Búkolla 7. - 13. júní · 22. árg. 22. tbl. 2018
Prentsmiðjan Svartlist svartlist@simnet.is Sími 487 5551
Landgræðsla ríkisins
Laust starf yfirmatráðs í Gunnarsholti Starfssvið Landgræðsla ríkisins óskar eftir að ráða yfirmatráð við mötuneyti stofnunarinnar í Gunnarsholti. Starfið felst í matseld, framreiðslu, innkaupum, þrifum o.fl. Mötuneytið er nýlega endurnýjað og aðstaða til matseldar mjög góð. Þekking og hæfni Starfsmaður þarf að hafa góða þekkingu eða reynslu á matreiðslu og næringarviðmiðum. Starfsmaður þarf að sýna ábyrgð, skipulagshæfni, frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum, góða samskiptahæfni, þjónustulund, sveigjanleika, ásamt stundvísi og snyrtimennsku. Um er að ræða 50-80% starf, eða skv. samkomulagi, sem hentar hvort sem er konum eða körlum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Fjármálaráðherra f.h. ríkisins við viðkomandi stéttarfélag. Umsóknarfrestur er til 30. júní næstkomandi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. september 2018. Umsókn skal fylla út og senda rafrænt á heimasíðu Landgræðslunnar land.is, http://land.is/storf-i-bodi/. Einnig má senda umsókn til Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella. Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg B. Ólafsdóttir starfsmannastjóri, í síma 488 3000 eða á netfangið sigurbjorg@land.is og Hulda Karlsdóttir, fjármálastjóri í síma 488 3030 eða á netfangið hulda@land.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landgræðslan áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Landgræðsla ríkisins er þekkingar- og þjónustustofnun. Markmið hennar eru verndun gróðurs og jarðvegs og bætt landgæði. Stofnunin starfar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 17/1965 og lögum um varnir gegn landbroti nr. 91/2002. Höfuð¬stöðvar Landgræðslunnar eru í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Landgræðslustjóri situr í Gunnarsholti og þar er aðsetur landverndarsviðs, þróunarsviðs og skrifstofu fjármála og rekstrar. Héraðssetur eru staðsett í Gunnarsholti, á Egilsstöðum, Húsavík, Sauðárkróki, Hvanneyri og í Reykjavík.
Skoðið Búkollu á hvolsvollur.is eða ry.is á þriðjudögum