Búkolla 27. ágúst - 1. sept. · 24. árg. 34. tbl. 2020
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16
Auglýst eftir umsóknum í Menningarsjóð Rangárþings eystra. Rangárþing eystra auglýsir eftir umsóknum í Menningarsjóð Rangárþings eystra fyrir haust úthlutun 2020 sbr. reglur um úthlutun styrkja úr sjóðnum. Styrkupphæðin verður samkvæmt fjárhagsáætlun hvers árs. Umsækjendur um styrk úr Menningarsjóði Rangárþings eystra geta verið lögráða einstaklingar, félagasamtök, stofnanir eða fyrirtæki sem koma að menningarviðburðum í sveitarfélaginu. Umsækjendur með lögheimili í Rangárþingi eystra geta einnig sótt um styrk þó verkefnið fari fram utan sveitarfélagsins. Með umsókninni verður að fylgja: - Lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímaramma. - Fjárhagsáætlun. - Tilskilin leyfi fyrir framkvæmdinni, ef við á. - Upplýsingar um umsóknaraðila. Ekki eru veittir ferðastyrkir eða rekstrar-, stofnkostnaðar- eða endurbóta styrkir. Sveitarstjórn Rangárþings eystra tekur ákvörðun um úthlutun styrkja samkvæmt fyrirliggjandi umsóknum að fengnu áliti menningarnefndar Rangárþings eystra. Umsóknum á að skila á eyðublaði sem finna má á https://www. hvolsvollur.is/is/mannlif/menning/menningarsjodur-rangarthings-eystra eða á skrifstofu Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur, merkt Menningarsjóður Rangárþings eystra fyrir 11. september 2020.