5. - 11. júlí 2018

Page 1

Búkolla 5. - 11. júlí · 22. árg. 26. tbl. 2018

Prentsmiðjan Svartlist svartlist@simnet.is Sími 487 5551

Viltu taka þátt í að móta húsnæðisáætlun fyrir Rangárþing eystra? Hvað er húsnæðisáætlun? Meginmarkmið húsnæðisáætlunar er að stuðla að auknu húsnæðisöryggi heimila í sveitarfélaginu. Í húsnæðisáætlun er dregin fram mynd af því hver staða húsnæðismála í sveitarfélaginu er í dag, framboð og eftirspurn eftir margvíslegum húsnæðisformum er greint og áætlun sett fram um hvernig sveitarfélagið ætlar að mæta húsnæðisþörf heimila, bæði til skemmri og lengri tíma. Hvers vegna að taka þátt? Það vita fáir betur en íbúarnir hvernig þau vilja og hentar að búa, hvers lags húsnæði skortir og hvað mætti betur fara í tilteknu samfélagi. Það felst mikill styrkur í því að íbúar taki þátt í og stýri skipulagi síns nánasta umhverfis. Því meira vald sem fólkið hefur, því blómlegra samfélag. Hvernig tek ég þátt? Með samtali við ritara áætlunarinnar. Samtalið getur átt sér stað við ýmsar aðstæður, t.d. yfir kaffibolla í heimahúsum, á vinnustað, á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, í sundi, í síma, í gegnum tölvupóst eða á þann hátt sem hentar þér best. Einnig verður send út viðhorfskönnun í pósti. Miðað er við að ljúka fyrstu drögum í lok sumars og verður hún kynnt á íbúafundi í september. f.h. skipulags- og byggingarfulltrúa Elínborg Harpa Önundardóttir Sími: 845-9347 Tölvupóstur: elinborgharpa@hvolsvollur.is Ormsvelli 1, 860 Hvolsvelli


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.