Búkolla 14. – 20. janúar · 25. árg. 2. tbl. 2021
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16
Íbúafundur um skipulagsmál ATH!! Ný dagsetning! Þriðjudaginn 19. janúar kl. 20:00 fer fram íbúafundur um skipulagsmál í Rangárþingi ytra. Meðal þess sem kynnt verður er tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjarsvæðisins á Hellu, ný staðsetning á leiksvæðum og yfirferð á öðrum skipulagsmálum sem í ferli eru. Hægt er að nálgast upplýsingar um þau skipulagsáform sem fjalla á um á fundinum á heimasíðu sveitarfélagsins (www.ry.is) undir Stjórnsýsla/Skipulagsmál/Skipulagsmál til kynningar. Fundurinn fer fram í gegnum ZOOM fjarfundakerfi þar sem íbúar geta tekið beinan þátt en verður jafnframt streymt beint í gegnum Facebook síðu sveitarfélagsins. Skráning fyrir fjarfund fer fram á heimasíðu sveitarfélagsins (www.ry.is). Við hvetjum íbúa til þess að láta sig málið varða og taka þátt í fundinum. Fyrir hönd Skipulags- og umferðarnefndar Rangárþings ytra, Birgir Haraldsson