Búkolla
Prentsmiðjan Svartlist svartlist@simnet.is
6. - 12. september · 22. árg. 35. tbl. 2018
Sími 487 5551
Fullveldið og hlíðin fríða Fyrirlestraröðinni að Kvoslæk í Fljótshlíð í tilefni fullveldisafmælisins lýkur laugardaginn 8. september klukkan 15.00 með fyrirlestri Gunnars Þórs Bjarnasonar sagnfræðings um Tómas Sæmundsson, sjálfstæðisbaráttuna og fullveldið 1918. Kaffiveitingar.
Plastlaus september! Umhverfisnefnd Rangárþings ytra hvetur alla til þess að taka þátt í árverkniátakinu plastlaus september! Tilgangur verkefnisins er að vekja fólk til umhugsunar um plastnotkun og þann plastúrgang sem fellur til dagsdaglega og leita leiða til að minnka plastnotkun. Gríðarlegt magn af einnota plasti endar í landfyllingum og í hafinu sem er mikið áhyggjuefni. Allt plast sem hefur verið framleitt er enn til, það brotnar niður í smærri einingar en eyðist ekki. Plastlaus september hvetur okkur til að kaupa minna af einnota plasti í september. Við getum valið hvort við tökum þátt í einn dag, eina viku, heilan mánuð eða til frambúðar. Allar nánari upplýsingar á www.plastlausseptember.is Umhverfisnefnd Rangárþingi ytra