Búkolla
Prentsmiðjan Svartlist
24. - 30. maí · 22. árg. 20. tbl. 2018
svartlist@simnet.is Sími 487 5551
Ágætu íbúar í Rangárþingi eystra! Næstkomandi laugardag, 26. maí verður kosið til sveitarstjórnar og treystum við á stuðning kjósenda í Rangárþingi eystra. Við höfum lagt fram stefnuskrá okkar og erum staðráðin í að koma stefnumálum okkar í verk á komandi kjörtímabili. Við munum vinna að heilindum að bættum hag íbúa sveitarfélagsins. Við minnum á sameiginlegan fund frambjóðenda í Hvolnum 23. maí kl. 20:00 og viljum við hvetja sem flesta íbúa sveitarfélagsins til að mæta. Fimmtudagskvöldið 24. maí klukkan 20:00 ætla Fjölnismenn, ungir sjálfstæðismenn Rangárvallasýslu að vera á kosningaskrifstofunni að Austurvegi 15 ásamt frambjóðendum. Fáum okkur pizzu og öl og spjöllum saman um hin ýmsu málefni. Kosningahátíð D-lista Sjálfstæðismanna og annarra lýðræðissinna verður í Kötlu Mathús, sama hús og Lava Centre að kvöldi kosningadags og hefst kl. 21:30 Hlökkum til að sjá ykkur! Einnig viljum við minna á kosningaskrifstofuna okkar en hún verður opin á þriðjudaginn og miðvikudaginn frá klukkan 14:00 - 20:00. Fimmtudaginn og föstudaginn frá klukkan 14:00 - 23:00. Og svo á laugardaginn frá klukkan 10:00 - 18:00. Setjum x við D á kjördag.