Búkolla 11. - 17. nóvember · 25. árg. 45. tbl. 2021
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16
Landbúnaður og umhverfi á Suðurlandi Nýir tímar, nýjar áskoranir, ný tækifæri
Þann 18. nóvember 2021 munu Rótarýklúbbur Rangæinga og Landgræðslan efna til málþingsins Landbúnaður og umhverfi á Suðurlandi – nýir tímar, nýjar áskoranir, ný tækifæri. Þingið verður haldið í Gunnarsholti og hefst kl 13 og lýkur kl 17. Á þinginu verður fjallað um hvernig unnt sé að draga úr umhverfisáhrifum sunnlensks landbúnaðar, sjálfbærni í landbúnaði, bætta nýtingu lífræns úrgangs, eflingu innlendrar fóðuröflunar og hvernig landbúnaðurinn getur tekist á við nýjar áskoranir á tímum loftslagsbreytinga. Þingið er öllum opið. Kl. 13:00 Forseti Rótarýklúbbs Rangæinga setur málþingið Sigurlín Sveinbjarnardóttir - 13:10 Ávarp - Umhverfis- og auðlindaráðherra (óvíst) - 13:25 Sjálfbær landnýting Björn H. Barkarson, UAR - 13:45 Bændasamtökin – Landbúnaður á tímum loftlagsbreytinga Gunnar Þorgeirsson, formaður BÍ - 14:00 Loftslagsvænni landbúnaður Borgar Páll Bragason, RML - 14:15 Syndaflausnir í kolefnisbúskap Stefán Gíslason, framkvstj. UMÍS ehf - 14:30 Kolefnið fýkur burt! Ólafur Arnalds, prófessor
- 14:45 Grólind -sjálfbær nýting sunnlenskra afrétta - Bryndís Marteinsdóttir, Jóhann Helgi Stefánsson, Rán Finnsdóttir, Lgr - 15:00 Bændur kolefnisjafni sinn rekstur Ólafur Eggertsson, bóndi - 15:15 Breyttar heyverkunaraðferðir Finnbogi Magnússon, framkvæmdastjóri - 15:30 Kaffihlé - 15:45 Lífræn efni í landbúnaði Magnús H. Jóhannsson, Lgr - 16:00 Kornræktin – framtíðarmöguleikar Björgvin Þór Harðarson, bóndi - 16:15 Garðyrkjan - framtíðarmöguleikar Guðríður Helgadóttir - 16:30 Umræður - 16:50 Samantekt og fundarslit Árni Bragason, landgræðslustjóri