1 minute read

þú hund og býrð í þéttbýli Rangárþingi ytra?

Af gefnu tilefni er þeim tilmælum hér með beint til eigenda hunda og katta, að í gildi er samþykkt nr. 632/2012 um hunda- og kattahald í Rangárþingi ytra.

Eigendur/umráðamenn eru hvattir til að kynna sér vel efni samþykktarinnar sem er aðgengileg á heimasíðu Rangárþings ytra www.ry.is og fara í einu og öllu að ákvæðum hennar svo forðast megi óþægindi og kostnað sem leiðir af brotum.

Sérstaklega er minnt á eftirfarandi:

• Hundahald er bannað í Rangárþingi ytra að undanteknum þarfahundum á lögbýlum og hundum sem notaðir eru til leitar og björgunarstarfa, svo og hjálparhundum blindra og fatlaðra. Undanþágur til hundahalds sæta þeim takmörkunum sem settar eru í samþykkt nr. 632/2012 um hunda- og kattahald í Rangárþingi ytra. Í þéttbýli eru veittar undanþágur að undangenginni skráningu.

• Sveitarstjórn, eða umboðsaðila hennar, er heimilt að veita lögráða einstaklingi, sem lögheimili á í sveitarfélaginu leyfi til hundahalds með skilyrðum.

• Óheimilt er með öllu að láta hund ganga lausan innan marka þéttbýlis og á beitilöndum búfjár nema nytjahund þegar hann er að störfum í gæslu eiganda eða umráðamanns. Hundur skal annars ávallt vera í taumi utanhúss og í fylgd manneskju sem hefur fullt vald yfir honum. Þegar hundur er í festi á lóð skal lengd festarinnar við það miðuð að óhindrað megi ganga að aðaldyrum hússins. Hundeiganda er alltaf skylt að fjarlægja saur eftir hundinn.

Starfsmenn þjónustumiðstöðvar fara með eftirlit og framkvæmd samþykktarinnar sbr. iii kafla 15. gr. og er skylt að bregðast við öllum kvörtunum sem berast um óskráða hunda og ketti og lausagöngu þeirra.

Skráning hunda og katta fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins.

Búast má við hertum aðgerðum í kjölfar þessarar tilkynningar vegna síendurtekinna kvartana sem berast Þjónustumiðstöð.

Forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar Rangárþings ytra, Tómas Haukur Tómasson

Skoðunarstöðin á Hvolsvelli

Skoðunardagar í júlí

3. júlí.

5. til 14. júlí. Næst. 14. ágúst

Sími 570 9211

- þegar vel er skoðað

-

Félags- og skólaþjónusta

Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu óskar eftir að ráða starfsmann á Hellu

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir eftir starfsmanni í tímavinnu til að sinna stoðþjónustu virka daga og um helgar. Starfið felst í aðstoð við daglegt líf og félagslegan stuðning.

Leitað er að einstaklingum sem búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum, eru ábyrgir og traustir, sýna frumkvæði í starfi og geta unnið sjálfstætt og hafa gaman af að vinna með fólki. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Laun eru samkvæmt kjarasamningum FOSS og VLFS.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þóra Jónsdóttir, Ráðgjafi félagsþjónustu fatlaðra í síma 487-8113 eða thora@felagsmal.is

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþingi ytra

This article is from: