Töðugjöld 2024

Page 1


SJÁUMST Á HELLU 11.-18. ÁGÚST

TÖÐUGJÖLD

Töðugjöldin eru flaggskip hátíða sumarsins í Rangárþingi ytra þar sem fjölskyldan nær og fjær er í aðalhlutverki. Það er ánægjulegt að geta haldið upp á 30 ára afmæli hátíðarinnar og að hún hafi lifað svo góðu lífi í öll þessi ár sem er ekki sjálfgefið. Það ber að þakka fyrir frumkvæðið á sínum tíma að koma hátíðinni á koppinn því þetta framtak hefur vakið athygli á sveitarfélaginu og treyst böndin á milli þeirra sem búa á staðnum, brottfluttra og annarra gesta. Þótt hátíðin hafi gengið í gegnum mismunandi stærðir og þemu þá er það mín tilfinning að núna viljum við hafa hátíðina sem fjölskylduhátíð sem nær sem til flestra aldurshópa en ekki eiginlega útihátíð.

Skipulag og undirbúningur hátíðarinnar eru í öruggum höndum markaðsog kynningafulltrúa sveitarfélagsins í samstarfið við íbúa og markaðs-, menningar og jafnréttismálanefnd. Að mínu mati var það góð ákvörðun að hætta við ákveðna fastmótaða litaskiptingu milli hverfa því það skiptir meira máli að íbúar hafi frelsi um skreytingar sínar en ákveðna liti á þeim. Undirbúningur Töðugjalda á nefnilega að vera gleði og gaman en ekki verða íþyngjandi eða valda áhyggjum fyrir þá sem vilja gera þorpið sitt hátíðlegra. Að því sögðu þá hvet ég alla til að gera umhverfi sitt lítið eitt litskrúðugra og huga að umhverfi húsa og garða sinna.

Dagskrá Töðugjalda er síðan metnaðarfull eins og ávallt og einhverjar breytingar verða gerðar á uppsetningu hennar enda um að gera að prófa sig áfram hvað virkar best. Í fyrra gegndi ég því hlutverki að taka á móti gestum sem íbúi í bláa hverfinu og var það mjög ánægjuleg kvöldstund.

Núna gefst fjölskyldunni vonandi tækifæri til að fara á flakk um þorpið og stinga inn nefi hjá einhverjum sem býður upp á opið hús í tilefni Töðugjalda.

Njótum hátíðarinnar saman og velkomin á Töðugjöld 2024.

G. Valgeirsson sveitarstjóri

GULA HVERFIÐ BÝÐUR Í HEIMSÓKN

Sú hefð hefur skapast að hverfin skiptast á að bjóða heim á föstudagskvöldi Töðugjalda.

Í ár er það gula hverfið sem býður heim.

Norðurhluti græn/appelsínugula hverfisins kemur að skipulagningu Töðugjalda 2024 ásamt markaðs- og kynningarfulltrúa sveitarfélagsins og meðlimum markaðs-, menningar og jafnréttismálanefndar.

Allir íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að skreyta hús og garða í litum hverfisins. Íbúar í dreifbýli eru einnig hvattir til að vera með. Hefðin hefur verið að gulir séu austan Hellu, græn/appelsínugulir vestan Hellu og rauðir í Þykkvabæ en við minnum á að litafrelsi ríkir og öll mega skreyta með eigin nefi.

LITASKIPTING HVERFANNA

HEILSUEFLANDI HVERFAKEPPNI!

HVAÐA HVERFI SAFNAR FLESTUM STIGUM?

- SUNDKEPPNI frá 6.-12. ágúst: Þú syndir

í Sundlauginni á Hellu og skráir metrana fyrir þitt hverfi í afgreiðslunni þegar þú kemur uppúr.

- HLAUPASTIG - safnaðu hlaupastigum fyrir þitt hverfi í Töðugjaldahlaupinu

16. ágúst! 1 mæting = 1 stig - óháð vegalengd sem er hlaupin!

- BÚNINGASTIG! Mættu í búning í 1 km skemmtiskokkið 16. ágúst - búningur = 1 stig fyrir þitt hverfi.

Úrslit verða tilkynnt á kvöldvökunni 17. ágúst.

SUNDLAUGIN Á HELLU

Opnunartími

Mán. - fös.: 6:30 - 21

Lau. og sun.: 10 - 19

DAGSKRÁ TÖÐUGJALDA

SUN-ÞRI - 11-13.08

Kríukroppur

Einverk Birtu Sólveigar Söring Þórisdóttur sýnt í Menningarsalnum á Hellu. Sunnudagur kl. 20, mánudagur kl. 17 og þriðjudagur kl. 20. Miðaverð: 3.500 kr.

MIÐVIKUDAGUR - 14.08

16:00-19:00

Axarkast og bogfimi (fyrir 13-16 ára, árg. 2008-2011)

Með víkingum við Hellana við Hellu - Frítt inn

20:00-22:00

Hellaferð fyrir 20 ára og eldri - Frítt inn

Tónlist og viskíkynning Eimverks - Skráning hjá Caves of Hella

FIMMTUDAGUR - 15.08

17:00

BMX brós sýning í brettagarðinum á Hellu

20:00

Rokkveisla Radda úr Rangárþingi í íþróttahúsinu á Hellu

Miðaverð 4.900 kr. - Miðasala á tix.is/rur

FÖSTUDAGUR - 16. 08

16:00

Töðugjaldahlaupið

20:00

Þorpararölt um gula hverfið

TÖÐUGJÖLDIN 11.-18. ÁGÚST 2024

LAUGARDAGUR - 17.08

10:00-12:00

Morgunmatur og viðburðir

í íþróttahúsinu

- Harmonikkufélag Suðurlands

- Umhverfisverðlaun Rangárþings ytra

- Menningarstyrkur Rangárþings ytra

10:00-14:00

Bílasýning á árbakkanum

DAGSKRÁ Á ÍÞRÓTTAVELLI

12:00-16:00

- Hoppukastalar

- Klifurveggur

- Matarvagnar

- Kassabílakeppni

- Loftboltar

- Hæfileikakeppni barna

- Hæfileikakeppni dýra

- VÆB (kl. 15)

DAGSKRÁ Í ÍÞRÓTTAHÚSI

12:00-16:00

- Markaður

- Hnallþórukeppni

- Legóbyggingakeppni

- Listaverkakeppni

- Ingó Geirdal töframaður (kl. 14), í boði Litlu lopasjoppunnar

16:30

Leiksýning

KVÖLDVAKA VIÐ ÍÞRÓTTAVÖLL

20:00-23:00

- Ávarp sveitarstjóra

- Fríða Hansen kynnir kvöldsins

- Best skreytta húsið

- Happdrætti

- Íþróttamaður og

íþróttakona ársins

- Hverfakeppni

- Sigurvegari söngkeppni eldri

- Skólahljómsveit Helluskóla

- Söngatriði leiklistarnámskeiðs

- Raddir úr Rangárþingi

- Emmsjé Gauti

- Brekkusöngur

- FLOTT

- Flugeldasýning

00:00

Stórdansleikur í íþróttahúsi

Sunnan SEX - Miðaverð 3.000 kr.

SUNNUDAGUR - 18.08

11:30

Leikhópurinn Lotta - Frítt inn

17:00

Hjartans mál - Frítt inn

Tónleikar í Menningarsalnum

TÖÐUGJÖLDIN 11.-18. ÁGÚST 2024

LEIKHÓPURINN LOTTA

SUNNUDAGINN 18. ÁGÚST KL. 11:30 Á ÍÞRÓTTAVELLINUM

HNALLÞÓRUKEPPNI!

BÝR BAKARI Í ÞÉR?

Um leið og markaðurinn fer fram í íþróttahúsinu verður efnt til Hnallþórukeppni!

Þátttaka er öllum opin og koma keppendur með kökuna á markaðinn við opnun hans kl. 12, skrá upplýsingar á þar til gert blað og kakan verður merkt með númeri. Kökuborðið verður vel merkt.

Sérstök dómnefnd úr græn/appelsínugula hverfinu (norður) mun meta hnallþórurnar eftir útliti og bragðgæðum, og velja Hnallþóru Töðugjalda 2024.

Ef eitthvað verður eftir þegar dómnefndin hefur lokið störfum fá gestir á hátíðarsvæði að sjálfsögðu að bragða á tertunum.

Glæsilegir vinningar í boði fyrir þrjú efstu sætin!

LEGOSNILLINGAR ATHUGIÐ!

Legóbyggingakeppni! Keppendur hanna og byggja módel heima (ekki eftir leiðbeiningum).

Móttaka módela verður á markaðnum í íþróttahúsinu frá kl. 12:00–13:00 og þau höfð til sýnis þar til kl. 14:00.

Gæta þarf þess að nafn og aldur þátttakanda fylgi þegar módeli er skilað.

Dómnefnd velur sigurvegara og keppt er í tveimur flokkum; 6 ára og yngri og 7 ára og eldri. Verðlaun verða afhent á útisviðinu á íþróttavellinum kl. 14:45.

TÖÐUGJÖLDIN 11.-18. ÁGÚST 2024

Fasteignasala
Fannberg

LISTAVERKAKEPPNI

Listamenn búa til listaverk heima

- endilega látið hugmyndaflugið njóta sín

Keppt er í fjórum flokkum:

- 0-5 ára

- 6-9 ára

- 10-16 ára

- Eldri en 16 ára

Móttaka listaverka er á markaðnum á milli kl. 12 og 13 og þau verða

þar til sýnis til kl. 14. Dómnefnd velur sigurvegara í hverjum flokki og verðlaun verða veitt á útisviðinu á íþróttavellinum.

HÆFILEIKAKEPPNI BARNANNA VERÐUR Á ÚTISVIÐINU Á ÍÞRÓTTAVELLINUM KL. 12 - SKRÁNING Á STAÐNUM!

DÝRAEIGENDUR ATHUGIÐ!

FEGURÐAR- OG

HÆFILEIKAKEPPNI DÝRANNA

Fegurðar- og hæfileikakeppni dýranna verður á útisviðinu kl. 13.

ÖLL dýr velkomin og engin aldurstakmörk á keppendum! Skráning á staðnum.

TÖÐUGJÖLDIN 11.-18. ÁGÚST 2024

MORGUNVERÐUR Í ÍÞRÓTTAHÚSINU

Öllum íbúum og gestum er boðið til morgunverðar kl. 10:00 þar sem fyrirtæki á svæðinu sameinast um að gefa vörur. Þau fyrirtæki sem koma að morgunverðinum eru GK Bakarí, Reykjagarður, Sláturfélag Suðurlands, Kjörbúðin og Fiskás. Kvennakórinn Ljósbrá sér um að bera morgunverðinn á borð.

Harmonikkusveit

Suðurlands mun spila fyrir gesti. Menningarstyrkur og umhverfisverðlaun Rangárþings ytra afhent.

TÖÐUGJALDAHLAUPIÐ

16. ÁGÚST KL. 16

3 vegalengdir um Hellu og náttúruperlur í nágrenninu. Ræst frá syðri bollanum við árbakkann við Þrúðvang.

Tengill á viðburðinn og nánari upplýsingar: https://www.facebook.com/events/391522850602951

ÁHUGAVERÐIR STAÐIR NÁLÆGT HELLU

ÆGISÍÐUFOSS (3 km)

Virkilega falleg gönguleið liggur með Ytri-Rangá frá Hellu að Ægisíðufossi. Gróður- og fuglalíf er virkilega fjölbreytt við Ytri-Rangá. Einnig er hægt að keyra að fossinum og er þá farið niður Þykkvabæjarveg.

ODDI Á RANGÁRVÖLLUM (10 km)

Oddi er bær og kirkjustaður. Þar hefur verið kirkja síðan í öndverðri kristni. Þar bjó Sæmundur fróði Sigfússon og afkomendur hans eftir hann í tvær aldir og nefndust þeir Oddaverjar. Útsýni af láglendi Rangárvalla er hvergi tignarlegra en af Gammabrekku í Odda.

LAUGALAND (14 km)

Á Laugalandi er frábær sundlaug.

ÞYKKVIBÆR (17 km)

Þykkvibær er elsta sveitaþorp á Íslandi. Þykkvibær er nú þekktur fyrir kartöflurækt og er ferðaþjónusta að byggjast þar upp. Sjósókn var í aldaraðir mikilvægur þáttur í sögu Þykkvabæjar og má rekja þéttbýlismyndunina til sjósóknar.

KELDUR (20 km)

Á Keldum á Rangárvöllum er einstök heild bæjar- og útihúsa frá fyrri tíð. Bæjarhúsin eru af elstu varðveittu gerð torfhúsa, þar sem framhús beggja vegna bæjardyra snúa langhlið að hlaði. Þetta svipmót hefur haldist allt frá miðöldum.

ÞJÓFAFOSS (50 km)

Þjófafoss er staðsettur í Þjórsá austan megin við Merkurhraun í suðurhluta landsins, fyrir ofan hann stendur fjallið Búrfell. Til að nálgast fossinn þarf að keyra eftir malarvegi og er hann fær öllum bílum að sumarlagi.

FOSSABREKKUR (50 km)

Upptök Ytri-Rangár. Aðgengileg náttúruperla rétt fyrir ofan Rjúpnavelli.

*Vegalengdir innan sviga eru fjarlægðir frá Hellu.

Kæru grannar

Við óskum ykkur öllum góðrar

skemmtunar á Töðugjöldum 2024

© Töðugjaldabæklingurinn 2024

Útgefandi: Rangárþing ytra

Ábyrgð: Markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings ytra

Prentun: Svartlist

www.ry.is www.facebook.com/todugjold

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Töðugjöld 2024 by Rangárthing ytra - Issuu