Búkolla 9. - 15. júní 2022

Page 1

Búkolla 9. - 15. júní · 26. árg. 23. tbl. 2022

Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16

Gleðistundir að Kvoslæk 2022

Viðburðir í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð sumarið 2022 Sunnudaginn 26. júní 2022 kl. 15.00

Íslenskar söngperlur mæta barokki og rómantík

Tríóið Margrét Stefánsdóttir, Jóhann I. Stefánsson og Jón Bjarnason flytja íslensk og erlend verk fyrir sópran, trompet og píanó.

Laugardaginn 16. júlí 2022 kl. 15.00

Hver var Ámundi smiður?

Arndís S. Árnadóttir listfræðingur fjallar um Ámunda smið, sem á 18. öld smíðaði 22 kirkjur víða um land og ótal kirkjumuni sem enn má finna í kirkjum á Suðurlandi, m.a. í Odda.

Laugardaginn 13. ágúst 2022 kl. 15.00 Mótun lands við Markarfljót

Jóhann Ísak Pétursson jarðfræðingur segir frá náttúru landsins í nálægð Markarfljóts.

Sunnudaginn 28. ágúst 2022 kl. 15.00

Dagstund með Schubert og Brahms

Rut og vinir hennar, Aðalheiður, Þóra Sigurborg, Einar, Richard, Svava, Sigurður og Richard flytja hugljúfa tónlist: Zwei Gesänge op. 91 eftir Johannes Brahms, Der Hirt auf dem Felzen og Silungakvintettinn eftir Franz Schubert.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.