Búkolla 12. - 18. ágúst 2021

Page 1

Búkolla 12. - 18. ágúst · 25. árg. 32. tbl. 2021

Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16

Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi Breyting á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 Breyting á þéttbýlisuppdrætti í Vík Sveitarstjórn Mýrdalshrepps samþykkti á fundi sínum 16. júní 2021 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér að afmörkun fyrir opið svæði H (Hesthúsasvæði) er færð til innan opins svæðis G (Golfvallar) og stækkuð. Um óverulega breytingu er að ræða þar sem svæðið sem um ræðir er í dag allt skilgreint sem opið svæði til sérstakra nota G og H og er ekki alveg ljóst hvar afmörkun fyrir golfvöll er. Hesthúsasvæði er fært lítillega til austurs til að skera ekki í sundur golfvöll en þetta er óbyggt framtíðarsvæði fyrir hesthús, reiðhöll og skeiðvöll. Hesthúsasvæðið er stækkað úr 39.500 m2 í 92.973 m2. Skipulagið hefur verið sent Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga um aðal- og deiliskipulagsbreytinguna og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skipulags- eða byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps. f.h. Sveitarstjórnar Mýrdalshrepps George Frumuselu skipulags- og byggingarfulltrúi


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.