Búkolla 22. - 28. nóvemb. · 22. árg. 45. tbl. 2018
Prentsmiðjan Svartlist svartlist@simnet.is Sími 487 5551
í Rangárþingi eystra Kveikt verður á ljósum jólatrésins við Landsbankann á Hvolsvelli þriðjudaginn 27. nóvember, klukkan 16:30 Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra, flytur stutt ávarp Barnakór Hvolsskóla syngur nokkur jólalög og heyrst hefur að jólasveinar séu spenntir að kíkja í heimsókn. Landsbankinn býður upp á jólanammi. Sveitabúðin Una verður með kaffi og kakó sölu. Sveitarfélagið hvetur fyrirtæki og stofnanir til að kveikja á sínum jólaljósum á sama tíma.
Sjáumst í jólaskapi Rangárþing eystra