Búkolla 26. maí - 1. júní · 26. árg. 21. tbl. 2022
Viðskiptaþjónusta Suðurlands og Tryggingamiðstöðin Ormsvelli 7, Hvolsvelli Sími 487-8688 Opið mán-föst. 9-12 og 13-16
Ársfundur Landgræðslunnar 2022
ÁRATUGUR ENDURHEIMTAR VISTKERFA HVERNIG MIÐAR? Ársfundur Landgræðslunnar verður haldinn föstudaginn 27. maí kl 14:30. Fundurinn verður haldinn í Sagnagarði Gunnarsholti en einnig verður hægt að fylgjast með í gegnum streymi (sjá: www.land.is).
DAGSKRÁ Ávarp matvælaráðherra, Svandísar Svavarsdóttur Ávarp landgræðslustjóra, Árna Bragasonar Hlutverk vistheimtar á 21. öld Kristín Svavarsdóttir, faglegur teymisstjóri verndar og endurheimtar
Það skiptir öllu að vanda til verka Sunna Áskelsdóttir, sérfræðingur í vöktun og endurheimt votlendis
Afhending landgræðsluverðlauna Kaffiveitingar í boði Landgræðslunnar
Opið hús frá 13.30 Fyrir fundinn verður opið hús í Gunnarsholti frá kl 13:30. Farið verður með gesti um húsakynni Frægarðs og sagt frá helstu verkefnum Landgræðslunnar.