Skip to main content

Töðugjaldabæklingurinn 2026

Page 1

SJÁUMST Á HELLU 11.-16. ÁGÚST

ALLT UM TÖÐUGJÖLDIN! GEYMIÐ BÆKLINGINN


KÆRU ÍBÚAR OG GESTIR TÖÐUGJALDA Það er mér sönn ánægja að bjóða ykkur hjartanlega velkomin á Töðugjöld. Töðugjöld eru fastur punktur sumarsins hjá okkur í Rangárþingi ytra og frábært tækifæri til að koma saman, njóta samverunnar og skapa góðar minningar. Hvort sem þið njótið sem íbúar, komið til að hitta ættingja og vini, taka þátt í fjölbreyttri dagskrá eða einfaldlega njóta stemningarinnar vona ég að þið eigið eftir að eiga góða daga í Rangárþingi ytra. Mörg hafa komið að undirbúningi og framkvæmd Töðugjalda í gegnum tíðina og lagt sitt af mörkum til að móta þá hátíð sem við þekkjum í dag. Fyrir það eiga þau okkar bestu þakkir skildar. Töðugjöld hafa fyrir löngu fest sig í sessi sem einn af föstu viðburðum sumarsins og eru jafnframt meðal elstu bæjarhátíða landsins. Að venju er dagskráin fjölbreytt og nú orðið dreifast viðburðir um sveitarfélagið sem er virkilega skemmtilegt. Þetta eru mín fyrstu Töðugjöld sem sveitarstjóri Rangárþings ytra og ég hlakka mikið til að taka þátt í þeim með ykkur. Það hefur verið einstaklega ánægjulegt að stíga inn í þetta nýja hlutverk og finna þann kraft og þann metnað sem býr í samfélaginu. Ég er sannfærður um að framundan séu spennandi tímar fyrir Rangárþing ytra. Nú standa yfir einar umfangsmestu framkvæmdir sem sveitarfélagið hefur ráðist í og munu þær efla sveitarfélagið enn frekar. Um leið er mikilvægt að gleyma því aldrei að samfélagið byggist ekki eingöngu á framkvæmdum og innviðum, heldur einnig á samveru, menningu og þeim hefðum sem tengja okkur saman. Slíkar hefðir gefa okkur tækifæri til að bjóða nýja íbúa velkomna og endurnýja kynni við vini og ættingja sem flust hafa á brott. Töðugjöld eru ein af þeim hefðum. Verum saman og njótum alls þess sem Rangárþing ytra hefur upp á að bjóða. Fyrir hönd Rangárþings ytra óska ég ykkur öllum gleðilegra Töðugjalda. Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, sveitarstjóri Rangárþings ytra

TÖÐUGJÖLDIN 11.-16. ÁGÚST 2026


HEIMSÓKN Í RAUÐA HVERFIÐ 2025

RY.IS // FACEBOOK.COM/TODUGJOLD


FJÓLUBLEIKA HVERFIÐ BÝÐUR Í HEIMSÓKN Sú hefð hefur skapast að hverfin skiptast á að bjóða heim á föstudagskvöldi Töðugjalda. Í ár er það fjólubleika hverfið sem býður heim. Gula hverfið kemur að skipulagningu Töðu­gjalda 2026 ásamt markaðs- og kynningarfulltrúa sveitar­félagsins og meðlimum markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefndar. Allir íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að skreyta hús og garða í litum hverfanna. Íbúar í dreifbýli eru einnig hvattir til að vera með. Hefðin hefur verið að gulir séu austan Hellu, græn/appelsínugulir vestan Hellu og rauðir í Þykkbabæ, en við minnum á að litafrelsi ríkir svo hver má skreyta eftir eigin höfði.

Veglegt Landmann grill frá Húsasmiðjunni í verðlaun fyrir best skreytta húsið!

TÖÐUGJÖLDIN 11.-16. ÁGÚST 2026


LITASKIPTING HVERFANNA


HEIMSÓKN Á SKEIÐVELLI - 13. ÁGÚST KL. 18 Fjölskyldan á Skeiðvöllum býður gestum Töðugjalda að kíkja í heimsókn þann 13. ágúst á milli kl. 18 og 20. Heitt verður á könnunni og meðlæti með kaffinu. Þrautabraut / teymingar á hestum verða í boði fyrir yngstu gestina. Öll velkomin! Hlekkur á viðburðinn og nánari upplýsingar: https://fb.me/e/7AXcUAm5q

TÖÐUGJALDAHLAUPIÐ

14. ÁGÚST KL. 16

Þrjár vegalengdir verða í boði um Hellu og nærliggjandi náttúruperlur. Ræsing kl. 16:00 á árbakkanum við Þrúðvang. Hlekkur á viðburðinn og nánari upplýsingar: https://fb.me/e/7axjxyd49

TÖÐUGJÖLDIN 11.-16. ÁGÚST 2026


SUNDLAUGAR Í RANGÁRÞINGI YTRA SUNDLAUGIN HELLU Opnunartími: Mán. - fös. kl. 6:30-21 Lau. og sun. kl. 10-19

SUNDLAUGIN LAUGALANDI Opnunartími: Fös. kl. 14-21 Lau. kl. 10-19 Sun. kl. 10-15

RY.IS // FACEBOOK.COM/TODUGJOLD


DAGSKRÁ TÖÐUGJALDA ÞRIÐJUDAGUR - 11.08 18:00

Töðugjaldaganga Þingskálar - Bolholtsskógur með Ferðafélagi Rangæinga

ATH. BREYTING

Mæting verður nú á Þingskálum á Rangárvöllum kl. 18:00, en ekki í Bolholtsskógi eins og áður hafði verið auglýst. Á Þingskálum verður sagt frá sögu þessa fornfræga og merka staðar áður en lagt verður af stað í gönguna. Gengið verður frá Þingskálum að Aftökugili og þaðan áfram að hátíðarsvæðinu í Bolholti, þar sem Skógræktarfélag Rangæinga hefur komið sér upp aðstöðuhúsi. Að göngu lokinni verða veitingar í boði Rangárþings ytra og bílstjórar ferjaðir aftur að Þingskálum til að sækja bíla sína. Gangan er um 3–4 km og tekur á aðra klukkustund. Göngustjórar eru Sigríður og Viðar á Kaldbak. Umsjón með göngunni hefur Garðar Þorfinnsson.

FIMMTUDAGUR - 13.08 18:00

Heimsókn á Skeiðvelli Fjölskyldan á Skeiðvöllum býður gestum Töðugjalda í heimsókn 13. ágúst kl. 18:00–20:00. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti og teymt undir yngstu gestunum.

FÖSTUDAGUR - 14. 08 16:00

Töðugjaldahlaupið 20:00

Þorpararölt um fjólubleika hverfið

TÖÐUGJÖLDIN 11.-16. ÁGÚST 2026


LAUGARDAGUR - 15.08 10:00-12:00

Morgunmatur og viðburðir í íþróttahúsinu - Harmonikkufélag Suðurlands leikur undir - Umhverfisverðlaun Rangárþings ytra afhent - Lína Langsokkur verður á svæðinu frá kl. 11:00 og gefst þá börnum tækifæri á að hitta Línu áður en hún stígur á svið kl. 12:00. 10:00-14:00

Tækjasýning á árbakkanum 10:00-14:00

Listasmiðja - Hugverk í heimabyggð í íþróttahúsinu undir leiðsögn Guðfinnu Þorvaldsdóttur 10:00-16:00

Töðugjaldamarkaður í íþróttahúsinu 13:00-15:00

Knattspyrnuleikur KFR gegn Álafossi á gervigrasvelli

DAGSKRÁ Í OG VIÐ ÍÞRÓTTAHÚS 12:00-16:00

- Gunni og Felix - Lína Langsokkur - Hoppukastalar - Wipeout-þraut - Loftboltar - Matarvagnar - Hæfileikakeppni barna - Hæfileikakeppni gæludýra - Finnur Sólon - Ferski fjarkinn

RY.IS // FACEBOOK.COM/TODUGJOLD


KVÖLDVAKA Á RANGÁRBÖKKUM 20:00-23:00

- Gunni og Felix kynna, syngja og sprella - Ávarp sveitarstjóra - Sigurvegari í hæfileikakeppni barna - Herra Hnetusmjör - Bjartmar Guðlaugsson - KK - Guðrún Árný stýrir brekkusöng - Flugeldasýning Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu STRAX AÐ LOKINNI KVÖLDVÖKU

Stórdansleikur með Sunnan 6 ásamt Jónsa í Svörtum fötum Rangárhöllin - Miðaverð 5.000 kr.

SUNNUDAGUR - 16.08 11:30

Leikhópurinn Lotta í íþróttahúsinu - Frítt inn! 14:00

Youth Art Studio í þróttahúsinu á Hellu.

TÖÐUGJÖLDIN 11.-16. ÁGÚST 2026


Fannberg

Fasteignasala

Litla lopasjoppan

RY.IS // FACEBOOK.COM/TODUGJOLD


TÖÐUGJALDAMARKAÐUR Töðugjaldamarkaður 15. ágúst í íþróttahúsinu á Hellu kl. 10-16. Handverk af ýmsu tagi, prjónavörur, matvæli, snyrtivörur og fleira. Hlekkur á viðburð: https://fb.me/e/4SOMKn02u

YOUTH ART STUDIO Í ÍÞRÓTTAHÚSINU Á HELLU

16. ÁGÚST KL. 14:00

Á eftir Leikhópnum Lottu verður opið skapandi listasvæði í íþróttahúsinu þar sem börn geta unnið með liti, pappír og fjölbreytt, skemmtileg verkefni. Leiðbeinandi verður á staðnum til að hvetja til sköpunar og hjálpa hugmyndunum að flæða. Öll velkomin. Komið og sköpum saman! Hlekkur á viðburð: https://fb.me/e/24UWuhT8a7

TÖÐUGJÖLDIN 11.-16. ÁGÚST 2026


N! N I T T Í R F

LEIKHÓPURINN LOTTA SUNNUDAGINN 16. ÁGÚST KL. 11:30 Í ÍÞRÓTTAHÚSINU


HÆFILEIKAKEPPNI BARNA Keppt verður í tveimur aldursflokkum: Yngri en 10 ára og 10 ára og eldri. Skráning fer fram í tölvupósti á helga@ry.is.

KL. 12:30 Í ÍÞRÓTTAHÚSINU 15. ÁGÚST

LISTASMIÐJA Í ÍÞRÓTTAHÚSINU Á HELLU

15. ÁGÚST KL. 10-14

Hugverk í heimabyggð býður börnum og ungmennum í listasmiðju undir leiðsögn Guðfinnu Þorvaldsdóttur. Þátttaka er öllum opin og kostar ekkert.

DÝRAEIGENDUR ATHUGIÐ! HÆFILEIKAKEPPNI GÆLUDÝRA Hæfileikakeppni gæludýranna verður í íþróttahúsinu laugardaginn 15. ágúst kl. 13:30. Öll gæludýr velkomin og engin aldurstakmörk á keppendum! Skráning á staðnum.

TÖÐUGJÖLDIN 11.-16. ÁGÚST 2026


Knattspyrnuleikur KFR - Álafoss LAUGARDAGINN 15. ÁGÚST KL. 13:00

Gervigrasvellinum á Hellu Grillaðar pylsur og hamborgarar til sölu

RY.IS // FACEBOOK.COM/TODUGJOLD


MORGUNVERÐUR Í ÍÞRÓTTAHÚSINU Öllum íbúum og gestum er boðið til morgunverðar kl. 10:00 laugardaginn 15. ágúst þar sem fyrirtæki á svæðinu sameinast um að gefa vörur. Þau fyrirtæki sem koma að morgunverðinum eru GK bakarí, Sláturhúsið Hellu, Reykjagarður, Sláturfélag Suðurlands, og Kjörbúðin. Kvennakórinn Ljósbrá sér um að bera morgunverðinn á borð. Harmonikkusveit Suðurlands mun leika fyrir gesti. Umhverfisverðlaun Rangárþings ytra afhent.

TÖÐUGJÖLDIN 11.-16. ÁGÚST 2026


Kæru grannar Við óskum ykkur öllum góðrar skemmtunar á Töðugjöldum 2026 2023


KVÖLDVAKA TÖÐUGJALDA 2025

RY.IS // FACEBOOK.COM/TODUGJOLD


© Töðugjaldabæklingurinn 2026 Útgefandi: Rangárþing ytra Ábyrgð: Markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings ytra Prentun: Svartlist www.ry.is www.facebook.com/todugjold

Rangárþing ytra Fyrir okkur öll!


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Töðugjaldabæklingurinn 2026 by Rangárthing ytra - Issuu