndir sem ég get horft á oft, ekki síst vegna myndatökunnar og þess hvernig þær nálgast viðfangsefnið. The Tree of Life eftir Terrence Malick, Uncle Boonmee Who Can Recall His Past Lives eftir Apichatpong Weerasethakul, El Mar La Mar eftir J.P. Sniadecki og Joshua Bonnetta, Leviathan eftir Lucien Castaing-Taylor og Verena Paravel og Beau Travail eftir Claire Denis eru nokkur dæmi.“

Ýmislegt á prjónunum – RIFF þar á meðal „Ég hlakka mikið til að koma heim á RIFF í haust, sjá myndirnar á hátíðinni og taka þátt í RIFF Talks. Svo er ég með nokkur ólík heimildarmyndaverkefni í vinnslu sem ég er mjög spennt fyrir og hlakka til að sjá hvernig þau þróast. Ég er líka farin að hugsa um næstu verkefni og vona bara að ég fái áfram tækifæri til að gera myndir, prófa nýja hluti og halda áfram að læra,“ segir Gríma Irmudóttir að lokum.


UPPÁHALDSBÍÓMYND ALLRA TÍMA? FULLTRÚAR MENNTASKÓLANNA SVARA

Unga fólkið hefur frá upphafi fjölmennt á Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík. Tímarit RIFF heyrði í nokkrum fulltrúum framhaldsskólanna á höfuðborgarsvæðinu og forvitnaðist um mál málanna: hver er þín uppáhaldsmynd allra tíma?

Katrín Hákonardóttir Auglýsingagangster, Meðlimur skemmtó og í skólablað inu Beneventum (MH) KILL BILL MYNDIRNAR

Jakob Beck Forseti Framtíðarinnar (MR) KILL BILL VOLUME: 1

Embla María Ævarsdóttir Amtmaður Framtíðarinnar (MR) FIGHT CLUB

Matthías Frímannsson Gjaldkeri Framtíðarinnar (MR) BATMAN: THE DARK KNIGHT

Aron Fannar Gunnarsson Varaforseti Stjórnar NMK FIGHT CLUB

Kristín Vala Björ gvinsdóttir Listafélag Verzló STAND BY ME FR Á 1986

örnsdóttir Lena Charlotta Bj um (MH) nt ve ne Oddviti Be AMELIE

Ísak Óli Sigurðsson Forseti NFB (Nemendafélag Fjölbrautaskólans í Breiðholti) MURDER MYSTERY 1 OG 2

Stefán Garðar Stígsson Amtmaður Framtíðarinnar (MR) HOT FUZZ

Gunnar Ingi Jónasson Oddviti nemendafélags Flensbo rgar WHIPLASH

Hrafnkell Tími Thoroddsen Ritstjóri Viljans (Verzló) GOOD TIME EFTIR SAFDIE-BRÆÐUR

Rakel Eva Kristmannsdóttir, forseti Nemendafélags Fjölbrautaskólans í Garðabæ THE ODYSSEY EFTIR CHRISTOPHER NOLAN

Eva Viktoría Vopnadóttir Formaður skemmtinefndar MK

FYRSTA MAZE RUNNER MYNDIN

Margrét Gísladóttir ennó) Forseti Keðjunnar (Kv

MAMMA MIA

TÍMARIT RIFF | 19


ÆGIR 101 X RIFF 2026: FESTIVALBAR – OG FESTIVALBJÓR! Öndvegis árgangur 2026 „RIFF-bjórinn í ár er klassískur evrópskur pilsner, humlaður með amerískum humlum,“ segir Ólafur um 2026 árganginn. „Létt kornsæta með ríkum sítrus-undirtónum, fengnum úr amerískum humlum sem sker hann úr frá hefðbundnari bræðrum hans frá meginlandinu. Kolsýrunni stilltum við í hóf og íslenska vatninu leyft að njóta sín.“

Notalegur bjórbar á besta stað Ægir 101 er til húsa á besta stað í borginni að Laugavegi 2 og opnaði hann í október 2022. Frá upphafi hefir þar verið á boðstólum úrval af gæðabjór – meðal annars 10 úrvalsbjórar á krana – sem allur er framleiddur í verksmiðju Ægis úti á Granda.

Ægir 101 er opinn alla daga vikunnar og hægt er að kíkja í bjór eða mat, sem framreiddur er á staðnum.

Í ár bæta Ólafur og félaga hjá Ægi brugghúsi um betur og RIFF-bjórinn kemur líka í Lite-útgáfu. „Lite-bjórinn er evrópskur pilsner bruggaður að amerískum stíl. Hann er lægri í áfengisprósentu og léttari í maga,“ útskýrir hann ennfremur. „Eins og stærri bróðir hans þá er hann líka humlaður með amerískum humlum. Kornsætan víkur fyrir ferskari tón og frískara bragði. Humlarnir eru hér meira í bakgrunni og bragðprófíllinn því einfaldari og bjórinn auðdrekkanlegri. Við notum líka náttúrulegt felliefni sem gerir bjórinn tærari og glútenskertan.“

Festival barinn 2026

A

ð vanda sjá vinir okkar snillingarnir hjá Ægi brugghúsi um að brugga festivalbjórinn fyrir RIFF 2026. RIFFbjórinn verður í boði í Háskólabíó og á hinum ýmsu sérviðburðum meðan á hátíðinni stendur og er í meira ljúffengur sem ávallt. Ólafur S.K. Þorvaldz er bruggmeistari hjá Ægi brugghúsi og þar af leiðandi höfundur RIFFbjórsins 2026.

Bjórbarinn Ægir 101 við Laugaveg 2 opinber Hátíðarbar RIFF og þar njóta handhafar hátíðarpassa sérkjara meðan á hátíð stendur; fyrir þá verður viðvarandi hamingjustund fyrir alla með hátíðarpassa á bjór alla hátíðardaga RIFF, sem þýðir 1200 kr. glasið. Skál í boðinu! Það er því gráupplagt að bregða sér á Ægi 101 til að hitta annað kvikmyndaáhugafólk, ræða myndirnar á hátíðinni og bera saman bækurnar, og fá sér um leið hressingu á milli sýninga.

HÁSKÓLABÍÓ – HJARTA RIFF Það er Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík einskær ánægja að bera bíóveislu ársins á borð í Háskólabíói, bæði vegna þess að þar er aðstaðan eins og best verður á kosið með fjölda sala og frábærri aðstöðu til sýninga, og svo líka vegna þess að það er einfaldlega ómissandi að mati RIFF að bíósýningar fari á annað borð fram í kvikmyndahúsinu við Hagatorg en eins og alkunna er hættu almennar sýningar í sölum hússins snemma sumars árið 2023. Óhætt er að segja að bygging hússins hafi vakið þjóðarathygli á sínum tíma. Bæði þótti stærðin talsvert nýmæli – að kvikmyndahús á litla Íslandi tók rétt tæplega 1000 manns í sæti, en lögun hússins þótti líka sérstök og þykir enn; Háskólabíó er jú í laginu eins og gamaldags kvikmyndatökuvél með harmonikkuhálsi. Árið 1991 var svo reist viðbygging við aðalbyggingu Háskólabíós með fjórum minni sölum sem hver er eins og sexstrendur stuðlabergsstöpull. Samtals rúma þessir fjórir salir 840 manns í sæti og það er í þessum sölum sem RIFF fer fram, í ár og vonandi um langa framtíð.

Verið öll velkomin í Háskólabíó, heimili RIFF! 20 | TÍMARIT RIFF

E

ins og undanfarin ár er Háskólabíó – þetta einstaka og ástsæla kvikmyndahús – aðaheimili RIFF og þar fer mestur hluti sýninga á RIFF 2026 fram.


VERÐLAUNAKROSSGÁTA RIFF 2026 1

2

5

3

LEIÐBEININGAR

4

Öll svör eru rituð án bila og broddstafa. Erlend sérnöfn halda hefðbundinni stafsetningu að öðru leyti.

6

7

8

LÁRÉTT 9

10

11

12

13

3. Austurrískur leikstjóri Caché og The White Ribbon. (6) 5. David ___, höfundur Wild at Heart og Twin Peaks. (5)

15

14

7. Liv ______, ein helsta leikkona Ingmars Bergman. (7)

16

17

9. Samsetning myndefnis í heildstæða frásögn við gerð kvikmyndar. (8)

18

19

20

21

22

23

11. Land í fókus á RIFF 2026. (8) 15. Montmartre-ævintýri Jean-Pierre Jeunet með Audrey Tautou. (6) 19. Draumkennd mynd frá 2001, víða valin sú besta á 21.öldinni. (15)

24

25

23. Ein kyrr mynd í kvikmynd eða jaðar myndflatarins. (5) 26. Óskarsverðlaunamynd Bong Joon-ho um stéttaskiptingu. (8)

26

27. Ógleymanleg kvikmynd eftir Clint Eastwood um saxófónleikara. (4) 27

28. Árlegur sérviðburður RIFF þar sem áhorfendur horfa á bíómynd úr sundlaug. (7)

28

29

30

29. Robert ______, leikstjóri meistaraverksins Au hazard Balthazar frá 1966. (7) 30. Skammstöfun Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. (4)

Taktu þátt og þú gætir verið á leiðinni á RIFF sem fer fram 24. september til 4. október næstkomandi. Leystu krossgátuna, taktu mynd, settu í story á Instagram og mundu að tagga okkur @reykjavikfilmfestival og mundu að fylgja okkur. Við drögum úr réttum lausnum og 3 heppin fá Súper 8 Klippikort á RIFF 2026. LÓÐRÉTT 1. Kvikmyndahreyfing í Frakklandi sem braut upp gamlar frásagnarreglur í kvikmyndum. (8)

14. _____ Runner, sígild vísindaskáldsaga Ridley Scott frá 1982.

2. Pólsk Óskarsverðlaunamynd Pawels Pawlikowski. (3)

16. Finnskur leikstjóri með þurran húmor og hlýtt hjarta. (10)

4. Franskt hugtak um leikstjóra sem meginhöfund kvikmyndar. (6)

17. Vegamynd Wim Wenders með Harry Dean Stanton. (10)

6. Isabelle ______, frönsk leikkona í The Piano Teacher og heiðursgestur RIFF 2023. (7)

18. Sjálfsævisögulegt verk Alfonso Cuarón frá 2018. (4)

8. Enskt heiti fuglsins sem er einkenni RIFF. (6)

20. Sögulegt kvikmyndahús og heimili RIFF. (10)

10. Aðalverðlaun RIFF, án bils. (13)

21. Juliette ___, frönsk leikkona í Three Colours: Blue. (7)

12. Spænskur leikstjóri myndanna All About My Mother og Talk to Her. (9)

22. Textinn sem kvikmynd er byggð á. (7)

13. Portúgölsk leikkona og leikstjóri sem er heiðursgestur RIFF 2026. (15)

24. Írönsk kvikmynd Abbas Kiarostami á mörkum skáldskapar og veruleika. (7) 25. Ferðalag Tarkovskí inn á Bannsvæðið. (7)

TÍMARIT RIFF | 21


BÚÐU TIL MINNINGAR Á UNGRIFF UNGRIFF SNÝR AFTUR Í FJÓRÐA SINN MEÐ SPENNANDI DAGSKRÁ FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA OG ÓMISSANDI SÉRVIÐBURÐI UngRIFF, barnakvikmyndahátíð RIFF, verður haldin með pompi og prakt fjórða árið í röð með lifandi dagskrá fyrir börn og ungmenni. Fjölbreytt dagskráin bæði fræðir og skemmtir – allt frá huggulegri fjölskyldustund og sýningum á skólatíma fyrir grunn- og leikskólabörn, til skapandi ritsmiðju, frumsýninga á alþjóðlegum barnamyndum og sérstökum tvöföldum viðburði eingöngu fyrir unglinga, og eins og áður er öflugt Ungmennaráð á bak við tjöldin sem tekur þátt í að skipuleggja hátíðina með verkefnastjóra.

Náttfatapartý í Háskólabíó Fjölskyldur eiga von á eftirminnilegri upplifun þar sem Háskólabíó breytist í risastórt teppavirki á sérstakri náttfatapartýsýningu á hinni stórkostlegu kvikmynd Paddington, þar sem Sigurður Þór, raddleikari bangsans góða, leiðir kvöldið og boðið verður upp á ristað brauð með marmelaði í anda myndarinnar. UngRIFF mun sýna hjartnæmar og vandaðar alþjóðlegar kvikmyndir, úrval af grípandi stuttmyndum fyrir alla aldurshópa, sérstaka norræna dagskrá og nýja íslenska heimildarmynd sem sögð er frá sjónarhorni fimm ára barns. Fyrir krakka á aldrinum 8-12 ára verður svo haldin skapandi hugmyndasmiðja með handritshöfundi í Norræna húsinu, þar sem þátttakendur læra að setja saman hugmynd að söguþræði fyrir bíómynd.

KAUPTU MIÐA HÉR!

Skyggnst á bakvið tjöldin í kvikmyndagerð

Fyrir þau sem eru aðeins eldri býður UngRIFF upp á sérstakan tvöfaldan viðburð, þar sem sýndar verða sérvaldar stuttmyndir eftir unglinga í grunnskóla og menntaskóla, sem í kjölfarið verða hluti af reynsluhópi ungra áhorfenda sem fá að skyggnast á bakvið tjöldin í íslenskri kvikmyndagerð þegar fagfólk úr bransanum mætir og sýnir brot úr íslenskri unglingamynd sem frumsýnd verður á næsta ári. Eins og áður heldur UngRIFF heljarinnar opnunarhátíð í stærsta bíói höfuðborgarsvæðisins, Smàrabíói, á skólatíma þar sem hundruðir barna koma saman til þess að horfa á opnunarmyndir hátíðarinnar og vera viðstödd þegar Ungmennaráð RIFF veitir heiðursverðlaun ársins.

Allar nánari upplýsingar um UngRIFF eru væntanlegar í sérstöku dagskrárblaði UngRIFF.

Ungmennaráð UngRIFF 2026, f.v Anna Signý, Róbert Kári, Áshildur, Sverrir Þór og Rúnar Már. Á myndina vantar Baldur Tuma.

22 | TÍMARIT RIFF


ÍSLAND Í SJÓNARRÖND Á RIFF 2026 Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík gerir Íslandi ávallt hátt undir höfði með sérstökum flokki og árlega má þar finna leiknar myndir jafnt sem heimildamyndir, stuttmyndir í bland við kvikmyndir í fullri lengd. 2 Í flokknum Ísland í sjónarrönd má segja að áhorfendur finni vegamótin þar sem íslensk og alþjóðleg kvikmyndalist mætast því þar er að finna myndir sem hafa með einhverjum hætti ramma taug í þjóðarsálinni. Oftast er um að ræða íslenskar myndir, stundum erlendar, en allar eiga þær það sammerkt að hafa til að bera eitthvað séríslenskt og áhugavert.

Gamlar glæður (La belle anneé) Leikstjóri: Angelica Ruffier Þegar Angelica tæmir æskuheimili sitt eftir andlát föður síns rifjast upp fyrir henni sú heita og einmanalega ást sem hún bar forðum til sögukennarans síns, ungfrú B., á unglingsárunum. Á meðan frágangur dánarbúsins virðist engan enda ætla að taka magnast með henni sterk þrá: að hitta kennarann á ný.

Hér gefur að líta þær kvikmyndir í fullri lengd sem sýndar verða í flokknum Ísland í sjónarrönd á RIFF 2026. Eins og glöggt má sjá er úrvalið með besta móti og eitthvað áhugavert fyrir alla. Sjáumst í íslenskri stemningu á RIFF!

Tíminn sem hverfur (La Pietà) Leikstjórar: Pepe Andreu, Rafa Molés. Fyrir rúmri öld settust Flosi Björnsson og átta systkini hans að undir Vatnajökli og helguðu jörðinni og jöklinum líf sitt. Þegar ljósmyndarinn Ragnar Axelsson snýr aftur á bæjarstæðið þar sem hann dvaldi á sumrin í æsku vekur hann rödd Flosa á ný til lífs, á meðan brestandi ísinn yrkir sorgarsöng um heim sem er að hverfa.

Sundrað sjálf (Dissociated Me) Leikstjóri: Janaé Rachel Ballot Heimsfrumsýning á RIFF! Hvött áfram af klipparanum Elísabetu Ronaldsdóttur ákveður kona ein að gera kvikmynd um óreiðukennda fortíð sína. Án handrits ræður hún leikara, leitar að tökustöðum og endurupplifir áföll úr æsku, þar til ekið er á hana í miðri kvikmyndagerðarferlinu. Þegar verkefnið leysist upp í kjölfarið sleppir hún takinu á sögunni sem hún taldi sig þurfa að segja – og endurheimtir loks eigið líf.

Hinsta ferðin á K2 (The Last First: Winter K2) Leikstjóri: Amir Bar-Lev Í The Last First: Winter K2 segir Amir Bar-Lev flókna, átakanlega og áhrifamikla sögu sem varpar ljósi á fjallamennsku við erfiðustu aðsæður og þær menningarbreytingar sem þar hafa orðið. Myndin segir frá leiðangri árið 2021, þegar íslenski fjallamaðurinn John Snorri Sigurjónsson og pakistanska feðgateymið Ali og Sajid Sadpara freistuðu þess að verða fyrstir til að ná tindi K2 að vetrarlagi. Háhitasvæði (Full Steam Ahead) Leikstjórar: Susan Muska, Gréta Ólafsdóttir Konur af ólíkum kynslóðum veita sjaldgæfa innsýn í heim jarðvarmageirans og hvað þurfi til að fóta sig í þessari karllægu atvinnugrein. Þær segja frá baráttu sinni og sigrum, ásamt þeim breytingum sem orðið hafa á vinnustaðnum í gegnum árin.

Ef gæfan lofar (If Luck Will Come) Leikstjóri: Camille Bildsøe Bernsku afganskra barna lýkur við fjórtán ára aldur, eins og Talibanar stjórna landinu. Þegar Zahra og Zalgai nálgast þau tímamót, frá tólf og fjórtán ára aldri, halda þau dauðahaldi í leikinn og bernskuna, jafnvel þótt þögnin, skyldurnar og hömlur fullorðinsáranna þrengi sífellt meira að þeim.

TÍMARIT RIFF | 23


KAUPTU HÉR!

24 | TÍMARIT RIFF


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook