Búkolla 10. - 16. október - 23. árg. 39. tbl. 2019
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16
DAGUR SAUÐKINDARINNAR Í reiðhöllinni á Rangárbökkum við Hellu, laugardaginn 12. október kl. 13:00 til 16:00 Þeir sem koma með lömb til dóms, þurfa að vera komnir með þau á staðinn kl. 10:00 Fjáreigendur milli Þjórsár og Markarfljóts geta komið með allt að 10 kindur á sýninguna og er fjölbreytni í litum æskileg. Efstu lambhrútar úr heimasýningum verða boðaðir og þeir dæmdir upp á nýtt og verðlaunaðir. Koma má með 1 - 3 ódæmda hrúta. Keppt um fallegustu gimbrina. Eigendur geta skráð 1 - 3 gimbrar. Lágmark 32 í bakvöðva og 18,5 fyrir læri. Þær verða dæmdar að nýju og verðlaunaðar. Koma má með 1 - 3 ódæmdar gimbrar til dóms. Kollóttum og hyrndum hrútum og gimbrum verður raðað í sitt hvoru lagi.
Verðlaun veitt fyrir ræktunarbú ársins 2018 og efstu 5 vetra á sýslunnar. Þykkasta kótilettan (þykkasti bakvöðvinn) á sýningunni verðlaunuð. Veturgamall hrútur sem kom best út í kjötmati á síðasta ári fær verðlaun. Kjötsúpa í boði SS og vinsæla happdrættið ásamt veitingasölu í fjáröflunarskyni verður á staðnum. Einnig verða nokkrir aðilar með vörur til sölu á markaðsborðum. Gestir kjósa litfegursta lambið. Börnum er boðið að koma með fallega skreytt lamb (kind) og gestir munu kjósa um hver sé best skreytt.
Upplýsingar og skráning hjá Lovísu í síma 868-2539