Búkolla 26. júlí - 1. ágúst 2018

Page 1

Búkolla

Prentsmiðjan Svartlist

26. júlí - 1. ágúst · 22. árg. 29. tbl. 2018

svartlist@simnet.is Sími 487 5551

RÁÐSKONA ÓSKAST Í SVEIT Ráðskona óskast í sveit fyrir austan Hvolsvöll til að sjá um heimili og aðhlynningu. Þarf að hafa bílpróf og geta eldað mat og haldið heimilinu þrifalegu. Reglusemi og heiðarleiki skilyrði og meðmæli æskileg. Fær bíl til umráða, herbergi í nýlegu húsi og góð laun. Tengiliður og upplýsingar í síma 893-0250, Halldór.

Félag eldri borgara Rangárvallasýslu

Ágústferð

Fimmtudaginn 16. ágúst 2018 förum við inn Rangárvallaafrétt og fram Fljótshlíðarafrétt. Lagt verður á stað frá Landvegamótum kl. 9:00 síðan planið Hellu, Kirkjuhvoll og Hlíðarendi og þaðan ekið upp hjá Keldum. Nesti verðum við að hafa með okkur það verður borðað í skálanum í Hungurfit, þar er hægt að kaupa kaffi fyrir þá sem vilja. Sameiginlegur kvöldverður verður í Smáratúni. Verð fyrir rútu og kvöldverð er kr. 12.000,-. Einar Magnússon verður leiðsögumaður og ef það verða 2 rútur verður tenging milli bílanna. Pantanir verða að berast fyrir 11. ágúst 2018 til Þórunnar sími 487-5922 eða 892-5923. Mætum sem flest og eigum góðan dag saman Stjórnin.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.