Búkolla 24. - 30. október - 23. árg. 41. tbl. 2019
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16
Hið árlega og vinsæla KÓTILETTUKVÖLD Karlakórs Rangæinga
fer fram í Íþróttahúsinu á Hellu, föstudagskvöldið 1. nóvember og hefst kl. 20:00. Á borðum verða lambakótilettur í raspi með öllu tilheyrandi meðlæti og léttri skemmtun.
Allir hjartanlega velkomnir, konur sem karlar, í smáum sem stórum hópum.
Aðgangseyrir er 5000 kr. Miðasala er við innganginn frá kl. 19:00 en til að vera viss um að nóg framboð sé á sætum eru gestir vinsamlegast beðnir að panta sér sæti og skrá sig hjá einhverjum undirritaðra, fyrir fimmtudaginn, 31. október. Baldur Ólafsson s: 899 3380. Úlfar Albertsson s: 899 1167 Þorbergur Albertsson s: 775 4216